Fyrir Heimaey VESTMANNAEYJUM, DESEMBER 2021
Jólahugvekja Jólin geta bæði verið krefjandi og gefandi. Ég held að það sé góðst viti ef aðventan hefur ýmiskonar áhrif á okkur. Það er bara gott ef við skynjum flóru tilfinninga hellast yfir okkur, það þýðir einfaldlega það að við þurfum að ganga í okkur sjálf. Og af hverju er það gott? Jú vegna þess að megin tilgangur jólanna er að vita hver maður er og hvað maður hefur að gefa. Alveg eins og foreldri sem býr sig undir að taka við nýfæddu barni. Í hugum foreldra eru fæðingar barna þeirra það besta og merkilegasta sem þau hafa lifað. Samt er ekkert eins erfitt og að verða foreldri. Það er nefnilega svo heilbrigt að verða ferðakvíðinn þegar eitthvað stórbrotið er í nánd. Sennilega er því einlægasta trúarjátningin okkar sú að verða viðkvæm og trekkt í aðdraganda jóla. Nóttina eftir að Jesús fæddist, vaknaði
hinn nýbakaði faðir Jósep upp með andfælum því rödd engilsins sagði honum að hafa sig á brott með barni og konu og flýja til Egyptalands, undan Heródesi konungi sem hafði illt eitt í hyggju. Ég hugsa að ef einhverjar aðstæð-
ur ættu að kveikja kvíða þá væru þær þessar. Þó er ég sannfærður um að í næturkuldanum hafi hjarta Maríu verið að springa úr gleði þó svo margt hafi ógnað því sem henni var kærast. En það segir mér líka að það er hægt að vera hamingjusamur í ógninni. Það er uppgötvar fólk á hverjum einasta degi. Meira að segja á mestu sorgarstundum í lífi þess má heyra hlátur óma í ljósi minninganna, eins og mótleik gegn dauðanum. Og það hrífur. Og nú sameinumst við öll við jötuna á þeim forsendum sem hvert og eitt okkar hefur, til að þiggja einu og sömu gjöfina, þá gjöf sem Guð einn getur gefið, það er ást án skilyrða og líf án landamæra. Það er svo sannarlega himininn sjálfur sem er fólginn í augum barnsins. Gleðileg jól. - Guðmundur Örn Jónsson
Gleðileg jól
Aðventublað fyrir Heimaey Útgefandi: Fyrir Heimaey bæjarmálafélag Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Rannveig Ísfjörð Umbrot: Leturstofan
Prentun: Prentun.is Forsíðumynd: Guðmundur Gíslason
Gleðileg jól & farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
STAVEY CMYK // 100 | 66 | 0 | 2
// 69 | 7 | 0 | 0
Pantone // 286 // 298 Hönnun // Eyjasýn ehf / Sæþór Vídó / sathor@vido.is
Bifreiðaverkstæði Harðar & Matta
Jólin nálgast
Jólin nálgast nú enn á ný; þau önnur í röðinni undir áhrifum frá heimsfaraldrinum mikla. Við vonum auðvitað að þessi áhrif verði orðin lítil sem engin
þegar hátíðin gengur í garð að þessu sinni, en reynslan kennir okkur að fagna ekki of snemma. Ekki síst erum við Vestmannaeyingar reynslunni ríkari eftir að hafa þurft að blása af Þjóðhátíðina með viku fyrirvara í sumar. En við vonum alltaf það besta! Það er oft sem við finnum ekki fyrir mikilvægi einhvers fyrr en það er frá okkur tekið. Enginn veit sem sagt hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Hindranalaus og náin samskipti við vini og ættingja höfum við hingað til tekið sem gefin og sjálfsögð. Faraldurinn hefur kennt okkur að svo er ekki; og þá um leið kannski kennt okkur að meta betur hvað þessi mannlegu samskipti eru okkur óendanlega mikilvæg og stór hluti af lífsgæðum okkar. Það er einmitt ekki síst á stórhátíðum eins og jólum og áramótum sem við finnum hvað þessi nánd við ástvini er okkur dýrmæt.
