

Sælkeri vikunnar KJARTAN VÍDÓ ÓLAFSSON
OFNBAKAÐUR SALTFISKUR
Í síðustu viku skoraði Guðmundur Jóhann Árnason á Kjartan Vídó Ólafsson sem næsta sælkera vikunnar.
Elsku Gummi vinurinn minn, þúsund þakkir fyrir að skora á brennukóng Hljómeyjar sem næsta matgæðing Tiguls. Eins og sést á mittinu á Vídó litla þá veit ég fátt skemmtilegra en að stússast í eldhúsinu. Enn meira þykir mér gaman að gæða mér á góðum mat með vinum og kunningjum. Að fá að heimsækja Sædísi vinkonu mína og Gumma í mat og irish í desert er næst því að komast til himna!
Ég ætla að bjóða hér upp á rétt sem minnir mig á þá daga þegar ég var á sjó, við sjómenn höldum virðiskeðju Íslands gangandi og því ætla ég að bjóða upp á fiskrétt til heiðurs kollegum mínum á sjónum. Saltfiskréttir eru alltof lítið eldaðir á Íslandi, það á ekki að sjóða saltfisk, það á að elda hann í ofni!!!
Ofnbakaður saltfiskur
Hráefni:
• 500 g saltfiskur
• 1 rauðlaukur, saxaður gróft
• 1 dl góð ólífuolía
• 2 gulrætur, saxaðar
• 1 rauð paprika, söxuð
• 1 msk kapers
• 5 hvítlauksrif, söxuð smátt
Leiðbeiningar:
Leggið saltfiskinn í form. Hitið olíu í potti, léttsteikið lauk, gulrætur og papriku í nokkrar mínútur. Bætið við hvítlauk og hellið öllu yfir fiskinn. Bakið í 175°C heitum ofni í um 20 mín. Berið fram með soðnum kartöflum og ísköldum bjór frá The Brothers Brewery.

Kjartan Vídó Ólafsson er sælkeri vikunnar.
Ég ætla að skora næst á Kjerlinguna (Guðný Óskarsdóttur). Kjerlingin hefur séð öldruðum foreldrum mínum fyrir mat undanfarnar vikur og líklega lengur en það. Kjerlingin er frábær kokkur og rétt er að minnast á það hér að hún er einhleyp og okkur vinum hennar langað mikið að hún finni sér kærasta!
TÍGULL
DREIFING:
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

* gildir til 8. febrúar.



Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
/midstodin @midstodin
HEILSUBINGÓ
Í næstu fjórum blöðum ætlar Tígull að skora á sem flesta að taka heilsuna föstum tökum. Heilsubingo er hugsað til að gera hreyfingu/heilsu að skemmtun. Við spilum að sjáfsögðu allt spjaldið
og er því markmiðið að ná að setja X yfir alla dálka og fá BINGO, byrja á föstudegi og enda á föstudeginum eftir það. Ennþá skemmtilegra að taka fjölskylduna með í þetta og hafa gaman.
BINGO
Knúsa þann sem þér þykir vænt um
Hætta í tækjum 30 mín fyrir svefn
HEILSU BINGO

Segja 5 jákvæða hluti um þig við þig í spegli á dag
Vegg seta 30 sek
ÍBÚÐ ALDRAÐRA
Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknar íbúð eldri borgara í Sólhlíð. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ.
Umsóknarfrestur er til 17. febrúar nk. Umsóknir eru m.a metnar út frá félagslegum, heilsufarslegum og fjárhagslegum forsendum.

481-1567 ( Sendum heim alla daga frá kl. 17.00






Eru framkvæmdir í pípunum?
Vertu tímalega að bóka pípara í verkið!
Láttu okkur um verkið. Við bjóðum upp á alhliða verktakavinnu: Pípulagnir, smíðar, raflagnir, múrvinnu.
ÓTRÚLEGA ÞAKKLÁTUR FYRIR VELVILJAN OG STUÐNINGIN Í GEGNUM ÖLL ÞESSI ÁR
Fjórtándu Eyjatónleikar sem Bjarni Ólafur Guðmundsson (Daddi) og Guðrún Mary Ólafsdóttir standa fyrir fóru fram í Hörpu á laugardaginn. Þeir voru jafnframt þeir síðustu í bili. En hvernig skildi Dadda líða að lokinni þessari törn?
Ég er bara ótrúlega ferskur, framúrskarandi, eins og ég segi gjarnan. Þetta er vissulega ákveðið álag, en ég er með gott fólk í kringum mig og þó ég beri vissulega ábyrgð og ákveðinn þunga af verkefninu, er mikið af þessu komið í ákveðna rútínu, er bara á teinum. Það léttir á. Álagið núna var meira tengt miðasölunni og að koma verkefninu í höfn fjárhagslega og síðan á sjálfan tónleikadaginn, vegna aðstæðna sem upp komu. En þetta fór allt alveg ótrúlega vel. Já við tilkynntum það að við myndum hvíla eitthvað og ég held að næstu tónleikar verið 22.janúar 2028. Það er allavega planið núna. Þetta hefur verið þungt undanfarin ár og því held ég bara að þetta sé ákveðin skynsemi. Ég hef verið að þrjóskast aðeins með þessa ákvörðun. Margir vildu hvíla í fyrra.

Tónleikarnir um helgina voru þeir 14. í röð sem Daddi skipuleggur.

Voru þessir tónleikar eitthvað öðruvísi en undanfarin ár?
Allir tónleikarnir hafa sinn sjarma og eru ólíkir innbyrðis, þótt við séum að flytja sum lögin á mörgum af þessum tónleikum. Í fyrsta lagi er aldrei sami söngvarahópur og lagalistinn breytist mikið frá ári til árs. Í ár byrjuðum við á mjög rólegum og fallegum nótum með
ELÓ og Guðnýju Emilíönu á meðan við byrjuðum í fyrra á kraftmiklu rokki frá Moldu. Við fluttum líka sjö lög sem við höfum ekki flutt áður á Eyjatónleikum. Brutum þetta upp með heimsókn frá Heimilistónum, sem slógu algjörlega í gegn með sinni innkomu. Þessi tónleikar voru í poppaðri kantinum og aðeins hrárri.
Ertu sáttur með tónleikana í heild? Miðasöluna, tónlistaratriðin og fleira?
Ég var gríðarlega sáttur við tónleikana og við sem að þessu stöndum fáum mikið hrós fyrir þá og það er það sem skiptir máli. Að fá slík eftirmæli er bara æðislegt og þvílík næring fyrir sálina. Miðasalan hefði mátt ganga betur, en ef við lendum þessu réttu megin verðum við sátt.
Nú var Þórsgatan áberandi á sviðinu hefði Týsgatan ekki mátt fljóta með líka?
Já, þetta var mjög fyndið og ég vissi að ég fengi ákúrur fyrir þetta. En málið er að ég kom ekki nálægt þessu, Þórarinn sjálfur. Dagga (Dagbjört Lena) átti hugmyndina að því að setja upp götuskiltin, sem var frábært mál. Síðan þurfti hún að fá tilvonandi tengdapabba sinn til þess að ná í skiltin. Hún var hinsvegar sein í það og Jónas fór í þetta seint um kvöld og fann þessi tvö framarlega en Týs skiltið var t.d. lengst á bak við og hann komst ekki í það. Þetta er allavega sú obinbera skýring sem ég fékk frá Lenu. En hvort Þór Vilhjálms og Jónas pípari hafi stýrt þessari atburðarás eitthvað veit ég ekki.
Er þetta alltaf jafn skemmtilegt? Þetta er alltaf algjörlega æðislegt. Krefjandi, spennandi og gefandi. Ég veit ekki hvernig næstu tvö ár verða hjá mér þegar þetta vantar. En kannski verð ég bara meira til staðar fyrir Guðrúnu mína, börnin og barnabörnin. Ég held að ég skuldi þar alltaf eitthvað, þó þau láti mér líða vel með þetta allt.
Fjölmargir Eyjamenn komu fram á tónleikunum í ár, Bjartmar þar á meðal.

Elísabet Guðnadóttir, Eló og Guðný Emilíana Tórshamar flytja hér þjóðhátíðarlag föður Guðnýjar, Helga Rasmussen Tórzhamar sem lék undir á gítar.
Hverjir eru með þér í að setja upp tónleikana?
Ég hef alltaf góða ráðgjöf heimavið og tónleikana ber oft á góma þegar við komum saman og við matarborðið. Þau taka svo þátt í þessum loka undirbúningi. En í ár var ég svo heppinn að þau Dagbjört Lena Sigurðardóttir og Arnar Júlíusson höfðu samband við mig, þar sem þau eru í námi í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum. Þau þurftu að finna sér einhvern viðburð til að vinna við og það var mín lukka. Þau hafa tekið virkan þátt í undirbúningnum, sáu um samfélagsmiðlana og voru svo frábær við æfingarnar og á sjálfan tónleikadaginn. Þá kemur Sæþór Vídó alltaf sterkur inn við uppsetningu á prógraminu (leikskránni) og svo er gott að geta
heyrt af og til í Eiði Arnars, en ég geri minna af því eftir að hann fór hinum megin við borðið, sem sá aðili sem ég kaupi þjónustuna af í Hörpu. Ekki má ég heldur gleyma honum Óskari Pétri, sem hefur komið á alla tónleikana nema eina (þegar hann hreinlega komst ekki) og tekið myndir. Þvílíkur fjársjóður sem það er fyrir okkur á þessum fjórtán árum.
Eitthvað óvænt sem að kom uppá á tónleikadegi eða dögum fyrir?
Já, við áttum í smá vandræðum með að setja upp æfingarnar, þar sem það var mikið um að vera hjá þessum frábæru listamönnum og gríðarlega mikið um að vera í Hörpunni. Síðan lendum við í því að Matti verður veðurtepptur á laugardaginn og Magnús Kjartan

Fjölmargir Eyjamenn lögðu leið sína á tónleikana, hér má sjá fjóra ættliði Magga og Sjafnar á Kletti ásamt vinum og ættingjum.
með eiginkonuna á spítala. Það breytti generalprufunni mikið, en hljómsveitin æfði bara þeirra lög, vitandi að þeir kunnu sitt og eru miklie fagmenn. Það þurfti hinsvegar að vinna lagalistann oft upp og breyta prompternum (textaskjalinu). Ég held að ég hafi breytt honum fjórum sinnum frá kl. 17.30 til 19.30, því fluginu hans Matta var alltaf að seinka - en þetta er svo mikið fagfólk og það er mikil ró og yfirvegun í hópnum, þannig að þetta fór allt ótrúlega vel.
Hvaða tónleikar eru þér eftirminnilegastir og afhverju?
Ég held mest upp á fyrstu fjóra tónleikana og svo þá sem voru árið 2023. Kannski vegna þess að þeir gengu allir ótrúlega vel, við tókum þá flesta upp og sýndum í sjónvarpi og einhverja gáfum við út og þeir sitja einhvernveginn eftir sem þeir stærstu. En allir tónleikarnir eiga samt sinn sjarma og mér þykir alveg óskaplega vænt um öll þessi verkefni. Það er svo mikið af listafólki sem hefur tekið þátt. Flestir af stærstu söngvurum þjóðarinnar, ótrúlega margir söngvarar tengdir Eyjunum, hljómsveitir frá Eyjum hafa troðið upp og heill her af öðru fólki tengt Eyjunum kemur að tónleikunum með einum eða öðrum hætti. Við erum ótrúlega þakklát öllu þessu yndislega fólki fyrir velvilja og stuðning í gegnum öll þessi ár. Vonandi náum við að halda þessu áfram ...

og
Hjónin Kristín Halldórs
Sæþór Vídó í Hörpu.
AFREKS ÍÞRÓTTAFÓLK HEIÐRAÐ
Vestmannaeyjabær heiðraði á dögunum það íþróttafólkí Eyjum sem varð deildar-, íslands- og bikarmeistrarar og þau sem léku með landsliðum árið 2024.
Íslandsmeistari golfklúbba
2. deild karla
Andri Erlingsson
Örlygur Helgi Grímsson
Rúnar Karlsson
Jón Valgarð Gústafsson
Sigurbergur Sveinsson
Kristófer Tjörvi Einarsson
Lárus Garðar Long
Daníel Ingi Sigurjónsson
Brynjar Smári Unnarsson –liðstjóri
Íslandsmeistarar - 6. flokkur karla í handbolta yngra ár
Atli Dagur Bergsson
Daníel Gauti Scheving
Elimar Andri Andrason
Emil Elvis Friðriksson
Gabríel Gauti Guðmundsson
Guðmundur Helgi Sigurgeirsson
Ísak Starri Örvarsson
Jón Bjarki Eiríksson
Kristján Kári Kárason
Kristófer Daði Hallsson
Nökkvi Dan Sindrasson
Rúnar Örn Sigurjónsson
Sigurjón Andri Þorláksson
Sveinn Jörundur Ágútsson
Þórður Águst Hlynsson
Arnór Viðarsson - þjálfari
Birkir Björnsson - þjálfari
Kristján Ingi Kjartansson - þjálfari
Pavel Miskevich - þjálfari
Bikarmeistarar - 4. flokkur
kvenna í handbolta
Agnes Lilja Styrmisdóttir
Ágústa Hugadóttir Andersen
Alanys Alverez Medina
Birna Dögg Egilsdóttir
Borghildur Lára Atladóttir Busk
Edda Dögg Sindradóttir
Elísabet Rut Sigurjónsdóttir
Guðbjörg Silla Viðarsdóttir
Inda Marý Kristjánsdóttir
Klara Káradóttir
Kristín Klara Óskarsdóttir
Lilja Kristín Svansdóttir
Magdalena Jónasdóttir
Petra Metta Kristjánsdóttir
Unnur Bjök Sveinsdóttir
Þuríður Andrea Óttarsdóttir

Gísli Steinar Jónsson - þjálfari
Hilmar Ágúst Björnsson - þjálfari
U-20 ára landslið karla í handbolta
Elmar Erlingsson
Hinrik Hugi Heiðarsson
Ívar Bessi Viðarsson
U-19 ára landslið karla
í handbolta
Andri Erlingsson
Elís Þór Aðalsteinsson
Jason Stefánsson
U-16 ára landslið karla
í handbolta
Anton Frans Sigurðsson
A landslið kvenna í handbolta
Elísa Elíasdóttir
Sunna Jónsdóttir
Britney Cots
Yllka Shatri
U-20 ára landslið kvenna
í handbolta
Elísa Sigurðardóttir
U-18 ára landslið kvenna
í handbolta
Alexandra Ósk Viktorsdóttir
U-16 ára landslið kvenna
í handbolta
Agnes Lilja Styrmisdóttir
Klara Káradóttir
Landliðsþjálfari í handbolta
Arnar Pétursson
Lengjubikarmeistarar karla
í fótbolta
Alex Freyr Hilmarsson
Arnar Breki Gunnarsson
Arnór Sölvi Harðason
Myndir/Vestmannaeyjar.is
Yngra ár 6. flokks karla í handbolta urðu Íslandsmeistarar 2024.

Þær Agnes Lilja Stymisdóttir of Klara Káradóttir tóku þótt í verkefn- um með U-16 ára landsliði Íslands.

