
11. tbl. 07. árg. 16. - 24. apríl 2025
11. tbl. 07. árg. 16. - 24. apríl 2025
Takk fyrir áskorunina, Þorbjörn! Það er gaman að sjá menn kunna sig við grillið, og ég er meira en til í að taka við keflinu. Þú fórst létt með nautalund, en ég ætla að grilla tomahawk – stórt, safaríkt og með nóg af fitu til að halda bragðinu djúsí og djúpu.
Grillaður Tomahawk með hvítlaukssmjöri, bearnaise-sósu og ofnbökuðum kartöflum
Ég byrja á að nudda 2 kg tomahawk með góðri olíu, grófu salti, pipar og smá hvítlauksdufti. Læt það standa í klukkutíma við stofuhita áður en ég grilla.
Kartöflur – Ég vel smáar kartöflur, sker þær í helminga, velti þeim upp úr olíu, fersku rósmaríni og sjávarsalti og baka í ofni við 200°C í 40 mínútur.
Bearnaise-sósa – Ég set í pott smátt saxaðan skalottlauk, hvítvín og estragon, sýð niður um helming, hræri út í eggjarauður og brætt smjör þar til ég fæ flauelsmjúka sósu.
Grillið – Tomahawk er grillað á beinni, funheitri eldun í 3 mín á hvorri hlið fyrir fallega skorpu. Þá tek ég það af, læt það hvíla og klára síðan á óbeinni eldun þar til kjarnhiti nær 54°C fyrir miðlungs-steikt. Læt hvíla í 10 mínútur og sker svo í sneiðar.
Með þessu hef ég grillaðan aspas, ferskt salat og hvítlaukssmjör ofan á steikina. Að sjálfsögðu drekk ég með þessu gott rauðvín og loka máltíðinni með sterku kaffi og smá viskí.
Sveinn Ásgeirsson er sælkeri vikunnar.
Ég skora á Jónas Loga matreiðslumeistara á Heimaey VE – hann er algjör snillingur með grillið og veit allt um að reykja og elda góðan mat. Hlakka til að sjá hvað hann töfrar fram!
FORSÍÐUMYNDIN: Forsíðu vikunnar prýðir sr. Viðar Stefánsson en hann hyggst sippa til góðs um páskana eins og lesa má í blaðinu. Rétt er að taka það fram að ungarnir og kanínurnar eru hinsvegar gerðar af hin alræmdu gervigreind og voru engin dýr pínd við myndatökuna.
DREIFING:
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.
Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
ÚTGÁFA:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
SKIL Á AUGLÝSINGUM: Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar hf., fyrir reikningsárið frá 1. janúar 2024
Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar hf., fyrir reikningsárið frá 1. janúar 2024
til 31. desember 2024, verður haldinn
til 31. desember 2024, verður haldinn
í Vinnslustöðinni, Hafnargötu 2, þriðjudaginn 29. apríl nk. kl. 17:00.
í Vinnslustöðinni, Hafnargötu 2, þriðjudaginn 29. apríl nk. kl. 17:00.
FUNDAREFNI:
FUNDAREFNI:
Venjuleg aðalfundarstörf. 1.
Venjuleg aðalfundarstörf. 1.
Önnur mál löglega upp borin. 2.
Önnur mál löglega upp borin. 2.
Tillögur og önnur fundargögn liggja
frammi á skrifstofu félagsins tveimur vikum fyrir aðalfund.
Tillögur og önnur fundargögn liggja frammi á skrifstofu félagsins tveimur vikum fyrir aðalfund.
Framboð til stjórnarkjörs skal berast stjórn félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfund.
Framboð til stjórnarkjörs skal berast stjórn félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfund.
STJÓRN
STJÓRN
VINNSLUSTÖÐVARINNAR
VINNSLUSTÖÐVARINNAR
Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar 2025
Ágætu unglingar, foreldrar og/eða forráðamenn ungmenna fæddra 2009, 2010, 2011 og 2012.
Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar er starfræktur yfir sumarmánuðina, frá júní og fram í ágúst. Allir unglingar úr 7., 8., 9., og 10. bekkjum grunnskólans með heimili í Vestmannaeyjum hafa rétt til þátttöku í vinnuskólanum.
Unglingar í 7. bekk geta aðeins valið um vikur frá 14. júlí til 15. ágúst. Unglingum er skipt í hópa og hver hefur sinn flokksstjóra. Stefnt er að því að hafa verkefnin sem fjölbreyttust en sem fyrr eru garðyrkjustörf og almenn umhirða bæjarfélagsins langstærsti þátturinn í vinnuskólanum.
Í flestum tilfellum er vinnuskólinn fyrstu kynni ungmenna af launaðri vinnu og því mikilvægt að vel takist til. Það er því nauðsynlegt að umræðan á heimili sem og umfjöllun í samfélaginu sé á jákvæðum nótum. Gott er t.d. að hafa í huga að starfsfólk vinnuskóla á rétt á bæði matar- og kaffitímum. Þar sem þau hafa ekki neina sérstaka aðstöðu til umráða er ekki óeðlilegt að þau sjáist sitja og hvíla sig öðru hvoru.
Starfstími unglinganna er misjafn eftir árgöngum:
-Árgangur 2012, 20 vinnudagar, 30 tímar á viku.
Unnið er frá 08:30-15:30 með klukkustunda matarhlé milli 12-13 mánudaga til föstudaga, hægt er að vinna hálfan daginn sé þess óskað. Valdar eru hámark 4 vikur á tímabilinu 14. júlí til 15. ágúst.
-Árgangur 2011, 25 vinnudagar, 30 tíma á viku.
Unnið er frá 08:30 -15:30 með klukkustunda matarhlé milli 12-13 mánudaga til föstudaga, hægt er að vinna hálfan daginn sé þess óskað.
Valdar eru hámark 5 vikur af þeim sem eru í boði.
- Árgangur 2010, 30 vinnudagar, 30 tíma á viku.
Unnið er frá 08:30 -15:30 með klukkustunda matarhlé milli 12- 13 mánudaga til föstudaga. Valdar eru hámark 6 vikur af þeim sem eru í boði.
- Árgangur 2009, 35 vinnudagar, 30 tíma á viku.
Unnið er frá 08:30 -15:30 með klukkustunda matarhlé milli 12-13 mánudaga til föstudaga. Valdar eru hámark 7 vikur af þeim sem eru í boði.
Reynt verður að koma til móts við óskir um tímabil eftir fremsta megni. Mjög áríðandi er að skila umsóknum fyrir 21. apríl.
Laun:
Unglingar fæddir 2012 - 910 kr. á klst. með orlofi
Unglingar fæddir 2011 - 1062 kr. á klst. með orlofi
Unglingar fæddir 2010 - 1214 kr. á klst. með orlofi
Unglingar fæddir 2009 - 1517 kr. á klst. með orlofi
Þeir sem eru fæddir 2009 þurfa að gefa upplýsingar um nýtingu á persónuafslætti hafi þeir náð 16 ára aldri. Laun eru greidd fyrsta virka dag hvers mánaðar inn á bankareikning og er launatímabil frá 26. hvers mánaðar til 25. þess næsta. Flokkstjórar hafa samband við forráðamenn áður en vinna hefst og gefa upplýsingar um hvar skal mæta ofl.
Markmið vinnuskólans er að undirbúa unglingana í vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Vinnuskólinn er þó ekki einungis vinna heldur er einhver tilbreyting innifalin í skólanum, eins og í öðrum skólum.
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Eyrúnu Haraldsdóttur í síma 488 2000 eða á netfanginu: sumarstorf@vestmannaeyjar.is.
Sumarstörf á vegum Vestmannaeyjabæjar 2025
Vestmannaeyjabæjr auglýsir eftir starfsfólki 17 ára og eldra til sumarstarfa á vegum bæjarins fyrir árið 2025. Umsóknarfrestur til og með 21. apríl.
Afleysing á bæjarskrifstofu
Ráðhús
Bókavörður I
Bókasafn
Flokkstjóri í vinnuskóla
Umhverfisverkefni
Hafnarvörður I
Vestmannaeyjahöfn
Hafnarverkamaður
Vestmannaeyjahöfn
Leiðbeinandi 1
Heimaey vinnu- og hæfingastöð
Leiðbeinandi 2
Heimaey vinnu- og hæfingastöð
Leikskólakennari/leiðbeinandi
Víkin 5 ára deild GRV
Safnvörður I
Byggðasafn/Landlyst
Starfsmaður á leikjanámskeiði
Sumarfjör
Starfsmaður í dagdvöl
Bjargið dagdvöl
Starfsmaður í þjónustuíbúðir
Stuðningsþjónusta
Sumarstarfsmaður
Umhverfisstörf
Sundlaugarvörður/starfsmaður
Íþróttamiðstöð
Verkamaður II
Umhverfisverkefni
Verkamaður III (með flokkstjórn)
Umhverfisverkefni
Leitað er að jákvæðum, duglegum og samviskusömum einstaklingum. Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því öll kyn að sækja um laus störf.
Nánari upplýsingar um störfin er hægt að nálgast á www.vestmannaeyjar.is
Almennar upplýsingar veitir Erna Georgsdóttir hjá Vestmannaeyjabæ í síma 488 2000 eða í tölvupósti: sumarstorf@vestmannaeyjar.is
Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar.
Einstaklingar sem ekki hafa rafræn skilríki geta fengið leiðbeiningar í þjónustuveri í síma 488 2000.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.
Gauti Gunnarsson er einn af þeim sem hefur verið að sjá um að taka ÍBV klefa í gegn fyrir handbolta karla. Haldin var vígsla 29. mars þar sem boðið var upp á léttar veitingar hægt var að koma og skoða klefann. Við heyrðum aðeins í Gauta:
Hugmyndin um að breyta klefanum hefur verið í umræðunni innan meistaraflokksins í mörg ár, en enginn hafði stigið af fullri alvöru inn í verkefnið—þar til þetta tók allt skyndilega viðsnúning í góðum “bakarís röfli”.
Þar hittumst við Róbert Sig og tókum þá ákvörðun á staðnum að rífa allt út og leyfa hugmyndafluginu að móta nýtt og betra rými.
Við hófum framkvæmdir tveimur dögum síðar, 23. janúar og 27. mars var klefinn tilbúinn – algjörlega breyttur og endurnýjaður.
Allir leikmenn liðsins tóku þátt í þessu verkefni og saman sköpuðum við aðstöðu sem við getum verið stoltir af.
Við fengum einnig ómetanlega aðstoð frá frábæru fólki í samfélaginu okkar.
Allir sem við höfðum samband við voru meira en tilbúnir til að leggja sitt af mörkum – fyrir það erum við þeim ævinlega þakklátir.
Miðstöðin sá um að útvega allt efni sem við þurftum og þjónustan þar var til mikillar fyrirmyndar.
Sama hversu skrýtnar hugmyndir við fengum, þá fundu þau alltaf lausn.
Eyjablikk útbjó nýja lista á hurðum og sökkli – útkoman var virkilega flott, miklir fagmenn þar á ferð. Maggi í VM hannaði og útbjó allar merkingar og myndir af leikmönnum. Það var frábært að vinna með honum – hann var alltaf tilbúinn í slaginn, sama hversu stórar eða crazy hugmyndirnar voru og gerði þær að veruleika.
Óli Haukur og Sandra Gísla voru okkar hægri hönd í verkefninu –allt frá breytingum á rafmagni og
Eins og sjá má á myndunm hér að ofan, eru beytingarnar frábærlega velheppnaðar. Við eftirlátum lesendum að geta sér til hvor myndin var tekin fyrir breytingar.
tenglum yfir í uppsetningu merkinga og mynda.
