
TÓMSTUNDA- & ÍÞRÓTTAHLAÐBORÐ Íþróttamiðstöðin 10:00 - 12:00
TÓMSTUNDA- & ÍÞRÓTTAHLAÐBORÐ Íþróttamiðstöðin 10:00 - 12:00
VESTM.
Í ÆÐ - PARTÝSÝNING Kvika kl. 21:00
NIRVANA ÁBREIÐA TÓNLEIKAR Háaloftið kl. 21:00
KARLA - ÚRSLIT ÍBV - AFTURELDING Íþróttamiðstöðin
Næstu sýningar: Föstudag kl 20.00
Laugardag kl 21.00 - PARTÝSÝNING
Miðasölusíminn 852-1940 er opinn mán-Fim 16-20 / Föst 13-18 / Lau 13-19
FORSÍÐUMYNDIN: Forsíðu vikunnar prýðir Sigurjón Geirsson í hlutverki bakardrengs í leikritinu um Dýrin í Hálsaskógi sem Leikfélag Vestmannaeyja frumsýndi um síðustu helgi. Mynd: Guðrún Elfa.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
DREIFING:
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Vestmannaeyjabær býður íbúum
á öllum aldri velkomna á Tómstundahlaðborð sem haldið verður í Íþróttamiðstöðinni næstkomandi laugardag 5. apríl frá klukkan 10 til 12. Þar gefst frábært tækifæri til að kynna sér þá fjölbreyttu flóru af íþrótta-, tómstunda- og sjálfboðaliðastarfi sem boðið er upp á í Eyjum.
Viðburðurinn er hugsaður sem létt og skemmtileg kynning fyrir íbúa á öllum aldri. Börn, ungmenni, foreldrar og eldri borgarar geta fengið innsýn í hvað er í boði, hvort sem það er fyrir þá sjálfa eða einhvern í fjölskyldunni. „Þetta er hlaðborð fyrir allan aldur,“ eins og skipuleggjendur segja og hvetja alla til að kíkja við og finna eitthvað sem gæti heillað.
EITTHVAÐ FYRIR ALLA Á Tómstundahlaðborðinu verða fjölmargir aðilar á svæðinu sem kynna starfsemi sína og bjóða upp á samtal og fræðslu. Hér má nefna meðal annars:
Íþróttir og líkamsrækt: ÍBV íþróttafélag, CrossFit Vestmannaeyja, Metabolic Eyjar, Karatefélag VM, Sundfélag VM, Ægir – Boccia, Ungbarnasund og fullorðinssund, Frístund – sumarnámskeið, Svæðisskrifstofa ÍSÍ, Janusarverkefnið.
Félags- og menningarstarf: Karlakór VM, Kvennakór VM, Lúðrasveit VM, Litla lúðrasveitin, Leikfélag VM, Tónlistarskóli VM, Kór Landakirkju, Kvenfélagið Líkn, Kvenfélag Landakirkju, Félag eldri borgara, Féló.
Sjálfboðaliðastarf og samfélagsverkefni: Björgunarfélag VM, Slysavarnadeildin Eykindill, Krabbavörn, Bjargið, KFUM og KFUK, Einhugur – félag einhverfra.
Afþreying og áhugamál: Pílufélag VM, Skotfélag VM, Taflfélag VM.
Þetta er aðeins hluti af þeim fjölbreytileika sem einkennir tómstunda- og félagastarf í Vestmannaeyjum. Hvort sem þú hefur áhuga á tónlist, leiklist, íþróttum, hugrænum áskorun-
um, sjálfboðaliðastarfi eða einfaldlega að taka þátt í samfélaginu – þá er eitthvað fyrir þig.
Við hvetjum því alla til að mæta á Tómstundahlaðborðið og sjá hvað Eyjarnar hafa upp á að bjóða – því það er aldrei of seint að finna sér nýtt áhugamál!
