

KÁTIR KRAKKAR Á VÍKINNI

SARA ÓSK HANNESDÓTTIR
Fjölskyldan mín: Mamma mín heitir Rakel Ósk Guðmundsdóttir og pabbi minn heitir
Hannes Kristinn Eiríksson.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Ískona.
Hvað er mamma þín best í að gera? Prjóna.
Hvað er pabbi þinn bestur í að gera? Smiða.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Fara í ísbúðina.
Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Píta.
Hvað langar þig í jólagjöf? Myndavél.
Hvað er mamma þín gömul? Veit ekki.
Hvað er pabbi þinn gamall? 33 ára.
Hver er besti vinur/vinkona þín? Jóhanna.
Hvað gerir þig glaða? Að leika.
Ertu hrædd við eitthvað? Nei.

ARNALDUR SNÆR VIGNISSON
Fjölskyldan mín: Mamma mín heitir Arndís
Bára Ingimarsdóttir og pabbi minn heitir
Vignir Arnar Svafarsson.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður
stór? Allt saman.
Hvað er mamma þín best í að gera?
Bara vinna.
Hvað er pabbi þinn bestur í að gera?
Alltaf heima en stundum í vinnu.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Bara vera heima og leika mér.
Hvað er uppáhalds maturinn þinn?
Hakk og spagettí og grjónagrautur.
Hvað langar þig í jólagjöf? Bíl
Hvað er mamma þín gömul? Veit það ekki.
Hvað er pabbi þinn gamall? Veit það ekki.
Hver er besti vinur/vinkona þinn?
Sara og Baltasar.
Hvað gerir þig glaðan? Bara að leika við vini
mína heima hjá þeim og heima hjá mér.
Ertu hræddur við eitthvað? Nei.
TÍGULL
DREIFING:
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Dreifing fer fram á fimmtudögum
og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.












Sælkeri vikunnar GUÐNÝ ÓSKARSDÓTTIR
GRILLAÐUR KJÚLLI Á GAMLA MÁTANN
Í síðustu viku skoraði Kjartan Vídó Ólafsson á
Guðný Óskarsdóttur sem næsta sælkera vikunnar.
Við hittumst oft heima í garðinum, fjölskylda og vinir, og grillum saman. Þá er oft ekki verið að gera hlutina flókna heldur grillaður kjúklingur á gamla mátann með kartöflum og salati. Þessi réttur gengur í flesta og er sívinsæll. Svo panta bæði fullorðnir og börn heimagerðan ís í desert. Ég krydda kjúklinginn með góðri kryddblöndu eða stundum tilbúnu kjúklingakryddi og pensla hann vel með Caj´ps grillolíu, þessari klassísku. Einnig getur verið gott að blanda saman þessari klassísku og hvítlauksolíunni frá þeim til helminga. Gott er að gera þetta svolítið fyrr, um hádegi eða jafnvel kvöldið áður.
Kjúklingur, parmesan kartöflur og tómatsalat Kjúklingurinn er enn betri eftir að ég fékk mér grilltein á grillið sem ég þræði hann uppá og hægelda í rúman klukkutíma, fer eftir stærð hans.
Kartöflurnar eru skornar í tvennt og settar í eldfast fat sem búið er að setja smjör í botninn á. Nota smælki ef það fæst, annars venjulegar. Kartöflurnar saltaðar með t.d. saltinu úr Eyjum og rifinn niður slatti af parmesan osti sem er stráð yfir og blandað vel saman við. Að lokum er sett góð olía yfir, t.d. ólífuolía eða hvítlauksolía ef fólk vill frekar. Þetta er eldað í ofni við 180 gráður þar til þær eru orðnar vel brúnaðar, getur tekið 35-45 mínútur, fer eftir ofninum.
Tómatsalat er ómissandi með þessu. Tek box af kirsuberjatómötum sem ég sker í tvennt eða fernt, fer eftir stærð þeirra en passið að þeir verði ekki of smáir. Tek restina af parmesanostinum og sker hann í smáa kubba. Einn rauðlaukur skorinn smátt og svo hvítmygluostur skorinn í bita, allt í lagi að nota blámygluost ef fólk vill frekar og hann er til í ísskápnum. Öllu blandað saman og grófu Eyjasalti stráð yfir í restina.
Ís í dessert
Ísinn geri ég daginn áður. Byrja á að mylja einn poka af „Tyrkisk peber“ piparbrjótsykri. Skil í sundur 4 – 5 egg, fer eftir stærð þeirra. Þeyti rauðurnar vel með einni teskeið af vanillusykri. Hægt er að gera marengs úr eggjahvítunum sem er mjög einfalt og kemur uppskriftin hér neðar.
Þeyti 1/2 lítra af rjóma og blanda þeyttu eggjarauðunum saman við með sleif. Að lokum blanda ég mulda brjóstsykrinum saman við. Sett í mót og frysti. Miserfitt getur verið að ná ís úr mótum, ef mótin eru erfið er gott að klæða þau með plastfilmu áður en hráefnið er sett í þau. Þá næst maturinn vel úr þeim og í heilu lagi.