Við skulum leyfa okkur að horfa vongóð fram á næsta ár þegar litið er til takmarkanna á mannlegum samskiptum vegna covid. Við getum líka glaðst yfir þeirri almennu jákvæðni og bjartsýni sem er ríkjandi í samfélaginu okkar hér í Eyjum. Þetta sjáum við raungerast út um allan bæ í fjárfestingum og uppbyggingu á vegum fyrirtækja og einstaklinga. Önnur birtingarmynd er ákaflega góð fjárhagsleg staða Vestmannaeyjabæjar og góðar framtíðarhorfur í þeim efnum. Göngum því jákvæð og bjartsýn til móts við nýtt ár! Ég óska Vestmannaeyingum öllum gleðilegra jóla og vona að nýtt ár verði okkur gæfuríkt og gott. - Íris Róbertsdóttir
Hvað segja börnin um jólin? Atli Teitur Rúnarsson (4 ára)
Hrannar Páll Örnuson (5 ára)
Afhverju höldum við jól? Já ég veit! Útaf því að það eru komin jól. Það er nefnilega byrjað að snjóa. Uppáhaldsjólamatur? Purusteik og brúna sósu með. Það er svo gaman að hjálpa mömmu að setja svona skrýtin lauf ofaní. Hvað er skemmtilegast á jólunum? Að fá gjafirnar og renna á sleða úti á Stakkó og skreyta jólatré. Uppáhaldsgjöfin? Snjósleði frá ömmu og afa útaf því að ég var bara svo glaður að fá svona snjósleða en núna vil ég fá risa stórt Star Wars vélmenni úr LEGO útaf því ég kann alveg að byggja svona erfitt.
Afhverju höldum við jólin? Útaf því þá fær maður pakka Uppáhalds jólamatur? Hvað er jólamatur?... Eplasalat Hvað er skemmtilegast á jólunum? Að fá pakka og líka opna dagatal Uppáhalds jólagjöf? Spil og púslið
Glæpur á aðventunni
Það er til siðs að rifja upp eitthvað hátíðlegt og fallegt – gott og græskulaust – ef maður er beðinn um að segja frá aðventu eða jólum æskunnar. Ég ætla þó ekki að gera það núna. Þvert á móti. Ég ætla að segja frá óknyttum á aðventu. Þar koma m.a. við sögu tveir vinir mínir sem báðir eru nýlega horfnir úr heimi – annar á þessu ári og hinn í fyrra. Bjössi í Klöpp og Eiríkur Hestur. Báðir þjóðsagnapersónur í lifenda lífi. Ég giska á að ég hafi verið 10 ára þegar þetta gerðist, Bjössi 13 og Eiríkur 15. Það var sem sagt talsverður aldursmunur á okkur því á þessum aldri er bæði 13 og 15 miklu meira en 10 - og kannski þess vegna ofmælt að segja að ég hafi verið orðinn vinur þeirra. En ég var skilyrðislaus aðdáandi þeirra og átti mér fáar óskir heitari en að verða eins og þeir; rammir að afli, óttalausir, uppátækjasamir og víluðu nákvæmlega ekkert fyrir sér.
Þetta var að kvöldi til um miðjan desember og ég sat á veggnum við Gamla spítalann og stundaði mannlífsrannsóknir. Kemur þá gamall vörubílsskrjóður hikstandi niður Kirkjuveginn og ég sé brátt að uppi á pallinum eru Eiríkur Hestur og Bjössi í Klöpp. Tveir félagar þeirra voru inni í bílnum og sá sem ók var líklega 14 ára. „Stopp!“ kallaði Bjössi, „leyfum Palla á Stöðinni að koma með“. Og það skipti engum togum – Eiríkur rétti út annan hramminn og kippti mér eins og fisi upp á pallinn. Mér hafði aldrei á ævinni hlotnast önnur eins upphefð! Þessir gaurar leyfðu mér sem sagt að koma með sér að stela í brennu á vörubíl sem þeir höfðu stolið fyrr um kvöldið. Enn í dag tárast ég af þakklæti fyrir þann heiður sem þessir eðaldrengir sýndu mér 10 ára gömlum. Og ég er ekki að grínast, ef einhver skyldi halda það. Síðan var haldið vítt og breitt um bæinn og stolið öllu steini léttara sem við töldum að gæti brunnið á Gamlárskvöld. Eitthvað fannst foringjunum ekki nóg að gert og þegar við ókum framhjá gömlum og hrörlegum beitingaskúr kallaði Bjössi: „Stopp! Tökum skúrinn!“ Og þeir röðuðu sér á skúrinn – Eiríkur á einni hliðinni og hinir þrír á hliðinni á móti. Þannig töldu þeir lyftikraftinum best skipt. Mér var skipað að vera á útkikki og garga ef löggan kæmi. Okkur brá hins vegar nokkuð við að það glitti í ljós undan skúrnum þegar hann byrjaði að lyftast. „Kíktu undir Palli“, kallaði Eiríkur. Ég gerði það og sagði sem var: „Það er kall inni í skúrnum!“ Í sömu svipan er hurðinni hrundið upp og út kemur snarbrjálaður gamall kall með hníf í hendi og jós yfir okkur formæling-
