SJÓMANNADAGSBLAÐ VESTMANNAEYJA
2020
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN YKKAR SJÓMENN!
'
''
-innilegar hatidarkvedjur i tilefni sjomannadagsins '
EFNISYFIRLIT: BLAÐSÍÐA 7
Sjómannadagurinn 2019
BLAÐSÍÐA 18 Smári Geirsson: Bergur-Huginn
BLAÐSÍÐA 24 Snorri Óskarsson
Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2020 70. árgangur
BLAÐSÍÐA 26 Skötuveisla hjá Árna og Dóru á Höfðabóli er ævinlega hápunktur sjómannadagsins
BLAÐSÍÐA 38 Árángursrík covid-glíma VSV til sjós og lands
BLAÐSÍÐA 40 Hilmar Rósmundsson og Theódór Ólafsson á Sæbjörgu VE
Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Ljósmyndir: Hlynur Ágústsson, Óskar Pétur, Jói Myndó og Sigurgeir Jónasson. Forsíðumynd: Lind Hrafnsdóttir.
BLAÐSÍÐA 56 Minning látinna
BLAÐSÍÐA 64 Sjómannskonurnar
BLAÐSÍÐA 66 Ótrúlegur sjómannsferill Ólafs Tryggvasonar
Umbrot: Lind Hrafnsdóttir // Leturstofan
BLAÐSÍÐA 76 Albert Sævarsson
Auglýsingar: Lind Hrafnsdóttir // Leturstofan Próförk og yfirlestur: Atli Rúnar Halldórsson Úgefandi: Sjómannadagsráð Vestmannaeyja 2020 Sjómannadagsráð 2020: Formaður: Halldór Ingi Guðnason. Gjaldkeri: Brynjar Unnarsson Ritari: Sævald Hallgrímsson. Meðstjórnendur: Ágúst Halldórsson, Ragnar Þór Jóhannsson, Valur Már Valmundsson, Ólafur Már Harðarson, Ingi Þór Arnarsson, Ríkharður Stefánsson, Hólmgeir Austfjörð, Héðinn Karl Magnússon, Gísli Sigmarsson, Guðni Pétursson, Sigþór Friðriksson og Óðinn Guðmundsson.
BLAÐSÍÐA 80 Yfirvélstjóri á KAP stúderar lögræði á sjó
BLAÐSÍÐA 84 Guðjón Ármann Eyjólfsson
BLAÐSÍÐA 96 Hvað vita börnin um sjómennsku?
BLAÐSÍÐA 98 Almenn ánægja með Herjólf
BLAÐSÍÐA 116 Sárar minningar og aðrar ljúfar frá æsku bræðra á Brynjólfi VE
BLAÐSÍÐA 122 Ég held við séum að skjóta rótum hér
BLAÐSÍÐA 124 Enginn kvóti í ferðamennskunnni
BLAÐSÍÐA 126 Haraldur VE birtist í Eyjum eftir 38 daga ferð, fyrir löngu talinn af
2
ENNEMM / SÍA / NM000989
Þjónusta alla leið á sjó og landi
Til hamingju með daginn! Í tilefni af sjómannadeginum þökkum við sjómönnum og útgerðarfyrirtækjum fyrir ánægjuleg samskipti í gegnum tíðina. N1 er alltaf til staðar með þjónustu við sjávarútveginn, á sjó og landi.
440 1000
n1.is
ALLA LEIÐ
3
RITSTJÓRASPJALL: ÓMAR GARÐARSSON - SJÓMANNADAGBLAÐIÐ Í 70 ÁR
SJÓMENN ERU OG VERÐA ALLTAF Í FRAMLÍNUNNI
Mikið hefur gengið á til sjávar og sveita og reyndar í veröld allri þetta árið og sér ekki fyrir endann á þeim ósköpum. Allt byrjaði þetta með miklum veðrum í desember og fram í mars þar sem ekki síst fólk á landsbyggðinni, í bæjum og til sveita, fékk finna fyrir miskunnarleysi náttúruaflanna í ham. Það átti líka við um sjómenn sem þurfa að taka því sem að höndum ber þegar veður er annars vegar. Það er ekki alltaf hægt að sigla í land þegar brælir. Á þetta við togara á fjarlægum miðum og ekki síður uppsjávarskipin á kolmunnamiðunum vestur af Írlandi þar sem er eitt mesta veðravíti á jörðinni. Þar eru sjómenn í framlínunni í þágu þjóðarinnar ekki síður en fólk í heilsugæslu, lögreglu og hjálparsveitum sem þurft hefur að takast á við ógnarstór verkefni síðustu mánuði. Það verður að fara á sjóinn til að afla þjóðinni tekna, sama á hverju gengur.
Mikið er rætt um afleiðingar Covid19 faraldursins sem er með stærri áföllum sem dunið hafa yfir land og þjóð og heiminn allan. Sjómenn hafa fengið að finna fyrir því með lægri tekjum vegna lækkandi fiskverðs á mörkuðum sem sumir hafa líka lokast alveg. Þetta er ekki rætt enda sjómenn ekki mikið fyrir að barma sér. Óvissan er mikil en vonandi sjáum við fram á betri tíð og að landið nái að rísa á ný. Þá eins og svo oft áður verða sjómenn í lykilhlutverki. Vegna samkomubanns leit út fyrir að engin hátíðarhöld yrðu á Sjómannadaginn en nú er að létta til og verður dagskrá að mestu með hefðbundnum hætti. Vegna fjöldatakmarkana verða engir tónleikar og sjómannaskemmtunin í Höllinni fellur niður. Þetta er þriðja Sjómannadagsblaðið sem ég ritstýri og tölublað númer 70. Það er mikill heiður og ekki síður að fá að vinna með öflugu og metnaðarfullu Sjómannadagsráði þar sem eru engin vandamál, bara lausnir. Meðal efnis í blaðinu er umfjöllun um útgerð Sæbjargar VE sem Hilmar Rósmundsson skipstjóri og Theódór Ólafsson vélstjóri áttu og stýrðu. Ólafur Tryggvason á sér merka sögu á sjó sem tengist m.a. Halkion VE, því mikla happa- og aflaskipi. Einnig er athyglisvert viðtal við Guðjón Ármann Eyjólfsson sjóliðsforingja, skólastjóra og skólameistara. Þá er ekki síður athyglisverð saga sjö systkina sem fluttu til Vestmannaeyja eftir að faðir þeirra fórst með Sjöstjörnu KE á vertíðinni 1973. Eins og alltaf koma margir að gerð blaðsins. Lind Hrafnsdóttir sér um auglýsingar og umbrot. Atli Rúnar Halldórsson, sá margreyndi fjölmiðlamaður, bættist í hópinn og ekki aðeins sem prófarkalesari. Hann hefur yfirfarið allan texta og komið með góðar ábendingar um það sem betur mátti fara. Sara Sjöfn Grettisdóttir lagði okkur lið með greinaskrifum. Óskar Pétur á flestar myndir eins og venjulega en líka er leitað í ómetanlegan myndabanka Sigurgeirs Jónassonar þar sem aldrei sést til botns. Þessum og mörgum fleirum vil ég þakka þeirra framlag. Sjómenn og fjölskyldur og allt Eyjafólk; til hamingju með daginn og megi okkur vegna sem best til sjós og lands. Ómar Garðarsson ritstjóri.
4
B
estu árnaðaróskir og kveðjur til sjómanna og allra Vestmannaeyinga á sjómannadaginn!
SÉRA GUÐMUNDUR ÖRN JÓNSSON:
GUÐ GEFI SJÓMÖNNUM OG FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA GLEÐILEGAN SJÓMANNADAG Það er ljóst að samstaða og samvinna er nokkuð sem sjómenn þurfa að búa yfir þegar farið er á sjó. Ég ætla svo sem ekki að halda því fram að ég hafi mikla reynslu af sjómennsku enda sveitamaður að upplagi. En sjómenn verða að róa í sömu átt og treysta hverjir á aðra.
Sá hlédrægi kom á óvart. Engum togum skipti að þegar skotið var á hann í markinu í fyrsta skipti tók hann boltann niður, sólaði upp allan völlinn eins og Maradona gerði á móti Englandi á HM 1986 og labbaði hreinlega með knöttinn í mark andstæðinganna.
Dæmi um slíkt væri auðvitað hægt að taka úr heimi íþróttanna þar sem mikilvægt er að allir séu samstíga, hafi fókusinn réttan og sammælist um taktík eða aðferð sem beita á. Að ég nú tali ekki um að átta sig á því að hvoru markinu eigi að sækja, því ekki viljum við skora sjálfsmörk í ólgusjó lífsins og enda með allt í skrúfunni.
Við hinir stóðum sem steinrunnir og fengum engan botn í þessi tilþrif. Sagan endurtók sig í næstu sókn og næstu þar á eftir þar til leiknum lauk með yfirburðasigri liðs rafvirkjans eða réttara sagt sigri hans eins.
Það fallega við knattspyrnuna er að þar getur maður aldrei verið 100% viss um hvernig leikar fara, alveg eins og á sjónum þar sem menn geta aldrei verið alveg vissir um aflabrögð þegar lagt er frá bryggju. Á sama hátt getur maður aldrei verið viss um hver er góður knattspyrnumaður við fyrstu kynni. Ég man til dæmis eftir því þegar verið var að byggja sundlaug á Illugastöðum í Fnjóskadal fyrir 32 árum að þá fórum við oft í fótbolta í hádegishléinu sem að því verki komum. Þetta urðu oft æsispennandi leikir og fjörugir enda komu margir að byggingu sundlaugarinnar. Einn daginn komu rafvirkjar frá Akureyri til að vinna við sundlaugina og í þeirra hópi var ansi hlédrægur og frekar lágvaxinn maður sem aldrei tók þátt í þessum kappleikjum. Við hinir vorum svo sem ekkert að skipta okkur af því enda alltaf nógu margir í liðunum. Auk þess leist okkur þannig á kappann að hann væri nú ekki mikið efni í knattspyrnumann. Svo var það eitt sinn að einhverra hluta vegna vantaði mann í annað liðið og þá neyddumst við til að bjóða hinum uppburðalitla rafvirkja með í leikinn. Hann var nú svo sem ekkert mjög spenntur fyrir hugmyndinni en eftir heilmikinn þrýsting lét hann undan og var auðvitað settur í markið þar sem hann gæti að minnsta kosti reynt að slysast fyrir boltann ef skotið yrði á mark.
6
Eftir hádegi fórum við að forvitnast um hver þessi rafvirki væri. Þá kom auðvitað í ljós að maðurinn var lykilleikmaður í stórgóðu liði Þórs á Akureyri, Bjarni nokkur Sveinbjörnsson, faðir Birkis Bjarnasonar, okkar ástæla landsliðsmanns í knattspyrnu. Eftir þetta fyrsta skipti var hann auðvitað óstöðvandi í hádegisboltanum sem varð svo til þess að við hinir misstum eiginlega áhuga á tuðrusparki og fórum frekar í minigolf eða gripum í spil í hádegishléum. Já, ýmislegt má læra af knattspyrnu þegar kemur að samstöðunni. Þar er það auðvitað lykilatriði að allir fái hlutverk við hæfi, skilji hvar best sé að staðsetja sig og hvenær eigi að sækja og hvenær að pakka í vörn. Þegar öllu er á botninn hvolft uppskera allir og fá verðlaun því allir eru mikilvægir fyrir liðið. Rétt eins og hver og einn einasti sjómaður í áhöfn er mikilvægur. Og nú má kannski segja að sjómenn séu, eins og svo oft áður, ein mikilvægasta stétt samfélagsins við að koma þjóðarskútunni í gegnum þann efnahagslega öldudal sem við erum í, ásamt öllum þeim sem vinna við að auka verðmæti sjávarfangsins. Saman komumst við í gegnum brimið með Guðs hjálp og góðra manna. Guð blessi sjómenn og fjölskyldur þeirra um alla framtíð.
Vinnslustöðin hf
hafnargata 2
900 Vestmannaeyjar
vsv@vsv.is
www.vsv.is
7
SJÓMANNADAGURINN 2019
Snorri Óskarsson með þeim sem hlutu viðurkenningar á Sjómannadaginn 2019. Gunnar Tryggvason, Gísli Valur Einarsson og Halldór Björgvinsson.
SJÓMANNADAGURINN 2019 VAR SJÓMÖNNUM OG GESTUM TIL MIKILS SÓMA
Það viðraði vel til hátíðarhalda sjómannadagshelgina á síðasta ári og fór hún að öllu leyti vel fram. Margt í boði, góð aðsókn og fólk ánægt með dagskána sem verður viðameiri með hverju árinu. Meðal þess sem var í boði var dorgveiðikeppni, sjómannafjör á Vigtartorgi, hátíðarkvöldverður, hefðbundin sjómannamessa í Landakirkju og skemmtun á Stakkó, svo fátt eitt sé nefnt. Sjómannahátíðin má segja að hefjist á fimmtudeginum með uppákomu á ölstofunni The Brothers Brewery og tónleikum. Að þessu sinni var það Hatari sem mætti í Alþýðuhúsið þar sem liðsmennirnir fögnuðu bærilegum árangri og mikilli athygli í Eurovision í Ísrael. Föstudagurinn hófst með árlegu Sjómannamóti Ísfélagsins þar sem vegleg verðlaun voru í boði. Um kvöldið voru Hjálmar með tónleika í Alþýðuhúsinu og Huldumenn í Höllinni þar sem rokkað var til heiðurs sjómönnum og fjölskyldum þeirra. Var góð aðsókn og mikið stuð. Mikið var um að vera á laugardeginum. Dorgveiðikeppni SJÓVE og Jötuns á Nausthamarsbryggju er alltaf jafnvinsæl þar sem pabbarnir og afarnir skemmta sér ekki síður en krakkarnir. Vegleg verðlaun voru í boði, meðal annars fyrir stærsta fiskinn og flesta fiska. Á eftir voru Svali og Prins Póló í boði fyrir þátttakendur. 10
Hopp og hí á Vigtartorgi Eftir hádegið var sjómannafjör á Vigtartorgi sem hófst á því að séra Guðmundur Örn Jónsson blessaði daginn. Mikill fjöldi var mættur til að fylgjast með þar sem var að venju kappróður, koddaslagur, tuðrukvartmíla, lokahlaup og sjómannaþraut. Fyrir unga fólkið var foosballvöllur og þurrkoddaslagur þar sem enginn átti á hættu að detta í sjóinn. Hoppukastalar voru til skemmtunar og risasundlaug með fjarstýrðum bátum, nýjung sem sló í gegn. Kjörís var á bryggjunni og gaf ís og kynnti nýjungar. SS lét ekki sitt eftir liggja og grillaði handa fólkinu. Krakkarnir gátu keypt flos að vild og Ribsafari bauð ódýrar ferðir. Þá sýndu félagar í Mótorhjólaklúbbnum Drullusokkarnir fáka sína á Skipasandi. Slógumst um Bedda Það var þétt setinn salurinn á hátíðarsamkomu Sjómannadagsráðs, Hallarinnar og Einsa Kalda. Hátíðarkvöldverður var að hætti Einsa Kalda um leið og Meistaradeildarleikur var sýndur á Háaloftinu. Ekki leiðinlegt að þar stóð Liverpool uppi sem sigurvegari. Veislustjóri var Gísli Einarsson og Jónsi og Stebbi Hilmars, Sara Renee og Leó Snær hituðu upp fyrir ballið ásamt Stuðlabandinu sem sá um stuðið á ballinu ásamt Stebba Hilmars og
Jónsa. Allt fór hið besta fram og fólk mætti til að skemmta sér og öðrum. Einn hápunkturinn var uppboð á sjómannabjórnum Bedda frá Brothers Brewery þar sem slagurinn stóð milli Bergsfjölskyldunnar eftir að aðrir höfðu gefist upp. Sævald Pálsson, höfuð fjölskyldunnar, var mættur en lét börnin Ásdísi og Grétar um að bjóða hvort á móti öðru og endaði talan í 1.144 þúsund krónum sem runnu óskertar til Krabbarnar. Merkismenn heiðraðir Sjálfur Sjómannadagurinn rann upp bjartur og fagur og hófst formleg dagskrá með sjómannamessu í Landakirkju. Þar predikaði séra Guðmundur Örn og þjónaði fyrir altari. Eftir messu var minningarathöfn við minnisvarða hrapaðra og drukknaðra og þá sem farist hafa í flugslysum. Lúðrasveit Vestmannaeyja lék nokkur lög áður en blómsveigur var lagður að minnisvarðanum. Að venju stýrði Snorri Óskarsson athöfninni. Lúðrasveit Vestmannaeyja hóf leik á Stakkó þar sem hátíðardagskráin fór fram og Snorri stjórnaði. Karlakór Vestmannaeyja flutti nokkur lög og ræðumaður Sjómannadagsins var baráttukonan Heiðveig María Einarsdóttir. Aldnir sægarpar voru heiðraðir; Gunnar M. Tryggvason vélstjóri, Gísli Valur Einarsson skipstjóri og Halldór Björgvinsson sjómaður. Allt miklir heiðursmenn. Verðlaun voru veitt fyrir afrek laugardagsins í kappróðri, koddaslag, lokahlaupi , sjómannaþraut, dorgveiðimótinu og sjómannamótinu í golfi. Leikfélagið og Fimleikafélagið Rán skemmtu og fyrir krakkana voru hoppukastalar, popp og flos.
Guðfinnur, Siggi Braga og Guðjón.
Kappróðurinn í fullum gangi. En Bergey VE vann áhafnarbikarinn og Jötunn vann félagabikarinn.
Ekki má gleyma hinu árlega og frábæra kaffihlaðborði Eykyndilskvenna sem alltaf er vel sótt og vel þegið að fá hnallþórur, brauðtertur og flatbrauð upp á gamla mátann og hitta mann og annan. Sjómannadagurinn 2019 og öll hátíðin var sjómönnum, fjölskyldum þeirra, Eyjafólki og gestum til mikils sóma og ekki verra að hafa veðurguðina í liði með sér þegar mikið liggur við. Sjómannadagurinn hefur verið einn af stóru viðburðunum í Vestmannaeyjum og er enn. Hefur vegur hans vaxið undanfarin ár sem má þakka öflugu Sjómannadagsráði.
11
Pabbarnir ekki síðu áhugasamir á dorgveiðunum. Hrafn Sævaldsson .
SJÓMANNADAGSRÆÐA HEIÐVEIGAR MARÍU 2019
Heiðveig flytur ræðuna á Stakkagerðistúni.
HÁTÍÐARRÆÐA SJÓMANNADAGSINS 2019 „Góðir hátíðargestir, sjómenn og fjölskyldur. Innilega til hamingju með daginn okkar. Í dag er Sjómannadagurinn, lögskipaður frídagur okkar sjómanna og hefur verið það í rúmlega 30 ár. Hins vegar má rekja uppruna dagsins allt til ársins 1938. Samkvæmt gömlum heimildum var stofnað til dagsins til þess að efla samstöðu sjómanna á sínum tíma,“ sagði Heiðveig María Einarsdóttir, sjómaður og viðskiptalögfræðingur, í hátíðarræðu Sjómannadagsins á Stakkagerðistúni 2019. Hún vakti athygli með því að bjóða sig fram til stjórnar Sjómannafélags Íslands og fékk heldur óblíðar móttökur. Hún var ekki velkomin og stóð slagurinn sem hæst í byrjun júní í fyrra. Heiðveig fékk aftur á móti góðar viðtökur í Vestmannaeyjum, ekki síst hjá Sjómannadagsráði sem bauð henni að halda hátíðarræðuna. Oft reynt á samstöðuna „Samstaða – hvað er það? Það er jú þegar við stöndum saman og erum einhuga um eitthvað tiltekið atriði. Það hefur heldur betur reynt á samstöðu í gegnum tíðina hjá sjómönnum. Þá skiptir ekki máli hvort við erum að tala um almenn kjör okkar, öryggismál, hvíldartíma, 12
SAMSTAÐA ÚTGERÐAR OG SJÓMANNA ÖLLUM TIL HEILLA ÞEGAR UPP ER STAÐIÐ
DFF-3D er nýr fjölgeisla dýptarmælir sem Furuno hefur þróað. Ný fjölgeislatækni sem notast er við í mælinum skilar nákvæmum staðsetningum fisk endurvarpa og endurvörpum af botni sem mynda gagnagrunn fyrir myndræna framsetningu botnsins. Háþróuð tækni við úrvinnslu endurvarpa sendigeislanna og ný gerð fjölgeisla botnstykkis skilar sér í afar nákvæmri þrívíddarmynd af botninum og smáatriðin koma mönnum á ávart.
Þrívíddarmyndirnar má vista og vinna með í gagnagrunni Time Zero Professional.
Botnlandslagið og fiskitorfur birtast í ótrúlega nákvæmri mynd í allt að 120° geisla frá stjór í bak. Hámarks dýpi við enda geislans er 200 m, en 300 m undir miðju skipsins. Hliða skönnunar (Side Scan) eiginleiki DFF-3D býður upp á nýja leið til að staðsetja holur og hæðir á sjávarbotni. Þessi tækni gerir notandanum auðvelt fyrir að sjá nákvæmlega hvernig botninn liggur.
DFF-3D inniheldur einnig hefðbundinn dýptarmæli með 3 geislum sem er hægt að stilla og færa til. Þetta gerir notanda kleift að staðsetja fiskinn á mjög einfaldan hátt. Breidd og halla hvers geisla má stilla frá miðju.
MAREIND Hólmaslóð 4 – 101 Reykjavík – Sími 5 250 250 – brimrun.is
Grundarfirði Sími 438 6611
Gestir á Stakkagerðistúni.
aðgerðir stjórnvalda eða hvað annað. Ég fullyrði að engin önnur stétt hér á þessu landi eigi sér eins sterkar og rótfastar tengingar inn í samfélagið og sjómenn. Við erum öll á einn eða annan hátt einhvern veginn tengd sjómanni í nærumhverfi okkar og þekkjum líklega flest til nokkurra slíkra fjölskyldna, sérstaklega í bæjarfélagi eins og hér í Vestmannaeyjum.“ Margt sem hefur áhrif á afkomuna „Á sama tíma er umhverfi stéttarinnar gríðarlega viðkvæmt fyrir ytri áhrifum og ekkert er öruggt í þessu, akkúrat ekki neitt. Blessuð auðlindin er jú þarna en það er bara svo ótal margt annað sem spilar inn í. Nægir að nefna álögur stjórnvalda sem oftast er klambrað á með einu pennastriki og svo sem allar álögur stjórnvalda í hvaða formi sem þær eru og þá yfirleitt í takt við pólitískar áherslur hverju sinni. Svo hafa náttúruhamfarir eins og eldgos alveg hellingsáhrif og þarf varla að minna þetta samfélag hér á áhrif Heimaeyjargossins á verstöðina. Ástkær krónan okkar virðist sveiflast villt og galið í takt við hitt og þetta. Loðnubrestur – þar fór það þetta árið, við vonum bara það besta næst. Allt þetta og líklega meira til hefur áhrif á það sem við köllum niðurstöðu starfa okkar eða með öðrum orðum laun okkar.“ Af hverju sjómaður? „Hvað er að vera sjómaður og af hverju erum við að þessu? Jú, það er bara helvítis hellingur! Að staldra við og rifja upp nokkrar staðreyndir hjálpar okkur kannski að skilja hvað og hvers vegna. Eða kannski ekki! Meðalvinnuvika háseta er rúmlega 80 klukkustundir, samanborið við tæplega 40 14
klukkustundir á almennum vinnumarkaði. Háseti fer ekki heim í bælið sitt að vinnutíma loknum, háseti þarf að borða það sem fyrir hann er lagt og þá er alveg sama hvort honum líkar maturinn eða ekki, hann þarf að gera ráð fyrir því að vera ræstur á frívöktum sé mikið fiskirí. Háseti deilir klefa með allt að þremur öðrum og háseti deilir oft salerni og sturtu með 10 til 20 öðrum. Ég er nokkuð viss um að margir myndu setja það eitt fyrir sig.“ Tímakaupið ekki hátt „Meðaltímakaup háseta er á bilinu 2.000 til 6.500 krónur. Þá skiptir ekki máli hvort um er að ræða dag- eða yfirvinnukaup, hann sjálfur hefur ekkert um það að segja. Skipstjórinn, útgerðin, Hafró, fiskverð á markaði og kvótastaða á hverjum tíma ræður því hvað er fiskað hverju sinni, hve mikið, hvert er selt og hverjum er selt. Til viðmiðunar er dagvinnukaup sérfræðings hjá ríkinu á bilinu 4.000 til 5.000 kr. og er þá átt við sérfræðing með grunnháskólamenntun. Laun hjá ríkinu eru oftar en ekki talin lægri en á almennum vinnumarkaði. Háseti rúllar sólahringnum á sex til átta tíma vöktum og hvílist á frívöktum, þá skiptir ekki máli hvort er dagur eða nótt. Ef háseti er veikur um borð mætir hann samt yfirleitt í vinnuna. Öll afkoma hásetans byggist á því sem fiskast hverju sinni og þeim verðum sem eru í gangi á þeim tíma.“ Nær tvöfalt fleiri vinnustundir „Afkomutrygging sjómanna er á pari við lágmarkslaun í landi. Þrátt fyrir það er fullur mánuður á almennum vinnumarkaði rúmlega 170 vinnustundir, háseti vinnur rúmlega 320 vinnustundir í einum túr ef miðað er við
Ljósmynd: Bergþór Gunnlaugsson
Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn.
Rafrænt verkfæri í öryggismálum sjómanna ATVIK-sjómenn er fullkomið atvikaskráningakerfi sem VÍS hefur þróað í samstarfi við Slysavarnaskóla sjómanna og nokkur leiðandi fyrirtæki í íslenskum sjávarútvegi. Á fjórða tug fiskiskipa og um 800 sjómenn hafa aðgang að ATVIK-sjómenn.
15
mánaðarúthald. Aflaverðmæti er háð gengi erlendra gjaldmiðla gagnvart krónunni og því geta laun háseta verið 30% til 40% lægri á háu gengi þrátt fyrir að verð á afurðum sé hátt. Enn eru samt til karlar og reyndar konur einnig, þó í minnihluta séu, sem kjósa sér þennan starfsvettvang. Ég gerði það, foreldrar mínir og systkini gerðu það og klárlega eru nokkrir hausar hér sem hafa gert það líka.“ Fjölskylda að baki hvers sjómanns „Á bak við hvern sjómann er yfirleitt fjölskylda, mæður, feður, börn, eiginkonur, eiginmenn, kærastar, kærustur og svo mætti lengi telja. Það er oft erfitt að skilja hvers vegna fólk velur sér þennan vettvang en það er eins og með margt annað, þetta starf er alveg eins gott og mikilvægt og hvert annað. Því ættum við ekki að bera virðingu fyrir því? Við veljum sjálf það sem við viljum og það ber að virða. Þetta starf gefur líka að mína mati svo miklu, miklu meira en salt í grautinn fyrir fjölskyldur sjómanna. Það er nefnilega pínu þannig að þó svo að sjómönnum hafi fækkað gegnum árin skila þeir enn langmestum tekjum til ríkisins af þessari dásamlegu auðlind okkar, það er að segja tekjuskatti af launum. Þetta skilar meiru en auðlindagjald og tekjuskattur útgerða.“ Tekjur sjómanna skipta máli „Þar af leiðandi get ég ekki skilið það öðru vísi en svo að við sjómenn séum hreinlega lífsnauðsynlegir þeim samfélögum sem við störfum og búum í. Framlag okkar hlýtur því að tryggja innviði samfélagsins. Því er enn mikilvægara en oft áður að ná saman um þetta starf, skilyrði þess og kjör. Þar sem við erum nú dottin inn í árið 2019 ætla ég að leyfa mér að gera þá kröfu til okkar sjómanna og þá líka í leiðinni til viðsemjenda okkar og samfélagsins að við sýnum samstöðu í verki með því að tala saman og vinna saman að sameiginlegum hagsmunum.“ Harka í kjaradeilum „Auðlindir okkar í hafinu er kannski orðinn klisjukenndur farsi og orð eins og auðlindagjald, afkoma í sjávarútvegi og verðmæti hafsins fara að detta í það að verða fyrir okkur hreinlega eins og umhverfishljóð. Í gegnum tíðina eða allt síðan að ég man eftir mér hafa kjaradeilur sjómanna verið litaðar af gríðarlega mikilli hörku og átökum. Oftar en ekki hefur strandað í viðræðum og deilurnar endað með verkfalli og jú oftar en ekki með lagasetningu á verkfall þar sem of mikil verðmæti voru í húfi og því nauðsynlegt að sækja fiskinn hið snarasta. Sjálfsagt má deila um hvort þau rök hafi haldið vatni hjá löggjafanum. Það er hins vegar alveg á kristaltæru að hvernig sem á allt er litið eigum við öll sameiginlegra 16
hagsmuna að gæta. Við njótum góðs af sjómönnum beint eða óbeint. Þar sem við sjómenn fáum greitt eftir hlutaskiptakerfi, eða hlutfall af því aflaverðmæti sem við sköpum með sjósókn okkar, er það klárlega hagur útgerða að aflaverðmætið sé sem allra mest“. Sjómenn og útgerðarmenn háðir hver öðrum „Í raun er samband sjómanna og útgerða þannig að hvorir eru algjörlega háðir hinum. Lítið er varið í að stunda sjómennsku án útgerðar og enn minna varið í að stunda útgerð án sjómanna. Hvernig getur það þá verið að alltaf hreint, enn og aftur ár eftir ár, verði gríðarleg átök í kringum samninga þessara aðila? Í sinni einföldu mynd er þetta algjört „win win situation“, svo ég leyfi mér nú að sletta. Ég er búin að ákveða fyrir þó nokkru síðan að ég ætla að leggja mitt af mörkum til þess að reyna að ná þarna sátt allra sem hlut eiga að máli. Ég misnota tækifæri mitt hér í dag og biðla til ykkar sjómanna, til ykkar samfélags, til ykkar útgerðarmanna og til ykkar sem einstaklinga, að líta í eigin barm og hugsa hvernig þið getið lagt ykkar af mörkum til þess að ná fram sátt og þessari margumtöluðu samstöðu okkur, öllum til heilla þegar upp er staðið,“ sagði Heiðveig María og óskaði hátíðargestum enn og aftur innilega til hamingju með daginn. „Komum fagnandi og sameinumst sem eitt. Njótið dagsins,“ voru lokaorðin. Slagurinn við Sjómannafélagið „Þegar ég tók ákvörðun fyrir rúmu ári síðan að bjóða mig fram ásamt frábærum hópi af metnaðarfullu og duglegu fólki hvarflaði aldrei að mér að vegferðin yrði eins farsakennd og nú liggur fyrir,“ sagði Heiðveig María á FB 7. Júní 2019 um baráttu sína fyrir því að fá að gefa kost á sér í stjórn Sjómannafélags Íslands. „Fyrir tæpri viku síðan skiluðum við í annað sinn lista frambjóðenda ásamt nær 120 manna meðmælendalista. Allir í framboðinu voru metnir löglegir af kjörstjórn og kröfur um fjölda meðmælenda uppfylltar. Vikan á eftir hefur hins vegar einkennst af karpi við kjörstjórn um túlkun laga félagsins. Kjörstjórn dæmdi framboðið ógilt og óskaði eftir lagfæringum á listanum sem og 100 meðmælendum AFTUR þar sem henni þótti listinn ekki nógu „dreifður“ og reyndi að vísa í lög félagsins því til stuðnings. Því erum við ósammála og skorum því á kjörstjórn að endurskoða afstöðu sína. Að þessu sögðu tel ég að fullreyndar séu eðlilegar félagslegar og lýðræðislegar leiðir sem venjulega er hægt að fara í öllum venjulegum og eðlilegum stéttarfélögum.“
Gleðilega hátíð
Landsbankinn
landsbankinn.is
410 4000
17
SMÁRI GEIRSSON: BERGUR-HUGINN – SAGAN FRÁ 1972 OG SALAN TIL SÍLDARVINNSLUNNAR
ÚTGERÐ SKIPANNA GENGIÐ VEL MEÐ REYNSLUMIKLUM ÁHÖFNUM
Bergey VE, Smáey VE og Vestmannaey VE.
Útgerðarfélagið Bergur-Huginn var stofnað í desembermánuði 1972. Að félaginu stóð annars vegar útgerðarfélagið Bergur hf. og hins vegar útgerðarfélagið Huginn hf. en bæði þessi félög höfðu gert út báta frá Vestmannaeyjum um langt skeið. Tilgangurinn með stofnun Bergs-Hugins var að festa kaup á skuttogara og hefja útgerð hans. Hagstætt tilboð í smíði skuttogara fyrir Íslendinga hafði borist frá Japan og varð niðurstaðan sú að samið var um smíði tíu togara þar. Kristinn Pálsson, útgerðarmaður frá Þingholti í Vestmannaeyjum og skipstjóri á Bergi VE, renndi hýru auga til Japanstogara en viðskiptabanki útgerðarinnar áleit að hún hefði ekki ráð á því ein og sér að festa kaup á slíku skipi. Niðurstaðan varð því sú að Kristinn fékk mág sinn, Guðmund Inga Guðmundsson útgerðarmann Hugins 18
VE, til liðs við sig og saman stofnuðu þeir útgerðarfélagið Berg-Hugin sem festi kaup á einum Japanstogaranna. Fékk togarinn nafnið Vestmannaey VE. Fengu fréttir af gosinu á leið frá Japan Togarinn Vestmannaey VE var smíðaður í Muroran í Japan og afhentur hinum íslensku eigendum 31. desember 1972. Þegar í stað var lagt af stað til Íslands og ráðgert að koma til hafnar í Vestmannaeyjum í febrúarmánuði. Þegar togarinn var á siglingu á milli Hawaii og Panama bárust skipverjum fremur óljósar fréttir af því að gos væri hafið í Vestmannaeyjum. Í hönd fór heill sólarhringur þar sem beðið var nánari frétta og mikið var mönnum létt þegar upplýsingar bárust um að allir íbúar hefðu bjargast heilir á húfi. Ljóst varð strax að hið nýja skip gæti ekki siglt til heimahafnar vegna náttúruhamfaranna og var
því ákveðið að leita hafnar í Hafnarfirði. Þangað kom síðan Vestmannaey 19. febrúar 1973 eftir 49 daga siglingu frá Japan. Kornung aflakló Það aflaðist vel á Vestmannaey nánast frá upphafi. Skipstjóri var Eyjólfur Pétursson, kornung aflakló. Hann var síðan skipstjóri á Vestmannaey í um tuttugu ár og gerðist meðeigandi í Bergi-Hugin. Um líkt leyti og Eyjólfur eignaðist hlut í fyrirtækinu seldi útgerðarfélagið Huginn sinn hlut í því. Guðmundur Ingi hafði þá fest kaup á nýjum Hugin VE og hafði ávallt meiri áhuga á uppsjávarveiðum en botnfiskveiðum. Hér skal tekið fram að Kristinn Pálsson hélt áfram að gera út Berg VE eftir að Bergur-Huginn hóf útgerð skuttogarans en útgerðina átti hann ásamt Sævald bróður sínum. Það var ekki fyrr en á árinu 1983 að Kristinn og Sævald skiptu upp félaginu. Þrátt fyrir að vel aflaðist á Vestmannaey gekk útgerðin erfiðlega í fyrstu og að mörgu leyti voru Vestmannaeyjar vart tilbúnar að taka á móti togara enda hafði þar ávallt eingöngu verið öflug bátaútgerð. Sem dæmi má nefna að oft var erfiðleikum bundið að fá landað úr skipinu. Efnahagsþróunin var einnig BergiHugin óhagstæð og olíuverð rauk upp. Jafnvel var rætt um að hætta útgerð togarans en það var hægara sagt en gert; allt hafði verið veðsett upp í topp. Því var þraukað áfram og að því kom að tíðin batnaði og velgengni tók að einkenna starfsemi Bergs-Hugins. Magnús tekur við Kristinn Pálsson var framkvæmdastjóri BergsHugins fyrstu fimm árin en þá tók Magnús sonur hans við stjórn fyrirtækisins. Magnús hafði starfað hjá Bergi-Hugin frá upphafi og var meðal annars í áhöfn Vestmannaeyjar þegar skipið var sótt til Japans á sínum tíma. Árið 1983 færði Bergur-Huginn út kvíarnar og hóf einnig að gera út togskipið Smáey. Festi fyrirtækið kaup á ýmsum bátum sem gerðir voru út tímabundið til hliðar við togarana á næstu árum en samtímis voru mest fimm fiskiskip í eigu Bergs-Hugins. Árið 1987 hélt Vestmannaey til Póllands þar sem gerðar voru miklar endurbætur á skipinu, það lengt og því breytt í frystitogara. Í fang Ísfélagsins Snemma árs 1992 var Bergur-Huginn sameinað Ísfélagi Vestmannaeyja en félagið hafði átt stóran eignarhlut í Ísfélaginu um nokkurra ára skeið. Hraðfrystistöð Vestmannaeyja tók einnig þátt í þessari sameiningu. Sameiningin þótti ekki takast sem skyldi og sleit BergurHuginn sig út úr hinu sameinaða fyrirtæki eftir átta mánuði eða í september 1992. Fór félagið með Vestmannaey VE og Smáey VE út úr samstarfinu.
Emma VE keypt, Kristján Óskarsson, Arnór Páll Valdimarsson og Magnús framkvæmdastjóri.
Guðjón, Eddi Malla, Óli kokkur og Friðrik Már reddari á bryggjuspjalli.
Þegar 25 ár voru liðin frá stofnun Bergs-Hugins var fyrirtækið stöndugt og traust og hafði það skilað hagnaði um árabil. Fyrirtækið var þá að öllu leyti í eigu fjölskyldu Kristins Pálssonar og Magnús Kristinsson framkvæmdastjóri þess. Uppstokkun flotans Bergur-Huginn gerði út frystitogarann Vestmannaey til ársins 2005 en þá var hann seldur. Í stað frystitogarans lét fyrirtækið smíða tvö skip í Póllandi á árunum 2006 og 2007. Skipin voru 29 metra löng togskip, vel búin í alla staði og hentuðu einkar vel til veiða frá Vestmannaeyjum. Skip af þessari gerð hafa oft verið nefnd „þriggja mílna bátar.“ Auk nýju skipanna tveggja gerði Bergur-Huginn einnig út Smáey til ársins 2012. Útgerð nýju Vestmannaeyjar og Bergeyjar gekk vel og voru starfsmennirnir 44 hjá Bergi-Hugin þegar þarna var komið sögu. Fyrirtækið rak ekki landvinnslu og hafði aldrei gert en megnið af afla skipanna var selt á markaði erlendis. 19
Síldarvinnslan kaupir Magnús Kristinsson gerðist með tímanum umfangsmikill á sviði viðskipta. Hann eignaðist til dæmis Toyota-umboðið og fleiri félög. Efnahagshrunið margumtalaða leiddi til mikilla erfiðleika í rekstri hans og varð niðurstaðan sú að hann og fjölskylda hans neyddust til að selja útgerðarfélagið Berg-Hugin. Í septembermánuði 2012 var samningur um kaup Síldarvinnslunnar í Neskaupstað á Bergi-Hugin undirritaður. Lýsti Síldarvinnslan því strax yfir að ekki stæði til að flytja útgerðina frá Vestmannaeyjum heldur væri ætlunin að gera Vestmannaey og Bergey áfram út þaðan. Þegar eigendaskiptin áttu sér stað hafði Bergur-Huginn nýverið fengið úthlutað 5.300 þorskígildistonnum á kvótaárinu sem var nýhafið. Nokkur ólga var í kringum kaup Síldarvinnslunnar á Bergi-Hugin. Samkeppnisstofnun gerði ekki athugasemdir við kaupin en Vestmannaeyjabær kærði þau og krafðist ógildingar. Héraðsdómur féllst á kröfu bæjarfélagsins en Hæstiréttur sýknaði hins vegar Síldarvinnsluna af kröfunni og fékkst þá loks endanleg niðurstaða eftir hátt í þriggja ára málaþref. Magnús Kristinsson hélt áfram að stýra daglegum rekstri Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum, eftir að Síldarvinnslan eignaðist fyrirtækið, allt til ársins 2017 þegar Arnar Richardsson tók við sem rekstrarstjóri.
Eyjólfur og Magnús á upphafsárunum.
Hefur gengið vel Útgerð Vestmannaeyjar og Bergeyjar gekk vel eftir að Síldarvinnslan eignaðist útgerðina og seint á árinu 2017 var greint frá því að Síldarvinnslan hygðist endurnýja skip BergsHugins. Fyrirhugað væri að láta smíða tvö 29 metra löng og 12 metra breið togskip hjá Vard í Noregi. Áhersla yrði lögð á að skipin yrðu búin fullkomnustu tækjum, aðalvélarnar yrðu tvær og skipin þannig knúin með tveimur skrúfum. Þegar þessu nýju skip yrðu fullbúin yrðu eldri skipin seld. Ný Vestmannaey kom til landsins í júlímánuði 2019 og Bergey kom í kjölfarið í októbermánuði. Gamla Vestmannaey, sem reyndar fékk nafnið Smáey um tíma eftir að nýja Vestmannaey var skráð, var seld Þorbirni hf. í Grindavík og gamla Bergey Runólfi hf. í Grundarfirði. Útgerð nýju skipanna hefur gengið vel enda áhafnir þeirra reynslumiklar. Skipin hafa fiskað eins og best verður á kosið en óneitanlega hefur hinn illræmdi kórónavírus haft neikvæð áhrif á fisksölu og þess vegna hægðist verulega á útgerð að sinni.
20
Kristinn Pálsson ungur að árum.
Gengið frá greiðslu á Vestmannaey VE við norsku skipasmíðastöðina. Dag Vilkerstrand, Guðmundur, Gunnþór, Raymond Nerlandsrem og Tommy Visnes Storsveen.
GUNNÞÓR B. INGVASON: FRAMKVÆMDASTJÓRI SÍLDARVINNSLUNNAR
STARFSFÓLKIÐ HEFUR STAÐIÐ MEÐ OKKUR FRÁ UPPHAFI „Þrátt fyrir stormasamar móttökur við komu okkar til Vestmannaeyja hefur ræst vel úr öllu og við eigum gott samstarf við Eyjamenn. Starfsfólk Bergs-Hugins hefur staðið með okkur frá upphafi, einvalalið sem gott er að starfa með. Við höfum ráðist í umfangsmiklar fjárfestingar með endurnýjun skipanna og það reynir á starfsmenn sem koma að slíku verkefni. Þrátt fyrir seinkanir á skipunum og smávægilega byrjunarerfiðleika hafa allir verið staðráðnir í að láta hlutina ganga. Skipin lofa svo sannarlega góðu og bjóða upp á betri vinnuaðstöðu og aðbúnað,“ segir Gunnþór B. Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, um útgerðina í Vestmannaeyjum. „Vissulega hefur ástandið vegna kórónuveirunnar sett svip á sóknarmynstrið í vor
og hefur hægt verulega á veiðum vegna markaðsaðstæðna. En sjávarútvegurinn hefur alla tíð þurft að haga seglum eftir vindi og aðlaga sig breytilegum aðstæðum í náttúrunni og á mörkuðum. Þegar áhöfn er góð og samstaða til staðar sigrast menn á slíkum sveiflum.“ Í upphafi voru höfuðstöðvar Bergs-Hugins á Geirseyri. Þar var skrifstofa fyrirtækisins, veiðarfærahús og vélaverkstæði. Árið 1993 festi fyrirtækið síðan kaup á vöruafgreiðslu Herjólfs á Básaskersbryggju og færði höfuðstöðvar sínar þangað. Starfsmenn fyrirtækisins á seinni árum hafa verið um 40 talsins.
21
TRAUSTIR STARFSMENN BERGUR-HUGINN HEFUR NOTIÐ ÞESS AÐ EIGA TRAUSTA STARFSMENN OG HAFA SUMIR STARFAÐ HJÁ FÉLAGINU UM ÁRATUGA SKEIÐ. HÉR ER RÆTT VIÐ FJÓRA STARFSMENN SEM ALLIR HAFA HELGAÐ BERGI-HUGIN NÁNAST ALLA STARFSÆVINA EÐA DRJÚGAN HLUTA HENNAR. traustur og stabíll mannskapur og mórallinn frábær um borð. Menn hugsa sig um tvisvar áður en þeir sleppa plássi. Ég geri til dæmis ráð fyrir að klára minn feril hjá Bergi-Hugin ef Guð og Síldarvinnslan lofa.
Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey VE Ég kom fyrst til Vestmannaeyja árið 1976 en er Suðurnesjamaður og reyndar hálfur Eskfirðingur, fæddur í Njarðvík 4. júlí 1959. Í Eyjum fór ég í stýrimannanám og lauk þar bæði 1. og 2. stigi. Eftir skólann fór ég á togarann Klakk sem 2. stýrimaður og síðan var ég stýrimaður á Emmu VE og Gjafari VE og reyndar á fleiri bátum. Um 2004 réðst ég sem 2. stýrimaður á Smáey sem gerð var út af Bergi-Hugin og þar hófust bein kynni mín af því fyrirtæki. Ég færði mig síðan yfir á Bergey þegar smíði hennar lauk í Póllandi árið 2007 og var þar stýrimaður með Sigurði Guðbirni Sigurjónssyni. Mér líkaði afskaplega vel hjá Bergi-Hugin og vildi með engu móti fara þaðan. Ég tók síðan við skipstjórninni á Bergey um áramótin 2012-2013 og hef gegnt því starfi síðan, fyrst á pólsku Bergey og síðan á nýju Bergey sem kom til landsins í fyrra. Nýja Bergey er hreint frábært skip sem mér líkar sífellt betur við. Það er varla hægt að hugsa sér betra togskip. Bergur-Huginn hefur alla tíð verið afar traust fyrirtæki. Lengi vel hefði mátt vera meiri kvóti á skipunum en það breyttist þegar Síldarvinnslan keypti útgerðina. Mörgum leist ekkert á blikuna þegar þeir fréttu af kaupum Síldarvinnslunnar en mér þóttu tíðindin spennandi og niðurstaðan hefur verið jákvæð. Ég held að engum sem til þekkir dyljist að það er gott að vera starfsmaður Bergs-Hugins enda staðið þar vel að öllum málum. Á skipunum er 22
Guðmundur Arnar Alfreðsson útgerðarstjóri Ég held ég verði að teljast Eyjamaður fram í fingurgóma. Fæddist 30. apríl 1952 og fékk snemma alvarlega véladellu. Sem strákur var ég á hverju sumri í sveit í Landeyjum en hóf nám í Vélskóla Íslands árið 1969. Tvo fyrstu veturna í skólanum var ég í Eyjum en lauk síðan náminu í Reykjavík. Ég fór fyrst á sjó á vélbátnum Heimi sumarið 1969 en byrjaði síðan sem annar vélstjóri á Bergi og var þar á sumrin til 1972. Ég kláraði 4. stig vélstjóranámsins 1973 og byrjaði þá að vinna hjá Bergi-Hugin; réðst sem vélstjóri á Vestmannaey sem var komin spánný frá Japan. Á Vestmannaey var ég til ársins 1985 með 20 mánaða hléi þegar ég sinnti vélvirkjanámi hjá vélsmiðjunni Magna í Eyjum. Árið 1985 kom Bergur-Huginn upp viðgerðaverkstæði og þá fór ég í land og tók að mér að reka það og sinna útgerðarstjórn. Yfirleitt höfum við unnið tveir á verkstæðinu en vorum þó allt upp í sex þegar bátarnir sem Bergur-Huginn gerði út voru flestir. Ég hef ávallt haft óskaplega gaman að þessari vinnu; hún er fjölbreytt og reynir stundum skemmtilega á mann. Skemmtilegasta tímabilið var þegar hönnun pólsku skipanna, Vestmannaeyjar og Bergeyjar, átti sér stað. Þau voru smíðuð á árunum 2006-2007. Okkur gafst í reynd kostur á að hafa
skipin nákvæmlega eins og við vildum og það var sérstaklega spennandi. Mér hefur ávallt líkað stórvel að starfa hjá Bergi-Hugin og það breyttist ekkert þegar Síldarvinnslan festi kaup á fyrirtækinu. Það er afar gott að vinna með Síldarvinnslumönnum. Stundum er álagið í vinnunni töluvert en til að slappa af svíf ég um loftin blá. Árið 1985 var mér boðið í flug á lítilli kennsluvél og heillaðist. Frá þeim tíma hef ég þjáðst af ólæknandi flugdellu og lauk einkaflugmannsprófi 1986. Árið 2012 smíðaði ég síðan flugvél með kunningja mínum og á henni svíf ég um og nýt mín vel.
sinni í Eyjum og félagið blómstraði með enn meiri kvóta en áður. Á skipum félagsins ríkir góður andi og ég tel að mönnum líði þar afar vel. Plássin eru tekjuhá og útgerð skipanna til fyrirmyndar.
Birgir Þór Sverrisson skipstjóri á Vestmannaey VE
Ríkharður Zoëga Stefánsson kokkur á Bergey VE Ég kom fyrst til Eyja frá Reykjavík 14 ára gamall en er fæddur 3. nóvember 1959. Ég kom síðan aftur þangað 1975, hóf að vinna hjá Ísfélaginu og byrjaði í afleysingum á sjó 1978. Fyrstu kynni mín af Bergi-Hugin voru þegar ég byrjaði að leysa af á elstu Vestmannaey árið 1981. Árið 1983 hóf ég starf sem fastráðinn kokkur á Bergey og var þar í níu ár. Um fjögurra ára skeið eða svo var ég síðan á flakki en árið 1998 réðst ég sem kokkur á Smáey og hef verið samfellt hjá Bergi Hugin síðan. Ég er núna kokkur á nýju Bergey og hef samtals starfað hjá Bergi-Hugin í 33 ár. Það verður bara að teljast nokkuð gott úthald! Engin tilviljun er að ég skuli hafa starfað svona lengi hjá Bergi-Hugin. Þetta hefur alltaf verið 110% fyrirtæki sem hægt er að treysta í hvívetna. Ég hef verið með fjórum skipstjórum á skipum félagsins. Fyrst var ég með Eyjólfi Péturssyni og síðan með Sverri Gunnlaugssyni, Sigurði Guðbirni Sigurjónssyni og Jóni Valgeirssyni. Ég hef verið heppinn því þetta eru allt saman toppmenn. Það er ógleymanlegur dagurinn þegar við fengum fréttina um að búið væri að selja BergHugin. Við á Bergey vorum í aðgerð og heyrðum fréttina í útvarpinu. Þetta var algert sjokk. Menn töldu að með kaupum Síldarvinnslunnar á fyrirtækinu yrði starfsemi þess flutt frá Eyjum. Sjokkið sem menn fengu reyndist vera óþarfasjokk. Bergur-Huginn hélt áfram starfsemi
Ég er Eyjamaður í húð og hár, fæddur 21. september 1961. Ég fékk snemma áhuga á sjónum enda mikið af sjómönnum í kringum mig í uppvextinum. Vorið 1977, þegar ég var 15 ára gamall, byrjaði ég á sjó á togaranum Vestmannaey í eigu Bergs-Hugins. Allan minn sjómannsferil hef ég starfað hjá BergiHugin og ávallt verið á skipum sem bera nafnið Vestmannaey. Einfaldara getur það ekki verið. Ég fór í einhverja túra á öðrum skipum en það var í afleysingum. Ég var snemma ákveðinn í að leggja sjómennskuna fyrir mig og fór í stýrimannanám í Eyjum. Árið 1980 kláraði ég 2. stigið og fljótlega eftir það, líklega á árinu 1983, var ég orðinn stýrimaður á Vestmannaey. Eyjólfur Pétursson, skipstjóri á Vestmannaey, var minn helsti lærifaðir og ekki var hægt að hugsa sér betri kennara. Ég var með honum í 14-15 ár og lærði margt. Fljótlega eftir að Eyjólfur lauk sínum ferli á Vestmannaey tók ég við skipinu, líklega árið 1992. Ég var með skipið allt til ársins 2007 eða þar til pólska Vestmannaey kom til sögunnar. Það skip var alveg frábært og var ég með það allan tímann þar til enn ein ný Vestmannaey leysti það af hólmi í fyrra. Nýjasta Vestmannaey var smíðuð í Noregi og er búin að sanna sig sem frábært skip. Þar svínvirkar allt um borð. Ég hef ávallt verið ánægður hjá Bergi-Hugin. Ég starfaði með Magnúsi Kristinssyni í ein 40 ár og það var afar ánægjulegt. Og ánægjan minnkaði ekki þegar Síldarvinnslan festi kaup á fyrirtækinu. Þá jókst kvótinn og maður kynntist nýju og frábæru fólki. Lítið er um mannabreytingar á skipum BergsHugins. Um borð í þeim ríkir góður andi og á Vestmannaey er sannkallaður hörkumannskapur sem ávallt er hægt að treysta fullkomlega. Annars er það svo að kokkurinn ræður ótrúlega miklu um andann um borð í skipum. Ef menn fá gott að borða eru þeir glaðir! 23
SNORRI ÓSKARSSON Í BETEL:
SJÓMANNADAGURINN VIÐ MINNISVARÐANN Svo langt sem ég man annaðist Einar frændi í Betel minningarathöfn um hrapaða, drukknaða og þá sem farist höfðu í flugslysum. Yfir þeirri athöfn ríkti helgi og samheldni. Allir sem stóðu við minnisvarðann sýndu hluttekningu þegar Einar minntist þeirra sem voru ekki lengur á meðal okkar. Einar fór mjög vel með þessa athöfn og erfitt að sjá sporgöngumann sem jafnaðist á við hann. En tíminn líður og ævi manna tekur enda, svo var líka um Einar. Hann var farinn að glíma við sjúkdóma ellinnar og eðlilegt að hann léti þennan vettvang til annarra. Mér var því mikill vandi á höndum þegar Elli Björns fór þess á leit við mig að ég tæki við af frænda mínum 1993. Þetta var mikil áskorun og ég vissi að ég var enginn ,,Einar”! En Elli var uppörvandi og sagði mér hvernig Sjómannadagsráð hugsaði. Þá var mér mun hughægara að feta í spor frænda. Sjómannadagsráð leit svo á að dagurinn væri fyrir alla, Landakirkja legði sitt af mörkum með helgistund og svo kæmi Betel á eftir með helgistund við minnisvarðann. Þannig yrði helgihaldið til að sameina alla í þessari mikilvægu athöfn. Ég bað Guð um visku og náð svo bæði hann og Vestmannaeyingar gætu sameinast við minnisvarðann með syrgjendum. Mér fannst Guð leggja mér lið með því að minna mig á þennan ritningarstað sem hefur staðið á öllum krönsum sem lagðir hafa verið á minnisvarðann: ,,Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum” (Sálmarnir 46:2). Von mín var sú að við minnisvarðann yrði engin ræðukeppni heldur huggunarorð, smyrsl á sárin og vonarrík framtíð fyrir alla þó menn hafi misst ástvin. Mér hefur verið efst í huga að við minnisvarðann er ekkert veganesti betra en huggunarorð kristninnar, yfirskriftin á sáluhliðinu: ,,Ég lifi og þér munuð lifa”! Ég hef leyft mér að vísa til biblíunnar 24
Óskar Pétur tók þessa mynd af Snorra frænda sínum við minnisvarðann á síðasta ári.
ævinlega og ríma við Hallgrím Pétursson sem og annan fjársjóð sem bendir á hina sáru kvöl en smyrja líka sorgarsárin með huggun og von. Auðvitað mun ég líka hverfa af vettvangi en mín von er samt sú að við minnisvarðann fái orð vonar, huggunar og upprisunnar ævinlega að hljóma uns sá dagur rís er hinir dauðu verða vaktir upp úr gröfum sínum og hafið mun skila til baka þeim er þangað fóru. Sá dagur er upphafsdagur þess tímabils er biblían kallar Þúsund ára ríkið, friðarríki Jesú Krists. Þar fær hvorki dauðinn né freistarinn frjálsar hendur. Dauðinn mun ekki ráða yfir Jesú Kristi og ekki heldur ríki hans.
Sendum sjómönnum, starfsfólki og Eyjamönnum bestu kveðjur og árnaðaróskir
25
Heima á Höfðabóli: Árni með gestum í skötuveislunni. Héðinn Karl, Heiðveig, Árni, Óðinn, Rikki og Gísli.
SKÖTUVEISLA HJÁ ÁRNA OG DÓRU Á HÖFÐABÓLI ER ÆVINLEGA HÁPUNKTUR SJÓMANNADAGSINS SJÓMANNADAGURINN ER TEKINN SNEMMA HJÁ RÍKHARÐI STEFÁNSSYNI ZOËGA MATSVEINI Á BERGEY VE „Dagurinn byrjar klukkan hálf níu með því að taka niður fánana við Höllina eftir laugardagshátíðina. Næst er farið niður að kirkju og flaggað íslenska fánanum og fána Sjómannadagsráðs,“ segir Rikki sem stendur í stafni í þessu starfi. Í ár verður breyting á vegna smitvarna í kjölfar Covid 19 veirunnar sem herjar á heimsbyggðina. Engin hátíðarhöld og því gaman að kíkja á hvað þeir hafast að, Rikki og hinir í Sjómannadagsráði, þar sem skemmtun og störf eru í nokkuð föstum skorðum. Hefðir hafa skapast hjá ráðinu og ein þeirra er skötuveisla hjá heiðurshjónunum Árna Johnsen og Halldóru Filippusdóttur á Höfðabóli. Þangað mætir Sjómannadagsráð og gestir og Rikki sér að mestu um eldamennskuna. „Ég fæ að elda í Hraunbúðum og þangað er ég mættur með skötuna, saltfisk, rófur og kartöflur 26
klukkan níu. Fer svo með kræsingarnar upp í Höfðaból til Árna og Dóru sem sjá um hamsatólg og rúgbrauð. Dóra eldar bláberjasúpu sem er fastur liður í skötuveislunni og borin fram með rjóma. Þetta er hefð hjá ráðinu og hefur að ég held verið fastur liður í að minnsta kosti 25 ár.“ Mikill matur og spjall Þarna koma saman Sjómannadagsráð, prestar Landakirkju með mökum og fleiri gestir. Sá sem þetta ritar var í veislunni í fyrra og fannst gaman. Matur vel úti látinn og mikið spjall undir borðum. Og ekki skemmir umgjörðin sem glæsilegt heimili þeirra hjóna á Höfðabóli skapar. „Ekkert vandamál að komast þarna upp eftir, svo margir eru edrú í þessu Sjómannadagsráði!“ segir Rikki hlæjandi. „Þetta tekur um klukkutíma og svo er bara að vaska upp og skila áhöldunum.“
FAGKEPPNI MEISTARAFÉLAGS KJÖTIÐNAÐARMANNA MARS 2020
KJÖTMEISTARI
ÍSLANDS 22 BJARKI FREYR SIGURJÓNSSON
Bjarki Freyr var stigahæstur allra í fagkeppninni og því réttnefndur Kjötmeistari Íslands. Fast á hæla honum kom svo annar kjötiðnaðarmaður BES
TA
2020
MAT AR P
YL S
frá SS, Steinar Þórarinsson en kjötiðnaðarmenn SS stóðu sig afburða vel í keppninni í ár eins og svo oft áður. Besta matarpylsan 2020 að mati MFK og almennings var: Ostapylsa frá Sláturfélagi Suðurlands.
AN
Fleiri verðlaun féllu fagmönnum Sláturfélagsins í skaut og eru þau talin upp hér fyrir neðan: Besta varan úr svínakjöti: Rauðvínssalamí Benedikt Benediktsson, SS — Besta varan úr folalda- og hrossakjöti: Fjalla-Cayen-grafið hrossafillé og besta varan úr nautakjöti sem og í flokknum sælkeravörur: Grafið nautafillé með lakkrískeim. Jónas Pálmar Björnsson, SS
Lambaorðan, besta varan úr lambakjöti: Tindfjallahangikjet Oddur Árnason, SS — Besta varan í elduðum kjötvörum: Sviðasulta Steinar Þórarinsson, SS — Besta varan í flokknum soðnar pylsur: Piparostapylsur með sveppum Jón Sigurðsson, SS
Við hjá SS óskum okkar metnaðarfullu fagmönnum hjartanlega til hamingju með árangurinn og vonum að hann verði enn fleirum hvatning til að gera vel í greininni.
27
Bjór hjá Baldri Braga Saddir og glaðir halda menn til Baldurs Braga þar sem boðið er upp á kaffi og spjall og eitthvað sterkara fyrir þá sem það vilja. „Þaðan er haldið til kirkju, í sjómannamessu til að hlýða á Guðsorð sem gerir okkur að betri mönnum. Að messu lokinni stýrir Snorri Óskarsson minningarathöfn við minnisvarðann um hrapaða og drukknaða. Flest undanfarin ár höfum við getað fagnað því að enginn sjómaður hefur farist við störf sín. Það er alltaf mikið fagnaðarefni.“ Lagið tekið hjá Bjössa Hún er ekki löng leiðin í næstu veislu, yfir Skólaveginn að húsi númer 47 þar sem Björn Jóhann Guðjohnsen vélstjóri ræður ríkjum. „Þetta er líka orðin hefð hjá okkur eftir messu, að kíkja til Bjössa í öllara fyrir þá sem það vilja og taka lagið. Bjössi kann ýmislegt fyrir sér í tónlistinni og ekki skemmir fyrir þegar Leó Snær mætir með gítarinn og byrjar að syngja eins og engill, drengurinn sá. Bjössi hefur gert þetta í ein 15 ár og við tökum með okkur gesti, til dæmis varðskipsmenn sem hafa heiðrað okkur með nærveru sinni á Sjómannadaginn. Þeir hafa ekki slegið af í söngnum. Hátíðleg stund og við höfum mætt allt upp í 25 manns.“ Þá taka við hátíðarhöldin á Stakkó sem Snorri Óskars stýrir en karlarnir í Sjómannadagsráðinu eru á kantinum og sjá um að allt gangi snurðulaust fyrir sig. „Svo er það kaffið hjá Eykyndilskonum, þeim dásamlegu konum með sitt frábæra kaffi og einstaka bakkelsi. Við erum yfirleitt síðastir í kaffið en það er alltaf nóg til þannig að við borðum okkur sadda eftir snúninga og veislur dagsins.“ Lofar miklu fjöri á næsta ári „Klukkan fimm mætum við á Stakkó til að taka niður fánana. Heim í bað og út að borða um kvöldið. Svo er koja klukkan ellefu til hálf tólf. Sumir fara á sjó daginn eftir en sjálfur tek ég mér frí til að ganga frá og gera upp.“ Umfang Sjómannadagsins hefur vaxið með hverju árinu og sífellt meira er í boði, ekki síst fyrir yngri kynslóðina, síðast fjarstýrðir bátar í stórri laug sem vakti mikla athygli. „Núna erum við með fullan gám af leikföngum frá Kína sem áttu að gleðja krakkana á Sjómannadeginum í ár. Það verður að bíða en við mætum öflugir að ári, flöggum öllum og þá verður mikið stuð,“ segir Rikki og viðurkennir að allt kosti þetta mikla vinnu, ekki síst undirbúningur í marga mánuði.
„Þetta tekur á þegar maður er kominn á sjötugsaldurinn en yngri menn eru að koma inn í ráðið, sem lofa góðu og Sjómannadagurinn í Vestmannaeyjum er því enn á uppleið,“ sagði Rikki. Hann var auðvitað á sjó þegar viðtalið var tekið.
Þarna er Bjössi kominn með gítarinn.
Heiðveig mætt í gleðskapinn hjá Baldri.
Á Höfðabóli: Skatan rann ljúft niður.
28
Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins
NAVÍS
Hús Sjávarklasans sími: 544 2450
Grandagarði 16 navis@navis.is
101 Reykjavík www.navis.is
Hágæða vörur fyrir sjávarútveginn og iðnaðinn í yfir 30 ár
HNÍFALOKAR · RENNILOKAR · SPJALDLOKAR · KEILULOKAR · SÍÐULOKAR BOTNLOKAR · EINSTEFNULOKAR · KÚLULOKAR · SÍUR · RENNSLISMÆLAR
Metnaður og þjónusta í þína þágu LAMBHAGAVEGI 5 · 113 REYKJAVÍK · SÍMI 516-2600 · vorukaup@vorukaup.is · www.vorukaup.is 29
KVIKA
..................................................
SJÓMANNADAGURINN Á SÍNUM STAÐ Á ALMANAKINU Ástandið sem við siglum gegnum núna er mjög sérstakt svo ekki sé meira sagt. Covid 19 setur svip sinn á allt samfélagið. Þar eru sjómenn ekki undanskyldir. Þeir hófu mjög snemma, í samstarfi við útgerðir sínar, aðgerðir til að stemma stigu við smithættu um boð í íslenska fiskiskipastólnum. Þær aðgerðir tókust vonum framar og það ber að þakka. Aðgerðirnar fólust í almennri smitgát og ekki síst því að sjómenn tóku mjög alvarlega að umgangast ekki fleiri en brýnustu nauðsyn bar til. Til dæmis fóru áhafnir ekki frá borði meðan landað var ef viðkomandi áttu að fara næsta túr. Einnig tóku fjölskyldur sjómanna fullan þátt í þessum aðgerðum og héldu sig í sjálfskipaðri sóttkví. Þessar aðgerðir hafa skilað því meðal annars að flotinn hefur með örfáum undantekningum verið á sjó. Heilu áhafnirnar eru skimaðar áður en haldið er til hafs. Heilt yfir hefur mjög vel tekist til með smitvarnir hjá íslenskum sjómönnum. Sjómenn sætta sig við skert lífsgæði til að bera björg í bú og halda flotanum gangandi. Stórt hrós fá þeir frá mér fyrir það. Sölumálin áhyggjuefni Sölumál íslenskra sjávarafurða eru áhyggjuefni og fiskverð til sjómanna hefur lækkað mikið. Birgðasöfnun er mikil þó eitthvað sé að rofa til. Þó hefur gengissig og lækkun olíuverðs vegið nokkuð á móti. Þegar þetta er ritað hefur gengið fallið um rúm 20% á fjórum mánuðum. Skiptaprósenta hefur hækkað almennt úr 70,5% í 75,5% í viðskiptum tengdra aðila vegna lækkunar olíuverðs. Þegar síðasti samningur var samþykktur í febrúar 2017 var skiptaprósentan hækkuð um hálft prósentustig úr 70% í 70,5%. Nú bregður svo við að í byrjun maí tilkynnir SFS einhliða að þetta hálfa prósent sé fallið úr gildi. Rökin eru þau að þetta hafi aðeins gildi þar til samningur rennur út, sem hann gerði 1. desember 2019. Vinnu við bókanir í samningnum sé ekki lokið og þannig falli þetta um sjálft sig. Því er til að svara að ekki stóð á okkur í bókanavinnunni. Við settum fram tillögur í veikindaréttinum, hvernig aðferðafræðin við að skipta úr 100% ætti að vera, meðfram því að setja fram tillögur um nýja mælieiningu fyrir fiskiskip. Fara úr brúttórúmlestamælingu í metra. Settum 30
mikla vinnu í þessi atriði og skiluðum af okkur. SFS sá hins vegar ekki ástæðu til að halda þessari vinnu áfram þrátt fyrir fögur fyrirheit. Segja svo í ofanálag að þar sem samningurinn sé runninn út eigi þetta ákvæði um hálfa prósentið að renna út líka. Klárt samningsbrot Hefð er fyrir því í íslenskum vinnurétti að ef ekki hefur samist þegar samningur rennur út gildi samningurinn þar til nýr er gerður. Við munum því ekki láta svona tilskipanir yfir okkur ganga, teljum þetta klárt kjarasamningsbrot og hvetjum félögin til að sekta útgerðir sem verða vísar að því að lækka skiptaprósentuna í viðskiptum tengdra aðila. Einnig er hafinn undirbúningur að því að skjóta málinu til Félagsdóms. Svo má vel vera að sjómannafélögin sendi sínar tilskipanir, til dæmis að vinna við yfirísun verði bönnuð ef afli er seldur fyrirfram. Ef kaupin á Eyrinni eiga að fara svona fram erum við tilbúnir í slaginn. Þetta eru nú þakkirnar sem viðsemjendur okkar færa ykkur, sjómenn góðir, á þessum tímum þegar allir verða að leggjast á eitt til að bjarga því sem bjargað verður. Það er ekki eins og íslensk útgerð þurfi ríkisaðstoð, hvað þá að lækka laun sjómanna til að komast af! Sjómannadagurinn er nú samt á sínum stað á almanakinu. Sjómenn og fjölskyldur þeirra um allt land fagna honum auðvitað núna sem endranær, þó með öðrum hætti verði. Stórar samkomur verða ekki leyfðar en auðvitað hittast menn og konur og taka það óklárt. Áhafnir verða saman að skemmta sér og á einhverjum stöðum verður kappróður og fleiri skemmtiatriði. Þá stendur til að heiðra aldnar sjókempur nú sem áður. Sjómenn, fjölskyldur þeirra, útgerðarmenn og landsmenn allir: innilegar óskir um gleðilegan Sjómannadag. Megi Guð og gæfan fylgja okkur öllum á víðsjárverðum tímum. Kær kveðja, Valmundur Valmundsson, formaður SSÍ.
SJÓMENN, TIL HAMINGJU! Saga TM er samofin sögu sjávarútvegs á Íslandi. Við erum stolt af því að hafa komið að uppbyggingu og viðhaldi öflugrar útgerðar við Ísland frá stofnun fyrirtækisins. Til hamingju með daginn sjómenn, njótið hans.
31
Björn og Árni útskrifuðust með faramanninn í vor og eru hér á fullu í náminu í brúnni á Ísleifi.
VILBERGUR MAGNI ÓSKARSSON FAGSTJÓRI Í SKIPSTJÓRNARNÁMI
MEIRI TÆKNI LÉTTIR SKIPSTJÓRN OG EYKUR ÖRYGGI SKIPA Að létta skipstjórnarmanninum lífið og auka um leið öryggi við siglingar. Fyrst kemur upp í hugann sú mikla tæknivæðing sem á sér stað, fjórða iðnbyltingin. – Hver er munurinn á brú á skipi nú og fyrir 15 árum? „Þar hefur margt breyst og brú skipa verður sífellt tölvuvæddari. GPS tækin eru vart sjáanleg lengur, þau eru innbyggð og þeim er stjórnað í gegnum siglingatölvuna. Sama er með AIS tækið, það þarf ekki sérskjá og takkaborð. Ratsjáin hefur líka þróast mikið. Stóri hlunkurinn í brúnni er ekki lengur til staðar, heldur sérðu aðeins tölvuskjá og lyklaborð,“ segir Vilbergur Magni Óskarsson, fagstjóri í skipstjórnarnámi við Skipstjórnarskólann í Reykjavík, um breytingar og þróun siglingatækja síðustu fimmtán árin eða svo. „Ef við horfum til þess hvaða tækni hefur auðveldað starf skipstjórnarmannsins mest 32
tel ég það vera rafræn sjókort. Staðsetning skipsins er alltaf á skjánum í rauntíma. Áður varð að setja út í kort eftir kompásmiðunum, ratsjá, GPS eða öðrum tækjum til staðarákvarðana en nú birtist staðsetning skipsins í rauntíma á rafeindakortinu. Í mínum huga er þetta ein mesta breytingin.“ Léttir stjórn og veiðar Vilbergur Magni víkur næst að AIS (Automatic Identificion System) sjálfvirku auðkenningarkerfi skipa. „Þar sérðu hvaða skip eru í nágrenni við þig, stefnu þeirra og hraða sem eykur öryggi við siglingar. Áður þurfti að „plotta“ skipin á ratsjá. Rafeindakortið og ratsjáin eru jafnvel sambyggð, svokallað „Dual Display“, þar sem hægt er að vera með ratsjármynd á rafeindakortinu og fá líka upplýsingar frá AIS á skjáinn. Allt er þetta til þess að létta skipstjórnar-
manninum lífið og auka um leið öryggi við siglingar. Síðan hefur komið til tækni sem auðveldar sjálfan veiðiskapinn. Nemar og skynjarar eru settir á veiðarfæri, aðallega botnog flotvörpur, og sýna hvernig veiðarfærið liggur í sjó, opnun, bil milli toghlera, hvort og hve mikill fiskur kemur i veiðarfærið og fleira.“ Gervigreind kemur væntanlega við sögu Vilbergur Magni segir alveg hægt að sjá fyrir sér að gervigreindin komi við sögu til sjós líkt og annars staðar. „Til dæmis má hugsa sér að í skipi á kolmunnaveiðum verði fiskileitartæki (svo sem fjölgeislasónar), nemar vörpunnar, spilkerfið og stjórnun á skipinu tengist saman og gervigreindartölva stjórni ferð skipsins á veiðum (toginu), ákveði hve djúpt varpan er í sjó og þar fram eftir götum. Skipstjórinn ákveði veiðisvæði en tölvubúnaður sjái nánast um rest. Siglingin frá höfn á miðin og heim aftur getur verið nánast sjálfvirk. Skipstjórinn setur ákvörðunarstað í siglingatölvuna sem velur þá siglingaleiðina og þetta er síðan tengt sjálfstýringunni. Eftir sem áður er að sjálfsögðu fylgst með siglingunni en í framtíðinni getur gervigreindin séð um þann þátt líka.“ Mannlaus skip „Verið er að þróa skip sem sigla mannlaus
milli staða eftir fyrirfram ákveðnum leiðum en er síðan fjarstýrt þegar komið er að höfnum. Sjávarklasinn í Noregi, undir forystu Kongsberg, hefur fengið styrk frá Evrópusambandinu til að þróa mannlaus skip, fyrst og fremst til áætlunarsiglinga. Líklega er lengra í að fiskiskip verði mannlaus en gervigreindin getur hins vegar létt mönnum þar störfin um borð. Ekki er til dæmis ólíklegt að innan fárra ára verði millidekkið nánast mannlaust. Starf skipstjórnarmannsins verður þannig sífellt tölvuvæddara og ljóst að laga þarf menntun skipstjórnamanna að því. Skipstjórnarskólinn hefur náð að halda þokkalega í við tæknina hvað varðar búnað til siglinga en ekki eins varðandi tækniframfarir og þróun í fiskileitartækjum. Hins vegar er skólinn í góðu samstarfi við seljendur þessa búnaðar og þeir eru óþreytandi að kynna nemendum nýjungar á markaði hverju sinni.“ Margt er breytt og breytist stöðugt „Skólinn er í eðli sínu frekar íhaldssöm stofnum og fylgir námskrá sem uppfyllir alþjóðlegar kröfur til náms og því er ekki mikið svigrúm til að gera stórar breytingar í náminu aðrar en þær tengist þessum alþjóðakröfum. Starf skipstjórnamanna breytist stöðugt og víst er að gervigreind tengist mjög þeirri þróun til framtíðar.“
SKIPSTJÓRNARNÁMIÐ LOKKAR ENN OG LAÐAR Mikil breyting hefur orðið á skipstjórnarnámi á síðustu árum og fylgir þróunin aukinni tæknivæðingu og sjálfvirkni. Aðeins er boðið upp á nám í Skipstjórnarskólanum sem er hluti af Tækniskóla Íslands. Skipstjórnarnámið skiptist í réttindastig sem hvert um sig veitir réttindi til starfa um borð í skipum af mismunandi stærð og gerð. Námið er bæði verklegt og bóklegt. Verknámið fer fram í Sjómannaskólanum en bóknámið er bæði hægt að taka í dagskóla og sem dreifnám með vinnu og í fjarnámi. Það er leið þriggja Eyjamanna sem stunda nám við skólann.
Til að kynna sér skólann og það sem hann hefur upp á að bjóða var rætt við Vilberg Magna Óskarsson, fagstjóra í skipstjórnanámi, og Eyjamennina Jóhann Brimi Benónýsson, Árna Gunnarsson og Björn Stefán Arnarson. „Skipstjórnarnámið er fjölþætt og hagnýtt, bæði bóklegt og verklegt. Nemendur öðlast færni til að stjórna skipum og mannskap, vinna sjálfstætt og bera þá ábyrgð sem starfinu fylgir,“ segir á heimasíðu skólans. Í skipstjórn voru nú um 120 nemendur á vorönn.
33
ÁRNI GUNNARSSON OG BJÖRN FRIÐRIK ARNARSSON:
MEÐ FARMANNINN GETURÐU FENGIÐ VINNU UM ALLAN HEIM
Árni og Björn stoltir með húfuna.
Þeir eru saman á bát, hafa verið að miklu leyti samferða í skipstjórnarnámi og útskrifast saman á þessu vori. Báðir með farmanninn. Árni Gunnarsson er 43 ára og Björn Stefán Arnarson 27 ára. Árni byrjaði á sjó í desember 1993 og Björn 2010. Þeir eru í fjarnámi sem hefur gengið vel og ánægðir með þjónustu skipstjórnardeildarinnar. „Ég byrjaði á sjó í desember 1993, frá Siglufirði meira að segja,“ segir Árni og vísar til þess að Björn bjó á Siglufirði áður en fjölskyldan flutti til Eyja. Faðir Árna var Gunnar Jónsson útgerðarmaður og skipstjóri á Ísleifi VE til margra ára. Nýr Ísleifur er í eigu Vinnslustöðvarinnar þar sem þeir félagar eru báðir. „Já, maður var bara dreginn á sjóinn,“ segir Árni og hlær. Bætir við að hann hafi komið við á fleiri bátum en Ísleifi og ekki alltaf verið á sjó. „Ég var sjö eða átta ár á Kap VE og á hinum og þessum bátum. Var í skóla þess á milli, tók stúdentinn og 2. stig vélstjórnar, svo maður hefur skemmt sér!“ Fjarnám og lotur Árni venti kvæði sínu í kross og hóf skipstjórnarnám vorið 2016. „Allt í fjarnámi fyrir utan lotur í Reykjavík. Lærði á siglingatæki, fjarskipti og fór í siglingahermi. 34
Mér hefur líkað námið mjög vel og það er skemmtilegt að mörgu leyti. Við Björn höfum að stórum hluta unnið þetta saman. Byrjuðum um leið og útskrifumst saman núna 29. maí. Það er eiginlega nauðsynlegt í fjarnámi að vera tveir eða þrír samferða til að fá annað slagið spark í rassinn.“ Þeir eru sammála um að það sé spennandi að takast á við skipstjórnarnámið nú þegar miklar breytingar eru og tækniframfarir. „Það er alltaf þróun í þessu. Þegar ég byrjaði var bara siglt eftir radar en í dag er þetta allt orðið betra en um leið öruggara. Vegmælirinn liðin tíð og nú þarf varla að líta út um gluggann, horft er á tölvuskjái þar sem allt kemur fram,“ segir Árni. Fínn skóli og góðir kennarar Björn byrjaði á Sighvati Bjarnasyni VE en hafði áður verið tvö ár í vélstjórnarnámi. „Mér líkaði strax vel á sjónum og hef allan tímann verið á skipum hjá Vinnslustöðinni og á Ísleifi frá 2015. Námið gekk vel og sárasjaldan sem þurfti að taka sér frí til að mæta í lotur. Námið er fínt og skólinn sömuleiðis, góðir kennarar hjálpa okkur í gegnum þetta og gera lífið einfalt,“ segir Björn. „Covid 19 hafði engin áhrif á okkur. Þar komum við sterkir inn því engin breyting varð hjá okkur.
35
Við héldum okkar striki,“ skaut Árni inn í. „Við héldum bara áfram að horfa á fyrirlestrana,“ segir Björn. Gott að geta sett á pásu Þeir ná í fyrirlestra og önnur gögn á vef hjá skólanum. „Þar er þetta sett skipulega upp og hægt að ná í allt sem okkur vantar þegar hentar. Það er líka gott að geta sett á pásu og bakkað, sem er mikill kostur,“ segir Árni. „Netsamband er ekki alltaf nógu gott úti á sjó og þá er annað hvort hægt að ná í fyrirlestrana sem maður missir af eða hlaða þeim niður áður en maður fer út. Þetta hefur sína kosti og galla. Auðvitað er gott að vera í tímum og geta spurt og fengið svörin um leið,“ segir Björn. Hafa staðist áætlun Þeir segja að auðvitað kalli þetta á aga þó þeir hafi kannski ekki verið þeir öguðustu í hópnum. „Þó alveg þokkalegir og við höfum fengið góðar einkunnir og skilað öllu okkar,“ segir Björn. „Þetta nám er eins og annað nám, þú þarft að vinna. Annars dregstu aftur úr,“ segir Árni. Þeir segjast hafa náð að halda upphaflegu plani, að ljúka náminu á fjórum árum en tekið mismörg fög á önn. „Það hefur farið alveg niður í tvö fög en núna tók ég sex sem er það mesta hjá mér,“ segir Árni. „Ég tók sjö á lokaönninni. Það var ekki endilega planið að taka farmanninn en ágætt að klára hann fyrst maður var byrjaður á þessu. Þú þarft ekki bæta við þig nema einni önn til þess,“ segir Björn. Safna siglingatíma Hvað með atvinnumöguleika? „Þeir eru mjög miklir og með farmanninn geturðu fengið vinnu um allan heim. Á gámaskipum, farþegaskipum og skemmtiferðaskipum og það eina sem við þurfum að gera er að safna siglingatíma sem stýrimenn,“ segir Björn. „Maður hoppar ekki beint inn í að verða fyrsti stýrimaður eða skipstjóri. Það væri gaman að taka einn Evróputúr með íslensku fraktskipi til að kynnast þessu,“ segir Árni. „Kynnast þannig annarri sjómennsku. Það er alveg hægt að vera á sjó án þess að veiða fisk,“ segir Björn og bætir við: „Það þarf ekki annað en að líta inn á vefinn Marinetaffic til að sjá alla þá báta og skip sem eru á sjó hverju sinni.“ Þegar rætt var við þá voru þeir að koma úr fyrsta túrnum á kolmunna á Ísleifi og sögðu að þar hefði gengið þokkalega. Árni var á leið í frí en Björn tók annan túr.
36
JÓHANN BRIMAR BENÓNÝSSON KOMINN AF AFLAMÖNNUM
ÁKVAÐ AÐ DUDDAST Í ÞVÍ AÐ NÁ MÉR Í MEIRI RÉTTINDI
Stefnan er að klára í maí 2021 og þá verð ég kominn með ótakmörkuð réttindi
Jóhann Brimir Benónýsson er einn þriggja Eyjamanna sem stunda skipstjórnarnám við Tækniskólann og líkar vel. Hann hefur lengi verið til sjós, tók snemma tvö ár í Stýrimannaskólanum og hefur réttindi á öll fiskiskip. Nú er hann á Herjólfi, kann þar vel við sig og stefnir á ljúka þriðja stiginu og þar með farmanninum á næsta ári. Jóhann er háseti á Herjólfi og leysir af sem annar stýrimaður. Hann er kominn af sjósóknurum langt aftur í ættir. „Afi minn var Binni í Gröf, sem gerði garðinn frægan á Gullborgu VE, mikill fiskimaður og margfaldur aflakóngur,“ segir Jóhann sem kynntist sjómennsku á þessu flaggskipi ættarinnar þegar faðir hans, Benóný Benónýsson, og bróðir hans, Friðrik Benónýsson, tóku við útgerðinni. „Ég byrjaði á sjó 1983, þá 15 ára á Gullborgu með pabba og Frissa. Fór í Stýrimannaskólann og kláraði annað stigið 1991. Síðan hef ég verið á þessum fiskibátum bæði sem stýrimaður og skipstjóri eins og gengur. Fór svo á Herjólf þegar Herjólfur ohf. tók við rekstrinum fyrir ári síðan. Er að leysa af sem annar stýrimaður en vantaði réttindi til að komast hærra. Því ákvað ég að duddast í því að ná mér í meiri réttindi.“
Tek þetta í rólegheitum Niðurstaðan var sú að Jóhann ákvað að taka námið á tveimur árum, fjórum önnum, og taka þrjú fög á önn. Allt í fjarnámi. „Hefði getað tekið þetta á styttri tíma en maður er farinn að eldast og hausinn að þyngjast. Tek þetta því í rólegheitum og námið er akkúrat hálfnað núna. Ég fékk líka metið að hafa verið allan þennan tíma á sjó.“ Jóhann segir að helmingurinn sem eftir er sé meira verklegt. „Þá ver farið í tæki og siglingahermi sem er mjög flottur.“ Hann segir mikinn mun á námi í dag og fyrir 30 árum þegar hann kláraði Stýrimannaskólann. „Nú er allt komið í tölvur og þeim sem eru klárir á tölvurnar gengur vel að læra. Það tók smá tíma að venjast þessu en maður er búinn að læra mikið. Öll tæki eru líka orðin flottari, sjókortin kominn í tölvur og AIS kerfið þar sem sjást öll skip í tölvunni. Það er mikill munur og líka að hafa sjókort í tölvum. Á fiskiskipum eru allar bleiður settar inn í tölvu, öll hraun og annað sem þarf að varast kemur fram á tölvuskjám.“
Mikil breyting Þetta er mikið breytt frá gömlu Gullborginni? „Já, þá voru plotterar, radar og dýptarmælir, annað ekki. Breytingin er því mikil.“ Jóhann tekur námið utan skóla, að mestu á Netinu. „Það verklega er tekið í nokkrum lotum um helgar. Mjög gaman og maður er bara auli að hafa ekki gert þetta fyrr. Maður hefði þess vegna getað mjatlað inn einu og einu fagi. Alltaf gott að vera með full réttindi. Reyndar er maður kominn á sextugsaldur en það er aldrei of seint.“ Ertu ánægður með þá þjónustu sem skólinn veitir? „Já. Mjög svo. Við höfum aðgang að námsráðgjafa, getum hringt í skólastjórann eða kennarana ef eitthvað er eða sent póst. Skólastjórinn setti upp áætlum um hvernig best væri að taka þetta. Það hefur gengið eftir en maður er alltaf mjög ragur í upphafi. Svo kemur á daginn að þetta er ekkert flókið en auðvitað verður að sinna náminu. Stefnan er að klára í maí 2021 og þá verð ég kominn með ótakmörkuð réttindi.“
SJÓMANNABJÓRINN 2020 KYNNTUR FIMMTUDAGINN 4. JÚNÍ KL 18:00 OPNUNARTÍMI MIÐ, FIM 16:00 - 23:00 FÖS, LAU 14:00 - 23:00 Til lukku með hátíðina ykkar kæru sjómenn & fjölskyldur!
Lilja Björg t.h. sem stýrði viðbragðsteyminu og Andrea sem einnig kom að framkvæmdinni.
ÁRANGURSRÍK COVID-GLÍMA VSV TIL SJÓS OG LANDS „Strax og fyrsta smit greindist á Íslandi var gengið í að gera ítarlega viðbragðsáætlun til sjós og lands í fyrirtækinu og undirbúa ráðstafanir sem fljótlega reyndi mjög á. Snögg viðbrögð, góður undirbúningur, stóraukin upplýsingamiðlun inn á við, ríkur samstarfsvilji starfsfólks og stöðug hvatning til okkar allra um að þvo hendur og sprittbera, halda fjarlægð við aðra í verslunum og gæta sín í hvívetna alls staðar. Allt þetta skilaði þeim árangri að hvorki greindust kórónasmit í skipum okkar né í landvinnslunni,“ segir Lilja Björg Arngrímsdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og lögfræðisviðs Vinnslustöðvarinnar. Hún stýrði viðbragðsteymi sem sett var á laggir í VSV vegna COVID 19.
aðgerðastjórn almannavarna í Eyjum um hvað gera bæri. Sem betur fer kom í ljós kom að skipverjinn hafði fengið venjulega flensu en verklagið og viðbrögðin um borð voru fumlaus og óaðfinnanleg.“
„Skipstjórar og áhafnir fengu leiðbeiningar og sérstaka sóttvarnakassa með sér um borð með grímum, göllum, hönskum og sótthreinsiefnum til þess meðal annars að búa sig undir að menn veiktust af veirunni á sjó. Skipverji á Kap II veiktist í veiðiferð og skipstjórinn fékk leiðbeiningar frá Landhelgisgæslunni og
Sjómenn VSV voru og eru hvattir til þess að fara ekki á sjó ef þeir finna fyrir slappleika eða flensueinkennum heldur láta skima eftir smiti hjá sér og halda sig heima á meðan beðið er niðurstöðu greiningar sýna.
38
Þá skal nefnt að í faraldrinum var togaranum Breka siglt tvívegis í land með skipverja sem kallaðir voru í sóttkví, reyndar kom sá sami þar við sögu í bæði skiptin og í síðara skiptið tveir í viðbót í áhöfninni. Þremennirnir tengjast fjölskylduböndum. Þessi mál vörðuðu rakningu vegna fyrstu veirusmitanna sem greindust í Eyjum en niðurstöður skimunar hjá öllum þremur sjómönnum á Breka reyndust neikvæðar.
