Skip to main content

Tígull 15.tbl 03 árg.

Page 1

15. tbl. 03. árg. 12. - 19. maí 2021

OPIÐ ALLA DAGA Sunnudaga - fimmtudaga 11:30 - 21:00 Föstudaga & laugardaga 11:30 - 22:00

BORÐAPANTANIR Á WWW.GOTT.IS


LEIKFÉLAG VESTMANNAEYJA TEKUR VIÐ REKSTRI EYJABÍÓ

Nú á næstu dögum mun Leikfélag Vestmannaeyja taka við rekstri Eyjabíó. Tígull tók létt spjall við hann Snorra sem er rekstrarstjóri. Nafn: Snorri Rúnarsson Aldur: 18 ára Hvað gerir þú í leikhúsinu: Ég er varaformaður, tæknimaður og kem til með að hafa yfirumsjón með bíóinu. Hvað er framundan? Það er ýmislegt framundan, leikfélagið er að taka við rekstri EyjaBíós og einnig eru framkvæmdir í gangi í búningaaðstöðu félagsin. Síðan erum við farin að huga að sýningu í haust. Það eru góðar fréttir að LV ætli að taka við rekstri Eyjabíó,

TÍGULL

Hvernig sjáið þið þetta fyrir ykkur? Þetta verður með nokkuð svipuðu formi og þetta hefur verið, allar nýjustu myndirnar verða sýndar og síðan erum við alltaf opin fyrir áskorunum/ óskum. Hvað reiknið þið með mörgum sýningum í mánuði? Við reiknum með að jafnaði 7 sýningum um hverja helgi en það fer allt eftir myndaúrvali og aðsókn. Hvaða bíómynd verður fyrsta myndin í sýningu? Það er góð spurning, það eru margar nýjar spennandi myndir væntanlegar. Verðið þið með einhverjar breytingar? Nei, eða sára litlar, en erum opin fyrir öllum hugmyndum!

Það eru sæti fyrir 109 manns en það verða að sjálfsögðu einhverjar takmarkanir að minnsta kosti til að byrja með útaf sóttvarnarlögum og reglum. Hvenær verður fyrsta sýningin? Við stefnum á að byrja fyrstu helgina í júní með fyrirvara um að allt gangi vel fyrir sig Eitthvað sem þið viljið koma á framfæri? Endilega komið í bíó og ef einhverjir hafa áhuga á að koma í leikhúsið, hvort sem það er vinna baksviðs í búningum, förðun og hári, sviðsvinnu eða tæknivinnu eða á sviði eru allir velkomnir og við tökum vel á móti öllum sem vilja taka þátt í starfinu.

Hvað rúmar bíósalurinn marga?

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumyndina á Tói Vídó.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


KIRKJUGERÐI - BÖRNIN SMÍÐA KOFA þetta hálfgerða ævintýradeild” segir Unnur Dóra. Við erum mjög mikið úti og dugleg að fara í göngur. Löbbum oft þarna í hraunið og í einni gönguferðinni kom sú hugmynd að það gæti verið geggjað gaman að smíða kofa með krökkunum. Þannig við stelpurnar á deildinni ákváðum að græja það og með hjálp karlana okkar fengum við bretti og skrúfur og hjálp við að koma þessu upp í hraun. Tígull kíkti við á Kirkjugerði í vikunni sem leið því við heyrðum af því að elstu börnin væru í smá framkvæmdum. Unnur Dóra Tryggvadóttir deildarstjóri á Kirkjugerði sagði okkur frá því að nú eru 20 börn á Stafsnesvík öll fædd árið 2016 og því alveg að fara yfir á Víkina eða fimm ára deildina. “Það var þannig að þessi börn voru á sitthvorri deildinni þangað til núna eftir páskana þá breyttum við aðeins á Kirkjugerði og öll börn fædd 2016 færðust yfir á Stafsnesvík, en þar sem þetta er stuttur tími (eru öll að fara á víkina eftir sumarfrí) sem þau eru á þessari deild þá hjá mèr þá langaði okkur að hafa þetta spennandi og skemmtilegt og ákváðum að hafa

Salmina hannaði hvernig væri best að raða þessu upp og á mánudaginn fórum við öll deildin í vinnufötum í göngu upp í hraun með borvélar, skrúfur, sög og allt sem vantaði og létum á þetta reyna hvort þetta myndi ganga hjá okkur og þetta gekk vonum framar og á stuttum tíma var risinn þessi flotti kofi. Svo næst var að mála kofann. Nokkur af börnum mættu með málningu að heima og svo erum við svo heppinn að Tóta í Húsasmiðjunni (hún er mamma eins drengs á deildinni) mjög góð við okkur og gaf okkur málningu og nokkrar spýtur sem vantaði upp á. Börnin voru svo næstu 2 daga að mála kofann.