Guðný óskarsdóttir er sælkeri vikunnar.
Marengsinn er gerður þannig að eggjahvíturnar eru þeyttar með 250 gr. af sykri og 1. tsk. lyftidufti. Þeytt þar til blandan er orðin vel stíf, passið að skálin sé tandurhrein og þurr annars getið þið lent í því að eggjahvíturnar þeytist ekki. Þegar búið er að þeyta er blandað saman við þremur bollum af Rice Krispies eða kornfleksi, sumir nota Coco puffs. Þetta er sett á smjörpappír og mótaður hringur úr því (kökubotn). Sett í ofn og bakað í 1. klst. við 140 gráður. Slökkt á ofninum og látið standa í honum meðan ofninn kólnar eða yfir nóttina. Marengsinn geymist afar vel og hægt er að grípa til hans ef von er á gestum. Hægt að setja á marengsinn uppáhalds fyllinguna til að gera marengstertu eða mylja hann út í desert með kókosbollum, rjóma og öðru eftir smekk.
Kerlingin þakkar Kjartani fyrir áskoruna og vonar að hans lið í ensku fari að ganga betur. Ég ætla að skora næst á Valtý Auðbergsson.



OPNUNARTÍMI


Virkir dagar frá 8:00-17:00 laugardagar 10:00-14:00

Auglýsingasími Tíguls: 481-1161 tigull@tigull.is




Nýsmíði
Gólfhitafræsing
Gólfhitalögn
Kjarnaborun
Pallasmíði
Þakvinna
Innréttingar
Utanhúsklæðningar
aglverktakar@gmail.com // 768 5228
Litla Skvísubúðin
Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega.


Viltu minnast látins ættingja eða vinar?
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.


Almennt viðhald & smíði!







RAKEL HLYNS „EKKERT KJAFTÆÐI“
Rakel Hlynsdóttir er 31 árs Eyjakona, búsett í Hveragerði með dóttur sinni Emilíu Ósk og Viktor Smára kærasta sínum. Hún er menntuð ÍAK styrtkarþjálfi, crossfit þjálfari og markþjálfari. Hún starfar í Hamarssport sem einka-, fjar- og hóptímaþjálfari. Hún byrjaði með prógram sem hún kallar „Ekkert kjaftæði“ þar sem þjálfunin fer fram í gegnum app eða forrit.
Hvernig kom það til að þú byrjaðir með þetta prófram? Ég útskrifaðist úr Keili árið 2016 sem ÍAK styrktarþjálfari og byrjaði fljótlega að vinna við þjálfun. Ég sat CrossFit Level 1 námskeið og hef sífellt verið að auka við þekkingu mína með fjölmörgum námskeiðum.
Árið 2019 ákvað ég að fara enn lengra í þjálfarastörfum og skráði mig í markþjálfanám, sem hefur svo sannarlega nýst mér vel í bæði þjálfun og samskiptum.
Mesta reynslan mín á þessu sviði kom þó á síðustu tveimur árum, þegar ég þurfti að fara í endurhæfingu eftir að hafa lent harkalega á vegg. Ég var orðin ansi þunglynd, glímdi við andlega erfiðleika og þurfti að endurmeta líf mitt. Í endurhæfingunni tókst mér að byggja mig upp á nýtt og í kjölfarið ákvað ég að hætta alfarið að neyta áfengis – ákvörðun sem hefur reynst ein sú besta í mínu lífi.
Hvernig kom það til að þú byrjaðir með „Ekkert kjaftæði“ prógramið? „Ekkert Kjaftæði“ prógramið mitt er byggt á þeirri leið sem ég fór til að styrkja mig bæði andlega og líkamlega, og ég brenn fyrir að hjálpa öðrum að losna við „kjaftæði“ úr sínu lífi.
Ég hef alla tíð hreyft mig mikið, spilað handbolta og meðal annars verið spinningkennari í fimm ár.

