Tígull 09. tbl 07. árg.

Page 1


Viðburðir framundan

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíða: frá Ítalíuferð FÍV nema. Gabríel Ari, Aron Daði, Sæþór Ingi og Binni Þór.

Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Skipulagsáætlanir

vegna listaverks Ólafs Elíassonar

í tilefni 50 ára goslokaafmælis

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 22. janúar 2025 að auglýsa skipulagsáætlanir vegna listaverks Ólafs Elíassonar við Eldfell. Skipulagstillögurnar eru kynntar skv. Skipulagslögum nr. 123/2010.

Listaverkið samanstendur af tveimur, að því er virðist, sjálfstæðum hlutum: litlu skjóli, eða skála, og göngustíg sem liggur upp og niður hlíðar Eldfell. Útsýnis punktur staðsettur í miðju skálans býður upp á ákveðið sjónarhorn til að skoða verkið í heild sinni. Frá þessum útsýnispunkti mætast hringlaga göngustígur fjallsins og þak skálans og mynda fullkominn hring um Eldfellsgíginn.

Listaverkið dregur fram tvær mikilvægustu dagsetningum eldgossins: 23. janúar, daginn sem eldgosið hófst og 3. júlí, daginn sem lokum eldgossins og sigri yfir hrauninu var lýst yfir.

Tillaga að breyttu aðalskipulagi gerir ráð fyrir að skilmálar landnotkunarreita Óbyggðs svæðis ÓB-3 og Hverfisverndarsvæðis H-9 breytist til að gera ráð fyrir nýjum gönguleiðum og útsýnisstað. Í tillögu að deiliskipulagi er gert ráð fyrir nýjum útsýnisstað á Eldfellshrauni þar sem horft er í átt til Eldfells. Auk þess er gert ráð fyrir tröppulögðum 1,5-2,5 breiðum göngustíg frá

hrauninu og á topp Eldfells sem myndar hringlaga form séð frá útsýnisstaðnum. Deiliskipulag gerir einnig ráð fyrir bílastæðum, göngustígum og áningarstöðum auk frekari verndun hraunsins.

Íbúafundur þar sem listamaðurinn kynnir verkið verður haldinn

í Eldheimum þann 28. mars 2025 og hefst fundurinn kl. 16:30.

Skipulagsgögn verða til sýnis í Ráðhúsi Vestmannaeyja að Kirkjuvegi 50, á skipulagvefsjá sveitarfélagsins og á

Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar frá 10. mars til 21. apríl 2025.

Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 21. apríl 2025 í afgreiðslu Ráðhúss eða í gegnum Skipulagsgátt.

Spurt & svarað

ÞÓRÐUR ÝMIR EYÞÓRSSON

Fjölskylda:

Mamma mín heitir Helga Björk, pabbi minn heitir Eyþór og ég á 6 systkini sem heita Ingi Rafn, Eyrún Eva, Daníel Rafn, Þórey Rut, Kristján Ægir og Benedikt Þór svo á ég hund sem heitir Mjölnir.

Hvar og hvenær líður þér best? Heima.

Ertu til í að lýsa þér í þremur orðum?

Fyndinn, brosmildur og orkumikill.

Hvaða app/forrit notar þú mest? TikToK.

Uppáhaldsstaður á Íslandi?

Fyrir utan Vestmannaeyjar er það Reykjavík.

Besti matur í heimi? Mömmupasta.

Hvað er draumastarfið?

Bátakarl eins og pabbi.

Uppáhaldstónlist?

Bubbi Morthens.

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju?

Veiðistöng, eldspýtur og

svona tæki sem breytir sjó í drykkjarvatn.

Hvað er á óskalistanum?

Ferð á Liverpool leik.

Ertu A eða B týpa? 100% B týpa.

Uppáhaldshlutur?

Insúlíndælan mín.

Áttu þér einhvern draum sem þú myndir vilja láta rætast?

Já að það sé friður í heiminum.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í frístundum þínum, t.d persónuleg áhugamál eða tómstundir?

Spila fótbolta og vera með vinum mínum.

Áttu þér fyrirmynd eða einstakling sem þú lítur sérstaklega upp til og af hverju?

Pabbi og Kristján Ægir bróðir minn, báðir góðir og flottir menn.

Ertu með einhver persónuleg gildi sem eru þér mikilvæg?

Að vera góð og kurteis manneskja og góður vinur.

Hvernig telur þú að ungt fólk geti haft áhrif á framtíðina eða breytt heiminum til hins betra?

Að koma fram við náungann eins og þú vilt að náunginn komi fram við þig.

HEIMSÓKN FÍV TIL PISA

Dagana 17 til 22. febrúar fóru fjórir nemendur ásamt tveimur kennurum úr Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum til Pisa á Ítalíu í tengslum við Erasmus-verkefni skólans. Að þessu sinni var sjónum beint að öfgaviðburðum af völdum loftslagsbreytinga, áhrifum þeirra á samfélög og þeim aðgerðum sem gripið er til bæði til varnar og aðlögunar. Þess má geta að þessi ferð markaði lok fyrri hlutaverkefnisins og hefst seinni hluti þess í lok marsmánaðar þessa árs.

Fluginu frestað

Ferðin var heldur betur skrautleg, en hún hófst á því að fluginu frá Íslandi til London var seinkað um tæpa sjö klukkutíma sem olli því að hópurinn hafði 10 mínútur til að ná fluginu til Pisa. Eftir frábæran hlaupasprett á flugvellinum varð

hópurinn hins vegar að játa sig sigraðan og finna aðra lausn. Ryanair gat bjargað hópnum til Ítalíu eldsnemma morguninn eftir þannig að hópurinn gisti óvænt eina nótt á flugvallarhótelinu í Stansted. Daginn eftir var flogið til Bologna og tekin þaðan lest til Pisa þar sem ítölsku kennararnir tóku á móti hópnum með bros á vör, og skutluðu okkur beint í vinnuna.

Margir áhugaverðir fyrirlestrar Ítalski hópurinn hafði skipulagt þétta og fræðandi dagskrá. Meðal annars var farið á fyrirlestur í Sant Anna Háskólanum þar sem prófessor Roberto Buizza fór yfir hvernig loftlagsbreytingar eru mældar og greindar í veðurfræðakerfum heimsins. Farið var á fyrirlestur og í vettvangsferð á vegum almannavarnarnefndar

Pisa. Þar var fjallað um vatnamál héraðsins, en vandamál héraðsins snúa einkum að stóraukinni úrkomu vegna loftlagsbreytinga.

Borgin Pisa er sumstaðar allt að 4m undirsjávarmáli, miklar ár renna hjá borginni og hafa Ítalirnir sett upp fráveitukerfi með kröftugum

Binni Þór, Gabríel Ari, Tinna kennari, Sæþór Ingi, Aron Daði og Auðbjörg kennari.

dælum víðsvegar um héraðið til þess að beina vatnsrennslinu til sjávar og koma þannig í veg fyrir vatnstjón. Farið var í heimsókn í ráðhúsið í Pisa og hitt borgarstjórann sjálfan sem hélt ræðu um áherslur borgarstjórnar í vatns- og loftlagsmálum og færði svo hópnum gjafir í lokin. Hópurinn fékk einnig að fara í fræðsluferð í Fornskipa Safn Pisa með fornleifafræðingi. Þar var farið yfir sögu Pisa við árnar í kring, allt frá uppbyggingu svæðisins til nútímans. Einnig sáum við hina ýmsu fjársjóði sem hafa fundist í ánni s.s. tugir leirkerja frá tímum Forngrikkja, beinagrindur, verslunarskip og vörur Rómverja.

