Tígull 06. tbl 07. árg.

Page 1


ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFNDIN 2025

Alma, Jón Þór, Jónas, Svanur og Ellert. Á myndina vantar Guðrúnu Maríu, Daníel Frans og Hjörleif.

HEILSUBINGÓ #4

Við höldum áfram með heilsubingóið en þetta er síðasta bingóið sem við birtum. Tígull skorar á sem flesta að taka heilsuna föstum tökum.

Heilsubingóið er hugsað til að gera hreyfingu eða heilsu að skemmtun. Við spilum að sjáfsögðu allt spjaldið og er því markmiðið að ná að setja X yfir alla dálka og fá BINGO, byrja á föstudegi og enda á föstudeginum eftir það.

Ennþá skemmtilegra að taka fjölskylduna með í þetta og hafa gaman.

TÍGULL

DREIFING:

Forsala Þjóðhátíðar hefst á morgun og hefur þjóðhátíðarnefndin haft í nógu að snúast undanfarið við undirbúning. Það styttist í að tónlistaratriðin verði kynnt hvert á eftir öðru. Aðeins 153 dagar eru í hátíðina. Þær breytingar hafa orðið á nefndinni að Haraldur Pálsson er ekki í ár en þau Alma Ingólfsdóttir og Svanur Gunnsteinsson bætast í nefndina.

Þjóðhátíðarnefndina í ár skipa:

Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður

Ellert Scheving, framkvæmdastjóri ÍBV

Guðrún María Þorsteinsdóttir, meðstjórnandi

Hjörleifur Davíðsson, meðstjórnandi

Jón Þór Guðjónsson, meðstjórnandi

Daníel Frans Davíðsson, meðstjórnandi

Svanur Gunnsteinsson, meðstjórnandi

Alma Ingólfsdóttir, meðstjórnandi

Baka

10 BURPEES

H E I L S U B I N G O

TAKA EINN DANS Í “JUST DANCE”

Planki í takt við lagið “Bring sally up”

5 Ávextir FREE

UM RÚMIÐ 5X HUGLEIÐA Í 2 MÍN

2,5L Vatn á dag Hrósa ókunnugum

Fara 3x í 15 mín göngu

Segja 5 jákvæða hluti um þig við þig í spegli á dag

SKRIFA EINN

TAKA

HÆTTA Í SÍMA KLST FYRIR SVEFN 5 GRÆNMETI 15 ARMBEYGJUR

KNÚSA SJÁLAN ÞIG EINU SINNI Á DAG 2 ÆFINGAR

stefisgym

Gefa 5 “high five” 25

Lesa 10 bls

HLUT SEM ÞU ERT ÞAKKLÁT/UR/T FYRIR Á DAG

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

ársfundur 2025

Sterk framtíð á stoðum fortíðar

Silfurbergi, Hörpu

Þriðjudaginn 4. mars

14:00

ávörp

Jón Björn Hákonarson stjórnarformaður

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra

Fundarstjóri er Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta

erindi

Ábyrgð á auðlind þjóðar

Hörður Arnarson forstjóri

Forsjálni til framtíðar

Jóna Bjarnadóttir frkvstj. Samfélags og umhverfis

Enginn venjulegur raforkumarkaður Tinna Traustadóttir framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu

pallborð

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar

Gestur Pétursson forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar

Guðrún Halla Finnsdóttir framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar, Norðurál

Skráning á landsvirkjun.is/arsfundur25

LAUFEY OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN

Gestum fjölgar - Stórt ljósaskilti við þjóðveginn í burðarliðnum

Tígull heyrði í Sveini Waage hjá Laufey og við fengum að heyra nýjustu tíðindi af stöðinni við Landeyjahafnarafleggjarann.

Hér er allt í góðum gangi og flottur upptaktur í fjölgun gesta, sérstaklega núna í febrúar. Fastagestum í ferðaþjónustunni fjölgar af því kúnnarnir þeirra eru mjög sáttir við allt. Fólk er ánægt með matinn og ekki síst tandurhrein klósettin sem urðu landsfræg eftir flotta heimsókn fréttastofu Stöðvar2 á dögunum. Við erum líka í skýjunum með að hafa náð að opna núna Laufey allan sólarhringinn sem er stórt skref í þjónustu og öryggi á svæðinu. Laufey Bistro er opið sem fyrr frá 10-22 en á öðrum tímum er búðin, fínu klósettin og gott kaffi aðgengilegt 24/7.

Það er búið að vera sértaklega ánægjulegt að finna fyrir þessari fjölgun gesta þrátt fyrir að Landeyjahöfn sé búinn að vera svona mikið ófær í febrúar. Eyjamenn eru duglegir að heimsækja okkur en eiga eðlilega litla leið hér hjá án Herjólfs. Við finnum líka fyrir að það eru vonbrigði fyrir ferðamenn að geta ekki notað Landeyjahöfn. Kannski extra svekkjandi þegar veður og

skyggni er gott eins og í dag en höfnin full af sandi. Kannski er það að æra óstöðugan að fara nánar út í það.

Fram undan hjá okkur er að setja upp myndarlegt LED-ljósaskilti í samstarfi með Herjólfi. Búið er að tryggja okkur öflugt skilti sem við getum stýrt af vild og leyfismálin eru í farvegi. Þetta mun auka sýnileika okkar og Herjólfs gríðarlega frá Þjóðveginum og efla um leið veiðikofa Vestmannaeyja hér á Norðurey, segir Sveinn brosandi.

Við erum staðráðin í og fullviss um að Laufey sé komin til að

vera. Við finnum mikinn meðbyr og stöðuga aukningu núna. Og þó svo að maður vilji oft að hlutir gangi hraðar þá skiptir mestu máli að standa sig í því sem við gerum og sýna þolinmæði. Það er líka algegnasta ráðið sem við fáum. Það tekur tíma að koma svona stöð í rútínu hjá fólki fyrir utan þá einföldu staðreynd að ferðalangar á svæðinu, íslenskir sem erlendir vita ekki allir af okkur sko (hlær) Við erum svo að reyna vinna í því öllu með markaðsvinnu og auknum sýnileika.

Að lokum vill Sveinn koma á framfæri kæru þakklæti til allra Eyjamanna sem hafa heimsótt Laufey, sent okkur kveðjur, ábendingar og hvatt okkur áfram. Þið eruð hjartanlega velkominn og komið öll fagnandi. Sveinn Waage.

TILLAGA AÐ BREYTTU DEILISKIPULAGI

MIÐBÆJAR VESTMANNAEYJA:

LÍTIÐ FJÖLBÝLISHÚS

VIÐ VESTURVEG 6

Gert er ráð fyrir tveggja hæða íbúðarhúsi auk kjallara, allt að 5 íbúðir. Grunnflötur byggingareits verður 110 m2 og auk þess er gert ráð fyrir 27,8 m2 reits fyrir geymslur á baklóð. Breytingin styður við meginmarkmið Aðalskipulags Vestmannaeyja 2015-2035 um að æskilegt sé að byggja í þær eyður sem eru í byggðinni og fjölga íbúðum, sérstaklega á efri hæðum. Skipulagsgögn eru aðgengileg á skipulagsvefsjá á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar, í afgreiðslu í Ráðhúsi Vestmannaeyja og á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.

Ábendingum og athugasemdum við deiliskipulagstillögu þarf að skila skriflega í afgreiðslu Ráðhúss Vestmannaeyja eða í gegnum skipulagsgátt Skipulagsstofnunar til og með 12. mars 2025.

HÖNNUN ÞJÓNUSTUKJARNANS

Tígull fékk að skyggnast inn í hönnunarferli á Þjónustukjarna Vestmannaeyjabæjar við Strandveg 26 en TPZ sá um hönnun hússins en Rikki Stefáns og Sigrún Arna sáu um hönnun Þjónustukjarnans.

Þjónustan hafði verið áður staðsett við Vestmannabraut 58 b síðan 1990 og innihélt 5 íbúðir, skammtímavistun og sameign. Hver íbúð var með svefnherbergi, stofu, eldhúskrók og baðherbergi en sameignin innihélt eldhús, stofu, borðstofu, geymslu, bað og þvottaherbergi sem og sólpalli.

Þar var íbúum boðið uppá eflingu og styrkingu með leiðsögn eftir þörfum til að þau gætu öðlast færni á að verða sjálfbjarga og ráða eigin hagi, eins vel og kostur væri.

Árið 2020 var ákveðið að flytja starfsemina í nýtt húsnæði á Strandvegi 26, 2 hæð. sem þá var í uppbyggingu. Hugtakið sambýli var lagt af og við tók þjónustuíbúðir, fjöldi íbúða færi úr fimm í sjö með aðgengi að stórum þjónustukjarna með útsýni yfir miðbæinn.

Hlutverk kjarnans þurfti að vera fjölbreytt og má þar nefna möguleika að bjóða uppá að íbúar þjónustuíbúðanna gætu eldað, borðað og notið samveru hvors annars einnig með sínum nánustu.

Frá kjarna er aðgengi að stórum svölum með eldunaraðstöðu, húsgögnum og möguleika á að bæta við síðar heitum potti með aðgengi að blautrými.

Á annarri hæð er líka að finna leiguíbúð, rúmgott herbergi með salerni fyrir skammtímavistun en önnur rými eru aðstaða fyrir starfsmenn, þvottarými, geymsla og skrifstofa fyrir forstöðumann.

Áhersla var lögð á nútímalega og örugga aðstöðu fyrir íbúa og starfsfólk.

Innanhúshönnun sótti innblástur í náttúru Vestmannaeyja, litir og áferðir skyldu endurspegla hlýleika og afslappað andrúmloft.

Mikilvægt var að draga úr utanaðkomandi hávaða og bergmáli á gangi og kjarna og voru helstu fletir á veggjum og lofti klæddir strimluðum hljóðvistarplötum með viðaráferð sem voru þá nýjungar á markaði hér á landi.

Í blautrýmum á gólfi og veggjum var lagður slitsterkur vinyl og línóleum dúkur sem þarf að þola mikla notkun og álag.

Allar innréttingar voru sérsmíðaðar og fyrir framan hverja aðalhurð íbúða er sérsmíðuð vegg skilti með upphafstöfum eiganda íbúðanna til að gera heildar hönnun meira persónulegri.

Uppstilling húsgagna og innréttinga var markmiðið sett að gera aðgengi fyrir hjólastóla og hreyfihamlaða sem þægilegast og öruggt.

Einnig var áhersla lögð á lýsingarhönnun en góð lýsing getur bætt líðan og aukið m.a. afköst og gert umhverfið þægilegra. Lýsingin þarf að henta í hvert rými fyrir sig og gera íbúum auðveldara að athafna sig.

Hönnunarferlið hófst 2020 en 2021 fluttu fyrstu íbúarnir inn og 2022 var starfsemin öll flutt yfir í nýtt húsnæði.

Sælkeri vikunnar FINNUR FREYR HARÐARSSON

GÆSALÆRAPOTTRÉTTUR

Ég vil byrja á því að þakka Týra tuð (Valtý Auðbergs) kærlega fyrir áskorunina. Ég ætla að bjóða upp á gæsalærapottrétt af hornfiskri eðalgæs.

Hráefni:

3 msk olía

800 g úrbeinuð og hreinsuð gæsalæri eða gæsabringa skorin í smáa bita salt og nýmalaður pipar

2 beikonsneiðar skornar í bita

2 laukar skornir í báta

10 til 15 sveppir skornir í báta

1 msk tómatþykkni

1 tsk timían

1 msk balsamedik

4 dl rauðvín vatn

villibráðarkraftur frá Oscars eftir smekk sósujafnari

30 til 50 g kalt smjör í teningum

1 dl steinselja smátt söxuð

Aðferð:

Byrjum á því að steikja kjötið í víðum potti þar til það er orðið vel brúnað. Þá setjum við pottinn til hliðar og tökum fram stóra pönnu. Í pönnuna skellum við beikoninu í 2 mínútur bætum svo við lauk og sveppum og steikjum þar til að það er orðið tilbúið (ca. 5 mín) Bætum við timían, tómatþykkni, balsamedik og rauðvíni og sjóðum það niður um cirka helming. Hellum svo af pönnunni út í pottinn og bætum við vatni þannig að rétt fljóti yfir. Næst setjum við villibráðarkraftinn útí og hrærum aðeins í. Látið þetta malla á hægri suðu í cirka klukkutíma. Þegar klukkutíminn er liðinn setjum við sósujafnarann út í og smökkum til. Rétt áður en pottrétturinn er borinn fram er smjörinu hrært varlega saman við og steinseljunni stráð yfir. Með þessu er agalega gott að fá sér baguette brauð og smá rautt.

