


Hlynsson, Gabríel Gauti Guðmundsson, Daníel Gauti Scheving, Sigurjón Andri Þorláksson, Jón Bjarki Eiríksson og Atli Dagur Bergsson. Þjálfarar flokksins eru Dóra Sif Egilsdóttir, Pavel Miskevich og Petar Jokanovic .
Hlynsson, Gabríel Gauti Guðmundsson, Daníel Gauti Scheving, Sigurjón Andri Þorláksson, Jón Bjarki Eiríksson og Atli Dagur Bergsson. Þjálfarar flokksins eru Dóra Sif Egilsdóttir, Pavel Miskevich og Petar Jokanovic .
DREIFING:
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
ÚTGÁFA:
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Verð frá 39.990
Verð frá
39.990
Rýmingarsala á fartölvum
Glæsilegt
OLÍSDEILD KARLA ÍBV - ÍR Íþróttamiðstöðin kl. 14:00
LENGJUDEILD KVENNA KR - ÍBV KR völlur kl. 14:00
LENGJUDEILD KARLA SELFOSS - ÍBV
Jáverk-völlurinn kl. 14:00
HÁTÍÐ HIPPANNA Í HÖLLINNI
Nánari tímasetning auglýst síðar
/raudagerdivm /felo_eyjar eyrun@ vestmannaeyjar.is
Fyrir þau sem vilja klæðast hippafötum þá er skvísubúðin og Kubuneh með ýmislegt skemmtilegt sem hentar fyrir kvöldið.
Forsala fer fram í Kubuneh
Skvísubúðinni.
Verð í forsölu 5.000 kr. 6.000 kr. við inngang.
KL. 19:00
14.03 2025
Þann 14. mars næstkomandi verður Hátíð hippana í Höllinni kl. 20:00 húsið opnar kl. 19:00
Hinn íslenski Hippaflokkur mun stíga á stokk sem flytur vel valin lög frá þessum tíma ásamt fleirum listamönnum.
Ef þú vilt hafa gaman, hlusta á góða tóna, borða gómsætan mat og láta gott af þér leiða í leiðinni taktu þá kvöldið frá. Ekki missa af Hátíð hippanna.
Einsi Kaldi mun sjá um matinn Happadrætti Stemning & geggjuð tónlist
Styrktarkvöld Krabbavarnar í Vestmannaeyjum er helsta styrktarleið félagsins
Eyjapeyjarnir Kristinn Freyr, Ingi Þór, Sigurður Valur, Gabríel Þór, Heiðmar Þór og Ívar Atli stofnuðu fyrirtækið Giskakits síðasta haust. Tígull heyrði í þeim peyjum og fékk að forvitnast aðeins um fyrirtækið.
Hvernig fyrirtæki er Giskakits?
Þetta er lítið fyrirtæki sem selur mystery treyjur. Það er að segja þegar þú verslar af okkur færð þú kassa með fótboltatreyju en veist ekki hvaða lið eða land þú færð fyrr en þú opnar. En þú velur stærð þess sem á að fá fótboltatreyjuna og færð svo sendingu eftir 3-5 virka daga nema þú búið í Eyjum þá tekur það 1-3 virka daga. Við erum með höfuðstöðvar í Vestmannaeyjum vegna þess að við erum allir eyjapeyjar í hjarta.
Hvað kom til að þið fóruð út í að stofna fyrirtæki?
Við stofnuðum fyrirtækið í haust á síðasta ári. Við fengum allt í einu þessa hugmynd. Við höfum allir gríðarlegan áhuga á fótbolta og okkur fannst þetta vera góð hugmynd. Þetta byrjaði frekar vel og við vorum að fá pantanir aðallega í Vestmannaeyjum. Við erum allir frá Eyjum nema einn, hann Ívar bjó í Grindavík en býr núna á Álftanesi.
Við byrjuðum að auglýsa á samfélagsmiðlum og t.d. í Krónunni. Vonandi förum við einhvern tímann í einhverjar búðir og við stefnum á að stækka og stækka þetta.
Kristinn Freyr Sæþórsson
Kristinn Freyr er fæddur 18. október 2008, heldur með Liverpool og býr í Vestmannaeyjum.
Ingi Þór Lúðvíksson
Ingi Þór er fæddur 21. júlí 2008, heldur með West Ham og býr í Vestmannaeyjum.
Sigurður Valur Sigursveinsson
Sigurður Valur er fæddur 5.febrúar 2008, heldur með Liverpool og býr í Vestmannaeyjum.
