Það er margt sem leynist í sögu Vestmannaeyja og nú hefur Magnús Bragason fundið nýja leið til að miðla henni – beint í eyrun á fólki á göngu um bæinn.
Við ræddum við Eygló um uppruna áhuga hennar á heilbrigði og líkamsrækt, ábyrgð áhrifavalda og stöðuna í deilum um rekstur heilsuræktar í Vestmannaeyjum.
Við ræddum við Harald Pálsson, framkvæmdastjóra Eyjaganga, um framvindu verkefnisins, áskoranirnar sem kunna að bíða og þá framtíðarsýn sem liggur að baki.
Sælkeri vikunnar ÖRLYGUR ÞÓR JÓNASON
FÖSTUDAGSRÉTTURINN
Ég vil þakka fyrrverandi vinkonu minni, henni Brigittu fyrir þessa æðislegu áskorun. Minningarnar hennar frá þessu matarboði mínu segja manni að ég hafi gefið henni fleiri Öllara en einn. Þeir sem standa mér næst treysta mér varla til að hita pullu í örbylgjuofni. En hvað um það, mér finnst samt gott að borða og hérna kemur ein uppskrift af einföldum föstudagsrétti sem hún Guðbjörg mín stal einhverstaðar frá. Geggjaður réttur með einum köldum, eða 6.
Hráefni:
500g Nautahakk
Taco krydd
Ein krukka af Salsa Sósu (má vera ein og hálf)
Ein krukka af osta sósu.
Sveppir.
Rauðlaukur
Rauð paprika
Hvítlaukur
Rifinn ostur
Aðferð:
Hakk steikt og kryddað, grænmeti skorið, öllu hrært saman og sett í eldfast mót.
Ostinum stráð yfir og sett í ofn þar til osturinn lítur fallega út. Þetta er svo borið fram með sýrðum rjóma og Doritos snakki.
Þegar Kristleifur mágur bíður manni í mat er ekkert nema tilhlökkun. Því skora ég á hann að koma með eitthvað úr sínum bókum.
Ölli er sælkeri vikunnar.
TÍGULL
Dreifing fer fram á fimmtudögum
og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir Ljósmynd á forsíðu/Bjarni Georgsson ljósmyndari.
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Viltu hafa áhrif 2026?
Styrtkarsjóður menningar, lista, íþrótta og tómstunda.
Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl 2026
Markmiðið sjóðsins er að styrkja menningar-, lista-, íþrótta- og tómstundastarfsemi í Vestmannaeyjum með því að styðja við og hvetja einstaklinga, félagasamtök og listahópa til eflingar á viðburðum og verkefnum á sviði menningar, lista, íþrótta og tómstunda.
Listamenn, einstaklingar og félagasamtök verða að vera skráð í Vestmannaeyjum og verkefni/viðburður þarf að fara fram í Vestmannaeyjum.
Upplýstingar um reglur sjóðsins er að finna á vestmannaeyjar.is eða skanna in QR kóðann!
Umsóknum skal skilað með rafrænum hætti í gegnum íbúagátt á vef Vestmannaeyjabæjar. Aðstoð við umsókn er hægt að fá hjá verkefnastjóra menningarmála í síma 488-2000
Bæjarráð metur umsóknir um menningar- og listatengda styrki og Fjölskyldu og tómstundaráð metur íþrótta- og tómstundatengd verkefni. Við mat á verkefnum er horft til markmiða þeirra og hvernig þau nýtast til að efla fjölbreytt menningar-, lista-, íþrótta- og tómstundalíf bæjarbúum til góðs. Tekið er mið að raunhæfi verkefna, kostnaðaráætlun, auk tíma- og verkáætlun.
Vestmannaeyjabær auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2026
- Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum.
- Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.
Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2026
Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar 1.maí nk. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða í Ráðhúsið, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns.
Nánari upplýsingar veitir Súsanna Georgsdóttir með tölvupósti (susanna@vestmannaeyjar.is) eða í síma 488 2000.
SÖGUGANGA UM VESTMANNAEYJAR
NÝ UPPLIFUN FYRIR HEIMAMENN OG GESTI
Það er margt sem leynist í sögu Vestmannaeyja og nú hefur Magnús Bragason fundið nýja leið til að miðla henni – beint í eyrun á fólki á göngu um bæinn.
