
11. tbl. 09. árg. 30 apríl. - 6. maí 2026
![]()

11. tbl. 09. árg. 30 apríl. - 6. maí 2026
Þakka syninum Kristleifi fyrir áskorunina. Sendi boltann áfram á barnabarnið Guðnýju Geirsdóttir sem lumar á einhverju góðgæti. Ég býð uppá fiskirétt sem er mjög vinsæll hjá fjölskyldunni.
Fiskiréttur Camembert
Hráefni:
3 stk. þorsk – eða ýsuflök
1 stk. Camembert ostur
Bernaise sósa
Rifinn ostur
Aðferð
Flökum velt upp úr eggi og raspi, steikt á pönnu.
Raðað í botninn á eldföstu móti.
Camembert ostur sneiddur ofan á fiskinn
Bernaise sósan sett yfir
Annað lag af fiski, afgangur af sósunni og rifinn ostur settur yfir.
Bakað í ofni í um hálftíma, 160 – 180 gráður, fer eftir ofni.
Borið fram með chilli sultu.
Heimalöguð chilli sulta
3 stk. stórar rauðar paprikur (fjarlægja kjarnann).
8 stk. rauður chilli pipar
Hakka þetta saman
Sett í pott, ásamt 1 kg. af sykri, 1og ½ bolli borðedik 4 tsk. þykkni.
Soðið í um það bil 1 klukkutíma.
Verði ykkur að góðu.
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir
ÚTGÁFA: SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

The Puffin Run verður haldið í níunda sinn núna næstkomandi laugardag. Hlaupið hefur stækkað ört frá ári til árs og er enn eitt þátttökumet slegið í ár með rúmlega 1800 skráðum þátttakendum. Hlaupið er krefjandi en jafnframt gefandi bæði andlega og líkamlega.
Aðstandendur hlaupsins leggja mikinn metnað í viðburðinn, enda er um að ræða einstakt náttúruhlaup með stórbrotinni hlaupaleið. Með samstilltu átaki allra þeirra sem koma beint eða óbeint að hlaupinu hefur þetta gengið ótrúlega vel hingað til.
Margir bæjarbúar eru virkir þátttakendur ýmist með því að aðstoða við framkvæmdina eða hlaupa sjálfir. Brautarverðir hafa alltaf fengið 10 í einkunn frá hlaupurum enda eintómir gleðipinnar sem peppa áfram alla hlaupara.
Aðstandendur hlaupsins vilja koma fram þakklæti til allra sem koma að hlaupinu á einn eða annan hátt.
Líkt og undanfarin ár verður rásmark og endastöð á Nausthamarsbryggju og verður ræst út klukkan 12:15. Hvetjum við þá sem hafa tök á til þess að vera á hliðarlínuna með potta og sleifar og láta í sér heyra. Einnig verðum við með til sölu á 1000 kr litlar kúabjöllur sem og stuttermabolir á 5000 kr. Rennur ágóði sölu þeirra til góðra málefna.
Til viðbótar við rásmark/endamark er skemmtileg sjón að horfa á langa röð hlaupara skokka upp Hamarinn og eins er þeir hlaupa fram hjá hundasvæðinu, en hlauparar hlaupa þar fyrir neðan og koma að Eldfelli. Hvetjum við þá sem vilja fylgjast með og hvetja til að nýta sér þessi svæði.
Fyrir þá sem eru að hlaupa verða gögn afhent á föstudaginn 1. maí á Leturstofunni frá kl. 10:00. Þar verður einnig hægt að kaupa bjöllurnar og bolina.






Tilvalinn staður í að hvetja hlauparana áfram.
Drykkjastöðvar. Boðið er uppá vatn og Gatoraid.
Á drykkjarstöð er einnig boðið uppá banana.
puffin run
1 Herjólfsafgreiðsla.
2 Munavarsla og upplýsingar eru beint á móti Tanganum. Keppendur fá merkispjöld og skulu merkja farangur sinn með sömu tölu og hlaupanúmer sitt.
3 Stjórnstöð. Afhending gagna.
4 Inngangur fyrir keppendur.
5 Rásmark/Endamark verður á bryggjunni við FES. Svæði þar í kring er lokað og má engin fara inn á svæðið án leyfis.