Heimsókn til Flórens hápunktur ferðarinnar Verkefnavinnan gekk mjög vel og nemendur stóðu sig frábærlega eins og við mátti búast. En ferðin var ekki bara vinna, það var auðvitað verslað enda nóg af búðum í Pisa en flest allir voru sammála um að einn af hápunktum ferðarinnar var heimsókn hópsins til Flórens. Þann daginn fengu nemendur frjálsan tíma til að rölta um og skoða þessa stórglæsilegu og sögufrægu borg. Að lokinni ferð voru nemendur sammála um að þetta hafi verið svakaleg upplifun, mjög fræðandi og margir sögðust hafa áttað sig enn betur á því hversu gott við höfum það í Vestmannaeyjum.

Spurt & svarað JÚLÍAN MARKAN BENÓNÝSSON

Fjölskylda: Móðir er Alfa Markan, Faðir er Benóný Baldvinsson, Stjúpfaðir er Aron Ingi Svansson, bræður eru Dagur Markan, Þór Markan og stjúpbróðir er Sölvi Már.

Aldur: 13 ára

Hvar og hvenær líður þér best?

Heima hjá mér.

Ertu til í að lýsa þér í þremur orðum? Hreinskilinn, þolinmóður og fyndinn.

Hvað app/forrit notar þú mest? Tik Tok

Uppáhaldsstaður á Íslandi? Egilsstaðir

Besti matur í heimi? Kebab

Hvað er draumastarfið? Rafvirki

Uppáhaldstónlist? Hef enga uppáhalds.

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju? Bát, hníf og tjald

Hvað er á óskalistanum?

Mótorhjól

Ertu A eða B týpa?

B týpa

Uppáhaldshlutur?

Krossarinn minn.

Áttu þér einhvern draum sem þú myndir vilja láta rætast?

Mig langar að eignast BMW m4.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í frístundum þínum, t.d persónuleg áhugamál eða tómstundir? Spila tölvuleiki, vera með vinum og spila á Saxófón.

Áttu þér fyrirmynd eða einstakling sem þú lítur

sérstaklega upp til og afhverju? Pabbar mínir því þeir eru góðar manneskjur.

Ertu með einhver persónuleg gildi sem eru þér mikilvæg?

Að vera hreinskilin.

Hvernig telur þú að ungt fólk geti haft áhrif á framtíðina eða breytt heiminum til hins betra?

Með því að stoppa hnífsburð og ofbeldi og einnig að allir hætti að nota nikótín.

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

NÁ TIL ALLRA

VESTMANNAEYINGA?

Auglýsingasími

Tíguls: 481-1161 tigull@tigull.is

FRUMSÝNING LEIKFÉLAGS VESTMANNAEYJA Á FÖSTUDAGINN

Fjórum sinnum áður hefur Leikfélag Vestmanneyja notið leikstjórn Árna Grétars. Það í verkunum, Benedikt Búálfur 2016, Klaufar og Kóngsdætur 2017 og Blúndur blásýra árið 2019 og svo Rocky horror 2023 sem er einmitt síðasta verkið sem hann leikstýrði. Tígull tók létt spjall við Árna.

„Ég er fæddur og uppalinn á Selfossi en á þó ættir að rekja til Vestmannaeyja. Bjó um tíma í London meðan ég menntaði mig. Bý núna í miðborg Reykjavíkur með manninum mínum, Leifi Erni og hundinum okkar Magnúsi Dreka,“ sagði Árni sem hefur ýmislegt bardúsars frá síðasta leikverki „Ég hef verið að reka skemmtistað, gifta fólk, leiðsegja ferðamönnum, bara allskonar skemmtilegt.“

Verkið heitir Beint í æð og gerist í hvíldarherbergi lækna á Sjúkrahúsinu hér í Vestmannaeyjum eina dagsstund í desembermánuði.

Taugalæknirinn Jón Borgar er þar staddur að undirbúa sinn stærsta dag ferilsins, þegar hann á að flytja fyrirlestur fyrir tugi alþjóðlegra gesta sem komnir eru til Eyjunnar fögru á ráðstefnu.

