Skip to main content

Tígull 08. tbl 08. árg.

Page 1


08. tbl. 08. árg. 20. - 31. mars 2026

Sælkeri vikunnar BRIGITTA K. BJARNADÓTTIR

NAAN BRAUÐS PÍTSA

Ég þakka Breka fyrir að nenna þessu ekki og skora á Víði og þakka svo Víði fyrir að koma þessu yfir á mig

Hráefni:

Naan brauð

Tikkamasala sósa (sem pizza sósa)

Silkiskorin kalkúnabringa

Ostur

Kjúklingur

Döðlur

Aðferð:

Inní ofn á 200 gráður í 10mín

Svo þegar þetta er komið úr ofninum að þá setur þú mango chutney og toppar svo með hvítlaukssósu.

Líka mjög gott að hafa klettasalat ofaná.

Ég á ekkert í þessari uppskrift Berglind Sigmars sýndi mér þetta.

Ég skora á hann Örlyg, pabba Þórhildar vinkonu því hann er einfaldlega geggjaður kokkur. Ölli bauð mér einu sinni í mat og það var ógleymanleg upplifun, hvítlauksrækjur í forrétt, hægelduð nautalund og rótargrænmeti og svo geeeeggjað creme brulé í eftirrétt. Það var sjúklega gott þess vegna skora ég á hann. Svo bauð Ölli að sjálfsögðu uppá öllara með.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn:

DREIFING:

Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun:

Auglýsingar:

Brigitta Kristín er sælkeri vikunnar.

Sendum öllum fermingarbörnunum og fjölskyldum þeirra hjartans hamingjuóskir.

FERMINGARBÖRN

spurt & svarað

MARÍA SIGRÚN JÓNASDÓTTIR

Fjölskylda: Mamma mín heitir

Helga Sigrún, pabbi minn heitir

Jónas Guðbjörn og bróðir minn heitir Jón Grétar. Svo á ég hunda sem heita Katla og Hekla.

Hvar og hvenær líður þér best? Á fótboltaæfingu eða heima hjá ömmu og afa.

Ertu til í að lýsa þér í þremur orðum?

Forvitin, skemmtileg og brosmild. Hvað app/forrit notar þú mest? TikTok.

Uppáhaldsstaður á Íslandi? Ólafsfjörður eða Reykjavík.

Besti matur í heimi?

Fiskibollur hjá ömmu Dollý og Burrito hjá mömmu.

Hvað er draumastarfið?

Þjálfari eða innanhúshönnuður.

Uppáhaldstónlist?

Ég hlusta mest á hipp hopp.

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju?

Hníf, vatnshreinsitæki knúið af sólarorku og pabba minn.

Hvað er á óskalistanum?

Fara á tónleika með Oliviu Dean

Ertu A eða B týpa? B týpa en á samt erfitt að vaka fram á nótt.

Uppáhaldshlutur?

Síminn minn

Ef þú ættir eina ósk?

Að öll heimilislaus dýr fengju gott heimili.

ÞÓR ALBERTSSON

Fjölskylda: Pabbi, Albert og Jón Helgi, mamma Kata Laufey , systur mínar heita Nína, Rósa, Brigitta, Stefanía, Selma og Andrea og bróðir minn heitir Magnús.

Hvar og hvenær líður þér best?

Heima hjá mér.

Ertu til í að lýsa þér í þremur orðum? Réttlætiskennd, markmaður og stór.

Hvað app/forrit notar þú mest? Snapchat og TikTok.

Uppáhaldsstaður á Íslandi? Akureyri.

Besti matur í heimi? Hamborgari í Kránni.

Hvað er draumastarfið? Atvinnumaður í fótbolta.

Uppáhaldstónlist?

Enginn sérstök.

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju?

Neyðarljós,hníf og björgunarbát.

Hvað er á óskalistanum?

Ferð á fótboltaferð erlendis.

Ertu A eða B týpa? AA týpa vakna yfirleitt klukkan 06. Uppáhaldshlutur? Síminn minn.   Ef þú ættir eina ósk? Heimsfrið.

