Skip to main content

Þjóðhátíðarblaðið 2025

Page 1

Þ J Ó Ð H Á T Í Ð A R B L A Ð 20 V E S T M A N N A E Y J A 25

1


EFNISYFIRLIT: 4

Jónas Guðbjörn Jónsson og Guðrún María Þorsteinsdóttir fyrir hönd þjóðhátíðarnefndar

8

Klara Einars í spjalli

12

Hvað segja börnin um Þjóðhátíðina?

14

Sigrún Arna - Verður uppþvottavél í þínu tjaldi?

18

Sigurvegarar í söngvakeppni barna 2023

20

Þór Vilhjálmsson - Þjóðhátíðin 1986 sú allra eftirminnilegasta

26

Þjóðhátíðin mín: Sirrý Árdís Ágústsdóttir

Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja 2025

32

Victor Guðmundsson

36

Jónas Guðbjörn Jónsson - Forsetafylgd í brekkuna

Ritstjórn: Leturstofan

40

Dagskrá hátíðarinnar

42

Myndaopna úr hvítu tjöldunum - Addi í London

Hönnun, umbrot & auglýsingar: Leturstofan

46

Hljómsveitin Mucky Muck - Skítugt grugg og dægurlög yfirfærð í rokk ham

Ljósmyndir: Bent Marínóson, Addi í London & einkasöfn

50

Þjóðhátíðin mín: Sigurjón Andrésson

52

Svanur Gunnsteinsson - Fyrst og fremst skemmtilegt að vera sjálfboðaliði

54

Hljómsveitin Færibandið - Gríðarlegur spenningur innan bandsins fyrir Þjóðhátíð

60

Svava Kristín með helstu tískutrendin á Þjóðhátíð

64

Stuðlabandið í spjalli

70

Þjóðhátíðin mín: Ingólfur Jóhannesson

72

Þjóðhátíðin mín: Sólrún Erla Gunnarsdóttir

74

GDRN í spjalli

76

Þjóðhátíðin mín: Salóme Guðný Halldórsdóttir

Prentun: Prentun.is Úgefandi: ÍBV Íþróttafélag Þjóðhátíðarnefnd 2024: Jónas Guðbjörn Jónsson Ellert Scheving Guðrún María Þorsteinsdóttir Svanur Gunnsteinsson Hjörleifur Davíðsson Jón Þór Guðjónsson Daníel Frans Davíðsson Alma Ingólfsdóttir

2


Við óskum Eyjafólki og gestum þeirra góðrar skemmtunar á Þjóðhátíð 2025

3


ÆVINTÝRI Í HERJÓLFSDAL Kæru Þjóðhátíðargestir, Það er eitthvað sérstakt sem gerist í hjartanu þegar Þjóðhátíð nálgast. Eins og það færist einhver óútskýranleg spenna í loftið. Margir segja að það sé bara fiðringur - en við sem höfum verið í Dalnum vitum betur. Þetta er ekki bara fiðringur. Þetta er Herjólfsdalur að kalla á okkur. Hann kallaði líka í fyrra, þó hann hafi blásið okkur nánast út aftur. Já við skulum ekkert vera að fela það, veðrið í fyrra var ekki fyrir viðkvæma. Það rigndi lárétt, tjöld flugu eins og konfetti yfir Dalinn og innviðir hátíðarinnar voru teknir í rækilega álagsprófun. En þrátt fyrir það gekk allt ótrúlega vel. Það var vegna fólksins sem gaf tíma, orku og hjarta í að halda þessari einstöku hátíð á lífi. Sama hvernig veðurguðirnir höguðu sér. Sjálfboðaliðar sem stóðu vaktina í öllum veðrum, með bros á vör. Þeir sem hreinsuðu, smíðuðu og löguðu, voru alltaf til taks. Þið gerðuð það sem veðrið gat ekki: þið hélduð öllu saman. Fyrir hönd Þjóðhátíðarnefndar viljum við þakka ykkur öllum af heilum hug og öllu hjarta. Án ykkar væri engin Þjóðhátíð, hvorki í sól né regni. Þið eruð ósýnilegu hetjurnar sem haldið Dalnum á lífi. Á meðan þið eruð með, þá erum við í góðum málum. Við vitum að veðrið er bara einn hluti af hátíðinni. Það sem raunverulega skiptir máli er fólkið, samveran og þessi sérstaka tenging sem myndast í Dalnum. Það að syngja saman og hlæja. Einbeittur vilji allra til að hafa gaman; skemmta sér og öðrum alveg sama hvað. Það er algjörlega einstök upplifun að taka þátt í þessu af lífi og sál. Þetta er okkar staður, okkar stund, okkar saga. Ár eftir ár bætum við nýjum kafla í 4

Jónas og Guðrún María í undirbúningnum í Herjólfsdal.

söguna. Sagan er orðin ansi löng, og hún er allskonar. Það er ekki úr vegi við þetta tilefni að velta örlítið fyrir sér tilgangi og kjarna þessarar aldagömlu hefðar. Því já, hún er eldri en flestar af okkar hefðum og hátíðum, t.d. 17. júní hátíðarhöldin. Fyrirkomulag og annað hefur vissulega breyst gríðarlega frá því hún var haldin fyrst og tilgangur hennar einnig að einhverju leyti. En alltaf hefur hún haft tilgang og þýðingu fyrir samfélagið okkar og þess vegna verið haldin jafn oft og raun ber vitni. Það er auðvelt að elska Þjóðhátíð. Fyrir Eyjamenn er hún í raun órjúfanlegur hluti tilverunnar; sumarsins. Tímatalið okkar snýst oftar en ekki um “fyrir eða eftir Þjóðhátíð” og sumarfrí gjarnan

skipulögð með hana í huga. Þeir sem taka þátt í gleðinni á einn eða annan hátt hafa sínar minningar, venjur og hefðir í kringum hátíðina. Fyrir okkur sem stöndum að hátíðinni fer þetta allt upp á annað plan. Plan sem enginn myndi trúa hvernig gengur og virkar, ár eftir ár, nema koma beint að þessu með einhverjum hætti. Þó það sé fámenn nefnd að skipuleggja hátíðina ár hvert, má segja að í raun þurfi allt bæjarfélagið að leggjast á eitt til að láta þetta allt saman ganga upp, aftur og aftur, fyrir það erum við einnig þakklát. Þegar við hugsum um Þjóðhátíð, sjáum við Herjólfsdal í fullum skrúða, það er sól og blíða, allir brosandi og setningin er í gangi. Gleðin og eftirvæntingin fyrir


•

•

Opnunartími yfir Þjóðhátið í Eyjum 31. júlí

10:00 - 18:00 & opnum aftur 22:00 - 02:00 (Húkkarinn)

1. ágúst

10:00 - 19:00

2. ágúst

12:00 - 19:00

3. ágúst

12:00 - 19:00

4. ágúst

12:00 - 16:00

Djákninn // Strandvegur 47 // djakninn.is 5


helginni skín úr hverju andliti og allir eru fullir tilhlökkunar, að skemmta sér vel og fallega alla helgina. Það er okkur í Þjóðhátíðarnefnd bæði heiður og ánægja að bjóða ykkur velkomin í Dalinn og í brekkuna einu sönnu. Megið þið eiga ógleymanlega hátíð, dansa þar til sólin rís, syngja þar til röddin brestur og safna minningum sem endast út ævina. Gleðilega Þjóðhátíð, kæru vinir. Takk fyrir að mæta og vera hluti af þessu einstaka ævintýri. Sjáumst í Herjólfsdal með regnjakka eða sólhlíf, en alltaf með bros á vör. Með kærri kveðju Fh. Þjóðhátíðarnefndar Jónas Guðbjörn Jónsson Guðrún María Þorsteinsdóttir

6

Fimmtudagurinn fyrir Þjóðhátíð 2024. Ljósmynd/Bent.