Þeim finnst þetta virkilega gaman og eru öll svo spennt að koma í leikskólann og drífa sig í kofann. Þau eru svo búin að vera dugleg að tína upp rusl og gera fínt í kringum kofann og eru búin að safna fullt af eldivið til að kveikja eld og grilla pylsur sem er planið að gera núna mjög fljótlega og svo eru þau mjög spennt að bjóða foreldrum sínum í kaffi í kofann. Það er svo dásamlegt að sjá hvað börnin eru ofboðslega stolt af kofanum sínum sem þau eru sjálf búin að byggja og mála að maður bráðnar alveg og það eru bara algjör forréttindi að fá að vera með öllum þessum snillingum alla daga. Svo var kosning um nafn á kofann. Það var löng kosning sem endaði í tveimur valkostum: Krakkakot eða Regnbogaland og nafnið sem vann er Regnbogaland.


PUFFIN RUN

Birkir Hlynsson

Friðrik Benediktsson

Alls tóku rúmlega átta hundruð manns þátt í Puffin Run á laugardaginn, en það var aldrei að sjá að þessi fjöldi væri á staðnum. Skipulagið var upp á 110 og allir fylgdu þeim reglum sem settar voru. Við erum greinilega öll búin að læra vel að vera þolinmóð og standa í röðum með gott bil á milli. Brautarverðir hafa fengið mikið hrós fyrir hvatninguna og gleðina sem þau smituðu út til hlaupara. Það var hörku barátta um fyrsta sætið í 20 km karla en þar voru sex öflugir

Víðir Þorvarðarson

keppendur, þeir Sigurjón Ernir sem sigraði í fyrra, Þorsteinn Roy, Ingvar Hjartarson, Snorri Björnsson sem var annar í fyrra, Kristján Svanur, Benoit og eyjapeyinn Hannes Jóhannsson en hann er Eyja Meistarinn 2021.

var 1:24 en Þorsteinn kom í mark á tímanum 1:22 og Sigurjón 16 sek á eftir. En Þorsteinn ræsti í byrjun 10 sek á eftir Sigurjóni þannig að í endasprettinum voru eingöngu 6 sek á milli þeirra.

Það var svo hann Þorsteinn Roy sem rétt marði sigurinn en það var lokaspretturinn fram hjá Stafkirkjunni sem réði úrslitum. Þar náði Þorsteinn Roy meistaranum frá því í fyrra Sigurjóni Erni og um leið slógu þeir brautarmetið frá því í hitt í fyrra sem

Í Kvennaflokki í 20 km kom Rannveig Oddsdóttir fyrst í mark á tímanum 1:34 sem er einnig nýtt brautarmet (bætingum um 10 mín) og strax á eftir henni var Verena Schnurbus 46 sek á eftir Rannveigu.

Guðrún Marý Ólafsdóttir

Bjarni Ólafur Guðmundsson


Hannes Jóhannsson Vestmannaeyjameistari Puffin Run 2021

Garðar Heiðar Eyjólfsson

Elfar Franz Birgisson

Carlos Guani

Tungumálafólk óskast til vinnu sem túlkar Alþjóðasetur leitar að fólki í Vestmannaeyjum til starfa sem túlkar.

Rúnar Gauti Gunnarsson

Góð kunnátta á móðurmáli og íslensku er skilyrði, auk góðrar færni í mannlegum samskiptum, stundvísi, háttvísi og trúnaður. Starfið er unnið í verktöku og ráðast laun af fjölda verkefna. Vinnutími er frjáls og sniðinn að óskum hvers og eins. Boðið er upp á gjaldfrjálst starfsþjálfunarnámskeið áður en störf hefjast. Umsókn ásamt ferilskrá sendist á asetur@asetur.is

Hildur Sólveig Sigurðardóttir


Við eigum 1 árs afmæli um helgina!

20% afsláttur

af öllum vörum föstudag & laugardag! www.heimadecor.is heimadecor


ER KOMINN TÍMI TIL AÐ MÁLA?