FERMINGARGREIÐSLUR & FÖRÐUN 2026

Við fengum hana Örnu Þyrí á hárgreiðslustofunni Sjampó til að sýna okkur hvað væri í tísku núna í fermingargreiðslunum:

Það er búið að vera soldið mikið eins tíska undanfarin ár. Frekar léttar krullur og svo hárið tekið aðeins frá andlitinu með lausum fléttum eða snúningum. Sumar vilja hafa tvo lokka lausa að framan.

Undirbúningur fyrir greiðsluna:

Best er að fara í sturtu og þvo hárið tvisvar sinnum með sjampói og setja helst enga næringu. Aðalmálið er að blása hárið upp úr blástursefni (hægt að fá ráðgjöf hjá okkur niðri á stofu), hitavörn og alls ekki sofna með hárið blautt eða leyfa því þorna sjálfu.

Passa að setja enga olíu í endana eða neitt sem er mjúkt svo að greiðslan haldist sem best.

Við fengum einnig Emilíu Ögn Bjarnadóttur, förðunarfræðing til að fara yfir förðunina á stelpunum: Fermingaförðun er mjög oft létt. Yfirleitt maskari, smá hyljari og kinnalitur til að fá smá frískleika i andlitið. Lítil þekja sem er bara til að jafna út húðina.

En það er rosalega misjafnt á milli stelpna hvað þær vilja En til að tryggja að förðunin endist sem lengst eða verður sem fallegust í langan tíma, þá er mikilvægt að hafa húðina mjög rakakennda, eins og gott rakakrem undir farða er grunnurinn að fallegri förðun.

En líka að passa til að hafa hana fallega og ljómandi að setja ekki of mikið af púðurvörum því þær draga í sig rakann. Mér finnst ekkert hafa breyst þannig séð, aðalega bæst í magnið af vörum. Þegar ég var að fermast var bara nóg að vera með maskara og gel í augabrúnunum.

Þór lét klippa sig hjá Hjalta fyrir ferminguna sína á dögunum.

Hjalti Jónsson er á öðru ári í hárgreiðslunámi við Tækniskólann, en námið tekur að jafnaði um þrjú til þrjú og hálft ár. Hjalti, sem verður tvítugur í september, segir vinsælustu klippingarnar meðal 14–16 ára stráka í dag vera burst fade og drop fade. „Það er vinsælasta klippingin hjá þessum aldurshópi,“ segir Hjalti.

FERMINGARBÖRNIN

Fermingardagar vorið 2026 verða sem hér segir:

Laugardagur 28. mars

Laugardagur 11. apríl

Laugardagur 18. apríl

Andri Snær Óskarsson

Foreldrar: Erna Georgsdóttir & Óskar Vignisson

Lilja Huld Þórisdóttir

Foreldrar: Þórir Ólafsson & Helena Þorsteinsdóttir

11. apríl

Antonía Emma Erlingsdóttir

Foreldrar: Erlingur Guðbjörnsson & Ragna Steina Snæfells

Ari Óskarsson

Foreldrar: Kolbrún Sól

Ingólfsdóttir & Óskar Haraldsson

Marinó Leví Stefánsson

Foreldrar: Stefán Páll Páluson

Bríet Ósk Magnúsdóttir

Foreldrar: Magnús Stefánsson & Esther Óskarsdóttir

Laugardagur 1. maí

Laugardagur 24. maí

Laugardagur 6. júní

Emil Gauti Benónýsson

Foreldrar: Emma Kristjánsdóttir & Benóný Þórisdóttir

Maximus Snær Jónsson

Foreldrar: Guðbjörg Marta Guðjónsdóttir & Jón Viðar Gestsson

Erna Björk Kjartansdóttir

Foreldrar: Kjartan Freyr & Anna Kristín Jóhannsdóttir

Halla Ruth Sveinbjörnsd. Foreldrar: Sveinbjörn K. Óðinsson & Ásta Jóna Jónsd.