Verði ykkur að góðu!

Finnur Freyr er sælkeri vikunnar.

Sem næsta matgæðing vil ég skora á einn af mínum veiðifélögum og vinum hann Friðrik Pál Arnfinnsyni slökkviliðsstjóra og meistaraskyttu. En sögur herma að undanfarið ár hafi orðið þvílíkar framfarir í eldhúsinu hjá honum að það sé engu lagi líkt.

FORSALA ÞJÓÐHÁTÍÐAR HEFST Á MORGUN 28. FEBRÚAR

Forsala á Þjóðhátíð 2025 hefst á morgun föstudaginn 28. febrúar kl. 09:00.

Aron Can og VÆB munu hefja niðurtalningu á FM957 í fyrramálið en þeir munu koma fram í Herjólfsdal ásamt mörgum öðrum frábærum listamönnum.

Einnig er gaman að segja frá því að Brúðubíllinn mun mæta á svæðið eftir þó nokkuð mörg ár í pásu og mun skemmta yngri kynslóðinni.

Fyrirkomulagið á miðakaupum fyrir félagsmenn verður eins og í fyrra og við minnum á að þarf að skrá sig inn fyrir afslættinum á tix.is.

Fyrst þarftu að tryggja að þú sé innskráð/ur á tix.is á þinn notanda, sá notandi þarf að innihalda upplýs ingar um kennitölu gilds félagsmanns. Svo þarftu að „kaupa vöruna“ félagsmaður ÍBV á 0 kr á slóðinni tix. is/ibv

Eftir þetta mun þinn notandi geta séð flipann „Félagsmaður ÍBV“ efst í almenna kaupferlinu með helgarpössum, þar sem hann hefur möguleika á því að kaupa þrjá miða á sérstöku félagsmannaverði.

BREYTT SKIPULAG Á ÞJÓÐHÁTÍÐ Í ÁR

Komið hafa upp nokkrar hugleiðingar varðandi umgjörð Þjóðhátíðar en eftir fund Þjóðhátíðarnefndar við lögreglu og gæslu var ákveðið að taka eftirfarandi atriði til skoðunnar:

1. Banna gler í Herjólfsdal - gæsla verður með heimild til að taka glerflöskur.

2. Færa innrukkun úr Herjólfsdal. Í staðinn verður hægt að kaupa í miða í miðbænum og jafnvel við Týsheimilið. Áfram verður hægt að sækja armböndin á bryggjunni fyrir hátíðina líkt og hefur verið undanfarin ár.

3. Fækka bílastæðum í Herjólfsdal. Eingöngu starfsmenn og neyðarþjónusta verða með bílastæði. Í staðinn verður fjölgað ferðum með strætó í Dalinn.

4. Eldri borgarar (67-70 ára) greiða helming af verði aðgöngumiðans.

Viltu

minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

PASSA MYNDIR

TÖKUM PASSAMYNDIR FYRIR

ÖKUSKÍRTEINI & ÖNNUR SKÍRTEINI.

PANTA ÞARF TÍMA Í MYNDATÖKU

Hægt er að senda tölvupóst á leturstofan@leturstofan.is

eða hringja í síma 6947999 (L ind)

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma

MARGRÉT BRANDSDÓTTIR leikskólakennari

lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 11. febrúar. Útförin verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 8. mars kl.13:00

Brandur Sigurjónsson

Bergrún Finnsdóttir

Gísli Finnsson

S. Soffía Sigurðardóttir

Svava Sigurðardóttir

Edda Einarsdóttir

Sylvía Oddný Einarsdóttir

Guðlaugur Þórarinn Rúnarsson

Vala Gunnarsdóttir

Bogi Snær Bjarnason

Lúðvík Brynjólfsson

barnabörn og barnabarnabörn

FÖSTUDAGINN 28. FEBRÚAR Í HÖLLINNI Í VESTMANNAEYJUM

Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar stýrir fundi. Léttar hádegisveitingar kl. 11:30. Fundur settur kl. 12:00.

Olafur Eliasson kynnir listaverkið. Pallborðsumræður kl. 12:40, Olafur Elíasson, Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt og

Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar.

Fundarlok kl. 13:00

Portrait of Olafur Eliasson, Photo: Louise Yeowart, 2024

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.