Tígull 08. tbl 07. árg.

Page 1


FERMINGAR HÁRGREIÐSLA

Við fengum hana Örnu Þyrí hárgreiðsludömu á Sjampó til þess að fræða okkur um hárgreiðslu fermingarbarnanna í ár. Fermingartískan hefur verið mjög látlaus og náttúruleg síðustu svona 6 árin eða svo. Þetta eru oftast stórar krullur og svo er hárið tekið upp frá andlitinu annað hvort með fléttum eða snúningi. Vinsælt er að skreyta greiðsluna með brúðarslöri sem eru lítil falleg hvít blóm. Hjá herrunum er vinsælast að vera með látlausa klippingu, rakað í hliðum og svo smá topp ofan á. Ef mömmurnar mættu ráða þá myndu þær velja að greiða til hliðar en þeir vilja flest allir leyfa hárinu liggja fram á enni.

TÍGULL

DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Í EYJUM ER MJÖG GOTT AÐ SLAKA Á & NJÓTA MEÐ LITLU STRÁKUNUM OKKAR

Læknirinn og tónlistarmaðurinn

Victor Guðmundsson, betur þekktur sem Dr. Victor er að flytja til Vestmannaeyja ásamt fjölskyldu sinni, Dagbjörtu Guðbrandsdóttur konu sinni ásamt þremur börnum. Frosta þriggja ára og tvíburunum Mána og Storm sem eru 10 mánaða. Tígull tók Victor í spurt & svarað.

Starf / Nám:

Læknir, tónlistarmaður og faðir - og Dagbjört er líka læknir í sérnámi í bráðalækningum.

Afhverju Vestmannaeyjar?

Vestmannaeyjar eru alveg einstakar, bæði staðurinn og fólkið. Það er svo rólegt og þægilegt umhverfi, stutt að fara og allir svo hjálpsamir, hressir og opnir. Það er líka töluvert minna

áreiti í Eyjum en í bænum, svo það er mjög gott til að slaka á, njóta með litlu strákunum okkar, fá innblástur fyrir tónlist og fleira.

Hvenær er stefnan á að flytja til Eyja?

Stefnan er að flytja í júlí nú í ár 2025 og ná Þjóðhátíðar veislunni eins og alltaf, en þar tek ég tónlistargiggin á meðan Dagbjört stendur læknavaktina. Svo ætlum við bæði að hjálpa til á heilsugæslunni og spítalanum og stefnum á að vera til ágúst 2026 yfir næstu Þjóðhátíð.

Áttu einhver skyldmenni í Vestmannaeyjum? (Ef já, þá hver?)

Ekki svo ég viti, en mér líður eins og ég sé farinn að þekkja flesta og orðinn partur af “fjölskyldunni”

sem mér finnst Eyjafólk vera. Það má alveg segja að mér og okkur líði eins og við séum “heima” þegar við erum í Eyjum og maður er nánast kominn með passa í öll hvítu tjöldin á Þjóðhátíð eftir öll giggin á Þjóðhátíð síðustu ár. En systir mín Eva Mey er líka í læknisfræði og tónlist og hefur verið dugleg að kíkja til Eyja að lækna og spila á Lundanum og Þjóðhátíð, þannig við systkinin erum stundum saman í Eyjum og aldrei að vita nema hún komi líka í einhvern lengri tíma ef tækifæri gefst.

Hvenær byrjaðir þú að koma fyrst til Eyja að “gigga”?

Ég spilaði í fyrsta skiptið á Þjóðhátíð 2017 - og hef spilað árlega síðan þá. Svo bættist Lundinn við og þá byrjaði ég að

Victor ásamt fjölskyldu sinni, Dagbjörtu, Storm, Mána og Frosta á Vigtartorginu í Eyjum.

koma reglulega, en það er aðal staðurinn á Íslandi!

Stærsta giggið?