Ívar Atli Smárason
Ívar Atli er fæddur 3. ágúst 2008 og heldur með Tottenham. Hann er Grindvíkingur í hjarta en býr á Álftanesi.
Gabríel Þór Harðarsson
Gabríel Þór er fæddur 13. maí,
Hægt er að finna okkur á samfélagsmiðlum undir giskakits.is eða kíkt á vefsíðuna okkar.
Virkir dagar frá 8:00-17:00 laugardagar 10:00-14:00
Nýsmíði
Gólfhitafræsing
Gólfhitalögn
Kjarnaborun
Pallasmíði
Þakvinna
Innréttingar
Utanhúsklæðningar
aglverktakar@gmail.com
Stíll er árleg hönnunarkeppni á milli félagsmiðstöðva þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun út frá ákveðnu þema sem er ákveðið af ungmennaráði Samfés en þemað í ár er Sjóræningjar karabískahafsins. Keppnin hefur oftast farið fram í nóvember ár hvert. Keppt hefur verið í Stíl undir formerkjum Samfés og ÍTK frá því á árinu 2000.
Markmið Stíls er að hvetja unglinga til listsköpunar og um leið gefa þeim aukin tækifæri til frumlegrar hugsunar og virkja sköpunarhæfileikana. Keppnin vekur jákvæða athygli á því hvað unglingar eru að gera á sviði sköpunar, gefur þeim kost á að koma hugmyndum sínum á framfæri og sýna afrakstur margra mánaða undirbúningsvinnu hópsins. Margir grunnskólar landins bjóða upp á Stíls valáfanga fyrir nemendur sína þar sem þeim býðst að vinna saman að hönnun sinni á skólatíma í samstarfi við félagsmiðstöð í heimabyggð.
Fyrirkomulag keppninnar er með þeim hætti að hóparnir, skipaðir 2-4 unglingum sem flest hafa tekið þátt í undankeppnum í sínum landshluta, fá tvær klukkustundir til þess að undirbúa módelið sitt fyrir sýninguna. Hóparnir skila einnig hönnunar möppu, sem útskýrir hugmyndina á bakvið hönnunina, með teikningum, efnisprufum, kostnaðarupplýsingum og ljósmyndum af flík, hári og förðun. Keppendur leggja mjög mikinn metnað í verkefnið og eru búningar hannaðir af hópunum fyrirfram í félagsmiðstöðvunum eða sem valáfangi í grunnskólum landsins.
Á myndinni eru módel keppninnar. Frá vinstri: Arna Gunnlaugsdóttir, Júlí Sigurjónsdóttir og Bjartey Dögg Frostadóttir.
Því miður eru það svo að samgöngurnar hafa ekki verið með besta móti þegar keppnin er haldin og því er þetta annað árið í röð sem að unglingarnir komast ekki til Reykjavíkur og taka þátt í aðalkeppninni. Eyrún Haraldsdóttir sem er verkefnastjóri æskulýðs- og tómstundamála Vestmannaeyjabæjar bauð hópunum að mæta í FÉLÓ og halda áfram með keppnina enda mikið að leggja mikla vinnu í hugmyndavinnu og hönnun. Hóparnir mættu og græjuðu módelin sín og sýndu foreldrum og ættingjum afraksturinn. Að lokum horfðu hóparnir saman á keppnina í sjónvarpinu sem var sýnd í beinni á laugardeginum.
Hverjir tilheyra hópnum?
Borghildur Lára Atladóttir Busk, Elsa Sigrún Símonardóttir, Arna Gunnlaugsdóttir og Kristel Mist Mikaelsdóttir.
Hverjir eru með hvaða hlutverk? Arna er módel en annars skiptum við verkum á milli okkar.
Í hverju felst undirbúningurinn fyrir svona keppni?
Hugmyndavinna, passa að allt sé vel unnið og klárað og að halda góðri samvinnu.
Hvað fannst ykkur skemmtilegast?
Hvernig við gátum haft frjálsar hendur og leikið okkur með þemað og að fá að hanna allt frá grunni.
Er eitthvað skemmtilegt sem kom upp þegar þið voruð að vinna saman?
Aðallega bara þegar við vorum allar sammála með nýjar hugmyndir og breytingar á hönnuninni og að geta framkvæmt það.
Hvað hafið þið unnið lengi að þessu?
Síðan í október síðastliðinn.
Hver er innblásturinn fyrir hönnuninni?
Við fórum fyrst að skoða persónur frá Pirates of the Caribbean fyrir hugmyndir en það var tímabundin pæling og þróaðist hönnunin meira út í dautt og drungalegt útlit.
Það væri gaman að fá útskýringu á heildarútlitinu, hönnun fatnaðar, hárgreiðslu og förðun:
Við festum okkur eiginlega bara við hugmyndina að hafa lita pallettuna bláa með gráum og daufum tónum. Í staðinn fyrir að hanna týpískt sjóræningja útlit hugsuðum við út fyrir kassann og lékum okkur með þemað á öðruvísi og fjölbreyttari hátt.
Elsa Sigrún Símonardóttir
Kristel Mist Mikaelsdóttir
Arna Gunnlaugsdóttir
Borghildur Lára Atladóttir Busk
Hverjir tilheyra hópnum?
Bjartey Dögg Frostadóttir, Oddný Bára Jónasdóttir, Lena María Magnúsdóttir og Aþena Ýr
Adólfsdótttir
Hverjir eru með hvaða hlutverk?
Við hjálpuðumst allar með búningum og Bjartey Dögg var módelið.
Í hverju felst undirbúningurinn fyrir svona keppni?
Að leita að hugmyndum og kasta þeim á milli, finna svo efni til að vinna úr.
Hvað fannst ykkur skemmtilegast? Bara verkefnið í heild sinni.
Er eitthvað skemmtilegt sem kom upp þegar þið voruð að vinna saman?
Pínu fyndið að við gleymdum að lita skóinn.
Hvað hafið þið unnið lengi að þessu? Sirka fimm mánuði.
Hver er innblásturinn fyrir hönnuninni?
Við fengum innblásturinn frá kvikmynda persónunni Úmu úr Desentens.
Það væri gaman að fá útskýringu á heildarútlitinu, hönnun fatnaðar, hárgreiðslu og förðun:
Allur búningurinn er endurunninn úr gömlum flíkum. Við notuðum t.d. gamlar pleðurbuxur til að sauma utan á gamalt korselett.
Oddný Bára Jónasdóttir
Bjartey Dögg Frostadóttir
Lena María Magnúsdóttir
Bjartey Dögg var módelið í þeirra hóp og hér má sjá Oddný Báru græja hárið á módelinu.
Sérstakar þakkir til:
Hverjir tilheyra hópnum?
Júlí Sigurjónsdóttir, Elín Sif Hlynsdóttir, Elísabet Inga Þórisdóttir og Lovísa Ingibjörg Jarlsdóttir
Hverjir eru með hvaða hlutverk?
Júlí er módel við settum allar okkar hönnun saman
Í hverju felst undirbúningurinn fyrir svona keppni?
Best er að fá innblástur og fræðslu af þemanu og teikna upp hugmyndir fyrir hönnunina. Það fer mjög mikil vinna í svona verk og gott er að vera vinnusamur og er mjög hugmyndar rík/ur.
Hvað fannst ykkur skemmtilegast?
Að sjá heildar myndina af okkar verji
Hvað hafið þið unnið lengi að þessu?
Við byrjuðum að vinna í þessu verki í október
Hver er innblásturinn fyrir hönnuninni?
Stíl þeman í ár er mergjuð, við vissum akkúrat hvaða ,,tegund” sjóræningja frá karabíska hafinu við ættum að gera. Okkar helsti innblástur eru þau Tia dalma og bootstrap Bill úr sjóræningja myndinni pirates of the Caribbean. Við fengum innblástur af fata stíl tiu og dauða sjávar jukkinu af bootstrap Bill og komum þeim báðum saman í okkar hönnun. Hönnuninn okkar er framliðin sjóræningi og kvenhetja sem hefur mátt lifað tímana tvenna.
Það væri gaman að fá útskýringu á heildarútlitinu, hönnun fatnaðar, hárgreiðslu og förðun:
Við fengum efni og gamlar gardínur til notkunar í saumastofu barnaskólans og notuðum þau efni til þess að búa okkur til pils. Við tókum gamla skyrtu og settum nýjar ermar á hana og notuðum kaffi og augnskugga til þess að gera hana aðeins meira drungalegri og endurnýttum okkur notað
Elín Sif Hlynsdóttir
Júlí Bjart Sigurjóns Elísabet Inga Þórisdóttir
efni og gerðum út því kóral og aðra sjávar muni og blönduðu þeim inn í okkar sjávar sjóræningja hönnun. Við fundum hugmyndir frá uppvakningum og notuðum þá hugmynd fyrir förðunina. Við fundum síðan hugmyndir af sjóræningjum og settum í hárið fullt af gersemum og gulli í fléttað hár með krullur.