Við hjá Tígul settumst niður með Magnúsi og fengum að heyra hvernig hugmyndin kviknaði og hvernig verkefnið varð að veruleika.
Áhugi á sögunni og ný leið til að miðla henni
„Ég hef alltaf haft áhuga á sögu okkar Vestmannaeyinga og fannst gaman að segja frá henni þegar ég vann á hótelinu,“ segir Magnús.
Hugmyndin þróaðist þó áfram þegar hann fór að vinna með röddina.
„Heilsubrestur hjá mér veldur meðal annars því að röddin gefur eftir og til að þjálfa hana keypti ég hljóðnema. Ég ætlaði að gera eitthvað nytsamlegt með æfingunum, til dæmis lesa inn bækur eða gera hlaðvarp.“
VoiceMap
– sagan lifnar við á göngu
Í kjölfarið rakst Magnús á appið
VoiceMap sem heillaði hann strax.
„Það virkar þannig að notandi
gengur ákveðna gönguleið og hlustar á sögur um leið. Leiðin er kaflaskipt og nýr kafli byrjar þegar notandi er kominn á ákveðinn GPS-punkt.“
Appið er frítt en notendur geta keypt aðgang að mismunandi gönguleiðum.
„Þetta gerir ferðalög bæði fræðandi og skemmtileg og maður fer á staði sem maður vissi jafnvel ekkert um.“
Gamli miðbærinn varð fyrir valinu Upphaflega stóð til að gera lengri leið.
„Fyrst langaði mig að gera hljóðleiðsögn fyrir Puffin Run hringinn umhverfis Heimaey, en mér var ráðlagt að gera frekar styttri gönguleið þar sem batteríið á símanum myndi líklega ekki endast í þá fjóra tíma sem sú ganga tekur.“
Því varð úr að fyrsta leiðin yrði um gamla miðbæinn.
„Ég kortlagði leiðina, safnaði saman sögum sem pössuðu og las þær sjálfur inn.“
Að heyra sjálfan sig – og yfirstíga það „Ég fékk kjánahroll þegar ég hlustaði á sjálfan mig þegar allt var tilbúið,“ segir Magnús og brosir.
„En ég komst yfir það og þá kviknaði hugmynd að gera enska útgáfu líka.“
Hann fékk til liðs við sig leiðsögumanninn Neil McMahon.
„Hann gaf mér góð ráð og las inn enska textann.“
Gönguleiðin – saga á hverju skrefi Gönguleiðin hefst við Fiskiðjuna, nálægt Bæjarbryggju, og liggur þaðan upp brekkuna á milli FES og Landsnets og inn á Skans. Á leiðinni er farið á hafnargarðinn, upp á Nýja hraun og framhjá
sögufrægum stöðum eins og Franska spítalanum og Landakirkju.
Kallar eftir viðbrögðum Íslenska útgáfan af göngunni er frí og hvetur Magnús fólk til að prófa. „Ég væri mjög þakklátur ef þeir sem fara í gönguna myndu gefa mér umsögn og góð ráð – mig langar að halda þessari vinnu áfram.“
Næsta skref – Tyrkjaránið Framundan gætu verið fleiri spennandi verkefni.
„Sögufélag Vestmannaeyja er að vinna að dagskrá fyrir næsta ár þegar 400 ár verða frá Tyrkjaráninu. Við Neil og Ragnar Óskarsson erum að skoða möguleikann á að gera gönguleið sem segir þá sögu.“
ARNAR FREYR VANN PÁSKAEGG NÚMER 7 TIL ÆVILOKA
Árið 2000 fagnaði Nói Siríus 80 ára afmæli sínu með því að efna til sérstaks páskaeggjaleiks. Leikurinn var þannig úr garði gerður að hægt var að skrá börn sem fæddust það ár, innan ákveðins tímabils, til þátttöku.
Kristín heitin Eggertsdóttir rakst á auglýsingu frá Nóa Siríus og ákvað að skrá Arnar Frey í leikinn, enda áttu þau sama afmælisdag, 4. ágúst. Foreldrar Arnars Freys, Hulda og Addi vissu ekkert um skráninguna fyrr en Kristín greindi þeim frá því að Arnar Freyr hefði verið dreginn út.