Stærsta giggið hefur líklegast verið Þjóðhátíð í fyrra þar sem ég tók laugardaginn á stóra sviðinu með FM95BLÖ og DJ Muscleboy. Full brekka og biluð stemning!

Draumagiggið?

Draumurinn þegar ég byrjaði að spila var alltaf Þjóðhátíð og Tomorrowland. Nú er Þjóðhátíð komin, þannig næst er það Tomorrowland!

Hver er þín helsta fyrirmynd?

Læknamegin var afi minn Frosti Sigurjónsson skurðlæknir alltaf mikil fyrirmynd, en sonur okkar er einmitt skírður í höfuðið á honum. En ég á margar fyrirmyndir eða “inspiration” í tónlistinni - og þeir sem eru kannski á toppnum eru Avicii, Calvin Harris, Daft Punk og Swedish House Mafia, en á Íslandi hef ég alltaf hlustað mikið á GusGus.

Einhver uppáhalds tónlist/ hljómsveit/söngvari/söngkona?

Ég hlusta mest á Avicii og Swedish House Mafia í elektrónísku tónlistarsenunni, en annars finnst mér Weeknd líka mjög góður. Hér heima er ég mikill aðdáandi af KALEO og hef alltaf dreymt um að vinna í tónlist með Jökli, en hann er með magnaða rödd.

Dr. Victor í góðum gír á Þjóðhátíð.

Hvernig tónlist hlustar þú mest á?

Ég hlusta mest á “house” eða “EDM” elektróníska tónlist, en annars hef ég gaman að hlusta á alla tónlist. Ég er með bakgrunn og burtfararpróf í klassískum píanóleik, svo ég elska líka að hlusta á klassíska tónlist eins og Bach, Beethoven, Chopin og Mozart.

Hvernig undirbýrðu þig fyrir gigg?

Ég set upp nýjan lista yfir það sem ég ætla að spila og geri stundum sérstök “remix” eða nýjar útgáfur af lögum sem ég ætla að setja í minn eigin búning. Svo er bara að mæta og njóta!

Hvaðan færðu innblástur?

Það getur verið mjög mismunandi. Oft þegar ég er að ferðast, ræktinni eða úti að labba en svo getur það komið á ótrúlegustu stöðum þegar maður á síst von á því. Þá nota ég mikið “Voice Memo” í símanum til að syngja inn hugmyndir.

Hvernig er að samræma lækna- og tónlistarferilinn?

Það gengur merkilega vel, en ég er mjög sveigjanlegur með tímann. Það hefur að sjálfsögðu ekki alltaf verið þannig og það hefur alveg verið erfitt á tímum. Mér finnst mjög gott og í rauninni mikilvægt að hafa eitthvað áhugamál sem er skapandi (creative), eins og tónlistin fyrir mér, og svo einhverja vinnu sem maður brennur fyrir, eins og læknisfræðin fyrir mér. Þá er maður alltaf ferskur og getur hvílt hitt með því að fara í tónlistina og öfugt.

Mesta afrekið?

Læknatengt er það líklegast það að klára læknisfræðina og svo að vinna síðustu þrjú ár að nýrri fjarheilbrigðisþjónustu sem ég ætla að koma í loftið sem fyrst til að hjálpa öllum á Íslandi. En tónlistartengt og hér á Íslandi, þá er það líklegast að spila á stóra sviðinu á Þjóðhátíð - það er stærsta gigg sem þú færð hér á Íslandi og alveg einstakt!

Hverju ertu stoltastur af?

Strákunum mínum þremur - Frosta, Mána og Storm, og Dagbjörtu minni fyrir að koma þeim öllum heilum í heiminn.

Mesta áhættan sem þú hefur tekið?