9. - 10. apríl
Kírópraktorstöðin Strandavegi 26 (íbúð 104)
Tímapantanir í síma 481-1000 www.gongugreining.is
Göngugreining - Lágmúli 4 - 108 Reykjavík
Við höfum áratuga reynslu af göngugreiningum og erum með mikið úrval af skóm, sokkum og fótavörum.
Ljósmyndir/Guðrún Elfa Jóhannsdóttir
Leikfélag Vestmannaeyja sýnir: BEINT Í ÆÐ
Höfundur: Ray Cooney
Þýðing: Gísli Rúnar Jónsson
Leikstjóri: Árni Grétar Jóhannsson
Fyrir níu árum síðan, nánast uppá dag, ritaði ég smá pistil um leikverkið ,,Nei ráðherra“ eftir Ray Cooney sem Leikfélag Vestmannaeyja hafði frumsýnt þá fyrr um kvöldið. Enn rjóð í kinnum eftir hlátursrokurnar og hitamolluna sem var í áhorfendastúkunni eftir öll hlátrasköllin þetta kvöld settist ég fyrir framan tölvuna, byrjaði að skrifa og sló inn þessi orð, sem síðar urðu fyrirsögnin á greininni ,,Þegar áhorfandinn rennur úr sæti sínu af hlátri“. Vísaði ég þar til atviks þar sem kona á einum af fremri áhorfendabekkjunum hló svo innilega og ofboðslega að hún hreinlega féll fram af sæti sínu og endaði á gólfinu! Nú og af hverju er ég að nefna þetta atvik sem gerðist fyrir einhverjum níu árum síðan? Jú einmitt vegna þess að nú níu árum síðar endur-
tók sagan sig nema í þetta skiptið var það undirrituð sem endaði í gólfinu og viti menn aftur var það á frumsýningu á farsa eftir Ray Cooney! Hvað er það eiginlega við farsana hans Ray Cooney?
En byrjum á byrjuninni. Beint í æð eða It runs in the family eins og verkið heitir á frummálinu, er bráfyndinn og hraður farsi. Eins
og með Nei ráðherra/Two into one, sem ég nefndi áðan, var það okkar ástsæli Gísli Rúnar Jónsson sem þýddi og heimfærði verkið af sinni alkunnu snilld og má geta þess að Gísli var einmitt sá sem þýddi þau þrjú verk (af mörgum sem Ray Cooney skrifaði) sem sýnd hafa verið hjá leikfélögum hér á landi. Eina verkið sem enn hefur ekki verið tekið til sýninga hjá Leikfélagi Vestmannaeyja er Viltu finna milljón/ Funny money. Beint í æð gerist á læknastofu hjá Dr. Jóni Borgar taugasérfræðingi þar sem gamlar syndir banka uppá mitt í því sem doktorinn er að undirbúa sig fyrir að halda gífurlega mikilvægan fyrirlestur á norrænni ráðstefnu erlendra taugalækna hér á landi. En á meðan Jón Borgar er með hugann við ræðuna sem hann þarf að flytja þennan sama dag, er annað starfsfólk sjúkrahússins upptekið við að undirbúa jólafjörið sem á að vera á spítalanum um kvöldið. Allt sem getur síðan farið úrskeiðis á svona mikilvægum degi fer
einfaldlega úrskeiðis svo útkoman verður hreint og beint óborganlega fyndin.
