
12. tbl. 09. árg. 7. - 14. maí 2026 MEÐAL EFNIS:
![]()

12. tbl. 09. árg. 7. - 14. maí 2026 MEÐAL EFNIS:
The Puffin Run fór fram í Vestmannaeyjum laugardaginn 2. maí í góðu veðri og óhætt er að segja að hlaupið hafi enn á ný sýnt hversu einstakur vettvangur Eyjarnar eru fyrir utanvegahlaup. Þótt samgöngur milli lands og Eyja settu strik í reikninginn varð dagurinn sannkölluð hlaupahátíð, þar sem um 500 hlauparar tóku þátt. Upphaflega höfðu rúmlega 1.800 skráð sig, en vegna aðstæðna var mörgum boðið að færa skráningu sína yfir á næsta ár.
Arnar Pétursson kom fyrstur í mark í karlaflokki á tímanum 1:15:10 og vann hlaupið í fjórða sinn. Hann var skammt frá brautarmeti. Þorbergur Jónsson varð annar á 1:16:30 og Sigurjón Ernir Sturluson þriðji á 1:20:20.
Í kvennaflokki hélt Andrea Kolbeinsdóttir áfram einstökum yfirburðum sínum. Hún sigraði í fimmta sinn í röð og bætti eigið brautarmet um rúmar sex mínútur, þegar hún fór hringinn á 1:20:00. Halldóra Huld Ingvarsdóttir varð önnur á 1:25:22, næstbesta tíma í níu ára sögu hlaupsins, og Elísa Kristinsdóttir þriðja á 1:27:03.
The Puffin Run er þannig ekki aðeins keppni um tíma og sæti, heldur árleg kynning á Eyjunum þegar lundinn er sestur í björgin. Hlaupið er orðið hluti af vorinu í Vestmannaeyjum.
Tígull heyrði í einum af skipuleggjendum hlaupsins, Sigmari Þresti Óskarssyni, að hlaupi loknu. Hann segir þakklæti efst í huga til allra þeirra sem lögðu leið sína til Vestmannaeyja þrátt fyrir þær einstöku aðstæður sem hafa ríkt hér.
Sigmar vill einnig koma á framfæri sérstöku þakklæti til sjálfboðaliða hlaupsins sem standa vaktina um alla brautina, sama hvernig viðrar. Þeir taka á móti hlaupurum þegar þeir koma í mark, hvetja áfram og skapa jákvæða stemningu fyrir alla sem eiga leið hjá.
„Án ykkar væri þetta einfaldlega ekki hægt og við erum óendanlega þakklát fyrir framlag ykkar ár eftir ár,“ segir Sigmar Þröstur að lokum.


Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir
DREIFING:
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
ÚTGÁFA: SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.



























Jóna Heiða Sigurlásdóttir, kennari í Framhaldsskólanum, stendur á bak við póstklúbbinn Nátthrafna, þar sem áskrifendur fá mánaðarleg bréf inn um lúguna full af list, fróðleik, náttúrutengingu og smá hversdagslegum töfrum. Í heimi þar sem samskipti fara að mestu fram á skjám vill Jóna Heiða minna fólk á gildi þess að hægja á sér, handleika fallegan pappír og staldra við í takt við árstíðirnar. Í viðtalinu segir hún frá hugmyndinni að klúbbnum, ást sinni á sniglapósti og því hvernig plöntur, list og galdur fléttast saman í hverju umslagi.
Hvernig kviknaði hugmyndin að Nátthrafnar – póstklúbbnum?
Var þetta eitthvað sem hafði blundað lengi í þér eða kom hugmyndin skyndilega?
Hugmyndin hafði blundað í mér í tæplega ár. Ég hafði séð TikTok-video frá slatta af stelpum og konum erlendis með svona póstklúbba og fannst það ótrúlega sniðugt. Margt sem var að finna í þeim bréfum voru hlutir sem ég var að gera sjálf, t.d. kort, límmiðar, bókamerki o.s.frv. Ég hugsaði alltaf með sjálfri mér, þegar ég sá svona video; „vá hvað þetta er flott og að ég væri til í að vera með svona flottan póstklúbb". Svo bara um áramótin þá tók ég bara stökk-

ið þegar ég var svona að skoða hvernig nýja árið myndi verða hjá mér, og bjó til auglýsingu og setti inn á samfélagsmiðla. Þá var ekki aftur snúið.
Af hverju sniglapóstur á tímum samfélagsmiðla, tölvupósta og gervigreindar? Hvað finnst þér bréf í lúguna hafa fram yfir stafræna miðlun?

