TÖLUBLAÐ 01
VESTMANNAEYJAR 2019
WWW. SLIPPURINN.COM
VESTMANNAEYINGAR
ELSTA HÚSIÐ
MEGUM VIÐ KOMA Í GARÐINN ÞINN ?
Við erum öll frá eyjunni Heimaey. Við elskum eyjuna og eyjarnar í kring, samfélagið, okkar smábirgja og hrávörur í nærumhverfi. Týnum villtar jurtir og sjávargrös.
Veitingastaðurinn SLIPPURINN var stofnaður árið 2012 í Magna húsinu, elsta steinsteypta húsið í Vestmannaeyjum sem skipar stóran þátt í sögu Vestmannaeyja.
Ef við á SLIPPNUM megum koma og taka rabbabara eða skessujurt (eða aðrar jurtir) í garðinum þínum hér í eyjum komum við með kokteilagjafarbréf í staðinn! Vinsamlegast sendið sms í 666-5544.
OKKUR LANGAÐI AÐ SKAPA EITTHVAÐ NÝTT Í HEIMABYGGÐ
Veitingastaðurinn SLIPPURINN var stofnaður árið 2012 í Magna húsinu, elsta steinsteypta húsi í Vestmannaeyjum sem skipar stóran þátt í sögu Vestmannaeyja. Áður var þar starfrækt vélsmiðjan Magni sem þjónaði gamla bátaslippnum sem var staðsettur fyrir aftan húsið.Vélsmiðjan hafði verið hætt í 30 ár áður en fjölskyldan sem á og rekur Slippinn tók við húsnæðinu. Kata Gísla og Auðunn eru mamman og pabbinn á Slippnum og ganga þar í mörg verkefni ásamt börnum sínum Gísla og Indíönu. Hugmyndin að þessu öllu saman kom frá Kötu á einu ættarmóti. Hún vildi opna veitingastað í Magnahúsinu sem hafði ekki verið notað í tugi ára. Eins og hennar fjölskylda er þekkt fyrir að ef góð hugmynd kemur í kollinn þá er hún oftar en ekki framkvæmd. „Mér hefur alltaf þótt Magnahúsið svo fallegt og við urðum öll strax heilluð af hugmyndinni sem hljómaði mjög einföld, falleg og skemmtileg.Við áttuðum okkur þó fljótt á því að þetta átti eftir að verða töluvert erfiðara og flóknara en við gerðum okkur fyrst grein fyrir. Gísli var þarna að útskrifast sem matreiðslumaður og Indíana búin með mastersnám í myndlist og á milli verkefna. Okkur hjónunum langaði að skapa eitthvað nýtt í heimabyggð.Við vildum gera stað sem að Eyjamenn gætu verið stoltir af, stað sem að myndi setja sér háleit markmið og bjóða upp á frábæran, staðbundinn og árstíðarbundinn mat í heimabyggð. Þar sem gamlar hefðir myndu mæta nýjum aðferðum,“ sagði Kata. Við sáum bara möguleika „Þetta var veiðifærageymsla sem frændi minn átti og húsnæðið eftir því. Ég þurfti því alveg að mana mig upp í að fara spurja hann frænda minn um húsnæðið, bjóst við að hann mundi bara fara hlægja af mér. En ég spurði hann og honum fannst þessi hugmynd frábær,“ sagði Kata. Húsið var í mjög slæmu ástandi þegar fjölskyldan fór af stað
en það stoppaði þau ekki og sögðu hjónin að þau hefðu bara séð möguleikana. „Í dag þegar ég skoða myndir af húsinu og rifja upp hvernig það var, hugsa ég bara vá hvað maður var klikkaður,“ sagði Kata hlæjandi. Halda í anda staðarins Veitingastaðurinn samsvarar sér vel og er allt í takt við sögu hússins sem er yfir 100 ára gamalt og því friðað. „Í upphafi vorum við alltaf að fá betri og betri hugmyndir og var allt hannað frá grunni. Gólfin eru til dæmis úr gömlum lestarþjölum úr skipi, við lögðum mikið upp úr því að endurnýta og halda vel í anda staðarins,“ sagði Kata. Handlaginn heimilisfaðir Það kom sér vel í uppbyggingunni og allt til dagsins í dag að það veltist ekki fyrir pabba fyrirtækisins að laga