Skip to main content

The Puffin Run 7. maí 2022

Page 1

7. maí 2022


bæjarstjórinn Íris Róbertsdóttir

VELKOMIN TIL EYJA! Ágæti hlaupagestur Við hjá Vestmanneyjabæ, eins og Eyjamenn allir, erum stolt og ánægð af þessu framtaki Eyjaskokks. The Puffin Run hefur stækkað frá ári til árs og var einn af fáum viðburðum sem hægt var að halda í gegnum allt Covid ástandið. Hlaupið er nú haldið í 4 sinn. Eyjamenn eru þekktir fyrir að taka vel á móti gestum og það er alltaf sérstök upplifun að koma til Eyja, nánast eins og að fara til útlanda, þegar farið er um borð í Herjólf og siglt til eyja. Eyjaskokk leggur alltaf mikinn metnað í hlaupið sem er einstakt náttúruhlaup með stórbrotinni hlaupaleið. Með samstilltu átaki allra þeirra sem koma beint eða óbeint að hlaupinu og hefur þetta gengið ótrúlega vel hingað til. Margir bæjarbúar eru virkir þátttakendur í hlaupinu annað hvort með því að aðstoða eða hlaupa sjálfir.

Vestmannaeyjar hafa upp á margt að bjóða fyrir hlaupara og ég efast ekki um að þú, sem og aðrir gestir, eigið góðar stundir framundan á okkar fallegu eyju. Hafðu í huga að þetta er upplifun og þetta er ævintýri sem vert er að njóta. Góða skemmtun! Íris Róbersdóttir Bæjarstjóri

Útgefandi: Leturstofan Vestmannaeyjum ehf. Ábyrgðarmaður: Katrín Laufey Rúnarsdóttir Umbrot og hönnun: Sæþór Vídó Forsíðumyndina tók Jói Listó af Þorsteinn Roy Jóhannsson sigurvegara The Puffin Run 2022


Velkomin í útivistarparadísina Vestmannaeyjar


reynsluboltinn

Sigurjón Ernir Sturluson

ALLTAF JAFN SPENNTUR

Sigurjón Ernir Sturluson eigandi Ultraform hefur tekið þátt í The Puffin Run nokkrum sinnum. Við heyrðum hljóðið í Sigurjóni og fengum smá ráð frá honum hvernig best sé að tækla hlaupið að hans mati. „Nú er ég að fara í Puffin Run í þriðja skiptið og er jafn spenntur og fyrsta skiptið sem ég fór. Skemmtilegasti og jafnframt erfiðasti parturinn er síðasti hluti leiðarinnar en þar hlaupa keppendur í gegnum 1 km af hækkun og lækkun í hrauni, sandi og ösku eftir 18 km af krefjandi hlaupi. Erfiðustu kaflarnir í hlaupinu utan lokakafla í hrauninu að mínu mati eru: • km 7-9,5 = Hlaupið í fjörunni og upp stórhöfða. • km 11-13 = Hlaupið krefjandi brekku á þessum kafla upp að flugvellinum. • km 16-17 = Þá hlaupum við í krefjandi undirlagi hjá Eldfelli. Til að ná sem bestum árangri í hlaupinu legg ég til að byrja ekki of hratt, passa sig á að klára sig ekki á þessum köflum í hlaupinu og huga vel að drykk og næringu gegnum hlaupið.“


ENNEMM / SÍA / NM-002897

ENNEMM / SÍA / NM-002897

Þjónusta alla leið á sjó og landi

á móti þér

Við tökum vel á móti þér

ti þér með bros á Við vör hjá N1 tökum , hvort á móti þér með bros á vör, hvort ér í gang í morgunsárið, sem þú ert að koma þér vantar í gang í morgunsárið, vantar ert á leið út á sjó. síðdegishressingu Merkið eða ert á leið út á sjó. Merkið naðarfulla þjónustu okkar stendur fyrir fyrir metnaðarfulla þig þjónustu fyrir þig ALLA ALLA LEIÐ við erum með þér og alla farartækiðleið, þitt og við erum með þér LEIÐ alla leið, á sjó og landi. N1 Friðarhöfn 481 1127

ALLA LEIÐ ALLA LEIÐ


hlauparinn Magnea jóhannsdóttir

SKEMMTILEGT EN KREFJANDI Magnea Jóhannsdóttir er 25 ára Eyjamær, hún hefur hlaupið um eyjuna síðan hún man eftir sér. Hún hljóp í fyrra á tímanum 2:01 sem er mjög flottur tími. Hún var fyrsta Eyjakonan í mark í fyrra og það verður gaman að fylgjast með henni í ár. Við fengum hana til að segja okkur hver hennar upplifun á hlaupinu væri. Hvernig upplifir þú hlaupið? Mjög skemmtilegt en að sama skapi krefjandi hlaup. Hvaða kafli er mest krefjandi? Að mínu mati er kaflinn frá Klaufinni upp á Stórhöfða mest krefjandi nú þegar búið

er að breyta leiðinni. En svo er síðasti kaflinn í hrauninu alltaf erfiður og krefst mikillar athygli. Hvað geri ég til að undirbúa mig sem best fyrir hlaupið? Fínt að taka góð brekkuhlaup 1-2 í viku og löng róleg utanvegarhlaup. Taka svo vikuna fyrir hlaupið rólega. Eitt gott ráð fyrir þá sem hafa ekki hlaupið áður: Passa að fara ekki of hratt af stað í byrjun til þess að eiga nóg eftir á tanknum eftir Stórhöfðann.


TASTE SUPER DAIRY

SÆKTU ÞÉR

PRÓTEIN BOOZT

Velkomin til Vestmannaeyja! Í tilefni Puffin Run 2022 býður Ísey Skyr Bar Vestmannaeyjum upp á frábær tilboð.

• 15% afsláttur fyrir hlaupara gegn framvísun hlaupanúmers • 2 fyrir 1 af skotum • Fjölskyldutilboð


Á bakvið tjöldin

VIÐ HLAUPIÐ STARFA 140 MANNS The Puffin Run hringurinn er 20 km langur. Hlaupið er á fjölbreyttu undirlagi og er útsýnið á leiðinni stórbrotið. Til að tryggja að allir rati rétta leið er búið að merkja leiðina með stikum merktum appelsínugulu. Þá munu 120 brautarverðir

sjá til þess að beina keppendum rétta leið. Við erum þakklát þeim fjölda sem er tilbúin að leggja okkur lið á keppnisdeginum sem og við undirbúning. Góður andi hefur ríkt hjá keppendum og starfsfólki hefur það gert hlaupið skemmtilegt.


GANGI YKKUR SEM ALLRA BEST

Eigendur og starfsfólk Vinnslustöðvarinnar óskar þátttakendum í The Puffin Run góðs gengis.


„Unless you’re a

pizza

the answer is yes, I can live without you” - Bill Murray

Sjáumst á

Heiðavegi 5 s. 481 1567

OPIÐ

Mán-fim 17-21 Fös og lau 12-22 Sun 12-21

Borðapantanir í síma 481-1567


WC

WC

WC

?

Földi hlaupinna km Drykkjastöðvar. Boðið er uppá vatn og Poweraid

WC WC

Klósett


the puffin run

ALLT SEM ÞÚ ÞARFT AÐ VITA 1 Herjólfsafgreiðsla. 2 Munavarsla og upplýsingar eru

1

hjá Rib-Safari. Keppendur fá merkispjöld og skulu merkja farangur sinn með sömu tölu og hlaupanúmeri.

3 Stjórnstöð. Afhending gagna. 4 Inngangur fyrir keppendur.

2

WC

3

5 Rásmark/Endamark verður

á bryggjunni við FES. Svæði þar í kring er lokað og má engin fara inn á svæðið án leyfis.

Hlauparar mæti við inngang 4 15 mín fyrir rástíma. 150 hlauparar eru í hverjum ráshóp. Rástímar: Kl. 12:15 Keppendur nr. 1-150 Kl. 12:20 Keppendur nr. 151-300 Kl. 12:25 Keppendur nr. 301-450 Kl. 12:30 Kepp nr. 2001-Tvímenning #1 /nr. 4001-Boðhlaup #1 ( í rásmarki ) 5 Kl. 12:35 Keppendur nr. 451-600 Kl. 12:40 Keppendur nr. 601-750 Kl. 12:45 Keppendur nr. 751-999 Kl. 12:45 Kepp nr. 4001-Boðhlaup #2 ( á Hamrinum ) 5 Kl. 13:15 Kepp nr. 2001-Tvímenning #2 /nr. 4001-Boðhlaup #3 ( á Stórhöfða ) 10 Kl. 13:45 Kepp nr. 4001-Boðhlaup #4 ( við Eldfell ) 15 Verðlaunaafhending verður kl. 15:30 við stjórnstöð 3 Keppendum bíðst að nota sturtuaðstöðu í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja til kl. 18.00 á hlaupadegi án endurgjalds. Sýna þarf keppnis númer í afgreiðslu.

5 4


Tónleikar með BREK í Eldheimum

VELKOMIN Í ELDHEIMA

Miðaverð 3.500 kr.

Margverðlaunað safn minningana um eldgos í Surtsey og Heimaey.

laugardaginn 7. maí kl. 20.00 Tilboð fyrir þáttakendur the Puffin Run er 2.900 kr.

Opið alla daga frá kl. 13. – 17

(+354) 488 2700 | Gerðisbraut 10 | 900 Vestmannaeyjar eldheimar@vestmannaeyjar.is | www.eldheimar.is


// vestmannaeyjahlaup.is // Skráning hefst í júní


heimamaðurinn Friðrik Benediktsson

UPPLIFI ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT „Ég verð aldrei leiður á að fara þessa leið og nota hana mikið í mínum æfingum, bæði heilan hring og styttri leiðir úr henni, og alltaf sé ég eða upplifi eitthvað nýtt í hverju hlaup. T.d. í fyrra þá fór ég hringinn tvisvar sinnum en hvorugur hringurinn var eins, alltaf eitthvað nýtt poppar upp. Ég veit ekki hvað ég hef hlaupið þessar leiðir oft en þeir eru orðnir mjög margir kílómetrarnir sem ég hef eytt á þessari leið og alltaf heillar hún mann með einhverju nýju. Í ár erum við enn að ná að fækka malbikuðu köflunum á leiðinni sem mér finnst frábært og fagna því mjög. Núna er ný leið upp á Stórhöfða sem er mjög skemmtileg en á sama tíma mun meira krefjandi og með frábæru útsýni. Það mun vera brjáluð stemning strax frá upphafi og allt að endamarkinu. Mest krefjandi: Mér finnst fjaran erfiðasti kaflinn á leiðinni, hún tekur úr manni allan vind ef maður passar sig ekki, og það á sérstaklega við núna þar sem vil lengdum fjöru kaflann og förum upp á Stórhöfða á öðrum stað. Þá borgar sig að vera aðeins á bremsunni þar. Eins kemur smá brekka upp að Kinn þegar um 11,5-12 km eru búnir af leiðinni. Ekki brattasta brekkan en ótrúlega lúmsk 1,5 km brekka sem sem getur tekið í ef maður reynir of mikið. Skemmtilegast: Mér finnst Stórhöfðinn alltaf skemmtilegur og finnst fátt skemmtilegra en að láta mig flakka á niðurleiðinni. Eins er hraunið í lokin algjörlega stórbrotin leið en á sama tíma erfið á fótinn og mjög tæknileg.

Ráð fyrir byrjendur: Hringurinn er með um 640 m hækkun þannig að leiðin er krefjandi en á sama tíma algjörlega einstök. Fyrstu 5 km eru nokkuð þægilegir 3,5 km á malbiki í byrjun sem hægt er að rúlla bara nokkuð þægilega en samt ekki fara of hratt á stað. 5-10 km kaflinn. Þá er leiðin talsvert upp og niður á sumstaðar tæknilegum stígum sem borgar sig að horfa vel fram fyrir sig. Fjaran kemur eftir um 7,5 km og þá borgar sig eins og ég sagði áðan að vera aðeins á bremsunni og upp Stórhöfðan þar sem 10 km drykkjarstöðin er. 10-15 km kaflinn Þá er þessi brekka sem ég nefndi áðan upp að Kinn sem er lúmsk og mjög langdreginn en samt vel hlaupanleg. 15-20 km kaflinn. Þar kemur skemmtilegur kafli á bakvið Eldfellið sem er hressandi kafli sem getur rifið í, þá sérstaklega ef það er þurrt. Þá getur vikurinn í hrauninu verið laus og þá er hætta á að byrja að spóla sem eyðir óþarfa orku. Þegar um 17,5 km er búnir þá kemur hraunið fyrir alvöru mögnuð leið en ekki hættulaus og borgar sig fyrir reynslu minna fólk að horfa vel fram fyrir sig og passa hvar það stígur niður. Síðasti 1,2 km hlutinn er þegar maður kemur niður í fjöruna þá er bara um að gera að fara all inn og enda hlaupið með stæl, smá fjara til að byrja með og svo malbik að mestu í mark.“


R I Ð R E STUÐF Í

YJUM

NNAE VESTMA

ANLEG ÓGLEYM UN! UPPLIF

Pantaðu þér ferð á ribsafari.is info@ribsafari.is | Sími: 661-1810


HAPPY HOUR

á milli 19 og 21

DAGUR & FANNAR

hefja trúbbsnilld upp úr kl. 21.00

og á miðnætti tekur

DJ HJALTI ENOK við með geggjuðum lögum.

ÞAÐ VERÐUR PUFFIN KÁTT Í HÖLLINNI!

Sparaðu orkuna í hlaupið

hoppaðu á milli staða

www.thenewpostoffice.is

www.westmanislandsluxury.is


Upplifðu

stórbrotna náttúru á einstakan hátt

Komdu með í 1 klst fjórhjólaferð um eldfjallasvæðið í Vestmannaeyjum og upplifðu einstakt útsýni sem Vestmannaeyjar og umhverfi hennar hefur uppá að bjóða.

reynslu á þau. Öll fjórhjólin eru 2ja manna og þarf ökumaður að hafa meðferðis gilt ökuskirteini, farþegar aftaná fjórhjólunum þurfa að vera 6 ára eða eldri.

Tilvalin ferð fyrir alla fjölskylduna um söguslóðir Vestmannaeyja á skemmtilegum fjórhjólum. Fjórhjólin eru sjálfskipt og auðveld í akstri og þarf því enga sérstaka

Þessi ferð er undir stjórn leiðsögumanns þar sem gestum stendur til boða að fá vatnsheldan galla, hanska og hjálm.

20% afsláttur fyrir þátttakendur í The Puffin Run Bókaðu með afsláttarkóðanum = thepuffinrun2022

www.volcanoatv.is


Velkomin til Vestmannaeyja

3-4JÚN

2-3JÚL

- paradís hlauparans!

27ÁGÚ

SKEMMTILEGASTA MÓTARÖÐ LANDSINS

ALLAR UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Á VÍKINGAMÓT.IS

HAGI ehf.

3SEPT


VELKOMIN TIL

VESTMANNAEYJA

SKEMMTIFERÐ

DJAMMFERÐIN

GISTINÁTTAFERÐ

Skemmtiferðin er ein af vinsælustu ferðunum okkar og er fullkomin fyrir allar gerðir af hópum; vinahópa, saumaklúbba, vinnustaði, starfsmannaferðir o.s.frv.

Nú er tækifæri til að skoða Vestmannaeyjar í þessari flottu djammferð og gera eins og á Þjóðhátíð – byrja snemma og taka daginn með trompi.

Í gistináttaferðinni sérsníðum við ferðina að þínum óskum og gerum eitthvað ótrúlega skemmtilegt saman eins og eyjamönnum er svo tamt.

www.vikingferdir.is

BÓKAÐU FERÐ Í SÍMA 488 4800


the puffin run

SKILMÁLAR FYRIR ÞÁTTTAKENDUR • Ég er í nægilega góðu ástandi bæði líkamlega og andlega til að taka þátt í og ljúka The Puffin Run. • Ég staðfesti að ég hef áttað mig á erfiðleikastigi hlaupsins sem liggur hringin í kringum Vestmannaeyjar þar sem er misjafnt undirlag og á köflum bratt niður í sjó. • Ég skil að hlutverk framkvæmdaaðila og starfsmanna hlaupsins felst ekki í að „bjarga“ þátttakendum sem ekki eru nægjanlega vel undirbúnir m.t.t. hlaupaþjálfunar, næringu eða hvort þá vanti viðeigandi útbúnað. Öryggi hvers hlaupara er á hans eigin ábyrgð og hann þarf að hafa færni til að takast á við óvæntar aðstæður. • Ég hef lesið og skilið reglur The Puffin Run og samþykki þær. • Ég samþykki að fara eftir þeim leiðbeiningum sem starfsmenn hlaupsins leggja til og þigg þá aðstoð sem þeir álíta að þurfi vegna öryggis míns og annarra. • Sem þátttakandi í The Puffin Run afsala ég mér öllum rétti til skaðabóta frá skipuleggjendum The Puffin Run, starfsmönnum og öðrum samstarfsaðilum hlaupsins, vegna meiðsla, veikinda, slyss, eða annarra ófyrirsjáanlegra atvika sem ég gæti orðið fyrir í The Puffin Run.

Viðurlög Þátttakendur sem ekki fara eftir reglum hlaupsins eiga á hættu að verða skráðir úr hlaupinu. Þeir sem ekki fara eftir settum fyrirmælum verða ábyrgir fyrir þeim kostnaði sem til fellur við leit og/eða umönnun björgunarsveita og annarra starfsmanna. Réttur skipuleggjenda The Puffin Run Skipuleggjendur eru ekki ábyrgir fyrir utanaðkomandi áhrifum á hlaupara. Það á við um veður, náttúruhamfarir, umferð fólks og farartækja eða annað óvænt sem getur haft áhrif á þátttakendur. Skipuleggjendur geta afskráð og stöðvað þátttakanda sem ekki er í fatnaði eða hefur yfir að ráða nauðsynlegum búnaði sem hæfir aðstæðum. Skipuleggjendur geta afskráð og vísað úr hlaupinu hverjum þeim sem skapar hættu fyrir sjálfan sig og/eða aðra eða fer ekki eftir reglum hlaupsins. Skipuleggjendur eru ekki ábyrgir fyrir veikindum eða slysum þátttakenda, til og frá mótsstað og meðan á hlaupi stendur. Þátttakendur eru hvattir til að leita aðstoðar starfsmanna hlaupsins ef slys eða veikindi koma upp. Þátttakendur eru alltaf á eigin ábyrgð þrátt fyrir að þeir þiggi aðstoð starfsmanna hlaupsins. Skipuleggjendur áskilja sér rétt til að aflýsa hlaupinu með stuttum fyrirvara vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra ástæðna sem geta skapað hættu fyrir þátttakendur.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook