Tígull 13. tbl 07. árg.

Page 1


13. tbl. 07. árg. 8. - 14. maí 2025

MEÐAL EFNIS:

FRÁBÆR ÁRANGUR YNGRI FLOKKA

5. flokkur kvenna eldri léku síðasta móti tímabilsins um helgina og þar náðu þær sér í silfur og þar með tryggðu þær sér bronsið á íslandsmeistaramótinu undir styrkri handleiðslu þjálfara sinna Gísla Steinars Jónssonar og Magnúsar Stefánssonar. Innilega til hamingju stelpur.

6. flokkur karla kláraði einnig sitt síðasta mót á tímabilinu sem þeir unnu með nokkrum yfirburðum og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitilinn undir styrkri handleiðslu þjálfara síns Dóru Sif Egilsdóttur hefur liðið aðeins tapað einum leik á tímabilinu. Henni til aðstoðar voru Petar Jokanovic, Pavel Miskevich, Morgan Goði Garner og Þorlákur Sigurbjörn Sigurjónsson. 4 deildarmeistaratitlar, bikarmeistarar og Íslandsmeistarar.

TÍGULL

DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

ÚTGÁFA:

Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

ELÓ BÆJARLISTAMAÐUR VESTMANNAEYJA 2025

Þann 1. maí var Bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2025 tilkynntur við formlega athöfn í Eldheimum en það er hún Elísabet Guðnadóttir, eða Eló eins og hún kallar sig sem er Bæjarlistamaður ársins.

Elísabet Guðnadóttir fæddist í Vestmannaeyjum árið 1999 og ólst þar upp umvafin tónlistarlífi fjölskyldu sinnar. Hún lærði á hljóðfæri í tónlistarskólanum og var í skólalúðrasveitinni.

Elísabet hefur komið víða við til að sækja sér innblástur í tónlistinni, fór meðal annars í skóla í Sydney í Ástralíu þar sem áhugi hennar á lagasmíði og pródúseringu fæddist. Þaðan fór hún svo til Reykjavíkur og stundaði söngnám í tónlistarskóla FÍH.

Vorið 2024 steig Elísabet, Eló, hressilega út fyrir þægindarammann og tók þátt í Músíktilraunum þar sem hún hlaut annað sæti, ásamt því að hljóta verðlaun frá félagi tónskálda og textahöfunda fyrir framúrskarandi lagasmíði. Síðan þá hefur Eló spilað fyrir fjölda manns á stórum og litlum tónleikum á ýmsum sviðum, á Hljómey, á stóra sviðinu á Þjóðhátíð, í Háskólabíó þar sem hún hitaði upp fyrir Ásgeir Trausta, á Airwaves, í Hörpu á eyjatónleikum í Eldborg og í Upprásinni í Kaldalóni, í Færeyjum, og á árshátíðum, í veislum, jólatónleikum og við ýmis önnur tilefni.

Eló hefur gefið út þrjú lög sem er hægt að hlusta á á öllum streymisveitum. Hún er núna að vinna í breiðskífu sem hún hlakkar mikið til að deila með hlustendum sínum.

Hvernig er tilfinningin að vera valin bæjarlistamaður Vestmannaeyja?

Mjög góð tilfinning! Mjög gaman að fá viðurkenningu og finna að öll vinnan sem ég hef gert bakvið tjöldin og allt sem ég hef sett í listina er að skila góðum og sýnilegum árangri.

Áttir þú von á þessu?

Ég átti ekki von á þessu, er ótrúlega þakklát fyrir að hafa verið fyrir valinu sem bæjarlistamaður Vestmannaeyja, það er huge í mínum augum.

Hvaðan færðu innblástur fyrir tónlistina?

Oftast fæ ég innblástur bara frá daglegum athöfnum,

mistökum, draumum, hvað hefði geta gerast og svo framvegis. Oftast dugir til að setjast niður með góðan kaffibolla og byrja að skrifa texta og glamra eitthvað á gítarinn, eða bara fara í göngutúr í náttúrunni.