Leikverkið er fullt af misskilningi um hver er hvurs, ógleymanlegum fjörugum karakterum og ekki síst skemmtilegum tilvitnunum í staði og líðandi atburði. Svo nýliðna reyndar að það var bæði sérstök og skemmtileg upplifun að átta sig á að hluti handritsins hafði verið skrifaður aðeins núna síðustu daga og vikur! Má ég til með að hrósa Árna Grétari Jóhannsyni leikstjóra fyrir að hleypa þessum punktum með í handritið og gera það þar með að verkum að maður upplifir að verkið gerist í rauntíma. Þetta er í fimmta skiptið sem Árni Grétar er að leikstýra verki hjá LV. Síðast var það söngleikurinn Rocky Horror sem hann leikstýrði hjá leikfélaginu. Hlaut verkið mikið lof og hrifningu og endaði á að verða sýnt á fjölum Þjóðleikhússins eftir að það var valið áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins 2023. Árna Grétari hefur tekist ótrúlega vel til með leikhópinn í Beint í æð enda leyndi árangur þeirrar vinnu sér ekki á frumsýningunni. Hraðinn í verkinu er afar mikill og álagið á þá leikara sem mest eru á sviðinu gífulegt. Því var það hrein unun að fá að fylgjast með hversu framúrskarandi tilbúnir leikararnir voru að takast á við hlutverkin sín og það sem þeim fylgdi. Einnig það óvænta sem ekki endilega var skrifað í handritið.
Biritu í Dali sem leikur Gróu minnist ég ekki að hafa séð áður á sviði. Hún stóð sig hreint ágætlega í sínu hlutverki sem hin heyrnaskerta móðir Grettis læknis. Jón Helga Reykjalín sáum við síðast í uppfærslu LV á Spamalot þar sem hann stóð sig prýðilega en hér mæðir meira á honum í mun stærra hlutverki sem yfirlæknirinn Friðrik Ómar. Jón Helgi fer vel með hlutverk sitt þó vissulega hefði hann á stundum mátt vera skýrmæltari. En hafa skal í huga að þetta var jú aðeins frumsýning og efa ég ekki að hann batni bara með hverri sýningu. Þá getur undirrituð ekki látið hjá líða að nefna hversu lúmst kómískt henni þótti að Árni Grétar skyldi endurnefna karakter Jóns Helga og kalla hann Friðrik Ómar eftir vini sínum og söngvaranum geðþekka en ekki halda sig við nafnið Pál Óskar eins og hann er kallaður, að mér skilst, í þýðingu Gísla Rúnars.
Egill Andrésson var skemmtilegur sem hinn aldraði og uppátækjasami sjúklingur Mannfreð og Reynir Þór Egilsson er skýrmæltur, með góða framsögn og fer mjög vel með hlutverk sitt sem Loftur lögreglumaður. Sigurjón Geirsson sem leikur Frímann komst líka vel frá sínu. Hlutverkinu fylgir mikill atgangur og læti sem bitnar á stundum á hinu mælta máli en eftir að hafa fylgst með Sigurjóni í öðrum verkum LV veit ég að hann neglir framsetningu textans 100% fyrir næstu sýningu.
Sarah Elía Tórshamar var góð í hlutverki hjúkrunarfræðingsins Díönu. Söruh fer hægt og bítandi fram með hverju hlutverkinu sem henni er treyst fyrir og hún fer bráðvel með textann sinn að þessu sinni. Hún þyrfti aðeins að gæta að detta ekki stund og stund úr karakter og gjóa augunum þá á áhorfendur sem sita fyrir neðan sviðið því slíkt hefur truflandi áhrif á áhorfendur sem eru að keppast við að fylgjast með hröðum söguþræðinum. Líklega var þetta eitthvað tilfallandi og aðeins bundið við spennandi frumsýningarkvöld hjá þessari annars snjöllu og ungu leikkonu. Sarah hefur nefnilega sýnt það og sannað að henni fulltreystandi fyrir stórum hlutverkum og er sérstaklega eftirminnileg fyrir frábæra frammistöðu sína í Spamalot sem sýnt var ítrekað fyrir fullu húsi hjá LV í fyrra.