STEINVARI

Útimálning fyrir íslenskt veðurfar Steinvari er öflug varnarlína gegn íslensku veðri, afrakstur þrotlausra rannsókna og þróunar í áratugi. Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við val á útimálningu.

Opið: 08:00 - 18:00 virka daga og 10:00 - 14:00 laugardaga

Steinvari – íslensk varnarlína í útimálningu – Í MEISTARA HÖNDUM

- það segir sig sjálft -


UM ÓTÓTUMUM NJÓT NJNJ ARNGARAR NG NIEM NINING EM ST STSTEM JAJA EYJA EYEY I!YMI! I! YM YM RERE ST ÍASTAÍ RE Í ST A IM HEIM HEHEIM

Ð A T S A M A S Á , A Á SAMA TÍM Ð Ð Ð A A A T T T S S S A A A M M M A A A S S S Á Á Á , , , A A A M M M Í Í Í T T T 5 SÁSAN SAMAMIAMAAFRÁ HÖRPU 1 . MAÍ ÁÁN I

Í BETRNEYNNMNINIOIGIFMFRFYRNÁRDÁLÁYHKHLHÖARÖÖRSRÍMRPPAUPNUUS1O15G15V.5O.DM.AMFMOANAÍAEÍÍ ÍÍÍBBBETSRETIERETYIREMIEYYMIMOI IGOOGMGMYMNYDYNNLDYDLKYLLYKAKLRALARSRÍMSSÍMAÍMNAASNNSOSGOOGVGOVDVOOADFDAOAFNOFOENNEE S SS

· SIGGA BEINTEINS T AT M TI AT M · Ð U G R U SSON · INGÓ VEÐ ERGMANN KYNNIR LOGI B AR N SO FS S S S LA IN IN IN FRIÐRIK DÓR · JÓN JÓN Ó TE TE TE S BAEIABNEIBEINN A GG STJÓRN M SI· SIGG T UN·ÐDIR EIGU MRUSV TIMATATTIJÓTIATMNTMAT·ATTSIT·GG JÓUÐ AT HLÐVE M M · · STÓR Ð Ð ÁSAMTGÓ GU GU R R L U R Ð JA VE VE ER GÓ GÓ D NANNN IN IN IN AN · · · ANGMAN ON ·KDALÓR ER NSS NSSONON BERGM RADRIKÓR JÓ JÓNSS GILOLOGIBER GIBGM N· JÓ NNJÓ JÓ· JÓ NIR NIRNIR KYNAR KYNLO KYN ÓR AR AR D·EX ON ON ON KATRÍN HFRALIÐFRLDFR RIIÐÓKIÐRI SS SS SS AF AF AF ÓL ÓL ÓL S S S NJÓNLAN Á HARPA.IS JÓÓRNSJÓ ÓRN STJSTJ DIR UNÓRN EIUNTDIR EIUNTSTJDIR MEISV MT SV JÓSVJÓ HLMHL ÓR A STHLÓR STJÓ MTÁSAST MTÓR MT A ÁSARL ÁSA IÐ RL RL M JA JA JA G ER ER ER O D D D R AN AN AN A EX EX EX G AL AR UPPLÝSIN ·AALA· AAL· LL A ÓR ÓR LDLDÓR ALHLDALHAL TRTRÍNHÍN KATR KAKAÍN HAHRHAPRAARP.IAPSA.I.ISS

AÁLAÁÁ IÐMIÐAIÐSAASALASALA M M G G G O O O R R R A A A G G G IN IN IN S S S LÝ LÝ LÝ P P P P P U U U R R R ALLALLALLAA


Íbúðir fyrir fatlað fólk lausar til umsóknar Vestmannaeyjabær auglýsir lausar til umsóknar 2 íbúðir fyrir fatlað fólk. Íbúðirnar eru á Strandvegi 26. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ. Umsóknarfrestur er til og með 21.05.2021. Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Þar er farið inn á umsóknir og valið umsókn um félagslegt leiguhúsnæði almennt. Inni á eyðublaðinu er valið leiguhúsnæði fyrir fatlað fólk. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á Rauðagerði, gengið inn sunnanmegin og skal þá fylgigögnum einnig skilað þangað. Nauðsynlegt er að staðfesta eldri umsóknir. Allar nánari upplýsingar veitir Björg Ólöf Bragadóttir, í síma 488-2000 eða á netfanginu bjorg@vestmannaeyjar.is.

Vestmannaeyjabær auglýsir sumarstörf fyrir námsmenn Auglýst er eftir starfsfólki, 18 ára (á árinu) eða eldri, til sérstakra sumarstarfa. Um er að ræða störf sem eru sérstaklega ætluð námsmönnum. Námsmenn þurfa að vera skráðir í nám að hausti 2021 eða verið skráðir í nám á vorönn 2021. Umsóknarfrestur er til og með 18. maí nk.

Um er að ræða störf undir sérstöku átaki stjórnvalda undir heitinu „Sókn fyrir námsmenn“, um fjölgun tímabundinna starfa fyrir námsmenn í sumar, en forsenda fyrir þátttöku ríkisins er að Vestmannaeyjabær skapi ný störf fyrir námsmenn, en ekki hefðbundin sumarstörf eða afleysingar. Leitað er að jákvæðum, duglegum og samviskusömum einstaklingum. Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni að sækja um laus störf.

Almennar upplýsingar veitir Erna Georgsdóttir hjá Vestmannaeyjabæ í síma 488 2000 eða í tölvupósti: ernag@vestmannaeyjar.is. Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar. Einstaklingar sem ekki hafa rafræn skilríki geta fengið leiðbeiningar í þjónustuveri í síma 488 2000. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin. Nánar má lesa um störfin inná www.vestmannaeyjar.is


Á SAMA TÍMA – Á SAMA STAÐ - BEINT FRÁ HÖRPU LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 15.MAÍ

Undanfarið ár hefur verið afar óvenjulegt og reynst okkur öllum krefjandi en sem betur fer höfum við flest náð að komast þokkalega frá því. Nú með hækkandi sól, sjáum við fram á betri tíð. Eyjatónleikar hafa farið fram í janúar ár hvert í Eldborgarsal Hörpu Þetta árið þurftum við hinsvegar að fresta þeim til 15.maí, en nú er einnig orðið ljóst að ekki verður hægt að halda þá fyrir fullum sal af fólki. Við höfum því ákveðið að fara með þá í beint streymi í Sjónvarpi Símans, sjónvarpi Vodafone og fyrir alla aðra sem ekki eru með myndlykla. Við gefum þannig landsmönnum öllum tækifæri á að njóta með okkur, bæði Eyjalaganna, en ekki síður annarra

vinsælla frá okkar frábæru flytjendum. Við erum sem sagt að tala um mörg af vinsælustu lögum landsins undanfarin ár. Úrval Eyjalaga og úrval laga frá listafólkinu sjálfu Þarna verða fluttar margar perlur íslenskrar dægurtónlistar af hreint frábærum listamönnum. Jón Jónsson, Friðrik Dór, Ingó Veðurguð, Sigga Beinteins, Matti Matt, Katrín Halldóra og Alexander Jarl munu sjá um sönginn ásamt Kristjáni Gísla og Ölmu Rut og Jón Ólafsson stýrir stórhljómsveitinni sem sér um undirleikarinn. Kynnir verður enginn annar en Logi Bergmann.

Tannlæknar 19. - 21. maí Hjalti Þórðarson

Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40

Tímapantanir í síma 481-2772

Við hvetjum alla til að kaupa sér miða í tíma og virkja kóðann strax, til þess að allt sé klárt. Um leið og kóðinn er virkjaður, opnast rásin og helst opin 48 tíma fram yfir tónleikana. Þannig að það er engin hætta á að rásin lokist þó þið virkjið hana snemma. Álagið fyrir tónleika getur orðið mjög mikið því stundum þarf að aðstoða viðskiptavini og þá getur orðið löng bið í þjónustu. Þannig að til að forðast óþarfa stress á tónleikadag er mjög skynsamlegt að kaupa miða í tíma. Með kærleiks- og sumarkveðju, Bjarni Ólafur og Guðrún Mary Allar frekar upplýsingar veitir Bjarni Ólafur í síma 896 6818


Ný tillaga að deiliskipulagi fyrir athafnasvæði AT-3 við flugvöll í Vestmannaeyjum Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 15. apríl 2021 að auglýsa deiliskipulags– tillögu fyrir athafnasvæði AT-3 við flugvöll skv. 1 mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag sem gerir ráð fyrir 17 lóðum fyrir létta atvinnu- og athafnastarfsemi. Skipulagsgögn eru til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði á Skildingavegi 5, frá og með 1. maí 2021 til og með 12. júní 2021 og má einnig finna í skipulagsgátt inná www.vestmannaeyjar.is

Ábendingar og athugasemdir við tillöguna berist eigi síðar en 12.júní 2021

AFSLÁTTARDAGAR

HJÁ GEISLA

IITTALA 20% RA

500

KRÓNUR

T

20%

AFSLÁTTUR MÁ VA VALIN S

HANGANDI

ÚR & SKAR

LJÓS 50%

AFSLÁTTU

R

50Á%TTUR

AFSL

AFSLÁTTUR

BITS

MYNDARAMMAR

AFSLÁTTUR

40%

20%

RA ÝMIS VA

AFSLÁTTUR

HILMISGÖTU 4 | 481 3333


HÓPUR INNAN FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS MÆTTU 50 SAMAN Í PUFFIN RUN FÍ Fjallahlaup er hópur innan Ferðafélags Íslands og hefur að markmiði að koma þátttakendum í gott fjallahlaupaform. Æfingar hafa staðið síðan í byrjun Október 2020 og hefur verið áskorun að halda úti æfingum á Covid tímum. Hópurinn hefur m.a. verið í fjarþjálfun að hluta vegna Covid, fengið að takast á við allskonar áskoranir til að halda sér við efnið og mætt sterk í fyrsta keppnishlaupið sitt núna um helgina í Vestmannaeyjum. Dæmi um fjölbreytt æfingaplön er ganga á Snæfellsjökul, Úlfarsfellið fyrir vinnu alla fimmtudaga, 24 tíma boðhlaup í desember ofl. ofl :) Hópurinn er fullur tilhlökkunar að mæta í The Puffin Run enda er leiðin rómuð fyrir að vera ein allra fallegasta hlaupaleið í heimi. Hlaupahópurinn var í skýjunum með keppnina og ætla sér að koma aftur að ári með stærri hóp.


Verkefnastjóri í öldrunarþjónustu Vestmannaeyjabær auglýsir eftir verkefnastjóra í öldrunarþjónustu hjá fjölskyldu- og fræðslusviði. Um er að ræða 60% stöðu. Starfið er á sviði öldrunarþjónustu. Tilgangur og markmið starfsins er þróun, samhæfing, eftirlit og sérhæðfing í málaflokki öldrunarmála í samráði við framkvæmdastjóra sviðs og í samræmi við stefnumótun sveitarfélagsins, leiðarljós og markmið fjölskyldu- og fræðslusviðs. Áhersla er lögð á sérhæfingu varðandi málaflokk aldraðs fólks og öldrunarþjónustu. Helstu verkefni verkefnastjóra: • Hafa umsjón með og/eða taka þátt í þróunar- og stefnumótunarverkefnum innan málaflokks öldrunarþjónustu. • Innleiða, endurskoða og kynna reglur/verklagsreglur í málaflokki öldrunarmála. • Stjórnun og samræming vinnu í öldrunarþjónustu skv. nánari samkomulagi við yfirmann sviðs. • Stjórnun og umsjón með þarfagreiningu í öldrunarþjónustu fjölskyldu- og fræðslusviðs • Ráðgjöf, stuðningur og miðlun upplýsinga til þjónustuþega, stjórnenda og starfsmanna sviðsins. • Kynning og fræðsla í málaflokki öldrunarmála. • Önnur verkefni innan málaflokks öldrunarmála sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni. Menntun og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði félags-, mennta- og/eða heilbrigðismála • Reynsla af starfi innan málaflokksins • Áhugi og þekking á öldrunarþjónustu • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi • Góð samskipta- og skipulagshæfni • Fjölbreytt tölvukunnátta • Gott val á íslensku og færni í ræðu og riti • Hæfni í þverfaglegu samstarfi • Hreint sakavottorð í samræmi við lög. Viðkomandi Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum við Samband íslenskra sveitarfélaga. Upplýsingar um starfið veitir Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar. Netfang: jonp@vestmannaeyjar.is eða í síma 488 2000. Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2021 Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á netfangið jonp@vestmannaeyjar.is. Með umsókn þarf að fylgja ferilsskrá um fyrri störf og menntun ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020 og lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019.


VIÐ ERUM AÐ KOMA

VERÐUM HJÁ LINDU Í SMART VESTMANNABRAUT 30 FÖSTUDAGINN 14. MAÍ KLUKKAN 11:00-18:00 PANTIÐ TÍMA Í SÍMA 511-6699 EÐA 899-8801


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 15.tbl 03 árg. by Leturstofan - Issuu