Hvað er framundan hjá þér?

Framundan hjá mér er bara meira spilerí og að halda áfram að vinna í plötunni minni sem ég gef vonandi út á meðan ég dreg andann.

Skemmtilegasta giggið sem þú hefur tekið þátt í?

Skemmtilegasra giggið sem ég hef tekið þátt í er örugglega þegar ég spilaði á Upprásinni í Hörpu. Ég tók öll uppáhalds lögin mín sem ég hef samið fyrir fullum sal af fólki sem ég bæði þekkti og þekkti ekki neitt. Svo er ég svo heppin að hafa góða vini að sem eru tilbúnir að spila með mér, meðal annars bróður mínum, Hjálmari Carli, sem á stóran þátt í því að ég nældi í þennan skemmtilega titil sem bæjarlistamaður. Hann hefur hvatt mig áfram frá byrjun og spilað með mér ótal mörgum sinnum og hjálpað mér að taka upp. Hann er stórkostlegur listamaður sjálfur.

Hvað stóð mest upp úr í Ástralíu?

Að synda í volgum sjónum, ég vildi að sjórinn á Íslandi væri volgur. En svo er kaffið í Ástralíu líka algjört sælgæti.

Ef þú gætir spilað á hvaða hljóðfæri sem er af fingrum fram – hvaða eitt myndirðu velja?

Ég vildi að ég gæti spilað á trommur. Það er svo ógeðslega nett að spila á trommur.

Hver er drauma staðurinn þinn að vera með tónleika?

Vá um, ég eiginlega veit það ekki. Mér finnst KFUM húsið í Vestmannaeyjum ótrúlega heillandi tónleikastaður. Annars væri kúl að hafa tónleika á hvítri strönd einhversstaðar við sólsetur.

Hvaða tónlistarmaður (lifandi eða látinn) myndirðu vilja eyða einum degi með í stúdíóinu – og hvernig tónlist mynduð þið gera?

Ég myndi vilja gera tónlist með Pheobe Bridgers og við myndum gera bílskúrarokk saman.

Áttu einhverja tónlist sem þú hlustar á sem enginn myndi halda að þú fílaðir? Ég tek tímabil þar sem ég hlusta soldið á heavy metal, það gæti komið fólki á óvart.

Ef þú fengir að setja upp tónlistarhátíð með bara þremur listamönnum – hverjir yrðu á sviði með þér?

Ég myndi örugglega velja Júníus Meyvant og Ásgeir. Ég lít mikið upp til þeirra beggja og ég held að hlustendahópurinn okkar myndi vera frekar svipaður. Sú tónlistarhátíð væri góð fyrir sálina.

Hvaða textabrot úr eigin lagi ert þú stoltust af – og af hverju?

Litir allsstaðar tómið hvergi þar stjörnur um bjartan dag skína samt Fossar og gleðitár fjölmörg sældarár hendur haldast þar í sátt

Þetta er viðlagið í “upp til skýja”. Ég er mjög stolt af þessum texta því hann er eins og vonarneisti sem er sprottinn uppúr mjög átakanlegri og sorgarþrunginni tíð úr lífi fjölskyldu minnar þegar litli frændi minn, Dagbjartur Nói dó. Ég hafði samið lagið löngu áður, en svo kom þessi texti til mín þegar ég var að skoða málverk sem ég hafði málað á erfiðasta tímanum. Þetta á ekki að vera sorglegur texti, meira svona lítil ljóstýra inni hjartað.

FJÖLMENNASTA UTANVEGAHLAUP SEM FRAM HEFUR FARIÐ Á ÍSLANDI

Það var rjómablíða þegar The Puffin Run fór fram í gær laugardag. Þetta var í áttunda sinn sem hlaupið fór fram og var metþátttaka, 1334 keppendur hlupu.

