

SJÓMANNADAGSBLAÐ 2026 VESTMANNAEYJA


Við erum stolt af sögu okkar, sem er samofin sjávarútvegi allt frá stofnun félagsins.

Til hamingju með daginn!
Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2026
76. árgangur
Ritstjóri: Leturstofan/Lind Hrafnsdóttir
Ljósmyndir: Óskar Pétur, myndir úr einkasafni viðmælanda, Sigurgeir Jónasson og Addi í London.
Umbrot: Leturstofan/Lind Hrafnsdóttir
Prentun & bókband: Prentmiðlun
Forsíðumynd: Á myndinni er Daníel Scheving. Addi í London tók myndina.
Auglýsingar: Leturstofan/Kata Laufey
Prófarkalestur: Kristín Ósk Óskarsdóttir
Úgefandi:
Leturstofan Vestmannaeyjum ehf fyrir hönd Sjómannadagsráð Vestmannaeyja.
Sjómannadagsráð 2026: Formaður: Gísli Matthías Sigmarsson
Gjaldkeri: Sigurfinnur Sigurfinnsson
Ritari: Ingi Þór Arnarsson
Meðstjórnendur: Ágúst Halldórsson
Ríkarður Zoega
Óðinn Guðmundsson
Jens Kristinn Elíasson
Sæþór Sigmarsson
Guðmundur Ísak Markússon
Stefán Birgisson
Kolbeinn Agnarsson
Sigurður Atlason
Þórhallur Friðriksson
Sveinn Ásgeirsson
Finnur Freyr Harðarson
Aron Smári Magnússon
Theodór Hrannar Guðmundsson
Halldór Gústaf Guðmundsson
EFNISYFIRLIT
Sjómannadagur 2025 12
Hetjur heiðraðar 18
Ísólfur Gylfi – Hátíðarræða 24
„Reynslan er gull í þessum fræðum“ 30
Minning látinna
Draumurinn er að eignast eigin trillu
Sól og blíða á síldinni í Norðursjó 48
Ólafi á Stapa er margt til lista lagt – Trillukall af guðsnáð 52
Í fjarverunni býr fegurð
76
„Fyrsti túrinn var helvíti strembinn“
80
Fór strax á sjóinn að loknum grunnskóla
Loðnutúr með Heimaey VE 1 90
Ógleymaleg ár á Vestmannaey og vinskapur sem aldrei slitnar 94
106
„Pabbi var sjómaður í gegn – og besti skipstjórinn“
110
Gömul minning frá vertíðarlokum
112
Krefjandi, óvissa og tilhlökkun
114
„Erfitt, einstakt og allskonar“
118
Vestmannaeyjar geta orðið fyrirmynd í heilsueflingu
122
Bernska, lífsreynsla og lífsviðhorf. Mjög lausleg samantekt fjarskylds ættingja


Til hamingju með daginn sjómenn
Við sendum sjómönnum og fjölskyldum
þeirra hátíðarkveðjur í tilefni sjómannadags

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Sjómannadagurinn skipar sérstakan sess í hjörtum Vestmannaeyinga. Hann er hátíðisdagur, en einnig gott tilefni til að horfa til baka. Dagur þar sem við stöldrum við og lítum yfir farinn veg; veg sem hefur mótað byggðina okkar, atvinnulífið, fjölskyldurnar og söguna. Um leið heiðrum við þá sem hafa sótt sjóinn af dugnaði, kjarki og trúmennsku.
Í þessu blaði birtast margar hliðar sjómennskunnar. Hér eru sögur af reynslu og áræði, af ungum dreng með draum um eigin trillu, af sjómönnum sem hafa helgað líf sitt hafinu, af konum sem standa vaktina heima þegar mennirnir eru á sjó, af vélstjórum, skipstjórum, hásetum og fjölskyldum þeirra. Hér eru líka minningar um þá sem eru fallnir frá; menn sem skildu eftir sig spor í samfélaginu og í hjörtum þeirra sem elskuðu þá.
Það er einmitt þetta sem gerir Sjómannadagsblaðið svo mikilvægt. Það varðveitir ekki aðeins frásagnir af skipum, túrum og veiðum, heldur mannlífinu sjálfu. Í þessum sögum býr saga Vestmannaeyja; saga vinnusemi, samstöðu, þrautseigju og þeirrar sérstöku tengingar sem Eyjafólk hefur við sjóinn. Hafið hefur gefið mikið, en það hefur líka tekið. Þess vegna fylgja sjómannadeginum ætíð bæði gleði og alvara.
Það er ánægjulegt að sjá hvernig hefðirnar lifa áfram. Sjómannadagshelgin sameinar kynslóðir; börn og ungt fólk taka þátt og eldri sjómenn eru heiðraðir fyrir ævistarf sitt. Á sama tíma minnumst við mikilvægis öryggis, björgunarstarfs og þeirrar ábyrgðar sem fylgir því að sækja sjóinn. Enginn sjómaður stendur einn. Að baki hverjum túr er áhöfn, fjölskylda, útgerð, samfélag og ótal hendur sem leggja sitt af mörkum.

Ég vil þakka öllum þeim sem komu að gerð blaðsins: viðmælendum, ljósmyndurum, auglýsendum, prófarkalesara, Sjómannadagsráði og öllum þeim sem lögðu okkur lið. Án ykkar væri þetta blað ekki til.
Kæru sjómenn og fjölskyldur sjómanna, til hamingju með daginn. Megi sjómannadagshelgin verða ykkur gleðileg, innihaldsrík og full af góðum samverustundum með ykkar besta fólki.
Lind Hrafnsdóttir Ritstjóri Sjómannadagsblaðs Vestmannaeyja
Lind Hrafnsdóttir.

Til hamingju með daginn sjómenn
Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn.
Mættu því óvænta
Sr. Guðmundur Örn Jónsson í Landakirkju.

SR. GUÐMUNDUR ÖRN JÓNSSON:
ÉG
ÓSKA
SJÓMÖNNUM OG FJÖLSKYLDUM
ÞEIRRA GLEÐILEGS SJÓMANNADAGS!
Það var árið 1938 sem sjómanndagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur; árið eftir hófst síðari heimsstyrjöldin. Vissulega var landið okkar ekki vígvöllur styrjaldarinnar en samt sem áður voru áhrif hennar hér töluverð og þá sérstaklega á höfunum. Talið er að um 200 Íslendingar hafi farist vegna styrjaldarinnar, langflestir sjómenn eða farþegar á skipum. Flestir fórust vegna árása kafbáta, tundurdufla og flugvéla á skip en einnig vegna ásiglinga sem urðu vegna þess að siglt var ljóslaust að næturlagi því bannað var að nota loftskeytabúnað skipanna. Og þannig margfölduðust af mannavöldum þær hættur sem endranær fylgja siglingum. En sjó– og farmenn þess tíma lögðu sig í hættu við að koma matvælum og nauðsynjum til bandamanna í Evrópu og auka um leið hag íslenska þjóðarbúsins.
Nábýlið við sjóinn hefur líka vakið okkur til meðvitundar um mikilvægi öryggis- og björgunarmála á hafinu. Slysavarnir eru sem betur fer alltaf verið að eflast og þeim ber öllum heiður og þakklæti sem vel hafa stutt að þeim málum og veitt þeim athygli sína og ástundun.
Alltaf er það einstök tilfinning að heyra fréttir af giftusamlegri björgun af hendi Landsbjargar eða Landhelgisgæslunnar eða annarra þeirra sem láta sig varða heill náungans.
Einn af þeim sem létu sig öryggismál sjómanna varða, var séra Oddur V. Gíslason prestur í Grindavík og víðar. Sjóferðabæn séra Odds kannast eflaust margir eyjamenn við, enda er platti með áletraðri sjóferðabæninni ávallt gefinn í hvert skip hér í Eyjum um leið og það er blessað. Séra Oddur fæddist í Reykjavík árið 1836 og lauk prestaskólanum árið 1860. Það er óhætt að segja að séra Oddur hafi ekki verið við eina fjölina felldur þegar kom að hugðarefnum hans. Það var raunar fátt mannlegt sem hann kom ekki að með einhverjum hætti. Hann var m.a. bæjarfulltrúi í Reykjavík, var formaður á eigin bát, stóð í verslunarrekstri í borginni, rannsakaði jarðlög og stundaði brennusteinsnámuvinnslu, og kolanámuvinnslu, var umboðsmaður fyrir vátryggingafélög sjómanna og gaf út fyrstu kennslubókina í ensku fyrir íslendinga.
Á gamalsaldri lauk hann við læknisfræði í New
Innilegar
í tilefni sjómannadagsins! hátíðarkveðjur
í tilefni sjómannadagsins! hátíðarkveðjur Innilegar




York og nam auk þess líffræði, huglækningar og dáleiðslulækningar. Öll þessi upptalning á umsvifum Odds, sem þó er ekki tæmandi, gerir mann nánast örmagna.
En það sem séra Odds verður án efa alla tíð minnst fyrir, a.m.k. hjá sjómönnum, er framganga hans og barátta fyrir öryggi sjómanna. Hann lagði mikla áherslu á að þeir sem stunduðu sjóinn með honum kynnu að synda og hann barðist fyrir því að allir sjómenn lærðu sund. Þessi áhersla hans féll í grýttan jarðveg, svo ekki sé meira sagt. Enda töldu fulltrúar útgerða og sjómanna reyndar líka, að það væri glapræði að kenna mönnum að synda. Með slíka kunnáttu í farteskinu yrði niðurstaðan sú að það myndi bara taka sjómenn lengri tíma að drukkna þegar slysin yrðu. En Oddur gaf sig ekki og lagði meira fram til öryggismála, vildi auka veg þilskipa í stað róðrabáta. Vildi að sjómenn tækju með sér bárufleyg á sjóinn, sem var holubauja með lýsi og lak lýsið í sjóinn og þar með lygndi bárurnar.
Já, margt af því sem Oddur lagði áherslu á í öryggismálum sjómanna þótti ýmist glapræði, óþarfi eða fáfræði. En Oddur talaði auðvitað út frá eigin reynslu og skyldi málefni sjómanna betur en margur annar. Enda hefur verið horft til séra Odds sem frumkvöðuls og baráttumanns í sjóslysavörnum á Íslandi. Oddur var einn af þeim fjölmörgu íslendingum
sem fluttist vestur um haf og lést í Kanada árið 1911. Oddur var meðvitaður um allar þær hættur sem leynst geta á sjó. Vissulega er ekki hægt að líkja aðbúnað sjómanna í dag saman við þann aðbúnað sem menn bjuggu við á 19.öldinni.
Grunnstefið er þó alltaf það sama; í hafinu er bjargræði og því eiga þeir sem sækja það, heiður skilið. Sem og þeir farmenn allir sem efla okkar hag.
Í sjómennskunni felst einhver lífsrythmi, taktur, sem er eins og ósjálfráður og er mótaður af aldalangri sambúð manns og sjávar.
Í sjósókninni er ákveðið birtingarform kjarna mannsins; sjálfsbjargarviðleitni, áræði og þor en jafnframt fyrirhyggja og virðing fyrir aðstæðunum.
Í henni kristallast lífsbarátta sem er mikið til alveg á sínum forsendum. En hinu er heldur ekkert að leyna að þeir tímar koma, hjá sjómönnum jafnt sem öðrum að hlutirnir ganga ekki alveg eins og maður vildi. Hún getur nefnilega verið erfið þessi lífsbarátta og vafalítið hafa langflestir einhvern tíma upplifað svipaða angist og lærisveinarnir í bátnum með Jesú forðum. Þegar öll kunnátta þeirra sjálfra er á þrotum, þegar maður hefur einhvern veginn gert allt sem maður hefur á valdi sínu og er sjálfrátt með, en ytri aðstæður eru samt sem áður þannig að það ræðst ekki neitt við neitt.
Ákall lærisveinanna forðum í bátnum með Jesú var: “Hjálpa þú, við förumst.”
Viðlíka áköll og þetta, þekkja margir af sjó og í lífinu almennt. Stundum eigum við í raun ekkert annað eftir en að ákalla Guð því traust á hann hefur svo oft bjargað.
Hafið hefur svo oft vakið ugg í brjóstum fólks og hefur einnig verið tákn fyrir óreiðuna í lífinu og helgast það líkast til af því að engin leið er að hemja þá höfuðskepnu sem hafið er. Þess vegna virkar sagan um Jesú, þegar hann kyrrir vind og sjó, svona sterkt á fólk. Því sambúð manns og sjávar við Ísland getur verið jafn hættuleg og hún er gjöful og blessunarrík.
En ennfremur má hæglega líta á hafið sem tákn fyrir allar þær ytri aðstæður sem við búum við en stjórnum í raun ekki heldur verðum að semja okkur að; við útbúum okkur gegn þeim eins vel og við getum en getum ekki stýrt þeim algerlega að okkar vilja.
Þá er gott að hafa Jesú stafni á siglingu okkar um lífsins haf.
Guð blessi sjómenn og fjölskyldur þeirra um alla framtíð.
Sr. Guðmundur Örn Jónsson

Bestu árnaðaróskir og kveðjur til sjómanna og allra Vestmannaeyinga á sjómannadaginn!

Ljósmyndir/Óskar Pétur
SJÓMANNADAGURINN HALDINN HÁTÍÐLEGUR Á STAKKÓ
Sjómannadagurinn í Vestmannaeyjum 2025 var haldinn hátíðlegur á Stakkagerðistúni og góð aðsókn að hátíðarhöldunum í fínasta veðri,
Góð mæting var á Vigtartorgi á laugardeginum enda mikið í boði fyrir allan aldur. Hoppukastalar, fótboltavöllur, koddaslagur og margt fleira sem féll yngsta fólkinu að skapi. Þeir eldri kepptu sín á milli í koddaslag, kappróðri og þrautakóngi á sjó.
Dagskrá sjómannadagsins í Vestmannaeyjum var metnaðarfull og sífellt verið að koma inn með nýjungar þá sérstaklega fyrir yngri kynslóðirnar. Á fimmtudeginum var Sjómannadagsblaðinu dreift í öll hús. Á föstudeginum er komin löng hefð fyrir Opna Sjómannamótinu hjá Ísfélagi Vestmannaeyja í golfi. Mótið er sem ávallt vel sótt og skemmtilegt mót sem stækkar með hverju árinu.
Á föstudagskvöldinu hélt Nýdönsk tónleika í Höllinni og var uppselt á þá tónleika.
Líkt og hefð er fyrir byrjar laugardagurinn með dorgveiðikeppni SJÓVE og Sjómannadagsráðs á Nausthamarsbryggju. Þá mæta börnin með foreldrum og jafnvel öfum eða ömmum og þeim kennt að veiða á stöng og keppst um að veiða sem flesta fiska. Verðlaun eru veitt fyrir stærsta fiskinn, flesta fiska og fleira. Svali og prins póló í boði fyrir þátttakendur.
Sjómannafjöri laugardagsins hefur verið fundinn staður á Vigtartorgi sem hentar vel. Séra Guðmundur Örn blessaði daginn og þá tók við fjölbreytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri. M.a. kappróður, koddaslagur, sjómannaþraut, „foosball“, þurr koddaslagur, blöðrudýr og hoppukastalar fyrir börnin. Mikill fjöldi fylgdist með, bæði Eyjafólk og gestir.
Ribsafari bauð upp á ódýrar ferðir. ÍBV var með poppkorn og ís frá Kjörís í fjölbreyttu úrvali. Blaðrarinn mætti og gerði ýmsar blöðrufígúrur.
Glæsileg dagskrá á Sjómannahátíðinni í Höllinni var í boði á laugardagskvöldinu og dýrðarmatur frá Einsa kalda. Tónlistin sem einkenndi síðustu aldamót réði ríkjum og fram komu: Beggi í Sóldögg, Einar Ágúst, Jónsi í Svörtum fötum og Eyjaraddirnar Haffi úr MEMM og Una Þorvalds en hljómsveitin Gosarnir léku undir. Veislustjóri kvöldsins var Simmi Vill.
Sjómannadagurinn sjálfur hófst með skötuveislu sómannadagsráðs á Canton. Að henni lokinni buðu Stebbi og Svava heim til sín í kaffi, spjall og konna. Saman var gengið að leiði nokkurra fallinna félaga.
Næst tók við sjómannamessa sem séra Guðmundur Örn sá um. Á eftir var að venju athöfn við minnisvarða um drukknaða og hrapaða sem Geir Jón Þórisson stýrði. Þorbjörn Víglundsson lagði blómakrans að minnisvarðanum.
Á Stakkagerðistúni var hefðbundin dagskrá. Lúðrasveit Vestmannaeyja og Karlakórinn glöddu gesti með ljúfum tónum.
Líkt og undanfarin ár heiðruðu stéttarfélög sjómanna, Sjómannafélagið Jötunn, Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi og Vélstjórafélagið sína menn og sá Guðni Hjálmarsson um þann lið í dagskránni. Magni Freyr Hauksson var heiðraður af Jötni, Halldór Waagfjörð af Vélstjórafélaginu og Bergur Páll Kristinsson var heiðraður af Skipstjóra- og stýrimannafélaginu Verðanda, Þá heiðraði sjómannadagsráð áhöfnina á björgunarskipinu Þór fyrir að koma áhöfn seglskútu til bjargar.
Skipstjóra- og stýrimannafélaginu Verðanda, Þá heiðraði sjómannadagsráð áhöfnina á björgunarskipinu Þór fyrir að koma áhöfn seglskútu til bjargar.



Þorbjörn Víglundsson lagði blómsveig að minnisvarðanum.
Rikki og Halli á Canton sjá um að elda ofan í þessa meistara. Hér má sjá Rikka og Óðinn.
SJÓMANNABJÓRINN „BRAGI“
– HEIÐUR TIL MANNS SEM ENN STENDUR VAKTINA Á SJÓNUM

Það hefur skapast falleg og einstök hefð í Vestmannaeyjum hjá The Brothers Brewery að heiðra sjómenn bæjarins með sérstökum sjómannabjór á hverju ári. Í fyrra var komið að einum þekktasta og reynslumesta sjómanni Eyjanna, Braga Steingrímssyni, sem hlaut þann heiður að eiga sinn eigin sjómannabjór – „Braga“.
Bragi Steingrímsson er fæddur þann 1. janúar árið 1944 og hefur helgað líf sitt sjómennsku. Þrátt fyrir háan aldur lætur hann hvergi deigan síga og stundar enn sjóinn á Þrasa VE af sama krafti og áður. Það vakti sérstaka athygli þegar Bragi sjálfur mætti á svæðið við kynningu bjórsins og dældi fyrsta glasinu af „Braga“, við góðar undirtektir viðstaddra.
Með þessari viðurkenningu varð Bragi tíundi sjómaðurinn sem brugghúsið heiðrar með sínum eigin sjómannabjór. Verkefnið hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af skemmtilegri og hlýlegri þáttum sjómannadagsins í Eyjum – þar sem saga, sjómennska og samfélag fléttast saman.
Uppboð sem skilar samfélaginu miklu
Samhliða þessari hefð hefur einnig skapast önnur falleg venja. Á sjómannaskemmtuninni í Höllinni er ein sérstök flaska af sjómannabjórnum boðin upp og rennur allt andvirði hennar óskipt til góðgerðarmála í Vestmannaeyjum. Í fyrra var engin undantekning á því. Útgerð Braga, Þrasi VE, ásamt Phoenix Seafood, keyptu
flöskuna saman fyrir hvorki meira né minna en 800 þúsund krónur. Upphæðin rann óskipt til Krabbavarnar í Vestmannaeyjum og vakti framtakið mikla ánægju meðal gesta.
Þarna sameinast virðing fyrir sjómönnum, stuðningur við mikilvægt samfélagsmál og sú samheldni sem Vestmannaeyingar eru þekktir fyrir. Það er óhætt að segja að þessi hefð hafi öðlast sérstakan sess í hjörtum Eyjamanna og vonandi á hún eftir að lifa lengi enn.
Tíu sjómenn heiðraðir
Bragi Steingrímsson er, sem fyrr segir, tíundi sjómaðurinn sem The Brothers Brewery heiðrar með sjómannabjór. Þeir sem áður hafa hlotið þann heiður eru:
Ragnar Þór Jóhannsson – Togarinn
Ríkharður Zoëga Stefánsson – Zoëga
Sverrir Gunnlaugsson – Sverrir
Bergvin Oddsson – Beddi
Óskar Þórarinsson – Óskar
Sigurbjörn M. Theodórsson – Sibbi Tedda
Baldur Þór Bragason – Baldur Kristján Óskarsson – Stjáni
Sævald Pálsson – Sævald
Með þessum hætti hefur tekist að halda á lofti nöfnum og sögu sjómanna sem hafa markað djúp spor í sjávarútvegi og samfélagi Vestmannaeyja – og um leið skapa nýja og lifandi hefð sem tengir kynslóðir saman.
Ljósmyndir/Óskar Pétur Friðriksson
Bragi, Sigurður Bragason og Ríkhaður Zoega.

Skipalyftan ehf. óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn!
Verslun Skipalyftunnar
MIKIÐ ÚRVAL AF: PALLAEFNI
VERKFÆRUM
VINNUFATNAÐI
HJÓLUM FYRIR BÖRNIN
VEIÐARFÆRAVÖRUM
BOLTUM, RÓM OG SKÍFUM
STRAUB TENGJUM
LEGUM OG PAKKDÓSUM
SUÐU OG SLÍPIVÖRUM
HOSU- OG PARIKLEMMUM
SMURKOPPUM
TRILLU ZINKI
VIFTUREIMUM

SJÓMANNADAGSHELGIN 2025



















SJÓMANNADAGURINN
MAGNI FREYR, HALLDÓR OG BERGUR PÁLL HEIÐRAÐIR Í FYRRA
Líkt og undanfarin ár heiðruðu stéttarfélög sjómanna, Sjómannafélagið Jötunn, Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi og Vélstjórafélagið sína menn og sá Guðni Hjálmarsson um þann lið í dagskránni. Magni Freyr Hauksson var heiðraður af Jötni, Halldór Waagfjörð af Vélstjórafélaginu og Bergur Páll Kristinsson var heiðraður af Skipstjóra- og stýrimannafélaginu Verðanda, Þá heiðraði sjómannadagsráð áhöfnina á björgunarskipinu Þór fyrir að koma áhöfn seglskútu til bjargar.
Magni Freyr Hauksson
Sjómannafélagið Jötunn, heiðrar Magna Frey Hauksson, hann byjaði sjómennsku sína 1978 er hann steig um borð í Dala Rafni. Hann kom víða við á ferli sínum og sótti sjóinn með áhöfnunum á Ófeigi lll, á Smáey, á Bergey, hann fór svo á frystinguna á Vestmannaey og síðar á Breka. Í dag er hann á Frá VE. Magni Freyr hefur verið á sjó í tæp 48 ár.
Halldór Waagfjörð
Félag vélstjóra, Heiðrar Halldór Waagfjörð fyrir
störf sín um mörg heimsins höf. Eftir vélskólann 1971 byrjaði hann á Björginni hann var einnig á Danska Pétri, þar eftir á Hrönn. Sumarið ´72 kaupa þeir Ingvi Geir Skarphéðinsson Andvara og gera út. Nokkrum árum seinna fer hann á Vestmannaey og smyr vélina þar í 11 ár. Að því loknu flytst hann til Ástralíu og starfaði á nokkrum togurum þar. Hann kemur heim haustið 1999 og munstrar sig á Huginn. Þaðan fer hann til Reykjavíkur og ræður sig á Bakkafoss þá síðar á Skógarfoss og svo á Dettifoss. Halldór kemur svo aftur til Eyja og tekur við yfirvélstjórn á Herjólfi til 2015 en er að lokum með hraðferjuna Akranes til loka árs 2017.
Bergur Páll Kristinsson Skipstjóra og stýrimannafélagið Verðandi, heiðrar Berg Pál Kristinsson sem byrjaði snemma á sjó á Vestmannaey árið 1975. Var 15 ára gamall og hálfdrættingur að eigin sögn. Hann starfaði síðar sem stýrimaður og skipstjóri á Bergey, þá á Ófeigi og ekki síst á Herjólfi. Hann starfaði einnig lengi hjá Vestmannaeyjahöfn þ.m.t. sem skipstjóri á Lóðsinum. Bergur hefur starfað lengi
Heiðraðir á sjómannadeginum í fyrra. Ljósmyndir / Óskar Pétur.

að málefnum sjómanna hjá bæði Verðanda og Farmannasambandinu.
Þess má til gamans geta að hann og Kristinn pabbi hans eru fyrstu feðgar sem heiðraðir eru af Verðanda.
En það voru Bergur Björn Auðunsson og Haraldur dúi bróðir hans sem tóku við skildinum fyrir hönd afa síns, en Bergur og Hulda Karen, eiginkona hans, voru utan landsteina.
Áhöfn á björgunarskipinu Þór
Þann 5. júní í fyrra bjargaði áhöfnin á björgunarskipinu Þór, áhöfn seglskútu með harðfylgi. Þeir drógu skútuna heim í höfn í N-stormi allt að 34 m/s vindi og 6 m öldu með öll segl rifin, nánast engar olíubirgðir og í bráðum vanda. Skútan var um 75 sjómílur ASA af Eyjum milli miðnátta. Verkefnið tók um 22 klukkutíma.
Það eru þeir dáðadrengir Þorbjörn Víglundsson skipstjóri, Björgvin Hlynsson vélstjóri og hásetarnir
þeir Arnar Gauti Egilsson, Reynir Egilsson, Steinar Máni Ívarsson og Þráinn Jónsson sem tóku á móti skildinum.




Sjómannadagsráð á sjómannadaginn 2025.







ÍSÓLFUR GYLFI PÁLMASON – HÁTÍÐARRÆÐA Á
SJÓMANNADAGINN 2025:
ÉG VILL ÞVÍ LEGGJA
RÍKA ÁHERSLU Á
AÐ SJÓMENN TAKI ÞÁTT Í HÁTÍÐARHÖLDUNUM
Sjómannadagsráð, góðir Vestmannaeyingar, góðir hátíðargestir! Til hamingju med daginn!
Mikið hefur verið ánægjulegt að vera með ykkur þessa dýrðardaga núna um sjómannadagshelgina. Takk fyrir að fá að vera með ykkur.
Hún rís úr sumarsænum, í silkimjúkum blænum, með fjöll í feldi grænum, mín fagra Heimaey.
Og enn þeir fiskinn fanga, um Flúðir, Svið og Dranga, þó stormur strjúki vanga, það stælir karlmannslund.
Hér réri hann afi á árabát, og undi sér vel á sjó.
Hvílíkur myndrænn snilldarbragur Ása í Bæ – og ekki spillir hið fallega lag Oddgeirs Kristjánssonar. Lag og texti samtvinnast og varðveitist um aldir. Afi er reyndar hættur að róa á árabát, kominn á nútíma skip eins og hann Bragi Steingrímsson 81 árs snilldarsjómaður sem er einn aflahæsti skipstjórinn á strandveiðunum í ár. Alvöru skipsstjóri með keppnisskap eins og vera ber. Gefum öðlingnum gott klapp.
Klöppum líka fyrir sjómannadagsráði og sérstaklega fyrir Ríkharði Zoëga Stefánssyni sem er sjómaður ársins að mati blaðsins Tíguls. Einstakt framtak sem hann hefur staðið fyrir

ÍSólfur Gylfi Pálmason flutti hátíðarræðuna 2025.
til þess að minnast drukknaðra sjómanna við Vestmannaeyjar hér á Skansinum.
Vestmannaeyjar rísa eins og safírperlur úr sumarsænum. Ég er svo heppinn að hafa Eyjarnar fyrir augunum nær alla daga frá Uppsölum, þar sem við búum, í 32 km. sjónlínu. Gömlu bændurnir á Uppsölum horfðu á skýjafarið í Eyjum til þess að lesa veðrið. Ferðalag lífs þeirra var vertíð í Vestmannaeyjum, eins og svo margra annarra Rangæinga af þeirri kynslóð. Ég set stundum myndir inná Heimaklett.is til þess að undirstrika hve fagurt er að sjá til Vestmannaeyja frá heimili okkar.
Um leið og ég óska hetjum hafsins, sjómönnum, til hamingju með sjómannadaginn, þakka ég fyrir þá tryggð og þann heiður sem þið sýnið mér, landkrabbanum, nágranna ykkar, með því að bjóða okkur Steinunni að vera með ykkur á þessum hátíðardögum um sjómannadagshelgina. Við höfum notið þess. Við höfum hjólað um Eyjarnar. Hvílík fegurð! Hjólreiðar eru dásamlegur ferðmáti.

Smíðavinna Pípulagnir
Múrvinna
Sólpallar Skjólveggir
Mér er sagt að Einar í Betel hafi flutt sjómannadagsræðuna ár eftir ár þannig að heiðurinn er mikill, enda sögðu hásetarnir um borð í Herjólfi þegar við keyrðum inn í bátinn: „Kemur ræðumaðurinn.“ Síðan þá kallar konan mín mig Ræðumanninn. Við nutum einnig þess heiðurs fyrir þremur árum að vera viðstödd þegar haldið var uppá að 70 ár voru liðin frá því að fyrsta sjómannadagsblaðið kom út í Vestmannaeyjum undir ritsstjórnar hins snjalla Ómars Garðarssonar. Sjómannadagsblaðið varðveitir mikilvægar heimildir. Ég minnist þess líka hversu glaðir gömlu rangæsku vertíðarmennirnir urðu þegar ég færði þeim Sjómannadagsblaðið. Þá rifjuðust upp ævintýrin í eyjum um “sólbrúna vanga og siglandi skip.” Og ævintýrin um hana “Maju litlu með ljósa hárið sem líktist helst álfamey.” Hvílík meitluð samlíking. Já þær eru margar “álfameyjarnar” enn í Vestmannaeyjum, ég sá það best á sjómannadagsballinu í gær og ein þeirra er vinkona mín, bæjarstjóri ykkar hún Íris Róbertsdóttir.
Íslendingar hafa yfirburði annarra þjóða í fiskveiðum, fullvinnslu og nýtingu aflans. Vestmannaeyingar hafa líka haldið vel á málum hvað varðar að missa ekki kvóta úr heimabyggð og nú á sér stað afar athyglisverð uppbygging landeldis hér í Eyjum. Sem hefur gríðarleg efnahagsleg áhrif á samfélagið og þjóðina alla. Í fjölskyldunni eru fjórir ættliðir sem hafa stundað sjávarútveg í gegnum árin. Gefum fjölskyldu Sigurjóns Óskarssonar gott klapp fyrir frumkvæðið. Sjávarútvegur er svo sannarlega grundvallaratvinnugrein þjóðarinnar og stuðlar að fæðuöryggi eins og landbúnaður, enda eiga þessar greinar svo margt sameiginlegt. Ég upplifði það á Drangsnesi á dögunum þegar sjómenn töluðu um hvar þeir hefðu verið að veiða, svipað og þegar karlarnir í Hrunamannahreppi sögðu frá því hvar þeir hefðu fundið kindur á afréttinum.
- Í dag gleðjumst við yfir því hve fá sjóslys eru um borð í íslenskum skipum.
- Í dag gleðjumst við yfir því hvað almennt búið er vel að sjómönnum.
- Í dag gleðjumst við yfir allri þeirri tækni sem þróast hefur til þess að létta sjómönnum störfin og hvernig aflinn er fullnýttur. Þar hefur orðið bylting.
- Í dag gleðjumst við yfir því að umhverfismál eru í hávegum höfð bæði til sjós og lands.
- Í dag gerum við okkur glaðan dag á sjómannadaginn sjálfan og það var auðvitað dásamlegur dagur og skemmtilegur í gær.
Ég hef miklar tengingar við Vestmannaeyjar ekki einungis sem fyrrverandi þingmaður ykkar
og nágranni, heldur fjölmargar aðrar. Fyrsta tengingin er ævagömul.
Sem ung kona, varð hún amma mín, ólétt eftir giftan kaupmann í Vestannaeyjum. Hún fæddi dóttur í Hallgeirsey í Landeyjum árið 1914. Amma sigldi í opnum báti með hvítvoðunginn til þess að fá kaupmanninn til að viðurkenna barnið, sem hann gerði fúslega og margir góðir afkomendur eru komnir út af þessu góða fólki og frændfólki mínu í móðurætt.
Ég var líka sem peyi hjá Möggu og Ella á Breiðabliksveginum. Foreldrum Ólafs í Skipalyftunni Ernu og Sighvatar. Flogið var frá Hellu – að Skógasandi og þangað til Vestmannaeyja. Mér sveitamanninum fannst Vestmannaeyjar vera stórborg. Á þessum tíma var Surtsey að gjósa sem mér þótti að vonum stórmerkilegt.
Ég var reyndar enn nær ykkur þegar ég var sem ungur drengur í sveit í Hallgeirsey í Landeyjum. Jón bóndi horfði oft dreymandi augum til Eyja, en hann hafði eins og svo margir Rangæingar verið á vertíð í Eyjum. Jón kom heim með saxafón sem hann keypti af Guðna Hermannsen og naut þess alla tíð að leika á hann.
Ekki nóg með það, ég var einmitt í Hallgeirsey þegar loftpúðaskipið kom í fjöruna, með þing-, fjölmiðla- og bæjarstjórnarmenn. Við krakkarnir vorum niðri í fjöru þegar ferlíkið kom æðandi upp affallið og skipið opnaðist að framan eins og stór kjaftur. Hlupu þá flest börnin sem þarna voru heim að bæ, einn skreið undir rúm og annar faldi sig bakvið hurð. Ég harkaði hins vegar af mér og fékk að fara í lystireisu. Þarna var fyrsta útvarps- og sjónvarpsviðtalið tekið við mig 12 ára gamlan af þeim Árna Gunnarssyni og Magnúsi Bjarnfreðssyni. Mikið var ég feiminn innan um öll þessi fyrirmenni.
Aðra skemmtilega sögu kann ég að segja ykkur um fyrstu tæknilegu samskipti Vestmannaeyja við Hallgeirsey. Í Hallgeirsey var kaupfélag í upphafi síðustu aldar – enda engir vegir og vörur komu með haust- og vorskipum. Guðbrandur Magnússon var kaupfélagsstjóri. Þegar símasamband var nýlega komið milli lands og eyja hringdi kaupfélagsstjórinn oft til Eyja. Ung kona Matthildur að nafni svaraði í símann og þau felldu einmitt hugi saman í gegnum símtölin og urðu þau farsæl hjón. Þetta er nú aldeilis falleg saga. Er þetta ekki eins og Tinder í dag? Það er ekkert nýtt undir sólinni.
Það er sterk taug á milli Vestmannaeyinga og Rangæinga. Við eigum svo margt sameiginlegt.