Það vildi svo skemmtilega til að Arnar Freyr var einn af 80 heppnum vinningshöfum sem dregnir voru út í tilefni af 80 ára afmæli Nóa Siríus. Þar af voru sex Eyjabörn meðal vinningshafa.
Vinningurinn var heldur betur veglegur: stærsta páskaegg Nóa Siríus, númer 7, á hverju ári ævilangt. Arnar Freyr fékk sitt fyrsta egg þegar hann var aðeins átta mánaða gamall, og síðan þá hefur páskaeggið borist honum ár hvert.
Nú, 26 árum síðar, hefur þessi skemmtilega hefð staðið óslitið og páskaeggið frá Nóa Siríus númer 7 aldrei látið standa á sér.
Með fyrsta páskaeggið frá Nóa Siríus. Arnar Freyr, 8 mánaða.
Farið í Nóa Siríus til að sækja annað páskaeggið, 2001.
Kristín ásamt Arnari Frey. En kristín bjó í nágrenni við foreldra Arnars og var mikil vinkona þeirra.
Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum þann dag kl. 11:00 til 12:00 í fundarherbergi Lögmannsstofu Vestmannaeyja, á 2. hæð að Kirkjuvegi 23, Vestmannaeyjum. Heimilt er að skila framboðslistum fyrr til Yfirkjörstjórnar á sama stað.
Á framboðslista skulu vera að lágmarki 9 nöfn frambjóðenda og eigi fleiri en 18. Framboðslista fylgi yfirlýsing þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Hverjum lista skal fylgja skrifleg yfirlýsing 40 meðmælenda hið fæsta og eigi fleiri en 80. Hver kjósandi má einvörðungu mæla með einu framboði. Frambjóðendur geta ekki verið meðmælendur eigin framboðs. Þá skal fylgja tilkynning um hverjir séu umboðsmenn listans.
Yfirkjörstjórn óskar eftir að framboðslistar nýti rafrænt meðmælakerfi á www. kosning.is til að safna og skrá meðmæli með framboðslista. Verði því ekki komið við er hægt að safna meðmælendur á pappírsformi og skila til Yfirkjörstjórnar.
Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega fullt nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu og heimili, til þess að enginn vafi geti leikið á því hverjir eru í kjöri.
Greina skal fullt nafn, kennitölu og heimilisfang hvers meðmælanda.
Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag verður á kjörstað í Barnaskóla Vestmannaeyja.
Vestmannaeyjum, 27. mars 2026
Yfirkjörstjórn Vestmannaeyjabæjar Jóhann Pétursson, formaður Ólafur Elísson , Þór Ísfeld Vilhjálmsson
EYJAGÖNG Á NÆSTA STIG: FYRSTU RANNSÓKNIR HEFJAST Í APRÍL
Félagið Eyjagöng ehf. var stofnað 22. nóvember 2025. Hér má sjá tölvumynd af göngum.
Verkefnið um Eyjagöng hefur á skömmum tíma vakið mikla athygli, ekki síst í Vestmannaeyjum þar sem umræða um fasta landtengingu hefur lengi verið lifandi. Nú þegar fyrstu rannsóknir eru að hefjast og fjármögnun gengur betur en vonir stóðu til, eykst áhugi á að fá skýrari mynd af stöðu verkefnisins, hvað felst í þeim rannsóknum sem fram undan eru og hvert næstu skref gætu leitt. Við ræddum við Harald Pálsson, framkvæmdastjóra Eyjaganga, um framvindu verkefnisins, áskoranirnar sem kunna að bíða og þá framtíðarsýn sem liggur að baki.
Geturðu útskýrt í stuttu máli hvað Eyjagöng snúast um og hvar verkefnið er statt í dag?
Félagið Eyjagöng snýst fyrst og fremst um að rannsaka fýsileika jarðganga milli land og Eyja. Þyki verkefnið fýsilegt mun félagið fara í að fjármagna gerð vegtengingarinnar með erlendu og innlendu lánsfé. Verkefnið stendur í dag þannig að við erum að safna 200 milljónum króna til að fjármagna fyrstu rannsóknarlotuna. Það hefur gengið vonum framar, því upphaflega stefndum við að því að safna fjármunum í fyrstu holuna og sjá hvert það myndi leiða okkur. Við erum að hefja rannsóknir á Eiðinu á Heimaey í lok apríl.
