Jólahugvekja
„Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu af því að eigi var rúm fyrir þau í gistihúsi.“ -Lúk 2:7 Líklegt þykir að við höfum öll upplifað einkennileg jól. Jól þar sem sumt eða allt var öðruvísi en venjulega. Ekki þarf margt að hafa brugðið út af svo jólin yrðu einkennileg. E.t.v. höfum við upplifað jól þar sem við vorum ekki á tilætluðum stað, kannski vorum við í vinnu eða kölluð til vinnu, kannski komumst við ekki í kirkjuna á aðfangadag, veðrið setti strik í reikninginn, matseldin fór úrskeiðis eða uppáhalds jólaskrautið okkar brotnaði. Jóla- og aðventuhefðirnar eru nefnilega slíkar að lítið má út af bera svo manni finnist jólin nánast fara í vaskinn. Hefðirnar geta bæði verið góðar og slæmar þrátt fyrir að þær séu yfirleitt til hins betra. En hefðir eru erfiðar þegar allt verður ömurlegt þegar ekki er hægt að framfylgja þeim.
Á mínu æskuheimili voru alltaf rjúpur í jólamat enda eru jólin eftirminnileg þegar við þurftum einhverra hluta vegna að hafa skoskar rjúpur. Í sjálfu sér voru þær náttúrulega ágætar en þær voru vissulega ekki samkvæmt hefð. Einhverju sinni fór rafmagnið í miðri eldamennsku og um leið heyrðist örvæntingarhróp mömmu úr eldhúsinu og í annað skipti vorum við pabbi og bræður mínir, frændur og aðrir kunningjar úti í búi á aðfangadag til að þýða vatn í leiðslum svo dýrin hefðu eitthvað að drekka. Allt voru þetta einkennileg jól en tóku þeim mun meira pláss í minningarbankanum. Það er alveg ljóst að jólin í ár verða að mörgu leyti öðruvísi en venjulega og ekki þarf að fjölyrða um hvers vegna. Hefðirnar, sérstaklega á aðventu, verða margar hverjar öðruvísi og ýmsar samkomur sem við höfum tekið sem sjálfsögðum verða öðruvísi og jafnvel ekki.
Þá er einnig mögulegt að við getum ekki verið með okkar nánustu yfir jólahátíðina. Hin fyrstu jól voru einkennileg. Aðstæður voru skrýtnar og framandi, ferðalög voru löng og eigi var rúm í gistihúsi. Jesús fæddist fjarri heimahögum sínum af fátækum foreldrum á framandi stað innan um búfénað og var lagður í jötu. Ekki beint kjöraðstæður það. Og svo reynum við eftir fremsta megni að hafa allt eins og best verður á kosið. Okkar jól árið 2020 verða einkennileg og um leið er það enn meiri skylda okkar í ár að minnast hinna fyrstu jóla með dýpri hætti. Og hver veit? Kannski munum við sjá að jólin koma þrátt fyrir allt og verða fullkomin í ófullkomleikanum. Jólin eru nefnilega ekki skraut, matur eða aðrar hefðir. Þau eru frelsarinn sem tekur á móti þér skilyrðislaust og lýsir þeim sem dvelja í landi náttmyrkranna. - Séra Viðar Stefánsson
Aðventublað fyrir Heimaey Útgefandi: Fyrir Heimaey bæjarmálafélag Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Rannveig Ísfjörð Umbrot: Leturstofan
Prentun: Prentun.is Ljósmyndir: Bjarni Sigurðsson, Jói Myndó
Gleðileg jól
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
Gleðileg jól
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
CMYK // 100 | 66 | 0 | 2
// 69 | 7 | 0 | 0
Pantone // 286 // 298
Gleðileg jól
Gleðileg jól Hönnun // Eyjasýn ehf / Sæþór Vídó / sathor@vido.is
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
Gleðileg jól
Gleðileg jól
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
PÓLEY
STAVEY
Þegar föðuramma mín og afi fluttu til Eyja upp úr aldamótunum 1900
Langafi minn Jón Erlendsson talinn hagleiksmaður mikill og smiður góður, aðallega rennismiður og í dag eru varðveittir rokkar sem Jón smíðaði á Byggðasafninu Skógum. Jón og kona hans Margrét bjuggu að Arngeirstöðum í Fljótshlíð. Yngstur barna þeirra var Kristján. Í sömu sveit að Ormskoti bjuggu Oddur Ívarsson og kona hans Valgerður Guðmundsdóttir. Áttu þau tvær dætur og sú yngri hét Elín, fædd 27.janúar 1889. Elín þótti kvenkostur hinn mesti og átti gott með að læra og reyndi að afla sér þeirra menntunar sem völ var á í sveitinni. Elín var talin vera einhver besti kvenkostur í sveitinni. Margir sveitungar