Andrea Kolbeinsdóttir sigraði í kvennaflokki fjórða árið í röð á tímanum 1:27:52. Það er sami tími og hún hljóp á í fyrra. Í öðru sæti var Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir á 1:33:28 og Steinunn Lilja Pétursdóttir þriðja á 1:33:36.

Hlynur Andrésson sigraði í karlaflokki á 1:14:56 og setti brautarmet. Hlynur, sem er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, var að keppa í The Puffin Run í fyrsta sinn. Hann er einn besti götuhlaupari landsins. Tveir fyrrum sigurvegarar í hlaupinu voru í næstu tveimur sætum. Þorsteinn Roy Jóhannsson, sem sigraði 2021, kom annar í mark á 1:15:56 og sigurvegari síðustu þriggja ára, Arnar Pétursson, var þriðji á 1:16:46.

Það var mikil gleðistemmning á þessu fjölmennasta utanvegarhlaupi sem fram hefur farið á Íslandi. Þátttakendur voru mættir með jákvæðni að vopni til að takast á við þessa erfiðu og fallegu leið. Eftir hlaupið söfnuðust þeir saman á Vigtartorg og deildu reynslusögum. Aðstandendur hlaupsins vilja koma á framfæri þakklæti til allra sem tóku þátt og þeirra fjölmörgu sem störfuðu við hlaupið. Saman gerðum við þennan dag skemmtilegan.

Við Rásmarkið.
Sindri Georgsson.
Hlynur og Þorsteinn Roy.
Henný.
Frábær
Gunnar Heiðar og Bjarný.
Sigmar Þröstur, Nonni, Kata Laufey og Frikki.
Björvin, Henný og vinir.
Björgvin.
Jóhanna, Laufey og Berta. Halldór Ingi.
Magnús, Sindri og Birgir. Daði Magnússon.
Sif Alexandra og Ari Leif.

Nýsmíði

Gólfhitafræsing

Gólfhitalögn

Kjarnaborun

Pallasmíði

Þakvinna

Innréttingar

Utanhúsklæðningar

aglverktakar@gmail.com // 768 5228

Starfsemi LSV á árinu 2024

Ársfundur LSV verður haldinn 14. maí n.k. kl. 16.00 í fundarsal sjóðsins.

lsv is Skólavegur 2, 900 Vestmannaeyjar +354 481 1008

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

tréverk utanhúss.

GERÐU FÍNT FYRIR SUMARIÐ!

Steinvari – íslensk varnarlína í útimálningu

viðarvörn sem er gædd veðurfar. - það segir sig sjálft -

Steinvari er ö ug varnarlína gegn íslensku veðri, afrakstur þrotlausra rannsókna og þróunar í áratugi. Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við val á útimálningu. Útimálning fyrir íslenskt veðurfar

Viðarvörn

Viðarvörn

fyrir íslenskar aðstæður

Steinvari – íslensk varnarlína í útimálningu

fyrir íslenskar aðstæður

Notaðu sumarið til að verja viðinn!

afsláttur af Kjörvara & Steinvara

Notaðu sumarið til að verja viðinn!

Þeir sem til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss.

Viðarvörn fyrir íslenskar aðstæður

Þeir sem til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss.

Reynslan hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.

Reynslan hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.

Notaðu sumarið til að verja viðinn!

Þeir sem til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss.

Reynslan hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.

Kjörvari – fyrir íslenskar aðstæður

Kjörvari – fyrir íslenskar aðstæður

-í meistara höndum

Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is

- það segir sig sjálft -
Steinvara

Traustur félagi

í Vestmannaeyjum

NÝ VERSLUN OPNAR Á KLEIFUM 7!

Komdu og fagnaðu með okkur frá kl. 15–18 föstudaginn

23 maí.Léttar veitingar í boði og 20% afsláttur af öllum vörum!

Við hlökkum til að sjá þig!

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.