Það er einmitt vegna gervigreindar og hraðans á samfélagsmiðlum sem sniglapóstur er mikilvægari núna en áður. Við lifum á tímum þar sem samskipti eru orðin ókeypis, samstundis og oft dálítið innantóm. Í heimi þar sem allt er á skjá þá skiptir máli að geta snert eitthvað. Nátthrafnar eru í grunninn tilraun í átt að hæglæti. Það er ákveðin yfirlýsing fólgin í því að velja sniglapóst í dag; það er val um að flýta sér ekki. Með því að taka áþreifanlegt bréf úr lúgunni neyðist maður til að staldra
við, leggja frá sér símann og gefa augnablikinu óskipta athygli. Þegar þú opnar umslagið, finnur lyktina af pappírnum og lest textann, þá ertu til staðar í núinu. Ólíkt stafrænu áreiti, þar sem við flettum í gegnum hundruð hluta á mínútu án þess að muna neitt, þá skapar bréf í lúguna rými til að anda og meðtaka og virkar sem hálfgert móteitur.
Hvað má fólk eiga von á að fá þegar það gerist áskrifandi að klúbbnum? Geturðu lýst dæmigerðu mánaðarbréfi frá Nátthrafni?
Í ár valdi ég að leggja áherslu á Hjól ársins sem rauðan þráð í gegnum öll bréfin en Hjól ársins er nýheiðið dagatal sem byggir á fornri hringrás átta hátíða sem fylgja takti náttúrunnar, sólstöðum og jafndægrum. Hvert bréf er hannað í kringum þema hverrar hátíðar og árstíðar fyrir sig. Innihaldið endurspeglar því þessi árstíðaskipti í formi límmiða, póstkorta, bókamerkja eða einhvers sem ég hef sett saman eins og t.d. lestrarhest eða bingó. Einnig set ég fróðleik um tiltekna hátíð hjólsins og allt sem því tengist, t.d. uppskriftir og fróðleik um plöntur. Stundum læði ég svo með tepoka af einhverju góðu tei. Ég eyði miklum tíma í að nostra við útlit hvers bréfs; umslögin eru prentuð
með grafíktækni og m.a.s. frímerkin hafa verið úthugsuð.
Þú nefnir list, plöntur og galdra – hvernig fléttast þessi þrjú viðfangsefni saman hjá þér?
Er þetta meira fagurfræði, fróðleikur, stemning eða persónuleg tenging við náttúruna?
Fyrir mér eru þetta ekki aðskilin viðfangsefni heldur eru þetta allt þræðir í sömu fléttunni. Ég er með fróðleiksmola og ég nota listina til að setja fram þennan fróðleik svo að hann grípi augað sem fær okkur til að opna hugann. Galdrarnir felast svo ekkert endilega í neinu yfirnáttúrulegu, heldur einfaldlega í því að sjá hið stóra í hinu smáa, að finna lotningu fyrir því hvernig eitt lítið fræ verður að blómi eða hvernig listin getur hreyft við manni. Allt til þess eins að hjálpa okkur við að tengjast náttúrunni, auka núvitund og lifa lífinu meðvitað og af ásetningi.
Nafnið Nocti Corvus og Nátthrafnar vekur forvitni – hvað býr að baki nafninu? Hefur hrafninn sérstaka merkingu fyrir þig?
Hrafninn hefur lengi verið uppáhaldsfuglinn minn og það vill svo til að ég er mikill nátthrafn. Ég er búin að vera með Instagram-síðu í
sem eru í hjóli ársins. Sumar eru haldnar hátíðlegar hér á Íslandi en aðrar meira í Mið-Evrópu. Þessar hátíðir eiga sér líka hliðstæðu í ekki bara kristnum hátíðum heldur einnig í hátíðum í Indlandi jafnvel, sem segir okkur að það sé samnefnari með menningu og trúarbrögðum í öllum heimshornum. En það er einmitt náttúran. Ég vel plöntu sem einkennir árstíðirnar eða hátíðirnar sem er kannski jurt sem hægt er að nýta í te eða blóm sem hefur ákveðna táknræna merkingu. Næst fer ég í myndræna útfærslu. Ég vinn með liti og form sem kalla fram þá stemningu sem ég vil skapa. Að lokum púsla ég þessu öllu saman í eina heild.


mörg ár undir heitinu Nocti Corvus sem mætti þýða sem nátthrafn á latínu. Svo hefur mig líka alltaf langað til að vera skrítin kelling með krumma á öxlinni.
Hvernig fer sköpunarferlið fram hjá þér þegar þú undirbýrð hvert umslag? Byrjarðu á þema, mynd, plöntu, árstíð eða einhverri tilfinningu? Ég skoða vel heiðnu hátíðirnar
Þú talar um að þetta sé mánaðarleg áminning um að staldra við og jarðtengjast. Af hverju finnst þér fólk þurfa á slíku að halda í dag? Mér finnst fólk þurfa á þessu að halda vegna þess að við lifum í heimi sem er hannaður til að ræna okkur athyglinni. Við erum aftengd náttúrunni. Margir eyða mestum tíma sínum innandyra fyrir framan skjái. Við höfum misst tenginguna við það hvernig hringrás ársins hefur áhrif á orkuna okkar og líðan. Mér finnst það raunverulegt áhyggjuefni hversu mikið við höfum fjarlægst náttúruna. Ég hef miklar áhyggjur af því að með því að gleyma náttúrunni í okkar daglega lífi séum við á mjög raunverulegan hátt að glata henni. Það eru gömul sannindi að við verndum aðeins það sem okkur þykir vænt um og við getum ekki elskað eitthvað sem við þekkjum ekki lengur eða tökum ekki eftir.
Fyrir hvern er póstklúbburinn hugsaður? Er þetta fyrir listunnendur, náttúruunnendur, nátthrafna, nostalgíufólk – eða bara alla sem vilja fá smá töfra inn um lúguna? Póstklúbburinn er hugsaður fyrir alla þá sem finna fyrir þörf til að hægja á sér og endurtengj-
ast sjálfum sér og umhverfi sínu. Þó að nafnið Nátthrafnar gefi til kynna þá sem vaka þegar aðrir sofa, þá er þetta hópur sem á það sameiginlegt að leita að einhverju raunverulegu í stafrænum heimi. Hann er fyrir fólk sem trúir því að það séu töfrar fólgnir í því að staldra við. Hann er fyrir fólk sem vill fá mánaðarlega áminningu um að það er hluti af stærri hringrás og að það skiptir máli að rækta þá tengingu áður en hún gleymist og hann er fyrir fólk sem kann að meta handverk, fallegan pappír og listræna miðlun sem hægt er að snerta og geyma.
Hvað myndir þú sjálf helst vilja finna óvænt í bréfalúgunni þinni einn venjulegan dag?
Það vill svo til að ég er með nokkra pennavini frá hinum ýmsu heimshornum. Mér finnst afskaplega gaman að fá handskrifuð bréf frá þeim og lesa um líf þeirra. Stundum senda þeir mér kort við hin ýmsu tækifæri og smágjafir úr þeirra menningu. Í rauninni er ég bara ótrúlega ánægð með að fá eitthvað í efnislegu formi og að geta handleikið eitthvað sem er tenging við aðra persónu og býður mér upp á gæðastund í hæglæti fremur en skjótfengna skemmtun.
Fyrir þau sem að vilja gerast áskrifendur að klúbbnum... hvernig snúa sér þau í því?
Það er hægt að senda mér póst á jonaheida@gmail.com til að fá frekari upplýsingar en einnig er hægt er að finna mig á www. instagram.com/nocti_corvus eða á Facebook undir mínu nafni.
Hráefni:
700gr Kjúklingalæri
1 stk Egg
2 msk Jalapeno úr krukku
Hveiti
50 gr Brauðraspur
½ poki Svart doritos
2 tsk Cumin
1 tsk Paprika
3 tsk Chilli krydd
1 tsk Hvítlauksduft
Salt og pipar
Aðferð
Byrjið á að setja hveiti í eina skál, Egg og smátt saxað jalapeno í aðra skál og rasp, snakk og krydd í þá þriðju.
Hitið ofninn upp í 180° á blæstri.
Þerrið kjúklingalærin og dýfið þeim í hveitið, svo í eggjablönduna og síðast í raspinn.
Leggjið húðaðann kjúklinginn á bökunarplötu með bökunarpappír og eldið í 20-25 mínútur.
Þegar platan er tekin út er valkvætt að setja ostsneið yfir hvern bita.
Guacamole
Hráefni:
3 stk Avocado
1 tsk Cumin
1 tsk Paprika
1 tsk Hvítlauksduft
Salt og Pipar
1 lítill Rauðlaukur
1 rauð/appelsínugul Paprika (valkvætt) Kirsuberjatómatar (valkvætt)
Aðferð
Saxið rauðlaukinn smátt.
Stappið avocado og blandið kryddum saman við. Bætið rauðlauknum við avocado blönduna og smakkið til.
Bætið að lokum við smátt skornum kirsuberjatómötum og papriku (valkvætt), og hrærið varlega.
Samsetning borgarans
Við erum mikið að vinna með kartöflu og sætkartöflu hamborgarabrauðin, frá Myllunni, á okkar heimili. Klassísk uppsetning á borgaranum hjá okkur er létt mæjó, kál, gúrka, kjúklingurinn og guac. Svo er að sjálfsögðu hægt að gera hann að sínum eigin með því að prófa sig áfram.