Hvað felst í þeim rannsóknum sem nú eru í gangi?
Fyrstu rannsóknirnar verða kjarnaborun bæði í Eyjum og í Landeyjunum og hefjast þær í næsta mánuði. Við byrjum á Eiðinu í apríl og þegar við höfum klárað borunina í Eyjum þá flytjum við tækin yfir í Landeyjarnar og höldum áfram þar. Jarðfræðingar munu greina bergtegundir og styrkleika bergsins, ásamt lekt og samlímingu í Berginu.
Þið notið hljóðendurvarpsmælingar – hvað þýðir það í raun og hvað eruð þið að skoða?
Hljóðendurvarpsmælingar virka svipað og ómskoðun. Við sendum hljóðmerki niður í gegnum botnlögin sem endurkastast svo til baka þegar þau hitta á mismunandi jarðlög. Með því að nota sparker getum við “séð” í gegnum setlögin til að finna nákvæmlega hvar föst klöpp liggur og hvort einhverjar sprungur eða veikleikar séu á leiðinni. Þetta er lykilatriði til að kortleggja öruggustu og bestu línuna fyrir gerð jarðganganna. Þessi rannsókn verður framkvæmd frá skipi í sumar.
Hversu mikið geta þessar rannsóknir minnkað óvissu varðandi framkvæmd og Kostnað?
Samspil þessara aðferða lágmarkar jarðfræðilega áhættu, sem er yfirleitt stærsti óvissuþáttur-
inn í kostnaðaráætlunum jarðganga. Hljóðendurvarpsmælingarnar gefa okkur samfellda mynd af leiðinni á meðan kjarnaboranir gefa okkur raunlæg sýni af hörku og gæðum bergsins. Með því að eyða óvissunni um hvar við mætum erfiðum jarðlögum, getum við gert mun nákvæmari áætlanir.
Hversu löng yrðu göngin og hvers konar framkvæmd er um að ræða?
Göngin verða að öllum líkindum um það bil 18 kílómetrar að lengd, það liggur ekki alveg fyrir á þessum tímapunkti. Um er að ræða göng sem fara undir sjávarborninn og eru í berglögunum. Líklegast er að aðferðin sprengja og spora verði notuð við framkvæmd ganganna en mögulega verður hagstætt að nota heilborun. Það fer eftir því hver harkan í berginu verður og hvaða bergtegundir er um að ræða.
Hverjar eru helstu áskoranir við að gera jarðgöng undir sjó á þessari lengd?
Við erum ekki komin í hönnun eða framkvæmd, við erum hreinlega að teikna upp kortið af hafsbotninum. Markmiðið núna er að skilja jarðlögin svo hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir síðar meir. Það er ótímabært að ræða þær áskoranir fyrr en við vitum hvað er þarna niðri.
Þið hafið talað um að göngin muni „stækka Suðurlandið“ – hvað felst í því?
Á suðurlandsundirlendinu eru 5 sveitarfélög, Ásahreppur, Rangárþingin Ytra og Eystra, Mýrdalshreppur og Kirkjubæjarklaustur. Þegar vegtenging er komin á milli Vestmannaeyja og þessara sveitarfélaga verður íbúafjöldinn á svæðinu sá sami og á öllu Austurlandi, tæplega 11 þúsund manns. Við þetta skapast ótal tækifæri, Vestmannaeyjahöfn verður útflutnings og innflutningshöfn fyrir allt svæðið. Farþegar skemmtiferðaskipa sem leggjast að bryggju í Eyjum munu geta keypt ferðir um allt svæðið. Íbúar munu allir geta nýtt sér heilbrigðisþjónustuna sem er í Vestmannaeyjum, Framhaldsskólann, lágvöruverslanir og ýmsa aðra þjónustu sem íbúar þurfa í dag að sækja vestur að Ingólfsfjalli.
Hversu langt er í að hægt sé að leggja fram raunhæft kostnaðarmat?
