°
°
74. árgangur
3. tölublað
Vestmannaeyjum 7. maí 2022
Sóknaráætlun fyrir ungt fólk
Mundu að kjósa D hjá sýslumanni í utankjörfundi. Opið til kl. 17:00 alla daga í næstu viku.
Það á að vera framúrskarandi að búa í Eyjum Sköpunarhús fyrir ungt fólk Segjum að þú búir í Eyjum og í þér kraumar sköpunarkraftur. Þig langar að stofna hljómsveit, koma listinni þinni í grafískt form, búa til kvikmynd eða tölvuleik! En því miður er aðstaðan af skornum skammti. Það er enginn ákveðinn staður þar sem þú getur fengið hjálp og leiðbeiningar eða kynnst fólki með svipuð áhugamál og þú. Við Eyjamenn höldum eina stærstu tónlistarhátíð landsins en á sama tíma erum við ekki að skapa aðstæður fyrir okkar unga fólk svo að það geti orðið eitt af stóru flytjendunum á hátíðinni. Þessu viljum við breyta og opna til þess Sköpunarhús þar sem ungt fólk getur sameinað krafta sína og leyft sköpunareldunum að leika lausum hala.
úrskarandi farveg fyrir brottflutta Eyjamenn, og aðra sem eru áhugasamir um að búa hér, til að geta flutt störf sín til Vestmannaeyja. Nauðsynlegt er að skipuleggja nýja íbúðabyggð sem samræmist væntingum og þörfum fjölskyldufólks. Þar horfum við til Löngulágar (malarvöllurinn) og sjáum þar fyrir okkur fjölskylduvænan og grænan reit.
Fáum fólkið okkar heim
Segjum að þú viljir flytja til Eyja með fjölskylduna og hefur möguleikann á að taka vinnuna þína með þér. Til þess þarftu húsnæði í góðu standi fyrir fjölskylduna, háhraða internet og
aðstöðu til þess að geta unnið fjarvinnu en samt búið „heima“. Allt þetta er af skornum skammti í Vestmannaeyjum og það viljum við laga. Við viljum auka aðgengi að fjarvinnuaðstöðu og skapa fram-
Hann vill... • háhraða internet • fasteign í góðu standi fyrir fjölskylduna • aðgengi að aðstöðu til fjarvinnu rkað
takma amboð fr
• aðstöðu fyrir hljómsveitina • aðgang að hjálp og leiðbeiningum • stað til að kynnast fólki með svipuð áhugamál til að skapa með neibb!
Fjölgum nýsköpunarfyrirtækjum
Segjum að þig langi til að stofna
Fyrir framsækið ungt fólk, því hér eigum við heima. Gísli Stefánsson, Jón Þór Guðjónsson, Valur Smári Heimisson, Arnar Gauti Egilsson og Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Við ætlum...
sóknaráætlun fyrir ungt fólk
Hún vill...
Við viljum setja ljósleiðaravæðingu í algjöran forgang og flýta fyrir lagningu en það er ein helsta forsenda vaxtar í samfélögum nútímans.
fyrirtæki í Eyjum í kringum frábæru hugmyndina þína en þú veist ekki hvar þú átt að byrja. Það er mjög líklega vegna þess að þig skortir aðstöðu, aðgengi að fjármagni og jafnvel þekkingu. í Eyjum þarf að vera staður þar sem þú færð ráðgjöf og þjálfun, fáir upplýsingar um hvar er vænlegast fyrir þig að sækja styrki, hjálp við tengslamyndun við fólk í þínum geira og fáir aðstöðu til að þróa þína hugmynd með stuðningi frá samfélaginu.
Oddgeir Eyjapeyji sem býr í borginni en vill flytja aftur heim til Eyja.