Rakel Hlynsdóttir.
Ég kenndi minn fyrsta tíma aðeins 17 ára gömul. Síðustu 10 ár hef ég þjálfað fólk með margvíslegum hætti; unglinga, mömmutíma, eldri borgara og einnig sinnt einkaþjálfun.
Ég hef gengið í gegnum mikla erfiðleika sem hafa mótað mig sem þjálfara og hjálpað mér að þróa aðferðir sem nýtast fólki á öllum aldri og öllum stigum lífsins. Reynslan mín er fjölbreytt og ég hef aðstoðað fólk á öllum aldri og með ólíkan bakgrunn.
Fyrir hverja er prógramið? Ekkert kjaftæði er fyrir alla þá sem vilja gera breytingar í sínu lífi, alveg sama á hvaða sviði, hvort sem það er að næra sig betur eða styrkja sig. Ekkert kjaftæði er prógram sem á að vera valdeflandi og hjálpa þér með daglegt amstur. Innifalið í prógraminu er persónuleg fjarþjálfun, þetta er í raun og veru eins og einkaþjálfun í fjarþjálfunarformi. Innfalið er æfingaprógram og næringaplan/ leiðbeiningar, planið fer eftir getu hvers og eins.
Það sem er innifalið í prógraminu er:
- Þjálfunin fer fram í True Coach appinu eða forritinu. (allt á sama stað)
- Dagleg check in
- Útreiknuð næringarþörf
- Hugmyndir af uppsetningu af næringaríkum degi
- Þrjár styrktaræfingar á viku, nákvæm upphitun, myndbönd og yfirferð af öllum hreyfingum.
- Vikulegir peppfundir með þínum hóp
- 5-10 mín símtöl þegar þörf er á peppi
-Reglulegir Zoom fyrirlestrar um hugarfar, mealprepp, líkamsbeitingu og fl.
Lífsmottó?
Það er ekkert óyfirstíganlegt og hægt að finna lausn við öllu.
Hvaðan færðu innblástur?
Ég fæ innblástur frá allskonar fólki. Ég sækist mikið í góða orku og reyni að umgangast fólk sem veitir mér innblástur og það er bara allur skalinn.. Alveg frá dóttir minni og til þeirra sem ég þjálfa.

Hvenær kviknaði áhugi þinn fyrst fyrir þjálfun? Ég byrjaði að horfa á fínu formi þegar ég var yngri, fannst þetta eitthvað voða kúl. Svo kviknaði áhuginn alveg þegar ég hætti í handboltanum og fór að æfa í Hressó, ég var alltaf í tímum í framhaldsskólanum að setja saman eitthverjar æfingar og tíma.
Hvar sérðu þig fyrir þér eftir 10 ár? Ég veit ekki hvað ég er að gera á morgun… alltaf markmiðið er að hugsa vel um mig og gera eitthvað sem lætur mér líða vel.
Hver er þín helsta fyrirmynd?
Ég á margar fyrirmyndir á mismunandi sviðum í lífinu og ég ætla því ekki að nefna eitthverja eina.
Hvernig er týpískur dagur í lífi Rakelar?
Týpiskur dagur. Já góð spurning. Ég er svo heppinn að enginn dagur er eins en. Ég vakna yfirleitt um 7.00 leytið og já þarf að draga fæturnar á mér framúr því ég er b manneskja að lifa A manneskju lífi. Ég fæ mér yfirleitt graut um 8.00 leytið og fer yfirleitt að þjálfa eða vinna í tölvunni til ca. 10.30. Ég þjálfa yfirleitt einkaþjálfun eða eitthvern

