Tígull 05. tbl 07. árg.

Page 1


Sælkeri vikunnar VALTÝR AUÐBERGSSON

RÆKJUTAKÓ

Ég vil þakka Guðný frænku fyrir þessa áskorun og er enn að bíða eftir heimboði í mat. En það þarf að bíða vegna þess að hún hoppaði til Tenerife í nokkra daga. Þetta Rækjutakkó eru peyjanir um borð alveg vitlausir í. Þetta er mjög reglulega hjá okkur og svo má leika sér með salsa sem er með þessu. Hér er uppskrift sem duga fyrir 3-4.

Hráefni:

700 g risarækjur

Grillolía að eigin vali

8-10 litlar vefjur

3 avókadó

½ mangó

½ rauð paprika

½ rauðlaukur

2 msk. ferskur kóríander

Kóríandersósa (sjá uppskrift)

Aðferð:

Skolið og þerrið rækjurnar, marinerið upp úr grillolíu

í að minnsta kosti klukkustund (ég notaði hunangs grillolíu þetta skiptið og það kom vel út).

Skerið allt grænmeti og ávexti niður og blandið saman í skál og útbúið sósuna.

Hitið vefjurnar og setjið saman eftir hentugleika.

Kóríandersósa

hráefni:

1 ½ dós sýrður rjómi (270 g)

1 lime (safinn)

3 msk. saxaður kóríander

1 rifið hvítauksrif

½ tsk. salt

½ tsk. pipar

Aðferð:

Pískið allt saman í skál og geymið í kæli fram að notkun.

Auðbergs er sælkeri vikunnar.

Ég ætla að skora á hann Finn Frey, hann er alltaf að segja hetjusögur úr veiðiferðum hvort það sé með veiðistöng, byssu eða boga og örvum. Hann lummar á einhverjum svakalegum pottrétti.

TÍGULL

DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á fimmtudögum

og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Valtýr

Nýsmíði

Gólfhitafræsing

Gólfhitalögn

Kjarnaborun

Pallasmíði

Þakvinna

Innréttingar

Utanhúsklæðningar

aglverktakar@gmail.com // 768 5228

TALA BETRI NORSKU EN ÞJÁLFARINN

Þóra Björg, Jörgen Freyr og Amelía Dís þeagr þær voru nýkomnar út til Noregs.

Þær Amelía Dís Einarsdóttir og Þóra Björg Stefánsdóttir, ungu og efnilegu handboltakonur gerðu samning í fyrra við norska félagið Rival og Haugesund Toppidrettgymnas en eyjapeyjinn

Jörgen Freyr Ólafsson Naabye er þjálfari þar. Við heyrðum í þeim stöllum og könnuðu hvernig gengi hjá þeim.

AMELÍA DÍS:

Menntun eða nám:

Ég hef lokið stúdentsprófi en sé fram á að fara í Háskóla bráðlega.

Í hvaða deild spilar þú?

Ég spila í 3.deild í Noregi.

Hversu oft æfið þið í viku?

Við æfum þrisvar og lyftum tvisvar.

Hvaða stöðu spilar þú?

Ég er hornamaður en hef spilað mikið á miðju eða skyttu hérna úti.

Hvernig líkar þér að vera erlendis að spila handbolta?

Mér líkar mjög vel að spila erlendis.

Er umgjörðin ólík Íslandi og hvernig þá? Bæði er varðar fyrir leikina og æfingar?

Umgjörðin er örlítið öðruvísi eins og við mátti búast, fólkið hér duglegt og vill halda þessu gangandi sem er ótrúlega gaman að sjá. Það er líka þannig hér úti að

Amelía Dís.

við spilum heimaleiki í mismunandi höllum þannig við erum ekki með eigin klefa sem maður hefur saknað en auðvitað lætur maður það ekki trufla sig.

Hvar ertu með langan samning? Ég er á þessum klassíska 1+1 samning þar sem samningurinn er í 2 ár en bæði ég og klúbburinn megum rifta eða endursemja eftir 1 ár.

Hver er típískur dagur í lífi þínu? Típískur dagur í mínu lífi byrjar í vinnu til 15-16 svo þjálfa ég stelpur sem eru 15 ára og eftir það fer ég á æfingu.

Erfiðasti andstæðingur?

Þorey Anna.

Hvað gerir þú í frístundum? Önnur áhugamál? Kannski ekki áhugamál en þegar ég á frítíma finnst mér gaman að fara í göngutúr, hlusta á podcast, lesa, horfa á sjónavarpið.

Hvernig er mórallinn?

Mórallinn er bara góður.

Þóra Björg

Er liðið duglegt að hittast fyrir utan æfingar í félagslegt? Hvað er þá helst gert?

Við höfum verið að hittast og borða saman og einhverjum keppnum en mér finnst að það mætti vera meira af þvi.