Kostnaðarmatið byggir algjörlega á þeim gögnum sem við erum að safna núna með kjarnaborunum og hljóendurvarpsmælingum. Við leggjum mikla áherslu á að vinna allar rannsóknirnar af fagmennsku og með trúverðugleika að leiðarljósi. Við stefnum á að fyrsta raunhæfa kostnaðarmatið liggi fyrir í lok þessa árs.
Hvað þarf að gerast næst til að verkefnið geti farið í framkvæmd?
Næstu skref ráðast algjörlega af niðurstöðum rannsóknanna. Ef jarðlögin reynast eins hagstæð og við
Haraldur Pálsson, framkvæmdarstjóri Eyjagöng ehf.
vonum, munum við auka hlutafé félagsins til að fjármagna næsta fasa, sem er forhönnun og ítarlegri rannsóknir. Samhliða því myndum við hefja samtöl við fjármögnunaraðila og reynda verktaka til að leggja línurnar fyrir framhaldið.
Ef allt gengur upp – hvenær gætu slík göng orðið að veruleika?
Þá munum við halda vígslu og hálfmarathon í gegnum göngin í nóvember 2035, þannig að maður fer fljótlega að byrja að æfa.
Skannaðu QR kóðann til að nálgast páskaleik
Systur & Makar
Viltu minnast látins ættingja eða vinar?
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
Verð: 18.600 kr.
Ársþing Íþróttabandalags
Vestmannaeyja fyrir árið 2025
verður haldið þriðjudaginn 7. maí kl. 20:00 í Týsheimilinu
Venjuleg aðalfundarstörf Stjórn
Íþróttabandalags Vestmannaeyja
Gleðilega páska!
VANTAR MYND AF ÞÍNU BARNI? Sendu okkur endilega mynd og upplýsingar á tigull@tigull.is
SÁLMASKRÁR
Tökum að okkur gerð sálmaskráa. Panta þarf tíma í síma 694 7999 eða senda tölvupóst á leturstofan@leturstofan.is
GLEÐILEGA PÁSKA!
Virkir dagar frá 8:00-17:00 laugardagar 10:00-14:00
Viðtal við Eygló Egilsdóttur
BESTI DAGURINN TIL AÐ BYRJA ER Í DAG
Heilsa, líkamsrækt og áhrif samfélagsmiðla eru stöðugt til umræðu – en sjaldan jafn hreinskilnislega og hjá Eygló Egilsdóttir. Hún hefur markvisst talað fyrir raunhæfri nálgun á heilsu og gagnrýnt yfirborðskennda ímynd sem oft er sett fram á netinu. Við ræddum við Eygló um uppruna áhugans, ábyrgð áhrifavalda og stöðuna í deilum um rekstur heilsuræktar í Vestmannaeyjum.
Hvað kveikti áhuga þinn á heilsu og heilbrigðum lífsstíl?
Upphaflega kemur áhuginn úr uppeldinu. Mamma mín var og er langveik og það setti ákveðið spor á allt heimilislífið – líka á viðhorf mitt og virðingu fyrir líkamanum og heilsunni.
Hvað finnst þér vanta í umræðuna um heilsu í dag?
Umræðan er svolítið út um allt, sem er kannski ágætt – við erum öll ólík og þurfum mismunandi leiðir. Ég hef hins vegar einsett mér að sýna það sem er raunverulegt, ritskoða mig sem minnst og minna á að það eru engar styttri leiðir á eftirsóknaverða staði.
Þú hefur gagnrýnt „fake“ menningu á samfélagsmiðlum – hvað finnst þér mest varhugavert?
Mér finnst allt í lagi að fólk fari í lýtaaðgerðir – það kemur öðrum í raun ekki við. En þegar slíkt útlit er notað til að selja öðru fólki prógrömm eða vörur til að ná sama árangri, þá er það ekkert annað en sölubrellur og lygar. Það er líka mikill munur á að vera þjálfari sem reynir að vera áhrifavaldur, eða áhrifavaldur sem reynir að vera þjálfari – og það er mikið af því síðarnefnda. Margt efni er gert til að fá smelli frekar en að miðla þekkingu. Myndbönd sem
sýna frekar bossann en æfinguna sjálfa eru dæmi um þessa yfirborðskenndu nálgun. Ég vil hjálpa fólki að sjá í gegnum þetta – sérstaklega ungu fólki sem þarf betri fyrirmyndir.