tíma í Hamarsport. Á milli 10.30 og fæ mér yfirleitt eitthvað að borða þarna líka til 12.30 þá reyni ég að skottast á æfingu sjálf og beint eftir það þá þjálfa ég heilsueflingu 60+ fyrir Hveragerðisbæ og stundum einkaþjálfun eða Unglingarnir sem þjálfa þá beint eftir. Yfirleitt fer ég svo bara heim, sæki dóttur mína, Emilíu. Stundum þjálfa ég seinnipartinn
og stundum ekki. Svo tekur bara við hverdagsleikinn seinnipartinn og já, heimalærdómur og eldamennska og svo er ég farin að sofa mjög snemma yfirleitt.
Ef þú ættir tímavél, til hvaða tíma myndiru vilja fara og afhverju? Myndi vilja prófa að vera uppí á 80-90 og sjá hvernig ég myndi passa þar inn.

Rakel tók þátt í ólympískum lyftingum á Reykjavíkurleikunum.
Rakel þjálfar heilsueflingu
HÁRSTOFA VIKTORS & BIRKIS
Rakarastofa bæjarins hefur tekið eigendabreytingum en Hárstofa Viktors verður nú Hárstofa Viktors og Birkis.
En Birkir Hlynsson sem hefur starfað við hlið Viktors í langan tíma. Birkir gróf upp fyrsta launaseðilinn sinn sem nemi en hann er síðan 2008. Birkir er nú orðinn meðeigandi stofunnar. Í tilefni þess var haldið létt teiti síðastliðinn laugardag.
Við tókum létt spjall við þá félaga, Viktor Ragnarsson og Birki Hlynsson.
Hvenær var rakarastofan stofnuð?
Upphaflega hefur stofan verið á nokkrum stöðum en Ragnar Guðmundsson (Raggi Rakari) stofnaði upphaflegu stofuna 1964. Síðan árið 2007 keypti Viktor stofuna af föður sínum. Svo núna kaupir Birkir Sig inní reksturinn og húsnæðið.
Hvernig eru daganir á stofunni?
Dagarnir á stofunni eru oftast mjög líflegir en þetta minnir oft á umferðarmiðstöð. Auðvitað eru rólegri dagar líka en bæjarbúar eru mjög duglegir að kíkja við hjá okkur hvort sem sé verið að sækja í spjall eða þjónustu. Við erum mjög þakklátir bæjarbúum hvað þeir eru duglegir að skipta við okkur.
Við erum ekki bara rakarastofa en við höfum verið að selja herraog dömu skart, úr og gjafavöru en fyrirtæki í bænum hafa verslað við okkur tækifærisgjafir fyrir starfsfólk og við erum mjög þakklátir fyrir það.
Er eitthvað eftirminnilegt aftvik eða spjall sem má segja frá? Það er kannski ekki hægt að pinna niður eitthvað ákveðið atriði en það er mikið líf á stofunni en svona til að stikla á stóru þá eru sterkir umræðupunktar, íþróttir, ÍBV og Landeyjarhöfn.


Valmundur og Raggi togari létu sig ekki vanta.
Hafið þið fengið fyrirspurn um eitthvað sem þið hafið ekki verið tilbúnir að taka að ykkur? Við höfum margoft fengið mjög furðlegar fyrirspurnir, t.d má nefna hitlerskegg á þjóðhátíð, litanir á þjóðhátíð, steggjanavitleysu, gæsavitleysu og snoðanir teknar í ölæði.
Hafið þið aldrei látið undan að gera permanent?
Alltaf til í það, en við minnum á að það er 50% afsláttur af permanenti í desember ár hvert.
Viktor og Birkir.
Athafnasvæði við Ofanleiti
Kynning skipulagsáætlana á vinnslustigi
Tillaga að nýju Deiliskipulagi athafnasvæðis við Ofanleitisveg gerir ráð fyrir að lóð við Ofanleitisveg 26 færist út fyrir mörk Deiliskipulags frístundabyggðar við Ofanleiti og verði hluti af athafnasvæðinu. Einnig verða stofnaðar tvær nýjar lóðir í suður enda svæðisins á landi sem nú tilheyrir Landbúnaðarsvæði (L-4).