Vilborg býr í Eyjum og í henni kraumar sköpunarkraftur. Hana langar að kunna að koma teikningum sínum á grafískt form og stofna hljómsveit
Það á að vera framúrskarandi fyrir alla aldurshópa að búa í Eyjum
• að byggja upp framúrskarandi farveg svo að brottfluttir Eyjamenn og aðrir geti tekið störf sín til Vestmannaeyja • að stofna sköpunarhús fyrir ungt fólk með aðstöðu og stuðningi fagaðila til þess að útbúa margmiðlunarefni á fjölda sviða s.s. tónlistarsköpun, myndvinnslu og tölvuleikjagerð. • að setja háhraðanetvæðingu Eyjamanna í forgang. • að ráðast í sókn varðandi tengslamyndun, styrkumsóknir, fræðslu og ráðgjöf til að hjálpa Eyjamönnum að hefja fleiri skemmtileg nýsköpunarverkefni sem skarað geta fram úr. • að byggja upp öfluga fjarvinnuaðstöðu sem getur tekið við vaxandi fjölda Eyjamanna sem vilja flytja störfin sín heim.
Margrét og Heimir eru par sem langar að stofna fyrirtæki í Eyjum en þau vita ekkert hvar þau eiga að byrja.
Þau vilja... • þjálfun • aðgengi að fjármagni • aðstöðu
Því hér á ég heima
?
2
FYLKIR - 7. maí 2022
Þú ert aldrei hamingjusamari en óhamingjusamasta barnið þitt ÓSKAR JÓSÚASON 7. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins
HALLA BJÖRK HALLGRÍMSDÓTTIR 8. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins
Skólagangan er samkvæmt lögum í 10 ár, heill áratugur. Það er langur tími. Þessi tími skapar óhjákvæmilega mikilvægar bernskuminningar. Þessar minningar hafa áhrif á hvort þú hafir áhuga og/eða vilja til að búa „heima“. Hvað þá að „flytja aftur“ til Eyja. Það er því einstaklega mikilvægt á þessum tíma, sem þú ert í skóla, að þér líði vel.
Fjárfestum í vináttumyndun barna
Við foreldrarnir vitum að við erum jafn hamingjusöm og okkar óhamingjusamasta barn. Allir foreldrar eru væntanlega sammála um að eitt það mikilvægasta í lífinu er hamingja barnanna okkar. Félagsleg færni og tengingar skipta sköpum. Vinir gera kraftaverk. Við erum sem betur fer jafn ólík og við erum mörg og ekki erum við öll með meðfædda hæfileika í félagslegri tengingu. Eins og með margt í lífinu þarf að æfa og þroska félagslegu tengingarnar og til þess
þarf aukna stoðþjónustu, fræðslu og átak. Hér skiptir aðgengi að þroskaþjálfa og annarri sérþekkingu höfuð máli.
Þetta eru tækifærin sem tæknin gefur okkur; skapandi skil í námi og gleðinni sem þeim fylgir.
Þú leggur ekki góðan grunn að framtíðinni ef þér líður illa
Höldum áfram og gefum í
Styðjum við það sem vel er gert. Sýnum hugrekki og höldum áfram að þora að breyta til. Sjálfstæðisflokkurinn þorir. Áframhaldandi stuðning við „Kveikjum neistann“ og spjaldtölvu-innleiðinguna og svo viljann til að gefa aðeins meira í. Við ætlum að huga að félagslegum tengingum barna og andlegri líðan með aukinni stoðþjónustu. Stoðþjónusta er samheiti yfir stuðningsnet sem styður við almenna kennslu innan skólans. Því viljum við fleiri tíma og fjármagn fyrir þroskaþjálfa, námsráðgjafa og sérkennara svo að með samvinnu sé hægt að finna úrræði sem beinast að því að leysa erfiðleika nemenda í því umhverfi sem þeir þekkja. Aukið aðgengi að ráðgjöfum sem hafa þekkingu og reynslu, er gríðarlega mikilvægt til að styðja kennara í því krefjandi hlutverki sem þeir vinna í og geta á sama tíma mætt þörfum allra nemenda.
Það eru ekki bara hjörtu foreldranna sem gleðjast yfir vellíðan barnanna. Skólinn gerir það líka. Allir kennarar geta verið sammála um að nemanda sem líður illa á erfitt með nám. Að sama skapi er nemanda sem líður vel mun líklegri til að ná árangri. Verkefnin „Kveikjum neistann“ og spjaldtölvuinnleiðingin vinna bæði að þessum markmiðum. Nemendur fá verkefni við hæfi og finna sína ástríðu. Auk þess gefur tæknin nemendum með námsvanda aukin tækifæri til að ná árangri. Hugsum okkur nemanda sem getur ekki setið kyrr. Hann á erfitt með að einbeita sér, lesturinn þvælist fyrir honum og skriftin gengur illa. Þessi nemandi er dapur í skólanum þó að fyrirferðin á honum sé mikil og truflunin sem hann veldur hefur áhrif á aðra nemendur. Sennilega þekkja allir til nemandans sem um ræðir og við myndum gjarnan vilja að hann ætti auðveldara um vik í kennslustofunni, bæði fyrir hann sjálfan og hina nemendurna. Með spjaldtölvu-innleiðingunni hefur nemandinn fengið verkfæri í hendurnar. Með skapandi skilum fær hann betri tækifæri og kvöðin að skrifa verkefnin upp er farin. Hann fær að nýta sína styrkleika til að skila verkefnum á því formi
Við ætlum að styðja við kennara og stjórnendur skólans og upphefja það frábæra starf sem fram fer í grunnskólanum okkar. sem hentar honum, nýta áhugasviðið og skapa með huga og höndum; kannski með því að setja upp leikrit, smíða frumgerð eða syngja lag þegar hann leysir skólaverkefnin.
Okkar bestu borgarar – 60plús skipulagið
Að sturta niður 1. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins
1. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins
GÍSLI STEFÁNSSON 3. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins
RUT HARALDSDÓTTIR 5. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins
Sveitarfélög eins og Vestmannaeyjar þurfa því að vera undirbúin fyrir fjölgun eldri borgara og mæta búsetuþörf þeirra. Þá þarf einnig að huga að því að nægt húsnæði sé til staðar fyrir ungt fólk sem vill snúa aftur heim. Þegar þetta er skrifað eru einungis 46 eignir fyrir íbúðahúsnæði til sölu í Vestmanna-
Óskar og Halla
EYÞÓR HARÐARSON
EYÞÓR HARÐARSON
Vitað er að Vestmannaeyjar standa frammi fyrir ákveðnu lýðfræðilegu vandamáli. Við erum með stóra árganga hjá okkar elstu og reyndustu íbúum en á sama tíma er talsverður skortur af ungu fólki sem virðist ekki vera að skila sér nægilega vel aftur heim. Þetta virðist a.m.k. vera sviðsmyndin ef borið er saman við önnur sveitafélög. Samkvæmt gögnum hagstofunnar eru einungis 12,4% íbúa Vestmannaeyja á aldrinum 30-39 ára en 16,6% íbúa Reykjavíkur og 17,4% íbúa Reykjanesbæjar.
Við þorum og viljum setja kraft í hagsmuni æskunnar, því hér eiga þau heima.
Margar spennandi útfærslur er hægt að horfa til með nútíma íbúðakjarna fyrir okkar bestu borgara. Hér er ein hugmyndaskissa. eyjum og margar kalla á talsvert viðhald. Tækifærin hafa sjaldan verið jafn fátækleg. Við sjáum fyrir okkur íbúðakjarna þar sem allar íbúðir væru sniðnar fyrir fólk sem væri “60+” í aldri og hefði áhuga á að halda heimili í smærra sniði en áður. Þetta ætti að skipuleggja miðsvæðis í Eyjum. Svona lausn myndi um leið skapa tækifæri fyrir ungar fjölskyldur að kaupa þær eignir sem myndu losna við þessa framkvæmd. Bæjarfélagið getur haft forgöngu í svona verkefni, stutt verktaka við útfærslu slíkra hugmynda eða
Útgefandi: Eyjasýn ehf. fyrir hönd Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum.
verið leiðandi í að koma því á koppinn. Það felst þá aðallega í skipulagsbreytingum og jafnvel fjárfestinga sem til þyrfti svo hægt væri að gera þetta hratt og vel. Við viljum bjóða okkar reyndustu og bestu borgurum eignamöguleika við hæfi en líka fjölga stórum eignum á markaði fyrir yngri fjölskyldur. Hér á að vera gott að búa, möguleikar og frelsi til búsetu fyrir alla.
Því hér eigum við heima Eyþór og Rut
Umbrot: Leturstofan Prentun: Stafræna Prentsmiðjan. Upplag: 1800 eintök.
Mundu að sturta, segja konurnar okkar stundum þegar við erum búnir á klósettinu. Það er ekkert verra en að koma að klósetti með öllu gumsinu frá síðasta notanda. Þetta minnir mann á það hve sjálfsagt okkur finnst vera að sturta niður og óhugsandi þær aðstæður að það væri ekki hægt. Hér áður var vatni safnað af þökum húsa í brunna við heimilin og þá þótti við hæfi að setja vatn í bala og öll systkinin sett í sama fótabaðið. Vestmannaeyingar voru frægir fyrir það að fara sparlega með vatn þar sem brunnurinn mátti ekki tæmast - eðlilega miðað við það að fólk vildi geta sturtað niður.
Vatnsleiðslan
Það voru tímamót í Vestmannaeyjum sumarið 1968 þegar fyrsta vatnsleiðslan var tekin í notkun í Eyjum, og fræg mynd af Nausthamarsbryggju við það tilefni þegar vatni var hleypt í gegnum leiðsluna. Önnur leiðsla kom 1971 og sú þriðja kom 2008. Sú leiðsla er sú eina sem er í lagi ennþá og er orðin 14 ára gömul. Ef hún gefur sig áður en ný leiðsla
Ritnefnd: Eyþór Harðarson, ábm. Arnar Sigurmundsson
verður lögð, þá fer maður ekki margar klósettferðir í Eyjum fyrr en mörgum mánuðum síðar. Atvinnulífið, heilbrigðiskerfið og svo má lengi telja verður ekki starfhæft án vatnsleiðslu til Eyja. Það er stórt verkefni sem kallar á aðkomu ríkisins. Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að beita okkur í hagsmunagæslunni fyrir Eyjarnar og tryggja að við náum að sturta niður án truflana í framtíðinni.
Því hér á ég heima Eyþór og Gísli
Jarl Sigurgeirsson Thelma Hrund Kristjánsdóttir Gísli Stefánsson
FYLKIR - 7. maí 2022
2
Bæjarprýði og falleg byggð MARGRÉT RÓS INGÓLFSDÓTTIR 4. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins
THEÓDORA ÁGUSTDÓTTIR 12. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins
Við trúum því að fólki í Vestmannaeyjum sé almennt annt um sitt nærumhverfi og hafi á því skoðanir, þó mishátt þær fari. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins hafa metnaðarfulla og skýra sýn í skipulagsmálum.
Miðbærinn okkar getur orðið frábær
Ferðamenn sem koma til Eyja spyrja gjarnan hvar miðbæinn okkar sé eiginlega að finna? Sjálfstæðisflokkurinn vill styrkja miðbæinn í samstarfi við Miðbæjarfélagið. Styrkja þarf ásinn frá Vigtartorginu og upp að Sagnheimum með það að markmiði að ramma bæinn betur inn og gera hann meira heillandi og sjarmerandi um leið. Vel heppnaðar endurbætur og uppbygging á miðbæjum sveitarfélaga, víðs vegar um landið, gefa okkur góða vísbendingu um hvað hægt er að gera hjá okkur, þar má nefna velheppnaða uppbyggingu á Selfossi, Seyðisfirði og Siglufirði.
Blómleg byggð á malarvellinum
Mikilvægt er að tryggja fjölbreyttar lóðir
Hér er skemmtileg hugmyndaskyssa að endurbótum á Bárustíg. undir íbúðarhúsnæði. Landsvæðið í Löngulág er dýrmætt og mikilvægt er að vel takist til í undirbúningi og hönnun þess. Sómi þarf að vera af því svæði sem rís og byggð fjölbreytt. Við viljum kalla til hæfa hönnuði og halda samkeppni um svæðið því mikilvægt er að geta séð fyrir sér ólíkar útfærslur og mismunandi möguleika á uppbyggingunni. Svæðið býður upp á óteljandi tækifæri sem við megum ekki missa úr höndunum.