Vigdís Linda Logadóttir

Foreldrar: Guðrún S. Þorsteinsd. & Logi Garðar Ingólfsson

Gauti Harðarsson

Foreldrar: Erna Sigurjónsdóttir & Hörður Orri Grettisson

28. mars

Hákon Þór Smárason

Foreldrar: Tinna Ósk

Þórsdóttir & Valur Smári Heimisson

Sigmar Gauti Örlygsson

Foreldrar: Guðbjörg Helgadóttir & Örlygur Jónasson

18. apríl

Dagur Sæþórsson

Foreldrar: Sæþór Vídó

Þorbjarnarson & Kristín Halldórsdóttir

Gunnar Dór Halldórsson

Foreldrar: Anna Halldórsd. & Sigmundur Rúnar Rafnsson

Hugo Igarashi

Foreldrar: Ragnheiður

Reynisdóttir & Hiroki Igarashi

Sigrún Anna Valsdóttir

Foreldrar: Linda Óskarsdóttir og Valur Valmundsson

Daníel Ingi Hallsson

Foreldrar: Hallur Einarsson & Björg Hjaltested

Ísak Máni Óðinsson

Foreldrar: Óðinn Sæbjörnsson & Hjördís Elsa Guðlaugsd.

Ingibergur Sigmundsson

Foreldrar: Ása Ingibergsdóttir & Sigmundur R. Rafnsson

Tryggvi Geir Sævarsson

Foreldrar: Unnur Dóra

Tryggvadóttir & Sævar Benónýsson

Elías Vigfús Jensson

Foreldrar: Marsibil Sara Pálmadóttir & Jens Kristinn Elíasson

Kári Stefánsson

Foreldrar: Þórunn Pálsdóttir & Stefán Jónsson

Kara Kristín V. Gabríelsd.

Foreldrar: Fanney Dröfn

Magnúsdóttir & Gabríel Þór V. Gunnarsson

Viktoría Ninja Egilsdóttir

Foreldrar: Egill Andrésson & Sandra Rós Þrastarsdóttir

Erna Karen Björnsdóttir

Foreldrar: Halldóra Halldórsdóttir & Björn Skúlason

Rafael Bóas Davíðsson

Foreldrar: Davíð Hallgrímsson & Anna Hulda Ingadóttir

Rakel Birta Kristjánsdóttir

Foreldrar: Kristján Gunnarsson & Jóhanna Björk Guðmundsdóttir

Auðun Elí Bjartmarsson

Foreldrar: Hjördís Inga Magnúsdóttir & Bjartmar Sigurðsson 24. maí

Fenris Úlfur Hjaltalín í Dali

Foreldrar: Ásgeir Helgi

Hjaltalín & Bitita í Dali

Jakob Ari Lindström

Foreldrar: Harpa Hjartard. & Rasmus Lindström

Trausti Fannar Gunnarsson

Foreldrar: Heiðrún Lára

Jóhannsdóttir & Gunnar Heiðar Gunnarsson

Beta Rán Sigríðardóttir

Foreldrar: Sigríður Ásgeirsd. & Kjartan Arnar Hauksson

Gísli Christian Rúnarsson

Foreldrar: Rúnar Svan Vöggsson & Anna S. Gísladóttir

Jónatan Einir Brynjarsson

Foreldrar: Rakel Ósk Hafsteins. & Brynjar Einir Einarsson

Þór Albertsson

Foreldrar: Kata Laufey, Jón Helgi & Albert

Dísella Sif Sæmundsdóttir

Foreldrar: María Sif Ingimarsd. & Sæmundur Einarsson

Helga Dís Viktorsdóttir

Foreldrar: Viktor Ragnarsson & Valgerður Jónsdóttir

María Sigrún Jónasdóttir

Foreldrar: Jónas Guðbjörn Jónsson & Helga Sigrún Þórsdóttir

Þórir Bjarnason

Foreldrar: Tinna Hauksdóttir & Bjarni Geir Pétursson

Embla Rún Sigríðardóttir

Foreldrar: Sigríður Ásgeirsd. & Kjartan Arnar Hauksson

Ívar Skæringur Vignisson

Foreldrar: Vignir Skæringsson & Inga S. Árnadóttir

Óliver Atlas Vilmarsson

Foreldrar: Þóra Sif Kristinsdóttir & Vilmar Þór Bjarnason

Sebastian Styrmisson

Foreldrar: Thelma Rós Tómasdóttir & Styrmir Jóhannsson

Skarphéðinn Elís

Guðbjartsson

Foreldrar: Guðný Geirs, Guðbjartur S. & Margrét

BORGARALEG FERMING

Athöfnin fer fram í Kviku laugardaginn 6. júní

1. maí í sumar

Hrafnkell Darri Steinsson

Foreldrar: María Rós Friðriksdóttir & Steinn Þórhallsson

Naomi Svava Peng

Foreldrar: Birgir Stefánsson & Fiona Peng

Freymundur Þórarinsson

Foreldrar: Erna Fannbergsdóttir & Þórarinn Björn Steinsson 6. júní

Myndir eru afhentar, stafrænt, prentaðar og/eða í klassísku upplímdu albúmi eða eins og hentar ykkur.

