MEÐAL EFNIS: ÞRAUTIR VIKUNNAR KYNNING ÍBV LEIKMANNA & VIÐTÖL
FRÁBÆR MÓRALL ÞRÁTT FYRIR
MIKINN ALDURSMUN Á LEIKMÖNNUM
Helena Hekla er einn af lykilmönnum ÍBV en þetta er hennar þriðja tímabil með liðinu. Við fengum Helenu í létt spjall til okkar.
Nafn: Helena Hekla Hlynsdóttir
Aldur: 22 ára
Staða: Bakvörður
Starf: Stuðningsfulltrúi í Hamarsskóla
Fjölskylda Mamma er Anna Lára Guðjónsdóttir og
Pabbi Hlynur Ársælsson, síðan á ég þrjú systkini Sindri Þór, Svava, Elísa og kærasti Nökkvi Már
Hvað hefuru spilað mörg tímabil fyrir ÍBV? 2 og 1/2, byrja þriðja núna
Besti liðsfélaginn? Get ekki valið eina, allar frábærar á sinn hátt
Grófasti leikmaðurinn á æfingum? Embla eða Sandra
Hvernig líst þér á hópinn? Mjög vel, erum með mikið af ungum og efnilegum eyjastelpum í bland við eldri og reynslumikla leikmenn
Mesti trúðurinn í liðinu? Ísey María
Hvernig er mórallinn í liðinu? Geggjaður, þrátt fyrir mikinn aldursmun á okkur þá ná allar mjög vel saman. Einnig hjálpaði æfingaferðin mikið til með að koma góðum móral inn í liðið fyrir tímabil.
Hvað einkennir ÍBV liðið í sumar?
Finnst gleði og öryggi vera sterk einkenni fyrir sumarið. Erum allar með á hreinu markmiðin fyrir tímabilið og erum öruggar í því sem við gerum. Við verðum óhræddar við að gera mistök og læra af þeim,
TÍGULL
því fyrst og fremst ætlum við að njóta þess að spila og hafa gaman í allt sumar.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? smá lame svar en Vestmannaeyjar
Hvað er það besta við Vestmannaeyjar?
Samfélagið bæði innan og utan fótboltann, finnst allir hafa tekið rosalega vel á móti mér hvert sem ég fer hérna í eyjum
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd: Örn Hilmisson.
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
1600 HLAUPARAR Í THE PUFFIN RUN Í ÁR
The Puffin Run verður haldið í áttunda sinn núna á laugardaginn. Hlaupið hefur stækkað ört frá ári til árs og er enn eitt þátttökumet slegið í ár með tæplega 1600 skráðum þátttakendum, þar af 1345 sem hlaupa alla 20 km vegalengdina. Hlaupið er krefjandi en jafnframt gefandi bæði andlega og líkamlega.
Aðstandendur hlaupsins leggja mikinn metnað í viðburðinn, enda er um að ræða einstakt náttúruhlaup með stórbrotinni hlaupaleið. Með samstilltu átaki allra þeirra sem koma beint eða óbeint að hlaupinu hefur þetta gengið ótrúlega vel hingað til.
Margir bæjarbúar eru virkir þátttakendur ýmist með því að aðstoða við framkvæmdina eða hlaupa sjálfir.
Brautarverðir hafa alltaf fengið 10 í einkunn frá hlaupurum enda eintómir gleðipinnar sem peppa áfram alla hlaupara.
Aðstandendur hlaupsins vilja koma fram þakklæti til allra sem koma að hlaupinu á einn eða annan hátt.
Líkt og undanfarin ár verður rásmark og endastöð á Nausthamarsbryggju og verður ræst út klukkan 12:15. Hvetjum við þá sem hafa tök á til þess að vera á hliðarlínuna með potta og sleifar og láta í sér heyra. Einnig verðum við með til sölu á 1000 kr litlar kúabjöllur sem og stuttermabolir á 5000 kr. Rennur ágóði sölu þeirra til góðra málefna.
Til viðbótar við rásmark/endamark er skemmtileg sjón að horfa á langa röð hlaupara skokka upp Hamarinn og eins er þeir hlaupa fram hjá hundasvæðinu, en hlauparar hlaupa þar fyrir neðan og koma að Eldfelli. Hvetjum við þá sem vilja fylgjast með og hvetja til að nýta sér þessi svæði.
Fyrir þá sem eru að hlaupa verða gögn afhent á föstudaginn 2. maí á Leturstofunni á milli kl. 16 og 22. Þar verður einnig hægt að kaupa bjöllurnar og bolina.
HLAUPIÐ UNDIRBÚIÐ
Í ELDHEIMUM, FÖSTUDAGINN 3. MAÍ KL. 17:15 2.
Eyjaskokk býður ykkur velkominn á fyrirlestur með Þorsteini Roy og Andreu Kolbeinsdóttur í Eldheimum, föstudaginn 3. maí kl. 17:15.
Þau munu fjalla um hvernig best er að undirbúa sig næringarlega fyrir hlaup, auk þess að deila gagnlegum ráðum fyrir hlaupara hvort sem er byrjendur eða lengra komna.
Við hvetjum ykkur eindregið til að nýta tækifærið, hlusta á góð ráð og spyrja spurninga.
Ef tími leyfir verður í lokin boðið upp á létt skokk með þeim fyrir þá sem vilja.
VIÐBURÐURINN ER ÓKEYPIS
OG ERU ALLIR VELKOMNIR!