Hér má sjá eina hugmyndaskyssu að Löngulágartorg. En við viljum kalla til hæfa hönnuði og halda samkeppni um svæðið því mikilvægt er að geta séð fyrir sér ólíkar útfærslur og mismunandi möguleika á uppbyggingunni.
Mikilvægar úrbætur í umferðarmálum
Umferðarmál eru skipulagsmál. Það yrði óábyrgt að grípa ekki brátt til aðgerða á fjölförnustu og hættulegustu gatnamótum Vestmannaeyjabæjar. Við ætlum að bæta umferðaröryggi með því að setja umferðarljós á þessi gatnamót. Tilhugsunin um slys, með óafturkræfum skaða, á þessum gatnamótum er hræðileg, bæði fyrir einstaklinga og samfélagið.
Í Vestmannaeyjum eru margir möguleikar til vaxtar. Þó landsvæði sé takmarkað eru ýmis tækifæri til þess að samfélagið geti haldið áfram að dafna og fólksfjölgun geti átt sér stað. Við viljum leggja okkar krafta á vogarskálarnar svo það geti orðið - því hér eigum við heima. Margrét Rós og Theó
Sveigjanlegt leikskólaumhverfi ýtir undir aukna samveru fjölskyldunnar dagsins verði foreldrum að kostnaðarlausu og því geta þeir sem hafa kost á verið með börnin gjaldfrjálst á leikskóla fram til kl.14:00. Þeir sem kjósa eða þurfa að vera með barnið sitt lengur greiða svo sanngjarnt verð fyrir þá umfram þjónustu. Slíkt fyrirkomulag er hvati fyrir styttri vistunartíma og ,,vinnudag” barna, gæti skapað aukið svigrúm fyrir inntöku fleiri barna og veitt barninu fleiri dýrmætar samverustundir með stórfjölskyldunni.
HILDUR SÓLVEIG SIGURÐARDÓTTIR 2. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins
GÍSLI STEFÁNSSON 3. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins
Úrræði fyrir yngri en 12 mánaða Við sem höfum átt börn á leikskólum Vestmannaeyja þekkjum hvað þjónustan er frábær. Þar er börnum mætt af hlýju og umhyggju þegar þau taka fyrstu skrefin í skólagöngu sinni. Foreldrar treysta leikskólakennurum fyrir þeirra allra dýrmætustu eign og meta fyrir vikið störf þeirra mikils.
Valfrelsi við upphaf leikskólagöngu
Við viljum færa foreldrum fleiri möguleika við upphaf leikskólagöngu barna þeirra og sjáum við fram á að eftirfarandi leiðir gætu reynst góðar lausnir til að draga úr biðlistum á leikskóla, til að auka samveru barna, foreldra og stórfjölskyldu og til að gera ákjósanlegra að stytta, oft á tíðum, langan ,,vinnudag” barna.
Heimagreiðslur settar á og hækkaðar talsvert frá því sem var og eyrnarmerkt-
ar hverju 12 mánaða barni, mánaðarlega, þar til það hefur leikskólagöngu. Slíkt eykur á möguleika foreldra, eða jafnvel ömmu eða afa, að dvelja lengur heima með barni
sínu. Það gæti dregið úr aðsókn og þörf á leikskólaplássum, aukið svigrúm fyrir inntöku fleiri barna og veitt barninu dýrmætar samverustundir með nánustu fjölskyldu.
Sveigjanlegri og gjaldfrjáls grunnleikskólagjöld sem hvati fyrir styttri vinnudag
barna á leikskóla og auknar samverustundir
með fjölskyldu. Í dag greiðir Vestmannaeyjabær 80%-90% raunkostnaðar við hvert barn á leikskóla og foreldrar greiða það sem uppá vantar. “Vinnudagur” barna á leikskólum er í flestum tilfellum frekar langur og til að stemma stigu við því og til að hvetja til frekari samveru fjölskyldunnar sjáum við tækifæri í því að fyrstu sex klukkustundir
Mikilvægt er á sama tíma að fundinn verði kostur fyrir þá foreldra sem þurfa dagvistun fyrir börn sín fyrir 12 mánaða aldur. Þrátt fyrir að fæðingarorlof sé til 12 mánaða eru aðstæður foreldra sannarlega misjafnar og ekki allir foreldrar hafa kost á að taka 12 mánuði samfellt í fæðingarorlofi né hafa bakland eða aðstoð frá t.d. ömmum eða öfum. Til staðar verður því að vera úrræði til að mæta þessum hópi þegar nauðsyn krefur og þarf sveitarfélagið að mæta þörfum íbúa sinna, styðja við atvinnulíf og ýta undir jafnrétti kynjanna. Öflugir leikskólar, aukið valfrelsi foreldra, meiri samverutími fjölskyldunnar, gott aðgengi að dagvistun, gjaldfrjáls grunnleikskólagjöld og vel menntaðir leikskólakennarar er það sem Sjálfstæðisflokkurinn mun setja í forgang að verði alltaf til staðar í Vestmannaeyjum.
Við viljum sveigjanlega, hagkvæma og fjölbreytta þjónustu fyrir yngstu börnin, þessu viljum við berjast fyrir, því hér eigum við heima. Hildur Sólveig og Gísli
Stanslaus gleði og gæðastundir Frá því vel heppnað prófkjör Sjálfstæðisflokksins skilaði glæsilegum lista framboðsins hefur starfið í flokknum staðið í miklum blóma. Frambjóðendur hafa verið á ferðinni á milli vinnustaða og fjöldi vel sóttra viðburða hefur farið fram. Má þar nefna þátttöku í stóra plokkdeginum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn sá um hreinsun svæðisins fyrir botni Friðarhafnar. Páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins fór fram á páskadag í blíðskaparveðri og var geysivel sótt. Opnun kosningaskrifstofu í Ásgarði fór fram síðastliðinn laugardag og mættu þar á fjórða hundrað manns og gæddu sér á veitingum og áttu saman góða stund. Sælkerakvöld flokksins fór fram síðastliðið sunnudagskvöld. Þar mættu á annað hundrað manns og nutu veitinga reiddum fram
Framundan:
„Kaffi Varmó“ Kosningaskrifstofa Eyverja
Ýmsir popup viðburðir í vikunni fyrir kosningar. 12. maí: Þjóðhátíðarpepp á fimmtudagskvöldi. Magnús Kjartan Eyjólfsson brekkusöngvari kemur þér í gírinn.
af Ríkharði sextánda. Síðar um kvöldið bættust við ráðherrar og þingmenn sem voru á ferðinni í hringferð flokksins. Opinn fundur var síðastliðinn mánudag í Akóges þar sem Bjarni Benediktsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Jón Gunnarsson og Guðrún Hafsteinsdóttir sátu í pallborði og svöruðu spurningum fundarmanna. Á fundinn mættu upp undir 100 manns og urðu úr góðar uppbyggjandi umræður þar sem tæpt var á helstu hagsmunamálum bæjarbúa. Þá heimsóttu frambjóðendur Hraunbúðir síðastliðinn miðvikudag. Þar var boðið upp á bakkelsi og létta tónlist í bland við samveru og gott spjall. Prófkjörið og allir þessi viðburðir hafa staðið öllum til boða og eru ávallt allir velkomnir til þátttöku.
Mundu að kjósa D hjá sýslumanni í utankjörfundi. Opið til kl. 17:00 alla daga í næstu viku.
Ásgarður Kaffi og með því alla virka morgna kl. 09:30. Hádegissúpan alla virka daga kl.11:45-13:15 og síðdegiskaffi kl.17:00-18:30. Fram að kosningum. Von er á góðu spjalli. Allir velkomnir
Fös. 13. maí: Bjórbingó og taumlaus gleði Fylgstu með á
Því hér á ég heima