hluti eða gera við, enda með eindæmum handlaginn, „jájá maður hefur aðeins þurft að koma við hlutina,“ sagði Auðunn sem ekki bara sér um að laga hluti, heldur verkar hann líka fiskinn sem keyptur er af fiskmarkaðnum, enda sjómaður til margra ára. Fjölskylduverkefni Slippurinn er samstarfsverkefni og hefur fjölskyldan notið góðs af því að eiga góða að. „Foreldrar mínir hafa til dæmis hjálpað okkur mikið hérna og hefur pabbi tekið til hendinni í húsinu og svo hef ég hertekið alla suðurglugga heima hjá þeim undir ræktun, þar sem ég hef ekki nógu stórt gróðurhús heima,“ sagði Kata, en hún sáir fræjum alltaf í febrúar og hefst þá ræktunin fyrir sumarið. Kata sér einnig um að setja punktinn yfir i-ið á Slippnum með öllum sínum blómum og sjarma. „Við höfum einnig verið einstaklega heppin með starfsfólk í gegnum árin sem hefur hjálpað okkur að keyra áfram hugsjónir okkar og fyrir það erum við afar þakklát,“ sagði Kata.
ÞAÐ ER ENGINN TILVILJUN AÐ ÉG KOMI ALLTAF AFTUR Euan Moran er að hefja sitt fjórða sumar á Slippnum sem kokkur. Hann segir það enga tilviljun að hann sé búinn að vinna þar lengur en allsstaðar annarsstaðar og vill hann meina að framundan sé besta sumar Slippsins hingað til. Euan er frá Edinborg, fæddur þar og uppalinn. „Ég lærði í Liverpool og eftir útskrift fór ég og vann í eitt ár í suður Frakklandi á Michelin-stjörnu veitingastað,“ sagði Euan aðspurður um upprunann. Leiðin lá svo til Íslands og var eina planið hans að koma og vinna á Slippnum. „Ég hafði aldrei áður komið til Íslands, en þegar ég sá hvað Gísli var að gera vissi ég strax að ég vildi koma hingað og vinna með honum,“ sagði Euan. Ekkert annað þessu líkt „Ég sá strax að Slippurinn var ekki eins og neitt annað, það er enginn annar svona staður til.Við sjáum þegar fisknum er landað út um gluggann á Slippnum.Við nánast notum alla eyjuna sem garð fyrir staðinn og hráefnið er staðbundið og árstíðarbundið, þessar aðstæður eru forréttindi,“ sagði Euan. Það eru kokkar um allan heim sem vilja fá að vinna á Slippnum Euan er að hefja sitt fjórða sumar á Slippnum og hann segir ástæðuna vera mjög einfalda, „Þetta er magnaður staður til þess að vinna á. Það eru góðir kokkar um allan heim sem mundu drepa til þess að fá tækifæri til þess að vinna á Slippnum.Við erum með alþjóðlegt eldhús og það er frábært tækifæri að fá að læra og fá hugmyndir frá ólíku fólki með ólíkan uppruna,“ sagði Euan. Þessi staður er magnaður fyrir mann eins og mig Euan er ánægður með lífið í Eyjum og segir það enga tilviljun að hann komi alltaf aftur. „Ég elska lífið í Vestmannaeyjum. Ég hef unnið í London, París og mig langar aldrei að vinna í stórborg aftur. Fólkið hérna er frábært og þessi staður er magnaður fyrir mann eins og mig sem ólst upp í miðri borg. Það er enginn tilviljun að ég hef verið hérna lengur en allsstaðar annarsstaðar sem ég hef unnið áður,“ sagði Euan. Þið verðið að fylgjast vel með Aðspurður um sumarið segir Euan að þetta verði það besta hingað til. „Við erum með frábært teymi og erum með mjög áhugaverð og spennandi plön fyrir sumarið. Þið verðið að fylgjast vel með, því það verða spennandi hlutir í gangi á Slippnum í sumar,“ sagði Euan að endingu.