Allir keppendur skulu mæta við rásmark 5 kl. 12.00 og bíða eftir merki stjórnanda. Keppendur fara í hólf fyrir aftan rásmark samkvæmt númeri. 80 hlauparar verða ræstir í einu á 60 sek. fresti.
Rástímar:
Kl. 12:15 Rásmark. 5 Ræsing hefst.
Kl. 13:00 Hamar 5 Boðhlaup #2
Kl. 13:15 Stórhöfði 10 Boðhlaup #3 / Tvímenning #2
Kl. 14:00 Páskahellir 15 Boðhlaup #4
Rútuferðir:
Kl. 12:30 Rásmark – Hamar nr. 4001-Boðhlaup #2
Kl. 13:15 Hamar - Rásmark nr. 4001-Boðhlaup #1
Kl. 12:30 Rásmark – Stórhöfði nr. 2001-Tvímenning #2 /nr. 4001-Boðhlaup #3
Kl. 14:00 Stórhöfði - Rásmark nr. 2001-Tvímenning #1 /nr. 4001-Boðhlaup #2
Kl. 13:45 Rásmark – Páskahellir nr. 4001-Boðhlaup #4
Kl. 14:15 Páskahellir - Rásmark nr. 4001-Boðhlaup #3
kl.15:00 Verðlaunaafhending á Vigtartorgi
Keppendum bíðst að nota sturtuaðstöðu í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja til kl. 18.00 á hlaupadegi án endurgjalds. Sýna þarf keppnis númer í afgreiðslu.
Tímamörk í The Puffin Run eru: Ef keppandi er ekki kominn frá Eldfelli að gatnamótum Eldfellsvegar fyrir klukkan 15:40 skal hann beygja til vinstri og síðan til hægri niður Skansveg. Þaðan inn á Skansinn og klárar hlaupið í endamarki.


the puffin run
Veitt eru peningaverðlaun til fyrstu þriggja karla og kvenna.
• Fyrsta sæti 220.000 kr.
• Annað sæti 165.000 kr.
• Þriðja sæti 110.000 kr.
Verðlaun frá
Einnig eru veitt 14 úrdráttarverðlaun sem eru gjafabréf frá eftirfarandi:
Aldursflokkaverðlaun fyrir fyrstu konu og karl.
Gjafabréf að upphæð kr. 20.000.-
Verðlaun frá
Fyrsta sæti í tvímenningslið karla, kvenna og blandað.
Gjafabréf að upphæð kr. 25.000.-
Verðlaun frá
Fyrsta sæti fjögurramannasveit karla, kvenna og blandað
Gjafabréf að upphæð 15.000.- kr