Varúð alltaf og alls staðar „Við skiptum landvinnslufólkinu í hópa í samræmi við fyrirmæli sóttvarnayfirvalda og hvöttum linnulaust til hreinlætis og aðgætni í samskiptum á vinnustaðnum og enn frekar utan vinnu. Við tókum enga áhættu og einn hópur var til að mynda sendur í skimun ásamt verkstjóra sínum þegar grunur lék á smiti en það reyndist ekki svo,“ segir Andrea Atladóttir, fjármálastjóri VSV.
„Við skynjum og heyrum að erlendir starfsmenn séu nú mjög við hugann á heimaslóðum sínum, eðlilega. Sumir vilja komast sem fyrst út til að hitta ættingjana vegna ástandsins. Portúgalskur starfsmaður Hafnareyrar, dótturfélags VSV, missti til dæmis föður sinn af völdum veirunnar og við finnum mjög til með honum að ganga í gegnum sorgarferli fjarri sínum nánustu. Þannig verðum við áþreifanlega vör við hve hættuleg og skæð COVID-veiran raunverulega er.“
„Við ákváðum strax í upphafi að láta vita af því að starfsmenn, sem teldu sig vera í áhættu vegna aldurs, sjúkdóma eða af öðrum ástæðum, gætu verið heima og haldið launum. Um 20 manns gáfu sig fram en fljótlega birtust þeir fyrstu á ný á vinnustaðnum og allir innan eins mánaðar. Þannig sýndi sig að fólkið hafði fulla trú á sóttvarnaráðstöfunum okkar og lýsti stuðningi við þær í raun með því að koma aftur til starfa. Við sögðum stundum okkar á milli í gríni, en samt í talsvert mikilli alvöru, að Vinnslustöðin væri öruggasti staðurinn til að vera á og verjast veirunni!“
Birgðir til af jólamat Portúgala! Sjálf starfsemi Vinnslustöðvarinnar raskaðist í sjálfu sér minna í faraldrinum en hefði mátt ætla. Starfshlutfall starfsfólks skertist hvergi í fyrirtækinu og hlutabótaleið ríkisstjórnarinnar kom aldrei við sögu, svo það sé nú sagt.
Erlent verkafólk skelkað í fyrstu Upplýsingamiðlun vegna COVID var styrkt verulega í VSV og það sýndi sig strax hafa góð áhrif. Erlent verkafólk vissi fyrst í stað meira um áhrif kórónafaraldursins í heimalandi sínu en á Íslandi. Skilaboðin að utan voru á köflum misvísandi og fólk bar ugg í brjósti. Arnar G. Hjaltalín, formaður og framkvæmdastjóri Drífanda stéttarfélags, varð var við þetta. „Nokkrir erlendir starfsmenn Vinnslustöðvarinnar höfðu samband og voru skelkaðir. Til dæmis spurðist út að í Póllandi væru ófrískar konur í sérstökum áhættuhópi vegna COVID og sú ályktun var ranglega dregin að sama gilti á Íslandi. Ég talaði við fólkið og svaraði spurningum um ýmislegt sem það vildi vita. Vinnslustöðvarfólk fór svo strax að birta daglegar fréttir á ensku og á skömmum tíma róuðust þeir sem órólegir höfðu verið. Mér finnst reyndar starfsmenn VSV og fyrirtækið sjálft hafa haldið vel á málum yfirleitt í veirufaraldrinum.“
„Við höfum allan tímann gert út skipin til veiða og unnið úr hráefninu í landi. Mun meira var framleitt af saltfiski en ella hefði verið, vöru sem geymist vel og lengi. Við erum því orðin vel birg af jólamat Portúgala!“ segir Andrea. „Allir markaðir okkar eru opnir og hafa verið en hægst hefur á allri sölustarfsemi og við vinnum mikið í birgðir. Vert er að nefna að engin kórónasmit hafa greinst í erlendum sölufyrirtækjum okkar og heldur ekki í Grupeixe, saltfiskfyrirtæki VSV í Portúgal. Þegar horft er til baka liggur fyrir að tveir sjómenn okkar greindust með smit, annar þeirra var þá í fríi en hinn í sóttkví. Aðrir í áhöfn voru ekki því ekki í hættu. Smit greindist í Hafnareyri og þar voru nokkrir iðnaðarmenn í sóttkví um tíma. Blessunarlega vel hefur því tekist að verjast veirunni og þar er fyrst og síðast starfsmönnum okkar að þakka, innri ráðstöfunum fyrirtækisins og miklu og nánu samstarfi við starfsfólk HSU í Eyjum, aðgerðastjórnina hér og Íslenska erfðagreiningu.“
Hugurinn leitar á heimaslóðir ytra „Við stofnuðum Fésbókarsíðu fyrir starfsmenn og birtum daglega upplýsingar á íslensku og ensku. Leiðbeiningum sóttvarnaryfirvalda var dreift á blöðum, við efndum til morgunfunda með stjórnendum og Binni framkvæmdastjóri ræddi við starfsfólk í vinnslunni sérstaklega í litlum hópum,“ segir Lilja Björg.
39
HILMAR RÓSMUNDSSON OG THEÓDÓR ÓLAFSSON Á SÆBJÖRGU VE ERU MEÐAL ÞEIRRA SEM SKÓPU SÖGUNA:
VERÐUGUR FULLTRÚI ÞEIRRA SEM STUNDAÐ HAFA SJÓ FRÁ VESTMANNAEYJUM 1665 tonn í netin á Sæbjörgu VE. Er það ekki síst athyglisvert í ljósi þess að Sæbjörg var ekki nema 67 tonn og í áhöfn voru aðeins ellefu manns. Hilmar var Siglfirðingur, fæddur 1925 og upplifði því síldarævintýrið á Sigló á fyrri hluta síðustu aldar en sjórinn freistaði ekki og stefndi hann á langskólanám. Það varð ekki og þá lá beinast við að halda á sjóinn sem varð hans starfsvettvangur. Leið Hilmars lá til Vestmannaeyja sem þá var fyrirheitna landið í hugum margra. Hér settist hann að, stundaði sjóinn, tók Stýrimannaskólann, fór í útgerð og náði ævintýralegum árangri sem skipstjóri.
Hilmar, Aflakóngur Vestmannaeyja með verðlaunagripinn. Mynd Sigurgeir.
Hilmar Rósmundsson, skipstjóri og útgerðarmaður á Sæbjörgu VE, er verðugur fulltrúi sjómanna, skipstjórnarmanna og útgerðarmanna sem um og upp úr miðri síðustu öld lögðu grunn að því samfélagi sem við þekkjum í Vestmannaeyjum og reyndar á landinu öllu. Hann varð strax goðsögn í lifanda lífi og frægur um allt land sem má rekja til frábærs árangurs hans sem skipstjóra á árunum í kringum 1970. Þá sló hann og áhöfn hans öðrum við þrjár vertíðir í röð. Endaði með meti þegar hann fékk 40
Saga sigra og ósigra Saga Hilmars Rósmundssonar er saga margra sem tóku út sinn þroska og störfuðu á nýliðinni öld þegar íslenska þjóðin steig í einu stóru skrefi inn í nútímann. Það sama má segja um útgerðarsögu Hilmars og Theódórs Ólafssonar sem hófst árið 1959 og lauk árið 1984. Þetta er saga sigra og ósigra en líka saga um óbilandi kjark og mikinn vilja, ekki síst þegar á móti blés. Það var mikið líf á Siglufirði þegar Hilmar ólst upp en bærinn miðdepill síldarævintýrisins sem þá stóð yfir. Hann byrjaði að stunda sjóinn með pabba sínum þegar best var og blíðast. Þegar ljóst var að hann kæmist ekki í Menntaskólann á Akureyri, þar sem önnur sjónarmið en einkunnir skiptu máli, stefndi hann á sjóinn. Eftir áramótin 1946 fór hann fyrst á vertíð til Vestmannaeyja. Kunni Hilmar strax vel við sig í Eyjum og kynntist eiginkonu sinni, Rósu Snorradóttur, stjúpdóttur Óla Vestmann. „Við giftum okkur á Siglufirði og settumst þar að en bjuggum þar í aðeins eitt ár. Þá fluttum við til Eyja og þá var ég loks alkominn til Eyja,“ segir Hilmar. Hjónin eignuðust tvær dætur, Hafdísi Björg og Sædísi Maríu. Þau slitu samvistir 1986. Á toppnum í þrjú ár Þá er komið að toppárunum í lok sjöunda áratugarins og ævintýralegu fiskiríi á aðeins 67 tonna bát. „Já, það gekk mjög vel hjá okkur, við vorum
AB
%
R E C YC L
• Hagkvæmari aðflutningur • Betri nýting á bretti • Betri nýting gáma
R E C YC L LE.100
CoolSeal kassinn er umhverfisvænn og því góður valkostur í stað frauðplastkassa
%
AB
FERSKFISKKASSAR SEM ERU 100 % ENDURVINNANLEGIR
LE . 100
UMBÚÐIR & MERKING ERU OKKAR FAG
Gámakassi, vélreistur með styrkingu í hornum skýr og góð prentun.
PRENTUN.IS
Nýr flugkassi, tvöföld langhlið sem tryggir meiri styrk og betri einangrun.
LÍMMIÐAPRENTUN
UMBÚÐALAUSNIR
41
Suðurhraun 4 • 210 Garðabæ • Furuvöllum 3 • 600 Akureyri • Sími: 575 8000 • Fax: 575 8001 • www.samhentir.is
Mikið mannvit og miklir karakterar saman komnir á einni mynd, Binni í Vinnslustöðinni, Hilmar, Beddi á Glófaxa og Eyjólfur á Gullberginu á hluthafafundi VSV 2014. Mynd Atli Rúnar.
heppnir og í þrjár vertíðir í röð vorum við aflahæstir. Árið 1967 vorum við með slétt 1.000 tonn, 1968 1.191 tonn og 1969 vorum við með 1.654 tonn.“ Mikið afrek á ekki stærri bát og ekki nema ellefu manna áhöfn. Athyglisvert líka fyrir þær sakir að vertíðin 1969 hófst með verkfalli fram í febrúar þannig að hún stóð ekki yfir nema í tæplega þrjá mánuði. Trúlega heimsmet sem seint verður slegið. Mest komu þeir með 67 tonn að landi. Erfitt er að gera sér í hugarlund hvernig þetta var mögulegt en Hilmar segir að áhöfnin hafi verið góð. „Þetta voru afburðamenn, annars hefði þetta ekki verið hægt. Við vorum ekki nema ellefu á en höfðum verið lengi saman, samhentur hópur en auðvitað var lítið um svefn suma sólarhringana.“ Örlög Gjafars VE Það fer ekki hjá því að Hilmar fari hlýjum orðum um þessa Sæbjörgu sem hann segir að hafi alla tíð verið mikið happafley og aflaskip. „Já, það er ekki nóg að fiska vel, það þarf líka að hugsa um mannskapinn og ég var það mikill lukkunnar pamfíll að enginn slasaðist alvarlega hjá mér alla mína skipstjóratíð.“ Næsta skref var stigið þegar þeir um áramótin 1972-1973 sömdu um kaup á útgerð Gjafars VE. Gjafar var loðnuskip og fór á loðnuvertíðina 1973, það sögulega ár þegar jörð rifnaði á Heimaey og 5.300 íbúar voru fluttir upp á land á einni nóttu. „Það fyrsta sem við gerðum á Gjafari var að flytja
42
fólk og búslóðir upp á land. Fyrstu nóttina fóru 430 manns með Gjafari í Þorlákshöfn, sem var ansi dýrmætur farmur,“ segir Hilmar. Seinna á vertíðinni strandaði Gjafar við Grindavík. Mannbjörg varð en báturinn eyðilagðist í fjörunni. Kaupa alvöru loðnuskip En áfram var haldið. „Niðurstaðan var sú að við keyptum Jón Garðar GK frá Garði, 312 tonna bát. Þetta var árið 1976 og þeir tóku gömlu Sæbjörgu upp í. Við keyptum Jón Garðar á um 100 milljónir króna en sú gamla var metin á 16 milljónir. Þar var komin þriðja Sæbjörg VE. Seinna var byggt yfir hana og hún lengd.“ En svo kom árið 1984 þegar útgerðarsögu Hilmars og Theódórs lauk. „Það var rétt fyrir jólin 1984 að Sæbjörg var á heimleið að norðan í vondu veðri. Þeir eru staddir út af Stokksnesi við Hornafjörð þegar vélin bilar. Það var álandsvindur og rak skipið upp á sker. Mannbjörg varð, áhöfninni var bjargað við mjög erfiðar aðstæður. Þarna varð Sæbjörgin til.“ Þetta gerðist 17. desember og var Ögmundur Magnússon skipstjóri á Sæbjörgu. Útgerðarsögunni lýkur „Þarna vorum við skipslausir og fórum að hugleiða hvað við ættum að gera. Við höfðum áhuga á að halda áfram, sérstaklega Teddi en ég var að verða sextugur og hafði lifað mitt fegursta. Við leituðum fyrir okkur að notuðum skipum og fórum meðal annars tvisvar til Noregs að skoða skip en fannst þau of dýr. Teddi var harðari í þessu en ég og ástæðan var að hann átti tvo
syni, annar er vélstjóri og hinn skipstjóralærður. Hann sá fyrir sér að þeir gætu tekið við skipinu. Þetta endaði samt með því að við ákváðum að hætta í útgerð. Eftir á sér maður að það voru mistök. Ef við hefðum keypt nýtt skip og haldið áfram hefðum við haldið okkar hlut í kvótanum. Við vorum með góðan kvóta og þar liggur verðmætið. Þó i kvótinn sé ekki vel liðinn hefur hann bjargað mörgum sem hafa verið að hætta. Okkar kvóti féll niður þannig að við urðum aldrei sægreifar. Sæbjörg var tryggð fyrir 29 milljónir króna sem var allt sem við fengum út úr þessu. Fyrirtækinu var slitið árið 1985 og síðan hef ég ekki komið nálægt útgerð.“ Kom víða við Þarna segist Hilmar sjálfur hafa verið að nálgast úreldingu en hann leysti af á nokkrum bátum. Lokin urðu þau að hann réðst sem afleysingamaður á Herjólf jafnframt því að vera starfsmaður Útvegsbændafélags Vestmannaeyja frá árinu 1993 til 1999. Var hann formaður félagsins í átta ár þar á undan. „Árið 1999 fannst mér kominn tími til að setjast í helgan stein enda farinn að fullorðnast, orðinn 74 ára gamall,“ segir Hilmar.
Sæbjörg kemur að landi með fullfermi, 67 tonn á 67 tonna bát. Mynd Sigurgeir.
Hann kom að félagsmálum, var í Framsóknarflokknum og sat um tíma á Alþingi sem varamaður. Hann var virkur í starfi félags Félag eldri borgara og sýndi góða takta þegar hann tók lagið með félögum sínum. Hann lét ýmis mál til sín taka og skrifaði fjölda greina í blöð og hafði mjög ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum en hann var sáttur þegar hann leit yfir farinn veg. Hilmar Rósmundsson lést á Hraunbúðum 10. október 2018.
Við sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hátíðarkveðjur í tilefni sjómannadagsins 43
THEÓDÓR ÓLAFSSON VÉLSTJÓRI OG ÚTGERÐARMAÐUR Á SÆBJÖRGU
ALLTAF ÚRVALSMANNSKAPUR, ANNARS HEFÐI ÞETTA EKKI GENGIÐ
Theódór situr ekki auðum höndum þó aldurinn segi til sín og veikindi hrjái hann.
„Einhver skemmtilegasti tími sem ég hef lifað,“ segir Theódór Ólafsson, vélstjóri og útgerðarmaður, þegar hann rifjar upp ævintýraleg aflabrögð á Sæbjörgu, fjögur strönd og áhugamálin sem hann hefur komið sér upp þegar starfsævinni lauk, í viðtali við Sigurgeir Jónsson í Fréttum 2010. Hjónin Margrét Sigurbjörnsdóttir og Theódór Snorri Ólafsson, oftast kallaður Teddi og stundum Teddi Vestmann, kynntust á balli í Sandgerði fyrir meira en hálfri öld, stofnuðu heimili í Vestmannaeyjum, þar sem Teddi stundaði sjóinn í áratugi, og komu upp sjö börnum. Mamman úr Reykjavík og pabbinn úr Eyjum „Foreldrar mínir voru þau Þorbjörg Guðmundsdóttir og Ólafur Vestmann. Mamma var frá Reykjavík en pabbi Vestmannaeyingur og ég held að þau hafi kynnst hér í Eyjum. Við erum sex systkinin. Rósa er elst, þá ég, Snorri, Ingi Steinn, Ellen og Þór." segir Theódór við Sigurgeir. Þeir Hilmar skráðu merkan kafla í útgerðarsögu Vestmannaeyja þegar þeir í áratugi stóðu saman í útgerð Sæbjargar VE frá 1959 til 1984. Gekk á ýmsu en saman komust þeir í gegnum nokkra skaflana. Áttu fjóra báta. Einn sökk og tveir strönduðu. Mannbjörg varð í öllum tilfellum. 44
Fyrsta strandið Sjálfur lenti Teddi fimm sinnum í skipskaða, þeim fyrsta 1. febrúar 1956 þegar Frosti VE strandaði við Sigluvík á Landeyjasandi nokkru vestan við Landeyjahöfn. „Við fórum gegnum um það bil þúsund metra breitt brimbrot eftir því sem þeir hjá Landhelgisgæslunni sögðu. Þar lagðist hann alveg á möstrin og rann sjór í gegnum pústið á vélinni. Ég lokaðist niðri í vélarrúmi og komst ekki upp, allt auðvitað ljóslaust og það var ekki mjög skemmtilegt meðan á stóð.“ Frosti komst á flot og þeir náðu að klára vertíðina en Teddi vildi komast í útgerð. „Mig hafði lengi langað til að eignast sjálfur hlut í bát og plataði mág minn, Hilmar Rósmundsson, með mér í það. Um haustið keyptum við Sigrúnu VE, 50 tonna Svíþjóðarbát, af Kristjáni Björnssyni á Kirkjulandi. Þann bát áttum við í þrjú ár,“ segir Teddi um þennan fyrsta bát þeirra sem sökk á Víkinni sumarið 1963. Ævintýrið byrjar Þeir félagar, Teddi og Hilmar, voru ekkert á þeim buxunum að gefast upp, heldur ákveðnir að halda áfram. Sama haust festu þeir kaup á miklu happaskipi á Skaga, Sigurfara AK, 67 tonna bát sem fékk nýtt nafn og númer, Sæbjörg VE 56. „Og nú byrjaði ævintýrið. Næstu ár voru engu lík. Okkur gekk strax vel með þetta skip og allt bras var nú úr sögunni. Góð aflabrögð strax á fyrstu árunum, bæði á vetrarvertíð og á sumrin. Árið 1967 urðum við aflahæstir á vertíð í Vestmannaeyjum með 1.000 tonn og í fjórða sæti yfir allt landið. Árið eftir, 1968, bættum við um betur, fengum 1.191 tonn og urðum aftur aflahæstir í Eyjum. En árið 1969 slógum við svo öll met þegar við fengum 1.665 tonn og urðum hæstir yfir landið. Metárið var enn sérstakara fyrir það að sú vertíð byrjaði með verkfalli, að vísu stuttu sem betur fer. Við fórum í 57 róðra þessa vertíð.“ Tvísóttu Á laugardaginn fyrir páska tvísóttum við og aflinn var samtals 98 tonn. Við vorum ekki búnir að landa úr seinni ferðinni fyrr en um hálftvöleytið um nóttina. Svo þegar ég kom upp á vigt eftir löndun, til að athuga hver aflinn hefði verið, harðneitaði vigtarmaðurinn, Júlli á Skjaldbreið, að skrá allan aflann á laugardaginn þar sem
Fjölskyldan. Teddi og Margrét með börnum sínum, Bára, Þorbjörg, Sigurbjörn, Hafþór, Júlíana, Björk og Harpa.
hluta hans hefði verið landað eftir miðnætti. Hann skráði því seinni túrinn á páskadag. Ég varð alveg brjálaður af bræði yfir þessu en Júlla varð ekki hnikað og þannig var þetta skráð.“ Vélstjóri á Lóðsinum og í FES Teddi fór að vinna í landi, var um tíma vélstjóri á Lóðsinum og endaði á að vera sjö ár í FES. „Árið sem ég varð sjötugur ákvað ég að hætta að vinna. Ég var alveg ómögulegur fyrstu árin eftir að ég hætti á sjó. Kannski var það að hluta til vegna þess að okkur Hilmari fannst við vera órétti beittir. Árið sem báturinn strandaði, 1984, var kominn kvóti á loðnu og við höfðum yfir að ráða 1,9% af honum eða um 19 þúsund tonnum. Svo 1985 kom nýtt kvótaár og hófst um áramót en ekki í september eins og nú er. Þá áttum við engan bát og kvótinn okkar var bara þurrkaður út. Við misstum sem sagt ekki bara bátinn, heldur
líka kvótann. Við stóðum í þrjú ár í málaferlum við ríkið út af þessu og töpuðum enda ríkið með fleiri lögmenn á sínum snærum en við.“ Þetta var meðal þess sem kom fram í viðtali Tedda við Sigurgeir. Jamestown Teddi hefur barist við erfið veikindi síðustu ár en það stoppar hann ekki því að sinna ýmsu grúski. Hann hefur meðal annars sökkt sér ofan í sögu amerísku skútunnar Jamestown sem rak mannlausa á land ekki langt frá Stafnesi á Reykjanesi 1881. Hún flutti úrvalsvið sem notaður var til húsbygginga suður með sjó og víðar. Akkeriskeðjurnar voru dregnar á land mörgum árum síðar og voru meðal annars notar í ból fyrir báta sem lágu úti á höfninni í Vestmannaeyjum. Þá sögu þekkir Teddi öðrum betur og sagði hana í Eyjafréttum árið 2017.
www.polardoors.com s: 898 66 77
Jupiter 2,7r
Mercury 2,4r
Mercury 2,0r
Hercules 1,5
Hercules 1,2
Thor
Neptune
SYSTURNAR HAFDÍS BJÖRG OG SÆDÍS MARÍA SEGJA FRÁ FORELDRUM SÍNUM
MIKIÐ FJÖR OG TILSTAND Á LOKADAGINN
Fjölskyldan saman komin á 90 ára afmæli Hilmars.
„Pabbi var alla tíð mikill Siglfirðingur þótt tækifærin til að heimsækja ættingjana þar hafi ekki verið mörg. Tvíburasystir hans og hennar fjölskylda voru honum ætíð kær og hann ferðaðist norður með okkur systur og mömmu þegar tækifæri gáfust. Þaðan eigum við fallegar, ljúfar og skemmtilegar minningar um pabba, fjölskyldu hans og vini,“ segja systurnar Hafdís Björg og Sædís María þegar þær minnast pabba síns, Hilmars Rósmundssonar og mömmu, Rósu Snorradóttur. „Hann tók með sér skemmtilega fjölskyldusiði þegar hann flutti til Eyja, svo sem laufabrauðsútskurð. Mamma hans var snillingur með deigið, að fletja það út næfurþunnt og notaði mamma okkar alla tíð uppskrift ömmu. Hún taldi sig þó ekki ná sömu gæðum í laufabrauðinu en pabbi hvatti hana óspart áfram við laufabrauðsgerðina og var snillingur að skera út. Þessu höfðum við fjölskyldan mjög gaman af og bauð hann oft vinum og kunningjum að taka þátt í laufabrauðsgerðinni með okkur.“ Mikill selskapsmaður Systurnar segja að pabbi þeirra hafi verið mikill selskapsmaður og til dæmis um jól og áramót haft mjög gaman af að fá til sín fjölskyldu og vini til að taka í spil. 46
„Oft var spilað á þremur borðum í stofunni. Einnig hafði hann gaman að hitta kollega sína þegar hann var í landi og oft fengum við systurnar að fara með í heimsóknir. Eigum við góðar minningar af til dæmis Helga Bergvins og Leu, Bjarna Sighvats og Dóru, Sigga á Lóðsinum og Öllu, Jóa Páls og Ósk, fyrir utan fjölskyldu mömmu, sem var nátengd útgerð pabba, og Tedda móðurbróður. Bræður mömmu réru allir með pabba og var því mikill samgangur á milli fjölskyldnanna.“ Hreykinn af sínu fólki Minningar frá öllu fjörinu og tilstandinu á lokadaginn segja þær frábærar og eins þegar netin voru tekin upp og lögð út eftir vetrarvertíðina. „Að fá að vesenast með pabba í margs konar stússi tengdu hans starfi var bæði gleðilegt og eftirminnilegt. Pabbi var ákaflega barngóður og mjög hreykinn af sínu fólki. Fyrsta barnabarnið fékk nafnið hans og var hann einstaklega glaður og stoltur yfir því. Síðan hafa fleiri nafnar bæst við fjölskylduna. Pabbi kenndi sérstaklega tveimur elstu langafadrengjunum, Hilmari Þór og Sigurgeiri, að spila og tefla og vildi alltaf gera vel við alla sína.“
GUÐNI ÁGÚSTSSON UM FLOKKSBRÓÐUR SINN, HILMAR RÓSMUNDSSON
ALLTAF HLÝR OG EINLÆGUR OG BJÓ YFIR ÞESSARI NÁTTÚRUGREIND SJÓMANNSINS Hilmar Rósmundsson kom inn í pólitíkina margefldur af baráttu við hafið, aflakóngur vinsæll og vel látinn maður í Vestmannaeyjum. Framsóknarmönnum þótti mikill fengur að því að fá Hilmar í baráttusætið í kosningunum 1978. Okkur fannst eins og við hefðum sett í þann stóra og værum með happadrátt á önglinum. Þær kosningar snerust reyndar öðruvísi og urðu flokknum ekki hagstæðar, því að aflahrotan fór þá til vinstriflokkanna. En Hilmar stóð fyrir sínu. Ég minnist þess hversu mér og mörgum öðrum þótti mikið til um framgöngu hans á framboðsfundunum. Hann bar yfirbragð sjómannsins, var dökkur á hörund eins og veðurtekinn skipstjóri með saltið í hárinu sem var ýrt blágráum lokkum hins reynda alvörumanns. Eins og hann væri að tala við hásetana á dekkinu Á fundum fannst okkur að Hilmar væri í stýrishúsinu að tala við hásetana á dekkinu. Hann horfði beint fram í salinn og með lágri röddu og meitluðu málfari mælti hann beint til fundarmanna. Hann fangaði vel athyglina og fólki fannst að svona maður ætti að vera á Alþingi. Hann réði nokkru um það að flokkurinn fór ekki ver út úr þessum kosningum á Suðurlandi. Flokkurinn hélt sínum tveimur mönnum. Hilmar sór drengskapareiðinn á Alþingi og flutti sína jómfrúrræðu en kaus að láta þar við sitja. Kom víða við Síðar kynntist ég Hilmari á ferðum mínum til Vestmannaeyja um borð í Herjólfi og heima í Eyjum á fundum og mannfögnuðum. Alltaf hlýr og einlægur og bjó yfir þessari náttúrugreind sjómannsins að segja í fáum orðum það sem honum lá á hjarta hverju sinni. Hilmar var mikill félagsmálamaður og baráttumaður og kom víða við á þeim vettvangi með útvegsmönnum og var hluthafi í Vinnslustöðinni. Þar átti ég marga fundina og fræddist um útgerð og sjómennsku. Hann sat í bankaráði Útvegsbankans og starfaði mikið með eldri borgurum eftir að vinnudegi lauk. Hilmar var Siglfirðingur og féll vel inn í mannlífið í Vestmannaeyjum. Hann bjó yfir einlægni og vinarþeli sem er svo ríkjandi þar.
Fundirnir í Vestmannaeyjum voru oft með sjómennskubrag. Manni var sagt til syndanna og blótað upp á íslensku en þegar fundunum lauk voru sundin blá og friður með mönnum. Miklaðist ekki Hilmar Rósmundsson var drengskaparmaður sem skilur eftir sig góðar minningar. Aflakóngurinn miklaðist ekki á stórum stundum, heldur gaf hann áhöfninni heiðurinn. Í áföllum eða þegar á móti blés var Hilmar eins og kletturinn í hafinu. Hann bjó yfir mikilli yfirvegun og æðraðist ekki þó gæfi á bátinn. Hann vissi að árangri verður ekki náð nema með samvinnu og virðingu að leiðarljósi. Að lokum vil ég tileinka Hilmari vini mínum eftirfarandi ummæli Flosa Þórðarsonar í Njálu er hann sagði um Kára Sölmundarson: „Fáum mönnum er Kári líkur og þann veg vildi ég helst skapi farinn vera sem hann er.“ Blessuð sé minning heiðursmannsins Hilmars Rósmundssonar skipstjóra. Guðni kom marga ferðina til Vestmannaeyja þegar hæst bar í pólitíkinni. Hilmar með heiðursmönnunum Halla Gísla og Sigurjóni Óskars á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar 2012. Mynd Atli Rúnar.
Guðni kom marga ferðina til Vestmannaeyja þegar hæst bar í pólitíkinni. Kom hann færandi hendi í stórafmæli vinar síns, 47 Sigmunds Jóhannessonar, teiknara. Mætti með myndarlegan lax sem hann sagðist hafa veitt á leið til Eyja.
STEFÁN FRIÐRIKSSON STÓÐ VAKTINA SEM STÝRIMAÐUR Á SÆBJÖRGU
LUNKINN SKIPSTJÓRI OG SAMTAKA KARLAR Stefán Friðriksson var ekki nema 23 ára þegar hann réðst sem stýrimaður á Sæbjörgu VE hjá Hilmari Rósmundssyni og vissi þá ekki að hann var að verða þátttakandi í einu mesta ævintýri í sögu íslensks sjávarútvegs. Þetta var árið 1966 og framundan voru metvertíðir 1967, 1968 og 1969, þegar Sæbjörg kom með að landi samtals 1.665 tonn. Það var mikið afrek á 57 tonna bát. Stefán var nýkominn úr hjartaþræðingu þegar rætt var við hann og hinn hressasti. „Það er ekki annað hægt en að dást að þessu liði á Landspítala. Ekki marblettur á manni. Það var brennt fyrir vitlausar sendingar í hjartanu sem komu af stað hjartaflökti og gat verið ansi óþægilegt. Annar hver Íslendingur er með þetta. Aðgerðin gekk vel og ég er allur annar maður. Var alltaf að fá smá köst en nú er þetta í lagi.“ Féll fyrir Eyjunum Stefán er fæddur og uppalinn fyrir norðan, á Hofsósi. „Þar er ég kallaður Stebbi á Sælandi. Árið 1959 kom ég hingað, 15 ára, og dáðist strax að þessu skeri, sérstaklega út af snjóleysinu. Ákvað að flytja hingað. Hef ekki séð eftir því eina einustu mínútu.“ Stefán krækti í Eyjastúlku. Hún heitir Patricia Ágústa Högnadóttir og börnin eru Anna, Jón Högni, Eyrún og Guðni Davíð. Hann byrjaði í Hraðfrystistöðinni hjá Einar ríka og var þar eina og hálfa vertíð og líkaði ljómandi vel. „Strax sumarið 1959 fór ég á síld fyrir norðan á Erlingi IV með Guðmundi Inga. Þarna var Ingi á Huginn að byrja. Engin síld var þetta sumar en Ingi var algjör snillingur. Næst var ég á Unni sem Bogi í Laufási og fleiri áttu og smá tíma á Ísleifi II með tengdasyni Lárusar Ársæls, Guðmari Tómassyni.“ Kærastan réði hann á Sæbjörgu Næst lá leiðin í Stýrimannaskólann. „Fyrst var það 120 tonn námskeið og ekkert annað kom til greina en að taka skólann hérna. Ég kláraði fiskimanninn eins og það var kallað. Það veitti stýrimanns- og skipstjórnarréttindi á öll fiskiskip. Þá fór ég á Sæbjörgu sumarið 1965 og var ráðinn stýrimaður,“ segir Stefán sem þá var 23 ára. Stefán hafði lítið um ráðninguna að segja því kærastan réði hann á Sæbjörgu. „Á þessum tíma var Gústa að vinna á spjaldskránni hjá bænum sem Jón Hjaltason lögfræðingur 48
stýrði hjá bænum. Einn daginn kom Hilmar að greiða skuldir sínar við bæinn og spurði hvort hún ætti ekki kærasta í Stýrimannaskólanum? Hvort möguleiki væri að fá hann sem stýrimann á Sæbjörgu? Hún vissi allt um hvernig mér gekk í skólanum því hún fékk daglega upplýsingar frá Jóni sem þá kenndi við skólann. Hún svaraði: „Ertu ekki alltaf að sigla á haustin, Hilmar?“ Hún var til í að ég færi um borð gegn því að hún fengi að fara með í eina siglingu, að minnsta kosti. Kaupin voru gerð og viðkomandi vissi ekkert af því!“ segir Stefán og hlær. Gústa fór í siglingu og komst þar með útlanda sem var draumurinn en kannski ekki að fara yfir hafið á 67 tonna trépung. Allt gekk vel. Líkað strax vel Sæbjörg var á trolli um sumarið og svo byrjaði slagurinn á vertíðinni 1966. „Mér líkaði strax vel á Sæbjörgu með Hilmari og Theódór og hinum Vestmannsbræðrunum, Snorra, Inga Steini og Þór. Það var góður mórall og þetta var áhöfn sem mér líkaði mjög vel við.“ Á haustin var róið á línu áður en farið var með bátinn í slipp og hann gerður klár fyrir átökin á komandi vertíð sem yfirleitt byrjaði með línuveiðum. „Fyrsta vertíðin mín var 1966. Ég man nú ekki tölurnar en það gekk ljómandi vel. Sæbjörg var virkilega góður bátur þangað til skipt var um vél í henni. Nýja vélin var léttari og þá var Sæbjörgin ekki eins skemmtileg. Nú fórstu með mig,“ segir Stefán þegar hann er spurður að því hvenær það var gert. „Teddi er með það alveg á hreinu en það var einhvern tímann eftir 1970.“ Stíft róið Stefán hafði verið á netum áður og því ekki alveg grænn þegar kom að netaveiðum. „Það var stíft róið og jaðraði stundum við að farið væri út í hvaða veðri sem var,“ segir Stefán og hlær. „Við lentum aldrei í vandræðum á vertíðinni og aðeins einu sinni í einhverju veseni þann tíma sem ég var um borð. Þá vorum við fullan bát af löngu á leið til Svíþjóðar. Við höfðum keyrt í þrjá tíma frá Stokksnesi þegar við lentum í kolbrjáluðu veðri, snerum við og fórum í var við Stokksnesið. Reyndum aftur og enn var snúið við. Loks komumst við að stað og náðum til Svíþjóðar með lönguna.“
Fundvís á réttu blettina Það var stígandi í afla Sæbjargar á vertíðum frá því Stefán byrjaði 1966. Toppurinn var 1969, heil 1.665 tonn.“ Þarna eruð þið hæstir og sláið met í afla á vetrarvertíð yfir landið. Hvað gerðuð þið öðru vísi en hinir? „Gerðum ekkert annað en aðrir bátar. Hilmar var bara lunkinn í að hitta á réttu blettina. Góðir og samtaka karlar. Það kom fyrir að vinnudagurinn var langur en menn voru ungir og ferskir.“ Átti Hilmar sér einhverja uppáhaldsstaði eða mið? „Já. Hann skrifaði allt niður á netunum. Sótti meira vestur og suður eftir. Við vorum með sjö trossur, oftast tólf neta. Það var oft verið að hnýta í okkur og því haldið fram að við værum með miklu fleiri trossur. Einu sinni sagði Óskar á Háeyri: „Þeir voru með 15 til 20 neta trossur!“ „Þú veist að þetta eru allt ofurmenni þarna um borð,“ var þá sagt við hann. Það var smá öfund í þessu sem var í fínu lagi.“ Sagði Atli já eða nei? Stefán er beðinn um eina sögu. „Við rerum einu sinni laugardaginn fyrir páska og vorum komnir í land rétt fyrir hádegi. Atli Einars átti að vera mættur upp í kirkju eftir hádegið í eigið brúðkaup og Rutar Óskarsdóttur, verðandi eiginkonu sinnar. Hann mætti. Á eftir sagði hann: „Ég var svo þreyttur að ég vissi ekki hvort ég sagði já eða nei!“ Hvort sem var hefur hjónabandið haldið.“ Stefn segir að húmorinn hafi verið góður enda hafi hann tollað á Sæbjörgu í átta ár. Hann sér það ekki sem afrek að hafa náð að koma með 1.665 tonn að landi á örfáum vikum á litlum bát, ellefu karlar og oft við erfiðar aðstæður vegna veðurs. „Það eina sem hægt er að miða sig við er að þetta var bara bátpungur miðað við það sem þekkist í dag. Það er ekki hægt að líkja því saman. Það er mesti munurinn.“ Misstu út af honum í Faxa En þessi afli náðist á ótrúlega skömmum tíma. „Við byrjuðum á línu eftir áramótin sem var hálfgerð atvinnubótavinna. Ég held að við höfum ekki farið á línu stóru vertíðina 1969 en hún byrjaði með sjómannaverkfalli. Mesti aflinn var í mars og apríl þannig að þetta voru ekki margar vikur sem við vorum að. Við komum mest með 67 tonn en hefði verið meira ef við hefðum ekki misst út af honum í Faxa. Það var ekki mikið en munaði um það, kannski tvö, þrjú eða fimm tonn. Erfitt að segja til um það,“ segir Stefán íbygginn á svip. Rosalega fínn tími Stefán er ánægður með árin á Sæbjörgu þegar hann lítur til baka. „Þetta var rosalega fínn tími og ágætar tekjur. En menn voru ekki alltaf þegjandi úti á dekki.
Ungur og ákveðinn sjómaður á uppleið, með alvöru sjóhatt og í stakk.
Líflegar umræður þar. Pólitíkinni var yfirleitt sleppt. Það var svo margt miklu skemmtilegra sem hægt var að rífast um. Eftir að Stefán hættir á Sæbjörgu vinnur hann í landi, er í afleysingum og með Sigga Óla á Ingunni VE. „Svo kemur gosið með öllu sínu rugli. Árið 1974 er ég á vertíð á Þórunni Sveinsdóttur. Vertíðina þegar við björguðum áhöfninni á Bylgju, gömlum togara sem var á loðnuveiðum. Sigurjón Óskarsson var skipstjóri og við vorum að toga á Víkinni. Bylgjan var þá að sökkva út af Hjörleifshöfða. Það var keyrt í hvelli og farið að leita. Við fundum sjómennina í björgunarbát og tókum um borð. Því miður fórst einn úr áhöfn Bylgjunnar.“ Heppinn með skipstjóra Að lokum segist Stefán hafa verið heppinn með karlana alla sína sjómannstíð. „Það voru ekki bara Hilmar og Sigurjón Óskars. Ég var með Gvendi Eyja sem var upplifelsi. Byrjaði svo á Herjólfi 1996 og var þar í 15 ár. Skipstjórar á Herjólfi þessi 15 ár voru Lárus Gunnólfsson, Valli í Varmadal og Fúsi í Holti. Svo byrjar Reykjavíkurliðið: Steinar Magnússon, Ívar Gunnlaugsson, og svo Gulli í Laufási. Allt miklir höfðingjar og snillingar sem dásamlegt var að vinna með.“ Stefán frá Sælingsdal er ekki síður ánægður með árin í Eyjum. „Eitt atriði spilar stórt hjá okkur, það að vera í Eyjum. Vildi hvergi annars staðar búa með fatlaðan einstakling. Það skiptir allt máli; þjónustan og samfélagið í heild.“ 49
INGI STEINN ÓLAFSSON, EINN FJÖGURRA BRÆÐRA Á SÆBJÖRGU VE 56
ÞAÐ VARÐ AÐ KLÁRA AÐ DRAGA, SAMA Á HVERJU GEKK „Ég var að fletta því upp hvenær ég var skráður á Sæbjörgu og hve lengi ég var um borð,“ segir Ingi Steinn Ólafsson, einn bræðranna sem tóku þátt í ævintýrinu á Sæbjörgu þegar þeir komust upp í að fá 67 tonn í róðri. Viðtalið var í ljósi aðstæðna tekið í síma sem á að vera skothelt þegar veira herjar á heimsbyggðina. Um leið fletti Ingi Steinn sjóferðabókinni sinni. „Ég var skráður á þá gömlu 1959, þann fimmta ellefta og var á sjó til 1975 á Sæbjörgu. Byrjaði á þeirri fyrstu, var allan tímann á þeirri númer tvö og um tvö ár á þeirri þriðju,“ segir Ingi Steinn og á þá við fyrstu Sæbjörgu sem sökk og aðra Sæbjörgu sem þeir fiskuðu mest á. Sú þriðja var alhliða vertíðar- og uppsjávarskip. „Mér fannst það of mikil breyting, kunni ekki við mig og hætti fljótlega.“ Byrjaði 17 ára til sjós Ingi er fæddur 1942 og var því sautján ára þegar hann byrjaði á sjó eins og algengt var í Vestmannaeyjum og öðrum sjávarplássum. „Fyrsta Sæbjörgin, gamla Sigrún, sökk á Víkinni og þá fóru þeir að spá í að kaupa nýjan bát. Fundu Sigurfara á Akranesi, mikið happafley og aflaskip á Skaganum. Sú gamla sökk í ágúst 1963 og við vorum búnir að fá nýju Sæbjörgu fyrir áramót.“ Ingi Steinn segir að þeim hafi strax líkað vel við þá nýju og reyndar það vel að hann orti um hana vísu. Hilmar var skipstjóri, Stebbi Friðriks stýrimaður og Teddi og Ingi Steinn í vélinni. „Við vorum ellefu um borð, þar af fimm úr sömu fjölskyldunni um tíma: við bræðurnir Teddi, ég, Snorri og Þór sem tók tvær til þrjár vertíðir með okkur og svo Hilmar, mágur okkar.“ Afmælisdagur Rósmundar mikill afladagur Ingi Steinn segir margs að minnast og nefnir meðal sjötta mars sem er merkur dagur í sögu útgerðarinnar. „Þrjú ár í röð fengum við 67 tonn þann sjötta mars. Þetta var góður dagur hjá okkur, afmælisdagur pabba Hilmars, Rósmundar. Oft gaman en líka erfitt en við vorum þjálfaðir gaurar. Rosalegur mannskapur.“ Ingi Steinn segir að ekki hafi verið mikið fiskirí 50
þegar þeir byrjuðu á fyrstu Sæbjörgu. „Það var óttalegur vandræðagangur á fyrsta bátnum. Fyrsta vertíðin á þeirri næstu var ágæt en svo fór þetta bara vaxandi og endaði í 1.665 tonnum 1969.“ Farinn að þekkja fiskana Það hafa verið mikil átök að koma þessu í land á ekki stærri bát? Að koma aflanum um borð og svo aftur í land. „Maður var farinn að þekkja fiskana við að henda þeim fram og til baka þegar vantaði pláss á dekkinu. Mest komum við með 67 tonn en eitt árið, man ekki hvenær, tvísóttum við. Held að það hafi verið 1968. Við vorum komnir í land með 67 tonn um sjöleytið um kvöldið. Netin voru við Þrídrangana og við fórum út aftur til að ná í meira þegar búið var að landa. Það var eitthvað bras á okkur og við komum ekki fyrr en eftir miðnætti og þá sagði vigtarmaðurinn að sá afli færi ekki á sama dag. Þetta var 101 tonn í heildina sem við tókum á einum og sama sólarhringnum hvað svo sem vigtarmaðurinn sagði. Honum fannst þetta rétt en okkur voðalega vitlaust.“ Þegar mest var, hvenær fóruð þið út á morgnana? „Klukkan fjögur eða fimm. fór eftir því hvar við vorum með netin. Já, það var farið snemma og við komum aldrei í land fyrr en eftir kvöldmat nema eitthvað sérstakt kæmi upp á. Lítill afli, þá skildi hann eftir nokkrar trossur en yfirleitt drógum við allt saman.“ Miklir vargar „Þetta gekk. Svoddan vargar voru þarna og góð stjórn hjá Stebba stýrimanni. Kallar sem voru búnir að vera mörg ár saman og vissu að það þýddi ekkert kjaftæði. Maður varð að klára að draga, sama á hverju gekk. Stebbi var mjög góður og við unnum mikið saman. Við bárum alltaf ábyrgð á skipinu á heimleiðinni, oft með kjaftfullan bát. Og maður var ekkert að hlaupa á eftir einum og einum fiski sem datt út fyrir af fullu dekkinu á siglingu. Hann mátti bara fara.“ Færin gáfu vísbendingar um fisk Var ekki helvítis bras að draga þegar sett var á dekkið?