VERIÐ velkomin Þið finnið okkur á Vesturvegi 5

Fimmtudagur: 1 0:00-22:00 Föstudagur: 1 0:00-17:00 Laugardagur: 11:00-17:00 Sunnudagur: 11:00-17:00 Mánudagur: 11:00-22:00

7


KLARA EINARS:

ÞAÐ ER EKKERT BETRA EN AÐ SITJA MEÐ FÓLKINU SÍNU OG TAKA BREKKUSÖNGINN SAMAN Klara Einarsdóttir mun koma fram á Þjóðhátíð í fyrsta skipti í ár en hún spilaði á Nova fest í fyrra sem haldin var í miðbæ Vestmannaeyja í samstarfi við Þjóðhátíð. Klara er ung og hæfileikarík söngkona. Við fengum Klöru í smá spjall um það sem er framundan. Aldur: Ég er 19 ára fædd 2006. Fjölskylda: Ég á einn bróður, hann Einar Einarsson sem er að verða 17 ára en hann er sjúklega hæfileikaríkur myndbandsframleiðandi fyrir allskonar hátíðir og fyrirtæki. Hann og pabbi minn Einar Bárðarson eiga fyrirtækið EBNI saman og framleiða þeir efni fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Bróðir minn er alveg einstaklega duglegur og ég fæ hann alltaf með mér til að taka mig upp á tónleikum, það er mjög dýrmætt að fá að vinna með fjölskyldunni sinni alla daga og ég myndi ekki vilja gera þetta með neinum öðrum. Svo á ég bestu mömmu í heimi hana Áslaugu Thelmu Einarsdóttur sem er kletturinn minn í öllu sem ég geri. Er kominn spenningur fyrir hátíðinni? Ég er alltaf ótrúlega spennt fyrir Þjóðhátíð og það má eiginlega segja að ég sé búin að vera spennt fyrir því að mæta aftur alveg síðan ég kom heim með Herjólfi í fyrra. Þetta er án efa besta helgi ársins og þá sérstaklega þegar maður tekur hátíðina alveg frá byrjun til enda, ég mæti oftast á miðvikudegi svo fer ég beint á Húkkaraballið á fimmtudeginum og daginn eftir er alltaf jafn mikil stemning að fara á setningu hátíðarinnar, fá sér kökur í hvíta tjaldinu, kíkja á Lundann og NovaFest og síðan er ég bara í dalnum til mánudags. 8

Áttu einhverja tengingu til Vestmannaeyja? Ég á heldur betur tenginu til Vestmannaeyja en mitt allra uppáhalds frændfólk eru Eyjamenn. Frænka mín Hulda Sæland giftist inn í Klappar

þetta er án efa besta helgi ársins og þá sérstaklega þegar maður tekur hátíðina alveg frá byrjun til enda. fjölskylduna og dóttir hennar Sirrí Sæland hefur alltaf verið mér mikil fyrirmynd og vinkona og ég sé hana eins og stóra systur og sömuleiðis uppáhalds frændi minn Breki Óðins sem vann sér inn þann titil þegar hann gaf mér

Balenciaga peysu síðast þegar ég mætti til Eyja. Hvenær komstu á þína fyrstu þjóðhátíð? Ég kom á mína fyrstu Þjóðhátið árið 2021. Það var rugluð stemning þar sem allir voru búnir að vera bíðandi eftir því að fá að komast í dalinn eftir Covid. Ég varð fljótt ástfangin af hátíðinni og þessari eyju og hef ekki látið mig vanta síðan þá. Hvernig var að koma fram á NovaFest á Þjóðhátíðinni í fyrra? Vá það var SJÚKT! Það hefur alltaf verið draumur að fá að koma fram á eyjunni um verslunarmannahelgina og ég var ótrúlega þakklát að fá að vera partur af þessari geggjuðu hátíð sem NovaFest er. Ég hlakka líka ótrúlega mikið til að koma aftur fram á NovaFest í ár ásamt DJ Önnu Ármann sem hefur verið að


spila með mér í allt sumar og við höfum meðal annars heimsótt eyjuna í útskrift hjá Klöppurunum og stemningin var bara nákvæmlega eins og við værum mættar á Þjóðhátið, það er það sem ég dýrka mest við Vestmannaeyjar og fólkið hérna það eru einhvern veginn alltaf allir í stuði og það er alltaf stemning hérna. Uppáhalds þjóðhátíðarlag allra tíma? Vá hvað þetta er erfið spurning. Ég er auðvitað með tvö lög sem mig þykir sérstaklega vænt um en það er lagið “Eyjanótt” frá nöfnu minni Klöru Elías, ég lít mikið upp til Klöru, hún og Steinunn Camilla úr Nylon hafa alltaf verið mér innan handar í tónlistinni og öðru. Það var ótrúlega fallegt að fá að sjá hana taka lagið á Þjóðhátíð 2022 og sjá allan dalinn syngja með. Síðan lagið “Þú veist hvað ég meina mær” með Skítamóral en ég hef alist upp við það að mæta reglulega á tónleika hjá Skítamóral þar sem bróðir pabba Addi Fannar er í hljómsveitinni og pabbi minn hefur mikið unnið með hljómsveitinni og því kann ég flest öll

Gleðilega þjóðhátíð

9


lögin þeirra utanbókar þannig það er alltaf jafn gaman að heyra það lag í brekkunni. Hvað er það sem gerir Þjóðhátíð einstaka að þínu mati? Það sem gerir Þjóðhátíð einstaka er klárlega fólkið. Það er svo fallegt að horfa í kringum sig í brekkunni og sjá alla vinahópana og fjölskyldurnar taka utan um hvort annað og syngja saman. Það eru allir komnir með það sameiginlega markmið í huga að hafa gaman. Hvernig hefur tónlistarferillinn þróast undanfarin ár, og hvað er framundan? Þegar ég var tólf ára var pabbi að gefa út tuttugu ára afmælisplötu með öllum vinsælustu lögunum hans. Hann vantaði einhvern til að syngja ábreiðu af laginu Síðasta sumar sem hann gerði fyrir stelpusveitina Nylon á sínum tíma. Mig langaði svo mikið að gera það og hann samþykkti að gefa mér tækifæri til að prófa að syngja þetta lag. Við mættum í stúdíóið og tókum þetta upp bara í einni runu. Hann söng síðan inn bakraddir og því hefur það lag alltaf verið mjög dýrmætt fyrir mér. Ég hef annars alltaf verið á söngnámskeiðum og allskonar kórum síðan ég man eftir mér. Ég var lengi í Stúlknakór Reykjavíkur undir stjórn Möggu Pálma og Siggu Soffíu, mér þykir ótrúlega vænt um þá reynslu, ég hef sungið með þeim í Eldborg reglulega og fengið að leika í leiksýningunni 9 líf í Borgarleikhúsinu í fjögur ár sem var ótrúleg upplifun. Ég sigraði söngkeppnina Vælið árið 2023 og hef verið að læra á allskonar hljóðfæri en spila mest á bassa. Það má segja að lífið mitt sé mikið mótað af tónlist og hún hefur alltaf verið miðpunkturinn. Ég samdi og gaf síðan út mitt fyrsta lag fyrir ári og síðan þá hef ég gefið út nokkur önnur lög viðbót. Það hefur alltaf verið planið að gera tónlist og þetta er búið að byrja ótrúlega vel. Ég er 10

ótrúlega þakklát fyrir tækifærin sem ég hef fengið og er þakklát fyrir fjölmiðlafólkið sem hefur tekið vel á móti mér. Ég er búin að vera að skrifa mikið af textum um allskonar upplifanir sem ég hlakka til að deila með ykkur á næstunni. Hvað veitir þér innblástur við lagasmíð og textagerð? Það sem veitir mér mestan innblástur er lífið mitt. Sumir skrifa í dagbækur, sumir hugleiða en ég fæ bestu útrásina með því að skrifa texta. Öll lögin mín fjalla meira og minna um einhvern atburð eða einstakling sem hefur haft áhrif á mig. Þegar ég hlusta á tónlist pæli ég mikið í textum og ég elska að hlusta á lög með texta sem ég get tengt við. Hvaða lag er þér persónulega kærast og af hverju? Lagið sem er mér kærast er alltaf nýjasta lagið mitt því textarnir eru oftar en ekki um eitthvað sem ég er að upplifa í augnablikinu. Að skrifa texta er mikil útrás fyrir mig og textarnir mínir eru allir mjög persónulegir og núna er lagið 2100 mér kærast. Lagið fjallar um flókna ást sem endist kannski ekki í langan tíma en þú vildir óska þess að hún gæti það. Er eitthvað sérstakt í undirbúningi fyrir haustið - hvað er framundan?

Ég er búin að vera að vinna með góðu fólki í nýrri tónlist og hlakka mikið til að deila með ykkur nýjum lögum og nýjum víbrum. Hvað hlakkar þú mest til yfir Þjóðhátíðarhelgina – utan sviðsins? Ég hlakka mikið til þess að njóta hátíðarinnar með fjölskyldu og vinum. Það er ekkert betra en að sitja með fólkinu þínu og taka brekkusönginn saman, fara svo upp í hvíta tjaldið með vinum og gíra sig í miðnæturtónleikana. Áttu þér einhverja skemmtilega eða óvænta minningu úr Herjólfsdal? Já ég á alveg fullt en mér þykir alltaf vænt um sunnudagana á þjóðhátíð að syngja brekkusönginn með fjölskyldunni og vinum. Ef þú gætir sungið dúett með hvaða listamanni sem er – lifandi eða látinn – hver væri það? Úff vá þetta er erfið spurning. Ég held að það myndi þurfa að vera The Weeknd, ég fíla eiginlega allt stöffið hans og sérstaklega gömlu plöturnar hans eins og Kiss Land þannig það væri einhver draumur að taka dúett með honum. Ef þú mættir lýsa Þjóðhátíð í einu orði, hvað myndirðu segja? Ást.


­

Þau sinna bústörfum í sátt við náttúruna og lágmarka áburðarnotkun í þágu umhverfisins.

11


HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM ÞJÓÐHÁTÍÐINA? Nafn: Agla Hrönn Georgsdóttir Aldur: 9 að verða 10 ára Foreldrar: Sigurlaug Böðvarsdóttir og Georg Rúnar Ögmundsson Hefur þú farið á þjóðhátíð? Já, ógeðslega oft ég man það ekki. Hvað gerir maður á þjóðhátíð? Hafa gaman, stemningu, hlusta á tónlist og allt. Hvaða þjóðhátíðarlag finnst þér skemmtilegast? 1000 hjörtu með Emmsjé Gauta. Hvernig helduru að þjóðhátíðin hafi verið í gamla daga? Hlusta á gamaldags músík og rugga sér.