í Herjólfshöllinni alla daga kl. 08:00 - 12:00 Púttsalurinn

í kviku virka daga kl. 13:00 - 14:00

UPPRIFJUN FERMINGARDAGSINS

Dagsetning fermingar: 24.04.1994

Hvað stendur helst upp úr þegar þú hugsar til fermingardagsins? Ég man að mér fannst þetta mjög skemmtilegur og merkilegur dagur. Ég man líka hvað það var vandræðalegt og fyndið að láta taka myndir af okkur Borgþóri frænda saman, þar sem hann var örugglega orðinn 180 cm á hæð og ég var ca 140 cm.

Hvaða veitingar voru í boði og hvar fór fermingarveislan fram? Það var boðið upp á tertur, pönnukökur, brauðrétti og kaffi/gos. Veislan fór fram í Týsheimilinu en við Borgþór frændi héldum veisluna saman.

Var ákveðið þema, litaval eða sérstakar skreytingar? Ég man ekki til þess að það hafi mikið verið spáð í litaþemu eða sérstökum skreytingum á þessum tíma. Það var prentað á servíettur sem mér fannst mjög flott, hvítir og bláir dúkar á borðum og bláar og bleikar blómaskreytingar. Ég man hins vegar hvað ég var ánægð að geta notað Týs-kaffistellið sem var til í Týsheimilinu enda mikill Týrari. Mér þótti mjög mikilvægt að ef teknar voru uppstilltar myndir af mér, þá þurftu þær að vera við stóra Týsfánann á veggnum. Ætli mér hafi ekki bara fundist fáninn aðalskreytingin í salnum.

Hvernig voru fermingarfötin þín? Það var hnésíður burgundylitaður flauelskjóll, svartir spariskór og kross hálsmen.

Hvaða fermingargjöf manstu best eftir og hvers vegna? Ég fékk mjög mikið sem ég man vel eftir og var rosalega ánægð með þetta allt, fékk t.d. hljómtækjasamstæðu í glerskáp sem var fyrir 3 geisladiska og 2 kasettur sem var óendanlega mikið notað. Herbergið mitt var tekið í gegn, fékk nýtt rúm, nýtt sængurver og nýtt

skrifborð. Ég fékk líka svefnpoka, lampa, skartgripi, skartgripaskrín, svo fékk ég pening og keypti fyrir þá sjónvarp með textavarpi sem mér fannst geggjað því þá gat ég nefnilega fylgst með flugi til og frá Rvk vegna fótboltaleikja, einnig keypti ég mér scarpa gönguskó í Skátabúðinni sem ég á enn í dag og stækkuðu með mér og auðvitað geisladiska í nýju græjuna.

Hvaða tónlist tengir þú helst við þennan tíma? Ég hlustaði rosalega mikið á tónlist og með mjög víðan smekk. Sem ég tengi mest við þennan tíma er RnB og rapp svo sem TLC, Snoop, Tupac og Biggie svo út í Tony Braxton, Ace of Bace,

Blur, Oasis, R.E.M, Cranberries, Nirvana, Green day og auðvitað íslenskt og gott eins og Bubbi, Jet Black Joe, Spoon, Vinir vors og blóma, Sálin og lög úr söngleiknum Hárið. Við vorum endalaust að horfa á MTV og hlusta á tónlist í Féló. Svo má ekki gleyma öllum safndiskunum sem voru gefnir út á þessum árum, eins og “Pottþétt“ og „Reif í“.

Tókstu sjálf þátt í undirbúningi fermingardagsins – og þá hvernig? Ég hjálpaði við að leggja á borðin, græja salinn, mögulega einhvern frágang eftir veisluna, líklega og aðallega að halda á gjöfunum út í bíl.

Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana. Afsláttur gildir ekki af tilboðsvörum og „Lægsta lága verði Húsasmiðjunnar“.

Allar Milwaukee vörur

25 %

Borvél, 18 V

Kolalaus mótor 60,5Nm 25.500 högg./mín. Led ljós. Með 2x4.0

Ah rafhlöðum og hleðslutæki. Plasttaska fylgir. 5255828

55.900 kr

75.390 kr

33 %

Rafvirkjasett

Vegleg 23 hluta verkfærasett, hannað sérstaklega fyrir rafvirkja. Inniheldur öll helstu handverkfæri. 5255978

39.900 kr

59.890 kr

Hönnuð sérstaklega fyrir vinnu á þröngum stöðum

Frábært sett með 2.0 Ah rafhlöðu, hleðslutæki og tösku.

37 %

Borvél, 12 V

Kolalaus vél með 2.0 Ah rafhlöðu, hleðslutæki og tösku. 5255749

19.990 kr

31.890 kr

Skoðaðu öll tilboðin

Nýtt blað og fullt af tilboðum fyrir heimilið

Skoðaðu öll tilboðin

SUDOKU

ÁRSHÁTÍÐ VESTMANNAEYJABÆJAR

Árshátíð Vestmannaeyjabæjar fór fram um síðustu helgi í Höllinni. Þemað var Mamma Mia og var skreytingar og dagskrá glæsileg að vanda.

Einsi Kaldi sá um matinn og voru það Beggi (í Sóldögg) og Hljómsveitin Hr. Eydís og Erna Hrönn sem sáu um að skemmta gestum ásamt atriðum frá starfsfólki.

FERMINGARBÖRN

spurt & svarað

SIGRÚN ANNA VALSDÓTTIR

Fjölskylda: Linda og Valur. Á tvo yngri bræður sem heita

Valmundur Þór og Jóhannes

Smári.

Hvar og hvenær líður þér best?

Heima með vinkonum mínum.

Ertu til í að lýsa þér í þremur orðum? Bakari, góðhjörtuð og skemmtileg.

Hvað app/forrit notar þú mest? Tiktok.

Uppáhaldsstaður á Íslandi? Vestmannaeyjar.

Besti matur í heimi? Fiskibollurnar hennar langömmu Önnu.

Hvað er draumastarfið?

Naglafræðingur eða hárgreiðslukona.

Uppáhaldstónlist?

Olivia Dean.

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju? Veiðistöng, tjald og hekl-dótið mitt.

Hvað er á óskalistanum?

Peningur, rúmgafl, skart, ferð til útlanda.

Ertu A eða B týpa?

B týpa.

Uppáhaldshlutur?

Bangsi sem èg fékk þegar èg fæddist.

Ef þú ættir eina ósk?

Að allir sem mèr þykir vænt um muni lifa lengi.

ANDRI SNÆR ÓSKARSSON

Fjölskylda: Pabbi, Óskar Snær, mamma, Erna, systur mínar, Bergdís Embla og Emilía Rós og bróðir, Elmar Breki.

Hvar og hvenær líður þér best? Á Heimaey.

Ertu til í að lýsa þér í nokkrum orðum?

Skemmtilegur, góður og fyndinn.

Hvaða app/forrit notar þú mest?

Snapchat, TikTok og Instagram. Uppáhaldsstaður á Íslandi?

Heimaey.

Besti matur í heimi?

Ömmu og afa matur.

Hvað er draumastarfið?

Atvinnumaður í fótbolta eða handbolta.

Uppáhalds tónlist?

Enginn sérstök.

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju?

Hníf, tjald og árabát.

Hvað er á óskalistanum?

Ferð á Liverpool leik og peningur.

Ertu A eða B týpa?

Blanda af báðu.

Uppáhaldshlutur?

Síminn minn.

Ef þú ættir eina ósk? Þá myndi ég óska þess að komast í atvinnumennsku í fótbolta eða handbolta.

VIÐ ÓSKUM FERMINGARBÖRNUM

Við stækkum fermingargjöfina

Fermingarbörn og jafnaldrar fá allt að 32.000 kr. mótframlag og glaðning þegar þau spara hjá Landsbankanum.

Við erum betri saman

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook