SJÓMANNADAGSBLAÐ VESTMANNAEYJA
2019
LJÓSMYND: FRIÐRIK JESSON
EFNISYFIRLIT: BLAÐSÍÐA 04
Sjómannadagurinn 2018
BLAÐSÍÐA 10 Jói Listó hef sinnt öryggismálum sjómanna
BLAÐSÍÐA 16
Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2019 69. árgangur
Viðtal við Aðalheiði Jóhönnu Bernódusdóttur
BLAÐSÍÐA 24 Eyfi á Heimaey
BLAÐSÍÐA 36 Lýðssynir
BLAÐSÍÐA 40 Minning látinna
Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Ljósmyndir: Hlynur Ágústsson, Óskar Pétur, Jói Myndó og Sigurgeir Jónasson. Umbrot: Lind Hrafnsdóttir.
BLAÐSÍÐA 48 Halldór Björnsson hefur fengið að reyna margt í lífinu
BLAÐSÍÐA 56 Sjómannsdætur og eiginkonur segja frá: Hrönn og Alda Harðardætur
BLAÐSÍÐA 66 Martin Eyjólfsson sendiherra í Berlín
Prentun & bókband: Prentsmiðjan Oddi.
BLAÐSÍÐA 70 Sjómannsbjórinn 2019
Auglýsingar: Lind Hrafnsdóttir.
BLAÐSÍÐA 82 Árið 1932
Prófarkalestur: Ragnar Ragnarsson.
BLAÐSÍÐA 86 Hvað vita börnin um sjómennsku?
Úgefandi: Sjómannadagsráð Vestmannaeyja 2019. Sjómannadagsráð 2019: Formaður: Halldór Ingi Guðnason. Gjaldkeri: Brynjar Unnarsson Ritari: Sævald Hallgrímsson. Meðstjórnendur : Ágúst Halldórsson, Ragnar Þór Jóhannsson, Valur Már Valmundsson, Ólafur Már Harðarson, Ingi Þór Arnarsson, Ríkharður Stefánsson, Hólmgeir Austfjörð, Héðinn Karl Magnússon, Gísli Sigmarsson og Óðinn Guðmundsson.
BLAÐSÍÐA 88 Útvegsbóndinn Binni
BLAÐSÍÐA 94 Ásmundur Friðriksson Slysavarnarskóli sjómanna
BLAÐSÍÐA 104 Ljósmyndir eftir Hlyn Ágústsson
BLAÐSÍÐA 108 Verðandi 80 ára
BLAÐSÍÐA 126 Danski Pétur
2
Gleðilega hátíð
Landsbankinn
landsbankinn.is
410 4000
3
RITSTJÓRASPJALL: ÓMAR GARÐARSSON
ÞURFUM ÖFLUGA OG VELMENNTAÐA SJÓMENN Raunhæfnismat Þó leiðin sé lengri er rétt að benda á auglýsingu í blaðinu frá Visku, símenntunarmiðstöð sem býður upp á leið fyrir þá sem eru 25 ára og hafa starfað á sjó í fimm ár eða lengur. Þar segir: Raunfærnimat í skipstjórn miðar að því að meta þá færni sem viðkomandi býr yfir inn í skólakerfið óháð því hvernig hennar hefur verið aflað. Metið er upp í nám í skipstjórn á B stigi ( 45.m. skip). Þátttakendur fara í kjölfarið í skóla og ljúka því námi sem eftir stendur. Þarna er gluggi sem er þess virði að skoða og skiptir máli fyrir Vestmannaeyjar sem þurfa á öflugum og vel menntuðum sjómönnum að halda.
Meðan Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum var og hét var hann ein af stoðum samfélagsins. Menntaði skipstjórnarmenn sem skilað hafa miklum verðmætum í þjóðarbúið og eru ennþá að. Þá gátu sjómenn í Eyjum sem lengi höfðu verið á sjó drifið sig í skólann, náð sér í réttindi án þess að þurfa að taka sig upp og flytja. Skólinn var vinsæll og virtur og hingað kom fjöldi ungra manna allsstaðar af á landinu til að sækja skólann. Sumir ílentust og lögðu sitt til Eyjanna. Eftir að skólinn hætti var boðið upp á skipstjórnarnám við Framhaldsskólann sem skilaði nokkrum skipstjórnarmönnum en síðan hafa Eyjamenn þurft að afla sér skipstjórnarmenntunar við Tækniskólann í Reykjavík eftir stúdentspróf. Þessu er velt upp í þessu blaði þar sem rætt er við nokkra sem útskrifuðust frá Stýrimannaskólanum í Vestmannaeyjum 1980. Flestir ennþá að og hafa komið með að landi mikinn afla og verðmæti. 4
Það er heiður að fá að stýra Sjómannadagsblaðinu annað árið í röð. Blaðið skipar ákveðinn sess í bæjarlífinu frá fyrsta blaðinu sem kom út árið 1946. Hét þá Sjómannadagurinn, seinna var blaðið nefnt Sjómaðurinn og síðar Sjómannadagsblaðið. Á þessum rúmlega 70 árum hafa margir komið að ritstjórn blaðsins sem er ómetanleg heimild um sögu Vestmannaeyja, útgerðar og sjómennsku í Eyjum. Það er von mín að þetta blað verði styrkur hlekkur í þeirri keðju. En fleiri þarf til að skila góðu blaði og nú koma að blaðinu m.a. Guðrún Erlingsdóttir blaðamaður, Lind Hrafnsdóttir sem sér um auglýsingar og umbrot. Óskar Pétur á flestar myndir auk fjölda annarra sem leggja okkur lið með einum eða öðrun hætti. Sjómenn og fjölskyldur og allir Eyjamenn, til hamingju með daginn og megi framtíðin vera björt bæði til sjós og lands.
Ómar Garðarsson, ritstjóri.
Nýr CHIRP dýptarmælir frá Furuno
FCV-1900
•Senditíðni 15 KHz til 200 KHz •Sendiorka 1,2 og 3 KWrms •Púlsafjöldi 10 til 2700 púlsar á mín. •Skalar 5 til 3000 metrar
Hægt er að kalla fram allt að 4 myndir á skjáinn í einu á tveimur mismunandi tíðnum með botnstækkara og botnlæsingu. Hágæða stærðargreining gerir leitina að fiski auðvelda þökk sé CHIRP tækni og sýnir magn fisks af hverri stærð í þægilegu súluriti á skjámyndinni. Hægt er að samtengja mælinn við DFF3, DFF1-UHD eða BBDS1 fyrir tvær auka tíðnir og botngreiningu. Ný tækni gerir okkur kleift að vera með tvær styrkstillingar inni á skjánum samtímis á sitthvorri tíðninni. Mælirinn er með veltu og hæðar leiðréttingu sé hann tengdur við FURUNO GPS áttavita.
5
Sjómannadagsráð 2018 í góðum hópi sjómanna á Sjómannadaginn.
SJÓMANNADAGURINN 2018 DAGSKRÁIN VERÐUR GLÆSILEGRI MEÐ HVERJU ÁRINU Sjómannadagurinn hefur frá upphafi haft sérstakan sess í Vestmannaeyjum sem byggja afkomu sína á því sem sjórinn gefur og sjómenn með dugnaði sínum bera að landi. Með tímanum hefur dagskráin breyst og í dag er aðalkvöldið á laugardeginum en ekki á sunnudeginum eins og var á árum áður. Dagskráin hefur verið aðlöguð breyttum tímum. Eflst og aukist og er orðin að hátíð frá fimmtudegi til sunnudags. Sjómmannadagshelgin fylgdi því formi sem skapast hefur undanfarið og hófst dagskráin á fimmtudeginum með tónleikum Emmsé Gauta í Alþýðuhúsinu þar sem var mikil stemming. Ölstofan The Brothers Brewery hélt áfram að heiðra sjómenn í tilefni dagsins og kynnti Sjómannabjórinn 2018, Sverri en Sverrir Gunnlaugs skipstjóri var valinn sjómaður ársins 2018 og er Sjómannabjórinn tileinkaður honum.
6
Á föstudeginum var dagskránni framhaldið með Opna Sjómannamóti Ísfélags Vestmannaeyja í golfi þar sem vegleg verðlaun voru í boði. Þar mátti sjá marga glæsisveifluna enda margir sjómenn orðnir liðtækir í golfinu. Breki VE 61, nýtt skip Vinnslustöðvarinn var nefnt við hátíðlega athöfn á bryggjunni við frystigeymslu VSV. Hefur Breki reynst mjög vel og aflar vel. Var aflahæsti togari landsins í apríl og Ottó N Þorláksson var í þriðja sæti. Strax á eftir var nýjum frystigeymslum gefið nafn. VSV gaf börnum gjafir og veitingar voru í boði. Rokkað feitt Um kvöldið var rokkað feitt á Skonrokki í Höllinni til heiðurs sjómönnum og fjölskyldum þeirra. Pétur Örn, Stefán Jacobs, Dagur Sigurðs, Eyþór Ingi og Jóhanna Guðrún sáu um að trylla lýðinn sem aldrei fyrr. Er Skonrokk orðin fastur liður í dagskrá Sjómannadagsins og er það vel. Laugardagurinn byrjaði með dorgveiðikeppni SJÓVE og Jötuns á Nausthamarsbryggju. Vegleg verðlaun voru í boði og var þátttaka góð.
Á hádegi þeytti Eyjaflotinn skipsflauturnar en eftir hádegi byrjaði fjörið á Vigtartorgi. Séra Viðar Stefánsson blessaði daginn og á eftir var kappróður, koddaslagur, lokahlaup, sjómannaþraut og listflug. Foosballvöllur var á staðnum og þurrkoddaslagur fyrir krakkana. Kjörís mætti að venju á bryggjuna og gaf ís og kynnti nýjungar. Á meðan grillaði fólk frá SS í fólkið. Ribsafari bauð ódýrar ferðir. Þá var á staðnum hoppukastalar og flossala. Drullusokkarnir, mótorhjólaklúbbur Eyjamanna var með opið á Skipasandi og sýndi fáka sína. Fór allt saman vel fram og margir að fylgjast með.
Anna Hulda og Magnús lögðu krans að minnisvarða um hrapaða og drukknaða
Glæsileg hátíðarsamkoma Um kvöldið var Hátíðarsamkoma Sjómannadagsráðs í Höllinni sem heppnaðist í alla staði mjög vel. Salurinn þéttsetinn og Einsi Kaldi bauð upp á hátíðarkvöldverð af bestu gerð. Veislustjóri var Sóli Hólm og Stefanía Svavars, Stebbi Jak og Jarl Sigurgeirsson skemmtu. Hljómsveitin Albatros skemmti og spilaði á ballinu fram undir morgun og Háaloftið var opið með allskonar tilboð og kósýheit. Skemmtun sem var sjómönnum, þeirra fólki og Sjómannadagsráði til mikils sóma. Hefðbundinn sunnudagur Á sunnudaginn var hefðbundinn og byrjaði með Sjómannamessu í Landakirkju. Séra Viðar Stefánsson predikaði og þjónaði fyrir altari. Eftir messu var eins og venjulega minningarathöfn við minnisvarða hrapaðra og drukknaðra. Lúðrasveit Vestmannaeyja lék nokkur lög. Blómsveigur var lagður að minnisvarðanum. Snorri Óskarsson stjórnaði athöfninni. Sjómannadagskaffi Eykyndilskvenna í Alþýðuhúsinu var vel sótt. Og hátíðardagskráin á Stakkó var með hefðbundnum hætti. Lúðrasveit Vestmannaeyja lék nokkur lög og aldnir sægarpar voru heiðraðir.
Fjöldi var á bryggjunn i að fylgjast með dagskránni.
Karlakór Vestmannaeyja flutti nokkur lög undir stjórn Þórhalls Barðasonar. Ræðumaður Sjómannadagsins var Andrés Þ. Sigurðsson. Verðlaunaafhending var fyrir kappróður, koddaslag, lokahlaup, sjómannaþraut, dorgveiðimót og Sjómannamótið í Golfi. Leikfélagið, Fimleikafélagið Rán, hoppukastalar, popp og flos.
7
Hoppukastalar voru í boði fyrir þau yngstu.
SJÓMANNADAGURINN 2018
Jói Myndó
sjómenn Til hamingju með daginn
Við óskum sjómönnum önnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn. aginn.
Nýjasta verkfærið í öryggismálum sjómanna ATVIK-sjómenn er nýtt atvikaskráningakerfi sem VÍS hefur þróað í samstarfi við Slysavarnaskóla sjómanna og nokkur leiðandi fyrirtæki í íslenskum sjávarútvegi. Á þriðja tug fiskiskipa og um 600 sjómenn hafa aðgang að ATVIK-sjómenn.
Jói Listó ásamt eiginkonu sinni Guðbjörgu Engilbertsdóttur og börnum þeirra Þresti og Heiðrúnu.
JÓI LISTÓ HEFUR SINNT ÖRYGGISMÁLUM SJÓMANNA:
VERKEFNI SEM VARÐA LÍF EÐA DAUÐA Sýning Jóhanns Jónssonar, Jóa Listó í Einarsstofu í mars í vor sýndi ótrúlegan feril mikils listamanns. Manns sem komið hefur víða við á ferlinum. Málað einstakar vatnslitamyndir, teiknað með blýanti, litblýanti og tússi, gert skúlptúra, hannað frímerki og bókakápur, gert landakort og afstöðumyndir, gert tækni- og leiðbeiningamyndir fyrir sjómenn og myndskreytt kennslubækur fyrir skipstjórnarmenn. Hreint ótrúlega góðar myndir sem segja allt sem segja þarf. Allt unnið af sömu ástríðunni og viljanum til að skila sem bestu og nákvæmustu verki. „Ég hef haldið þær nokkrar,“ sagði Jói þegar hann var spurður hvar sýningin í Einarsstofu var í röðinni. „Ætli þær séu ekki orðnar um 30, einkasýningarnar og samsýningarnar sem ég hef tekið þátt í. Myndirnar sem ég sýndi í vor eru úr einkasöfnum en myndir eftir mig er að finna í ellefu til tólf löndum, í fjórum heimsálfum.
10
Það kemur kannski mörgum á óvart að ég hef ekkert málað í 20 ár en hef sjaldan haft eins mikið að gera. Ég er áfram að vinna í myndlist en á allt öðrum vettvangi. Ekki síðri og hef ég upplifað það sem mikið ævintýri,“ sagði Jói sem hefur undanfarin ár m.a. komið að fjölmörgum verkefnum sem snúa að öryggismálum sjómanna. Segir hann ánægjulegt að sjá að slysum á sjó hefur fækkað á undaförnum árum.“ Þurfti að taka inntökupróf Árið 2001 skipaði samgönguráðherra nefnd um áætlun um öryggismál sjómanna. „Á fyrstu fundum var sýnd mynd eða leiðbeiningaspjald sem ég hafði hannað og gert mörgum árum áður fyrir þá miklu áhugamenn um öryggi sjómanna, Friðrik Ásmundsson, skólastjóra Stýrimannaskólans og Sigmar Þór Sveinbjörnsson, stýrimann og skipaskoðunarmann. Í framhaldi af því var haft samband við mig. Það má segja að ég hafi tekið inntökupróf sem ég stóðst. Það má
11
Þessi mynd Jóa Listó þarfnast ekki orða.
kannski þakka þekkingu minni á bátum og skipum,“ sagði Jói um upphafið að starfi hans fyrir nefndina og fleiri. „Þau eru ófá leiðbeiningaspjöldin sem ég hef gert og ég hef m.a. komið að útkomu upplýsingapésa og bóka um stjórn skipa og öryggi sjómanna. Pésarnir eru orðnir 13 og svo vann ég og teiknaði nær allar myndir í sjö bækur og þar af þrjár með Guðjóni Ármanni Eyjólfssyni, sem hér var skólastjóri Stýrimannaskólans og lét sér öryggi sjómanna miklu skipta. Í þessu samstarfi okkar urðu til einar 4000 myndir sem eru aðeins brot af því sem ég hef verið að gera síðustu 19 árin. Á þessum árum hef ég ekkert málað frjálst en málað örfá teiknuð verk.“ Velvilji og nákvæmni Jói segir þetta þakklátt starf og gefandi. „Ég hef mætt einstökum velvilja og jákvæðni og fengið ómetanlega aðstoð skipstjórnarmanna og annarra sjómanna þegar ég hef verið að 12
taka ljósmyndir og átta mig á aðstæðum um borð í skipunum. Það sýnir að þeir kunna að meta þetta starf og fyrir það er ég óendanlega þakklátur,“ segir Jói. Hann segist hafa fylgst með stofnun Slysavarnaskóla sjómanna árið 1985 og kynnst þar mörgum stjórnendum og leiðbeinendum. „Ekki má gleyma því öfluga starfi í öryggismálum sjómanna sem unnið var í Eyjum á þessum árum. Það hafi nýst mér vel. Ég er rosalega ánægður og stoltur að hafa fengið að vera með í þessu verkefni. Þarna finnst mér ég hafa haft hlutverk, þó það sé ekki stórt, í verki sem hefur skilað árangri. Það er ómetanlegt að fá svona tækifæri og vera hluti af einhverju sem skiptir virkilega máli. Mér hefur verið trúað fyrir mjög erfiðum verkefnum sem tengjast því sem varðar líf eða dauða, Gríðarlega erfitt á stundum en í dag er gríðarlega þakklátur og stoltur,“ sagði Jói Listó sem er farinn að slaka á.
B
estu árnaðaróskir og kveðjur til sjómanna og allra Vestmannaeyinga á sjómannadegi !
Vestmannaeyjabær 13
TEIKNINGAR EFTIR JÓA LISTÓ:
JJListó
JJListó
14
SJÓMENN, TIL HAMINGJU! Saga TM er samofin sögu sjávarútvegs á Íslandi. Við erum stolt af því að hafa komið að uppbyggingu og viðhaldi öflugrar útgerðar við Ísland frá stofnun fyrirtækisins. Til hamingju með daginn sjómenn, njótið hans.
15
tm.is/sjavarutvegur
SIGLDI MEÐ GÁMASKIPI TIL ÞÝSKALANDS TIL AÐ SLEPPA VIÐ FLUG börn með Magnúsi Magnússyni, Jóhannes árið 1959 sem ættleiddur var af systur mömmu og Elínu Helgu 1963. Vissi lítið um strákinn úr vesturbænum Lilla var 14 ára þegar hún hitti Jóhann Halldórsson eða Jóa eins og hann var kallaður. Hún segist lítið hafa vitað um hann enda hafi hann verið úr vesturbænum. Jói bjó hjá foreldrum sínum á Boðslóð sem ekki myndi teljast til vesturbæjarins í dag.
Lilla
Aðalbjörg Jóhanna Bernódusdóttir, sem kölluð er Lilla er miðjubarn í hópi níu alsystkina kennd við Borgarhól. Hún segir að það hafi mótað hana að alast upp í stórum systkinahópi þar sem deila þurfti flestu og taka tillit til annarra. Ég, Ella Bogga og Þóra vorum mikið saman. Við Þóra vorum mjög samrýmdar og deildum saman rúmi. Við skiptumst á að sofa fyrir framan eða uppi í horni. Betra var að vera fyrir framan en það hafði sína kosti að vera fyrir aftan því það mátti halda utan um þann sem var fyrir framan og setja fótinn yfir hann. Ella Bogga og Birgir voru með okkur í herbergi og deildu rúmi saman. Þegar Pabbi dó 11. febrúar 1957 tæplega 37 ára, stóð mamma ein uppi með okkur sjö systkinin. Birna systir ólst upp hjá ömmu en Þorkell Birgir, dó á fjórða ári. Birna er elst okkar fædd 1938, Birgir Þorkell ´39, Ella Bogga ´40, Þóra ´42, ég ´44, Birgir ´46, Helgi ´49, Jón ´52 og Þura ´54. Mamma eignaðist síðar tvö 16
,,Sambandið var ekki alvarlegt til að byrja með, eitthvað smá kossaflens. Á sumrin fór Jói austur á land að vinna og síðar á sjó með pabba sínum. Ég byrjaði að vinna í fiski um 10 ára, sumarið eftir fermingu fór ég að vinna í Álafossi, ullarverksmiðju í Mosfellsveit. Þar kynntist ég Úllu og Dísu sem eru góðar vinkonur mínar enn í dag. Þær eru báðar mikið í kringum kórastarf og ég fer oft með þeim á tónleika og í ferðalög erlendis,” segir Lilla sem fór eitt sumar á síldarvertíð á Raufarhöfn og annað sumar vann hún á Matstofu Austurbæjar. Lilla segir að mamma hennar tekið fagnandi fækkun sem flestra heimilismanna á sumrin. Þegar Lilla var 17 ára hófu hún og Jói fast samband. ,,Eftir Gaggó vann ég í fiski, eignaðist svo Önnu Dóru, vann í Vogsabakaríi og tvö ár á skrifstofu vinnslustöðvarinnar. Í fjölskylduna bættust svo Jóhanna, Heimir og Birgit,” segir Lilla og bætir við að Jói hafi stundað sjóinn á meðan, farið á vélstjórnarnámskeið 1961 og bætt svo við sig Skipstjóraréttindum 1972. Andvari frá Keflavík fyrsti báturinn ,,Fyrsta bátinn eignuðumst við 1966 þegar Jói keypti Andvara frá Keflavík og fór í útgerð með Herði Jónssyni, Símoni á stað og Ólafi Pálssyni. Eftir tvö ár hættu Símon og Óli en Jói og Hörður héldu áfram að gera út spítu Andvara, eins og við kölluðum hann. Fyrst var Jói vélstjóri á Andvara og Hörður skipstjóri. Eftir að Jói kláraði skipstjórnarnámið tók hann við Andvara og Hörður réri á Hrönn sem þeir áttu saman. Ég sá um bókhaldið fyrir útgerðina fyrir utan tvö ár í kringum gosið,” segir Lilla og bætir við að samstarfið við Hörð og konuna hans Sjöfn hafi verið afar farsælt. Samstarfinu lauk 1980 þegar
Hörður réði sig til Ísfélagsins Jói hélt áfram með spítu Andvara. Sá bátur var seldur upp í stálbát frá Eyjum. 1988 hafi svo útgerðin fest kaup á stálbát sem Þórður Rakari var að láta smíða í Póllandi, gamli Andvari var settur upp og fékk nafnið Drífa en nýja skipið Andvari. ,,Við vorum gæfusöm að missa aldrei mann“ ,,Nýji báturinn sem kom til landsins 1989 sökk suður af Vík í Mýrdal 1992. Við vorum nýkomin til Þýskalands með saumklúbbnum þegar Jóhanna dóttir okkar hringir til að láta okkur vita að Andvari hefði sokkið. Heimir sonur okkar var um borð og Svenni sonur Matta og Kristjönu sem voru með okkur úti. Við fórum strax að leita leiða til þess að komast heim. Sólarhring síðar tókst að koma Jóa heim en ákveðið var að við hin skyldum klára ferðina með saumaklúbbnum. Áfallið var mikið þegar Andvari sökk en jafnframt vorum við þakklát fyrir að allir héldu lífi. Við vorum gæfusöm að missa aldrei mann. Skipverjar á Andvara fóru allir í flotbúning og kræktu sig saman á meðan þeir biðu björgunar í tæpan hálftíma. Útgerð Andvara lagði mikla áherslu á góðan björgunarbúnað. Það var allt tipp top hjá Jóa þegar útgerðin var annars vegar. Ef það vantaði vask í bátinn, þá var hann keyptur, Ef það vantaði vask á heimilið þá gat það beðið betri tíma,“ segir Lilla sem vildi hætta í útgerð þegar Andvari sökk. Jóa fannst honum bera skylda til þess að finna ný atvinnutækifæri fyrir áhöfnina og keypti rækjutogara frá Grænlandi. Lilla segir Jóa einn frumkvöðul í veiðum á rækju í Flæmska hattinum. ,,Reksturinn gekk ágætlega þar til Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra setti kvóta á rækjuveiðar og miðaði úthlutun við veiðireynslu. Ísland var eina landið sem setti kvóta í Flæmska hattinum. Kvótinn dugði ekki fyrir útgerð allt árið og við brugðum á það ráð að setja Andvara undir eistneskan fána. Á þeim tímapunkti réðum við Kára Hrafn Hrafnkelson á skrifstofuna þar sem enskukunnátta mín var ekki nógu góð. Með eistneskan fána fengum við á okkur hafnarbann á Nýfundnalandi. Þá var ekki annað að gera en að færa Andvara undir rússneskan fána og sigla til Íslands með aflann. Þetta gekk ágætlega en báturinn var ekki nógu stór svo það var keyptur stærri bátur frá Noregi,“ segir Lilla og bætir við að illa hafi árað á rækjuveiðum á þessum tíma og erfiðleikar að gera út. ,,Jói gafst ekki upp þó ég margbæði hann um að hætta og fara að róa á trillu. Hann var þá hættur sem skipstjóri á Andvara og Pétur Sveinsson tekinn við. Ég held að skortur á enskukunnáttu hafi háð honum eins og mér. Formaður hringlandafélagsins og eini meðlimur Þegar Jói kom í land var hann í allskonar reddingum fyrir útgerðina. Eitt sinn spurði
Systur mættar í sjóstöng. Frá vinstri Elín Helga, Þura, Lilla, ættmóðirin Alla í Borgarhól, Ella Bogga og Þóra.
Annika, afa sinn hvar hann ynni. Jói svaraði að hann að væri alltaf eitthvað að hringla. Börnin hans voru ekki lengi að finna það út að Jói væri formaður og eini meðlimur, Hringlarafélagsins,“ segir Lilla sem bendir á að Andvari hafi alltaf verið með einkennisstafina VE 100. Jói hins vegar notaði töluna 47 hvar sem hann kom því við eftir að hann ungur eignaðist bíl með númerinu V-47. Jói átti margar góðar stundir við veiðar í Grenilæk Jói átti ásamt fleirum veiðihús í Grenilæk í Meðallandi. Í veiði þar fyrir 15 árum fékk Jói blóðtappa í hjartað sem dró hann samstundis til dauða. Ekkert hafði bent til þess að Jói væri veikur,“ segir Lilla sem hélt áfram með útgerðina í ár til viðbótar. Lilla segir áfallið þegar Jói lést mikið og í langan tíma var hún eins og dofin við hliðina á sjálfri sér. ,,Ég sakna Jóa alla daga. Hann var mjög góður maður sem hugsaði alltaf um hag annarra og vildi allt fyrir alla gera. Jói var rosalega barngóður og gerði mikið með barnabörnunum. Hann var brandarakall og stríðinn, segir Lilla sem fór ekki út úr húsi í nokkrar vikur eftir andlát Jóa. Hún vildi ekki byrja að lifa daglegu lífi og var engan veginn hún sjálf. ,,Þura systir kom til mín og hjálpaði mér að brjóta ísinn með því að draga mig út í göngu. Sem betur sá ég fljótt að ég fengi Jóa ekki til baka. Ég gæti gargað, vorkennt mér og verið öllum til ama en það myndi engu breyta. Ég ákvað því að takast á við lífið og þrátt fyrir að ég sé ekki trúuð þá fannst mér eins og einhver leiddi mig í gegnum erfiðasta tímabilið segir Lilla sem var atvinnulaus fyrsta árið eftir að hún hætti með útgerðina. Hún fór að vinna í eldhúsinu á Sjúkrahúsinu og líkaði vel þar til að álagið varð of mikið í kjölfar hrunsins. Hún hætti á vinnumarkaði 67 og fór fljótlega í Kópavoginn Þar sem hennar hlutverk var að hjálpa til með barnabörnin. Mér líkaði vistin á fastalandinu vel, seldi að lokum Höfðaveginn og flutti til 17
Hafnarfjarðar þar sem ég bý með frábæru útsýni m.a. niður á höfn. Ég var stundum spurð eftir að Jói dó hvort ég ætlaði ekki að selja húsið. Mér fannst nóg að missa manninn minn, ég þurfti ekki á því að halda missa heimilið mitt líka,“ segir Lilla sem leið orðið illa í húsinu síðasta veturinn áður en hún seldi. ,,Ég var fiskinn og sigursæl og þótti gaman á sjóstöng en ég var oft sjóhrædd og kveið fyrir veðrinu sem var ekki alltaf upp á sitt besta.
Jóhann Halldórsson, oftast kallaður Jói á Andvara. Mynd: Sigurgeir
,,Þetta var erfiður vetur veðurfarslega, húsið þarfnaðist orðið viðhalds og mér fannst braka í öllu. Í verstu veðrunum lokaði ég mig inni í svefnherbergi því þar hélt ég að ég væri öruggust ef þakið færi af,“ segir Lilla sem átti aldrei von á því að hún flytti frá eyjum. Öll systkini Lillu nema Ella Bogga er flutt frá Eyjum. Stutt frá Lillu býr Brynja mágkona hennar og vinkonurnar frá Álafossárunum eru ekki langt undan. ,,Ég sé það ekki fyrir mér að ég sé á leiðinni til Eyja á næstunni. Eyjarnar toga alltaf og ég sakna vinkvennanna í Eyjum. En mest sakna ég gamla lífsins með Jóa og þess að fá ekki Önnu Dóru og Jóhönnu reglulega í heimsókn,“ segir Lilla sem bætir við að nú séu hún og Birna systir hennar eins og samlokur og hún sæki meira félagslíf en hún gerði í Eyjum.
Jói lánaði bát til veiðanna framan af en fór svo sjálfur að veiða eftir að ég hætti,“ segir Lilla sem barðist við mikla flughræðslu framan af. ,,Ég flaug ef annað var ekki í boði. Þegar Andvari var afhentur í Póllandi, gaf ég skipinu nafn. Til þess að sleppa við flug fór ég með gámaskipi frá Íslandi til Hamborgar í þýskalandi. Þangað kom Nonni bróðir til þess að koma mér í lest til Berlínar og þaðan var ætlunin að taka bílaleigubíl til Póllands. Ég kom til Hamborgar á mánudegi og Andvara átti að afhenda á föstudegi. Nonni var verulega pirraður á því að vildi ekki reyna að fljúga þetta stutta flug til Berlínar. Hann reyndi að tala um fyrir mér og þegar í ljós kom að afhendingu Andvara hafði verið flýtt um tvo, þrjá daga var tæpt á að við næðum í tæka tíð. Ég hlustaði á Nonna og flaug til Berlínar og þaðan keyrðum við til Póllands. Ég vissi alltaf að ég kæmist ekki hjá því að fljúga heim. Nonni keyrði mig út á flugvöll og skyldi mig eftir þar að mér fannst í einskismannslandi. Ég var 45 ára, hrædd og vissi ekkert hvað ég átti að gera þegar ég heyrði par tala saman á íslensku. Ég kallaði í þau og spurði hvort ég mætti sitja hjá þeim sem var auðsótt mál. Þegar ég var lent á Íslandi átti ég eftir að fara til Eyja. Ég hugsaði með mér fyrst ég gat flogið frá Þýskalandi þá gæti ég allt eins flogið til Eyja. Ég kýldi á það, stuttu síðar þurfti ég að fara suður, ég tók flug og þar með var björninn unninn,“ segir Lilla sem finnst hún hafa átt gott líf þrátt fyrir erfiðar brekkur. Hún hafi átt mjög góðan mann sem þótti ekkert of gott fyrir hana. Hún hafði frjálsræði og gat gert það sem hún vildi. Lilla fagnaði í lok maí 75 ár afmæli með allri fjölskyldunni í Grenilæk. Hún segir hópinn telja 23 og upplýsir að með í för hafi verið tveir laumufarþegar.
Fiskinn og sigursæl á sjóstöng Lilla var liðtæk á sjóstöng og tók þátt í mörgum sjóstangaveiðimótum í Eyjum allt þar til hún fékk blóðtappa 1989. 18 Jói átti margar góðar stundir við veiðar í Grenilæk
Systkinin, Anna Dóra, Heimir, Jóhanna og Birgit.
Mamma sjálfsagður hlutur en pabbi eitthvað annað ,,þegar við horfum til baka hvernig foreldrar og hjón foreldar okkar voru, Þá tókum við mömmu eins og sjálfsögðum hlut, en pabbi var eitthvað annað. Hann var hrikalega fyndinn og orðheppin maður og við vorum einhvernveginn alltaf öll á hans bandi. Mamma hafði aga og reglur en hann kom heim og ruglaði öllu kerfinu. Við dýrkuðum hann öll, mamma líka. Já öll ættin og krakkarnir í hverfinu, ” segja, Anna Dóra, Jóhanna, Heimir og Birgit Jóhannsbörn sem segja foreldrana mjög ólíkar persónur sem mynduðu sérstaklega gott teymi. Hann ákvað hvað átti að gera, hún gerði það mögulegt. ,,Pabbi ákvað að fara í stýrimannaskólann, mamma lærði með honum svo hann kæmist í gegnum hann. Pabbi réri, mamma sá um skrifstofuna. Pabbi ákvað að fara í veiðiferð, mamma sá um að panta, pakka niður og útbúa nesti. Þau vógu hvort annað upp, voru samstíga og sjaldan ósátt eins og það kom fyrir okkar sjónir. Þrátt fyrir að foreldrar okkar hafi stundum verið vel stæðir, var ekki til arða af snobbi í þeim. Þau létu laga húsgögn og hluti en keyptu ekki nýtt, matarsóun var engin og iðulega voru ýmsir afgangar í matinn. Þau komu eins fram við allt fólk, pabbi sýndi öllum sömu virðingu, hvort sem það var öskukall eða alþingismaður,” segja systkinin og bæta við að foreldar þeirra
séu gott fólk sem stoppað hafi fyrir puttalingum á ferðalögum og tekið á sig krók til að hjálpa þeim á áfangastað. Farið úr rúmi fyrir gesti og ef þau voru beðin um eitthvað að láni, þá var meira en sjálfsagt. ,,Pabbi keppti bara í því sem hann var góður í og keppti til að vinna. Í einni utanlandsferð mömmu og pabba voru nokkur pör kölluð upp í dansstoppkeppni. Um leið og tónlistin stoppaði vippaði pabbi mömmu á hestbak á örskotstundu. Þegar þau voru ein af þremur pörum sem eftir voru á gólfinu segir mamma ,,Veistu Jói við verðum að hætta ég er alveg að pissa á mig,” Það kom ekki til greina, pabbi ætlaði að vinna keppnina. Í úrslitadansinum vippar pabbi, mömmu í síðasta sinn á hestbak og flýtir sér svo mikið að hún lendir á hliðinni á honum. Þegar hann er að mjaka henni upp á bakið, fær mamma hláturskast eins og henni er einni lagið. Um leið og þau eru dæmd sigurvegarar nær hlásturkastið hámarki og mamma nær ekki að halda í sér lengur. Það myndast risastór hringur af bleytu á skyrtuna hans pabba sem segir við fólkið í salnum ,,Heyrðu, bíðið aðeins”, Saman fara þau upp í herbergi, skella sér í snögga sturtu, klæða sig og koma svo gangandi niður aftur eins og kóngur og drottning til að taka við verðlaununum.” 19
ANDRÉS Þ. SIGURÐSSON : ÖLLUM KOM HANN TIL NOKKURS ÞROSKA
Andrés flytur ræðuna á Stakkagerðistúni.
SJÓMANNADAGURINN SKIPAR STÓRAN SESS Í HUGUM SJÓMANNA OG FJÖLSKYLDNA ÞEIRRA Kæru sjómenn og aðrir hátíðargestir. Í dag eru liðin áttatíu ár síðan að þessi dagur var fyrst haldinn hátíðlegur en það var svo tveimur árum seinna, eða 1940 sem við Eyjamenn héldum okkar fyrsta Sjómannadag. Dagurinn er mikilvægur hátíðisdagur í þessu samfélagi sem við búum í. Það er ánægjulegt að sjá hversu vel okkur hefur gengið að halda í þá hefð sem þessi dagur er. Er hann ekki kallaður eitthvað annað eins og víða annars staðar, heldur er þetta einfaldlega sjómannadagurinn og helgin skipar enn stóran sess í hugum sjómanna. Því þessi helgi er fyrir sjómenn og fjölskyldur þeirra. Auðvitað er sjómannadagurinn líka dagur kjarabaráttu sjómanna og allir verða að gera sér grein fyrir því að sjómenn verða að hafa góð kjör, starfið er einfaldlega þess eðlis. Það var vegna hörku okkar sjómanna að sækja fiskinn sem að þjóðin komst úr moldarkofunum og að við urðum að sjálfstæðri þjóð. 20
HÁTÍÐARRÆÐA SJÓMANNADAGSINS 2018
Mikil breyting á 20 árum Ég byrjaði á sjó 15 ára gamall, á þeim tíma var um 20% af öllum útflutningi Íslands frá Vestmannaeyjum. Hér voru um 60 bátar gerðir út á net á vetrarvertíðinni ásamt fjöldanum öllum af trollurum og nótaskipum, yfir 1000 manns, ungt fólk í blóma lífsins komu hingað á vertíð. Þetta skapaði ansi rafmagnað mannlíf og sama hvort það var á böllum eða í borðsal bátanna, þá gekk alltaf mikið á og í minningunni voru það dásamleg forréttindi að vera unglingur á þessum tíma og gott ef að það var ekki alltaf gott veður líka. Sást úr hverju menn voru gerðir Á þessum árum var meiri vinnuharka en nú er og kom þá strax í ljós úr hverju menn voru gerðir. Þó að stundir milli stríða hafi ekki verið miklar, var þetta sérstaklega skemmtilegur tími, þar sem allt var bjart framundan. Fyrirmyndir okkar strákanna voru t.d. skipstjórarnir Hörður á Andvara, Siggi Gogga á Suðurey, Steingrímur á Bjarnarey og að sjálfsögðu Sigurjón á Þórunni. Okkur langaði að verða eins og þeir, alvöru jaxlar sem voru sannarlega máttarstólpar samfélagsins. Á þeim tíma var birtur listi í bæjarblöðunum yfir stöðu aflahæstu báta og var þetta eins og íþróttakeppni sem allir
höfðu áhuga á og fylgdust með. Endamarkið var síðan lokadagurinn 11 maí, sigurvegari keppninnar var svo áhöfnin á aflahæsta bátnum og skipstjórinn krýndur aflakóngur, á þessum degi ár hvert. Skipstjórar voru þjóðhetjur Þessir aflaskipstjórar voru þjóðhetjur, ekki ósvipaðir fótboltalandsliði okkar sem keppir núna á heimsklassa. Já, heimurinn var líka minni þá og lífsbaráttan harðari. En því miður var svo linnulaus veiði ekki vænleg til frambúðar eitthvað þurfti að breytast og varð því að takmarka sóknina í fiskinn svo stofnar myndu einfaldlega ekki þorna upp. Með tilkomu kvótans breyttist allt, keppnin um mesta aflann heyrði sögunni til. Nú er það einfaldlega sá kvótahæsti sem fiskar best. Aðkomufólkið flykkist ekki lengur til Eyja á vertíð, heldur er nú passað upp á að vinnan sé stöðug allt árið, já það eru breyttir tímar. Margt hefði mátt betur fara Þó að maður sjái liðna tíð í hyllingum er það margt sem betur mátti fara. Með tilkomu kvótans áttuðu menn sig betur á hversu mikilvægt það er að hámarka verðmætin úr þessari takmörkuðu auðlind sem fiskurinn okkar er. Þróunin mun halda áfram, skipin munu halda áfram að stækka og verða betri. Persónulega sé ég ekki eftir slagvatsfýlunni í gömlu trépungunum og við höfum það gott í dag, en það er vegna dugnaðar kynslóðarinnar sem var á undan okkur. Það er eitt sem mun ekki breytast á næstunni. Það, að lífið í Eyjum mun halda áfram að snúast um fisk og áfram munu sjómenn verða samfélaginu okkar jafn miklvægir og áður, höfnin mun verða lífæð Eyjanna um ókomna tíð. Samgöngur mikilvægar Í dag eru samgöngur við meginlandið orðnar mikilvægari þáttur en áður. Nú þarf að sækja þjónustu til Reykjarvíkur sem var hér til staðar en er ekki lengur. Mikið af fiski sem landað er hér er nú fluttur upp á land til vinnslu og ferðaþjónustan er sífellt mikilvægari fyrir okkur. Þetta allt og meira til gerir það að verkum að samgöngur á sjó verða að vera í lagi. Því miður hafa vandamál Landeyjarhafnar verið meiri en í upphafi var gert ráð fyrir. Landeyjahöfn frábær Þó allt hafi ekki gengið sem skyldi er Landeyjarhöfn frábær þegar hún er í lagi. Það er framtíðarverkefni að leysa þetta, mjög miklvægt er að við Eyjamenn stöndum saman að því. Það er því miður enginn ein patentlausn til, það verður að þróa höfnina áfram. Eins og
Ríkharður Zoega Stefánsson og Friðrik Þór Sigmarsson.
21
víða um landið hafa hafnir þróast og orðið betri með tímanum, á ég von á að það sama gildi um Landeyjarhöfn. Nú er von á nýju og burðarmeira skipi. Mér er mjög minnistætt þegar núverandi skip kom, mér fannst eins og mörgum öðrum hann svakalega stór, flutningseta hans var 50% meiri en á þeim gamla. Nú fáum við aftur skip með 50% meiri flutningsgetu. En nýr Herjólfur er bara einn þáttur í bættum samgöngum, fleira þarf að koma til. Forræði yfir þjóðveginum Annað mjög mikilvægt skref í rétta átt er að við fáum aftur forræði yfir þjóðveginum okkar. En af hverju er verið að tala um samgöngumálin okkar í hátíðarræðu á Sjómannadaginn? Ástæðan er einfaldlega sú að þetta er það sem brennur á okkur nú um þessar mundir, það er svo gríðarlega mikilvægt fyrir atvinnulífið hér og okkur sjálf að koma þessum málum í viðunandi farveg. Framtíð Eyjanna liggur undir því að við leysum samgöngumálin. Það er ég alveg sannfærður um að allir sem hafa komið að þessu eru að gera sitt besta, sama hvort það eru einhverjir sérfræðingar, skipasmiðir, áhöfn Herjólfs eða aðrir. Mikil uppbygging Það er gaman að sjá þessa miklu uppbyggingu sem hefur verið hin síðustu ár hjá sjávarútvegsfyritækjunum hér og sér ekki fyrir endann á því. Ekki er langt síðan við fengum nýjan togara, Breka VE og vil ég óska útgerð og áhöfn til hamingju með þetta glæsilega skip. Það er alltaf mikill mikill viðburður þegar nýtt skip leggst að bryggju í Vestmannaeyjum. Þegar við sjáum hvað mikið er um framkvæmdir og drifkraft er ljóst að með sterku atvinnulífi og bættum samgöngum er framtíðin björt fyrir okkur hér í Eyjum.
Hermann Kristjánsson ásamt afabarni og nafna sínum Hermanni.
Óttar Steingrimsson Friðrik Þór Sigmarsson, Valur Valdimarsson Bergur Páll Gylfason og Daði Magnússon
www.polardoors.com s: 898 66 77
Jupiter 2,7r
22
Mercury 2,4r
Mercury 2,0r
Hercules 1,5
Hercules 1,2
Thor
Neptune
Haftengd nýsköpun
Diplómanám sem þjálfar nemendur í fjármálum og vöruþróun í sjávarútvegi.
Sæktu um fyrir 15. júlí
„Haftengd nýsköpun er virkilega skemmtilegt og krefjandi nám. Okkur var hent ofan í djúpu laugina frekar fljótt og þurftum að vera klár í að vinna alvöru verkefni, bæði bókleg og verkleg. Þessi nálgun hefur hjálpað okkur mikið og getum nýtt þessa færni og þekkingu í fyrirtækinu okkar, Volcano Seafood. Hugmyndin kviknaði í náminu en hún var að bragðbæta þurrkaða keilu sem okkur fannst vera mjög vannýtt afurð. Þó vörurnar séu svipaðar og hefðbundinn bitaharðfiskur höfum við tekið út eiginleika með framleiðsluaðferðum okkar sem ekki öllum líkar við eins og að draga úr lykt og að hann molni. Við vildum gera hágæða snakk sem hægt er að njóta við hvaða tilefni sem er. Það eru mjög spennandi tímar framundan hjá okkur.“
Dagur, Guðný, Gunnar Heiðar og Svanhildur
Volcano Seafood varð til í námi í Haftengdri nýsköpun. Varan er núna til sölu á nokkrum stöðum í Reykjavík og Vestmannaeyjum ásamt völdum stöðum í flugstöð Leifs Eiríkssonar.
@haskolinnireykjavik @haskolinn #haskolinnrvk
hr.is
23
GUÐRÚN ERLINGSDÓTTIR RÆÐIR VIÐ EYFA Á VESTMANNAEY
FENGIÐ ÖLL STÖRF UPP Í HENDURNAR OG ALDREI SÓTT UM VINNU Ég er fæddur í Eyjum, alinn upp í vesturbæ Reykjavíkur, gekk í Melaskólann og Gaggo Vest. Ég er samt ekki KR-ingur heldur Valsari og ÍBV-ari,“ segir Eyjólfur Pétursson sem flestir Eyjamenn þekkja sem Eyfa á Vestmannaey. Móðir Eyfa er frá Laugardal í Eyjum og pabbi hans frá Vallá á Kjalarnesi. Eyfi er skipstjórasonur sem fór sinn fyrsta túr á sjó sumarið sem hann var 13 ára með pabba sínum á togaranum Þorsteini Ingólfssyni, sem Bæjarútgerð Reykjavíkur gerði út. ,,Ég réði mig upp á hálfa hlut til veiða á Grænlandsmiðum. Ætli það væri ekki fangelsidómur ef 13 ára barni værir boðið slíkt í dag?“ segir Eyfi og hlær. Hann réri líka með föður sínum á Pétri Halldórssyni og fleiri togurum. 17 ára svindlaði Eyfi sér í Stýrimannaskólann en ekki var leyfilegt að hefja nám þar fyrr en 18 ára. ,,Þeir spurðu ekkert um aldur í skólanum og ég kláraði fiskimanninn 19 ára gamall. Ég fór eftir skóla sem bátsmaður á Þorkel mána þar sem pabbi var skipstjóri. Pabbi var ekki á Þorkeli mána í ofsaveðrinu á Nýfundnalandsmiðum 1959, hann var þá á Pétri Halldórssyni, sem fór illa út úr veðrinu. Þeir voru svo heppnir að vera búnir að fylla þegar veðrið skall á og voru því með góða ballest,“ segir Eyfi. Skipstjóri á Hallveigu Fróðadóttur 22 ára Í einum túr á Þorkeli mána var Eyfi kallaður var upp í brú til pabba síns. ,,Nú vil ég fá þig upp í brú sagði kallinn, ég horfði á hann og spurði hvort hann væri eitthvað klikkaður ég væri nýútskrifaður. Það skiptir engu sagði kallinn, vegna veikinda fyrsta stýrimanns þarf ég að fá þig í brúna, það er meiri kraftur í þér en öðrum stýrimanni. Ég þorði ekki öðru en að hlýða kallinum,“ segir Eyfi sem leysti af um haustið þá tvítugur með undanþágu sem skipstjóri á Þorkeli Mána og sigldi með hann til Bremerhaven. Þegar við komum heim fengu tollararnir hláturskast. Skipstjórinn á skipinu var ekki orðinn lögráða og því ekki nógu gamall til þess að mega taka með sér toll. Þeir hleyptu mér nú samt í gegn með tollinn og fannst að fyrst ég væri skipstjóri þá hlyti mér að vera treystandi fyrir tollinum. 24
Eyfi segir að hann hafi aldrei tekið ákvörðun um að verða sjómaður. Hann hafi fengið öll störf upp í hendurnar og aldrei þurft að sækja um vinnu hvorki á sjó eða í landi. ,,Ég skoðaði aðeins að læra íþróttakennarann en þegar ég sá launakjörin þá dó sá draumur strax. Ég hafði gaman af því að sprikla og var nokkuð liðtækur í íþróttum en aldrei boltamaður. Hemmi vinur minn Gunn var hins vegar góður í öllum íþróttum,“ segir Eyfi. ,,Þegar ég kom með Þorkel mána úr sinni síðustu siglingu 1968 voru forstjóri Bæjarútgerðarinnar og pabbi á bryggjunni klukkan fimm um morgun. Erindi þeirra var að fá mig til þess að taka við skipi Bæjarútgerðarinnar, Hallveigu Fróðadóttur. Ég spurði þá félaga hvort þeir væru orðnir alveg vitlausir. Þegar áhöfnin á Þorkeli mána lýsti sig tilbúna að koma með mér yfir á Hallveigu sló ég til þá 22 ára og réði mig til prufu í þrjá mánuði. Eftir þrjú ár sagði ég upp með þriggja mánaða fyrirvara og réði mig til Bergs- Hugins sem var með Vestmannaey í smíðum í Japan,“ segir Eyfi sem bætir við að hann hafi ekkert þekkt Kristinn Pálsson, þegar hann hringdi og bauð honum skipstjóraplássið á Vestmannaey. ,,Ég sló til og fór til Japans, 31. desember 1972 lögðum við að stað í langa heimferð frá Muroran sem er bær nyrst í Japan. Ferðin tók okkur 53 almanaksdaga en 54 sólarhringa. Við upplifðum sama sólarhringinn tvisvar sinnum þegar við fórum yfir 180 gráður lengdarbauginn,“ segir Eyfi en skipverjar færðu klukkan fram um 1 klst. á 15 gráðu fresti til þess að fylgja GMT tímabeltinu. ,,Við ætluðum ekki að upplifa það sama og Fíleas Fogg sem fór umhverfis jörðina á 80 dögum en gleymdi einum degi. Á 180 gráðu lengdarbaugnum færðum við klukkuna aftur um einn sólarhring og sama sólarhringinn aftur. Ferðin heim gekk mjög vel, við fengum gott veður allan tímann fyrir utan fyrstu tvo daganna þar sem við lentum í leifum af fellibyl. Eftir 18 daga siglingu stoppuðum við á Havaí. Næst tók við 22 daga sigling um Panamaskurðinn til Bermúda þar sem við tókum olíu og fórum strax af stað. Togarinn Páll Pálson sem var
Gæði - alla leið! ÍSLENSKA SVEITIN OG SS - FYRIR ÞIG
ÁRNASYNIR
Stefán Geirsson og Silja Rún Kjartansdóttir í Gerðum eru hluti þeirra 900 bænda sem eiga SS.
Oddur Árnason KJÖTMEISTARI ÍSLANDS 2018
„Til að skapa afbragðs SS kjötvörur þá eru gæði hráefnisins og uppruni lykilatriði. Vönduð vinnubrögð góðra bænda ásamt réttri meðhöndlun tryggja að kjötvörur frá SS skila gæðum alla leið á diskinn þinn.“ 25
við að hann hafi haft áhyggjur af ættingjum sínum í Eyjum. Hann segir ekki hægt að lýsa því hvernig mönnunum um borð sem voru giftir og áttu börn leið. Þetta hafi verið hræðilegt og ekki sé hægt að setja sig í spor þessara manna.
Inga og Eyfi njóta lífsins.
á sömu leið og við stoppaði í nokkra daga í Bermúda þar sem áhafnarmeðlimir hittu eiginkonur sínar. Þetta stopp var til þess að Páll Pálsson lenti í leiðindaveðri á meðan við sigldum heim í blíðu,“ segir Eyfi sem kom með Vestmannaey til Hafnarfjarðar þar sem skipið landaði næstu tvö árin vegna eldgossins í Eyjum. Eyfi segir að Vestmannaey hafi verið stödd mitt á milli Havaí og Panama þegar fyrstu fréttir af gosinu í Eyjum heyrðust í erlendum útvarpsstöðvum. ,,Það var einhver slagur í gangi milli Íslendinga og Bandaríkjamanna vegna kanastöðvarinnar í Keflavík. Ég heyrði einhverjar fréttir um það á NBC og fylgdist með. Allt í einu heyri ég frétt um að það sé byrjað að gjósa á eyju suður af Íslandi og verið sé að flytja fólk í burtu. Það hvarflaði ekki að mér að um Vestmannaeyjar væri að ræða. Ég hélt að gosið væri á Asóreyjum en þegar farið var að tala um flytja ætti fólk með bátum í land fóru að renna á mig tvær grímum. Þegar ég svo heyrði að eldgos væri hafið í Eyjum ræsti ég alla áhöfnina og bað hana um að hlusta á allar útvarpsrásir sem hægt væri. Það var lítið sofið á meðan beðið var réttra frétta af ástandinu. Í einhverjum fréttum var sagt að fjöldi fólks hefði farist en svo heyrðum við viðtal við Eið Guðnason, fréttamann sem síðar varð alþingismaður að allt hefði farið vel og allir væru komnir uppá land,“ segir Eyfi og bætir 26
Fékk eina hugmyndaríka og framkvæmdaglaða með öllu Þegar Vestmannaey fór aftur til Eyja flutti Eyfi með skipinu og kynntist í kjölfarið Ingu Gísladóttur sem þar bjó með tveimur börnum sínum. ,,Ég fékk eina með öllu, við Inga rugluðum sama reitum og eignuðumst tvö börn til viðbótar. Í Eyjum var ég á sjónum en Inga var fjármálastjóri heimilisins. Inga framkvæmdi það sem henni datt í hug. Í eitt skipti þegar ég kom í land var hún búin að minnka bílskúrinn og setja upp poppkornsverksmiðu sem hét Ingu Popp,“ segir Eyjólfur hlægjandi og það leynir sér ekki að honum fannst mikið til konu sinnar koma. ,,Okkur leið vel í Eyjum, ég var í Akoges og saman vorum við Inga í JC og í sjóstangaveiði í Eyjum og út um allt land. Ég átti hlut í Berg Huginn í gegnum hlutafélag sem hét Jolli, en ég var ýmist kallaður Eyjólfur, Eyfi eða Jolli. Ég var aldrei sáttur við sameiningu Bergs Hugins við Ísfélagið 1992. Ég var heldur ekki sáttur þegar feðgarnir Magnús og Kristinn klufu sig út úr Ísfélaginu. Við Logi Snædal sátum eftir í Ísfelaginu en þau mál voru leyst samráði við Sigurð Einarsson forstjóra Ísfélagsins,“ segir Eyfi sem flutti með fjölskylduna í Mosfellsbæ Þar sem hann stundaði afleysingar á sjó á meðan Inga stjórnaði í landi. ,,Í annað sinn þegar ég kom heim af sjónum tilkynnti Inga mér að hún væri búin að kaupa sjoppu í Hafnarfirði. Ég hafði ekkert um það að segja kaupin voru frágengin og nú hófst mikill akstur milli Mosfellsbæjar og Hafnarfjarðar. Sjoppan sem hét Bollan, var í litlum trékofa, við ákváðum að nota hlutafélagið sem við áttum til að halda utan um reksturinn og sjoppan fékk nafnið Jolli. Ég vann ekki mikið í sjoppunni, Inga var við stjórnvöllinn enda áttu viðskipti vel við hana. Endurskoðandinn sýndi okkur einu sinni línurit af rekstrinum. Frá fyrsta degi og þar til við seldum var reksturinn stöðugt upp á. Eftir rekstur í litla skúrnum byggðum við nýjan Jolla við Helluhraunið í Hafnarfirði. Mér fannst húsnæðið allt of stórt en það veitti ekkert af því. Þegar við seldum Jolla vorum við með 14 fastráðnar konur í vinnu og 8 átta til viðbótar á launaskrá,“ segir Eyfi en Jolla seldu hjónin þegar Inga veiktist af sjaldgæfu krabbameini sem dró hana til dauða 8 árum síðar. ,,Inga var ótrúleg með níu líf eins og kettirnir“ ,,Inga greindist 2006 með Bellini krabbamein sem byrjar í nýrnahettunum. Hún var eini
facebook.com/enneinn ENNEMM / SÍA / NM8830
www.n1.is
Til hamingju með daginn sjómenn!
Við hjá N1 sendum hetjum hafsins og fjölskyldum þeirra um allt land heillaóskir í tilefni sjómannadagsins.
Alltaf til staðar
27
Íslendingurinn þá sem fengið hafði þetta krabbamein og á þeim tíma höfðu einungis 50 manns í öllum heiminum greinst með þessa tegund. Ingu var sagt við greininguna að hún mætti búast við að lifa í þrjá til sex mánuði en hún lifði með krabbameinið í átta ár,“ segir Eyfi sem telur að lífsvilji og kraftur Ingu ásamt hárréttum viðbrögðum Ásgerðar Sverrisdóttur krabbameinslæknis sem Eyfi telur vera snilling, hafi gefið Ingu átta ára lengri ævi.
Eyjólfur í jómfrúartúrnum 13 ára með pabba sínum, á hálfum hlut á Þorsteini Ingólfssyni sem réri á Grænlandsmiðum.
,,Við vorum dugleg að ferðast og leika okkur þegar Inga átti góða tíma og fórum víða. Síðustu tvö árin hennar voru mjög erfið, eiginlega alveg hræðileg. Ég óska engum að ganga í gegnum slík veikindi, hvorki þeim sem er veikur né aðstandendum. Þetta erfiða verkefni tók mikið á en ég fann það ekki hversu erfitt verkefnið hafði verið og meðvirknin mikil fyrr en Inga var dáin,“ segir Eyfi sem bætir við að Inga hafi verið ótrúleg, með níu líf eins og kettirnir. Eyfi segir að það hafi verið svakalega tómlegt og erfitt fyrst eftir að Inga kvaddi. ,,Það vantaði eitthvað í mig eftir árin okkar sem voru tæp 40. Ég treysti mér eiginlega ekki út á meðal fólks fyrstu tvö árin og lokaði mig af. Ég er heppinn að eiga góða að sem gáfust ekki upp á mér og drógu mig út í lífið aftur. Tíminn læknar ekki öll sár en hann læknar mikið,“ segir 28
Eyfi sem var í afleysingum á sjó eftir að Jollinn var seldur og fór svo í dagvistun í Bykó eins og Inga lýsti vinnu hans þar fyrir vinkonum sínum. ,,Vinur minn var að setja upp stærstu byggingaverslun landsins, Byko. Hann bað mig um að sjá um ljósauppsetningu á tilteknu svæði af því að ég væri svo klár í rafmagni. Ég hef gaman af að vinna við rafmagn og tók að mér uppsetninguna. Þegar opna átti búðina kom verslunarstjórinn til mín og spurði hvort ég vildi ekki vinna hjá þeim í búðinni. Ég samþykkti að gera það þar til lóan kæmi. Ég hætti svo þegar lóan kom um vorið og fór að leika mér. Ég er mikill veiðikall og var staddur í veiði í Grímsá, þegar verslunarstjórinn hringdi í mig og sagði að nú væri lóan farin. Ég sagði að það væri ekki rétt því á túninu fyrir framan mig væri fullt af lóum og ég hefði ekki ætlað mér aftur í verslunarstörf. Það breyttist, því fljótlega var mér boðið starf hjá Olís sem sölumaður útgerðarvara,“ segir Eyfi sem þvældist um allt land í söluferðir og komst að því að hann væri ekki týpan sem gæti unnið fyrir framan tölvu frá átta til fjögur. Hann segist nú alveg hættur að vinna en hafi nóg að gera í sumarbústað sem hann og Inga keyptu. ,,Ég er búinn að stækka bústaðinn og endurbyggja og í landinu er frumskógur af trjám sem þarf að hugsa um. Ég vil hafa huggulegt í kringum mig,“ segir Eyfi sem skreppur til Eyja þegar hann er ekki í sumarbústaðnum eða í veiði. Síðustu tvo vetur segist Eyfi hafa dvalið á Kanaríeyjum í fimm mánuði. ,,Betra að vera í Eyjum ef ég verð einhvern tímann gamall,“ ,,Það er gott að vera á Kanarí og nóg að gera. Gönguferðir, skemmtilegir karlar, kjaftaklúbbar og svo golfið. Þrátt fyrir breytinguna sem varð þegar Inga dó reyni ég að njóta lífsins og ferðast. Við Inga keyptum okkur tvær penthouse íbúðir í fallegum baðstrandarbæ í Póllandi. Kaupin voru ein af viðskiptahugmyndum Ingu. Vinahjón hennar keyptu sér íbúð á staðnum og Inga linnti ekki látum fyrr en ég búinn að fara með henni út að skoða staðinn. Ég varð svo heillaður af staðnum að það endaði með því að við keyptum tvær íbúðir. Þær seldi ég báðar í fyrra og nú stefni ég á að flytja til Eyja ef ég finn húsnæði sem hentar. Ég held að það sé miklu betra að vera gamall í Vestmannaeyjum en í Reykjavík ef ég verð einhvern tímann gamall,“ segir Eyfi sem segist vera gæfumaður, þakklátur fyrir að hafa aldrei misst mann í sjóinn og haldið heilsu alla tíð. Hann hafi séð það best á Ingu þegar heilsan klikkar hvað fólk sé fljótt að brotna niður.
BEDDI Á DÆLU Á FIMMTUDAGINN
SJÓMANNADAGSHELGIN Á ÖLSTOFU THE BROTHERS BREWERY
Fimmtudagurinn 30.maí 18:00
RIB SAFARI
Sjómannabjórinn 2019 Beddi kemur á dælu. Opið frá 14:00 – 00:00
Föstudagurinn 31.maí
Opið frá 14:00 – 01:00. Sjómannalög, létt og þægileg stemming.
Laugardagurinn 1.júní
Opið frá 14:00 – 01:00. Sjómannalög, létt og þægileg stemming.
Sunnudagurinn 2.júní
Opið frá 14:00 – 21:00. Sjómannalög, létt og þægileg stemming. Til lukku með hátíðina ykkar kæru sjómenn og fjölskyldur!
KOMDU AÐ SIGLA MEÐ OKKUR!
gar Ógleymanle rðir skemmtife
G TIL HAMIN
JU M
MEN Ó J S N N I G EÐ DA
N!
F Í L T T I M ER M
U N Ó J S Á ÚTI’
BÓKAÐU NÚNA S: 661-1810
info@islandboattours.is www.islandboattours.is Sjáumst á höfninni
29
Eyfi sem er veiðiáhugamaður sýnir hér stoltur myndarlegan lax sem hann veiddi.
Eyfi í brúnni á Vestmannaey þar sem hann réri lengst af.
Eyjólfur Pétursson, sem lokið hefur sjómannsferlinum var heiðraður af Verðanda 2018. 30
Eyfi segir svakalegar breytingar hafi orðið í sjávarútvegnum frá því að hann byrjaði á Þorkeli mána. Þá hafi staðsetningartækin einungis náð í 100 metra radíus og það hafi reynt meira á skipstjórnarmenn áður fyrr. Eyfi segir áhuga og innsæi sé það sem geri skipstjóra fiskna. ,,Ég hef aldrei verið á nót en það eru margir góðir skipstjórar sem veiða í nót sem virðast hafa eitthvað innbyggt kerfi í sér. Biggi skipstjóri á Vestmannaey sagði einhvern tímann að ég hefði kennt honum í þrívídd. Ég var víst alltaf með hendurnar út um allt þegar ég var að lýsa fiskimiðum,“ segir Eyfi sem upplifði það þegar Vestmannaey var afhent í Japan 1972 að hann væri kominn um borð í skemmtiferðaskip miðað við gömlu togarana. Eyfi segir þróunina ótrúlega og sami munur sé nú Vestmannaey sem afhent var 1972 og nýju glæsilegu skipum Ísfélagsins, Heimaey og Sigurði. Eyfi segir ekki hægt að bera saman meðhöndlun á sjávarfangi í dag þegar hann var að byrja á sjó. Lét áhöfnina plata sig og hljóp 1. apríl ár eftir ár ,,Við vönduðum okkur um borð við frágang fisksins. Þegar komið var í land var honum mokað með heyhvíslum í stór járntrog og sturtað upp á vörubíl, keyrt með hann í frystihúsið og sturtað þar í bing. Enda voru einu afurðirnar sem fiskinnslustöðvarnar framleiddu á þessum tíma saltfiskur, skeið, svokölluð blokk og eitthvað af flökum sem send voru til Ameríku og á Englandsmarkað,“ segir Eyfi sem er sáttur við verðmætasköpun sjávarafurða í dag. Hann segist hafa unnið með mörgum skemmtilegum karakterum til sjós. ,,Stákarnir voru endalaust að reyna að stríða mér um borð. Þeir létu mig m.a. hlaupa 1. apríl ár eftir ár og tókst það mjög vel þar sem ég agalega trúgjarn. Í fyrra hittumst við Halldór Waagfjörð sem var vélstjóri með mér á Vestmannaey á Kanarí. Halldór segir við mig ,,Eyfi við vorum saman í ellefu ár á sjó og rifumst aldrei.“ Ég svaraði honum að það væri ekkert skrýtið. Hann hefði verið niðri í vél þar sem ég treysti honum. Hann hefði hins vegar komið upp í brú nokkrum sinnum á dag til að kjafta. Hann hefði talað svo mikið að ég hefði ekki komist að. Það hefði því aldrei verið tækifæri til að rífast, ,“ segir Eyfi sem ætlar sér að njóta lífsins á meðan hann getur.
ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
31
ÞORSTEINN INGI HÆTTIR OG KOLBEINN TEKUR VIÐ Á aðalfundi Sjómannafélagsins Jötuns í mars í vetur tók Kolbeinn Agnarsson við formennsku í félaginu af Þorsteini Inga Guðmundssyni sem gengt hefur starfinu sl. tvö kjörtímabil eða í fjögur ár. Kolbeinn hefur lengi verið varaformaður og er því öllum hnútum kunnur í starfsemi félagsins. Sú breyting varð, að formaður er í hálfu starfi en ekki heilu. „„Þetta voru fjögur ár hjá mér sem formaður en ég er búinn að vera í stjórn og varstjórn frá því árið 1974,“ sagði Þorsteinn Ingi, fráfarandi formaður þegar rætt var við hann á þessum tímamótum. Hann er þó ekki alveg hættur. „Þeir óskuðu eftir því að ég yrði áfram viðloðandi stjórnina og er ég varamaður í nýrri stjórn. Ég er einnig varamaður í framkvæmdastjórn Sjómannasambandsins.“ Þorsteinn er sáttur þegar hann lítur til baka. „Maður hefur unnið með mörgum höfðingjum á þessum 45 árum sem ég staðið í þessu. Ég er nokkuð sáttur en þó finnst mér að við sjómenn beinum spjótum okkar ekki alltaf í rétta átt. Það er ekki bara við útgerðarmenn að eiga. Það eru ekki síður stjórnvöld sem skapa umgjörðina sem þarf að takast á við. Í dag er það þannig að ríkið tekur alltof stóran hluta af kökunni.Það verður að segjast eins og er stórhluti af því verðmæti sem koma á land fara í ýmisa skatta og gjöld til ríkisins.Þessi vinna er endalaus barátta og undanfarin ár hefur þetta verið varnarbarátta það verður að fara skila sjómönnum betri launum eins og staðan er mun fara að verða vöntun á sjómönnum þeir leita í önnur störf. Það á ekki bara við okkur. Þorsteinn er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að vinna að hagsmunamálum sjómanna. „Maður er ekki síður þakklátur fyrir frábæra samstarfsmenn. Það er lán Jötuns að eiga öfluga menn og ég tel mig heppinn að hafa fengið að vera í þeim hópi,“ sagði Þorsteinn að endingu.“ Kolbeinn Agnarsson, formaður Jötuns var á sjó þegar slegið var á þráðinn til hans 19. maí. „Ég er á Breka og við erum austur á grunnum í ágætis karfaveiði og það er blíðuveður,“ sagði Kolbeinn. „Ég er hef verið í stjórn Jötuns í sex ár og 32
Kolbeinn og Þorsteinn Ingi.
þar af í fjögur sem varaformaður. Ég var í samninganefd sjómanna í verkfallinu 2017. Það var mikill lærdómur og reynsla sem maður fékk út úr því. Sannkölluð eldskírn.“ Agnar segir að formennskan í Jötni leggist vel í hann en það verða breytingar á starfinu. „Hulda Skarphéðinsdóttir verður áfram í fullu starfi á skrifstofunni en ég verð í hálfu starfi sem formaður. Það er verið að spara fyrir kallana sem borga í félagið með þessu. Ég verð svo á Breka, tek nokkra túra í hverjum mánuði.“ Kolbeinn segir að áherslan verði áfram sú sama, baráttan fyrir bættum kjörum sjómanna. „Fiskverð þarf að vera vera í lagi og verðlagning öll gegnsæ. Svo eiga trygginga- og lífeyrismál að vera eins og hjá venjulegu fólki. Ef fiskverð er í lagi fylgir hitt á eftir.“ Kolbeinn vill að félagsmenn nýti sér betur félagið og kynni sér það sem það hefur upp á bjóða. „Sjómenn borga í félagið og eiga að fá eitthvað fyrir peningana. Vil ég að þeir nýti félagið betur því það hefur upp á svo margt að bjóða,“ sagði Kolbeinn að lokum.
S j ó m a n n a d a g u r i n n
2 0 1 9
Sjómenn, til hamingju! V M - F é l a g v é l s t j ó ra og málmtæknimanna ó s ka r s j ó m ö n n u m o g f j ö l s ky l d u m þ e i r ra t i l h a m i n g j u m e ð d a g i n n
VM, Félag vélstjóra og málmtæknimanna
33
Sigurður VE
LISTAHJÓNIN HULDA HÁKON OG JÓN ÓSKAR
STERK TENGING TIL VESTMANNAEYJA SJÓMENN FÁ OFT AÐ SJÁ ÓENDANLEGA FEGURÐ HAFS OG HIMINS AÐ RENNA SAMAN VIÐ HIMINN OG HAF Í ALGERRI STILLU OG MIÐNÆTURSÓL Í APPELSÍNUGULUM GALLANUM „Ég áttaði mig á því hversu vænt mér þykir um hafið þegar ég bjó erlendis og hafði ekki séð það í heilt ár. Tók lest út að ströndinni og það var eins og að hitta gamlan vin,“ segir Hulda Hákon listakona sem ásamt manni sínum og samherja í listinni, Jóni Óskari hefur tekið miklu ástfóstri við Vestmannaeyjar. Keyptu hús í Skvísusundi þar sem þau hafa komið sér vel fyrir. Tengsl þeirra eru líka þó nokkur við Eyjar. Hulda er ættuð úr Landeyjunum og undan Eyjafjöllum og á myndarlegan frændgarð í Eyjum. Jón Óskar ekki síður, faðir hans Hafasteinn Ingvarsson, fæddist og ólst upp í Birtingaholti sem stóð við Vestmannabraut. Hér var hann líka á sjó á Ísleifi IV VE, því mikla happa- og aflafleyi. Hulda opnaði sýningu í Listasafni Íslands þann 24.maí s.l. Jón Óskar verður með einkasýningu í Eldheimum sem opnar um Goslokahelgina föstudaginn 5. júlí og saman verða þau með sýningu í Einarsstofu. Sú opnun er fimmtudaginn 4. júlí. Goslokahelgin
34
verður hápunktur hátíðarhalda í tilefni að 100 ára afmæli Vestmannaeyjakaupstaðar. Hulda og Jón Óskar eru meðal okkar virtustu myndlistarmanna, jarðbundin, fylgjast vel með og tengingin við Vestmannaeyjar hefur opnað augu Huldu fyrir sjónum. Því sem hann gefur og síðast en ekki síst þeim sem sækja fiskinn í greipar hafsins og skipin sem flytja aflann heim. Þetta kemur fram í verkum hennar þar sem íslenski sjómaðurinn er settur á þann stall sem hann á skilið. Og um þau bæði má segja, að þar eiga Eyjamenn vini sem bera ómælda virðingu fyrir því sem við byggjum á og okkur sem hér búum. ÓG. Miðin „Miðin í kringum landið hafa líklega oftast fengið nöfn frá sjómönnum: Háadýpi, Háfadjúp, Bæli karlsins, Belgableyða, Flæmski hatturinn, Rósagarðurinn, Hnjúkadjúp, Hampiðjutorg, Paradísarhola, Sláturhúsið, Svörtuloftasvið,“ segir Hulda.
„Nöfnin vekja forvitni og eflaust liggja sögur að baki. Á Hampiðjutorgi hef ég heyrt að margt trollið hafi rifnað og Hampiðjan hafi haft eitthvað að gera í kjölfarið. Árið 2000 vann ég lágmyndir út frá nöfnum á miðunum umhverfis landið og teikningum af sæskrímslum á gömlu Íslandskorti sem eignað er Guðbrandi Þorlákssyni biskupi, þótt hann hafi ekki gert sjálft kortið. Sjómenn Á þessu stigi var ég farin að sækja í það að tala við sjómenn. Sjómenn fá oft að sjá óendanlega fegurð hafs og himins. Einn lýsti því fyrir mér hvernig hann í appelsínugulum gallanum, rann saman við himinn og haf í algerri stillu og miðnætursól. Ég sjálf gæti aldrei stundað sjómennsku. Held að það sé mjög erfitt starf. Við landkrabbarnir höfum aðeins fengið að kíkja inní þann heim í gegnum netmiðlana. Jói Ragg kokkur á Kap VE deildi eitt sinn smá hreyfimynd á fb af vinnu um borð í brjáluðu veðri. Ég horfði á það aftur og aftur. Ekki fyrir alla að vera á dekkinu þegar þannig stendur á. Sjómennirnir eru glæsilegir í appelsínugulu göllunum. Ég hef gert nokkrar myndir af þeim. Einn sem hlustar Motörhead . Hann er með Ace of Spades á bakinu. Á hjálminum er gálgahúmor. Þar er Hómer Simson sem segir: „when nothing goes right, go left“. Annar sem hlustar á AC/DC. Sá er sennilega sósialisti. Aftan á hjálminum hans stendur „The next revolution will be perfect“. Ég var semsagt farin að gera sjómenn í neongöllum og stundum lét ég þá standa á fagurbláu hafinu.
Pétur.
Pétur Næst gerist það að Listvinafélag Hallgrímskirkju hefur samband við mig og hvort að ég sé til í að vera með sumarsýninguna þeirra. Þar með var Pétur kominn. Sjómaðurinn sem stígur á hafið, en sekkur vegna þess að hann treystir ekki. Mér þótti vænt um að sr. Kristján Björnsson vígslubiskup í Skálholti var til í að skrifa textann sem birtist nú hér í blaðinu og var upprunalega í sýningarskrá Hallgrímskirkju.
Stefnumót.
Listasafn Íslands Ég er nú með yfirlitssýningu á Listasafni Íslands. Hún stendur yfir sumarið og henni lýkur ekki fyrr en í September. Þar eru þessar myndir og þangað eru allir velkomnir. Líka á sýninguna okkar Jóns í Einarsstofu á goslokum,“ segir Hulda Hákon þannig að sjómenn, Eyjamenn og gestir geta skoðað það sem þau eru að gera um þessar myndir.
Faxasker.
35
Sigurjón, Þorsteinn, Lýður, Ófeigur og Finnbogi á góðri stund. Feðgarnir voru miklir vinir og bræðurnir fóru í ,,mömmumat“ og að horfa á fótbolta á opnu heimili pabba síns.
HARÐDUGLEGUR MANNVINUR OG MÚSÍKALSKUR HÚMORISTI ,,Líf pabba snerist um sjómennsku. Hann byrjaði á trillu rétt orðin 13 ára gamall og réði sig sama ár á síðutogarann Hafliða frá Siglufirði. Ég fetaði í hans fótspor og var kominn á vörubílspall 9 eða 10 ára gamall til þess að opna og loka síldarmáli. Ég var varla nógu stór til þess að ná utan um málið. Skemmtilegast var þegar vörubílinn keyrði áfram og bremsaði. Þá rann síldin fram eftir bílnum og ég flaut ofan á,“ segir Þorsteinn elsti sonur Lýðs Ægissonar, skipstjóra og tónlistarmanns sem lést fyrr á þessu ári. Lýður eignaðist fjóra syni með Hörpu Sigurjónsdóttur auk þess sem Selma Hrönn, bróðurdóttir Lýðs bjó hjá þeim í sjö ár. Þorsteinn er elstur á sama ári og Selma hrönn, þar á eftir koma Finnbogi, Sigurjón og yngstur er Ófeigur. Það var mikið fjör og hlegið dátt þegar Þorsteinn, Sigurjón og Ófeigur mættu heim til blaðamanns í spjall. Var öðruvísi og fékk að heyra það Þorsteinn og Finnbogi stunduðu sjóinn bæði með pabba sínum og á öðrum bátum. ,,Ég man eftir því þegar ég fór sem peyji með pabba í siglingu til Blackpool í Englandi. ,,Pabbi var þá hættur að drekka og kominn í AA samtökin. Þegar siglt var fengu menn 36
aukapening fyrir áfengi. Pabbi gaf mér sinn skammt sem lýsir honum vel,“ segir Þorsteinn sem bætir við með samþykki bræðra sinna að pabbi þeirra hafi alltaf viljað hjálpa þeim sem áttu undir högg að sækja. Hann hafi verið skipstjórinn á sjó og í landi með þeim kostum og göllum sem því fylgdi. Pabbi þeirra hafi verið þrjóskur og harður við sjálfan sig. ,,Pabbi fæddist með skarð í vör og klofinn góm, var öðruvísi og fékk að heyra það. Hann kom úr stórum systkinahópi af heimili þar sem oft var þröngt í búi. En hann lærði það af mömmu sinni að eygja alltaf von þrátt fyrir svart útlit,“ segir Þorsteinn og Sigurjón bætir við að pabbi þeirra hafi kennt þeim að taka öllum eins og þeir eru og allir eigi bræðurnir vini með einhverja fötlun. ,,Pabbi setti sjálfan sig nær aldrei í fyrsta sæti og vildi allt fyrir alla gera. Hann bauð sem dæmi Tóta á Kirkjubæ með sér í siglingu en Tóti hafði aldrei farið erlendis. Pabbi lét smíða þægilegan stól á stöng fyrir Tóta svo hann gæti setið og fylgst með úr brúnni á siglingunni,“ segir Sigurjón og Þorsteinn bætir við Pabbi þeirra hafi ekki talið það eftir sér að styðja bræður sína. Þegar Matthías bróðir hans fékk skólaleiða fékk hann að koma einn túr. Matti
var sjóveikur og þegar hann stóð ælandi við borðstokkinn, notaði pabbi tækifærið og spurði hvort hann væri alveg viss um að hann vildi hætta í skóla,“ segir Sigurjón. Þrátt fyrir fjórtán ára aldursmun eru systkinin fimm samrýmd en mikið reyndi á þau í löngu veikindastríði föður þeirra.
,,Pabbi gerði kröfur og þá sérstaklega þegar kom að textagerð og söng. Textinn átti að vera góður og þegar hann var sunginn áttu öll orð að heyrast skýrt. Eitt sinn kallaði pabbi Rúnar Þór tónlistarmann til sín kl. tvö um nótt til þess að syngja eitt orð aftur sem honum fannst ekki nógu skýrt hjá honum, “segir Þorsteinn.
,,Pabbi sem tileinkaði sér viðhorf móður sinnar kvartaði sjaldan. Þegar ég sagði við hann, hvenig líður þér pabbi minn svaraði hann ,,Ég er með þennan fína höfuðverk,“ segir Sigurjón og bætir við að pabbi sinn hafi slasast illa í aftankeyrslu og átt við þau meiðsl að stríða í mörg ár. Hann fékk sykursýki 29 ára, greindist með Addison sjúkdóm, fékk lungaþembu og fyrir níu árum fékk hann krabbamein og minnis- og taugasjúkdóm í kjölfar krabbameinsmeðferðarinnar. ,,Pabbi hvatti okkur í öllu sem við tókum okkur fyrir hendur. Þegar ég spurði pabba hvort ég mætti mynda ferlið í krabbameinsmeðferðinni sagði hann án umhugsunar já, að sjálfsögðu, þú tekur svo fínar myndir,“ segir Ófeigur.
Skipstjórinn gaf eftir á lokametrunum ,,Ég vissi að pabbi var alvarlega veikur þegar ég fékk að sprauta hann í fyrsta skiptið vegna sykursýkinnar. Þá sá ég að skipstjórinn var að láta undan,“ segir Sigurjón. Bræðurnir segja að pabbi þeirra hafi byrjað sem skipstjóri á Björgvin VE 72 sem var í eigu tengdaföður hans. ,,Afi lét pabba hafa tékkheftið eftir fyrsta túr og neitaði að taka við bæði bát og hefti aftur. Síðar varð pabbi skipstjóri á Árna í Görðum og Ófeigi 3, hann var farsæll skipstjóri,“ segir Sigurjón og Þorsteinn bætir við að pabbi þeirra hafi verið frumkvöðull í því að leggja reknet í kringum Vestmannaeyjar og síðar í kringum Grímsey og afrekað með því að verða aflahæsti skipstjórinn eitt árið. Þorsteinn segir að dugnaður hafi einkennt sjómennsku pabba hans. ,,Eitt sinn þegar pabbi var á Klakknum var hann að hengja upp fisk, flaka og spyrða. Lúlli sem var kokkur um dáðist að dugnaði pabba og færði honum einum kaffibolla. Aðrir um borð spurðu hverju þessu sætti og svaraði Lúlli um hæl að slíka þjónustu ættu ekki allir skilið. Bakkus spilaði stórt hlutverk í lífi Lýðs framan af en hann sagði skilið við hann árið 1974 ,,Við vorum heppnir með mömmu, Hörpu Sigurjónsdóttur. Hún er ofboðslega dugleg og kraftmikil kona sem ól upp fjóra vel virka stráka. Hún var úrræðagóð og þurfti að vera það á meðan pabbi drakk. Mamma og pabbi skildu, með nýjum manni eignaðist hún Dagmar Héðinsdóttur sem er með ódæmigerða einhverfu og það verkefni hefur mamma tæklað af mikilli þrautsegju,“ segir Þorsteinn og bræðurnir taka heilshugar undir það. ,,Pabbi var sáttur við sitt lífshlaup og lífsviljinn var sterkur. Þrátt fyrir að síðustu árin væru honum erfið hélt hann húmornum allt til loka. Pabbi sem kominn var í hjólastól hvarf frá okkur smátt og smátt. Hann mundi t.d. ekki lengur eftir tónlistinni sem hann hafði samið. En tónlist var hans líf og yndi. Hann spilaði á skemmtara og var mjög góður harmonikkuleikari,“ segir Sigurjón og Ófeigur bætir við að það hafi verið notalegt að sofna við tónlist pabba síns. Að sögn bræðranna gaf pabbi þeirra út sex plötur, Rosa gaman 1985 með Gauja Weihe?, Lómurinn lævís ´87, Logadans ´89, Lífið í lit ´92, Í lífsins ólgusjó 2008 og Nætureldar 2010
37 Lýður var liðtækur á skemmtara og harmóníku og gladdi marga með tónlistinni
pabba að gruna að stýrimaðurinn væri að skoða bókina hans. Hann samdi því níðvísu til hans, stýrimaðurinn sem ekki var mjög hagmæltur svaraði um hæl í bókina og kom þar með upp um sig,“ segir Sigurjón sem segir bræðurnir hafi heyrt að margir hafi haft gaman af þegar Lýður fór með vísur í talstöðinni. ,,Lögin hans pabba voru melódísk, hann samdi meðal annars lagið Börnin heim, sem Pálmi Gunnarsson, söng. Ég saknaði þess þegar pabbi var að hverfa frá okkur að geta ekki leitað til hans lengur og fengið ráðleggingar í textagerð,“ segir Þorsteinn sem bætir við að í samstarfi þeirra hafi hann yfirleitt samið lag og sungið en pabbi hans séð um textann. ,,Eitt sinn fann ég mig ekki í söngnum og fór í burtu í smá stund. Þegar ég kom til baka hafði pabbi sungið inn lagið og það small allt svona ljómandi vel saman. Pabbi hætti að syngja lögin sín sjálfur eftir að honum var bent á að það væri betra að láta aðra syngja þau. Ég var ekki sáttur við það og spurði pabba hvort honum finndist Megas góður söngvari. Honum fannst það ekki, sættist á það að hver hefði sinn stíl og fór að syngja aftur,“ segir Þorsteinn.
Lýður Ægisson, sjómaður og tónlistarmaður sem háði marga baráttuna í lífinu.
,,Nú ætla ég að plata þig uppúr sokkabuxunum“ ,,Pabbi var mikill sölumaður sem seldi plöturnar sínar sjálfur. Hann var með ákveðna söluræðu þar sem hann sagðist ætla að plata viðmælandann upp úr skónum. Þegar hann varð leiður á þessari byrjun ákvað hann að breyta til. Í næsta símtali svaraði kona og pabbi kemur með nýju ræðuna, ,,Góða kvöldið nú ætla ég að plata þig upp úr sokkabuxunum,“ konan skellti á og ekki seldi pabbi út á þessa ræðu,“ segir Sigurjón og Ófeigur bætir við oft hafi verið misbrestur á greiðslum fyrir plöturnar. Pabbi hans hafi þá innheimt skuldina í bundu máli með samviskuvísum sem hann sendi þeim sem ekki höfðu greitt. ,,Pabbi var með skemmtara í brúnni og samdi texta og vísur í þar til gerða bók. Eitt sinn fór 38
Ómetanlegt að hafa sungið með pabba ,,Það er okkur bræðrum ómetanlegt að hafi allir sungið með pabba jólalag eftir hann. Lagið setjum við alltaf inn á fésbókina fyrir hver jól. Þegar pabbi dó hafði ég samið þjóðhátíðarlag og hann var búinn að semja hluta af textanum. Nú er verið að taka það upp. Ég syng lagið, Þorsteinn raddar og Selma Hrönn kláraði textann hans pabba en samband Selmu og pabba var mjög gott,“ segir Sigurjón sem bætir við að Finnbogi bróðir þeirra sé mikill músíkant og áhugasvið hans liggi í teknó tónlist. Spurður um músík svarar Ófeigur því að hans áhugasvið liggi meira í ljósmyndum og leiklist. ,,Pabbi fór á kostum með leikfélagi Vestmannaeyja á sínum tíma og við höfum allir bræðurnir tekið þátt í uppfærslum hjá leikfélaginu í Eyjum,“ segir Sigurjón og undir það tekur Þorsteinn sem bætir við að músíkin sé þeim ekki einungis í blóð borin frá pabba þeirra heldur sé móðurættin einnig mjög músíkölsk. Viðtalið tók: Guðrún Erlingsdóttir gudrun.erlingsdottir@gmail.com
OKKAR HÆFNI – ÞINN HAGUR Egersund Ísland var stofnað árið 2004 og hefur síðan þá framleitt og þróað veiðarfæri og búnað til uppsjávarveiða. Egersund Ísland er hluti af Egersund Group sem stofnað var árið 1952. Egersund og dótturfyrirtæki þess eru leiðandi fyrirtæki á sviði framleiðslu og þróunar veiðarfæra.
www.egersund.is
íslandsbanki.is
Við óskum sjómönnum til hamingju með daginn
@islandsbanki
440 4000
Sjómannadagurinn
39
MINNING LÁTINNA Bergvin Oddsson F. 22.04.1943 - D. 22.09.2018
Bergvin Oddsson útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, oftast nefndur Beddi á Glófaxa fæddist 22.04.1943 á Neskaupsstað þar sem hann ólst upp ásamt fimm syskinum og bjó þar til ársins 1960. Hann lést í faðmi fjölskyldunnar í Reykjvaík 22.09.2018. Móðir Bergvins var Magnea Bergvinsdóttir f. 26.02.1917 og d.01.10.2001. Faðir Bergvins var Oddur A. Sigurjónsson f. 23.07.1911 og d.26.03.1983. Eftirlifandi eiginkona Bedda er María Friðriksdóttir fædd 01.03.1943. Börn þeirra eru Lúðvík kvæntur Þóru Gunnarsdóttir, Magnea kvænt Þorvarði Æ. Hjálmarssyni og Haraldur. Hann er einn af þessum stóru, sem í menntaskólann fóru og sneru þaðan valinkunnir andans menn“ sungu Stuðmenn í laginu Ofboðslega frægur. Beddi á Glófaxa hætti reyndar eftir fyrsta ár í Menntaskólanum á Akureyri og lét Guðmundi tvíburabróður sínum eftir að feta þá braut. Hugur Bedda leitaði á sjóinn, síðar í stýrimannaskólann og hann varð bara nokkuð frægur. 40
Fallinn er frá persóna sem auðgaði mannlífið í Vestmanneyjum á marga vegu, farsæll skipstjóri á eigin skipi til fjörtíu ára, léttur í lundu en þó með ákveðnar skoðanir. Hann vildi sækja fram í atvinnulífi og efla mannlíf. Þeir voru ófáir sem fengu sitt fyrsta tækifæri í sjómennsku hjá Bedda. Hjá honum var rými fyrir mistök, ábendingum var komið á framfæri og tækifæri gefið á ný, en hann vildi að vandað væri til verka. Beddi var bróðir mömmu, fjölskyldur þeirra systkina ásamt Hrafns bróður þeirra keyptu bátinn Glófaxa og ráku hann saman í tólf ár. Ég kynntist líka ágætlega fjölskylduföðurnum Bedda þar sem Halli yngri sonur hans er jafnaldri minn og æskuvinur. Heimili þeirra Bedda og Dúllu á Illugagötunni var ávallt opið og þar var Dúlla við stjórnvölinn, um það var enginn ágreiningur. Í æsku fékk ég ósjaldan að fara með á sjóinn þrátt fyrir mikla sjóveiki og að loknum grunnskóla hófum við Halli saman sjómannsferilinn á Glófaxa. Síðar fórum við frændur í stýrimannskólann og fyrsta tækifærið sem yfirstýrimaður og afleysingaskipstjóri gafst einmitt hjá Bedda. Þegar maður hugsar til baka þá sér maður hvað Beddi var merkilega nægjusamur með veraldlega hluti til eigin nota. Þegar litið er yfir ríflega fjörutíu ára útgerðarsögu Glófaxa þá koma einungis tveir bátar við sögu, fyrir utan litla Glófaxa sem hann keypti þegar hann hætti í atvinnumannadeild. Bátarnir báru eigendum gott vitni, snyrtilegir líkt og tíðkaðist hjá mörgum ættmennum og öryggi ávallt í fyrirrúmi. Þegar í land var komið þá var haldið í einfaldleikinn, útgerðarbíllinn varð
yfirleitt fyrir valinu til samgangna hvort sem það var útgerðarstúss eða bíltúr með Dúllu. Einungis fjórir útgerðarbílar á fjörutíu árum og þeim var yfirleitt fargað með eftirsjá þegar ljóst þótti að bifvélavirkjar myndu ekki sinna frekari viðgerðum. En þrátt fyrir mikla nægjusemi þá hafði Beddi þeim mun meiri ánægju að gefa frá sér og hafa líflegt í kringum sig. Óhætt að fullyrða að hann hafði að leiðarljósi málshættina: „Sælla er að gefa en þiggja“ og „Maður er manns gaman“. Það var lítið gefið eftir í sjósókn á Glófaxa, en ef tækifæri gafst þá var Beddi mættur í spjall við áhöfnina, tekið í spil og stundum gafst tími til að sletta úr klaufunum. Það var nefnilega pláss fyrir alla hjá honum, algjör óþarfi að skilja útundan. Orðin mannvinur og jafnaðarmaður koma fljótt upp í hugann, hann mátti bara ekkert aumt sjá, mikilvægt var að allir hefðu jöfn tækifæri, líka þeir sem minna máttu sína í tímabundnum erfiðleikum. Takk fyrir allt frændi, orðspor þitt lifir Hörður Sævaldsson
Bjarni Sighvatsson F. 02.12.1932 - D. 09.10.2018
Bjarni Sighvatsson fæddist í Vestmannaeyjum 2. desember 1932. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 9. október 2018. Bjarni ólst upp í Vestmannaeyjum. Hann lauk skipstjóra- og stýrimannsprófi 1954. Bjarni starfaði alla sína ævi við útgerð og fiskvinnslu í Vestmannaeyjum. Foreldrar Bjarna voru Guðmunda Torfadóttir, fædd í Hnífsdal 22.4.1905, d. 27.9.1983 og Sighvats Bjarnasonar, skipstjóra og útgerðarmanns, fæddur á Stokkseyri 27.10.1903, d. 15.11.1975. Bjarni var einn af 11 sytskinum. Bjarni giftist hinn 23.5.1953 Dóru Guðlaugsdóttur verslunareigandi frá Geysi. Dóra fæddist 29.12.1934 og lést 26.11.2007. Dóra var dóttir hjónana Sigurlaugu Jónsdóttir fædd í Hafnarfirði 28.01.1911, d. 22.09.1997 og Guðlaugs Gíslasonar alþingismanna fæddur í Stafnesi í Miðneshreppi 01.08.1908, d. 6.3.1992. Bjarni og Dóra eiga 5 börn. Sigurlaugu sem er gift Páli Sveinssyni, Guðmundu Áslaugu gift Viðari Elíassyni, Sighvat, kvæntur Ragnhildi S. Gottskálksdóttur, Ingibjörg Rannveig gift Halldóri Arnarssyni og Hinrik Örn sem er kvæntur Önnu Jónínu Sævarsdóttur. Símtalið er mér enn ógleymanlegt, þá nýkjörinn alþingismaður, Bjarni Sighvatsson í Vestmannaeyjum hringdi í mig og kvaðst vilja hitta mig sem fyrst. Ég minnist
þess hversu röddin var sterk og maðurinn hispurslaus og ákveðinn. Fundum okkar bar saman nokkru síðar á skrifstofu Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum og þar tókst með okkur vinátta og einstakur trúnaður sem varði til lokadags. Ég hringdi í vin minn Sigurgeir Kristjánsson hjá ESSÓ fyrir fundinn með Bjarna og bar undir hann erindið, hann sagði með sinni sérstöku rödd og hægð það skaðar þig ekki að hitta Bjarna hann er auðvitað íhald og tengdasonur Guðlaugs Gíslasonar fyrrverandi alþingismanns, en í pólitík er best að tala við sem flesta, þín staða batnar bara hér í Eyjum við að kynnast honum. Oft eftir þetta kom ég til Bjarna og Dóru á heimili þeirra og fannst mikið til um þau bæði og hversu góð þau voru mér. Við Bjarni áttum hjartalag saman áhugamenn um hagsmuni lands og þjóðar, skoðanir okkar féllu saman og svo var hann bóndi inn við hjartaræturnar. Hann ók oft með mig um Eyjuna sagði mér frá fólkinu og fræddi mig um sjómennskuna, sögu eyjanna og náttúruna. Stundum skruppum við saman í Þorlaugargerði hann hellti á könnuna og þá var eins og kominn væri annar strengur í Bjarna en í Þorlaugargerði rak hann búskap átti bæði sauðfé og hesta enda góður hestamaður. Þarna sat með mér bóndinn Bjarni Sighvatsson, útgerðarmaðurinn og skipstjórinn voru horfnir úr skapgerðinni, jafn heillandi og mér fannst þeir, en bóndinn Bjarni var ekta eins og ég þekkti sveitamenn besta. Hvergi fannst mér jafn gaman að hitta kjósendur mína eins og í Vestmannaeyjum þar var að vísu fylgi flokks míns ekki alltaf sterkt en fólkið tók manni vel og fundirnir voru harðir og þeir töluðu við okkur á sjómannamáli eða með tveimur hrútshornum ef þannig stóð í bælið þeirra. En svo áttu þeir í manni hvert bein þegar fundi lauk, ég tala nú ekki um ef maður hafði burði til að svara fullum hálsi. Bjarni Sighvatsson var sannur Eyjamaður
stór í sniðum orðhvatur ef honum rann í skap og skóf ekki utan af hlutunum, maður fann hvernig brimaði í sálinni og svo kom sólskin og sundin blá, einlægnin og væntumþykjan. Bjarni var velgjörðarmaður Vestmannaeyja hann vissi að á eyjunni sinni gat allt lokast vegna veðurs á augnabliki þar þurfti allt að vera til staðar til að bjarga mannslífum því var hann ötulasti velgjörðarmaður Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja og stóð fyrir fjársöfnunum til tækjakaupa og gaf sjálfur oft tæki og peninga. Bjarni bognaði aldrei þótt ellikerling væri farin að vinna á honum röddin var sterk til loka og ekki dró hann af sér í baráttunni fyrir heimabyggðina sína en hann hlaut að brotna í bylnum stóra síðast, þeir hraustu deyja líka. Ævintýrið um drenginn sem gerðist sjómaður fermingarárið sitt varð sigurganga, Bjarni var einn af bestu sonum Vestmannaeyja. Nú er Bjarni farinn á vit feðra sinna og þau Dóra fallast í faðma á ströndinni miklu. Hver ævi og saga, hvert alda bil fer eina samleið sem hrapandi straumur. -Eilífðin sjálf, hún er alein til. Vor eiginn tími er villa og draumur. E.Ben Blessuð sé minning Bjarna Sighvatssonar Guðni Ágústsson skrifaði
41
Berent Theodór Sveinsson F. 21.10.1926 - D. 29.07.2018
Berent Theodór Sveinsson loftskeytamaður fæddist 21. október 1926 í Sætúni og lést 29. júlí 2018. Foreldrar hans voru Sveinn Sigurhansson vélstjóri, múrari frá Stóru-Mörk u. Eyjafjöllum, f. 21. júní 1892, d. 6. desember 1963, og kona hans Sólrún Ingvarsdóttir húsfreyja frá Hellnahóli u. Eyjafjöllum, f. 9. október 1891, d. 21. ágúst 1974. Berent ólst upp með fjölskyldu sinni. Hann var með þeim í Sætúni við fæðingu, á Sunnuhvoli, í Stakkagerði-Eystra og Garðinum. Á unglingsárum vann hann meðal annars hjá Einari Sigurðssyni í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja. Hann gekk í Kvöldskóla iðnaðarmanna og nam þar í tvö ár. Þá fór hann á síldveiðar fyrir Norðurlandi með Knud Andersen frá Sólbakka á Metu VE-236. Um haustið lá leið hans í Héraðsskólann á Reykjum í Hrútafirði. Þar lauk hann 2. bekkjar prófi, settist síðan í 3. bekk Gagnfræðaskólans í Eyjum og lauk þar gagnfræðaprófi 1945. Berent fór síðan í Loftskeytaskólann. Að honum loknum fór hann til sjós á togaranum Helgafelli (áður Surprise) og var á honum 19461947, en þá var skipinu lagt. Leiðin lá í flugþjónustu í Gufunesi 1947-49 og síðan í flugnám hjá flugskólanum Cumulus. Eigendur hans voru Jóhannes R. 42
Snorrason (1917-2006), Magnús Guðmundsson (1916-2014) og Smári Karlsson (1923-2014). Hann tók sólóprófið þann 13. ágúst 1947, en efni og aðstæður réðu því, að hann tók aldrei einkaflugmannsprófið, þó að námi væri nær fullnægt. Berent fór þá aftur til sjós og nú á Elliðaey VE-10 og var loftskeytamaður á henni, uns togarinn var seldur til Hafnarfjarðar 1953, þá nefndur Ágúst. Þau Laufey fluttust þá til Reykjavíkur og réðst Berent í afleysingar hjá Eimskip 1953-1958, en vann þess á milli hjá Skipadeild Radíoverkstæðis Landsímans. Þá fékk hann þjálfun á radíoverkstæði Ólafs Jónssonar og Sigurbjarnar Ólafssonar að Ránargötu 10. Var starfið meðal annars að gera við dýptarmæla og önnur tæki um borð í skipum. Eftir námskeið í radartækni hjá Sperry Gyroscope í New York 1957 réðst Berent til Landhelgisgæslunnar, á loftskeytastöðina TFB og þar vann hann til starfsloka 1996. Hann fór til US Coast Guard í Groton, Connecticut 1962 og tók þar Loran C-skólann. Berent var yfirloftskeytamaður Landhelgisgæslunnar 1954-1963. Þegar Óðinn (TFRA) og Týr (TFGA) voru byggðir í Danmörku 1960 og 1975 var hann í Danmörku hjá skipasmíðastöðvunum og sá um niðursetningu loftskeyta- og siglingatækja skipanna. Þá var hann fulltrúi Gæslunnar og hafði umsjón og eftirlit með breytingum á Óðni í Danmörku 1975. Berent lét sér málefni Vestmannaeyja sig mikið varða og stóð fyrir því að koma fallbyssunni og víraklippum til Eyja sem nú eru á pllinum við Safnahúsið.
Victor Friðþjófur Guðnason F. 06.06.1965 - D. 06.09.2018
Victor Friðþjófur Guðnason fæddist 6. júní 1965 í Vestmannaeyjum. Hann lést að heimili sínu að Búastaðabraut 8 þann 6. september síðastliðinn. Foreldrar Victors voru einnig frá Vestmannaeyjum en þau voru Ágústa Guðmundsdóttir frá Saltabergi, verslunarmaður og Guðni Friðþjófur Pálson frá Þingholti, matsveinn. Victor ólst upp í Vestmannaeyjum, Hann fór í Barnaskóla Vestmannaeyja og að honum loknum í Gagnfræðaskólann. Að loknu námi stundaði hann sjómennsku og fór síðan í Stýrimannaskóla Vestmanneyja og starfaði við sjómennsku til ársins 2004. Árið 2003 hófu Victor og Hulda Sumarliðadóttir, f.7.1. 1971, sambúð í Vestmannaeyjum að Búastaðabraut 8. Þau slitu samvistum og börn þeirra eru Guðni Friðþjófur, Halldór Páll, Kristinn Freyr og Tómas Ingi. Sonur Huldu er Róbert Emil. Þann 6. september síðastliðinn lést elskulegur bróðir minn Victor. Victor var dásamlegur og gott að alast upp með honum og mikil forréttindi fyrir okkur að alast upp í Vestmannaeyjum sem krakkar. Sem ungabarn var hann auðvitað algjör gullmoli og fallegur. Sem unglingur var hann ærslafullur og hafði gaman af lífinu. Góður í fótbolta og öllum þeim íþróttum
sem hann tók sér fyrir. Flottasta tímabilið hans var Bruce Lee og karate tímabilið. Stundum hélt ég að hann ætlaði ekki að hætta að vera unglingur ásamt nokkrum öðrum frændum sínum en það breyttist allt þegar hann hitti Huldu barnsmóður sína árið 2002. Loksins orðinn fullorðinn og með henni eignaðist hann 4 sólargeisla,Guðna, Halldór Pál, Kristinn Frey og Tómas Inga. Hófu þau fljótlega sambúð á Búastaðabraut 8. Victor stundaði og elskaði sjómennsku. Kláraði Stýrimannaskólann í Vestmannaeyjum og var síðan lengstum á sjó með frændum sínum á Huginn og Berg. Þar átti hann dásamlegan tíma og skemmtileg ár. Það var alltaf gaman að spjalla við hann um sjómennskuna og allt snérist þetta um góðan aðbúnað og flottar græjur. Sjálfur þekkti ég ágætlega til og var síðan með honum eina stutta vertíð á Huginn og mikið spjallað. Samhliða þessu samtvinnaðist síðan úteyjalífið sem var lundaveiði og eggjataka í Bjarnarey. Við byrjuðum saman sem unglingar með afa Súlla á Saltabergi og síðan komu aðrir góðir félagar með okkur í Bjarnarey. Vestmannaeyjar og umhverfið þar, er ævintýraland, náttúruundur og Bjarnarey toppurinn að hans mati. Kvöldkyrrðin og ómurinn í berginu. Margar ævintýraferðir á tuðrunni í misgóðum veðrum út í Bjarnarey og skemmtilegar veiðiferðir og kvöldvökur. Árið 2005 varð Victor að segja skilið við sjómennskuna vegna slæms heilsufars. Bakið var orðið slæmt og illa farið eftir mikil átök. Það lagðist mjög þungt á hann að geta ekki unnið fullann vinnudag og hvað þá að þurfa að hætta á sjó. En þá komu sólargeislarnir inn í líf hans með stuttu millibili og allt snerist um þá. Það eru svo ævintýralega stórir og miklir hlutir sem hann gerði fyrir þá, ÍBV og Þjóðhátíðin. Jólin,áramótin og þrettándagleðin og svo allar ferðirnar út Bjarnarey og siglingar við Vestmannaeyjar og ferðirnar
upp á land. Það átti að kenna þeim réttu handtökin og leyfa þeim að upplifa náttúruna eins og Victor þekkti hana best. Victor var alltaf boðinn og búinn til að hjálpa öðrum og var mjög handlaginn. Hann dreymdi um að verða smiður þegar hann var yngri og þau handtök voru aldrei honum ókunn. Síðustu árin bjó móðir okkar og Ólafur bróðir hjá honum eftir að þau misstu húsið sitt í miklu fárviðri 2015. Victor sigldi ekki alltaf lygnan sjó í lífinu og þurfti að takast á við nokkra brotsjói. Ég fékk að fylgjast með og taka þátt í þeim raunum enda vorum við mjög nánir. Stundum áttum við mikið spjall og mörg símtöl sama daginn. Síðasta ár var kominn mikill hugur í Victor og nokkur framtíðaráform sem unnið var að hörðum höndum. Heilsan var betri og það var bjart framundan og tilhlökkun, og næsta sumar átti að taka með stæl eins og margt annað sem hann tók sér fyrir hendur ásamt vinum og strákunum sínum. Það kom eins og þruma úr heiðskýru lofti eða skyndilegur brotsjór að fá þær fréttir að Victor væri fallinn frá, fátt sem benti til þess nema einstaka þreytuverkir eftir vinnu síðustu daga hans. Útför Victors fór fram í Landakirkju í Vestmanneyjum laugardaginn 22 september í góðum vinahóp og dásamlega fallegri athöfn. Hvíl í friði elsku vinur og bróðir. Hlöðver Guðnason.
Jón Halldórsson F. 14.06.1950 - D. 21.04.2018
Jón Halldórsson fæddist á Eyrarbakka 14. júní 1950. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi á páskadag 21. apríl 2019. Foreldrar Jóns voru Valgerður Jóna Pálsdóttir, f. 05.05.1926, d. 26.10.2006 og Halldór Jónsson, f. 30.09.1927, d. 16.07.2005. Jón kvæntist Svönu Pétursdóttur og börn þeirra eru Guðríður, gift Kolbeini Agnarssyni, Valgerður Jóna, gift Viktori Ragnarssyni og Svandís, sambýlismaður hennar er Hlynur Rafn Guðjónsson. Jón ólst upp á Eyrarbakka, byrjaði ungur til sjós og lauk vélastjórnaraprófi. Réri fyrst frá Eyrarbakka og síðar frá Vestmannaeyjum. Jón og Svana byrjuðu að búa á Eyrarbakka árið 1971 og flytja til Vestmannaeyja sumarið 1972. Í Vestmannaeyjum hafa þau búið alla tíð að undanskildu þeim tíma sem gosið á Heimaey varði. Árið 1990 fór Jón að vinna í landi sem útgerðstjóri og reddari hjá Bylgju Ve 75 sem er í eigu frænda hans og vann hann þar allt til síðasta dags. Jón var félagi í Oddfellowreglunni. Svo lengi sem ég man eftir hef ég vitað af frænda mínum Jóni Halldórssyni en í um 50 ár höfum við verið tengdir nánum fjölskylduböndum þar sem eiginkonur okkar eru systur. Ég hef því alltaf vitað hversu vandaður maður Jón var. Hann var einstaklega ljúfur í viðmóti og úrræðagóður. Það lék allt í höndunum á honum, hvort sem það voru rafmagn, vélar, tölvur, fjörugrjót eða íslenskt birki. Hann var stór og sterkbyggður og það voru fáir sem stóðust honum snúning ef tekist var á krók í nettri kraftakeppni. Það var svo fyrir um 30 árum að Jón fór að vinna fyrir útgerð okkar og óhætt er að segja að það hafi verið mikið gæfuspor fyrir útgerðina að ráða Jón í vinnu. Hann vann hjá útgerðinni sem vélstjóri, útgerðastjóri og við netavinnu. Einnig kom hann að saltfiskvinnslu í upphafi starfsferils hans hjá okkur. Ekkert verkefni var 43
of erfitt eða of flókið þegar Jón var annars vegar. Hann nálgaðist öll verkefni með opnum huga og leitaði alltaf að lausnum og uppgjöf var ekki til í hans huga. Þegar núverandi skip útgerðarinnar var nýtt fór Jón með í fyrstu túrana sem vélstjóri. Eins og oft vill verða þegar um ný skip er að ræða koma upp ýmis vandamál en í huga Jóns voru það bara verkefni sem þurfti að leysa. Áhafnarmeðlimir höfðu á orði hvað það væri gott að leita til Jóns varðandi úrlausn allra mála og ennfremur hafði Jón frumkvæði að því að gera alla vinnuaðstöðu sem besta. Ávallt er Bylgja VE-75 kom til löndunar var Jón okkar mættur um borð reiðubúinn að miðla af þekkingu sinni og reynslu varðandi allt það sem þurfti að gera og lagfæra. Fjölskyldur okkar tengdust mikið og ferðuðumst við meðal annars saman bæði innanlands og utan og var Jón góður ferðafélagi og alltaf hægt að treysta á ratvísi hans, svo gott áttaskyn hafði hann. Hann stærsta gæfa í lífinu var eiginkonan og fjölskyldan sem stóð alltaf þétt saman. Hann var einstaklega barngóður og hafði mikla þolimæði gagnvart börnum og var alltaf til í smá leik með þeim. Það er með innilegu þakklæti sem við minnumst Jóns, við erum þakklát fyrir að hafa notið samvista við hann og fyrir starfskrafta hans í þágu útgerðarinnar. Nú er komið að kveðjustund viljum við votta Svönu, dætrum og fjölskyldu okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd útgerðar Bylgju VE-75 Matthías Óskarsson.
44
Jóhann Runólfsson F. 16.10.1944 - D. 18.05.2018
Jóhann Runólfsson fæddist í Vestmannaeyjum 16. október 1944. Hann lést á líknardeild Landspítalans 18. maí 2018. Jóhann var yngstur fimm barna Runólfs Jóhannssonar (18981969) skipasmiðs og Kristínar Skaftadóttur (1906-1992) húsmóður. Systur Jóhanns eru Rebekka, f. 1925, d. 1976,, Guðrún Gréta f. 1928 , d. 2014 , Guðlaug Kristín f. 1932 og Þóra f. 1938, d. 1984. Uppseldissystkini hans voru Kristján f. 1948 og Erna f. 1952, börn Rebekku elstu systur hans. Runólfur og Kristín byggðu stórt og myndarlegt hús í hjarta bæjarins að Hilmisgötu 7 í Eyjum um 1930. Í stórri fjölskyldu var mikið líf og ekki síst þegar barnabörn þeirra systkina bættust í hópinn. Jóhann og sá sem þetta ritar eru systrasynir og á sama aldri. Húslóðir Hilmisgötu 7 og Vestmannabrautar 25 þar sem fjölskylda mín bjó lágu saman að hluta. Var því mikill samgangur þegar við vorum að alast upp. Á okkar uppvaxtarárum var lífið einfaldara en í dag og sama gilti um áhugamálin. Stakkagerðistúnið var helsti leikvöllur krakkanna. Athafnasvæði margra stráka var ekki síður bryggjurnar, slipparnir og að sigla heimasmíðuðum bátum í sandfjörinni inn af Friðarhöfninni þar síðar kom bátalægið, meðfram Botninum , þar sem Binnabryggja önnur hafnarmannvirki komu síðar. Unglingsárin liðu og Jóhann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum í Eyjum 1961. Skömmu síðar hóf hann
störf í Útvegsbankanum í Eyjum og vann þar til 1964. Líf og starfsumhverfi Runólfs föður Jóhanns og fjölskyldunnar snérist mikið um sjávarútveg eins og algenkt var á þeim tíma. Runólfur hafði verði formaður á bátum, yfirsmiður við skipasmíði í Eyjum, skipaeftirlit og fleiri tilfallandi störf. Jóhann var því á heimavelli þegar hann tók ákvörðun að verða sjómaður og hyggja síðan á nám í skipstjórn. Jóhann lauk námi í Stýrimannaskólanum í Vestmannaeyjum sem var tveggja ára nám , vorið 1972. Ég átti þess kost við þessa samantekt að fá upplýsingar úr sjóferðabók Jóhanns, en ég vissi hann að hann hafði verið á ýmsum Eyjabátum fram að eldgosinu 1973. Jóhann hóf sjómennsku 1961 á Tjaldi Ve. 291 og frá 1965 var hann á velbátunum Sæfaxa Ve. 25, Gylfa Ve. 201, Ingiber Ólafssyni GK 35, Sigurði SI 90, Kóp Ve. 11, Hrauney Ve 80, Gjafar Ve. 300 , Ísleifi ll Ve. 36 , Metu Ve. 236 og loks Hrönn Ve. 366 hjá Herði Jónssyni skipstjóra (á Andvara) Jóhann var lengst af háseti á þessum bátum og einnig í afleysingum ekki síst meðan hann var í námi í Stýrimannaskólanum. Jóhann flutti upp á land gosinu 1973 og stundaði sjómennsku þar fyrstu árin á eftir. Réði sig að því loknu í Landsbankanum í Reykjavík og vann þar ýmis bankastörf þar til hann fór á eftirlaun 2008. Jóhann kvæntist 1982 eftirlifandi eiginkonu sinni Bergþóru S. Þorsteinsdóttur sérkennara. Uppeldissonur Jóhanns og sonur Bergþóru er Þorsteinn Kristjáns Jóhannsson framhaldsskólakennari f. 1970. Jóhanni var margt til lista lagt , var gott skáld og eftir hann liggja margar vísur og hann teiknaði mikið ekki síst báta og skip. Jóhann var mjög bókhneigður þar sem þjóðlegur fróðleikur og færeyskar bókmenntir voru hans uppáhald. Útför Jóhann fór fram í kyrrþey að hans ósk, 30. maí 2018 frá Guðríðarkirkju í Reykjavík. Guð blessi minningu Jóhanns Runólfssonar. Arnar Sigurmundsson
Sigurgeir Jóhannsson F. 14.05.1927 - D. 11.06.2018
Sigurgeir Jóhannsson fæddist í Vestmannaeyjum 14.maí 1927 og lést á heimili sínu Fannborg 8 þann 11. júní 2018. Sigurgeir var fyrsta barn forelda sinna, Kristínar Guðmundsdóttur og Jóhanns Stígs Þorsteinssonar. Systur hans eru Ásdís Jóhannsdóttir og Fríða Dóra Jóhannsdóttir. Eiginkona Sigurgeirs var Sigríður Guðmundsdóttir (Besta) fædd 25.ágúst 1931, hún lést 14.október 2008. Börn þeirra eru Ólafur Sævar (Látinn 1995) maki Auður Tryggvadóttir, Kristín maki Unnsteinn Jónsson og Sigrún Lóa, maki Steinar Ó. Stephensen. Sigurgeir ólst upp í faðmi Eyjanna, á Urðarvegi. Hans leikvöllur var náttúran og höfnin. Sigurgeir byrjaði ungur að vinna, á sínum unglingsárum vann hann m.a. sem sendill í verslun í Vestmannaeyjum. Síðan lærði Sigurgeir húsasmíði hjá Gvendi Bö. Á hernámsárunum vann Sigurgeir hjá hernum í Hvalfirði. Hann heillaðist þar að flugvélum og flugi. Hugur hans stefndi líka að flugnámi. Sá draumur fjaraði út eftir að góður vinur hans Ólafur lézt í flugslysi. Sigurgeir fór síðan að læra brytann og lærði m.a á Hótel HB í Vestmannaeyjum. Hann starfaði sem bryti á skipum og lengst af á Leó Ve 400. Siggi var forstöðumaður matsveinaskóla í Vestmannaeyjum og útskrifaði þaðan nokkra matreiðslumenn. Hann tók að sér rekstur matstofu Ísfélags Vestmannaeyja um 1970. Þar matreiddi hann fyrir vertíðarfólk, allt að 100 manns
daglega, hádegis- og kvöldmat. Hann var bryti á Herjólfi til 1989 og matreiðslumaður á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi eftir að þau fluttu til Hafnarfjarðar. Besta fékk stöðu dómritara við Hérðasdóm Reykjaness. Sigurgeir kynntist Bestu sinni á Kolviðarhóli. Þar var hann að vinna sem bryti og Besta á skíðum með vinkonum sínum. Þar blossaði upp ástin á milli þeirra. Þau giftu sig í Reykjavík 1951 Ákváðu þau að byggja sér bú í Vestmannaeyjum á Austurvegi. Sigurgeir gerði út lítinn bát með með föður sínum fyrstu búskaparárin og fyrsta barn þeirra Bestu fæddist 1952, Ólafur Sævar. Draumurinn var að byggja sér hús og stækka fjölskylduna. Sigurgeir teiknaði húsið sitt sjálfur og fengu þau lóð að Boðaslóð 19. Siggi og Besta fluttu inn í Boðaslóðina 1956 þá var aðeins kjallarinn tilbúinn og ekkert rennandi vatn til staðar eða hiti. Rigningavatni var safnað saman í brunni úti í garði og sótt þangað jafnt sumar sem vetur. Sængur barnanna voru hitaðar við lítinn rafmagnsofn fyrir svefninn. Kristín fæðist síðan 1957. Smám saman reis upp fallega húsið þeirra á Boðaslóðinni og 1961 var flutt upp á efri hæðina. Sigurgeir var þá farinn að vinna sem kokkur á aflaskipinu Leó VE 400, það var uppgangstíð í Vestmannaeyjum. Leó sigldi með afla til Hull, Grimsby og Þýskalands og kom Siggi með ýmsan varning þaðan, falleg föt á börnin og ýmsa matvöru. Eitt sumarið sigldi Besta með Sigga á Leó þar sem vantaði enskumælandi aðila með og Óli fékk líka að fara í eina ferð.
Þegar Besta veikist 1999 þá urðu straumhvörf í lífi Sigurgeirs, það reyndi mikið á, en aldrei lét hann á því bera. Hann hugsaði vel um Bestu sína og börnin gleyma aldrei þeirri hjálpsemi sem hann sýndi henni. Þá fluttu þau úr húsinu sínu í Túnhvamminum í minni íbúð í Funalindi í Kópavogi og síðan í Fannborg 8 sem varð þeirra síðasta heimili. Sigurgeir var þrautseigur, hörku duglegur og hæfileikaríkur. Hann bjó einn eftir að Besta kvaddi og var duglegur að bjarga sér sjálfur allt til hins síðasta. Hann bar ekki tilfinningar sínar á borð, en var ávallt elskulegur, hjálpsamur og glaðlegur. Sigurgeir starfaði í mörg ár Í Kiwanis klúbbi Vestmannaeyja og í Sjómannadagsráði Reykjavíkur til dauðadags. Kristín og Sigrún Lóa
Áhugamál Sigurgeirs voru mörg, hann var handlaginn og gerði ýmis listaverk, strax ungur að árum. Tálgaði út og málaði fjöldan allan af fallegum olíumálverkum, sérstaklega eftir að hann hætti að vinna um 70 ára. Hann hélt málverkasýningu á verkum sínum í Vestmannaeyjum árið 2008. 45
HVAร SEGJA SJร MANNSKONURNAR ?
Nafn og fjรถlskylda: Marรญa Erna Jรณhannsdรณttir, Finnur Freyr Harรฐarson, Leรณ Snรฆr Finnsson og Breki Freyr Finnsson
Nafn og fjรถlskylda: Ingibjรถrg ร sk ร รณrรฐardรณttir, maki Hlynur ร gรบstsson, Bรถrn Kรกri Snรฆr og ร รณrรฐur ร gรบst
Hvar kynntust รพiรฐ? Viรฐ Finnur kynntumst รก slรกturvertiรฐ รก Hornafirรฐi รกriรฐ 1998. Hvernig leist รพรฉr รก aรฐ bรบa meรฐ sjรณmanni? Hann var รญ pรกsu รก sjรณnum รพegar viรฐ kynntumst, svo aรฐ รฉg hafรฐi ekkert pรฆlt รญ รพvรญ hvernig รพaรฐ vรฆri aรฐ bรบa meรฐ sjรณmanni. Engir sjรณmenn รญ minni รฆtt รก รพessum tรญma.
Hvar kynntust รพiรฐ? ร Sundlaug Vm fyrir 18 รกrum.
Var รพaรฐ erfiรฐara en รพรบ bjรณst viรฐ? jรก รพaรฐ er mun erfiรฐara en รฉg bjรณst viรฐ aรฐ bรบa meรฐ og eiga sjรณmann.
Var รพaรฐ erfiรฐara en รพรบ bjรณst viรฐ? Nei
Helstu kostir viรฐ รพaรฐ aรฐ bรบa meรฐ sjรณmanni? ร tli รพaรฐ sรฉu ekki bara tekjurnar sem er stรฆrsti kosturinn. En lรญka frรญin sem koma รก milli ๐ Helstu รณkostir viรฐ aรฐ bรบa meรฐ sjรณmanni? Stรฆrsti รณkosturinn er fjรฆrveran og maรฐur er oft hrรฆddur um hann รญ vondu veรฐri. Hvert er viรฐhorf barnanna til รพess aรฐ eiga pabba รก sjรณ? Strรกkarnir eru bara vanir รพvรญ รพekkja ekkert annaรฐ, vita aรฐ pabbi er รญ vinnuni. En รพeir sakna hans alltaf. 46
Hvernig leist รพรฉr รก aรฐ bรบa meรฐ sjรณmanni? Hann var bara unglingur รพegar viรฐ byrjum saman og ekkert รก leiรฐinni aรฐ fara รก sjรณ รพรก. En รพegar hann byrjaรฐi aรฐ vinna รก sjรณ fyrir 8รกrum sรญรฐan รพรก leist mรฉr bara mjรถg vel รก รพaรฐ og finnst รพaรฐ enn.
Helstu kostir viรฐ รพaรฐ aรฐ bรบa meรฐ sjรณmanni? Fjarlรฆgรฐin gerir fjรถllin blรก er fรญnasta samlรญking. Helstu รณkostir viรฐ aรฐ bรบa meรฐ sjรณmanni? Hrikalega leiรฐinlegt ef hann er aรฐ missa af einhverju รบr lรญfi stรกkanna og stoppin รก milli landanna mรฆttu alveg vera lengri, sรฉrstaklega ef landaรฐ er รก morgnanna og allir eru รญ skรณla eรฐa vinnu รก heimilnu รพรก hittumst viรฐ kannski bara รญ nokkrar mรญn. Hvert er viรฐhorf barnanna til รพess aรฐ eiga pabba รก sjรณ? ร eir รพekkja ekkert annaรฐ og eru stundum leiรฐir ef รพaรฐ er rรณiรฐ stรญft. Annars eru รพeir bara glaรฐir meรฐ รพetta og alltaf gaman aรฐ fara sรฆkja pabba รก bryggjuna.
Nafn og fjĂślskylda: Sif SigtryggsdĂłttir og Snorri Þór Guðmundsson Hvar kynntust Ăžið? Kynntumst Ă ReykjavĂk Hvernig leist ÞÊr ĂĄ að bĂşa með sjĂłmanni? Snorri var að vinna sem sendibĂlstjĂłri Ăžegar við kynntumst. Hann hafði lent Ă slysi Ăşt ĂĄ sjĂł og tĂłk ĂžvĂ hlĂŠ ĂĄ sjĂłmennsku Ă nokkur ĂĄr. Ég giftist sendibĂlstjĂłra sem var Ă rauninni sjĂłmaður Ă húð og hĂĄr, frĂĄ ĂžvĂ að hann var 7 ĂĄra gamall en Snorri fĂłr með pabba sĂnum, sem ĂĄtti trillu, ĂĄ sjĂł ĂĄ hverju sumri til unglings aldurs ĂĄ Ăžingeyri Ăžar sem hann er fĂŚddur og bjĂł til unglings aldurs. Ă? hruninu var lĂtið að gera hjĂĄ sendibĂlstjĂłrum og ĂžvĂ ĂĄkvað Snorri að fara aftur ĂĄ sjĂł. Tengingin við Vestmannaeyjar byrjaði Ăžar, ĂžvĂ Snorri fĂŠkk plĂĄss hjĂĄ LeĂł Ă“skarssyni, sem hĂŚtti sĂðan Ăştgerð. Snorri fĂŠkk Þå plĂĄss hjĂĄ Ăštgerð Bergs Hugins og hefur verið Ăžar Ă tĂŚp 10 ĂĄr. Var Ăžað erfiðara en Þú bjĂłst við? Ăžetta var mĂŠr mjĂśg svo framandi að hugsa um manninn minn Ăşti ĂĄ sjĂł. Ég viðurkenni alveg að Ăžau hafa fallið allmĂśrg tĂĄrin við að kveðja Snorra Ăžegar hann fer ĂĄ sjĂł, sĂŠrstaklega Ăžegar veðrið er leiðinlegt. En ĂŠg er rĂk af tilfinningum og gleðst mikið Ăžegar hann kemur heim af sjĂłnum. Ă stÌðan fyrir ĂžvĂ að við fluttum til Vestmannaeyja fyrir 9 ĂĄrum sĂðan er að ĂŠg gat ekki hugsað mĂŠr annað en að Snorri gĂŚti komið beint heim til sĂn Ăžegar hann kĂŚmi Ă land sem er yfirleitt einn sĂłlahringur ĂĄ viku. Hugsunin var að prĂłfa Ă eitt ĂĄr, en Ăžað tĂłk bara 9 mĂĄnuði fyrir okkur að kaupa hĂşsið okkar, Ăžar sem við bĂşum ennÞå tĂŚpum 9 ĂĄrum sĂðar. Helstu kostir við Ăžað að bĂşa með sjĂłmanni? Hellstu kostir Ăžess að bĂşa með sjĂłmanni er að hlakka alltaf til að fĂĄ manninn sinn heim. Helstu Ăłkostir við að bĂşa með sjĂłmanni? Ăžað sem er erfiðast við að bĂşa með sjĂłmanni er Ăžegar veðrið er leiðinlegt og hann Ăşti ĂĄ sjĂł. Ăžað tekur ĂĄ taugarnar.
Nafn og fjĂślskylda: Ă sa og Simmi, við eigum 3 bĂśrn KristĂnu RĂłs 19 ĂĄra, Sigurlaug 16 ĂĄra og Ingibergur 7 ĂĄra. Hvar kynntust Ăžið? Ă balli fyrir rĂşmlega 25 ĂĄrum sĂðan Hvernig leist ÞÊr ĂĄ að bĂşa með sjĂłmanni? Ég byrjaði að bĂşa með bakara en giftist sjĂłmanni. SĂş breyting var ansi mikil ĂĄ Ăžeim tĂma og Ăžað var skrĂ˝tið og erfitt auðvitað.. Var Ăžað erfiðara en Þú bjĂłst við? JĂĄ Ăžað var Ăžað, en erum með góða aðstoð frĂĄ fjĂślskyldu og vinum sem eru alltaf til taks ef Ăžess Ăžarf.Ég er lĂka heppin nĂşna að vinna sjĂĄlf hjĂĄ VSV sem er tillitssamt og skilningsrĂkt ĂĄ hlutverki sjĂłmannskonunnar sem Ăžarf að sinna hlutverki beggja foreldra Ă daglegu lĂfi, Ăžað er Ăłmetanlegt. Helstu kostir við Ăžað að bĂşa með sjĂłmanni? MĂŠr finnst alltaf jafn skemmtilegt Ăžegar hann er að koma heim og spenningurinn sem fylgir ĂžvĂ. Ăžað gefst lĂka mun minni tĂmi à óÞarfa rĂśfl og tuð Ăžegar hann er ĂĄ sjĂł en ekki heima đ&#x;˜‰. Við reynum að njĂłta Ăžess að vera saman og eiga góðar stundir með fjĂślskyldunni og vinum Ăžegar hann er heima. Helstu Ăłkostir við að bĂşa með sjĂłmanni? Fjarvistirnar eru alltaf erfiðar, lĂka Ăžegar Ăžað eru veikindi hjĂĄ bĂśrnum eða Üðrum fjĂślskyldumeðlimum. Vond veður eru heldur ekkert skemmtileg en sem betur fer treystir maður skipstjĂłranum og ĂĄhĂśfninni 100% og veit að Ăžar er skynsemin lĂĄtin råða fĂśr. Hvert er viðhorf barnanna til Ăžess að eiga pabba ĂĄ sjĂł?Ăžað getur stundum verið erfitt að eiga pabba ĂĄ sjĂł en Ăžað er alltaf jafn gaman Ăžegar hann kemur Ă land og stjanar við mann eins og drottningu allan sĂłlahringinn. Ăžegar við vorum yngri var mjĂśg leiðinlegt Ăžegar hann missti af viðburðum Ă skĂłlanum og ĂĂžrĂłttunum. En ĂĄ sama tĂma kann maður mun betur að meta ÞÌr stundir sem fjĂślskyldan getur verið Ăśll saman. (Sigurlaug og KristĂn RĂłs) Ăžað er stundum leiðinlegt að pabbi sĂŠ ĂĄ sjĂł, en hann er alltaf að gera eitthvað skemmtilegt með mĂŠr Ăžegar hann er heima og Ăžað er gaman (Ingibergur) 47
HALLDÓR BJÖRGVINSSON HEFUR FENGIÐ AÐ REYNA MARGT Í LÍFINU OFT BOGNAÐ EN ALDREI BROTNAÐ OG ER SÁTTUR Í DAG:
ENGINN VERÐUR ÓBARINN BISKUP EN EINHVER MÁ MILLIVEGURINN VERA ÞAÐ SEGIR HALLDÓR UM OFBELDI SEM HANN VARÐ FYRIR SEM KRAKKI - LÆRÐI HVERNIG EKKI Á AÐ GERA HLUTINA. ÞAÐ ER KOSTURINN VIÐ ÞETTA. MAÐUR FÉKK EKKI BARA TÓMT VÆL ÚT ÚR ÞESSU
Halldór Björgvinsson, sjómaður hefur marga fjöruna sopið bæði á sjó og í eigin lífi sem ekki hefur alltaf verið auðvelt. Hann átti erfiða æsku, ánetjaðist Bakkusi og öðrum efnum en náði að rétta kúrsinn. Tókst reyndar ekki í fyrstu eða annarri atrennu en hafðist og nú hefur náð sinni friðarhöfn. En slagurinn við lífið og tilveruna var þar með ekki lokið því á síðasta ári bankaði krabbinn upp á. Var viss um að hann ætti ekki langt eftir en Halldór gaf lítið fyrir það, sló upp bílskúr og dreif sig á sjóinn þar sem hann er enn. Saga Halldórs er á margan hátt sérstök en hún kennir líka, að þó útlitið sé svart er staðan aldrei vonlaus og oftar en ekki þarf að horfast í augu við eigin djöfla áður en birta tekur. Þá lexíu lærði Halldór og nýtur þess í dag að eiga fjölskyldu og afkomendur sem mega vera stolt af sínum manni þó stundum hafi pusað á hann meira en í góðu meðallagi. Ber þess merki að ekki hefur lífið alltaf verið honum hagstætt en sjálfur er hann ekki að velta sér upp úr því. Halldór Björgvinsson er fæddur í Reykjavík 1955 en ólst svo upp út um allt eins og hann segir sjálfur. „Mamma og pabbi skildu fljótlega eftir að ég kom í heiminn og mamma gerðist
48
49
ráðskona sem var tómur þvælingur. Í bæjum og sveitum um allt landið. Sjálfur var ég notaður sem vinnuþræll í sveit frá því ég var tíu ára fram að fimmtán ára. Barinn áfram með skóflu, spítum og öðru tilfallandi þegar verst lét. Sagt er að enginn verði óbarinn biskup en einhver má millivegurinn vera,“ segir Halldór. Var þetta hreint og klárt ofbeldi? „Já.“ Var svarið. „Maður lærði vel og vandlega hvernig ekki á að gera hlutina. Það er kosturinn við þetta. Maður fékk ekki bara tómt væl út úr þessu.“ Byrjaði snemma í óreglu Hefur þetta haft áhrif á þig og þitt líf? „Ég fór út í óreglu mjög snemma. Stoppaði svo. Kom á vertíð til Eyja og eignaðist barn. Það gekk ekki og þá notaði maður þennan frasa, að allt sé öðrum að kenna. En auðvitað hafði þetta áhrif, óöryggi, vantraust á allt og alla og allskonar dellur sem maður þurfti að vinna sig út úr. Maður hætti svo þessari óreglu og síðustu 20 ár hafa verið mjög góð. Maður lærði bara og þegar maður lítur aftur er þetta mjög dýrmætur skóli. Maður getur snúið því upp í að horfa svoleiðis á það. Ég mæli samt ekki með honum samt.“ Halldór fór í fyrstu meðferðina 1984, hætti að drekka 1993 en björnin var ekki þar með unninn. „Ég átti eitt fall, 1996. Þá dó ég alveg. Var lífgaður við í þess orðs fyllstu merkingu. Það byrjaði í Kanada þegar við vorum að koma af Flæmska hattinum eftir fjóra mánuði áður en við flugum til Reykjavíkur þar sem haldið var áfram.“ Hans tími var ekki kominn Og þú sást ljósið? „Já, það var bara svoleiðis. Það var alveg grjótmerkilegt að stíga upp úr sjálfum sér og aftur til baka. Eða vera sendur til baka. Já, ég man vel eftir þessu. Ég var kominn út í það að nota spítt en man þessa hluti vonum framar. Hellti í mig heilu umslagi og hálfum líter af Vodka og svo lognaðist ég út af. Sveif upp úr sjálfum mér og í átt að bogadregnum helli. Lá svo í miðju hellisins þegar ljós sást við enda hans. Þá segir einhver rödd; hann á ekki að koma nærri strax. Ég stoppaði og sogaðist til baka og sá þegar ég lagðist ofan í sjálfan mig þar sem einhver var að blása og pumpa mig í gang.“ Enn að safna fyrir Iðnskólanum Þú hefur byrjað ungur á sjó? „Nei. Það var ekki fyrr en 1977. Ég var að læra bílasmíði hjá Volvo og ætlaði að ná mér í pening fyrir Iðnskólanum. Ég er ennþá að reyna að ná í þann pening, nú 44 árum seinna,“ segir Halldór og hlær. „Þá er ég 21 árs og réði mig á Bjarnarey VE hjá Steingrími Sigurðssyni. 50
Þá byrjuðu allir þessir pungar á loðnu fyrir austan. Svo komum við heim og tökum netavertíðina. Það var ofboðsleg vertíð og einhvern tímann tókum við 35 tonn af ufsa í eina trossu. Já, það gekk bara mjög vel þessa netavertíð. Af því að ég hafði verið í bílaviðgerðum var ég settur sem annar vélstjóri þegar fækkað var í áhöfn og við byrjuðum á spærling. Þegar vélstjórinn kom úr fríi fór ég að vinna í Vélsmiðjunni Magna.“ Stoltur af dótturinni Þarna festi Halldór ráð sitt og bjó með Ernu Þórarinsdóttur og eiga þau dótturina Þórönnu. „Hún er gift Elís Jónssyni og þau eiga fjögur börn og það elsta var fermt um daginn,“ segir Halldór stoltur af dótturinni og barnabörnunum. „Ég var vinna í Magna og var ekkert að spá í að fara á sjó. Var bara ungur og ekki með nein plön. Þá kemur Raggi Grétars til mín og bauð mér pláss á Stíganda VE sem hann var að taka við. Ég sló til og var með honum nær allan tímann sem hann var með Stíganda. Þangað til Lalli bauð mér pláss á Sæfaxa,“ segir Halldór. Lalli, Þórarinn Eiríksson var skipstjóri og útgerðarmaður á Sæfaxa og tengdapabbi Halldórs. „Það var frábært að vera með Lalla og þetta voru öndvegiskallar, hann og Dóri Ben sem átti bátinn með tengdapabba. Þeir voru algjörar perlur þessi karlar. Vildu allt fyrir mann gera og voru þægilegir og góðir kallar. Hörkuduglegur hann Lalli, alveg ódrepandi.“ Þið voruð á þessu hefðbundan trollskaki. Gekk vel? „Já. Mjög vel og við vorum tekjuhæstir í Eyjaflotanum og kom það fram í Sjómannadagsblaðinu. Þannig var það tvö eða þrjú ár í röð. Eftir lokadaginn, 11. maí var farið á humar,“ segir Halldór og þetta voru góðar tekjur. „Ég gat byggt heilt raðhús og klárað það næstum alveg á níu mánaða tekjum. Þetta var árið 1980. Þú sérð ekki sjómenn gera þetta í dag. Vann reyndar mikið í húsinu sjálfur en svona var þetta.“ Mikið breyst Halldór, sem enn stundar netaveiðar segir að margt hafi breyst frá því hann steig sín fyrstu spor á Bjarnarey með Steingrími 1977. „Þetta var keyrsla allt vertíðina. Dregið á höndum af spili, grjót og flothringir sem þurfti að greiða og leggja niður. Lagðar einhverjar fimmtán trossur á dag og dregna tólf til þrettán. Fimmtán neta trossur en núna er ekki hægt að vera með nema sex tólf neta trossur. Þá eru menn bara dauðir. Það er reyndar gert að og ísað í kör og fiskiríið býður ekki upp á meira af netum. Þau
ÍSLENSKA SIA.IS IFR 80097 06/16
FERSKLEIKINN ER SAMVINNA Þegar ferskleikinn skiptir höfuðmáli er helsta fyrirstaðan ekki fjarlægðin, heldur tíminn sem líður. Þetta þekkið þið, sjómenn landsins. Saman vinnum við að því að hámarka verðmæti íslenskra sjávarafurða með því að viðhalda bestu mögulegum gæðum og ferskleika. Icelandair Cargo þakkar ykkur, íslenskum sjómönnum, fyrir samvinnuna og óskar ykkur til hamingju með daginn.
Því tíminn flýgur
51
eru alveg bunkuð af þorski. Liggur við, sama hvar lagt er. Nú er kominn dráttarkarl sem dregur af spilinu og kló sem dregur trossunar aftur á og skilur að teinana. Þú ert laus við grjótið og flotið og alla þessa handavinnu þar á milli. Trossurnar eru lagðar aftur af skipinu sem er miklu hættuminna en þegar lagt var út af síðunni. Grjótinu hent og vera klár á flotinu. Það er allt annað að eiga við þetta þó úrgreiðslan sé sú sama.“ Til að halda sem bestum gæðum í fiskinum er ekkert til í dag sem heitir tveggja nátta fiskur, þegar trossurnar voru dregna annan hvern dag sem var algengt hér áður. „Það er aldrei lagt í brælu eða látið liggja yfir nótt. Það þarf að draga helst eftir fjóra tíma og mest sex tíma. Ef við förum inn að landa eru netin höfð um borð. Skiljum kannski eftir eina eða tvær ef við förum strax út eftir löndun og gott veðurútlit. Þetta er samt ekki mönnum bjóðandi miðað við nútímann þegar helst enginn má beygja sig.“ Flýði fyllibytturnar Eftir árin í Eyjum tekur við fylleríisflakk, svo notuð séu orð Halldórs. „Ég var svoldið mikið vínhneygður og óargadýr undir áhrifum. Maður fór héðan af því að hér voru tómar fyllibyttur og allt þeim að kenna. Fór til Ólafsvíkur og var þar á Matthildi í þrjú eða fjögur ár. Þar voru líka fyllibyttur og líka í Grindavík. Þær voru alltaf að þvælast fyrir mér,“ segir Halldór sem komst í hann krappann þegar Hrafn Sveinbjarnarson III strandaði við innsiglinguna til Grindavíkur, rétt við vitann. Voruð þið hætt komnir? „Það gengu brotsjóir yfir okkur. Gaf helvíti vel yfir þegar við vorum hífðir upp í þyrluna. Þetta var tólfta febrúar 1987. Þyrlan var á æfingu úti á Faxaflóa og var komin eftir sjö mínútur. Áhöfn hennar náði að bjarga okkur en báturinn varð til á strandstað. Það voru þó gerðar tilraunir til að ná honum út en hann var það mikið skemmdur að það tókst ekki.“ Líkaminn slökkti á draslinu Halldór segir að þarna hafi áhöfnin staðið vaktina í þrjá sólarhringa og menn orðnir örþreyttir þegar skipið strandaði. „Þegar skipið strandar er tekið á móti okkur og við svo sendir heim. Ræstir út tveimur tímum seinna til að reyna að bjarga dallinum. Við vorum að allan sólarhringinn, reynt að draga hann út en á þriðja degi kemur í ljós rifa alveg aftur í vélarrúm. Þá var hætt við og kominn fimmtándi febrúar. Þá fer ég að halda upp á afmælið mitt með nokkrum flöskum og félögum af skipinu.“ Það skeður svo um nóttina eftir að allir eru farnir heim að Halldór heldur áfram að drekka. „Það gerði ég alltaf en þá gerist það að ég 52
lamast. Skrokkurinn var alveg lamaður. Ég næ að hringja í einn eigandann að Þorbirninum, Gunnar Tómasson sem starfaði með Slysavarnafélaginu sem sendi sjúkrabíl eftir mér. Það er farið með mig fyrst til Keflavíkur þar sem er barið í hnéð á mér og ekkert gerist. Það er engin svörun. Ég er svo sendur til Reykjavíkur þar sem ég fer í gegnum allskonar prufur. Gat ekki migið og endaði með því að það var tappað af mér. Og það var ekkert smotterí sem kom. Þá kemur gamall karl og spyr í hverju ég hefði verið og hvort ég hefði eitthvað sofið. Þá hafði ég nánast ekkert sofið í fjóra sólarhringa. -Já, segir kallinn. Kemur með einhverja sprautu og stingur í rassgatið á mér og með það sama sofna ég. Ég veit ekkert hvað ég svaf lengi en þegar ég vaknaði stóð ég upp og flaskan var þarna einhverra hluta vegna. Tók hana og labbaði út á sokkunum. Ég reyndi svo á að ná í þenna lækni og það tókst loksins og ég spurði hann hvað hafði skeð. Þá kom í ljós að þetta var þvílík yfirkeyrsla að líkaminn slökkti bara á draslinu.“ Fór kollhnýs i innsiglingunni Og enn átti Halldór eftir að lenda í slagvaski og aftur í innsiglingunni til Grindavíkur. „Næstu vertíð réði ég mig á Gauk GK frá Grindavík. Skipstjórinn var strákur sem ætlaði að sigra heiminn. Hlustaði ekkert á gömlu skipstjórana og óð inn í kolvitlausu veðri. Fórum við kollhnýs og enduðum aftur á bak í innsiglingunni eftir að við fengum brot á okkur. Það rifnuðu af slingurbrettin öðru megin. Skyggnið á stýrishúsinu var rispað og loftnetin farin. Þá tók ég pokann minn og fór vestur á Ólafsvík og réð mig aftur á Matthildi,“ segir Halldór sem enn lumaði á einni hressilegri. Útbyrðis „Við vorum að draga síðustu torssuna á Matthildi í brjáluðu veðri. Kallinn gargaði yfirleitt á okkur þegar brotin komu og oftast heyrði maður í þeim koma. Það er svona hviss á undan. Báturinn varði sig alltaf fyrir þessum brotum og maður var hættur á hlusta. Er að bogra yfir fiski þegar risabrot skellur á okkur. Það var tekið niður í lunningunni fyrir netarúlluna og kemur fyllan inn þar sem ég er. Hún kemur aftur undir mig. Sprengir mig upp og út fyrir lunninguna og ég út í sjó. Ég sé bátinn velta svona frá og sé undir hann á veltunni. Það fyrsta sem mér datt í hug var að synda að honum og tek einhver svaka sundtök. Þá kemur hann til baka og ég náði að synda upp á öldutoppinn sem sturtaði mér um borð og ofan í netakassann. Þetta er lygliegasta atriði sem ég hef lent í á ævinni. Ég fékk ekki marblett.
Halldór með skipsfélögum sínum, Óðni og Erlingi.
Ég hef oft lent í einhverju kladri en aldrei eins og þessu. Alltaf hef ég sloppið og ég er alveg sannfærður um að það heldur einhver verndarhendi yfir mér. Það er bara þannig,“ segir Halldór og hlær sem aldrei fyrr. Með sjálfan sig í eftirdragi Eftir að útgerðin í Ólafsvík fór á hausinn lá leiðin til Bokungarvíkur og réði Halldór sig á Heiðrúnu ÍS. „Heiðrún var togari, samskonar og gamli Breki en smærri í sniðum. Það gekk mjög vel hjá okkur. Þetta er 1991 og þá er ég farinn að drekka illa, taka langa túra og nota efni til að keyra mig áfram. Árið 1993 fattaði ég það einhvern veginn að á Bolungarvík voru sömu fyllbytturnar og alls staðar annars staðar. Svo fattaði ég það, að það var ég sem tók sjálfan mig með á öllum þessum ferðalögum. Ég hætti að drekka í Bolungarvík og um leið og ég hætti hurfu allar þessar fyllibyttur. Þetta segir manni hvað maður var óábyrgur og taldi aðra vera sökudólga fyrir eigin mistök. Það er ríkjandi hjá alkóhólistum að kenna öðrum um og vandamálin séu annarra. Þarna gefst ég upp eftir sex vikna túr með tilheyrandi efnum og látum,“ segir Halldór sem fór þá í sína þriðju meðferð. Fólk að handan í heimsókn „Það er svolítil saga í kringum það sem enginn trúir. Eftir þessar sex vikur fer ég um borð í Heiðrúnu og ætla í næsta túr. Þá gerist það
í fyrsta skipti að mér er meinaður aðgangur að bátnum. Ég var svo rosalega illa farinn. Stundum komið fullur um borð en enginn sagði neitt. Af því að kannski var maður öflugur þegar á reyndi. Ég sneri því við en þegar ég kem í íbúðina mína var ég búinn að redda mér þremur lítrum að Eldur ís Vodka og slatta af kóki og ætlaði að drekka mig niður úr þessu fylleríi. Einhverra hluta vegna leggst ég upp í rúm eftir að hafa fengið mér eitt glas. Var orðinn þreyttur. Þar dett ég allt í einu í kóma milli svefns og vöku og sé að það koma fjórar manneskjur inn í íbúðina. Tvær konur labba að mér og tveir karlmenn fara inn í eldhús. Heyri ég glamrið í flöskunum. Konurnar eru að tala um mig og segja að það sé hræðilegt að sjá kallinn, langt niðri og illa farinn en þær töldu að þær gætu gert eitthvað fyrir hann. Önnur þeirra leggur höndina á höfuð mér og það koma einhverjir straumar og eins og slitni teygja. Ég heyri glamrið í glösum og flöskum í eldhúsinu eins og sé verið að færa eitthvað til. Alveg viss um að þeir væru að fela brennivínið. Ég reyni að vakna og standa upp og stoppa þetta af. En get það ekki. Svo segja þau; það verður trúlega í lagi með kallinn. Þær kalla; eruð þið búnir strákar? Þau fara út og um leið og hurðin lokast gat ég sprottið á fætur. Út í hurðina og kíki út á stigaganginn en þar er ekki hræða. Og ég sannfærður um nú sé loksins kominn með tremma.
53
Með Baldri Bragasyni skipstjóra á Brynjólfi.
Þá hringdi ég á Vog því ég gat ekki meira og fer í þriðju meðferðina.“ Í víkingameðferð Og það var enginn elsku mamma. „Ég var settur í víkingameðferðina, afvötnun í 48 daga sem yfirleitt er tíu dagar. Síðan fer ég á Staðarfell og er þar í fjórar vikur. Þegar ég er að fara að sofa síðustu nóttina þar gerist það sama og í íbúðinni minni í Bokungarvík. Þessar fjórar manneskjur koma aftur inn. Líta á mig skælbrosandi og segja; þetta á eftir að verða flott hjá kallinum. Þegar þær voru farnar fór ég hringinn i kringum Staðarfell og það var engann að sjá. Þá hugsaði ég; ég er ekki með tremma eftir að hafa verið edrú í tvo og hálfan mánuð. Öll þessi edrúmennska hefur svo gengið eins og ég hafi aldrei drukkið. Það er alveg ótrúlegt hvað ég höndla það vel að vera innan um fólk sem hefur áfengi um hönd. Það skiptir mig engu máli nema þarna úti í Kanada þegar ég ætlaði að fá mér tvö glös. Það gerði ég til að geta talað ensku en það kostaði tveggja vikna fyllerí eins og ég sagði frá hérna að framan.“ Aftur til Eyja Þetta var árið 1996 en árið eftir kemur Halldór til Eyja og hefur verið hér síðan. Í sambúð með Ester Ingimarsdóttur Urban og fósturbörnum, Svönu Sigurrós Urban og Guðfinnu Urban og unir glaður við sitt. „Þá byrjaði ég á að leysa af. Fer á Emmu tvo túra, Björgu og þvælist á milli báta. Fer svo á Bylgju og er þar í sjö eða átta ár, með Óskari Matt yngra. Sleit öxlina, fór í sjúkraþjálafun en treysti mér ekki til að standa í aðgerð og réði mig á Jón Vídalín sem var mest á karfa. Var þar þangað til hann var seldur og þá var ég orðinn helvíti góður í öxlinni og fór á 54
Brynjólf,“ segir Halldór. „Halli Ben var skipstjóri á Jóni Vídalín og hann er sá albesti kennari sem ég verið með til sjós í bætningum. Því kynntist ég þegar var með honum á Klakknum þar sem maður öðlaðist tíu ára reynslu í netavinnu á nokkrum mánuðum. Hann lá heldur ekki á liði sínu og ég á honum mikið að þakka í netum og trollum. Hann gat orðið svolítið æstur en eðalkennari og flottur karl.“ Þeir lentu í slagvaski á Klakknum á leið í siglingu. „Við vorum í Norðursjónum þegar við fengum á okkur brot. Það fóru þrír gluggar inni í brúnni og sjór niður um allt skip. Þarna mátti ekki miklu muna en eins og svo oft áður, þá reddaðist þetta en seinna slasaðist ég á Jóni Vídalín. Ég var við spilið þegar brot kom inn á skipið. Ég dett og fæ mann ofan á mig, þrýstist upp á spilinu og handfangið á kúplingunni stakkst upp úr stakknum. Eftir sat ég með þrjú brotin rifbein. Já, þetta var ansi myndarlegur skellur.“ Tíkinn fann að eitthvað var að Af Jóni Vídalíf fór Halldór yfir á Brynjólf þar sem hann er enn. Skipstjórar eru Guðmundur Ársælsson og Baldur Braga til skiptis. „Ég kann mjög vel við mig á Brynjólfi. Þeir eru alveg gulls í gildi þessir strákar sem þarna eru um borð. Guðmundur og Baldur og bara áhöfnin. Samt pínu hár meðalaldurinn,“ segir Halldór Björgvinsson sem nú er að takast á við enn eitt verkefnið og það ekki það léttasta. „Ég greindist með blöðruhálskrabbamein. Það uppgötvast í febrúar í vetur, í byrjun vertíðar. Ég kem í land úr netatúr og Shafferhundur sem ég á tekur á móti mér eins og alltaf þegar ég kem í land. Nema í þetta skiptið fer hún beint í afturendann á mér og hangir þar alveg með nefið á kafi. Eltir mig inn og þegar ég sest, sest hún fyrir framan mig, horfir á mig. Ég áttaði mig á að eitthvað var að því hún hafði hagað sér alveg eins einu og hálfu ári áður. Ég hafði fótbrotnað og var kominn með drep í löppina án þess að vita það. Hún lét mig vita af því á svipaðan hátt.“ Mikið áfall „Miðað við það sem Smári læknir sagði, hefði ég sennilega misst löppina ef ég hefði ekki komið þennan dag sem hún lét mig vita að eitthvað var að. Þannig að ég lét tékka á þessu. Það kemur í ljós krabbi í öllum sýnum. Hann greindist í blöðruhálskirtlinum og læknarnir sögðu að krabbameinið væri sennilega komið víðar. Ég spyr; hvað þýðir það? Og svarið var; Það þarf að rannsaka þig allan, fara í myndatökur og gá hvort þetta sé
komið út um allt. Ég fékk nett taugaáfall, varð skíthræddur því ég hafði ekki heyrt annað en að menn dræpust þegar þeir fá krabbamein í blöðruhálsið. Þú getur ímyndað þér hvernig mér leið. Ég rataði ekki einu sinni heim. Svo fer þetta allt af stað og ég heim til Eyja. Var þá að byrja að grafa fyrir bílskúr fyrir húsbíl sem við eigum. Valur Andersen ætlaði að hjálpa mér að byggja. Ég fer til hans og segi að ég verði að moka því niður sem búið var að grafa upp. Ég sé kominn með krabbamein og væri að drepast,“ segir Halldór en Valur var á öðru máli. Valur stappaði í hann stálinu „Valur kom mér eiginlega til bjargar. Sagði að fullt af mönnum hefðu greinst með allskonar krabbamein og væri sprelllifandi. -Vertu ekki að þessu væli. Ég skal bara hjálpa þér af stað með þennan bílskúr. Við drífum þetta upp úr jörðinni, sagði Valur. Hann eltir mig heim á bílnum og segir, -Við byrjum á þessu snöggvast og hann hjálpaði mér af stað. Ég hafði því fullt verkefni á milli þess sem ég skrapp suður í lyfjagjagjöf og rannsóknir. Gat sökkt mér í smíðina. Kom skúrnum undir þak áður en ég fór í geislameðferðina.“ Og Valur var réttur maður á réttum stað og tíma fyrir Halldór sem hélt að hann ætti litla von. „Hann bara dreif kallinn áfram og lífgaði við. Ég var búinn að ákveða það að ég væri að drepast,“ segir Halldór sem fór í 39 skipti í geislameðferð.
Halldór ungur.
Krabbinn á undahaldi „Þetta er rosalegur bruni og tekur mikið af manni. Sagt er að þetta eldi mann um tíu ár. Drepur niður allt ónæmiskerfið og hvítu blóðkornin en ég var bara í það góðu formi að ég bráðnaði ekkert mikið. Fór á sjóinn eftir fjórar vikur. Núna er ég á lyfjum til að drepa þennan krabba sem fór út fyrir. Það gengur svolítið í liðamótin. Ég gat til dæmis ekki verið alla netavertíðina. Var hættur að komast í vettlingana fyrir bólgum og fór bara í frí. En krabbakvikindið er komið niður í 0,07 þannig að það er minna en ekki neitt,“ segir Halldór Björgvinsson sem að lokum fullyrðir að gegnum allt hans líf hafi einhver vakað yfir honum og passað. „Mamma var spámiðill og kannski hafði það eitthvað með það að gera,“ segir hann og glottir við tönn. En lokaorðin eru: „Alltaf þegar vandi og erfiðleikar koma upp í vinnu eða daglegu lífi eru alltaf til staðar fúsar hendur eða gjöfulir og fúsir englar til að hjálpa. Það þarf bara að brjóta odd af oflæti sínu og biðja um um hjálp.“
Halldór og dóttir hans Þóranna.
55
Systkinin, Katrín, Hrönn, Alda og Eyþór á góðri stundu að sjálfsögðu fyrir framan Golfskálann.
SJÓMANNSDÆTUR OG EIGINKONUR SEGJA FRÁ BLAÐAMAÐUR SJÓMANNADAGSBLAÐSINS TÓK HÚS Á ÖLDU OG HRÖNN HARÐARDÆTRUM UM UPPVÖXTINN SEM SJÓMANNSDÆTUR OG GOLFÁHUGA FJÖLSKYLDUNNAR. Félagarnir og skipstjórarnir, Jóhann Halldórsson Jói og Hörður Snævar Jónsson, kenndir við Andvara Ve 100, ráku saman útgerð á annan áratug. Aldrei bar skugga á farsælt samstarf þeirra. Hörður og Jói urðu báðir bráðkvaddir rúmlega sextugir. Blaðamaður sjómannadagsblaðsins tók hús á Öldu og Hrönn Harðardætrum um uppvöxtinn sem sjómannsdætur og golfáhuga fjölskyldunnar. Einnig var Aðalbjörg Jóhanna Bernódusdóttir, Lilla, eiginkona Jóa tekin tali um tæplega 40 ára útgerðarsögu þeirra hjóna. Golfarar með keppnisskap sem gefa ekkert eftir ,,Við mótuðumst öll systkinin af dugnaði foreldra okkar og keppniskapinu hennar mömmu, segja tvíburasysturnar Alda og 56
Hrönn Harðardætur sem máttu lítið vera að því að spjalla við blaðamann í byrjun viðtalsins þar sem þær voru uppteknar af því að panta rástíma í enn eitt golfmótið. Foreldrar þeirra Sjöfn Guðjónsdóttir og Hörður Snævar Jónsson og systkini, Eyþór og Katrín voru og eru liðtækir golfspilarar. Jónas, eiginmaður Öldu og Grettir eiginmaður Hrannar spila einnig golf. Við eyðum öllum okkar frítíma í golfið sem er frábært hjónasport,“ segir Alda og bætir við að þau séu varla lent úr einni golferð þegar þau panti í þá næstu. Útivera, góður félagsskapur og keppnin er það besta við golfið,“ segir Hrönn og Alda bætir við að ef illa gangi í golfinu sé ekki hægt að kenna neinum um nema sjálfum sér. ,,Við erum með mikið keppnisskap og sem dæmi þá þurftum við á meistaramótinu í fyrra að fara eftir tvo keppnisdaga í jarðarför upp á Skaga. Eftir jarðarförina komum við til baka og kláruðum seinni daginn kl. hálf þrjú um nótt í svarta þoku og rigningu en Jónas og Eyþór hættu í keppninni,“ segir Alda og Hrönn bætir við að mamma þeirra hafi orðið margfaldur Vestmannaeyjameistari í golfi, Katrín hafi fetað í hennar spor og hafi í fjögur skipti orðið Vestmannaeyjameistari.
Sendum sjómönnum, starfsfólki og Eyjamönnum bestu kveðjur og árnaðaróskir
57
,,Við höfðum lítinn áhuga á golfinu þegar mamma var á lífi. Okkur fannst þetta meira vera fyrir gamalt fólk en Katrín systir var mætt mjög ung á völlinn sem kylfuberi hjá mömmu, segir Alda og Hrönn er henni sammála. Hún bætir við að það sé gott þegar öll fjölskyldan sé saman í golfi. Þá hafi allir sama áhugamálið og tengist betur. Systurnar segja það ekki leiðinlegt að Katrín sé að komast í öldungaflokkinn. Þær stefni að því að keppa saman á Íslandsmótinu og það sé ekki algengt að þrjár systur keppi saman á móti.
Alda og Hrönn leggja spenntar af stað frá Sólhlíðinni fyrsta skóladaginn
,,Elsku mamma hjálpaðu mér“ ,,Mamma og pabbi fóru í heilmikið af golfferðum og voru dugleg að njóta lífsins á meðan mamma var á lífi. Við erum viss um að mamma sé ánægð með að sjá okkur í golfinu og ef illa gengur í golfhring, segi ég oft ,,elsku mamma, hjálpaðu mér,“ og það virkar stundum, segir Hrönn og Alda bætir við að mamma þeirra hafi alltaf verið að keppa. Hún og Lilla í Borgarhól hafi eytt mörgum stundum við að spila bridds og yatzy og heyrðist glamrið í teningunum oft fram á rauða nótt. Við erfðum keppniskapið frá mömmu, og hugsaðu þér, ég fór á bryggjurúnt 17 ára til þess að fylgjast með aflabrögðum. Ég var að fylgjast með hvaða möguleika pabbi hefði á því að verða aflakóngur,“ segir Hrönn en Hörður varð aflakóngur á Andvara 1971 og á Heimaey 1983. Alda kemur inn í samtalið og segir að á þeirra heimili hafi verið tvær hátíðir á ári, jólin og sjómannadagshelgin. ,Þá höfðum við pabba alla helgina. Það voru keypt ný föt fyrir sjómannadaginn eins og jólin. Það var alltaf gaman að fara með pabba á bryggjuna á laugardeginu og svo fórum 58
við öll prúðbúin á skemmtunina í Höllinni á sunnudagskvöldinu og vorum voða stoltar af pabba þegar hann fékk verðlaun.“ segir Alda. ,,Það var ekki ein heldur tvær“ ,,Þegar við fæddumst var pabbi á síld. Hann var að vinna niðri í lest við löndun á Siglufirði þegar kallað var niður ,,Hún Sjöfn er búin að eiga og það var ekki ein heldur tvær,“ segir Hrönn og Alda bætir við að pabbi þeirra hafi þá kallað og sagt að það þyrfti nú samt að halda áfram að vinna. ,,Mamma var 22 ára þegar hún átti okkur. Þegar Hrönn var fædd var mamma ánægð með að þetta væri búið en þá sagði ljósmóðirin henni að vera róleg það væri eitt eftir. Mamma hafði ekki hugmynd um að hún gengi með tvíbura,“ segir Alda og bætir við að á þessum árum hafi foreldrar ekki fengið eins mikið af fötum og dóti og nú tíðkist og foreldrar hennar hafi alveg haft nóg með undirbúning fyrir eitt barn. ,,Pabbi byrjaði sinn stýrismannsferil hjá Kristni á Berg og hann og Dídí voru foreldrum okkar mjög hjálpsöm þegar við fæddumst og alla tíð, segir Alda og Hrönn bætir við að pabbi þeirra hafi verið góður og skemmtilegur og á undan sinni samtíð að því leitinu til að hann hafi tekið virkan þátt í heimilishaldinu. Heimilisfólkið hafi verið heppið að fá að klára af matardiskunum áður en hann var farinn að vaska upp. ,,Mamma var samt sem áður stjórnandinn á heimilinu. Það var ekkert gefið eftir og þurftum að sjá um ákveðin húsverk annan hvern föstudag,“ segir Hrönn og Alda svarar aðspurð að Eyþór, sem var tveimur árum yngri en þær, hafi verið kóngurinn á heimilinu og ekki þurft að hjálpa til. Systurnar segja að pabbi þeirra hafi farið að vinna hjá Sigurði Einarssyni í Hraðfrystistöðinni sem skipstjóri á Suðurey, Heimaey og síðar Álsey, eftir að farsælu samstarfi hans og Jóa með útgerð Andvara lauk. Þær segja að mikil samgangur og vinátta hafi verið milli foreldra þeirra og Jóa og Lillu. Ekki aldar upp með silfurskeið í munninum ,,Það kemur ekki oft fyrir að það séu þrennir tvíburar í einum árgangi í Eyjum. En við systurnar, Iðunn og Ingunn og Óðinn og Þór erum öll jafn gömul. Við vorum mikið með Iðunni og Ingunni sem við kynntumst þegar við vorum þriggja ára. Við bjuggum á Sólhlíð en þær á Fífilgötu,“ segir Alda og Hrönn bætir við að þær hafi alla tíð verið miklar vinkonur. ,,Á unglingsárunum vorum við Iðunn meira út á við, á með Hrönn og Ingunn voru rólegri heima,“ segir Alda sem fær snögg viðbrögð
ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
MUGGUR
Sjómenn,
til hamingju með daginn
GRAFÍSK HÖNNUN, MYNDSKREYTINGAR, ANDLITSMYNDIR, SKOPMYNDIR, MÁLVERK www.gunnarjul.is - gunnar@dinamit.is - sími 844 0806
59
frá Hrönn sem ekki er alveg sammála þessari túlkun Öldu. Hrönn sættist á það að lokum að Alda og Iðunn hafi verið meiri villingar á unglingsárunum. Alda og Hrönn hafa aldrei nýtt sér það að vera eineggja tvíburar og segja að þeim hafi oftar verið ruglað saman þegar þær voru yngri. ,,Við erum ekki aldar upp með silfurskeið í munninum og þurftum alveg að hafa fyrir hlutunum. Við fórum ungar að vinna í fiski, sjoppum og þar sem vinnu var að fá. Við vorum vinnusamar eins og krakkar í Eyjum voru. Elskuðum að vera í vinnunni og ég held að það hafi ekki skaðað okkur neitt. Ég fór svo út sem skiptinemi,“ segir Alda og Hrönn bætir við að þær hafi báðar farið til Englands í enskunám en ekki á sama staðinn. Það hafi ekki verið einlægur áhugi á tungumálum sem dró þær þangað heldur hafi skemmtiferð til Majorka árinu áður verið kveikjan að fleiri ferðalögum. Hrönn hefur alla ævi búið í Eyjum fyrir utan gosárið þegar fjölskyldan bjó á fastalandinu. Hrönn kynntist eiginmanni sínum Gretti Inga Guðmundssyni, sjómanni í Eyjum og saman eiga þau þrjú börn. Hörð Orra, Söru Sjöfn og Arnar Gauta. Barnabörnin eru 5. 18 ára hóf Hrönn störf hjá Útvegsbankanum sem nú heitir Íslandsbanki og starfar þar enn tæpum 40 árum síðar.
Systurnar á golfvellinum í Eyjum þar sem ekkert er gefið eftir og keppt fram á rauðanótt ef þarf.
Alda flutti fyrst frá Eyjum 19 ára með tveimur vinkonum til Reykjavíkur. Þær bjuggu saman á Sólvallagötunni og unnu í Kron. Vinkonurnar fluttu aftur til Eyja, systurnar kláruðu verslunarpróf og Alda fór að vinna á skrifstofunni hjá Völundi og síðar Skipalyftunni. Aftur flutti Alda suður og fór að vinna hjá Hans Petersen fram til ársins 1984 þegar hún fór í stóra hjartaaðgerð í Bromton á Englandi vegna meðfædds hjartagalla. ,, Þá kom keppnisskapið, krafturinn og eljan sér vel og líka þegar ég fékk alvarlegt krabbamein 2005. Ég komst yfir bæði þessi áföll og er mjög hraust í dag eins við öll systkinin,“ segir Alda sem bjó í Reykjavík með Herði Snævari syni sínum og vann við ýmis skrifstofustörf þar til hún flutti til Eyja aftur 1993. ,,Við Hörður Snævar fluttum til pabba þegar mamma dó skyndilega 1993. Í Eyjum kynntist ég Jónasi Jónassyni, sem er flugmaður í dag og saman eigum við Söndru Björk sem er fædd og skírð í Eyjum, því við vildum gera hana að eins miklum Vestmannaeying og við gátum“ segir Alda sem er fjármálastjóri hjá GJ veitingum sem reka mötuneyti HR og veitingastaðinn Nauthól. 60
Aflakóngurinn Hörður á Andvara og eiginkonan Sjöfn Guðjónsdóttur. Mynd: Sigurgeir.
Sjómenn, Vestmannaeyingar Til hamingju með daginn! BERGUR VE
Á síðustu 30 árum hefur Hampiðjan framleitt og selt yfir þúsund Gloríur til útgerða í 28 löndum.
61
Foreldranir dóu ungir og söknuðurinn er mikill ,,Mamma hafið alltaf verið hraust, unnið í fiski og svo rak hún verslunina Hressó í rúman áratug. Vorið 1993 seldi mamma Hressó þá 53 ára gömul og ætlaði að fara njóta lífsins,“ segir Alda og Hrönn tekur við ,,Einn sunnudag í september kemur Katrín systir til Eyja að keppa í handbolta. Mamma fór að horfa á leikinn eftir að hún hafði skutlað pabba niður í bát. Eftir leik keyrir hún Hörð Orra minn heim og segir við hann á leiðinni að hún haldi að höfuðið á henni sé að springa. Ég tek á móti Herði Orra og vinka mömmu og tek ekki eftir neinu óeðlilegu. Mamma fer upp í íþróttahús til þess að sækja Katrínu, þegar hún kemur út í bíl er mamma meðvitundarlaus og komast aldrei til meðvitundar aftur.“ ,,Fráfall mömmu var mikið áfall og ekki var áfallið minna þegar pabbi varð bráðkvaddur 2001, 64 ára gamall. Það er mikill söknuður að þeim, við gerðum okkur enga grein fyrir því hvað þau voru í raun ung þegar þau dóu. Við hefum viljað fá að hafa þau miklu lengur. Það er líka erfitt fyrir barnabörnin að geta ekki leitað til afa og ömmu,“ segir Alda. Hrönn tekur undir það og bætir við að svona áföll geri þær mjög
meðvitaðar um ekkert sé sjálfgefið og þær njóti lífsins á meðan þær geta. Grettir eiginmaður Hrannar hefur verið á sjó síðan þau kynntust og réri í mörg ár með tengdapabba sínum. Sonurinn Hörður Orri var um tíma á sjó. Alda segir að hún hafi aldrei verið hrædd um pabba sinn þegar hann var á sjó. Undir það tekur Hrönn og bætir við að hún sé stundum hrædd um Gretti í kolvitlausu veðri en hún hafi verið meira hrædd þegar Hörður Orri var á sjónum. Hrönn segir að hún þekki ekkert annað en sjómannslífið og líki það ágætlega. Jónas á ekki langan sjómannsferil að baki. Hann fór einn túr á Danska Pétri með Jóel Andersen og nokkra túra á frystitogaranum Vestmannaey. Þegar hér er komið sögu þá hefur blaðamaður kallað á Gretti og Jónas til þess að fá þá til að lýsa systrunum. Jónas vill endilega fá að segja frá því hvernig honum tókst að komast á sjóinn og hlý kveðjuorð eiginkonunnar þegar hann fór í fyrsta sinn á sjó. ,,Ég hitti Jóel á Danska Pétri oft upp á flugvelli þegar ég var að fljúga hjá Val og Ingu og lét hann vita að mig langaði að prufa einn túr. Einn daginn hringdi hann og bað mig að koma með engum fyrirvara. Þegar Alda kvaddi mig á bryggju sagði hún við mig. ,,Það hefur enginn úr okkar fjölskyldu legið í koju vegna sjóveiki.“ Skilaboðin voru skýr og ég þorði ekki annað en að standa mig,“ segir Jónas sem fékk pláss hjá Bigga á Vestmannaey í nokkra túra af þeirri ástæðu að í hans ætt hefðu verið mikið af sjómönnum og hann gæti ekki verið þekktur fyrir að hafa ekki migið í saltan sjó. Hvernig lýsa eiginmennirnir Öldu og Hrönn? ,,Þær eru ofvirkar fyrir allan peninginn, mjög ákveðnar og miklar keppnismannsekjur,“ segir Jónas. Grettir samsinnir því og bætir við að þær séu duglegar en á köflum erfiðar og kastar fram þeirri spurningu hvort það sé ekki þannig með allar konur. Alda og Hrönn eru sáttar með lífið í dag og hlakkar til að komast sem fyrst á golfvöllinn. Puttalingar sem stilltu til friðar og bugaðir Peyjar ,,Alda og Hrönn eru náttúrulega frábærar og ég á því skiljanlega margar góðar og skemmtilegar minningar tengdar þeim. Sú nýjasta er frá síðasta sumri þar sem við systur ásamt tveimur öðrum úr Golfklúbbi Vestmannaeyja spiluðum í sveitakeppni GSÍ í 2. deild og sigruðum eftirminnilega,“ segir Katrín systir
62
Tvíburasysturnar Hrönn og Alda tóku sér frí frá golfi og mættu prúðbúnar í fermingarveislu.
Öldu og Hrannar. Hún segir sigurinn hafi ekki síst verið að þakka Öldu og Hrönn sem spiluðu fjórmenning í mótinum en í honum sé klárlega kostur að þekkja meðspilara sinn. ,,Við fórum árlega í ferðalag með foreldrum okkar með hjólhýsi sem við eigum enn. Það gat stundum kastast í kekki milli Öldu og Hrannar á löngum keyrslum, í reykfylltum bílnum sem ekki var hægt að opna glugga á vegna ryks af veginum. Mamma og pabbi brugðu á það ráð að taka puttaling upp í til að stilla til friðar, þrátt fyrir að þétt væri setið í bílnum fyrir,“ segir Katrín sem er átta árum yngri en Alda og Hrönn. Eyþór sem er tveimur árum yngri en tvíburasysturnar virðist hafa fengið að finna meira fyrir þeim en Katrín. ,,Þær þóttu nokkuð fyrirferðarmiklar í æsku. Ég held að allir skólafélagar þeirra árgangi muni eftir þeim sem frekjudúkkum. Það sást alveg á skólalóðinni hvaða peyjar voru með þeim í bekk, því þeir virtust bugaðir og sama má segja um kennara þeirra,“ segir Eyþór sem upplifði það þrautinni þyngri að vera tveimur árum yngri og alast upp með tvíburunum. ,,Ég vissi ekki fyrr en Alda og Hrönn fluttu
að heiman að snúðar væru með fyllingu og súkkulaði í miðjunni. Þær tóku alltaf það besta innan úr snúðunum en ég fékk úthringinn með litlu súkkulaði. Ég man líka þegar Björgvin Halldórsson gaf út plötu með laginu ,,Eina ósk“ þetta var uppáhaldsplata tvíburanna og spiluð út í eitt af þeim sitt á hvað með tilheyrandi ógeði sem fékk tímabundið af þeirri plötu. Á þessum tíma þakkaði ég fyrir að þær væru ekki þríburar,“ segir Eyþór sem segir systurnar frábærar og honum hafi alltaf þótt vænt um að þær kölluðu hann kóngabarnið, það hafi líklega stafað af því hversu vænt þeim þótti um hann. Viðtalið tók; Guðrún Erlingsdóttir gudrun.erlingsdottir@gmail.com
Raunfærnimat í skipstjórn Hefur þú starfað á sjó í 5 ár eða lengur og hefur áhuga á að ná þér í stýrimanns- og skipstjórnarréttindi? Þá gæti raunfærnimat hentað þér! Raunfærnimat í skipstjórn miðar að því að meta þá færni sem viðkomandi býr yfir inn í skólakerfið óháð því hvernig hennar hefur verið aflað. Metið er upp í nám í skipstjórn á B stigi ( 45.m. skip). Þátttakendur fara í kjölfarið í skóla og ljúka því námi sem eftir stendur. Inntökuskilyrði: • 5 ára starfsaldur á sjó • 25 ára lífaldur Nánari upplýsingar: solrunb@viskave.is eða í síma 488 0116
www.vIskave.Is
63
Fyrstu tveggja skrúfu fiskiskipin á Íslandi:
BERGUR-HUGINN – NÝ VESTMANNAEY Í JÚLÍ OG BERGEY Í SEPTEMBER: Bergur-Huginn á von á tveimur nýjum skipum á þessu ári, Vestmannaey VE og Bergey VE sem koma í stað tveggja skipa með sömu nöfnum. Skipin eru smíðuð hjá skipasmíðastöðinni Vard í Aukra í Noregi og verður Vestmannaey afhent fyrstu vikuna í júlí og Bergey í september. Núverandi skip voru smíðuð í Póllandi 2007. „Verkið hefur gengið mjög vel en skrifað var undir samninga við Vard 23. nóvember 2017. Vestmannaey var sjósett í lok apríl og reiknað með að sjósetja Bergey í byrjun ágúst.. Það er byrjað að prufukeyra vélar og búnað og ekki annað sjá en að allt sé í lagi,“ segir Guðmundur Alfreðsson, útgerðarstjóri. Skipin eru rétt um 29 metrar á lengd og 12 metra breið. Eru þau jafnlöng og forverarnir en heldur breyðari þau gömlu eru 10,5 metrar á breidd. „Skipin eru vel búin vélum og öllum búnaði en nýjungin er að í þeim eru tvær aðalvélar og tvær skrúfur. Er það algjör nýjung í íslenskum skipum. Það gerir það að verkum að þú færð meiri togkraft miðað við eldsneytiseyðslu. Vélaranar eru tæp 400 hestöfl hvor og skrúfurnar tveir metrar í þvermál. Aflvísirinn er undir 1600 sem gerir þetta að 3 mílna skipum,“ segir Guðmundur. Í brú eru öll fiskleitar- og siglingatæki af nýjustu gerð og margir skjáir að fylgjast með. „Þar er helsta nýungin, að allt eru þetta snertiskjár þar sem þú getur fært til og skoðað nánar það sem þurfa þykir. Rétt eins og þú sérð í glæpaþáttum í sjónvarpinu. Þeir verða einnig með þrívíddar dýptarmælir sem er mikið stökk frá því að botninn var bara eitt strik á pappír. Í brúnni eru líka hitamyndavélar og nætursjónaukar sem auka öryggið ef eitthvað kemur upp á.“ Mjúk eins og glussaspilin Togspilin eru rafdrifin eins og er algengt í fiskiskipum í dag en mótorarnir eru af nýrri gerð, 64
Vestmannaey komin á flot.
PM mótor sem stendur fyrir stððusegull þeir hafa mikið snúningvægi sem gerir að hlutfall í gír er aðeins 1:6 í stað 1:50 í hefðbundnum spilum. Þetta eykur mýgt og minnir á gömlu lágþrýstu glussaspilin,“ segir Guðmundur. Aðgerðarkerfið kemur frá Slippnum á Akureyri þar sem allt er gert til að auðvelda vinnu áhafnar og vanda meðferð fisksins. „Það hafa orðið miklar breytingar á vinnslukerfum á síðustu árum. Með nýrri tækni aukast afköst, meðferð á fiski verður betri og verðmætið meira sem skiptir mestu þegar upp er staðið.“ Lestarband er frá Vélsmiðjunni Þór og krapakerfi frá Kapp ehf. Íbúðir eru fyrir þrettán, allt tveggja manna klefar nema skipstjóraklefinn. Bergur-Huginn er í eigu Síldarvinnslunnar á Norðfirði en starfsemin öll er í Vestmannaeyjum. Lýst vel á skipin Birgir Þór sagði að sér litist afskaplega vel á skipin og hvernig staðið væri að smíði þeirra. „Hérna er mjög vel staðið að öllu og segja má að allt sé fyrsta flokks og það er mjög gott að fá tækifæri til að koma hér og benda á ýmislegt sem maður vill leggja áherslu á. Þessi skip eru í rauninni stór-lítil ef svo má að orði komast. Þau eru stutt, eða tæplega 29 metrar að lengd, en þau eru 12 metra breið og há. Menn eru mjög spenntir að fá þessi nýju skip í hendurnar en þau verða væntanlega afhent í sumar,“ segir Birgir.
Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey tekur undir með Birgi og segir að það sé afar gott að fá tækifæri til að koma með fáeinar ábendingar á meðan unnið er að smíðinni. „Ég er mjög ánægður með allt sem ég hef séð hér og mér sýnist þetta vera verklegir og hinir reffilegustu bátar. Það er komin allgóð heildarmynd á Vestmannaey en smíðin á Bergey er skemmra á veg komin, það var verið að hífa nefið á hana núna. Menn bíða spenntir eftir að fá þessi skip. Um borð í þeim verður betri aðbúnaður en í gömlu skipunum og aðstaða á millidekki verður miklu betri. Þá verður allt hljóðlátt um borð vegna þess að spilin verða rafmagnsknúin. Ég hef mikla trú á þessum skipum og það verður gaman að upplifa nýjungar eins og til dæmis tvær skrúfur,“ sagði Jón.
Óskar sjómönnum og fjölskyldum til hamingju með daginn!
Umbúðamiðlun ehf
s: 555 6677 umb.is Óskum sjómönnum til hamingju með daginn
65
„MEKIÐ FJANDI ER ÞETTA STERKT HJÁ YKKUR STRÁKAR“ Martin Eyjólfsson, er flestum Eyjamönnum kunnur. Hann hefur látið til sín taka sem sendiherra í Berlín síðastliðin þrjú ár og verið iðinn, ásamt starfsliði sínu, við að nýta sameiginlega aðstöðu sendiráða Norðurlandanna, Felleshús, til menningar- og landkynninga en á fullveldisárinu stóð sendiráðið fyrir 100 atburðum víðsvegar um Þýskaland. Sjávarútvegsmál hafa fylgt Malla frá því að hann fór sem smápeyi að fylgjast með aflabrögðum á bryggjunni með föður sínum Eyjólfi Martinssyni, sem oftast kallaður Eddi Malla og helgaði líf sitt sjávarútveginum. Eddi var heiðraður fyrir 50 ára samfellt starf hjá Ísfélagi Vestmannaeyja nokkrum dögum áður en hann lést í desember 2011. ,,Ég lærði mikið af pabba, sem var mikill liðsmaður, bar virðingu fyrir samstarfsfólki sínu og þótti vænt um það. Hann áttaði sig á því að liðsheildin er ekki sterkari en veikasti hlekkurinn,” bætir Malli við sem segir sjávarútveginn samofinn fjölskyldunni. Langalangafi Malla, Hannes lóðs varð elsti hafnsögumaður í heimi og tók við sem lóðs eftir 43 ára sjómennsku en hann byrjaði 11 ára og réri 37 vetrarvertíðir sem formaður á áttæringnum Gideon. Malli telur sjómennsku á vélbátaöldinni ofurmannlega og að við eigum þessum hugumstóru köppum mikið að þakka. Hjörtrós langamma Malla, dóttir Hannesar, giftist Tómasi Guðjónssyni frá Höfn sem byrjaði að róa rúmlega 10 ára en gerðist síðar útgerðar- og verslunarmaður. Tómas rak saltfiskverkun í Kuða en það hús var eitt af síðustu húsunum sem fóru undir hraun. Langafi Malla rak líka timbursölu og umboð fyrir olíufélagið Skeljung auk þess hann sem markaði djúp spor í sögu Ísfélagsins. Hann kom að félaginu í miðri kreppu og lagði ásamt öðrum, mikið undir til þess að það héldi velli. Í kjölfarið fylgdi mikill uppbyggingartími. ,,Langafi gegndi stjórnarformennsku frá 1939 og sat sem slíkur til ársins 1956 þegar rekstrarerfiðleikar kváðu að dyrum á nýjan leik. Þá gengu nokkrir útgerðarmenn til liðs við félagið sem tryggði því nægt hráefni til vinnslu. Magnús Bergsson, tók við stjórnarformennsku,
66
af langafa sem sat þó áfram í stjórninni þar til hann lést og í kjölfarið tók sonur hans, Martin Tómasson sæti hans. Hinir voru Bjössi á Barnum, Rabbi á Gjafari, Malli á Sólbakka, Einar Sigurjóns og Jóhann Pálsson. Þetta var síðan uppistaðan í hluthafahópnum þar til að Ísfélagið, Bergur-Huginn og Hraðfrystistöðin sameinuðust árið 1992,“ segir Malli. Blönduðu Snuffið úr Turninum með síldarkryddi ,,Pabbi byrjaði á skrifstofunni 1961, sat í stjórn félagsins í árafjöld og var framkvæmdastjóri þess frá 1987 fram að sameiningu 1992 þegar Sigurður Einarsson tók við. Sjálfur vann ég lítilega við bókhald hjá Ísfélaginu, var tvö sumur í saltfiski og fékk tækifæri til að kynnast síldarvertíð í verkfalli BSRB haustið 1984 undir verkstjórn þeirra Gústa Sigurjóns og Óla Gísla frá Héðinshöfða. Þarna voru kempur á borð við Ella Berg og Jóa danska sem tóku í nefið eins og enginn væri morgundagurinn. Við vorum 12, 13 ára og fórum að herma, tókum snúss í nefið einhverskonar ljósbrúnt mentólduft sem fékkst í Turninum. Jói danski og Einar Sigurjóns, sem þá var framkvæmdastjóri, fengu stundum hjá okkur í nefið. Þeir voru báðir með risakrumlur og hálf tæmdu dósirnar hjá okkur í hvert skipti. Þetta fannst okkur full mikið af því góða. Við blönduðum því snuffið með síldarkryddi sem var í sama lit og tóbakið og það snarvirkaði. Einar og Jói höfðu ekki grænan grun um að þeir væru að taka snúsblandað síldarkrydd. „Mekið fjandi er þetta sterkt hjá ykkur strákar, sagði Jói og hló.“ Þeir snarhættu að sníkja af okkur snús,“ segir Malli sem ákvað að læra lögrfæði við HÍ. Hluta af náminu tók hann í Hannover með áherslu á Evrópurétt, fór í starfsnám hjá utanríkisráðuneytinu og komst í verkefni tengd EES. Í framhaldinu var Malli beðinn um taka að sér verkefni sem sneri að matvælalöggjöf EES ,,Það má segja að ég hafi verið kominn aftur í fiskinn,“ segir Malli en matvælapakkinn fjallaði um upptöku sameiginlegra reglna um framleiðslu fiskafurða og niðurfellingu kerfisbundins eftirlits á landamærum með fiskafurðir. Landamæraeftirlitið hafði bæði
Martin Eyjólfsson, sendiherra í Berlín og kona hans Eva Þengisldóttir, matreiða íslenskan fisk í einu kynningarátakinu í Þýskalandi.
reynst íslenskum fiskútflytjendum dýrt og tafsamt. Tæpu ári síðar var Malli ráðinn til utanríkisráðuneytisins og hefur starfað þar fyrir utan tæpt ár þegar hann starfaði við sölu sjávarafurða og fiskeldi. Eftir eitt ár í föstu starfi hjá utanríkisráðuneytinu flutti Malli, þá 27 ára gamall til Brussel í fjögur ár með fjölskylduna. Malli segir það yndislegan tíma og báðar dætur hans hafi fæðst þar. Fiskimjölsmálið og fríverslunarsamningar ,,Í sendiráðinu var starfið fyrst og fremst af lögfræðilegum toga; upptaka EES reglna, lögfræðiálit og málarekstur gagnvart ESA, EFTA og ESB dómstólnum. Ég flutti mál bæði fyrir EFTA- og ESB-dómstólnum, hlotnaðist m.a. sá heiður að vera fyrsti Íslendingurinn sem flutti mál fyrir þeim síðarnefnda. Stærsta hagsmunamál Íslands þegar ég var í Brussel var ,,fiskimjölsmálið” svokallaða en ESB ætlaði að banna innflutning á fiskimjöli og tengdi það hættu á blöndun við kjöt- og beinmjöl sem gæti verið kúariðusýkt. Það tókst að afstýra því á síðustu stundu, bannið hefði haft afar neikvæðar afleiðingar fyrir íslenskan sjávarútveg þar sem Evrópa var langstærsti útflutningsmarkaðurinn fyrir mjöl á þeim tíma. Eftir að heim var komið tóku m.a. við samningaviðræður við um stækkun EES vegna þess að Austur-Evrópuríkin voru við það að ganga inn í ESB. Þar tókst að mestu leyti að varðveita þau tollfríðindi sem giltu á
grundvelli fyrirliggjandi fríverslunarsamninga. Allt frá því ég kom heim frá Brussel þar til ég flutti til Berlínar 2016 tók ég þátt í nokkrum fríverslunarviðræðum EFTA en full fríverslun með fiskafurðir er ófrávíkjanlega krafa okkar. Drjúgur partur af mínu starfi hefur falist í að tryggja íslenskum fiskframleiðendum sem best viðskiptakjör á erlendum mörkuðum en þar hef ég notið þess að vera hluti af samstæðu teymi kollega úr stjórnarráðinu og atvinnulífinu en náið samráð er við það í öllum okkar samningaviðræður. Hagstæð útflutningsskilyrði fyrir íslenska útflytjendur eru ekki náttúrlögmál heldur byggja þau á flóknum og yfirgripsmiklum milliríkjasamningum,” segir Malli sem bendir á að verkefni tengd sjávarútvegi í Þýskalandi snúist meira um kynningar á íslenskum sjávarafurðum. Sendiráðið komi að margs kyns matarkynningum sem ýmist séu haldnar í samvinnu við fisksölufyrirtækin eða Íslandsstofu. Í ágúst var t.d. unnið með IRF,Iceland Responsible Fisheries og Óskari Sigmundssyni, sem rekur myndarlegt útflutningsfyrirtæki í Cuxhaven, t.d. með umfangsmiklilli kynningu á gullkarfa í Bremerhaven. Reynt sé að aðstoða útflytjendur við að opna dyr lengra inn á markaðinn t.d. inn í verslanakveðjur og til veitingahúsa. Það sé gert t.d. með minni kynningum í sendiherrabústaðnum eða í Felleshus. Ekki megi gleyma því að Samherji séu mjög stórir 67
í Þýskalandi og mikilvægur atvinnuveitandi í Cuxhaven. Þar sé Sigmundur Andrésson innsti koppur í búri og reki glæsilega vinnslu í Frankfurt. Frændur með Eyjaseiglu í hringiðu hrunsins Í bankahruninu stýrði Malli viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, sem fer með málefni utanríkisviðskipta landsins. ,,Þá gekk mikið á og ég lenti í miðri hringiðunni nokkrum klukkustundum eftir hrun. Hryðjuverkalögin gerðu útflutningsviðskipti mjög erfið og oft á tíðum ómöguleg. Við þurftum að gefa út vottorð og yfirlýsingar um alla mögulega og ómögulega hluti, skýra allt milli himins og jarðar út fyrr erlendum stjórnvöldum og þar fram eftir götunum. Stjórnarráðið vann sem einn maður þarna og Seðlabankinn lék lykilhlutverk. Síðan voru það náttúrulega Bretar og Hollendingar sem ætluðu að knýja okkur til þess að viðurkenna lagalega skyldu til greiðslu Icesave skuldbindinganna. Við þráuðumst við en á meðan blokkeruðu þeir leiðina til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þeir vissu eins og við að gjaldeyrisvaraforðinn var að klárast. Þrátt fyrir að Ísland væri aðþrengt og eitt á báti tókst okkur að brjótast úr þessari herkví. Lykillinn að lausninni varð til í Brussel eftir viku stapp en á þeim tíma var Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra þar. Við frændur vorum þarna í eldlínunni, ásamt fleirum, í tæpa viku og auðvitað tók þetta mikið á okkur sem stóðum í þessu ,,havaríi”. Ætli Eyjaseiglan hafi ekki sagt til sín á þessari ögurstundu? Við neituðum alla vega að gefast upp og vildum ekki hugsa þá hugsun til enda að gjaldeyrisforðinn kláraðist með stöðvun milliríkjaviðskipta með skelfilegum afleiðingum fyrir þjóðarbúið og ímynd landsins. Það hefði ekki verið hægt að kaupa lyf og olíu ef sú martröð hefði ræst,”. Bjargaði ÍBV frá falli á ótrúlegan hátt tvö ár í röð ,,Árin 1992 og ´93 sat meistaraflokkur ÍBV í fallsæti frá því flautað var til Íslandsmótsins um vorið og allt fram á lokamínútur. Í bæði skiptin hétu útgerðar- og sjómenn á okkur utanlandsferð ef við héldum okkur uppi. Stuðningur þeirra hefur verið knattspyrnunni ómetanlegur en þeir hafa að öðrum ólöstuðum verið hryggjarstykkið í stuðningi við knattspyrnudeildina í gegnum tíðina. Fyrir þennan stuðning var og er maður aldeilis þakklátur,“ segir Malli og bætir við að ´92 hafi ÍBV verið með 7 stig af 45 mögulegum þegar þrjár umferðir voru eftir. Eina vonin til að halda
68
sér í deildinni hafi verið að Breiðablik og KA myndu tapa öllum leikjum sem eftir voru og ÍBV sömuleiðis að vinna sína. Seinna árið var liðið líka komið með bakið upp við vegg og ekkert annað en sigur í síðustu tveimur leikjunum og 8 marka bæting á markatölu gagnvart Fylki gat komið í veg fyrir fall. ,,Þetta var grjótmagnað og sennilega meiri líkur á að vinna í lottóinu. Við unnum KA 2-1 og Fylki 1-0, ég kom inn á og grísaðist til að skora þessi þrjú afdrifaríku mörk. Á móti Fylki náði ég að pota sigurmarkinu inn í uppbótartíma. Mér fannst þetta mjög óraunverulegt og leið eins og atburðarrásin væri sýnd hægt. Þegar leiknum lauk brjálaðist allt og ég sá pólitísku
Eddi Malla og Malli með bol sem hann fékk strax eftir Fylkisleikinn 1993, frá aðdáenda sem var svo viss um að Malli myndi bjarga aftur að hann lét prenta ,,Hetja Eyjamanna“ á bolinn fyrir leik.
andstæðingana Gauja Bæjó og Guðmund Þ.B. reka hvor öðrum rembingskoss. Ég var tekinn, faðmaður, kysstur og tolleraður og dreif mig í vinnu á fluginu, þegar Fylkismenn komu svekktir á flugvöllinn tók ég á móti töskunum þeirra. Ég held að ég hafi ekki verið maðurinn sem þeir vildu hitta á þeim tímapunkti,“ segir Malli sem fékk í kjölfar leikjanna viðurnefnið bjargvætturinn. Hann segir að enn í dag taki fólk utan um hann og þakki honum fyrir og honum þyki auðvitað ákaflega vænt um að hafa átt þátt í að skapa þessi ógleymanlegu augnablik fyrir Eyjamenn ásamt liðsfélögunum sem neituðu að gefast upp. Foreldrarnir gáfu ást, öryggi og umhyggju ,,Óneitanlega mótast maður af uppeldi foreldranna, Edda og Siggu, Sigríði Sylvíu Jakobsdóttur og því góða veganesti sem þau gáfu mér út í lífið – ást, öryggi og umhygggju.
Það má heldur ekki gleyma Eyjasamfélaginu og hinni ægifögru náttúru Eyjanna. Þetta eru rætur sem mér þykir gríðarlega vænt um og rækta meðvitað. Að öðrum ólöstuðum hefur stóra ástin í lífi mínu, hún Eva Þengilsdóttir, haft á mig mest áhrif,“ segir Malli og bætir við að starf hans í lögreglunni í Eyjum ´92 til ´94 hafi mótað hann og verið eftirminnileg lífreynsla sem hugsanlega hafi gert hann auðmjúkari og þakklátari. Árið 2012 var Malli skipaður sendiherra í Genf þar sem hann tók við stöðu fastafulltrúa Íslands. 2106 tók Malli við sem sendiherra í Berlín en flytur heim í sumar og tekur við skrifstofu Alþjóða- og öryggismála í utanríkisráðuneytinu. Örlagavaldurinn, Ásgeir Sigurvinsson Átrúnaðargoð Malla á árum áður, Ásgeir Sigurvinsson átti stóran þátt í því að Malli fór til Þýskalands. Hann rakst á Ásgeir nokkrum dögum áður en hann átti að byrja í HÍ. Vatt sér að honum og sagðist vilja læra betri þýsku og Ásgeir hlyti að geta aðstoðað sig eitthvað auk þess sem hann væri þokkalegur í fótbolta, kominn í meistaraflokk ÍBV og allt. ,, Ásgeir brást vel við beiðni unga frakka mannsins, hringdi í félaga sinn Guido Büchwald, sem tekið hafði við sem fyrirliði Stuttgart af Ásgeiri, en Guido átti tennishöll rétt hjá háskólaborginni Tübingen. Í stuttu máli var ég byrjaður að ryksuga tennisvelli og spila fótbolta með liði í fimmtu deild nokkrum vikum seinna. Auðvitað var Ásgeir fyrsti maðurinn sem ég hringdi í eftir að ég varð sendiherra í Berlín. Án hans aðstoðar kynni ég sennilega bara menntaskólaþýsku og væri ekki hér í dag,” segir Malli sem léta setja 2 tonna grjót-hnullung úr Eldfellshrauninu fyrir framan innganginn að sendiráðsbyggingu Norðurlandanna. Hugmyndina átti eiginkonan og vildi með hnullungnum vekja athygli og draga fólk að marg-miðlunarsýningu um frumkrafta Íslands. Ég hringdi strax í Dóra Sveins, vin minn úr Ásleyjar-félaginu og fyrrum samstarfsfélaga úr löggunni, til þess að finna steina uppá hrauni og taka myndir. Steinninn var kominn í skip daginn eftir og út rúmri viku seinna. Það var flottur Eyjabragur á þessu – ekkert verið að flækja málin en þýsku tollurunum gekk eitthvað illa að tollflokka steininn,” segir Malli sem játar að það hafi verið auðveldara að tala þýsku tollarana til en Dóra Sveins í bláupphafi símtals þeirra. ,,Dóri hélt að ég væri að atast í sér vegna þess að sama morgun höfðu einhverjir Álseyjarfélagar rifjað upp á lokaðri fésbókarsíðu 20 ára gamlan hrekk um indjána og lundagogga. Halli Steini, ásamt 4-5 Álseyjarfélögum, púluðu og puðuðu á hverju kvöld í heila viku við að skilja
lundagogga frá hamnum niður í Álseyjarkró. Þetta gekk hægt og menn reyndu ýmsar aðferðir, m.a. að sjóða þá í vatni og athuga hvort hinir gikkföstu goggar losnuðu auk þess sem Stebbi í Eyjablikk var fenginn til þess að sérsmíða töng til þess arna. Nefin áttu að fara til Kanada á 2 dollara stykkið. Eftir að Halli Steini fékk nóg fór hann að grennslast fyrir um fyrirspurnina sem barst Álseyjarfélaginu víst í gegnum utanríkisráðuneytið með vísan í tölvupóst frá innfæddum indjána í Kanada. Mörgum árum seinna þegar við höfðum lokið hamflettingu niður í kró hrasaði ég um kassa sem lá á gólfinu og viti menn, út duttu nokkrir lundagoggar. Þegar ég í sakleysi mínu fór að spyrjast fyrir um hvort indjánagreyið hefði aldrei fengið goggana snöggreiddist Halli Steini, skellti mér út í vegg og sagði ,,Malli það var aldrei neinn indjáni og heldur enginn tölvupóstur viðurkenndu það,” þegar ég reyndi eitthvað að malda í móinn bætti hann ennþá reiðari við ,,þeir senda reykmerki en ekki tölvupósta, það er bara svoleiðis,”. Malli segist hafa gengist við glæpnum þó hann haldi fram sakleysi sínu enn þann dag í dag og óskar sjómönnum til hamingju með daginn.
Malli á milli knattspyrnustjarnanna, Rudi Völler og Ásgeirs Sigurvinssonar í Felleshus í Berlín á HM í fótbolta í sumar.
69
ÁGÓÐI SJÓMANNABJÓRSINS RENNUR TIL GÓÐS MÁLEFNI
BEDDI ER SJÓMANNADAGSBJÓRINN Í ÁR HJÁ THE BROTHERS BREWERY Síðustu þrjá sjómannadaga hafa strákarnir í The Brothers Brewery valið einn sjómann og heiðrar hann með því að nefna bjór í höfuðið á honum. Árið 2016 var það Ragnar Þór Jóhannsson sem valinn var og hlaut fyrsti sjómannabjórinn nafnið Togarinn. Árið 2017 heiðruðu strákarnir Ríkharð Zoëga Stefánsson og hlaut bjórinn það ár nafnið Zoëga. Á síðasta ári var það Sverrir Gunnlaugsson sem hlaut þann heiður að fá bjór nefndan eftir sér. Í ár heiðra strákarnir minningu Bergvins Oddssonar skipstjóra og útgerðarmanns. Bergvin Oddsson fæddist á Neskaupsstað 22. apríl 1943 og lést Bergvin þann 22.september síðastliðinn. Bergvin var útgerðarmaður og skipstjóri í Vestmannaeyjum. Bergvin kynntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Maríu Friðriksdóttur frá Skálum á Langanesi, 1962. Bergvin lauk námi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1964. Það sama ár fluttu hin nýgiftu hjón til Eyja og bjuggu þar allan sinn búskap. Bergvin stundaði sjómennsku hjá frænda sínum Helga Bergvins og fleiri útgerðum fyrst eftir komuna til Eyja. Árið 1969 tók hann við skipstjórn á Ver VE, aðeins 26 ára gamall. Árið 1974 stofnaði hann, í félagi við bróður sinn og mág, útgerðarfélag sem gerði út fiskiskipið Glófaxa VE 300. Samanlagt var Bergvin skipstjóri á fiskiskipum í Eyjum í næstum 40 ár. Árið 1986 keypti hann félaga sína útúr útgerðinni og stjórnaði henni til loka árs 2017. Árið 2005 keypti Bergvin og gerði út litla trillu, Glófaxa II. VE 301. Við andlátið var fjölskyldan með í smíðum nýjan 12 tonna plastbát, sem hefur fengið nafnið Glófaxi VE 300. The Brothers Brewery hefur því ákveðið að sjómannabjórinn 2019 hljóti nafnið Beddi til að heiðra minningu Bergvins Oddsonar og verður flaska með Bedda boðinn upp á sjómannaballinu í ár eins og gert hefur verið með sjómannabjóra síðustu ára og rennur allur ágóðinn í gott málefni.
70
Verslun Skipalyftunnar MIKIÐ ÚRVAL AF: efnavöru verkfærum vinnufatnaði
veiðarfæravörum boltum, róm og skífum straub tengjum legum og pakkdósum suðu og slípivörum
hosu- og pariklemmum smurkoppum trillu zinki viftureimum
Skipalyftan ehf. óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn!
SKIPALYFTAN ehf. Skipalyftan ehf. l Eiðinu l 900 Vestmannaeyjum l Sími 488 3550 l 481 1493
71
FARSÆLT SAMSTARF SS OG SJÓMANNADAGSRÁÐS
Á myndinni eru Reynir Björgvinsson (til vinstri) og Jónas PálmarBjörnsson (til hægr).
„SS er 112 ára matvælafyrirtæki í eigu bænda sem Vestmannaeyingar þekkja vel. Það er gaman að fá að taka þátt í þessum hátíðarhöldum með ykkur og fá um leið að kynna vörurnar okkar,“ segir Hafþór Úlfarsson, deildarstjóri SS um þá hefð sem komin er á í samstarfi SS og Sjómannadagsráðs Vestmannaeyja. Það mætir fólk frá okkur með grillin á Sjómannadaginn og gefur gestum smakk af því sem SS hefur upp á að bjóða. „Þetta hófst þegar Ríkharður (Stefánsson) hafði samband við okkur fyrir hönd Sjómannadagsráðs fyrir rúmlega tveimur árum með ósk um að við kæmum og tækjum þátt í hátíðarhöldunum á Sjómannadaginn í Vestmannaeyjum með því að kynna vörur okkar á hátíðinni,“ segir Hafþór sem er ánægður með samstarfið.
„Okkar meginstarfsemi fer fram á Hvolsvelli þar sem matvælavinnslan er til húsa og því stutt að fara til Eyja. Enda reyndist það auðsótt að fá fólk í þetta verkefni enda alltaf gaman að koma til Eyja.“ Hafþór segir að fulltrúar þeirra á svæðinu hafi fengið mjög góðar viðtökur. „Gestir á svæðinu virtust vera ánægðir með pylsurnar og kjötið sem boðið var uppá. Það verður spennandi að mæta aftur í ár. En við munum m.a. bjóða fólki að smakka Pylsur fagmannsins sem eru sjóðheitar chili- og ostapylsur sem hafa hlotið gullverðlaun í fagkeppni meistarafélags kjötiðnaðaramanna,“ sagði Hafþór að endingu.
Salt Umbúðalausnir Rekstrarvörur Íbætiefni 72
Cuxhavengötu 1 · 220 Hafnarfirði · sími: 560 4300 · saltkaup@saltkaup.is · www.saltkaup.is
ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Sjómenn! Sendum ykkur bestu kveðjur & heillaóskir á sjómannadaginn
73
Sendum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins!
STÉTTARFÉLAG VESTMANNAEYJUM FYRST STOFNAÐ 1917
Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu árnaðaróskir á sjómannadaginn
KARL KRISTMANNS UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN SÍMI 481-1971 74
Sjรณmenn & fjรถlskyldur, Til hamingju meรฐ daginn! 75
EFTIRMINNILEGUR FISKIRÓÐUR Á TVEIMUR ÁRABÁTUM ÚR REYNISHÖFN 1941:
LENDING ÓFÆR OG VORU DREGNIR TIL EYJA AF BALDRI VE ALLS VORU 24 Í ÁHÖFN ÞESSARA TVEGGJA BÁTA – ERFIÐLEIKAR VIÐ AÐ KOMA BÁTUNUM TIL BAKA Athygli ritstjóra var vakin á grein eftir Sigþór Sigurðsson í Litla-Hvammi í Mýrdal sem ekki hefur áður birst á prenti um fiskiróður úr Reynishöfn í Mýrdal í mars 1941 þar sem Vestmannaeyjar koma mjög við sögu. Greinin lýsir vel þeim gríðarlega erfiðu aðstæðum sem sjómenn bjuggu við og áttu ekki síður við um útræði áraskipa frá Vík og Reynishöfn í Mýrdal. Blaðið þakkar Sigþóri kærlega fyrir greinina og þær ítarlegu upplýsingar og innsýn sem hún veitir. Þannig ber í veiði að Sigþór var á sinni fyrstu vetrarvertíð í Eyjum þegar umræddir atburðir áttu sér stað. Sjötta mars 1941 fóru tveir bátar í róður úr Reynishöfn. Voru það fyrstu róðrar þeirra á vertíðinni. Bátarnir báru báðir nafnið Svanur. Voru þeir mikið mismunandi að stærð. Jafnan nefndir með lýsingarorðunum að forskeyti Litliog Stóri- Svanur vegna stærðarmunar. Stóri Svanur var áttróinn og með fimmtán manna skipshöfn. Formaður Finnbogi Einarsson í Presthúsum. Litli Svanur var sexæringur með tíu manna skipshöfn, formaður Sveinn Einarsson á Reyni. Voru þeir komnir á sjó snemma dags og urðu fljótt varir við fisk. Skömmu eftir hádegi voru
76
Áhöfnin á Litla Svan
þeir búnir að fá hleðslu á Litla Svan svo þeir leita lands til að kasta farmi. Gekk það allt vel fyrir sig þó að sjór væri nokkuð stór á köflum. Reru þeir því aftur út þar sem æði langur dagur var orðinn með birtu. Einnig höfðu skipsverjar á Stóra Svan haft allgóðan fiskidrátt. Ófært til lendingar Er líða tók á daginn voru báðir bátarnir orðnir vel fiskaðir og fara að leita til lands. Komu þeir nokkuð samtímis inn á legu. Sjá þeir þá að fyrir er í fjörunni nýlentur bátur frá Vík og er það Víkingur og formaður með hann Árni Einarsson. Gerði hann strax viðvart til þeirra sem úti voru með veifu að ófært sé til lendingar svo það verður sammælst um að leggja frá og lagst á árar og róið út að Dyrhólaey. En þar urðu sömu aðstæður, sjór ekki talinn hreppandi til að hugsanlegt væri að reyna lendingu. Árni á Víkingi hafði lagt frá í Vík þar sem bátur er var honum samtímis á sjó lagði þar inn til lendingar en hlekktist á svo að af hlaust stórslys er sex menn drukknuðu. Um björgun frá skipsverjum Víkings var óhugsandi vegna aðstæðna á sjólagi þar við ströndina. Fiskurinn settur um borð í Leó VE Reynishafnarbátarnir létu nú reka vestur með ströndinni eftir að þeir komu vestur fyrir Dyrhólaey. Undir kvöldið reru þeir austur að Mávadrang og lögðust þar alveg upp við dranginn í skjóli og straumlausum sjó. Ekki höfðu þeir lengi legið þar er bar að mótorbátinn Leó frá Vestmannaeyjum. Var þeim kunnugt um allar aðstæður þeirra sem á árabátunum voru gegnum Vestmannaeyjaradíó. Var Leó á leið til Hornafjarðar með fisk í útflutning þaðan því alltaf vantaði fisk á Englandsmarkað í stríðinu. Buðust þeir nú til að taka hjá þeim fiskinn úr róðrabátunum svo léttara væri að hreyfa þá og einnig buðust þeir til að koma fiskinum í sölu sem var vel þegið. Var að heyra á Svanskörlum seinna að þeir
Áhöfnin á Litla Svan
hefðu fengið vel fyrir aflann. Þá sagði skipsstjórinn á Leó, Þorvaldur Guðjónsson, þeim að búið væri að ákveða að senda mótorbát til þeirra sem fyrst og fara með mannskap og báta til Eyja. Að síðustu fékk hann þeim ljósker svo hægara væri að koma auga á þá eftir að myrkur væri skollið á. Eitthvað skiptust þeir Svanskallar á með ljósmerkjum við vitavörðinn í Dyrhólaeyjarvita til að stytta biðina. Svo vel vildi til að allan þann tíma sem beðið var eftir bát frá Vestmannaeyjum var stillt og gott veður. Baldur frá Eyjum kemur til bjargar Skömmu eftir miðnætti birtist Vestmannaeyjabáturinn Baldur til að veita bátunum aðstoð og þar skipstjóri Haraldur Hannesson. Er Baldur lagðist að Svönunum var alveg dimmt að nóttu. Var gengið frá taugum í bátana en ekki hreyft sig fyrr en aðeins tók að birta. Þá keyrt austur á móts við Reynishöfn til að sjá aðstæður. Að allra dómi var talið fráleitt að huga að lendingu og þar næst tekið strikið til Vestmannaeyja. Ferðin til Eyja gekk vel og voru þeir komnir þar um hádegi. Gunnar Ólafsson á Tanganum sendi mannskap úr sínu aðgerðarhúsi til að aðstoða við að taka róðrarbátana upp. Voru þeir settir upp inní Botni sem kallað var þá, þar sem Friðarhöfnin er nú, og gengið frá þeim þar til vors. Síðan bauð Gunnar öllum þessum mýrdælsku sjómönnum til matarveislu í Sjálfstæðishúsinu í Eyjum. Fengu góðar móttökur Vert er að taka það fram að Gunnar Ólafsson var nokkur ár faktor við Brideverslun í Vík á árunum kringum 1900 og hafði alltaf haldið
góðu sambandi við Skaftfellinga upp frá því og mat þá mikils vegna traustra viðskipta frá þeim tíma. Þarna voru nú samtals tuttugu og fimm Mýrdælingar er þurftu sérstaklega að fá aðgang að svefnplássi til að geta hvílst eftir óvenjulangan tíma frá því þeir lögðu í róður úr Reynishöfn. Á hávertíð í Eyjum voru venjulega öll svefnpláss fullskipuð af vertíðarfólki. En Mýrdælingar áttu á þessum tíma margt af skyldmennum og kunningjafólki meðal Eyjafólks svo það olli ekki neinum vandræðum með góðar móttökur á allan hátt. Er rétt að tilgreina þessar skipshafnir hvora fyrir sig. Áhafnir bátanna Á Stóra Svan voru eftirtaldir: Finnbogi Einarsson bóndi í Presthúsum, Guðjón Guðmundsson bóndi í Presthúsum, Gunnar Magnússon bóndi í Reynisdal, Elimar Helgason vinnumaður í Skammadal, Magnús Finnbogason unglingspiltur í Presthúsum, Högni Klemensson unglingspiltur í Görðum, Sigurður Sigurðsson bóndi í Skammadal, Klemens Árnason bóndi í Görðum, Vigfús Ólafsson bóndi á Brekkum, Einar Einarsson vinnumaður í Þórisholti, Jón Sigurðsson unglingspiltur í Presthúsum, Sigursveinn Sveinsson bóndi á Norður – Fossi, Þorsteinn Ólafsson eldri, vinnumaður á Lækjarbakka, og Steingrímur Jóhannesson unglingspiltur í Reynisdal. Á Litla Svan voru Sveinn Einarsson bóndi á Reyni, Markús Jónsson bóndi á Giljum, Kjartan Einarsson bóndi í Þórisholti, Einar Ársælsson unglingspiltur í Reynishólum, Gísli Skaftason 77
bóndi á Lækjarbakka, Baldvin Skaftason vinnumaður á Suður – Fossi, Benedikt Guðjónsson barnakennari í Reynishjáleigu, Sigurjón Hallvarðsson bóndi i Reynisholti, Þórarinn Einarsson vinnumaður á Reyni og Ársæll Jónsson bóndi í Reynishólum. Ekki þarf að efa það að Mýrdælingarnir tóku þá fyrstu ferð sem hægt var að fá til fasta landsins eftir að hafa hvílt sig vel því flest heimili þeirra voru mjög illa stödd til að annast allar venjulegar gegningar um hávetur ef það ætti að vera dögum saman. Svo happalega vildi til að strandferðaskip sem var á leið vestur með suðurströndinni kom við í Vestmannaeyjum og gat tekið allan mannskapinn til Reykjavíkur. Þaðan komust þeir síðan með bifreið heim. Aðeins er vitað um einn úr þessum sjómannahópi er varð eftir í Vestmannaeyjum og réði sig þar til vertíðarstarfa. Var það Magnús Finnbogason frá Presthúsum. Leigðu gamlan uppskipunarbát Það sést á upptalningu sjómanna að flestir áttu þeir heima í Reynishverfi. Kom fljótt upp í huga þeirra eftir heimkomuna að það vantaði sárlega skip til að fara með á sjó ef vel gæfi. Var því leitað til Halldórs Jónssonar kaupmanns í Suður –Vík er átti nokkra báta um að fá lánað skip vegna hinna óvenjulegu aðstæðna því nú var enginn bátur í Reynishverfi sem var einsdæmi um langan aldur. Náðust samningar við Jón um að hægt væri að fá gamla uppskipunarbátinn Stíganda og leið ekki á löngu að hann var kominn vestur fyrir Reynisfjall og var róið nokkrum sinnum úr Reynishöfn undir formennsku Finnboga Einarssonar í Presthúsum þennan vetur. Ekki gekk þrautalaust að koma bátunum austur Róðrarbátarnir úr Reynishöfn stóðu óhreyfðir inní Botni í Vestmannaeyjum frá því að þeir komu þar í land 7. mars allt þar til að vertíðarfólk fór að hugsa sér til heimferðar um lokin. Fengu Mýrdælingar mótorbátinn Hilmir til að fara með sig austur á Vík og fylgdi því að hafa báða Svanina í slefi meðferðis. Sá dagur rann upp nærri lokum að lagt var upp í þessa ferð. Var norðvestan strekkingur og bjart yfir en fljótlega herti upp í töluverðan vind. Var því brátt brösuglegt hvað snerti bátana er voru í drætti. Vildu festingar losna og þóftur brotna er fest var um þar til sleginn var kaðalhringur um bátana hvorn fyrir sig, svonefnd brók, og dráttartaug tekin fram um mitt framstefnið. Dugði það án lagfæringar alla leið austur á Vík. Enn syrtir í álinn Einn úr hópi vertíðarmanna var Jónatan Jónatansson á Litlu – Heiði er búinn var að 78
stunda vertíðarstörf í Eyjum áratugum saman. Var hann búinn að hafa forgöngu með að Ólafur Jakobsson í Fagradal tæki á móti þeim með uppskipun er kæmi austur á Vík. En er þangað kom hafði sjór versnað það mikið að ógerningur var að fást við slíkt. Þar leiddi inn stóra kviku og komið brim á sjó. Meðal vertíðarfólksins voru nokkrir karlar er höfðu oft komið á sjó í Mýrdalnum er þekktu víða staðhætti við ströndina. Töldu þeir hugsanlegt að hægt væri að nota sjóinn við Eiðið austan Dyrhólaeyjar er vindur væri svona stífur af norðvestri og leggjast undir Skorpunefið við suðausturhorn Dyrhólaeyjar þar sem vitað var að ósinn stóð uppi sem var mjög hagstætt í þessu tilviki. Dreginn hálfur í kafi Var nú komið boðum gegnum Vestmannaeyjaradíó til Víkur með þessa fyrirætlun. Fór því Ólafur Jakobsson með sína skipshöfn vestur í Reynishverfi. Fengu lánaðan Stíganda og reru síðan vestur með Reynisfjörum út á Eiðið við Dyrhólaey. Byrjaði nú mikill darraðadans hjá þeim á Hilmi er þeir sneru frá Vík móti hinni stórgerðu kviku með báða Svanina á slefi. Fór svo að Stóri Svanur lét undan átökum, en var fyrir orðinn með brotnar tvær fremstu þófturnar. Sprakk nú byrðingurinn frá framstefninu stjórnborðsmeginn að verulegu leyti svo hann var þar með ósjófær en dreginn í hálfu kafi. Er komið var vestur að Eiðinu var þar alveg hreyfingarlaus sjór og lagst við Skorpunefið í algeru vari. Gekk uppskipun vel. Í fyrstu ferðinni fór Stígandi með báða Svanina uppí fjöru. Stóra Svan með þóftu fulla af sjó en Litli Svanur með byrðing heilan og flaut vel. Að öðru leyti gekk vel að losa Hilmi bæði með fólk og farangur. Misjöfn örlög bátanna Litla Svan var síðan róið austur yfir ósinn en Stóri Svanur settur eftir fjörunni að Hrófunum. Þá voru nálega tveir mánuðir liðnir frá því þessir bátar lögðu í fiskiróður úr Reynishöfn og ætluðu sér að lenda þar samdægurs. Mikil viðgerð fór fram á Stóra Svan árið eftir. Var honum síðan róið á vetrarvertíðum allt fram til 1946 en eftir þann vetur var hann settur upp að bænum Görðum, hvolft þar og sprekaði síðan uppi. Litla Svan var róið eitthvað eftir að hann kom til sinnar heimahafnar en 1947 var hann tekinn á vörubíl og ekið með hann til Víkur, tekinn þar af við fjárrétt Sláturfélags Suðurlands til viðgerðar sem ei varð úr. Síðan rifinn niður og brennt í kyndingarofni, mest í hótelinu í Vík. Skrifað eftir áramót 2015. Sigþór Sigurðsson í Litla – Hvammi.
Sjómenn og fjölskyldur til hamingju með daginn og eigið góða helgi ! Póley gjafavöruverslun / s: 481-1155 / Bárustíg 8 / www.poley.is
SLÖKKVITÆKJA- & GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTA VESTMANNAEYJA Vesturvegi 40 // Sími 481-2940
79
BÁTARNIR VORU Í VESTMANNAEYJUM FRAM Á VOR Stundaði vertíðir í Vestmannaeyjum Sigþór Sigurðsson fæddist 28. september 1928 í Litla-Hvammi í Mýrdal og ólst þar upp. Hann gekk í Barnaskólann í Litla - Hvammi sem þar var starfræktur til 1968. Sigþór stundaði almenn sveitastörf á unglingsárunum en var auk þess í vegavinnu. Þá sótti hann nokkrar vertíðir í Vestmannaeyjum og réri um árabil til fiskjar á opnum árabátum frá Dyrhólaey. Sigþór réðst í símavinnu sumarið 1953 og vann við það síðan en hann varð fastur starfsmaður hjá Landssímanum 1956 allt til ársins 1998. Sigþór sat í hreppsnefnd um árabil, er stofnfélagi Lionsklúbbsins Suðra, situr í stjórn Byggðasafnsins í Skógum frá 1983, var félagi í kirkjukór Skeiðflatarsóknar í sextíu og átta ár og hefur fengist nokkuð við ritstörf. Sigþór skrifaði um Vatna-Brand í ritröðina Dynskóga en Brandur var móðurbróðir hans. Sigþór er kvæntur Sólveigu Guðmundsdóttur frá Eystri – Skógum og eiga þau sjö börn.
80
Sigþór Sigurðsson. Myndin er tekin fyrsta vertíðarárið hans í Eyjum 1941.
SJÓMENN, TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN
Ecomar sérhæfir sig í umhverfishæfum og vottuðum hágæða vörum fyrir skip og vinnslu. EFNAVÖRUR • HREINSIEFNI • REKSTRARVÖRUR • ÖRYGGISVÖRUR • Aquabreak PX - Sápa fyrir vinnsludekk og allt skipið • Aquatuff – Sterk sápa fyrir efra dekk og vélarúm • Metal Brite – Ryðhreinsir – Sýrusápa • Coldwash HD – Sterkur olíuhreinsir • Gamazyme – Hreinsiefni fyrir WC kerfið
• • • • •
Stamdúkar / Bræludúkar Björgunargallar / Björgunarvesti Umhverfis- og uppsogsvörur Olíumottur / Olíurúllur / Olíupulsur Ultrasonic þvottakör
Samstarfsaðili í Vestmannaeyjum: Ecomar er umboðsaðili fyrir:
Ecomar | Selhelia 11 | 221 Hafnarfjörður | s: 522 7000 | E-mail: sala@ecomar.is
81
ÁRIÐ 1932 - ÁR HARÐRA ÁTAKA Í VESTMANNAEYJUM Árið 1932 var erfitt hjá mörgum Eyjabúum. Kreppan mikla sem skall á 1929 fór vaxandi, atvinnuleysi mikið og jókst sem leið á árið, fátækt mikil og mikil átök í atvinnu- og kaupgjaldsmálum. Þetta ár var kostnaður vegna fátæktarframfærslu meiri en nokkru sinni fyrr. Samt voru aflabrögð nokkuð góð og voru þetta ár gerðir út héðan 59 bátar stærri en 12 tonn og 13 bátar 4-6 tonn. Tap var á útgerð almennt, meira eftir því sem bátarnir voru stærri. Verðfall varð verulegt á útflutningsvörum sem helstar voru fiskafurðir. Í þessu ástandi voru hér mikil átök á vinnumarkaði, sögulegt sjómannaverkfall í upphafi vetrarvertíðar, Kveldúlfsverkfall verkafólks um vorið og í desember var mikil uppákoma á bæjarstjórnarfundi. Þegar maður flettir blöðum frá þessum tíma til að átta sig á atburðarásinni kemur fljótt í ljós að hlutlaus frásögn er ákaflega vandfundin, blöðin rammpólitísk og segja hlutina út frá sínum rétttrúnaði. Á þessum tíma voru líka í gangi átök innan verkalýsðhreyfingarinnar milli róttækra kommúnista og hófsamra jafnaðarmanna og verða deilur þeirra í milli mjög harðvítugar og á þessum árum spöruðu menn ekki stóru orðin. Innan útgerðarmanna hér ríkti líka ágreiningur og kom til klofnings þeirra í sjómannaverkfallinu 1932.
82
Guðmundur Helgason
Útifundur verkafólks á kreppuárunum.
Útifundur verkafólks á kreppuárunum. Um hvað snérist þessi deila? Krafa sjómannafélagsins var að hásetar fengju 250 krónur á mánuði, 90 krónur í fæðispeninga og 15 krónur fyrir hvern helgidag sem unnið var. Í Alþýðublaðinu er viðtal við Guðmund Helgason verkamann um þetta og þar segir hann: “Útgerðarmenn hafa neitað að ganga að þessu og ekki viljað tala við félagið. Hinsvegar hafa þeir reynt að ráða sjómenn upp á aflahlut en ekki tekist.” Útvegsbændur buðu hlutaskipti þar sem allur kostnaður væri greiddur af óskiptu, annar en veiðarfærakostnaður. Í tilkynningu sem Útvegsbændafélagið birti í Morgunblaðinu segir svo: “Sjómannafélagið hefur engar kröfur gert til Útvegsbændafélagsins en hinsvegar tilkynnt að á fundi þess 18. janúar hafi verið kosin samninganefnd. En á þeim sama fundi var líka samþykkt að að hindra alla vinnu við bátana og tilraun, að vísu árangurslaus, gerð til þess í gær af foringjum kommúnista, er virðast stjórna aðgerðum félagsins”. Deilan var komin í alvarlegan hnút, en þá bar til tíðinda: Svokallaðir smáútvegsbændur, sem réðu yfir 25 bátum, klufu sig frá og sömdu við sjómannafélagið. Áfram var samt deilt og sjómenn fóru í fjölmennar kröfugöngur. Og svo kom til átaka:
Í Alþýðublaðinu er þessi frásögn: “Staðið hefur í kaupstreytuþófi í Vestmannaeyjum undanfarið. Hafa sjómenn og verkamenn óskað að fá að tala við útgerðarmenn um kaup og kjör á komandi vertíð en útgerðarmenn hafa ekki viljað við þá tala. Í gærdag var stöðvuð vinna við slippana og vélaverkstæði sem voru að útbúa bátana til vertíðarinnar, enn fremur hættu ýmsir sjómenn vinnu, sem höfðu verið að vinna við bátana. Kl. 2 í gær voru ýmsir úr liði útgerðarmanna orðnir drukknir og fóru að ganga í hópum um göturnar. Réðust þeir að einum og einum verkamanni og lömdu þá og höfðu þessir óðu menn þannig lamið þrjá verkamenn niður þegar drengur kom upp í Alþýðuhús og tjáði verkamönnum sem þar voru saman komnir, 30 að tölu, tíðindin. Fóru verkamennirnir þá þegar á vettvang og mættu hópi af ýmsum mönnum, á að giska 100 að tölu, og lenti undireins í ryskingum. Lauk þeim brátt. Föt voru rifin en engin meiðsli urðu.” Við annan tón kveður í frásögn Morgunblaðsins: “Rann nú upp hinn mikli dagur, fimmtudagurinn 21. þ.m. er alsherjarvinnustöðvun átti að hefjast. Byrjuðu kommúnistar með því að að ganga til ýmsra vinnustöðva í bænum, svo sem vélaverkstæða, slippsins, íshúsanna o.s.frv. og gáfu þá fyrirskipun að vinnu skyldi hætt. Þessi heimsókn skeði laust fyrir hádegi. Þegar enginn verkamaður gegndi kommúnistunum gáfu þeir frest til kl. 2; en yrði þá ekki hætt vinnu myndu verkamenn verða teknir með valdi frá vinnu sinni. Hótun kommúnista barst nú í einni svipan um allan Vestmannaeyjabæ. Á sama augnabliki söfnuðust saman á vinnustöðunum mörg hundruð sjómenn, útgerðarmenn og verkamenn og biðu kommúnistanna. Skyldi nú hart mæta hörðu ef kommúnistar sýndu
sig. Í varnar- og verndarliði þessu var fjöldi verkamanna því þeir hafa, eins og allur almenningur í Eyjum, hinn mesta viðbjóð á framferði kommúnista. Leið nú og beið; kommúnistar sýndu sig ekki á stöðvunum nema hvað fáeinir njósnarar voru þar á sveimi. Leiddist mönnum þá biðin og héldu heim. En þegar mannþyrpingin var komin á aðalgötu bæjarins kemur kommúnistafylkingin á móti henni og verða áflog og ryskingar. Skipti það engum togum, kommúnistar höfðu ekki roð við sjálfboðaliðunum. Lauk þeirri rimmu þannig að tveir fílefldir formenn tóku aðalforingja kommúnista, Ísleif Högnason, á milli sín og leiddu hann heim til sín. Þegar heim kom lofaði Ísleifur bót og betrun, hvað sem úr efndum verður. Heyrst hefur að aðrir forsprakkar kommúnista hafi fengið sömu ráðningu og Ísleifur.” Þriðji tónninn er sleginn í Verkalýðsblaðinu: “Strax eftir að vinnustöðvunin hafði verið framkvæmd á fimmtudaginn söfnuðu stærri bændur í Eyjum undir forystu íhaldsþingmannsins Jóh. Jós. liði til þess að fyrirbyggja vinnustöðvunina. Tilraun þeirra mistóks þó algjörlega og gátu þeir engin frægðarverk unnið önnur en þau, að nokkrir ölvaðir stórbændur og slagsmálahundar tóku sér ofbeldismennina í Keflavík til fyrirmyndar og réðust á verkamenn með bareflum og hótuðu manndrápi og misþyrmingum. Hafa þeir ekkert annað unnið með þessu tiltæki sína en það að vekja á sér fyrirlitningu allrar alþýðu í Eyjum, enda eru samtök verkalýðsins svo rammbyggð í Eyjum nú að þeim mundi ekki takast að beita öðru eins ofbeldi og skoðanabræður þeirra í Keflavík. Öll skrif Morgunblaðsins um þessi mál og um deiluna í Vestmannaeyjum yfirleitt eru ósannindi frá rótum og lítur helst út fyrir að Árni Óla hafi samið skáldsöguna um “betrunarloforð” Ísleifs Högnasonar.” Svona voru nú frásagnir hinna “virtu” blaða, Alþýðublaðsins og Morgunblaðsins og svo Verkalýðsblaðsins sem var gefið út af Kommúnistaflokki Íslands. Satt og rétt í þessu öllu er þó það, að til þessara átaka og ryskinga kom á Vestmannabrautinni, fyrir fram húsið Gunnarshólma. Enn átti eftir að draga til mikilla tíðinda. 26. janúar er þessi frétt í Alþýðublaðinu: “Morðtilraun í Vestmannaeyjum. Um eitt leytið í nótt var skotið inn um glugga hjá Ísleifi Högnasyni í Vestmannaeyjum. Voru sjö menn þar inni og voru að búa sig undir að fara. Hafði Ísleifur gengið fram og aftur rétt innan við gluggann um stund er skotið reið af og
Ísleifur Högnason
83
er sagt að litlu hafi munað að hann yrði fyrir því. Bæjarfógetinn er nú að rannsaka verknað þennan sem mælist afarilla fyrir.” Verkalýðsblaðið 2. febrúar segir frá þessu á forsíðu með stórri fyrirsögn: Banatilræði við Ísleif Högnason, foringja verkalýðsins í Vestmannaeyjum. Blaðið gaf út og dreifði um alla Reykjavík fregnmiða um málið: “Klukkan 1 í nótt voru þeir Ísleifur Högnason og Jón Rafnsson staddir á heimili Ísleifs í Vestmannaeyjum ásamt nokkrum ungum kommúnistum sem nýkomnir voru af fundi í félagi sínu. Voru þeir að ræða um verkfallið og gekk félagi Ísleifur um gólf. Ljós var í stofunni og bar skugga Ísleifs á gluggatjald fyrir glugga þeim er veit til suðurs. Var þá skotið á Ísleif gegn um gluggann en kúlan hæfði hann ekki. Rannsókn er hafin á málinu og hefur bæjarfógeti rannsakað gatið eftir kúluna í rúðunni og virðist allt benda til þess að tilræðismaðurinn hafi skotið úr riffli. Upplýst er nú að um sama leyti og tilræðið var framið var verið að ljúka fundi sem stórútgerðarmenn héldu í Breiðablik. Nú ríður á að allur verkalýður standi saman til að brjóta á bak aftur stéttarandstæðingana sem ekki skirrast til að stofna til manndrápa. Tryggið sigur verkalýðsins í Vestmannaeyjum með því að styrkja kröftuglega fjársöfnun A.S.V. Á því velltur allt. Munið að enginn sjómaður má fara til Vestmannaeyja á meðan verkfallið stendur yfir.” Í Morgunblaðinu kveður hinsvegar við annan tón og fjallar um þetta mál undir fyrirsögininni “Rúðubrot”. Þar er rakin frétt Alþýðblaðsins og sagt frá því að kommúnistadrengir bæjarins hafi hlaupið um allan bæ með grænan fregnmiða þar sem greint er frá því með geigvænlegum þrumugný að nú hafi verið reynt að stytta hinum ágæta forustumanni, Ísleifi Högnasyni, aldur. Morgunblaðið heldur áfram: “Nú víkur sögunni til Ísleifs Högnasonar. Hann kærir fyrir bæjarfógeta í Eyjum laust eftir hádegi á þriðjudag að skotið hafi verið utan af götunni á skugga sinn á gluggatjaldinu þar sem hann var að ganga um gólf fyrir innan.” Bæjarfógetinn hóf strax rannsók og segir Morgunblaðið að þá hafi upplýsts sitt af hverju. “M.a. að hálfur sólarhringur er liðinn frá því banatilræðið á að hafa verið framið og þangað til það var kært. Gatið á rúðunni er vissulega þess vert að að það sé rannsakað. Bæjarfógetinn rannsakaði það gaumgæfilega. Það var 7 millimetrar í þvermál. En gluggatjaldið var heilt, þar var ekkert gat, ekki svo mikið sem nálarögn, hvorki gat eftir kúlu eða broddstaf eða bandprjón eða títiprjón. Eftir þessa 12 tíma – þegar búið var að ræsta til í herberginu – þurrka út öll 84
verksummerki nema gatið á rúðunni – þá er kallað á lögregluna. Hvílíkur skrípaleikur.” Grínblaðið Spegillinn nýtir sér þetta mál og birtir pistil og teikningu í blaðinu: “Morðtilraun í Vestmannaeyjum. Það er ekki til einskis byltingatímar með þjóð vorri. Íslendingar eru annars heldur seinir til stórræða, en þó virðist nú hafa útaf brugðið og er þá átt við hina fúlu morðtilraun er gerð var gegn kommúnistaforingjanum í Vestmannaeyjum. Og ekki nóg með það að ganga næst lífi aumingja mannsins, heldur auk þess að gera honum þá svívirðingu að gefa í skyn að hann hnigi fyrir kúlu úr steini eða blýi, sem sýnir sig að geta ekki gert gluggatjaldinu mein. Sem betur fór slapp Ísleifur með hræðsluna enda mun hún hafa verið eigi all-lítil, þar sem hann þurfti 12 tíma til að stramma sig það mikið upp, að hann mætti tilkynna yfirvaldinu þessa árás, en þó ekki nógu mikið til þess að þora að segja vinnukonunni frá henni. Ættu slíkir menn ekki að hætta sér út í stórræði.” Teikning í Speglinum.
Það urðu svo örlög þessa verkfalls sjómanna að verkfallinu var aflýst í byrjun febrúar eftir að það hafði staðið yfir í tvær vikur. Var orðið mjög þröngt í búi hjá fólki, kreppa og atvinnuleysi fór vaxandi. Og auk þess virtu ekki allir sjómenn verkfallið, heldur réru í trássi við sjómannafélagið. Þá komu hingað margir aðkomusjómenn sem réðu sig í pláss heimamanna. Um vorið kom enn til verkfalls í Vestmannaeyjum. Stórveldið Kveldúlfur hafði þá tekið á leigu mannvirki Gísla J. Johnsen sem hafði neiðst til að hætta hér sínum mikla rekstri. Kveldúlfur ætlaði að lækka kaup fiskverkafólks sem hjá þeim starfaði sem það sætti sig ekki við og boðaði til verkfalls. Stóð verkfallið yfir í 11 daga og lauk með því að verkafólkið fékk hrundið þessum áformum Kveldúlfsmanna.
Verkafólk 1932.
Atvinnuleysi var geigvænlegt í Vestmannaeyjum er leið á árið og um mitt ár höfðu 290 verkamenn farið fram á að fá vinnu til að sjá sér og sínum fyrir lífsviðurværi á þessum alverlegu tímum. Bærinn varði nokkru fé til til atvinnubóta en það dugði ákaflega skammt. Með vaxandi atvinnuleysi komu fram kröfur til bæjarstjórnar frá fundi atvinnuleysingja um aukna atvinnu. Þann 15. desember varð svo aldeilis sögulegur fundur í bæjarstjórn. Haraldur Guðnason bókavörður segir svo frá þessum fundi í hinni merku bók sinni Við Ægisdyr: “Í lok fundarins átti að taka fyrir ýmsar kröfur atvinnuleysingafundar. Málinu var vísað frá með rökstuddri dagskrá. Var þéttsetinn salurinn af verkamönnum og öðrum. Þá er svo var til, sem var oft á þessum tíma, sátu fundargestir þétt upp við borð bæjarfulltrúanna og létu óspart í ljós vanþóknun sína á gerðum þeirra er svo bar undir. Fundur þessir stóðu oft langt fram á nótt og loft lævi blandið. Á áratugnum 1930-40 snérust umræður oft um pólitísk dægurmál utan verksviðs bæjarstjórnar og tækifæri þá notuð til áróðurs, sem féll í góðan jarðveg hjá áheyrendum. Þótti sumum með betri skemmtunum að sækja þessa fundi. Í fundarsal hékk biblíumynd á vegg. Var sagt, að þá er ræðumönnum varð litið á myndina meðan þeir létu skammirnar dynja, hafi ekki verið örgrannt, að harðyrði þeirra hafi slævst nokkuð. Eitt sinn er einhver bæjarfulltrúanna lét gamminn geisa gall fundarmaður við: Líttu á spjaldið. Fór ræðumaður þá að tala í kristilegum tón. Á fyrrnefndum kvöldfundi fjölmenntu verkamenn til stuðnings kröfum sínum. Þá er
mál þeirra hlaut ekki afgreiðslu brugðu þeir hart við og kröfðust þess, að málið yrðir tekið fyrir að nýju, en búið var að slíta fundinum. Var neitað að setja fund að nýju. Nokkrir menn skipuðu sér þá við dyrnar og var bæjarfulltrúum varnað útgöngu. Varð nú mikil háreysti í salnum, en ekki veruleg átök eða sviptingar. Bæjarstjóri (Jóhann Gunnar Ólafsson) og Kolka læknir sátu kyrrir í sætum sínum, tóku lífinu með ró og kveiktu sér í vindling, virtu fyrir sér lætin enda bjuggust þeir ekki við neinum limlestingum. Ýmsum öðrum líkaði illa að vera innikróaðir. Einn fulltrúa, Guðmundur Magnússon trésmiður, ruddist út úr salnum, en hann var mjög vel að manni. Fór hann gegnum varnarvegg dyragæslumanna, sumir segja yfir herðar þeirra. Var reynt að halda honum, en það tókst ekki. Einn fulltrúanna hafði á orði að fara út um glugga, ef þessu héldi áfram. Ekki var umsátin mjög löng, líklega ekki öllu lengri en hálfa klukkustund. Var þá boðað til fundar í Alþýðuhúsinu og skorað á bæjarfulltrúa að kom þangað. Eigi munu þeir hafa tekið því boði, orðið fegnir að sleppa úr umsát og skundað heim.” Líkur hér upprifjun á þessum róstur- og erfiðleikatímum í Vestmannaeyjum árið 1932. Samantekt: Hermann Kr. Jónsson.
85
HVAÐ VITA BÖRNIN UM SJÓMENNSKU? Nafn og aldur: Aron Hrafnsson og er 4 ára. Veistu hvað sjómennirnir gera á sjónum? veiða fisk. Hefur þú farið á sjó? já með pabba mínum. Veistu hvað háseti er? Nei. Þekkir þú einhverjar fisktegundir? Þorsk, ýsu og lúðu. Þekkir þú einhverja sjómenn? Pabba minn.Hvað heitir báturinn sem þeir eru á? Bravó. Langar þig að vera sjómaður þegar þú verður stór? Nei, ég ætla að verða löggumaður, vinnumaður, gítarmaður og slökkvumaður. Veistu hvernig sjómennirnir veiða fiskinn? á, með veiðistöng. Það eru settir ormar á og svo bíta fiskarnir í orminn Borðar þú fisk? Bara á leikskólanum. Nafn og aldur: Þórður Ágúst Hlynsson og er 5 ára Veistu hvað sjómennirnir gera á sjónum? Sigla, veiða, nota netin til að veiða, drepa fiskana. Hefur þú farið á sjó? Já Í Herjólf 100 sinnum. Veistu hvað háseti er? Kóngasæti ? Þekkir þú einhverjar fisktegundir? Stingstökku og hákarl. Þekkir þú einhverja sjómenn? Pabbi minn hann Hlynur. Hvað heitir báturinn sem pabbi þinn er á? Þórunnn Sveinsdóttir Langar þig að vera sjómaður þegar þú verður stór? Nei ég ætla að vinna á Herjólfi Veistu hvernig sjómennirnir veiða fiskinn? Með neti Borðar þú fisk? Já en ekki harðfisk. Nafn og aldur: Ólíver Elí og ég er 5 ára. Veistu hvað sjómennirnir gera á sjónum? Veiða fisk úr sjónum. Hefur þú farið á sjó? Ekki oft, en ég fór einu sinni í vondu veðri og keyrði í hringi með afa Stebba Veistu hvað háseti er? Nei ég veit það ekki. Þekkir þú einhverjar fisktegundir? Makríll, loðna, silungur, túnfiskur og hýrenufiskur. Þekkir þú einhverja sjómenn? Já afa minn, hann afi Stebbi Hvað heitir báturinn sem pabbi þinn er á? Þórunn. Langar þig að vera sjómaður þegar þú verður stór? Nei, mig langar að verða söngvari eins og Freddie Mercury.... Ohh ég dýrka hann ! Veistu hvernig sjómennirnir veiða fiskinn? Þeir veiða með neti og veiðistöng og á veiðistöngina er settur matur Borðar þú fisk? Já ég borða ýsu. 86
Nafn og aldur: Ísak Leví og ég er 5 ára. Veistu hvað sjómennirnir gera á sjónum? Veiða fiska. Hefur þú farið á sjó? Já en bara á Herjólf, en ég hef ekki farið út á Herjólfi má bara vera inni. Veistu hvað háseti er? Það er svona til þess að setja utan um hálsinn Þekkir þú einhverjar fisktegundir? Hákarl, sæfisk, sækú, sel, gullfisk, höfrung, steinbít, skötu, túnfisk og njólafisk – hann er með broddum og er mjög líkur hákarlinum Þekkir þú einhverja sjómenn? Já, afa Stebba Hvað heitir báturinn sem pabbi þinn er á? Man það ekki. Langar þig að vera sjómaður þegar þú verður stór? Nei, ég ætla að verða söngvari eins og Freddie Mercury. Veistu hvernig sjómennirnir veiða fiskinn? Þeir nota net sem þeir henda út í sjó þegar þeir sjá fiskana, geta líka notað veiðistöng eða háf. Borðar þú fisk? Ég borða fisk í raspi og soðinn fisk með tómatsósu. Nafn: Alena Ýr Guðmundsdóttir Aldur: 5 að verða 6 ára Hvað gera sjómenn: Veiða fisk. Hefur þú farið á sjó: Já með afa fúsa. Veistu hvað háseti er? Nei. Þekkir þú einhverjar fisktegundir? Já , stjörnufiskur, gullfiskur og ýsa. Þekkir þú einhverja sjómenn: Já pabbi , Markús afi , Fúsi afi og Björgvin Þór. Báturinn sem afi er á: Veit það ekki. Langar þig að verða sjómaður þegar þú ert orðin stór?: No way. Veistu hvernig sjómennirnir veiða fiskinn? Með neti. Borðar þú fisk? Já.
Nafn: Bjartey Perla Traustadóttir Aldur: 5 að verða 6 ára. Veistu hvað sjómennirnir gera á sjónum? Veiða fisk. Hefur þú farið á sjó? Ég hef farið á árabát og siglt á Herjólfi. Veistu hvað háseti er? Nei, kannski einhver sem situr á stól sem amma á , svona kósý stól. Þekkir þú einhverjar fisktegundir? JJá, Ýsu, Lax, Þorsk og Karfa. Þekkir þú einhverja sjómenn? Já, Daða. Hvað heitir báturinn sem afi þinn er á? Herjólfur. Langar þig að vera sjómaður þegar þú verður stór? Nei.. þá þarf maður að vera lengi í burtu og vera mikið með fisk. Veistu hvernig sjómennirnir veiða fiskinn? Já með neti og veiðistöng. Borðar þú fisk? Já auðvitað borða ég fisk. 87
ÚTVEGSBÓNDINN BINNI EIGNAÐIST HÁLFA TRILLU SAUTJÁN ÁRA GAMALL
88
Árið er 1977. Sautján ára piltur á Arnarstapa á Snæfellsnesi kaupir helming í nýrri trillu af eldri bróður sínum. Hann er nýkominn af vertíð í Ólafsvík þar sem hann sjóaðist eftir að hafa ælt lifur og lungum samfellt í einn og hálfan mánuð. Hinn helminginn í trillunni á faðir bræðranna. Útvegssamvinna feðganna á eftir að vara í mörg ár. Sonurinn er á vetrarvertíðum í Rifi og í námi á Hvanneyri. Árið 1983 sér hann að enga framtíð fyrir sér í sjávarútvegi eða búskap og snýr sér að námi á Bifröst, síðar í Háskóla Íslands og háskóla í York á Englandi. Hann kemur flest vor á heimaslóðir og rær til fiskjar með föður sínum í maí og fram eftir júní. Fiskirí í maí er jafnan fínt og gefur vel í aðra hönd. Með tekjunum má halda sér gangandi í námi og síðan verða menn ráðsettir og byrja að safna fyrir íbúð. Þegar líður á júní tregðast aflinn og sonurinn hverfur á braut í aðra sumarvinnu, á togara eða til afleysinga á skrifstofu á Patreksfirði. Pabbi rær áfram.
Mjór varð mikils vísir í Eyjum en ekki á Snæfellsnesi Feðgarnir á Arnarstapa tóku á sínum tíma þátt í að stofna samvinnufélag smábátaútgerða á Snæfellsnesi til að annast fyrir sig fiskvinnslu. Þetta var raunar sama fyrirkomulag og sama hugsun og hjá útgerðarmönnum sem stofnuðu Vinnslustöðina í lok árs 1946. Mjór varð mikils vísir í Eyjum en samvinnufélagið á Snæfellsnesi fór hins vegar á hliðina. Feðgarnir í sögunni eru Kristgeir Kristinsson, bóndi og trillukarl á Arnarstapa, og Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, Binni í Vinnslustöð inni. Hér skal ljósi varpað á trillukarlinn Binna. Á Vinnslustöðina verður ekki minnst enda langt utan atburðarásarinnar á Snæfellsnesi. Kristgeir lést í nóvember 2013, 87 ára að aldri. Hann fór fyrst í róður með föður sínum 12 ára gamall og reri eftir frá Arnarstapa sumar eftir sumar nánast óslitið í 73 ár! Þremur mánuðum fyrir andlátið fór hann á sjó í síðasta sinn með Kristni syni sínum og veiddi það sem eftir var af kvóta fiskveiðiársins. Hann hvarf af sviðinu með hreint aflamarksborð
Smábátar eru teknir inn í aflamarkskerfið í byrjun árs 1991. Feðgarnir á Arnarstapa fá úthlutað 42 tonnum en svo skerðist kvótinn og er kominn niður í 11 tonn aðeins fjórum árum síðar. Þeir bregðast við með því að kaupa aðra trillu. Sú er ekki í aflamarkskerfinu heldur með leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum. Svo fer að þeir skipta með sér trillum í félagsskapnum. Faðirinn heldur sig við nýlega keyptan daga- og færabátinn en sonurinn eignast kvótabátinn og rær á honum næstu vorin.
Eini róðurinn frá Akranesi á Arnarstapa „Pabbi og Kiddi bróðir létu smíða fyrir sig trillu í Stykkishólmi 1976 og áttu til helminga. Ári síðar sagði pabbi mér að Kiddi vildi selja sinn helming. Pabbi taldi að hann neyddist þá til að selja sinn helming líka og þar með færi báturinn eitthvað annað. Hann var heldur aumur yfir þeim málalyktum. Ég ákvað þá að kaupa hlut bróður míns og samdi um að borga á tilteknum tíma. Þannig atvikaðist það að ég var kominn í útgerðarfélag með föður mínum sautján ára gamall,“ segir Binni.
Undir aldamótin er sonurinn við það að gefast upp en rekst þá á förnum vegi á gamlan félaga sinn sem hann kynntist níu ára á sundnámskeiði í Laugagerðisskóla á Snæfellsnesi. Sá er líka í trilluútgerð en veltir fyrir sér að hætta.
„Við rerum saman öll vor að einu undanteknu eftir þetta allt til ársins 1991, fyrst allt sumarið en síðar aðeins í maí og framan af júní. Foreldrar mínir fluttu til Akraness 1978 og við fórum sömu leið með bátinn og ráðgerðum að róa þaðan.
Skemmst er frá að segja að gömlu sundfélagarnir ákveða að rugla saman reitum í trilluútgerð í byrjun árs 2001. Úr verður Kvika ehf. útgerð sem gerir út Kviku SH-423 frá Arnarstapa eða Ólafsvík eftir atvikum. Kvika ehf. er 36. stærsta útgerð landsins á krókaflamarki með um 360 þorskígildistonn, númer 96 í stærðarröð útgerðarfyrirtækja á landinu og í hópi framúrskarandi fyrirtækja sem Creditinfo útnefndi árið 2018.
Vorið 1979 lauk ég búfræðinámi á Hvanneyri og á fögrum maídegi rerum við feðgar til fiskjar frá Akranesi út á Faxaflóa en þekktum engin mið og veiddum ekki nokkurn skapaðan hlut. Snæfellsjökull blasti við og togaði í okkur. Við sigldum vestur, veiddum vel á heimamiðunum okkar á leiðinni og lönduðum á Arnarstapa. Fyrsti og eini róðurinn frá Akranesi endaði þar! Pabbi hringdi í mömmu og sagði henni hvar við værum niður komnir. Við fengum húsaskjól og aðstöðu til útgerðar. Fljótlega reisti pabbi sumarbústað á Arnarstapa sem varð bækistöð okkar. Við reyndum aldrei aftur að róa frá Skaganum.“
89
Sundfélagar í útgerð „Foreldrar mínir bjuggu með bæði kýr og kindur. Ég var svo að atast í ýmsu heima fyrir strákpattinn, alltaf eitthvað að gera og hjálpa til því ég var ekki nothæfur á sjóinn vegna sjóveiki. Pabbi sótti sjóinn stíft frá því að byrjaði að gefa í apríl. Samhliða því þurfti að sinna búinu um sauðburð, mjólka og síðar að heyja. Þar gat ég hjálpað til. Á haustin stundaði pabbi svo lúðuog skötuveiðar með haukalóð og ég tók þátt í því eftir að ég sjóaðist. Fyrstu árin var fiskurinn hausaður og flattur í salt. Við þurrkuðum hann síðan á grindum utan dyra. Þetta kallaði á að vel væri fylgst með mögulegum veðrabrigðum. Oft man ég eftir því að hafa tekið á rás til að safna fiskinum saman og koma honum í skjól ef útlit var fyrir rigningu. Síðar lögðum við upp hjá fiskvinnslunni á Stapa og þegar hún fór á hausinn seldum við fiskinn út á Rif og síðar á fiskmörkuðum eftir að þeir komu til sögunnar. Eftir að kvótakerfi smábáta kom til sögunnar og kvótinn okkar skertist heilmikið í framhaldinu var lítið upp úr þessu að hafa fyrir eina fjölskyldu, hvað þá tvær. Við keyptum aðra trillu. Hún var í sóknardagakerfinu og pabbi fór að róa á henni. Hann vildi selja kvótann af eldri trillunni en ég var ekki á því og tók gamla bátinn og nokkurra tonna kvóta sem honum fylgdi. Þegar ég vann í Íslandsbanka í Vestmannaeyjum og síðar í Reykjavík tók ég sumarfrí í maí og fór yfirleitt vestur á Stapa. Þar reri ég fyrst með pabba en síðan einn á steinbít á gamla bátnum og beitti sjálfur; skrapp út og lagði línuna, fór svo í land meðan línan lá og beitti og fór svo út seinnipartinn og dró línuna. Mest fékk ég 3,5 tonn á 7 bala.
Síðar flutti ég aftur til Eyja til að gegna því starfi sem ég sinni enn. Þá hafði ég öðrum hnöppum að hneppa en að sýsla við trilluútgerð frá Arnarstapa og íhugaði að losa mig við trilluna. Einmitt um það leyti rakst ég á Hjört Sigurðsson, gamlan vin sem ég kynntist á sundnámskeiði á Snæfellsnesi á barnaskólaárunum. Við hittumst fyrir tilviljun á Stapa og í fyrsta skipti síðan við vorum 9 og 10 ára vorum á svipuðu róli og í svipuðum hugleiðingum. Eftir klukkutíma spjall ákváðum að hætta við að hætta í útgerð og leggja saman trillur og aflamark beggja í sameiginlegt félag árið 2001. Félagið dafnar vel og sér fjórum fyrir tekjum og lífsviðurværi. Aflann seljum við á markaði. Vinnan er endalaust skemmtun! „Mér fannst óskaplega skemmtilegt að sækja sjó eftir að ég sjóaðist. Ég hafði ekki síður ánægju af búskapnum heima á Felli. Sem unglingur ætlaði ég að verða bóndi og síðar stropaði skipstjóri í mér. Mér fannst og finnst afskaplega gaman af líkamlegri vinnu, ekki síður en þeirri vinnu sem ég gegni í dag. Um Hálfdán Hannibalsson á Hnausum á Snæfellsnesi er sagt í blaðagrein að eina óendanlega skemmtun hefur hann haft til að hverfa að ár og síð: vinnuna. Hún er skemmti legust af öllu, sem Hálfdán getur hugsað sér.* Hálfdán var Vestfirðingur sem flutti á kostarýra jörð á Snæfellsnesi og baslaði allt sitt líf við að reyna að rækta þar upp hraunið og gera að túni. Ég hef oft hugsað til hans sem ég þekkti vel sem strákur. Hálfdán var gamall og andlit hans hrjúft og gróft eins og hraundrangur eftir erfiði lífsins en alltaf fullur af eldmóði og bjartsýni. Hann hafði þetta endalausa jákvæða viðhorf til vinnu og gladdist við hvaðeina hann fékk áorkað. Sjálfum finnst mér endalaust gaman í þeirri vinnu sem ég er í en hugsa oft til þess hvað ég vildi komast aftur á sjóinn eða í fjárhúsin og sofna þreyttur af líkamlegu erfiði dagsins. Ætli megi ekki líta á útgerðina á Snæfellsnesi sem einhvers konar hliðarsjálf. Ég á mér reyndar annað hliðarsjálf í landbúnaði enda menntaður búfræðingur og hef alltaf haft mikinn áhuga á búskap. Kannski enda ég á sjó eða í sveit eftir allt saman ...“ *Lesbók Morgunblaðsins, 42. tbl., 15. nóvember 1980. Hálfdán Hannibalsson: Ég hef einlægt verið að skemmta mér. Atli Rúnar Halldórsson.
Á myndinni eru frá vinstri: Mamma (Björg), Binni, amma (Sigríður), Nína 90 systir og Steina, tvíburasystir mömmu. Myndin er tekin heima á Felli á Arnarstapa
Vinnslustöðin hf
hafnargata 2
900 Vestmannaeyjar
vsv@vsv.is
www.vsv.is
91
Sjómannadagur 2019 – Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins:
ALLIR SKIPTA JAFN MIKLU MÁLI ÞEGAR KEMUR AÐ FÉLAGSSTARFI SJÓMANNA -Velferð þeirra og félagslegum réttindum - Næsti slagur byrjar í haust
Hvað sem við köllum Sjómannadaginn verður hann alltaf jafn mikilvægur fyrir mér og mínum. Þó mun ég persónulega aldrei kalla hann öðru nafni en Sjómannadag með stóru Essi. Sumsstaðar er búið að skrumskæla daginn með allskonar nafnarugli sem mér er illa við. Kjarasamningar Nú er nokkuð liðið á kjarasamningstíma sjómanna og SFS. Samningurinn losnar 1. desember n.k. Hann hefur gilt frá 19. febrúar 2017. Síðasta kjarasamningsgerð var erfið
92
og tók langan tíma með miklum átökum við útgerðarmenn og milli okkar sjálfra. Að lokum stóðu sjómenn þó saman um nokkur mikilvæg atriði sem var svo samið um á endanum. Nú fer að koma að því að sjómenn setji fram sínar kröfur fyrir komandi kjarasamningagerð. Ég veit að mikið brennur á sjómönnum og kröfurnar verða eflaust margar og allar jafn mikilvægar og jafn réttháar. Svo er það samninganefnda sjómanna að útfæra kröfugerðina nánar. Ég sé ekki fyrir mér á þessum tímapunkti að allir sjómenn standi saman í kröfugerðinni. Reynslan af síðustu samningum var ágæt en það sem gerst hefur síðan er ekki til eftirbreytni hvað varðar samstöðu sjómanna. Þeir sem undirrituðu síðustu samninga hafa sumir hverjir ekkert viljað kannast við þá undirskrift ef eitthvað bjátar á en ef samningnum er hrósað vilja þeir eigna sér allan heiðurinn. Félagsmál Félagsmál sjómanna hafa verið í brennidepli undanfarin misseri. Meira að segja Félagsdómur hefur þurft að grípa inn í kærumál félagsmanns í einu stéttarfélagi sjómanna SÍ. Þar hafði viðkomandi félagsmaður fullan sigur. Ekki er séð fyrir endann á því máli öllu saman. Í aðdraganda þessa máls voru þrjú félög innan Sjómannasambandsins, Sjómannafélagið Jötunn, Sjómannafélag Eyjafjarðar og Sjómannaféklag Hafnarfjarðar ásamt Sjómannafélagi Grindavíkur og Sjómannafélagi Íslands farin að tala um sameiningu þessara fimm félaga. Mér þótti nokkuð merkilegt að tala um sameiningu íslenskra sjómanna í eitt félag þegar 15 félög voru skilin eftir, þ.e. þau félög sem eftir yrðu innan Sjómannasambandsins. Vissulega eru nokkur þeirra lítil en samt félög með sjálfstæða starfsemi. Þó félagsmenn sumra þeirra séu fáir er ekki þar með sagt að þeir skipti ekki máli. ALLIR skipta jafn miklu máli
þegar kemur félagsstarfi sjómanna, velferð þeirra og félagslegum réttindum. Sumir virðast ekki sammála því. Sem betur fer sáu menn að sér og stoppuðu þessa vitleysu. Miklu nær væri að sameina alla undirmenn undir merkjum Sjómannasambandsins sem er innan ASÍ. Þessar skærur innan Sjómannafélags Íslands hefðu t.d. aldrei orðið ef Sjómannafélag Íslands væri innan Sjómannasambandsins og þar af leiðandi innan ASÍ. Þar hefði lagabreytingaþvælan hjá SÍ aldrei hlotið brautargengi. Samtakamátturinn Þegar félög bindast samtökum eins og SSÍ og eru þar af leiðandi innan ASÍ eru í gildi ákveðnar leikreglur sem öllum félögunum ber að virða og hafa í heiðri. SVG fór á sínum tíma út úr SSÍ vegna þess að ASÍ vildi ekki greiða í verkfallsjóðinn þeirra. Það var skýringin sem þeir gáfu sjálfir. Sjómannafélag Grindavíkur hafði í mörg ár verið með hámark á félagsgjaldi til að lokka að félagsmenn sem fengu endurgreitt félagsgjald sem fór yfir ákveðna upphæð. Samkvæmt útreikningi ASÍ hefðu
þeir átt um 110 milljónum meira í verkfallsjóði ef fullt félagsgjald hefði verið innheimt. Það er næstum helmingi hærri upphæð en þeir þurftu til að standa við loforð um greiðslur í verkfallinu. Hlutverk stéttarfélaga Stéttarfélög eru ekki félög sem hafa það að markmiði að safna peningum nema að einu leiti, það þarf að safna í sjóð og eiga borð fyrir báru þegar til átaka kemur. Því átökin koma eins og dæmin sanna. Ef menn vilja minnka þá sjóðssöfnun með lækkun félagsgjalda verða félagsmenn að vera upplýstir um hvað það þýðir og vera samþykkir því. En nóg um það. Hvað næst? Næsti slagur byrjar í haust með gerð viðræðuáætlunar milli okkar og SFS. Svo förum við vonandi að funda þétt. Hvenær samningur kemst á er auðvitað ekki vitað en helst þarf að vera búið að semja áður en samningur losnar þann 1. desember. Áður en við skrifuðum undir síðast höfðu samningar verið lausir í rúm sex ár. Það er ekki boðlegt ástand. Að lokum kæru sjómenn og fjölskyldur til hamingju með SJÓMANNADAGINN.
TIL HAMINGJU
MEÐ DAGINN SJÓMENN
Við þökkum samstarf liðinna ára og sendum sjómönnum og landsmönnum öllum heillaóskir í tilefni dagsins. marel.is 93
Ásmundur lengst til vinstri ásamt nemendum og kennurum Slysavarnarskóla sjómanna
SLYSAVARNARSKÓLI SJÓMANNA Í GAMNI OG ALVÖRU Slysavarnaskóli sjómanna var stofnaður árið 1985 til að sinna öryggisfræðslu fyrir sjómenn. Hann var fyrsti skólinn á Íslandi með vottað gæðakerfi, sem samræmis kröfum í ÍST EN ISO 9001:2000 gæðastaðlinum. Vottorðið tekur til reksturs skólans til að annast fræðslu um öryggis- og björgunarmál sjófarenda. Við skólann starfar einvala lið sjálfboðaliða, leiðbeinenda, kennara og skólastjóra. Einstaklingar sem hafa þekkingu og reynslu af þeim málum sem skálastarfið snýst um. Að bjarga sjómönnum úr háska og erfiðum aðstæðum. Magnaða starfsmenn sem eru með meiri reynslu af björgun og þátttöku í þeim hildarleik sem getur gerst við verstu aðstæður á hafi úti en við flestir vildu búa yfir. Það er því sérstakt að vera þátttakandi i skólanum og hlusta á raddir þeirra sem enduróma reynsluna og varnaðarorðin sem þeir sjálfir mega þakka líf sitt fyrir. Það andrúmsloft kennslunnar skilar hámarksárangri til þeirra sem taka við þeim þunga sem lagt er í að koma í veg fyrir slys á sjó. Slysavarnarskóli sjómanna hefur skilað einstökum árangri með slysalausri sýn sem birtist í því að ár hafa liðið án þess að nokkur sjómaður hafi farist við störf sín á sjó. Það er aðdáunarverður árangur sem aldrei verður metin til fjár eða fullþakkaður.
94
Öryggið á Bylgjunni í fyrirrúmi. Ein mín fyrsta heimsókn sem þingmaður var að heimsækja Hilmar skólastjóra um borð í Sæbjörgu og kynna mér Slysavarnarskólann. Og þegar mér bauðst pláss á Bylgju Ve 75 sl. sumar þá þurfti ég undanþágu vegna þess að ég hafði ekki farið í skólann. Nú hef ég lokið grunnnámskeiði og er klár á sjóinn fái ég boð um róður mér til gagns og gamans. Í þessari grein deili ég upplifun minni af námskeiðinu í gamni og alvöru að hætti sjómanna þar sem þingmaðurinn reyndi að vera ekki afturbátur annarra eða sýna af sér einhvern aumingjaskap. Á grunnámámskeiði í öryggisfræðslu var farið yfir helstu þætti námsins, undirstöður í öryggismálum, alþjóðakröfur, öryggiskröfur skipa, fyrirkomulag öryggisbúnaðar, merkingar, mengun og margt fleira. Mér var hugsað til skipsplássanna sem ég hef verið á frá því hóf sjómennsku 16 ára og þá breytingu sem hefur orðið í hugsunarhætti til sjós. Þegar ég kom um borð í Bylgju Ve var farið með mér yfir öryggisatriði en ríkur metnaður er þar um borð fyrir öryggi áhafnarinnar. Ég skoðaði flóttaleiðir og staðsetningu klefans míns í skipinu. Fann fyrir því að öryggi mitt og áhafnarinnar allrar skipti öllu máli um borð.