SLIPPURINN ER SUMARIÐ FYRIR MÉR Sandra Rós Þrastardóttir hefur verið viðloðandi við veitingarekstur allt sitt líf en móðir hennar átti veitingastað þegar hún var yngri. Hún hefur verið í þjónustuteymi Slippsins frá upphafi og segir hún metnað eigenda hvetjandi og að vinnan á Slippnum sé partur af sumrinu hennar. Sandra Rós er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum, trúlofuð og á tvær dætur, en hún var einmitt ófrísk af frumburðinum þegar hún byrjaði að vinna á Slippnum á sínum tíma. „Slippurinn er bara svo heillandi og metnaðurinn í eigendunum gerir mig stolta af því að vinna þarna,“ sagði Sandra, þegar hún var spurð af hverju hún kæmi alltaf aftur á Slippinn, því staðurinn er aðeins starfræktur yfir sumarið. „Ég hef ég unnið á fleiri veitingarstöðum en það ekkert sem toppar Slippinn,“ Ber stolt fram hvern einasta disk Sandra Rós hefur fyrst og fremst mjög gaman af því að þjóna og segist bera stolt fram hvern einasta disk úr eldhúsinu á Slippnum. „Að sjá jurtir spretta upp í kringum sig og fá að njóta þeirra í formi drykkjar og matar á Slippnum er ómótstæðilegt, svo er maður búin að vera þarna frá upphafi, þannig Slippurinn er eins og hin fjölskylda mín. Slippurinn er bara sumarið fyrir mér.“ Hvert sumar hefur sinn sjarma Aðspurð segir Sandra að hvert og eytt sumar á Slippnum sé eftirminnilegt á sinn hátt, „ef ég þyrfti að velja eitt þá væri það líklegast sumarið 2015. Þá varð algjör bylting hjá okkur þar sem við hættum að nota gömlu nóturnar og tókum upp spjaldtölvur í sal sem hefur reynst okkur mjög vel. Auk þess vorum við með mikið af tónlistar viðburðum hjá okkur yfir sumarið sem myndaði skemmtilega stemmingu,“ sagði Sandra Rós að endingu.
ASKA ÚR ELDFELLI OG SNJÓHVÍTT POSTULÍN Guðbjörg Káradóttir keramiker er hönnuðurinn á bakvið nýja matarstellið sem notað er á Slippnum. Guðbjörg hefur verið viðloðandi keramikið síðan árið 1994 og komið víða við. Hún hefur bæði hannað undir eigin nafni og í samstarfi, en ákvað nýverið að einfalda hlutina og hanna undir eina og sama merkinu, Ker, sem hún kynnti til leiks í mars. Vestmannaeyjar voru innblásturinn fyrir matarstell Slippsins og í því er meðal annars aska úr Eldfelli. „Það er svo skemmtilegt með innblásturinn, hann kemur úr svo mörgum áttum, núna þegar ég er að vinna með Gísla þá langaði okkur að tengja nýja matarstellið við Vestmannaeyjar og þessvegna nota ég það allra fínasta “ryk” eða ösku sem kom úr Eldfelli og blanda því við snjóhvítt postulín. Svona vinn ég oftast, fæ hugmynd eða verkefni og reyni að framkvæma þannig að útkoman passi við,“ sagði Guðbjörg. Gott að vinna með öskuna Guðbjörg er ný farin að vinna með eldfjallaösku, fyrstu hlutirnir voru kynntir á hönnunarmars ásamt nýja vörumerkinu Ker. „Ég er búin að vera að vinna aðeins með eldfjallaösku af Suðurnesjum í verkefni sem er allt annars eðlis en þess að blanda öskunni við leirinn, en þar sem þetta efni var pínulítið útum allt á vinnustofunni minni ákvað ég að prófa að blanda því við allskonar efni sem ég var að vinna með, í stuttu máli þá var postulínsblandan bara svo fín í fyrstu tilraun að ég bara varð að gera eitthvað úr henna,“ sagði Guðbjörg. Borðbúnaðurinn skiptir máli Leiðir Guðbjargar og Gísla lágu saman þegar Guðjón Hauksson var að opna Matbar í Reykjavík, „þar var vandað til verka, Haf Studio hannaði staðinn og Gísli var að vinna þar að þróun matseðilsins. Ég hef líka verið að gera diska og skálar fyrir Skál á Hlemmi, þannig við Gísli vinnum heilmikið saman að því. Það eru alger forréttindi að fá að vinna með Gísla, hann er náttúrulega algjör snillingur. Ég held að við deilum saman þeirri skoðun að borðbúnaðurinn skiptir verulegu máli eins og öll önnur smáatriði gera,“ sagði Guðbjörg.