SJÓMANNADAGSHELGINA





Það fann ég vel þegar ég var þingmaður ykkar og hvergi voru fjörugri fundir en einmitt hér. Þar fóru fram hreinskilnar umræður og ekkert dregið undan.
Samskipti hafa aukist við gerð Landeyjahafnar, en geta verið enn meiri. Þannig eru starfsmenn áhaldahússins á Hvolsvelli umsjónarmenn með vatnsveitunni til Vestmannaeyja Rangárvallasýslumegin.
Vestmannaeyingar setja líka svip á samfélagið á Hvolsvelli og í Fljótshlíðinni á sumrin, þegar þið komið á tjaldsvæðin. Þið glæðið svo sannarlega sveitina lífi með söng og gleði. Við höfum líka nýtt okkur frábæra þjónustu Teiknistofu Páls Zophaníussonar í framkvæmdum á Hvolsvelli.
Rikki formaður sjómannadagsráðs spurði mig og glotti: „ Ísólfur hefur þú mígið í saltan sjó?“
Heldur betur, sagði ég montinn, því ég var í eina tíð kokkur á Fróða SH 15 í Ólafsvík. Í upphafi töluðu skipsfélagar mínir ekki mikið við kennarann, en ég var kennari í Ólafsvík á þessum tíma, en samskiptin urðu eðlileg þegar líða tók á. Ég lét ekki mikið fyrir mér fara þegar ég skaust uppá dekk og gaf múkkanum innihald magans og
VIÐ ÓSKUM
SJÓMÖNNUM OG FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA
TIL HAMINGJU
MEÐ DAGINN
lét á engu bera. Ég var samt alveg þokkalega sjóhraustur. Allir lifðu þetta nú af. Það sem verst var að ég gleymdi uppskriftarbókinni í lúkarnum þegar ég yfirgaf skipið. Bókin hét: „Unga stúlkan og eldhússtörfin.“ Þeir hlæja enn af mér en fyrir bragðið var ég beðinn um að halda sjómannadagsræðu í Ólafsvík þegar ég var orðin þingmaður. Líklega allt út af bókinni góðu.
Nú um stundir er eins og oft áður rætt um fiskveiðar, kvótakerfið, arðsemi og sanngjarna skiptingu þess auðs sem sjórinn gefur.
Mikilvægi greinarinnar er óumdeilanleg og vonandi finnum við sanngjarna lausn sem sem flestir sætta sig við. Niðurstöðu sem kollvarpar ekki því kerfi sem við höfum byggt upp í þessari mikilvægu atvinnugrein. Við getum ekki verið án útgerðarinnar og útgerðin getur ekki verið án sjómanna og fiskvinnslufólks.
Sameinuð stöndum vér sundruð föllum vér. Samvinna og samstaða eru lykilorðin.
Megi sjávarútvegur og byggðin hér í Vestmannaeyjum áfram blómstra og samskipti lands og eyja verða enn meiri. Við erum sama fjölskyldan. Guð og gæfan fylgi sjómönnum þessa lands.







FROST BÍÐUR UPP Á ALLAR GERÐIR AF IÐNAÐARHURÐUM FYRIR VINNSLUHÚS, VINNSLURÝMI , KÆLI OG FRYSTIKLEFA.

FROST ER MEÐ BREIÐA LÍNU AF HRAÐABREITUM Á LAGER. ALLT FRÁ 0.1 – 630 KW FRÁ YASKAWA.
Kynntu þér nánar á frost.is og yaskawa.is


ROBOT
LEAPMOTOR FJÖLSKYLDAN STÆKKAR
NÝJAR GERÐIR LEAPMOTOR ERU MÆTTAR TIL LEIKS. HVAÐA LEAPMOTOR HENTAR ÞÍNUM LÍFSSTÍL?

2.990.000 KR.*
Verð án rafbílastyrks: 3.490.000
FORSALAN ER HAFIN VÆNTANLEGUR Í ÁGÚST
C10 DESIGN AWD NÝ SENDING AÐ LENDA
5.990.000 KR.*
Verð án rafbílastyrks: 6.490.000

B03X LIFE
2.990.000 KR.*
Verð án rafbílastyrks: 3.490.000
Verð án rafbílastyrks: 4.490.000 T03
B10 DESIGN
4.790.000 KR.* Verð án rafbílastyrks: 5.290.000
*ÖLL VERÐ MEÐ RAFBÍLASTYRK.
FORSALAN ER HAFIN VÆNTANLEGUR Í JÚLÍ

B05 DESIGN
3.990.000 KR.*
MYNDIR FRÁ SJÓMANNADAGSSKEMMTUNINNI Í HÖLLINNI Í FYRRA














INGI ÞÓR ARNARSSON:
„REYNSLAN ER GULL Í ÞESSUM FRÆÐUM“

er dýrmæt. Ingi Þór á tæplega 30 ára reynslu að baki á sjó. Ljósmynd/Aðsend.
Ingi Þór Arnarsson útskrifaðist nýverið sem vélstjóri eftir tæplega þriggja áratugalanga reynslu sem háseti á sjó. Þótti honum það bæði vera orðin tímabær og eðlileg framvinda af löngum sjómannsferli að láta af því verða að sækja sér menntun og ákvað því að taka vélstjórnarnám samhliða starfi sínu á Bergey VE 44.
„Ég hef alltaf haft áhuga á vélum, þannig að þetta hentaði mér mjög vel,“ segir Ingi Þór.
Ákvörðunin um að setjast aftur á skólabekk og hefja nám segir hann ekki hafa átt sér langan aðdraganda. Rétti tíminn var runninn upp fyrir honum sjálfum og þá var ekki eftir neinu að bíða.
„Þetta var meira svona stökk sem ég tók um leið og boðið var upp á leið sem hentaði mér,“ segir Ingi Þór sem stundaði námið bæði við Tækniskólann í Reykjavík og Fisktækniskólann í Grindavík.
Nú hefur hann öðlast svokölluð vvyyfirvélstjórarréttindi og starfar sem fyrsti vélstjóri á Bergey. Réttindin heimila honum yfirvélstjórn á allt að 24 metra löngum skipum og ótakmarkaða vélavörslu á vélum sem nema 1000 hestöfl.
Þurfti að læra að læra upp á nýtt
Að eigin sögn lá námið nokkuð vel fyrir Inga Þóri. Áhugi hans á vélum og gangverki þeirra jafnt sem löng reynsla hans af sjónum má segja að hafi verið honum ákveðið forskot. Þó hafði langur tími liðið frá hans síðustu skólagöngu og reyndist það vera honum áskorun.
„Það sem kom mér mest á óvart við að byrja í skólanum var að þurfa að læra að læra aftur,“ lýsir hann og bendir á að tenging og samspil bóklegs náms og verklega hlutans um borð sé nokkuð skýr. Mikilvægt sé að hafa djúpstæðan skilning á hvoru tveggja til að allt geti gengið á eðlilegan og öruggan hátt.
„Brýnt er að skilja hvernig hlutirnir virka,“ segir hann. „Reynslan er algjört gull í þessum fræðum.“
Reynslan





Lífið á dekkinu er frábrugðið því sem á sér stað í vélarrúminu en Ingi Þór kann vel við sig á báðum stöðum. Ljósmynd/Aðsend.
Ekki hægt að kenna öll handtökin inni í kennslustofu
Þessi orð Inga Þórs endurspegla vel það sem margir sjómenn hafa bent á í gegnum tíðina. Sumt er ekki hægt að kenna inni í skólastofu heldur lærist mönnum margt með því að gera hlutina. Námsleiðir leggja ákveðinn grunn en þekking og reynsla verða til í samspili bóklegra og verklegra þátta.
Ingi Þór segir að reynslan hans sem háseti í hartnær 30 ár hafi nýst sér vel í náminu og ekki síður nú í nýja hlutverkinu. Hann segist hafa aukið mikið við skilning sinn á heildarstarfsemi skipsins sem hann þekkti þó mjög vel fyrir.
„Maður hefur mun betri skilning á öllu núna og hvernig hlutirnir eiga að ganga fyrir sig. Mér fannst ég vita og kunna mikið áður en ég fór í skólann en ég veit og skil miklu meira núna. Ég fékk líka heilmikið út úr náminu.“
Höndlar ábyrgðina vel Líkt og gefur að skilja felur starf vélstjórans í sér mikla ábyrgð, enda er starfsemi skipsins alfarið háð því að vélin virki sem skyldi, sem og annar búnaður um borð. Ingi Þór segist reyna eftir fremsta megni að nálgast ábyrgðarhlutverkið af æðruleysi og yfirvegun.
„Ábyrgðin er mjög góð, en getur líka stundum verið svolítið strembin. Það getur alls konar komið upp en maður verður að reyna að halda ró sinni í slíkum aðstæðum,“ segir hann en í gegnum árin má segja að sjómennskan hafi á einhvern hátt haft mótandi áhrif á viðhorf hans til starfsins og þeirra ákvarðana sem taka þarf hverju sinni. Góðar ákvarðanir eru að hans mati yfirleitt teknar að vel yfirveguðu ráði.
„Ég hef lært það að rólegt og yfirvegað er alltaf betra og sneggra en hraði og öskur. Og svo er það heldur ekki eins hættulegt,“ segir hann og metur svo að þetta hugarfar hafi komið honum langt og reynst sér vel í krefjandi aðstæðum um borð.
Af dekkinu og niður í vélarrúmið Ingi Þór segir hlutverkaskiptin, að fara af dekkinu og niður í vélarrúmið, í raun ekki hafa verið eins afgerandi og ætla mætti og breytt miklu fyrir sig. Grunnur starfseminnar um borð segir hann að miklu leyti snúa að því sama og þar getur liðsheild áhafnarinnar skipt sköpum.
„Þetta er svo sem enginn svaka munur fyrir mig,“ segir hann. „Eins og ég hef komið inn á þá þekkti ég allt nokkuð vel fyrir. Maður er búinn að vera svo lengi á sjó þannig maður veit hvernig þetta á að ganga fyrir sig og við sem erum um borð treystum hver á annan og þurfum að geta unnið vel saman - við erum allir saman í þessum hasar þannig það er ekki eins og ég sé að tapa samveru með hinum eða slíkt,“ útskýrir Ingi Þór og segir áhöfnina á Bergey einstaklega samhenta og trausta. Þar er valinn maður í hverju hlutverki og allir eru þeir jafn mikilvægir hlekkir í gangverki tannhjólsins sem knýr áfram starfsemina um borð.
„Áhöfnin á Bergey er mjög öflug. Það eina sem hefur kannski breyst samhliða þessum hlutverkaskiptum eru brandararnir, það er kannski aðeins önnur áhersla á þeim,“ segir hann sposkur og vill ekkert fara nánar út í þá sálma. Lesendum gefst því kostur á að geta í eyðurnar og reyna ráða fram úr því hvor húmorinn þeir telji að eigi betur við Inga Þór; háseta- eða vélastjórahúmorinn.
Fast róðrakerfi mælist vel fyrir Nýlega voru gerðar breytingar á sjósókn áhafnarmeðlima á Bergey og ákveðið að setja á fast róðrakerfi. Ingi Þór segir flesta ánægða með kerfið, enda veiti það áhafnarmeðlimum og fjölskyldum þeirra aukinn fyrirsjáanleika.
„Það er mjög fínt. Við róum tvo og tvo núna svo það er bara mjög gott.“

ÍSLAND ER LAND ÞITT

Ingi Þór ásamt gömlum og góðum skipsfélögum. Ljósmynd/Aðsend.
Að hans sögn hefur þessi breyting einnig haft jákvæð áhrif á vinnulag og jafnvægi í starfi sem mun sennilega hafa enn betri áhrif á úthald og þol mannskapsins þegar fram líða stundir.
Þegar litið er fram á veginn er Ingi Þór ekki í neinum vafa um stefnumark sitt. Þrátt fyrir að vélstjórnarréttindin kunni að opna margar dyr þá á sjórinn hug hans allan. „Ég sé sjálfan mig áfram á sjó,“ segir hann einfaldlega. „Og myndi vilja hvetja bæði háseta
og ungt fólk til að fara í vélstjórn. Þetta er nám sem nýtist í margt,“ segir hann jafnframt og bendir á að þróunin í sjávarútvegi muni halda áfram á tæknilegan hátt sem vert sé að reyna að halda í við og tileinka sér.
„Það er allt að verða meira tölvuvætt. Sem getur bæði verið kostur og galli,“ segir Ingi Þór og ljóst er að hlutverk hans sem vélstjóri komi til með að taka enn frekari breytingum samhliða þeirri þróun á komandi árum.
/Ásthildur Hannesdóttir





Við óskum sjómönnum til hamingju með daginn!

Gildi er bakhjarl sjómanna og styður við þá og ölskyldur þeirra
á öllum æviskeiðum. Aðild að sjóðnum tryggir meðal annars:
Ævilangan ellilífeyri við starfslok
Áfallalífeyri í kjölfar veikinda eða vinnuslyss
Rétt á maka- og barnalífeyri
Með séreignarsparnaði fást auknar ráðstöfunartekjur við starfslok en hann getur einnig nýst við fasteignakaup. Við vekjum jafnframt athygli á tilgreindri séreign en með henni er mögulegt að ráðstafa hluta af hefðbundnu lífeyrisiðgjaldi í aukinn séreignarsparnað. Mikilvægt er að kynna sér kosti og galla tilgreindrar séreignar áður en sú leið er valin.
Allir sem greitt hafa til Gildis geta sótt um húsnæðislán hjá sjóðnum.
Kynntu þér málið nánar á gildi.is
MINNING LÁTINNA

Gunnar Marel Tryggvason 27. nóvember 1945 - október 2025

Gunnar Marel Tryggvason fæddist í Vestmannaeyjum þann 27. nóvember árið 1945. Hann var nefndur eftir afa sínum í föðurætt en foreldrar hans voru Tryggvi Gunnarsson, vélstjóri og útgerðarmaður kenndur við Brúarhús, og Oddný Ólafía Sigurðardóttir húsmóðir kennd við Götu. Eldri bróðir Gunnars var Sigurður Helgi vélstjóri en hann lést árið 2007. Eftirlifandi eiginkona Gunnars er Hulda Sigurbjörg Vatnsdal Sigurðardóttir. Gunnar og Hulda eignuðust fjögur börn; Þorstein, Drífu, Tryggva og Ingu Rós. Barnabörn Gunnars og Huldu eru átta og barnabarnabörnin eru fimm. Það lá snemma fyrir Gunnari Marel að gera sjómennskuna að ævistarfi því faðir hans var vélstjóri og útgerðarmaður og afi hans landsþekktur skipasmíðameistari. Að lokinni grunnskólagöngu við Barnaskóla Vestmannaeyja og svo Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja réði hann sig í sitt fyrsta pláss í Eyjaflotanum aðeins 15 ára. Gunnar
Marel var háseti á strandferðaskipinu Herðubreið 1962-63. Hann hafði frá unga aldri mikla bíla- og mótorhjóladellu og því lá beint við að hann fetaði í fótspor föður síns og fór í Vélskóla Íslands í Vestmannaeyjum og tók þar annað stig vélstjóramenntunar 1968-69, hann kenndi þar um tíma eftir að hann hætti á sjó. Megin hluta starfsævinnar var hann vélstjóri hjá nokkrum útgerðum en 1976 tók hann við útgerð föður síns, ásamt Stefáni Friðrikssyni, og saman gerðu þeir út Erling VE295 í um áratug. Í Vestmannaeyjagosinu 1973 tók hann sér stutta pásu frá sjómennskunni og vann við hreinsunarstörf á Heimaey eins margir Eyjamenn ásamt því að vinna hjá Vegagerðinni á Selfossi þar sem fjölskyldan bjó í gosinu. Eftir að Gunnar Marel hætti í útgerð varð hann vélstjóri á nokkrum skipum í Vestmannaeyjaflotanum þar sem einkennismerki hans var að halda vélarrúminu í topp standi. Um sextugt hætti hann á sjó og síðustu starfsárin vann hann hjá Pétursey og Nethamri. Á sjómannadaginn 2019 var Gunnar Marel heiðraður af Vélstjórafélagi Vestmannaeyja fyrir ævistarf sitt sem vélstjóri. Eins og gefur að skilja var lítill tími fyrir sjómann að sinna miklum félagsstörfum en hann sat um tíma í stjórn Vélstjórafélags Vestmannaeyja.
Vélstjórinn Gunnar Marel tók minni þátt í uppeldi okkar systkina vegna tíðrar fjarveru á sjónum. En hann hafði metnað þegar kom að börnunum sínum og lagði mikla áherslu á að við gengjum menntaveginn. Það ríkti alveg agi á heimilinu og við vissum alltaf hvar við höfðum pabba. Ef hann var búinn
að taka ákvörðun þá varð henni ekki hnikað, það voru nefnilega frekar mikil ættgeng þrjóskugen í honum. En eins og fleiri góðir menn að þá mýktist hann með aldrinum. Pabbi var afskaplega bóngóður og snerist í kringum barnabörnin. Honum leið best með fjölskyldunni og elskaði að fá börnin, barnabörnin og barnabarnabörnin í heimsókn. Hann var mikill dýravinur og leyfði okkur að vera með ketti, hunda, hamstra, kanínur og páfagauka en kannski ekki allt á sama tíma!
Gunnar Marel var ekki maður margra orða og lét almennt ekki mikið fyrir sér fara en traustur alla tíð. Áhugamálin voru þó nokkur, hann las mikið, hafði alltaf áhuga á pólitík og var trúr vinstri vængnum. Pabbi hafði brennandi áhuga á bílum og formúlukappakstri og fór einu sinni á formúlukeppni á Silverstonebrautinni í Englandi. Sem ungur maður fór hann í svokallaða æskulýðsferð til Sovétríkjanna og þótti það mikið ævintýri á þessum árum. En í Eyjum leið honum alltaf best og hann skyldi ekki þetta vesen á okkur börnunum að flytja þaðan.
Vélstjórinn var afskaplega hraustur að eðlisfari og tók upp á því þegar hann hætti á sjó að fara í daglegar kraftgöngur. Hann var varla til á skrá á sjúkrahúsinu í Eyjum fyrr en hann greindist með illvígt krabbamein fyrir fimm árum. Hann lá á sjúkrahúsi síðasta árið þegar meinið sótti hart að honum. Að lokum varð vélstjórinn að játa sig sigraðan, hann ýtti arminum á gömlu díselvélinni til hliðar og lokaði þannig fyrir olíuna og drap á mótornum fyrir fullt og allt, umkringdur sínum nánustu. Takk fyrir allt elsku pabbi minn. Þorsteinn Gunnarsson
Þjónusta við sjávarútveg

Til hamingju sjómenn!
Félög Styrkás, Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni eru stoltir þjónustu- og samstarfsaðilar íslensks sjávarútvegs.
Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með sjómannadaginn um leið og við þökkum fyrir mikilvægt starf og farsælt samstarf.
Ásbjörn Garðarsson
31. mars 1956 - 07. desember 2025

Bróðir var fyrrum sjómaður og skemmtilegur bróðir, hann kvaddi þennan heim í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 7. desember 2025. Hann fæddist í Vestmannaeyjum 31. mars 1956 og bar alltaf góðar minningar í huga sér til Eyjana, hvar sem hann dvaldi. Bróðir var einn af átta systkinum –fimm bræðrum og þremur systrum – og var oft sagt að það hefði þurft öll systkinin til að halda í við orkuna og húmorinn í honum. Hann var hlýlegur og hjálpsamur, alltaf tilbúinn að lána hönd — þó kannski ekki alltaf á þann hefðbundna hátt. Nágrannarnir í æsku muna sérstaklega eftir honum þegar hann ákvað að „hjálpa“ við að bæta í vatnsbrunna þeirra, með sínum einstaka Ásbjarnar-máta sem olli jafnan bæði hlátri og undrun.
Sjómaður var hann lengi og naut þess að vera úti á sjó. Hann var þekktur fyrir dugnað, traust og glaðlyndi, og var sá sem hélt andanum uppi í áhöfninni þegar veðrið eða lífið var dálítið hrjúft. Hann hafði lag á að sjá gleðina í hverjum degi og átti auðvelt með að láta aðra brosa. Bróðir hafði líka mikla ævintýraþrá. Árið 1984 fór hann í eftirminnilega ferð til Tælands – ferð sem einkenndist af sól, hlátri og örlítilli fjárhagsspennu. Peningarnir runnu nefnilega örar en áætlað var, og endaði það á því að pabbi þurfti að „leysa hann út“ úr ævintýrinu. Þetta varð lengi sígilt húmoratriði innan fjölskyldunnar – dæmigert fyrir hann og glaðværðina sem fylgdi honum í öllu sem hann gerði.
Bróðir hafði gaman af félagsskap og gleði, og var um tíma formaður í Hildibrandi — félagi ungra manna sem tóku lífið með léttu hjarta og kímnigáfu. Þar fékk skemmtikrafturinn innan í honum að njóta sín til fulls.
Seinna á árum flutti hann til Reykjavíkur og dvaldi þar síðustu tvo áratugi lífs síns. Hann varð mikill golfari og tók leikinn bæði alvarlega og með smá greddu í augunum — eins og hann sagði stundum: „Golfið snýst um að hafa gaman, þó maður tapi stundum.“ Golfferðin til Dóminíska lýðveldisins var hápunktur margra minninga, full af sól, hlátri og góðum vinum.
Fótboltinn skipaði líka stóran sess í hjarta hans, og Manchester City fékk sinn skerf af hvatningum og viðbrögðum þegar leikirnir fóru fram. Hann trúði því alltaf að „þetta ár væri þeirra“ – og það verður líklega þannig áfram, hvar sem hann er núna.
Vinir og fjölskylda minnast Ásbjörns bróður sem manns sem kunni að njóta lífsins, sá alltaf skemmtilegu hliðina og lét gott skap smita út frá sér. Hann lætur eftir sig hlýjar minningar, hlátur, og fullt af sögum sem munu lifa lengi – eins og hann sjálfur hefði sagt: „Það þarf að hafa gaman, þetta er ekki æfing.“
Elsku bróðir, takk fyrir samferðina gegnum lífið, þó ég hefði viljað að hún væri lengri.
Með bestri kveðju – sjáumst síðar. Þinn bróðir, Daði.
Jæja vinur, svona fór það. Enn og aftur erum við minnt á að það ræður enginn sínum næturstað. Í dag er kvaddur góður vinur til margra ára, Ásbjörn Garðarsson. Allir eru eitthvað í lífi annarra, hvort sem það eru börn, foreldrar, vinir, starfsfélagar eða gæludýr. Ásbjörn var fléttaður inn í líf margra á mismunandi vegu. Hvar sem hann kom fyrir var hann alltaf sjálfum sér samkvæmur, hvass, hlýr og hlæjandi, allt í senn. Margar minningar koma upp í hugann þegar farið er yfir genginn veg og allar eru þær skemmtilegar. Það var nefnilega þannig að það var alltaf
glaðværð í kringum Ábba eins og hann var kallaður og hann var ávallt hrókur alls fagnaðar. Vorum við nokkrir ungir peyjar sem komum saman um tíma og það var mikið spjallað, stuð og stemmning, þar var nú ekki töluð vitleysan. Hann var lítið fyrir að vera í neikvæða gírnum en auðvitað kom það fyrir, hann var ekki skoðunarlaus manneskja. Það var ekkert mál að kveikja í honum sem var oftast gert í gríni svo fattaði hann það og þá hlógum við bara. Hann var náttúrubarn; ef hann hefði vaknað upp í frumskógum Afríku (kom fyrir að menn vöknuðu upp á ókunnum stöðum) þá hefði hann ekki verið lengi að eignast vini í skóginum, það á bæði við um villimenn, ljón og jafnvel górillu, veit ekki með gíraffa, kannski frekar afkvæmi gíraffa, semsagt á stærð við Ásbjörn; hann var ekki hár í loftinu nema þegar hann hékk í loftinu yfir sviðinu sem kynnir; það voru nokkur skemmtikvöldin.
Flest sem var stungið upp á var framkvæmt, allavega voru það góð ár.
Ég hitti Ásbjörn síðast á hjúkrunarheimili, þá var sjúkdómurinn farinn að hafa verulega áhrif á hann en samt var stutt í glaðværðina og húmorinn.
Að sækja fallegar myndir inn í myndasafn hugans er sennilega áhrifaríkasta aðferðin til að minna sig á að lífið er þrátt fyrir allt fallegt, minna sig á ljósið sem kúrir einhvers staðar úti í myrkrinu.
Ég bið Guð að vernda fjölskyldu Ásbjarnar og sendi mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Sorg ykkar og missir er mikill en minning um góðan dreng lifir um ókomin ár.
Gott að við kynntumst.
Gott að við bjuggum til minningar. Gott að ég á margar myndir af okkur. Gott að ég man eftir öllum gleðistundunum.
Takk fyrir allt elsku...
Sjáumst síðar.
Kaffi og sígó og horft út í bláinn.
Sigurður V. Friðriksson
Sigurlaugur Þorsteinsson
15. apríl 1953 - 23. desember 2025

Sigurlaugur Þorsteinsson fæddist í Vestmannaeyjum 15 Apríl 1953 og lést þann 23. desember 2025 að heimili sínu í Þorlákshöfn.
Sigurlaugur var sonur Þorsteins Gunnarssonar vélstjóra (1.11.1932 – 24.5.1958) og Pálínu Sigþrúðar Höjgaard Einarsdóttur húsmóður (30.1.1936 – 12.12.2024) og átti einayngri alsystir, og 6 yngri hálfsystkyni. Hann giftist Þorgerði Hreiðarsdóttir og eignaðist með henni tvö börn, Gyðu og Þorstein.
Þau bjuggu fyrst í reykjavík en fluttu svo til vestmannaeyja eftir gos. Sigurlaugur og Þorgerður skildu 1977 og hann giftist seinna Ruth Þorsteinsson frá færeyjum og eignaðist
eina dóttir með henni, Kristínu, og Ruth á þrjú börn úr fyrra sambandi, Þau Rúdolf, Helenu og Bjarka. Þau bjuggu um tíma í Færeyjum, fluttu svo aftur til íslands þar sem þau bjuggu í breiðholti, síðar í Keflavík í nokkur ár og þaðan fluttu þau til Grafarvogs þar sem þau bjuggu þar til þau keyptu hús í Þorlákshöfn fyrir um tíu árum síðan.
Pabbi ólst upp í vestmannaeyjum og naut þar góðs af stórri hornaættinni sem hann var mjög stoltur að tilheyra, en Afi féll frá í sviplegu slysi við eggjatöku í Súlnaskeri þegar pabbi var 5 ár gamall sem hafði mikil áhrif á hann allt hans líf, eftir fráfall afa tók amma saman við Eirík Nielsen Bakara og fluttu þau seinna upp á land til Kópavogs með pabba og systkyni hans.
Hann fékk ungur pláss á fragtskipi og sigldi til Danmerkur og þýskalands meðal annars og náði tökum á báðum tungumálum á þessum stuttu viðdvölum og hélt þeirri tungumálafærni alla æfi og nýtti sér þegar hann kom og heimsótti Þorstein son sinn og fjölskyldu í Danmörku.
Sjómennskan var hans megin starf framan af starfsæfinni en um þrítugt gerðist hann atvinnubílstjóri og keyrði leigubíl í mörg ár og tók nokkur verkefni á vinnuvélum og rútum. Seinustu ár starfsæfinnar starfaði hann sem strætó bílstjóri í reykjavík.
Pabbi var mikill bílakall og virkur meðlimu í 4x4 ferðaklúbbnum og flinkur í bílskúrnum að gera við eigin bíla og annarra þegar sá tími gafst. Hann var einnig virkur í björgunarsveitum þegar hann var yngri og var um tíma kafari í björgunarsveitum og frítíma.
Á seinni árum lét hann undan mótorhjóla dellunni sem alltaf hafði verið honum ofarlega í huga og var alltaf með eitt til tvö hjól í skúrnum til viðhalds og hjólatúra, Pabbi var alltaf mjög varkár og góður bílstjóri, en þegar hjálmurinn var kominn á kollinn þá breyttist eitthvað hugarfarið og hraðaskynið og honum leiddist ekkert að segja frá glæfra sögum af hjólinum.
Hann var mikill hundavinur og átti þrjá hunda yfir ævina og talaði mikið um þá og við og tók með i öll ferðalög þar sem það var hægt, íslenska tíkin Byljga var sú sem lengst var með honum en þar á eftir labradorinn Bjartur sem hann átti þar til fyrir fáum árum.
Pabbi er nú kominn aftur heim til eyja þar sem hjartað alltaf sló og liggur nú í vestmannaeyja kirkjugarði með afa og Kristínu dóttur sinni, megir þú hvíla í friði Pabbi.
Þín börn Gyða og Þorsteinn
Þórður
Yngvi Sigursveinsson
04. júní 1948 - 18. janúar 2026

Þórður var fæddur í Neskaupsstað 4 júní 1948. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Veatmannaeyja þann 18 janúar 2026.
Foreldrar hans voru Sigursveinn Þórðarson skipstjóri frá Krossi á Berufjarðarströnd og Björg S. Björnsdóttir húsmóðir og verkakona frá Ólafsvík.
Þórður var þriðji í röð fjögurra systkyna en elst var Sæunn f. 1943 d. 2023 Matthildur f. 1945 og Bjarni Ólafur f. 1961.
Þórður flutti ungur í Hafnarfjörð og ólst þar upp.Eiginkona Þórðar er Guðmunda Hjörleifsdóttir f. 23.04.49 frá Vestmannaeyjum en henni kynntist Þórður er hann starfaði á Vífilsstöðum við smíðar en hún sem starfsstúlka í eldhúsi. Fljótlega keyptu þau sér íbúð í Hafnarfirði og þar fæddust börnin . Inga Björg 1968, Matthildur 1970 og Sigursveinn 1972 en í byrjun árs 1975 var stefnan tekin á Vestmannaeyjar og þar fæddist yngsti sonurinn Hjörleifur 1976. Barnabörnin eru 15 og barnabarnabörnin 7.
Elsku Þórður minn og hjartkær pabbi okkar
Nú skilja leiðir um sinn og söknuður okkar allra er mikill.
Þú varst einstakur eiginmaður og faðir, rólegur sanngjarn, þolinmóður hjálpsamur og góð fyrirmynd.
Þolinmæði er eitt af fyrstu orðunum sem koma upp í huga okkar þegar við hugsum um þig.. Alltaf varstu tilbúinn að leyfa krökkunum að fljóta með í vinnuna, hvort sem það voru stelpurnar eða strákarnir. Hjölli var oftast sá sem var með þér og sýnir það vel hversu mikil fyrirmynd þú varst honum, að hann hefur fylgt þínu fordæmi og unnið að mestu við tvennt um ævina, sjómennsku og smíðar. Þolinmæðin fylgdi þér alla tíð og Ingu er minnistætt þegar þú hjálpaðir henni að parketleggja, hún í Svíþjóð og þú í Eyjum. Löngu fyrir tíma myndsamtala og eyddir þú klukkutímunum í að segja henni til um næstu skref í þeirri vinnu í gegnum símann. Hjálpsemi þinni fengum við öll að kynnast og í seinni tíð barnabörnin þín líka.
þegar við fluttum til Eyja var þitt fyrsta verk að sækja um lóð undir framtíðarheimili okkar og
1976 fluttum við inn á Smáragötu 4 í glæsilegt tveggja hæða hús. Fljótlega eftir það langaði þig að fara á sjóinn þú hafðir þó verið á sjónum áður þvi þú varst aðeins 14 ára gamall þegar þú byrjaðir sem messagutti á Hval 9 hjá Ingólfi frænda þínum. Síðan áttir þú eftir að vera háseti á Hval 8 hjá pabba þínum í nokkur sumur. Í Hvalfjörðin fórum við tengdamamma nokkrum sinnum í heimsókn til ykkar feðga þegar báturinn kom í land og þú varst svo glaður þegar þú sást að Inga Björg kom með okkur, þú varst
alltaf svo mikill barnakarl enda nutu börnin sín svo vel hjá þér.
Þú fóst síðan á Halkion VE og Ísleif VE og svo keyptir þú þér fyrstu trilluna sem var VON VE 9 og síðan kom Von VE 10 og á báðum þessum bátum varstu með góðan háseta á sumrin í yngsta syninum Hjölla hann var 12 ára þegar hann fór fyrst með þér á sjóinn. Þú varst á Gullberginu VE í nokkur ár og kunnir vel við þig þar, Svo varstu í nokkur ár á Herjolfi sem háseti.
Síðasti báturinn þinn var Amma gumm sem var skemmtibátur og þar fór ég mikið með þér og alltaf fengu barnabörnin að fara með ef veður var gott.
Við stofnuðum fyrirtæki okkar Volare ehf í lok ársins1997 og þar áttum við góðan tíma með öllu frábæra sölufólkinu okkar og eignuðumst þar góða vini sem komu og fylgdu þér síðasta spölin ástin mín.
Uppáhalds staðurinn okkar til að heimsækja var Svíþjóð en þar bjuggu 3 af 4 börnum okkar.
Matta flutti 1991 og Inga Björg flutti 1995 svo fór Hjörleifur út 2011. Við keyptum okkur hús þar eftir að við hættum bæði að vinna 2019. þar eyddum við sumrinu með öllu okkar fólki.
Við kveðjum þig öll með söknuði en vitum að við eigum eftir að hittast í sumarlandinu þegar okkar tími kemur.
Vertu Guði falinn elsku Þórður minn, pabbi okkar, afi og langafi
Gumma, Inga Björg, Matthildur, Sigursveinn ,Hjörleifur og fjölskyldur
Við óskum sjómönnum & fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn!