Að fylgja hjartanu og taka pásu í læknisfræði til að fókusa á tónlistina í eitt ár þegar ég var hálfnaðir með læknisfræðina. En ég sé alls ekki eftir því, þar sem ég tók tónlistarferilinn minn á næsta “level” og gaf út Sumargleðina stuttu síðar sem kom mér einmitt á stóra sviðið á Þjóðhátíð í fyrsta skiptið.

Hvar líður þér best?

Ég verð að viðurkenna að mér líður mjög vel í Vestmannaeyjum, en annars finnst mér líka mjög gott að vera í sólinni hvar sem er - til dæmis á Spáni þar sem við fjölskyldan erum með hús.

Hvaða smáforrit/app er ómissandi?

Google Calander sem er dagbók í símanum, en þar plana ég alla daga, vikur, mánuði og ár - öll tónlistargigg, viðburði, læknagigg og fleira. Við Dagbjört erum svo tengd með okkar Google Calander og sjáum þá allt sem við erum að gera og plönum alla daga svoleiðis - mæli mikið með!

Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í?

Dr. Victor á Þjóðhátíð í fyrra þar sem hann tók laugardaginn á stóra sviðinu með FM95BLÖ og DJ Muscleboy.

Ég man það ekki í fljótu bragði, en ég man mjög vel að ég var einni sekúndu frá því að lenda í vandræðalegasta augnabliki ævi minnar þegar græjurnar mínar hættu að virka í miðju atriði á

stóra sviðinu á Þjóðhátíð í fyrra með FM95BLÖ og 15.000 manns fyrir framan okkur. En ég náði að bjarga því á ótrúlegan hátt, skipta um snúru og halda stemningunni gangandi.

Á PINTEREST ER FULLT AF

HUGMYNDUM FYRIR VEISLUNA!

Opnunartími: Miðvikudag & Fimmtudag 17:00-21:00 / Föstudag & Laugardag 11:30-21:00

Gott / Bárustíg 11 / 481 3060 / gott@gott.is / gott.is

FERMINGARBÖRNIN

Fermingardagar vorið 2025 verða sem hér segir:

Laugardagur 12. apríl

Laugardagur 26. apríl

Laugardagur 10. maí

Andrea Ágústsdóttir

Foreldrar: Ágúst Sævar Einarsson & Kristjana Sif Högnadóttir

Birnir Andri Richardsson

Foreldrar: Richard Bjarki

Guðmundsson & Ásta Hrönn Guðmannsdóttir

Eva Lotta Ólafsdóttir

Tórshamar Foreldrar: Ólafur Tórshamar & Jóhanna Hafsteinsdóttir

Atli Már Sæþórsson Foreldrar: Sæþór

Jóhannesson & Svanhildur Friðsteinsdóttir

Bjartey Dögg Frostadóttir

Foreldrar: Frosti Gíslason & Ingibjörg Grétarsdóttir

Ísaföld Dögun Örvarsdóttir

Foreldrar: Örvar Ólafsson & Kolbrún Kjartansdóttir

Sunnudagur 17. maí

Sunnudagur 8. júní

Þriðjudagur 17. júní

Aþena Ýr Adólfsdóttir

Foreldrar: Adólf Sigurjónsson & Sara Björg Ágústsdóttir

Bjartur Tryggvason Foreldrar: Tryggvi Hjaltason & Guðný Sigurmundsdóttir

Jósúa Steinar Óskarsson

Foreldrar: Óskar Jósúason og Guðbjörg Guðmannsdóttir

Benedikt Þór Eyþórsson

Foreldrar: Eyþór Þórðarson & Helga Björk Georgsdóttir

Foreldrar:

Sigurfinnur Óskar Sigurfinnsson

Foreldrar:Sigurfinnur Sigurfinnsson & Ása Sigurðardóttir

Diego Felix Andersen
Willum Pétur Andersen & Susana Loretos
12. apríl

Tómar Ingi Guðjónsson

Foreldrar: Guðjón Vídalín

Magnússon & Alexandra Evudóttir.