Diskarnir ramma réttinn inn Guðbjörg er mjög ánægð með samstarfið, „ég er himinlifandi að fá tækifæri til að gera leirtau fyrir Slippinn og mér finnst í rauninni sá hlutur sem ég geri ekki vera tilbúinn fyrr en hann er kominn í notkun og þess vegna er skemmtilegt að hugsa til þess að diskarnir mínir fái að ramma inn þessa dásamlegu rétti sem Gísli galdrar fram,“ sagði Guðbjörg að endingu.
SAMNINGUR VIÐ PHAIDON: BÓK UM SLIPPINN OG VESTMANNAEYJAR Gísli Matthías Auðunsson yfirkokkur á Slippnum gerði nýverið samning við Phaidon bókaframleiðanda sem lengi hefur verið leiðandi í hönnunar, matar og listbókum í heiminum. Í þessu liggur mikil viðurkenning fyrir starfið á Slippnum og ljóst er að þetta mun verða mikil lyftistöng fyrir Vestmannaeyjar, en áætlað er að bókin komi út í 15 löndum. Bókin verður uppskriftarbók og einnig bók um náttúru og sögu Vestmannaeyja. Hugmyndafræðina á bakvið matarstefnuna, nýtingu á staðbundnu hráefni verður einnig tekið fyrir í bókinni.. Áætlað er að bókin komi út í enda næsta árs eða í byrjun þarnæsta en vinna við bókina hófst fyrir þremur árum.
GESTAKOKKA POP-UP Á SLIPPNUM
Á dögunum kom út önnur bók á vegum Phaidon sem ber nafnið “The Garden Chef” sem er bók sem fjallað er um marga af áhrifamestu matreiðslumenn í heimi sem eiga það sameiginlegt að nota mikið af heimaræktuðu grænmeti. Slippurinn var þess heiðurs aðnjótandi að vera partur af þeirri bók þar sem við förum yfir okkar leiðir í ræktun, bæði í okkar gróðurhúsi sem Kata Gísla rekur sem og samtarfið við Ingibjörgu á Þorlaugagerði, en við höfum verið að fá grænmeti frá henni síðla árs síðustu ár.
OMNOM
Í sumar verður nýjung á SLIPPNUM þar sem við munum bjóða mörgum af okkur uppáhalds kokkum að koma til okkar og gera matseðil í samstarfi við okkur þar sem einblínt verður sérstaklega á hráefni úr Vestmannaeyjum. Einungis verða 16 sæti í boði á hvern viðburð, en ef að bókast hratt þá munum við einnig opna dagsetninguna daginn eftir.
Okkur hefur alltaf langað til að bera framm góðan súkkulaðimola í enda máltíðarinnar á SLIPPNUM. Þessi moli er samstarfsverkefni okkar og góðvina okkar í OMNOM. En eigandi er omnom er Vestmannaeyingurinn Kjartan Gíslason. Eftir að smakkað allar baunirnar þeirra og bragðprófíla þá lenntum við niðrá madagascar bauninni.
Þetta verður skipulagt þannig að allir koma á sama tíma og sitja við sama stóra borðið í Magna stofunni á SLIPPNUM. Ekkert val verður í boði, bara matseðillinn og drykkjarparanir sem á við. Hægt er að láta vita fyrirfram með ofnæmi, óþol og annað slíkt. Einnig verður hægt að fá óáfenga drykkjarpörun ef óskað er eftir því. Verð eru mismunandi eftir viðburðum því að hver viðburður verður frábrugðinn hvor öðrum. Hægt verður að sjá betur á facebook síðu SLIPPSINS. Einnig munum við kynna fleiri sem munu koma til okkar í sumar! 8. Júní Hinrik Carl Ellertsson Matreiðslumeistari og bjórbruggari. Hefur unnið fyrir mörg af bestu veitingahús landsins og er núna kennari í hótel og matvælaskólanum. Á þessum kvöldverði sem er samstarfsverkefni með bjórhátíð Brothers Brewery mun maturinn verða paraður með bjór frá bruggurum sem heimsækja okkur. 21.Júní Wild Caught Found Carl Kristian & Cassie Cosgrove Þau reka saman pop-up fyrirtækið Wild Caught Found sem hefur verið til um árabil og haldið marga skemmtileg og óvenjulega kvöldverði. Carl Kristian er nýhættur sem yfirkokkur á veitingastaðnum Nostra og hefur nú söðlað um og er nýr yfirkokkur DILL. Um verður að ræða einstaka kvöldstund! 19. Júlí Ragnar Eiríksson Ragnar hefur komið víða við og lengst af vann hann fyrir veitingamanninn Paul Cunningham sem ber nú 2 michelin stjörnur. Hann átti einnig stóran þátt í velgengni DILL en hann var yfirkokkur þar þegar þeir fengu fyrstu michelin stjörnuna í millitíðinni starfaði hann einnig á Grillinu á Hótel Sögu.
25. Júlí Gunnar Karl Gíslason (tímasetning er óstaðfest) Hann þarf vart að kynna en hann hefur náð einna lengst af öllum Íslenskum kokkum í sögunni. Hann er upphafsmaður DILL og eftir mikla velgengni var honum boðið að gerast yfirkokkur á veitingastað frá veitingamanninum Claus Meyer (stofnanda NOMA) á stað hans í NYC. Á stuttum tíma fékk hann Michelin stjörnu á þann stað. Hann gaf út bókin NORTH sem virkilega hjálpaði að koma íslenskum mat á kortið. 23. Ágúst Sigurður Laufdal Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sigurður Laufdal átt ansi góðan feril sem matreiðslumaður, unnið á nokkrum bestu stöðum á norðurlöndunum og er núna búinn að lyfta gæðum á veitingastaðnum Grillinu á Hótel Sögu upp verulega síðan hann tók við sem yfirmatreiðslumaður þar á bæ. Það verður gaman að sjá hvort að michelin guide muni gefa þeim stjörnu.
Dökkt súkkulaði samt svo létt og ávaxtaríkt bragð.Við vildum ekki að þetta yrði of sætt en mátti heldur ekki vera of beiskt. Á súkkulaðinu er svo sjávarsalt frá Saltverk, handtínt blóðberg frá Íslenskri Hollustu og poppað perlubygg frá Móðir jörð.Við erum svo ÁNÆGÐ með útgáfuna. Komið og prufið!
SKÁL HLAUT MICHELIN
BIB-GOURMAND VIÐURKENNINGU Á DÖGUNUM! SKÁL systurstaður Slippsins sem er staðsettur í Hlemm Mathöll í Reykjavík hlaut á dögunum mikla viðurkenningu frá Michelin Guide, og er þ.a.l. eini staðurinn sem skartar þeirri viðurkenningu. Viðurkenningin er veitt fyrir framúrskarandi mat á sanngjörnu verði. Staðurinn er rekinn af Gísli Matt okkar og vinum hans Gísla Gríms og Birni Steinari en alveg frá opnun var markmiðið ljóst að bjóða upp á mat á sanngjörnu verði og áhugaverða drykki með. Hugmyndafræðin á bakvið staðinn er ekki ólík á SLIPPNUM en þó töluvert einfaldari.Við mælum með að allir kíkji á SKÁL!
DRYKKIRNIR Á SLIPPNUM ERU EKKI SÍÐUR MIKILVÆGIR!
TEYMIÐ SEM AÐ VIÐ ERUM MEÐ ER GRÍÐARLEGA STERKT Kristófer Hamilton Lord hefur búið að starfað í Kaliforníu síðustu þrjú ár. Hann lærði matreiðslu hjá Fiskfélaginu í Reykjavík og ætlar að eyða sumrinu í Vestmannaeyjum og matreiða á Slippnum. „Ég lærði matreiðslu á Fiskfélaginu í Reykjavík, en ég er búinn að búa í Kaliforníu síðustu þrjú ár og var að vinna á veitingastaðnum Manresa,“ sagði Kristófer, en Manresa er einn flottasti veitingastaður í heimi, með þrjár Michelin stjörnur. Nýta hráefnið sem eyjan gefur Kristófer er ánægður með konseptið á Slippnum, „þetta er flottur staður sem er að nýta það hráefni sem eyjan er að gefa. Elda klassíska íslenska rétti og gera það vel. Þetta er líka stemmings-staður, það er gaman á Slippnum.“
Við leggjum rosalega áherslu á að vera með góða og skemmtilega drykki hjá okkur. Ef við tökum nokkur dæmi um hvernig þeim málum er háttað; Slippurinn hefur orðið þekktur fyrir notkun á handtíndum jurtum og berjum í kokteilagerð, kokteilaseðillinn okkar samanstendur af kokteilum sem eru byggðir í kringum þau brögð sem leynast í náttúrunni í eyjum. Reyniberja-negroni, hlaðkollu pina colada (án ananas og kókos!), túnfífils sour & rabbabara mojito er bara dæmi um drykki á seðlinum! Vínprógramið okkar er mjög fjölbreytt en höfum “limitað” okkur við gamla heiminn, þ.e. Evrópu.Vínseðillinn er búinn að vera í þróun í mörg ár og helstu vínin eru annaðhvort lífrænt vottuð eða svokölluð náttúruvín. Sem þýðir að engu hafi verið bætt við eða tekið frá í gerð vínsins.Við vinnum með nokkrum mismunandi birgjum og þau vín sem við elskum mest flytjum við alla leiðina frá framleiðendunum sjálfum! Við verslum bjór mest af Vífilfell en erum einnig í miklu og góðu samstarfi við The Brothers Brewery sem er brugghús hér í eyjum. Nú var að koma undir samstarfsbrugg milli Slippsins og þeirra. Hvannar saison bjór sem ber nafni “Hvannarbræður fara í SLIPP”.
Hann verður undir á dælunni á meðan birgðir endast! Við erum einnig með gott úrval af flöskubjórum. Núna bjóðum við einnig á óáfenga djúsa. Allt gert á staðnum djúsað, létt gerjað og ferskt. Hægt er að fá nokkrar gerðir af kombucha í glasi & einnig fá parað með mat. Þegar fólk fer í samsettu matseðlanna okkar er því kjörið að fá drykkjarpörun, miklu betra en að fá bara eitt gosglas með! Dæmi um djúsa; Kerfils & svart te kombucha Ferskur eplasafi með skessujurt Hvannar & græn te kombucha Krækiberjasaft með birkikombucha & kerfil Ferskur rabbabaradjús með mysu & lárviðarlaufum Við byrjuðum að plana te prógramm ársins síðasta sumar, þar sem þurrkaðar villtar jurtir spila stærstan part. Allt handtíndar jurtir. Nú bjóðum við fólki að velja sína te-blöndu sjálft og brugga te-ið sitt með þurrkuðum jurtum eins og greni, birki, hvönn, skessujurt, blóðberg, hlaðkollu og fleiri jurtum!
Er á fallegasta staðnum „Slippurinn er á einum fallegasta stað á Íslandi og þar erum við að fá hrikalega ferskann og góðan fisk.Við erum að týna mikið af mismunandi jurtum og þörum og einnig erum við að prufa og þróa ákveðna hluti sem að hefur ekki verið gert á Íslandi áður,“ sagði Kristófer þegar hann var spurður hvað Slippurinn hefur fram yfir aðra staði. Góður mórall Sumarið leggt vel í starfsfólk Slippsins, það besta hingað til segja þau. „Þetta sumar verður geðveikt! Teymið sem að við erum með er gríðarlega sterkt og móralinn frábær,“ sagði Kristófer að endingu.
HÓPMATSEÐILL SLIPPSINS
#
1
#
LÚÐU súpa FISKUR dagsins SKYR & hundasúrur
Slippurinn hefur frá upphafi boðið upp á nútíma íslenska matargerð með sérstaka áherslu á ferskt árstíðabundið hráefni úr heimabyggð. Samsettu matseðlarnir okkar gefa gestum okkar tækifæri á að upplifa það besta sem eyjarnar hafa upp á að bjóða.
HÁDEGI: KVÖLD:
#
*merkingar eru fyrir tveggja rétta.
HÁDEGI: KVÖLD:
#
HÁDEGI: KVÖLD:
5
5490* / 6390 kr 6890* / 7890 kr
7
4390* / 5290 kr 5490* / 6290 kr
#
HUMAR súpa LAMB & árstíðarbundið meðlæti SÚKKULAÐI eftirréttur HÁDEGI: KVÖLD:
3
TÓMATAR & reykt súrmjólk HNETUSTEIK & árstíðarbundið meðlæti SKYR & hundasúrur
4490* / 5390 kr 5690* / 6390 kr
#
4990* / 5790 kr 5790* / 6790 kr
#
grafið LAMB FISKUR dagsins SKYR & hundasúrur
4
HUMAR súpa KJÚKLINGUR & árstíðarbundið meðlæti SÚKKULAÐI eftirréttur HÁDEGI: KVÖLD:
Hópmatseðlaverð gildir þegar allir í hópnum velja sama seðil en að sjálfsögðu gerum við undantekningar ef um fæðuofnæmi eða óþol er að ræða. Vinsamlegast látið vita af slíku með fyrirvara.
4390* / 5290 kr 5490* / 6290 kr
2
6
HUMAR súpa NAUT & árstíðarbundið meðlæti SÚKKULAÐI eftirréttur HÁDEGI: KVÖLD:
#
5790* / 6590 kr 6990* / 7990 kr
8
BROT AF ÞVÍ BESTA grafið LAMB HUMAR súpa FISKUR dagsins
LAMB & árstíðarbundið meðlæti SKYR & hundasúrur
HÁDEGI: 8790 kr KVÖLD: 10790 kr
sérstæðustu réttir okkar frá Vestmannaeyjum sérútbúinn hópaseðill
hafið samband fyrir verð
FLEIRI UPPLÝSINGAR WWW.SLIPPURINN.COM Athugið: ef matseðlarnir hér að ofan er ekki það sem þið leitið eftir, endilega sendið okkur fyrirspurn með ykkar óskum. Kaffi og te er ekki innifalið í verði, uppáhellt kaffi kostar 400 kr. fyrir hvern gest. Lágmarksfjöldi svo hópseðill gildi er 11 manns. Umsjón blaðs: Sara Sjöfn Grettisdóttir / Gísli Matthías Auðunsson Hönnun & Umbrot: Lind Hrafnsdóttir Prentun: prentun.is
Allar fyrirspurnir sendið okkur tölvupóst á info@slippurinn.com Slippurinn, Strandvegur 76, 900 Vestmannaeyjar. Slippurinn á vefnum: http://slippurinn.com/ http://tripadvisor.com https://instagram.com/slippurinn/ https://www.facebook.com/SlippurinnEyjum https://twitter.com/slippurinn
ÞAÐ ÞARF EKKI TILEFNI TIL AÐ FARA ÚT AÐ BORÐA
VIÐ MINNUM Á VINAKORT SLIPPSINS
Hægt er að fá vinakort hjá okkur með því að koma við hjá okkur á Slippnum Strandvegi 76 Sunnudagur: 3 rétta tilboð dags á aðeins 4.950,- kr Mánudagur: Stór Humarsúpa & hvítvínsglas eða kombucha 2.950,- kr. Þriðjudagur: Kjúklingabringa & Súkkulaðimús 2.950,- kr. Miðvikudagur; Pönnufiskur dagsins & hvítvínsglas eða kombucha 2.950,- kr. Fimmtudagur; Nautasteik & bernaise 2.950,- kr. Fimmtud HÁDEGI 30% afsláttur af matseðli