51
MEÐ LÚÐURNAR GÓÐU SEM HANN FÉKK Á FÆRI VIÐ REYNISFJALL
„Jú. Jú. Við hlóðum hann alltaf aftur, það var svo góður á henni afturendinn. Bar vel þar og þá höfðum við pláss til að greiða úr og taka á móti fiskinum. Og Hilmar gaf sér tíma til að leita. Ég man eftir einu, þó ég nefni ekki bátinn. Við vorum vestur á Sælningsstöðum, sem er hraun langleiðina að Þorlákshöfn og þar var bátur að draga steindauð net. Við vorum búnir að draga og Hilmar var að leita að lóðningum. Það lóðaði vel og þá segir Hilmar við mig: „Steini settu færið út núna. Ég var alltaf með klára færarúllu og setti út í lóðningarnar til að athuga hvað væri á ferðinni. Það gekk oft vel eftir.“ Báturinn kláraði að draga og sigldi i burtu en þarna sá Hilmar möguleika. „Það kom spærlingur á alla króka. Ég lét Hilmar vita og þá sagði hann: klárir! Og við lögðum netin. Daginn eftir fengum við 67 tonn og einhver kíló af þorski sem hafði gengið í spærlinginn um nóttina.“ Ingi Steinn segir stóru vertíðina 1969 hafa verið mikið ævintýri og raun ótrúlegt afrek á ekki stærri bát. Hann vill ekki kannast við að vertíðin hafi verið þeim erfið. „Áhöfnin var orðin svo þjálfuð, lið sem kunni til verka. Þegar allir vinna vel og rétt þá gengur allt greiðlega og verður léttara,“ segir Ingi Steinn og kemur aftur að rúllunni góðu. 100 kílóa lúða „Við fórum oft á lúðulínu á sumrin og ég man eftir einu sinni að það var skítabræla og búið að leggja línuna. Við vorum á Hjörleifshöfðahrauninu og keyrðum í var vestan við Reynisfjallið. Ég var á rekvakt og bjó mér til færi úr bætningagarni, setti keðju sem sökku og lúðukrók á og beitti með sólkola. Hendi þessu út og það er ekki fyrr komið í botn en allt var fast. Þá fór línan að gefa eftir og ég er heillengi að draga hana upp. Hún tók alltaf af mér aftur, rauk niður og ég réði ekkert við þetta. Sá að mig vantaði hjálp og tók keðjulás og barði í stýrishúsið. Það var járnstýrishús og heyrðist vel. Teddi vaknaði eins og skot og hélt að eitthvað væri að gerast niðri í vél. Hann kom upp og hjálpaði mér og þá kom í ljós að þetta var 100 kílóa lúða. Ég tók út úr henni og lemminn var á. Henti út færinu og fékk aðra, 50 kílóa. Strákarnir fóru að búa til færi en fengu ekki neitt. Þá vorum við komnir af þessum hól sem ég var á. Þetta var ekki í fyrsta skiptið sem ég dró lúðu og það var alltaf jafn gaman.“ Ingi Steinn hrósar bátnum sem hljóta að vera orð að sönnu miðað við aflann sem þeir komu með að landi. „Sæbjörg var rosalega fínn bátur og það varð aldrei slys. Mikið happafley en svo var henni sökkt. Ég veit ekki hvar en þeir sögðu að það hefði verið kominn fúi í hana en ljúga því öllu.“ 52
Til staðfestingar staðfastri trú sinni dró Ingi Steinn fram kvæði sem hann orti um hið mikla happafley Sæbjörgu. Sæbjörg Hún var byggð úr besta efni. Brenni í botninn og eik í kinn. Vel hélt hún lit á stefni og aldrei neinn leka ég finn. Hún velti af sér flestum brotum og hinum muldi undir sig. Ekki var hún komin að þrotum Og alltaf fór hún vel með mig. Hún var eitt besta fley í heimi og aldrei missti mann í sæ. Drottinn hana núna geymi, ekki lengur á henni ræ. Bjössi, Teddi, Hilmar, Atli, Stebbi Varnek, Snorri, Már og Þór. Steini, Malli og Stjáni Rebbi, enginn þeirra í sjóinn fór. Kallinn Heilsteyptur hann stendur við stýrið og nefni þar engin nöfn. Aftur hann okkur skilar öllum heilum í höfn. Enginn köll né öskur hér. Það er hans aðalsmerki. Hér vinna allir eins og her og enginn sleppir verki. Hilmar fínn kall Já, hann yrkir hlýlega um kallinn, Hilmar Rósmundsson, og ber honum vel söguna. „Hann stóð sig vel, kallinn. Það voru aldrei nein helvítis læti. Hann vissi að við vorum að gera eins vel og við gátum og reyndi að gera allt eins vel og hann gat. Við vorum aldrei með flækjur á netum. Hann hugsaði vel um veiðarfærin, ekki leggja á móti straumnum og annað sem þurfti að hafa í huga. Já, það var margs að gæta hjá þeim sem stóðu í brúnni. Hann var svolítið lengi á sjó, leitaði mikið en þetta var fínn kall, góður mannskapur og góðir félagar. Alveg ekta strákar og það var oft gaman þó það væri erfitt. Samvinnan var svo góð að ef eitthvað kom upp á var næsta hendi við hliðina tilbúin að grípa inn í.“ Hræddari við Inga Stein Í spjallinu rifjast upp saga af þriðju og síðustu Sæbjörgu á netum.
Ingi Steinn og Guðný á brúðkaupsdaginn 1965.
„Það var lítið í og létt að draga og sá sem var á spilinu vildi draga hraðar. Það fór svo að hann hafði ekki undan, flæktist í netinu og inn á spilið. Fór einn hring og annar teinninn vafinn utan um hálsinn á honum. Ég var næsti maður og greip hníf og tókst að skera á teininn. Hann skalf eðlilega á eftir og þegar ég var að tala við hann og róa niður sagði hann: „Ég var ekkert hræddur á spilinu en skíthræddur þegar þú komst með hnífinn!“ segir Ingi Steinn hlæjandi. Góðir dagar hjá Sigga Þórðar Ingi Steinn var allan tímann á Sæbjörgu númer tvö og byrjaði á þeirri þriðju og var þar þangað til hún fór í lengingu til Danmerkur. „Þá fór ég að vinna hjá Sigga Þórðar í Eyjabergi. Siggi er einn besti útgerðar- og yfirmaður sem ég hef verið hjá. Ég ætlaði að fara um borð þegar Sæbjörg kom úr lengingu en Siggi segir einn daginn við mig hvort ég vilji ekki koma til hans í kvöld og spjalla við sig. Hann bauð mér, ef ég vildi vera áfram hjá honum, sama hlut og ég fengi á vertíðinni sem annar vélstjóri á Sæbjörgu. Þarna sá ég möguleika á að losna af sjónum. Ræddi við konuna og hún sagði þetta vera hið besta mál. Ég var að beita hjá honum, hugsa um línuna fyrir Ölduljónið og tók kostaboði. Einn daginn sem við erum að beita kemur Villi, sonur
Sigga, til mín og biður mig að tala við sig. Hann lét mig hafa stórt umslag og segir: „Ég átti að koma með þetta frá honum pabba.“ „Hvað er þetta?“ spyr ég. „Það veit ég ekkert um,“ svarar hann. Þarna voru þá 400 þúsund krónur. Ég talaði við kallinn og hann sagði: „Þetta er bara upp í það sem við sömdum um.“ Um vorið, þegar búið var að gera upp, var ég með meiri peninga en þeir á Sæbjörgu. Ég bauð Sigga að fá mismuninn til baka en hann sagði að ég ætti þetta skilið og miklu meira til. Fínn kall hann Siggi og gott að vinna hjá honum.“ Um vorið bauð Arnar Sigurmundsson Inga Steini verkstjórastöðu í Fiskmatsstöðinni þar sem Bjarnhéðinn Elíasson réði ríkjum. „Þar var ég í tíu ár og fór svo í Tinnu fiskverkun sem var þar sem HS Veitur eru í dag. Og það fór sem fór,“ segir Ingi Steinn sem sestur er í helgan stein og unir hag sínum vel og útbýr litla lunda sem ferðamenn kaupa grimmt og saumar út. Kona hans er Guðný Karlsdóttir og börn þeirra eru Fríða Björg, Árni Karl og Friðþór.
53
Sæbjörg VE 56 á leið hafnar með afla. Mynd: Sigurgeir Jónasson.
SÆBJARGIRNAR ÞRJÁR OG GJAFAR Hilmar og Theódór eignuðust þrjá báta sem báru nafnið Sæbjörg og tóku Gjafar VE á kaupleigu árið 1973 með það fyrir augum að kaupa hann um áramótin 1973-1974. Fyrsta bátinn keyptu þeir árið 1959, Sigrúnu VE 50, Svíþjóðarbát sem þeir nefndu Sæbjörgu í höfuð dætranna, Þorbjargar Theódórsdóttur og Sædísar Maríu Hilmarsdóttur. Hann sökk á Víkinni 1963. Sama ár keyptu þeir Sigurfara AK frá Akranesi, 67 tonna bát, sem líka fékk nafnið Sæbjörg VE 56. Þeir tóku við Gjafari VE 300 um áramótin 1973. Hann strandaði við Grindavík á vertíðinni og eyðilagðist. Mannbjörg varð. Þriðju Sæbjörgu VE 56 keyptu þeir árið 1975, áður Jón Garðar GK 475, 317 tonna stálbátur. Það var byggt yfir hann og hann lengdur árið 1978. Hann strandaði við Stokksnes í desember 1984 og eyðilagðist. Mannbjörg varð.
54
Aflakóngar á þessum árum: 1962. Stefán Stefánsson frá Gerði, skipstjóri á Halkion, með 760 tonn. 1963. Helgi Bergvinsson á Stíganda með 1.004 tonn. 1964. Ólafur Sigurðsson frá Skuld, skipstjóri á Ófeigi, með 1.283 tonn. 1965 og 1966. Óskar Matthíasson á Leó með 1.050 tonn 1965 og 788 tonn 1966. 1967, 1968 og 1969. Hilmar Rósmundsson á Sæbjörgu með 1.000 tonn árið 1967, 1.191 tonn 1968 og 1.665 tonn árið 1969.
Scanbas 365 brúarkerfi frá Scanmar
Nákvæmari og enn betri úrvinnsla gagna Skýr og auðveld framsetning Endalausir möguleikar á uppsetningu skjámynda Hver notandi með sinn aðgang Íslenskt viðmót
Sökk- og hæðarnemi
Hleranemi
Dýpis-, halla- og hitanemi
Aflanemi
Flæðinemi
Trollauga
Scanmar búnaður er þekktur fyrir áreiðanleika, endingu og lága bilanatíðni sem á sér ekki hliðstæðu.
www.scanmar.is 55
Scanmar ehf. • Miðhraun 13 • 210 Garðabær • Sími: 551 3300 • GSM: 691 4005 • Netfang: tm@scanmar.is
MINNING LÁTINNA Ólafur Ragnarsson F. 29.08.1938 - D. 19.12.2019
Ólafur Ragnarsson fæddist 29. ágúst 1938 í Keflavík. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum 19. desember 2019. Foreldrar hans voru Egill Ragnar Ásmundsson og Auður Ólafsdóttir. Eldri dóttir Ólafs er Ragnhildur Halldóra og yngri dóttir hans er Rósa. Ólafur ólst að mestu leyti upp í Borgarnesi en fór ungur á sjó og lauk fiskimannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1963 og síðar farmannaprófi við sama skóla 1980. Hann var háseti og stýrimaður á farskipum, bátum og togurum frá árinu 1953. Undir lok starfsævi sinnar var hann stýrimaður á Valberg, eftirlitsbát með kapallögnum í Norðursjó. Ólafur fluttist 2005 til Vestmannaeyja og bjó þar til dánardags. Hann var alla tíð mikill áhugamaður um skip og sjómennsku, og safnaði í gegnum árin miklum upplýsingum um það efni. Var hann hafsjór fróðleiks af ýmsum toga og hélt lengi úti heimasíðunni fraktskip.123.is þar sem finna má ýmiss konar fróðleik. 56
Þá skrifaði hann í blöð og tímarit, meðal annars Heima er best. Ólafur gaf Bókasafni Vestmannaeyja mikið safn bóka. Margar þeirra reyndust vera grundvallarrit á sviði skáldsagna, ævisagna og þjóðlegs fróðleiks. Þessar bækur, sem allar eru í Bókasafni Vestmannaeyja, verða vistaðar í Bóka- og ferðasafninu í Belgrad í Serbíu en Bókasafn Vestmannaeyja er í samstarfi við safnið um að útbúa sérstakt Íslendingahorn þar ytra. Látinn er í Eyjum gamall sjómaður og mikill sögumaður, Ólafur Ragnarsson. Ólafur var skipstjórnarmenntaður, tók fiskimanninn 1963 og seinna farmanninn árið 1980. Áður hafði hann verið lengi til sjós, en hann byrjaði 14 ára 1953 sem messagutti á Eldborginni sem sigldi milli Reykjavíkur og Borgarness, en síðan tóku við hinir og þessir bátar og skip. Þá var hann lengi á gömlu síðutogurunum. Eftir að hann lauk Stýrimannaskólanum var hann lengst af stýrimaður en einnig skipstjóri á fjölmörgum farskipum. Upp úr 1990 flutti hann til Svíþjóðar og sigldi í á annan áratug á dönskum skipum. Ólafur hafði mikinn áhuga á öllu sem við kom bátum og skipum og eftir hann liggur mikið efni á því sviði. Á seinni árum skrifaði hann mikið í tímaritið Heima er best um sjómennskuna eftir miðja öldina og má þar finna lýsingar og frásagnir af lífinu á sjónum á þessum tíma. Margir minnast samtala þeirra Jónasar Jónassonar útvarpsmanns, en ekki dugðu færri en þrír klukkutímalangir þættir með Ólafi. Þá hélt hann úti skipasíðu Óla Ragg á netinu um hugðarefni sín og er þar saman kominn mikill fróðleikur. Skipasíðan er mikið lesin og margir
skipakarlarnir sem fylgdust með skrifum hans. Eftir að sjómennsku lauk upp úr 2004-‘5 kaus hann að flytja til Eyja, en þar hafði hann áður búið um skeið. Hann sagði að það hefði verið hans besta ákvörðun og mikil gæfa að flytja aftur til Vestmannaeyja. Ólafur var þekktur í Vestmannaeyjum fyrir viðburðaríka farmennsku og hafði ég heyrt af þessum sjóhundi, enda voru sögur hans margar hverjar þekktar af þeim sem höfðu gaman af ævintýralegum uppákomum á sjónum. Hann kunni frá mörgu skemmtilegu að segja frá viðburðaríkum ferli sínum á sjónum um áratuga skeið. Ég kynntist ekki Ólafi fyrr en við vorum saman á framboðslista fyrir síðustu alþingiskosningar og var mikill styrkur að hafa hann með á lista. Á okkar samstarf féll aldrei skuggi þau ár sem við áttum þar samleið. Þakka ég honum mikinn og dýrmætan stuðning á vettvangi stjórnmálanna og þáði ég af honum mörg holl ráð og gagnlegar ábendingar. Ég hugsa með hlýhug til reynslumikils og óvenjulegs manns. Karl Gauti Hjaltason.
Sævar Brynjólfsson F. 15.02.1942 - D. 01.12.2019
Sævar Brynjólfsson fæddist 15. febrúar 1942 í Messíönuhúsi á Ísafirði. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 1. desember 2019. Foreldrar hans voru (Guðný) Kristín Halldórsdóttir og Brynjólfur Ágúst Albertsson. Systkini Sævars eru: Sigríður Guðmunda, Halldór Albert, Sesselja Guðrún og Sigurður Hlíðar, sem er einn eftirlifandi. Uppeldisbróðir Sævars er Brynjólfur Garðarsson. Allir voru þeir bræðurnir og makar systranna skipstjórar. Sævar kvæntist Ingibjörgu Hafliðadóttur og börn þeirra eru: Bryndís, Hafliði og Brynjólfur Ægir. Sævar ólst upp á Ísafirði til tíu ára aldurs. Þá flutti hann með fjölskyldu sinni til Keflavíkur. Hann stundaði sjómennsku frá fjórtán ára aldri og varð skipstjóri á Tý, sem Einar Sigurðsson gerði út, eftir útskrift frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1962. Sævar var þá aðeins tvítugur að aldri, yngstur skipstjóra í flotanum. Sævar sótti tvö ný skip fyrir Einar: Viðey og Örn. Ætíð fengsæll og strax meðal aflahæstu skipstjóra. Þegar Sævar tók við togaranum Hrönn frá Reykjavík 1975 höfðu margir á orði að skipstjóri sem hafði aðeins verið á nótabátum ætti ekki roð í gömlu togaraskipstjórana. Margir mættu á bryggjuna þegar haldið var í fyrsta túrinn og ýmislegt pískrað. Árið eftir birtist frétt í Vísi: „Skipstjórinn á Hrönn: Jafnvígur á öll skip“. Sævar og Ingibjörg fluttu til
Vestmannaeyja eftir að hann tók við Breka. Í viðtali við Árna Johnsen fyrir Morgunblaðið 1988, þegar Breki var aflahæstur togara á landinu sagði Sævar: „Gott gengi getur maður þakkað góðri áhöfn, nei við skulum ekkert tala um fiskinefið, enda er það ekkert sérstakt. Samstillt fólk skiptir mestu í þessu.“ Enda var áhöfnin á Breka frábær. Traustið sem ríkti milli hans og karlanna þótti okkur sem fylgdust með einstakt og öll hafa systkinin haft hann sem fyrirmynd í sínum mannaforráðum. Það þurfti ekki að hafa hátt til að hlutirnir gerðust og gengu vel og hann stóð með sínu fólki. Sævar gerði iðulega lítið úr aflabrögðum og fiskinefinu. Í áðurnefndu viðtali sagði hann: „Jú, maður á vissa bletti sem lítið er farið á.“ Við sem næst honum stóðum vissum þó að honum fannst hann aldrei einn í brúnni og fannst oft eins og hvíslað að sér eða þá að hann dreymdi hvert gott væri að fara. Sirrý systir hans, eiginkona Geira á Guggunni, fylgdist manna best með aflabrögðum og þau töluðu mikið saman. Sævar var ætíð mikill frumkvöðull. Hann var meðal þeirra fyrstu sem notuðu dælu í stað háfa við síldveiðar hér við land og eftir að hann kom í land fékkst hann við kræklingarækt og síðar býflugnarækt. Stærsta frumkvöðlaverkefnið var þó útgerðin á Byr, áður Suðurey, á línu. Fyrst á hefðbundar línuveiðar og síðar á túnfiskveiðar sunnan við land og raunar allt suður til Afríku og Brasilíu. Bjartsýnin var alltaf einkennandi þó oft gæfi á bátinn í útgerðinni. Æðruleysi Sævars var algjört. Á þrettándanum 2004 sökk trilla undan honum, þannig að aðeins stefnið flaut upp úr. Hann batt sig við rekkverkið svo hann fyndist ef þrekið þyrri og beið eftir björgun í rúma klukkustund. Lukkan varð þess einnig ráðandi ári síðar að hann lifði af flutning með þyrlu utan af sjó þegar ósæð rofnaði. Eftir fjórar stórar aðgerðir, þrjá mánuði sofandi á gjörgæslu og alls ellefu mánuði á spítala skellti hann sér í
vélskólann til að opna ný tækifæri. Hann kunni einnig að njóta lífsins og þótti fátt betra en góð steik eða einn kaldur í góðum félagsskap. Þegar hann vaknaði fyrst eftir þriggja mánaða svefn á gjörgæslunni sat Hafliði sonur hans hjá honum. Hafliði kipptist við og hélt að einhver hefði sagt „bjór“ og leit í kring um sig. Það var þá Sævar sem var helst til þyrstur eftir blundinn og bað um sopa áður en hann opnaði augun. Við söknum þessa sterka, blíða manns, sem naut sín svo vel í afa og langafa hlutverkinu eftir að í land var komið. Við erum þakklát fyrir tímann með honum og þakklát fyrir það góða fólk sem við kynntumst fyrir hans tilstilli.
Hilmar Þorvarðarson F. 26.09.1934 - D. 07.12.2019
Hilmir Þorvarðarson fæddist í Vestmannaeyjum 26. september 1934. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 7. desember síðastliðinn. Foreldrar Hilmirs voru Elín Jónsdóttir frá Ólafshúsum í Vestmanneyjum og Þorvarður Ingvarsson frá Stokkseyri. Leið hans lá snemma á sjóinn og á lífsleiðinni kom hann við á ýmsum bátum. S.s Huginn VE 55, Sindri VE, Andvari VE, Týr VE sem háseti og sem matsveinn á Kristbjörgu VE 70, Örfisey RE, Herjólfi, Halkion VE 205, Vestmannaey VE 54, Sigurði RE 4, Gísla Árna RE, Sunnuberg GK, Breki VE 161 (þar hélt hann uppá 70ára afmælið sitt) svo einhverjir séu nefndir. 57
Hilmir fæddist og ólst upp í Vestmannaeyjum en fór oft á sumrin í sveit að Presthúsum í Reynishverfi. Hann kynntist Ragnhildi, eftir lifandi konu sinni, á síldarvertíð á Seyðisfirði 1962 og flutti í framhaldinu með henni uppá land 1963. Gengu þau í hjónaband 3. Júní sama ár. Eignuðust þau tvo syni. Hilmir starfaði sem bílamálari og sjómaður, lengst af sem matsveinn. Hann stofnaði árið 1973 bílamálunarfyrirtæki á heimili þeirra í Kópavogi, sem var kallað Seðill meðal vina. Hilmir og Ragnhildur stofnuðu leikfangaverslunina Leikborg árið 1980 og árið 1988 stofnaði hann ásamt Kjartani syni sínum Lakkhúsið. Stuttu síðar kom Jón Bergur yngri sonur hans inn í fyrirtækið einnig og er það enn starfandi í eigu hans. Starfsorku hélt hann fram á síðasta dag og átti nýsköpun hug hans allan.
Matthías Sveinsson F. 21.09.1943 - D. 07.10.2019
15 á síld. Árið 1959, þá 15 ára, lauk Lýður Ægisson Matthías mótornámskeiði og fékk F. 03.07.1948 - D. 20.03.2019 mótoristapláss strax á vertíðinni 1960 hjá Rikka í Ási á Erling IV. Var á ýmsum bátum en réði sig 1966 hjá útgerðinni Ós hf. sem fyrsti vélstjóri á Leó VE 400 og síðar á Þórunni Sveinsdóttur VE. Var þar til hann lauk sínum sjómannsferli árið 2007 og vann þá fyrir útgerðina í landi. Matthías hlaut fjölda viðurkenninga fyrir að vera aflakóngur á vetrarvertíðum í Vestmannaeyjum og fjórum sinnum fyrir að bjarga mannslífum sem skipverji á Þórunni Sveinsdóttur VE. Elsku pabbi. Nú er baráttan töpuð fyrir þessum illvíga sjúkdómi sem þú barðist svo hetjulega við. Þú tókst á við verkefnið af miklu æðruleysi og uppgjöf kom aldrei til greina. Ég á svo margar góðar og hlýjar minningar sem ég geymi hjá mér og munu þær hjálpa mér að takast á við sorgina. Þú stundaðir sjóinn öll þau ár sem ég bjó í foreldrahúsum og fékk ég bestu útgáfuna af pabba sem hugsast gat þegar þú komst í land. Þú varst einstakt ljúfmenni og ekki fór mikið fyrir æsingnum. Ég var heppinn að fá tækifæri til að stunda sjóinn um tíma með þér á Þórunni Sveinsdóttur og var ekki hægt að finna betri vinnufélaga til að stíga sín fyrstu skref til sjós með. Eftir að við Hrefna hófum okkar búskap og eignuðumst okkar eigið heimili varst þú alltaf fyrstur til þegar taka þurfti til hendinni. Það verður skrítið að geta ekki lyft upp símtólinu og leitað ráða hjá þér eins og var svo dýrmætt að geta gert. Börnin okkar sakna þín mikið. Þú varst einstakur afi og gafst þér alltaf tíma fyrir þau, sem við mátum mikils. Þau eiga eftir að sakna þessara gæðastunda með þér. Elsku pabbi, ég kem til með að sakna þín óendanlega en minningin lifir í hjarta okkar. Hvíldu í friði.
Matthías Sveinsson fæddist 21. september 1943 í Vestmannaeyjum. Hann lést 7. október 2019. Hann var sonur hjónanna Sveins Matthíassonar, sjómanns og útgerðarmanns frá Byggðarenda í Vestmannaeyjum, og Maríu Pétursdóttur frá Norðfirði. Kona hans var Kristjana Björnsdóttir og bjuggu þau allan sinn búskap í Vestmannaeyjum. Synir þeirra eru Sveinn sem er látinn og Björn. Þinn sonur, Björn Matthíasson. Matthías stundaði sjóinn allan sinn starfsferil, byrjaði 14 ára á Reyni VE 58
Lýður Ægisson fæddist 3. júlí árið 1948 og lést á hjúkrunarheimilinu Eir 20. mars 2019 aðeins 70 ára. Systkinahópurinn var stór, fimm albræður og fjögur hálfsystkini. Mikið var um tónlist á heimilinu og þegar faðir þeirra fékk harmóniku í fertugsafmælisgjöf var ekki aftur snúið. Meðan karlinn var á sjó stálust guttarnir í nikkuna og voru einkar snöggir upp á lagið með að spila. Þetta hljóðfæri fylgir þeim enn þann dag í dag. Börn Lýðs og fyrri konu hans, Hörpu Sigurjónsdóttur eru Þorsteinn, Finnbogi, Sigurjón og Ófeigur. Seinni kona hans er Kristjana Hlín Valgarðsdóttir og eiga þau eina dóttur; Selma Hrönn Maríudóttur. Lýður sinnti listagyðjunni lítið fyrstu árin enda átti sjómennskan hug hans allan. Þrettán ára gamall byrjaði hann sjómennskuna á togaranum Hafliða SI frá Siglufirði ásamt fimm jafnöldrum sínum. Hann kom fyrst til Vestmannaeyja aðeins 17 ára gamall, árið 1965 Þá hafði hann ráðið sig sem háseta á Jóni Stefánssyni VE. Eftir góð kynni af Eyjunum ákvað Lýður að fara menntaveginn og skráði sig til skipstjórnarnáms í Stýrimannaskóla Vestmannaeyja árið 1967. Á þessum tíma var mikið um brambolt á böllunum í Eyjum og Gylfi bróðir Lýðs kom reglulega til Eyja til að skemmta. Þeir bræður skemmtu sér þá saman og spiluðu hvar sem er á harmónikur og gítara. Lýður kynntist einnig fyrstu
eiginkonu sinni á þessum tíma, það í platínum eða yfir 5.000 eintök og er Eyjasnótin Harpa Sjonna, dóttir Í lífsins ólgusjó er að nálgast 9.000 Sjonna frá Engey. eintaka sölu. Eftir útskrift úr Stýrimannaskólanum Eftir Lýð liggja ein 300 lög og textar tók Lýður við sem skipstjóri á sem án efa eiga eftir að koma út Björgvin VE 72 af tengdaföður einhvern daginn. Meðal þeirra eru sínum sem sneri sér að útgerð. hátt í 20 lög sem fjalla eingöngu Gylfi reri með þeim á þessum árum um Eyjarnar og veru Lýðs í Eyjum. og var mikið líf og fjör á vertíðunum. Þó svo Lýður hafi fæðst og alist Þegar eldgos hófst í Eyjum upp á Siglufirði kallaði hann sig tóku þeir Lýður og félagar þátt í alltaf Eyjamann. björgunaraðgerðum. Útgerðin og fjölskyldan flutti búferlum til Hafnar Hilmar Rósmundsson í Hornafirði og var fiskað þaðan. Þegar verunni á Hornafirði lauk F. 16.10.1925 - D. 10.10.2018 var förinni aftur heitið til Eyja þar sem Lýður réði sig sem stýrimann hjá Guðfinni á Árna úr Görðum og tókst með þeim mikill vinskapur. Árið 1975 urðu mikil tímamót í lífi Lýðs þegar hann setti tappann í flöskuna. Á þeim tíma reri hann stíft frá Eyjum. Lýður starfaði í dágóðan tíma með Leikfélagi Vestmannaeyja þar sem hann bæði samdi tónlist og flutti meðal annars á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Þá lék hann iðulega á harmónikuna fyrir þá sem voru á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja og bjuggu á Hraunbúðum. Þetta sama ár tekur Lýður við sem skipstjóri á Ófeigi III sem var þá gerður út af Vitta Helga og Sigga Ella. Á þessum árum réri Lýður stíft og gekk þetta samstarf þeirra félaga afskaplega vel. Lýður var einn af stofnendum hins alræmda Hrekkjalómafélags Vestmannaeyja og brölluðu þeir félagar margt á þessum árum. Á áttunda áratugnum samdi Lýður vel á annað hundrað lög, meðal annars Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja árið 1985 við texta Gauja Weihe. Lagið fékk nafnið Ljósbrot og kom út á fyrstu plötu þeirra félagi sama ár. Árið 1987 kom út platan Lómurinn Lævís, 1989 er það Logadans, 1992 Lífið í lit og árið 2008 Í lífsins ólgu sjó. Þá gáfu feðgarnir Þorsteinn og Lýður út plötu árið 2010 sem á voru lög eftir Þorstein við texta Lýðs. Plöturnar seldust vel. Allar fóru þær í gull eða yfir 3.000 eintök, þá fóru 3
Hilmar Rósmundsson, skipstjóri og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, fæddist á Siglufirði 16. október 1925. Hann lést 10. október 2018. Foreldrar hans voru María Jóhannsdóttir og Rósmundur Guðnason sjómaður. Hilmar eignaðist dótturina Hebu 1945. Hilmar kvæntist Rósu Snorradóttur en þau slitu samvistir. Dætur þeirra eru Hafdís Björg og Sædís María. Elsku pabbi minn er farinn í ferðalagið mikla, þetta sem enginn kemst undan. Þó svo að ég hljóti að teljast nokkuð fullorðin, 58 ára gömul, finnst mér alveg ótrúlegt að eiga ekki lengur foreldra á lífi en þetta er víst einn parturinn af öllu lífsferlinu. Pabbi var merkur maður, að minnsta kosti í mínum augum. Hann var mikil félagsvera og áræðinn en um leið varfærinn og mikið sem honum þótti gaman að spila. Bæði brids og félagsvist voru í uppáhaldi og var hann sko í essinu sínu þegar vel gekk enda stóð hann oft uppi sem sigurvegari.
Pabbi var líka söngelskur og söng þessa fínu millirödd. Á góðum stundum söng hann hátt, sem mér líkaði oftast vel, en þegar ég sem krakki heyrði hærra í honum en heilum kirkjukór Landakirkju á sunnudagsmorgnum þá seig sú stutta niður á kirkjubekknum rjóð í vöngum og lét lítið á sér bera. Reyndar áttum við það til að taka lagið saman seinna meir og þá var spurning hvort okkar tæki milliröddina. Mér þótti pabbi betri. Frá því barnabörnin komu í heiminn, hvert á fætur öðru, vildi pabbi alltaf vita hvernig þau hefðu það og hvort þeim vegnaði ekki örugglega vel í því sem þau voru að gera hverju sinni. Ekki minnkaði áhugi hans þegar langafabörnin komu til sögunnar. Hann vissi allt um þau og nöfn þeirra vöfðust ekki fyrir honum. Í seinni tíð voru íþróttir mikið áhugamál en fótboltinn var samt númer eitt og hann mætti á flesta heimaleiki ÍBV ásamt frænda sínum Didda Mar. Diddi lést á síðasta ári og sá pabbi mikið eftir sínum góða vini og frænda. Ætli þeir séu ekki búnir að hittast í sumarlandinu og jafnvel horfa á eins og einn leik eða svo? Í heildina tel ég að pabbi hafi átt frekar góð 93 ár þrátt fyrir brim og boðaföll bæði til lands og sjávar. Svo ótal margt er líka þakkarvert eins og að hafa góða heilsu, því má ekki gleyma. Þegar pabbi kom heim af sjónum í gamla daga tók ég á móti honum með faðmlagi, pabbi fékk mitt síðasta faðmlag rétt áður en hann lést. Að lokum vil ég þakka frænda mínum, Theodóri Ólafssyni, fyrir einlæga vináttu og traust við pabba frá því þeir kynntust sem ungir menn og urðu síðan mágar og samstarfsfélagar til margra ára. Slík vinátta er ómetanleg. Einnig vil ég þakka bæði starfsfólki og heimilisfólki Hraunbúða í Vestmannaeyjum fyrir hlýju og alúð í garð pabba og fjölskyldunnar allrar. Þið eruð æði. Karlinn í brúnni hefur kvatt í hinsta sinn. Þangað til næst, elsku pabbi minn. Þín dóttir, Sædís María. 59
Gunnlaugur Úlfar Gunnlaugsson F. 05.04.1958 - D. 22.09.2019
Gunnlaugur Úlfar Gunnlaugsson fæddist á Siglufirði 5. apríl 1958. Hann lést 22. september 2019 á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Foreldrar hans voru Gunnlaugur Þorfinnsson Jónsson frá Siglufirði f. 22. okt. 1922, d. 15. okt. 2003, og Þuríður Andrésdóttir frá Eyrabakka, f. 8. mars 1924, d. 6. ágúst 2002. Gunnlaugur Úlfar átti 12 systkini. Þau eru Kristrún Þóra f. 28. mars 1945, Jón f. 29. apríl 1946, Andrés f. 20. nóv. 1947, Sverrir f. 18. des. 1948, Birna Hafdís f. 28. des. 1950, Anna Kristín f. 21. des. 1952, Hjördís f. 18. okt. 1954, Sigurjón f. 9. ágúst 1956, Erla f. 26. júlí 1959, Þorfinnur f. 15. okt. 1962, d. 13. maí 1979, Elva f. 29. feb. 1964 og Óttar f. 20. mars 1965. Dóttir Gunnlaugs Úlfars og Hafdísar Þorsteinsdóttur er Eva Rut f. 16. ágúst 1980. Unnusti hennar er Þorbjörn Hrannar Sigfússon. Eva Rut á tvíburana Val og Ágústu f. 23. apríl 2008 með Huga Frey Valssyni. Fyrri eiginkona Gunnlaugs Úlfars er Lilja Richardsdóttir. Þeirra börn eru Gunný f. 5. jan. 1984 og Þorfinnur f. 10. maí 1986. Gunný á dótturina Matthildi Lilju f. 13. jan. 2017 með Matthíasi Svanssyni. Þorfinnur og eiginkona hans, Ágústa Jóna Heiðdal, eiga soninn Mikael Mána f. 5. júlí 2010. Fyrir átti Lilja soninn Tryggva Guðmundsson. Þann 5. apríl 2008 giftist Gunnlaugur Úlfar eftirlifandi eiginkonu sinni, Kristínu Gísladóttur frá Patreksfirði, f. 2. júní 1960. 60
Foreldrar hennar eru Gísli Þórir Victorsson og Sigurósk Eyland. Dóttir Kristínar af fyrra hjónabandi er Sunna Sigurósk Gísladóttir f. 9. sept. 1986, eiginmaður hennar er Gylfi Gígja Geirsson. Gunnlaugur Úlfar (Úlli) ólst upp á Siglufirði. Eftir grunnskólapróf fór hann í Iðnskólann þar og lauk sveinsprófi í pípulögnum árið 1982. Hann hlaut síðan nafnbótina meistari í pípulögnum á 30 ára afmælisdegi sínum 5. apríl 1988. Úlli flutti frá Siglufirði 1981. Eftir það bjó hann í Vestmannaeyjum til 1995 þegar hann fluttist til Grindavíkur. Í Vestmannaeyjum vann hann við pípulagnir hjá Miðstöðinni og í Vinnslustöðinni, einnig var hann stuttan tíma framkvæmdastjóri hjá handknattleiksdeild ÍBV. Hann var 7 ár á Huginn VE 55 og var það draumur hans síðustu árin að komast einn túr með nýja Huginn. Úlli var mikill áhugamaður um íþróttir og spilaði m.a. fótbolta á Siglufirði með fótboltafélaginu KS. Hann hélt með Leeds í ensku deildinni en Arsenal til vara þegar Leeds féll niður um deild. Úlli hélt alltaf með ÍBV og þegar ÍBV og Grindavík voru að spila í Grindavík var aldrei nein spurning með hvoru liðinu hann héldi þótt hann væri stuðningsmaður Grindavíkur þar fyrir utan. Hann var góður skíðamaður, afburða dansari og hafði gaman af snóker. Úlli fór að stunda golf eftir að hann flutti til Grindavíkur og átti golfíþróttin hug hans allan síðustu æviárin. Úlli og Kristín elskuðu að ferðast erlendis og gerðu mikið af því. Hann fór árlega í golfferðir til útlanda með félögum sínum frá Vestmannaeyjum sem kölluðu sig Lundarnir. Einnig fóru þau hjónin í margar utanlandsferðir með nánasta vinahópnum úr Vestmannaeyjum sem kallaði sig Undir áhrifum en það er vísan í samnefnt lag Sálarinnar. Úlli var félagi í Kiwanisklúbbnum Helgafelli í Vestmannaeyjum og starfaði einnig mikið fyrir Íþróttafélagið Þór og ÍBV, sérstaklega að því er tengdist Þjóðhátíð. Í Grindavík starfaði
hann með Lions og var formaður Lionsklúbbs Grindavíkur þegar hann lést. Úlli stofnaði Lagnaþjónustu Suðurnesja ehf. með Rúnari Helgasyni í febrúar 2002. Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað síðan þá og síðustu 3 árin hefur fyrirtækið fengið viðurkenninguna Framúrskarandi fyrirtæki frá Credidinfo. Úlli þráði alltaf Eyjarnar og hélt mikilli tryggð við vini sína þar. Þau Kristín keyptu Illugagötu 10 í Vestmannaeyjum haustið 2016 og stefna þeirra var að flytja til Vestmannaeyja í ellinni. Úlli greindist hins vegar með krabbamein haustið 2017 og lést eftir tæplega tveggja ára baráttu. Útför hans fór fram frá Grindavíkurkirkju 2. október 2019 og var hann jarðsettur í Vestmannaeyjum tveimur dögum síðar.
Friðþjófur Sturla Másson F. 27.12.1954 - D. 18.08.2019
Friðþjófur Sturla Másson fæddist á Hvassafelli 25. mars 1927. Hann lést á Hraunbúðum 26. febrúar 2020. Foreldrar hans voru Indíana Björg Sturludóttir og Már Frímannsson. Fiddi átti tvo yngri bræður: Reyni, f. 1933, d. 1979, og Kjartan sem fæddur er 1946. Fyrstu æviárin bjó fjölskyldan á Hvassafelli en þegar Fiddi var sjö ára fluttu hún í Valhöll sem Fiddi var æ síðan kenndur við. Jórunn fæddist á Seyðisfirði 5.
ágúst 1928 og lést á sjúkrahúsinu í Eyjum 14. febrúar 2012. Foreldrar hennar voru hjónin Anna Guðmundsdóttir og Einar Guðjónsson og var hún næstyngst í hópi fjögurra systkina. Fiddi og Jórunn hófu sambúð árið 1948 og gengu í hjónaband 5. nóvember 1949. Fyrstu 15 búskaparárin bjuggu þau í Valhöll. Þaðan lá leiðin í hús sem þau byggðu sér á Urðarvegi 37. Eftir gos byggðu þau sér annað hús á Birkihlíð 14, fluttu svo á Boðaslóð 13 áður en þau komu sér aftur fyrir í Valhöll árið 2001. Átta árum síðar fluttu þau svo á Hraunbúðir. Börn þeirra hjóna eru fimm, öll búsett hér í Eyjum: Elst er Inda Marý, fædd 1949, gift Sigurði Friðbjörnssyni. Þeirra synir eru Friðþjófur Már og Kristján Ingi. Næstur er Einar, fæddur 1950, kvæntur Katrínu Freysdóttur. Börn þeirra eru Jórunn, Hjalti og Rúnar. Þá kemur Anna, fædd 1957, gift Þórði Hallgrímssyni. Þeirra börn eru Guðbjörg, Berglind, Halldóra Björg, sem dó árið 1988, og Hallgrímur. Næstyngstur er Már, fæddur 1959, kvæntur Jóhönnu Kolbrúnu Þorbjörnsdóttur. Börn þeirra eru Friðþjófur Sturla, Víkingur og Soffía Marý. Yngst er Svanhvít, fædd 1965, gift Agli Guðna Guðnasyni og eiga þau dótturina Urði Eir. Fyrir átti Svanhvít Sögu Huld og Einar Kristinn. Áður átti Fiddi tvíburana Guðlaug og Helga árið 1946, Guðlaugur lést árið 1999 og Helgi árið 2014. Dætur Guðlaugs eru Guðrún Jóna, Valborg Hlín og Guðlaug Helga. Dætur Helga eru Guðlaug Jóna og Hugrún. Langafabörnin eru 34 talsins. Fiddi lauk Stýrimannaskólanum þegar hann var þrítugur og hlaut þar með skipstjórnarréttindi. Hann stundaði sjómennsku og var m.a. á Sigrúnu VE, Farsæl VE og fleiri bátum. Og það er óhætt að segja að hann hafi oftar en einu sinni komist í hann krappann á sjó en líklega stóð það einna tæpast þegar leki kom að Sigrúnu eftir skveringu í Reykjavík. Þá urðu menn sambandslausir og
vélarvana þegar sjór komst inná vélina. Eftir tveggja sólarhringa volk voru menn að verða ansi vonlitlir um björgun. En þetta fór þó allt vel og mannskapurinn komst heilu og höldnu til Eyja og var björgunin tilkynnt í aftansöngnum á aðfangadag í Landakirkju. Og það voru fleiri óhöppin sem hann lenti í á sjó. Einhverju sinni fór bátur niður austur af Vík en allir komust þó í björgunarbátinn og björguðust. Já, Fiddi lenti í „ýmsu helvítis rugli“, svo notuð séu hans orð. Hann átti auðvelt með að koma auga á ljósa punkta tilverunnar og var ánægður með sitt og sína. Eftir að Sæbjörgin fórst hætti Fiddi á sjónum og snéri sér að saltfiski og var með fleirum í þeim bransa frá 1965 til 1972, þá verkstjóri í Eyjaberg til 1977. Eftir það var hann verkstjóri í Herjólfsafgreiðslunni til starfsloka.
Oddur Magni Guðmundsson F. 01.05.1959 - D. 03.10.2018
Oddur Magni Guðmundsson fæddist 1. maí 1959 í Reykjavík og lést 3. október 2018 í Vestmannaeyjum 3. október 2018. Foreldrar Odds Magna voru Rósa Ingibjörg Oddsdóttir og Guðmundur I. Bjarnason. Eftirlifandi eiginkona Odds er Auður Finnbogadóttir og synir þeirra eru Bergvin og Hafsteinn. Oddur Magni ólst upp í Garðahreppi. Snemma hóf hann sjósókn hjá Bedda frænda sínum á Glófaxa VE 300. Oddur lauk svo námi úr
Stýrimannaskólanum árið 1979 og var til sjós á fjölda skipa. Lengst af bjuggu þau Auður og Oddur í Vestmannaeyjum. Við kvöddum Odd Magna Guðmundsson, frænda minn, í hinsta skipti. Hann er elsta barnabarn ömmu minnar og afa, Odds Sigurjónssonar og Magneu Bergvinsdóttur. Oddur Magni hafði glímt við erfið veikindi um nokkurra ára skeið, veikindi sem höfðu tekið mikinn toll af honum. Hann var búinn að berjast hetjulega en á endanum hafði meinið hann. Það er hryggilegt til þess að hugsa að maður á besta aldri skuli hafa þurft að heyja svo langa og harða baráttu fyrir lífi sínu. Höggvið hefur verið skarð í frændsystkinahópinn. Oddur Magni flutti ungur til Eyja. Sjórinn heillaði, hann fór í Stýrimannaskólann og við tók það starf sem hann stundaði meðan hann hafði heilsu til, sjómennska. Lengi vel reri hann á Glófaxa VE 300 með frændum sínum. Einnig var hann lengi á uppsjávarskipum í eigu Sigurðar Einarssonar, útgerðarmanns í Eyjum. Sjálfur reri ég með Oddi eina loðnuvertíð á Hörpu VE 25. Sökum slyss um borð kom Oddur á miðri vetrarvertíð um borð til okkar og kláraði vertíðina með okkur. Við vorum báðir stýrimenn og ég minnist þess hve gott var að róa með Oddi. Hann var rólegur og yfirvegaður í störfum sínum og vissi upp á hár hvað hann var að gera. Það var vel valið að taka Odd um borð. Hann var bæði góður og traustur sjómaður fyrir utan að vera góður félagi. Oddur eignaðist marga vini og kunningja á sjónum í gegnum tíðina og ég veit að margir minnast hans með sambærilegum hætti. Eftir að Oddur fór í land og hóf hótelreksturinn með fjölskyldu sinni lágu leiðir okkar oftar saman. Oft bar veikindi hans á góma. Ég dáðist að æðruleysi og yfirveguðum baráttuvilja hans í þessum veikindum. Létt lund og yfirvegunin kom honum langt. Minningin um góðan mann lifir. Hrafn Sævaldsson. 61
Eiríkur Heiðar Sigureirsson F. 28.02.1949 - D. 05.05.2020
Eiríkur Heiðar Sigurgeirsson lést 5. maí sl. Hann fæddist 28. febrúar 1949. Foreldrar hans voru Sigurgeir Ólafsson Vídó og Erla Eiríksdóttir Vídó. Kona hans var Sigríður K. Dagbjartsdóttir og þeirra börn eru Dagbjört, Heiða og Erla. Eiríkur kom víða við, var lengi til sjós, starfaði mikið erlendis og vann síðast hjá Hampiðjunni. Mín fyrstu kynni af Eiríki voru síðla sumars 1969 er ég réði mig á Viðey RE 12 frá Vestmannaeyjum sem var á leið til síldveiða í N-Ameríku með heimahöfn í Cloucester í Maine. Eiríkur var stýrimaður og hafði útskrifast frá Stýrimannaskóla Vestmannaeyja þá um vorið. Gísli Jónasson skipstjóri og fleiri valinkunnir Vestmannaeyingar voru um borð. Fyrir mig, 17 ára drenginn úr litlu sjávarþorpi, var þetta úthald ævintýri líkast. Þarna eignaðist ég einn minn besta vin fyrir lífstíð, Eirík Hest. Eiríkur tók mig strax undir sinn verndarvæng og þegar úthaldinu lauk var ég að sjálfsögðu tekinn inn sem heimilismaður á Boðaslóðinni hjá foreldrum hans. Ég ætla mér ekki þá dul að gera ævi Eiríks Hests skil í stuttu ágripi. Það þarf meira til. Heldur ætla ég að minnast tveggja dagsetninga sem höfðu afgerandi áhrif á líf okkar beggja og reyndum við ætíð að hafa samband á þessum dögum. 10. apríl 1972 vorum við á leið í netaróður á Lunda VE 110 í austan 62
haugabrælu, komnir rétt austur fyrir hafnargarðanna þegar Siggi Vídó skipstjóri ræsti okkur með þeim orðum að það væri eitthvað í skrúfunni. Fljótlega var ljóst að það var trollnetastykki í skrúfunni og engin leið að ná því úr. Bátinn rak hratt undan austanveðrinu í átt að syðri hafnargarðinum. Var því farið í að láta akkerið falla en á meðan við vorum að gera það klárt reið fyrsta brotaldan yfir og kastaði bátnum upp á syðri hafnargarðinn. Við brotsjóinn fórum við allir á flot við spilið og þegar brotið fór út vorum við á leið út fyrir með sjónum. En einhvern veginn náði ég að grípa í aðra löppina á Eiríki sem var þá kominn upp á lunninguna, hangandi í bómuvantinum. Báturinn var lagstur á hliðina enda strandaður á hafnargarðinum. Ekki veit ég hvaða heilladísir voru til staðar þá en þegar báturinn hafði hreinsað sig af sjónum vorum við enn um borð. Rósemi og öryggi Sigga Vídó skipstjóra varð til þess að við komust allir heilir í höfn en Lundi VE 110 hafði farið í sinn síðasta róður. Seinni dagssetningin var við öllu jákvæðari aðstæður. 20. apríl 1973. Föstudagurinn langi og gosið í algleymingi. Ákváðum við Eiríkur ásamt unnustum okkar, Siggu og Þóru, að bregða okkur í bæinn og láta prestinn okkar, séra Þorstein Lúter, gefa okkur saman. Mikil leynd hvíldi yfir þessu öllu hjá okkur. Það var vegna þess að við vildum ekki auka á áhyggjur fjölskyldna okkar. Voru aðstæður erfiðar þá og vildum við ekki auka á fjárhagsáhyggjur okkar nánustu. Drifum við okkur því til Reykjarvíkur á hálfónýtum Trabant sem ég hafði fengið gefins. Stefnan var tekin á Hótel Esju sem var það fínasta á þessum árum. Við fórum í okkar fínasta, stelpurnar í upphlut og við í jakkaföt. Síðan fór þetta fína fólk í flottasta leigubíl sem Hreyfill gat boðið upp á. Hann skilaði okkur í kirkju Óháða safnaðarins þar sem séra Þorsteinn Lúter gaf okkur saman og vorum við svaramenn hvort hjá öðru. Leigubíllinn beið á meðan og var ólíkt meiri stíll yfir okkur er við
stigum út úr leigubílnum við Esju og fengum okkur stórsteik í tilefni dagsins. Í bakaleiðinni þurfti að stoppa til að taka eldsneyti. Eins og áður sagði var föstudagurinn langi og allt lokað fyrir utan eina bensínstöð og var löng biðröð eftir afgreiðslu. Þegar loksins kom að okkur gat afgreiðslumaðurinn ekki opnað og varð annar brúðguminn að skríða undir bílinn og losa húddið sem var bundið með rafmagnsvír. Afgreiðslumaðurinn brást skjótt við er hann sá í hvaða erindagjörðum þetta fína fólk var og færði okkur sinn hvorn konfektpokann. Það reyndist okkar fyrsta brúðkaupsgjöf. Er við komum til Keflavíkur var frú Erla Vídó búin að frétta af því að drengurinn væri búinn að gifta sig án hennar vitneskju og án veisluhalda. Varð uppi fótur og fit. Eiríkur tók þessu létt og kvöddumst við með þessum orðum: ,,Svenni minn þú verður að taka tvo í nótt og hugsa til mín í seinna skiptið það er nefnilega ræs hjá mér klukkan níu í kvöld.” ,,Já, OK en ég fer klukkan þrjú í nótt.” svaraði ég. Það þarf ekki alltaf mikið umstang til að hlutirnir virki. Eins og vænta mátti héldu Eiríkur og Sigga sitt heit út lífið og við Þóra stefnum á það sama. Sigga og Eiríkur eiga þrjár stelpur og við Þóra eigum þrjá stráka. Elsku Eiríkur minn. Um leið og ég þakka fyrir yndislega vináttu og samveru sakna ég þín og sérstaklega stóra og trausta faðmlagsins. Ég kveð þig með söknuði, kæri vinur, en ylja mér við fullt af yndislegum minningum um þig. Elsku Sigga, Dagbjört, Heiða, Erla og stórfjölskyldan öll, við Þóra sendum ykkur okkar innilegustu og dýpstu samúðarkveðjur. Svenni og Þóra.
Örnólfur Grétar Hálfdánarson F. 10.09.1944 - D. 23.04.2020
Örnólfur Grétar Hálfdánarson var fæddur 10. september 1944 í Bolungarvík og dáinn 23. apríl 2020. Kona hans var Sigurborg Elva Þórðardóttur og börn þeirra Halldór Svanur Örnólfsson, Hálfdán Freyr Örnólfsson og Dagný Hrund Örnólfsdóttir. Örnólfur Grétar var sjómaður mestallan sinn starfsaldur og veiðimaður af guðsnáð. Hann hafði yndi af því að renna fyrir fisk hvort sem var með stöng eða hampiðjustöng en það kallaði hann silunganet gjarnan. Örnólfur var ósérhlífinn í einu og öllu og alltaf reiðubúinn að gera það sem hann gat fyrir hvern sem var, hafði þess verið óskað. Að biðja um hjálp eða aðstoð var ekki til í hans hugmyndabanka. Árið 1996 fékk Örnólfur heilablóðtappa og varð líf hans talsverð brekka eftir það, misbrött. Hann hélt sér í líkamlegu formi með gönguferðum og líkamsrækt á meðan heilsan leyfði. Þau hjónin bjuggu í Vestmannaeyjum þegar þetta var. Höfum við heyrt að Örnólfur hafi á þessum tíma verið öðrum í Eyjum og þó víðar væri leitað mikil hvatning til hreyfingar. Gátu Vestmannaeyingar nánast stillt klukkuna sína eftir Örnólfi því gönguferðir hans fóru ekki fram hjá Eyjamönnum og vöktu þar aðdáun. Fyrir um það bil tveimur árum varð heilsa hans orðin þannig að hann varð bundinn hjólastól og þar af
leiðandi voru heilsubótargöngur úr sögunni. Örnólfur og Elva voru sérstaklega dugleg að ferðast um landið á meðan heilsa hans leyfði og var þá oft sofið í tjaldi. Sumir segja að Örnólfur hafi verið þrjóskur, sem er rétt. Það var reyndar þrjóskan og endalaus lífsvilji sem hélt honum gangandi þó þetta lengi. Örnólfur vann mikið afrek þegar Svanur ÍS fórst út af Ísafjarðardjúpi 29. janúar 1969 þar sem hann var skipstjóri. Þar réði úrslitum að áhöfninni tókst að láta vita af sér og mikið var afrek skipstjórans þegar hann stakk sér í helkaldan sjóinn úr ónýtum björgunarbáti sem mannskapurinn var kominn í. Synti hann yfir í Svan sem var að því kominn að sökkva, komst um borð, losaði björgunarbát, henti honum fyrir borð og stakk sér aftur í sjóinn. Þeim tókst að blása bátinn upp og komast yfir í hann og hann veitti þeim það skjól sem þeir þurftu þá klukkutíma sem liðu áður en þeim var bjargað um borð í varðskip.
Hjörleifur Sveinsson (Hjölli) F. 27.12.1954 - D. 18.08.2019
Hjörleifur Sveinsson fæddist í Vestmannaeyjum 27. desember 1954 og hét í höfuðið á föðurafa sínum. Foreldrar hans voru Sveinn Hjörleifsson, skipstjóri og útgerðarmaður, fæddur hér í Eyjum og kenndur við Skálholt sem stóð við Landagötu 22, og Aðalheiður Maggý Pétursdóttir húsmóðir, fædd á Ólafsfirði.
Sveinn fæddist árið 1927 og lést 2004 en Heiða fæddist 1930 og lést 2007. Systkini Hjörleifs eru Þóra Sigríður Sveinsdóttir, Þórey Sveinsdóttir, Kristbjörg Sveinsdóttir og Óli Pétur sem er látinn. Hjörleifur eignaðist son sem hét í höfuðið á föðurafa sínum, Sveinn Hjörleifsson, f. 25. september 1976. Fjölskyldan bjó fyrst á Hólagötu 36 en síðar flutti hún á Höfðaveg 2. Hafið var sennilega einn stærsti þáttur fjölskyldulífsins enda var Sveinn skipstjóri og útgerðarmaður. Hjölli byrjaði ungur að sækja sjóinn. Ein af fyrstu sjóferðum hans var alla leið til Bretlandseyja þegar hann var um 12 ára aldur. Sjómannsferilinn hóf hann á Kristbjörgu VE þar sem faðir hans var skipstjóri. Hjölli var á fjölda báta á sínum ferli: Kristbjörgu VE, Halkion VE, Gideon VE, Páli VE, Gjafari VE, Emmu VE, Sigurborgu VE, Drífu VE, Heimaey VE, Jóni Vídalín VE, Brynjólfi VE og Stíganda VE. Hjölli átti litla trillu, Gými VE 71, sem hann gerði út í nokkur ár á línu. Í þrjú ár fóru þeir feðgar á veiðar mánuðina október að miðjum febrúar eða þar til loðnan fór að koma. Hafa þeir rótfiskað eins og háttur víkingsins var alla tíð. Elsku pabbi. Það er sárt að kveðja þig. Við sem höfum átt ánægjulegar stundir síðastiðin þrjú ár. Þessi þrjú ár sem ég fékk að kynnast þér eru mér ómetanleg. Þeir voru nú ófáir bryggjurúntarnir sem við tókum saman og fræddir þú mig um hvert einasta skip og um Vestmannaeyjar í heild sinni. Ég kveð þig með þakklæti í hjarta. Þinn sonur, Sveinn Hjörleifsson.
63
HVAÐ SEGJA SJÓMANNSKONURNAR ?
Nafn: Selma Rut Sigurbjörnsdóttir.
Nafn: Erna Sævaldsdóttir. Starf: Eigandi Póley.
Starf: Hárgreiðslusnyrtir.
Fjölskylduhagir: Gift Gylfa Sigurjónssyni og saman eigum við fjóra drengi. Berg Pál, Andra Þór, Daníel Freyr og Sævald.
Fjölskylduhagir: Maki minn er Guðbjartur Logi Gunnþórsson og við eigum tvö börn, hann Helga Hrannar Guðbjartsson og Sigurbjörgu Önnu Guðbjartsdóttir. Hversu lengi hefur þú verið sjómannskona: 3 ár. Hvað er það lengsta sem maðurinn þinn hefur verið í burtu: 3 mánuðir. Var maðurinn þinn viðstaddur fæðingu barnanna ykkar: Já. Á hvaða tímum er fjarveran erfiðust: Þegar ég var komin 38 vikur á leið og hann ekki kominn heim. Hvernig sérðu fyrir þér ef þið mynduð skipta um hlutverk, þú færir á sjó maðurinn þinn í land: Ég bara sé það ekki fyrir mér, ha ha! Hvernig er sjómannadagshelgin yfirleitt hjá ykkur fjölskyldunni: Voða róleg held ég bara þar sem Guðbjartur verður mjög líklega bara á sjó.
64
Hversu lengi hefur þú verið sjómannskona: Í rúm 30 ár. Hvað er það lengsta sem maðurinn þinn hefur verið í burtu: Ætli það séu ekki næstum tveir mánuðir. Var maðurinn þinn viðstaddur fæðingu barnanna ykkar: Já hann var viðstaddur þær allar. Á hvaða tímum er fjarveran erfiðust: Þegar eitthvað kemur uppá eins og veikindi hjá börnunum og svo hittist það einnig alltaf á að ef eitthvað alvarlegt gerist þá er hann á sjó. Einnig þegar eitthvað er um að vera hjá fjölskyldunni og allir koma saman á frídögum. Hvernig sérðu fyrir þér ef þið mynduð skipta um hlutverk, þú færir á sjó maðurinn þinn í land: Ég bara sé það bara alls ekki fyrir mér. Gylfi gæti alveg skipt við mig um hlutverk í dag, en kannski ekki þegar drengirnir voru litlir. Fyrir utan það að ég gæti aldrei hugsað mér að vera á sjó. Hvernig er sjómannadagshelgin yfirleitt hjá ykkur fjölskyldunni: Frábær helgi með fjölskyldu, vinum og áhöfninni.
Nafn: Aníta Óðinsdóttir.
Nafn: Andrea Guðjóns Jónasdóttir.
Starf: Lögfræðingur.
Starf: Deildarstjóri á Hraunbúðum.
Fjölskylduhagir: Ég er gift Guðmundi Inga Guðmundssyni, stýrimanni og eigum við saman þrjá stráka, Guðmund Huginn, Gabríel Gauta og Óðinn Inga.
Fjölskylduhagir: Trúlofuð Óttari Steingrímssyni og eigum við tvö börn, Ísold Óttarsdóttur 5 ára og Hinrik Daða Óttarsson 2 ára.
Hversu lengi hefur þú verið sjómannskona: Ég hef verið sjómannskona í um 16 ár eða frá því við Guðmundur Ingi kynntumst.
Hversu lengi hefur þú verið sjómannskona: Ég hef verið sjómannskona í 12 ár í rauninni. Fyrst byrjaði hann bara á sumrin á sjó en svo stuttu eftir háskólann þá fór hann beint á sjó og hefur verið þar síðan.
Hvað er það lengsta sem maðurinn þinn hefur verið í burtu: Ætli það sé ekki um þrír mánuðir. Var maðurinn þinn viðstaddur fæðingu barnanna ykkar: Já hann var viðstaddur allar fæðingar hjá strákunum. Á hvaða tímum er fjarveran erfiðust: Ég myndi segja að það séu þau tilefni í fjölskyldunni þar sem verið erum að skapa mikilvægar minningar, þá getur reynt verulega á fjarveru hans. Hvernig sérðu fyrir þér ef þið mynduð skipta um hlutverk, þú færir á sjó maðurinn þinn í land: Ég hugsa að það myndi ekki ganga, sérstaklega þar sem ég er ekki nægilega sjóhraust. Hvernig er sjómannadagshelgin yfirleitt hjá ykkur fjölskyldunni: Hún er bara ávallt með svipuðu sniði. Bryggjan á laugardeginum með strákunum og svo skemmtun um kvöldið í Höllinni. Svo förum við alltaf á Stakkó á sunnudeginum með strákana og borðum saman stórfjölskyldan um kvöldið.
Var maðurinn þinn viðstaddur fæðingu barnanna ykkar: Já hann var viðstaddur báðar fæðingarnar sem betur fer. Á hvaða tímum er fjarveran erfiðust: Fjarveran er erfiðust þegar eitthvað er um að vera í fjölskyldunni, afmæli, boð og þess háttar. Þá söknum við hans gríðarlega þó svo að við söknum hans alla daga þegar hann er í burtu. Jafnframt eru fjarverurnar erfiðar þegar hann hefur verið lengi í burtu og dagarnir eru orðnir ansi margir. Hvernig sérðu fyrir þér ef þið mynduð skipta um hlutverk, þú færir á sjó og maðurinn þinn í land: Guð hjálpi mér kofinn yrði fokheldur….nei djók, en að öllu gamni slepptu þá myndi Óttar rúlla heimilislífinu upp hann er alveg með þetta. Ég yrði aftur á móti handlama að vera fjarri börnunum og myndi grenja öll kvöld, ég gæti ekki skipt fyrir mitt litla líf. Hvernig er sjómannadagshelgin hjá ykkur fjölskyldunni: Samverustund með fjölskyldunni og skemmtun út í eitt með góðum hópi sjómanna og mökum þeirra.
- Sara Sjöfn Grettisdóttir tók viðtöl við sjómannskonurnar
65
ÓTRÚLEGUR SJÓMANNSFERILL ÓLAFS TRYGGVASONAR
OLLI VILDI FREKAR Á TRILLU MEÐ AFA EN SUMARFRÍ MEÐ FORELDRUNUM ÓLAFUR TRYGGVASON KYNNTIST SJÓMENNSKU EINS OG HÚN VAR STUNDUÐ Í UPPHAFI SÍÐUSTU ALDAR OG FRAM YFIR HANA MIÐJA. - RERI ÁTTA ÁRA Á TRILLU - FYRSTU VETRARVERTÍÐ 18 ÁRA. -TÓK ÞÁTT Í AÐ BJARGA ÁHÖFNUM TVEGGJA BÁTA. - FÓR SJÁLFUR Á EFTIR MANNI SEM KASTAST HAFÐI ÚTBYRÐIS OG NÁÐI AÐ BJARGA HONUM VIÐ ILLAN LEIK.
66
Ólafur Tryggvason fæddist 1939 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Tryggvi Ólafsson málarameistari frá Garðhúsum og Þórhildur Stefánsdóttir húsmóðir frá Gerði. Ólafur er elstur þriggja bræðra, hinir voru Stefán Þór og Sævar Tryggvasynir. Ólafur kvæntist Kristínu Ester Sigurðardóttur sem lést árið 1988 og eignuðust þau Tryggva Þór, Sigurð Ómar og Lindu Björk. Núverandi eiginkona Ólafs er Júlía Tryggvadóttir og eiga þau dótturina Þórhildi. Fyrir átti Júlía soninn Tryggva Má Sæmundsson. Ólafur kláraði meistaranám í húsamálun og starfaði lengst af sem málari en einnig sem sjómaður. Hann var aðeins átta ára gamall þegar hann byrjaði að sækja sjóinn og þá með afa sínum. Tíu árum seinna fór hann í fyrsta sinn á vertíð.
67
Foreldrarnir í frí og Olli á sjóinn „Ég var mikið hjá ömmu og afa, bæði í Garðhúsum og Gerði. Stefán afi í Gerði var með búskap á þessum tíma. Hann var meðal annars með kúabú, hesta og kindur ásamt því að sækja sjóinn. Það má segja að hann hafi verið stórbóndi á vestmannaeyska vísu. Þegar mamma og pabbi fóru í sumarfrí fékk ég að fara með afa á Halkion á skötu- og lúðuveiðar átta ára gamall ef veður var gott. Við vorum nokkra daga úti og mér fannst þetta alveg dýrlegt,“ segir Olli sem upplifði sjómannsdrauminn ungur. Halkion, sem í minningu Olla var um 30 tonn, sökk seinna vestan við Eyjar. Sjómennska, búskapur og íþróttir Olli stundaði sjó og búskap á sumrin en var jafnframt því á kafi í íþróttum. „Ég var í fótboltanum, spilaði bæði fyrir Þór og ÍBV. Það var svolítið skrítið því að mamma og pabbi voru á fullu í golfinu og meðal stofnenda Golfklúbbs Vestmannaeyja. Ég mátti aldrei vera að því að fara í golf. Alltaf á fullu í eggjum og lundaveiði samhliða fótboltanum og sló aldrei golfkúlu á þessum árum. Það gerðist ekki fyrr en löngu seinna að ég tók þátt í minigolfi á Kanarí,“ segir Olli. Þar hafa þau Júlía varið nokkrum vikum að vetrarlagi í hvert sinn undanfarin ár. „Í lundanum var ég mikið á Heimalandinu en einnig í Brandinum og í Suðurey með Gunnari frænda í Gerði. Í Brandinum og Álsey var ég í viku í senn með Gísla Bryngeirs, Sigurgeiri og fleiri köppum. Seinna meir gekk ég svo í Elliðaeyjarfélagið.“ Fylltu á Stakkabótinni Sem peyi naut Olli góðs af því að afi hans átti trillu ásamt Óla í Bæ og fékk Olli stundum að fara með þeim þegar veður var gott. „Einu sinni fórum við austur í Stakkabót, róður sem ég gleymi aldrei. Þar komum við auga á síldartorfu, renndum beint í hana og fylltum trilluna af stórufsa á nóinu. Eftir það héldum við í land, lönduðum úr bátnum og sigldum beint út aftur þar sem báturinn var fylltur á ný. Á leiðinni heim voru skotnir nokkrir svartfuglar í matinn. Það var sko ekki gefist upp á þessum tíma. Slíkum dögum gleymir maður aldrei.“ Sannkallað ævintýrasumar Sumarið þegar Olli var 13 ára reri hann með afa sínum á trillunni og voru þeir á línu. „Við vorum með fimm bjóð sem við beittum sjálfir. Þetta var sannarlega ævintýralegur tími, 68
gott veður og mikið fiskerí þannig að maður var vel settur eftir sumarið. Afi gaf manni engan afslátt þegar við vorum að fara út. Hann var stundum spurður að því hvort hann ætlaði að drepa peyjann þegar hann var að ræsa mig milli klukkan þrjú og fjögur á nóttunni. Við fórum oft út að Suðurey, í Ólafsholuna, og fiskuðum mjög vel. Aldrei var slappað af. Þegar búið var að leggja renndum við færum í þá tvo til þrjá tíma sem línan var látin liggja. Við komum kannski inn og lönduðum um klukkan tvö eða þrjú á daginn og strax að löndun lokinni var farið í beituskúrinn að beita. Í landlegum var farið í fjöruna að tína skelfisk sem var úrvalsbeita. Þetta sumar var einstakt og frábært að vera með kallinum. Hann var þolinmóður við peyjann sem lærði mikið af honum. Þegar hann vildi leggja áherslu á eitthvað sagði hann ekki einn, tveir og þrír, heldur einn, tveir og sjö og þá var drifið í því! Þetta hef ég notað á mannskapinn í málningunni þegar mikið liggur við.“ Góður skóli Fyrir Olla var samveran með afa líka mikill skóli í kennileitum og miðum sem farið var eftir til að finna líklega fiskislóð. ,,Ég þekki eiginlega öll mið við Vestmannaeyjar. Ég man einu sinni eftir því þegar ég var á sjó vestur við Þrídranga. Trilla á svipuðum slóðum varð fyrir því óhappi að tækin virkuðu ekki. Skipverjinn nefndi ákveðinn hól og spurði mig hvort ég hefði miðin af honum. Ég hafði miðin í kollinum, þetta voru steinar í Klifinu og Sæfellinu og þar með kom ég honum á réttan stað. Ég þekki öll þessi mið. Lærði sömuleiðis margt af Ása í Bæ og fleiri gömlum körlum. Siggi í Bæ var mjög góður vinur minn og lánaði mér miðabókina sína. Ég hjálpaði honum oft að mála Hvíting, trilluna hans, möstrin og fleira. Ég tók aldrei neitt fyrir það og hann launaði mér greiðann með þessu.“ Átján ára á vetrarvertíð Átján ára fór Olli á sína fyrstu vertíð á Bjarma VE með Stefáni afa sínum. „Þetta var síðasta vertíðin hans afa en svo var ég eina eða tvær vertíðir með Gaua Tomm sem tók við sem skipstjóri af afa. Elli í Ólafshúsum var vélstjóri, frábær kall. En það var ævintýri að vera með kallinum honum afa, hann var alltaf svo góður við okkur en á sama tíma ákveðinn. Á
EKKI SOFNA Á VERÐINUM Láttu ekki ofþreytu sigla þér í strand. Svefnskortur er algeng orsök slysa á sjó. Gætum þess að fá næga hvíld og vökum yfir öryggi okkar.
69
siglingu var hann að segja manni hvernig ætti að gera hlutina, það kom sér vel seinna meir þegar maður fór sjálfur að róa á trillu. Til dæmis eins og að fara fyrir Klettinn í roki, þá sagðist hann alltaf notast við frákastið eftir straumum. Það er svo magnað að keyra í frákastinu, snöggar veltur en maður passaði sig á að vera passlega langt frá bjarginu. Þá komst maður klakklaust í gegnum þetta.“ Alltaf trillukarl Innst inni var afinn alltaf þessi gamli trillukall sem átti það til að grípa í færin á vertíðum. „Það voru einar tíu rúllur um borð, þessar gömlu færeysku. Ég man eftir einu heimstíminu austan af Vík. Ég átti vaktina heim og þegar við komum að opnum fossi var mikið súlukast fyrir innan okkur. Ég kallaði í afa og sagði frá súlukastinu. Hann sagði mér að taka stefnuna og í framhaldinu voru allir ræstir. Það var þorskur á hverju járni og þarna drógum við um tíu tonn. Ég held að á þessari vertíð höfum við fengið yfir þrjátíu tonn á færi þó við værum á netum. Við renndum oft færum áður en við lögðum í lóðningarnar. En það var eitthvað sem kallinn hafði trú á.“ Stebbi í Gerði mikill happamaður Þegar móðurbróðir Olla, Stefán Stefánsson eða Stebbi á Halkion eins og hann var oft kallaður, lauk Stýrimannaskólanum hófst nýr kafli í útgerðarsögu fjölskyldunnar. Það gerðist með kaupum á fyrsta Halkion VE. „Ég fór yfir til Stebba ári eftir að hann kláraði skólann. Þetta var trébátur, ekki ósvipaður straubolta í laginu en Stebbi fiskaði alltaf mjög vel á hann. Það var mér gæfa að vera með svona mönnum. Stebbi var mikill happamaður, fiskaði vel og bjargaði mörgum mönnum, þremur áhöfnum.” Hefðbundið vertíðarmunstur var línuveiðar fyrri part vertíðar og net þann síðari. „Stebbi var fiskinn á línuna og við vorum stundum aflahæstir á henni. Það var oft slarksamt á línunni, sótt mjög stíft en þessi bátur var algjör sjóborg. Hann var svo hár um miðjuna að hann tók aldrei sjó inn á sig.“ Blússið merkilegt fyrirbrigði „Ég man eftir að eitt sinn fylltum við bátinn af þorski austur af Vík. Það var mikil bræla á leiðinni í land og fullt af fiski í kringum lúkarskappann og stýrihúsið. Til varnar því að sjór færi í lúkarinn þurftum við að slá út neðsta borðið. Já, það gekk 70
mjög vel á þessum bát. Hann bætti síðar við sig gangi þegar ný vél var sett í hann. Á línunni, þegar gefið var merki um að bátarnir mættu fara út – blússið eins og það var kallað, varð Svenni á Krisunni ansi hissa að sjá bát sigla fram úr sér. Hann setti kastarann á okkur til að sjá hvaða bátur þetta væri. Þetta var rosalega gaman, allt sett í botn um leið og merki var gefið og sérstakt að sjá alla bátana í einum hnapp.“ Nýr bátur ,,Það gekk alltaf vel á þessum báti og ég man ekki eftir öðru en góðu fiskiríi. Svo fór ég yfir á næsta Halkion, hundrað tonna stálbát sem smíðaður var í Austur-Þýskalandi á sínum tíma. Það var mikil happafleyta eins og allir bátarnir sem báru Halkionsnafnið. Hann var svolítið blautur í göngunum eins og allir þessir bátar voru. Það aflaðist líka vel á hann og við vorum aflahæstir eina eða tvær vertíðar. Það var sótt stíft, enda Stebbi mikill sjómaður og flinkur og farsæll skipstjóri.“ Það sýndi sig þegar Bergur VE fórst í Faxaflóanum í desember 1962. Aðstæður voru mjög erfiðar, myrkur og mikill sjór. „Sjálfur var ég að hefja nám í Iðnskólanum og var því í fríi á þessum tíma. Þeir náðu að bjarga öllum blautum og köldum en heilum. Svo var það þegar Erlingi fjórða hvolfdi fyrir vestan Eyjar, þá vorum við fyrstir á staðinn. Okkur tókst að bjarga átta mönnum en tveir fórust og fundust aldrei.“ Næst var það Blátindur sem varð vélarvana við Færeyjar. „Við vorum á leiðinni til Þýskalands með fullan bát af fiski. Þegar við nálguðumst Færeyjar barst kall um að Blátindur væri með bilaða vél í svartaþoku og vitlausu veðri. Fjöldi báta, þar á meðal enskur togari, leituðu en fundu ekki bátinn. Stebbi náði honum inn á miðunarstöðina og ég veit ekki hvað við sigldum í marga klukkutíma, alltaf í sömu stefnu og hittum að lokum á bátinn eftir að hafa siglt 200 mílur. Það var alveg ótrúlegt að okkur skyldi hafa tekist að finna bátinn í svartaþoku. Ásmundur Friðriksson var þá skipstjóri á Blátindi KE 88. Við drógum bátinn til Færeyja og héldum áfram til Aberdeen í Skotlandi en ætluðum upphaflega til Þýskalands.“ Jólin tekin í nefið Næst var það stóri Halkion, 250 tonna bátur sem einnig var smíðaður í Austur-Þýskalandi, hefðbundinn vertíðarbátur sem var á netum, síld og loðnu og var notaður til síldveiða fyrir austan til ársins 1968 er síldin hvarf.
Hressir peyjar í fullum herklæðum með bjarghring af elsta Halkion VE 27. Olli, Baldur Þór Baldvinsson, Kristinn Baldvinsson og Guðbjartur Herjólfsson.
„Það gekk líka rosalega vel á honum og ekkert var gefið eftir. Ég man eftir einu skipti þegar við vorum við veiðar á Rauða torginu úti af Austfjörðum þar sem síldin hélt sig. Það gat verið strembið að komast í land í slæmum veðrum með fullan bát. En allt slapp þetta hjá okkur.“ Einu sinni komu þeir til Eyja í jólafrí með fullan bát. „Við lönduðum og báturinn var þrifinn. Strax á eftir voru netin tekin, steinað niður og netin lögð á ný milli jóla og nýárs. Við komum einu sinni í land til þess að ná í ís, fylltum lestina, komum svo inn á gamlársdag og síðan var siglt út 2. janúar til Þýskalands. Svona gekk þetta fyrir sig en Gunnari vélstjóra fannst ekki hægt að jólin væru bara tekin í nefið. Kallarnir tóku allir í nefið en þetta fannst honum einum of mikið.” Stakk sér á eftir skipsfélaga sínum Það var á þessum Halkion sem Olli bjargaði skipsfélaga sínum sem datt útbyrðis eftir að hafa fengið snurpuhring í höfuðið. „Þetta gerðist austur í Bugt með nótina á síðunni í suðvestan kalda, talsverðum sjó og stórhríð. Maðurinn var meðvitundarlaus og flaut í nótinni og ég stakk mér á eftir honum. Það var svo slæmt í sjóinn að við lentum stundum
niður að slingurbrettum þegar við soguðumst undir bátinn. Svo var lestarstiginn settur út og ég reyndi að klifra upp stigann með manninn í hægri hendi á meðan sú vinstri klemmdist á milli skips og stigans. Í einni dýfunni, þegar ég ætlaði að hífa mig upp, hafði ég það ekki. Þá vildi svo til að stakkur mannsins festist undir stiganum öðru megin. Þess vegna gleypti hann mikinn sjó þegar við fórum aftur og aftur á kaf. Gísla stýrimanni tókst á endanum að koma bandi undir hendur mannsins og áhöfnini tókst að hífa hann um borð.“ Eftirminnilegt að bjarga mannslífi Olli er hraustur maður og sýndi það sig best við þessar aðstæður. Hann var sá eini sem hafði kjark til að stinga sér í sjóinn. Hann var í fimmtán til tuttugu mínútur að berjast í ísköldum sjónum. Eftir að búið var að ná manninum upp missti Olli takið og rak hann aftur með skipinu. „Keflvíkingur, sem var alveg eins og Halkion, lýsti á mig og ætlaði að taka mig upp. Ég hafði það samt að synda sjálfur að stiganum á Halkion og komst að lokum upp. Það náðist töluverður sjór upp úr skipverjanum sem slapp annars vel. Það er eins og manni sé gefinn einhver aukakraftur við svona aðstæður.“ Slysið átti sér stað árið 1969 og var Olla veitt viðurkenning á Sjómannadaginn það ár fyrir
71
nokkra stund kom sú gamla út í glugga og ég heyrði hana segja: „Guðlaugur, Guðlaugur, hann Olli er með einhver læti hérna fyrir utan, hann er ábyggilega fullur! Guðlaugur kom út og sá hvað var að gerast og þau komu sér niður á bryggju eins og aðrir. Það hvarf allt hjá mér á sex klukkutímum. Ég náði ekki að bjarga neinu úr húsinu. Það fór alveg á kaf í ösku og brotnaði meðal annars austurgaflinn,” segir Olli, sem bjó á Gerðisbraut 5. Á trillu með Palla Árna Þar með lauk ferlinum á stærrri vertíðarbátum og við tók húsamálun og trillumennska. Stoltur trillukarl með væna fiska.
frækilega björgun. „Þegar litið er um öxl er þetta einn eftirminnilegasti og besti dagur lífs míns að ná að bjarga mannslífi. Það var líka mikill heiður að fá viðurkenningu frá Sjómannadagsráði,“ segir Olli og brosir. Sá jörðina rifna Olli segir það mikið lán að hafa verið með Stebba á Halkion sem var happasæll í öllu sem hann tók sér fyrir. ,,Sjálfur endaði ég veru mína á Halkion með því að taka gosvertíðina, kláraði hana,” segir Olli sem mátti sjá á eftir öllum sínum eigum strax á fyrstu klukkustundum Heimaaeyjargossins sem hófst aðfaranótt 23. janúar 1973. „Við áttum að fara á sjó klukkan tvö en ekkert varð af því. Það var svo skrýtið að yngri peyinn minn kom hlaupandi inn í herbergi og kallaði: ,,Pabbi, pabbi, það er kviknað í húsinu fyrir austan okkur.” Ég nuddaði stírurnar úr augunum, leit út og sá þá eina spýju koma upp og jörðina rifna í báðar áttir.” Allt hvarf á sex klukkustundum Hann bað konuna sína um að klæða börnin í hvelli. „Ég ætlaði yfir til að tala við Stebba en hann var farinn. Þá var mér litið til Gamla Gerðis, þar sem Guðlaugur bjó. Þar var ekkert líf. Ég sagði konunni að halda áfram og drífa sig með krakkana niður að höfn. Ég fór svo upp að Gerði, hoppaði upp í gluggann á húsinu og reyndi að banka og kalla. Eftir þó 72
„Ég átti trilluna Venus sem ég reri á með málningunni á sumrin. Ég fékk þá frí hjá pabba og svo reri ég nokkur sumur með Palla Árna á trillunni hans, Árna Páls. Það var oft gaman og gekk oftast mjög vel. Í eitt skiptið vorum við að koma vestan að Dröngum og trillur voru fyrir vestan Álsey en lítið að hafa. Svo héldu hinir sína leið en ég sagði við Palla: „Við verðum hér áfram!” „Af hverju?” spurði Palli og ég svaraði: „Klukkan er orðin það margt að ég fer ekki að mála þegar við komum heim. Klukkan var þá orðin þrjú og ég vildi bíða eftir fallaskiptunum sem áttu að vera milli klukkan fjögur og fimm. Það var eins og við manninn mælt, fiskur á hverju járni. Við fengum um tvö tonn og lönduðum ekki fyrr en klukkan 11 um kvöldið í Fiskiðjuna.” Fimm tonn á einum sólarhring Olli sá að þarna gæti verið von um meiri fisk. ,,Ég sá hvenær fallaskiptin yrðu og hringdi í Palla fyrir klukkan fjögur um nóttina: „Ræs, kemur þú ekki með?” Hann svaraði því játandi en öskraði svo í símann og spurði hvort ég vissi ekki hvað klukkan væri? Hann var þá búinn að sofa í tvo eða þrjá tíma. Ég sagði hann gæti lagt sig á útleiðinni til að við kæmumst á miðin frá deginum áður þegar færi að birta. Við hentum færunum út og það var fiskur á hverju járni. Þegar hinar trillurnar komu út vorum við komnir með hátt í tvö tonn. Þetta var ævintýri og við lönduðum um fimm tonnum þennan sólarhring.“ Þorskurinn háfaður um borð ,,Einu sinni sem oftar fórum við á sjó og voru trillur um allan sjó en lítið að fá. Þá kallaði skipstjóri á loðnubát í mig og sagði: „Olli, getur
þú komið hérna upp að hliðinni á okkur, sem við svo gerðum. Sjórinn var svo mikill að ég setti út alla belgi. Skipstjórinn vildi að ég tæki þorsk sem þeir fengu í loðnunótina og háfuðu yfir til okkar. Lætin í veðrinu og sjónum voru svo mikil að handriðið á trillunni brotnaði. Þetta gekk með naumindum en allt í einu kallaði skipstjórinn á loðnubátnum: „Slepptu, Landhelgisflugvélin er að koma.” Hún flaug alveg niður að sjó og stefndi á okkur. Ég komst rétt fram fyrir loðnubátinn góða, hengdi þorska á fjöldan allan af færum og voru slóðarnir fullir af fiski þegar þeir flugu yfir okkur. Við drógum þá aftur inn og lögðumst aftur utan á bátinn og síðan fylltu þeir trilluna hjá okkur.“ Lentum bara í torfu og fylltum Loðnubáturinn hélt heim á leið til Eyja en Olla fannst það ekki trúverðugt að hafa fyllt bátinn á einum og hálfum tíma. „Við biðum því undir Elliðaey. Þá var kallað í okkur og sögðumst við hafa lent í miklum fiski. Þá mættu allir á hraðbátum eins hratt og þeir komust. Við komum í land með fullan bát af stórþorski. Í miðri löndun kom góður vinur minn til okkar og spurði hvar við hefðum fengið allan þennan afla. Palla, sem leist ekki á blikuna þegar loðnubáturinn háfaði fiskinn yfir til okkar, svaraði: „Já, drengir, þetta gekk vel þó svo við værum ekki á hraðfiskibáti. Við lentum í torfu og fylltum!”
Brugðið á leik fyrir barnabörnin með fýl sem hann greip á flugi..
Olli unir hag sínum vel. Hann heyr baráttu við krabbamein og tekst á við sjúkdóminn af æðruleysi og með bros á vör sem er hans einkenni. Alltaf hress og skemmtilegur.
Aflinn á kerru Í annað skipti var hringt í Olla frá loðnubáti sem var nýkominn í land. „Þeir báðu mig um að koma í hádeginu með kerru, sem ég svo gerði og var hún fyllt af þorski. Þegar ég var að fara með körin um borð kom Palli auga á mig og spurði mig hvað ég væri að brasa. Ég hafði fá orð um það en nokkrum dögum seinna fékk hann nótu upp á eitt og hálft tonn af fiski. Þá vöknuðu upp spurningar hjá Palla: „Hvenær fórstu eiginlega út?” Sjóstöngin Olli var einnig mjög virkur í sjóstangveiðinni, bæði sem keppandi og skipstjóri. „Já, ég var mikið í sjóstönginni með Rikka félaga mínum. Ríkharður Stefánsson Zóega, þá kokkur á Smáey, var driffjöður í þessu öllu saman eins og öðru sem hann kemur að. Við vorum alltaf saman í holli ég, Bogi í FES og Sveinn Jónsson. Maður á orðið fjöldann allan af medalíum og verðlaunapeningum.“ 73
HAPPASKIP OG HAPPASKIPSTJÓRI
HRIFSAÐI 24 MENN ÚR GREIPUM DAUÐANS Á 18 MÁNUÐUM
Stefán skipstjóri, Gísli Eyjólfsson stýrimaður og Olli þegar 100 tonna Halkion var sóttur til Þýskalands. Halkion VE 205 var mikið gæfu- og aflaskip.
„Það var áhöfnin á Vestmannaeyjabátnum Halkion VE sem bjargaði átta mönnum af áhöfninni á Erlingi IV í gær og er það í þriðja skiptið á skömmum tíma sem Halkion kemur bátum til bjargar,“ segir í Morgunblaðinu laugardaginn 23. mars 1963. Fyrsta skiptið var í októbermánuði 1961 þegar Halkion fann Blátind með bilaða vél út af Færeyjum og dró til hafnar í Þórshöfn. Í desember 1962 bjargaði hann 11 mönnum af Bergi VE 44 sem sökk undan Jökli og síðast skipverjum á Erlingi. Halkion bjargaði þannig alls 24 sjómönnum á einu og hálfu ári. Ólafur Tryggvason, Olli málari, var á Halkion þegar Blátindi var bjargað og þegar átta mönnum af Erlingi IV VE var bjargað. Skipstjóri á Halkion var Stefán Stefánsson, Stebbi í Gerði, frændi Olla. Hann sagði í samtali 74
við Morgunblaðið það vera bara eins og hvert annað lán að geta orðið til að bjarga mönnum í sjávarháska, líkt og fá stóra vinninginn i happdrættinu. Ætlaði ekki á sjó Sjálfur ætlaði Stefán ekki sjó daginn sem Erlingur IV fórst. Taldi ekki sjóveður en fór samt klukkutíma seinna en hann hefði annars gert, nokkru á eftir Erlingi IV. Þegar þeir á Halkion voru komnir vestur úr rétt fyrir kl. sjö varð sá sem var með Stefáni við stýrið var við blikkandi rautt ljós. Sá Stefán fljótt að eitthvað var að og hafði samband við báta sem þarna voru í kring. Var þá farið að svipast um og aðgæta hvað þetta gæti verið. Eftir skamma stund sáu þeir gúmmíbát. Stefán sagði það hafa verið miklum erfiðleikum bundið að ná mönnunum upp í Halkion úr gúmmíbátnum. Þeir voru allir mjög kaldir
og blautir, sérstaklega skipstjórinn, Ásberg Lárenzíusson. Þarna björguðust átta af tíu skipverjum á Erlingi IV. Taldi Stefán að ef gúmmíbáturinn hefði ekki verið um borð hefði björgun verið útilokuð. Gúmmíbátarnir hefðu enn einu sinni sýnt yfirburði sína sem björgunartæki og taldi hann að algerlega hefði verið vonlaust að nota trébjörgunarbát. Björgun Blátinds „Halkion bjargaði Blátindi frá Keflavík í októbermánuði 1961 við Færeyjar og var þá á leið til Þýskalands með ísfisk,“ segir í sömu grein í Morgunblaðinu. Spurðist út að Blátindur væri einhvers staðar úti af Færeyjum með bilaða vél í þoku og slæmu veðri. Voru nokkrir bátar að leita en Halkion var í um 200 mílna fjarlægð frá honum þegar fréttist af biluninni og hann fór úr leið. Fann Halkion bátinn og fór með hann til Færeyia. Þetta tafði Halkion um tvo sólarhringa, svo hann varð að fara með fiskinn til Aberdeen en ekki til Þýskalands.“ Björgun skipverja á Bergi „Fimmtudaginn 6. desember 1962 var Bergur VE 44 á síldveiðum út af Snæfellsnesi. Síðdegis fékkst gott kast eða um 800 tunnur. Suðaustan kaldi var og kröpp alda. Eftir að búið var að háfa og gera sjóklárt, var stefnan sett inn með Snæfellsnesi að sunnan áleiðis til Reykjavíkur. Um klukkan átta um kvöldið skall kröpp kvika á bátinn með þeim afleiðingum, að stjórnborðssíðan keyrðist í kaf og rétti báturinn sig ekki eftir það,“ segir í Sjómannadagsblaðinu 1963. „Var skipshöfninni, 11 manns, þá sagt að yfirgefa skipið og fara í gúmmíbát, sem var staðsettur á stýrishúsþakinu. Skipverjar voru fljótir til þar sem
Stefán Stefánsson, skipstjóri á Halkion: Eins og hvert annað lán að geta orðið til að bjarga mönnum í sjávarháska, líkt og fá stóra vinninginn i happdrættinu.
enginn var kominn niður í lúkar, en þeir voru aftur í matsal að borða. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður tókst fljótlega að blása gúmmíbátinn upp, en varla mun hann hafa verið uppblásinn er allir voru komnir í hann og má segja að Bergur hafi horfið í djúpið um leið. Áður hafði skipstjóranum, Kristni Pálssyni tekist að senda út neyðarkall til nærstaddra báta. Ekki þurftu skipverjar að hrekjast lengi í gúmmíbátnum, því nærstaddir bátar voru þegar byrjaðir að leita þeirra og um tuttugu mínútum seinna var öll skipshöfnin komin um borð í vélbátinn Halkion VE-205 þar sem Stefán Stefánsson var skipstjóri,“ segir Sjómannadagsblaðið og bendir enn á mikilvægi gúmmíbjörgunarbáta.
Salt Umbúðalausnir Rekstrarvörur Íbætiefni
Cuxhavengötu 1 · 220 Hafnarfirði · sími: 560 4300 · saltkaup@saltkaup.is · www.saltkaup.is
75
Albert á sjónum. Mynd: Gunnar Ingi.
ALBERT SÆVARSSON SJÓMAÐUR OG MARKMAÐUR HJÁ ÍBV
ÖFLUGUR LIÐSMAÐUR Í ÍÞRÓTTUM Í GRINDAVÍK OG EYJUM Albert Sævarsson er fæddur í Reykjavík, uppalinn í Grindavík en býr í Vestmannaeyjum. Hefur talsvert verið á sjó en þekktastur fyrir fótboltann. Var lengst af í marki. Kom til ÍBV 2008 og var með Eyjamönnum í fjögur tímabil eða til 2011. Albert kunni vel við sig í Eyjum og er hér enn. Stundar sjóinn og er sáttur við það enda kominn af sjómönnum í Grindavík langt aftur í aldir. Hann átti góð ár hjá ÍBV. Liðið endurheimti sæti sitt í efstu deild sumarið 2008, var nálægt því að vinna deildina 2010 og átti möguleika á Íslandsmeistaratitli allt undir það síðasta árið eftir. Þá var Heimir Hallgrímsson þjálfari og var starf hans hjá ÍBV allt til ársins 2011 eitt af skrefum hans á glæstum ferli sem þjálfara. „Ég fæddist í Reykjavík en ólst upp í Grindavík og hef búið þar lengst af ævinni. Var tvö ár í Færeyjum en síðustu tólf árin í Vestmannaeyjum,“ segir Albert sem er kominn af þekktum sjósóknurum í Grindavík og þekkja margir Eyjamenn pabba hans. 76
„Pabbi er Sævar á Alberti GK, einn af þessum loðnuskipstjórum. Þeir eru margir hér sem þekkja hann. Hann var til dæmis í viðskiptum við þá í Net sem sáu um loðnunæturnar fyrir útgerðina. Það þekktu líka margir Þórarinn afa minn sem lengi var skipstjóri á Þorbirni II GK.“ Byrjaði á netum Albert byrjaði sjómannsferilinn á Eldhamri GK. „Ég var þar tvær netavertíðar áður en kallið kom frá pabba en ég var alltaf að grenja í honum að fara á Albert. Það var á afmælisdaginn minn, 18. október 1989, að hann kemur til mín og segir að ég megi koma með honum á loðnu. Þá var ég sextán ára og var tvær vertíðar með honum en síðan sagð‘ann að ég fengi ekki að róa meira með honum. Þá fór ég yfir á Grindvíking. Þarna kom bróðir minn um borð eftir að hafa klárað Stýrimannaskólann og ég frétti það mörgum árum seinna að það var mamma sem sagði stopp. Vildi ekki að við væru þrír feðgarnir á sama bátnum.“
Verslun Skipalyftunnar MIKIÐ ÚRVAL AF: efnavöru verkfærum vinnufatnaði
veiðarfæravörum boltum, róm og skífum straub tengjum legum og pakkdósum suðu og slípivörum
hosu- og pariklemmum smurkoppum trillu zinki viftureimum
Skipalyftan ehf. óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn!
SKIPALYFTAN ehf. Skipalyftan ehf. l Eiðinu l 900 Vestmannaeyjum l Sími 488 3550 l 481 1493
77
Í öllum íþróttum Grindavík er öflugur íþróttabær, ekki síst í fótbolta og körfu. „Ég tók þátt í öllum íþróttum sem stundaðar voru í Grindavík. Númer eitt og tvö voru fótbolti og karfa, svo komu frjálsar og einn vetur handbolti og svo náttúrulega golfið. Ég endaði í markinu hjá Grindavík og spilaði þar þangað til ég varð 29 ára. Þá var ég eitt ár í Færeyjum þar sem ég lék með B 68 á Tóftum, aftur eitt ár með Grindavík og svo aftur til Færeyja þar sem ég var í eitt ár.“ Albert hætti á sjónum 2000 og var varamarkmaður hjá Grindavík sem vann fyrstu deildina það ár og komst í hóp þeirra bestu í efstu deild. „Ég var fenginn á æfingar um vorið og það gekk vel hjá okkur. Við unnum deildina og komumst í bikarúrslitaleik. Þarna byrja ég aftur í fótbolta og eftir þrjá eða fjóra fyrstu leikina sumarið 1995 er mér hent í markið og þar spilaði ég næstu átta eða níu árin án þess að missa af leik. Áður en ég kem til Eyja spila ég tvö ár með Njarðvík. Með ÍBV spila ég svo í fjögur ár þar sem við byrjuðum á að fara upp um deild.“ Góður tími hjá ÍBV Albert átti góðan tíma með ÍBV en var kominn á 38. árið undir lokin og fannst þá tími kominn til að hætta og fór aftur á sjóinn þegar fótboltaferlinum lauk. „Reyndar fannst mér þá ég vera búinn að spila tveimur eða þremur tímabilum of lengi. Annars er ég sáttur þegar ég lít yfir fótboltaferilinn. Fannst ég vera að gera góða hluti og ég hjálpaði þessum tveimur bæjarfélögum að eiga góð íþróttalið,“ segir Albert en lífið er ekki bara fótbolti. „Ég gæti talið upp flestalla báta í Vestmannaeyjum!“ svarar Albert og hlær þegar hann er spurður á hvaða bátum hann hafi verið í Eyjum. „Ég hef róið á mjög mörgum bátum en verið síðustu tvö ár á Bylgju VE sem rær að meðaltali sex mánuði ári. Þess á milli er ég í afleysingum og líkar það bara vel og unnið í Skipalyftunni.“
liðinu og er með til 2008 að hann er ráðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari.
Albert á sjónum.
Ferillinn • Albert var í meistaraflokksliðum í 277 leikjum og skoraði fimm mörk. • Lék með ÍBV frá 2008 til 2011 í alls 78 leikjum, þar af fimm bikarleikjum. • 2008 – ÍBV upp í efstu deild. • 2009 – ÍBV í 10. sæti með 22 stig. • 2010 – ÍBV í þriðja sæti með 42 stig, svo nálægt því að verða Íslandsmeistarar. • 2011 –ÍVB í þriðja sæti með 40 stig. Grátlegt tap í síðustu tveimur leikjum gerði vonir um titil að engu. • Í ágúst 2006 tekur Heimir Hallgrímsson við 78
Albert Sævarsson.
ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Sjómenn, til hamingju með daginn
Óskar sjómönnum og fjölskyldum til hamingju með daginn!
GRAFÍSK HÖNNUN, MYNDSKREYTINGAR, 79 ANDLITSMYNDIR, SKOPMYNDIR, MÁLVERK www.gunnarjul.is - gunnar@dinamit.is - sími 844 0806
YFIRVÉLSTJÓRINN Á KAP STÚDERAR LÖGFRÆÐI Á SJÓ fimm systkinin. Foreldrar mínir eru látnir, þau voru bændur að Gili í Svartártárdal. Ég fór í Vélskólann 1975 og var þar í þrjú ár. Fór svo og lærði rafvirkjun og hef verið á sjó frá 1987.
Örn Friðriksson er yfirvélstjóri á Kap VE 4 en var áður á Sighvati Bjarnasyni VE. Bæði skipin eru í eigu Vinnslustöðvarinnar. Hann er vélfræðingur, meistari í vélvirkjun og rafiðn og varð ekki fyrir mörgum árum stúdent frá Verkmenntaskólanum á Akureyri. Lét það ekki nægja og stundar nú laganám við Háskólann á Bifröst ásamt sjómennskunni. Örn hefur búið í 15 ár í Vestmannaeyjum en frú Hólmfríður flutti til Eyja 2016. Saman eiga þau synina Björn Stefán sem klárar stýrimanninn vorið 2020 og Ægi Örn stud. jur. við HÍ. Fyrir átti Hólmfríður Hrafnhildi Ásu búsetta á Siglufirði. Örn hefur sinnt félagsmálum og setið í stjórn Félags vélstjóra og málmtæknimanna í nokkur ár. „Ég er Húnvetningur, fæddur 12. janúar 1959 á Blönduósi en konan mín er Siglfirðingur, Hólmfríður Rögnvaldsdóttir. Ég var í sveitaskóla á Húnavöllum í 24 manna bekk, minn árgangur og árgangarnir 1960 og 1961 voru óhemju gott námsfólk. Skrýtið hvernig þetta skiptist milli ára og kannski rannsóknarefni fyrir félagsfræðinga. Ég er alinn upp í sveitasamfélagi og við vorum 80
Ólafsfjörður, Siglufjörður, Húsavík, Vestmannaeyjar Örn reri hjá Skagfirðingi frá Sauðárkróki, fór svo til Ólafsfjarðar og var yfirvélstjóri á Sólbergi ÓF í níu ár. „Það gerist svo við sameiningu Þormóðs ramma á Siglufirði og Sæbergs á Ólafsfirði að ég lenti Siglufjarðarmegin. Sólberg var gert út á rækjuveiðar frá Siglufirði og þannig æxlast það að ég flutti til Siglufjarðar frá Ólafsfirði. Þetta var fyrir tíma Héðinsfjarðarganga og var verra að komast á milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar en til Reykjavíkur frá Ólafsfirði, sérstaklega á veturna. Þá gátu liðið margir mánuðir án þess að ég kæmist heim. Þetta var árið 2000. Árið 2003 var ég svo heppinn að vera sagt upp á Sólbergi, fór þá til Húsavíkur og var eitt ár hjá fyrirtæki sem hét Íshaf. Þegar það fór á hausinn æxluðust mál þannig að ég flutti til Vestmannaeyja. Auglýst var pláss á tveimur uppsjávarskipum, annað var Björg Jónsdóttir á Húsavík og hitt var Sighvatur Bjarnason VE. Ég ætlaði mér ekkert endilega að fara til Vestmannaeyja en sótti um á báðum stöðum. Þá hringdi Guðni Ingvar hjá Vinnslustöðinni í mig 22. júní 2005 og sagði: „Þú ert að fara á sjó eftir tvo daga!“ Þannig var það og þar með var ákveðið að stefna til Eyja.“ Gott að eiga lögfræðina að „Ég var í tíu ár á Sighvati og líkaði vel og fór þá yfir á Kap VE þegar Vinnslustöðin endurnýjaði flotann. Ég var yfirvélstjóri á báðum skipum og hef verið það nánast allan minn starfsferil. Árið 2013 fór ég aftur í skóla, valdi Verkmenntaskólann á Akureyri og tók stúdentspróf á vélstjórnarbraut. Fór líka í meistarann í vélvirkjun sem var góð viðbót því fyrir var ég meistari í rafvirkjun. Árið 2017 fór ég að hugsa um hvað ég ætti að gera með þessa menntun, ekki síst þar sem
Sjómenn, Vestmannaeyingar Til hamingju með daginn! BERGUR VE
Á síðustu 30 árum hefur Hampiðjan framleitt og selt yfir þúsund Gloríur til útgerða í 28 löndum.
81
maður fer að hætta á sjó eftir fimm til sex ár. Ég hef ekkert sport til að snúa mér að og ekkert sérstakt áhugamál. Þá datt mér í hug að fara í lögfræði sem ég gæti nýtt til að liðsinna fólki. Gefa álit á ýmsum hlutum, sérstaklega hvað varðar stjórnsýslu og útgerð. Deilt er um makrílinn og málaferli vegna kvótaúthlutunar. Fullyrt er að „þjóðin“ hafi ákveðna skoðun á því máli en þá er ég bara ósammála þjóðinni. Ríkið var dæmt sekt í þessu máli og á að borga bætur. Svo getur menn greint á um upphæðina. Ég held að flestir hefðu farið sömu leið. Feillinn hjá útgerðarmönnum var að stilla þessu ekki þannig upp að fólkið í sveitarfélögunum, sjómenn og landverkafólk bæri líka skaða, ekki bara þeir sjálfir. Þeir áttu að hafa sig síðasta í röðinni. Þetta eru grundvallarmistök og tímasetningin fráleit í ljósi ástandsins vegna kórónaveirunnar og áhrifa hennar. Auðvitað vissi Þorgerður Katrín hvað hún var að gera þegar hún bar upp fyrirspurn til ráðherra um kröfugerð útgerðanna.“ Sumt skrýtið í Eyjum Erni hefur líkað vel í Vestmannaeyjum en sumt kom honum spánskt fyrir sjónir. „Varasamt getur verið að segja það sem manni finnst! Vestmannaeyjar eru sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins á landinu. Við komum flokknum samt upp með að svíkja okkur lon og don í samgöngumálum og kjördæmið á ekki einu sinni með ráðherra sem tilheyrir flokknum. Það hefði ekki gerst fyrir norðan enda eru menn óhræddari þar við að refsa flokkunum sínum ef þeir ekki standa sig og ég held reyndar að pólitískur undirlægjuháttur sé ekki eins ríkur í fólki nyrðra. Sjálfstæðisflokkurinn á að vera flokkur millistéttarinnar og gæta hagsmuna hennar. Alveg sama hvað hver segir, þar er fólkið sem heldur samfélaginu gangandi.“ Karlar og konur Örn skráði sig í nám í viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst haustið 2018. „Þetta er fjarnám nema hvað ég þarf að taka tvær lotur á hverri önn á Bifröst, frá fimmtudegi til sunnudags. Námið er skemmtilegt og maður kynnist öðrum viðhorfum og nýju fólki. Kennararnir eru misjafnir, mér finnst karlkennararnir markvissari og fljótari að greina aðalatriðin. Það skiptir mestu máli. Konum hættir til að festast í smáatriðum. Eftir að ég fór að lesa lögfræði varð mér ljóst að ekki hefði þurft að setja lög um jafna stöðu kynjanna. Þetta er allt í stjórnarskránni, 65. grein hennar. Það eina sem á að hafa í huga varðandi ráðningu í stöður er hæfileikar og geta. Nú virðist æ algengara að karlar sæki ekki um 82
stöður, til dæmis hjá hinu opinbera. Voru ekki bara konur sem sóttu um stöðu sýslumanns hér í Vestmannaeyjum?“ spyr Örn og hlær. Hann er ekki viss um að þessi umræða eigi upp á pallborðið en nefnir samt eitt dæmi sem kannski geti skýrt mun á konum og körlum. „Móðir mín var oddviti og sveitarstjóri í 24 ár og fyrstu 16 árin voru bara karlar með henni. Þá kom önnur kona í sveitarstjórn en þetta gekk þokkalega áfram. Svo bættist sú þriðja við á síðasta kjörtímabilinu hennar og þá sagði hún að vesenið hefði byrjað. Hún viðurkenndi þetta alveg sú gamla. Þetta lá í ákvörðunarfælni hjá konunum.“ Hæpnar forsendur í dómum „Ég hef mjög gaman að laganáminu. Það er fjölbreytt og skemmtilegt og maður er búinn að læra ansi mikið sem hefur styrkt mig í þeirri trú að Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrum dómari í Hæstarétti, hitti naglann á höfuðið þegar hann segir að enginn sé sekur fyrr en sekt sé sönnuð. Nú er alltof mikið um dóma sem eru byggðir á hæpnum forsendum, á tilfinningum og einhverju sem ekki stenst.“ – Sérðu fyrir þér að gerast starfandi lögfræðingur? „Nei. Ég held ekki en maður veit aldrei. Held samt að ég muni ná mér í réttindi. Næsta vor klára ég BS-námið og þá taka við tvö ár. Sé maður sprækur áfram er aldrei að vita hvað gerist. Þá er eftir að taka lögmannsréttindin sem getur verið mjög erfitt. Lögmannafélagið setur upp próf og þá kemur upp rígur á milli háskóla þar sem Háskóli Íslands er fremstur í flokki. Á þeim bæ segjast vera bestir!“ Hverra er rétturinn? Örn segir þetta allt eiga eftir að koma í ljós en sennilega geti hann farið að vinna á skrifstofu og útilokar ekki að reynslan af sjónum nýtist í lögfræðinni. „Ég er að hugsa um að skrifa BS ritgerðina um kvótakerfið og auðlindagjaldið. Mér finnst að sjávarsamfélögin séu látin gjalda fyrir að vera sjávarpláss, til dæmis vegna auðlindagjaldsins. Þau eru búin að nýta auðlindina í gegnum aldirnar, mann fram af manni frá landnámi. Þegar þú namst eða helgaðir þér land í upphafi byggðar á Íslandi gastu selt það land. Af hverju á eitthvað annað að gilda um sjávarauðlindina? Ég pæli mikið og er hissa á að enginn hafi skrifað um málið út frá þessu sjónarmiði. Hefðarrétturinn er viðurkenndur í réttarfarinu og hefur verið til frá því í upphafi tuttugustu aldarinnar.“ Örn rifjar upp í þessu sambandi söguna af því þegar sveitungi hans, Björn Pálsson, þingmaður með meiru á Löngumýri, stal meri og eignaðist
hana á hefð. Fræg saga frá miðri síðustu öld þar sem Hæstiréttur viðurkenndi hefðarrétt. Í stjórn fyrir sína menn Örn hefur líka komið að félagsmálum og verið í stjórn VM, Félags vélstjóra og málmtæknimanna. „Ég átti aldrei upp á pallborðið þar, kannski vegna pólitískra skoðana. Mitt helsta áhugamál varðandi félagið er skynsamleg kjarabarátta fyrir okkar félagsmenn, byggð á tölulegum staðreyndum.“ Hann vill líka endurskoða sumarbústaðakerfið með það í huga að félagsmenn ráði meiru um hvert þeir fara í frí. „Gæti þess vegna hugsað mér að selja allt sumarbústaðaveldi stéttarfélagsins og þess í stað kæmu félagsmenn með kvittanir sem sýndu fram á kostnað þeirra við sitt frí og þá fengju þeir ákveðna upphæð í styrk. Gott er að þurfa ekki að binda sig við ákveðinn bústað og vera þar í rigningu í heila viku í stað þess að geta valið sér áningarstað eftir veðri og spá. Láta einkaframtakið um þetta en ekki stéttarfélögin.
Ég hvet félagsmenn til að kynna sér rekstur sumarbústaðakerfis VM. Það er að mínu mati er úrelt fyrirbæri sem allt of miklir peningar fara í. Ég vil að stjórn félagsins fari vel með fjármuni sem félagið á og gæti sín á öllu braski, hvort heldur fasteignabraski eða annars konar braski. Það hefur verið von mín að félagið okkar verði framsækið og þori að þróa nýjar hugmyndir til að vernda og efla hagsmuni félagsmanna.“
Raunfærnimat í skipstjórn Hefur þú starfað á sjó í 3 ár eða lengur og hefur áhuga á að ná þér í stýrimanns- og skipstjórnarréttindi? Þá gæti raunfærnimat hentað þér! Raunfærnimat í skipstjórn miðar að því að meta þá færni sem viðkomandi býr yfir inn í skólakerfið óháð því hvernig hennar hefur verið aflað. Þátttakendur geta í kjölfarið fariðí skóla og lokið því námi sem eftir stendur. Inntökuskilyrði: • 3 ára starfsaldur á sjó • 23 ára lífaldur
Náms- og starfsráðgjöf Hefur þú verið að velta fyrir þér námi og störfum? Viska býður upp á margvíslega ráðgjöf fyrir einstaklinga, hópa og fyrirtæki. Ráðgjöfin er ókeypis fyrir einstaklinga.
Nánari upplýsingar: Sólrún Bergþórsdóttir náms- og starfsráðgjafi solrunb@viskave.is eða í síma 488 0116 WWW.VISKAVE.IS
83
Guðjón Ármann Eyjólfsson, sjóðliðsforingi og skólastjóri, í viðtali árið 2009
SKÓLAR EIGA AÐ VEITA GÓÐAN GRUNN EN SVO TEKUR SKÓLI LÍFSINS VIÐ Viðtalið var tekið upp á myndband árið 2009 þar sem Þeir Sigmar Þór og Kristján Valur Óskarsson ræddu við Guðjón Ármann Eyjólfsson . Viðtalið er eitt fjölmargra viðtala við fólk sem Kristján hefur tekið. Er þetta orðið mikið safn og ómetanleg heimild um líf og starf fólks í Vestmannaeyjum og víðar. Guðjón Ármann er borinn og barnfæddur Eyjamaður en fór ótroðnar slóðir í lífinu. Varð sjóliðsforingi í danska sjóhernum, skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum og skólameistari Stýrimannaskólans í Reykjavík. Sigmar Þór færði viðtalið í letur og birtist það hér nokkuð stytt. Guðjón Ármann Eyjólfsson lést á Landspítalanum í Fossvogi þann 16. mars 2020, 85 ára að aldri. „Ég er fæddur í Vestmannaeyjum þann 10. janúar 1935. Móðir mín var Guðrún Brandsdóttir, ættuð undan Eyjafjöllum. Einnig átti hún ættir að rekja til Suðurnesja, frá Kotvogi, og er ég mjög stoltur af því. Faðir minn, Eyjólfur Gíslason, var gróinn Vestmannaeyingur. Afi minn, Gísli Eyjólfsson, var bóndi á Búastöðum, uppalinn á Kirkjubæ. Miklar ættir eru komnar frá langafa mínum, Eyjólfi Eiríkssyni, og Jórunni Skúladóttur sem bjuggu þar.“ – Hvernig var að alast upp á austurhluta Heimaeyjar á þessum tíma? „Þetta var alveg einstakur staður þegar maður hugsar til baka. Við vorum bæði í sveit og bæ. Þegar komið var upp fyrir Presthús eða húsið Ásgarð, sem stóð beint á móti Laufási, var maður kominn í sveitina. Frá Presthúsum sást yfir austurhluta Heimaeyjar til Vilpu, Oddstaða, Búastaða og Ólafshúss. Þarna breiddu faðminn á móti manni túnin iðjagræn. En að alast upp í 84
Eyjum hefur alltaf verið svolítið sérstakt. Maður er svo nálægt náttúrunni. Ég hef svo oft undrast það síðar, eftir að hafa eignast sjálfur börn og barnabörn ¬– öll barnabörnin eru strákar, hvað maður var ungur að þvælast niðri á bryggju. Þetta var á stríðsárunum, ég var aðeins átta ára en oft um borð í færeyskri skútu sem hét Löjtnant Verdines. Skipstjóri hennar hét Magnus Frederik Magnussen frá Kvívík. Ef ég var ekki kominn um borð þegar skútan kom inn þá bókstaflega sendi skipstjórinn eftir mér. Ég get tímasett þetta á því að flugvél hrapaði í hlíðar Helgafells árið 1943, þá var ég 8 ára. Ég var þá niðri í skútu sem mér þótti nú skemmtilegast af öllu en var svo leiður yfir því að geta ekki verið þarna uppi við Helgafell því eftir að flugvélin lenti þustu allir strákar þangað og frændur mínir á Búastöðum, Torfi og Jón, Gísli bróðir og fleiri. Þeir voru svo nálægt þegar vélin hrapaði. Flugmaðurinn bjargaðist í fallhlíf og þekktur maður, Loftur Guðmundsson, bjargaði honum. Loftur orti textann við lagið Sipp og hoj, hann var kennari í Eyjum.“ – Hverjir voru leikbræður þínir og æskuvinir á þessum árum? „Besti vinur minn og leikbróðir var Hilmir Þorvarðarson frá Ólafshúsum og svo Helgi Magnússon, sonur Magnúsar Magnússonar frá Vesturhúsum. Við Helgi sátum saman allan barnaskólann, byrjuðum í Aðventistaskólanum einn vetur og allar götur þar til við lukum gagnfræðaskóla. Við höfum haldið vináttunni síðan þá. Hilmir var að miklu leyti alinn upp í
Nemendur í Stýrimannaskólanum 1970 til 1971 ásamt Guðjóni Ármanni. F.v. Hjörleifur Alfreðsson, Gísli Kristjánsson, Guðmundur Vestmann, Sigurður Magnússon, Kristján Adólfsson, Halldór Almarsson, Guðjón Ármann Eyjólfsson skólastjóri, Sigmar Þór Sveinbjörnsson, Sigurpáll Einarsson, Eiríkur Þorleifsson, Atli Einarsson, Bragi Fannbergsson, Guðmundur Guðlaugsson, Guðmundur Matthíasson og Björn Alfreðsson.
Ólafshúsum hjá móðurbróður sínum, Erlendi Jónssyni. Alltaf var hópur krakka í Ólafshúsum þar sem var mikið gæðafólk og dálítill búskapur, 4 eða 5 kýr, Þegar hirt var af túnum var allur krakkaskarinn austur á bæjum í kringum Erlend. Við fengum snemma að fara í úteyjar og þá tók hann sig til og smíðaði fyrir okkur lundaháfa.“ – Hverjir voru leikir barna á þessum tíma? „Það var nú nokkuð fjölbreytt. Við Hilmir vorum með horn og leggi og lékum að við værum í úteyjum. Seinna fórum við saman í úteyjar. Og svo var verið niður við Vilpu þegar frost var. Ekki var minna fjör við Vilpu þegar komu leysingar og jakarnir voru til staðar. Það voru stundum slubbferðir. Ég held að ég hafi þrisvar sinnum lent í því að fara á bólakaf þarna og í öll skiptin hafi Torfi frændi minn á Búastöðum bjargað mér en eins og allir vita var hann léttur á sér. Hann var eitt sinn á jaka á miðri Vilpu og ég man að ég var að hverfa undir skörina við bakkann. Þá tók Torfi undir sig stökk og náði í hausinn á mér og dró mig upp. Vilpan var nokkuð djúp og því miður drukknuðu þar tvö börn. Við byggðum okkur hús rétt fyrir austan Vilpu og eldri sonur minn, Ragnar, sagði mér löngu síðar að hann hefði næstum því drukknað þarna. Ég man að hann kom heim holdvotur og sagðist hafa dottið í Vilpu en svo var það ekki meira. Þarna voru háir bakkar eftir að Vilpan var löguð
og því erfiðara fyrir krakka sem duttu í hana að komast upp.“ – Hvernig var háttað skólagöngunni í Eyjum? „Við Helgi Magnússon vorum í bekk með Friðriki Ásmundssyni, Sigurgeiri í Skuld, Ásu í Vegg, Ástu Haraldsdóttur og Magnúsi Bjarnasyni (Muggi í Garðshorni) svo ég nefni nokkur nöfn. Eftir barnaskólann fór ég í Gagnfræðaskólann og þar var skólastjóri Þorsteinn Þ. Víglundsson en skólastjóri Barnaskólans var Halldór Guðjónsson og hann var aðalkennari í sjöunda bekk. Þarna var einstakur kennari, Kjartan Ólafsson, bróðir Óskars á Hólnum. Sennilega á ég Kjartani meira að þakka en nokkrum öðrum því ég mátti ekki vera að þessu, var alltaf niðri á bryggju. Hann gaf mér góð meðmæli þegar ég fór í Gagnfræðaskólann. Þorsteinn vildi að í skólann kæmu prúðir menn. Góðir kennarar voru í Barnaskólanum: Þorvaldur Sæmundsson, Vigfús Ólafsson, einstakur sögumaður sem opnaði fyrir okkur Íslendinga¬sögurnar, og Steingrímur Benediktsson kenndi okkur kristinfræði. Góðir kennarar voru líka í Gagnfræðaskólanum. Einar Haukur Eiríksson kenndi mörg fög og svo náttúrulega Þorsteinn, góður íslenskukennari, og Sigurður Finnsson. Þetta voru þeir helstu. Ég lauk Gagnfræðaskólanum og landsprófinu 1951.“
85
– Og þú heldur áfram á menntabrautinni? „Á þessum árum var að opnast fyrir alla að fara í menntaskóla eftir svokallað landspróf. Við vorum nokkrir krakkar sem fórum í landspróf, meðal annarra vinur minn, Magnús Bjarnason, og systurnar frá Þinghól, Birgitt og Margrét. Ég slapp með ágætis einkunn frá því og fór í Menntaskólann á Laugarvatni. Var þar einn vetur. Við vorum þrír saman í smá herbergi. Það þætti ekki gott í dag. Ég var í efri koju og Víglundur Þór Þorsteinsson í neðri kojunni og svo var Guðmar Tómasson með okkur. Við deildum þrír þessu litla herbergi.
upp gamla daga. Það er mjög skemmtilegt. Skólafélagarnir komu sömuleiðis og heimsóttu mig þegar þeir voru á skipum hér, bæði sem skipherrar og yfirstýrimenn. Við erum 14 eftir af þeim 20 sem útskrifuðumst sem sjóliðsforingjar og höfum haldið hópinn. Tveir þeirra eru sérstakir vinir mínir en annar þeirra sneri við blaðinu. Eftir tvö ár í flotanum lærði hann læknisfræði og var læknir á Grænlandi í mörg ár. Þeir eru nú allir hættir að vinna. Margir hættu um fimmtugt en nokkrir héldu áfram. Einn var skipstóri á Fyllu og annar varð yfirmaður varnarmála á Grænlandi. Fínir strákar. Í síðustu viku hitti ég þessa góðu félaga
Mér leiddist alveg skelfilega á Laugarvatni, mér hefur reyndar aldrei leiðst svo mikið. Ég var ákveðinn að skipta og fara í Menntaskólann í Reykjavík haustið 1952. Ég fór í MR og varð stúdent þaðan 1955 úr máladeild og þá hafði ég ákveðið að fara í siglingar. En svo datt mér í hug að fara í danska sjóliðsforingjaskólann. Ég sá ekkert annað en að fara á sjóinn og hugsaði með mér að þarna gæti ég sameinað það að vera til sjós og læra. Kröfur voru stífar og skólinn var mjög stífur og ströng inntökuskilyrði. Stúdentsprófið mitt úr máladeild var ekki tekið gilt og því varð ég að taka stúdentspróf í stærðfræði árið eftir til að komast inn í skólann.“ – Þú laukst sjóliðsforingjanámi 1960, hvers vegna fórstu í sjóliðsforingjaskóla? „Aðalplönin voru þau að ég gæti fengið starf hjá Landhelgisgæslunni, sérstaklega við sjómælingar. Ég hafði áhuga á því og starfsmenn vantaði til að sinna þessu verkefni og vantar enn. Mikið verk er óunnið við sjómælingar hér. Önnur plön hafði ég ekki.“
Guðjón Ármann með skólafélögum sínum í sjóliðsforingjaskólanum.
mína sem eftir eru. Við vorum tíu manna hópur og fórum á gamalkunnar slóðir.“
– Segðu okkur frá sjóliðsforingjaskólanum. „Sá tími var út af fyrir sig mjög góður en námið stíft og það má kannski kalla það karlagrobb þegar ég segi að við vorum um 130 umsækjendur um skólavist en einungis 30 komust inn og 20 útskrifuðust úr skólanum eftir nærri 5 ár. Námið var bóklegt á veturna en siglingar á sumrin. Á þessum skipum vinna menn á sama hátt og Landhelgisgæsla okkar gerir. Þeir eru fulltrúar þjóðarinnar og haldnar eru móttökuathafnir um borð. Þá fara menn í betri fötin.“ – Heldurðu sambandi við skólafélaga þína? „Já, við hittumst alltaf einu sinni á ári og núna tvisvar á ári. Ég hef skroppið út annað hvert ár og stundum oftar og þá hittumst við og rifjum
86
– Það hefur verið liður í náminu að láta ykkur ganga í öll störf á skipunum? „Já, nákvæmlega. Það er munur á Danmörku og Íslandi að miklu meiri og bjargfastari virðing er borin fyrir störfum sjómanna þar en hér. Skipstjórnarpróf þykir fín menntun í Danmörku og það olli mér vonbrigðum þegar ég heyrði suma halda því fram hér að sjóliðsforingi hefði ekki skipstjórnarpróf! Ég veit ekki hvað veldur en undarlegt sjónarmiða er þetta hjá eyþjóð. Ég kunni alltaf mjög vel við mig í Danmörku og á sumrin sigldum við um allt þar, um Evrópu og til Bandaríkjanna, Meira var siglt þá en nú. Madeira, Asóreyjar, Portúgal og svo sigldum við oft til Frakklands.
Ég hef verið að stúdera tungumál og haft það sem hobbí því bóklega námið og allt sem varðaði siglingafræði, stærðfræði og undirstöðu mælinga tengist líka tungumálum. Fyrst voru við bara „mölkúlur“, eins og það var kallað. Svo jókst ábyrgðin og síðasta árið var ég liðsforingi á sjómælingaskipi.“ –Voru þið í verklegum hluta námsins á mörgum gerðum herskipa? „Já, fyrsta árið var ég á freigátu. Slík skip fylgdu skipalestum. Ég held að þessi freigáta hafi verið smíðuð 1943 og mig minnir að um borð hafi verið 150 mann. Þar var allt mjög kalt og bara einn lítill skápur, um það bil 1x1 metri sem við höfðum fyrir okkar dót. Við sváfum í hengikojum og urðum að taka þær saman þegar þær voru ekki í notkun. Það vantaði bara fallbyssurnar á millidekkið, þá hefði þetta verið eins og hjá Nelson. En þarna urðum við mjög nánir vinir. Danirnir lögðu mikla áherslu á að menn yrðu góðir og traustir félagar. Eins og þú veist, Sigmar, á hverju skipi þarf að vera góður félagskapur og menn verða að vera góðir félagar. Annað gengur ekki upp.
skólagjöld og ég slapp við þau. Við vorum skipsmenn á sumrin og ég var ekki rukkaður fyrir fæði. Það hefur alla tíð verið mikið samstarf Íslendinga og Dana í sambandi við menntun og við höfum aðgang að háskólum á Norðurlöndum án þess að greiða fyrir það. Í Danmörku var mitt nám á háskólastigi og nú er allt skipstjórnarnám Dana á háskólastigi.“ – Árið 1964 var Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum stofnaður, hve lengi varstu skólastjóri þar? „Skipstjóramenntun í Vestmannaeyjum á sér langa sögu og byrjaði með Jósep Valdasyni löngu fyrir aldamótin 1900, hann fórst 1887. Þá var það Sigurður Sigurfinnsson hreppstjóri, faðir Einars ríka, sem tók við merkinu af Jósep og Vestmannaeyingar geta verið stoltir af því að árið 1910 gerði Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja kröfu um að formenn kynnu á kompás. Slíkt var ekki gert annars staðar á landinu í þá tíð. Sigfús Scheving útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1907 og hélt námskeið á vegum Fiskifélags Íslands. Það félag
Fyrir kom að menn voru ekki látnir halda áfram námi ef þeir reyndust ekki góðir félagar og það þrátt fyrir að hafa góðar einkunnir. Einn skólafélaginn var í mörg ár skipherra á Fyllu sem var mikið við Grænland og sást stundum við Eyjar. Allflestir skólabræður mínir héldu áfram í flotanum. Einn af þessum sjóliðsforingjum var skipstjóri á 300.000 tonna olíuflutningaskipi og tveir af mínum bekkjarbræðrum voru skipstjórar á kafbátum.“ – Fylla, er það sama herskipið og var stundum hér á Víkinni í Eyjum? „Já, sama skipið og skipsheitið hefur lengi verið til og er sótt í norræna goðafræði. En af því að þið spyrjið um þetta verklega þá vil ég segja að ekki var nóg að vera bara í kringum Danmörku. Það er mjög góður skóli að vera hérna á hafsvæðinu við Ísland. Ég held að íslenskt hafsvæði sé hið erfiðasta í heimi. Og þó ég hafi farið út að læra geta bæði við og Danir margt lært af Landhelgisgæslunni hér við þessar aðstæður.“ – Hvernig fórstu að því að fjármagna menntun ytra? „Það tókst betur en ég hefði mátt ætla. Ég fékk styrk líkt og aðrir stúdentar og styrk út á sjómælingar. Svo voru Danirnir ekki kröfuharðir á
Annika og Guðjón Ármann á góðri stund þegar hann var í danska sjóhernum.
87
Guðjón Ármann sem skólameistari Stýrimannaskólans í Reykjavík.
skipulagði skipstjórnar- og vélstjórnarnámskeið víða um landið. Fyrsta sjómannanámskeiðið í Eyjum var vélstjórnarnámskeið 1915 og 1918 fyrir skipstjórnarmenn. Einungis fimm útskrifuðust vegna spænsku veikinnar og mikilla erfiðleika í þjóðfélaginu. Síðan var Sigfús Scheving annað slagið með skipstjórnarnámskeið í Eyjum. Þau voru á haustin og stóðu yfir í allt að 3 mánuði. Fengu menn fyrst allt að 30 tonna réttindi, síðan 75 tonna og allt upp í 150 tonna réttindi. Svo var þetta afnumið og fór aftur til Stýrimannaskólans í Reykjavík. Það var gert til að efla námið en varð til þess að færri sóttust eftir fræðslunni og undanþágum fjölgaði. Þá voru fjögur námskeið á vegum Stýrimannaskólans í Reykjavík. Friðrik Ásmundsson og Páll Þorbjarnarson stóðu fyrir þremur námskeiðum og svo tók ég við einu námskeiði. Jóhann Pálsson skipstjóri var drifkraftur í Skipstjóra- og Stýrimannafélaginu Verðandi. Hann kom og bað mig að taka þetta að mér. Það var mjög skemmtilegt að kenna þessum strákum, þeir voru mjög duglegir og áhugasamir þessir sjómenn.“ – Er það þarna sem kemur upp sú hugmynd að stofna stýrimannaskóla? „Bæjarstjórnin í Vestmannaeyjum, ekki síst Guðlaugur Gíslason bæjarstjóri, var mjög áhugasöm og ekki bara bæjarstjórnin heldur 88
líka sjómenn og útgerðarmenn. Jákvætt andrúmsloft gerði það svo skemmtilegt að vinna að málinu og árið 1964 var ákveðið að fara af stað með Stýrimannaskólann í Eyjum. Bæjarstjórn samþykkti það og Útvegsbændafélag Vestmannaeyja, sjómannafélögin og Verðandi studdu líka skólann eindregið. Svo lagði ég plön fyrir Guðlaug Gíslason um hvað þyrfti að kaupa af tækjum og það var gert. Þannig vorum við mjög vel útbúnir til þess að reka skólann. Ég hafði góða kennara, Steingrímur Arnar var stærðfræðikennari, ég kenndi yfirleitt allar siglingafræðigreinar en hann gat hlaupið í það en tók sérstaklega stærðfræðina. Fyrsta árið kenndi Eiríkur heitinn Guðnason íslensku, svo tóku við séra Þorsteinn Luther og Jóhann Hlíðar. Allt úrvalskennarar og mestu máli skipti að þeir voru svo áhugasamir. Gaman var að upplifa að þarna voru strákar sem höfðu ekki mikla menntun, sumir verið í gagnfræðaskóla en margir einungis í barnaskóla. Þeir urðu samt toppnámsmenn. Það gerist oft að þegar menn sýna skólanámi áhuga verða þeir líka duglegir þegar þegar út í lífið er komið.“ – Hvaða sérkennarar voru við skólann? „Við höfðum góða kennara í verklegri sjóvinnu, þá frændur Hallgrím Þórðarson og Guðjón Magnússon, og svo Ingólf Theódórsson og Sigurð Inga Ingólfsson. Náminu var skipt í botnvörpu og dragnót sem var mest í Veiðafæragerðinni hjá Hallgrími og Guðjóni og svo næturnar hjá Ingólfi. Það var gefinn góður tími í þetta og strákarnir
fóru sumir í framhaldinu í vinnu á netaverkstæði. Þarna sáu þeir uppbyggingu veiðarfæranna, lærðu að bæta net og splæsa víra og tóg. Eins og ég sagði alltaf þegar ég var að slíta skólanum: Skólarnir veita grunn og hann á að vera góður en síðan tekur annar skóli við, jafnmikilvægur þeim bóklega skóla sem ég hef staðið fyrir, og það er skóli lífsins. Þá er farið um borð í skip, verið með góðum mönnum og haldið áfram að læra. Ég barðist á móti því lengi að siglingatími yrði styttur við inntökuskilyrði í Stýrimannaskólann. Ég var alltaf á móti því, þetta er í alvöru alveg fáránlegt. Hér áður fyrr var krafist siglingatíma til að komast í skólann upp í 48 mánuði sem síðan var fært niður í 24 mánuði og þaðan í 12 og 6 mánuði. Svo var krafa um siglingatíma afnumin. Ég var á togaranum Ögra heilt sumar, mjög góðu aflaskipi frá Reykjavik, Það er besti skóli sem ég hef verið í og þá sá ég hve mikið fag sjómennskan er. Togarasjómenn eru settir með þessum nýju reglum til jafns við drengi sem eru að koma um borð í skip í fyrsta sinn og kunna ekki neitt sem von er.“ – Hafa skólanefndir mikil áhrif á skólastarfið? „Já, tvímælalaust. Þetta var náttúrulega pólitískt skipað því bærinn rak skólann fyrstu árin en síðan kom styrkur frá ríkinu og síðustu árin var reksturinn alveg kominn til ríkisins. Ég man eftir því við fyrstu skólaslitin að Ársæll Sveinsson var í skólanefndinni. Hann sagði í gamni og alvöru að nú væri gott að fá kvennaskóla í kjallarann á Breiðabliki og leist öllum vel á það. Það hefur sem betur fer komið í ljós að margir af utanplássmönnum sem komu í skólann, tóku heima eins og maður segir í útey í Vestmannaeyjum. Þeir náðu sér í glæsilegar konur þar og hafa búið í Eyjum og stofnað fjölskyldur. Það voru einstaka svartsýnisraddir, mestmegnis pólitíkusar - ég nefni engin nöfn, sem sögðu að það borgaði sig að kosta frekar fólk til náms í Reykjavík en að stofna stýrimannaskóla í Eyjum. Hins vegar sást að skólinn laðaði að ungt og gott fólk sem settist að, svipuð áhrif og til dæmis Háskólinn á Akureyri hefur nyrðra.“ – Oft voru útgerðarmenn í skólanefndinni, styrktu þeir Stýrimannaskólann? „Ég er nú hræddur um það. Í Vestmannaeyjum var Óskar heitinn Matthíasson þar fremstur í flokki og ég hef þegar nefnt Ársæl Sveinsson. Svo má nefna Þorstein á Blátindi og Hilmar
Ármann ungur liðsforingi.