Mælið þið með að fólk fari erlendis og spili með liði þar? Um að gera ef það er eitthvað sem þau hafa áhuga á að gera. Hefur kennt mér ótrúlega margt innan og utan vallar, opnar marga möguleika fyrir framtíðina, víkkar tengslanetið

þitt, læra nýtt tungumál og svo aðeins að læra að standa á eigin fótum og vera fullorðin.

Er eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Það koma mér mest á óvart hvað norskan kom fljótt, tungumálið var líklegast það sem ég var mest stressuð fyrir þegar ég var að flytja út.

Hvað getið þið sagt mér skemmtilegt um þjálfarann?

Hef heyrt að við tölum betri norsku en hann.

Amelía Dís.

ÞÓRA BJÖRG:

Menntun eða nám: Stúdentspróf af náttúruvísindalínu FÍV.

Með hvaða deild spilar þú í? Við spilum í 3. deild.

Hversu oft æfið þið í viku?

3 sinnum í viku handbolti og 1-2 sinnum í viku styrkur.

Hvaða stöðu spilar þú? Hægri skyttu.

Hvernig líkar þér að vera erlendis að spila handbolta?

Mér líkar það bara ágætlega, gott að komast út fyrir þægindarammann og kynnast annarri handboltamenningu.

Er umgjörðin ólík Íslandi og hvernig þá? Bæði er varðar fyrir leikina og æfingar?

Þar sem við erum í 3. deild þá er umgjörðin ekki eins ,,professional” og ég var vön hjá ÍBV. En maður sér bara eftir gengi liðsins hvernig umgjörðin breytist hægt og rólega í þá áttina. Þar á Jörgen þjálfari mjög stóran þátt.

Hvar ertu með langan samning?

Samningurinn minn er svokallaður 1+1 samningur sem þýðir að báðum aðilum gefst kostur á að rifta eða gera breytingar á samningnum fyrir annað árið.

Hver er típískur dagur í lífi þínu?

Vakna kl 7, vinna á leikskóla 8-15:30. Æfing ca 18/19. Heim að elda fyrir mig og Amelíu (hún gengur frá). Þvottavél og sofa.

Erfiðasti andstæðingur?

Við spiluðum á móti 1. deildar liði í byrjun tímabils í bikar. Það var brekka.

Hvað gerir þú í frístundum?

Þegar við eigum helgarfrí er gaman að kíkja til Stavanger en annars er ég voða mikið að eyða

frítímanum í að thrifta hvort sem ég kaupi eitthvað eða ekki.

Önnur áhugamál?

Horfa á sjónvarpið, fótbolti og þrífa og taka til.

Hvernig er mórallinn?

Mórallinn er bara flottur í liðinu. Hérna eru allir tilbúnir að aðstoða með hitt og þetta, bara eins og maður er vanur úr Vestmannaeyjum og ÍBV.

Er liðið duglegt að hittast fyrir utan æfingar í félagslegt? Hvað er þá helst gert?

Við höfum verið með móralska hittinga og svoleiðis þegar það eru ekki leikir.

Mælið þið með að fólk fari erlendis og spili með liði þar?

Við erum náttúrlega bara í platvinnumennsku og í fullri vinnu en fyrir mig hljómaði þetta bara mjög spennandi breyting og langaði mig að prófa eitthvað nýtt. Maður er á þessum aldri þar

sem maður tapar engu á að prófa ýmislegt.

Er eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Nei ekki þannig séð, allt er mjög svipað hvað varðar vinnu og daglegt líf. Reyndar fékk ég smá sjokk þegar mér var afhentur auðkennislykill til að komast inn á hinar og þessar síður, hef ekki séð svoleiðis í langan tíma. En það er t.d. engin klefamenning hérna úti og allir mæta bara korteri fyrir æfingar og svo eru allir farnir tveimur mínútum eftir að æfingin er búin. Ég og Amelía erum að reyna að breyta því, það er nauðsynlegt að taka létt klefachill fyrir og eftir æfingar.

Hvað getið þið sagt mér skemmtilegt um þjálfarann?

Hann er Hull stuðningsmaður

Eitthvað að lokum, eitthvað sem þið viljið bæta við? Bið að heilsa Agli Oddgeiri bróður mínum sem nennir aldrei að hringja í mig.

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Er febrúar þinn skoðunarmánuður?

Frumherji í Eyjum

vikuna 24. - 27. febrúar

Opnar kl. 13:00 á fyrsta degi og lokar kl. 16:00 á síðasta degi. Lokað í hádeginu.

Tímapantanir í síma 570 9090

Faxastíg 38, 900 Vestmannaeyjum

Viðburðir framundan

OLÍSDEILD KARLA ÍBV - AFTURELDING

Íþróttamiðstöðin kl. 19:00

OLÍSDEILD KVENNA ÍR - ÍBV

Skógarsel kl. 13:00

LAU JÓNAS SIG & HLJÓMSVEIT

í Höllinni

Húsið opnar kl. 20:00

Jónas Sig kemur með hljómsveitina sína sem er skipuð Ómari Guðjónssyni á gítar, Tómasi Jónssyni á orgvélar og syntha, Arnari Gísla á trommur og Guðna Finns á bassa.