Hvernig nálgast þú sjálf heilsu á raunhæfan hátt?
Ég einblíni á fjóra þætti:
• lyftingar til að byggja upp vöðvamassa
• liðleika
• þolþjálfun
• og streitulosun
Stundum skarast þetta – æfing getur bæði verið styrktarþjálf-
un og streitulosun. Markmiðið er jafnvægi.
Hvaða skilaboð viltu koma til ungs fólks í dag?
Byrjaðu bara. Besti dagurinn til að byrja er í dag – næstbesti er á morgun. Fáðu leiðsögn ef þú getur, en mundu að það er alltaf betra að gera eitthvað en ekkert. Við búum í frábæru umhverfi hér í Eyjum – fjöllin eru leikvöllur sem kostar ekkert og náttúran er hluti af því sem við erum hönnuð fyrir.
Finnur þú fyrir þrýstingi sem þjálfari eða áhrifavaldur?
Já, klárlega. Ég þarf oft að minna mig á að mín rödd er mikilvæg og rétt – þó ég líti ekki út eins og fitness módel.
Heldur þú að fólk sé farið að átta sig betur á hvað er raunverulegt?
Tæknin er að verða sífellt betri í að búa til falskt efni og það verður líklega meira af því. En hún getur líka hjálpað okkur. Ég held að þjónusta í eigin persónu muni verða enn mikilvægari – það er eitthvað sem ekki er hægt að falsa á sama hátt.
DEILUR UM HEILSURÆKT Í VESTMANNAEYJUM Geturðu útskýrt málið í stuttu máli?
Við vorum komin langt með að undirbúa nýja hóptímastöð þegar í ljós kom að bærinn var í viðræðum við annan aðila um rekstur heilsuræktar. Við fórum því í samstarf við Sporthúsið og reyndum að komast inn í viðræðurnar.
Málið endaði í útboði sem við kærðum – og niðurstaðan var sú að útboðið var ólöglegt og bærinn skaðabótaskyldur.
Hvað hefur breyst í nýja útboðinu?
Að okkar mati hefur verið gengið enn lengra í ákveðnum skilyrðum – eins og kröfu um 5.000 áskrifendur og hátt eigið fé – sem útilokar í raun heimaaðila.
Af hverju skiptir þetta máli?
Ef reynsla og þjónusta á staðnum skiptir minna máli en stærð fyrirtækja utan Eyja, þá vakna spurningar um forgangsröðun. Þetta snýst um jafnræði og að heima fólk fái raunverulegt tækifæri.
Hvernig hafa samskiptin verið?
Í seinna útboðinu hafa engin samskipti átt sér stað við bæinn. Þvert á móti fengum við hótun um lögsókn frá umsjónaraðila útboðsins, sem vekur spurningar um hlutleysi.
Hvað viljið þið sjá gerast næst?
Við viljum sjá breytingar á útboðinu og meira samráð við þá sem nota aðstöðuna daglega. Við bindum einnig vonir við að ný bæjarstjórn taki málið föstum tökum.
Hvernig myndir þú vilja sjá aðstöðuna þróast?
Ég myndi vilja sjá uppbyggingu sem tekur mið af raunverulegum notendum hússins. Það þarf bæði stærri tækjasal og betri aðstöðu fyrir hóptíma – en það þarf líka að byggja á raunverulegri greiningu á þörfum.
Að lokum – eitt einfalt ráð fyrir betri heilsu?
Borðaðu þegar þú ert svangur og hættu þegar þú ert saddur.
Hreyfðu þig eins mikið og þú getur – og hvíldu þig þegar þú þarft.
Eftir að greinin var unnin kom í ljós að bæjarráð hefur þegar valið aðila til að sjá um rekstur og heilsurækt skv. síðasta útboði. Tveir aðilar buðu í verkið og munaði 0,9 stigum á þeim. WC varð fyrir valinu, en ekki má ganga til samninga fyrr en úrskurður kemur frá Kærunefnd útboðsmála.
Athygli vekur að WC fær 5 stig fyrir jafnlaunavottun, en Dómsmálaráðherra setti vinnu í gang í janúar sl. um að afnema vottunina.