Þau voru alltaf til taks, sama hvenær á sólarhringnum og hversu
oft við hringdum, þau mættu og eiga því stóran þátt í þessari glæsilegu hönnun.
SMÁRALIND
Optical Studio setur upp verslun
í Vestmannaeyjum
þriðjudaginn 29. apríl
Við verðum í Fundarsal Hótel Vestmanneyja frá 9:30 til 21:30.
Tímabókanir í sjónmælingar í síma 511-5800 og á noona.is og opticalstudio.is
20%
Afsláttur af öllum vörum.
*Annað par fylgir með margskiptum glerjum
Sr. Viðar Stefánsson ætlar að sippa 10.000 sipp til styrktar Krabbavarnar í Vestmannaeyjum. Við fengum Viðar til þess að segja okkur betur frá þessari hugmynd.
Hugmyndin að góðgerðarsippinu kom til þegar ég var að undirbúa mig fyrir Guðlaugssundið í mars og velti ég þá fyrir mér hvort ekki mætti nýta hreyfinguna og tímann sem fer í hana til góðs. Datt mér þá í hug að finna einhverja hreyfingu sem ég hefði gaman að og safna áheitum fyrir gott málefni.
Sipp varð fyrir valinu en ég hef gripið í það við og við undanfarin ár í minni líkamsrækt enda ótrúlega góð þjálfun þrátt fyrir að það virki frekar einfalt. Og 10.000 sipp hljómaði vegleg tala.
Öllu meiri vandi var að velja milli góðgerðarmála en það var þó alveg ákveðið að það skyldi vera góðgerðarmál sem væri hér í Eyjum. Var ákvörðun tekin um að kynna þrjú góðgerðarmál sem mér leist vel á fyrir fermingarbörnunum sem kusu síðan í leynilegri kosningu. Krabbavörn varð fyrir valinu hjá fermingarbörnunum.
Hér var líka kominn tenging við kirkjuna og er þetta því sameiginlegt verkefni okkar í Landakirkju að láta gott af okkur leiða um páskana. Að vissu leyti er föstudagurinn langi ágæt tenging við framtakið enda komin viss hliðstæða milli sippsins (píslarganga) og hagnaðar Krabbavarnar (upprisan). Einnig var mottumars orðinn nokkuð þétt setinn af viðburðum fyrir Krabbavörn.
Það þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi Krabbavarnar og starf félagsins. Krabbavörn er ótrúlegur stuðningur fyrir þá sem greinast með krabbamein. Sjúkdómurinn
snertir okkur öll enda þekkja allir einhvern sem hefur glímt við krabbamein. Samkvæmt tölum Krabbameinsfélags Íslands þá greinast 2.000 manns árlega með krabbamein á Íslandi. Það eru að jafnaði 5-6 á dag og einhverjir þeirra geta búið hér í Eyjum.
Fyrirkomulag sippsins verður á þá leið að kl. 11 á föstudaginn langa er guðsþjónusta í Landakirkju. Sippið byrjar í safnaðarheimilinu strax að henni lokinni eða um kl 12. Áætlað er að sippið muni taka 2-2,5 tíma og verður safnaðarheimilið opið á meðan sippinu stendur.
Öllum er velkomið að kíkja við, fylgjast með og hvetja áfram. Það væri gaman að fá húsvitjun og hvatningu. Það er okkar von að sem flestir leggi þessu mikilvæga framtaki lið.
Hvetjum Viðar áfram í sippinu og styðjum og söfnum veglega fyrir Krabbavörn og mikilvægt starf félagsins sem snertir okkur öll. Látum gott af okkur leiða yfir páskana.