Biscoff ís í Ninja vél
Hráefni:
330 ml Vanillu sjeik frá Propud / Vanillublanda frá MS 2 tsk Biscoff “krem” frá lotus 4 stk Lu kanil kex
Aðferð
Best er að taka smá af vanillu grunninum og setja í litla skál ásamt Biscoff kreminu. Sett í örbylgjuofninn í örfáar sekúndur svo að auðvelt sé að hræra það saman. Setjið blönduna ásamt restinni af vanillu grunninum í Ninja glasið og hrærið vel saman.
Brjótið Lu kexið í tvennt og raðið þeim uppréttum meðfram glasinu og skellið svo í frystinn yfir nótt. Passa að hafa glasið upprétt.
Látið glasið standa í 10min á borðinu eða látið volgt vatn renna yfir það í smástund áður en glasið er sett í vélina. Stillið á Lite ice cream og setjið í gang.
ATH! Það gæti þurft að snúa aftur til að fá rétta áferð á ísinn.
Verði ykkur að góðu.
Ég skora svo á Unu Þorvaldsdóttur
Kjörstaður í Vestmannaeyjum við sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026
verður í Barnaskólanum, inngangar eru um norður- og suðurdyr.
Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr.
Kjörfundur hefst kl. 9:00 árdegis og lýkur kl. 22:00 að kveldi sama dags.
Bænum verður skipt þannig í tvær kjördeildir:
Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 8. apríl 2026 við Ásaveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra, sem eru óstaðsettir í hús og þeirra sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.
Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 8. apríl 2026 við Hátún til og með Ægisgötu, auk þeirra, sem búa í húsum er bera bæjarnöfn.
Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.
Aðsetur Yfirkjörstjórnar á kjördag verður á kjörstað í Barnaskólanum.
Talning atkvæða verður í sal Barnaskólans og hefst talning að loknum kjörfundi kl. 22:00.
Vestmannaeyjum, 4. maí 2026
Yfirkjörstjórn Vestmannaeyjabæjar
Jóhann Pétursson, formaður Ólafur Elísson Þór Ísfeld Vilhjálmsson


Við komum þér til betri heilsu.
Tímabókanir hjá kírópraktor í síma 588-8085.

OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 11:30


VERIÐ VELKOMIN Í

Þak- og þakrennuskipti LEKUR? Almennt viðhald & smíði!









FÉLAGSSTARFIÐ FER ALLT FRAM Í KVIKU, NEMA ANNAÐ SÉ TEKIÐ FRAM!
á leik og vinnur! Hressingarganga í Herjólfshöllinni alla daga kl. 08:00 - 12:00 Púttsalurinn pútt í kviku virka daga kl. 13:00 - 14:00

Hvítur á leik og vinnur!




5. september 2026