Andri, Jason, Elmar, Elís og Ívar Bessi ásamt Hinrik Huga tóku þótt í verkefnum með U-19 og U-20 landsliðum Íslands á árinu 2024.
Bjarki Björn Gunnarsson
Eiður Atli Rúnarsson
Eyþór Orri Ómarsson
Felix Örn Friðriksson
Guðjón Ernir Hrafnkelsson
Henrik Máni B. Hilmarsson
Hermann Þór Ragnarsson
Hjörvar Daði Arnarsson
Jón Arnar Barðdal
Jón Ingason
Jón Kristinn Elíasson
Nökkvi Már Nökkvason
Oliver Heiðarsson
Rasmus Steenberg Christiansen
Sigurður Arnar Magnússon
Sigurður Grétar Benónýsson
Sverrir Páll Hjaltested
Tómas Bent Magnússon
Vicent Rafel Valor Martínez
Viggó Valgeirsson
Víðir Þorvarðarson
Hermann Hreiðarson
Lerwis Oliver William Mitchell
Elías J. Friðriksson
Mikkel Vandal
Elías Árni Jónsson
Björgvin Eyjólfsson
Guðrún Ágústa Möller
A landslið kvenna í fótbolta
Olga Sevcova
Sandra Voitane
Viktorija Zaicikova
Landliðsþjálfari í fótbolta
Heimir Hallgrímsson


4. flokkur kvenna í handbolta varð Bikarmeistari árið 2024.
Hluti af Lengjubikarmeistaraliði karla í knattspyrnu 2024.
HAFRANNSÓKNASTOFNUN LEITAR EFTIR
STARFSMANNI Í VESTMANNAEYJUM
Starfið felst í fjölbreyttri vinnu við öflun og úrvinnslu gagna í landi og í rannsóknaleiðöngrum á sjó. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi með frumkvæði sem getur unnið sjálfstætt, og áhuga á málefnum sjávarútvegsins. Reynsla af störfum í sjávarútvegi, sjómannsstörfum eða Háskólamenntun æskileg.
Frekari upplýsingar á starfatorgi: https://island.is/starfatorg/x-40422

hafogvatn.is

Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa
ÆGIS ARNAR ÁRMANNSSONAR
Elín Jóhanna Eiríksdóttir
Hjördís Kristín Ægisdóttir
Ármann Ragnar Ægisson Brett Whelan Paulina Pierzak
Þór Benedict, Óðinn Ægir, Snærós Perla

Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður og afa
Guðmundur Jón Skúlason
Steinunn Sif Skúladóttir
Ásta Jóna Jónsdóttir
Ólafur Magnús Jónsson
JÓNS ÓLAFS ÓLAFSSONAR og afabörn
Mia Pellikka
Sveinbjörn Óðinsson

VERSLUNARSTJÓRI ÓSKAST TÍMABUNDIÐ
Í VERSLUN ICEWEAR Í VESTMANNAEYJUM
Viltu bætast í frábæran hóp starfsmanna Icewear þar sem samvinna, liðsheild og góður starfsandi ríkir?
Störf verslunarstjóra Icewear eru ölbreytt og spennandi. Verslunarstjóri sinnir margvíslegum verkefnum í daglegum rekstri og þarf að geta unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og útsjónarsemi. Þjálfun starfsmanna er miklilvæg en einnig að halda uppi góðum starfsanda og skapa skemmtilegt vinnuumhverfi. Tilfallandi verkefni koma upp daglega og þá reynir á útsjónarsemi og sjálfstæð vinnubrögð.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Almennt sölu- og afgreiðslustarf
• Starfsmannahald og gerð vaktaplana
• Vörupantanir og birgðastýring
• Vörumóttaka og útstilling á vörum
• Veita framúrskarandi góða þjónustu til viðskiptavina
Nánari upplýsingar inn á www.alfred.is
Menntunar- og hæfniskröfur
• Reynsla af verslunarstjórastörfum er skilyrði
• Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
• Sölumennska og góð þjónustulund
• Frumkvæði og metnaður í starfi
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Frekari fyrirspurnir um starfið má senda á netfangið atvinna@icewear.is