Húsið opnar kl. 20 og tónleikar hefjast kl. 21.00. Miðaverð við hurð er 6.900 kr.

POWERADE BIKARINN STJARNAN - ÍBV

Framvöllur kl. 18:00

HEILSUBINGÓ #3

Við höldum áfram með heilsubingóið en þetta er næst síðasta bingóið sem við birtum. Tígull skorar á sem flesta að taka heilsuna föstum tökum.

Heilsubingóið er hugsað til að gera hreyfingu eða heilsu að skemmtun. Við spilum að sjáfsögðu allt

spjaldið og er því markmiðið að ná að setja X yfir alla dálka og fá BINGO, byrja á föstudegi og enda á föstudeginum eftir það. Ennþá skemmtilegra að taka fjölskylduna með í þetta og hafa gaman.

BINGO

Segja 5 jákvæða hluti um þig við þig í spegli á dag

SÚRDEGISBRAUÐ DADDA

Bjarni Ólafur er ekki bara með djúsí rödd heldur kann hann ýmislegt í eldhúsinu. Við fengum hann til að deila með okkur nokkrum uppskriftum af ljúffenga brauðinu sem hann bakar öðru hvoru. Hér fáum við súrdeigsbrauðið sem hann fullyrðir að sé það besta sem völ er á í dag.

Innihaldið:

200 gr súr

620gr Vatn

Blanda vatni og súr vel saman og bæta svo við 900 g gott brauðhveiti (hátt prótein)

18-20 g salt

Blanda vel saman, spreyja smá vatni yfir og setja viskastykki yfir skálina.

Hvíla í 30 mínútur.

Taka úr skálinni, spreyja vatni vel á borðið og folda (teygja) 12-13x, spreyja smá vatni yfir og setja viskastykki yfir skálina.

Hvíla í 2 klukkustundir.

Taka úr skálinni, spreyja vatni vel á borðið og folda (teygja) 6-7x, spreyja smá vatni yfir og setja viskastykki yfir skálina.

Hvíla í 2 klukkustundir.

Skipta deiginu í tvennt, strá smá hveiti undir. Þarna set ég 40g trönuber (H Berg) og 50 g hvítt súkkulaði (Nóa Síríus) í annað brauðið)

Folda (teygja) hvort brauð 6-7x Hvíla í 1 klukkustund á borðinuviskastykki yfir.

Þá er komið að því að setja hvort brauð í brauðkörfu og koma því inn í ísskáp í 12-15 klst.

Taka hvort deig og teygja aðeins á því, láta það vera aðeins breiðara öðru megin, brjóta upp á það og rúlla því upp.

Súrdeigsbrauð sem að Daddi bakaði eftir uppskriftinni.

Setja í brauðkörfuna með samskeytin upp. Setja filmu yfir og inn í ísskáp

Setja volgt vatn í ofnskúffu og hafa fyrir neðan brauðið í ofninum.

Baka í ofni, helst á steini (ekki nauðsynlegt) - hita ofninn í 235 gráður - baka í 15 mínútur og síðan lækka í 190 gráður og baka áfram í 20 mínútur.

Taka út úr ofninum og lofa að hvíla a.m.k. í 1 klukkustund en 2-4 klukkustundir er betra

Þetta virkar flókið, en er það alls ekki.

Það er mjög gott að horfa á myndbandið hans Jacks (skanna QR kóðann til að sjá myndbandið) til að sjá hvernig hann gerir þetta - þetta ferli er talsvert lengra en ef þú gerir þetta í t.d. hrærivél, en ég vil meina að þetta langa ferli geri brauðið mun betra, bragðmeira.

Skannaðu QR kóðann til að sjá myndbandið Faxastígur 38

Sudoku Puzzle

digits in such a manner that every row, every column and every 3x3 box accommodates the digits 1-9, without repeating any.

SÖNGVARI

LISTAKONA

Er hitaveitu reikningurinn

allt of hár?

VARMADÆLUR

Sérfræðingur

að sunnan kemur

á næstu vikum í

Skipalyftuna og mun kynna varmadælurnar fyrir viðskiptavinum.

Auglýst verður tímasetning þegar hún er komin á hreint.

Skipalyftan selur Varmadælur frá

Mitsubishi Electric og þar er að finna fjölbreytt úrval til að mynda þessi:

Multisplit er varmadæla frá

Mitsubishi Electric sem býður upp á að tengja fleiri en eitt innitæki við aðeins eitt útitæki. Hægt að velja um fjölda útfærslna á inni tækjum,

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.