Lúkkarinn skíðlogaði. Það var afar áhugavert hvernig farið var í gegnum eldvarnir í skólanum og ég gæti hugsað mér að verða slökkviliðsmaður svo áhugavert var það. Þegar spurt var á námskeiðinu hvort einhver hafi verið á bát sem kviknaði í þagði ég. Vildi ekki láta alla halda að allt sem spurt væri um hafi hent mig á stuttri sjómannsævi. En það nefnilega kviknaði í Erlingi Ve 295 þegar ég var þar um borð. Sem betur fer var landlega þegar útgerðarmennirnir fóru að fikta í sólóeldavélinni sem ég brytinn um borð bar ábyrgð á. Þeir voru að hreinsa ólíusíur og leiðslur þegar kviknaði í og lúkkarinn skíðlogaði frá lúkkarskappa að stefni og u í gegnum brakketið. Tóti rafvirki hringi í mig heim og sagði mér að drullast um borð, það logaði allur lúkkarinn stafna á milli, ég næstum missti af því öllu. Eftir námskeiðið get ég kennt Stebba skipstjóra og Gunnsa Malla vélstjóra af hverju kviknaði í, af hverju eldurinn óx og af hverju þeim gekk svona illa að slökkva eldinn. Þetta kann ég núna allt, en 35 árum of seint fyrir þessa frábæru útgerð og vini mína sem eiga ekki að fikta með hættulega eld, heldur láta okkur sérfræðingana um það. En kannski skipti þetta ekki svo miklu máli að lúkkarinn, sólóvélinn, pottarnir og allt draslið brann til kaldra kola. Við kláruðum vertíðina án þess að ¾ áhafnarinnar færi meira niður í lúkkar. Lúkkarskappinn og brakketið var haft opið út vertíðina og kokkurinn fór strax í gallann þegar um borð var komið og ég lagði mig í öskuhrúgunni í lúkkarnurm á útstýminu, en snillingarnir voru í stýrishúsinu að botna vísur. Ég hefði betur verið útskrifaður sem reykkafari og kunnað skil á súrefni, koltvísýringi við þessar aðstæður. Nú 35 árum síðar hefur komið í ljós að við þessar aðstæður breyttist heilinn í mér í gervigreind sem oftast er slökkt á. Ég þorði ekki að segja frá þessari staðreynd fyrr en eftir að ég útskrifaðist sem slökkviliðsmaður frá Slysavarnarskólanum. Kolefnisspor, CO2 og kúamykja. Á öðrum degi héldum við áfram að ræða brunavarnir og nú voru það slökkvikerfiog tæki í báta og reykköfun sem var umfangsefnið. Kennararnir fóru yfir þessa hluti fumlaust og fróðleikurinn var mikill . Fræðslan rann um borðsalinn í gömlu Akraborginni eins og stórfljót sem við nemendurnir tókum endalaust við, svona eins og hafið. Þeir eru alveg skotklárir þessir flottu kennarar og það er skemmtilegt að vera hjá þeim í tímum. Gera viðfangsefnið lifandi og áhugavert þrátt fyrir að það er um háalvarlega hluti að ræða eins og
eyðileggingu og dauða sem fylgir eldsvoðum og þeir eru hvað hættulegastir í skipum og bátum. Þegar þeir fóru síðan yfir reykköfun þá var farið í efnið eins og það væri verið að gera okkur alla að atvinnumönnum í reykköfun. Súrefni og koltvísýringur eru efnin sem mikið er rætt um. Það er ekki hægt að kveikja eld nema súrefni sé til staðar og sem betur fer er það víða. Koltvísýringur er það hábölvaða efni sem allir vilja burt, það er svo vont að flestar þjóðir heimsins hafa sannmælst um að minnka útblástur þess nema útgerðarmennirnir á Erlingi Ve. Bílar spúa CO2 út í loftið, iðnaður heimsins og allt sem býr til hagvöxt, er ekki svo. Jafnvel kúamykja og nautakjöt hafa kolefnisspor sem er draumsýn þeirra sem vilja skattleggja allt til tunglsins. En hér kemur hugmynd sem vert er að skoða fyrir áhugasama um nýja skatta. Það er fleira en nautakjöt og kúaprump sem má skattleggja. Við, mannfólkið öndum að okkur súrefni en eins og eldurinn lifir enginn án súrefnis og við vitum að koltvísýringurinn drepur allt kvikt, eldinn, okkur og nautin líka. Þegar við drögum andann erum við að draga að okkur að mér er sagt 25% súrefni en skilum til baka í útönduninni 17-19%. Og bíðið, þeir sem ekki vissu fyrr en nú, sem menntaaðallinn í Slysavarnarskóla sjómanna vissi auðvitað alltaf er að mismunurinn í útönduninni er koltvísýringur sem kemur upp úr okkur við brunann á súrefninu í lungunum. Hér liggja ónýtt tækifæri til skattlagningar og minnka útblástur. Það sem er áhugaverðara við þetta fyrir þá sem eru að leita að nýjum skattstofnum er að feitir, já feitt fólk eins og ég andar frá sér mun meira af CO2 en grannir. Og það sem veldur mér sérstökum áhyggjum er að þeir sem eru bæði feitir og ganga mikið skila eftir sig mesta kolefnissporið eins og ég á göngunni um kjördæmið. En glöggir menn geta rakið þau spor. Ef við skattleggjum sérstaklega þá feitu og mest þá sem líka ganga mikið, svo mikið að þeir rísa ekki undir skattbyrgðinni sem skattahugmyndir gera oft ráð fyrir þá mun þeim fækka. Fitubollurnar og sérstaklega þeir sem ganga mikið drepast þegar skattheimtan skrúfar fyrir súrefnið vegna vangoldinna umhverfisgjalda. En horfum á jákvæðu hliðarnar, kosturinn við þessa aðgerð er minni útblástur og við eignumst betra andrúmsloft. Gallinn er bara sá að Kínverjar og fleiri þjóðir þurfa lítið að gera í minnkuðum útblæstri og svo er þar lítið af feitum körlum sem labba mikið þannig að Kínverjar geta aukið útblástur til 2030 svo á meðan við reynum að skattleggja neysluna svo allir verði vegan. Samt öndum við að okkur sama andrúmsloftinu og Kínverjar. Ég 95
fæ mér reykköfunargrímu áður en ég missa andann yfir þessu. Guðrún Ve með fyrsta björgunarbátinn. Þriðji dagurinn var viðburðarríkur dagur eins og hinir tveir og námsefnið var björgunarbúnaður, vesti, MOB, maður fyrir borð verkleg sjóæfing. Það sem situr eftir fyrstu þrjá dagana er hvernig hópurinn er að þéttast og markmið kennaranna að mynda sterka samkennd og hjálpsemi skilar sér vel inn í hópinn eins og ég upplifi það. Á árabilinu 1964 - 2012 drukknuðu tæplega 500 Íslenskir sjómenn. Flestir með skipum eða 277, 87 í höfnum landsins og 109 féllu fyrir borð. Þessar ógnvænlegu tölur minna mig á æsku mína þegar fréttir af bátshvörfum heyrðust reglulega. Hluti af lífinu við sjóinn og ég man sorgina sem oft grúfði yfir í Eyjum þegar mæður og föðurlaus börn urðu á vegi manns. Það er því ótrúlegur árangur Slysavarnarskólans að mörg ár á undanförnum áratug hefur enginn sjómaður farist. Betri skip og aðbúnaður skipta gríðarlegu máli en
algjörlega er það hugarfarið og þekkingin sem Slysavarnarskólinn byggir upp hjá sjómönnum sem er lykillinn að þeim árangri. Það var rifjað upp að vélbáturinn Guðrún Ve 52 var fyrsti báturinn sem sigldi með björgunarbát við Íslandsstrendur. Það var í apríl 1952 sem útgerðin fékk flugvéla-gúmmíbjörgunarbát um borð í bátinn frá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Báturinn fórst í maí 1953 og bjargaði gúmmíbjörgunaráturinn áhöfninni. Þessi atburður varð til þess að settar voru reglur um notkun gúmmíbjörgunarbáta árið 1957. Það var ekki seinna vænna því íslenskir sjómenn búa við sjósókn á erfiðasta hafsvæði í heiminum og um það er ekki deilt. Kennarar skólans hömruðu stöðugt á því að við ættum við allar aðstæður að standa þétt saman. Líta til með hvor öðrum og láta finna fyrir sér. Þannig tók alltaf einhver í ermina þegar maður var að puðast við að komast í flotgallann eða renna stífum rennilásum áður en við fórum í sjóinn. Í sjónum var uppálagt að halda keðjunni, aldrei að sleppa takinu á næsta manni og hvetja hvorn annan. Okkur er uppálagt að vera sem einn maður og það varð sérstök umhyggja í hópi manna sem þekktust lítið eða ekkert fyrir fyrstu kennslustund. Við fórum nokkrum sinnum í sjóinn til að leysa mismunandi æfingar og verkefni. Í hvert sinn sem við komum upp stigann á skut Sæbjargarinnar var einhver sem tók í hendina á manni eða klappaði nett á öxl eða bak. Það fylgdi því hlýja og samstaða. Ég er sannfærður um að þessi mikilvægu atriði eru lykillinn að þeim kærleika og æðruleysi sem þarf til að bjarga mönnum úr sjávarháska. Þetta hópefli virkaði sterkt á mig. Frábæri kennarar. Það var ekki auðvelt fyrir 16 karla að komast um borð í gúmbjörgunarbátinn en hjálpsemin kom sér vel og þeir sem voru fyrstir inn drógu félaga sína um borð og við komum okkur fyrir í bátum. Þar kom þessi einkennilega stemning sem okkur hafði verið sagt frá. Eftir nokkur hróp og köll við að koma öllum um borð þar sem við ultu hver yfir annan, þéttum við raðirnar og sátum í hring. Þögðum. Upp í huga mér kom slysið þegar Suðurlandið fórst á jóladag á leið til Rússlands. Einn þeirra sem þar fórst Hlöðver Einarsson var tengdur mér fjölskyldu og vinarböndum. Hann kom strax upp í hugann og ég fór að velta fyrir mér hans aðstæðum klukkustundum saman í aftakaveðri
Greinarhöfundur til ií slaginn.
96
og löskuðum gúmmíbjörgunarbátum og aðstæðurnar verri en nokkur getur ímyndað sér. Ég upplifði algjört máttleysi gagnvart þeim aðstæðunum á þeirri stundu þegar ég sat límdur í flotgallanum og ótrúlega erfitt að hreyfa sig á æfingu innanhafnar. Hlöðver komst ekki af þrátt fyrir hetjulega baráttu, en það var samtakamátturinn og einurð samstaða, kærleikur og hjálpsemi sem varð á endanum þeim til lífs sem komust af. Þessi æfing hafði djúpstæð áhrif á mig, ég fann það strax. Ég vissi það ekki þá en einn kennari okkar var skipsfélagi Hlöðvers þessa síðustu sjóferð. Það fylgdu því tilfinningar þegar hann, þessi magnaði kennari sagði mér frá reynslunni sem er svo mikilvæg fyrir námið í skólanum en fæstir vildu búa að og hafa upplifað á eigin skinni. Skyndihjálp og endurlífgun. Mikilvægt námsefni var skyndihjálp, gera að brunasárum, mæla blóðþrýsting, flutningur slasaðra, endurlífgun og hjartastuð. Eins og áður var námið bæði í formi fyrirlestra og verklegs náms. Þá var búið um einn félaga okkar í sjúkrabörum sem er vandasamt verk þegar mænuskaði er mögulega í spilinu. Við gengum vel frá félaganum og líktum sem best eftir því hvernig slasaður maður er borinn um þrönga ganga og bratta stiga eins og eru í mörgum bátum og skipum. Það gekk vel en tók á og segir okkur hvað það gæti verið erfitt í skítabrælu og stórsjó þegar við þrömmuðum um ganga og stiga þvert og endilangt um Sæbjörgina eins og enginn væri morgundagurinn. Að lokum var það endurlífgunin sem var afar áhugaverð og segir mér að þann þátt ættum við almennt að leggja frekari rækt við og rifja upp hvernig við bregðumst við sem borgarar þegar slys ber að höndum. Lokadagur, þyrlan. Þetta er dagurinn sem allir bíða eftir, lokaþáttur námskeiðsins sem fram fer úti á Sundum þar sem þyrlusveit Landhelgisgæslunnar æfir björgun úr sjó. Sigmaður frá Gæslunni fór yfir öll atriði björgunar manna frá skipi, eða gúmmíbjörgunarbáti og sjó. Það var töluverð yfirferð og fróðleg. Eftir að við klæddumst flotgalla og viðeigandi græjum sigldum við út á Sundin með Steinari okkar reynda og góða fv. skipstjóra af Herjólfi, en hann er í sjálfboðavinnu við skipstjórnina síðustu þrjú
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar tók þátt í æfingunni.
97
árin. Slysavarnarskóli sjómanna er mannaður gamalreyndum sjómönnum sem vilja leggja sitt af mörkum til að bæta öryggi þeirra sem leggja sjómennskuna fyrir sig, með eign reynslu og sjálfboðastafi. Allir sem hafa farið í gegnum Slysavarnarskóla sjómanna fá að upplifa björgun með þyrlu og er skólinn okkar sá eini í heiminum sem státar af slíku en 11.000 nemendur skólans hafi fengið að upplifa björgun úr sjó og nú var ég næstur í röðinni, númer 11.001. Biðin eftir þyrlunni var einkennileg og hljóð stund, stund sem við höfðum allir beðið eftir frá því að námskeiðið hófst. Það gekk rigningaskúr yfir borgina og þarna stóðum við og horfðum út í sortann. Vorum við kannski allir að hugsa það sama. Óþolið var að pirra mig en ég velti þá fyrir mér hvernig það væri ef ég væri staddur 100 sjómílur austur af Langanesi og biði þar eftir þyrlunni klukkustundum saman í erfiðum aðstæðum. Þá er hægt að tala um að biðin sé löng við raunverulegar aðstæður, eldur eða slys um borð. Ég bera virðingu fyrir þessum mögnuðu björgunarmönnum og afrekum þeirra sem eru að æfa sig til að takast á við raunverulegar aðstæður þar sem telft er um líf og dauða. Loks kom þyrlan út úr kófinu og stefndi á okkur og ég velti fyrir mér hvort ég væri spenntur eða kvíðinn þar til röðin kom að mér. Þyrlan með sinn ógnar gný hékk yfir höfðum okkar og krókurinn kom um borð og sigmaðurinn snýr sér að mér og smeygði lykkjunni yfir höfuðið á mér þar sem ég stóð með hendurnar í bænastöðu og bað innra með mér. Ég hugsaði eins og þegar ég hef farið á skurðarborðið í mörgum speglunum og hnéaðgerðum. Ég læt þá ekki ná að svæfa mig en alltaf fóru þeir létt með það nema nú hugsaði ég með skelfingu að þeir mundu ekki ná að lyfta þessum hlúnk þrátt fyrir öflug spil og vír. Þá rak sigmaðurinn upp þumalinn, setti vinstri hendina fyrir vit mér og ég þeyttist upp yfir bátinn og sá hann allan fyrir neðan mig. Þeir náðu mér upp!.
kringum mig. Spilmaðurinn var þegar komin út um hurðina og krókurinn á niðurleið að sækja næsta mann. Vinnubrögðin næstum vélræn, svo örugg og fumlaus Einkennilegt, allir þögðu og horfðu á flugmennina og það sem fyrir augum bar. Við sátum þétt saman og lögðum höndina hvor á annan, okkur til stuðnings. Mikið skelfilega held ég að þeir sem hafa beðið tímunum saman á milli lífs og dauða, þar sem óttinn og vonleysis er meiri en hægt er að ímynda sér hafi verði glaðir í þessum klefa sem hangir í loftinu yfir staðnum sem slysið átti sér stað og þeir í huganum loks komnir heim. Lykillinn að björgun mannslífa. Slysavarnarskóli sjómanna er búinn að opna huga minn fyrir mikilvægi skólans fyrir þá sem lifa og starfa við þær hættur sem skólinn kennir viðbrögð við. Skólastjórinn, kennarar og starfsmenn eru fólk með sérþekkingu á sínu svið. Snilldar kennarar sem náðu í gegnum athyglisbrestinn minn í 40 klukkustundir þegar flestir missa þráðinn eftir 7 mínútur. Reynsla þeirra ómetanleg sem fæstir vildu búa yfir en þeirri reynslu er deilt til sjómanna með einstaklega mannlegum hætti og árangri. Á 38 árunum, 1964-2012 fórust tæplega 500 sjómenn við störf, en á síðustu 10 árum fórust um 10 sjómenn og við sjáum amk þrjú ár á því tímabili sem engin sjómaður ferst. Þetta er árangur af samstilltu átaki þar sem Slysavarnarskóli sjómann er lykillinn að árangri. Ég þakka öllum starfsmönnum skólans fyrir fræbæra frammistöðu og strákunum sem voru í mínum bekk fyrir skemmtileg og góð kynni. Ég mun búa af þessum lærdómi mínum lengi. Ég óska skólanum, starfsmönnum og sjálfboðaliðum hans Guðs blessunar. Ásmundur Friðriksson.
Þyrlan bakkaði örlítið frá bátnum og ég sá hann minnka fyrir neðan mig og strákarnir horfðu á eftir mér og dáðust af öflugu spilinu. Rigningarskúrinn hafði gengið yfir borgina og þá allt í einu rifjaðist upp fyrir mér að ég varð svo lofthræddur í fjöllunum á Landmannafrétti í haust. En þarna náði æðruleysið algjörum tökum á mér og ég hvorki hræddur né heyrði í þyrlunni, strákunum eða sjálfum mér. Var bara aleinn á leiðinni um borð í TF-LIV sem var 150 fetum yfir sónum, en nálgaðist óðfluga. Spilmaðurinn rífur í lykkjuna aftan á mér og ég er kominn um borð til strákanna sem fóru upp á undan mér. Ég lagðist á gólfið og leit í 98
Ásmundur Friðriksson nemandi í Slysavarnarskólanum.
Til hamingju með daginn, Sjómenn & fjölskyldur!
við Strandveg · Sími 481-1559
Óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn! SJÓMENN OG FJÖLSKYLDUR, TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
ÞÓRUNN SVEINSDÓTTIR VE 99
FS: ATVIK-SJÓMENN ER NÆSTA SKREF Í ÖRYGGISMÁLUM SJÓMANNA ATVIK-Sjómenn er atvikaskráningarkerfi sem veitir sjávarútvegsfyrirtækjum betri yfirsýn yfir öryggismál til sjós, aðstoðar við að greina mögulegar hættur um borð og stuðlar að úrbótum í vinnuumhverfi sjómanna með markvissum forvarnaraðgerðum. VÍS hefur þróað kerfið í samvinnu við Slysavarnaskóla sjómanna og nokkur leiðandi fyrirtæki í sjávarútvegi. MFS: Mismunandi tegundir atvika ATVIK-Sjómenn byggir á fimm mismunandi tegundum atvika sem hægt er að skrá í kerfið. Fyrst er Ábending þar sem hægt er að benda á hættur í vinnuumhverfinu eða verklagi um borð til að koma í veg fyrir að óhapp eða slys verði. Næst kemur flokkur þar sem hægt er að greina frá atvikum þar sem næstum slys eða óhöpp eiga sér stað. Síðan kemur flokkurinn Minniháttar slys en báðir þessir flokkar innihalda oft atvik sem eru undanfari alvarlegra atvika. Því næst er flokkurinn Fjarveruslys sem á við um slys sem leiðir til fjarveru sjómanns frá vinnu í einn dag eða lengur. Að síðustu er flokkur sem kallast Ógn en þar er hægt að skrá einelti, ógnandi hegðun eða annars konar áreitni sem getur átt sér stað á vinnustaðnum. Kerfið býður líka upp á að vista myndir með hverri skráningu sem getur verið mjög nytsamlegt til að mynda þegar verið er að benda á hættur í vinnuumhverfi eða aðstæður þar sem einhver atvik hafa átt sér stað. MFS: Sjálfvirkni einfaldar úrvinnslu Við skráningu á hverju atviki verður sjálfkrafa til skýrsla ásamt myndum. Auk þess er hægt að kalla fram tilkynningaeyðublöð til ýmissa opinberra aðila svo sem Rannsóknarnefnd samgönguslysa, Sjúkratrygginga Íslands og tryggingafélags sem fyllast sjálfkrafa út með þeim upplýsingum sem þegar hafa verið skráðar í kerfið. Slík sjálfvirkni einfaldar alla skriffinsku og úrvinnslu mála. Sömuleiðis lætur kerfið skipstjórnendur og öryggisstjóra vita þegar atvik hefur verið skráð um borð sem og sjómenn sem skráðu atvikið þegar það hefur verið tekið til úrvinnslu eða því lokið með 100
aðgerðum. Þannig eru allir betur upplýstur um öryggi og mögulegar úrbætur um borð. Yfirstjórnendur í landi geta síðan fengið gott yfirlit yfir skráð atvik fyrir allan skipaflotann og einnig sundurliðað niður á hvert skip fyrir sig. Þannig öðlast fyrirtækin ákveðna heildarsýn á stöðu öryggismála til sjós sem hægt er að vinna út frá. MFS: Stuðlar að bættri öryggismenningu Óhætt er að segja kerfið hafi fengið mjög góðar viðtökur hjá sjávarútvegsfyrirtækjum og hafa til dæmis Vinnslustöðin, FISK-Seafood, Vísir, Samherji og Þorbjörn þegar byrjað að nota kerfið í sínum skipum. Fleiri útgerðir eru í þann mund að hefja notkun á kerfinu. ATVIK-Sjómenn var upphaflega ætlað viðskiptavinum VÍS en kjölfar mikillar eftirspurnar innan geirans var ákveðið að bjóða það öðrum til kaups. Það er engin spurning í mínum huga að ATVIK-Sjómenn er í dag nýjasta og öflugasta verkfærið í öryggismálum sjómanna. Kerfið er nýr liður í að stuðla að bættri öryggismenningu til sjós og styðja við þann góða árangur sem náðst hefur í öryggismálum sjómanna á undanförnum árum.. Gísli Níls Einarsson, Sérfræðingur í forvörnum fyrirtækja hjá VÍS
Sjómenn og fjölskyldur, Til hamingju með daginn!
hafa verið brautryðjendur á Íslandi í framleiðslu á vélum og tækjum úr ryðfríu stáli fyrir fiskiðnaðinn og fiskiskip.
VÖNDUÐ VINNA - HAGSTÆÐ VERÐTILBOÐ Framleiðum meðal annars:
Kassalosunartæki
Sigmunds sleppibúnað
Loðnu- og síldarskiljara
Færibönd - Rúllubúnað
Tengi alls konar á fiskidæluslöngur 12“, 14“ og 18“
Fiskþvottakör, ýmsar gerðir Fiskvinnslulínur
Nótablokkir fyrir netaverkstæði
Ryðfrí ástengi fyrir mótora
Vélaverkstæðiði Þór sími: 481-2111 fax: 481-2918 www.velathor.is 101
SJÓMANNADAGSKAFFI EYKYNDILSKVENNA EINN AF HÁPUNKTUM SJÓMANNADAGSINS Sjómannakaffið á sér langa sögu í Vestmannaeyjum. Sjómannadagurinn var fyrst haldinn í Vestmannaeyjum 1940 en áður buðu konurnar í Slysavarnadeildinni Eykyndli upp á Sjómannakaffi og það sennilega á lokadaginn, 11. maí. Fyrst í húsi KFUM, síðan í Höllinni sem nú hýsir Hvítasunnufólk, svo í Alþýðuhúsinu en nú verður Sjómannadagskaffið í AKÓGES. Frá því Sjómannadagurinn var fyrst haldinn í Eyjum 1940 hefur Sjómannadagskaffi Eykyndils verið einn af hápuktum dagsins. Deildin var stofnuð 1934 og fagnar því 85 ára afmæli á árinu. Hjá flestum er það fastur liður að kíkja við í kaffið hjá Eykyndilskonum og þar hafa þær Esther Valdimarsdóttir, Hugrún Magnúsdóttir og Þuríður Júlíusdóttir staðið lengi vaktina . Og það er ekki kot vísað þar sem á borðum eru risa hnallþórur, brauðtertur, pönnukökur, kleinur og flatbrauð með hangikjöti. Sannkallað veisluborð upp á gamla mátann.
Ester, Hugrún og Þuríður í fullum skrúða
102
Byrjaði 14 ára „Ég var fjórtán ára þegar ég byrjaði í Eykyndli. Þetta eru því að verða nokkuð mörg ár því nú er ég komin yfir áttrætt,“ sagði Esther sem á margar góðar minningar úr starfinu. „Þegar ég byrjaði voru fundir haldnir í litla salnum í Höllinni. Eftir hvern fund var dansað og Alfreð Whasington lék undir á harmónikkuna. Alltaf gömlu dansana og þarna lærðum ég og Una Elíasar í Varmadal að dansa. Við vorum þarna konurnar og dönsuðum hver við aðra,“ sagði Esther. Á þessum árum var Sigríður Magnúsdóttir frá Höfn formaður og gengdi þeirri stöðu í 26 ár. Þá gengu flestar sjómannskonur í Vestmannaeyjum í Eykyndil til að styðja sína menn á sjónum. Slysavarnadeildin Eykyndill var stofnuð á Pálmasunnudag í húsi KFUM þann 25. mars 1934. Á þeim fundi voru lög deildarinnar samþykkt og deildinni gefið nafnið Eykyndill. Á fyrsta ári gengu 267 konur í deildina en árið 1934 voru 3.558 íbúar í Eyjum. Og konur létu strax til sín taka og beindu kröftum sínum í að auka öryggi og velferð sjómanna. Strax var farið í að styrkja byggingu sundlaugar um 100 kr. sem byggð var á Skansinum og lagt var fram fé til sundnámskeiða. Skýlið í Faxaskeri var byggt fyrir forgöngu Eykyndilskvenna og hafa þær enn umsjón með því. Fluttar í AKÓGES Sjómannakaffið var haldið fyrst 1935. Í fyrstu var skammtað á diskana, rjómapönnukaka, randalínkaka og smákaka.Þær eru sammála um að þetta sé mikil vinna. „Við bökum allt sjálfar og uppvörtum og tökum á móti gestum. Við erum með rjómatertur, brauðtertur, pönnukökur, kleinur og fleira og alltaf er þetta jafnvinsælt. Þær segja að nú verði kaffið í AKÓGES en aðstaða þar er mjög góð og pláss fyrir fleiri gesti .Við höfum oft fengið góða hjálp við uppvask og fleira, margir er boðnir og búnir til að hjálpa okkur sem betur fer. Hér áður var það hugsunin að sjómannskonur ættu frí og eyddu deginum með mönnum sínum en það er ekki alltaf hægt.Það er mikið þessar gömlu og
hörðustu konur sem standa í þessu en þetta er alltaf jafn gaman. Sjómannakaffið er ein helsta tekjuöflun deildarinnar og eru þær þakklátar fyrir góða aðsókn. „Á þessu byggjum við starfsemina. Erum við afar þakklátar bæjarbúum fyrir þeirra framlag. Allar konur eru velkomnar til okkar í félagið. Við höfum farið í ferðir á kvennaþing sem haldið var annað hvert ár og var það mjög gefandi og skemmtilegt,“ segir Hugrún. Breyttar áherslur Þær segja að áherslurnar hafi breyst með árunum. Áður var stærsta verkefnið velferð og öryggi sjómanna. Í dag er öryggi til sjós meira með stærri og öflugri skipum og aukinni tækni. „Við höfum því farið inn á aðrar brautir. Við gáfum t.d. öllum fermingarbörnum í Vestmannaeyjum reykskynjara, rúm á Hraunbúðir og höfum styrkt lögregluna, Slökkviliðið, Íþróttahúsið, Sjúkrahúsið og margt fleira. Öll þessi starfsemi Eykyndils hefur byggðst á elju og dugnaði félagskvenna ,velvilja og skilningi bæjabúa og fyritækja hér í Vestmannaeyjum.Við sem hér búum munum
Sendum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins
að á þessari yndislegu, en oft á tíðum erfiðu eyju okkar, skiljum nauðsyn slysarvarna og hvað það hefur að segja að sofna ekki á verðinum,“ segja þær að lokum.
Veisluborð Eykyndilskvenna á Sjómannadaginn
103
LJÓSMYNDIR EFTIR HLYN ÁGÚSTSSON
104
105
Útskrift frá Stýrimannaskólanum 1980. Þarna má sjá mörg þekkt andlit sem að tengdust Verðandi með einum eða öðrum hætti. Mynd Sigurgeir.
Skipstjóra og stýrimannafélagið Verðandi 80 ára:
FRUMKVÖÐULL Í BJÖRGUNARMÁLUM OG ÖRYGGI SJÓMANNA Þess var minnst í desember síðastliðnum að Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi varð 80 ára þann 27. nóvember 2018. Fagnað var í Höllinni í lok desember þar sem mikið var um dýrðir og mikið fjör. „Tildrög að stofnun félagsins voru þau að skipstjórar og stýrimenn í Vestmannaeyjum vildu stofna til samstarfs vegna ýmisa nauðsynamála eins og til dæmis að reisa vista á Þrídröngum og vinna að hagsmunum og betri launakjörum skipstjóra og stýrimanna. Þann 27. nóvember árið 1938 var svo haldinn stofnfundur og voru stofnendur alls 60 manns. Fundurinn var haldinn í KFUM & K húsinu. Kosið var í stjórn og fyrsta stjórnin var skipuð eftirfarandi,“ segir um stofnun félagsins á Heimaslóð.is. Í stjórn voru kjörnir Árni Þórarinsson formaður, Sighvatur Bjarnason varaformaður, Sigfús Scheving ritari, Ármann Friðriksson vararitari, Magnús Karl Guðmundsson gjaldkeri, Jónas Bjarnason varagjaldkeri. Endurskoðendur félagsins voru þeir Guðjón Tómasson og Runólfur Jóhannsson. „Verðandi hefur verið frumkvöðull í því 106
sem kemur björgunarmálum og öryggi sjómanna við. Vegna samvinnu Verðanda og Björgunarfélags Vestmannaeyja var komið á tilkynningaskyldu meðal báta 20 árum áður en hún var gerð að skyldu annars staðar. Einnig gerði félagið það að skyldu að hafa gúmmíbjörgunarbáta í borð í skipum frá Vestmannaeyjum. Einnig var Verðandi að reyna koma á hömlum gegn fiskveiðum því fiskistofninn væri orðinn illa á sig kominn. En fiskifræðingar og stjórnmálamenn töldu þetta vera bull og sögðu að það veri nóg af fiski í sjónum. Ef hlustað hefði verið á Verðandamenn, væru fiskistofnar líklega í betra ástandi en þeir eru núna. Árið 1964 fékk félagið sitt eigið húsnæði þegar frú Bjarngerður Ólafsdóttir gaf félaginu neðstu hæð Sólhlíðar 19 í húsinu Stóru-Heiði. Það var gefið í minningu eiginmanns hennar, Guðjóns Jónssonar skipstjóra. Það hús var rifið nokkrum árum síðar en aðsetur félagsins hefur um margra ára skeið verið í Básum á Básaskersbryggju þar sem er félagsaðstaða nokkurra félaga,“ segir einnig á Heimaslóð.is.
Sjómenn og fjölskyldur nær og fjær til hamingju með sjómannadaginn og megið þið hafa það sem allra best til allrar framtíðar.
107
Gísli og Bobba með börnum og tengdabörnum. Frá vinstri: Berglind, Siggi, Bobba, Gísli, Frosti og Ingibjörg.
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi 80 ára:
TÍMAMÓTUNUM FAGNAÐ MEÐ GLÆSILEGRI VEISLU Í HÖLLINNI Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi fagnaði 80 ára afmæli á síðasta ári og var afmælisveislan haldin í Höllinni laugardaginn 29. desember sl. Var það sannkölluð galaveisla sem þeir Óskar Þór Kristjánsson, Gylfi Viðar Guðmundsson og Viðar Hjálmarsson undirbjuggu og skipulögðu. Segir Óskar Þór að veislan hafi í alla staði heppnast vel enda vel til vandað í alla staðí. „Þegar Verðandi, þetta stórmerkilega félag fagnar 80 ára afmæli verður að gera það með stæl. Um leið og við gleðjumst erum við að minnast genginna félaga sem vörðuðu leiðina fyrir okkur sem sem stýrum skipum í dag og ekki síður fyrir Vestmannaeyjar í heild,“ sagði Óskar Þór. „Án atorku og framsýni þeirra sem stofnuðu félagið árið 1938 væri þetta samfélag okkar ekki jafn kröftugt og raun ber vitni.“ Eyjalistafólk skemmti Óskar Þór sagði ekki í kot vísað þegar Eins Kaldi og hans fólk sér um veislumatinn. „Gestir í matnum voru um 150 og var maturinn alveg einstaklega góður og þjónustan góð.“ Veislustjóri var Jarl Sigurgeirsson og sérstakur 108
gestur hinn eini sanni Gísli Einarsson fréttamaður af RÚV. „Gísli er einstakur og á auðvelt með að koma fólki til að hlæja og gerir grín að öllum og öllu. Við fórum ekki yfir lækinn í leit að listafólki því við erum svo heppin að eiga hér öfluga sveit listamanna,“ sagði Óskar Þór. „Fyrstan skal nefna Unnar Gísla eða Júníus Meyvant sem í þessari sömu viku sló í gegn þegar hann kom fram með hljómsveit Danska sjónvarpsins í beinni útsendingu á DR. Það er ekki bara að hann semji og flytji frábæra tónlist, hann er líka sögumaður af Guðs náð eins og hann á ættir til og náði vel til gestanna sem skemmtu sér konunglega.“ Þá komu fram söngkonurnar Silja Elsabet Brynjarsdóttir og Sara Renee Griffin sem báðar eiga framtíðina fyrir sér. Silja Elsabet er meðal okkar efnilegustu söngkonum hér á landi. Kom fram með Sinfóníuhljómsveitinni í vetur þar sem hún sló í gegn. Sara á líka framtíðina fyrir sér. Gestir í Höllinni sýndu að þeir kunnu gott að meta, að því er kom fram hjá Óskari Þór. „Það er gaman fyrir okkur Eyjamenn að sjá svona glæsilegt listafólk vaxa hér upp og árangri á stóra sviðinu.“
Jarl sló á létta strengi, tók fram gítarinn og spilaði og söng. „Hann kom hita í mannskapinn sem sló ekki slöku við þegar dansinn hófst við undirleik Stuðlabandsins. Það var fullt á ballinu sem var góður endir á vel heppnuðu kvöldi. Já, þetta var á allan hátt glæsilegt og verður erfitt að toppa þetta,“ sagði Óskar Þór að endingu.
109
Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum skipti miklu máli:
100 MILLJARÐA ÁRGANGURINN Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi 80 ára: einir en einhver þarf að stýra skútunni. Alls útskrifuðust sjö Eyjamenn frá skólanum þetta ár, þar af fimm frændur kenndir við Þingholt í Vestmannaeyjum. Auk Bergs eru það Birgir Þór Sverrisson, Grétar Þór Sævaldsson, Guðmundur Huginn Guðmundsson og Elías Geir Sævaldsson. Með þeim voru Ólafur Einarsson og Jón Valgeirsson. Í viðtölum við þá alla kemur fram að ekki hafa þeir velt því fyrir sér hvað þeir eiga hlut í að koma miklum afla á land né hvað verðmætið er. Án ábyrgðar má þó segja að aflinn gæti verið einhver hundruð þúsundir tonna, jafnvel yfir milljón tonn og verðmætið nálægt 100 milljörðum. Þá á eftir að slá á hvað útflutningsverðmætið er mikið, kannski 250 milljarðar. Tekið skal fram að allt er þetta leikur að tölum en þó ekki alveg út í bláinn. Fyrir utan þetta útskrifuðust þetta ár frá skólanum menn ofan af landi sem skiluðu sínu og vel það. Það sem líka vekur athygli er að allir nema einn er ennþá að, nú tæplega 40 árum seinna. Þeir minnast skólans með hlýhug og allir lýsa þeir yfir mikilli hrifningu á Friðriki Ásmundssyni, skólastjóra sem stýrði skólanum af röggsemi og passaði upp á sína menn.
Teikning Sigmund af Friðriki Skólastjóra fimmtugum.
Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum sem starfaði til ársins 1999 gengdi mikilvægu hlutverki þann tíma sem hann var við lýði. Á hverju ári útskrifuðust frá skólanum nemendur sem áttu eftir að skila miklu í þjóðarbúið, bæði í verðmætum og vinnu fyrir þá og aðra sjómenn og ekki síður fyrir fólk í landi. Það var ekki of sögum sagt að það sem gerðist fyrir neðan Strandveg væri það sem öllu máli skipti fyrir afkomu Vestmannaeyja. Þetta hefur sem betur fer breyst með meira vægi ferðamennsku en sjómenn og útgerðarmenn lögðu grunninn að þeim Vestmannaeyjum sem við þekkjum í dag. Þar gegndi Stýrimannaskólinn lykilhlutverki. Þegar rætt var við Berg Pál Kristinsson, formann Skipstjóra og stýrimannafélagsins Verðandi, sem útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum 1980 var því velt upp hvað árgangurinn hefur skilað í afla og aflaverðmæti. Ekki 110
Saga Stýrimannaskólans „Stýrimannaskólinn var settur í fyrsta sinn 1. október 1964, skólastjóri Guðjón Ármann Eyjólfsson. Starf skólans fluttist til Reykjavíkur í eldgosinu 1973 og skólaárið 1974 til 1975 var í Stýrimannaskólanum í Reykjavík en haustið 1975 hófst starfsemin aftur í Vestmannaeyjum, skólastjóri Friðrik Ásmundsson.. 1997 var svo skólinn smeinaður Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum og síðustu nemendurnir útskrifaðir vorið 1999. Á árunum 2007 til 2009 var svo gerð tilraun til að endurvekja skipstjórnarnámið hjá Framhaldsskólanum og boðið upp á réttindanám til skipstjórnar á skipum 45 m að lengd. Undirritaður var deildarstjóri þessi tvö ár og útskrifuðust fimm nemendur vorið 2009, þar á meðal Ingibjörg Bryngeirsdóttir, fyrsta konan sem lokið hefur slíku námi í Vestmannaeyjum en fjórir nemendur frestuðu próftöku og luku náminu síðar í Reykjavík“. Segir Sigurgeir Jónsson nemandi og lengi kennari við skólann.
Innilegar hamingjuóskir kæru sjómenn og fjölskyldur
Sendum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins 111
BERGUR PÁLL KRISTINSSON, FORMAÐUR SKIPSSTJÓRA OG STÝRIMANNAFÉLAGSINS VERÐANDI:
FIMM FRÆNDUR SEM ÚTSKRIFUÐUST UM LEIÐ FRÁ STÝRIMANNASKÓLANUM Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi 80 ára:
og útgerðarmaður og amman Þórsteina Jóhannsdóttir en þau komu þrettán börnum á legg. Sumir af strákunum fóru á sjóinn og hefur önnur þriðja og jafnvel fjórða kynslóðin haldið uppi merki Páls í Þingholti á sjónum. Móðir Bergs er Þóra Magnúsdóttir og faðir hennar, Magnús Bergsson, bakari var í útgerð og saman áttu hann og Kristinn Berg VE. Með ömmu Þórsteinu á útskriftardaginn
Bergur Páll Kristinsson.
Bergur Páll Kristinsson, formaður Skipstjóraog stýrimannafélagsins Verðandi sem varð 80 ára á síðasta ári er kominn af sjómönnum og útgerðarmönnum í báðar ættir. Það lá því beinast við að hann færi á sjóinn, kláraði Stýrimannaskólann í Vestmannaeyjum og gerði sjómennsku að ævistarfinu. Enginn hefur verið lengur formaður Verðandi en nú segist Bergur ætla að hætta á næsta ári. Það var fyrir áhuga á málefnum sjómanna sem Bergur tók að sér formennsku og segir það hafa gengið vel með aðstoð góðra manna. Með Bergi útskrifuðust fjórir frændur hans frá Stýrimannaskólanum sem allir héldu sig lengst af við sjóinn auk öflugra manna úr Eyjum sem enn eru að. Væri gaman að vita hvað miklu þessi árgangur hefur skilað þjóðarbúinu í aflaverðmæti. En í heild gæti verðmætið verið tugir milljarða króna. Þeir eru góðir fulltrúar Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum sem var og hét. Faðir Bergs var Kristinn heitinn Pálsson, útgerðarmaður og skipstjóri á Berg VE og einn af stofnendum útgerðarfélagsins Bergs – Hugins ehf. sem enn er til. Afi hans var Páll Sigurgeir Jónasson frá Þingholti, skipstjóri 112
Þegar Bergur lauk námi frá Stýrimannaskólanum í Vestmannaeyjum 1980 útskrifuðust fimm úr sömu fjölskyldunni, Bergur Páll, Guðmundur Huginn Guðmundsson, Birgir Þór Sverrisson, Elías Geir Sævaldsson og Grétar Þór Sævaldsson. Fleiri af afkomendum Páls og Þórsteinu í Þingholti hafa fetað sömuu slóð, Sigurbjörn Árnason og Sigurgeir Sævaldsson, Gylfi Viðar Guðmundsson, Páll Guðmundsson, Hlöðver Guðnason, Victor Guðnason og Óskar Þór Kristjánsson. Bergur á góðar minningar frá útskriftardeginum. „Það var mjög skemmtilegur dagur og sérstakur fyrir fjölskylduna. Það var tekin mynd af okkur heima hjá mér, að Birkihlíð níu. Við sátum þar með ömmu Þórsteinu úr Þingholti. Það hlýtur að vera einstakt að fimm útskrifist með skipstjórnarpróf úr sömu fjölskyldunn.“ Aðrir sem útskrifuðust með þeim voru Ólafur Einarsson, skipstjóri á Heimaey VE og Jón Valgeirsson á Bergey VE, báðir farsælir og fengsælir skipstjórar. Guðmundur Adolf Guðmundsson útskrifaði líka þetta ár en hann sneri sér seinna að smíði þar sem hann gerði það gott. Byjraði sem hálfdrættingur En hvenær fór Bergur fyrst á sjóinn? „Það var fyrsta júní 1975, á Vestmannaey. Við Sigurgeir, frændi byrjuðum saman sem hálfdrættingar. Það er svo 1977 sem Biggi byrjar á Vestmannaey þar sem hann hefur verið síðan. Sem háseti, stýrimaður og nú skipstjóri og er að bíða eftir þriðju Vestmannaeynni. Það er gaman að sjá Bigga hafa verið þetta lengi á Vestmannaey án þess að eiga hlut í útgerðinni. „Þegar ég byrjaði er Eyfi, Eyjólfur Pétursson,
ÁRNASYNIR
KaSsAgErÐ ReYkJaVíKuR sEnDiR öLlUm hEtJuM hAfSiNs gÓðAr kVeÐjUr á SjÓmAnNaDaGiNn
kassagerd.is - kassagerd@kassagerd.is Kletthálsi 1, 110 Rvk - s: 545 2800
113
skipstjóri og Sverrir Gunnlaugsson stýrimaður. Ég fann mig strax á sjónum þar sem Reynir Böðvarsson, bátsmaður tók mig undir sinn verndarvæng. Þarna er ég fimmtán og sextán ára, í nálakörfunni þegar verið var að bæta. Passaði ég mig alltaf á að vera með nálakörfuna nálægt Reyni sem illa þoldi hangs. Var snöggur og ef maður var ekki tilbúinn með fulla nál fékk maður að heyra það. Reynir kenndi manni mikið. Ég var með honum á hlera í byrjun og ef maður setti grandarann vitlaust, sagði Reynir; viltu láta kútta þig í tvennt. Það var aldrei gefið neitt eftir.“ Mamma er ákveðin Og stefnan var á hreinu, árið 1978 hófu Bergur og frændur hans og félagar nám við Stýrimannaskólann. „Kapteinninn í brúnni var Friðrik Ásmundsson, skólastjóri og kennarar voru Ólafur Jónsson, Brynjúlfur Jónatansson, Jón Hauksson, Snorri Óskarsson og Bjarni Jónasson. Mér fannst geggjað að vera í skólanum en málið var að ég ætlaði aldrei í skólann. Vildi vera háseti en mamma hótaði að reka mig að heiman ef ég færi ekki í skólann. -Ef þú ferð ekki í skólann, flytur þú út af heimilinu. Hún er nefnilega ákveðin hún mamma,“ segir Bergur sem hélt áfram á Vestmannaey eftir útskrift. „Ég fer svo eitt ár á Sæbjörgu sem strandaði síðar. Var þar frá því í ágúst 1981 og hætti eftir netavertíðina árið eftir. Þá fór ég á Huginn eitt sumar og 1983 fer ég á Bergey VE þar sem var stýrimaður og seinna skipstjóri. Er þar til 1992 að ég fer sem háseti á Ófeig, fljótlega stýrimaður og 2001 fer ég á Herjólf sem stýrimaður og er þar til 2009. Þá tók ég við sem skipstjóri á Lóðsinum og þar eftir fór ég að vinna hjá Vestmannaeyjahöfn þar sem ég er í dag.“ Formaður manna lengst Þá er komið að félagsmálunum en Bergur tók við formennsku í Verðandi 2002 og er enn í formannsstólnum. „Áður var reglan að menn væru ekki formenn lengur en tvö ár. Starfsemin er í föstum skorðum og Farmannasamtökin sáu um öll stóru málin. Það er búið að leggja Farmannasambandið af og ég sé um þau mál sem koma upp. Þegar tekist á er á um launauppgjör og annað. Það gengur bara vel og engin vandamál. Ég ætla að vera eitt ár í viðbót og ætla að fara að hægja á mér. Sótti um í Eldri borgarafélagið og fékk svar í gær um að ég væri velkominn. Ég held að þetta verði frábært,“ segir Bergur um framhaldið. Bergur segir allt í föstum skorðum hjá félaginu á þessum tímamótum. Félagar eru í kringum 80 og sér Ómar Steinsson um rekstur skriftofu 114
félgsins og gjaldkeri er Andrés Þ. Sigurðsson. „Þetta gengur nokkuð vel hjá okkur en auðvitað koma upp mál sem snúa að útgerðinni en við leggjum okkur fram um að leysa þau. Oftast í friði og spekt en stundum þarf hörku og þá er henni beitt,“ segir Bergur sem er þó ekki að öllu leyti sáttur við stöðuna. „Auðlindagjald á útgerð bitnar á sjómönnum og það var óþverrabragð að taka af okkur sjómannaafsláttinn á meðan opinberir starfsmenn og flugmenn geta híft upp tekjurnar með ómædlum dagpeningum. Annars vil ég bara óska Verðandi alls hins besta í framtíðinni. Vellaunaðir sjómenn og öflug útgerð er lykillinn að velsæld í Vestmannaeyjum. Auðvitað eru sveiflur í þessu en við megum í engu slaka í kröfum okkar gegn Reykjavíkurvaldinu sem hér vill allt norður og niður,“ sagði Bergur Páll Kristinsson að endingu.
BIRGIR ÞÓR SVERRISSON, SKIPSTJÓRI Á VESTMANNAEY VE
Líkað vel á sjó og haft áhuga á starfinu Gaman að taka þátt í þróun á Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey VE hefur ekki mikið flakkað á milli skipa á langri starfsævi til sjós. Haldið sig við skip með þessu nafni fyrir utan nokkra afleysingartúra. „Ég var á gömlu Vestmannaey fyrir og eftir breytingu, á þessar frá upphafi og er að fá þriðju Vestmannaey núna í júlí. Fór með Huginn á Berg þar sem snillingurinn Fúsi Waagfjord var vélstjóri þegar við vorum í skólanum. Annars er það bara Vestmannaey,“ segir Biggi um ferilinn. Hann fór 15 ára á sjó, 1977 sem hálfdrættingur á Vestmannaey með Eyjólfi Péturssyni og þar með voru örlög hans ráðin. „Þegar ég fór í Stýrimannaskólann var ég ekki nema 17 ára
Síldarvinnslan hf. og dótturfélagið Bergur-Huginn ehf. senda sjómönnum og fjölskyldum þeirra
'
''
- - i innilegar hatidarkvedjur tilefni sjomannadagsins '
Síldarvinnslan hf. er alhliða sjávarútvegsfyrirtæki sem leggur jöfnum höndum áherslu á veiðar og vinnslu uppsjávartegunda og botnfisktegunda. Samstæða Síldarvinnslunnar hefur starfsstöðvar á sex stöðum á landinu og hefur fyrirtækið að undanförnu lagt mikla áherslu á endurnýjun framleiðslutækja og aukna fjölbreytni starfseminnar. Starfsfólk Síldarvinnslusamstæðunnar til sjós og lands er 350 talsins og það er stolt af góðum árangri. Starfsfólkið mun áfram vinna að því að gera sem mest úr þeim aflaheimildum sem eru til ráðstöfunar og það mun mæta komandi tímum með jákvæðum huga staðráðið í því að gera sitt besta rétt eins og það hefur gert hingað til.
115
og þurfti undanþágu. Mér líkaði vel í skólanum. Við vorum allir ánægðir með Friðrik. Það var metnaður í honum, kallinn nákvæmur og það smitaði út frá sér í kennslunni. Líka fylginn sér og fylgdist alltaf vel með okkur eftir að kláruðum skólann. Hafði metnað fyrir okkar hönd,“ sagði Biggi sem byrjaði 19 ára sem stýrimaður. Skipstjóri varð hann 27 ára. „Fyrst í afleysingum og um þrítugt er ég fastráðinn sem skipstjóri og hef verið það síðan. Það var 1991 þegar Vestmannaey byrjaði á frystingu. Ég hef alltaf kunnað vel við mig á sjó og haft áhuga á starfinu.“ Biggi segir að þróun í togveiðum hafi byrjað þegar þeir fóru að veiða karfa í úthafinu. „Þá var það snillingur í Hampiðjunni, Guðmundur Gunnarsson sem hannaði Gloríutrollið sem er undanfari flottrolla sem notuð eru við veiðar á uppsjávarfiski í dag. Hefur Guðmundur alltaf verið til í aðstoða okkur og koma með hugmyndir. Það hefur verið gaman að taka þátt í þessari þróun og líka í þeim breytingum orðið hafa í tækjabúnaði í skipum.“ Ekki vill Biggi frekar en aðrir slá tölu á þann afla sem hann hefur átt þátt í að koma með að landi. „Ég veit það ekki en á síðasta ári veiddum við 5000 tonn og aflaverðmætið á þetta skip er um 11 milljarðar frá því að kom 2007. Þannig að við erum að tala um mikinn afla og mikil verðmæti en ég hef aldrei pælt í hvað þetta er í heildina,“ sagði Biggi.
ELÍAS GEIR SÆVALDSSON, ÚTGERÐARSTJÓRI BERGS:
116
Hef unnið með mörgum frábærum mönnum til sjós Elías Geir Sævaldsson, byrjaði á sjó 1973 sem hálfdrættingur á Vestmannaey sem þá var gerð út frá Hafnarfirði. „Ég var þrjú sumur sem hálfdrættingur sem var ágætis leið fyrir peyjagutta að máta sig á sjónum. Svo leiddi eitt af öðru og eftir að ég kláraði Gagnfræðaskólann fór ég alveg á sjóinn,“ segir Elli Geir. „Mest var ég á Berg en eitthvað á Huginn eftir að hann kom. Ég fór svo í Stýrimannaskólann 1978 og við útskrifumst 1980. Það var mjög gaman í skólanum, öflugir kennarar og skemmtilegur félagsskapur. Fer þá á Berg sem er Glófaxi í dag. Svo kom stóri Bergur sem við létum breyta og stækka. Þar með vorum við komnir með alvöru uppsjávarskip. Með afl og pláss til að geta ferðast með 1300 tonn. Þá fóru hjólin að snúast og við orðnir samkeppnisfærir.“ Árið 2005 var tekin U-beygja í útgerðinni þegar stóri Bergur var seldur með uppsjávarheimildum í skiptum fyrir bolfisk. Í framhaldi af því var núverandi Bergur keyptur. „Okkur fannst kökunni ekki rétt skipt í uppsjávarveiðum og keyptum núverandi Berg sem þá var eitt öflugasta togskip flotans í sínum stærðarflokki. Þá hætti ég á sjónum og hef síðan stjórnað útgerðinni í landi.“ Bergur ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem Sævald Pálsson og Svava Friðgeirsdóttir byggðu upp. Sævald var lengi við stjórnvöllinn eftir að hann kom í land. Í dag eru það börnin, Elli Geir, Sigurgeir, Grétar Þór, Ásdís og Erna sem eiga fyrirtækið með pabba sínum og sjá um reksturinn. „Nú er þessu lokið hjá mér og þið takið við, sagði pabbi þegar við keyptum þennan bát en lengst af fylgdist hann vel með.“ Elli Geir er sáttur þegar hann lítur til baka. „Maður hefur unnið með mörgum frábærum mönnum til sjós og við höfum verið heppin með fólk. Það hefur stundum verið ævintýralegt fiskirí og við höfum verið að gera góða og flotta hluti í að efla bátana. En það er ekki nóg að vera með öflug skip þegar aflaheimildir vantar,“ segir Elli sem vill hvorki geta sér til um aflaverðmæti eða afla sem skip sem hann hefur verið á og stjórnað hafa komið með að landi. „En í heildina er það örugglega meira en maður heldur,“ segir Elli Geir að lokum.
Óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn Strandvegi 30 | 481 1475 | midstodin.is | midstodin@midstodin.is
Sjómenn
við óskum ykkur öllum innilega til hamingju með Sjómannadaginn
Þeir kröfuhörðu velja
ísþykknibúnað og forkæla
117
Miðhraun 2 · 210 Garðabæ · 587 1300 · kapp@kapp.is · www.kapp.is
118
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN SJÓMENN !
Marport óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með sjómannadaginn.
marport.com
533 3838
119
GRÉTAR ÞÓR SÆVALDSSON, SKIPSTJÓRI Á BERG VE:
Friðrik besti kennari sem uppi hefur verið Synir Sævalds Pálssonar á Berg VE 44, Elías Geir, Sigurgeir og Grétar Þór fóru allir á sjóinn og eru enn þá að nema Elli sem stýrir útgerðinni í landi. Elli og Grétar útskrifuðust frá Stýrmannaskólanum 1980. Grétar fæddist árið 1960 og var 14 ára þegar hann fór fyrst á sjó. „Ég og Huginn frændi fórum sem hálfdrættingar á Huginn VE á netum að sumri til. Það gekk heldur rólega en mér líkaði vel á sjónum,“ segir Grétar um sína fyrstu reynslu. „Svo fór pabbi að draga mig á sjó, sérstaklega á sunnudagsmorgnum, þá nýfarinn að sofa. Þá vantaði einhvern um borð og maður varð að láta sig hafa það.“ Grétar byrjaði í Stýrimannaskólanum 1977, tók sér árs frí og útskrifaðist með frændum sínum 1980. „Mér fannst mjög skemmtilegt í skólanum, sérstaklega að hafa náð því að vera með tveimur árgöngum. Fjölbreyttur hópur og ekki allir á sama aldri. Friðrik skólastjóri er besti kennari sem uppi hefur verið. Hann hætti ekki fyrr en hann var viss um að allir í bekknum hefðu náð því sem hann var að kenna. Skildi engan eftir.“ Um vorið fóru flestir útskrifarnemarnir i útskriftarferð til Miami á Florida. „Hún var mjög flott en við skulum ekkert vera að rifja upp það sem gerðist í þessari frábæru ferð,“ segir Grétar og hlær. Grétar var á Huginn með skólanum en fór svo á Gullberg fljótlega eftir útskrift. „Þar var ég með miklum öndvegismönnum, Guðjóni Pálssyni og Eyjólfi. Já. Það var gott að vera með þeim. Þar var ég annar stýrimaður.“ Fjölskyldufyrirtæki 120
Eftir það tók Grétar við Erni VE, trollbát sem Sævald keypti og gekk ágætlega. „Síðan lá leiðin á Bergvík VE fyrsti báturinn sem Sigurður Ingi Ingólfsson keypti. Þar var ég með Magnúsi Ríkharðssyni og fór með honum yfir á Drangavík sem Vinnslustöðin gerir út ennþá. Var með honum í 11 ár. Var fyrsti stýrimaður og leysti af sem skipstjóri.“ Þegar fjölskyldan hættir útgerð uppsjávarskipa og kaupir núverandi Berg sem er öflugt togskip tók Grétar við honum. „Þetta var árið 2005. Það hefur gengið mjög vel en maður hefði viljað hafa meira að gera. Vera með meiri kvóta.“ Eins og hinir i hópnum hefur Grétar ekki mikið pælt í heilarafla og verðmæti sem hann hefur verið með í að koma að landi. „Í allt geta þetta verið 15 til 20 milljarðar og tonnin getum við talið í tugum þúsunda en hvað þetta er í heildina hef ég enga hugmynd um,“ sagði Grétar að lokum.
GUÐMUNDUR HUGINN GUÐMUNDSSON, SKIPSTJÓRI Á HUGINN VE:
Ætlast til þess að maður færi á sjóinn og maður sinnti kallinu Guðmundur Huginn Guðmundsson fór fyrst á sjó 15 ára á Huginn VE, hjá föður sínum Guðmundi Inga Guðmundssyni. „Við fórum á fiskitroll og var Helgi Ágústsson skipstjóri. Þetta var í sumarfríinu 1975 og Grétar Sævalds var á móti mér. Ég fór svo seinna með Helga að sækja Sindra VE og var um tíma með honum meðan ég var í skólanum. Ég kunni strax vel við mig á sjónum. Maður er með þetta í blóðinu og þarna er ég í næstu tvö sumur. Svo klárast skólinn og ég hef verið á Huginn síðan með smá undantekningum. Var með Kap eitt haust
Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu árnaðaróskir á sjómannadaginn Munið rás 12 innan hafnar Hrein höfn - betri höfn
Hafnarstjórn og starfsmenn Vestmannaeyjahafnar
121
á síld og á loðnuvertíðinni um veturinn. Hef svo leyst af einn og einn túr, m.a. á Herjólfi sem stýrimaður. Þetta hefur allt verið skemmtilegt.“´ Hann eins og hinir á ekkert nema góðar minningar frá árunum í Stýrimannaskólanum. „Þegar maður lítur til baka var þetta skemmtilegt. Góður hópur og við höfum verið góðir félagar síðan. Það eina sem vantar er að hittast og rifja upp árin í skólanum eins og aðrir árgangar en það getur orðið einhvern tímann.“ Huginn var ekki síður en aðrir nemendur ánægður með Friðrik skólastjóra. „Hann hætti aldrei fyrr en allir voru búnir að ná því sem hann var að kenna. Skildi engan eftir. Var góður stjórnandi og kennari.“ Huginn fór hratt upp og 23 ára gamall er hann orðinn skipstjóri. „Þetta er það sem ætlast var af manni og maður sinnti kallinu. Hef aldrei hugsað um að gera eitthvað annað.“ Einn af frumkvöðlunum Huginn byrjaði á Huginn II sem kom nýr 1963, næsti Huginn kom 1975 og núverandi Huginn sem er öflugt uppsjávar- og vinnsluskip sem kom nýtt frá Síle 2001. Þeir veiða síld, loðnu, makríl og kolmunna sem að mestu hefur verið fryst og unnin um borð. Þegar núverandi Huginn kom var tekið stórt skref fram á við og voru þeir meðal þeirra fyrstu sem reyndu við makríl og kolmunna á Íslandsmiðum. Sagt er að þar hafi Huginn verið frumkvöðull en hann vill ekki gera mikið úr því. „Ekki ég einn, hafði áhuga og tók þátt í því með öðrum. Ég vil halda því fram að við séum ekki enn búnir að sjá fyrir horn í íslenskum sjávarútvegi. Það eru ennþá möguleikar þarna úti. Það þarf tíma og smá hugrekki.“ „Maður hefur ekkert pælt í heildaraflanum, frekar einbeitt sér að því að gera sem mest verðmæti úr þeim heimildum sem við höfum. Okkur ber skylda til þess og að hafa skaffað mönnum búsettum í Eyjum vinnu og góðar tekjur er það sem ég er stoltastur af,“ segir Huginn. Mest hefur aflaverðmæti Hugins farið yfir 3 milljarða og sum árin hefur aflinn verið milli 20 og 40 þúsund tonn. Þannig að heildaraflaverðmætið er einhverjir tugir milljarða og heildaraflinn nokkur hundruð þúsund tonna. Huginn hefur lengst af verið fjölskyldufyrirtæki. Foreldrarnir Guðmundur Ingi Guðmundsson og Kristín Pálsdóttir kona hans á áttu útgerðina sem nú er í meirahlutaeigu systkinanna, Hugins, Páls, Gylfa Viðars og Bryndísar á móti VSV. Útgerðin verður 60 ára á þessu ári.
122
JÓN VALGEIRSSON Á BERGEY VE:
Hlakka til að fá nýtt skip Jón Valgeirsson er í dag skipstjóri á Bergey VE og er að fá nýtt skip í haust. Hann byrjaði 16 eða 17 ára á sjó og hefur haldið sig við sjóinn síðan. „Það var með Guðjóni Aanes á Stíganda. Næst var ég með Guðna Ólafssyni á Gjafari sem stýrimaður og skipstjóri. Byrjaði reyndar í Iðnskólanum. Var þar í tvo vetur og ætlaði að verða trésmiður en endaði á sjó,“ segir Jón sem eins og hinir byrjaði í Stýrimannaskólanum 1978. „Mér líkaði í vel í skólanum með öllum Þingholturunum og kallinn hann Friðrik hélt okkur við efnið. Eftir skólann fór ég á Klakk með Halla Ben sem annar stýrimaður. Síðan hef ég þvælst á milli báta hér í Eyjum, lengst af á Emmu VE sem stýrimaður og skipstjóri. Finnst ekkert síðra að vera stýrimaður, er að mörgu leyti þægilegra og fjölbreyttara. Það er ekki fyrr en ég kem á Bergey að ég fastráðinn sem skipstjóri,“ segir Jón sem hefur gengið vel á með Bergey. Var með yfir 5000 tonn af bolfiski á síðasta ári. „Ég hef alltaf kunnað vel við mig á sjónum og nú er ég að fá nýtt skip og hlakka til,“ segir Jón. Ekki vill hann geta sér til um afla og aflaverðmæti sem hann hefur verið með í að koma að landi en tölurnar á Bergey tala sínu máli, 5000 tonn á síðasta ári og 10 til 11 milljarðar frá 2007.
ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Steini Pípari 894 3473 123
ÓLAFUR EINARSSON, SKIPSTJÓRI Á HEIMAEY VE:
Byrjaði um leið og maður hafði aldur og krafta til Ólafur Einarsson, nú skipstjóri á uppsjávarskipinu Heimaey VE fór fyrst á sjó 1977, þá 16 ára. „Maður byrjaði um leið og maður hafði aldur og krafta til. Ég byrjaði með pabba á Kap II,“ segir Óli. Faðir hans var Einar Ólafsson, skipstjóri sem átti Kap með Ágústi Guðmundssyni vélstjóra. Og hann fann sig strax á sjónum. „Það var eins og þetta lægi fyrir mér. Maður var ekki gamall þegar maður byrjaði að fylgjast með bátunum og aflabrögðum. Þetta er breytt í dag og krakkar hafa um annað að hugsa en skip og aflabrögð.“ Óli byrjaði í Stýrimannaskólanum 1978 og hafði þá hvorki aldur til né siglingatíma. „Friðrik, skólastjóri hvatti okkur peyjana til að koma í skólann þó aldur og siglingatíma vantaði. Þetta bjargaðist og Friðrik var í þessu af lífi og sál. Ótrúlega áhugasamur, kalllinn,“ segir Óli. Aðrir kennarar voru Bibbi í Neista, bræðurnir í Betel, Snorri og Gísli Óskarssynir, Jón Hauksson og Óli í Laufási. „Þetta var frábær tími og skemmtilegur hópur af miskærulausum peyjum sem Friðriki tókst einhvern veginn að halda við efnið. Svo var farið á sjó á sumrin, um jól og páska til að ná í pening.“ Varð fljótt skipstjóri Eftir að Óli útskrifaðist 1980 var hann á trollbátum og svo aftur á Kap. „Ég er 24 eða 25 þegar ég byrjaði að leysa kallinn af. Þegar pabbi og Gústi selja Vinnslustöðinni útgerðina buðu Bjarni Sighvats og Halli Gísla mér að taka við skipinu. Það var ekki sjálfgefið, að 124
jafn ungur maður og með litla reynslu byðist skipstjórapláss. Þegar þeir keyptu nýja Kap tók ég við henni. Þegar hún var seld til Granda fylgdi ég með og var tíu ár á Faxa RE eins og skipið hét hjá nýjum eigendum. Þaðan lá leiðin til Ísfélagsins þegar við náðum í Álsey til Kanaríeyja 1997. Er með hana til ársins 2012 þegar við sóttum Heimaey til Síley og þar er ég ennþá,“ segir Óli en Heimaey er öflugt uppsjávarskip sem reynst hefur mjög vel. Óli hefur verið á uppsjávarveiðum mestan sinn starfsaldur sem skipstjóri og er með reyndari mönnum á því sviði. „Ég hef verið á uppsjávarveiðum nema í eitt eða tvö ár og líkar þessar veiðar vel. Annars væri maður löngu hættur. Þetta eru að verða 42 ár og fyrstu skrefin tók maður á sumarloðnunni með pabba,“ segir Óli sem vill fara varlega þegar minnst er á afla og aflaverðmæti sem hann hefur skilað með sínum mönnum. „Þetta hefur oft verið gríðarlegur afli en misjafnt á milli ára. Verðmætið skiptir örögglega milljörðum og sem dæmi um afla þá fengum við þrjú ár í röð 70.000 tonn á Faxa þannig að aflinn sem maður hefur átt þátt í að koma með að landi gæti verið yfir milljón. Annars hef ég ekki verið að skoða þetta neitt sérstaklega,“ sagði Óli að endingu.
Scanbas 365 brúarkerfi frá Scanmar
Nákvæmari og enn betri úrvinnsla gagna Skýr og auðveld framsetning Endalausir möguleikar á uppsetningu skjámynda Hver notandi með sinn aðgang Íslenskt viðmót
Sökk- og hæðarnemi
Hleranemi
Dýpis-, halla- og hitanemi
Aflanemi
Flæðinemi
Trollauga
Scanmar búnaður er þekktur fyrir áreiðanleika, endingu og lága bilanatíðni sem á sér ekki hliðstæðu.
www.scanmar.is 125
Scanmar ehf. • Miðhraun 13 • 210 Garðabær • Sími: 551 3300 • GSM: 691 4005 • Netfang: tm@scanmar.is
DANSKI PÉTUR OG VÉLVÆÐING FISKISKIPAFLOTANS
Danski - Pétur.
Í Sagnheimum þann 30. mars sl. varð ég þess heiðurs aðnjótandi að fá að flytja erindi um langafa minn, Hans Pétur Andersen – Danska Pétur. Án þess að hafa nokkurn tíma rannsakað uppruna eða arfleið hans og áhrif á samfélagið hér í Eyjum eftir síðustu aldamót ákvað ég að tengja sögu hans við sögu vélvæðingar fiskiskipaflotans í Vestmannaeyjum. Það sem hér fer á eftir er úrdráttur kynningar minnar í Sagnheimum. Vélvæðingin Upp úr aldamótunum 1900 var íbúafjöldi í Vestmannaeyjum um 600 manns og segja má að sá fjöldi hafi verið í Eyjum í gegnum aldirnar. Líkt og í dag byggðist Vestmannaeyjabær fyrst og fremst á sjávarútvegi, sjósókn, landvinnslu og útflutningi sjávarafla. Árabátar voru fjölmargir og var aðallega veitt á handfæri en þegar líða fór að aldamótunum voru línuveiðar farnar að ryðja sér til rúms þótt handfærin hafi verið notað samhliða línunni, að minnsta kosti fyrst um sinn. 126
En eftir aldamótin varð bylting í útgerðarháttum á Íslandi. Árið 1905 voru tveir vélbátar í fyrsta skipti gerður út á vetrarvertíð í Vestmannaeyjum en þetta voru Knörr VE-73 og Unnur VE-80. Með tilkomu fyrstu vélbátanna varð gerbreyting á öllum útgerðarháttum fyrir ýmsar sakir. Hægt var að sækja á fjarlægari mið, hraðar var farið yfir sem þýddi meiri tíma á veiðum en ella hefði verið og auk þess var mannskapurinn hvíldari á miðunum þar sem menn þurftu ekki að keyra sig út við róður til þess eins að hefja enn meira strit við það að draga afla úr sjó, áður en róið var til lands á ný. Ekki verður um það deilt að vélvæðingin gekk ákaflega hratt fyrir sig. Á fyrsta ári vélbátaútgerðarinnar, sem almennt er talið hafa verið árið 1906, voru þrír vélbátar gerðir út frá Vestmannaeyjum. Aðeins tveimur árum síðar voru þeir orðnir 39. Árið 1930 voru vélbátarnir síðan orðnir 97 sem er mesti fjöldi báta sem hefur átt heimahöfn í Vestmannaeyjum fyrr og síðar. Í kjölfarið margfaldaðist íbúafjöldi í Vestmannaeyjum á tiltölulega stuttum tíma, en árið 1913 bjuggu um 1700 manns í Vestmannaeyjum, nánast þreföldun á 13 árum. Danski-Pétur Andersen Á þeim tíma þegar vélvæðingin var að hefjast á Íslandi var ungur maður sendur frá Danmörku austur á firði á vegum Dan – vélaverksmiðjunnar til þess að setja vél í bát á Mjóafirði. Í Danmörku höfðu menn náð góðum tökum á vélum og hagnýtingu þeirra og voru Danir því eftirsóttir á Íslandi til þess að miðla þekkingu sinni við upphaf vélbátaútgerðarinnar. Maðurinn sem kom á Mjóafjörð 1906 hét Hans Peder Andersen, var fæddur í Friðrikssund í Danmörku þann 30. mars 1887. Faðir hans hét Carl Willum og var fæddur 28. febrúar 1866. Sá var sjómaður en gerðist síðar bátasmiður. Hann var giftur Annette Andersen, áður Cristjansdatter. Saman eignuðust þau 11 börn. Carl lést við Kristjanssand í Noregi ásamt syni sínum Jörgen þann 15. janúar 1934, en þá voru þeir að sigla báti sem þeir höfðu smíðað til Íslands.
Jóhanna Guðjónsdóttir fæddist í Sigluvík í Landeyjum þann 27. febrúar árið 1889. Hún hafði komið til Vestmannaeyja eftir aldamótin en var síðar send í vinnumennsku austur á land árið 1906, nánar tiltekið á Mjóafjörð. Örlögin höguðu því þannig að þar kynntist hún ungum dönskum manni sem vann við að setja niður vél í bát. Þau felldu hugi saman sem varð til þess að Pétur sneri ekki aftur til Danmerkur. Á Mjóafirði fæðist þeirra fyrsta barn, Eva. Eftir að Eva fæðist fluttust þau til Vestmannaeyja og bjuggu fyrst hjá Margréti og Guðlaugi í Gerði. Í Vestmannaeyjum stækkaði fjölskyldan en þau eignuðust saman sex börn; Evu (1908), Willum (1910), Knud (1913), Njál (1914), Emil (1917) og Guðrúnu (1921). Jóhanna lést árið 1934, sama ár og faðir og bróðir Hans Péturs drukknuðu við strendur Noregs. Pétur giftist síðar árið 1938 Magneu Jónsdóttur. Magnea var fædd 1911 í Búðarhólshjálegu í Rangárvallasýslu. Saman eignuðust þau þrjú börn, Jóhann (1938) og Valgerði (1944) en árið 1931 höfðu þau eignast dreng sem lést aðeins þremur mánuðum eftir fæðingu. Í Vestmannaeyjum gekk Hans Pétur alla tíð undir nafninu Danski-Pétur og segir í annálum ársins 1955 þegar hann lést að nafnið hafi verið „með fullri virðingu“. Formannsferillinn Sjómannsferil sinn hóf Pétur á Friðþjófi VE-98 þar sem hann var vélamaður. Skipið var 7,53 tonna kútter með 8 hestafla vél en formaður var Friðrik Svipmundsson frá Löndum. Pétur varð fljótlega eftirsóttur vélamaður í Vestmannaeyjum þar sem hann hafði þekkingu frá Danmörku á slíkum hlutum þegar Íslendingar voru að hefja sína vélbátavæðingu. Síðar var hann í plássi á Lunda VE-141 þar sem Pétur reri í 12 vertíðir og varð síðar formaður og meðeigandi. Þá festi Pétur kaup á Skógafossi VE-236 árið 1920 en það var fyrsti báturinn sem smíðaður var erlendis og siglt yfir hafið til Íslands ásamt Lagarfossi VE-234 og Ara VE-235 sem komu í samfloti til Vestmannaeyja árið 1920. Pétur var formaður í nærri 20 ár og varð aflakóngur 1924 á Skógafossi. Á þeim árum var verið að byggja sjúkrahúsið sem síðar varð ráðhús og stendur við Ráðhúströð. Í sögu Vestmannaeyja, „Við Ægisdyr“ sem Haraldur Guðnason skráði kemur fram að farið hafi verið þess á leit við alla formenn vertíðina 1924, að þeir gæfu einn fisk úr hverjum róðri þá vertíð alla til styrktar smíði sjúkrahússins. Færri tóku þátt í þessu en ætlað var eða aðeins um helmingur formanna. Gáfu þó
Jóhann Júlíus, Emil Marteinn, Knud Kristján,Willum Jörgen og Njáll Eva, Hans Pétur, Valgerður og Guðrún Svanlaug.
sumir meira en aðeins einn fisk úr hverjum róðri að vertíðarlokum en flesta fiska gaf Peter Andersen, formaður á Skógafossi eða 165 fiska. Allan þann tíma sem Pétur var útgerðarmaður verkaði hann sinn fisk sjálfur og vann til útflutnings. Þetta kallaði á fjölda verkafólks við vinnsluna og var þar af leiðandi mannmargt á heimili Péturs og Jóhönnu að Sólbakka þar sem verkafólkið bjó á heimili þeirra hjóna. Á formannsárum sínum sigldi Pétur oft inn fyrir Eiði að sækja vörur í fraktskip. Slíkt var ekki talið hættulaust og reyndi það mikið á útsjónarsemi og þolinmæði skipstjórnandans. Pétur var einn af þeim fyrstu sem sóttu sér skipstjórnarmenntun árið 1918. Síðar kom hann að stofnun Útvegsbændafélags Vestmannaeyja sem enn er starfrækt. Sömuleiðis tók hann þátt í stofnun Bátaábyrgðarfélagsins sem var hugsað sem tryggingafélag skipaflotans. Þá kom hann að stofnun Lifrarsamlagsins þar sem hann starfaði frá 1940 og þar til hann lést árið 1955. Víða er að finna heimildir um að Danski Pétur hafi verið alveg sérstakt snyrtimenni og umhirðusemi hans á bátum svo mikil að ekki er ólíklegt að Eyjamenn hafi tileinkað sér þennan sið Péturs enda var talið að hér áður fyrr hafi Eyjabátar borið af hvað snyrtimennsku varðar. Til marks um þetta orti Hafsteinn Stefánsson ljóð við andlát Péturs sem bar nafnið kjörsonur Íslands. Um snyrtimennsku Péturs segir þar: Úr minningabókinni margt er glatað og týnt merkileg kynni voru þar færð til leturs komi ég þar sem allt er fágað og fínt þá finn ég til nærveru gamla danska Péturs. 127
Skógarfoss á leið til Hafnar í Vestmannaeyjum.
Arfleifð Danska Péturs Í Sjómannadagsblaðinu árið 1971 er fjallað um tvö ný skip í fiskiskipaflota Vestmannaeyja en það voru Þórunn Sveinsdóttir annars vegar og Danska-Pétur hins vegar. Emil sonur Péturs keypti skipið. Emil og síðar Jóel sonur hans voru skipstjórar á skipinu. Í anddyri Sagnheima má sjá leifar flöskunnar sem notuð var við nafngift skipsins. Synir Péturs létu allir að sér kveða í útgerð í Vestmannaeyjum. Segja má að fjölskylda Danska-Péturs sé samofin útgerðarsögu Vestmannaeyja. Allir tóku drengir hans þátt í útgerð Skógafoss á sínum tíma og voru þeir þar allir skipstjórar um tíma nema Njál. Síðar fóru drengirnir í eigin útgerð og sömuleiðis sum þeirra börn og barnabörn. Ljóst er að þekking sú sem Danski- Pétur flutti inn til landsins frá Danmörku var kærkomin fyrir þjóð sem nýlega hafði tekið upp á því að setja vélar í fiskibáta sína. Viðhald þeirra og sá aukni afli sem fylgdi vélvæðingunni átti vafalaust stóran þátt í uppgangi þjóðarinnar á 20. öld. Það að enginn bátur hafi þurft að stoppa lengi á stríðsárunum skipti miklu máli í þeim efnum.
þátt í skipulagi fjölskyldunnar í gegnum bréf. Bæði til þess að leggja línurnar um það hvernig best væri að standa að útgerðinni og segja drengjunum fyrir verkum, en sömuleiðis að senda þá hluti sem vantaði, t.a.m. vélahluti og önnur tæki og tól fyrir útgerðina. Sjómannadagsblaðið 1971 tekur heils hugar undir með dönsku ættfræðisíðunni sem ég notaði mér til heimildaöflunar þegar ég vann kynningu mína um langafa, en þar segir: „Pétur rak útgerð alla ævi og var sérstakur hirðumaður um báta og veiðarfæri. Hafa synir hans sannarlega erft þann eiginleika hans“. Með hreinlegum háttum setti á umhverfið svip syni hvatti til dáða og þörfustu verka og feðgarnir áttu saman hin fríðustu skip flotans prýði með örugga drengi og sterka. (Hafsteinn Stefánsson, Kjörsonur Íslands). Njáll Ragnarsson.
Að sama skapi má nefna að stór hluti þeirra báta sem fluttir voru til landsins á fyrri hluta 20. aldar voru smíðaðir af Carli Willum, faðir Danska Péturs og bræðrum hans í Danmörku. Þannig voru fjölmargir bátar sem reru frá Vestmannaeyjum fluttir inn frá Friðrikssund. Pétur sem fluttist til Danmerkur á árunum fyrir síðari heimsstyrjöld, missti ekki sambandið við syni sína á Íslandi, heldur tók hann virkan 128 Danski - Pétur og konan hans Jóhanna Guðjónsdóttir.
Skipahönnun | Ráðgjöf | Eftirlit
Skipahönnun, Nýsmíði og breytingar.
Eftirlit og umsjón, Með verkum, hvort sem það eru nýsmíði, breytingar eða viðgerði.
Hús Sjávarklasans sími: 544 2450
Grandagarði 16 navis@navis.is
Skoðun og ráðgjöf, Val á vélbúnaði skipa, hönnun vinnslulína um borð, útvegun tilboða og mat á þeim.
101 Reykjavík www.navis.is
Hágæða vörur fyrir sjávarútveginn og iðnaðinn í yfir 30 ár
HNÍFALOKAR · RENNILOKAR · SPJALDLOKAR · KEILULOKAR SÍÐULOKAR · BOTNLOKAR · EINSTEFNULOKAR · KÚLULOKAR · SÍUR ..................................................
MIÐHRAUNI 15 · 210 GARÐABÆ · SÍMI 561 2666 · FAX 562 6744 · vorukaup@vorukaup.is · www.vorukaup.is
KVIKA
Metnaður og þjónusta í þína þágu
129
EYJABÁTAR Í 100 ÁR
Helgi stærsta eikarskip smíðað á Íslandi.
Farsæll,, árabáturinn sem er til sýnis við innganginn í Þekkingasetrinu á sér merka sögu og er eini róðrabáturinn sinnar tegundar sem enn er varðveittur. Það er ótrúlegt að róðrabátar hafi í þúsund ár haldið lífi í íslensku þjóðinni sem þá eins og nú átti svo mikið undir því sem sjórinn gaf. En sjórinn tók og oft voru fórninar miklar. Á 100 ára afmæli Vestmannaeyjakaupstaðar að skoða þróun fiskibáta og skipa í Vestmannaeyjum síðustu öldin. Beinast lá við að fá Tryggva Sigurðsson, vélstjóra, líkanasmið, mótorhjólakappa og áhugamenn um skip og báta í lið með sér.
Eyjamenn tóku þátt í síðutogaraútgerð. Stofnuðu bæjarútgerð og keyptu tvo nýsköpunartogara, Elliðaey VE 10 og Bjarnarey VE 11. Elliðaey var 664 tonn og kom til landsins 1947 og var seld héðan 1953. Bjarnarey fékk nafnið Vilborg Herjólfsdóttir VE 11 en var seld héðan 1955.
Fyrsti vélbáturinn kom til Eyja 1904. Hann var nefndur Eros VE, fjögur tonn, eigendur Gísli J. Johnsen, Ágúst Gíslason og Sigurður Sigursson.
Helgi Helgason VE 343, sem smíðaður var í Vestmannaeyjum var stærsta eikarskip sem byggður var hér á landi, 189 tonn. Hann var smíðaður á árunum 1941 til 1947 fyrir Helga Ben. Var rifinn á Akureyri 1965 og endaði sem girðingastaurar í Eyjafirði, svo notuð séu orð Helga.
Næst voru það þilfarsbátarnir og verðugur fulltrúi þeirra er Skuld VE 263 sem gerð var út í 60 ár frá Vestmannaeyjum. Kom nýr árið 1921, var 13 tonn en var 18 tonn eftir lengingu. Eigendur voru Ársæll Sveinsson, Sigurður Sveinsson og Magnús Ísleifsson. Bergþór Guðjónsson átti Skuld í mörg ár og oft kenndur við hana sem Beggi á Skuldinni. Næsta skref voru öflugri þilfarsbátar og var Gylfi VE, 48 tonna bátur einn þeirra.Jóhann Pálsson kaupir hann til eyjaárið 1951 og hann fær þá nafnið Hannes Lóðs VE 200. Þeir Fiskiðjumenn Ágúst Matthíasson, Þorsteinn Sigurðsson og Gísli Þorsteinsson kaupa hann síðan 1955 og fær hann þá nafni Gylfi VE 201. Seinna kaupir Grétar Þorgilsson Gylfa og gerði út í mörg ár.
Andvari VE 100 var einn af 100 tonna Svíðþjóðarbátunum sem komu til landsins upp miðri síðustu öld. Hann áttu í Vestmannaeyjum Hörður Jónsson og Jóhann Halldórsson og gerðu út lengi.
Ófeigur III VE var fyrsti stálbáturinn sem smíðaður var fyrir Íslendinga, var 66 tonn þegar hann kom 1954. Hann áttu Þorsteinn Sigurðsson á Blátindi og Ólafur Sigurðsson frá Skuld. Um Ófeig var sagt: Hér er hver einasta spýta úr járni. Annar (eða milli Gjafar eins og hann var ávallt kallður) Hann ásamt Kristbjörg VE 70 og Hringver VE 393 komu nýir 1960.þeir mörkuðu tímamót í sögu útgerðar og aðbúnaðar sjómanna. Þarna var boðið upp á sér matsal og klefa til að sofa í sem var nýlunda. Gjafar var 122 tonn. Hann áttu bræðurnir Rafn og Sigurður Kristjánssynir og Sveinbjörn Sigurðsson. Upp úr 1963 voru keyptir nokkrir bátar til
landsins, svo kallaðir 200 tonna bátar sem voru notaðir á síld, loðnu, þorsknet og troll. Einn þeirra var Bergur VE 44 sem Kristinn Pálsson og og Magnús Bergsson keyptu til landsins. Og skipin héldu áfram að stækka og er Sigurður VE gott dæmi um það. Hann er 3763 lesta uppsjávarskip, 80,3 metrar á lengd og 17 metrar á breidd. skipið var smíðað í Tyrklandi og kom til heimahafnar í júlí 2014. Skipið er út búið með rúmum fyrir 22 manns í 15 klefum en burðargeta skipsins er rétt tæplega 3000 rúm metrar af afla. Eyjamenn hafa gert út skuttogara frá því um 1973 en þá kom Vestmanney VE 54. Sá nýjasti er Breki VE 61 sem Vinnslustöðin lét smíða úti í Kína og kom til heimahafnar á síðasta ári. Breki er 1222 tonn og hefur reynst vel Og áfram heldur þróunin og nú er von á tveimur skipum á þessu ári, Vestmannaey VE og Bergey VE sem Bergur Huginn lætur smíða í Noregi.
Eros VE.
Ófeigur III VE
Skuld VE.
Sigurður VE.
Gjafar VE
Breki VE
Andvari VE.
Bergur VE.
FARSÆLL Á FRIÐARBÓLI
Helga Hallbergsdóttir sem er að látaa af störfum sem forstöðumaður Safnheima með vatshópnum, Ívari Atlasyni, Stefáni Jónassyni og Arnari Sigurmundssyni. Myndin á bak við er tekin árið 1907 þegar sýnir konur draga aflann úr fjörunni. Hönnuðir eru Bragi Magnússonn og Sæþór Vídó.
Hann á sér merka sögu árabáturinn Farsæll sem hefur fengið virðulegan sess og fullkomlega við hæfi í Þekkingarsetrinu á fyrstu hæð Fiskiðjunnar. Hann er eini árábáturinn sinnar tegundar sem enn er til og ótrúlegt til þess að hugsa að í aldir átti íslenska þjóðin allt undir þessum litlu kænum. Þeir báru björg í bú en fórnirnar voru miklar ekki síst hér við hafnlausa Suðurströndina þar sem landtaka gat verið erfið og hættuleg.
132
Ívar Gunnarsson bátasmiður hefur séð um að gera bátnum til góða
Helga Hallbergsdóttir, sem nú er að láta af störfum sem forstöðumaður Sagnheima hafði forgöngu um málið og segir hún Farsæl einstakan. „Helgi Máni Sigurðsson frá Samband íslenskra sjómannasafna (SÍS) kom hingað í ágústmánuði 2018 og var gráti nær. Sagði hann að Farsæll væri líklega síðasti fulltrúi áraskipaútgerðar sem enn væri til og hann lægi gjörsamlega undir skemmdum – hvort við gerðum okkur ekki grein fyrir þeim verðmætum sem að við værum að missa út úr höndum?,“ sagði Helga sem fékk styrki frá Vestmannaeyjabæ, Safnaráði og Vatnshópurinn 2018 setti líka afganginn af sínu verkefni í pottinn og á það að renna til hönnunar á bakmynd bátsins sem Sæþór Vídó sér um. Er það mynd frá höfninni í Vestmannaeyjum frá fyrstu árum síðustu aldar og vel við hæfi.
Sjómannadagsráð Vestmannaeyja sendir Vestmannaeyingum bestu kveðjur og árnaðaróskir
133
ÍSLENSKA/SIA.IS/TOY 91802 05/19
aukahlutapakki að verðmæti 660.000 kr. fylgir
Verð frá: 8.150.000 kr.
2019
Konungur jeppanna er aftur mættur til leiks í nýrri og veglegri sérútgáfu, Land Cruiser Adventure með fjallmyndarlegum aukahlutapakka sem toppar allt og tveggja ára þjónustupakka í kaupbæti. Land Cruiser Adventure aukahlutapakki: 33" breyting, dráttarbeisli, húddhlíf og krómstútur á púst. Heildarverðmæti: 660.000 kr. 2 ára þjónustupakki fylgir með nýjum Land Cruiser, viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Nú er 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Toyota bifreiðum.
3+4 ÁBYRGÐ
2 ÁRA ÞJÓNUSTA
Toyota Kauptúni Kauptúni 6
Toyota Akureyri Baldursnesi 1
Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19
Toyota Selfossi Fossnesi 14
Adventure-pakkinn fylgir ekki með öðrum tilboðum. Bíllinn í þessari auglýsingu endurspeglar ekki endilega það verð og þann búnað sem tilgreindur er. Fyrirvari við 7 ára ábyrgð: Ökutækinu skal viðhaldið samkvæmt vörulýsingu og leiðbeiningum framleiðandans og ber eigandi kostnaðinn við slíkt viðhald. Sé það ekki gert getur það valdið ógildingu ábyrgðar varðandi hluti sem þarfnast viðhalds. Gildir eingöngu um bíla sem fluttir eru inn af Toyota á Íslandi ehf. Birt með fyrirvara um villur.