Um það leiti sem hann er að leggja lokahönd á fyrirlesturinn birtist fortíðardraugurinn Díana, en við hana hafði Jón Borgar haldið tæpum átján árum fyrr. Hún færir Jóni “glaðning” sem heldur betur hrindir af stað atburðarás þar sem vitleysan ætlar engan endi að taka. Beint í æð er ærslafullur farsi þar sem misskilningur á misskilning ofan ræður ferðinni.

Leikhópurinn samanstendur af ellefu leikurum plús einn óvæntur gestur. Frumsýning er næstkomandi föstudag kl: 20:00 í Kviku.

VESTMANNAEYJABÆR AUGLÝSIR

EFTIR UMSÓKNUM OG TILLÖGUM UM

BÆJARLISTAMANN VESTMANNAEYJA

FYRIR ÁRIÐ 2025.

Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2025.

Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar 24. apríl nk. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða í Ráðhúsið, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns.

Nánari upplýsingar veitir Súsanna Georgsdóttir með tölvupósti (susanna@vestmannaeyjar.is) eða í síma 488 2000. STARFSLAUN BÆJARLISTAMANNS

ATVINNA Í BOÐI

AGL verktakar óska eftir að ráða SMIÐ / IÐNAÐARMANN með reynslu

Menntunar- og hæfniskröfur

- Menntun eða starfsreynsla í faginu - Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð - Stundvísi, heiðarleiki og fagmennska

Helstu verkefni og ábyrgð Öll almenn smíðavinna Viðhald, viðgerðir og þjónusta

Nánari upplýsingar eru veittar í gegnum netfangið: aglverktakar@gmail.com eða í síma: 841 0197

PASSA MYNDIR

TÖKUM PASSAMYNDIR FYRIR ÖKUSKÍRTEINI & ÖNNUR SKÍRTEINI.

PANTA ÞARF TÍMA Í MYNDATÖKU

Hægt er að senda tölvupóst á leturstofan@leturstofan.is eða hringja í síma 6947999 (L ind)

WORK AVAILABLE

AGL Contractors is looking to hire an experienced

CARPENTER / CRAFTSMAN

Educational & qualification requirements

Education or work experience in the profession

Independent and high-quality work methods

Punctuality, honesty and professionalism

Main tasks and responsibilities

All general construction work

Maintenance, repairs and service

Further information is provided via the email: aglverktakar@gmail.com or by phone: 841 0197

Sælkeri vikunnar ALBERT SÆVARSSON

HREINDÝRABORGARAR

HREINDÝRABORGARAR

Hráefni:

600g hreindýrahakk

400g nautahakk

1/2 búnt steinselja skorin smátt niður

2 piparostur rifinn

1 mexico ostur rifinn

1 hvítlaukur skorinn smátt eða maukaður

2 tsk salt

2 tsk pipar

2 tsk villibráðakrydd

2 egg

Aðferð:

Allt sett saman í skál og blandað vel saman og vigtað í þá þyngd sem þú vilt hafa þinn borgara (mæli með 150-200 gramma), mótað í hamborgarajárni eða bara höndunum smass style.

Steikt á pönnu eða skellt á grillið.og gott að hafa ofnsteiktar franskar kartöflur og ferskt grænmeti.

SULTAÐUR RAUÐLAUKUR

Hráefni:

2 stk rauðlaukur afhýddir og skornir þunnt niður

1/2 dl balsamik

2 msk hunang

1 msk olía

1 msk sykur

1 tsk nýmalaður pipar

Aðferð:

Allt sett í pott og látið sjóða á meðalhita í 45 mín. Passið að hræra reglulega í og láta ekki brenna við, sérstaklega í lokin.

Kælið vel og sett í krukku með loki.

Albert Sævarsson er sælkeri vikunnar.

PIPAROSTASÓSA

1 piparostur

2,5 dl rjómi

1 grænmetisteningur

Salt og pipar

Allt sett í pott og látið blandast vel saman.

Ég vil þakka gamla manninum honum Þór Engla fyrir áskorunina og

ætla að skora á hann Tobba Villa því hann er alltaf að monta sig við að grilla.