gerðu hosur sínar grænar fyrir Elínu og þar á meðal Kristján frá Arngeirsstöðum. Kristján var sendur í verið þá 18 ára gamall. Margt bar fyrir augu á leiðinni í verið og stóru húsin í höfuðborginni áttu hug hans allan og ákvað hann að læra húsasmíði. Reyndi hann að komast að sem lærlingur í Reykjavík en það gekk ekki. Elín orðin gjafvaxta og sækir Kristján fast að henni og þau bindast tryggðarböndum. Nýtt tímabil að hefjast í atvinnulífinu og til sjávar var vélvæðing að ganga í garð. Sagnir um mikla og vel borgaða vinnu í sjávarþorpum landsins hafði áhrif á unga fólkið í sveitunum. Til að taka þátt í þessari uppbyggingu þá flutti ungafólkið úr sveitunum. Ein stærsta verstöð landsins Vestmannaeyjar lá fyrir fótum Fljótshlíðinga og Kristján og Elín ákveða að freista gæfunnar og
flytja til Vestmannaeyja. Kristján langaði fyrst og fremst að komast í smíðanám hér. Honum og Helga Jónssyni semst um að Kristján læri húsasmíði hjá Helga. Helgi var nýkomin úr námi frá Þýskalandi og virtur smiður hér í Eyjum. Elín ræðst í vist hjá Helga og þar með hófst nýtt líf þessa unga pars, þau leigðu í Hvammi sem stendur við Kirkjuveginn. Elín verður þess vör að hún er eigi kona einsömul og segir upp vistinni og flytur til síns heitt elskaða í Hvamm. Árið 1907 gifta þau sig og i febrúar eignast þau son sem fékk nafnið Óskar sem veitti þeim mikla gleði en aðeins níu mánuðum seinna hættir barnið að þrífast og deyr. Í apríl 1908 fæðist sonur og fær hann nafnið Óskar. Margt drífur á daga unga parsins Kristján vinnur við smíðar og tekur þátt í útgerðarævintýri sem hérna var á þessum tíma og eignast hlut í tveimur bátum. Kristján byggir hús langt upp í heiði þ.e. Vestmannabraut 56b húsinu gefur hann nafnið “Heiðarbrún” í dag á einn afkomandi Kristjáns og Elínar húsið Iðunn Lárusdóttir og hennar maður Óðinn Guðmundsson. Þegar hér er komið eru afkomendur þeirra orðnir 16 en 6 börn þeirra dóu í frumbernsku. Kristján kom sér upp verkstæði í kjallaranum á Heiðarbrún og í aukavinnu ásamt Jónatan Snorrasyni rennismið frá Breiðholti komu sér upp tækjum til að smíða vagnhjól. 1930 skellur á heimskreppa og Kristján ásamt mörgum sem í útgerð voru fóru á hausinn. Útgerðin og íbúðarhúsið Heiðarbrún töpuð, þegar allt var upp gert
stóð Kristján í skuld við bankann upp á kr: 6000, sem hann gat ekki borgað. Það er svo fyrir mikinn dugnað sem synir þeirra hjóna byggja hús á sinn kostnað sem þeir láta heita Breiðibólstaður. Sú saga var sögð að þegar vinkona þeirra hjóna, Rúna á Grundarbrekku kom í heimsókn og leit inn um dyrnar þá á hún að hafa sagt “Elín hvað ætlar þú að gera við alla þessa sali” húsið sjálft var 60 fermetrar. Þegar þau flytja þá er faðir minn, Lárus þá á öðru ári borinn frá Heiðarbrún í nýja húsið Breiðibólstaður, Heiðarvegi 27. Ólafur lærði húsateikningar í Reykjavík og átti eftir að hafa veruleg áhrif á byggingasögu Vestmannaeyja, vert væri að gera þeirri sögu betri skil síðar en þess má geta að Ólafur teiknaði minnisvarðann um Björgunarskipið Þór sem stendur nú inni í Botni. Þess má geta að margir lögðu þeim bræðrum lið og fóru margar stundir í að endurgreiða eða vinna skiptivinnu á móti. Húsið kostaði upp komið 12.800 kr. Margt mætti áfram telja og rifja upp en læt þessu lokið. Vil ég óska lesendum farsældar um jól og á komandi nýju ári. - Ólafur Lárusson Odda Vestmannabraut
Heimild: Eyjaskinna rit sögufélags Vestmannaeyja ”frásögn úr lífi alþýðufólks í Vestmannaeyjum” Gísli Kristjánsson
Gleðileg jól
Gleðileg jól
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
Gleðileg jól
Gleðileg jól
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
Gleðileg jól
Gleðileg jól
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
Jólaþrusk