Styrktarreikningur Krabbavarnar í Vestmannaeyjum: 0582-04-250247 651090-2029
ÍÞRÓTTABANDALAGS VESTMANNAEYJA
FYRIR ÁRIÐ 2024
verður haldið þriðjudaginn 29. apríl
kl. 20 í Týsheimilinu
Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórn
Íþróttabandalags Vestmannaeyja
Móttökustöð
Skírdagur
Föstudagurinn langi
Laugardagur
Páskadagur
Annar í páskum
Gleðile ga páska
Lokað
Lokað Lokað Lokað 11-16
Við fengum Berthu Þorsteinsdóttur sem fer með eitt af aðalhlutverkum í leikritinu Beint í æð sem Leikfélag Vestmannaeyja er að sína um þessar mundir í létt spjall til okkar.
Fullt nafn: Bertha Þorsteinsdóttir
Aldur: 21 ára.
Starfsheiti / menntun: Búin með framhaldsskóla og er að vinna.
Hvað getur þú sagt okkur um Beint í æð hjá Leikfélagi Vestmannaeyja? Beint í Æð er með mjög ítarlegt, sprenghlægilegt og með nákvæma sögu, en samt geta áhorfendur fylgst með sögunni og fylgt henni þrátt fyrir alla vitleysuna. Verkið er um lygar sem flækjast og verða stærri og stærri með hverri lygi. Áhorfendur geta hlegið af Jón Borgari og séð hvernig hann kemur sér úr vandræðunum sem hann kom sér út í!
Hvaða karakter ert þú að leika í söngleiknum?
Í þessu verki leik ég Jórunni yfirhjúkku, kona sem sýnist hafa allt á nótunum... þar til hún lendir í litlu slysi.
Hvenær kviknaði áhugi þinn fyrir leiklist og hvenær byrjaðir þú í LV? Ég hef alltaf haft gaman af því að leika og setja sýningar, en hafði aldrei kjarkinn að stíga á svið þar til ég tók mitt fyrsta skref árið 2017!
Hvað hefur þú tekið þátt í mörgum verkum?
Nú hef ég tekið þátt í níu verkum!
Áttu þér eitthvað draumaverk sem þú myndir vilja taka þátt í? Ég hef ekki ennþá hugsað um draumaverk, en ég hef alltaf viljað leika vonda kallinn, það væri gaman!
Besta leikrit/söngleikur sem þú hefur séð?
Eitt af mínum uppáhalds hefur alltaf verið Blái Hnötturinn!
Örfá orð um það sem þú hefur verið að bardúsa fram til þessa utan LV? Ég hef alltaf verið að vinna með að teikna og hanna list.
Áhugamál að leiklist undanskildinni?
List yfir höfuð telst með sem áhugamál hjá mér, alltaf gaman að búa til eitthvað nýtt og þróa hæfileikana mína!
Hverju ertu stoltust af? Ég veit
ekki hverju ég er stoltust af, en ég er alltaf stolt þegar ég stíg á svið! Að geta leikið fyrir framan marga og veitt þeim gleði er alltaf eitthvað sem ég held mikið upp á. Skiptir ekki máli hvort það er í Leikfélag Vestmannaeyja eða í Þjóðleikhúsinu!
Á hvað stefniru?
Að halda áfram með listina! Annað hvort leiklistarnám eða bara listnám.
Hvað langar þig að læra?
Úff, það er svo mikið sem maður getur lært, ég vil helst efla færni mína á listarsviðum.
Það verður lokað hjá okkur dagana 22. og 23. apríl
Opnum aftur mánudaginn 28. apríl
“...undirrituð táraðist svo úr hlátri að móða settist innan á gleraugun hennar”
- Helena Páls
Næstu sýningar:
Föstudag kl 20.00
Laugardag kl 21.00
Miðasölusíminn
852-1940 er opinn
Mán-fim 16-20 / Föst 13-18 / Lau 13-19
Gleðilega páska!
Hvar sérðu þig fyrir þér eftir 10 ár?
Ég er ekki viss, en ég vona bara að ég held áfram að gera það sem ég elska!
Hver er þín helsta fyrirmynd? Systir mín.
Ef þú ættir tímavél, til hvaða tíma myndiru vilja fara og afhverju?
Ég veit ekki hvort ég myndi nota tímavél. Það eru svo margar kvikmyndir sem segja að maður eigi ekki að skipta sér af tímavélum!
Annars myndi ég bara skoða fyrirburði í fjarska.
Eru einhverjar páskahefðir hjá ykkur? Ef já, þá hverjar?
Bara að slaka á með fjölskyldu og borða páskaregg.
Fyrir hverja er leikfélag Vestmannaeyja?
Leikfélag Vestmannaeyja getur verið fyrir alla! Bæði fyrir fólk sem starfa innan leikhúsins og fólk sem vilja bara horfa á verkin! Ef þú vilt taka þátt þá er mikið hægt að gera, og ef þú vilt bara horfa á verkin þá er það líka alltaf hægt!
Á hvaða aldri eru leikararnir í nýjasta verkinu?
Það eru margir aldurshópar í þessu verki, sumir ennþá í framhaldsskóla!
Til hverra nær leikritið?
Næstum allir geta notið leikritsins! Húmorinn nær til unglinga og einnig til þeirra eldri!
Hvað finnst þér leikfélagið gera fyrir menninguna og félagslífið í Eyjum?
Leikhúsið gefur fólki ekki aðeins tækifæri til að stíga út fyrir þægindarammann sinn, það gefur líka fleiri möguleika til að mynda ný tengsl og finna nýjar ástríður! Einnig auðvitað gefur Leikfélag Vestmannaeyja frábær verk sem samfélagið geta horft á og verið hluti af.
Tónlist
Hef ekki einn sérstakan músík stíl, elska blöndu af öllu!
Leikrit
Ég bara get ekki valið eitt uppáhalds! Þau eru öll svo öðruvísi og hafa sína styrkleika! Hamilton er eitt af þeim verkum sem er ómissanlegt, tónlistin í því verki er alveg frábært!
Matur
Cream Cheese pasta slær alltaf í gegn að mínu mati.
Drykkur
Vatn, elska vatn. Þarf ekkert mikið meira en vatn.
Hvaða ofurkrafti myndiru vilja búa yfir? Ofurhraða!
Hvaða leikari myndi leika þig í bíómynd um þig?
Jack Black, hann gæti það, ég finn það á mér!
Íþrótt
Sund hefur alltaf verið skemmtilegt, sérstaklega að reyna að bæta sig í tíma. En annars likaði mig mjög mikið við Bandý!
Smáforrit
Notes, skrifa alltaf mínar hugmyndir þar, alveg frá náms nótur yfir í áhugamál.
Kvikmynd/þættir
Þótt ég hef horft á Brooklyn 99 þrisvar sinnum þá hlæ ég alltaf jafn mikið.
Hvað færðu þér í morgunmat? Morgunkorn og epli! Mjög góð blanda.
Hver er mesta áhættan sem þú hefur tekið?
Að þora að vera sú sem ég er, að stíga á svið, að taka sénsinn.
Á að taka baðið í gegn?
Þú færð allt fyrir baðherbergið á einum stað. Við bjóðum við upp á frábært úrval af blöndunartækjum, vöskum og klósettum. Gólfefni ásamt úrvali af veggklæðningum.
Gleðilega páska! Gleðilega páska!
Nýsmíði
Gólfhitafræsing
Gólfhitalögn
Kjarnaborun
Pallasmíði
Þakvinna
Innréttingar
Utanhúsklæðningar aglverktakar@gmail.com // 768 5228
Sunnudagur kl. 11:00 (blandaðir fundir)
Miðvikudagur kl. 20:30 (blandaðir fundir)
Fimmtudagur kl. 12:05 (kvennafundir)
Föstudagur kl. 20:30 (blandaðir fundir)
AL-ANON Þriðjudagur kl. 20:30
Nýliðar sérstaklega velkomnir í spjall hálftíma fyrir fund.