Gert er ráð fyrir nýjum byggingarreitum á lóð við Ofanleitisveg 25 (Heildverslun Karls Kristmanns), Ofanleitisveg 26 (Emmuskemma/ Friðarból), og á nýjum lóðum við Ofanleitisveg 30 og 30a. Einnig eru settir eru fram skilmálar varðandi umhverfisfrágang.
Til samræmis er gerð breyting á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 20152035 sem felur í sér breytt mörk landnotkunarreita, AT-4, L-4 og Frístundabyggðar (F-1), og breyting á Deiliskipulagi frístundabyggðar við Ofanleiti þar sem lóð við Ofanleitisveg 26 er tekin út fyrir mörk deiliskipulagsins.
Skipulagsgögnin eru til sýnis í afgreiðslu Ráðhúss Vestmannaeyja og má einnig finna á skipulagsvefsjá á vefsíðu bæjarins og Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.
Opið hús verður hjá skipulagsfulltrúa klukkan 10-12, dagana 17. - 20. febrúar 2025. Umsögnum við tillöguna skal skila skriflega í Skipulagsgátt eða með bréfi í Ráðhús Vestmannaeyja eigi síðar en 27. febrúar 2025.
FÉKK ÞAU VERKFÆRI SEM ÉG ÞURFTI
TIL
AÐ HJÁLPA FÓLKI A BETRI STAÐ
Margrét Ástrós Gunnarsdóttir, sem alltaf er kölluð Magga Rós kemur frá Vestfjörðum nánar tiltekið frá Dýrafirði en þar er hún er alin upp á sveitabæ sem heitir Gemlufall. Hún býr nú í Vestmannaeyjum ásamt fjölskyldu sinni en hún ásamt manninum sínum fluttu til Vestmannaeyja eftir sumarið 2023. Maðurinn hennar er Vestmannaeyingurinn Ingi Þór Halldórsson og eiga þau fjögur börn. Það eru þau Ingi Hrafn (9 ára), Sara Diljá (3 ára) og tvíburarnir Arnar Elí og Breki Þór (2 ára). „Þau eru best og sjá til þess að mér leiðist aldrei“ segir Magga Rós.
Magga Rós starfar á leikskólanum Kirkjugerði og sem dáleiðari. Hún er Húsmæðraskólagengin (samt rosa léleg að elda að hennar sögn). Förðunarfræðingur og með BA í Uppeldis- og menntunarfræðum.
Fyrir ekki svo löngu kláraði hún dáleiðslunám svo hún er einnig dáleiðari.
Við heyrði í Möggu Rós og báðum hana um að segja okkur frekar frá dáleiðslunáminu.
Vestmannaeyjar, maðurinn þinn hefur væntanlega haft áhrif þar? Já hann vildi náttúrulega komast aftur heim. Eg var ekki tilbuin að taka skrefið og flytja til Eyja fyrr en ég fann hvað okkur vantaði bakland í kringum okkur. Þvílíkur munur sem það er! Ég sé alls ekki eftir því að hafa flutt hingað. Það er svo mikil fegurð, kraftur og stemning í Vestmannaeyjum. Mjög góður staður til að búa á, fyrir utan samgöngur auðvitað en það er önnur saga.
Hvað getur þú sagt okkur um námið þitt?

Ég pantaði mér tíma í dáleiðslu fyrir tveimur árum sem hafði mjög jákvæð áhrif á líf mitt. Mig langaði að geta gefið fólki það sama og ég fékk út úr tímanum og þá kom hugmyndin að fara í dáleiðslunám sem ég lét svo loksins verða að og ég skellti mér í nám. Í náminu lærði ég það sem þarf til að koma fólki í dáleiðsluástand (sem er í raun mjög djúp slökun). Það er hægt að dáleiða alla en það þarf alltaf tvo til. Því öll dáleiðsla er sjálfsdáleiðsla. Það er ekki hægt að dáleiða neinn sem vill það ekki. Næsta skref er að tala beint við undirmeðvitundina, þá gerast hlutirnir. Undirmeðvitundin er nefnilega 90% af okkur og meðvitaði hluti hugans er 10%. Undirmeðvitundin veit allt um þig, allt sem þú hefur gengið í gegnum, allt sem þú býrð yfir og hún veit hvaða leiðir eru bestar fyrir þig til að vinna úr þeim vanda sem er til staðar. Það góða við þetta er að þú þarft ekki að deila öllu sem er að gerast innra með þér í dáleiðslutímanum,
undirmeðvitundin vinnur vinnuna og gefur þau skilaboð sem þarf hverju sinni. Stundum þarf að fara aftur í tímann, í barnæskuna til að finna út hvar vandinn byrjaði, það er oftast það sem kemur fólki mest á óvart. Kannski bara eitt ákveðið atvik sem varð kveikjan að einhverju miklu meiru. Það var mjög gaman að læra inná þetta allt. Ég græddi mikið á þessu námi, ekki bara skírteinið og titilinn heldur líka góðan vinskap og ég fékk þau verkfæri sem ég þurfti til þess að geta hjálpað fólki á betri stað og það er akkúrat það sem ég vil gera. Síðast en ekki síst lærði ég mikið um sjálfan mig, þar sem við æfðum okkur mikið í að dáleiða hver aðra. Ég opnaði augun fyrir því hversu mikilvægt það er að gefa innsæinu athygli í daglegu lífi. Að læra að hlusta á skilaboðin sem maður fær. Hvað er þessi magatilfinning að segja mér? Það er til dæmis hægt að gera með núvitundaræfingum og hugleiðslu en ef maður vill fara enn lengra og í dýpri vinnu þá er dáleiðsla mjög hjálpleg.
Var þetta langt nám?
Kennslustundirnar voru 60 klst. Þar sem við fórum í þáttameðferðir, regression, fyrrilífs dáleiðslur og fleira og fleira. Við æfðum okkur mikið á hverri annari en á milli námshluta voru tvær vikur þar sem við áttum að æfa okkur á eins mörgum og hægt var utan skóla. Í því var mikill lærdómur. Í fyrstu var ég stressuð að vera með skjólstæðinga hjá mér, ekki búin að klára námið, en þetta gaf mér mikið því ég gat mætt aftur í skólann með fullt af spurningum. Maður lærir af reynslunni, það er klárlega þannig.
Hvaða ágóða hefur það fyrir fólk að koma í dáleiðslu?
Ef þú vilt fá breytingar í líf þitt þá er dáleiðsla að fara hjálpa þér og í raun auðvelda þér leiðina. Dáleiðsla snýst um að hjálpa fólki að læra að hlusta á hugann sinn og innsæið. Oft er innsæið að reyna segja okkur eitthvað en við eigum það til að gefa okkur ekki tíma til að staldra við og hlusta. Svo fáum við endalaus merki um að eitthvað þurfi að skoða betur (það getur lýst sér með kvíða t.d.). Með því að fara í dáleiðslu þarftu ekki að verja mörgum klukkustundum í að reyna komast að því hvað sé að valda kvíðanum, undirmeðvitundin segir þér það og hjálpar þér að vinna úr því. Í alvöru, það hljómar klikkað en það er þannig. Í dáleiðslutímanum getur þú unnið með hvað sem er, hvort sem það er að breyta gömlum vana, komast yfir áföll, erfiðar tilfinningar, hætta
að reykja, svefnvanda, kvíða, þyngdarstjórnun, bílhræðslu, triggera í daglegu lífi, hvað sem er.
Ef ég tala út frá sjálfri mér þá fannst mér mesti ágóðinn í dáleiðslunni felast í að komast í svona sterkt samband við sjálfan mig. Að geta sleppt tökunum á meðvitaða huganum og leyft undirmeðvitundinni að fara með mig á allskonar staði og stundir í mínu lífi sem gerðu mig að þeirri manneskju sem ég er og fínstilla það sem þurfti. Það er ótrúlegt frelsi sem felst í því að grafa inn á við því það er hægt að komast að hlutum sem maður annars hefði ekki vitað. Dæmi um þetta er þegar ég fór sjálf í dáleiðslu vegna bílhræðslu. Ég fékk skilaboð um að eitthvað væri að óttast í hvert skipti sem ég settist upp í bíl (undirmeðvitundin sér um að senda þau skilaboð). Í dáleiðslunni fór ég aftur í tímann þegar ég var

lítil og óttaðist ekkert í bílferðum. Svo fór ég á þann stað sem bílhræðslan byrjaði. Ég fékk allar þær upplýsingar sem ég þurfti og þegar uppi var staðið var ég ekki hrædd við bílinn eða færðina, heldur eitthvað allt annað. Sem ég gat svo unnið með og endurstillt.
Fyrir hverja? „Eitthvað fyrir alla, konur og karla, krakka með hár og karla með skalla.“
Hvar ertu með aðstöðu? Ég er á Sóleyjargötu 6 (sem er heima hjá mér). Á neðri hæð hússins er sér inngangur, salerni og stofa sem er ætluð dáleiðslunni. Mjög huggulegt.
Hvernig er hægt að ná á þig? Hægt er að panta tíma í gegnum eyjar.daleidsla@gmail.com
Hjá mér ríkir 100% trúnaður og allt sem fer fram innan veggja stofunnar, fer ekki þaðan.
Aðalfundur Rauða krossins
í Vestmannaeyjum
Verður haldinn í Arnardrangi, húsi félagsins við Hilmisgötu
Fimmtudaginn 6. mars 2025
klukkan 20:00
Venjulega aðalfundarstörf
Kaffi og léttar veitingar
Allir velkomnir
Stjórnin

Rauði Krossinn

HANDBOLTALEIKIR FRAMUNDAN HJÁ MEISTARAFLOKKUM ÍBV



NÝFÆDDIR

Drengur Sæþórsson
Fæðingardagur:
4. janúar 2025
Foreldrar: Katrín Rós
Óðinsdóttir og Sæþór
Garðarsson
Þyngd: 3790 g
Lengd: 50 cm

Drengur Garðarsson
Fæðingardagur:
26. desember 2024.
Foreldrar: Natalía Kjartansdóttir og Garðar Gíslason
Þyngd: 3420 g
Lengd: 47 cm

Magnea Rögn
Vattnes Birgisdóttir
Fæðingardagur:
9. desember 2024.
Foreldrar: Viktoría
Líf Vattnes Sigurjónsdóttir
og Birgir Örn Harðarsson
Þyngd: 3920 g
Lengd: 51 cm

Matthías Valur og Sigurður Örn
Fæðingardagur: 17. desember 2024. kl. 01:16
Foreldrar: Sigrún Ella Sigurðardóttir og Aron Þór Agnarsson
Matthías: 2840 g & 50cm
Sigurður: 2310 g & 46 cm

Karlotta Mjöll
Guðmundsdóttir
Fæðingardagur: 15. nóvember 2024
Foreldrar: Elísa Guðjónsdóttir og Guðmundur Ómar Linduson
Þyngd: 3050 g
Lengd: 50 cm

Emil Bjartur Matthíason
Fæðingardagur: 3. desember 2024
Foreldrar: Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Þyngd: 4060 g
Lengd: 55 cm
Þrautir vikunnar



HEILSUBINGÓ
Við höldum áfram með heilsubingóið og í næstu tveimur blöðum ætlar Tígull að skora á sem flesta að taka heilsuna föstum tökum.
Heilsubingóið er hugsað til að gera hreyfingu eða heilsu að skemmtun. Við spilum að sjáfsögðu allt
spjaldið og er því markmiðið að ná að setja X yfir alla dálka og fá BINGO, byrja á föstudegi og enda á föstudeginum eftir það. Ennþá skemmtilegra að taka fjölskylduna með í þetta og hafa gaman.
H
E
I L S U B I N G O
BINGO

Prufaðu eitthvað nýtt
Segja 5 jákvæða
hluti um þig við þig í spegli á dag
Borða alla liti regnbogans (hollt) 20 kálfalyftur
Vakna við fyrstu klukku alla vikuna
Fara 2x í 15 mín göngu Ekkert nammi Knúsa þann sem þér þykir vænt um

* gildir til 28. febrúar.



Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
/midstodin @midstodin