Elvar Breki Friðbergsson

Foreldrar: Friðberg

Sigurðsson & Símonía Helgadóttir

Hrafnhildur Kristín

Kristleifsdóttir Foreldrar:

Kristleifur Guðmundsson & Hildur Jónsdóttir

Þorvaldur Freyr Smárason

Foreldrar: Smári Björn

Þorvaldsson & Ragna Ragnarsdóttir

26. apríl

Ari Páll Hjarðar

Foreldrar: Páll Almarsson & Anna Rós Hallgrímsdóttir

Erla Hrönn Unnarsdóttir

Foreldrar: Unnar Hólm Ólafsson & Helga Jóhanna Harðardóttir

Kristján Lárus Erlingsson

Foreldrar: Erlingur

Guðbjörnsson & Ragna Steina Lárusdóttir

Finnur Hafsteinn Guðlaugsson

Foreldrar: Guðlaugur Rúnarsson & Bergrún Finnsdóttir

Aþena Rós Einarsdóttir

Foreldrar: Einar Birgir Baldursson & Íris Sif Hermannsdóttir

Halldór Björn Sæþórsson

Foreldrar: Sæþór Vídó Þorbjarnarson & Kristín Halldórsdóttir

Lena María Magnúsdóttir

Foreldrar: Magnús Elíasson og Harpa Hauksdóttir

Friðrika Rut Sigurðardóttir

Foreldrar: Sigurður Oddur Friðriksson & Aníta Ársælsdóttir

Ásgrímur Bragi Viðarsson

Foreldrar: Viðar Örn Viktorsson & Kolbrún Skagfjörð

Hlín Huginsdóttir

Foreldrar: Huginn Egilsson & Lára Dögg Konráðsdóttir

Tara Dögg Kristjánsdóttir

Foreldrar: Kristján Ingi

Sigurmundsson & Hansína

Metta Jóhannsdóttir

Guðjón Ólafsson

Foreldrar: Ólafur Guðmundsson & Alda Guðjónsdóttir

Kormákur Nóel Guðmundsson

Foreldrar: Guðmundur Örn

Jónsson & Gíslína Dögg Bjarkardóttir

Birta Sól Bjarnadóttir

Foreldrar: Bjarni Þór

Guðmundsson & Erla Björg Pétursdóttir

Egill Jón Hafþórsson

Foreldrar: Hafþór Jónsson & Linda Ósk Hilmarsdóttir

Sienna Björt Garner

Foreldrar: Matt Garner & Bjartey Hermannsdóttir

Breki Freyr Finnsson

Foreldrar: Finnur Freyr

Harðarson & María Erna Jóhannesdóttir

Emilía Sigurðardóttir

Foreldrar: Sigurður Bragason & Elísa Sigurðdóttir

Sigurrós Sverrisdóttir

Foreldrar: Sverrir Örn

Sveinsson & Halldóra Kristín Ágústsdóttir

Breki Georg Freyson

Foreldrar: Freyr Atlason & Kristín Georgsdóttir

Hilmar Aron Birgisson

Foreldrar: Birgir Þór

Sigurjónsson & Hafdís Ósk Ólafsdóttir

Sindri Þór Orrason

Foreldrar: Orri Jónsson & Hulda Birgisdóttir

Egill Davíðsson

Foreldrar: Davíð Egilsson & Eyrún Sigurjónsdóttir

Kristinn Freyr Daníelsson

Foreldrar: Daníel Andri Kristinsson & Dagmar Pálsdóttir

Ragnheiður Rut Ólafsdóttir

Möller Foreldrar: Ólafur A. Sævarsson & Marta Möller

Reynir Már Geirsson

Foreldrar: Reynir Geirsson & Sigþóra Guðmundsdóttir

Emma Ey Sigfúsdóttir

Foreldrar: Sigfús P. Pétursson & Salmome Ýr Rúnarsdóttir

Ronja Lísbet Friðriksdóttir

Foreldrar: Friðrik Benediktsson & Kolbrún Jónsdóttir