Ég vil byrja á því að þakka litla frænda mínum honum Finni Frey a.m.k. fyrir að láta mig vita fyrirfram af væntanlegri áskorun (hann veit betur en að koma mér á óvart), og er þá ekki best að halda sig við sömu veiðferðina og sama aflann og bjóða upp á mjög einfalda en alveg svaðalega góða gæsaborgara uppskrift.
Hráefni:
1.stk gæs (bringa og úrbeinaðir leggir) (grágæs, heiðargæs eða helsingi)
130 g beikon
½ rauðlaukur (saxaður smátt) ½ gráðostur (rifinn)
1/3 pakki Tuc beikonkex 1 egg
Aðferð:
Byrjum á því að hakka saman gæsakjötið og beikonið (blanda beikoninu jafnt og þétt saman við þegar við hökkum). Næst tökum við hakkið og blöndum saman við það lauknum, ostinum, kexinu og egginu og hrærum þetta allt vel saman í höndunum (í djúpri skál) Næsta verk er svo að skipta hráefninu upp í hæfilega stórar kúlur (og þá er gott að nota eldhúsvog) í þá
þyngd sem maður vill en sem dæmi þá er hægt að fá c.a. 6 stk 130g borgara úr einni grágæs og c.a. 6 stk 110 g borgara úr einni heiðargæs.
Því næst er hráefnið pressað í hamborgarapressu (ef hún er til á heimilinu) eða bara flatt út í höndunum og steikt á pönnu. Persónulega finnst mér best að vera bara með góða pönnu og steikja kjötið beint á pönnunni þ.e. án þess að nota olíu eða smjör (en það er svo bara smekksatriði).
Kryddað með salt og pipar eftir smekk, annaðhvort út í hakkblönduna eða við eldun. Það góða við þessa uppskrift líka er hvað hún er einföld í framreiðslu en þessa borgara berum við fram í brauði (að sjálfsögðu) en einungis með “dass” af gráðostasósu og svo fullt af sultuðum rauðlauk, undir og ofan á borgaranum. Sem meðlæti er svo klassískt og gott að hafa ofnsteiktar franskar kartöflur og ferskt grænmeti.
Verði ykkur að góðu!
Fyrst við erum nú komnir á bragðið er þá ekki rétt að halda þessu innan veiðihópsins og koma með fleiri villibráðar uppskriftir, því sem næsta sælkera vil ég sjá steypuveiðistórskyttuna og hjartagosann hann Þór Engilbertsson. Hann er mikill sælkeri og ég veit að hann (eða sennilega Una) lumar á einhverri svaðalegri villibráðauppskrift en ef ekki þá er pottþétt til uppskrift að veiðiferðanesti fyrir einn í þrjá daga… sem endist handa fjórum í viku.
Laufey Bistró bíður upp a ljúffengan mat á mettíma.
Verslun Laufey bíður upp á helstu drykki og snarl ásamt minjagripum og fatnaði.
Kem-Power hraðhleðslustöðvar geta hlaðið allt að 8 bíla í einu.
Gagnvirk upplýsingaborð um þjónustu í Eyjum ásamt áætlun Herjólfs.
Hreinustu almenningssalerni í heimi fá öll kyn til að pissa sitjandi.
minnast látins ættingja eða vinar?
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
TÍMA Í MYNDATÖKU
Hægt er að senda tölvupóst á leturstofan@leturstofan.is eða hringja í síma 6947999 (L ind) VESTMANNABRAUT 38
14. mars
Skilafrestur fyrir launamenn og einstaklinga með eigin atvinnurekstur er til 14. mars
Unnt er að auðkenna sig með tvenns konar hætti, þ.e. með rafrænum skilríkjum og með veflykli Skattsins.
Skatturinn mælir með að rafræn skilríki séu notuð við auðkenningu.
Áríðandi er að framteljandi athugi hvort áritaðar fjárhæðir og aðrar upplýsingar séu í samræmi við gögn og upplýsingar sem hann hefur sjálfur undir höndum. Athuga skal sérstaklega hvort einhverjar upplýsingar vanti inn á framtal, s.s. verktakatekjur.
Framtal barns skal fylgja framtali framfæranda.
Leiðbeiningar er að finna á skatturinn.is. Einnig er auðvelt að kalla fram skýringar við einstaka kafla eða reiti í framtalinu sjálfu.
Eftirfarandi framtalsaðstoð er í boði:
Símaþjónusta í 442-1414 Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00
Sendu okkur tölvupóst
Þú getur sent okkur tölvupóst á póstfangið framtal@skatturinn.is
Spurðu Ask Hann getur líka leiðbeint þér með framtalið