Richard Sighvatsson
10. janúar 1937 - 16. febrúar 2026

Pabbi okkar, Richard Sighvatsson –alltaf kallaður Rikki – fæddist í Vestmannaeyjum10. janúar 1937 og lést á Hraunbúðum 16. febrúar síðastliðinn, 89 ára að aldri.
Foreldrar hans voru Sighvatur Bjarnason, skipstjóri og útgerðarmaður frá Stokkseyri, og Guðmunda Torfadóttir húsmóðir frá Hnífsdal. Hann ólst upp í Ási við Kirkjuveg 49, þar sem sjórinn, útgerðin og lífið í kringum höfnina mótuðu bernsku hans. Þar var alltaf mikið líf og gestagangur, sjómenn dvöldu í kjallaranum og lífið og menningin hverfðist um sjóinn, útgerðina og fiskinn.
Það kom því engum á óvart að sjórinn varð hans lífsstarf. Hann byrjaði ungur til sjós og 22 ára gamall var hann orðinn skipstjóri. Hann var á mörgum bátum í gegnum tíðina, meðal annars Erlingi Arnar VE, Ásveri VE og Hringver VE. Sjómennskan var honum ekki bara vinna heldur lífsmáti, ábyrgð og stoltið sem fylgdi því að bera ábyrgð á skipi og áhöfn. Pabbi var einnig virkur í félagsstarfi sjómanna og sat um árabil í stjórn skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðanda. Þar lagði hann mikið af mörkum og hafði sérstaka ánægju af því að vinna að hagsmunamálum
sjómanna. Árið 2020 var hann heiðraður á sjómannadaginn fyrir störf sín á sjó og var það honum bæði ánægjuleg og verðskulduð viðurkenning.
Á Þórsballi kynntist hann mömmu okkar, Guðnýju Steinsdóttur –Gunný. Ástin lét ekki bíða eftir sér og þau gengu í hjónaband á gamlársdag árið 1958. Saman eignuðust þau sex börn: Lilju, Guðmund, Magneu, Sigurð Bjarna, Erling Birgi og Arnar.
Þau byggðu sér heimili, fyrst á Brekkugötunni og síðar víðar, en alltaf var fjölskyldan miðjan í öllu.
Þau dvöldu einnig mikið á Spáni á efri árum, þar sem þau nutu lífsins saman og eignuðust góðar stundir sem lifa áfram í minningunni.
Pabbi var stoltur af sínu fólki. Hann fylgdist vel með börnum sínum, barnabörnum og barnabarnabörnum og hafði einlægan áhuga á því sem hver og einn var að gera. Hann tók líka mökum þeirra sem sínum eigin og fjölskyldan stækkaði alltaf í hans huga – enda var hjartað stórt.
Við systkinin upplifðum hann kannski á ólíkan hátt, enda mikill aldursmunur á milli okkar. Þau eldri muna meira eftir pabba á sjónum og fjarverunni sem því fylgdi, en þau yngri meira eftir fjölskylduferðum, samverustundum og pabba sem fylgdist grannt með öllu. En eitt áttum við öll sameiginlegt: við vissum að hann stóð alltaf með okkur. Hann hvatti okkur til að vinna vel, standa okkur og vera heiðarleg. Þá væri allt mögulegt.
Pabbi var einstaklega mannblendinn maður. Hann átti auðvelt með að tala við fólk, mundi nöfn, fylgdist með og hafði einlægan áhuga á öðrum. Hvort sem hann var á bryggjunni, við löndun, á bensínstöðinni í Reykjavík eða bara úti á
götu, þá var hann maður sem fólk leitaði í. Það má með sanni segja að pabbi hafi verið vinur allra.
Íþróttir voru honum líka ómissandi hluti af lífinu. Hann horfði á nánast allt sem hægt var að horfa á – fótbolta, handbolta, pílukast, krullu og allt þar á milli. Hann hélt alltaf með ÍBV og landsliðinu, en naut þess ekki síður að fylgjast með leiknum sjálfum, taktíkinni og því hvernig íþróttin væri leikin. Hann horfði með augum þjálfarans.
Svo hafði hann líka sérstakt lag á að sjá verðmæti þar sem aðrir sáu bara dót. Það sem flestir hefðu hent gat auðveldlega fengið nýtt líf hjá pabba. Það fylgdi honum ákveðin kímni og þrjóska í því – og fjölskyldan brosir enn þegar rifjaðar eru upp sögurnar af því sem “alls ekki átti að henda”.
Síðustu mánuðina dvaldi pabbi á Hraunbúðum þar sem vel var hugsað um hann.
Þótt hann hefði verið líkamlega sterkur alla tíð fór líkaminn smám saman að láta undan eftir langa ævi og mikið strit.
Með pabba er horfinn stór persónuleiki. Maður sem lifði lífinu af krafti, hafði skoðanir, sagði sögur, fylgdist með fólki og lét sig aðra varða. Fyrir okkur var hann einfaldlega pabbi – traustur, hlýr, skemmtilegur og alltaf hann sjálfur.
Við erum þakklát fyrir allt sem hann gaf okkur og minningarnar lifa áfram í fjölskyldunni, sögunum og öllu því sem hann skildi eftir sig.
Guð blessi minningu föður okkar Richard Sighvatssonar.
Lilja Richardsdóttir, Magnea Richardsdóttir, Guðmundur Richardsson, Sigurður Bjarni Richardsson, Erlingur Birgir Richardsson og Arnar Richardsson.
Við óskum sjómönnum & fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn!







JÓEL DAN GÍSLASON:
DRAUMURINN ER AÐ EIGNAST EIGIN TRILLU
Jóel Dan Gíslason var aðeins sjö ára þegar hann fór fyrst á strandveiðar með frænda sínum. Síðan þá hefur áhuginn á sjónum bara aukist. Hann kann best við sig úti á dekki, fylgist vel með öllu sem gerist um borð og stefnir ótrauður á stýrimannaskólann þegar aldur leyfir.
Jóel Dan Gíslason er ungur Vestmannaeyingur með mikinn áhuga á sjómennsku. Foreldrar hans eru Eygló Dís Alfreðsdóttir og Gísli Valur Gíslason, og systur hans heita Eva og Ísabella Sara. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Jóel Dan þegar fengið góða innsýn í lífið á sjónum og veit nákvæmlega hvað honum finnst skemmtilegast: að fá að vera með, hjálpa til og upplifa alvöru sjómennsku.
Fyrsta ferðin gleymist seint
Jóel Dan var aðeins sjö ára þegar hann fór fyrst með frænda sínum á strandveiðar. Sú ferð er honum enn mjög minnisstæð.
„Mér fannst það alveg geggjað,“ segir Jóel Dan um fyrstu ferðina.
Það var ekki að ástæðulausu sem ferðin festist vel í minni. Þeir veiddu um 830 kíló í túrnum, mest þorsk og ufsa. Fyrir ungan dreng sem var að stíga sín fyrstu skref á sjónum var það stór upplifun að sjá fiskinn koma um borð og finna hvernig það er að vera hluti af lífinu á bátnum.
Honum fannst ótrúlega gaman að fylgjast með aflanum og upplifa stemninguna sem fylgir því að vera úti á sjó. Þar kviknaði enn frekar áhuginn á sjómennskunni.
Partur af áhöfninni
Það sem Jóel Dan kann best að meta við sjóferðirnar með frænda sínum er að fá að taka þátt. Honum finnst skemmtilegast að veiða, sjá aflann koma upp og fylgjast með öllu sem þarf að gera um borð. Siglingin sjálf heillar hann líka og honum finnst gaman að vera á bátnum þegar lagt er af stað og haldið á miðin.
Frændi hans leyfir honum að hjálpa til eftir því sem hægt er og það skiptir Jóel Dan miklu máli.
„Þá finnst mér ég vera partur af áhöfninni,“ segir hann.
Hann fær að prófa ýmislegt, fylgjast með og læra af því sem fram fer. Það er greinilegt að hann tekur hlutverkið alvarlega og nýtur þess að fá ábyrgð, þó hann sé enn ungur að árum.
Tuttugu kílóa þorskur á önglinum Eins og hjá mörgum sjómönnum og veiðimönnum eru ákveðnir fiskar sem gleymast seint. Hjá Jóel Dan var það stór þorskur sem hann fékk á öngulinn.

JÓEL DAN,10 ÁRA. MYND TEKIN 2026.
Stærsti fiskurinn sem hann hefur veitt var um 20 kílóa þorskur. Það var spennandi stund, enda tók fiskurinn vel í og togaði mikið á móti. Jóel Dan þurfti að halda vel á móti og passa sig að missa hann ekki.
Þegar fiskurinn náðist loks um borð var stoltið mikið. Honum fannst þetta einn skemmtilegasti fiskur sem hann hefur veitt og upplifunin sýnir vel hversu sterkt sjóveiðin hefur náð til hans.
Lærir hvernig allt virkar um borð Jóel Dan segir að hann læri eiginlega allt af frænda sínum. Hann fær að prófa það sem hann má gera og frændi hans útskýrir vel fyrir honum hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. Þannig lærir hann smátt og smátt á bátinn, veiðarnar og vinnuna sem fylgir.
Stundum fær hann að stýra bátnum. Hann hefur líka fengið að fara niður í vél og niður í lest, þar sem hann tekur stundum stöðuna og athugar hvort allt sé rétt flokkað. Honum finnst sérstaklega skemmtilegt að skilja hvernig hlutirnir virka um borð og hvað þarf að gera til að allt gangi vel.
Þessi forvitni og áhugi eru áberandi. Jóel Dan vill ekki bara vera farþegi; hann vill taka þátt, læra og verða betri með hverri ferð.
Sjógallinn og gott nesti
Það þarf að huga að ýmsu áður en haldið er á sjóinn. Jóel Dan passar alltaf að vera með gott nesti með sér, enda segir hann að maður verði oft svangur á sjónum.
Sjógallinn er líka ómissandi. Hann er geymdur niðri í Þorsteini VE og Jóel Dan veit vel hversu mikilvægt er að vera rétt klæddur. Á sjónum þarf að halda á sér hita og vera þurr, sérstaklega þegar veður geta verið breytileg og dagarnir langir.
„Það er mikilvægt að vera vel klæddur,“ segir hann af reynslu.
Ræs klukkan þrjú um nótt
Sjóferðir hefjast stundum snemma, jafnvel mjög snemma. Jóel Dan man eftir því þegar ræs var klukkan þrjú um nótt til að fara á sjó. Þá er kannski ekki laust við að maður sé syfjaður fyrst, en þreytan hverfur fljótt þegar spennan tekur við.
Honum finnst stemningin á morgnana góð, þótt stundum sé erfitt að vakna. Þegar komið er um borð og ferðin hefst vaknar hann fljótt, enda vill hann helst vera úti á dekki og fylgjast með öllu sem er að gerast.

Jóel Dan, 7 ára,. Mynd tekin 2023.
Ef þreytan sækir að getur hann lagt sig í kojunni, en það gerist sjaldan. Hann vill miklu frekar vera með í ganginum, sjá hvað er að gerast og taka þátt í deginum á sjónum.
Stefnir á stýrimannaskólann
Þegar Jóel Dan er spurður hvort hann sjái fyrir sér að halda áfram á sjónum þegar hann verður eldri er svarið skýrt.
„Já, alveg klárlega.“
Hann hefur þegar mótað sér stóran draum. Hann langar að fara í stýrimannaskólann um leið og hann hefur aldur til þess. Þá dreymir hann um að eignast sína eigin trillu og einnig að vinna á stóru skipi sem skipstjóri.
Það er ekki hægt annað en að hrífast með þegar ungur drengur talar af svona miklum áhuga um sjóinn. Jóel Dan hefur fundið eitthvað sem heillar hann, eitthvað sem hann vill læra meira um og jafnvel gera að framtíðarstarfi.
Sjórinn hefur lengi verið stór hluti af lífi Vestmannaeyinga og í Jóel Dan má sjá unga kynslóð sem tekur við áhuganum, reynslunni og draumunum. Hann er kannski ungur að árum, en markmiðin eru skýr: meiri sjór, meiri lærdómur og einn daginn eigin trilla — og kannski skipstjórastóllinn á stóru skipi.

Rás 16 er neyðarrás sjófarenda o g alltaf opin. Það að þú hlustir á hana getur sk ilið á milli lífs og dauða.
SÓL OG BLÍÐA Á SÍLDINNI Í NORÐURSJÓ

Sigurjón stóð lengi vel vaktina í eldhúsinu og passaði upp á að menn nærðust vel. Ljósmynd/Aðsend.
Sigurjón Pálsson, eða Síi eins og hann er gjarnan kallaður, er tæplega áttræður, borinn og barnfæddur Vestmannaeyingur sem á að baki um fjögurra áratuga starfsferil á sjó. Hann starfaði lengst af sem matsveinn en líka sem háseti og síðar útgerðarmaður um tíma. Sjórinn var rauði þráðurinn í lífi hans eða allt þar til hann hætti til sjós árið 2002 og flutti frá Eyjum á Selfoss, þar sem enga höfn er að finna og lífið þar í bæ því eðlis ólíkt því sem þekkist í Vestmannaeyjum.
„Ég var um 40 ár á sjónum og þótti það alltaf skemmtilegt starf. Ég flutti svo frá Vestmannaeyjum árið 2002 með börnin mín tvö og þá hætti ég alveg á sjónum,“ segir Sigurjón sem hóf störf sem umsjónarmaður hjá Selfossbæ í kjölfar flutninganna og starfaði þar í rúmlega 13 ár.
Byrjaði ungur til sjós en reyndi fyrir sér í öðru Sigurjón var ungur þegar hann steig sín fyrstu skref á sjó. Eðli málsins samkvæmt hefur hann því komið víða við og róið á hinum ýmsu skipum í gegnum tíðina. Svo mörg eru þau að hann hefur týnt á þeim tölunni.
Fyrsti túrinn var á Erlingi III a árið 1962 þar sem stundaðar voru neta- og síldarveiðar. Síðar fór hann tímabundið á Huginn, lítinn spýtubát, áður en hann réð sig á Ísleif IV (fjórða), þar sem hann átti eftir að vera í 13 ár.
Í millitíðinni, eða á árunum 1963-1964, reyndi Sigurjón fyrir sér sem gítarleikari í hljómsveitinni Tacton sextett sem var húsband í Höllinni, aðal samkomuhúsinu í Eyjum á þessum tíma. Það segir hann hafa verið sérlega viðburðaríkt og skemmtilegt tímabil.
„Þetta voru allt nokkuð góðir gæjar sem spiluðu vel saman og var þetta mjög skemmtilegt ævintýri sem dugði reyndar skammt en minningin um það mun vara lengi,“ lýsir hann og segist hafa leitað aftur á sjóinn eftir hljómsveitarævintýrið.
„Það var gott að komast aftur á sjóinn. Ég var fyrst háseti og svo varð ég kokkur,“ segir hann.
„Mér hefur alltaf þótt gaman í eldhúsinu og að dunda mér við eldamennskuna en ég held að í byrjun hafi þetta bara verið eitthvað sprell,“ segir Sigurjón um það hvernig matsveinastarfið hafi í upphafi atvikast.

„Um tíma fór ég svo upp á land og fór að vinna í Hagkaup sem kjötiðnaðarmaður. Nýtti það tækifæri vel og fór í skóla í Hafnarfirði sem hét Matreiðsluskólinn okkar og var þar á kvöldin,“ segir Sigurjón sem var um þrjú ár búsettur í höfuðborginni og starfaði sem kjötiðnaðarmaður bæði í vinnslu og í kjötborðum verslana Hagkaups á hans yngri árum.
„Svo fór ég aftur á sjóinn. Ég leitaði alltaf aftur þangað. Mig langaði ekki til að búa neins staðar annars staðar en í Eyjum. Eyjarnar toguðu alltaf í mig og það samfélag sem þar var og er,“ segir Sigurjón sem varð þó margs vísari eftir námið í Matreiðsluskólanum og alla reynsluna sem hann tók með sér úr kjötborðinu í Hagkaup.

„Þetta var lærdómsrík reynsla sem nýttist mér vel á sjónum.“
Matarvenjur tóku breytingum
Matsveinastarfið átti eftir að fylgja honum lengi.
Hann var meðal annars kokkur á Sæbjörginni um nokkurt skeið en einnig á Sigurbárunni og Gullbergi, en hann segir kokkastarfið hafa breyst mikið með árunum, þá aðallega hvað varðar matarvenjurnar.
„Það var hefð fyrir því að bjóða upp á fisk í hádeginu og kjöt á kvöldin. Svo bakaði maður líka alls kyns bakkelsi,“ segir hann. „Seinna fóru að koma inn pizzur á laugardögum og matarvenjurnar breyttust mikið með hverjum tíðarandanum en maður varð bara að bregðast við því,“ segir hann og minnist þess ekki að hafa fengið kvartanir yfir matseldinni öll þau ár sem hann kokkaði úti á sjó.
„Nei, ég fékk aldrei neinar kvartanir yfir matnum. Menn átu bara það sem var í boði.“
Bjartar minningar úr Norðursjó
Sigurjón minnist síldaráranna í Norðursjó með sérstakri hlýju. Hann var á síldarveiðum í um sjö sumur, frá árinu 1969 og fram undir miðjan áttunda áratuginn, og segir þau ár hafa verið ævintýri líkast.
„Þetta var spennandi tími og virkilega gaman,“ segir hann.
Vinnan var hörð en minningin björt. Kastað var
á nót, aflanum dælt upp í skipið og svo ísað yfir hann í kössum – allt handvirkt. Þá var ýmist landað í Þýskalandi og Danmörku. Að sögn Sigurjóns voru túrarnir langir og gátu varað frá fimm vikum og upp í þrjá mánuði, en lengd túranna réðist alfarið á kvótamagni hverju sinni. Hann minnist þess að fyrstu sumrin hafi einungis verið landað í Þýskalandi og því var fjarveran frá heimahögunum löng.
„Í minningunni var alltaf sól og blíða,“ segir Sigurjón og brosir. „Það viðraði alltaf svo vel þarna við Þýskaland og Danmörku þarna á sumrin og við alltaf að drepast úr hita en settum upp sundlaug á dekkinu og svona. Þetta var ofsalega skemmtilegur tími,“ minnist hann og segir áhöfnina frá þessum tíma enn halda hópinn og hittist einu sinni til tvisvar á ári á Fjörukránni í Hafnarfirði.
„Það hefur fækkað í hópnum, en við sem eftir erum höldum hópinn. Við borðum saman og rifjum upp gamla tíma, enda á nógu að taka og sumt sem ekki þolir dagsljósið,“ segir hann kíminn og hlær.
Ótrúlegar tæknibreytingar
Á þessum fjórum áratugum upplifði Sigurjón miklar breytingar verða í íslenskum sjávarútvegi. Tækninni fleygði fram, skipin stækkuðu og aðbúnaður um borð batnaði til muna.
„Tæknivæðingin var mjög ör. Fyrst var þetta háfað um borð, síldin og loðnan, en svo komu dælurnar
Sigurjón ásamt áhöfninni á Halkion þar sem hann starfaði sem matsveinn um nokkurt skeið. Ljósmynd/Aðsend.
og svo blakkirnar, þá tvær í staðinn fyrir eina,“ lýsir hann og segir þróunina hafa verið sjómönnum til góðs og einfaldað starfsumhverfi þeirra til muna.
Sjálfur segist hann ekki hafa átt erfitt með að aðlagast breyttu vinnulagi um borð og bendir á að breytingarnar hafi ekki einungis hafa haft jákvæð áhrif á vinnuna sem slíka, enda snerust þær ekki aðeins um veiðarfærin, heldur líka um daglegan aðbúnað sjómanna um borð í skipunum.
„Þetta breyttist eiginlega bara í einhvern lúxus. Maður fór af spýtubáti og yfir á glænýtt skip með sérklósettum, sturtu og þvottahúsi og öllum græjum. Það var rosalegur munur og manni leið eins og maður væri að fara úr skítnum og yfir í snyrtimennskuna,“ segir hann og skellir upp úr.
„Mesta lúxuslífið sem ég upplifði á sjó var þegar ég réri á Danska Pétri á trolli. Það voru engin smá þægindi.“ Þá var hann einnig á loðnu síðustu árin og segir það svipaðan lúxus hafa verið.
Hætti eftir skötuselsævintýrið Árið 2000 keyptu Sigurjón og félagar hans bátinn Sæfaxa og hófu skötuselsveiðar. Þá voru þær veiðar ekki kvótabundnar, en ári síðar breytti Landssamband íslenskra útgerðarmanna forsenduákvæðunum sem gerði útgerðinni á Sæfaxa ómögulegt fyrir að bera sig.
„Við fórum að veiða skötusel sem var ekki kominn í kvótann. Svo ári seinna var settur kvóti á okkur og aflamarkinu deilt niður með þremur,“ segir hann. „Þeir eyðilögðu þetta algerlega fyrir okkur,“ segir Sigurjón svekktur.
Hann segir útgerðinni hafa verið úthlutað mun minni kvóta en þeir töldu sig eiga rétt á og að það hafi gert út um hana. Þá segir hann samskipti LÍU

Hljómsveitin Tacton sextett gerði garðinn frægan í Eyjum. Ljósmynd/Aðsend.

fjórði í allri sinni dýrð á leið í land með smekkfullt skip. Ljósmynd/Aðsend
og Árna Mathiesen, þáverandi sjávarútvegsráðherra, hafa lyktað af einhvers konar samráðsspillingu.
„LÍÚ-greifarnir voru með Árna Mathiesen í vasanum. Það var ansi skrautlegt að upplifa þetta,“ segir hann ósáttur við hvernig staðið var að málunum.
„Ég er ekki á móti fiskveiðistjórnunarkerfinu. Er hlynntur því að það sé utanumhald og skýrar reglur en ég var ósáttur við þetta því þetta heyrði ekkert undir þann kvóta sem við vorum að veiða. Þetta var virkilega ósanngjarnt,“ segir hann.
„Við fórum ekkert á hausinn en neitt slíkt. Við hættum þessu áður en að því kæmi. Þurftum í raun bara að hætta því þrýstingurinn var svo mikill og þetta hafði ekkert upp á sig eftir að kvótanum var breytt. Okkur var gert þetta ómögulegt.“ Og þar með lauk sjómannsferli Sigurjóns.
Sáttur við lífið á Selfossi Í kjölfarið flutti hann á Selfoss, þar sem hann býr enn í dag, á fallegum stað með útsýni yfir Ölfusá og Kambana, svo að dæmi séu tekin.
Þótt Sigurjón hafi flutt frá Vestmannaeyjum eru tengslin við heimahagana enn sterk. Þangað fer hann reglulega í heimsókn og segir alltaf jafn gott að koma aftur á æskuslóðirnar. Hann segir lífið vera breytingum háð en þegar hann lítur um öxl eru minningarnar af sjónum bæði margar og góðar.
„Ég var heppinn allan minn sjómannsferil. Ég lenti
Ísleifur
„Það er gott að búa á Selfossi og ég er umkringdur fallegu umhverfi svo langt sem augað eygir.“
aldrei í neinu stórslysi þó ég muni eftir vondum veðrum. Ég held að góðir vættir hafi vakað yfir mér og það er gott að eiga allar þessar góðu minningar af sjónum í farteskinu.“
Lífið á Selfossi hefur farið vel með Sigurjón síðustu áratugi. Ljósmynd/Aðsend.
/Ásthildur Hannesdóttir
Sendum öllum sjómönnum bestu kveðjur
á sjómannadaginn


Ferskleiki fisksins skiptir öllu máli

Fiskikassarnir frá Tempru eru hannaðir út frá vísindalegum rannsóknum með það að markmiði að viðhalda ferskleika fisksins lengur en sambærilegar umbúðir.
Temprukassarnir sjá til þess að íslenskur fiskur kemst ferskur á borð neytenda um allan heim.
einangrun – umbúðir

Fjölskyldan á Stapa. Sigurður, Óli, Svanhvít og Guðjón. Elín er fremst á
ÓLAFI Á STAPA ER MARGT TIL LISTA LAGT – TRILLUKALL AF GUÐSNÁÐ
ÁNETJAÐIST FRELSINU Á SJÓNUM
„Það var ekkert að éta á heimilinu og því ekki um annað að ræða en að drífa sig á sjó. Það var austankaldi. Ég fer um borð, mæli olíuna og sé að ég þarf að kaupa olíu á bátinn. Ég fer með brúsa, dæli á hann 20 lítrum, fer um borð og sturta á tankinn. Ég er með þrjá brúsa á dekkinu sem ég nota fyrir ballest. Það veitir ekki af því hann er stuttur og valtur og ekki til stórræðanna,“ segir Ólafur Ragnar Sigurðsson, fyrrum vörubílstjóri, lögregluvarðstjóri og ekki síst trillusjómaður sem þarna er að tala um eftirminnilegan róður á trillunni Einfara VE síðasta haust.
Óli er af þeirri merku ætt sem kennd er við Vatnsdal í Vestmannaeyjum, eitt þeirra húsa sem fóru undir hraun í gosinu 1973. Hann er þó oftast kenndur við Stapa þar sem hann býr enn þó hann sé orðinn 95 ára. En aftur að róðrinum sem lýsir honum svo vel.
Óli setti í gang og sigldi út fyrir. „Það var meira brim en ég reiknaði með þannig að ég fór vestur og inn fyrir Eiði. Þar var ekkert að hafa og þá skellti ég mér austur að Elliðaey þar sem ég á
góða bleiðu, Skoruna, rétt austan við Elliðaey. Siggi í Bæ, Ási og fleiri voru þarna í gamla daga og fiskuðu vel,“ segir Óli. Fljótlega heyrði hann að ekki var allt með felldu í vélinni.
„Þetta var ný vél og ég hugsaði fyrst að þetta væri einhver vitleysa í mér. Svo bara stoppaði hún og ég búinn að fá þrjá góða fiska,“ segir hann. Hann sá trillu suður af sér, á Réttarklakknum við Bjarnarey. Þar var Kjartan á Veigu og sá að ekki var allt í lagi hjá Ólafi og bauðst til að draga hann í land. Það gekk þó ekki áfallalaust. Bætt hafði í austanáttina og þykknað í lofti.
Báturinn er stuttur og breiður; björgunarbátur sem breytt var í trillu. „Það var erfitt að fara fram á stefni til að ná í spottann og þurfti talsvert klöngur til. Það var svo mikill veltingur og lítið pláss til að athafna sig,“ segir Óli.
Hann sætti lagi og hnýtti spottann sem slitnaði þrisvar á leiðinni í land. Sjórinn fór vaxandi og Óli kominn af léttasta skeiði og vel það en hann var ákveðinn í að láta þetta ganga.
myndinni en hún lést árið 2015.
Við óskum sjómönnum & fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn!







„Þetta var orðið ansi erfitt og ég var farinn að pæla í því hvernig þetta færi allt saman. Í land komumst við og þá bauðst ég til að borga greiðann. Kjartan neitaði að taka við greiðslu og sagði að þetta væri félagsskapurinn; við hjálpum hver öðrum,“ segir Óli.
Þá vissi Óli hvað hafði gerst. „Ég skammast mín fyrir að segja frá því, en ég ætla að gera það núna. Ég hafði óvart fyllt brúsann af bensíni og hellt á tankann án þess að pæla í því,“ Hann fékk síðan góð ráð til að bjarga málunum og kom vélinni aftur í lag án tjóns.
Fæddist inn í heimskreppu
En hver er Óli á Stapa? „Ég er Eyjamaður og Þórari, fæddur og uppalinn í Vatnsdal sem fór undir hraunið í gosinu 1973. Foreldrar mínir voru Sigurður Högnason, sonur Högna Sigurðssonar Sigurfinnsonar hreppstjóra og Ingibjargar Ólafsdóttur

Óli söðlaði um árið 1972 og gekk í lögregluna. Hann var í fremstu víglínu í Heimaeyjargosinu.
frá Vík í Mýrdal. Ég fæddist inn í heimskreppu 1931 og við Högni bróðir vorum sendir í sveit. Ég í tvö ár austur í Bólstað í Kerlingardal þar sem ég var í tvö ár hjá mjög góðu fólki en án nokkurrar skólagöngu. Þegar heim var komið tók lífsbaráttan við. Ég var fermdur og fór svo að vinna við hitt og þetta,“ segir Óli.
Hann byrjaði ungur á sjó á ýmsum bátum og fór
í Vélskólann þegar hann hafði aldur til. Hann tók pungaprófið og reri nokkrar vertíðir. Á sumrin vann hann á stórvirkum vinnuvélum, meðal annars á jarðýtu við gerð flugvallarins og fyrir Flugmálastjórn uppi á landi. Var vörubílstjóri og síðast enn ekki síst lögreglumaður og lögregluvarðstjóri.
„Alvaran tók við þegar maður kvæntist og eignaðist börn,“ segir hann. Kona hans, Elín Albertsdóttir (1933 2015), er látin. Börn þeirra eru Sigurður Ingi, Svanhvít, Guðjón og drengur sem lést tveggja ára. Ættarsetrið var og er Stapi, þaðan sem er hátt til lofts og vítt yfir að sjá.
Örlagavaldurinn Guðjón á Heiði
Guðjón Jónsson á Heiði (1882 1963), Afi Elínar hafði afgerandi áhrif á líf Óla. Leiðir þeirra lágu saman þegar Guðjón var nær áttræðu og Óli 22 ára. „Guðjón bauð mér að gerast meðeigandi í trillubátnum Leifi heppna. Ég átti að greiða minn hlut þegar aflabrögð leyfðu,“ skrifaði Óli í Framsóknarblaðið um samstarf þeirra.
Síðar keyptu þeir stærri bát, Sporð. Þrátt fyrir tækniframfarir hélt Guðjón í hefðir og hafði ávallt árar um borð. Óli segir að samstarfið hafi verið bæði skemmtilegt og lærdómsríkt. Í róðri bilaði vélin í miklum rudda við Faxasker. Þriðji maður var Hólmar mágur Óla. „Guðjón tók stjórnina og skipaði okkur að róa sem við gerðum og komum okkur við illan leik úr hættunni við skerið. Ég hafði svo að lokum að koma vélinni aftur í gang en Guðjón var ekki á því að gefast upp og héldum við áfram og fengum góðan afla.“
Óli átti einnig jullu með Guðjóni á Heiði. Hún var notuð til ferða út í Bjarnarey til að sinna fé sem Guðjón átti þar. Jullan var vélarlaus og til að auka leti manna keypti Óli gamla vatnsdælu, tengdi skrúfuöxul við hana, boraði gat í skutinn og í gegn fór öxullinn. Skrúfan sett á og trekkt í gang. „Enginn var gírinn eða kúplingin þannig að tveir fullorðnir þurftu að standa í stefni til að skrúfan stæði upp úr sjó við ræsingu. Færðu kúplingsmennirnir sig svo varlega aftur í þar til skrúfan náði spyrnu. Og ekki var nú að spyrja að ganginum.“
Guðjón var formaður og skipstjóri í áratugi og naut mikillar virðingar. Árið 1944 lenti hann í erfiðri útilegu og stóð nær samfleytt í stýrishúsi í tvo sólarhringa. Það sem hafði varanleg áhrif á heilsu hans en sýndi mikla ábyrgð gagnvart mönnum og skipi. Hann var sjómaður í um hálfa öld og skipstjóri í fjóra áratugi. Guðjón var fyrsti heiðursfélagi Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi. Minning hans lifir um dugmikinn, réttsýnan og hlýjan mann.

ÓLI VIÐ VÖRUBÍLINN GÓÐA. EINKABÍLLINN BER Í DAG NÚMERIÐ V 505.