Þorsteinn Roy
MEISTARAFLOKKUR KVENNA Í KNATTSPYRNU
Magdalena Jónasdóttir Varnarmaður
Guðný Geirsdóttir Markmaður
Allison Grace Lowrey Sóknarmaður
Erna Sólveig Davíðsdóttir Varnarmaður
Allison Patricia Clark Sóknarmaður
Helena Hekla Hlynsdóttir Varnarmaður
Erla Hrönn Unnarsdóttir Miðjumaður
Ísey María Örvarsdóttir Markmaður
Sandra Voitane Varnarmaður
Viktorija Zaicikova Varnarmaður
Olga Sevcova Sóknarmaður
Embla Harðardóttir Miðjumaður
Tanja Harðardóttir Sóknarmaður
Avery Mae Vanderven Varnarmaður
Milena Mihaela Patru Sóknarmaður
Kristín Klara Óskarsdóttir Varnarmaður
Jón Ólafur Daníelsson Þjálfari
Lilja Kristín Svansdóttir Sóknarmaður
Sigríður Lára Garðarsdóttir Aðstoðarþjálfari
Edda Dögg Sindradóttir Varnarmaður
MEISTARAFLOKKUR KARLA Í KNATTSPYRNU
Oliver Heiðarsson Sóknarmaður
Felix Örn Friðriksson Varnarmaður
Jovan Mitrovic Varnamaður
Viggó Valgeirsson Miðjumaður
Milan Tomic Miðjumaður
Jorgen Pettersen Miðjumaður
Marcel Zapytowski Markmaður
Birgir Ómar Hlynsson Varnarmaður
Alexander Örn Friðriksson Varnarmaður
Bjarki Björn Gunnarsson Miðjumaður
Hjörvar Daði Arnarsson Markmaður
Alex Freyr Hilmarsson Miðjumaður
Mattias Edeland Varnamaður
Omar Sowe Sóknarmaður
Nökkvi Már Nökkvason Varnarmaður
Þorlákur Breki Baxter Miðjumaður
Eyþór Orri Ómarsson Sóknarmaður
Hermar Þór Ragnarsson Sóknarmaður
Sverrir Páll Hjaltedted Sóknarmaður
Þorlákur Már Árnason Þjálfari
Arnar Breki Gunnarsson Sóknarmaður
Víðir Þorvarðarson Sóknarmaður
Sigurður Valur Sveinsson Miðjumaður
Óskar Zoega Óskarsson Aðstoðarþjálfari
Heiðamar Magnússon Miðjumaður
Sigurður Arnar Magnússon Varnarmaður
Arnór Ingi Kristinsson Varnamaður
Kristian Barbuscak Markmannsþjálfari
NÁTTÚRUFEGURÐIN, FRIÐSÆLDIN
OG STUTTAR VEGALENGDIR ÞAÐ BESTA
Avery Vander Venr er fyrirliði ´ÍBV þetta leiktímabil en þetta er hennar fyrsta tímabil með liðinu. Við fengum Avery í létt spjall til okkar.
Nafn: Avery Vander Venr
Aldur: 23 ára
Staða: Miðvörður
Starf: Atvinnumaður í fótbolta
Fjölskylda: Við erum fimm í fjölskyldu að mér meðtaldri. Mamma mín heitir Sheri Vander Ven, pabbi minn Matt Vander Ven, tvíburabróðir minn Jackson Vander Ven og hundurinn minn Dutch.
Hve margar leiktímabil hefurðu spilað með ÍBV? Þetta er mitt fyrsta tímabil með ÍBV.
Besti liðsfélaginn?
Ally Clarke.
Grófasti leikmaðurinn á æfingum?
Embla Harðardóttir.
Hvernig líst þér á hópinn?
Ég tel mig afar lánsama að fá að vera hluti af þessu frábæra liði. Þó ég hafi aðeins verið hér í þrjá mánuði, hef ég fengið einstaklega hlýjar móttökur. Það hefur verið einstök ánægja að kynnast öllum og ég er þakklát fyrir að fá tækifæri til að spila með ÍBV. Að fá svona góðar móttökur og stuðning hefur gert aðlögunina að nýju landi mun auðveldari. Við erum með sterkan hóp þar sem liðsandinn er frábær. Ég hlakka virkilega til sumarsins.
Mesti trúðurinn í liðinu?
Allison Lowrey.
Hvernig er mórallinn í liðinu? Liðsandinn er sterkur og jákvæður. Við höfum sterka trú á eigin getu til að skapa markfæri í hverjum leik, keppa af krafti og takast á við mótlæti á jákvæðan hátt.
Hvað einkennir ÍBV liðið í sumar?
Okkar helstu markmið í sumar eru að komast upp um deild, vinna bikarinn og fjölga stuðningsmönnum
í stúkunni. Við stöndum saman og mætum í hvern einasta leik til að vinna og leggjum okkur allar fram. Sama hvar á vellinum við stöndum, þá leysum við pressuna með styrk og einbeitingu. Ég hef mikla trú á liðinu okkar.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á?
Bryce Canyon þjóðgarðurinn eða hér!
Hvað er það besta við Vestmannaeyjar?
Náttúrufegurðin, friðsældin og hversu stutt er á milli staða.
Nýsmíði
Gólfhitafræsing
Gólfhitalögn
Kjarnaborun
Pallasmíði
Þakvinna
Innréttingar
Utanhúsklæðningar
aglverktakar@gmail.com // 768 5228
SUDOKU vikunnar
Garðar Arason fagnar 90 ára afmælið sínu í Akóges föstudaginn 2. maí og tekur á móti gestum milli kl. 15-18
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
Innilegt þakklæti til allra sem að sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
BJARNEYJAR MARÍU GÚSTAFSDÓTTUR
Aðalheiður Kristjánsdóttir
Jóna Dís Kristjánsdóttir
María Ýr Kristjánsdóttir
Gústaf Kristjánsson
Kári Kristján Kristjánsson
Silja Rós Guðjónsdóttir Kristjana Ingibergsdóttir Kristján Birgisson Barnabörn