Nafn: Sædís Lilja Tryggvadóttir Aldur: 7 ára að verða 8 Foreldrar: Tryggvi Steinn Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir Hefur þú farið á þjóðhátíð? já þegar ég var bara örugglega lítil. Hvað gerir maður á þjóðhátíð? Hafa gaman og hafa stemningu. Hvaða þjóðhátíðarlag finnst þér skemmtilegast? Nánast öll lög. Hvernig helduru að þjóðhátíðin hafi verið í gamla daga? Ég veit það ekki.

Nafn: Rafel Bóas Davíðsson Aldur: 13 ára Foreldrar: Anna Hulda Ingadóttir og Davíð Hallgrímsson Hefur þú farið á þjóðhátíð, hver oft? Ekki oft - ca. 4 sinnum. Hvað gerir maður á þjóðhátíð? Skemmta sér og hafa gaman. Hvaða þjóðhátíðarlag finnst þér skemmtilegast? Eyjan mín fagra græna með Bubba Morthens. Hvernig helduru að þjóðhátíðin hafi verið í gamla daga? Rosa leiðinleg.

12


13


SIGRÚN ARNA GUNNARSDÓTTIR:

VERÐUR UPPÞVOT TAVÉL Í ÞÍNU TJALDI?

Vinkonurnar Ólöf, Thelma og Sigrún á leiðinni niður í dal með brennuna í fullum skrúða í baksýn.

Sigrún Arna Gunnarsdóttir, innanhússhönnuður og eigandi verslunarinnar Heimadecor, segir það mjög ríkt í heimamönnum að halda í hefðir og venjur í kringum þjóðhátíð - þá sérstaklega þegar kemur að hvítu tjöldunum. „Hvítu tjöldin eru alltaf númer eitt. Það krefst mikils undirbúnings að uppfylla allar þær kröfur sem gott hvítt tjald þarf að innihalda. Enda má segja að þau séu heimili margra yfir þessa helgi.“ Nýlega festi Sigrún Arna sjálf kaup á hvítu þjóðhátíðartjaldi ásamt fjölskyldu sinni og segist hún hafa sérlega gaman að því að innrétta tjaldið og gera það að sínu. Enda er Sigrún einn helsti fagurkeri sem Eyjan hefur alið af sér og líður alltaf best með að hafa allt fínt í kringum sig, hvort sem það er heima fyrir eða annars staðar. „Mér finnst svolítið skemmtilegt að vera með eitthvað ákveðið þema í tjaldinu. Það skapar svo mikla stemningu og setur skemmtilegan og persónulegan brag á tjöldin, hvert og eitt þeirra,“ segir Sigrún Arna sem hefur síðustu ár orðið vör við aukningu á þemagleði á meðal tjaldeigenda. „Eftir að ég fór að selja skraut í tjaldið í Heimadecor 14

fyrir þjóðhátíð þá hef ég tekið eftir að það eru rosa margir sem breyta um þema hvert ár. Mér finnst það rosalega skemmtileg hefð. Þemun geta verið allt frá hefðbundnu gull og silfur út í Barbie- eða verbúðarþema. Það er allur gangur á því eftir hverju fólk leitast hverju sinni. Þjóðhátíð er náttúrulega ein stór stemningshátíð og það er eiginlega ekkert þema bannað á þjóðhátíð.“ Pappaglös og pappadiskar í tjaldinu Sigrún segir það órjúfanlega hefð hjá hennar fólki að hafa pylsupartí í kringum miðnætti eitthvert kvöldið. Hún segir matarkyns í tjöldunum mikilvægan þátt í hátíðarhöldunum því í það geta svangir þjóðhátíðargestir leitað alla helgina. Setningarkaffið segir hún standa mest upp úr og sé kannski það sem er mest formlegast við hátíðina. „Ég held að setningarkaffið sé alveg strangheiðarleg hefð sem muni aldrei fjara út,“ segir fagurkerinn Sigrún Arna sem viðurkennir að annars konar fagurfræði kunni oft að vera lýði á þjóðhátíð en á öðrum hátíðstímum. „Fólk er auðvitað mikið að spara sér sporin með því að notast við pappadiska, pappaglös, einnota dúka


Hér gefur að líta hið skemmtilega verbúðarþema sem hægt er að leika sér með út í ystu æsar.

15


og þess háttar en ef þú ert með uppþvottavél í tjaldinu þínu þá myndi ég allan daginn mæla með því að þú dekkir upp veisluborð með leirtaui úr gleri,“ segir Sigrún og hlær. Stemningskona sem hefur oft sleppt þjóðhátíð Þegar Sigrún er spurð út í fjölda þjóðhátíða sem hún hefur verið viðstödd á kemur svipur á hana. Þrátt fyrir að vera mikið þjóðhátíðarbarn og stemningskona hefur hún verið óhrædd við sleppa þjóðhátíð endrum og eins og ferðast um heiminn á þessum tíma árs. Hún segir gott að sleppa því að fara á þjóðhátíð inni á milli því þá sé svo gaman að vera á þeirri næstu. „Ég skammast mín smá fyrir að segja það, það er eins og það dragi einhvern veginn úr Eyjamanninum í manni þegar maður sleppir þjóðhátíð. Kannski er besta svarið við þessari spurningu bara „no comment“ eins og pólitíkusarnir myndu segja.“ En hvaða ár var eftirminnilegasta þjóðhátíðin þín? „Þjóðhátíðin 2004 var ansi eftirminnileg. Þá var ég upp á mitt besta með Ólöfu Ragnarsdóttur, vinkonu minni, en ætli ég geti nokkuð sagt meir því það yrði líklega ekkert eftir af sögunni eftir að hún færi í gegnum ritskoðun hjá ykkur,“ segir Sigrún Arna kímin. Systurnar ásamt föður sínum, Gunnari í Vegg, við fjölskyldutjaldið Vegg.

Búningarnir hápunkturinn Hún segist sakna spennunnar sem áður ríkti og skapaðist í kringum búningakeppni hátíðarinnar. Búningakeppnin hafi verið hápunktur margra en síðustu ár hefur Sigrúnu þótt glansinn hafa farið af þeirri keppni og ekki jafnmikill metnaður lagður í sérstaka þjóðhátíðarbúninga nú og þá, hvort sem tekið er þátt í keppninni eða ekki. „Maður man hvað þetta var spennandi og skemmtilegt. Búningarnir voru alltaf aðalmálið. Öll hugsunin, vinnan, leyndin og undirbúningurinn - þetta var svo skemmtilegt og toppaði alveg þjóðhátíðina,“ segir Sigrún að endingu og vonar að nýleg veðurspá Ellýjar Ármanns komi til með að rætast. „Við eigum inni gott veður frá veðurguðunum þessa helgi eftir skítaveðrið síðastliðin tvö ár. Þannig ég segi bara: Sjáumst í Dalnum og í Heimadecor og hjartans þakkir, svo ég vitni nú aðeins aftur í hana Ellý vinkonu mína.“ Vinkonurnar Sigrún Arna og Ólöf Ragnars í góðu stuði á þjóðhátíð.

16

/Áshildur Hannesdóttir


GLEÐILEGA HÁTÍÐ! Skipalyftan óskar Eyjafólki & gestum gleðilegrar þjóðhátíðar!

17


SIGURVEGARAR Í SÖNGVAKEPPNI BARNA Á ÞJÓÐHÁTÍÐ 2024 Fastur liður í dagskrá Þjóðhátíðarinnar undanfarin ár hefur verið Söngvakeppni barna en það hefur verið þannig að færri komast að en vilja. Það voru margir bráðefnilegir söngvarar sem stigu á stóra sviðið í keppninni í fyrra. Að lokum var það Sigurrós Ylfa Rúnarsdóttir, 10 ára, sem sigraði í eldri flokki en Adrian Henrik Griffin, 7 ára sem að sigraði í söngvakeppni yngri.

Sigurrós Ylfa Rúnarsdóttir 10 ára Fjölskylda: Pabbi minn heitir Rúnar Freyr Gíslason, mamma mín heitir Guðrún Jóna Stefánsdóttir. Svo á ég 5 systkini. Natalia, Gísli, Selma, Linda og Breki Freyr Hvaða lag söngstu í söngvakeppninni? Ég söng lagið Töfrar eftir Klöru Ósk Elíasdóttur og Halldór Gunnar Pálsson. Hvernig fannst þér að taka þátt? Mér fannst það mjög gaman og langar helst að gera það aftur. Hvernig leið þér að syngja fyrir alla brekkuna um kvöldið? Mér leið ótrúlega vel en á sama tíma auðvitað smá stressuð að syngja fyrir alla brekkuna, en þetta var ótrúleg upplifun. Mér fannst svo gaman að syngja fyrir svona marga á stóra sviðinu. Hvað finnst þér skemmtilegast við Þjóðhátíð? Það var eiginlega að taka þátt í söngvakeppninni og vera með fjölskyldunni okkar og vinum í brekkunni á kvöldin. Hefuru farið oft á Þjóðhátíð? Já ég hef farið þrisvar sinnum. 18

Sigurrós Ylfa ásamt Klöru Elías.

Ertu að æfa söng? Já ég var að æfa hjá Söngskóla Maríu Bjarkar og Söngleikjadeild Birnu Bjōrns. Hvað er framundan hjá þér í söngnum? Ég er að leika í Línu Langsokk í Þjóðleikhúsinu, þar sem ég er að syngja ein og svo er ég líka mikið að syngja með pabba heima með gítarinn. Eitthvað að lokum? Já ég vil bara hvetja alla krakka til að taka þátt í söngvakeppninni það er alveg ótrúlega skemmtilegt og líka elta draumana sína.

Adrian Henrik Griffin 7 ára Fjölskylda: Mamma mín heitir Una Þorvaldsdóttir og pabbi minn Devon Már Griffin, svo á ég lítinn bróður sem heitir Tristan Árni. Hvaða lag söngstu í söngvakeppninni? Heyr mína bæn. Hvernig fannst þér að taka þátt? Bara gaman. Hvernig leið þér að syngja fyrir alla brekkuna um kvöldið?


Smá feiminn en samt bara vel. Hvað finnst þér skemmtilegast við Þjóðhátíð? Að horfa á brennuna. Ertu að æfa söng? Nei en ég er mikið að æfa mig heima hjá mér. Hvað er framundan hjá þér í söngnum? Ég er að fara læra á píanó svo ég ætla að æfa mig í því að syngja og spila á sama tíma svo ætla ég einn daginn að taka þátt í Eurovision. Hvað hefur þú komið oft á þjóðhátíð? Fjórum sinnum. Eitthvað að lokum? Allir að subscribea síðuna mína.

Youtube

Adrian Henrik Griffin, baksviðs.

ÞjóðháZtAí6ð7 á PIZ ZA

RÍFANDI STEMNING Í TJALDINU OG UPPHITUN FYRIR DALINN Trúbadorar laugardag og sunnudag

BÓAS GUNNARS

NÆTURSALA TIL KL.04.00 Á FIMMTUDAG Erum að Heiðarvegi 5

LILJA BJÖRK

OPIÐ

fimmtudag 12-04 fös-sun 10:30-20 mánudag 10:30-22

Sendum heim ( 481-1567

ATH! tilboð ekki í gildi fimmtudag - mánudags

19


ÞÓR VILHJÁLMSSON:

ÞJÓÐHÁTÍÐIN 1986 SÚ ALLRA EFTIRMINNILEGASTA Þór Ísfeld Vilhjálmsson er með kröftugri mönnum og hefur verið ötull þátttakandi í ýmsu er tengist samfélaginu í Vestmannaeyjum og uppbyggingu þess. Fingraför hans eru hvað mest áberandi á þeirri þróun sem orðið hefur á þjóðhátíð en ekki síður hjá íþróttahreyfingunni í Eyjum. Þór er einn þeirra sem hefur unnið óeigingjarnt starf í þágu hátíðarinnar og ÍBV íþróttafélags til fjölda ára og á hann að baki nokkurra áratugalanga nefndar- og formannssetu. „Ég var fyrsti framkvæmdastjóri þjóðhátíðar og jafnframt fyrsti formaður þjóðhátíðarnefndar þar sem ég var ráðinn sem formaður var hjá Íþróttafélaginu Þór árið 1984. Svo ég sinnti formennsku og framkvæmdastjórn þjóðhátíðar það ár og svo aftur 1986 því á þessum tíma skiptust félögin Þór og Týr á að halda þjóðhátíð,“ segir Þór um upphafið en hann var aðeins 16 ára gamall þegar hann tók fyrst sæti í stjórn hjá Íþróttafélaginu Þór. „Það kom þannig til að ég var að æfa fótbolta með Þór, æfði mikið og hafði mikinn metnað og áhuga, og í kjölfarið voru mér falin ýmis störf fyrir félagið. Það endaði svo með því að mér var boðið að taka sæti í stjórn sem ég þáði að sjálfsögðu,“ segir Þór sem gengst við því að vera mikill já-maður. Þess ber bakgrunnur hans í nefndar- og formannssetum berlega merki og spannar nokkra áratugi líkt og fram hefur komið. Fyrsti formaður ÍBV íþróttafélags „Ég var formaður Íþróttafélagsins Þórs í níu ár, síðan varð ég fyrsti formaður ÍBV íþróttafélags þegar Þór og Týr sameinuðust og gegndi því hlutverki í sex ár en þegar ég hætti þar tók ég að mér að vera formaður Héraðssambands Íþróttabandalags Vestmannaeyja og var þar í 13 ár. Síðan var aftur leitað til mín á erfiðum tímum hjá félaginu, ÍBV, og þá tók ég tvö ár þar í viðbót,“ listar Þór upp en þar með er formannsferilinn ekki upptalinn. Eftir setuna í Héraðssambandinu var honum falið að gegna hlutverki formanns á öðrum vettvangi en íþróttafélaganna. „Sá sem hafði setið lengst með mér í stjórninni hjá Héraðssambandinu, og jafnframt íþróttafélaginu Þór, maður að nafni Gísli Valtýsson, gerðist gjaldkeri hjá Félagi eldri borgara og leitaði til mín þegar upp kom formannskrísa þar og bað mig um að taka við. Ég var ekki lengi að segja já við því og hef verið formaður þar síðan 2018,“ segir Þór og gefur lítið út á það 20

Þór hefur alla tíð tileinkað sér að mæta í sparifötunum á setningu þjóðhátíðar.

þegar hann er spurður út í leiðtogahæfileikana sem hann virðist hafa fengið í vöggugjöf. „Ég veit það ekki, svona hefur þetta alltaf einhvern veginn æxlast og þróast. Mér þykir skemmtilegt að takast á við áskoranir og ný verkefni og fá tækifæri til að kynnast og vinna með góðu fólki. Ég lít á það sem forréttindi.“ Gullár þjóðhátíðar Á því tæplega 80 ára æviskeiði sem Þór hefur lifað hefur hann aðeins misst af þremur þjóðhátíðum. Raunar þykir honum það þremur skiptum of mikið því helst hefði hann kosið að hafa ekki sleppt einni einustu þeirra. Þá eftirminnilegustu segir hann vera þjóðhátíðina 1986 en hún var sú fjölmennasta sem haldin hafði verið fram að því. Að sögn Þórs var þetta eins konar gullár þjóðhátíðar sem leiddi til þess að umgjörð hennar tók ákveðnum stakkaskiptum svo hægt væri að bregðast við aukinni aðsókn og eftirspurn eftir aðgangsmiðum. „Þetta var sú langstærsta sem haldin hafði verið en þetta ár náðum við að tvöfalda miðasöluna og gott betur en það,“ segir Þór og ef minni hans bregst ekki tókst að selja yfir 9000 miða það árið.


„Við náðum ekki alveg nógu vel utan um mannfjöldann því þarna var ekki farið að girða svo fjöldinn var í sjálfu sér miklu meiri þegar hátíðin náði hápunkti,“ segir hann en þetta ár var hvert þátttökumetið á fætur öðru slegið; metfjöldi heimamanna, metfjöldi gesta og metfjöldi miða en eins og þekkist er þjóðhátíð langvinsælasta útihátíð landsins í dag. „Ferðaskrifstofa Vestmannaeyja brá á það ráð þetta ár, 1986, að leigja farþegaferjuna Smyril sem ferjaði urmul farþega hingað fyrsta daginn. Svo vorum við svo heppin með hvað veðurspáin var góð, það spáði blíðu alla helgina, þannig Smyrill fór nokkrar ferðir í Þorlákshöfn og smalaði öllu liðinu hingað.“ Samanborið við árin á undan segir Þór að sala á miðum hafi meira en tvöfaldast og hagnaðurinn eftir því. „Þarna græddu því allir,“ segir Þór og hlær. „Mér er minnisstæður samningurinn sem við gerðum við Stuðmenn þessa þjóðhátíð. Þeir héldu uppi stuðinu þessa þjóðhátíð og voru aðalnúmerið svo það var samið við þá að ef og þegar að um 5500 miðar höfðu verið seldir þá myndu þeir fá greidda ákveðna prósentu. Þetta var engin spurning í okkar huga því það hafði auðvitað aldrei gerst að svona margir miðar hefðu selst. En þarna var lukkan með þeim og þénuðu þeir ansi vel þessa helgi,“ segir hann og skellir upp úr. Hringrásarlögmál hátíðarinnar Þór segir mikilvægast af öllu að vel sé haldið á spöðunum í undirbúningi og skipulagningu þjóðhátíðar. Öllu máli skipti að hátíðin fari vel fram. Þá græði allir á því að gætt sé að öryggi, forvörnum og velferð hátíðargesta. Slíkt styður við jákvæða ímynd og gott orðspor þjóðhátíðar sem leiðir af sér aukna aðsókn. Aukin aðsókn skilar sér svo í aukinni afkomu. „Þetta helst allt í hendur. Rekstur íþróttafélagsins liggur allur þarna undir. Það er okkur hjartans mál að þjóðhátíð fari fram með framúrskarandi hætti og að upplifun þjóðhátíðargesta sé góð,“ segir Þór. „Þetta batterí fer stækkandi og þjóðhátíð hefur verið að þróast á rosalega flottan hátt,“ segir hann jafnframt og nýtir tækifærið í að hrósa þjóðhátíðarnefnd. „Í raun eru nefndarmenn alltaf á vaktinni og það er stöðugt at. Lenskan er sú að drög að næstu þjóðhátíð eru strax lögð á teikniborðið að þeirri síðustu lokinni og þá er formaðurinn strax byrjaður að útvista verkefnum og gera og græja. Svo er það stjórn félagsins sem samþykkir stærstu fjárútlátin og gerð er fjárhagsáætlun fyrir hverja hátíð fyrir sig sem þarf samþykkt frá stjórnarmönnum,“ lýsir hann í grófum dráttum hlutverki forsvarsfólks hátíðarinnar og því ferli sem unnið er eftir.

„Þjóðhátíð hefur mikið að segja fyrir rekstur og umgjörð félagsins. Til dæmis eftir gullárs þjóðhátíðina 1986, þar sem við höfðum aldrei séð jafnflotta útkomu, að þá gátum við byggt Þórsheimilið fyrir ágóðann og gert það alveg skuldlaust.“

Hjónakornin Þór og Dollý í góðu yfirlæti innan um mannfjöldann í brekkunni.

13 veðurbarðir hátíðargestir á stofugólfinu Þrátt fyrir þjóðhátíðargestir séu flestir með sól í hjarta á þjóðhátíð þá hefur sagan sýnt að það er allra veðra von á Íslandi á þessum árstíma. Í gegnum 150 ára sögu þjóðhátíðar hafa nokkrar þeirra bókstaflega fokið í veður og vind en blessunarlega er hægt að telja þær á fingrum annarrar handar. Þór segist muna eftir leiðinlegu veðurlagi á nokkrum þjóðhátíðum. Þrátt fyrir veðrahaminn segir hann allt hafa gengið snurðulaust fyrir sig einna helst vegna góðrar áætlanagerðar þjóðhátíðarnefndar og samtakamátt heimamanna sem eru að upplagi einstaklega viljugir, liðlegir og gestrisnir að hans sögn. „Sem betur fer stendur illviðrið yfirleitt ekki lengi yfir, kannski bara rétt um sólarhring en ekki alla helgina. Eitt sinn lenti ég í því að þurfa að hafa samband við bæði forstjóra Vinnslustöðvarinnar og Fiskiðjunar til að fá þá til að opna verbúðirnar fyrir Þjóðhátíðargesti því við urðum að koma öllu fólkinu fyrir í skjól,“ útskýrir Þór og segir fólk ekki hafa verið eins vel útbúið líkt og tíðkast í dag. „Það blessaðist allt og tókst okkur að koma öllum fyrir á griðastað. Enda er það þannig að hér í Vestmannaeyjum leggjast allir á eitt þegar á reynir.“ 21


Einstök elja og gestrisni heimamanna Vestmannaeyingar eru gjarnan rómaðir fyrir óviðjafnanlega gestrisni og við það getur Þór tekið undir. Sjálfur hefur hann oftar en einu sinni, og tvisvar, skellt þaki yfir veðurbarna þjóðhátíðargesti og þykir honum ekkert sjálfsagðara en það. Því fylgi bæði stemning en einnig geti ótrúleg tengsl tekist upp með heimamönnum og gestum sem lenda á vergangi vegna veðurs eða annarra ástæðna. „Það voru einu sinni 13 manns hérna í stofunni sem ég tók með mér heim úr dalnum því tjöldin þeirra höfðu fokið,“ segir hann spaugsamur og þakkar Guði fyrir það að vera vel giftur. „Sem betur fer gerist það í undantekningar tilfellum og gott að við Dollý mín höfum bæði jafngaman að þessu.“ Þá segir Þór ómetanleg vináttutengsl það dýrmætasta við að opna heimili sitt fyrir þjóðhátíðargestum sem kunni flestir, ef ekki allir, að meta gestrisnina mikils. „Maður hefur kynnst og tengst mörgu góðu fólki í gegnum þjóðhátíð. Til dæmis hafa gamlir þjóðhátíðargestir sem fengu eitt sinn að gista hjá okkur komið og gert ýmislegt fyrir okkur í sumarbústaðnum sem við fjölskyldan eigum við Gíslholtsvatn. Þá voru þetta bara peyjar, menntaðir iðnaðarmenn, sem endurguldu okkur gistinguna með þessum hætti,“ segir Þór og heldur áfram að rekja óveðurssögur af þjóðhátíð. Man hann til að mynda eftir einni þar sem veðurguðirnir gerðu haglél. „Þá vorum við með góðan frænda, Eirík heitinn sem fallinn er frá, og vini hans í tjaldgistingu í garðinum og þá gerði haglél um hásumar. Þetta var alveg svakalegt haglél og við erum að fá okkur morgunmat þegar þetta gerist og þeir koma hlaupandi inn á nærbuxunum alveg í öngum sínum og héldu að það væri bara að koma heimsendir alveg í sjokki yfir þessu,“ segir hann spaugilega og bendir á að þessi skyndilega veðurbreyting hafi staðið mjög stutt yfir. Vandamálin til þess að leysa þau „Svo fengum við slæma þjóðhátíð árið 2000. Það rigndi einhver ósköp svo opna þurfti öll íþróttamannvirki fyrir þjóðhátíðargesti. Þá fengu þeir einnig að nýta sér þvottavélar og þurrkara í Týsheimilinu og svo matreiddu sjálfboðaliðar ofan í þá heita súpu og sáu til þess að þeir fengu hlýju í kroppinn og einhverja næringu ofan í sig,“ lýsir hann og segir bæði fórnarkostnað og fjárhagslegt tjón geta hlotist af við svona aðstæður. „Þetta kostar félagið heilmikið. Þá sérstaklega vegna þess að þarna þarf að hafa gæslumenn í vinnu og 22

Þór ásamt barnabarni sínu, Maríu Sigrúnu.

fleira. Sumum ber okkur skylda að greiða laun en yfirleitt eru þetta allt sjálfboðaliðar og það getur verið heljarinnar vinna að koma upp annars konar skipulagi en lagt var upp með og bregðast rétt og vel við þeim aðstæðum sem kunna að koma upp.“ Þór segist engan bilbug hafa fundið á sér þegar horfast þurfti í augu við áskoranir eða veðurofsa í tengslum við þjóðhátíð. Aldrei hafi komið til greina að gefast upp og segja sig frá stjórnar- eða nefndarstörfum. „Ástríðan ræður þessu og þegar það kemur babb í bátinn þá verður maður bara að taka á sig rögg og fást við það. Það sýndi sig líka svo vel í fyrra hvernig hann tengdasonur minn, Jónas Guðbjörn Jónsson, núverandi formaður þjóðhátíðarnefndar, tók á málunum. Það voru allir í stakkbúnir að fá þetta óveður á sig og tókst því vel til að halda utan um þetta allt saman þótt að á móti hafi blásið,“ segir Þór stoltri röddu. „Svo er þetta alveg ótrúlegt með Vestmannaeyinga, hvað þeir eru viljugir við að gefa af sér til nærsamfélagsins. Þjóðfélagið hefur breyst mikið og er sífellt orðið erfiðara að fá fólk til að sinna sjálfboðaliðastörfum því það vilja margir fá eitthvað fyrir sinn snúð, en Vestmannaeyingum er mikið í mun um að þjóðhátíð haldi góðu orðspori og bera ákveðið stolt fyrir brjósti gagnvart hátíðinni. Þetta er eitthvað sem ekki er sjálfgefið en við sem samfélag getum öll grætt á þessum eiginleikum heimamanna.“ Þrátt fyrir þessa yfirferð á erfiðum þjóðhátíðum veðurfarslega áréttar Þór að í langflestum tilfellum fari þjóðhátíð fram við ágætisveður. Og oft í algjöru


blíðviðri. „Ég hef til dæmis verið þess heiðurs aðnjótandi að hafa sett þjóðhátíð tólf sinnum og það alltaf í góðu veðri.“ Haldið í hefðir meðfram framrásinni Með tíð og tíma hefur þjóðhátíð og umgjörð hennar tekið eðlilegum breytingum að sögn Þórs. Stóra sviðið, veitingatjaldið og afgirtu svæðin spila stórt hlutverk í þeim breytingum en þrátt fyrir framþróunina sem orðið hefur á hátíðinni er ríkulega haldið í hefðirnar. „Hvítu tjöldin eru órjúfanlegur hluti hátíðarinnar, það mun aldrei breytast. Við fjölskyldan höfum til dæmis þurft að stækka tjaldið okkar svo um munar vegna þess að eftir því sem maður eldist þá fjölgar fjölskyldumeðlimunum. Það verður að geta farið vel um allt okkar fólk í tjaldinu,“ segir Þór. „Okkur þykir líka vænt um setninguna. Þangað er yfirleitt vel mætt, allir uppáklæddir og allt svo hátíðlegt. En það sem hefur fest sig í sessi hjá okkur fjölskyldunni er að á sunnudeginum borðum við alltaf lambalæri og svo er ríkur siður hjá okkur að horfa saman á kvikmyndina Stellu í orlofi áður en fólk fer að gíra sig inn í dal,“ segir hann eftirvæntingarfullur fyrir næstu þjóðhátíð þó svo að aðdragandinn hafi tekið breytingum með tíð og tíma. „Allt er breytingum háð en það er orðið töluvert síðan ég tók þátt í verklegum undirbúningi inni í dal fyrir þjóðhátíð. Þó hef ég um langt skeið verið ásamt þremur öðrum heiðursmönnum í því að sjá um

Fjölskyldan öll lætur sjá sig í dalnum óháð kynslóðum. Jafnt ungir sem aldnir skemmta sér vel á þjóðhátíð. Hér er Þór ásamt barnabarni sínu.

Ofurmennið Þór að henda upp hvíta tjaldinu.

að koma armböndum í afgreiðsluskúrana og halda fjárhagslega utan um miða- og veitingasölurnar,“ segir hann og heldur áfram: „Svo fyrir tveimur árum gerðist svolítið sérstakt. Jónas tengdasonur kom að máli við mig og sagði að þeir hefðu ekki verið nægilega ánægðir með skipulagið varðandi blysin á sunnudagskvöldinu og bað mig að aðstoða sig við að finna einhvern traustan aðila sem gæti tekið skipulagið að sér og haldið utan um þau mál. Ég var ekki lengi að finna út úr því og hafði að sjálfsögðu strax samband við upphafsmann blysanna í brekkunni, Friðbjörn Ólaf Valtýsson. Hann sagðist vera til í að taka verkefnið að sér ef hann fengi aðra góða til liðs við sig. Það varð að ráði að við þrír sem höfðum komið að aðstoð varðandi miðasöluna, 45’-módelin, ég, Hermann Kr. Jónsson og Þórarinn Sigurðsson ásamt 46’-módelinu Gísla Valtýssyni, tókum að okkur að aðstoða Friðbjörn með blysin. Blysanefndin svokallaða fundaði svo oft á síðasta ári að hún fundaði líklega oftar en sjálf þjóðhátíðarnefnd og að sjálfsögðu mættum galvaskir í brekkuna þrátt fyrir aldur,“ segir Þór kankvís og skellir upp úr. Hann segir stuðið í dalnum alltaf kitla skemmtipúkann í sér en sökum núverandi aldursskeiðs taki hann hóflega þátt í gleðinni. „Með aldrinum hefur maður verið að fara fyrr heim úr dalnum en áður en þetta er alltaf jafnskemmtilegt. Áður fyrr fórum við heim með yngstu börnin eftir brennu en nú fer ég bara einn heim með Dollý eftir brennu,“ segir Þór léttur í bragði að lokum. /Ásthildur Hannesdóttir 23


24


FRÁR VE 78

25


Þjóðhátíðin mín Sirrý Árdís Ágústdóttir Sirrý hefur mætt á um 35 þjóðhátíðir og hefur nú síðstu tvö ár mætt í Herjólfdal að hjálpa til við undirbúning hátíðarinnar. Við tókum Sirrý í létt spjall. Starf: Vinn við umönnun á Hraunbúðum ásamt því að vinna við þrif hjá uppáhalds Vélaverkstæðinu Þór fyrir utan að vera í námi og ýmislegt annað. Fjölskylduhagir: Við Grétar Ingi Sonur minn búum tvö saman ásamt tveimur kisum svo kemur Sigurður Hjálmar Tryggvason alltaf 4 sólarhringa í mánuði. En fáum reglulega auka meðlimi ýmist hin bræðra börnin mín eða hundana sem ég tek reglulega Chloe og Arven þar sem ég á mikið í þeim. Fjöldi Þjóðhátíðar? Eru um 35. Hvernig verður þjóðhátíð eftir 50 ár? Pottþétt frábær verð þá reyndar orðin 92 ára. Reikna ekki með öðru en það verði sól og blíða þar sem að það er Týs Þjóðhátíð verður vonandi búið að byggja veitingatjald sem er alltaf til staðar og búið að betrum bæta meira. Uppáhalds Þjóðhátíðarlag? Í Dalnum með þér eftir Ágúst Emil Grétarsson litla frænda það er fast á playlistanum. Uppáhaldslag í brekkusöng? Get ekki valið eitthvað eitt þar sem brekkusöngurinn er uppáhalds hjá mér. Litli eða stóri pallurinn? Bæði fer bara á milli eftir því hver er að spila. Hvert er fallegast; Vitinn / Myllan/ Hofið? Hofið er klárlega fallegasta mannvirkið. 26

Í brekkunni á Þjóðhátíð.


Hvað er það besta við Þjóðhátíð? Brekkusöngurinn og blysin eru mitt uppáhald. Hver er eftirminnilegasta Þjóðhátíðin? Þjóðhátíðarnar 2008 og 2009, var kasólétt í gæslunni með mömmu 2008 drengurinn fæddist 19. ágúst og svo með hann farinn að hlaupa um dalinn í tjörnina ári seinna. Hvað er nauðsynlegt í tjaldið? Flatkökur, möffins og vefjurnar. Fyrir hvað stendur þjóðhátíð í þínum huga? Fyrir mér er þetta fjölskylduhátíð það er bara eitthvað við það að byrja að plana allt með fólkinu sínu og undirbúa fyrir Þjóðhátíð þó þar sé að sjálfsögðu mikil skemmtun líka. Mætir þú jafnan á setninguna? Það er misjafnt fer eftir því hversu tímanlega ég fer í dalinn, einu skiptin sem ég er ekkert að stressa mig á mætingu er á daginn enn er yfirleitt mætt snemma á kvöldin. Hefur þú verið í búning með vinahóp? Já var einhverntíman í djöflabúning og svo bara allar í eins peysum. Lestu Þjóðhátíðarblaðið? Já alltaf spjaldanna á milli. Hvaða dagur/kvöld þjóðhátíðarinnar stendur upp úr? Sunnudagurinn er mitt uppáhald. Ég hef oft ekki ætlað að vera á þjóðhátíð enn endað í brekkunni í brekkusöngnum. Hvaða er mikilvægast í undirbúningnum og ertu virkur að taka þátt þar? Ég var alin upp við það á aðal þjóðhátíðunum að vera hjálpa Ömmu, mömmu, Kristný og kvennadeild Týs að hringja og manna innrukkun, eða græja

armböndin í búnt, mála í dalnum. Svo lengi í gæslu en þegar að þær duttu út þá gerði ég það líka þangað til í fyrra dreif ég mig í dalinn að hjálpa, syninum fannst svo gaman að ég mætti aftur í ár sé sko alls ekki eftir því. Það er eitthvað við það að vera með í að undirbúa í dalnum fyrir Þjóðhátíð félagsskapurinn og fólkið er svo dásamlegt. Fyrstu minningar af Þjóðhátíð í Herjólfsdal? Man alltaf eftir því þegar að mamma var á leiðinni með okkur systkin heim eftir miðnætti þar sem við biðum eftir bekkjabíl

þegar að við hittum Ómar Steinson bróðir pabba og Gylfa Viðar Guðmundsson frænda með tvo risa bangsa og risa apa bangsa sem þeir gefa okkur. Sem endaði með að mamma þurfti að drösla öllu heim ( mamma var ekkert rosalega ánægð með þá). Svo var alltaf hægt að blikka Ómar og Óðinn í skranbúðina. Gretar Þór Sævalds, Kristný frænka og Ottó Högna voru líka dugleg að spilla mér. Eitthvað að lokum? Gleðilega Þjóðhátíð, munið að skemmta ykkur fallega og sýna náunganum kærleik. 27


Salka Verslun

Gleðilega þjóðhátíð! 28


Góða skemmtun!

29


SETNINGIN 2024 / ADDI Í LONDON

30


31


VICTOR GUÐMUNDSSON:

BÚINN AÐ BÍÐA SPENNTUR EFTIR ÞVÍ AÐ KOMA TIL EYJA TIL ÞESS AÐ BÚA TIL TÓNLIST

Victor mætti í Herjólfsdal og kíkti á undirbúning Þjóðhátíðarinnar.