8. júní

17. júní

Eyjólfur Jökull Elíasson

Foreldrar: Elías Ingi Björgvinsson

Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir

Kastel Sigurhansson

Foreldrar: Sigurhans Guðmundsson & Silja Ýr Markúsdóttir 26. apríl

BORGARALEG FERMING

Athöfnin fer fram í Kviku laugardaginn 26. apríl klukkan 13:00

Mía Bjarný Haraldsdóttir

Foreldrar: Haraldur Ari Karlsson & Ása Jenný Kristínardóttir

Frumherji í Eyjum

vikuna 24. - 27. mars

Lokað í hádeginu

Tímapantanir í síma 570 9090

Oddný Bára Jónasdóttir

Foreldrar: Jónas Gunnarsson, Hafdís Ástþórsdóttir & Gísli Matthías Auðunsson

Ólöf Halla Sigurðardóttir

Foreldrar: Sigurður Jóhann Atlason & Ragnheiður Sveinþórsdóttir

Faxastígur 38

FERMINGARBÖRN

spurt & svarað

HLÍN

HUGINSDÓTTIR

Fullt nafn: Hlín Hugins

Fjölskylda: Mamma heitir Lára, pabbi heitir Huginn, systir mín heitir Birta og bræður mínir heita Jóel, Máni, Ísak og hundurinn minn heitir Oreó. Hvar og hvenær líður þér best?

Heima, með vinum og á fótboltaæfingum

Ertu til í að lýsa þér í þremur orðum? Feimin, góð og hjalpsöm Hvað app/forrit notar þú mest?

Snap, tiktok og insta Uppáhaldsstaður á Íslandi?

Vestmannaeyjar

Besti matur í heimi? Ömmu-spaghetti og afahamborgari

Hvað er draumastarfið?

Rannsóknarlögregla, smiður og að ná langt í fótbolta Uppáhaldstónlist?

Tónlistin hans Birnis

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju?

Bát, ávexti og landakort

Hvað er á óskalistanum?

Að fara til Hawaii.

Ertu A eða B týpa? B Uppáhaldshlutur?

Sími og fótbolti

Ef þú ættir eina ósk?

Að ég gæti flogið.

REYNIR MÁR GEIRSSON

Fjölskylda: Mamma mín heitir

Sigþóra Guðmundsdóttir, Pabbi

Geir Reynisson, Systir Guðný og svo á ég tvo bræður sem heita

Siggi og Guðmundur. Hvar og hvenær líður þér best?

Inni í herberginu mínu þegar ég er að spila uppáhalds leikinn minn eða í Féló í ping pong.

Ertu til í að lýsa þér í nokkrum orðum?

Elskulega pirrandi, gaur. Hvernig nærðu slökun? Með tónlist

Uppáhaldsstaður á Íslandi? Vestmannaeyjar.

Besti matur í heimi? Ég myndi segja pasta carbonara

Draumastarfið?

Ég geri mitt besta að lifa í núinu, ekki búinn að ákveða. Uppáhalds tónlist?

Söngleikjatónlist

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju?

Síma til að tala við fjölskyldu og vini, neyðarblys og leik sem ég get spilað við sjálfan mig. Hvað er á óskalistanum?

Að vera eftirminnilegur eftir mína tíð.

Ertu A eða B týpa?

Ég er B týpa.

Uppáhaldshlutur?

Heyrnatól og síminn minn. Ef þú ættir eina ósk? Enda kynþáttahatur.