Rósmundsson. Þessir menn voru alltaf að gauka einhverju að skólanum. Við fengum til dæmis alla sexkanta að gjöf frá fyrrverandi skipstjórum eða stýrimönnum og frændi minn, Stefán heitinn Guðlaugsson frá Gerði, og þau hjón gáfu stórgjafir við stofnun skólans. Fyrsti tækjakennari skólans var Magnús heitinn Magnússon, fyrrverandi bæjarstjóri. Við fengum gefins lórantæki eins og voru í togurum á þeim tíma. Seinna komu nýrri og betri tæki.“ – Gosárið 1973 þurftir þú eins og aðrir Vestmannaeyingar að flýja frá Eyjum. Þá verðurðu kennari við Stýrimannaskólann í Reykjavík. „Ég var skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum frá árinu 1964 til ársins 1975. Auglýst var eftir nemendum 1974 og 1975 en það voru ekki nema tveir eða þrír sem gáfu sig fram. Enginn grundvöllur var því fyrir Stýrimannaskóla Vestmannaeyja fyrstu tvö árin eftir gos. Ég var þá byrjaður sem kennari við Stýrimannaskólann í Reykjavík, fékk skipun þar í starfið og var á þeim tíma með konu og fjóra krakka þannig að ég sá fram á að það yrði mikið átak að fara að byggja aftur í Eyjum. Við vorum komin í góða íbúð fyrir sunnan og ég ákvað vera áfram í Reykjavík. Þegar Stýrimannaskólinn í Eyjum fór af stað aftur tók Friðrik Ásmundsson við honum. Það 89
Þarna voru litríkir persónuleikar eins og Elli í Magna, mjög skemmtilegur kennari, og svo læknarnir. Örn Bjarnason kenndi heilsufræði og ég man sérstaklega að hann prófaði alltaf munnlega og við höfðum þá grænan dúk á borðum. Prófdómari var Einar Guttormsson læknir og síðar heiðursborgari Vestmannaeyja. Ég keypti vindlakassa til að hafa þegar Einar kæmi og fann að honum þótti vænt um það.“ – Þannig að þú hefur kynnst mörgum góðum mönnum í skólastarfinu? „Já. Prófdómarar í siglingafræði voru Angantýr Elíasson, hann var lengi prófdómari, og svo fékk ég alltaf prófdómara frá Reykjavík svo ekki væri hægt að efast um að prófin væru jafngild prófum frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Árni heitinn Valdimarsson og Róbert Daníelsson komu að sunnan.
Bræðurnir, Gísli og Guðjón Ármann.
reyndist skólanum vel. Þá var skólinn fyrsta árið með Iðnskólanum undir sama þaki. Árið 1981 varð ég skólastjóri Stýrimannaskólans í Reykjavík og nefndist síðar skólameistari með nýjum framhaldskólalögum og gegndi starfi til 2003. Þá voru Stýrimannaskólinn í Reykjavík og Vélskóli Íslands sameinaðir í Fjöltækniskóla Íslands. Svolítill vandræðagangur var með þetta nafn í fyrstu og ég er frekar ósáttur að heitið sjómannaskóli heyrðist lítið. Held skólinn hefði engu tapað við að halda gamla nafninu en það sýndi kannski hugsunarháttinn að slíkt skyldi teljast neikvætt. Ég starfaði við skólann til 2003, þá voru stofnanirnar lagðar niður og þar með okkar embætti.“ – Geturðu nefnt fleiri kennara Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum? „Já, ég taldi áður upp þá sem voru í verklegri sjóvinnu en í sambandi við tækjakennsluna tel ég mig hafa veri mjög heppinn með kennara. Magnús Magnússon hætti vegna anna þegar hann varð bæjarstjóri og við tók Brynjólfur Jónatansson í Neista. Hann hafði á hendi tækjakennslu við skólann öll árin, nema hvað loftskeytamennirnir á Vestmannaeyjaradíó kenndu á fjarskiptatækin.
90
Svo má minnast á það – ég veit að þú varst ánægður með það, Sigmar – ég fékk fyrirlesara eins og þið munið í sambandi við vinnuhagræðingu og fiskmeðferð. Ég man að Jóhann Kúld, sem skrifaði mjög góða þætti þá í blöð um fiskmeðferð, og Bragi Ólafsson, yfirfiskimatsmaður í Eyjum, komu og héldu erindi um meðferð á fiski. Og svo þegar þið stofnuðuð Málfundafélagið Breiðablik – það var ansi gott framtak hjá ykkur – og þá komst þú nú með tillögu um hagræðingu um borð í skipum og meðal annars – ég held að það hafi verið á fundi hjá þessu málfundafélagi – sem þú kemur fram með tillögu um að það verði hægt að skjóta út björgunarbáti frá brúnni af stýrishúsi. Er það ekki rétt? [jú það er rétt] Svo fengum við líka ansi góða fyrirlesara frá Decca fyrirtækinu í Grimsby. Í það fór ein vika og þá höfðum við líka samband við SS Verðandi og útvegsbændafélagið og margir skipstjórar komu á námskeiðið.“ – Skólanefndir í Reykjavík, hvernig stóðu þær sig gagnvart Stýrimannaskólanum? Magnús Jóhannesson siglingamálastjóri var mjög áhugasamur og góður formaður og stóð vel við bakið á skólanum. Það var oft mjög erfitt ástand. Við kvörtuðum báðir, ég og skólameistari Vélskólans, yfir því að fá ekki meiri fjárveitingar. Við þurftum tæki sem kostuðu milljónir króna, að ég tali nú ekki um Vélskóla Íslands, þeir höfðu bara svo góða kennara sem gerðu upp gamlar vélar og gerðu þær gangfærar til kennslu. Við urðum að berjast í 8 eða 9 ár til að fá nýjan hermi. Það þýðir ekkert að tala um
ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
www.leturstofan.is
Sjómenn! Sendum ykkur bestu kveðjur & heillaóskir á sjómannadaginn
91
Austurbærinn, æskuslóðir Guðjóns Ármanns sem fóru undir hraun í gosinu 1973. Mynd: Jóhann Pálsson.
stýrimannaskóla án þess að hafa fullkomin tæki eins og hermi eða samlíki. Það góða við sameiningu skólanna var að frekar yrði hægt að virkja LÍÚ og atvinnugreinina í þágu skólans. Ég vil þó taka fram, svo allir njóti sannmælis, að þegar Stýrimannaskólinn í Reykjavík varð 100 ára reyndi ég að nýta mér áfangann í þágu skólans og afla fjár. Þá sýndi Kristján Ragnarsson, sem oft hefur verið skammaður og við vorum nú ekki sammála í öllu, mikinn rausnarskap og framsýni. Ég held það sé rétt munað að við fengum 8 milljónir króna, sem var mikill peningur þá, til að kaupa fiskveiðisamlíkinn. Þetta var mjög rausnarleg gjöf LÍÚ til skólans. Alltaf kemur betur og betur í ljós að verknámsskólar, sem þurfa tæki til verklegrar kennslu, hafa verið útundan en eitthvað er að rakna úr þessu núna, skilst mér.“ – Hefurðu hugmynd um hve marga nemendur þú hefur útskrifað úr stýrimannaskóla ? „Nei, ég hef ekki tekið það saman en þeir eru nokkur hundruð. Skemmtilegast er þegar gamlir nemendur heilsa manni með virktum, þá hugsa ég jæja, maður var þá ekki verri en svo! Ánægjulegast er að hafa kynnst svona mörgum ágætis mönnum, já, alveg toppmönnum, sem hafa margir haldið við mig alveg einstakri tryggð.“ – Þú hefur skrifað hundruð greina í blöð og 92
tímarit, í Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. Hve margar bækur hefurðu gefið út? „Ég vil fyrst nefna bókina Byggð og eldgos. Ég skrifaði hana sumarið eftir gos, hún kom út í október 1973. Svo hafa komið út þrjár útgáfur af Stjórn og sigling skipa og hver þeirra verið svo mikið endurskoðuð að segja má að hver útgáfa hafi verið ný bókfrekar en endurútgefin. Þarna er fjallað um siglingareglur og ýmis undirstöðuatriði í sjómennsku. Þriðja útgáfa kom 2006 og önnur prentun 2007 með mjög góðum myndum eftir Jóhann Jónsson listamann (Jóa Listó) frá Vestmannaeyjum. Núna er ég að ganga frá bókum um aðskildar siglingaleiðir, Leiðarstjórnun skipa. Já, þið nefnið Sjómannadagsblaðið. Manni rann blóðið til skyldunnar að hjálpa til þegar ég var heima í Eyjum og með Stýrimannaskólann. Ég hef alltaf haft þá náttúru að skrifa og haft gaman af því og pabbi heitinn hafði það nú líka. Þetta liggur líklega í ættinni. Það er eins og frændi minn, Ási í Bæ, sagði, við erum þremenningar: „Þetta er svolítið í þessu fólki“! Ég tel að með Sjómannadagsblaðinu hafi sjómenn eða sjómannadagsráð, sem stendur nú á bak við það, bjargað heilmiklum heimildum um sögu sjómanna í Eyjum. Ég held að 650-700 minningagreinar séu í Sjómannadagsblöðum Vestmannaeyja. Við Sigmar Þór töldum þær þegar við gáfum út Sögu- og efnisskrána.“
Sjรณmenn & fjรถlskyldur, Til hamingju meรฐ daginn! 93
– Hvað hefurðu skrifað margar greinar í Sjómannadagsblaðið? „Ég held að það séu um 130 greinar. Ég var jú ritstjóri blaðsins í tíu ár.“ – Þú skipulagðir móttöku Ólafs V. Noregskonungs til Vestmannaeyja 1974. Hvernig kom það til? „Ég held það hafi verið Páll Scheving úr bæjarstjórninni sem hafði samband og bæjaryfirvöld höfðu þá verið í sambandi við Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi. Það var sjálfsagður hlutur að leggja sitt af mörkum því Norðmenn voru nú ekki búnir að gera neitt smáræði fyrir okkur. Þær voru stórkostlegar safnanir Norðmanna í sambandi við gosið og fjármunir sem þeir afhentu Vestmannaeyingum. Svo buðu þeir öllum börnum Eyjamanna til Noregs og fleira mætti nefna. Við höfum stundum gleymt þessu en mér fannst alveg sjálfsagt að taka þátt í skipulagningu konungskomunnar og kallaði alla skipstjóra á fund sem ætluðu að taka þátt í þessu. Við hittumst í Akoges og þar raðaði ég niður skipunum. Maður hafði nú aðeins komið nálægt slíku áður og gaman fyrir Eyjasjómenn að eiga þar nokkra hefð. Vestmannaeyjabátar tóku til dæmis á móti Kristjáni tíunda konungi árið 1921. Ég ákvað strax að gera þetta eins og oft er gert, við skiptum bátunum í tvo hópa eða tvær raðir og þegar við vorum komnir út sigldi hver á eftir öðrum og konungsskipið á milli okkar. Svo höfðum við þetta eins og í flotanum. Ég hafði prufað þetta einu sinni við strendur Portúgals, þá tókum við á móti Antonio Salazar einræðisherra. Hann sigldi í snekkju á milli raða af herskipum. Eyjaskipstjórar voru eins og þaulvanir sjóliðsforingjar og athöfnin tókst alveg prýðilega. Við sigldum í tveimur röðum, svo röðuðu allir sér um borð á þá lunningu sem snéri að konungsskipinu og hrópuðu húrra og höfðu góðan takk til að veifa á móti. Þetta kom vel út og þegar fyrsti báturinn var kominn fram hjá sneri hann til baka og fór í kjölfar konungsskipsins.
Þetta er allt skráð í Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1973-1974 sem var þjóðhátíðarblað og framlag sjómanna í Vestmannaeyjum til þjóðhátíðar Íslendinga í tilefni af 1100 ára byggð í landinu.“ – Hefurðu fundið fyrir þakklæti sjómanna fyrir þín störf, alla vega stýrimanna og skipstjóra? „Já, og mér hefur þótt mjög vænt um þegar gamlir nemendur koma og heilsa manni innilega. Mér þótti mjög vænt um þegar Skipstjórafélag Íslands gerði mig að heiðursfélaga og forseti Farmannasambandsins hefur allaf verið mjög almennilegur og sýnt mér þakklæti. Það er meira en menntamálaráðuneytið gerði, ég verð nú bara að segja það. Ég var 40 ár í þjónustu skólamála á Íslandi. Það var ekki sagt svo lítið sem svei þér þegar ég lauk starfi. Ég sendi reikning til menntamálaráðuneytisins og fór fram á hálfs árs starfslokasamning vegna þess að ég gat verið hálfu ári lengur ef skólinn hefði ekki verið lagður niður. Þetta jafngilti 500-600 þúsund krónum (2009). Menntamálaráðuneytið svaraði ekki einu sinni bréfinu.“ – Okkur langar að vita hvort þú sért samt ekki sáttur við ævistarfið? „Jú, ég er mjög sáttur við það en segi stundum að ég hefði viljað vera lengur í Danmörku og sigla meira. Mig langaði alltaf í farmennsku og sigla til Austurlanda, hugsaði um það en þá var ég trúlofaður góðri konu sem hefur tekið mikinn þátt í því sem ég hef gert. Frábær kona, Anika Ragnarsdóttir heitir hún, ættuð að vestan. Ég kunni alltaf geysilega vel við mig á sjónum og síðasta árið sem foringi á sjómælingaskipinu Freyju var alveg frábært. Skipherrann Knut Kergot var alveg einstakur maður. Hann tók mig nánast að sér og kenndi mér eins og hann gat. Það var feikilega gott að vera með Dönum. Ég var í fimm ár þar ytra og kom bara einu sinni heim í hálfan mánuð en fann aldrei að ég væri meðhöndlaður öðru vísi en einn af þeim.“ – Var Anika með þér í Danmörku ?
Kóngur var mjög ánægður með þetta. Ég lenti í móttöku á Hótel HB og svo fórum við út á hraunið með honum. Þegar hann fór frá Eyjum sigldu allir bátarnir í kjölfarið á konungsskipinu eða kringum skipið en það var ekki skipulögð röð og þannig fylgdu þeir kóngi að Bjarnarey. Þar sneru bátarnir við og sigldu til baka og við sendum skeyti til konungsskipsins sem við fengum svar við. 94
„Við kynntumst í Kaupmannahöfn 1957. Anika kom heim á undan mér, var bara úti í tvö ár. Hún vann sem sjúkraliði á spítala í Kaupmannahöfn en starfar nú á Grensási í Reykjavík.“
Sjómenn og fjölskyldur, Til hamingju með daginn!
hafa verið brautryðjendur á Íslandi í framleiðslu á vélum og tækjum úr ryðfríu stáli fyrir fiskiðnaðinn og fiskiskip.
VÖNDUÐ VINNA - HAGSTÆÐ VERÐTILBOÐ Framleiðum meðal annars:
Kassalosunartæki
Sigmunds sleppibúnað
Loðnu- og síldarskiljara
Færibönd - Rúllubúnað
Tengi alls konar á fiskidæluslöngur 12“, 14“ og 18“
Fiskþvottakör, ýmsar gerðir Fiskvinnslulínur
Nótablokkir fyrir netaverkstæði
Ryðfrí ástengi fyrir mótora
Vélaverkstæðiði Þór sími: 481-2111 fax: 481-2918 www.velathor.is 95
HVAÐ VITA BÖRNIN UM SJÓMENNSKU? Nafn: Emil Aron Bergsson. Aldur: 3 ára. Veistu hvað sjómennirnir gera á sjónum: Veiða fisk. Hefur þú farið á sjó: Nei ég er alltof sjóveikur. Þekkir þú einhverjar fisktegundir: Auðvitað, pírana fiskur, hákarl og svo eru margir litlir fiskar. Þekkir þú einhverja sjómenn: Já, já og þeir veiða marga fiska. Langar þig að verða sjómaður þegar þú verður stór: Já þá ætla ég líka eiga veiðistöng. Veistu hvernig sjómennirnir veiða fiskinn: Veiðistöng. Borðar þú fisk: Já, já.
Nafn: Katla Svava Karlsdóttir. Aldur: 4 ára, verð 5 ára 1. október. Veistu hvað sjómennirnir gera á sjónum: Fara útá sjó og veiða fiska og hval. Hefur þú farið á sjó: Já einu sinni með Óskari að skoða helli. Þekkir þú einhverjar fisktegundir: Ýsa, hvalir, Litla Hvít og Litla Grá. Þekkir þú einhverja sjómenn: Óskar, Ottó og einu sinni pabbi minn en það er svo langt síðan. Langar þig að verða sjómaður þegar þú verður stór: Já, skipstjórakona á Herjólfi. Veistu hvernig sjómennirnir veiða fiskinn: Já, með háf. Borðar þú fisk: Já, steiktan fisk í raspi og hvítan fisk.
Nafn: Kristel Kara Daðadóttir. Aldur: 4 ára. Veistu hvað sjómennirnir gera á sjónum: Já, stýra bát. Hefur þú farið á sjó: Bara hérna að komast inn í bátinn hérna og fara eitthvert. Þekkir þú einhverjar fisktegundir: Sem er í bíómyndinni. Þekkir þú einhverja sjómenn: Já, pabba minn og jú afa minn. Langar þig að verða sjómaður þegar þú verður stór: Já… mig langar vera sjókona og þá þarf ég að vera í Metabolic. Veistu hvernig sjómennirnir veiða fiskinn: Já með veiðistöng. Borðar þú fisk: Ég borða fisk. 96
Nafn: Ríkharður Páll Sævaldsson. Aldur: 5 ára. Veistu hvað sjómennirnir gera á sjónum: Veiða fisk. Hefur þú farið á sjó: Já á Júlíu VE og svo á Tenerife fór ég á bát að veiða fisk. Þekkir þú einhverjar fisktegundir: Já, skötu og ýsu. Þekkir þú einhverja sjómenn: Afi Rikki, Ottó, Raggi togari, Svenni Stóri og Ágúst. Langar þig að verða sjómaður þegar þú verður stór: Nei, ég ætla verða vinnumaður eins og pabbi. Veistu hvernig sjómennirnir veiða fiskinn: já með neti. Borðar þú fisk: Já.
Nafn: Sigurður Andrason. Aldur: 4. ára. Veistu hvað sjómennirnir gera á sjónum: Þeir fara á bát og þeir toga netin inn. Hefur þú farið á sjó: Já, lítið á Bjartmar. Þekkir þú einhverjar fisktegundir: Hákarl. oooog hérna meiri það eeer. Ég veit það ekki. Þekkir þú einhverja sjómenn: Nei, jú afi Siggi. Langar þig að verða sjómaður þegar þú verður stór: Neeei, ég vil verða slökkviliðsmaður. Veistu hvernig sjómennirnir veiða fiskinn: Já, þeir setja netið útí sjó og draga svo aftur upp. Borðar þú fisk:Já, en ég borða ekki sítrónu.
Nafn: Þóra Elísa . Aldur: 4 ára (hún er reyndar 3 ára). Veistu hvað sjómennirnir gera á sjónum: Kafa. Hefur þú farið á sjó: Já, með ömmu og afa. Þekkir þú einhverjar fisktegundir: Já, rauða fiskinn. Þekkir þú einhverja sjómenn: Afi minn hefur farið í sjó. Langar þig að verða sjómaður þegar þú verður stór: Nei. Veistu hvernig sjómennirnir veiða fiskinn: Með bátnum. Borðar þú fisk: Nei, bara fiskistangir.
- Sara Sjöfn Grettisdóttir tók viðtölin við börnin.
97
Guðbjartur með skipstjórum Herjólfs, Gísla Val, Ívari og Sigmari Loga.
GUÐBJARTUR ELLERT JÓNSSON:
ALMENN ÁNÆGJA MEÐ HERJÓLF OG BIÐLISTAR NÁNAST ÚR SÖGUNNI Herjólfur ohf. er með stærri vinnustöðum í Vestmannaeyjum með hátt í 50 starfsmenn. Starfseminni má skipta í þrjár deildir: útgerðarsvið, rekstrarsvið og þjónustusvið. Áhafnir eru þrjár og standa tvær vaktir á dag og í hverri áhöfn eru 12 fastráðnir starfsmenn og því 36 í heildina. Á rekstrarsviði starfa sex til sjö sem sinna sölu farmiða í afgreiðslu og öðru sem fellur til. Á þjónustusviði starfa fjórir til sex sem og sjá um þrif í farþega- og hótelrými ferjunnar. Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri segist ekki hafa orðið var við annað en ánægju farþega með nýtt skip. „Það helgast einna helst af breyttum brottfaratímum og fjölgun ferða. Siglt er fyrr að morgni og seinna að kvöldi en áður. Almenn ánægja er með ferjuna og aðstöðuna um borð. Hún er hljóðlát með þægilegar hreyfingar á siglingu.“ Hentar vel í Þorlákshöfn Guðbjartur segir að ferjan henti vel til siglingar til 98
Þorlákshafnar og hafi reynst vel í vetur. Engu að síður er það markmið félagsins að sigla eins og kostur er til Landeyjahafnar enda er hún alltaf fyrsta val. „Allur aðbúnaður um borð er góður og þægilegur. Gert er ráð fyrir að farþegar fylgi bifreiðum um borð og gangi frá bíladekki upp í farþegarými ferjunnar sem dregið hefur úr umferð gangandi í gegnum afgreiðsluhúsin. Við tekur bjartur og þægilegur farþegasalur þegar upp er komið þar sem bæði er hægt að sitja við borð, á bekkjum eða í sérstökum stólum. Aðstaða til veitingasölu er í kaffiteríustíl en svo er hægt að sérpanta heitan mat. Útisvæði er skemmtilegt og hægt er að ganga allan hringinn, sem er nýtt.“ Allt að 62 kojur Kojur eru 30 á fimmtu hæð ferjunnar en þar er afmarkaður gangur með sex klefum. Fjórir fjögurra manna klefar, einn sex manna og einn átta manna. Til viðbótar eru komnar 32
Til hamingju með daginn sjómenn & fjölskyldur!
Sjómenn og fjölskyldur til hamingju með daginn og eigið góða helgi ! Póley gjafavöruverslun / s: 481-1155 / Bárustíg 8 / www.poley.is
SLÖKKVITÆKJA- & GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTA VESTMANNAEYJA Vesturvegi 40 // Sími 481-2940 99
færanlegar kojur í annan salinn á fjórðu hæðinni. Þeim er hægt að skipta út fyrir stóla, allt eftir þörfum hverju sinni. Fleiri bílar og vagnar Gamli Herjólfur flutti 50 til 55 bíla að jafnaði án vagna en sjá nýi 70 til 75 bíla þegar engir vagnar eru. Sá eldri getur tekið fjóra til fimm gáma í ferð en sá nýi sex til sjö. Aðstaða til lestunar og losunar eru mun betri í nýju ferjunni enda rýmra og einfaldara að koma farartækjum og frakt fyrir. Aðgengi frá bíladekki er líka mun betra með tvo uppganga og eina stóra lyftu. „Nú heyrir nánast sögunni til að biðlistar myndist. Það er því gríðarlega mikilvægt að geta haldið tíðum brottförum. Við finnum verulega fyrir þessu þegar siglt er á Þorlákshöfn. Jafnvel þó dragi verulega úr farþegaflutningum þegar siglt er þangað eru þetta ekki nema tvær ferðir á dag og því kemur fyrir að bíladekkið fyllist. Hafa verður í huga hve margir heimamenn sækja í nauðsynlega þjónustu á höfuðborgarsvæðinu jafnt að vetri sem að sumri,“ sagði Guðbjartur og lét fylgja lista yfir siglingar nýja Herjólfs frá hann hóf siglingar í júlí sl. til áramóta. Aðeins 16 daga í Þorlákshöfn Á síðasta ári sigldi Herjólfur nær óslitið til Landeyjahafnar en fyrir kom að bregða þyrfti út af því og fara til Þorlákshafnar. Í september var siglt fjóra daga á báðar hafnir, einn í október, þrjá í nóvember og í desember fimm daga. Á þessu sama tímabil var siglt 16 daga eingöngu til Þorlákshafnar.
ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
100
SJÓMENN, TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN
Ecomar sérhæfir sig í umhverfishæfum og vottuðum hágæða vörum fyrir skip og vinnslu. EFNAVÖRUR • HREINSIEFNI • REKSTRARVÖRUR • ÖRYGGISVÖRUR • Aquabreak PX - Sápa fyrir vinnsludekk og allt skipið • Aquatuff – Sterk sápa fyrir efra dekk og vélarúm • Metal Brite – Ryðhreinsir – Sýrusápa • Coldwash HD – Sterkur olíuhreinsir • Gamazyme – Hreinsiefni fyrir WC kerfið
• • • • •
Stamdúkar / Bræludúkar Björgunargallar / Björgunarvesti Umhverfis- og uppsogsvörur Olíumottur / Olíurúllur / Olíupulsur Ultrasonic þvottakör
Samstarfsaðili í Vestmannaeyjum: Ecomar er umboðsaðili fyrir:
Ecomar | Selhelia 11 | 221 Hafnarfjörður | s: 522 7000 | E-mail: sala@ecomar.is
101
Ívar Torfason skipstjóri á Herjólfi:
NÝIR TÍMAR MEÐ NÝJU SKIPI SEM STAÐIST HEFUR VÆNTINGAR setjast á skólabekk. Á endanum hringdi Svenni og sagðist vera búinn að skrá mig en ég þyrfti ekki að mæta í tíma, bara taka prófin!“ segir Ívar og kveðst ekki sjá eftir því. Hann lauk skipstjórnarnámi 2010 og þá með farmanninn. „Ég kláraði síðasta prófið, kom heim og fór um borð sem stýrimaður. Gekk inn í stöðuna hans Stefáns Friðrikssonar sem hætti vegna aldurs.“ Þetta ár markaði kaflaskil í samgöngum Vestmannaeyja, þegar Landaeyjahöfn var opnuð í júlí og væntingar um bættar samgöngur á sjó voru miklar. Ívar segir að bjartsýni áhafnarinnar á Herjólfi hafi verið frekar hófstillt.
„Ég fór minn fyrsta túr á Suðurey VE með Halla Sverris en þegar ég kom í land var ég kominn með pláss á Breka. Það var sennilega vegna þess að föður mínum hugnaðist það skip betur. Ég var á Breka í ein fjögur ár eða þangað til Útgerðarfélag Vestmannaeyja lognaðist út af. Þá hefur Valli, stýrimaður á Herjólfi, samband við móður mína og spyr hvort ég hafi áhuga á að koma um borð og vera um sumarið. Þetta er í kringum 2000,“ segir Ívar Torfason, skipstjóri á Herjólfi. Hann er nú 42 ára. Ívar átti þá ekki von á að þetta yrði ævistarfið. „Nei, enda afleit laun og ekki mjög krefjandi starf á þeim tíma að sigla eina ferð á dag til Þorlákshafnar. Ég byrjaði í Stýrimannaskólanum haustið 2007, var fyrstu tvö árin í fjarnámi í gegnum Framhaldsskólann hérna, tók prófin og vann á Herjólfi. Þriðja og síðasta árið tók ég í Reykjavík og var þá í dagskóla.“ Svenni Magg skráði hann í námið „Upphaflega hafði ég engan áhuga á þessu námi en Svenni Magg var fenginn til að smala saman nemendum til að koma þessu á koppinn við skólann hér heima. Hann hringdi nokkrum sinnum og ég neitaði alltaf; sagðist ekki hafa tíma í svona vitleysu og hefði ekki efni á að 102
Of miklar væntingar „Okkur var alltaf ljóst að við myndum ekki sigla í Landeyjahöfn alla daga en höfnin gerði starfið þó miklu fjölbreyttara. Herjólfur varð mikið skemmtilegri vinnustaður, meira að gera og sprenging í farþegafjölda. Það tók okkur smátíma að átta okkur á Landeyjahöfn og 2012 lentum við með skipið utan í garðinn og þá enduðu þessar æfingar. Auðvitað voru væntingarnar sem Eyjamönnum voru gefnar afskaplega miklar, litlar sem engar frátafir og nýtt skip sem aldrei kom. Allt hafði þetta sitt að segja.“ Ívar segir Landeyjahöfn frábæra þegar hún virkar en mjög slítandi þegar aðstæður séu þannig. Höfnin hafi breyst til batnaðar með nýjum tækjum og aukinni tækni. „Radarinn sem settur var upp við Landeyjahöfn léttir okkur að taka ákvarðanir um að sigla. Þá sjáum við ýmsa hluti sem skýrðu hegðun skipsins í innsiglingunni og voru oft erfiðir. Í radarnum sást þetta og við lærðum að virða náttúruöflin.“ Meiri möguleikar Nýir tímar með nýju skipi segir Ívar að séu mjög spennandi. „Sá gamli, eins ágætur og hann er, hentar ekki á grunnum sjó. Hefur ekki mikla rásfestu en er mjög öflugt skip og þægilegt að stýra honum innan hafnar en var erfiður á síðustu 500 metrunum í Landeyjahöfn.“
Sendum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins!
STÉTTARFÉLAG VESTMANNAEYJUM FYRST STOFNAÐ 1917
Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu árnaðaróskir á sjómannadaginn
KARL KRISTMANNS UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN SÍMI 481-1971 103
Nýi Herjólfur byrjaði siglingar í júlí á síðasta ári. Gerðar voru miklar kröfur til nýrrar ferju og segir Ívar að þær hafi staðist að mestu. „Skipið fer vel með mann og það eru meiri möguleikar með nýjum stjórnbúnaði. Hann fékk eldskírnina í brælunum í vetur þegar siglt var til Þorlákshafnar. Veturinn var þó að því leyti sérstakur að það komu stórar bombur en svo voru mjög góðir kaflar á milli. Það sem meira er, engin sandsöfnun var við höfnina í vetur sem við höfðum ekki kynnst áður. Það hafði mikið að segja um fjölda ferða í Landeyjahöfn en hver ástæðan er vitum við ekki.“ Meiri rásfesta Þegar Ívar er spurður um muninn á þeim gamla og nýja þegar siglt er í Landeyjahöfn nefnir hann fyrst og fremst rásfestuna. „Þegar siglt er frá rifinu að hafnargörðunum á sá gamli til að breyta um stefnu fyrirvaralaust sem getur verið erfitt að leiðrétta á svona stuttri vegalengd og garðarnir beint framundan. Maður vissi aldrei hvert hann ætlaði að stefna ef hann snérist. Aldan líður meira í gegnum þann nýja vegna skrokklagsins og hægt að teygja sig lengra þegar siglt er í Landeyjahöfn. Oft er talað um þriggja og hálfs metra ölduhæð sem viðmið en það er miklu meira sem liggur að baki. Öldulengd og stefna, straumur, vindur, dýpi og fleira hefur sín áhrif.“ – Eruð þið að fara inn við erfiðari aðstæður á þeim nýja? „Já. Við förum inn við skilyrði sem við hefðum aldrei gert á þeim gamla. Það hefur ekki með ölduhæð á dufli að gera því það er líklega síðasta talan sem við skoðum. Annað sem við miðum við staðfestir það, svo sem öldulengd, straumur og fleira.“ Veðurfar og dýpi skipta mestu Ívar segir erfitt og jafnvel ómögulegt að segja til um það í prósentum hve siglingardögum í Landeyjarhöfn komi til með að fjölga. „Frávikin eru svo mikil og á endanum er það dýpið og veðurfarið sem skipta mestu máli. Þetta skip getur hluti sem sá gamli gat aldrei og við eigum að geta byrjað fyrr að sigla í Landeyjarhöfn á vorin, þökk sé djúpristu skipsins. Teygt okkur lengra inn í haustið og nýtt þá glugga sem opnast á veturna. Dýpið eins og það hefur verið í vetur hjálpar líka því ekki þarf að bíða eftir mælingu eins og verið hefur. Það er hægt að sigla um leið og aðstæður leyfa.“ Ívar segir að ný ferja sé því skref fram á við enda hafi verið kominn tími á nýtt skip. „Það er meiri stjórnhæfni, meiri möguleikar við lestun og losun. Getum nýtt okkur minni djúpristu sem kemur sér ekki síst vel að vetrarlagi þegar myndast gluggar og ekki hægt að dæla,“ sagði Ívar Torfason, skipstjóri á Herjólfi. 104
Binni í brúnni á Herjólfi. Gulli hringdi og bauð pláss og hann sló til.
BRYNJARI SMÁRI UNNARSSON STÝRIMAÐUR Á HERJÓLFI:
MIKLU BETRA AÐ SIGLA Í LANDEYJARHÖFN Brynjar Smári Unnarsson, stýrimaður á Herjólfi, er einn úr hópi yfirmanna sem koma af fiskiskipaflotanum. Byrjaði á sjó 2002, lauk skipstjórnarnámi vorið 2009 með farmannsréttindi. Hélt áfram á fiskiskipum til 2017 þegar hann réði sig á Herjólf sem stýrimaður. Líkar vel og er ánægður með nýja skipið sem hefur staðið sig vel, oft við erfiðar aðstæður í vetur. Eftir tvö ár í Framhaldsskólanum fór Brynjar Smári eða Binni, eins og hann er yfirleitt kallaður, á sjó og líkaði vel. „Árið byrjaði ég á Bylgju VE með Óskari Matt og fór þaðan yfir á Heimaey VE,“ segir hann um upphaf sjómannsferilsins. „Það var gamla Heimaey og skipstjóri var Sigurjón Ingvarsson.
Til hamingju með daginn, Sjómenn & fjölskyldur!
við Strandveg · Sími 481-1559
Óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn! SJÓMENN OG FJÖLSKYLDUR, TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
ÞÓRUNN SVEINSDÓTTIR VE 105
Við vorum margir vinirnir á Heimaey; Sævald Hallgríms, Vignir Svavars, Ágúst Halldórs, Grétar Eyþórs, Jens Kristinn Elíasson og Maggi Sigga Einars. Alltaf fjör og Sigurjón leit eiginlega á okkur sem syni sína. Flottur kall og okkur kom vel saman og við höfum alltaf verið vinir.“ Skellti sér í farmanninn Binni fór í Stýrimannaskólann í Reykjavík 2006 og kláraði vorið 2009 eftir þriggja ára nám og þá með farmanninn. „Það munaði svo litlu að taka farmanninn, þurfti bara eina önn. Þess vegna sló ég til en ekki vegna þess að ég stefndi á Herjólf. Hefði bekkjakerfið verið eins og það var hefði þurft ár til viðbótar og þá hefði ég látið fiskimanninn duga. Vildi komast sem fyrst á sjóinn.“ Eftir skólann réði Binni sig á Kristbjörgu VE og þá sem stýrimaður. „Þar var ég með Magnúsi heitnum Guðmundssyni. Vorum á netum á vertíðinni og í humri á sumrin. Það gekk mjög vel og þar var ég til ársloka 2011,“ segir Binni sem fór þá frá Vinnslustöðinni yfir til Ísfélagsins. „Tók síðustu loðnuvertíðina á Sigurði VE, þeim gamla, og aftur með Sigurjóni Ingvars og fór svo yfir á Suðurey. Fyrst með Pétri Andersen og seinna með Sigga Konn. Ég var á Suðurey til loka árs 2015 og svo á Maggý VE sem stýrimaður og skipstjóri og líkaði mjög vel. Eftir vertíðina 2017 byrjaði ég á Herjólfi.“ Gulli skipstjóri hringdi Stýrimannsstaða losnaði um vorið og Binni ákvað að slá til. „Gulli, sem þá var skipstjóri á Herjólfi, hringdi og bauð mér að koma. Ég hafði leyst af sem stýrimaður og vissi út á hvað þetta gekk. Mér hefur líkað mjög vel og sé ekki eftir að hafa skipt yfir.“ – Hver finnst þér munurinn að vera á fiskiskipi og farþega- og bílaferju? „Það er svo margt. Þú hittir miklu fleira fólk og allt annar mórall er með fjölbreyttari áhöfn. Í raun allt annað líf. Fleiri starfsmenn, allt öðru vísi umhverfi og ekki hægt að líkja þessu saman á nokkurn hátt.“ Binni segir lífið líka allt annað og betra eftir að áhöfnin fór að vinna á tvískiptum vöktum yfir daginn, fyrirkomulag sem tekið var upp fyrsta apríl í fyrra. „Það gerðist um leið og Herjólfur ohf. tók við rekstrinum. Áður vorum við að vinna frá því snemma á morgnana og langt fram á kvöld. Unnum í viku og svo vikufrí. Núna byrjum við fyrr á morgnana og vinnum til hálf fimm. Þá tekur önnur vakt við og er til miðnættis. Þetta kemur þannig út að við vinnum að jafnaði 20 daga í mánuði og erum tíu daga í fríi.“ 106
Ánægður með nýtt skip Binni er ánægður með nýjan Herjólf sem hann segir að hafi staðist væntingar og vel það. „Aðalmunurinn er að það hefur gengið miklu betur að sigla í Landeyjarhöfn því sá nýi ristir minna og lætur betur að stjórn. Ferðum í Þorlákshöfn fækkar en það er ekkert vandamál að sigla þangað því sá nýi er betra sjóskip en sá gamli. Hvað Landeyjarhöfn varðar hefur sandburður í vetur nánast enginn verið. Eitthvað í náttúrunni ræður því og ekki vitað af hverju það er. Í allan vetur hafa líkað verið dæluskip að hreinsa til inni í höfninni sem gerir siglingar enn léttari fyrir okkur.“ Þegar spjallað var við Binna var verið að létta hömlum vegna Covid 19 faraldursins. Herjólfur náði að sigla allan tímann en ferðum var fækkað. Áhöfnin starfaði eftir ströngum reglum um sóttvarnir og það sama gilti um farþega. „Vonandi fjölgar farþegum með hækkandi sól og sumri.Við verðum að stóla á að Íslendingar verði duglegir að heimsækja Eyjarnar í sumar,“ sagði Brynjar Smári Unnarsson, stýrimaður á Herjólfi.
Til hamingju sjómenn Við óskum ykkur og fjölskyldum ykkar til hamingju með Sjómannadaginn
Óskar Haraldsson
er alltaf á vaktinni, þú nærð honum í síma 698 3701
V E S T M A N NA E Y J U M
Garðavegi 14 • oskar@kaelifelagid.is kaelifelagid@kaelifelagid.is • www.kaelifelagid.is
ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Sjómannafélagið JÖTUNN
Steini Pípari 894 3473
107
Svanur með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra sem mætti þegar skipið var vígt.
SVANUR GUNNSTEINSSON YFIRVÉLSTJÓRI Á HERJÓLFI:
Í TAKT VIÐ NÝJA TÍMA Á UMHVERFISVÆNU SKIPI Svanur Gunnsteinsson, yfirvélstjóri á Herjólfi, verður fimmtugur á árinu og á að baki mörg ár á sjó, á fiskiskipum af öllum stærðum, áður en hann réði sig á Herjólf. Þar kann hann vel við sig og honum finnst spennandi að vera vélstjóri á fyrsta rafdrifna skipinu á Íslandi. Þar hafi gengið vel og nýtt skip reynst vel á allan hátt. Herjólfur er fjórða skipið sem Svanur tekur við nýju sem vélstjóri. „Ég byrjaði 16 ára á sjó 1986, á Bjarnarey VE með Steingrími Sigurðssyni. Líkaði strax vel og hef verið á sjó síðan þá nema þegar ég var í Vélskólanum og tók verklega hlutann í vélvirkjun. Var eina humarvertíð á Ágústu Haraldsdóttur með Björgvini Sigurjónssyni, Kúda, og svo var ég að þvælast á nokkrum bátum. Var á Sigurbáru 1989 og 1990 og á Öðlingi með Óla Einars 1991.“ Leiðir hans og Óla áttu eftir liggja saman 108
síðar. Svanur byrjaði í vélstjórnarnámi við Framhaldsskólann 1993 og hélt áfram í Vélskólanum í Reykjavík 1996. „Kláraði svo 1998 og þá með full réttindi eftir að hafa klárað vélvirkjun. Fór þá á Sighvat Bjarnason VE og var þar 1998 og 1999 og var þá með Óla Einars á Faxa RE sem var í breytingum í Póllandi. “ Af Sigurði VE yfir á Herjólf „Er á Faxa til 2007 en þá er ég orðinn leiður á að búa í Vestmannaeyjum og róa annars staðar. Fer til Bergs Hugins og á Bergey sem var þá ný. Þar var ég ekki lengi því árið eftir var Óli tekinn við Álsey sem Ísfélagið átti. Byrjaði þar fyrsta apríl 2008. Er þar til 2012 þegar ég fer með Óla að ná í Heimaey til Chile. Er þar í tvö ár eða þar til við förum til Tyrklands og erum þar í nokkra mánuði á meðan verið er að smíða Sigurð VE. Er á honum til 2018 með Herði Guðmundssyni þegar ég ræð mig til Herjólfs. Er í Póllandi meira og minna þangað til við komum með Herjólf til Eyja í júní á síðasta ári. Var þá búinn að vera úti í níu mánuði í heildina.“ Svanur segir það hafa verið mikinn lærdóm að fylgjast með smíðinni í Póllandi. „Þegar ég kem út er skipið nánast alveg hrátt, rétt búið að ræsa ljósavélar. Allt var þetta í föstum skorðum en einhverju fengum við að breyta og höfðum áhrif á hvernig hlutirnir voru gerðir.“ Leist strax vel á skipið Svanur segir að sér hafi strax litist vel á skipið og haft mikla trú á því. „Kannski ekki mjög fallegt en fínt skip. Úti kynntist ég aðalhönnuðinum, Jóhannesi Jóhannessyni, og við vorum að vinna í kringum hann í marga mánuði. Hann er mjög klár í sínu starfi og hefur unnið við ferjur í tugi ára. Veit því alveg hvað hann er að segja,“ segir Svanur sem var strax hrifinn af því að skipið yrði rafdrifið. „Þetta er mjög sniðugt og svínvirkar. Í dag snýst allt um að vera umhverfisvænt hvar sem er í heiminum og allir eru sama pakka. Þegar ég var í Póllandi var talsvert af skipum og ferjum í smíðum með sama batteríspakka og við. Ég fór um borð í öll þessi skip og sá að allir hugsa þetta eins og við. Búnaðurinn er kannski ekki alltaf alveg eins en svipaður og uppsetningin sömuleiðis.“ Allt öðru vísi og flóknara – Þetta er nýjung á Íslandi, er ekki gaman að fá að taka þátt í því? „Jú. Það er mjög gaman. Allt nýtt og ekkert sambærilegt við það sem maður hefur áður séð þó skipin hafi verið ný. Hugsunin við keyrsluna á þessu er líka allt öðru vísi. Það hefur nánast ekkert komið upp á þann tíma sem við erum
búnir að keyra skipið á rafmagni. Allt gengið mjög vel en þetta er flóknari búnaður. Við erum sjálfir alltaf að læra því enginn getur kennt okkur. Þurfum að reka okkur á sjálfir. Skipið hefur virkað mjög vel, virkilega gott í sjó. Gagnrýna má ganghraðann en það er ekki bæði hægt að fá mikinn hraða og litla grunnristu. Slíkt gengur aldrei upp.“ Enn að læra Stjórnendur í brú Herjólfs eru líka að læra á stýribúnaðinn sem er allt öðru vísi en þeir hafa kynnst áður. „Skipið er algjörlega keyrt á tölvubúnaði og stýringin allt öðru vísi en á venjulegu skipi. Hægt er að snúa skrúfunum 360 gráður og skipinu er stýrt með þeim. Þetta virkar öðru vísi en venjulega því þegar þú stýrir í bak snýst skipið í stjór. Ert alltaf með skrúfuvatnið í öfuga átt miðað við stefnu. Það eru tvær hliðarskrúfur að framan, mjög öflugar og töluvert mikið stærri en á þeim gamla. Tvær skrúfur og helmingi meira afl á hvorri þannig að sá nýi er mjög öflugur.“
Hleðsluturnar Í vetur voru settir upp hleðsluturnar í báðum höfnum Herjólfs og nokkuð er síðan turninn í Vestmannaeyjum var tekinn í notkun. Er siglt á hleðslu frá honum í Landeyjahöfn og hlaðið á leiðinni með vélunum um borð. Það á eftir að stilla hleðsluturninn í Landeyjahöfn en verður gert á næstunni. „Það tekur um hálftíma að hlaða batteríin sem er alveg nægur tími. Allt hefur þetta virkað en er mjög sérstakt er að fara niður í vélarrúm og ekkert er þar í gangi, dautt á öllu og skipið á ferð! En mjög gaman að taka þátt í þessu.“ segir Svanur Gunnsteinsson yfirvélstjóri.