Það eru fáir sem sameina orku, ástríðu og ábyrgð á jafneinstakan hátt og Doctor Victor – tónlistarmaðurinn sem lætur dalinn duna og læknirinn sem læknar með bæði tónlist og hjartahlýju. Í þessu spjalli ræðum við Þjóðhátíðina sem stendur hjarta hans nærri, hvernig það er að stíga á svið í Herjólfsdal með 20 þúsund manns fyrir framan sig – og hvernig það er að lifa og starfa í litlu en kraftmiklu samfélagi þar sem hann og fjölskylda hans hafa fundið sig heima. Hvernig tilfinning er það að fara að stíga á sviðið í Herjólfsdal? Tilfinningin er ólýsanleg, það er ekkert sem toppar það að spila á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum! Hvað þýðir Þjóðhátíð fyrir þig persónulega – sem tónlistarmaður og sem gestur? Þjóðhátíð er einstök hátíð sem fáar aðrar hátíðir toppa í heiminum. Þetta er náttúrulega stærsta sviðið á Íslandi og ég hef verið bæði á sviðinu og sem gestur og orkan í Dalnum verður ekki toppuð. Svo er líka “Er allt í lagi?” framtakið frábært, en það snýst um að við ætlum að passa upp á hvort annað og sjá til þess að allir skemmti sér fallega og komist öruggir heim. En það sem ég er sérstaklega þakklátur 32

fyrir eftir að hafa mætt fyrr í Eyjuna núna er að sjá allt frábæra fólkið sem vinnur baki brotnu alla daga margar vikur fyrir Þjóðhátíð til að láta hana ganga upp. Ég segi bara takk! Hvernig verður þjóðhátíðinni háttað hjá ykkur fjölskyldunni í ár? Verðið þið með hvítt tjald? o.s.frv? Við í fjölskyldunni erum náttúrulega nýflutt til Vestmannaeyja og erum mjög spennt fyrir því að búa hér næsta árið, en við ætlum að taka tvær Þjóðhátíðir í röð hér. Dagbjört mín verður á læknavaktinni og sér um þann part á meðan ég sé um tónlistina í Dalnum. Við erum ekki ennþá komin með okkar eigið hvíta tjald, en það er aldrei að vita hvað gerist eftir þetta ár. Annars er maður búinn að kynnast svo mörgum í Eyjum að við erum með boð í mörg hvít tjöld og kíkjum að sjálfsögðu í heimsókn sem verður ennþá skemmtilegra nú þegar við erum orðin Eyjafólk. Svo er bara planið að koma öllum þremur strákunum okkar Frosta, Mána og Storm í ÍBV og hvetja okkar heimalið áfram! Hvernig myndir þú lýsa Doctor Victor hljóðheimnum fyrir einhvern sem hefur aldrei heyrt í þér áður? Ég er með bakgrunn í klassískum píanóleik (Beethoven, Mozart og fleira) og elska að nota píanó


Victor ásamt fjölskyldunni, Dagbjört, Frosti, Máni og Stormur.

og “live” hljóðfæri í lögunum mínum. En ég er svo sérstakur áhugamaður um elektróníska heiminn, svo ætli ég myndi ekki segja að tónlistin mín væri elektrónísk danstónlist með klassísku ívafi - full af orku.

að vera heima með fjölskyldunni, læknastofunni og Dalnum með 15-20.000 manns fyrir framan sig, en í grunninn er ég með sömu gildi á öllum vígstöðum: að gera alltaf mitt besta, vera jákvæður og gefa frá mér orku.

Hvaðan sækir þú helst innblástur fyrir lögin þín? Avicii, Calvin Harris, Swedish House Mafia.

Hvað tekur langan tíma að komast í gírinn fyrir sviðið – ertu með rútínu fyrir svona stórt gigg? Það er alltaf mikil spenna sama dag og það er stórt gigg, en á Þjóðhátíð þá er bara best að rölta um bæinn, kíkja í Lundapartýið, snæða góðan mat, fara snemma í Dalinn og svo taka góðan “pepp hring” með sínu besta fólki fyrir sviðið. Ég er svo heppinn að systir mín Eva Mey er líka læknir og að DJ-a, en við erum alltaf að spila saman á Þjóðhátíð og peppum hvort annað.

Er eitthvað nýtt efni á leiðinni sem við getum beðið spennt eftir? Heldur betur, ég er búinn að bíða spenntur eftir því að koma til Eyja til þess að búa til tónlist og er einmitt að setja upp stúdíó í bænum í þessum töluðu orðum. Ég hlakka til að sýna meira frá því! Ertu með einhverja óvænta gesti, uppákomur eða „trikk“ á sviðinu sem fólk getur búist við í Dalnum? Ég er alltaf með einhver “trikk” upp í erminni. Þið verðið bara að mæta á laugardagskvöldinu í Dalinn og fylgjast með beint eftir flugeldasýninguna á miðnætti og sjá hvað það verður í ár! Hver er munurinn á Victor og Doctor Victor? Það er í rauninni enginn munur og ég hef alltaf viljað að persónan Victor og tónlistarmaðurinn Doctor Victor sé sama persónan. Það er vissulega munur á

Hvað viltu að fólk taki með sér úr Doctor Victor tónleikum? Jákvæðni, orku og stemningu. Hvaða þrjú orð lýsa Þjóðhátíð best? Ást, gleði, sameining. Hver er skrítnasta eða fyndnasta uppákoman sem hefur gerst á sviðinu hjá þér? Það var í fyrra þegar ég lenti í því í miðju setti með 33


FM95BLÖ að ég var að fara spila “remix” sem ég gerði af nokkrum lögum með þeim en þegar ég var að hlaða laginu inn virkaði það ekki og 30 sekúndur eftir af laginu sem var í gangi. Ég dreif mig að sækja bakpokann og opna tölvuna, náði að finna “remixið” og setja inn á kubb og hlaða því inn á græjurnar áður en lagið kláraðist en annars hefði verið þögn í Dalnum með 15-20.000 manns fyrir framan okkur. Fyndna er að enginn vissi af þessu fyrr en eftir á, en ætli þetta hafi ekki verið svipað pressunni að vera í aðgerð þar sem maður þarf að klára hlutina undir pressu. Hver væri drauma-lineupið þitt á Þjóðhátíð – listamaður: lifandi eða látin, íslensk eða erlend? Avicii, Calvin Harris, Martin Garrix eða Swedish House Mafia á stóra sviðið! Ef þú mættir gefa sjálfum þér eitt ráð áður en þú byrjaðir að spila tónlist – hvað væri það? Fylgdu hjartanu í einu og öllu og aldrei gefast upp. Tónlistin snýst um að gera það sem maður elskar og ef þú heldur áfram að vera duglegur og ert með skýra sýn á hvert þú ert að stefna, þá muntu ná þangað einn daginn. Hvernig er að starfa sem læknir í litlu og nánu samfélagi eins og Vestmannaeyjum? Það er frábært. Við Dagbjört höfum komið hingað til Eyja mörg ár í röð á Þjóðhátíð þar sem hún hefur tekið læknavaktina og ég tónlistarvaktina, en við prófuðum svo að taka mánuð nú síðustu jól og áramót og þá féllum við alveg fyrir Eyjalífinu. Það er einstakt að búa í Eyjum og fólkið hér er frábært, svo við erum mjög spennt fyrir þessu ári sem við höfum planað og það kemur í ljós hvernig málin þróast. Við höfum líka áhuga á mismunandi sviðum, en Dagbjört er sérnámslæknir í bráðalækningum á meðan ég brenn fyrir því að innleiða nýjar lausnir í heilbrigðiskerfið til þess að gera það skilvirkara og einnig að fyrirbyggja sjúkdóma með heildrænni nálgun á heilsu: hreyfingu, næringu, svefn og andlega heilsu. Svo við ætlum að hjálpa til eins mikið og við getum á báðum endum á meðan við erum hér. Hvernig hefur það mótað þig sem persónu – að vera bæði „Doctor“ í hvítum slopp og á sviðinu? Sagan er nú þannig að ég byrjaði að spila almennilega þegar ég var í læknanámi í Slóvakíu, en þá byrjaði fólk að tala um að “Doctorinn” væri að fara spila. Á endanum festist listamannsnafnið “Doctor Victor” sem mér finnst í raun mjög skemmtilegt því það nær utan um allt það sem ég brenn og stend fyrir —

34

heilsuna, læknisfræðina og tónlistina. Hvað finnst þér skemmtilegast við að vera heimilislæknir í Eyjum? Ætli ég sé ekki spenntastur fyrir því að reyna að ná utan um heilsu hjá fólki og reyna að fyrirbyggja sjúkdóma með heildrænni nálgun á heilsu — ýta undir að fólk sinni hreyfingu, borði holla og næringarríka fæðu, hugsi vel um svefninn og andlegu heilsuna með því að minnka álag og stress. Ég er með stóra hugmynd sem ég er að vinna í tengt þessu sem mig langar að hrinda í framkvæmd í Eyjum og mun segja betur frá sem fyrst. Finnst þér fólk treysta þér öðruvísi í læknastofunni eftir að það sér þig á sviðinu? Já, ætli fólk sé ekki opnara við mig ef eitthvað er. Ég finn allavegana mikið traust frá því fólki sem ég hitti og hef mjög gaman af því að hjálpa fólki. Sérðu einhver líkindi milli þess að vera læknir og tónlistarmaður? Það er að miklu leyti svipað en heilsa og tónlist eiga það sameiginlegt að vera samspil ólíkra þátta sem


koma saman og mynda heildar “tónverk”. Ef maður lærir að hlusta á líkamann eins og tónlist, þá getur maður verið meira meðvitaður um heilsuna og hvaða þætti er hægt að bæta hverju sinni. Hvernig tekst þér að halda jafnvægi á milli tveggja svo ólíkra starfa? Það er einmitt með því að hugsa vel um heilsuna, en ég hreyfi mig reglulega, hugsa vel um mataræðið heilt yfir, reyni að sofa eins vel og ég get miðað við að vera með þrjá litla orkubolta, og sinni andlegu heilsunni með því að sinna fjölskyldunni, vinum og áhugamálum sem fyrir mér er tónlistin. Hefur það einhvern tímann komið fyrir að þú hafir þurft að fara beint af vakt á svið – eða öfugt? Já, það hefur gerst oft en ég reyni nú að taka frí á læknavaktinni á stórum hátíðum eins og Þjóðhátíð. En ég man vel eftir einu atviki þegar ein stelpa missteig sig á miðju dansgólfi á meðan ég var að spila og ég þurfti að huga að henni og sendi upp á spítala. Það fór sem betur fer vel, en það má segja að það sé öruggt að hafa lækni á græjunum ef eitthvað kemur upp á! Hvað dró þig að læknisfræði í upphafi? Hefur læknastarfið haft áhrif á tónlistina þína – eða öfugt? Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á heilsu og að hjálpa