S: 830-0500 info@volcanoatv.is

Skráning í Vinnuskólann sumarið 2026 opnar þriðjudaginn 28. apríl kl. 8.00 og lýkur föstudaginn 8. maí kl. 16.00. Skráning fer fram í gegnum Abler. Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar er starfræktur yfir sumarmánuðina. Öll ungmenni fædd 2010-2013 með lögheimili í Vestmannaeyjum geta sótt um í Vinnuskólanum. Misjafnt er hversu langt tímabil hver árgangur fær, frekari upplýsingar um það eru hér fyrir neðan.
Sumarið 2026 verður sett upp í 10 tímabil (eina viku í senn).
Ekki verður hægt að færa daga/klst á milli tímabila.
Tímabil hjá börnum fædd 2010-2012:
Tímabil 1:
Tímabil 10: 10.-12. júní 15.-19. júní 22.-26. júní 29. júní - 3. júlí 6.-10. júlí 13.-17. júlí 20.-24. júlí 27.-30. júlí 4.-7. ágúst 10.-14. ágúst
Tímabil 2:
Tímabil 3:
Tímabil 4:
Tímabil 5:
Tímabil 6:
Tímabil 7:
Tímabil 8:
Tímabil 9:
Unnið er frá kl. 8.30-11.30 og 12.30-15.30 (6 klst) mánudaga til föstudaga, hádegishlé er frá 11.30-12.30
Tímabil hjá börnum fædd 2013:
Tímabil 1: Tímabil 2: Tímabil 3:
Tímabil 4:
Tímabil 5: 13.-17. júlí 20.-24. Júlí 27.-30. Júlí 4.-7. ágúst 10.-14. ágúst
Unnið er frá kl. 8.30-11.30 eða 12.30-15.30 (3 klst) mánudaga til föstudaga
Skannaðu inn
QR kóðann fyrir frekari upplýsingar
Börn fædd árið 2010
Geta valið allt að 7 tímabil og laun eru greidd skv. kjarasamningi sem er 1.592 kr á klst
Þau sem hafa náð 16 ára aldri þurfa að gefa upplýsingar um nýtingu á persónuafslætti.
Börn fædd árið 2011
Geta valið allt að 6 tímabil og laun eru greidd skv. kjarasamningi sem er 1.274 kr á klst
Börn fædd árið 2012
Geta valið allt að 5 tímabil og laun eru greidd skv. kjarasamningi sem er 1.114 kr á klst
Börn fædd árið 2013
Geta valið öll 5 tímabilin og eru laun greidd skv. kjarasamningi sem er 955 kr á klst.
Laun eru greidd fyrsta virka dag hvers mánaðar og eru lögð inn á bankareikning einstaklingsins (ekki er hægt að setja bankareikning foreldris/ forráðamanns). Launatímabilið er frá 26. hvers mánaðar til 25. þess næsta.
Markmið vinnuskólans er að undirbúa ungmenni í vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Vinnuskólinn er þó ekki einungis vinna heldur er einhver tilbreyting innifalinn í skólanum.
Frekari upplýsingar veitir Eyrún Haraldsdóttir í síma 488-2000 eða í tövlupósti sumarstorf@vestmannaeyjar.is

Hressingarganga í Herjólfshöllinni alla daga kl. 08:00 - 12:00 Púttsalurinn pútt í kviku virka daga kl. 13:00 - 14:00


Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitastjórnarkosninga 2026
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins í Vestmannaeyjum vegna sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí 2026 fer fram sem hér segir:
Heiðarvegi 15, Vestmannaeyjum: Mánudaga til fimmtudaga, 9:15 - 15:00 Föstudaga 9:15 - 14:00

Við komum þér til betri heilsu.
Tímabókanir hjá kírópraktor í síma 588-8085.










Íslandsmót í Sveitakeppni í boccia fór fram í Vestmannaeyjum helgina 17 - 18. apríl á vegum íþróttafélagsins Ægis, og var mótið í alla staði afar vel heppnað.
„Þvílík helgi!“ segir Sylvía Guðmundsdóttir, formaður Ægis, sem lýsir mikilli ánægju með framkvæmd mótsins. Gleði og góð stemning voru allsráðandi og lögðu aðstandendur mótsins sig fram við að skapa keppendum, þjálfurum og aðstoðarfólki eftirminnilega upplifun.
Sjálfboðaliðar léku lykilhlutverk í velgengni mótsins og fá þeir sérstakar þakkir frá félaginu fyrir sitt framlag. „Þið voruð ómetanleg og án ykkar hefði þetta aldrei gengið,“ segir Sylvía og bætir við að ótrúlegt sé hversu margir lögðu hönd á plóg, hvort sem var við dómgæslu, undirbúning, skreytingar eða annað.
Lokahóf mótsins á sunnudagskvöldi var einnig eftirminnilegt, þar sem mikil gleði ríkti. Höllin var fallega skreytt og dagskráin vel heppnuð, meðal annars með tónlist og skemmtun sem fékk frábærar undirtektir.
Árangur heimamanna var einnig góður, en tvö af þremur liðum Ægis hlutu verðlaun í 2. deild og unnu til silfur- og bronsverðlauna á heimavelli.
Að lokum vill Ægir þakka öllum þeim sem studdu við mótið, hvort sem var með fjárframlögum, vinningum eða öðrum hætti. „Afskaplega þreytt en ofboðslega hamingjusamt Ægisgengi þakkar fyrir sig,“ segir Sylvía að lokum.