Klakkur, Sporður og Einfari
Fyrsta trillan sem Óli átti einn var Klakkur. Súðbyrtur með færeysku lagi sem hann keypti af Friðgeiri á Kalmannstjörn um 1965. Þurfti að sauma allan byrðinginn upp því allir naglar voru ónýtir. Seinna setti Óli svo Bens vörubílsvél með kúplingu og gír í Klakkinn. Gekk báturinn svakalega eftir það, í þriðja gír. Frambyggðan plastbát keypti hann svo 1981 sem skírður var Einfari, nafn sem hæfði eigandanum og báturinn góður, stöðugur og traustur. Óli átti hann í sjö ár. Hann minnist róðurs með Bjössa mági sínum á handfærum. „Við fengum ekkert heima við og þá fékk ég þá hugdettu að fara vestur að Dröngum. Þar var leiðindaveður og ekkert annað að gera en að fara heim. Svo fór ég einn út um nóttina og fyllti bátinn á tveimur tímum við Drangana,“ segir Óli.
Óli reri á trillu samhliða starfi sínu sem lögregluvarðstjóri og er enn að. „Þegar maður byrjar á sjó ánetjast maður frelsinu sem felst í því að vera á sjó og ráða sér sjálfur. Það er umhverfið, eyjarnar og það að vera einn með sjálfum sér. Það er eitthvað sem ekki er hægt að lýsa,“ segir hann.
Skilaboð að handan?
Þann 23. febrúar árið 1953 hvolfdi Guðrúnu VE 163 og fimm menn fórust. Fjórir komust af. Þeim til happs var að gúmmíbjörgunarbátur var um borð og skolaði þeim á land í honum skammt undan Hallgeirsey í Landeyjum. Óli reri á Guðrúnu VE
árið áður og var ráðinn á vertíðinni 1953 en þá gripu örlögin inn í.
„Við Ella vorum að byggja uppi á Túngötu og
það var margt skrýtið við þetta. Við bjuggum þá á efstu hæð á Stóru-Heiði. Um jólin kemur Guðjón upp stigana. Þetta voru þrír stigar, hann orðinn þreyttur enda orðinn gamall og þungur. Hann var mættur til að biðja dóttur sína, Jóhönnu tengdamóður mína um að biðja mig að róa ekki á Guðrúnu næstu vertíð. Svo fór hann bara.
Ég var að byggja og fannst vont að missa af vertíðinni á svona góðum báti. Ég fór þó að

Fyrsta trillan sem Óli eignaðist, Klakkur.
Fjölskyldan saman í útgáfuhófinu í Eldheimum árið 2022. F.v. Marý Linda, Guðjón, Óli, Svanhvít og Sigurður.








hugsa málið. Þessi þungi og gamli maður lét sig hafa það að fara upp stigana, kófsveittur og hvíldi sig í öðru hverju skrefi. Hann tyllti sér svo þunglamalega niður á stól í eldhúsinu og kom skilaboðunum áleiðis. Mér fannst það nóg til að verða við þessu. Þetta var svo mikil alvara hjá honum,“ segir Óli.
Óli stóð þá uppi atvinnulaus, en öll él léttir um síðir. Hann byrjaði að keyra vörubíl hjá Baldri, bróður Einars ríka en Guðjón á Heiði ól þá bræður upp eftir að Sigurður Sigurfinnson hreppstjóri og faðir þeirra féll frá. Síðar réði hann sig á jarðýtu hjá Flugmálastjórn við flugvöllinn á sumrin. „Ég var fljótur að læra. Byrjað var að sprengja úr Sæfellsöxlinni til að opna austurenda flugbrautarinnar. Þurfti að fara upp á brún til að hreinsa mold og grjót ofan af klöppinni svo hægt væri að bora fyrir sprengjum. Það hefði orðið margra ára vinna að moka þessu með skóflum. Ég var beðinn um að fara upp á Sæfellið. Ég sagði ekki neitt en fannst þetta spennandi. Þeir fóru í mat og ég varð einn eftir. Þegar þeir komu úr mat var ég kominn upp á hæðina með jarðýtuna. Hallinn var svo mikill að það þurfti að hlaða undir beltið. Með lagni náði ég að hlaða undir mig og þetta gekk vel og þetta sparaði mikinn tíma og pening,“ segir Óli sem næsta sumar var á gröfu á Patreksfirði á vegum flugmálastjórnar og líkaði vel.
„Lífsbaráttan gekk hjá mér eins og öðrum Eyjamönnum. Atvinnumöguleikar ekki miklir, aðallega störf sem tengdust sjónum en ég ílengdist á Bifreiðastöð Vestmannaeyja, sem var fjörugt samfélag.
Við yngri mennirnir tókum okkur til og stofnuðum leikfélag. Það var lítið að gera hjá okkur á haustin og í byrjun árs. Við vorum tveir eða þrír í leikfélaginu og sömdum grínleikrit um okkur
sjálfa og aðra. Sýndum á árshátíðum okkar og á þorrablótum í þrjú eða fjögur ár. Launin voru þorramatur og ánægjan að vera með fólkinu. Allt mjög meinlaust og gaman.“
Frjálsar, blaðaskrif og myndlist Þegar Óli var átján ára fór hann í Íþróttaskólann í Haukadal til Sigurðar Greipssonar og líkaði mjög vel. „Alla tíð hef ég haft mikinn áhuga á frjálsum íþróttum og æfði mikið hér heima eins og aðstæður leyfðu. Ég stóð fyrir mörgum frjálsíþróttamótum sem við Siggi í Húsavík hjálpuðumst að með. Við vorum góðir vinir þó hann væri Týrari. Í Haukadal skrifaði ég í skólablaðið og hafa skriftir loðað við

Samhent hjón á góðri stund.
mig æ síðan,“ segir Óli sem skrifaði í dagblöð, Sjómannadagsblaðið, Þórsblaðið og fleiri blöð hér í Eyjum. „Ég skrifaði líka smásögur. Ein þeirra hét Sporið og vakti mikla athygli. Jógvan Hansen, Færeyingur sem bjó hér þýddi hana yfir á færeysku og sagan sló í gegn í Færeyjum. Hún fjallaði um mann sem ferst í hafi, eitthvað sem við Eyjamenn og Færeyingar þekkjum,“ segir Óli.
Ekki má heldur gleyma málaralistinni. „Við hjónin fórum í Myndlistarskóla Vestmannaeyja sem Páll Steingrímsson stóð fyrir. Við héldum því áfram og ég er enn að. Ég hef verið með þrjár sýningar, tværí í Svölukoti og svo í Einarsstofu
Árið 1981 keypti Óli plastbát sem nefndur var Einfari.

Við sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins.
á Sjómannadaginn fyrir nokkrum árum. Ég hef ekki selt neitt að ráði enda ekki verið að þessu til að græða. Þetta er bara fyrir ánægjuna,“ segir Óli.
Skaut og steinrotaðist Óli hefur alla tíð verið mikill áhugamaður um skotveiðar. Níu ára var kjarkurinn meiri en vitið. Mikið af svartfugli var ævinlega við Klettsnefið og espaði það löngunina til veiða. „Gummi frændi átti haglabyssu, nýja einhleypu sem ég vissi hvar var geymd. Ég tók hana traustataki ásamt nokkrum haglaskotum, setti í strigapoka og hljóp niður í Austurslipp. Þar hitti ég vin minn Sverri á Hofi og fengum við, „ekki-lánaðan“ árabátinn úr slippnum,“ segir Óli en ekki var sagan öll. Þegar komið var út undir Klettsnef og báðir örmagna eftir róðurnn var byssan sett saman. Skotið reið af, Óli sveif afturábak og rotaðist á þóftuni. Fimm álkur lágu, byssan féll í fang veiðimannsins en framskeftið fór í hafið. „Þegar ég rankaði við mér var róið í land og enginn til að taka á móti okkur, sem betur fór. Þegar heim í Vatnsdal var komið sat Gummi frændi undir vegg. Hann leit í pokann og sagði ekki orð. Það þurfti ekki. Gummi frændi var öðlingsmaður alla tíð.“
Með árunum þróaðist skotveiðin og Óli leitaði upp á land til gæsaveiða. Hefur það haldist í áratugi og síðasta haust fór hann sem áður í gæs með Jóhanni Baldurssyni tengdasyni sínum austur í Áftaver og Meðalland.
Í fyrstu var farið til veiða austan við Eyrarbakka og að Þjórsá. Síðar í Landeyjarnar og undir Eyjafjöllum. Veiddi Óli þá mest með mágum sínum Ólafi Tryggvasyni og Birni Jónssyni. Svo lágu leiðir í Álftver og Meðalland. Óli lét smíða fyrir sig veiðikofa sem var svo fluttur austur í Álftaver. Að sögn sveitunga er kofinn svo lítill að þar sváfu menn standandi. Þar hefur hann svo mest veitt með Jóhanni tengdasyni sínum og hafa þeir fylgst að í veiði í áratugi. Sigurður, sonur hans hefur svo veitt með þeim síðustu árin.
Minnkabaninn á Stapa
Óli gerði tilraun til að hætta trilluútgerð. Keyptur var sumarbústaður í Grímsnesi. Eitthvað þurfti Óli að hafa sér til veiðidundurs enda grunnt á veiðieðlinu. Eftir að hafa smíðað vandaðar veiðigildrur lágu 17 minkar eftir fyrstu þrjá mánuðina og mófuglalífið blómstraði sem aldrei fyrr. Þegar 17 minkaskott lágu á afgreiðsluborði skrifstofu hreppsins nokkrum dögum seinna. Veiðimaðurinn hugðist fá umbun fyrir samkvæmt venju og reglum, olli það verulegu uppþoti og allir kvenkyns starfsmenn hreppsins hurfu í einu vettvangi.
„Karttöflurækt og minkaveiði eru ekki eins og að eiga trillu í Eyjum. Það endaði með því að eftir

Vinirnir, mágarnir og samstarfsmennirnir í lögreglunni til áratuga, Birgir á Sólheimum og Óli á Stapa.
fjögur ár keypti ég annan Einfara, þá af Sveini í Völundi. Sumarbústaðinn áttum við þó áfram.“ Ásett verð á nýja Einfarann var 500 þúsund en Óli greiddi Sveini 700 þúsund fyrir hann og ætlaði sér stóra hluti í útgerð aftur.
Lögregan undir gjallregni
Árið 1972 söðlaði hann um og gekk í lögregluna og var í fremstu víglínu í Heimaeyjargosinu sem hófst 23. janúar árið eftir. Því lýsir hann í bókinni, Undir gjallregni sem kom út fyrir jólin 2022 og var vel tekið. Söguna skrifaði hann jafnóðum. „Ég var alltaf með blað og penna með mér í bílnum. Mér þótti best að semja á ferðinni og þegar hugmynd kviknaði bremsaði maður, skrifaði hana niður og geymdi.
Þessu hélt ég áfram í gosinu sem var mikill viðburður sem varð að skrá. Segja söguna jafnóðum sem ég gerði og lagði þannig grunn að bókinni . Heimildin liggur í byrjuninni. Hún er nákvæm og það á að sjást í bókinni,“ segir Óli. Hann minnist samstarfsmanna í gosinu sem voru Guðmundur Guðmundsson yfirlögregluþjónn, varðstjórarnir Agnar Angantýsson, Ragnar Helgason og Valgeir Guðmundsson aðstoðarvarðstjóri, auk lögregluþjónanna Einars Birgis Sigurjónssonar, Óskars Einarssonar, Haraldar Haraldssonar, Kjartans Guðmundssonar og Þorvalds Benediktssonar.
Óli er sáttur þegar hann lítur til baka og hefur örugglega ekki farið sinn síðasta róður þótt árin séu orðin 95. Á lífsleiðinni þurfti hann einnig að takast á við þungan missi. Þau hjón misstu Sigurð son sinn, tveggja ára gamlan. „Það var erfiður tími hjá okkur. Maður brotnaði og ég skil ekki hvernig við náðum að rétta úr kútnum,“ segir hann að endingu.
EINSTAKUR MAÐUR OG GÓÐUR KENNARI
Þegar ég hóf störf sem lögreglumaður í Vestmannaeyjum sumarið 1976, fór ég á vakt með Ólafi R. Sigurðssyni, Óla á Stapa, eins og hann var oftast kallaður og Karli Jónssyni, varðstjóra. Ég var 24 ára gamall en þeir voru mun eldri en ég, karlarnir. Ég var ómenntaður lögreglumaður og vann því sem sumarafleysingamaður. Ég ætlaði aldrei að verða lögreglumaður heldur vantaði mig tveggja mánaða sumarvinnu.
Við Óli sinntum oftast útköllum en Kalli var stjórnandi vaktarinnar og sendi okkur í hin ýmsu verkefni. Óli var alltaf alveg einstakur maður, þolinmóður, umræðu góður og góður kennari fyrir mig, hann var minn mentor. Óli kenndi mér undirstöðu atriði lögreglustarfsins og gætti þess vel að ég færi ekki fram úr mér. Ég vildi oft ganga lengra í sumum málum en hann passaði vel upp á að ég gengi ekki of langt.
Ógleymanleg jólanótt
Mig langar að segja frá einum atburði sem situr alltaf í mér þar sem Óli sýndi svo vel hvernig lögreglumenn eiga að vinna við erfiðar aðstæður. Ég man vel eftir vaktinni á jólanótt um 1980 þegar hringt var og beðið um aðstoð á heimili í bænum vegna ölvunnar og átaka. Við vorum ekki vanir því að mikið væri hringt á lögreglustöðina á jólanótt nema þegar eiginkonur okkar hringdu til að bjóða góða nótt og óska okkur góðrar jólanætur. Ég ásamt Óla fórum á staðinn. Við fórum rakleitt inn á heimilið, Óli á undan og ég strax á eftir. Það var strax auðséð að mikið hafði gengið á. Heimilisfaðirinn var mjög ölvaður, börnin þrjú grátandi inn í stofu innan um upprifna jólapakka og húsmóðirin í miklu uppnámi. Skrautið á jólatrénu var eitthvað öðruvísi en ég hafði vanist á mínu heimili þegar ég var barn. Þegar ég sá að ástandið var alveg hörmulegt ætlaði ég strax að grípa í heimilisföðurinn því konan hans sagði okkur að karlinn hefði algjörlega misst sig í drykkjunni og heiftinni og jólin væru algjörlega fokin út í veður og vind.
Óli minn tók létt í hendina á mér og sagði við skulum bara skoða þetta allt í rólegheitum. Hann bað þau hjónin að koma fram í eldhús og settist sjálfur á einn stólinn. Ég hugsaði með mér, „Hvað er hann eiginlega að gera, hér þarf að taka fast á hlutunum“. Hann sagði allt í einu með svo rólegri röddu, „Hvað á ekki að gefa okkur kaffisopa.“ Nei, nú skildi ég ekkert hvert hann var að fara. „Jú, auðvitað sagði húsmóðurin“ og tók að hella upp á könnuna. Óli bað heimilisföðurinn að setjast við hlið sér við borðið og gaf mér um leið augnaráð sem ég skildi vel að ég ætti að setjast líka. Þarna sátum við í rólegheitum og ræddum málin. Óli hafði orð fyrir okkur og mér fannst þetta ætla að

virka hjá honum. En grátur barnanna barst enn inn í eldhúsið enda voru þau enn svo hrædd. Það sem á eftir kom var mér mikill lærdómur sem hjálpaði mér í gegnum allt mitt starf. Hann Óli minn, eftir að allir höfðu fengið sér vel af kaffi og smákökur, sagði við þau hjónin að nú skildum við bara róa okkur og eiga góða jólanótt. Þvílík stund sem gjörbreytti andrúmsloftinu á milli þeirra hjóna.
Óli gaf mér ákveðna höfuðhreyfingu sem ég skildi, ég ætti að standa upp frá borðinu og fara til barnanna. Ég hlýddi auðvitað og átti dásamlega stund með börnunum innan um jólagjafirnar og við jólatréð, þó það væri nú hálf rytjulegt en við skemmtum okkur vel. Þau tóku gleði sína á ný og ég naut þess að vera með þeim. Svona jólanótt hafði ég aldrei kynnst en allt verður nú einhvern tíma fyrst. Við fórum á stöðina glaðir í bragði því Óli sá til þess að gjörbreyta aðstæðum til hins betra.
Þessi einstöku viðbrögð Óla vinar míns var mér mikil kennslustund í hvernig leysa eigi erfið mál. Hann bjó yfir einstakri þolinmæði og ekki síst kímnigáfu sem kom sér oft vel. Þessi jólanótt gleymist mér aldrei og margoft nýtti ég mér þessa flottu tækni Óla við að róa fólk og ná tökum á aðstæðum.
Það var einstaklega gott að vinna með vini mínum Óla á Stapa frá Vatnsdal í Vestmannaeyjum. Allt það sem hann kenndi og leiðbeindi mér með reyndist mér ómetanlegt í störfum mínum bæði hér í Eyjum og í Reykjavík.
Geir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn.
Geir Jón hóf farsælan feril sem lögreglumaður í Vestmannaeyjum.
PÉTUR STEINGRÍMSSON – STERKUR FULLTRÚI SINNAR KYNSLÓÐAR:
SKEMMTILEGUR OG HAFÐI HÚMOR FYRIR STARFINU
STERKUR FULLTRÚI SINNAR KYNSLÓÐAR SEM LAGÐI SITT AF MÖRKUM TIL
SAMFÉLAGSINS AF DUGNAÐI, YFIRVEGUN OG ÁBYRGÐ

Nýliðar og lærifaðirinn. Pétur og Tryggvi Kr. Ólafsson á sínum fyrstu árum í lögreglunni með reynsluboltanum Óla á Stapa.
Ólafur Sigurðsson á Stapa er einn þeirra manna sem hafa markað spor í Vestmannaeyjum með störfum sínum og persónuleika. Nú, 95 ára að aldri, stendur hann sem sterkur fulltrúi sinnar kynslóðar sem lagði sitt af mörkum til samfélagsins af dugnaði, yfirvegun og ábyrgð. Óli hefur um ævina gegnt fjölbreyttum störfum, bæði til sjós og lands. Margir Eyjamenn þekkja hann úr lögreglustarfinu þar sem hann þótti yfirvegaður maður sem kunni sitt fag og hafði einstakt lag á fólki. Mín fyrstu kynni af Óla voru í gosinu 1973. Það var einhvern tímann í apríl sem ég, 16 ára unglingurinn, fékk „heimsóknarpassa“ frá Viðlagasjóði til að heimsækja pabba út í Eyjar, en hann hafði þá verið við vinnu myrkranna á milli eins og fjöldi fólks. Þá daga dvaldi pabbi ekki heima á Faxastígnum heldur uppi á Stapa hjá Óla, ásamt fleiri mönnum sem höfðu leitað undan gasmengun í neðri bænum. Þar kynntist ég Óla fyrst. Hann var hlýr og hafði góða nærveru og þann eiginleika að láta ungum gesti líða eins og hann skipti máli þarna í þessum aðstæðum. Það gleymist ekki þó árin líði.
Minn fyrsti varðstjóri Árum síðar, þegar ég hóf störf í lögreglunni í október 1985, lágu leiðir okkar aftur saman. Þá var Óli minn fyrsti varðstjóri og einn af þeim góðu félögum sem kenndu mér starfið. Hann var traustur, yfirvegaður og rólegur, með skýra sýn á það sem skipti máli í starfinu. Hann hafði líka þann sjaldgæfa hæfileika að blanda alvöru starfsins við hóflegan húmor þegar við átti, eitthvað sem gerði starfið og samstarfið bæði lærdómsríkt og ánægjulegt. Við Óli unnum svo saman í fjölda ára í lögreglunni og í honum eignaðist ég góðan og traustan vinnufélaga sem gott var að hafa sér við hlið í erfiðum og krefjandi verkefnum.
Já, Óli gat verið skemmtilegur og haft húmor fyrir starfinu þegar sá gállinn var á honum og því læt ég fylgja með eina skemmtilega sögu af honum sem Muggur í Garðshorni gaukaði að mér fyrir nokkrum árum.
Betra að tala við rollurnar
Lausaganga búfjár hefur oft verið til vandræða í Vestmannaeyjum. Fé hefur farið út úr girðingum og sótt í matjurtagarða og jafnvel í skrúðgarða fólks við heimahús niður í bæ og þannig skapað leiðindi og jafnvel sárindi hjá því fólki sem fyrir þessu verður. Hér kemur skemmtileg saga af Óla sem varðstjóra:
Lilju Þorsteinsdóttur, konu Gylfa Sigurjónssonar, var eitt sinn litið út um stofugluggann til þess að líta yfir garð þeirra hjóna sem var í mjög góðri rækt og í fullum skrúða og þótti einstaklega fallegur. Eru þar þá ekki komnar nokkrar ær með lömb sín og eru á fullu við að snyrta til í garðinum. Hringir Lilja snarlega í lögregluna og var Ólafur Sigurðsson á Stapa fyrir svörum. Ber hún upp erindið og spyr hvað sé til ráða og lætur á sér skilja að hún vænti skjótra viðbragða. Óli hugsar sig um smástund og spyr síðan: „Hefur þú prófað að tala við þær?“ Hik kemur á Lilju og veit hún um stund ekki hvernig hún eigi að taka þessu.
„Sjáðu til,“ bætir Óli við, „það er nefnilega okkar reynsla að oft er árangursríkara að tala beint við þær en eigendurna.“
MARÝ LINDA – EKKI BARA SAGA EINSTAKLINGS:
AFI Á STAPA ER SPEGILMYND HEILLAR KYNSLÓÐAR

Það var á goslokahátíð fyrir mörgum árum sem fræi að bók var sáð. Fjölskyldan sat saman að snæðingi þegar afi hóf að segja frá – af sinni alkunnu innlifun – því sem fyrir augu bar þegar eldgosið hófst og hann var á vakt í lögreglunni. Frásögnin var svo áhrifamikil að hlustendur sátu sem fastast. Fyrir eina í hópnum varð þetta augnablik vendipunktur; ég fann að þessi saga ætti erindi við fleiri.
Í kjölfarið kom í ljós að afi hafði um árabil skráð niður upplifanir sínar frá þessum umbrotatímum. Það varð upphafið að samstarfi okkar á milli sem leiddi síðar til bókarinnar Undir gjallregni –persónulegrar og lifandi frásagnar af atburðum sem mótuðu líf margra.
Afi hafði lengi verið þekktur innan fjölskyldunnar sem einstakur sögumaður. Sem barn gat ég setið tímunum saman og hlustað á hann segja frá, eins og hvert orð opnaði nýjan heim. Frásagnir hans voru ekki aðeins skemmtilegar heldur einnig lifandi og myndrænar, líkt og maður væri sjálfur staddur í miðju ævintýri.
En styrkur hans lá ekki aðeins í frásögninni. Hann bjó yfir sjaldgæfum hæfileika til að hlusta – af ró og yfirvegun, með einlægum áhuga á því sem aðrir höfðu að segja. Það var eins og hann
Marý Linda með afa Óla að vinna við bókina, Undir gjallregni.
hlustaði ekki aðeins með eyrunum heldur einnig með hjartanu, og innsýn hans í mannlegt eðli er djúp.
Sköpunarkrafturinn er honum einnig eðlislægur. Hann hvatti til listsköpunar, hvort sem um var að ræða skrif, málverk eða hvað eina og hrósaði óspart fyrir vel unnin verk. Slík hvatning hafði varanleg áhrif og man ég enn eftir hrósi sem ég fékk frá afa sem stelpa fyrir skriftina mína. Orkan sem einkenndi og einkennir afa enn er óþrjótandi. Hann er sífellt á hreyfingu, hugurinn stöðugt að skipuleggja næstu verkefni. Ef hann væri að alast upp í dag mætti jafnvel ætla að hann fengi greiningu á borð við ADHD – svo mikil er drifkrafturinn og virkni hans.
Sjóferðir hans á trillunni Einfara eru einnig orðnar hluti af fjölskyldusögunum. Þar hefur hann lent í ýmsum ævintýrum og jafnvel hættum. Ein eftirminnilegasta sagan er af 150 kílóa lúðu sem hann náði, eftir harða baráttu, að hífa um borð. Slíkar sögur endurspegla bæði þrautseigju hans og kjark.
Saga afa er því ekki aðeins saga einstaklings, heldur líka spegilmynd heillar kynslóðar – og minning sem heldur áfram að lifa, bæði í orðum og á prenti, enda alveg stórkostlega magnaður hann elsku afi á Stapa.
/Ómar Garðarsson

óskar sjómönnum & fjölskyldum til hamingju með daginn!
Við óskum sjómönnum & fjölskyldum þeirra til
hamingju með daginn!










Sjómenn & fjölskyldur Til hamingju með daginn!
MEÐ SJÓINN Í BLÓÐINU

Sjávarútvegur er ein af grunnstoðum íslensks samfélags. Hann byggir á djúpstæðri þekkingu sem safnast hefur upp í gegnum margar kynslóðir, harðri vinnu og sterkum tengslum fólks við sjó og land. Á sjómannadaginn fögnum við ekki aðeins þeim sem sækja sjóinn, heldur einnig öllu því öfluga baklandi sem styður við greinina á degi hverjum.
Hjá VÍS starfar sérhæft sjávarútvegsteymi sem sinnir sjótryggingum og þjónustu við fyrirtæki í greininni. Við leggjum ríka áherslu á að þekkja vel til rekstrarumhverfisins og tryggja að tryggingavernd sé sniðin að þörfum hvers og eins. Við þjónustum útgerðir af öllum stærðum og gerðum, fiskvinnslur og önnur sjávarútvegstengd fyrirtæki og leggjum áherslu á traust samstarf, djúpan skilning á rekstri og raunhæfar tryggingalausnir sem taka mið af aðstæðum á hverjum stað.
Við sem myndum teymið byggjum ekki aðeins á fagþekkingu á tryggingum, heldur einnig á langri

og fjölbreyttri reynslu úr sjávarútvegi – bæði atvinnulega og persónulega. Tinna Gilbertsdóttir hefur starfað bæði hjá útgerð og einu stærsta sölu- og markaðsfyrirtæki í sjávarútvegi landsins. Hún hefur yfir 15 ára reynslu úr greininni, þekkir rekstrarumhverfið vel og daglegar áskoranir fyrirtækja í sjávarútvegi. Rætur hennar liggja djúpt í sjávarplássum víðs vegar um landið, en hún á ættir að rekja til Fáskrúðsfjarðar, Vestmannaeyja og Grindavíkur. Auk þess er hún formaður Kvenna í sjávarútvegi og hefur þar lagt sitt af mörkum til að efla samtal, sýnileika og tengsl kvenna innan greinarinnar.
Hlynur Angantýsson hefur starfað hjá VÍS í sjótryggingum í 22 ár og býr yfir víðtækri þekkingu á tryggingum skipa og starfsemi á sjó. Hann er uppalinn á Raufarhöfn þar sem tengsl við sjómennsku og sjávarútveg eru sterk. Hann byrjaði 14 ára á sjó á minni bátum en fór ungur í stýrimannaskólann. Hann var stýrimaður í 10 ár, aðallega á togurum en einnig á varðskipum,
hvalaskoðunarbátum, uppsjávarskipum og vertíðarbátum, auk þess að leysa af sem skipstjóri um tíma. Hann þekkir því af eigin raun þannveruleika sem sjómenn og útgerðir standa frammi fyrir hverju sinni. Sú reynsla skapar dýrmæta innsýn inn í þá áhættu og ábyrgð sem fylgir starfinu og nýtist vel í ráðgjöf og þjónustu við fyrirtæki í sjávarútvegi.
Saman myndum við sterkt og samstillt teymi sem spannar vítt svið þekkingar, djúp tengsl við sjávarútveginn og ríka þjónustulund. Markmið okkar er alltaf hið sama: að vera traustur samstarfsaðili sem þekkir viðskiptavininn, skilur reksturinn og er til staðar þegar á reynir.
Á sjómannadeginum viljum við hjá VÍS senda sjómönnum, útgerðarfólki og öllum þeim sem starfa í og við sjávarútveg innilegar þakkir og heillaóskir. Það er okkur heiður að fá að starfa með ykkur og fyrir ykkur.
Gleðilegan sjómannadag!

Í FJARVERUNNI BÝR FEGURÐ

Öll fjölskyldan saman á góðum degi. Dagmar, Sigurður og börnin fjögur. Ljósmynd/Aðsend
Dagmar Pálsdóttir, skólaliði í Barnaskóla Vestmannaeyja, segist eiga erfitt með að venjast fjarverunni sem fylgir sjómennskunni. Hún segist þó hafa fyrir löngu vanist lífsmynstri grasekkjunnar, enda er Dagmar þekkt fyrir lítið annað en að vera jákvæð, bjartsýn, glöð og dugleg að eðlisfari.
„Maður venst þessu lífi eins og öllu öðru með tímanum. Það er hægt að venjast öllu ef maður lítur það björtum augum en fjarveran er alltaf erfiðust. Mér finnst alltaf svo erfitt að kveðja,“ segir hún og brosir.
Stolt af sínum manni
Dagmar er í sambúð með unnusta sínum Sigurði Guðnasyni, en nýlega hóf hann störf sem háseti á Vestmannaey VE 54. Áður réri hann á frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270 sem er í eigu Hraðfrystihússins Gunnvarar. Að mati Dagmarar er þægilegra bæði fyrir Sigurð og fjölskylduna í heild að honum hafi boðist pláss á Vestmannaey. Segir hún það hafa einfaldað hlutina og dregið bæði úr fyrirhöfn
og ferðalögum á milli lands og eyja sem oft hafi kostað fjölskylduna aukalega fjarveru.
„Það er ekki fyrir hvern sem er að vera sjómaður. Ég er svo stolt af mínum manni og tek ofan fyrir sjómönnum að geta verið frá fjölskyldum sínum stóran part ársins til þess að vinna þessa hörku vinnu á alls konar vöktum,“ segir Dagmar og bendir á þær fórnir sem sjómenn almennt færa eðli starfsins vegna.
„Sjómenn eru sannar hetjur í mínum augum.“
Fjölskyldan blómstrar í Eyjum
Fyrir fimm árum, nánar tiltekið í júlímánuði árið 2021, fluttist Dagmar búferlum til Vestmannaeyja ásamt fjölskyldu sinni. Hún hafði áður búið í Vestmannaeyjum fyrir nokkrum árum og vissi því nákvæmlega hvað hún væri að fara út í. Enda hafði henni alltaf liðið vel í Eyjum á þeim tíma og verið vel tekið af heimamönnum.
„Mér hefur alltaf þótt gott að vera hérna. Það var enn betra fyrir mig að koma aftur og þekkja hér nánast hvern krók og kima og auðvitað fullt

af fólki,“ segir hún en viðurkennir að hún sakni stundum fjölskyldu sinnar uppi á landi sem býr á hennar gömlu heimahögum.
„Ég hef ekki stórt bakland hér. Allt fólkið mitt býr uppi á landi og oft finn ég fyrir söknuði til þess,“ segir Dagmar.
„Helsta ástæðan fyrir því að fluttum er sú að okkur langaði til að vera nær fjölskyldu elsta sonar míns þar sem honum leið ekki nógu vel þar sem við bjuggum áður. Svo var þetta líka kjörið tækifæri fyrir okkur sem fjölskyldu að breyta aðeins til. Hér blómstar sonur minn og okkur hinum líður mjög vel hérna líka.“ Kyrrðin best en samgöngurnar verstar Þau Dagmar og Sigurður eiga samtals fjögur börn. Dagmar segir það vera dásamlegt að ala upp börn í Eyjum þar sem smæðin og nærsamfélagið býður upp á aukið öryggi og frelsi.
„Það er geggjað að ala upp börn hérna. Alger forréttindi,“ segir Dagmar og sér síður en svo eftir því að hafa gefið eyjunni annað tækifæri þrátt fyrir að samgöngumálin séu í ólestri.
„Kyrrðin og fegurðin eru það besta við Vestmannaeyjar. Það er allt svo fallegt, alveg sama hvert þú lítur,“ segir hún. „En það versta eru samgöngurnar. Þetta er jú eyja umkringd sjó og

Dagmar í sófakúri með sonum sínum tveimur, þeim elsta og yngsta. Ljósmynd/Aðsend.
Dagmar og Sigurður njóta þess að eiga gæðastundir saman þegar hann er í landi. Ljósmynd/Aðsend
þú ert háður því að þurfa að taka ferju eða flug þegar þú þarft að komast eitthvað svo það getur verið ansi þreytt ástand þegar samgöngurnar eru í lamasessi,“ lýsir Dagmar en ef hún hefði völd til að breyta einhverju einu í Vestmannaeyjum þá væri það að færa samgöngurnar í betra, stöðugra og öruggara horf.
Vont en það venst Þótt hversdagslífið eigi það til að vera krefjandi á köflum þegar Dagmar er ein með börnin og heimilishaldið á meðan Sigurður stundar sjóinn þá segist hún fljót að aðlagast þeim takti. Hún sé vön því að þurfa að reiða sig á sjálfan sig á meðan Sigurður er á sjó, enda þekki hún varla annað, því alla þeirra sambúð hefur hann starfað sem sjómaður.
„Ég er reyndar rosalega heppin með minn 15 ára sem veitir mikla aðstoð þegar Sigurður er ekki heima,“ segir Dagmar þakklát.
„En þetta var kannski erfiðast fyrst þegar við vorum að kynnast og svo kannski þegar við eignuðumst barn saman. Það var erfitt fyrir hann að missa af mörgu sem tengist barneignum vegna þess að hann var að vinna úti á sjó,“ segir Dagmar.
„Stundum getur þetta mynstur líka tekið á börnin, sérstaklega þegar þau eru lítil og skilja ekki af hverju pabbi þarf stundum að fara í einhvern tíma og svo kemur hann heim og fer svo aftur,“ útskýrir hún og segir líka geta verið áskorun fyrir Sigurð að koma heim og þurfa að aðlagast þeirri rútinu sem er viðhöfð á heimilinu og í barnauppeldinu þegar hann er fjarverandi.
„Og það gerir hann alltaf. Reynir alltaf að laga sig að okkar rútínu og halda henni eins. Svo munar helling um það að hafa hann heima því þá erum við tvö um allt og í því er mikil hjálp. Við erum samstíga og skiptum með okkur verkum þegar hann er í fríi,“ segir hún og bendir á að það búi margt fallegt og gott í fjarverunni sem fylgir sjómennskunni sé vilji til þess að sjá það.
„Það er svo margt jákvætt í sjómannslífinu líka. Er ekki annars sagt að fjarlægðin geri fjöllin blá,“ segir Dagmar og hlær.
Góð samskipti lykillinn að farsælu sambandi
Hún segir samband þeirra Sigurðar byggt á sterkum grunni þar sem gagnkvæm virðing sé ríkjandi. Þegar hann kemur í land njóta þau þess að eiga gæðastundir saman, bæði sem par en ekki síður sem fjölskylda.
„Sameiginleg markmið okkar og gildi eru traust og samskipti. Við leggjum okkur fram við að eiga góð og uppbyggjandi samskipti hvort við annað sama þótt hann sé heima eða að heiman og það er lykillinn í þessu,“ segir Dagmar og óskar öllum sjómönnum til hamingju með daginn.
„Hamingjuóskir með daginn ykkar. Þið eruð raunverulegar hetjur. Sérstaklega maðurinn minn sem er duglegasti sjómaður sem ég hef á ævinni vitað um.“
/Ásthildur Hannesdóttir


Við óskum sjómönnum & fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn!


Rás 16 er neyðarrás sjófarenda o g alltaf opin. Það að þú hlustir á hana getur sk ilið á milli lífs og dauða.






Til hamingju með daginn sjómenn!

„FYRSTI
TÚRINN VAR HELVÍTI STREMBINN“
Það er ekki ekki fyrir alla að stíga um borð í togara í fyrsta sinn og finna sjálfan sig í krefjandi starfi sjómannsins. Það er því satt sem sagt er í viðlaginu um Þórð sjóara – sjómennskan er ekkert grín. Guðmundur Aron Þórisson, háseti á Vestmannaey og nemi í vélstjórn, þekkir það af eigin raun. Enda þurfti hann að taka vel á honum stóra sínum fyrsta túrinn og lét það vera að fara annan túr. Fjórum árum síðar ákvað hann svo að gefa sjómennskunni annað tækifæri og hefur sú afdrifaríka ákvörðun verið honum mikið gæfuspor.
Vinirnir réðu för
Þegar Guðmundur Aron er spurður út í upphafið segist hann aldrei hafa stefnt beint að því að verða sjómaður. Heldur hafi það fremur ráðist af einhvers konar blöndu af tilviljunum, hópþrýstingi og áhrifum vina og vandamanna.
„Það var eiginlega orðið þannig á tímabili að allir vinir mínir voru orðnir sjómenn og þá prófaði ég það fyrst en fór svo ekki aftur fyrr en fjórum árum seinna,“ segir Guðmundur Aron og þakkar Daníel Andra Kristinssyni, vini sínum og skipsfélaga, fyrir að hafa tekist að sannfæra sig um að gefa sjómennskunni séns.
„Ég get þakkað honum fyrir það að hafa fengið mig í út í þetta. Hann hringdi stanslaust í mig til að reyna fá mig á sjóinn. Svo sannfærði Aron Valtýsson Bigga Skipper um að gefa mér tækifæri og þá ákvað ég að slá til og prófa,“ segir hann og viðurkennir að fyrsti túrinn hafi ekki verið dans á rósum.
„Fyrsti túrinn var alveg helvíti strembinn!“
Sjóveiki setti strik í reikninginn
Guðmundur Aron var haldinn sjóveiki allan fyrsta túrinn og segist hafa þurft að hafa sig allan við það að reyna að standa uppréttur. Sjaldan eða aldrei hafði hann orðið jafn veikur.
„Ég borðaði ekkert allan túrinn,“ segir Guðmundur Aron og lýsir þar með ástandinu sem hægt er að gera sér upp í hugarlund án þess að lýsa því í þaula.
Þetta var um hávetur í skítaveðri. Guðmundur Aron gat vart beðið eftir að komast aftur í land. Það freistaði hans ekki að endurtaka leikinn eftir þessa frumraun á sjó. Lét hann sér því nægja að fara þennan eina túr og ætlaði sér aldrei að fara aftur. Eða það hélt hann að minnsta kosti.

Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur í tilefni dagsins.
VIÐ ÓSKUM
SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA
INNILEGAR
HAMINGJUÓSKIR
MEÐ DAGINN! BÁRUSTIG


Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn!
Fjórum árum seinna má segja að forlögin hafi gripið inn í. Sumarið 2022 vantaði mann um borð á Vestmannaey. Guðmundur Aron ákvað að svara kallinu og lét til skarar skríða. Þrátt fyrir þá þrautagöngu sem hann hafði gengið í gegnum í sínum fyrsta túr í desembermánuði 2017 og þeim eina sem hann hafði farið fram að þessu. Sá túr mun seint renna honum úr minni.
„Það var eitthvað í mér sem langaði til að prófa aftur.“
Og það gerði hann. Árstími og veðurskilyrði voru honum hagstæð í þetta sinn og gerði það að verkum að honum tókst að vinna bug á sjóveikinni. Smátt og smátt.
„Það hjálpaði mér mikið að fara aftur út á sjó að sumri til. Ég harkaði sjóveikina af mér fyrstu vikurnar eða mánuðina eða þar til ég fór að venjast þessu,“ segir hann og er nánast laus við ferðaveiki af þessu tagi í dag.
„Maður fær stundum velgju ef það er mikil bræla en annars er ég að mestu leyti kominn yfir þetta núna. Sem betur fer.“
Aðspurður um það sem hafi reynst honum erfiðast í byrjun að því undanskildu að þjást af sjóveiki nefnir hann saumavinnuna. En hún hefur víst vafist fyrir mörgum nýliðum í gegnum tíðina.
„Saumavinnan getur verið svolítið snúin en ég er alltaf að verða betri og betri í henni,“ segir Guðmundur Aron og glottir.
Kann vel við sig á sjónum
Ótrúlegt en satt varð sjómennskan fljótt einhvers konar köllun fyrir Guðmund Aron. Þar kann hann vel við sig og þrífst vel innan umhverfisins og félagsskapsins um borð í Vestmannaey.
Á sjómannsferlinum hefur hann þó komið víða við og verið á nokkrum skipum. Þar af leiðandi hefur hann kynnst fjölbreyttum aðstæðum, móral og menningu sem ríkir innan hvers og eins þeirra.
„Ég hef verið á fimm skipum,“ segir hann. „Þau eru Drangavík, Dala-Rafn, Bergey, Júlíus Geirmundsson og svo Vestmannaey.“
Krefjandi en skemmtilegt starf Á sama tíma og raunveruleikinn á sjónum kom

„Það kom mér á óvart hvað þetta er krefjandi en líka hvað þetta getur verið skemmtilegt,“ segir hann og er þakklátur fyrir hversu vel honum hefur verið tekið um borð í Vestmannaey.
„Ég var svo heppinn að þekkja flesta um borð svo þetta hefur verið mjög auðvelt og þægilegt. Það er mjög góður mannskapur um borð og góð stemning.“
Þegar Guðmundur Aron er spurður út í hvaða áhafnarmeðlimur hafi verið hans lærimeistari eða helsti áhrifavaldur nefnir hann aftur sinn góða vin, Daníel Andra.
„Hann hefur haft mest áhrif á mig. Hann kom mér út á sjó og kenndi mér flest sem ég kann. Hann er góður vinur, ótrúlega duglegur og hjálpar mér mikið með námið, en ég er að elta hann í náminu,“ útskýrir Guðmundur sem leggur nú stund á vélstjórnarnám og sér framtíðina fyrir sér á sjónum.
„Þó að það hafi ekki blundaði í mér fyrst þá sé ég ekkert annað koma til greina. Ég ætla mér að starfa sem vélstjóri á sjó í framtíðinni,“ segir hann á skýran og sannfærandi hátt en að endingu langar Guðmundi Aroni til að þakka öllum þeim sjómönnum sem hann hefur verið svo lánsamur að hafa fengið að starfa með og óskar þeim til hamingju með daginn.
Guðmundi Aroni á óvart staðfesti hann líka væntingar hans að hluta. Vinnunni lýsir hann sem harki en segir að góður félagsskapur geri hana mun auðveldari fyrir og stytti stundirnar. /Ásthildur Hannesdóttir
Sjómenn & fjölskyldur, Til hamingju með daginn!


Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur í tilefni dagsins.

FÓR STRAX Á SJÓINN AÐ
LOKNUM GRUNNSKÓLA
Guðmundur Ómar Linduson byrjaði ungur til sjós. Hann var rétt skriðinn úr grunnskóla þegar hann fór í sinn fyrsta túr, nýorðinn sextán ára gamall. Allar götur síðan hefur hann starfað við sjómennsku af miklum krafti, enda alla tíð verið harðduglegur vinnuþjarkur.
Í dag er Guðmundur Ómar fyrsti stýrimaður á
Viðey RE 50 sem er í eigu Brims útgerðarfélags. Hann segir starf stýrimannsins bæði fjölbreytt og krefjandi og að því fylgi sömuleiðis mikil ábyrgð. Mikilvægt sé að hafa góða yfirsýn og geta brugðist hratt við þeim aðstæðum sem upp kunni að koma.
„Svo skiptir líka mjög miklu máli að vinna vel með áhöfninni svo að allt spili saman,“ segir hann.
Fann sig strax á sjónum
Guðmundur Ómar er kvæntur Elísu Guðjónsdóttur og saman eiga þau tvær dætur, þær Hrafnhildi Lind og Karlottu Mjöll. Fjölskyldan er búsett í Garðabæ en heimsækir reglulega ættingja sína og vini í Vestmannaeyjum og heldur þannig í tengslin við Eyjarnar.
Hann segir uppvaxtarárin í Eyjum hafa verið sér góð en Guðmundur flutti frá Siglufirði til Vestmannaeyja ásamt fjölskyldu sinni þegar hann var tíu ára gamall.
Eyjasamfélagið átti vel við hann og heillaðist Guðmundur Ómar snemma af sjómennskunni. Á meðan margir jafnaldrar hans ákváðu að fóta sig áfram í skóla eftir grunnskólagönguna eða höfðu ráðið sig í fyrstu alvöru sumarvinnurnar þótti honum tíma sínum betur varið í annað og sóttist af kappi við að komast á sjó.
„Ég byrjaði á Jóni Vídalín VE 82 með Sverri Gunnlaugs í brúnni þegar ég var nýorðinn 16 ára,“ segir Guðmundur Ómar. „Mér fannst þetta svo kúl líf og langaði sjálfum til að lifa svona lífi.“
Á þessum tíma var Guðmundur ekki að finna sig í hefðbundnu skólakerfi og því lá leiðin á sjóinn beinast við.
„Það að halda áfram í skóla var ekki að henta mér á þessum tímapunkti,“ segir hann. „Ég vildi bara fara að vinna og þéna almennilega,“ segir hann en segist jafnframt og segist hafa fundið um leið að hann ætti heima á sjónum. Bæði vinnan, starfsumhverfið og launin voru honum að skapi.
„Ég fann mig strax í þessu.“
Ábyrgðin heillandi
Nú hafa árin liðið, hvert á fætur öðru, og Guðmundur Ómar öðlast yfir 20 ára starfsreynslu
á sjó. Yfir þann tíma hefur hann róið á mörgum ólíkum skipum og kynnst sjómannastéttinni í þaula. Hann fór til Grænlands og réri þar sem annar stýrimaður á grænlenskum risatogara í eitt og hálft ár. Það segir hann hafa verið reynslumikinn tíma en í ellefu ár starfaði hann á Drangavík VE 80 undir dyggri stjórn Magnúsar Ríkharðssonar og Stefáns Birgissonar.
„Þeir tveir eru líklega mínir helstu lærifeður á sjómannsferlinum. Ég réri með þeim í heil ellefu ár og reyndust þeir mér mjög vel. Ég er þakklátur fyrir alla þá fínu menn sem ég hef fengið að róa með í gegnum árin. Maður hefur verið þess heiðurs aðnjótandi að kynnast fullt af góðum körlum sem stutt hafa við bakið á manni og ég á þeim,“ segir hann.
Hvað er það sem heillar þig mest við sjóinn?
„Það sem heillar mig mest í dag er ábyrgðin og fjölbreytnin. Það er enginn dagur alveg eins, það er alltaf eitthvað sem gerir daginn í dag frábrugðið deginum í gær.“
Lífið á sjónum getur nefnilega breyst á örskotsstundu og hættulegar aðstæður komið upp á hvaða tíma sólarhringsins sem er. Í sjómannstíð Guðmundar hafa ýmis atvik komið upp. En tvö þeirra atvika eru honum sérstaklega minnisstæð.

Þessi ófrýnilegi og mikli hákarl kom í trollið við Grænlandshaf. Ljósmynd/Aðsend

„Það er margt sem maður lendir í úti á sjó. Líf manns og limir eru í stöðugri hættu enda veit ég ekki hversu oft maður hefur hlotið djúp sár sem þurft hefur að sauma eða klemmt á sér puttana á milli kara. Það fylgja þessu ýmis líkamleg átök,“ útskýrir Guðmundur.
„En ég mun aldrei gleyma því þegar við vorum eitt sinn að sigla heim á Breka VE 61 í brjáluðu veðri. Við fengum stórt brot á stjórnborðs síðuna með þeim afleiðingum að löndunargálginn losnaði. Ég fór ásamt félaga mínum að reyna að skorða hann af, en þá kom annað brot yfir okkur og þar var ég var þarna hætt kominn,“ lýsir Guðmundur en á þessu augnabliki skolaði honum næstum útbyrðis í óveðri undan suðurströndinni.
„Þetta var alveg svakaleg tilfinning sem ég á varla orð yfir. Þvílík heppni að ekki hafi farið verr.“
Þá varð Guðmundur fyrir þeirri skelfilegu lífsreynslu að fá botnlangakast þegar hann var á sjó um borð í Sigurborgu SH 12. Enn og aftur var lukkan með honum en litlu munaði að lífhimnubólga hefði gert vart við sig í kjölfarið.
„Þarna mátti ekki miklu muna. Mér var rakleiðis skutlað í land í Sandgerði og Elísa sótti mig þangað og kom mér undir læknishendur. Þetta var rosaleg upplifun og læknarnir sem önnuðust mig segja að þetta hafi staðið tæpt.“
Karlinn í brúnni. Guðmundur Ómar veigraði sér ekki
fara sem skipstjóri
Hafði fulla trú á sjálfum sér
Guðmundi Ómari tókst að koma sér í gegnum nám í stýrimannaskólanum og útskrifaðist þaðan árið 2016 með öll tiltæk réttindi og stúdentspróf sömuleiðis. Í náminu er lögð áhersla á siglingafræði, veðurfræði, siglingatækni, öryggismál og stjórnun, svo eitthvað sé nefnt. Námið er bæði bóklegt og verklegt og miðar að því að undirbúa nemendur fyrir raunverulegar aðstæður á sjó. Fyrri reynsla var Guðmundi mikil gæfa í náminu og fleytti honum langt en hann segist ekki sjá eftir því að hafa tekið námið í hefðbundnum dagskóla í stað fjarnáms eins og sífellt verður vinsælla.
„Ég græddi mikið á því að þurfa að mæta í skólann. Í skólanum kynntist ég mörgum góðum mönnum og við fylgdumst að í gegnum námið. Það víkkaði tengslanetið mitt mjög mikið að vera í dagskóla og kynnast þessum flottu körlum. Ég held að nálgunin sé allt önnur staðnámi en fjarnámi. Þetta fyrirkomulag hentaði mér alla vega vel,“ segir hann.
Námið sannaði svo loks gildi sitt og urðu mikil þáttaskil á sjómannsferli Guðmundar Ómars þegar honum gafst tækifæri í fyrsta sinn til að setjast í skipstjórastólinn og fara út á sjó með heila áhöfn á sinni ábyrgð.
„Ég var búinn að vera fyrsti stýrimaður hjá Snorra Snorrasyni, skipstjóra á Pálínu Þórunni GK 49, hjá Nesfiski. Svo þurfti hann að fara í frí og þá fékk ég tækifærið,“ segir hann og var í raun kokhraustur þegar kallið kom og meira en tilbúinn í að takast á við þetta stóra verkefni.
„Tilfinningin var mjög góð. Ég vissi alveg að ég hefði þetta í mér svo mér kveið svo sem engu sérstöku,“ segir Guðmundur.
„Ég var mest stressaður yfir því að sigla skipinu upp í slipp í Reykjavík eftir túrinn. Ég svaf ekki um nóttina fyrir það,“ segir hann jafnframt og hlær. Túrinn gekk þó vel fyrir sig og reynslan varð honum mikilvæg staðfesting á eigin getu og í framhaldinu fór tækifærunum að rigna yfir hann.
„Svo fór ég út með Sóleyju Sigurjóns GK 200 og svo koll af kolli. Nú er þetta bara eðlilegur hluti af starfinu en tækifærið og traustið fékk ég hjá Nesfiski,“ segir Guðmundur fullur þakklætis.
Bætir upp fjarveruna í fríum
Guðmundur Ómar lýsir sjómennskunni sem einhvers konar lífsstíl sem hefur margföldunaráhrif á fjölskyldur og börn þeirra sem stunda sjóinn. Hann segist þakklátur eiginkonu sinni fyrir hennar þrautseigju og leggur áherslu á hve vanmetið

Guðmundur Ómar er fæddur í hlutverk sjómannsins. Ljósmynd/Aðsend
hlutverk sjómannskvenna sé í raun.
„Það má alls ekki gleyma hvað sjómannskonur eru miklir jaxlar að halda öllu gangandi þegar maður er úti á sjó,“ segir hann og bendir á að það fylgir því ákveðinn fórnarkostnaður að vera mikið í burtu frá fjölskyldum sínum og heimilislífi.
„Maður missir af stundum með fjölskyldunni. Stundum missir maður af mikilvægum stundum en það leynast líka mikil gæði í hversdagsleikanum sem maður missir af. Maður reynir alltaf að bæta upp fyrir fjarveruna þegar maður er í fríi,“ segir hann og sér ekki fyrir sér að leggja árar í bát í bráð.
„Þetta er starf sem ég hef alltaf haft gaman af og sé fyrir mér að sinna áfram. En svo veit maður auðvitað aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér,“ segir Guðmundur Ómar að lokum og sendir kollegum sínum kveðju í tilefni dagsins.
„Gleðilegan sjómannadag félagar.“
/Ásthildur Hannesdóttir

Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn! Til hamingju með daginn sjómenn!


SJÓMANNADAGURINN 2026
Upp er runninn Sjómannadagur með stóru ESSI
Ég ólst upp á Siglufirði og man fyrst eftir mér undir lok síldaráranna um 1966 þá 5 ára gamall. Ég á minningu um ömmu mína að fara í síldarsöltun á Sunnuplanið. Í kjallaranum hjá afa og ömmu voru lengi hangandi á vegg, gular síldarsvuntur, stígvél stóðu á gólfinu, þar voru síldarhnífar með vöfðu skafti, emeleraðir saltdiskar og kverkklippur voru líka í kjallaranum, löngu eftir að síldin hvarf. Eins og að bíða eftir næsta ræsi í síldina. Þetta eru góðar minningar þó hvarf síldarinnar hefi verið mörgum áfall. Með tilheyrandi niðurníðslu síldarbæjarins Siglufjarðar.
Sjórinn, sjómenn, skip eru nátengdar minningar þeirra sem alast upp í sjávarplássi eins og Siglufirði. Ungir að árum vorum við guttarnir farnir að stelast á bryggjurnar til að veiða. Með pilk og snæri sem vafið var uppá spýtu. Mest var þetta ufsi og marhnútur. Að fara í ævintýraferðir undir gömlu síldarbryggjurnar var líka stundað. Ekki alltaf vinsælt hjá ömmu ef maður kom heim grútugur frá toppi til táar og fötin ónýt. Þá fékk maður að kúldrast í bælinu það sem eftir var dags. Gömlu síldarbryggjurnar voru hættulegar þegar lengra leið frá hvarfi síldarinnar. Ekkert viðhald og þær grotnuðu niður. Við ungmennin vorum þar löngum stundum að glæfrast um allt. Kíkja inn í brakkana og skúrana sem enn stóðu. Þar var margt að sjá. Allskonar pappírar, verkfæri, húsgögn og allskonar dót sem var þar eins og hlaupið hefði verið frá þessu öllu saman einn daginn og allt skilið eftir.
Snemma fórum við vinirnir í Villimannahvefinu að snúast í kringum trillukallana þegar þeir komu í land eða voru að beita í gömlu síldarbrökkunum. Fengum nasasjón af sjómennskunni. Aflinn alltaf gefinn upp í pundum hjá trilluköllunum. Svo voru byggðir kajakar úr bárujárnsplötum. Við nöppuðum einhversstaðar notaðri bárujárnsplötu. Hún var sléttuð út með slaghömrum, trékubbar settir í
langendana fyrir stafn og skut og neglt saman. Miðjunni slegið út og sett spýta á milli til að halda kajakanum í réttu lagi. Stálbik fékkst í SR 46. Það var brætt yfir eldi í málningardós og hellt í stafn og skut svo kajakinn væri þéttur. Ef naglagöt voru á bárujárninu, sem var oftast því ekki þorðum við að nappa nýju bárjárni, var stálbiksbiti tugginn og hnoðaður í götin. Árum var slegið saman úr kústskafti og krossvið, olíubrúsi notaður sem sæti í skut kajakans. Svo var róið. Við í villimannahverfinu rérum úr Hvanneyrarkróknum.
Oft voru margir kajakar á sjó og róið út á miðjan fjörð. Ekki var til siðs í þann tíð að vera í björgunarvestum. Löggan kom til eftirlits og hirti af okkur fleyturnar, bölvaðir. Þá var byrjað uppá nýtt. En auðvitað var þetta stórhættulegt atæfi að vera út á miðjum firði á þessum skeljum með ekkert til að bjarga sér nema tóman olíubrúsa eða synda í land. Sjórinn ískaldur langt fram á sumar. Oft sökk undan okkur þegar við vorum að byrja þessa útgerð og læra að róa þessum völtu fleytum. Skítarörið eins og það var kallað lá út í Hvanneyrarkrókinn og stundum sökk undan okkur þar. Okkur fannst það ekki tiltökumál en lyktin var nú ekki sérlega góð.
Árið til sjávarins
Árið 2025 og líðandi ár hafa verið gjöful til sjávarins. Verð á fiski hefur hækkað stöðugt. Ágætis loðnuvertíð nýafstaðin. Sjómenn eru þó ekki alveg sáttir. Í kjarasamningi okkar er leiðbeinandi pappír um verðsamning á uppsjávarfiski. Sá verðsamningur inniheldur ekki skilgreint hráefnishlutfall, heldur er sjómönnum og útgerðarmönnum gert að semja um það. Hráefnishlutfallið skiptir höfuðmáli þegar kemur að aflahlut sjómanna. Hlutfallið er ákveðin stærð af afurðaverði. Hefur verið um 33% í uppsjávarfiskinum mjög lengi. Það má færa rök fyrir því að það eigi að vera hærra.
Eftir að uppsjávarskipin stækkuðu og mönnunarreglur breyttust um síðustu aldamót, þá lækkaði
launahlutfallið á uppsjávarskipunum mikið. Má segja að sjómenn eigi inni þegar kemur að hráefnishlutfallinu miðað við lækkun launahlutfallsins vegna fækkunar sjómanna.
Fækkun í áhöfn
Þegar samið var um að hægt væri að fækka án þess að launahlutfall útgerðar hækkaði, var gengið út frá að mönnunin yrði í jafnvægi við þau störf sem vinnan um borð krefðist. Því miður var það svo að hásetum var fækkað niður í drep og vinnan sett á hina sem eftir voru. Matsveinn gengur nú vaktir á dekki sem og vélstjórar. Þeir sem sagt ganga í störf hásetanna sem settir voru í land. Auðvitað hafa skipin stækkað og aðstaða öll um borð í skipunum batnað mikið. Sjálfvirkni og tæki því tengd hafa létt mönnum störfin. En það er ennþá svo að allir þurfa sína hvíld þó allt annað sé til fyrirmyndar um borð að öðru leiti. Sagan hefur kennt okkur að illa sofinn sjómaður er hættulegur sjálfum sér og öðrum. Höfum það í huga.
Togaraflotinn
Einnig hafa einhverjar útgerðir ísfisktogara fækkað um tvö háseta. Fjórum höndum færra sem vinna störfin um borð. Það munar um minna. Ekki eru til neinar reglur eða lög um mönnun fiskiskipa nema hve margir réttindamenn þurfa að vera um borð eftir stærð skips og vélarstærð. Ekkert um þá vinnu sem þarf að inna af hendi á hverjum tíma. Fullyrt var að skipstjórar og útgerðarmenn sæu til þess að alltaf væri „rétt“ mannað. Það hefur því miður ekki gengið eftir. Við verðum að staldra við og skoða þessi mál af fullri alvöru með velferð sjómanna í huga. Kæru sjómenn komið heilir heim, ég óska ykkur, fjölskyldum ykkar og landsmönnum öllum gleði og ánægju á Sjómannadaginn, megi hann lengi lifa!
Valmundur Valmundsson formaður Sjómannasambands Íslands
Til hamingju með daginn sjómenn!



HVAÐ VITA BÖRNIN UM SJÓMENNSKU?

Nafn: Karítas Ída Friðriksdóttir.
Aldur: 7 ára.
Fjölskylda: Kolbrún, Friðrik, Ronja Lísbet og Emil Elvis.
Þekkiru einhverja sjómenn og hverja þá helst?
já, ég þekki Héðinn Karl og engann annan.
Hvaða fiska þekkiru?
Langa, Síli, steikan fisk, hann er bestur af fiskunum. Ó jú, þorskur og lax.
Borðar þú fisk? Já! hann er uppáhaldsmaturinn minn.
Ef þú ættir skip, hvað myndi það heita?
Herjólfur, því Herjólfur er mjög flottur.
Hefur þú farið á sjó? Já, mörgum sinnum. Stundum er ég að fara til Reykjavíkur.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Mér finnst stærðfræði skemmtilegust.
Nafn: Saga Hafþórsdóttir.
Aldur: 4 ára.
Fjölskylda: mamma ( Linda Ósk Hilmarsdóttir), pabbi (Hafþór Jónsson), amma og afi, Lena, Egill, Atlas Darri, amma Sigga.
Þekkiru einhverja sjómenn og hverja þá helst?
Já ég þekkji pabba, pabba hans Bjössa og pabba Victoriu.
Hvaða fiska þekkiru?
Gullfisk- bara hann.
Borðar þú fisk? Já ég borða sko fisk.
Ef þú ættir skip, hvað myndi það heita? Krókur.
Hefur þú farið á sjó? nei ég hef aldrei farið á sjó! Börn meiga ekki fara á sjó en ég hef farið í Herjólfað fara til Reykjavíkur.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Fara á leikvöllinn fyrir aftan húsið hennar Victoriu Sólar.


Sjómannadagsráð
Vestmannaeyja sendir
Vestmannaeyingum bestu kveðjur og árnaðaróskir
HVAÐ VITA BÖRNIN UM SJÓMENNSKU?

Nafn: Elmar Breki Óskarsson.
Aldur: 4 ára.
Fjölskylda: Pabbi Óskar, mamma Erna, Bergdís Embla
og Emilía Rós systur mínar, Andri Snær bróðir minn og
Aría kisan mín.
Þekkiru einhverja sjómenn?
Nei enga.
Hvaða fiska þekkiru?
Þorsk og karfa.
Ef þú ættir skip, hvað myndi það heita?
Herjólfur.
Borðar þú fisk?
Já.
Hefur þú farið á sjó?
Bara í Herjólf.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Leika í bíló og fótbolta.
Nafn: Leon Alexander.
Aldur: 4 ára.
Fjölskylda: Mamma heitir Kristrún og Daddy heitir Aaron og Elimar er bróðir minn.
Þekkiru einhverja sjómenn og hverja þá helst?
Já mamma og mamma hans Björns (Guðrún María) eru að vinna á bátnum. (Vinna í þrifum á Herjólfi).
Hvaða fiska þekkiru? Ýsu.
Borðar þú fisk?
Já ég borða fiskibollur.
Ef þú ættir skip, hvað myndi það heita? Gulur.
Hefur þú farið á sjó? Já að vinna með mömmu í bátnum.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Að leika í útivist.

Sjómenn & fjölskyldur, Til hamingju með daginn!


Sjómenn & fjölskyldur, Til hamingju með daginn!
Öryggi þitt og skipsfélaga þinna byggir á þekkingu og færni þinni.

Slysavarnaskóli sjómanna býður upp á fjölda námskeiða sem auka öryggi áhafna og skipa. Boðið er upp á skyldunámskeið í öryggisfræðslu en einnig námskeið sem sérsniðin eru eftir óskum áhafna eða útgerða.
Auk skyldunámskeiða sem sjómenn geta sótt, má nefna:
Framhaldsnámskeið eldvarna
Meðferð líf- og léttbáta
Hraðskreiðir léttbátar
Mannauðsstjórnun
Lokuð rými
Verndarskylda
Áhættumat og atvikaskráningar
Ammóníak
Munið að sækja endurmenntun öryggisfræðslu í tíma annars fæst ekki lögskráning í skiprúm.
Nánari upplýsingar á vefsíðunni www.landsbjorg.is/slysavarnaskolisjomanna

ÓSKAR PÉTUR FRIÐRIKSSON:
LOÐNUTÚR MEÐ
HEIMAEY VE 1
Laugardaginn 31. Maí í fyrra sigldi nýtt skip Ísfélagsins, Heimaey VE1 í heimahöfn. Þennan fallega góðviðrisdag bauð Ísfélagið eyjamönnum að skoða skipið og var ég einn af þeim, þar notaði ég tækifærið og myndaði skipið og gesti þess. Í spjalli mínu við Ólaf Einarsson skiptstjóra lýsti ég áhuga mínum á því að fara með honum einn loðnutúr á næstu vertíð til að mynda, það er að segja ef einhver loðnuvertíð yrði og tók hann vel í þá málaleitan mína. Ólafur var nú ekki óvanur því ég hafði áður farið með honum, fyrst á Álsvey VE 2, 1. mars 2008 og síðan á Heimaey VE 1, 26. febrúar 2017 en nú var stefnan sett á þetta nýja fley.
Seinnipart föstudagsins 27. Febrúar lögðum við í hann og var haldið á miðin út af Snæfellsnesi. Skip Ísfélagsins höfðu legið við bryggju í nokkra daga þar sem Ísfélagið hafði ákveðið að fara að kreista loðnuna fyrir Japansmarkað og því mikilvægt að velja réttann tíma til veiða. Heimaey var komin að Snæfellsnesi á laugardagsmorgun en þar voru fyrir Venus NS 150 og Sigurður VE 15. Sigurður fann fyrstu loðnuna og fengu feikna gott kast um 1200 tonn og voru kallaðir til Eyja seinnipartinn á laugardeginum. Venus NS kastaði stuttu frá Sigurði og fékk gott kast en þeir fengu rúm 800 tonn.
Við á Heimaey fundum gríða stóra torfu sem stóð grunnt, þar sem botninn var alveg upp undir 23 metra djúpur. En hann var grýttur og harður og því ekki mögulegt að kasta nótinni þar, enda er nótin á Heimaey VE, 117 metrar djúp þar sem hún er dýpst. Ólafur skipstjóri hringsólaði yfir torfunni og vonaðist til þess að hún færi á dýpri sjó en það gerði hún ekki og myrkur skall á. Ekki veiddist nein loðna þessa nótt.
Ferðinni var haldið áfram inn í Breiðafjörðinn og um morguninn var kastað á sæmilega torfu. Þroski hrognanna í þeirri loðnu var mun minni en loðnunar sem Venus og Sigurður veiddu deginum áður. Sem sagt þetta var vestangöngu loðna. Við færðum okkur sunnar og nær flotanum við Snæfellsnes og köstuðum á loðnutorfu sem var rétt norðan við flotann sem komin var að nesinu. Sú loðna var líka með óþroskaðri hrogn en loðnan við Snæfellsnesið.



Loðnubátum hafði fjölgað nokkuð frá deginum áður. Frá Ísfélaginu voru það Álsey VE 2 og Suðurey VE 11. Frá VSV var Gullberg VE 292 komið á miðin og Börkur NK 122 frá Síldavinnslunni.
Næst var farið að nesinu og kastað þar til við vorum komnir með um 1850 tonn þegar dimma tók. Nót Heimayjar rifnaði nokkrum sinnum og alltaf á sama stað. Þá kom sér vel að ljósmyndarinn var netagerðarmaður og gekk auðvitað í þau verk en fékk klapp á bakið frá skipverjum að launum sem sögðu að nú væri hann búinn að vinna inn fyrir hádegismatnum. Já, stundum kemur maður að gagni.
Góður dagur að kvöldi kominn, í heildina sex köst og 1850 tonn af loðnu. Við voru kallaðir til Eyja þar sem búið var að landa úr Sigurði og hann lagður af stað á miðin út af Snæfellsnesi. Á landleiðinni gekk ég í störf háseta og var á hásetavakt uppi brú Heimaeyjar sem mér leiddist ekki. Hugurinn leitaði til fyrri tíma þegar maður var á sjó. Þvílík framför og þvílíkt fley.
Við lögðum að bryggju við Fesið um kl. átta morgunin eftir og nótin tekin í land þar sem Birkir Agnarsson og félagar hjá Ísfelli voru mættir til að skipta um netið sem alltaf var að rifna í köstunum út af Snæfellsnesi.
Ég vil nota tækifærið og þakka Ólafi skipstjóra og áhöfninni á Heimaey kærlega fyrir góðan og skemmtilegan loðnutúr út af Snæfellsnesi í vetur, þar sem jökullinn skartaði sínu fegursta í kaupbæti.
Nafnalisti:
Ólafur Einarsson, skiptstjóri
Rúnar Gíslason, 1. stýrimaður
Daði Ólafsson, 2. stýrimaður
Stefán Jóhann Svansson, yfirvélstjóri
Gylfi Frímansson, vélstjóri
Jónas Logi Ómarsson, matsveinn
Sigþór Friðriksson, háseti
Eiríkur Arnórsson, háseti
Bjarki Óskarsson, háseti
Albert Sævarsson, háseti
Hólmgeir Austfjörð, háseti
Ólafur Jakobsson, háseti
Sigurður Atlason, háseti










HALLDÓR WAAGFJÖRÐ – HRESSILEGAR
SÖGUR
– HREKKIR – LÍKA MIKILL HARMUR
ÓGLEYMANLEG ÁR Á VESTMANNAEY OG VINSKAPUR SEM ALDREI SLITNAR
BJARGAÐI HEILLI ÁHÖFN VIÐ ÁSTRALÍU – SKYLDUNÁM Í BJÖRGUNARFRÆÐUM Á ÍSLANDI SKIPTI SKÖPUM

Ásta og Halldór ásamt sonum sínum, Jóni (Stáka) og Þorvaldi. Ásta og Þorvaldur eru bæði látin. Ljósmynd/ Óskar Björgvinsson
„Halldór Waagfjörð hefur aldrei farið hefðbundnar leiðir í lífinu. Hann er maður sem virðist hafa skoðun á flestu, talar tæpitungulaust og lætur sig ekki skipta hvort öðrum líki það sem hann hefur að segja,“ sagði Benedikt Gestsson í viðtali við Halldór í Eyjafréttum árið 1989. Þá bjó Halldór með fjölskyldu sinni í Ástralíu, þar sem þau bjuggu í níu ár, frá áramótum 1991 til áramóta 2000.
Halldór er Eyjapeyi, fæddur 1947. Hann ólst upp í Félagsbakaríinu, sem almennt var kallað Vogsabakarí. Foreldrar hans voru Jón Waagfjörð, bakari og málari, og Bertha María Grímsdóttir Waagfjörð, húsfreyja og kaupmaður. Halldór fór ekki með veggjum, hvorki sem unglingur né á fullorðinsárum. Hann byrjaði snemma á sjó og fór í Vélskólann. Árið 1979 byrjaði hann á Vestmannaey VE 54, sem Eyjólfur Pétursson stýrði af skörungskap. Var þar til ársloka 1990. Sá sem þetta ritar var með þeim í sex ár og
líkaði vel. Þar var margt brallað, eins og kemur fram í viðtalinu. Halldór lauk vélstjóraferlinum hjá Eimskip og er nú sestur í helgan stein að Vestur Mörk undir Eyjafjöllum.
Áratuga vinskapur
Vestmannaey VE 54, sem Bergur – Huginn átti og gerði út, var einn af tíu togurum sem Íslendingar létu smíða í Japan og komu til landsins á árunum 1973 og 1974. Þeir reyndust í alla staði mjög vel og sá síðasti, gamla Ljósafell SU, kvaddi í lok síðasta mánaðar á leið til Færeyja þar sem hann verður gerður út. Halldór Waagfjörð var vélstjóri á Vestmannaey á árunum 1979 til ársloka 1990. Þar lágu leiðir hans og Eyjólfs Péturssonar skipstjóra saman og milli þeirra varð til vinskapur sem ekki hefur slitnað, þótt fyrstu kynni hafi verið í hressari kantinum, að hætti Dóra. Meira um það síðar. Vestmannaey var breytt í frystitogara í Póllandi árið 1987 og var það eitt stærsta verkefnið sem

Dóri fékk í hendurnar á sínum ferli sem vélstjóri. „Þetta tók ellefu mánuði og þaðan fórum við til Akureyrar þar sem vinnsludekkið og kælikerfið var sett í hann. Úti var skipt um aðalvél og togspil og sett nýtt millidekk og efradekk og allt undirbúið fyrir frystinguna. Hann var svo lengdur tvisvar sinnum og var þá orðinn 60 metra langur.“
Dóra líkaði vel á frystingunni, þó vissulega hefði fiskiríið mátt vera meira. „Ég og vélstjórinn á Páli
Pálssyni vildum fá stærri vélar, 3.200 hestafla og þá hefðu þeir orðið með öflugustu togurum í flotanum. Það náðist ekki og ekki nóg með það, heldur átti að færa niður aflið í vélunum sem urðu fyrir valinu. Einhver sparnaðarráðstöfun, en algjör þvæla,“ segir Dóri sem vissi hvað hann var að segja þegar vélar og bílar voru annars vegar. Og sögurnar af árunum á Vestmannaey eru margar. Einu sinni munaði litlu að Eyfi fengi hjartaslag, en hrekkurinn var góður. Fyrstu kynnin voru þegar Dóri kom fyrst upp í brú og spurði Eyfa hvernig hann hefði það „í pungnum“. Saga sem Eyfi staðfestir í viðtali við hann og Guðmund Arnar Alfreðsson, vélstjóra, þar sem þeir rifja upp kynnin af Dóra. „Það var flott að vera með Eyfa, rosa gott og allt öðruvísi en maður reiknaði með. Mikill nagli á yfirborðinu en inn við beinið er hann bara léttur. Ljúfasti drengur og við erum góðir vinir í dag. Perluvinir.“
Miklir matmenn á Vestmannaey Gísli Óskarsson frá Stakkholti var annar vélstjóri hjá Dóra og skemmtilegri félagi á sjó var vandfundinn. Matmaður mikill og kunni að meta íslenskan mat og ekki fúlsaði hann við því sæta. „Mér dettur í hug saga þar sem þú
kemur við sögu,“ segir Dóri og beinir orðum sínum til blaðamanns og fyrrverandi kokks á Vestmannaey VE. „Það átti að vera æðislega flottur matur, sem hann var náttúrulega, og átti að vera ís á eftir. Það var farið í frystinn en þar var enginn ís, bara formin. Kom í ljós að Gilli hafði laumast í frystinn og étið allan ísinn,“ segir Dóri, en þetta fyrirgaf kokkurinn því fáum var eins gaman að gefa að borða og Gísla í Stakkholti. Þá kemur upp saga af öðrum kokki á Vestmannaey, Hilmi Þorvarðarsyni, en þá var Sverrir Gunnlaugsson stýrimaður og afleysingarskipstjóri. „Það er gaman að gefa honum Sverri að borða,“ sagði Himmi. „Já, það er eins og að raða inn í ísskáp,“ segir Dóri og hlær hátt og hvellt eins og honum er lagið, og nú var komið að „hjartaáfalli“ skipstjórans.
Hjartaáfall skipstjórans
„Það var í æðislega góðu veðri að við fórum upp á brúarþak, ég, Maggi Kristleifs, Biggi stýrimaður og Hinni Jóns. Alveg rennisléttur sjór, lítið að hafa og kallinn í rólegheitum í brúnni. Létum ekkert í okkur heyra og slökuðum Hinna fram af brúnni. Maggi hélt í lappirnar á Hinna og við Biggi í sitt hvora löppina á Magga.
Hinni var með vasaljós í hendinni og þegar hann er kominn niður að gluggunum kveikir hann á vasaljósinu og grettir sig. Við heyrum þetta skaðræðisvein og grenjuðum úr hlátri. Munaði engu að við misstum Hinna niður á dekk. Kallinn alveg brjálaður: – Helvítis fíflin ykkar, ætlið þið að drepa mig? Þetta heppnaðist alveg rosalega vel en Eyfi varð ekkert illur. – Þið eruð meiri fíflin,“ segir Dóri að hann hafi sagt.
Það koma fleiri góðir félagar upp í hugann. Einn þeirra er Gústi Lása á Reynistað sem lést árið 2024. „Við vorum að hífa og Gústi hífði annan hlerann heldur harkalega upp í gálgann. Það hriktir í og Eyfi segir: – Hvern djöfulinn ertu að gera maður, ætlarðu að slíta hlerann aftur úr okkur? Gústi var ekki mikið fyrir að æsa sig, tók upp vasaklútinn og snýtti sér. Sagði svo við Eyfa: – Manstu þegar ég sparkaði í rassgatið á þér og þú flaugst yfir vegginn við Laugardal? Þetta var ekki rætt meira,“ segir Dóri, en Laugardalur og Reynistaður voru í Lautinni þar sem þeir slitu barnsskónum.
Næst kemur að Magga Kristleifs, sem er mikill sögumaður. Hann sagði margar sögur frá Færeyjum þar sem hann bjó í eitt ár með eiginkonunni Sísi, Sigríði Petru Hansen, sem á ættir að rekja til Færeyja. „Þarna var Gummi Sveinbjörns með okkur. Trollið í henglum og Maggi að bæta á fullu. Það var mikill æðibunugangur á Gumma, svo mikill að hann gekk yfir Magga sem lá í trollinu. – Það er aldeilis, maður er bara troðinn undir, sagði Maggi en þetta hafði enga eftirmála.“
Vestmannaey kemur til hafnar í Vestmannaeyjum 2. mars 1994. Fullbúið frystiskip og 60 m langt.
Eyfi ól Bigga upp
Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, byrjaði sem hálfdrættingur á fyrstu Vestmannaey með frænda sínum, Bergi Páli Kristinssyni. Báðir fóru þeir í Stýrimannaskólann, luku skipstjórnarprófi og er Biggi ennþá á Vestmannaey VE. „Ég var ekki um borð þegar þeir byrjuðu en ég heyrði ekki annað en að þeir hafi staðið sig vel. Það má segja að Eyfi hafi komið meira að uppeldinu á Bigga en á eigin börnum. Það var gott að vera með Bigga. Hann pældi mikið í hlutunum en ég man einu sinni þegar við vorum í flottrolli fyrir vestan. Báðir pungarnir, sem sýna magn af fiski í trollinu, komnir inn. Hann ætlaði að fara að hífa trollið inn; – Blessaður, settu meira í, sagði ég, en þegar við hífðum sprakk allt saman. Þá sagði Maggi Kristleifs: – Þú átt aldrei að hlusta á helvítið hann Halldór.“
Bróðurmissir
Það var ýmislegt sem skeði og ein sagan er af því þegar Vestmannaey fór í slipp í Cuxhaven. Símamálin voru flóknari þá en nú. „Við vorum að nálgast og þá kemur símtal í gegnum Helgoland. Við búnir að landa og ganga frá og ég bið Gumma um að hringja fyrir mig í Helgoland og spyrja hvað þetta hefði verið. Ég hringdi heim og fékk að vita að Þorvaldur bróðir var dáinn.
Hann fórst í bílslysi á Fjarðarheiði fyrir austan árið 1979,“ segir Halldór. Hann átti eftir að hitta síðar lögreglumanninn sem kom að slysinu.
„Það var í Ástralíu og þar hét hann Róbert Róbertsson og starfaði sem lögreglumaður. Hann sagði mér að þegar hann kom á vettvang hafi Þorvaldur setið á steini og haldið um kviðinn á sér. Hann stóð upp og ætlaði að ganga á móti þeim en hné niður. Hann var lifandi þegar hann komst upp á Egilsstaði. Þetta situr í mér, eðlilega, og eftir á að hyggja finnst mér skrýtið að mér hafi ekki verið boðið að fara heim. Þorvaldur var að fara sem vélstjóri á gamla Gullver frá Seyðisfirði, en svona var þetta.“
Báðir í heila stöng
Næst kemur saga af frystingunni en meðal þæginda um borð var sánaklefi frammi í stefniskúlu. „Þar sitja Hinni Jóns og Emil nokkur í mestu makindum og eru að reykja jónu. Allt í einu opnast hurðin og kona úr áhöfninni birtist kviknakin. Hún segir: ‘Hæ, strákar,’ en það var flaggað í heila stöng hjá báðum.



Tekin 4. september 1974 um borð í Vestmannaey VE-54. Eyjólfur Pétursson, skipstjóri og Sverrir Gunnlaugsson, stýrimaður. Mynd Sigurgeir.
Halldór var meðal þeirra sem voru heiðraðir síðsasta sjómannadag. Mynd: Addi í London
Halldór var heiðraður á Sjómannadaginn í fyrra. Hér afhendir Guðni Hjálmarsson honum skjöldinn. Mynd: Addi í London.

Í fyrra minntist ég á þetta við Hinna úti á Kanarí. –Já, manstu eftir þessu? sagði hann. Þá segir Eyfi: – Voruð þið að reykja jónu? Í gufubaðinu? Og Hinni játaði því. – Ég vissi ekki neitt, segir Eyfi og Hinni svaraði af bragði: – Við vissum að þú varst ekkert fyrir þetta og létum þig því ekki vita. – Ég hefði rekið ykkur báða, sagði kallinn þá, en svo var bara hlegið að þessu.“
Halldór tekur undir að Vestmannaey hafi verið mjög gott skip og man ekki eftir nema einu atviki þar sem þeir þurftu að leita inn á Breiðafjörð vegna halla á skipinu. „Það stíflaðist lensidælan fyrir millidekkið og komst sjór inn á það. Skipið var smekkfullt og fiskur í stíum fremst á millidekkinu sem gekk til og það var orðinn helvíti mikill halli á honum. En við vorum fljótir að bjarga þessu, enda var Vestmannaey hörkudallur eins og öll japönsku skipin.“
Gúrkukúr og allt stíflað Það kom fyrir að konurnar fóru með þegar siglt var með afla og í einum túrnum hreiðruðu þær um sig í skipstjóraklefanum. „Það var alls konar snyrtivesen í gangi, gúrkukúrar og ýmislegt annað misfurðulegt. Allt gekk vel þangað til klósettið í skipstjóraklefanum stíflaðist og líka í klefanum fyrir framan. Þá varð allt vitlaust. Slegið var af og skjöktbáturinn settur út og byrjað að krukka í þetta. Losnaði ekki djöfulsins stíflan og einn úr áhöfninni, sem stóð í bátum, fékk allt framan í sig og inn undir sjógallann,“ segir Dóri og verða lesendur að nota ímyndunaraflið til að sjá hvað gerðist.
Mikill harmur tveggja vina
Leiðir Dóra og Eyfa hafa legið saman í á fimmta áratug og eru þeir miklir vinir. En lífið er ekki alltaf dans á rósum því hafa þeir báðir fengið að kynnast. Báðir misstu þeir börn, eiginkonur og seinna sambýliskonur. Ásta Þorvaldsdóttir, eiginkona Halldórs, lést árið 2016 og Þorvaldur sonur þeirra lést 2019. Árið 2020 hóf hann sambúð með Birnu Sigurbjörgu Benediktsdóttur, fæddri í júní 1960, sem lést 20. júlí 2025. Hún átti ættir að rekja til Vestmannaeyja. Eyfi var giftur Ingveldi Gísladóttur sem lést árið 2014 og Andrea Ey, dóttir þeirra, lést 2007. Á síðasta ári lést Margrét Þorsteinsdóttir, tengdadóttir hans, eiginkona Péturs sonar hans frá einu barni. Eyfi var í sambúð með Ástu Finnbogadóttur sem lést 2023.
Dóri segir þetta vera mikil áföll og að það eigi þeir vinirnir sameiginlegt. „Ég kynntist Birnu árið 2020 í mars og hún dó 20. júlí á síðasta ári. Ég hitti Eyfa þegar hann var nýbúinn að missa Ástu og spurði hvort hann væri til í að fara út til Kanarí veturinn eftir að Ásta dó. Hann var ekkert á þeim buxunum, ætlaði bara að vera heima. Það líða einn eða tveir mánuðir og hann hringir í mig og
biður mig um að redda sér íbúð, sem ég gerði. Eftir á, þegar maður hugsar til baka, þá leið honum alveg eins og mér leið í vetur. Þegar minningarnar hellast yfir mann verður allt svart. Það er bara þannig og þegar ég lenti í þessu var hann orðinn sjóaður í gegnum sinn harm. Það var því gott að hafa hann með sér í vetur og það hjálpar okkur að vera fljótir að snúa öllu upp í grín. Það er ein leiðin til að takast á við sorgina. Verst er þegar maður er einn og þetta kemur fljúgandi yfir mann. Það létti að Kristinn bróðir og Hjördís komu tvisvar til mín í vetur. Ég talaði við hann í gær og þau ætla að kíkja við um Hvítasunnuna.“
Í sjávarháska við Ástralíu
Hér kemur ein saga frá Ástralíuárunum. Dóri reri þar á gömlum togara, Twofold Bay, við vesturströnd Ástralíu og voru þeir á landleið þegar togarinn steytti á skeri og sökk. Þetta var rétt fyrir utan bæinn Two Rocks í Vestur-Ástralíu. Skipstjórinn, Greg, var nýr og ekki vanur bát af þessari stærð, sem var 24 metra langur.
„Ég vakna við það að ég hendist út úr kojunni þegar bátinn steytti á skerinu. Skipstjórinn stytti sér leið sem var í lagi á minni bátum en reiknaði ekki með djúpristunni. Ég fór beint niður í vél og þá streymdi sjórinn þar inn. Ég drap á aðalvélinni en önnur af tveimur ljósavélum var í gangi. Þá var komið að því að setja út björgunarbátinn sem var uppi á brúarþaki. Ég sagði strákunum að henda bátnum út og binda spotta við rekkverkið. Fór upp í brú að athuga hvað væri að gerast, hringdi í eigandann, Don, og Ástu til að láta vita hvað væri í gangi. Seinna hringdi hann í okkur og lét vita að leit væri hafin og bátar í grennd gætu miðað okkur út.
Bjargaði fjórum mannslífum Þegar ég kom niður voru þeir að reyna að blása bátinn upp niðri á dekki. Það fauk í mig og ég spurði hvern djöfulinn þeir væru að gera. Lét þá henda bátnum út og blés hann upp. Batt líflínuna við rekkverkið og sagði kanadískri stelpu sem var með okkur að fara fyrst um borð í björgunarbátinn.
Báturinn var orðinn fullur af sjó og ég sagði við Greg skipstjóra að við yrðum að fara yfir í björgunarbátinn. Kallgreyið var alveg miður sín yfir að hafa eyðilagt dallinn en hallinn jókst og þá var ekki um annað að ræða en að yfirgefa skipið,“ segir Dóri, en björgunarbáturinn var ekki til að hrópa húrra yfir.
Toppurinn var ekki uppblásinn og þeir notuðu árar til að halda honum uppi. Botninn var þykkur dúkur. „Þegar við vorum að fara frá bátnum festist línan undir einu lensportinu og góð ráð voru dýr. Ég sagði að það ætti að vera hnífur í vasa innan á blöðrunni. Enginn fann djöfulsins hnífinn. Seinna kom í ljós að annar hásetinn sat

Innilegar hamingjuóskir kæru sjómenn og fjölskyldur


Við sendum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins!
á vasanum með hnífnum í. Ég reyndi að komast að gálganum stjórnborðsmegin þar sem ég var alltaf með hníf. Þá var hallinn orðinn það mikill að ég náði ekki að komast að honum. Það eina sem ég gat gert var að djöflast í línunni þangað til hún slitnaði.“
Ekki tók betra við þegar grípa átti til neyðarblysa og raketta, sem fundust ekki. Brjóta þurfti blysin sem lýstu varla meira en þokkaleg vasaljós. Don, sem átti bátinn, hafði aftur samband og það var farið að leita af þeim. Það var krabbabátur sem fann þá og fór með þá í land. Þegar í land var komið tóku við skýrslutökur og yfirheyrslur. „Maður sem tók skýrslu af mér spurði mig, utan dagskrár, hvort sjómenn á Íslandi væru látnir læra á björgunarbúnað, sem ég svaraði játandi. Þetta væri skylda og hann vildi vita meira. Þegar hann kvaddi mig sagði hann; –gerir þú þér grein fyrir því að þú bjargaðir fjórum mannslífum? Þau segja öll að ef þú hefðir ekki verið um borð hefðu þau ekkert vitað hvað ætti að gera. Þetta hefur verið 1996,“ segir Halldór, sem var ekki hræddastur við að drukkna. „Það sem mér þótti verst var ef ég yrði étinn af hákörlum. Það var það eina sem maður fór að pæla í, enda allt morandi af þessum kvikindum.“
Heim til Íslands Í september 1999 flytja þau heim og Dóri var þá yfirvélstjóri á Huginn og með þeim á loðnu og síld. „Ég fer árið 2000 á Bakkafoss og er orðinn vélstjóri þegar skipið fer í leigu til Ameríku. Fyrst í Karabískahafið og svo yfir í Kyrrahafið í gegnum Panamaskurðinn þar sem við vorum í áætlun frá Mexíkó niður til Kolumbíu, Ekvador og Perú,“ segir Dóri. „Vorum í þessu rétt fyrir áramótin 2001. Var á Skógarfossi og Brúarfossi þegar mér var boðið pláss á Herjólfi og var þar til 2016. Ég endaði ferilinn á hraðferju sem gekk milli Akraness og Reykjavíkur árið 2017.“ Þar með lauk sjómannsferli Halldórs sem í dag finnur sér eitt og annað til dundurs í bústaðnum sem var heimili hans og Birnu.

af

Vestmannaey VE 54 varsmíðuð í Japan árið 1973 fyrir Berg-Hugin í Vestmannaeyjum, sem var í eigu Kristins Pálssonar, skipstjóra og útgerðarmanns á Bergi VE 44 og Guðmundar Inga Guðmundssonar, skipstjóra og útgerðarmanns á Huginn VE 55. Mynd: Sigurgeir.

Þrír á Kanarí síðasta haust. Halldór, Eyfi og Ómar, skipsfélagar í fimm ár á Vestmannaey, Dóri vélstjóri, Eyfi skipstjóri og Ómar kokkur.
Mynd
Halldóri sem Sigurgeir Jónasson tók í Vestmannaeyjum í ágúst 1998.
EYFI – HRESSILEG FYRSTU KYNNI OG UPPHAF AÐ GÓÐRI VINÁTTU
„DÓRI KLÁRASTI VÉLSTJÓRI SEM ÉG HEF HAFT“

Eyjólfur Pétursson, skipstjóri, Guðmundur Alfreðsson, vélstjóri og
Sverrir Gunnlaugsson, skipstjóri. Myndina tók Sigurgeir á Sjómannadaginn 1983.
„Fyrstu kynni mín af Halldóri Waagfjörð eftir að hann byrjaði á Vestmannaey voru þau að hann kemur upp í brú og spyr mig hvernig ég hafi það í pungnum. Ég þekkti manninn ekki meira en að heilsa honum úti á götu,“ segir Eyjólfur
Pétursson, skipstjóri á Vestmannaey, þegar hann er beðinn um að lýsa fyrstu kynnum þeirra. „Ég sagði við hann: – Ertu virkilega kominn upp í brú til að spyrja mig hvernig ég hafi það í pungnum? Drullaðu þér út úr brúnni.
En þetta mjatlaðist einhvern veginn áfram og við urðum mjög góðir vinir, eins og við erum enn í dag. Þetta er ótrúlegt helvíti, en hann lætur svona.“
Við sitjum þrír á heimili Eyjólfs, undirritaður, Eyfi og Guðmundur Arnar Alfreðsson vélstjóri, og tilgangurinn er að rekja úr þeim garnirnar um samskipti þeirra við Halldór. Þeir eru sammála um að sumt megi kyrrt liggja, en þar sem Halldór fór hafi sjaldnast verið nein lognmolla. Þá eru þeir einnig sammála um að hann sé eldklár vélstjóri.
Eyfi rifjar upp eina söguna:
„Við erum að slaka trollinu og mokveiði hjá öllum skipum. Þegar kemur að gröndurunum stoppar tromlan. Hann kemur upp og við náðum að snurða aðeins inn meðan Dóri skrúfaði mótorinn í sundur sem hafði gefið sig. Honum tókst að koma honum í lag, eitthvað sem ekki margir vélstjórar hefðu leikið eftir,“ segir Eyfi.
„Hann er klárasti vélstjóri sem ég hef haft. Það sýndi sig líka þegar togspilið gaf sig með trollið úti. Það tók hann sex klukkutíma að redda því svo við gátum klárað túrinn. Það var alveg sama hvað kom upp á, hann reddaði öllu.“
Eyfi og Gummi eru einnig sammála um að Halldór hafi verið einstaklega skemmtilegur félagi.
„Hann kom upp í brú sex til átta sinnum á dag og kjaftaði á honum hver tuska. Hann laug mann alveg smekkfullan án þess að maður kæmist að. Seinna hittumst við á Kanarí, en heimsmaðurinn Halldór var ekki klárari en svo að hann endaði á hóteli í Palma, klukkutíma akstur frá Ensku ströndinni þar sem hann ætlaði að vera.“
Þeir fóru út á lífið eins og gengur og gerist og í einu spjallinu sagði Dóri við Eyfa:
„Við vorum saman í ellefu ár en rifumst aldrei.“
Eyfi svaraði þá:
„Ég skil það vel. Í hvert skipti sem þú komst upp í brú byrjaðir þú að blaðra og ég komst aldrei að. Við gátum aldrei rifist því þú kjaftaðir stanslaust. En ég hafði rosalega gaman af honum.“
Gummi rifjar einnig upp fyrstu árin þeirra saman á sjó.
„Hann byrjaði sem annar vélstjóri hjá mér og við byrjuðum á að eyðileggja rafal í siglingu til Þýskalands. Það var óhapp sem var kannski okkur báðum að kenna. Ég var að kenna honum á kerfið í vélinni en eins og venjulega var kjaftað endalaust og við gleymdum að loka krana. Vatn flæddi þá yfir rafalinn,“ segir Gummi og hlær.
„Við fórum fram í borðsal að horfa á sjónvarpið þegar allt varð svart. Seinna hætti ég á sjó og fór að vinna í landi fyrir útgerðina. Það samstarf gekk vel og við erum enn góðir vinir.“
Gummi tekur undir með Eyfa um hæfileika Halldórs sem vélstjóra. Það hafi meðal annars sýnt sig þegar Vestmannaey var breytt í Póllandi.
„Það átti að færa aðalvélina niður en ég neitaði því og lét panta stærri gír. Dóri var að sniglast í kringum þetta og lesa á umbúðirnar. Þá sá hann að það átti að setja gírinn okkar um borð í Bretting. Hann stoppaði það af. Þetta hefði orðið stórmál og við hefðum ekki átt möguleika sem frystiskip.“
Eyfi og Dóri hittast enn daglega á Kanarí, sem þeir líta á sem sinn annan heimabæ. Þar spranga þeir um, hitta mann og annan og láta sér ekki leiðast.

Önnur vaktin um borð í Vestmannaey VE. Magnús Kristleifsson, Birgir Sverrisson, Sverrir Gunnlaugsson, Ægir Ármannsson og
ÖFLUG SPRENGING OG HRUN ÚR HEIMAKLETTI
Í viðtali í Eyjafréttum frá 1998 biður Benedikt Gestsson, blaðamaður Eyjfrétta Halldór að segja mér eina sögu af prakkaraskap í Eyjum sem Dóri tók ljúflega og geislaði af honum frásagnargleðin.
„Einu sinni þegar við vorum að vinna í Fesinu vorum við stundum að sprengja súrbombur. Við vorum að koma fyrir einhverjum tækjum þar. Ég held við höfum drukkið hundrað Cristian Brothers á meðan við vorum í þessu verkefni, nema hvað að eitt sinn tökum við síldartunnu, sláum úr henni botninn og setjum svartan ruslapoka í staðinn, síðan fylltum við þetta með gas og súr.
Svo þegar við erum orðnir klárir þá fær einhver þá hugmynd að setja þvottavélina hans Sigga í Stakkagerði ofan á tunnuna. Svo var tendrað í með ljósaperu sem stungið var í samband inni í Fesinu. Þvottavélin tókst á loft og hentist fleiri hundruð metra og lenti ofan á mjölhúsi sem var á milli Fiskiðjunnar og Fesins og rafmagnið sló út.
Það brotnaði eitthvað af rúðum og rigndi yfir okkur leifunum af tunnunni sem voru eins og tannstönglar. Það kostulegasta var kannski og menn tengdu þessari þvottavélaeldflaug við að daginn eftir hrundi svo stærðar bjarg úr Heimakletti. Við forðuðum okkur hins vegar í Moskvitsinn sem Óli Kristinn átti og krúsuðum á honum um bæinn og drukkum Cristian Brothers. Þetta var meiriháttar gæjalegt. Maður varð alltaf að bæta aðeins um betur en aðrir höfðu gert."

„Þeir fiska sem róa.“ Myndarlegt hal tekið inn á Vestmannaey.
Lokaorð Höfundur var í fimm ár á Vestmannaey, frá 1981 til 1986. Þetta var skemmtilegur tími með öflugum skipstjóra og frábærri áhöfn. Þar eignaðist maður vini til lífstíðar sem ber að þakka og lærði margt sem hefur komið að góðum notum í blaðamennsku síðustu 40 árin.
/Ómar Garðarsson, fyrrverandi kokkur á Vestmannaey.
Trausti Kristjánsson. Myndina tók Sigurgeir í mars 1981.




LJÓSMYNDIR FRÁ ADDA Í LONDON:
GLUGGAÐ Í GAMLAR MYNDIR FRÁ
SJÓMANNADEGINUM Í GEGNUM TÍÐINA
















„PABBI VAR SJÓMAÐUR Í GEGN
– OG BESTI SKIPSTJÓRINN“

Um Magnús Örn fara góðar sögur og var hann vel liðinn skipstjóri. Ljósmynd/Aðsend.
Á bak við hvert skip, hvern túr, hverja löndun og hvern sjómann leynast fjölskyldur sem lifa í takti fjarveru, biðar, óvissu og eftirvæntingar. Þennan takt þekkir Þórdís Gyða Magnúsdóttir vel, bæði frá uppvaxtarárum sínum, þar sem faðir hennar Magnús Örn Guðmundsson heitinn, starfaði lengst af sem skipstjóri, en einnig til dagsins í dag, þar sem hún er gift Baldvini Þór Sigurbjörnssyni, vélstjóra á Sigurði VE 15.
Fyrir Þórdísi Gyðu er þessi taktur eðlilegur hluti af lífi hennar. Annars konar veruleika þekkir hún varla en fyrir börn sjómanna lærist það oft snemma að kunna að meta stundirnar sem gefast þegar faðirinn kemur heim af sjó á milli langra túra, vinnutarna og vertíða.
„Ég man ekki eftir öðru en sjómennskunni og lífinu sem henni fylgir alveg frá barnæsku. Ég kem af mjög stórum ættum og það eru margir sjómenn í mínum innsta hring. Sjómennskan hefur alltaf verið stór partur af mínu lífi,“ segir Þórdís Gyða.
„Ég þekkti ekkert annað en að pabbi væri á sjó. Minn raunveruleiki í barnæsku var að pabbi var sjaldan heima og mikið úti á sjó en það var alltaf mikið gleðiefni þegar hann kom í land, enda hafði hann oftast verið lengi í burtu og þá var iðulega gert eitthvað skemmtilegt með honum þegar hann kom heim,“ minnist hún.
Sjúkdómurinn náði yfirhöndinni
Veruleiki Þórdísar er annar í dag. Og mun sárari. Sú staðreynd að faðir hennar komi aldrei aftur heim stingur inn að beini. Í febrúarmánuði árið 2020 lést Magnús Örn af völdum Alzheimersjúkdómsins, aðeins 63 ára að aldri. Magnús fæddist hinn 7. desember árið 1956 og hefði því orðið sjötugur í ár hefði hann fengið að lifa.
„Fyrst og fremst var sjúkdómsgreiningin mikið áfall fyrir okkur, alla fjölskylduna. Að sjá þennan stóra og sterka persónuleika verða að einhverri annarri persónu sem við þekktum ekki var erfiðara en orð fá lýst,“ segir Þórdís Gyða um upphaf veikinda hans.

Til hamingju með daginn sjómenn
„Það var sárt og erfitt að horfa upp á þetta gerast og líka fyrir hann sjálfan að ná ekki að átta sig á því hvað væri að koma fyrir. Við þurftum að kynnast honum upp á nýtt og læra að tala við hann og hvernig best væri að komast að honum,“ lýsir Þórdís og segir eðli sjúkdómsins í raun vera marglaga og stigskipt.
„Það kom mér á óvart hvað við syrgðum hann oft í gegnum sjúkdóminn. Það var alltaf eitthvað nýtt sem kom upp sem við þurftum að takast á við,“ útskýrir hún og segir sárt að hugsa til þessa tíma.
„Eins kom það mér líka á óvart hvað hann átti hvergi heima í kerfinu. Það vildi hann enginn og í raun vissu fáir hvað við áttum að gera við hann þegar sjúkdómurinn var farinn að ná yfirhöndinni.“
Eitthvað eins og það átti ekki að vera Þegar Þórdís Gyða lítur til baka getur hún nánast fest fingur á það hvenær sjúkdómurinn fór fyrst að gera vart við sig. Hvorki hún né aðrir fjölskyldumeðlimir áttuðu sig á því á þeim tímapunkti að um umræddan sjúkdóm væri að ræða enda faðir hennar tiltölulega ungur, hraustur og vel á sig kominn.
„Maður sér þetta þegar maður horfir til baka. Sjúkdómurinn var sennilega farinn að banka upp á þegar hann var skipstjóri á Kristbjörginni. Það voru raðir atvika sem gerðust á hans kostnað en við tengdum það aldrei við að þarna væri um alvarlega heilabilun að ræða.“
Þórdís segir fjölskylduna hafa séð og upplifað verulegan mun á Magnúsi fljótlega eftir að Kristbjörgu VE 70 var lagt. Hegðun hans og verkvit voru ekki eins og áður hafði verið..
„Fólk var farið að tala um hann út í bæ að það væri eitthvað mikið að hjá honum og ekki á góðan hátt. Hann hélt ekki vinnu og kunni í raun ekki til verka. Sem var mjög ólíkt okkar manni og alls ekki í samræmi við hans persónueinkenni.“
Stórt skarð höggvið Upp frá þessu segir Þórdís að við hafi tekið langt læknis- og greiningarferli.
„Við komum honum undir læknishendur og þaðan til Reykjavíkur þar sem hann fór á minnismóttökuna í greiningarferli. Það var ekki fyrr en í lok árs 2014 að við fengum staðfestingu á því að hann væri með Alzheimer og heilaæðasjúkdóm,“ lýsir hún og segir heilsu föður síns hafa hrakað mikið á skömmum tíma.

Magnús Örn var duglegur að taka börnin með um borð þegar skipið var í landi og kynna þeim fyrir lífi sjómannsins. Þarna eru þau feðgin saman í brúnni. Ljósmynd/Aðsend.

Sigrún og Magnús með dóttur sína Þórdísi Gyðu á milli sín. Ljósmynd/Aðsend.









FJÖLBREYTT FRÆÐSLA Í 20 ÁR


Í tvo áratugi hefur Iðan fræðslusetur boðið félagsfólki sínu, fagfólki og fyrirtækjum í iðnaði upp á fjölbreytta og vandaða fræðslu sem er sniðin að síbreytilegum þörfum greinarinnar.
Við leggjum metnað í að þróa fræðslu sem heldur áfram að mæta þörfum iðnaðarins, í dag og til framtíðar.
Þjónusta
Iðunnar:
• Námskeið
• Fræðsla
• Fyrirtækjaráðgjöf
• Sérsniðin fyrirtækjanámskeið
• Raunfærnimat
• Alþjóðlegt samstarf










„Þann 18. júní 2016 giftum við Baldvin okkur en þann dag var pabbi orðinn mikið veikur. Það var samt eins og hann hafi verið að bíða eftir þessum degi til að geta verið til staðar fyrir mig. Hann róaði mig niður í kirkjunni áður en hann leiddi mig inn kirkjugólfið og er þetta minning sem mun aldrei hverfa mér úr minni. Strax eftir brúðkaupið hrakaði honum mikið og var hann kominn inn á stofnun strax í ágústbyrjun. Enda var það fyrsta sem ég sagði við Baldvin rétt áður en pabbi fékk sjúkdómsgreininguna að ég vildi gifta mig áður en hann myndi týnast í sjúkdómnum því það hafði svo mikla þýðingu fyrir mig að hann myndi labba með mér inn gólfið.“
Áform Þórdísar Gyðu gengu eftir. Það var eins og það hafi verið skrifað í skýin að Magnús Örn ætti að fá að taka þátt í þessum fallega og dýrmæta degi. Brúðkaupsdegi Þórdísar Gyðu og Baldvins, þar sem þau hétu því fyrir Guði að eyða sínum ævidögum saman. En rúmlega fimm árum eftir að sjúkdómsgreining Magnúsar barst er hann látinn.
Hvernig vinnur maður úr svona sárum missi?
„Mín skoðun er sú að maður nær aldrei að vinna úr svona missi. Maður lærir að lifa með honum. Það er mjög mikil sorg sem fylgir því að þurfa að kveðja hann en á sama tíma voru þessi endalok mikill léttir, bæði fyrir hann og okkur,“ segir Þórdís og lýsir hans hinstu stund sem sorglegri og fallegri í senn en stórt skarð hafi verið höggið í fjölskylduna.
Þá hefur hún einsett sér að halda heiðri og minningu föður síns hátt á lofti um ókomin ár.
„Ég vil minnast hans eins og hann var en á sama tíma vil ég að við munum þá sem gleyma.“
Vel liðinn skipstjóri
Þegar Þórdís Gyða er spurð út í það hvernig skipstjóri hún ímyndi sér að faðir hennar hafi verið þá stendur ekki á svarinu.
„Ég er svo heppin að vita hvernig skipstjóri hann var. Mér hafa verið sagðar ófáar sögur af honum frá mönnum sem réru á einhverjum tímapunkti með honum. Hann var vel liðinn skipstjóri og hugsaði vel um sína menn. Hann tók vinnunni sinni alvarlega ásamt því að vera harður þegar þess þurfti en húmorinn hljóp aldrei frá honum. Hann var með svartan og skemmtilegan húmor sem margir höfðu gaman að,“ lýsir hún og segir að frásagnir frá gömlum skipsfélögum föður síns ylja sér um hjartarætur og að hún þreytist aldrei á því að tala um hann og þá mannkosti

Þórdís Gyða fékk draum sinn uppfylltan þegar faðir hennar gekk með henni inn kirkjugólfið á brúðkaupsdegi hennar áður en hann týndist í sjúkdómnum. Ljósmynd/Aðsend.
sem hann hafði að geyma.
„Ég hef heyrt frá þónokkrum að hann hafi verið besti skipstjóri sem þeir hafa róið með og ég trúi því. Enda þekki ég ekki annað en að hann hafi veri bestur í alla staði.“
Sjómannslífið stór hluti af hversdagsleikanum Að sögn Þórdísar var faðir hennar alltaf til staðar þó hann væri ekki alltaf heima. Hún segir fjölskyldulífið hafa skipt hann miklu máli og að hann hafi reynt að sinna fjölskyldunni eins vel og hann gat á milli túra. Eða allt þar til heilsa hans fór að dvína.
„Pabbi var okkar helsta klappstýra og hélt alltaf svo mikið með okkur sama á hvaða stað við vorum stödd í lífinu og hvað við vorum að fást við; íþróttir, skólann eða hversdagsleikann. Okkur vantaði oft sterku skoðanirnar og sjónarmiðin hans þegar hann var úti á sjó, það var oft drepleiðinlegt að geta ekki leitað til hans þegar maður þurfti á því að halda því oftar en ekki voru hans skoðanir réttu svörin fyrir mann,“ segir Þórdís Gyða sem er næstyngst af fimm systkinum sem öll gátu treyst því að fá heiðarleg svör frá föður sínum þegar ráða þurfti í hinar ýmsu lífsgátur.
„Hann var góður vinur okkar krakkanna. Þegar skipið var við bryggju var hann duglegur að taka okkur um borð og sýna okkur hina og þessa hluti, leyfa okkur að skoða úrvalið í sjoppunni

um borð og kaupa eitthvað gotterí handa okkur. Svo fengum við að horfa á vídeóspólur á meðan hann var að vinna,“ minnist hún og segir föður sinn alla hans tíð hafa virkjað fjölskylduna til þátttöku í sjómannslífinu sem hann lifði. Sem útskýrir að vissu leyti hversu stór hluti sjómennskan er í huga og hjörtum ástvina hans.
„Við fengum að taka virkan þátt og fórum öll systkinin ung með honum til sjós á einhverjum tímapunkti. Þá fengum við að sjá hann í þessari sterku stjórnunarstöðu sem hann var í og þar var hann á heimavelli,“ segir Þórdís Gyða.
„Pabbi var sjómaður í gegn og fannst aldrei leiðinlegt að vinna vinnuna sína. Hann var ekki endilega málglaðasti maðurinn og var ekkert að ausa yfir okkur sjóarasögum en hann þurfti þess heldur ekkert – oft segja hegðun og gjörðir meira en orð. Hann hafði sjómennskuna bara í blóðinu og það vita allir sem hann þekktu.“
Mikil eftirvænting og gleði Þrátt fyrir að sjómennskan hafi í gegnum tíðina verið fyrirferðarmikil og plássfrek í lífi fjölskyldunnar segir Þórdís Gyða föður sinn líka hafa haft ákveðinn hæfileika í að aðskilja vinnu og einkalíf. Í það minnsta hafi hann reynt það..
„Ég held að hann hafi reynt að skilja vinnuna eftir um borð og komið bara heim í hversdagsleik-

ann til okkar, áhyggjulaus og frjáls. Tilhlökkunin var alltaf mikil þegar við vissum að pabbi væri að koma heim. Þá var alltaf búið að lofa að gera eitthvað skemmtilegt. Það var svo gaman að fá hann til að koma með á sundæfingar og sjá hann horfa á hvernig gengi. Bíða svo út í heita potti eftir mér svo hann gæti fylgt mér heim eftir æfingu. Það þurfti ekki meira en það,“ útskýrir hún en gleðin varði oftast lengur þegar hann var heima og setti rútínuna á heimilinu kannski í örlítið uppnám endrum og sinnum.
„En svo var það bara ísbúðin, leigja spólu og horfa á hana saman og já eða pulsan í Klettinum í hádeginu, en það var hálfgerð hefð hjá honum að fara og fá sér eina með öllu þegar hann var heima. Það var alltaf gaman að hafa hann heima.“
Hringrás tilfinninganna Þórdís segir tengsl sín við sjómennskuna hafa tekið breytingum eftir að faðir hennar lést en líka eftir að hún sjálf varð móðir. Hún segist alltaf eiga eftir að tengja sjóinn við pabba sinn en í dag lifa dætur hennar svipaða barnæsku og hún átti sjálf.
„Mér finnst ég eiginlega vera að lifa í gegnum þær þá tíma sem ég lifði þegar ég var barn. Ég sé þær gráta á eftir pabba sínum þegar hann fer á sjóinn og svo bíða þær með eftirvæntingu eftir því að hann komi heim,“ segir Þórdís Gyða um þá hringrás sem eltir hverja kynslóð sjómannsbarna á fætur annarri. Hringrás í öldugangi lífsins sem er í senn mótdræg en falleg og fyllir allt litróf tilfinninganna.
Hvernig breyttist samband ykkar pabba þíns þegar hann veiktist og sjúkdómurinn tók yfir?
„Hlutverkunum var algerlega snúið við,“ segir Þórdís. „Ég hætti að vinna til að hugsa um hann á meðan mamma fór í vinnu. Hann þurfti sólarhrings umönnun nánast frá byrjun. En á undarlegan hátt þá breytti hann viðhorfi mínu til lífsins í gegnum þetta ferli. Á meðan við stóðum saman í þessum breytingum þá lærði ég alltaf eitthvað nýtt af honum og mun taka það með mér það sem eftir er. Ég sakna hans öllum stundum en það hjálpar mér að fá að tala um pabba eða heyra sögur af honum frá öðrum. Minnast góðu stundanna og fá að halda minningu hans á lofti eins og ég er að fá að gera hér og nú,“ segir hún.
„Og ég veit það fyrir víst að pabbi minn hefði ekki viljað gera neitt annað í lífinu en að vera til sjós. Það var bara hann.“
Magnús Örn ásamt afabarni sínu en hann var mikill fjölskyldumaður. Ljósmynd/Aðsend.
/Ásthildur Hannesdóttir

Traustur félagi
í sjávarútvegi
Skeljungur hefur þjónað sjávarútveginum og smábátaeigendum í tugi ára. Skeljungur óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn
GÖMUL MINNING FRÁ VERTÍÐARLOKUM

Á þessari mynd er hluti áhafnarinnar á Magnúsi
Magnússyni VE 112 á vetrarvertíð 1960. Skipstjóri og útgerðarmaður var Ingvar Gíslason á Haukabergi.
Róið var á línu fyrri hluta vertíðar og síðan á netum. Lögskráð var hjá bæjarfógeta 7. janúar og þessir skráðir:
Ingvar Gíslason, Haukabergi, f. 1913. skipstjóri.
Einar Hannesson, Brekku. f. 1912. stýrimaður
Ottó Hannesson frá Hvoli. f. 1914 vélstjóri
Kristján Guðmundsson, Faxastíg f .1943 háseti
Gísli Valur Einarsson, Brekku f. 1943 háseti
Guðjón Þorbergsson, Hafnarnesi f. 1941 háseti
Halldór Sigurðsson, Seyðisfirði f. 1928 háseti
Jóhannes Víðir Haraldsson, Rvk. f. 1939 háseti
Bjarni Heiðar Joensen, Kirkjuv. 66 f. 1935 háseti
Sigurgeir Jónsson, Þorlaugargerði f. 1942 háseti
Á línuvertíðinni réru fimm en fimm beittu í beituskúrnum í Görn. Einn var afskráður 7. mars, eftir línuvertíð, Halldór Sigurðsson sem verið hafði beitningamaður og því aðeins níu í áhöfn á netunum.
Vel gekk, bæði á línu og netum og aflabrögð yfir vertíðina vel í meðallagi. Í lok vertíðar, kringum
lokadaginn, vorum við fjórir úr áhöfninni að gera okkur glaðan dag. Stakk ég þá upp á því að við færum niður á bryggju og tækjum af okkur myndir með björgunarhring af Magnúsi Magnússyni enda var ég þá nýbúinn að eignast forláta myndavél. Úr því varð og við héldum á bryggjuna, Gísli Valur, Kristján, Guðjón og undirritaður og þar voru þessar myndir teknar. Myndina af bátnum og skipstjóranum tók aftur á móti Sigurgeir Jónasson, ljósmyndari.
Við héldum oft hópinn á þessari vertíð, þessir fjórir, Gísli Valur á Brekku, Kristján Guðmundsson, sonur Guðmundar sem lengi keyrði Flugfélagsrútuna, Guðjón Þorbergsson, oft kallaður Tralli, seinna kvæntur Jónínu Þorsteinsdóttur frá Vesturhúsum og svo undirritaður. Og á ég aðeins góðar minningar sem tengdust þessari fyrstu vetrarvertíð minni, nema hvað ég kvaldist af sjóveiki sem reyndar hvarf með öllu sumarið á eftir á síld fyrir norðan. Það er önnur saga.
Með bestu óskum um ánægjulegan sjómannadag. Sigurgeir Jónsson
KÆRU SJÓMENN & FJÖLSKYLDUR
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN.


Egersund Ísland var stofnað árið 2004 og hefur síðan þá framleitt og þróað veiðarfæri og búnað til uppsjávarveiða.
Egersund Ísland er hluti af Egersund Group sem stofnað var árið 1952. Egersund og dótturfyrirtæki þess eru leiðandi fyrirtæki á sviði framleiðslu og þróunar veiðarfæra.


www.egersund.is


ÞÓRDÍS EVA ÞÓRSDÓTTIR:
KREFJANDI, ÓVISSA OG TILHLÖKKUN

Hafsteinn, Kolfinna Ósk, Áshildur Lilja og Þórdís Eva. Ljósmynd/Aðsend
Þórdís Eva Þórsdóttir þekkir vel hvernig sjómannslífið mótar hversdag fjölskyldunnar. Kærasti hennar, Hafsteinn Gísli, er á Gullberginu og saman eiga þau dæturnar Ásthildi Lilju og Kolfinnu Ósk. Í greininni segir Þórdís frá óvissunni, skipulaginu, litlu sigrunum og tilhlökkuninni sem fylgir því að bíða eftir að sjómaðurinn komi heim.
Lífið mótast af sjónum
Líf sjómannsfjölskyldna einkennist oft af miklu skipulagi, sveigjanleika og þeirri sérstöku tilfinningu sem fylgir því að bíða eftir heimkomu. Þórdís Eva Þórsdóttir þekkir það vel. Kærasti hennar, Hafsteinn Gísli, er á Gullberginu og saman eiga þau tvær dætur, Ásthildi Lilju og Kolfinnu Ósk. Þórdís er í fæðingarorlofi um þessar mundir og segir daglegt líf fjölskyldunnar mótast af því að Hafsteinn sé stundum lengi að heiman vegna vinnunnar á sjó.
Sjómennskan kom síðar inn í sambandið Þótt sjómennskan sé orðin stór hluti af lífi þeirra í dag var það ekki þannig frá upphafi. Þau Þórdís og Hafsteinn kynntust árið 2017 í gegnum
sameiginlega vini. Á þeim tíma var Hafsteinn ekki byrjaður á sjó og því vissi Þórdís ekki strax að sjómennskan yrði hluti af sambandinu með þeim hætti sem síðar varð. Lífið þróaðist einfaldlega þannig að sjórinn varð hluti af fjölskyldumynstrinu.
Óvissan er stærsta áskorunin Þórdís segir að það hafi í raun ekki margt komið sér verulega á óvart við að vera með sjómanni. Það sem standi þó helst upp úr sé óvissan sem fylgir starfinu. Hún nefnir að það geti verið erfitt að plana fram í tímann þegar vinnutíminn ræðst af túrum, veðri og verkefnum sem fjölskyldan hefur ekki alltaf stjórn á. Fyrir marga er sjálfsagt mál að geta skipulagt vikur og helgar með nokkrum fyrirvara, en í lífi sjómannsfjölskyldu þarf oft að taka tillit til þess að áætlanir geta breyst.
Betra skipulag þegar hann er úti Þegar Hafsteinn er heima er fjölskyldulífið með sínum hefðbundna takti, en þegar hann er úti þarf Þórdís að halda enn betur utan um dagana. Hún segir að hún þurfi að skipuleggja vikuna mun betur þegar hún er ein með stelpurnar. Það á sérstaklega við þegar börnin eru ung og dagarnir snúast um svefn, matartíma, rútínu og allt það sem þarf að ganga upp frá morgni til kvölds. Þá skiptir miklu máli að hafa yfirsýn og finna leiðir til að láta heimilið ganga, jafnvel þótt annar foreldrið sé fjarverandi í lengri tíma.
Stolt af því að standa vaktina heima
Það sem Þórdís er stoltust af að hafa tekist á við ein er einmitt að hafa verið mikið ein á ungbarna tímabilinu. Það er tímabil sem getur reynt á flesta foreldra, en þegar makinn er á sjó bætist við sú staðreynd að ábyrgðin heima hvílir oft á einum aðila í einu. Þórdís talar um þetta af yfirvegun, en það er ljóst að þetta krefst bæði þolinmæði, seiglu og mikillar aðlögunarhæfni.
Lengri túrar reyna mest á
Lengri túrar geta reynst sérstaklega erfiðir. Þórdís nefnir tímabil eins og makríl og kolmunna sem dæmi um tíma ársins þar sem fjarveran getur orðið meira áberandi. Þegar túrarnir dragast á langinn verður hversdagurinn heima þyngri og biðin eftir heimkomu lengri. Á sama tíma fylgir því alltaf ákveðin tilhlökkun þegar heimkoman nálgast. Hún lýsir lífinu með orðunum krefjandi, óvissa og tilhlökkun og segir alltaf gaman að fá Hafstein heim þegar hann er búinn að vera lengi á sjó.
Litlu stundirnar skipta líka máli
Þrátt fyrir álagið fylgja líka litlar stundir sem Þórdís kann að meta þegar hún er ein heima. Aðspurð hvort það sé eitthvað sem hún kunni að meta við tímann ein segir hún það kannski vera „þetta týpíska“ — að fá að horfa á sjónvarpið í friði. Í þeirri setningu má greina húmorinn sem oft þarf að fylgja lífi þar sem dagarnir eru krefjandi, en líka fullir af litlum augnablikum sem skipta máli.
Praktísku málin geta orðið flókin
Þórdís segir að fólk skilji almennt hvað fylgir því að vera maki sjómanns. Hún upplifir ekki sérstakan misskilning í kringum líf sjómannsfjölskyldna og segist ekki hafa neinn ákveðinn misskilning sem hún vilji leiðrétta. Það er þó ljóst af svörum hennar að lífið krefst mikils skipulags og þess að geta brugðist við aðstæðum sem koma upp þegar makinn er ekki heima.
Eitt dæmi um slíkt kom upp síðasta sumar þegar þau voru að selja bílinn sinn. Bíllinn var skráður á Hafstein, en rafrænu skilríkin hans virkuðu ekki. Þar sem hann var á sjó þurfti Þórdís að reyna að leysa málið sjálf. Það reyndist mikið vesen að koma bílnum yfir á kaupandann og hún þurfti að verja heilum degi í að reyna að redda því. Þetta er einmitt dæmi um þau praktísku mál sem geta orðið flóknari þegar annar aðilinn er langt í burtu og ekki alltaf aðgengilegur.
Sérfræðingur í svefnrútínunni
Í daglegu lífi hefur fjarvera Hafsteins líka haft áhrif á hlutverkaskiptinguna heima. Þórdís telur að hann myndi segja að hún væri betri en hann í að svæfa börnin, einfaldlega vegna þess að hann er svo mikið í burtu. Slíkt verður oft hluti af raunveruleika sjómannsfjölskyldna; sá sem er meira heima tekur eðlilega meiri þátt í ákveðnum rútínum og verður sérfræðingur í þeim.
Sjóaramálið er stundum annað tungumál
Samskiptin milli lands og sjávar geta líka verið skemmtileg. Þórdís segist ekki muna eftir neinum sérstaklega furðulegum skilaboðum frá Hafsteini úr túr, en hún hlær að því að hann virðist stundum halda að hún sé líka sjómaður. Hann noti þá sjóaraorð sem hún skilur ekki endilega og fyrir henni hljómi þau eins og allt annað tungumál. Það er falleg áminning um að sjómennskan er ekki aðeins starf heldur líka sérstakur heimur með sínu eigin máli, venjum og takti.
Heimkoman á að vera gæðatími
Þegar Hafsteinn kemur heim vill Þórdís leggja áherslu á samveruna. Ef hún mætti setja eina reglu fyrir alla sjómenn þegar þeir koma í land væri hún sú að gera eitthvað saman, bæði sem fjölskylda og sem par. Eftir fjarveru skiptir máli

að ná aftur tengingu, eiga gæðastundir og skapa tíma fyrir bæði börnin og sambandið. Heimkoman er ekki aðeins lok á einum túr heldur líka tækifæri til að fylla á fjölskyldulífið.
Róleg sjómannadagshelgi með fjölskyldunni Sjómannadagshelgin er yfirleitt róleg hjá þeim. Hún segir þau verja henni í rólegheitum með fjölskyldunni. Það passar vel við heildarmyndina sem Þórdís dregur upp: lífið snýst ekki endilega um stórar yfirlýsingar heldur um hversdaginn, skipulagið, biðina, heimkomurnar og litlu stundirnar sem halda öllu saman.
Að lokum sendir Þórdís hlýja kveðju til allra sem tengjast sjómennskunni:
„Til hamingju með daginn sjómenn og fjölskyldur þeirra.“
Hafsteinn Gísli ásamt félögum hans á Gullberginu. Ljósmynd/Aðsend.
SIGRÍÐUR KRISTJANA ÞORKELSDÓTTIR:
„ERFITT, EINSTAKT OG ALLSKONAR“

Sigríður, Tómas og Melkorka Sif. Ljósmynd/Aðsend
Sjómannslífið varð snemma hluti af sambandinu
Sigríður Kristjana Þorkelsdóttir vissi strax í upphafi sambandsins við Tómas Aron Kjartansson að sjómennskan yrði stór hluti af þeirra lífi. Tómas er á Vestmannaey og hafði verið lengi á sjó þegar þau kynntust. Fyrir Sigríði var þetta þó fyrst og fremst bara vinnan hans, þótt hún gerði sér grein fyrir því að fjarveran myndi hafa áhrif á sambandið.
Saman eiga þau dótturina Melkorku Sif Tómasdóttur, sem fæddist í febrúar, og Sigríður starfar sem hjúkrunarfræðingur. Með tilkomu barnsins hefur sjómannslífið fengið nýja merkingu fyrir fjölskylduna. Fjarveran verður áþreifanlegri þegar barn er komið í heiminn og dagarnir heima snúast um umönnun, rútínu og ábyrgð sem oft hvílir á einum aðila í einu.
Tinder, vinkona og rétt meðmæli
Upphafið að sambandi þeirra Sigríðar og
Tómasar var, eins og hún orðar það sjálf, að þau „mötchuðu“ á Tinder. Henni fannst það kannski ekki hljóma sérstaklega rómantískt í fyrstu, en sambandið átti eftir að verða mun meira en einfalt Tinder-spjall.
Þau áttu sameiginlega vinkonu í Vestmannaeyjum og Sigríður leitaði strax til hennar til að spyrjast fyrir um Tómas. Hún vildi vita hvort hann væri einhver sem vert væri að eyða tímanum í. Nú í sumar verða þau búin að vera saman í fimm ár og segir Sigríður að meðmælin frá vinkonunni hafi sannarlega reynst rétt. Þau séu henni ævinlega þakklát fyrir.
Á fyrstu árum sambandsins bjó Sigríður í Reykjavík
þar sem hún var að klára hjúkrunarnámið. Þau vissu því frá byrjun að þau myndu vera í fjarsambandi um tíma áður en þau tækju ákvörðun um hvar þau ætluðu að búa. Sjómennskan var hluti af myndinni, en ekki endilega eitthvað sem Sigríður velti sér mikið upp úr. Þetta var einfaldlega starf Tómasar.
Fjarlægðin venst — en hún hverfur ekki Aðspurð hvort eitthvað hafi komið henni á óvart við að vera með sjómanni segir Sigríður að svo hafi í raun ekki verið. Hún bjóst við því að þetta gæti verið erfitt, en upplifir að hún hafi með tímanum vanist fjarlægðinni að einhverju leyti. Sú fjarlægð hverfur þó aldrei alveg. Þegar makinn er úti á sjó verður hinn aðilinn heima óhjákvæmilega sjálfstæðari. Sigríður segir að hún hafi lært að takast á við ýmis verkefni sem hún hefði annars viljað geta treyst á Tómas með. Þannig mótar sjómannslífið ekki aðeins fjölskyldurútínuna heldur líka sjálfsmynd þess sem stendur vaktina heima.
Heimilislífið heldur áfram Þegar Tómas er á sjó heldur daglega lífið áfram hjá Sigríði og Melkorku. Hún segir að hún geri í raun ekki margt öðruvísi þegar hann er úti en þegar hann er heima. Heimilislífið sé nokkuð venjulegt, nema að þegar hann kemur heim bætist hann aftur inn í það.
Það eru þó ákveðnir hlutir sem breytast. Þegar Tómas er heima fer Sigríður kannski aðeins seinna að sofa, enda komin með einhvern til að horfa með sér á sjónvarpið á kvöldin. Hann eldar líka yfirleitt þegar hann er heima og það er eitt af því sem hún finnur fyrir í daglegu rútínunni. Þegar sjómaðurinn kemur heim breytist ekki allt, en nærvera hans skiptir samt miklu máli.
Fórnirnar sem sjómenn færa
Sigríður telur að fólk vanmeti oft fjarlægðina sem sjómennirnir sjálfir upplifa. Hún segist ekki hafa áttað sig fullkomlega á því fyrr en dóttir þeirra fæddist. Þá varð enn skýrara hvað Tómas og aðrir sjómenn fórna þegar kemur að fjölskyldulífi og félagslífi.
Sjómenn missa af ýmsum augnablikum í gegnum árin — viðburðum, afrekum, tímamótum og hversdagsstundum sem ekki er hægt að endurtaka. Þótt starfið sé hluti af lífinu og fjölskyldan aðlagi sig að því, fylgir því alltaf ákveðinn fórnarkostnaður. Sigríður sér það skýrt og leggur áherslu á að á bak við sjómennskuna séu harðduglegir menn sem sinni krefjandi starfi við aðstæður sem ekki allir skilja.
Veturinn getur verið erfiður
Vetrartíminn hefur reynst Sigríði sérstaklega erfiður. Vestmannaey fer mikið austur og landar þar, á meðal annars á Neskaupstað og í bæjarfélögum þar í kring. Slíkir túrar geta orðið langir og fjarveran því meiri.
Síðasta vetur var Tómas í burtu í sex vikur. Á sama tíma var Sigríður ólétt, eða eins og hún segir sjálf, „kasólett“. Sá tími reyndist henni virkilega erfiður. Það að vera ólétt á meðan makinn er lengi á sjó bætir nýju álagi við þá ábyrgð sem fylgir því að halda heimilinu gangandi ein.
Ný ábyrgð með litla barninu
Í dag er Sigríður sérstaklega stolt af því að sinna dóttur sinni á meðan Tómas er úti á sjó. Þótt Melkorka hafi, að sögn Sigríðar, verið „ekkert nema góð“ frá því hún fæddist, er það samt stórt verkefni að vera ein með ungt barn á meðan makinn er fjarverandi.
Hún bendir á að hennar veruleiki sé ekki sá að makinn komi heim klukkan fjögur eftir vinnu og taki þá við boltanum eða hjálpi til við verkefni dagsins og heimilisins. Þegar Tómas er á sjó er hann einfaldlega ekki til staðar í daglegu amstri. Það þýðir að Sigríður þarf að treysta á sjálfa sig og sinna því sem þarf að sinna, hvort sem það eru næturvökur, heimilisverk eða allt hitt sem fylgir barninu.
Tími fyrir sig — en ekki alveg eins og áður
Sigríður kann líka að meta tímann sem hún fær fyrir sjálfa sig, eins og flestir gera. Áður fyrr var hún meira ein þegar Tómas var á sjó, en í dag er staðan önnur. Litla dóttir þeirra heldur mömmu sinni upptekinni yfir daginn og því er „tíminn ein“ ekki alveg sami hlutur og hann var áður. Það breytir því ekki að það geta verið ákveðnir kostir við róleg kvöld og eigin rútínu þegar makinn er úti. En með barn á heimilinu verður fjarvera sjómannsins líka mun áþreifanlegri, enda eru verkefnin fleiri og ábyrgðin meiri.

Tómas um borð í Drangavík þar sem hann byrjaði sína sjómennsku.
Ekki allir skilja sjómannslífið
Að mati Sigríðar skilur fólk ekki alltaf hvað fylgir því að vera maki sjómanns. Hún segir að fólk vilji gjarnan skilja, en þeir sem þekkja ekki til sjómannalífsins átti sig ekki endilega á því hvernig þetta líf er í raun. Henni finnst það þó líka allt í lagi. Það er erfitt að skilja til fulls hvernig það er að búa við óreglulega fjarveru, langa túra og stöðuga aðlögun nema hafa upplifað það sjálfur. Sjómannsfjölskyldur þurfa oft að búa til sitt eigið jafnvægi og finna leiðir til að láta daglegt líf ganga upp, jafnvel þegar áætlanir breytast eða túrar lengjast.
Misskilningurinn um peningana
Einn misskilning sem Sigríður vill leiðrétta snýr að launum sjómanna. Hún segir að þar sem peningar séu oft ræddir í tengslum við sjávarútveg sé gjarnan talað um há laun og mikla peninga þegar sjómennsku ber á góma.
En á bak við þau laun eru harðduglegir menn sem leggja mikið á sig og færa fórnir í starfi sínu. Hún bendir líka á að launin fari eftir veiðinni og

tíðinni. Þetta hafi hún stundum þurft að útskýra fyrir vinkonum sínum í Reykjavík. Fólk virðist ekki alltaf átta sig á því að það er samhengi á milli þess hvernig veiðist, hvernig aðstæður eru og hvernig launin verða.
Sjómennskan er því ekki einföld saga um há laun, heldur starf sem byggir á vinnu, fjarveru, óvissu og aðstæðum sem geta breyst hratt.
Bílavesen er ekki í uppáhaldi
Sigríður segist ekki muna eftir neinu sérstaklega skrýtnu sem hún hafi þurft að redda ein á meðan Tómas var á sjó. Það sem henni finnst þó einstaklega leiðinlegt að þurfa að sinna eru öll verkefni sem tengjast bílum.
Dekkjaskipti, að pumpa í dekk, viðgerðir og allt slíkt er, að hennar sögn, „leiðinlegast í heimi“. Hún reynir því gjarnan að skipuleggja slík verkefni þannig að Tómas sé heima. En þegar hann er á sjó er stundum ekkert annað í boði en að redda hlutunum sjálf.
Þvottahúsið og heimilisverkin
Aðspurð hvað Tómas myndi segja að hún væri betri í vegna þess að hann er mikið í burtu segir Sigríður að hann nefni heimilisverkin, sérstaklega þvottahúsið. Hún tekur því þó með húmor og segir að hún haldi að ef hann myndi nenna og vilja sinna því verkefni, þá væri hann örugglega ágætur í því líka.
Hún segir að það sé greinilega verið að reyna að hæla henni fyrir auðveld og dagleg verk þegar hún nennir þeim ekki sjálf. Þessi létti tónn sýnir vel hversu stór hluti af sjómannslífinu er einmitt hversdagurinn — þvottur, matur, barn, bílamál, svefn og allt það sem þarf að ganga upp, hvort sem sjómaðurinn er heima eða úti.
Hákarl á dekkinu og erfið símtöl
Sigríður man sérstaklega eftir myndbandi sem Tómas sendi henni úr túr. Þar mátti sjá risastóran hákarl sem þeir höfðu fengið í trollið. Hann var svo stór að hann fyllti nánast allt dekkið og áhöfnin hafði bundið utan um hann til að geta sleppt
honum aftur út í sjó. Sigríði fannst merkilegt að sjá svona risavaxið dýr uppi á dekki. En samskipti úr túr eru ekki alltaf fyndin eða furðuleg. Einu símtali mun Sigríður seint gleyma. Hún var að ganga út úr lokaprófi í Háskólanum þegar hún fékk símtal um að kviknað hefði í hjá þeim og þeir væru vélarvana úti á sjó að bíða eftir að vera dregnir í land. Hún heyrði ekki í Tómasi í smá tíma eftir að hún fékk fréttirnar og segir það hafa verið tilfinningu sem hún muni seint gleyma. Slík augnablik minna á að sjómennska er ekki aðeins fjarvera og óreglulegur vinnutími. Hún getur líka falið í sér raunverulega hættu og álag fyrir þá sem bíða heima.
Reglurnar þegar hann kemur heim Ef Sigríður mætti setja eina reglu fyrir alla sjómenn þegar þeir koma heim væri hennar regla skýr: Tómas á helst að fara beint að raka sig. Það er reglan á þeirra heimili.
Svo bætist önnur regla við: hann sér sjálfur um þvottinn á vinnufötunum sínum. Þótt hann vilji stundum meina að Sigríður sé „þvottastjórinn“ á heimilinu, þá er sjófataþvotturinn hans verkefni. Þar kemur aftur fram þessi blanda af húmor og praktík sem einkennir frásögn hennar af sjómannslífinu.
Erfitt, einstakt og allskonar
Þegar Sigríður er beðin um að lýsa sjómannslífinu í þremur orðum velur hún orðin: erfitt, einstakt og allskonar. Það lýsir vel þeirri mynd sem hún dregur upp. Lífið er ekki alltaf einfalt og það fylgja því tímabil sem reyna á, sérstaklega þegar túrarnir eru langir, barn er á heimilinu eða óvæntar aðstæður koma upp.
En það er líka einstakt. Það mótast af sterkri samheldni, tilhlökkun eftir heimkomum og þeirri sérstöku aðlögunarhæfni sem verður til hjá fjölskyldum sem lifa með sjónum sem hluta af hversdeginum.
Sjómannadagshelgin í Eyjum
Sjómannadagshelgin hefur yfirleitt verið fjölskyldunni mikilvæg helgi. Þau hafa vanalega eytt henni saman í Vestmannaeyjum með áhöfninni hans Tómasar. Á föstudeginum hefur áhöfnin ýmist átt kvöld saman eða vinir hist, farið á tónleika og skemmt sér. Á laugardeginum hefur svo verið farið upp í Höll í veisluhöldin þar. Í ár verður helgin þó aðeins öðruvísi. Þau hafa ákveðið að fara til Reykjavíkur á tónleika með Bubba Morthens, sem Tómas fékk í jólagjöf. Þannig verður sjómannadagshelgin samt sem áður samverustund, þó hún verði með öðru sniði en vanalega.
„Að lokum ætla ég að óska öllum sjómönnum til hamingju með daginn. Verið stoltir af ykkar störfum, því við erum stoltar af ykkur.“
Við óskum sjómönnum & fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn!
OKKAR HÆFNI – ÞINN HAGUR

SLÖKKVITÆKJA& GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTA
VESTMANNAEYJA

Egersund Ísland var stofnað árið 2004 og hefur síðan þá framleitt og þróað veiðarfæri og búnað Egersund Ísland er hluti af Egersund Group sem stofnað var árið 1952. Egersund og dótturfyrirtæki fyrirtæki á sviði framleiðslu og þróunar veiðarfæra.


Sjómannadagsráð Vestmannaeyja
VIÐTAL
VIÐ
VICTOR GUÐMUNDSSON LÆKNI OG TÓNLISTARMANN:
VESTMANNAEYJAR GETA ORÐIÐ FYRIRMYND Í HEILSUEFLINGU

Nýlega hófst samstarf Vestmannaeyjabæjar og heildrænu heilsuþjónustunnar Lifeline Health um heilsufarsskoðanir og heilsueflingu starfsfólks bæjarins. Að baki verkefninu standa íslenskir læknar með áherslu á heildræna heilsu, forvarnir og persónulega nálgun. Einn af stofnendum þjónustunnar er Victor Guðmundsson læknir, sem margir Eyjamenn þekkja bæði úr heilbrigðisgeiranum og tónlistarlífinu.
Hvernig kviknaði hugmyndin að Lifeline Health?
„Ég hef lengi haft mikinn áhuga á forvörnum og því hvernig við getum hjálpað fólki að hugsa betur um eigin heilsu áður en vandamálin verða stór. Sem læknir hef ég séð hversu margir glíma við streitu, kulnun, orkuleysi og lífsstílstengda kvilla sem þróast oft hægt yfir mörg ár. Mér fannst vanta þjónustu sem nálgast heilsu á persónulegri og heildrænni hátt — ekki bara þegar fólk verður veikt heldur áður en það gerist.
Þetta tengist líka mjög persónulegri reynslu hjá mér sjálfum, en þegar ég var á þriðja ári í læknisfræði var rosalega mikið í gangi hjá mér, bæði í læknanáminu og tónlistinni, og ég keyrði mig einfaldlega út. Ég klessti á vegg og fann á eigin skinni hvað það getur gerst hratt þegar maður gleymir að hugsa um grunnþætti heilsunnar. Það varð ákveðinn vendipunktur hjá mér og þá áttaði ég mig í raun á því hversu mikilvægt það er að sinna grunnstoðum heilsu vel - hreyfingu, næringu, svefni og andlegri heilsu
. Ég fór þá að hugsa um þetta eins og stól með fjóra fætur, þar sem hver grunnstoð merkir einn fót á stólnum. Ef einn fóturinn veikist hefur það áhrif á allt jafnvægið. Það skiptir ekki máli hversu vel maður sinnir einu sviði ef hin eru alveg útundan. Við hjá Lifeline Health köllum þetta Heilsustólinn og þessi hugsun hefur í raun fylgt mér síðan.
Victor ásamt Dagbjörtu konu sinni, sem einnig starfar sem læknir hér í Eyjum, og sonum þeirra þremur: Frosta og tvíburunum Mána og Stormi.
Í dag er heilbrigðiskerfið víða undir miklu álagi og við sjáum aukningu í kulnun, streitu og alls konar lífsstílstengdum sjúkdómum. Mig langaði því að byggja upp þjónustu sem hjálpar fólki að taka heilsuna sína föstum tökum á raunhæfan hátt og skilja betur hvað hefur áhrif á líðan þeirra, orku og daglegt jafnvægi.
Mér finnst þó líka mikilvægt að nálgast heilsu á heilbrigðan og raunhæfan hátt. Lífið á ekki að snúast um fullkomnun eða stífar reglur allan tímann. Ég miða oft við 80/20 prósent regluna - að ef maður er sirka 80% tímans í góðri rútínu með svefn, hreyfingu, næringu og hluti sem tengjast andlegri heilsu þá þarf líka að vera pláss fyrir hin 20%. Maður þarf líka að geta skemmt sér, farið aðeins út úr rútínunni og notið lífsins - þetta snýst bara um jafnvægi.“
Hvernig virkar þjónustan?
„Við byrjum á spurningalistum, mælingum og blóðrannsóknum og síðan fær einstaklingurinn ítarlega heilsuskýrslu og persónulegt heilsuplan. Svo fer maður yfir niðurstöðurnar með lækni og fær ráðleggingar sem eru sérsniðnar að lífi hvers og eins.
Markmiðið er ekki að dæma fólk heldur hjálpa því að skilja eigin heilsu betur og finna raunhæfar leiðir til að bæta líðan, orku og heilsu til lengri tíma. Það sem mér finnst skipta miklu máli er að fólk upplifi að þetta sé jákvæð upplifun þar sem það fær skýrari mynd af sjálfu sér og sínum styrkleikum, en ekki bara listi yfir það sem má betur fara.
Við hjá Lifeline Health nálgumst heilsu út frá þessum fjórum grunnstoðum sem ég minntist á áður - hreyfingu, næringu, svefni og andlegri heilsu, sem við köllum Heilsustólinn. Oft sjáum við að litlar breytingar geta haft mjög mikil áhrif þegar þær eru framkvæmdar á réttan hátt og með góðri eftirfylgni.
Ég er líka mjög stoltur af því að hafa byrjað þessa þjónustu hér í Eyjum í fyrsta skipti, en fyrr á árinu gerðum við samstarfssamning við Vestmannaeyjabæ og höfum nú lokið fyrsta hópnum við mjög góðar undirtektir. Það hefur verið virkilega ánægjulegt að finna áhugann og jákvæða orkuna í kringum verkefnið. Ég er mjög þakklátur Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra, Veru Lífsgæðasetri og öllum sem komu að verkefninu fyrir traustið og samstarfið.“
Þú hefur einnig sinnt sjómönnum hér í Eyjum?
„Já, sem læknir hef ég verið að framkvæma sjómannaskoðanir fyrir sjómenn hér í Eyjum og

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Victor Guðmundsson handsala samstarfssamning um heilsufarsskoðanir Lifeline Health fyrir starfsfólk Vestmannaeyjabæjar.
það hefur verið mjög áhugavert og lærdómsríkt. Sjómennska er gríðarlega krefjandi starf bæði líkamlega og andlega, og margir vinna langar vaktir við erfiðar aðstæður þar sem svefn, næring og streita geta haft mikil áhrif á heilsuna.
Núna hef ég líka verið að taka sjómenn í ítarlegri heilsufarsskoðanir í gegnum Lifeline Health þar sem við förum mun dýpra í heilsuna. Þar fær fólk aukalega blóðprufu, mælingar, heilsuskýrslu og persónulegt heilsuplan sem getur hjálpað þeim að bæta svefn, næringu, orku, þol og almenna líðan.
Ég er einmitt að hefja ferli nú með hóp hjá Herjólfi, svo þetta er mjög spennandi. Mér finnst mikilvægt að fólk sem vinnur svona erfið og mikilvæg störf fái líka tækifæri til að hugsa betur um eigin heilsu. Oft eru þetta einstaklingar sem hugsa meira um að sinna vinnunni og öðrum en sjálfum sér.
Ég vona innilega að sem flestir Eyjamenn, sérstaklega sjómenn, nýti sér svona þjónustu á næstu árum. Ég held að með meiri vitund og forvörnum getum við haft mjög jákvæð áhrif á bæði líðan og heilsu fólks til lengri tíma. Við hjá Lifeline Health og Veru Lífsgæðasetri ætlum bráðlega að bjóða öllum sem vilja hér í Vestmannaeyjum að koma í heilsufræðslu til okkar þar sem það getur fengið fyrirlestra, heilsufarsskoðun og fleira, svo ég er spenntur fyrir því - en fólk getur alltaf sent á mig línu victor@lifelinehealth.is ef það hefur einhverjar spurningar.“
Af hverju telurðu Vestmannaeyjar sérstakan stað fyrir svona verkefni?
„Ég trúi því í alvörunni að Vestmannaeyjar geti orðið eins konar Heilsueyja og samfélag sem önnur samfélög geta litið til. Hér er sterkt samfélag, mikil samheldni og fólk hefur mikla

orku til að skapa og gera hlutina vel.
Það sem mér finnst svo sérstakt við Vestmannaeyjar er hvað fólk hér styður hvort annað mikið. Það skapar ákveðinn grunn fyrir verkefni sem tengjast heilsu og vellíðan, því þegar samfélagið tekur þátt saman verða áhrifin miklu stærri. Ef samfélag verður meira meðvitað um eigin heilsu held ég að áhrifin geti orðið gríðarlega jákvæð - ekki bara fyrir einstaklingana sjálfa heldur líka fyrir fjölskyldurnar, vinnustaðina og heilbrigðiskerfið.
Betri forvarnir og aukin heilsuvitund geta til dæmis minnkað álag á heilbrigðisþjónustu til lengri tíma og hjálpað fólki að lifa betra og orkumeira lífi. Þannig að áhrifin eru í raun miklu stærri en margir gera sér grein fyrir.
Mig dreymir um að Vestmannaeyjar verði samfélag sem er þekkt fyrir heilbrigði, samheldni og lífsgæði - samfélag þar sem fólk hugsar vel um sig og hvert annað.“
Þú hefur líka komið að verkefninu Lifepass Iceland. Hvað er það og hvernig tengist það Lifeline Health?
„Lifepass Iceland snýst um að gera fólki auðveldara fyrir að hreyfa sig og prófa mismunandi heilsu- og vellíðunarþjónustu á einum stað. Verkefnið tengist mjög vel Lifeline Health, þar sem Lifeline leggur meiri áherslu á heilsufarsskoðanir og forvarnir, en Lifepass hjálpar fólki svo að koma sér af stað í hreyfingu og vellíðan í daglegu lífi.
Hugmyndin er að lækka þröskuldinn og gera fólki auðveldara að finna eitthvað sem hentar því. Það vilja ekki allir fara í ræktina eða æfa á sama hátt og þess vegna finnst okkur mikilvægt að fólk geti prófað mismunandi leiðir að betri heilsu.
Hér í Eyjum höfum við meðal annars hafið samstarf við Metabolic, Prentasmiðjuna, Golfklúbb Vestmannaeyja og World Class, þar sem fyrirtæki geta boðið starfsfólki punkta til að prófa mismunandi þjónustu. Markmiðið er einfaldlega að hjálpa fólki að hreyfa sig meira, líða betur og finna jafnvægi í daglegu lífi.“
Þú ert líka þekktur fyrir tónlistina. Hvernig byrjaði það og hvernig tengist það öllum þessum heilsuverkefnum?
„Tónlistin hefur í raun fylgt mér mestallt lífið. Ég byrjaði að spila á píanó þegar ég var um tíu ára gamall og fór þá í Tónlistarskóla Kópavogs. Pabbi hafði sjálfur verið í píanónámi þar, þannig að tónlistin var alltaf ákveðinn hluti af uppeldinu hjá okkur. Ég æfði mikið í gegnum árin og kláraði svo burtfararpróf í klassískum píanóleik þegar ég var tvítugur.

Victor Guðmundsson og Vignir barnalæknir hjá Lifeline Health hittu Höllu Tómasdóttur forseta Íslands og eiginmann hennar Björn Skúlason í Vestmannaeyjum fyrr á árinu og kynntu verkefnið fyrir þeim.
Victor (Doctor Victor) kemur fram á stóra sviðinu á laugardeginum á Þjóðhátíð
Í kjölfarið fór ég að leika mér meira með syntha og elektróníska tónlist. Ég held að grunnurinn minn í klassískum píanóleik hafi hjálpað mér mikið þar, því ég byrja oftast ennþá að semja lögin mín á píanó áður en þau þróast yfir í stærri elektrónískar útsetningar. Mér finnst mjög gaman að blanda saman melodíum, tilfinningum og orkumikilli elektrónískri tónlist. Ég fór svo að gefa út tónlist sem Doctor Victor og spila meira þegar ég var á öðru ári í læknisfræði. Þetta byrjaði fyrst bara sem ástríða með skólanum en vatt svo smám saman upp á sig. Síðan kom lagið Sumargleðin árið 2019 sem sprakk út og opnaði fullt af dyrum fyrir mig. Eftir það hef ég fengið tækifæri til að vinna og gefa út tónlist með mörgum frábærum listamönnum eins og Páli Óskari, Daníel Ágústi og Rúrik.
Fyrir mér tengjast tónlist og heilsa mjög sterkt. Tónlist hefur alltaf verið ákveðin útrás og leið fyrir mig til að tjá mig, tengjast fólki og skapa jákvæða orku. Ég upplifi hana oft næstum eins og ákveðna lækningu. Hún getur haft ótrúleg áhrif á andlega heilsu og komið manni á allt annan stað í huganum. Við vitum líka í dag að tónlist getur haft áhrif á boðefni heilans, tilfinningar og streitustig. Þannig að mér finnst mjög áhugavert hvernig þessir tveir heimar - læknisfræðin og tónlistintengjast í raun meira en margir halda.
Vestmannaeyjar eiga líka mjög stóran stað í hjarta mínu þegar kemur að tónlistinni. Ég byrjaði að koma hingað á Þjóðhátíð fyrir um tíu árum síðan og hef mætt á hverju ári síðan, auk þess að spila mikið hér síðustu ár. Þessi Þjóðhátíð verður þó mjög sérstök fyrir mig, þar sem ég hef búið hér í Eyjum frá síðustu hátíð árið 2025 og fengið tækifæri til að kynnast Eyjunni og öllu þessu frábæra fólki mun betur.
Í ár verð ég líka með mitt eigið sett á stóra sviðinu á laugardeginum frá byrjun til enda, sem verður algjör draumur að upplifa og ég er mjög þakklátur fyrir það, en það er ekkert sem kemst í líkingu við að spila á stóra sviðinu á Þjóðhátíð. Ég hef einmitt verið að vinna mikið í nýrri tónlist hér í Eyjum síðustu mánuði og er mjög spenntur fyrir því að sýna fólki það sem ég hef verið að skapa. Ég ætla að gefa heimamönnum og gestum alvöru veislu með blöndu af nýrri óútgefinni tónlist, eldra efni og mögulega nokkrum góðum gestum á sviðinu líka. Það verður klárlega mjög sérstök tilfinning að standa á sviðinu hér í Eyjum eftir að hafa búið hér síðasta árið.“
Þú og fjölskyldan hafið búið hér síðasta árið. Hvernig hefur það verið?
„Við fjölskyldan fluttum hingað fyrir um ári síðan og við elskum Vestmannaeyjar. Við eigum

þrjá litla stráka - Frosta sem er fjögurra ára og tvíburana Mána og Storm sem eru tveggja áraog okkur hefur liðið ótrúlega vel hér.
Við erum sérstaklega ánægð með leikskólann Kirkjugerði, þar sem strákarnir okkar eru, og samfélagið allt í kringum okkur. Það sem hefur kannski komið okkur mest á óvart er hvað lífið hér er rólegra og einfaldara á góðan hátt. Hér virðist tíminn ganga aðeins hægar, fólk hefur meiri tíma fyrir hvert annað og maður sparar ótrúlega mikinn tíma í daglegu lífi miðað við það sem maður átti að venjast. Það hefur verið mjög dýrmætt fyrir okkur sem fjölskyldu og gefið okkur meiri tíma saman.
Það er líka eitthvað alveg sérstakt við náttúruna hér í Eyjum. Hvort sem maður er að keyra um Eyjuna, ganga úti eða horfa út á sjóinn þá finnur maður ákveðna ró og kraft sem er erfitt að lýsa með orðum. Maður nær einhvern veginn betur að anda hér og vera meira í núinu.
Við höfum líka fundið fyrir mikilli hlýju frá samfélaginu og fólk hefur tekið mjög vel á móti okkur. Vestmannaeyjar eru ótrúlega dýrmætt samfélag og við munum alltaf eiga sterkar rætur hér þótt við þurfum mögulega að fara aftur upp á land á einhverjum tímapunkti. Maður veit aldrei alveg hvað framtíðin ber í skauti sér, en Eyjarnar og fólkið hér munu alltaf eiga mjög sérstakan stað í hjartanu okkar.“
Victor á burtfararprófstónleikum sínum við Tónlistarskóla Kópavogs, 2011.
BALDUR ÞÓR ÞORVALDSSON:
ÞÓRÐUR H. GÍSLASON
BERNSKA, LÍFSREYNSLA OG LÍFSVIÐHORF. MJÖG LAUSLEG SAMANTEKT FJARSKYLDS ÆTTINGJA
Það sem einkenndi mannlíf í landinu og markaði til skamms tíma var ekki hvað síst hin tíðu sjóslys við strendur landsins. Þau orsökuðust af hinu óstöðuga veðurfari og erfiðu aðstæðum og vanbúnaði á svo mörgu sem að sjósókninni laut. Þetta var svo á árabátaöldinni svokölluðu en hélt
áfram lengi eftir að vélbátar komu til sögunnar því oft var sjórinn sóttur af miklu kappi. Þrátt fyrir slysfarir sem oft urðu brást þjóðfélagið ekki við þeim því samhjálpin var lítil sem engin og þær fjölskyldur sem lentu í að missa fyrirvinnuna voru á vonarvöl. Þær voru oft leystar upp sem kallað var þ. e. börnin send á önnur heimili. Allt byggðist á einstökum býlum (í sveitinni) eða heimilum sem sjálfstæðum einingum sem skyldu reka sig sjálfar að öllu leyti. Ekki gat farið hjá að það setti fjölskyldurnar í uppnám þegar fyrirvinnan þ. e. fjölskyldufaðirinn féll frá hvað varðaði afkomu og tilfinningalega.
Í bæjarfélagi eins og Vestmannaeyjum, þar sem ég ólst upp (fæddur 1951), þekkti fólk yfirleitt til annarra bæjarbúa og voru sumir meir áberandi en aðrir. Allir sem höfðu sérstakt hlutverk voru flestum kunnir. Svo var með Þórð Gíslason vegna starfa hans að félagsmálum. Ég heyrði og sá hann stundum sem var reyndar oftast kynntur sem meðhjálpari við Landakirkju. Hann var talinn vandaður maður. Ég hafði kynni af honum sem forstöðumanni fyrir KFUM-fundum sem við strákarnir sóttum. Það fór ekki fram hjá mér að hann væri trúaður sem kallað var. Þar kemur vafalaust til uppeldið um aldamótin 19-hundruð en á þeim tíma var trúnni haldið stíft að fólki og svo hefur einnig lífsreynsla hans haft sín áhrif. Þar sem erfið lífsbarátta og hættur sækja á leitar fólkið í trúna sér til trausts og halds og var mikið um slíkt í Eyjum líkt og var í sjávarbyggðunum við suðurströndina og sagt er oft um Færeyinga þar sem hættur hafsins umlykja lífið. Ég man eftir honum kominn um sextugt, sem taldist þá roskinn, og farinn að grána nokkuð fyrir hærum. Hann var vel á sig kominn og hvatlegur en yfirvegaður. Ég minnist þess einu sinni á KFUMfundi sem Þórður sá um að hann las upp frásögn af því þegar vélbáturinn Sigríður frá Eyjum hafði hrakist upp í Ofanleitishamar og brotnaði en áhöfnin komist undan sjónum á syllu í bjarginu. Þaðan komst hún ekki fyrr en einum þeirra tókst að klífa bjargið til að láta vita, sem varð síðan allri áhöfninni til bjargar þar sem enginn vissi hvar þeir voru niðurkomnir, því þetta var fyrir tíma loftskeyta í bátaflotanum svo ekki sé minnst á

Þórður Halldór Gíslason. Mynd fengin af heimaslod.is
gsm-síma sem tíðkast í vasa hvers mannsbarns nú. Ég minnist að Þórði fannst mikið til um björgunina og forsjóninni var þakkað að mennirnir skyldu bjargast úr háskanum. Ég hafði lengstum ekki vitneskju af skyldleika við hann sem var eins og flestir Eyjamenn aðfluttur. Ættarslóðir hans voru þær sömu og mínar að hluta þ. e. frá Stokkseyri eða Eyrarbakka í Árnessýslu og mun því um svolítinn skyldleika að ræða þegar betur er að gáð. Hann var fæddur í Sjávargötu á Eyrarbakka árið 1898 en hafði ungur ráðist til Eyja til starfa og settist síðar þar að. Þannig var þá um mikinn fjölda ungs fólks af Suðurlandi þar á meðal tvo bræður hans einnig.
Þegar stjáklað er umhverfis kirkjuna á Stokkseyri er þar að sjá margan legsteininn.
Einn er þar skáhallt frá kirkjuhorninu til suðvesturs og fer lítið fyrir og letur farið að mást. Þar má samt enn þá lesa Ingvar Karelsson ásamt fæðingardegi og dánarári og að auki Diðrika Jónsdóttir sömuleiðis með fæðingar- og dánarári. Þar er um að ræða hjón sem gefur að skilja en samt vekur athygli að á dánarárunum munar 52 árum hvað Ingvar hefur fallið fyrr frá. Í ungdæmi mínu í Vestmannaeyjum minnist ég þess að amma mín sem var frá Stokkseyri nefndi einhverju sinni þetta nafn Ingvar kenndan við Hvíld og hver urðu ævilok hans. Ekki kveikti
það miklar tilfinningar hjá mér þá en varð til þess að ég fékk síðar áhuga á að kynna mér málið frekar.
Það var í aprílbyrjun árið 1908 á árabátaöldinni að bátar (áraskip) sóttu á sjó frá Stokkseyri. Ströndin þar er opin fyrir hafi með skerjagarði

Áraskip sem tíðkaðist við sjósóknina fyrir tíma vélbáta. Mynd úr bókinni Saga Hraunshverfis eftir Guðna Jónsson sem segir frá byggðinni milli þorpanna á Stokkseyri og Eyrarbakka.
og svo með þröngum sundum milli skerja sem varð að þræða til að ná landi. Ef veður og sjór versnaði var ekki hættulaust að fara þar um. Þótt lagt væri í slíka sjóferð við þokkalegar aðstæður gat reynst illfært eða ófært að komast til baka til landtöku því veður og sjór geta spillst skjótt. Þá varð að leita neyðarhafnar í Þorlákshöfn sem kostaði mikinn barning. En allar þær ákvarðanir sem taka varð á slíkum stundum voru erfiðar og gátu orðið afdrifaríkar. Svo var í þetta sinn að einn formannanna ákvað að leggja á sundið í tvísýnu og reyna að komast inn en reyndist ofætlan því báturinn (þ. e. skipið sem kallað var) fórst og allir í áhöfn drukknuðu utan eins sem náði að bjarga.
Frásögn af þessum atburði er að finna í sögu Stokkseyrar eftir Guðna Jónsson bls. 278: 1908. Hinn 2. apríl fórst skip á Stokkseyrarsundi með 8 mönnum, en einum var bjargað. Formaður var Ingvar Karelsson í Hvíld. Þar drukknuðu þessir menn: Ingvar Karelsson formaður, 42 ára, kvæntur; Gísli Karelsson húsmaður í Sjávargötu í Hraunshverfi, 39 ára og átti börn; Guðjón Guðbrandsson bóndi á Neistastöðun í Flóa, 35 ára; Gunnar Gunnarsson bóndi í Gíslakoti í Holtum, 49 ára; Helgi Jónsson frá Súluholtshjáleigu, kvæntur húsmaður á Stokkseyri, 28 ára; Jón Gamalíelsson bóndi í Votmúla í Flóa, 23 ára; Jón Tómasson bóndasonur frá Efri-Gegnishólum, 18 ára, og Tryggvi Eiríksson vinnumaður á Stokkseyri, 18 ára. Að morgni slysdagsins var almennt róið á Stokkseyri, en meðan menn voru á sjónum, hvessti snögglega og gerði stórbrim. Mörg af skipunum náðu þó heimalendingu, en hin er seinna voru fyrir, lögðu að Stokkseyrarsundi og lágu þar um hríð til laga nema Ingvar. Haft hann þann sið að liggja aldrei við sund, og hafði það
ekki komið að sök til þessa. Hélt hann einn formanna inn sundið, en þar tók hann brotsjór, og fórst skipið. Meðal þeirra er voru á sjó, var Jón Sturlaugsson, og þegar hann kom að sundinu, lágu þar mörg skip, en skip Ingvars var farið. Voru tveir menn eftir á skipi hans innan um brimið, en þar sem sjóirnir veltu því ýmist á hvolf eða upp í loft, losnaði annar maðurinn við það eftir stundarkorn. Lagði Jón þá inn sundið, og heppnaðist honum að ná þessum eina manni lifandi og þremur líkum hinna drukknuðu manna. Maðurinn sem Jón bjargaði, var Brynjólfur Magnússon frá Bár í Flóa. Eftir þetta lögðu öll skipin, sem á sjó voru, 7 að tölu, þar á meðal Jón einnig, frá sundinu og hleyptu til Þorlákshafnar og lenti þar vel. Til marks um það, hve illt var í sjóinn þennan dag, skal þess getið, að skipi barst á á Loftsstaðasandi og drukknuðu af því 4 menn, en skip þaðan úr verstöðinni náðu landi í Þorlákshöfn.
Meðal þeirra sem fórust var Gísli Karelsson, sem nefndur er í frásögn Guðna, faðir Þórðar sem fyrr er sagt frá, en Gísli var háseti og formaðurinn var Ingvar bróðir hans. Það er athyglisvert að ekki er að sjá að nú finnist gögn um þennan atburð í skjalasöfnum. Þetta var slys og ekkert gert með það svona opinberlega eftirá og þeir sem eftir stóðu urðu að takast á við lífið sem framundan var. Þess er að geta að 2 árum áður hafði þriðji bróðirinn Þorvarður að nafni verið háseti á skútunni Sophie Wheatley sem fórst í miklu óveðri við Mýrar 7. apríl 1906 ásamt annari skútu Emilie. Þá fórst einnig skútan Ingvar við Viðey sem oft hefur verið vitnað til og alls drukknuðu 70 manns þennan eina dag. Það var átakanlegur atburður sem lengi var í minnum sérstaklega þegar skútan Ingvar átti í hlut. Það var vegna þess að það gerist svo nærri Reykjavík en búnaður til björgunar enginn tiltækur og máttu menn í landi horfa á skipverja tínast úr reiðanum í sjóinn. Þannig höfðu allir bræðurnir Karelssynir drukknað, faðir og báðir föðurbræður Þórðar.

Mynd tekin úr bókinni Brimaldan stríða eftir Steinar J. Lúðvíksson.
Þess má geta að í Árbók FÍ um byggðina í
Flóanum segir að á árunum 1823 til 1927 þ. e. á liðlega einni öld segir að farist hafi um 200 manns við sjósóknina á svæðinu milli Þjórsár og Ölfusár, sem er aðeins lítill hluti landsins alls sem kunnugt er.
Föðurmissir Þórðar varð til að hann krakkinn varð að fara til vandalausra sem kallað var og vinna fyrir sér. Það hefur verið sárt að þurfa að yfirgefa fjölskyldu sína við þessar aðstæður.
Hann fór síðan til Vestmannaeyja 1916 þá 18 ára. Aðstæður þar voru líkar því sem var í bernskubyggð hans á Eyrarbakka þar sem afkoman réðst af sjósókninni. Mikill uppgangur var í Eyjum eftir að mótorbátaöldin hófst en þar voru hættur engu að síður til staðar við sjósóknina. Tveir bræður Þórðar fluttust einnig til Eyja, annar þeirra Matthías sem var formaður í Eyjum og á vetrarvertíðinni 1930 fórst hann með áhöfn sinni í óveðri við Bjarnarey.
Í bókinni Eyjar gegnum aldirnar eftir Guðlaug
Gíslason segir í sérstökum þætti um sjóslys við Eyjar fyrir árið 1931 (skal vera 1930) eftirfarandi: M.b. Ari ferst með allri áhöfn 5 mönnum. Þann 24. janúar réru flestir bátar frá Vestmannaeyjum í sæmilegu veðri. Þegar á daginn leið gerði austan hvassviðri með miklum sjó. Náðu þó allir bátar landi nema m.b. Ari. Talið var að hann hafi fengið á sig brotsjó í álnum suður af Bjarnarey og farist þar.
Formaður á Ara var Matthías Gíslason, mikill athafnamaður og sjósóknari.
Þórður starfaði lengstum sem netagerðarmaður í Eyjum. Börn hans settust þar að alla vega til að byrja með. Svo seint sem árið 2022 birtist athyglisvert viðtal í Fréttablaðinu við dótturdóttur Þórðar. Þar kemur fram að hin slæma lífsreynsla hans af hættum sem fylgdi lífinu í sjávarplássum var ekki horfin úr huga hans þótt afkoman væri góð og efnaleg hagsæld. Það er eins og á efri árum sæki á minningarnar úr bernskunni.


Mótorbátur utan við innsiglinguna í Vestmannaeyjum. Kletturinn Faxi séður að baki og til hægri sést Klifið svokallað. Þessi bátur er svipaðrar gerðar og m.b. Ari sem getur um í frásögninni hér síðar. Mynd af Netinu.
Í Fréttablaðinu laugardaginn 2. júlí segir Júlía Guðný Hreinsdóttir frá æskuárum (fædd 1964): Mamma var á báðum áttum enda nýbúin að byggja hús í Vestmannaeyjum en afi (þ. e. Þórður Gíslason) hvatti okkur til að flytja (sennilega er árið 1968). Faðir hans hafði drukknað og langamma var þá ein eftir með sex börn og þurfti að setja afa minn í fóstur sex ára (skal vera 9 ára) gamlan þar sem hann upplifði þrældóm. Hann vildi ekki að við værum í slíkri hættu og hvatti því foreldra mína til að selja húsið og flytja í bæinn (þ. e. Reykjavíkur). Mamma hágrét og ég man eftir að hafa sagt við hana huggandi: „Þegar við verðum stærri geturðu farið aftur til Vestmannaeyja. Svo þegar kom að því vildi hún þó vera áfram.“ (þ. e. í Reykjavík)
Þórður varð að yfirgefa Eyjarnar í eldgosinu 1973. Þá starfaði hann um hríð í höfuðborginni en fluttist síðar til Eyja aftur og dvaldist þar seinustu æviárin og náði háum aldri (lést 1993) og bar þar beinin að loknum löngum starfsdegi á farsælli ævi en ekki sársaukalausri.
Ritað í maí 2024, Baldur Þór Þorvaldsson.

Áletrun á minnisvarðanum: MINNISVARÐI UM DRUKKNAÐA SJÓMENN FRÁSTOKKSEYRI. Mynd höfundar.
Mynd tekin við kirkjuna á Stokkseyri með minnisvarðanum. Mynd höfundar.
Hágæða
og iðnaðinn í yfir 50 ár




HNÍFALOKAR · RENNILOKAR · SPJALDLOKAR · KEILULOKAR · SÍÐULOKAR BOTNLOKAR ·
Metnaður og þjónusta í þína þágu


Ísfell óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með sjómannadaginn

MIKILVÆG VERSTÖÐ Í ALDANNA RÁS

Um miðjan maí heimsótti ég Vestmannaeyjar í tilefni vígslu á fyrri hluta verks Ólafs Elíassonar, Sjónarhorni flakkarans. Verkið er reist sem minnisvarði um endalok eldgossins í Heimaey sem hófst 23. janúar 1973 og lauk 3. júlí sama ár.
Eyjamenn þekkja sögu gossins auðvitað vel en það gera kannski ekki allir Íslendingar. Það þekkja ekki allir sögu Flakkarans og hversu mikið afrek heimamenn unnu með því að stoppa hann af með hinni sögufrægu hraunkælingu. Þar með var lífæð Heimaeyjar bjargað – sjálfri innsiglingunni í höfnina – en innsiglingin var ekki síður mikilvæg þjóðarbúinu þar sem Vestmannaeyjar voru á þessum tíma stærsta verstöð landsins sem skapaði 12% útflutningstekna. Í dag eru Eyjar enn mikilvægur hlekkur í íslenskum sjávarútvegi þar sem höfnin er ein sú kvótahæsta á landinu. Sjómennskan er því Eyjamönnum í blóð borin.
Á sjómannadeginum þökkum við sjómönnum og fjölskyldum þeirra fyrir þær miklu fórnir sem
þeir hafa fært í gegnum aldirnar, minnumst þeirra sem hafa farist í sjóslysum og fögnum þeim miklu framförum sem orðið hafa í öryggismálum á sjó. Við munum líka eftir því að enn þá þurfa sjómenn oft að vera lengi í burtu frá heimilum sínum og fjölskyldum í krefjandi aðstæðum. Þessum fórnum megum við ekki gleyma.
Sjómennskan er samofin sögu okkar og menningu, hún er lykilþáttur í verðmætasköpun sjávarútvegsins auk þess sem íslenskir sjómenn gegna mikilvægu hlutverki þegar kemur að því að framfylgja stefnu stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins. Íslenskur sjávarútvegur er öflug atvinnugrein sem stendur á traustum grunni. Öllum er ljóst mikilvægi hans fyrir íslenskan efnahag, fyrir utan þá staðreynd að hann er lífæð margra byggðarlaga um land allt. Hitt er síðan að kerfið sem við höfum byggt upp í kringum nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar er fyrirmynd fyrir aðrar þjóðir í sjávarútvegi. Án sjómannanna okkar væri sjávarútvegurinn ekki á þeim stað. Við Íslendingar eigum þannig að vera stolt af því að vera stórþjóð í sjávarútvegi. Við eigum líka að vera stolt af því að íslenskur sjávarútvegur er í fremstu röð þegar kemur að nýsköpun og framþróun. Þetta endurspeglast vel í fyrirtækjum á borð við Marel og Kerecis sem hafa borið hróður íslensks sjávarútvegs og íslensks hugvits um allan heim.
Sem atvinnuvegaráðherra mun ég halda áfram að skapa skilyrði fyrir nýsköpun, þróun og framfarir í íslenskum sjávarútvegi. Ég mun einnig halda áfram að leitast við að skapa sátt um greinina og halda á lofti mikilvægi hafrannsókna og vísinda til að tryggja sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins. Sjómennskan verður áfram samofin sögu okkar og menningu – og sjávarútvegurinn verður áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Nú, líkt og áður, er það sameiginlegt verkefni okkar allra að tryggja velferð greinarinnar.
Kæru sjómenn, innilega til hamingju með daginn og takk fyrir ykkar ómetanlega framlag í aldanna rás!
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra og þingmaður Viðreisnar

Sjómannadagurinn 2026
Til hamingju með daginn
SJÓMENN
VM félag vélstjóra- og málmtæknimanna óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra
til hamingju með daginn