Sælkeri vikunnar ÞÓR ENGILBERTSSON

HREINDÝRABOLLUR & APPELSÍNUÖND

Vil ég byrja á að þakka Fidda Palla fyrir áskorunina og kem hér með tvær uppskriftir þar sem við höldum áfram að elda hráefni úr veiðiferðum okkar félaga

HREINDÝRABOLLUR

Hráefni:

500 gr. Hreindýrahakk

1 egg

Brauðrasp og mulið Ritzkex

1 msk villikraftur

Timian

Salt & pipar

Aðferð:

Þessu er öllu blandað saman og búnar til bollur. Steikt með lauk á pönnu og sett til hliðar. Ef þið viljið minna villibragð þá er líka gott aðblanda saman hreindýra og nautahakki.

GRÁÐOSTASÓSA

Hráefni:

ca 4 dl vatn msk rifsberjahlaup msk villibráðarkraftur

1 dl rjómi

1-2 tsk gráðostur salt og pipar sósujafnari mysingur

Aðferð:

Hellið vatninu á pönnuna ásamt rifsberjahlaupi, gráðosti (má sleppa, ekki fyrir alla) nota þá t.d. piparost í staðinn og villibráðarkraft. Soðið saman í 10 mínútur bæta þá rjómanum við og mjúkum mysing sem mér þykir gefa gott bragð í allar villibráðasósur. Smakka svo til með salt og pipar.

STEIKT ÖND MEÐ APPELSÍNUSÓSU

Hráefni:

1 önd

2 appelsínur

1/2 ltr kjötsoð sósujafnari grand mariner salt og pipar

Þór Engla er sælkeri vikunnar.

Aðferð:

þerrið öndina og nuddið innan og utan með salti og pipar, setjið börkinn af annarri appelsínunni innan í öndina, setjið öndina svo inn í ofninn á rist yfir ofnskúffu á 200 gráður í ca 1/2- 1 1/2 klst fer eftir stærð/þyngd á öndinni. Getur verið gott að setja álpappír yfir bringurnar í lokin því lærin þurfa lengri tíma.

Hellið fitunni úr skúffunni og setjið kjötsoðið í hana ásamt safa úr einni appelsínu, vætið öndina reglulega með soðinu á steikartímanum. Að lokum, hellið steikarsafanum í pott og fleytið fituna ofan af.Bætið í safa úr appelsínu og fínt skornum berki. Látið sjóða í nokkrar mínútur með dassi af líkjörnum. Saltið og piprið þar til þið eruð ánægð með bragðið og þykkið með sósujafnara.

Verði ykkur að góðu!

Áfram verður haldið með áskorun innan veiðihópsins, og skora ég á fyrrverandi markmanninn Albert Sævarsson að koma með eitthvað gott handa okkur.

Flötum 29

sími: 481-1012 844-5012

tannsi@eyjar.is

Litla Skvísubúðin

Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega. www.skvisubudin.is

LÁTTU OKKUR UM VERKIÐ - ALLT Á EINUM STAÐ! Við bjóðum upp á alhliða verktakavinnu: Pípulagnir, smíðar, gólfhitafræsingu, raflagnir & múrvinnu

Kíktu á heimasíðuna okkar www.AGLverktakar.is

Fundartímar AA samtakanna

Sunnudagur kl. 11:00 (blandaðir fundir)

Miðvikudagur kl. 20:30 (blandaðir fundir)

OPNUNARTÍMI

Virkir dagar frá 8:00-17:00 laugardagar 10:00-14:00

Fimmtudagur kl. 12:05 (kvennafundir)

Föstudagur kl. 20:30 (blandaðir fundir)

AL-ANON Þriðjudagur kl. 20:30

Nýliðar sérstaklega velkomnir í spjall hálftíma fyrir fund.

Sony 1000XM5 Framúrskarandi noise cancel HEYRNARTÓL með Bluetooth.

Sony LinkBuds S HEYRNARTÓL með Noise Cancel

Sony Bluetooth HÁTALARI SRSXE200 X-Seria. Vatns og rykvarinn.

Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is

Fermingarbörn og jafnaldrar fá allt að

32.000 kr. mótframlag og glaðning þegar þau spara hjá Landsbankanum

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.