Vefjagigt er langvinnur verkjasjúkdómur sem hefur áhrif á daglegt líf þúsunda einstaklinga. Einkenni eins og útbreiddir verkir, þreyta, svefntruflanir og einbeitingarerfiðleikar geta gert hversdagslega hluti krefjandi. Þó að engin ein lækning sé til við vefjagigt eru margar leiðir sem geta hjálpað fólki að bæta líðan sína og ná betri stjórn á einkennunum.
Hreyfing – lykill að bættri líðan Regluleg og hófleg hreyfing er ein áhrifaríkasta leiðin til að draga úr einkennum vefjagigtar. Léttar æfingar eins og göngur, sund, jóga og teygjur geta minnkað stífleika, bætt svefn og aukið orkustig. Mikilvægt er að byrja rólega og hlusta á líkamann til að forðast of mikið álag.
Svefn og endurheimt
Góður svefn er grundvallaratriði fyrir þá sem glíma við vefjagigt. Reglulegt svefnmynstur, minni skjánotkun fyrir svefn og róandi kvöldrútína geta haft veruleg áhrif. Sumir finna einnig gagn í slökunartækni eins og öndunaræfingum eða hugleiðslu.
Streitustjórnun
Streita getur aukið einkenni vefjagigtar. Aðferðir eins og núvitund, hugleiðsla og stuttar daglegar pásur geta hjálpað til við að draga úr álagi. Þá er mikilvægt að setja raunhæf mörk og forgangsraða verkefnum.
Næring og lífsstíll
Þó ekkert sérstakt „vefjagigtarfæði“ sé til, finna margir fyrir bata með fjölbreyttu og næringarríku fæði. Að draga úr sykri, unnum mat og koffíni getur haft jákvæð áhrif á orkustig og almenna líðan. Reglulegar máltíðir hjálpa einnig til við að halda blóðsykri stöðugum.

Rannver og Ingó.
Kírópraktík sem valkostur
Kírópraktík hefur orðið sífellt vinsælli sem viðbótarmeðferð fyrir fólk með vefjagigt. Meðferðin beinist að stoðkerfinu, sérstaklega hryggnum, og getur hjálpað til við að bæta hreyfanleika og draga úr spennu. Sumir upplifa minni verki og aukna vellíðan eftir meðferð, en mikilvægt er að hafa í huga að hún er ekki lækning heldur stuðningur við betri líðan. Kírópraktík getur verið hluti af heildrænni nálgun ásamt til dæmis sjúkraþjálfun, nuddi og samtalsmeðferð.
Samvinna og stuðningur
Að lifa með vefjagigt getur verið krefjandi, en stuðningur skiptir miklu máli. Samtal við heilbrigðisstarfsfólk, fjölskyldu og aðra í svipaðri stöðu getur hjálpað til við að finna lausnir sem henta hverjum og einum. Stuðningshópar geta einnig verið dýrmætir.
Heildræn nálgun skiptir máli Það sem virkar fyrir einn þarf ekki endilega að virka fyrir annan. Bestur árangur næst oft með blöndu af mismunandi aðferðum – hreyfingu, svefni, streitustjórnun, næringu og viðbótarmeðferðum.
Með þolinmæði og réttri leiðsögn er hægt að bæta lífsgæði og finna betra jafnvægi í daglegu lífi.
Ef þú hefur áhuga á að ræða við kírópraktor um hvort meðferð gæti gagnast þér, er velkomið að hafa samband og fá frekari leiðbeiningar um næstu skref.
Ingólfur og Rannver, kírópraktórar S: 867-7787
Vestmannaeyjar Kírópraktík á facebook
Laxey ehf. áformar að auka umfang framleiðslugetu úr 11.500 tonnum í 42.000 tonn á ári ásamt áformum að reisa seiðaeldisstöð í Viðlagafjöru. Megin markmið framkvæmdarinnar er að skapa aukið rými fyrir landeldi á svæðinu og efla fiskeldi sem atvinnugrein í Vestmannaeyjum.
Með breytingu á aðalskipulagi er áætlað að stækka iðnaðarsvæðið I3 í Viðlagafjöru til að auka við athafnasvæði fiskeldis sem þar er starfrækt. Stækkunin nær yfir meginhluta efnistökusvæðis sem er nyrst í Viðlagafjöru.
Í gildandi Deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Viðlagafjöru eru tvær lóðir og er uppbygging á annarri þeirra, lóð 1, langt á veg komin. Tillaga að breyttu deiliskipulagi gerir ráð fyrir nýrri lóð nyrst á svæðinu, lóð 3, þar sem gert verður ráð fyrir seiðaeldisstöð allt að 15.000 m2. Gert er ráð fyrir mön umhverfis lóðina við Eldfellsveg. Á lóð 2 var áður gert ráð fyrir geymslu jarðefna en þar er nú skilgreindur byggingarreitur með heildar gólffleti mannvirkja allt að 25.000 m2°.
Skipulagsgögn má finna á útprentuðu formi í afgreiðslu í Ráðhúsi Vestmannaeyja og á Skipulagsgátt HMS (Aðalskipulag mál nr. 1473/2025 og deiliskipulag mál nr. 1474/2025).


Veittur er frestur til og með 21. maí 2026 til að skila athugasemdum vegna málsins.
Umsagnir skulu berast í gegnum Skipulagsgátt.


Litum Ísland er nemenda fyrirtæki í nýsköpun sem samanstendur af tvem nemendum úr Frammhaldsskólanum í Vestmanneyjum, Sigurjón Geirson og Sarah Elía Tórshamar. Vörumessan í smáralindinni 2026 Það sem við erum að framleiða eru litabækur, en þetta eru ekki bara hvaða litabækur sem er, okkar bækur innihalda myndir af stöðum, atburðum og/eða kennileitum úr bæjum um land allt sem eru handteiknaðar af meðlimum fyrirtækisins. Soldið sem okkur fannst vanta á markaðinn var einföld leið til þess að ung börn getu lært um nærumhverfið sitt, sem leiðir okkur að öðru sem er einnig áhugavert við okkar bækur, það er að með hverri mynd fylgir stuttur texti sem fræðir ung börn um hvert kennileiti fyrir sig. Við byrjuðum á Vestmannaeyjum þar sem það er okkar nærumhverfi.
En sem komið er þá er það eina bókin, en markmiðið er að gera en fleiri staði í framtíðinni svo að börn um allt land geti notið hins sama, og þar af leiðandi geta öll börn litað ísland. Við höfum kannað aðeins hvort eitthvað svipað sé nú þegar til og fundum við hvergi litabækur sem gefa íslenskum krökkum þann mögleika að lita umhverfið sitt. Við kvetjum alla foreldra sem eiga börn á leikskóla aldri eða byrjunarstigi grunnskóla að næla sér í þessa bók þegar hún kemur í eymundsson og svo er einnig hægt að panta hana á netinu á heimasíðunni okkar litumisland. art, þar sem má finna hana á íslensku og ensku. Við ætlum okkur að gera enska útgáfu af öllum okkar bókum svo að ferðamenn og innflytjendur frá ölllum löndum geta fræðst um kennileiti þess bæjar sem þau heimsækja. Þið getið fundið okkur á instagram, tiktok og facebook undir notanda nafninu, litumisland og svo er líka hægt að senda okkur tölvupóst á litumisland@gmail.com.
Lilja Sigurðardóttir hjálpaði okkur með básinn.