Bertha Þorsteinsdóttir var frábær sem Jórunn yfirhjúkrunarfræðingur. Ég segi það enn og aftur að Bertha er bara f-y- n- di- n punktur. Hún hefur tekið þátt í nokkrum sýningum LV, oftast í minni hlutverkum en einstaka sinnum verið treyst fyrir stærri rullum. Það er því sérstaklega gaman að sjá þegar henni tekst vel til og fær að njóta sín. Og það gerir hún í þessu verki. Um leið og textinn skilar sér alveg uppá tíu verður hún fullkomin og hlakka ég mjög til að sjá hana vaxa áfram og dafna innan LV. Bryndís Guðjónsdóttir leikur Súsönnu eig-
inkona Jóns Borgars og gerir það fullkomlega. Bryndís hefur lítið fyrir því að túlka hina dásamlegu og mátulega kærulausu eiginkonu taugasérfræðingsins. Hún virðist finna sig vel í hlutverkinu og textinn rennur óaðfinnanlega af vörum hennar. Virkilega góð frammistaða og gaman að sjá hversu afslöppuð hún er orðin á sviðinu. Sömu umsögn mætti hafa um Arnar Gauta Egilsson sem leikur hinn mjúka og ögn taugaveiklaða Dr. Grím Bríem. Arnar Gauti er alveg hreint dásamlegur í hlutverki sínu, hrikalega fyndinn í allri túlkun og með framúrskarandi framsögn. Virkilega búið að vera gaman að fylgjast með honum eflast með hverju hlutverkinu sem hann hefur tekið að sér hjá LV og sjá hann svo núna á sviði fara svo fanta vel með hlutverk sitt að áhorfendur réðu sér vart fyrir kæti.
Og talandi um eitthvað sem vel er gert þá er alls ekki hægt að gera upp á milli þeirra Zindra Freys Ragnarssonar Caine í hlutverki Dr. Jóns Borgars og hans Jökuls Elís Þorvaldssonar sem fer með hlutverk Dr. Grettis Sigs. Þeir voru algerlega óborganlegir í hlutverkum sínum báðir tveir og hreinlega drepfyndnir. Zindri Freyr býr auðvitað yfir margra ára leikreynslu sem gerir það að verkum að maður bara treystir því og trúir að hann eigi eftir að fara óaðfinnanlega með hlutverk sitt sem hann og gerir....í hvert skipti...alveg hreint magnaður! Jökull Elí hefur ekki starfað með leikfélaginu jafn lengi og Zindri en þó nógu lengi til að þroskast og ná að tileinka sér það besta frá sér reyndari leikurum með hverju verkinu sem hann hefur tekið þátt í síðustu árin. Fyrir vikið verður samleikur þessara tveggja leikara alveg hreint meiriháttar. Það er ekki bara eitthvað eitt atriði eða tvö sem hægt væri að draga úr verkinu og nefna sem eitthvað uppáhalds atriði með þeim tveimur heldur mörg. Það sem hinsvegar stendur akkurat núna uppúr í huga mér er atriði þar sem ófyrirsjáanlegur atburður gerðist sem augljóslega var ekki skrifaður í handritið. Hvernig þeir Zindri Freyr og Jökull Elí tókust á
við þann óvænta atburð, já og án þess að depla auga fléttu hann á augabragði inn í verkið þannig að úr varð ein besta og eftirminnilegasta sena í verkinu, er eitthvað sem mun aldrei renna mér úr minni. Og eitthvað sem Árni Grétar og leikhópurinn ættu að íhuga að halda inni í verkinu því áhorfendur hreinlega veltust um í sætunum, slóu sér á lær og þurrkuðu ítrekað tárin sem streymdu niður kinnarnar. Hvílíkir fagmenn þessir tveir.
Það var einmitt samleikur þeirra Zindra, Jökuls og fleiri í einu atriðinu rétt fyrir hlé sem varð til þess að undirrituð táraðist svo úr hlátri að móða settist innan á gleraugun hennar. Í þann mund sem hún tók af sér gleraugun til
og aftur hafi áhorfandi endað hláturskast á gólfinu í leikhúsi okkar Eyjamanna á farsa eftir Ray Cooney. Ætla bara rétt að vona að LV setji líka upp ,,Viltu finna milljón /Funny money“ í framtíðinni. Ég mæti pottþétt!
Þegar leikhúsgestir gengu út í svalt marskvöldið að lokinni frumsýningu var enn bros á vörum þeirra enda vart annað hægt en að brosa eftir að hafa fengið að upplifa þessa dópamínsprengju sem þetta leikverk er. Allt utanumhald var líka vel unnið og ekkert út á hljóð- og ljósastjórn að setja. Þá var hár, förðun og búningahönnun til fyrirmyndar.
Ég get þó ekki látið hjá líða að nefna sérstaklega leikmyndina í verkinu. Hún var virkilega flott
að þurrka þau tók hún á örskotsstundu eftir hvar hún seig stöðugt hratt og bítandi neðar og neðar í sætinu þar til hún horfði allt í einu upp til sér annars mun lágvaxnari leihúsfélaga síns Kolbrúnar Hörpu Vatnsdal, þar til eitthvað gaf sig og undirrituð sat á gólfinu sjálfu! Sú staðreynd að sætin tvö sem undirrituð og leikhúsfélagi hennar Kolbrún Harpa Vatnsdal fengu úthlutað höfðu víst verið losuð og fjarlægð í vikunni að sögn stjórnarmanns leikfélagsins, til að festa upp ljóskastara í loftið og ekki verið fest nægjanlega vel á eftir, spilaði víst eitthvað inní að svo fór sem fór. En það var allt fest kyrfilega og lagað í leikhlé. Sagan er hinsvegar miklu fyndnari hinsegin þ.e.a.s. að enn
hönnuð og af ljósmyndum að dæma alls ekki síðri en það sem jafnvel best gerist hjá leikfélögum hérlendis sem sett hafa upp þetta sama verk. Ber að hrósa leikfélaginu sérstaklega fyrir þennan metnað og þakka þeim stofnunum og einstaklingum sem aðstoðuðu LV við að gera leikmyndina jafn glæsilega og raun ber vitni. Takk Leikfélag Vestmannaeyja fyrir að sýna ávalt metnað í öllu sem þið gerið og fyrir að sýna enga minnimáttarkennd þrátt fyrir að hafa úr minna fjármagni að moða en stóru leikhúsin.
Bravó...Árni Grétar og þið öll hjá Leikfélagi Vestmannaeyja! Takk kærlega fyrir mig og okkur, Helena Páls
Nýverið opnaði veitingastaðurinn Gott að nýju eftir vetrarlokun. Ásamt ýmissa nýunga á matseðli býður staðurinn nú uppá upplifun sem kallast High Tea. „Þetta er bresk hefð frá fyrrihluta 19. aldar þar sem boðið er uppá minni, létta síðdegis rétti. Rétti á borð við mini samlokur, kökubita, enskar skonsur, mini vefjur, kökur osfrv. borið fram á háum bakka fyrir tvo eða fleiri að deila,“ sagði Berglind Sigmarsdóttir einn eiganda Gott í samtali við Tígul. „Með þessu er hægt að fá sér mimosu, sangriu, kokteila og /eða ljúffengt kaffi eða te á sérstöku High Tea tilboðsverði.
Nafnið High tea er komið til vegna þess að máltíðin var borðuð við hátt borð og má í raun túlka sem te með kvöldmat. Í dag er boðið upp á High Tea á fínni hótelum og ýmsum veitingarstöðum og þá er meira verið að blanda saman við það sem kallast “afternoon tea”, sem eru meiri sætindi eins og smákökur og þessu hefðbundan High Tea. Nú er þetta í boði á GOTT alla föstudaga og laugardaga frá klukkan 14:00 –17:00.“
Berglind segir fólk hinsvegar ekki þurfa að vera áhugafólk til að mæta í High tea þrátt fyrir nafnið. „Sumir velja sér gott kaffi eða kampavín eða jafnvel bjór. Við bjóðum uppá skemmtilega nýjung í þessu og það er að fá t.d sangriu
í Tekönnu. Langi þig að hitta vini eða fjölskyldu yfir léttum mat og fá góð tilboð á geggjuðum drykkj-
um með þá er Hight Tea eitthvað fyrir þig,“ sagði Berglind að lokum og lofaði góðum móttökum.
Þjálfarateymi Karatefélags Vestmannaeyja skipað þeim Mikael, Arnari og Trasta Mar, var sigursælt á Íslandsmeistaramótinu.
Eftir nokkurra ára hlé hefur Karatefélag Vestmannaeyja hafið starfsemi að nýju, og það með krafti sem fáir áttu von á. Félagið, sem átti sitt blómaskeið á árunum 2012 til 2019, féll í dvala um tíma, en er nú risið aftur með nýja kynslóð iðkenda og gamla reynslubolta í fararbroddi. Þrír fyrrum meðlimir, Mikael Magnússon, Arnar Júlíusson og Trausti Mar Sigurðsson, tóku sig saman fyrir rúmu ári síðan og ákváðu að endurreisa félagið – og innan fárra vikna var boltinn farinn að rúlla á ný.
„Við höfðum talað um þetta lengi, að endurvekja Karatefélagið, en svo var það í byrjun síðasta árs sem við ákváðum að láta verða af þessu,“ segir Mikael. „Við
höfðum saknað þess að hafa ekki vettvang fyrir karateiðkun í Eyjum. Þetta var orðið tóm, það er nefnilega svo mikils virði að hafa svona félag innan samfélagsins.“
Nýtt upphaf markaði einnig nýja nálgun. Fyrstu skrefin voru tekin með því að stofna æfingahóp fyrir börn, og áhuginn lét ekki á sér standa. Um 20 börn, á aldrinum 9 til 13 ára, mæta nú reglulega á æfingar í Þórsheimilinu á fimmtudögum. Þar eru æfingarnar í senn líkamlega krefjandi og andlega styrkjandi – með áherslu á aga, virðingu og samvinnu.
„Það kom okkur skemmtilega á óvart hversu mikil þátttaka var
strax í byrjun,“ segir Mikael. „Við fengum börn úr öllum áttum, sum sem höfðu prófað að æfa áður og önnur sem voru alveg ný í íþróttinni. Við sjáum hvað þau blómstra hratt, bæði líkamlega og félagslega.“
Krakkarnir hafa nú þegar tekið þátt í þremur mótum, í Hafnarfirði, Reykjanesbæ og Kópavogi og komið heim með verðlaun í farteskinu. „Þetta eru allt saman mót þar sem félög af öllu landinu taka þátt, og eru ekki nein byrjendamót, engu að síður hafa þau staðið sig frábærlega,“ segir Mikael og brosir. „Við erum að tala um gull, silfur og brons, og það sem meira er þá sýna þau góða íþróttamennsku, virðingu og einbeitingu.“
ÞJÁLFARARNIR SJÁLFIR
ENN Í FREMSTU RÖÐ
Það eru ekki aðeins börnin sem skara fram úr. Þjálfararnir sjálfir tóku þátt í Íslandsmeistaramótinu í mars og sýndu þar að reynslan er enn fyrir hendi. Þeir kepptu allir í bæði Kata og Kumite, sem eru tvær helstu greinar karateíþróttarinnar.
„Kata snýst um að framkvæma fyrirfram ákveðna rútínu, þar sem maður sýnir tækni, jafnvægi og flæði hreyfinga,“ útskýrir Mikael. „Kumite er svo bein bardagakeppni þar sem tveir keppendur mætast með hlífar og reyna að skora stig með löggildum höggum og spörkum. Þetta er bæði tæknilegt og taktískt.“
Mikael vann sjálfur til Íslandsmeistaratitils í sínum þyngdarflokki í Kumite og bætti við silfur- og bronsverðlaunum. Arnar og Trausti unnu einnig til verðlauna í báðum greinum, og samanlagt var þetta mikill sigur fyrir nývaknað félag.
„Í lok mótsins var stigakeppni þar sem öll félögin voru metin út frá árangri sinna keppenda og þar enduðum við í öðru sæti yfir allt landið,“ segir Mikael. „Að vera útnefnd næst besta karatefélag Íslands, eftir svo stuttan tíma aftur í rekstri, var ótrúlega gefandi. Það var klár staðfesting á því að við erum á réttri leið.“
Eyjapeyinn Sveinþór Atli Sigurðsson, 12 ára er hér nær okkur á myndinni í einni af viðureignum sínumí Kumite.
Hér má sjá Eyjapeyjann Eið Árnason 11 ára fagna gulli í Kumite.
Það er augljóst að hjá Mikael og félögum hans ríkir mikill metnaður en líka skýr framtíðarsýn. Næsta markmið þeirra félaga er að bæta við æfingahópi fyrir unglinga og fullorðna, frá 14 ára aldri og upp úr. Ætla þeir að hefja þær æfingar eftir sumarið og vonast til að fá góð viðbrögð frá eldri iðkendum.
„Við vitum að það eru margir sem annaðhvort æfðu áður eða hafa haft áhuga en aldrei próf-
Ingibergur Sigmundsson, 13 ára með appelsínugula beltið, tekur við silfurverðlaunum í Kata.
að,“ segir Mikael. „Það er aldrei of seint að byrja í karate. Þetta er íþrótt sem hentar öllum, hvort sem fólk vill bæta líkamlegt form, læra sjálfsvörn, eða bara finna góða leið til að hreinsa hugann.“
Aðspurður um hvernig karate hafi áhrif á samfélagið segir Mikael það skipta meira máli en margir átta sig á. „Karate er ekki bara bardagaíþrótt, þetta er lífsstíll. Við kennum börnunum að virða hvort annað, að sýna sjálfsaga, að hlusta og hugsa áður en þau bregðast við. Þessi gildi fylgja þeim út fyrir salinn og inní lífið og það skiptir máli.“
Félagið hefur þegar fengið góð viðbrögð frá samfélaginu. Foreldrar lýsa ánægju sinni með skipulag, andrúmsloft og það hversu vel börnin tengjast æfingunum. „Við fáum líka sífellt fleiri fyrirspurnir frá fólki sem vill vita hvenær hægt er að byrja og við fögnum því,“ segir Mikael.
Það er ljóst að Karatefélag Vestmannaeyja stendur á traustum grunni, með blöndu af reynslu, eldmóði og samfélagslegri hugsun. Með áframhaldandi stuðningi bæjarbúa er ljóst að félagið er komið til að vera og að baráttuviljinn er enginn minni en áður.
„Við erum hvergi nærri hætt, þetta er bara byrjunin,“ segir Mikael og horfir bjartsýnn til sumarsins og framtíðarinnar.
Ég vill þakka Alberti fyrir áskorunina. Hann fylgist greinilega vel með matreiðslu snöppunum mínum, Úti að grilla með Tobba Villa. En ég mun svo verða með vikulega grillþætti í sumar, ef það kemur sumar.
Ég ætla ekki að koma með eins flókna uppskrift og Albert (veit ekki í hvaða blaði hann fann þessa uppskrift), enda þarf góður matur ekki að vera flókinn.
1 stk nautalund, snyrt og sinin skorin frá. Sker hana svo í um tommu þykkar sneiðar. Set hana í dall með einni flösku af Caj P grillolíu, pipra og salta aðeins og gott er að rífa híði af sítrónu eða lime með. Þetta læt ég standa í ísskáp í tvo daga og tek út morguninn sem á að grilla og læt standa á borði.
6 stk bökunarkartöflur sem græjaðar eru Hasselback stæl. Pensla með ólífuolíu og salta yfir. Bakaðar í ofni við 180 ‘c í ca 45-60 mín. Gott að hafa kryddsmjör með.
Í sósuna nota ég það sem skorið var frá við snyrtinguna á lundinni. Set það í pott með olíudreytil og brúna aðeins. Því næst set ég 1 stk lauk, og kjarnann, toppinn og stöngulinn af papriku (paprikuna sjálfa nota ég í salat) set það í pottinn og steiki aðeins. Næst fer 1 tsk af Lamb Islandia kryddblöndu frá Pottagöldrum út í pottinn. Steiki aðeins og bæti svo um 1 ltr af vatni. Sýð þetta niður þar til ég hef um ½ ltr af soði. Á meðan þetta sýður mýki ég lauk og papriku sneiðar á pönnu sem ég svo set út í sósuna eftir að hún er klár. Sigta soðið frá og set í annan pott. Bæti út í 1 msk tómatpúrru, nautakrafti (2 msk af fljótandi eða tveimur teningum). Sýð þetta upp og bæti svo
Þorbjörn Víglundsson er sælkeri vikunnar.
í rjóma, dekki og þykki svo með sósujafnara. Bæti paprikunni og lauknum út í.
Nú er sósan klár og þá er ekkert annað eftir en að grilla kjötið. Munið bara að hafa grillið funheitt og grilla kjötið ekki of lengi.
Með þessu hef ég einnig grillaðan aspas og ferskt salat. Drekk með þessu rauðvín og hef kaffi og Bailyes í eftirrétt.
Ég ætla að skora á Svein Ásgeirsson Skvísubúðar kóng og sjóara sem næsta matgæðing vikunnar. Hann er einstaklega lipur með grilltangirnar og hefur reytt fram ótrúlegustu veislur af grillinu.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
UNNUR GÍGJA BALDVINSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur
lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum þann 28. mars. Útför verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 4. apríl kl. 13:00. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir kærleiksríka umönnun.
Margrét Lilja Magnúsdóttir
Bjarni Ólafur Magnússon
Baldvin Búi Wernersson
Magnús Ellert Bjarnason
Gígja Sunneva Bjarnadóttir
Módís Una Magnúsdóttir Jóhann Pétursson
Er apríl þinn skoðunarmánuður?
Frumherji í Eyjum vikuna 7. - 10. apríl
(allar stærðir ökutækja)
Opnar kl. 13:00 á fyrsta degi og lokar kl. 16:00 á síðasta degi. Lokað í hádeginu.
Tímapantanir í síma 570 9090
Faxastíg 38, 900 Vestmannaeyjum
Nýsmíði
Gólfhitafræsing
Gólfhitalögn
Kjarnaborun
Pallasmíði
Þakvinna
Innréttingar
Utanhúsklæðningar aglverktakar@gmail.com // 768 5228
tannsi@eyjar.is
TÖKUM PASSAMYNDIR FYRIR ÖKUSKÍRTEINI OG ÖNNUR SKÍRTEINI.
PANTA ÞARF TÍMA Í MYNDATÖKU
HÆGT ER AÐ SENDA TÖLVUPÓST Á LETURSTOFAN@LETURSTOFAN.IS
EÐA HRINGJA Í SÍMA 6947999 VESTMANNABRAUT 38
Sunnudagur kl. 11:00 (blandaðir fundir)
Miðvikudagur kl. 20:30 (blandaðir fundir)
Fimmtudagur kl. 12:05 (kvennafundir)
Föstudagur kl. 20:30 (blandaðir fundir)
AL-ANON Þriðjudagur kl. 20:30
Nýliðar sérstaklega velkomnir í spjall hálftíma fyrir fund.