Stjórn bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey óskar bæjarbúum gleðilegra jóla
um og hótunum – og sagði að réttast væri að hann dræpi okkur alla þarna á staðnum. Þetta sló Bjössa auðvitað ekki út af laginu – hann gekk að kallinum sem mundaði hnífinn og sagði ekkert mjög kurteislega: „Haltu kjafti eða við látum þig fylgja með helvítis skúrnum á bálið“. En nú greip heljarmennið, góðmennið og friðarhöfðinginn Eiríkur í taumana og sagði: „Komiði peyjar. Við látum skúrinn vera og finnum bara eitthvað annað“. Og við fundum ýmislegt annað. Líka stóra olíutunnu – líklega 150 lítrar – sem Eiríkur tók einn og henti upp á pallinn. Og okkar brenna var flottust allra á Gamlárskvöld. Af beitingaskúrnum er hins vegar það að segja, að þegar ég átti leið þarna um nokkru síðar var búið að rífa skúrinn. Hann hefur líklega verið orðinn eitthvað laus á undirstöðunum. Enn síðar sá ég kallinn með hnífinn beita við miklu betri aðstæður en gátu hafa verið í gamla skúrnum. Ég hef talið mér trú um síðan að þannig hafi þetta bara allt orðið til góðs þegar upp var staðið. Og ég er ekki frá því að þetta kvöld á aðventunni fyrir margt löngu hafi ég breyst úr barni í ungling þótt ég hafi bara verið tíu ára. Blessuð sé minning Eiríks Hests og Bjössa í Klöpp. - Páll Magnússon
Stefnt er að félagsfundi milli jóla og nýárs Efni fundarins: Framboðsmál vegna sveitarstjórnarkosninga 2022. Staður og stund auglýst þegar nær dregur. Stjórn Fyrir Heimaey
Jólaminningar Svenna Valgeirs
Fyrri minning mín er frá því er við bjuggum í Merkinesi í Höfnum. Merkines samanstóð af þremur húsum og Merkines höfuðbóli en þar bjuggu heiðurshjónin Hólmfríður og Vilhjálmur foreldrar söngvaranna Ellýjar og Vilhjálms. Síðan var þar lítið steinhús og svo okkar hús sem var tvílyft timburhús. Ekkert rennandi vatn var í húsinu. Ég hef verið átta ára gamall þarna og er sterkt í minningunni hvað mamma hafði mikið að gera við að græja og þrífa allt húsið og ilmur af Maltextrakt sem pabbi bruggaði úr jólaöl handa okkur krökkunum og eitthvað sterkara handa sér. Það var á Þorláksmessu sem mamma baðaði okkur krakkana en til þess þurfti að sækja vatn út í útihús og bera inn í fötum og síðan var vatnið hitað á eldavélinni og helt í stóran þvottabala og vorum við síðan böðuð eitt af öðru. Aðfangadagur var lengi að líða búið að raða pökkunum undir jólatréð og ilmurinn úr eldhúsinu og biðin eftir að klukkan yrði 6 var ógnarlöng, en loksins sló klukkan í útvarpinu og jólin voru hringd inn og þulurinn sagði gleðileg jól þá loksins mátti byrja að borða. Ekki man ég eftir matnum en spenningurinn eftir því að pabbi læsi á pakkana var mikill, síðan var þessi mikla ró sem færðist yfir allt eftirminnileg. Á jóladag var okkur boðið yfir í Merkines í jólakaffi og biðum við krakkarnir spennt eftir að barnatíminn hæfist í útvarpinu með því að Hurðaskellir skellti hurðum og var þá byrjað að dansa í kringum jólatréð inn í sparistofunni sem mér fannst eins og undra veröld með teppi á gólfinu – stofu mubblur og málverk á veggjum. Þetta heimili var
eins og undraveröld fyrir mér. Bókasafn hreppsins var þar til húsa og voru bókahillur frá gólfi og upp í loft báðu megin á ganginum, ekki var síðra að komast inn í dóta herbergi eina drengsins á heimilinu, en hann var þá einka barn Ellý Vilhjálms söngkonu dóttir hjónanna átti hann leikföng sem við systkinin höfðum aldrei séð áður og einnig lifandi apa í búri sem mamma hans hafði komið með frá útlöndum. Þegar leið á kvöldið voru pabbi og húsbóndinn orðnir nokkuð hressir og var Hinrik eins og hann var kallaður byrjaður að spila á harmonikku og syngja með en hann hafði á sínum yngri árum verið nokkuð þekktur harmonikkuleikari. Lauk þessu boði með því að Hinrik var að lesa fyrir mömmu og pabba sögur af grenjaveiði, en hann sá um að halda ref og mink í skefjum á Reykjarnesinu. Þetta er með mínum fyrstu minningum um jólahátíð. Seinni jólaminning mín er frá fyrstu jólunum okkar Þóru (fyrir rétt tæpri hálfri öld) þessi saga birtist fyrir um 30 árum en nú mikið stytt. Hálfrar aldar gamlar jólaminningar Við vorum ný flutt inn hjá Líney og Tomma á Faxastíg 13 höfðum leigt tvö lítil herbergi undir súð. Ég var í fyrsta bekk í stýrimannaskóla Vestmannaeyja og jólafrí að bresta á þegar það er spurt hvort einhverjir nemendur séu tilbúnir að fara jólatúr á togarann Sigurð RE 4 sem var í eigu Hraðfrystistöðvarinnar í Reykjarvík. Ég réði mig á stundinni og fannst sem ég hefði himin höndum tekið að fá þetta tækifæri. Það var ekki sama hamingjan þegar ég kom heim og sagði Þóru tíðindin við með mánaðar gamalt barn nýbyrjuð að búa, fyrstu jólin okkar eftir viku! Og ég að fara á togara yfir hátíðirnar. Ég verð að viðurkenna að það voru þung skref að heiman í þessa ferð. Ég mætti með minn sjópoka til skips kl. 22 í Reykjavíkurhöfn. Veðrið var mjög slæmt en suðvestan hvassviðri hafði staðið yfir í tvo sólahringa. Menn mættu til skips upp á gamla móðinn, sérstaklega gömlu togarajaxlarnir sem voru heldur valtir á fótunum. Mér leist ekkert á þetta lið og reyndar leið mér eins og ég væri að fara í mína hinstu för. Ég lenti á annars stýrimannsvaktinni
sem stóð frá 12 til 6 ásamt vini mínum og bekkjabróður Ingþóri Austfirðingi. Eftir morgunmat að lokinni fyrstu vaktinni fór ég frammí til að finna mér klefa. Hafi ég haft það á tilfinningunni fyrr um kvöldið að þetta væri mín hinsta för varð ég enn þá vissari í minni sök er ég var lagstur til svefns. Þegar þetta stóra og volduga skip stakk sér á fullri ferð í öldurnar, þá heyrði maður fyrst skellinn og hvernig titringurinn kom og víbraði aftur eftir skipinu með einkennilegu jaghljóði sem ég hafði aldrei heyrt áður. Vír í höfuð skipstjórans Haldið var á Vestfjarðamið og segir lítið af förinni nema að fiskiríið var lítið og veður var heldur leiðinlegt. Eitt skiptið vorum við með trollið óklárt á síðunni og skipstjórinn var kominn út á dekk til að redda málunum. Ég var á mínum hefðbundna stað sem aðstoðarmaður á rónagilsinum hjá Árna Konn eða vargakjaftinum eins og hann er kallaður í bókinni “Um borð í b/v Sigurði” eftir Ásgeir Jakobsson. Skipstjórinn stjórnnaði öllum hífingum til að leysa flækjuna, nema hjá Árna Konn sem var reynslan uppmáluð og hífði hann eins og honum einum sýndist í rónagilsinn og lét hann dæluna ganga á meðan hvernig best væri að gera þetta. Svo óheppilega vildi til að gilskrókurinn slitnaði úr netinu og slóst vírinn í höfuð skipstjórans sem við það missti sixpensarann í sjóinn. Orðalepparnir sem vargakjafturinn fékk á eftir eru kannski ekki við hæfi í jólablað sem þessu, en hin stóíska ró Árna Konn kom mér á óvart. Hann stóð sem saklaust barn út í túni í sínum sjóstakk með sixpensarann sinn með derið út á hlið og lét reiðilestur og svívirðingar skipstjórans sem vind um eyrun þjóta. Skipstjórinn nuddaði á sér ennið í bræði og lauk reiðilestrinum eitthvað á þá leið að “helvítis vargakjaftinum væri nær að halda einhvern tíma kjafti og gera eins og honum væri sagt” Það eina sem Árni Konn sagið eftir yfirhalninguna var við aðstoðarmanninn sinn (mig). “Þetta er kannski góð ábending fyrir Stýrimannaskólanema hvernig yfirmaður á fiskiskipi á ekki að koma fram við sína undirmenn.” En þar með var það búið.