Ég er alveg að sofna þegar ég heyri þrusk niður í stofu og augun á mér spennast upp, hvað ætli þetta sé? Ég á að vera löngu sofnuð en ég er bara svo spennt af því að á morgun er aðfangadagur og þá koma amma og afi, við borðum uppáhalds matinn minn og svo það skemmtilegasta, opnum pakkana. Mig grunar reyndar að pabbi sé að þvælast niðri því ég veit að hann fer stundum niður á nóttinni og fær sér smákökur og mjólk þegar hann heldur að við séum öll steinsofandi. Ég ætla að kíkja niður til hans og athuga hvort ég megi ekki fá eina köku. Mér bregður heldur betur í brún þegar ég kem niður stigann og sé ekki pabba heldur jólasvein í fullum skrúða sem stendur við jólatréð og gæðir sér á smákökunum sem ég skildi eftir handa honum. ,,Jólasveinn" hvísla ég en hann snýr sér við því hann heyrði greinilega í mér. ,,Nei sæl Salka" segir jólasveinninn og hlær ,,Hvað ert þú að gera vakandi um miðja nótt"? ,,Ég heiti Kertasníkir svona ef þú ert að velta því fyrir þér hver ég er" ,,Ég gat ekki sofið því ég er svo spennt og svo heyrði ég í einhverjum niðri sem ég hélt að væri pabbi en svo ert það bara þú"
svara ég hálf smeyk. ,,Fyrir hverju ertu mest spennt Salka litla" spyr Kertasníkir mig vingjarnlega ,,Komdu hérna til mín og spjöllum aðeins saman. Ég labba hikandi til Kertasníkis og saman setjumst við í mjúka sófann. ,,Ég er spenntust fyrir pökkunum" segi ég feimnislega ,,Ég er svo spennt að sjá hvort ég fái bílabrautina sem ég óskaði mér og bókina og litina og og og...." Kertasníkir grípur fram í fyrir mér og segir ,,Veistu það Salka litla að ég skil vel að þú sért spennt fyrir gjöfunum en það er bara alls ekki það helsta sem gerir jólin svo yndisleg" segir hann blíðlega ,,Jólin eru svo yndisleg því þeim eyðum við með þeim sem við elskum, borðum góðan mat, spilum, horfum á jólamyndir, lesum og njótum þess að vera saman" Ég horfi hissa á Kertasníki og skil ekki alveg hvað hann er að segja því auðvitað finnst mér þetta allt sem hann segir skemmtilegt en mér finnst samt pakkarnir skemmtilegastir. Kertasníkir heldur áfram ,,Salka litla, um allan heim er fullt af börnum sem eiga ekki gleðileg jól, börn sem fá engar gjafir, eiga ekki fjölskyldu og eiga jafnvel ekki stað að sofa á"
GLEÐILEG JÓL
,,Af hverju" spyr ég hissa og örlítið sorgmædd. ,,Vegna þess Salka litla, það eru ekki allir jafn heppnir og þú að eiga fjölskyldu, hlýtt rúm að sofa í, mat að borða og alla þessa pakka sem bíða þín á morgun" Ég er leið, ég hef aldrei hugsað um börnin sem eiga ekki mikið, ég hef alltaf bara hugsað um mig, mömmu, pabba, Hróar bróðir minn og ömmu og afa. ,,Veistu Kertasníkir að ég vildi óska að ég gæti gefið öllum börnum mat, heimili og fjölskyldu en ég veit að ég get það ekki" segi ég ,,ég er bara of lítil en það sem ég get gert er að vera þakklát fyrir það sem ég hef og munað að gefa með mér þegar ég get" ,,Það er svo sannarlega það sem þú getur gert Salka litla" svarar Kertasníkir glaðlega ,,Mundu bara Salka litla að njóta þess að vera með fjölskyldunni þinni, vertu góð við alla og mundu alltaf að jólin snúast um ást, kærleika og samveru með ástvinum, pakkarnir eru bara skemmtileg viðbót" Kertasníkir stendur á fætur, klappar mér á kollinn og kveður mig ,,Jæja nú þarf ég að halda áfram Salka litla, takk fyrir spjallið og kökurnar og gleðileg jól" segir hann glaðlega ,,Gleðileg jól og verði þér að góðu" svara ég ,,takk fyrir að segja mér frá því hvað jólin snúast um og hjálpa mér að muna hvað ég er heppin" Eins og fyrir töfra hverfur Kertasníkir og ég læðist uppí herbergið mitt, upp í rúm, undir sæng og sofna þakklát, hissa og með fiðrildi í maganum..... Ég hitti Kertasníki. Gleðileg jól - Lóa Baldvinsdóttir
Gleðileg jól
Gleðileg jól
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
Gleðileg jól
Gleðileg jól
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
& farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
Stjórn bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey óskar bæjarbúum gleðilegra jóla
Við sendum Vestmannaeyingum nær og fjær bestu óskir um
gleðileg Jól og farsælt komandi ár með þökk fyrir það liðna.