MAGNAÐIR TÓNLEIKAR

Í SUNDLAUG VESTMANNAEYJA

Þann 20.mars síðastliðinn hélt Biggi Nielsen bæjarlistamaður magnaða tónleika í sundlaug Vestmannaeyja í samstarfi við Fab Lab Vestmannaeyjar í tengslum við Island Ocean Fusion Camp og Distributed Design verkefnið sem styrkt er að Creative Europe áætlun Evrópusambandsins. VSV, Ísfélag og Vestmannaeyjabær styrktu einnig tónleikana.

Allir voru velkomnir og enginn aðgangseyrir og gestir upplifðu tónleikanna til fulls ofan í sundlauginni eða fylgdust með á bökkum laugarinnar.

Biggi flutti ásamt hljómsveit einstök verk sem innihalda hljóð úr náttúru Vestmannaeyja og þar á meðal hljóð hvala í kringum Vestmannaeyjar sem vísindafólk úr Háskóla Íslands hefur tekið upp og notað í rannsóknir sínar.

Um var að ræða mjög sjónrænan og áhugaverðan viðburð í sundlaug Vestmannaeyja, þar sem frumflutt voru fleiri lög með söngvum hvala sem spiluð voru í neðansjávar hátulurum undir yfirborði sundlaugarinnar og á bökkum sundlaugarinnar spilaði hljómsveitin gesti sundlaugarinnar með hreyfimyndum úr náttúru Vestmannaeyja og hafinu í kring. Auk þess sem sýndar voru myndir úr störfum hvala-vísindafólks við Vestmannaeyjar.

Gestir sundlaugarinnar tóku þátt í viðburðinum og heyrðu sérstaklega í söng hvalanna þegar þeir

köfuðu undir yfirborðið. Þá var einnig mögnuð stund þegar gestir tónleikagestir syntu logandi kerti í undir ljúfum tónum og

Viðburðinum var ætlað að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi hafsins og vekja athygli á rannsóknum því tengdu og auka áhuga á haflæsi og er hluti af verkefninu Sjávarsamfélagið Vestmannaeyjar sem Frosti Gíslason í Fab Lab smiðjunni í Eyjum leiðir.

Hljómsveitina skipuðu: Birgir Nielsen Þórsson: trommur, slagverk, forritun.

Gísli Stefánsson: gítarar Þórir Ólafsson: Hljómborð og synthesiser

Þórir Rúnar Geirsson: Bassi

Tónleikarnir gengu einstaklega vel fyrir sig og Frosti Gíslason verkefnastjóri og Biggi Nielsen voru himinlifandi með mætinguna og þátttöku Eyjafólks. Aðspurðir sögðust þeir þakklátir starfsfólki sundlaugarinnar í Eyjum, tónlistarfólkinu, hljóð-, ljós-, og ljósmyndurum, kvikmyndagerðarfólki, listafólki, SeaLife, vísindafólki HÍ og styrktaraðilum tónleikanna.

Í samtali við Tígul, sögðust Biggi og Frosti ætla að halda áfram með verkefnið í samstarfi við vísindafólk og fleiri aðila sem munu koma að því að styðja við eflingu á haflæsi og sjálfbærni í tengslum við hafið og vekja athygli á málefninu á nýstárlegan hátt.

Þrautir vikunnar

Flötum

sími: 481-1012 844-5012

tannsi@eyjar.is

Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega.

Nýsmíði

Gólfhitafræsing

Gólfhitalögn

Kjarnaborun

Pallasmíði

Þakvinna

Innréttingar

Utanhúsklæðningar

aglverktakar@gmail.com // 768 5228

Sunnudagur kl. 11:00 (blandaðir fundir)

Miðvikudagur kl. 20:30 (blandaðir fundir)

OPNUNARTÍMI

Virkir dagar frá 8:00-17:00 laugardagar 10:00-14:00

Fimmtudagur kl. 12:05 (kvennafundir)

Föstudagur kl. 20:30 (blandaðir fundir)

Þriðjudagur kl. 20:30

Nýliðar sérstaklega velkomnir í spjall hálftíma fyrir fund.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.