Jólamatur að þýskum hætti. Morgunverðurinn var sem helgistund hjá sumum. Var úr mörgu að velja og allt upp á þýska móðinn með íslensku ívafi enda var kokkurinn þýskur. Á boðstólum voru allskyns pylsur og álegg ásamt þýsku slátri sem mér fannst nú heldur ógeðfellt. Leið nú að jólum. Það var hvorki sjónvarp eða video um borð, en ég man að það hlustuðu allir á jólakveðjur til sjómanna sem voru lesnar á Þorláksmessu. Aðfangadagurinn rann upp og var í engu frábrugðinn öðrum dögum um borð þar til kl. 18 er við fengum jólamatinn. Ég held helst að hann hafi verið að þýskum sið. Jólamaturinn samanstóð af soðnum kjúklingum og brúnuðun kartöflum og máttum við velja hvort við vildum eina flösku af Egils appelsín eða eina flösku af Egils maltöli með matnum. Ég valdi Maltölið. Annars var aðfangadagurinn eins og hver annar dagur, ekki var gert hlé á veiðum. Fór ég af vakt kl. 18.30 og sátum við vaktfélagarnir í borðsalnum og hlustuðum á útvarpið, gömlu góðu gufuna. Jólin komu fyrst til mín þegar yfirmaður minn á forhlera mætti í borðsalinn með þrjá pakka að heiman. Mér
mun seint eða aldrei líða úr minni sá helgisvipur sem var á veðurbörðu andliti mannsins og hvernig andrúmsloftið breyttist í einni svipan og hvernig helgi jólanna gagntók alla í borðsalnum. Ég stóð upp og fór fram í minn klefa og þar varð mér hugsað heim. Ég gleymdi náttúrulega að taka jólapakka með mér en eina góða bók hafði ég þó tekið með að heiman. Það var bókin “Þrautgóðir á raunastund”. Fór ég nú í koju með bókina góðu og fór að blaða í henni en náði ekki að festa hugann við hana. Hafi jólin einhvern tíma komið til mín þá var það þarna. Út á sjó í leiðinda veðri, fjarri ættingjum og vinum. Það lá við að maður gæti þreifað á jólunum, svo sterk var þessi upplifun. Um miðnætti var komið ræs. Ég fór aftur í borðsal og viti menn. Jólin búin og allt var eins og áður. Ferðalok Nú leið að síðasta veiðidegi sem var 13. dagur jóla og jafnframt 18. dagur veiðiferðarinnar. Við vorum ræstir að venju á vaktaskiptum, nú kl. 12. á hádagi. Þegar ég kom upp úr lúkarnum blasti við mér fögur sjón. Dekkið fullt af glansandi og spriklandi
ufsa. 22 togarapokar af ufsa takk fyrir. Það var létt yfir vaktinni er við komum út í aðgerðina enda búið að redda túrnum og sett á fulla ferð til Þýskalands með viðkomu í Eyjum til að setja okkur Stýrimannaskóla nemendur í land. Það var yndisleg sjón er við komum næst upp á dekk. Þá vorum við staddir fyrir austan Urðir og við blasti Heimaey í tunglskininu með bjarma af bænum og Helgafellið skreytt með jólaljósum sem mynduðu nafnið ÞÓR í hlíðum þess. Komið var að kveðjustund. Lóðsinn kominn út að sækja okkur með Einar Skiptó við stjórnvölinn. Það var ekki hægt að hugsa sér vinalegri móttökur. Þessi jólatúr sem var minn fyrsti og síðasti túr með síðutogara var jafnframt síðasti jólatúr sem b/v Sigurður Re 4 fór sem síðutogari áður en honum var breytt í loðnuveiðiskip. Afrakstur minn úr þessum túr var 50 þúsund krónur og fjárfesti ég í ísskáp í raftækjaverslun í austurbænum sem nú er komin undir hraun, þetta var jafnframt fyrsta tækið í okkar búskap. - Sveinn Rúnar Valgeirsson
Hvað segja börnin um jólin? Eva Laufey Leifsdóttir (7 ára)
Hilmar Gauti Garðarsson (7 ára)
Afhverju höldum við jólin? Útaf því að jólasveinar eru til. Uppáhalds jólamatur? Kalkúnn og smákökur Hvað er skemmtilegast á jólunum? Að fá pakka og líka hitta fjölskylduna Uppáhalds jólagjöf? Föt og dót
Afhverju höldum við jólin? Afþví að Guð dó þá. Uppáhalds jólamatur? Hangikjöt, kartöflur og hvít sósa. Hvað er skemmtilegast á jólunum? Að fá í skóinn frá jólasveininum. Uppáhalds jólagjöf? Takkaskór, fótboltamark og búningar.
Við sendum Vestmannaeyingum nær og fjær bestu óskir um
gleðileg Jól
og farsælt komandi ár með þökk fyrir það liðna.