Til hamingju með daginn sjómenn Sjómannadagurinn 7. júní 2020
109
Að mörgu að huga Hönnun skipsins byggðist á prófunum í hermi og markmiðið var ferja sem gæti haldið uppi áreiðanlegum heilsárssamgöngum milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Gæti siglt í sem mestri ölduhæð og í miklum straumi og vindi. Annars vegar var grunnsævið við Landeyjahöfn, sem þýddi að ferjan þurfi að hafa litla djúpristu, stefnufestu og stjórnhæfni auk lítillar vindmótstöðu. Líka þurfti nýr Herjólfur að takast á við erfið veður og mikinn sjó á leiðinni til og frá Þorlákshöfn. Gert var ráð fyrir öflugum veltiuggum og skrokklagi sem uppfyllti þessi skilyrði. Lögð var áhersla á gott aðgengi farþega og að lestun og losun einkabíla og gámabíla gengi fljótt og vel. „Allt þarf að virka saman og á litlu plássi sem er oft mesta vandamálið. Þegar maður sér svo skipið fullbúið er oft erfitt að hugsa til alls þess sem þarf að ganga upp og passa í takmarkað rými í hverju skipi. Það verður að hugsa þetta í lögum þar sem hvert lagið kemur ofan á annað.“ Jóhannes lætur fara vel um sig í farþegarými Herjólfs sem er mjög vislegt.
JÓHANNES JÓHANNESSON, AÐALHÖNNUÐUR HERJÓLFS:
HÁRFÍNT SAMSPIL ÁHAFNAR OG SKIPS ER LYKILATRIÐI „Það kemur mér ekki á óvart, að nýr Herjólfur standist þær væntingar sem við lögðum upp með. Sjálfur fór ég með honum fram og til baka frá Þorlákshöfn í febrúar, í suðvestan brælu og níu metra ölduhæð við Surtinn. Það gekk allt vel og skipið stóð sig vel eins og ég gerði ráð fyrir. Skipstjórarnir tala um að Herjólfur fari vel með mannskapinn sem mér finnst vera bestu meðmælin,“ segir Jóhannes Jóhannesson, skipaverkfræðingur og aðalhönnuður Herjólfs sem reynst hefur betur en margir bjuggust við. Hann starfar í Danmörku og hefur mikla reynslu af hönnun skipa af öllum gerðum. Jóhannes sá fyrir sér hönnun nýrrar Vestmannaeyjaferju sem spennandi verkefni, ekki síst vegna þess að þrátt fyrir leit fann hann hvergi í heiminum höfn sambærilega Landeyjahöfn. 110
Kallar á þjálfun Jóhannes segir að þetta hafi allt tekist og reynslan fyrstu tíu mánuðina sé góð. „Það krefst mikillar þjálfunar að sigla svona skipi. Oftast er siglt í góðu veðri og við góð skilyrði, sem betur fer. Þau eru ekki mörg skiptin sem skip lenda í mjög erfiðum aðstæðum. Þegar það gerist þarf að fara saman öflugt skip og þjálfaðir skipstjórnarmenn. Í Danmörku segjum við að það taki allt að einu ári fyrir áhöfn að venjast skipi. Það er ekki þannig að skipstjórinn setjist í stólinn í brúnni og kunni allt. Hann þarf reynslu af sínu skipi. Gott er að senda skipstjóra í siglingahermi en verður aldrei eins og að sigla sjálfu skipinu.“ Jóhannes segir þetta hárfína samspil áhafnar og skips lykilatriði og hann sér ekki annað en að það sé að verða reyndin á Herjólfi. „Sá sem stjórnar skipinu þarf að venjast því og þora að gera hlutina. Nýi Herjólfur er mjög öflugt skip, lætur vel að stjórn en tæknin er öðru vísi en á þeim gamla. Þarna fer saman lögun skips, tækin til að stjórna og reynsla manna til að bregðast við þegar eitthvað ber út af. Til dæmis þegar brot eða alda úr óvæntri átt skellur á skipinu er nauðsynlegt hafa öflug tæki, bæði í brú og vél, til að rétta af stefnuna. Þar skipta máli sjálft skipið, stefnufestan og tækin sem þú hefur til að bjarga hlutunum.“ Byggja á mikilli reynslu Þó Landeyjahöfn sé á ýmsan hátt sérstök segir Jóhannes að víða í höfnum í Danmörku þurfi að taka tillit til erfiðra aðstæðna.
„Við höfum mikla og góða reynslu af þessum skrúfubúnaði hérna því í mörgum höfnum eru líka erfiðar aðstæður. Risastór skip í litlum höfnum takast á við mikinn vind, mikla strauma og grunnsævi. Það eru staðir hér í Danmörku sem eru ofsalega erfiðir og þetta er því ekki í fyrsta skipti sem ég er með verkefni þar sem taka þarf tillit til margháttaðra aðstæðna. Ferjur eru alltaf að fara úr og í höfn, jafnvel mörg þúsund sinnum á ári,“ segir Jóhannes og er þess fullviss að rafmótorarnir eigi eftir að koma sér vel. Rafmagnsmótorar betri „Díselvélar hafa sín takmörk en með rafmótor þarf ekki að hafa áhyggjur af því að ofbjóða vélinni þannig að hún drepi á sér eins og gerist með díselvélarnar. Möguleikarnir eru meiri til að bregðast strax við sem er frábært þegar siglt er í Landeyjahöfn.
um ferjuna mótaðist mjög fljótt. Það þurfti að skoða plúsa og mínusa og stilla saman mörgum þáttum. Ákveðnar væntingar byggjast á þekkingu og reynslu og það gekk eftir. Dæmi um það er að hægt er að snúa skipinu hratt þar sem öflugar hliðarskrúfur að framan og skrúfurnar að aftan vinna saman.“ Vel hefur tekist til um hönnun á farþegarými þar sem fara saman smekkleg húsgögn og mildir litatónar sem virka róandi þegar komið er um borð. „Þegar ferja er að hönnuð þarf að taka tillit til þess að fólk er ekki lengi um borð í einu, kannski klukkutíma. Því þarf að líða vel, ekki samt endilega eins og setustofunni heima!“ segir Jóhannes Jóhannesson, skipaverkfræðingur og hönnuður nýja Herjólfs.
– Ertu stoltur af þessu afkvæmi þínu, nýja Herjólfi? „Já. Ég er það, mjög svo. Mér finnst að það sem lagt var upp með frá byrjun hafi tekist. Margt varð að kanna og rannsaka en meginhugmyndin
Sendum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins
111
humri. Hætti þar og kláraði vélstjórnarnámið í Vestmannaeyjum og síðan alveg í Reykjavík árið 2008 eða 2009. Fór svo yfir þennan 2005 til 2009 tíma með Sigurjóni Ingvars, þeim frækna skipstjóra, og félögum á Heimaey VE, síðan á Bylgju VE, Þórunni Sveinsdóttur VE og Sigurði VE.“ Karlremban á braut Núna segir Ágúst tímana öðru vísi. „Konan byrjuð að vinna og maður var tekinn úr sambandi í fyrra eftir þrjá krakka. Langaði alltaf í það fjórða en eftir Covid 19 er fínt að vera bara með þrjú,“ segir Ágúst sem hefur jafnframt helgað sig húsmóðurstörfum.
Ágúst, vélstjóri er einn ungra manna sem komið hafa af fiskiskipum yfir á Herjólf.
ÁGÚST HALLDÓRSSON, VÉLSTJÓRI Á HERJÓLFI:
UNIR SÆLL VIÐ SINN HLUT MEÐ HEIMILISSTÖRF Á HERÐUM Ágúst Halldórsson vélstjóri er einn þeirra sem komið hafa af fiskiskipum yfir á Herjólf. Hann er ánægður með vistaskiptin og segir lífið mun fjölskylduvænna og þægilegra en áður. Hann hefur hellt sér af krafti í heimilisstörfin og segir það forréttindi að sjá börnin þrjú vaxa úr grasi. „Ég byrjaði frekar seint á sjó, átján eða nítján ára,“ segir Ágúst sem er 35 ára í dag. „Fyrst á Maríu Pétursdóttur VE með Pétri frænda. Braggaðist þar en var búinn að skrá mig í Vélskólann og kominn með fyrsta stigið. Ætlaði aldrei á sjó en fékk að fara með Pétri til að prófa eitt sumar á 112
„Þær vinna og vinna konurnar þannig að heimilisstörfin hafa dottið á herðarnar á mér. Eitthvað sem ég bjóst aldrei við sem krakki, að minnsta kosti ekki miðað við uppeldið. Þá var maður meiri karlremba! Er orðinn ofsalega ljúfur og blíður og elda örugglega 80% máltíðanna á heimilinu. Er að læra inn á þrifin og það kemur líka. Afskaplega gaman að vera með krökkunum og öllu því.“ Hittir fjölskylduna á hverjum degi Þetta er þá fjölskylduvænt starf? „Já, alveg geggjað upp á það að gera. Við vinnum 20 daga í mánuði en bara helming og helming. Maður hittir því alla fjölskylduna á hverjum degi og það er ofsagaman að venjast því.“ Hver er að öðru leyti helsti munurinn? „Á togurunum kemurðu heim reglulega en á uppsjávarskipunum hjá Ísfélaginu ertu svo mikið á Þórshöfn. Eitt árið vorum við fjóra mánuði þar. En þetta er náttúrlega eitthvað sem maður velur sér og ekki hægt að kvarta yfir neinu nema að hitta ekki fjölskyldu og vini. Mér leið oftast vel hjá Ísfélaginu sem ég hef unnið hjá í tæp tuttugu ár. Skrítið að skera á þann naflastreng.“ Þóknast ekki kerlingum úti í bæ Ágúst segir launamuninn á Herjólfi og á uppsjávarskipi minni en ætla mætti. „Eftir því sem ég les meira af bókum hef ég áttað mig á því að þetta lífsgæðakapphlaup sem unga fólkið er að elta í dag er svo tilgangslaust. Ég þarf ekki að vera með gráa veggi heima hjá mér og einhverja Cartelvasa og annað drasl til að þóknast einhverjum kerlingum úti í bæ. Öll heimili á Íslandi eru að verða eins. Síðan skil ég bara ekki af hverju unga fólkið í dag vill steypa sér í hellingsskuldir og rústa eldhús og baðherbergi sem skila sínu vel bara til þess að elta einhverja helvítis tísku sem kemur og fer. Enginn leggur sig eftir því að borga niður
höfuðstólinn af lánunum sínum og fólki virðist vera fullkomlega sama þó það verði þræll skuldara út ævina til þess að falla inn í eitthvað mynstur. Stundum líður mér eins og ég sé staddur í Nýjufötin-keisarans-ævintýri! Ekki séns að ég láti plata mig í slíkt rugl! Mig langar ekki heldur til að keyra um á tíu milljóna króna bíl ef ég þarf að skulda í honum og hafa ekki efni á honum. Ef þú sérð mig á svoleiðis bíl á ég hann skuldlausan. Engar líkur eru á því að ég fari í fáránlega fjárfestingu til þess að rífa upp eigið egó og bleyta upp í kerlingum sem ég er ekki einu sinni að fara upp á!“ Gaman á Herjólfi Rúmt ár er síðan Ágúst byrjaði á Herjólfi og segir hann það hafa hist mjög vel á. „Lítið hefur gerst á uppsjávarskipunum síðan þá, engin loðna síðan ég hætti. Ekki þannig að það sé æskilegt, auðvitað vill maður að það gangi vel á sjónum. Á Herjólfi er skemmtilegt umhverfi og líflegt
starfsfólk. Gaman að vinna með svona mörgu fólki og mikil rótering. Og svo er maður alltaf að koma í land sem er flott en fjörið ekki eins mikið og þegar maður var að koma heim eftir langt úthald. Helsti kosturinn er svo að sjá börnin sín vaxa og dafna. Þú getur tekið þátt í öllu, fengið frí þegar hentar, sem er ekki svo auðvelt á fiskiskipum. Síðan get ég alveg eins verið að rugla eitthvað núna og farið aftur á sjó innan nokkurra ára þegar krakkarnir eru orðnir stærri og sjálfstæðari. Það gæti alveg verið pressa frá konunni því örugglega gæti verið fínt að losna við mig í lengri túra svona endum og eins,“ segir Ágúst og hlær. Ágúst segist ánægður með nýja skipið. „Enda ekki hægt annað og maður sér að skipstjórarnir eru að læra meira á Landeyjahöfn og verða betri og betri. Núna eru þeir sumir hverjir að fara inn í 3,5 metra ölduhæð þannig að ég hef fulla trú á þessu. Þeir eiga bara eftir að verða miklu betri,“ sagði Ágúst Halldórsson, vélstjóri á Herjólfi.
OKKAR HÆFNI – ÞINN HAGUR Egersund Ísland var stofnað árið 2004 og hefur síðan þá framleitt og þróað veiðarfæri og búnað til uppsjávarveiða. Egersund Ísland er hluti af Egersund Group sem stofnað var árið 1952. Egersund og dótturfyrirtæki þess eru leiðandi fyrirtæki á sviði framleiðslu og þróunar veiðarfæra.
www.egersund.is
113
LJÓSMYNDIR EFTIR HLYN ÁGÚSTSSON
114
115
Grettir Ingi Guðmundsson.
Óðinn Ari Guðmundsson.
SARA SJÖFN GRETTISDÓTTIR SKRIFAR:
SÁRAR MINNINGAR OG AÐRAR LJÚFAR ÚR ÆSKU BRÆÐRA Á BRYNJÓLFI VE Snemma morguns í miðri viku í maí kom Brynjólfur VE 3 í land af humarveiðum. Ég hafði mælt mér mót við tvo skipverja þar, bræður sem búa yfir áhugaverðri lífsreynslusögu. Þeir mættu heim til mín enda annar þeirra faðir minn og hinn frændi. Kaffið var svart og sykurlaust og við hófum spjallið við eldhúsborðið. Grettir Ingi Guðmundsson og Óðinn Ari Guðmundsson eru fæddir í Reykjavík árin 1958 og 1962. Systkinin voru alls sjö, fimm drengir og tvær stúlkur. Fyrstu minningar þeirra eru af Fálkagötunni í Reykjavík þar sem foreldrar þeirra bjuggu í 40 fermetra risíbúð með sex börn og ekkert rennandi vatn. Það var svo um jólin 1963 sem fjölskyldan flutti í Álftamýri 52, í 74 fermetra íbúð á þriðju hæð.
116
„Öllum leið eins og við værum að flytja í höll. Okkur fannst þetta svo stórt og það skemmdi ekki fyrir að geta hlaupið svona fram og til baka. Mig grunar að mamma hafi fundið fyrir létti að vera kominn með rennandi vatn með alla þessa krakka,“ segir Grettir. 49 börn í stigaganginum Bræðurnir minnast æskuáranna í Álftamýrinni með fögrum orðum. „Það var ekki mikið um vesen á okkur bræðrunum sem krakkar. Við pössuðum hver upp á annan. Við vorum til að mynda fimm saman í einu herbergi alla okkar æsku. Kojur og einn dótakassi bakvið hurðina,“ segir Óðinn og Grettir tekur undir það.
„Á þessum tíma vorum við líka oft að leika okkur og spjalla við vinina í stigaganginum. Á einhverjum tíma voru 49 börn bara í okkar stigagangi, þannig þú getur rétt ímyndað þér fjörið sem gat myndast þar!“ segir Grettir. Síðasta ferðin Eins og venjan var á þessum tíma var mikið um heimavinnandi mæður og feður sem sáust sjaldan vegna vinnu. Þetta átti líka við um heimili bræðranna. „Pabbi var meira og minna á sjó þó maður eigi einhverjar minningar af honum niður í Stillingu,“ segir Óðinn. Stilling er vélaverkstæði sem enn er starfrækt í dag. „Planið hjá honum var að fara vinna hjá Stillingu allan ársins hring og ferðin með Sjöstjörnunni til Færeyja átti að vera síðasta sjóferðin hans, sem hún bókstaflega var.“ Þessi umrædda ferð Sjöstjörnunnar til Færeyja þar sem pabbi þeirra, Guðmundur J. Magnússon, var fyrsti vélstjóri, endaði skelfilega. Sjöstjarnan KE 8 var 100 tonna eikarbátur frá Keflavík sem fórst að því er talið er rétt fyrir utan suðurströnd Íslands þann 11. febrúar árið 1973. Með bátnum fórust 10 manns og þar af voru 5 Íslendingar. Báturinn hafði verið að koma úr viðgerð í Færeyjum og þegar hann var staddur um 100 sjómílur austsuðaustur af Dyrhólaey, tilkynnti skipstjóri bátsins, Engilbert Kolbeinsson, að leki væri kominn að bátnum. Afar vont veður var á svæðinu og skip voru tafarlaust send til hjálpar. Síðustu skilaboð frá Engilbert voru að allir úr áhöfninni væru komnir um borð í gúmmíbáta og hann væri einn eftir í skipinu og einungis tímaspursmál hvenær báturinn sykki. Ein umfangsmesta leit Íslandssögunnar á sjó fór fram næstu 10 daga en hvorki fannst tangur né tetur af bátnum fyrr en á síðasta degi leitar að leifar af gúmmíbjörgunarbáti fundust og var lík eins skipverjans bundið þar við.
Grettir. „Maður lifði lengi í voninni,“ bætir Óðinn við. Það var svo á síðasta degi leitar sem björgunarbáturinn fannst með einum látnum skipverja. Þá voru örlögin ráðin og sorgin tók við hjá fjölskyldunni. Tvöfaldur botn í alla björgunarbáta Í kjölfar þessa slyss fóru menn að skoða björgunarbátinn. „Skipverjinn sem fannst í bátnum var þar eingöngu vegna þess að hann hafði bundið sig við bátinn. Botninn á björgunarbátnum hafði rifnað og farið ásamt skipverjunum sem í honum voru. Eftir þetta slys var settur tvöfaldur botn í alla björgunarbáta á landinu,“ segir Grettir. „Það var einnig komið á samstarfi Íslands, Færeyja og Skotlands eftir slysið í þeim tilgangi að hjálpast að við björgunarstörf á sjó. Þetta samstarf varir enn þann dag í dag,“ segir Óðinn. Fyrsta sinn til Vestmannaeyja Það var nokkuð ljóst að bræðurnir höfðu ákveðið sín á milli að varpa ekki of miklu ljósi á unglingsárin þegar spjallið berst að þeim tíma ævinnar. „Það er spurning hve mikið af því er hægt að setja niður á blað!“ segir Óðinn. Þeir hlæja báðir en minnast þess að hafa báðir komið fyrst til Eyja á unglingsárunum. „Við komum hingað til að heimsækja Gyðu frænku. Veltumst með gamla Herjólfi í rúman sólahring vegna brælu en svo í innsiglingunni gleymdist bátsferðin fljótt. Aðra eins fegurð höfðum við ekki séð,“ segir Óðinn og Grettir tekur undir það.
Ísland í aldanna rás 1900-2000 eftir Illuga Jökulsson, Reykjavík 2003.
Maður lifði lengi í voninni Daginn sem slysið varð fengu systkinin ekkert að vita, eðlilega því leitin var rétt að byrja og ekkert vitað um örlög fólksins. „Ég man bara eftir því að augljóslega var eitthvað að hjá mömmu og svo var okkur tilkynnt þetta daginn eftir,“ segir Óðinn. „Þegar við erum látin heyra um slysinu var ekkert vitað og eðlilega vonuðum við það besta,“ segir 117
Fjölskyldan öll saman komin.
Öll sjö systkinin til Eyja Síðan líða unglingsárin með ýmsu braski og bralli. Guðrún systir bræðranna, Gunna eins og við þekkjum hana, dregur Gretti með sér til Eyja árið 1980 og til að gera langa sögu stutta hefur hann ekki farið héðan aftur. Sömu sögu má segja um Magnús bróður þeirra sem flutti til Vestmannaeyja 1976 og bjó hér alla sína tíð eða þar til hann lést í febrúar síðastliðnum. Óðinn flutti fyrst til Eyja til að vinna árið 1978 og á þessum tíma bjuggu öll systkinin í Eyjum nema yngsta systirin, Rebekka, sem kom á eina vertíð en fór aftur í borgina að vertíð lokinni. Þegar Óðinn kom fyrst til Eyja var hann 16 ára gamall og nýorðinn pabbi.
Systkinahópurinn ásamt móður sinni Önnu Steingrímsdóttur.
„Ég vinn hérna í tvö ár en byrja svo að smíða og hef síðan þá alltaf verið að smíða og að róa til skiptis. Ég tók góð 10 ár þar sem ég var bara að smíða og byggði mér meðal annars hús í Kópavogi þar sem við eiginkonan höldum heimili. En ég hef verið að róa síðustu ár hérna í Vestmannaeyjum og núna síðustu ár á Brynjólfi með Gretti.“ Eiginkonuárið 1980! Árið 1980 var árið sem þeir bræður kynntust eiginkonum sínum og ætli þær séu ekki stór partur af viðverunni í hér síðustu ár, enda báðar fæddar og uppaldar í Vestmannaeyjum. Óðinn er giftur Iðunni Lárusdóttur og Grettir er giftur Hrönn Harðardóttur. Ásamt því að eignast börn og lifa lífinu reri Grettir lengst af á Álsey með tengdapabba sínum, Herði Snævari Jónssyni, sem skipstjóra. Fyrir þann tíma reri hann á Hellisey, Suðurey og Heimaey eða með öðrum orðum á bátunum frá Hraðfrystistöðinni. Það var svo árið 2006 sem hann hóf störf á Brynjólfi og hefur verið þar allar götur síðan.
Grettir og Óðinn ungir að árum.
Óðinn var lengst af á Valdimar Sveinssyni, hann reri einnig í nokkur ár á Krissunni og svo má ekki gleyma árunum sem hann smíðaði og menntaði sig í því fagi. Nú róa þeir bræður saman á Brynjólfi. Báðir eru rólegir í tíðinni og plönin ná ekki of langt fram í tímann. Enda er lífið núna!
118 Bræðurnir Óðinn, Magnús og Grettir.
Innilegar hamingjuóskir kæru sjómenn og fjölskyldur
Til hamingju með sjómannadaginn! Sjómenn og fjölskyldur!
EYJABLIKK
Blikk og stál er okkar mál
Sendum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins!
SJÓMENNSKAN MÓTAÐI MIG FYRIR LÍFSTÍÐ Óhætt er að segja að reynsla mín af sjómennsku hafi mótað mig fyrir lífstíð. Ég fór fyrst á sjóinn fyrir rúmum 30 árum síðan, þá 16 ára gamall. Í dag er ég gríðarlega þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast sjómennskunni ungur, enda kem ég af mikilli sjómannaætt úr Sandgerði. Faðir minn slasaðist alvarlega á sjó og gat því miður ekki stundað sjómennsku aftur. Afleiðingar sjóslyssins hafa ennþá mikil áhrif á líf hans. Sú reynsla hefur fylgt mér alla tíð og skýrir kannski af hverju öryggismál sjómanna hafa alltaf verið mér hugleikin. Gjöfult samstarf Síðustu 12 árin hef ég unnið hjá VÍS við að bæta öryggismenningu á sjó með öflugu forvarnasamstarfi við útgerðir og Slysavarnaskóla sjómanna. Undanfarin áratug höfum við hjá VÍS átt í góðu forvarnasamstarfi við Slysavarnaskóla sjómanna. Síðasta haust var svo samstarf VÍS við Slysavarnarskóla sjómanna innsiglað til næstu fimm ára — en allir flotgallarnir sem notaðir eru við björgunarkennslu í skólanum eru gjöf frá VÍS. Ég tel það vera mikil forréttindi að vinna við að bæta öryggi sjómanna og er þakklátur fyrir að geta lagt mitt af mörkum. Samvinna og yfirsýn Með samstilltu átaki tekst okkur að útrýma slysum á sjó. Til þess að hægt sé að stuðla að markvissu og sértæku forvarnastarfi — þarf að greina vandann. Mikilvægt er að fá yfirsýn yfir slysin: Hvernig slys eru þetta, hversu oft gerast þau og hversu alvarleg eru þau? Þess vegna höfum við hjá VÍS þróað skráningarkerfi sem kallast ATVIK-sjómenn. Tilgangurinn með ATVIK er að fækka slysum — og stuðla þar með að öruggari vinnuumhverfi. Við viljum vera hreyfiafl í íslensku samfélagi og viljum hjálpa viðskiptavinum okkar að lenda sjaldnar í slysum. Sjómenn hugmyndaríkir og skapandi
120
Á undanförnum árum hefur orðið gríðarleg þróun í öryggismálum og ekki síst í sjávarútvegi. Sjómenn og útgerðir eru sífellt að leita nýrra leiða til að útrýma og lágmarka hættuna á slysum. Frábært er að upplifa hversu mikið frumkvæði sjómenn sýna, hversu hugmyndaríkir þeir eru og launsamiðaðir í öryggismálunum. Óhætt er að segja að þeir nýti þekkingu og reynslu sína til þess að efla öryggi og vinnuumhverfi sitt í allri þeirri tæknivæðingu sem á sér stað í sjávarútveginum. Rafræn sjómennska er nefnilega að ryðja sér til rúms og því má segja að margt hafi breyst frá byrjun síðustu aldar þegar langafi minn, Nils Christian Larsen, réri á árabát frá Ísafirði. Rafrænt forvarnastarf Atvikaskráningarforritið ATVIK-sjómenn er hluti af rafrænu forvarnastarfi VÍS. Í dag eru á fjórða tug fiskiskipa og um 800 sjómenn sem nýta sér ATVIK-sjómenn til þess að fá betri yfirsýn yfir öryggismálin og mögulegar hættur. Þannig skapast tækifæri fyrir fyrirbyggjandi aðgerðir. Nú er hægt að nota ATVIK-sjómenn í öllum snjalltækjum hvort sem er símum eða spjaldtölvum um borð í fiskiskipum. Sjómenn þurfa bara að leggja snjalltækin upp að QR-kóða og þá birtist forritið í snjalltækinu. Hægt er að skrá atvik og taka myndir, hvar sem er um borð í skipunum. Framundan eru svo fleiri nýjungar í forritinu, til dæmis sjálfvirk úrvinnsla gagna og orsakagreining atvika. Hægt verður að velja fleiri tungumál en íslensku en hlutfall sjómanna með erlent þjóðerni er sífellt að aukast. Ég fyllist mikilli bjartsýni þegar ég horfi til framtíðar því við erum að hefja nýja vegferð með rafrænum lausnum til þess að bæta öryggismenninguna enn frekar ─ og fækka slysum á sjó. Gísli Níls Einarsson Sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS
AL L T U NNIÐ FRÁ GRU NNI Ú R H ÁGÆ Ð A H RÁEFNI V IÐ TÖKU M V EL Á MÓTI Þ ÉR & Þ ÍNU M
121
ÉG HELD AÐ VIÐ SÉUM AÐ SKJÓTA RÓTUM HÉR
Hjónin Sigmar Logi og Linda Bergmann.
Sigmar Logi Hinriksson skipstjóri á Herjólfi flutti til Vestmannaeyja í fyrra þegar hann var ráðinn um borð í nýja Herjólf. Eiginkona hans, Linda Bergmann, og synir þeirra tveir höfðu aldrei komið til Vestmannaeyja áður þegar þau settust hér að en eru að aðlagast vel lífinu á eyjunni. Sigmar er fæddur og uppalinn í Stykkishólmi og hefur búið þar mest alla ævi. „Ég byrjaði til sjós þegar ég var 16 ára og í miðjum fyrsta túr hét ég því að fara aldrei á sjó aftur sökum sjóveiki! Það vandist reyndar fljótt og sumarið 2005 byrjaði ég svo að vinna hjá Sæferðum sem sumarstarfsmaður og það vatt upp á sig. Ég byrjaði sem þjónustusveinn, því næst háseti og svo kokkur á skemmti- og hvalaskoðunarbátunum sem fyrirtækið átti. 122
Fyrir rest fór ég svo í Stýrimannaskólann og eftir það fékk ég vinnu þar sem stýrimaður og svo skipstjóri,“ sagði Sigmar. Var strax mjög spenntur að sækja um Eftir mörg ár í vinnu hjá Sæferðum, meðal annars á ferjunni Baldri, hafði Sigmar komið nokkur skipti til að leysa af á Herjólfi. „Mér þótti það alltaf mjög skemmtilegt og þegar ég frétti að verið væri að skipstjóra vantaði á nýjan Herjólf varð ég strax mjög spenntur fyrir því starfi. Ég ræddi þetta við fjölskylduna og gerði henni grein fyrir því að ef ég fengi starfið þyrftum við að flytja til Eyja. Eftir smávegis viðræður var tekin sameiginleg ákvörðun um að leggja inn umsókn,“ sagði Sigmar, aðspurður um umsókina um vinnuna.
Flutningar til Vestmannaeyja Eins og liggur í augum uppi fékk Sigmar vinnuna og er það ekki auðveld ákvörðun að rífa sig upp og flytja með fjölskylduna á nýjan stað. „Þegar við fluttum hingað höfðu konan mín og strákarnir okkar tveir aldrei komið til Vestmannaeyja, bara ég og dóttir okkar. Flutningurinn var þannig séð erfiður en ákvörðun um að taka vinnuna var alls ekki erfið því það gerist ekki oft á starfsferlinum að maður fær tækifæri til þess að taka við splúnkunýu skipi, hvað þá „plug in hybrid“ skipi.“.
Sigmar Logi, dóttir hans Brynhildur Inga og Sigmar Logi yngri strákurinn.
Peyjinn farinn að hrópa áfram ÍBV! Sigmar segir að aðlögunin í Eyjum hafi gengið miklu betur en fjölskyldan þorði að vona. „Okkur var mjög vel tekið frá fyrsta degi og gekk vel og fjótt að komast inn í samfélagið í Eyjum. Litli guttinn okkar er meira að segja farinn að hrópa áfram ÍBV í tíma og ótíma þannig að ég held að við séum að skjóta rótum hér.“ Frábært samstarfsfólk Spjallið færist að vinnunni og sagði Sigmar að starfið væri mjög skemmtileg en að sama skapi krefjandi. „Skipið er að mörgu leyti öðru vísi en maður er vanur og er stjórnbúnaðurinn til að mynda þannig að maður þurfti að gleyma því sem maður var vanur og læra alveg ný stjórntök. Sem betur fer fór sú kennsla fram í siglingahermi. En það sem gerir vinnudagana skemmtilega er að sjálfsögðu samstarfsfólkið sem er frábært.“ - Sara Sjöfn Grettisdóttir
Sigmar að störfum.
123 Pabbaknús.
Feðgarnir Einar Bergmann og Sigmar Logi.
ENGINN KVÓTI Í FERÐAMENNSKUNNI
Feðgarnir Ingi Rafn og Eyþór á fullu hjá Ribsafari.
Þórður Rafn Sigurðsson, útgerðarmaður og skipstjóri, er fæddur og alinn upp á Siglufirði en kom til Vestmannaeyja 1960 og festi hér rætur. Hann hefur alla tíð sótt sjóinn og verið í útgerð í áratugi með fjölskyldu sinni. Er hættur á sjó en ekki sestur í helgan stein. Hann hefur komið upp eina sjávarútvegssafninu í Eyjum og rekur í dag eitt myndarlegasta fyrirtækið í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum með fjölskyldu sinn. Það heitir Ribsafari og gerir út fjóra ferðabáta. Þórður Rafn er kvæntur Ingigerði Eymundsdóttur og eiga þau þrjú börn. Hann byrjaði útgerð 15. maí 1975 þegar hann keypti sinn fyrsta bát og nefndi Dala Rafn VE 508. Síðasti Dala Rafn var sá fimmti í röðinni, smíðaður í Póllandi 2007. Þórður Rafn var 50 ár á sjó en eftir að hann hætti sem skipstjóri tók Eyþór, sonur þeirra Ingigerðar, við. Þegar þeirri útgerð lauk hófst skeið ferðabátanna og þar er Eyþór í fararbroddi ásamt Helgu Björk Georgsdóttur, eiginkonu sinni. Það er að lifna yfir ferðaþjónustu og mikið að gera hjá Eyþóri þegar rætt er við hann um þann viðsnúning að hætta á fiskiskipum og snúa sér að því að stýra ferðabátum. „Ég er fæddur 1966 og fór fyrsta túrinn átta ára á fyrsta bátnum sem pabbi átti. Fann strax að þetta var það sem ég vildi verða. Þrettán ára byrjaði ég á sjó á sumrin og sextán ára fór ég á 124
mína fyrstu vetrarvertíð,“ segir Eyþór sem var á 20. árinu þegar hann varð fyrst skipstjóri. Lengst af var hann á bátum í eigu fjölskyldunnar. „Það er gaman að segja frá því að Þorsteinn Pálsson, þáverandi sjávarútvegsráðherra, var sá sem sleppti þegar ég fór minn fyrsta túr sem skipstjóri. Það varð mitt aðalstarf næstu 30 árin,“ bætir Eyþór við. Hann siglir nú með fólk en ekki fisk. „Mér finnst það alveg geggjað og það er enginn kvóti á þessu. Ég hef verið á tuðrum frá því ég man eftir mér og ég ætla að halda áfram þangað til kallinn rekur mig. Við erum með fjóra báta, tvo Ribsafari báta, gamla PH Viking sem heitir Halkion í dag og svo erum við með Teistuna sem er sjúkraskip frá Norður Noregi. Það er verið að taka Halkion í gegn og Teistan hentar vel sem ferðabátur.“ Eyþór gerir ráð fyrir að sumarið verði rólegt en vonar að Íslendingarnir verði duglegir að heimsækja Eyjarnar. „Þetta verður allt í lagi. Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn. Það eru algjör forréttindi að fá að starfa við ferðaþjónustu með einstaka náttúrufegurð hvert sem litið er og stórkostlegu starfsfólki sem leggur sig allt til að gera siglingu með Ribsafari að ógleymanlegri stund,“ segir Eyþór og er þar með rokinn.
Óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn Strandvegi 30 | 481 1475 | midstodin.is | midstodin@midstodin.is
Sjómenn
við óskum ykkur öllum innilega til hamingju með Sjómannadaginn
Þeir kröfuhörðu velja
ísþykknibúnað og forkæla
125
Miðhraun 2 · 210 Garðabæ · 587 1300 · kapp@kapp.is · www.kapp.is
Marport er leiðandi fyrirtæki í hönnun og framleiðslu á veiðarfæranemum og er með starfsemi í sex löndum.
Stofnað árið 1996
126 MARPORT.COM — 533 3838
Til hamingju með daginn sjómenn!
Marport óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn.
127 MARPORT EHF.
MARPORT NORGE AS
MARPORT FR ANCE
MARPORT SPAIN
MARPORT SOUTH AFRICA
MARPORT AMERICAS
Myndatexti: Siglingaleiðin. Þeir voru margir krókarnir áður en Haraldur komst til Eyja.
HÖRÐUR BALDVINSSON TÓK SAMAN:
HARALDUR VE BIRTIST Í EYJUM EFTIR 38 DAGA FERÐ, FYRIR LÖNGU TALINN AF Gísli Magnússon útgerðarmaður var fæddur í Nýjabæ í Þykkvabæ 24. júní 1886. Hann kom til Vestmannaeyja vorið 1898 þá 12 ára gamall og hafði strax mikinn áhuga á að komast á sjóinn. Fljótlega eftir fermingu var hann ráðinn sem kokkur á fiskiskútuna Svift með Hjalta Jónssyni skipstjóra, Eldeyjar-Hjalta. Er Gísli var kominn til sjós varð fljótt ljóst að þar var mikill dugnaðarforkur á ferð. Á það reyndi seinna þegar hann náði í nýjan bát til Danmerkur. Áhöfnin lenti í miklum hrakningum á heimleið en náði til Eyja eftir 38 daga frá brottför. Báturinn var þá fyrir löngu talinn af. Þegar Gísli var 22 ára keypti hann einn sjötta hlut í mótorbátnum Geysi sem var tæp 8 tonn. Tveimur árum síðar eða í byrjun árs 1909 byrjaði Gísli formennsku sína í Eyjum. Keypti hann þá tvo fimmtu í mótorbátnum Ísaki sem var 7 tonn að stærð. Gísla þótti ekki gott að vera í útgerð með öðrum og um haustið 1911 keypti hann mótorbátinn Hlíðdal frá Akureyri og átti hann einn, sem þótti þá mikið í ráðist. 128
Margfaldur aflakóngur Útgerð Hlíðdals gekk gríðarlega vel og borgaði fljótt upp kaupverð bátsins. Sama ár réðist Gísli í að byggja hús fyrir sig og fjölskyldu sína. Það var nefnt Skálholt. Gísli þótti fiskinn með afbrigðum og varð aflakóngur Vestmannaeyja 1916, 1917 og 1919. Hann átti marga báta á starfsævinni og væri hægt að fjalla um hana í mun lengra máli en hér er gert. Þegar Gísli var komin á efri ár sagði hann barnabarni sínu sögu um stórmerkilega för sína til Danmerkur að sækja bát sem hann hafði látið smíða fyrir sig þar. Barnabarnið, Erla Óskarsdóttir, skráði söguna og birtist hún í Bliki árið 1958. Sögunni og orðalaginu hefur aðeins verið breytt í takt við tíðarandann. Að auki hafa verið settar inn myndir sem vonandi upplýsa betur þá sögu sem hér er sögð. Ekki hálfsmíðaður „Ég samdi um kaup á 30 smálesta vélbát í Fredrikshavn í Danmörku og átti hann að vera
TIL HAMINGJU
SJÓMENN
555 6677 | umb.is | Korngörðum 5, Reykjavík
129
sig upp á móti því. Svarið sem við fengum frá bæjaryfirvöldum í Bergen var það sama og hjá hinum, að þeir hefðu enga olíu til sölu. Við áttum ekki einu sinni olíu til ljósa. Einhvern veginn tókst okkur að smygla um borð 15 lítrum sem nægðu aðeins til ljósa í káetu eða þar sem við héldum okkur á leiðinni. Engin siglingaljós höfðum við
Gísli Magnússon.
fullsmíðaður snemma sumars 1917. Seint í maí það ár var farið héðan úr Eyjum með Íslands-Falk til Danmerkur. Hann hafði verið við strandgæslu hér við land og hægt að komast með honum til Danmerkur. En með honum urðum við að fara vegna þess að siglingar voru að stöðvast til nágrannalandanna vegna siglingabanns Englendinga sem þá áttu í styrjöld við Þjóðverja. Þegar við loksins komum til Fredrikshavn var báturinn ekki hálfsmíðaður og máttum við bíða allt sumarið eða til í ágústloka. Segl komu að góðum notum Við fengum einungis sjö tunnur af olíu til fararinnar en þremur tunnum var stolið frá okkur. Frá Danmörku lögðum við af stað þann 1. september og héldum sem leið lá til Noregs, til Skudesnes. Þar komum við inn í svokallaðan skerjagarð en urðum að sigla utan skerja meðfram Noregsströnd norður fyrir 63° n.br. Það var fyrirskipun Englendinga. Þegar við nálguðumst Skudesnes var olían þrotin og urðum við því að setja upp segl. Fórum við því næst á seglum til Bergen. Þegar þangað kom lá þar dönsk skúta að nafni Ester. Okkar báti var lagt fyrir akkeri þar skammt frá og skyldi sami tollvörðurinn gæta beggja skipanna. Erfitt um olíu Tollgæslan var aðallega fólgin í því að gæta þess að við flyttum ekki neitt um borð. Okkur var bannað að kaupa nokkrar vörur, þar á meðal mat. Okkar erindi til Bergen var sérstaklega að reyna að fá olíu til fararinnar heim og byrjuðum við á því að fara til danska ræðismannsins. Tjáði ræðismaðurinn okkur að hann gæti ekkert fyrir okkur gert annað en að gefa okkur meðmæli til enska ræðismannsins. Því næst fórum við til svokallaðs olíuráðs en án árangurs. Svarið var alltaf það sama: Við höfum ekkert. Okkur var þá bent á að senda umsókn til ráðamanna landsins, stjórnarinnar í Osló. Það gerðum við og biðum eftir svari í fjóra daga. Svarið var eitthvað á þá leið að stjórnin réði engu um olíusölu en hefðu ráðamenn í Bergen einhverja olíu til sölu myndi stjórnin ekki setja 130
Ívar Gunnarsson bátasmiður hefur séð um að gera bátnum til góða
Olíulausir og matarlitlir Í þessar tilraunir til að fá olíu höfðum við eytt átta dögum en máttum svo sigla af stað olíulausir og matarlitlir. Nú lögðum við af stað til Íslands og hrepptum mjög vont veður yfir hafið. Frá því við fórum frá Noregi þar til við sáum landið liðu 15 sólarhringar. Þegar við komum upp undir Austfirði fengum við norðan storm og misstum landsýn aftur. Eftir sjö sólarhringa sáum við land aftur. Suðvestanátt var á. Við sáum þá fyrst Snæfellsjökul og höfðum þá verið 22 sólarhringa á sjó. Við náðum til Ólafsvíkur á sunnudegi kl. 3 eftir hádegi. Við höfðum á leiðinni misst útbyrðis lífbátinn, öðru nafni björgunarbátinn, og gátum því ekki farið í land á honum. Gerðum vart við okkur með þokulúðri. Ekki þrautalaust af fá olíu Komu þá Ólafsvíkingar skömmu seinna. Sendum við síðan í land með þeim einn af skipverjunum og átti hann að útvega olíu, mat og vatn sem mjög var þrotið um borð og hann átti að vera eins fljótur og hann gæti. Leið svo dagurinn og nóttin án þess að nokkuð bólaði á manninum. Vindur fór vaxandi af norðri og þess vegna vont að liggja á Ólafsvík. Bátinn gat rekið að landi. Bátar reru frá Ólafsvík en þegar hvessti sneru þeir við og komst þá sá sem þessa sögu segir í land með einum þeirra. Fengum við 4 tunnur af olíu og komum þeim um borð með herkjum. Um mat og vatn var ekki hugsað. Var nú haldið af stað í góðu leiði til Vestmannaeyja og notuð bæði segl og vél. Til Eyja komum við eftir 20 tíma siglingu frá Ólafsvík. Voru þá liðnir 38 dagar frá því að við lögðum af stað frá Danmörku. Var okkur vel fagnað þegar við komum heim því að við höfðum verið taldir af. Þegar við komum til Eyja fréttum við af dönsku skútunni Ester, sem fyrr er getið. Það sagði stýrimaðurinn okkur. Þeir áttu að fara til Austurlands en villtust og ætluðu að reyna að ná til Vestmannaeyja. Seglin voru orðin ónýt. Þeir ætluðu að sigla austur með Klettinum en sáu ekki Faxasker á kortinu, sigldu á það og þar sökk danska skútan Ester en mennirnir komust lífs af í björgunarbát. Bátinn, sem við komum með, nefndi ég Harald.“
Sjómannadagsráð Vestmannaeyja sendir Vestmannaeyingum bestu kveðjur og árnaðaróskir
131
20%
UR
AFSLÁTT
i eð Ribsafar af ferðum m bátnum og farþega ðinn er: ó k r a t t lá s f A 0 SUMAR202
R! U K K O Ð E AM L G I S Ð A KO M D U
F Í L T T I M ER M
U N Ó J S ÚTI’ Á G TIL HAMIN
JU
ÓME J S N N I G A MEÐ D
Pantaðu þér ferð á islandboattours.is eða í afgreiðslu okkar í Eyjum.
Sjáumst á höfninni!
R
TIFERÐI
KEMM LEGAR S
AN
ÓGLEYM
NN!
info@islandboattours.is Sími: 661-1810