fólki, en ég hef það líklegast frá mömmu minni Eddu Freyju og pabba Guðmundi Rafni. Afi minn Frosti Sigurjóns skurðlæknir var svo mikil fyrirmynd og alltaf þegar ég var í heimsókn hjá honum þá sýndi hann mér læknabækur og var að útskýra fyrir mér hvernig mannslíkaminn virkar. Læknastarfið hefur vissulega haft áhrif á tónlistina, en ég sé hvað tónlist getur haft jákvæð áhrif á líðan fólks og öfugt - hvað það hjálpar til að vera í góðu jafnvægi með heilsuna til að vera skapandi í tónlistinni. Hver er stærsta áskorunin við að vera bæði í skapandi starfi og í ábyrgðarstarfi innan heilbrigðiskerfisins? Það er stundum mikið að gera á báðum vígstöðum og þá gefst ekki eins mikill tími til að semja tónlist, en ég reyni að viðhalda góðu jafnvægi og er mjög bjartsýnn á að Eyjar og Eyjalífið muni gefa mér mikinn innblástur í tónlistinni. Hvaða lag ætlar þú alls ekki að sleppa að spila í Herjólfsdal? Gamla góða lagið mitt sem ég spilaði fyrst af öllu á stóra sviðinu 2019 — Sumargleðin. Hvað myndir þú segja við einhvern sem er að koma á sína fyrstu Þjóðhátíð? Njóttu vel - þetta er eitt það skemmtilegasta sem þú munt upplifa í lífinu!

35


JÓNAS GUÐBJÖRN JÓNSSON, FORMAÐUR ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFNDAR:

FORSETAFYLGD Í BREKKUNA Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var fyrsta opinbera heimsókn Höllu Tómasdóttur eftir að hún var kjörin forseti Íslands í fyrra. Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður þjóðhátíðarnefndar, tók að sér það hlutverk að sækja Höllu og fylgdarlið hennar á flugvöllinn og aka þeim inn í Herjólfsdal fyrir setningarathöfn þjóðhátíðar á föstudegi. Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig en hér deilir Jónas með lesendum blaðsins hans upplifun af ferðinni. „Þetta var eins og að vera staddur inni í einhverri bíómynd,“ segir Jónas og hlær um leið þegar hann er spurður út í sendiferðina sem óhætt er að segja að skyndilega hafi breyst í ævintýraferð. Forréttindi að fá að sækja forsetann Aðdragandanum lýsir hann með þeim hætti að formaður ÍBV íþróttafélags, Ellert Scheving Pálsson, hafi haft bón til hans um að fara í skottúr upp á flugvöll til að sækja Höllu forseta og skutla henni inn í dal svo hún gæti verið viðstödd setningarathöfn þjóðhátíðar. Líkt og áður sagði var það hennar fyrsta opinbera heimsókn eftir forsetakjörið og hún í þann mund að máta sig inn í glænýtt hlutverk. Það mátti því ekkert klikka og segir Jónas að sjálfsögðu ekki hafa komið til greina að skorast undan bón Ellerts. Á sama tíma viðurkennir hann að taugakerfið hafi örlítið farið að láta á sér kræla um leið og hann tók verkefnið að sér. „Ég fékk alveg hnút í magann,“ segir hann. „Ellert var búinn að skipuleggja þetta allt saman. Ég átti að sækja 36

Jónas formaður Þjóðhátíðarnefndar og Halla Tómasdóttir forseti Íslands í Herjólfsdal á setningu Þjóðhátíðar ÍBV í fyrra.

bíl heim til tengdaforeldra hans og vera mættur út á völl að sækja þau um hálf tvö leytið og láta þau hafa bílinn og allt þetta - hann hafði verið búinn að plana þetta allt,“ segir Jónas. Áður en hann lagði í hann uppeftir ákvað hann að koma við heima hjá sér til að klæða sig örlítið upp á, enda ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til að vera í slíkri nálægð við sjálfan forseta lýðveldisins. Þetta voru engin smá forréttindi. „Svo ég stökk ég aðeins heim og græjaði mig áður en ég lét skutla mér til að sækja bílinn og er svona bara að undirbúa þetta allt saman.

Fór svo tímanlega upp á flugvöll og var mættur í tæka tíð áður en flugvélin lenti,“ útskýrir hann og rekur undanfara sögunnar. Hvar á ég að leggja? Segist hann hafa lagt bílnum í hefðbundið bílastæði við flugstöðina en hugsað sig um í þó nokkra stund hvort hann ætti að leggja bílnum í þetta stæði eða hitt eða hvort að hann ætti að leggja bílnum nær flugstöðinni eða ekki og ýmsar vangaveltur í þessum dúr. Ákvörðunina segir hann hafa vafist svolítið fyrir honum. Þarna var nefnilega ekki um neinn venjulegan gest að ræða sem hann var að sækja heldur var þetta sjálfur forsetinn. Slíkan


Gerðu eitthvað skemmtilegt í Vestmannaeyjum með Aukakrónum

2% afsláttur

0,5% afsláttur

3% afsláttur

5% afsláttur

5% afsláttur

5% afsláttur

1,5% afsláttur

5% afsláttur

3% afsláttur

5% afsláttur

5% afsláttur

5% afsláttur

2% afsláttur

3% afsláttur

5% afsláttur

5% afsláttur

1,6% afsláttur

5% afsláttur

1,5% afsláttur

3% afsláttur

Kynntu þér Aukakrónur á landsbankinn.is/aukakronur

37


aufúsugest þyrfti nú kannski að tríta með sérstökum hætti. Samt var hann ekki viss og var því frekar tvístíga. „Ég reyndi eins og ég gat að ofhugsa þetta ekkert meira og lagði bara þarna nett fyrir utan í venjulegt stæði og fór inn,“ segir hann. „Það var mikil spenna í loftinu þarna uppi á flugvelli vegna komu forsetans, sérstaklega á meðal starfsfólksins. Mér var strax tilkynnt að það væri smá seinkun á vélinni og ég kippti mér ekkert mikið upp við það en svo var mér sagt að að það væri meiri seinkun,“ segir Jónas sem var hætt að lítast á blikuna þegar þarna er komið við sögu því klukkan tifaði og setningin í óðaönn að hefjast. „Klukkan var langt gengin í tvö og setningin átti að hefjast klukkan hálf þrjú en það var ekkert annað að gera í stöðunni en að bíða bara. Þá fór ég að hugsa með bílinn og hvort ég ætti ekki að færa hann nær flugstöðinni og í þeirri andrá spyr starfsmaður Isavia hvort ég vilji færa bílinn og fara með hann fyrir innan. Ég neita því tilboði en fer samt út og færi bílinn aðeins nær,“ segir hann skoplega og heldur áfram að rekja söguna af ferðinni sem tók óvænta stefnu þegar vélin lenti loks á flugvellinum í Vestmannaeyjum. „Lögreglan mætti líka og var með fíkniefnahund í för með sér. Það voru fleiri flugvélar að koma líka sem voru að ferja þjóðhátíðargesti yfir þannig löggan var tilbúin að taka á móti þeim sem voru að koma með næstu vél,“ útskýrir hann og segir einn lögreglumannanna hafa upp úr þurru beðið sig um að halda á lítilli tösku sem og Jónas gerði. Enda með eindæmum löghlýðinn maður. Fíkniefnahundurinn á fullu gasi Miðað við frásögn Jónasar 38

voru aðstæður á flugvellinum ansi líflegar. Athafnasamur fíkniefnahundurinn strunsaði um alla flugstöð og bar nefið upp að bæði mönnum og dauðum hlutum á meðan lögreglumennirnir fylgdust með roggnir á svip. „Ég stend þarna við hurðina, með töskuna í höndunum, þegar forsetinn er nálgast og er alveg við það að labba inn. Og akkúrat þegar hún er að labba inn um hurðina stekkur hundurinn á mig því þá hafði hann merkt við mig út af þessari tösku,“ segir Jónas og hlær yfir hundslegu atvikinu. „Þetta þurfti bara akkúrat að gerast á sama tíma og forsetinn kom inn. Það var frekar neyðarlegt fyrir mig en hún kippti sér nú ekki mikið upp við þetta heldur heilsaði hún mér bara með höfðinglegum hætti,“ segir Jónas og lýsir því á hversu lúmskan máta hann lét töskuna renna úr greipum sér og detta á gólfið til að geta tekið almennilega á móti forsetanum. Húkkaði sér far En það er ekki sagan öll. Jónas gekk út úr flugstöðinni með Höllu og fylgdarliði hennar til að sýna þeim hvar bílinn væri að finna. Með Höllu voru fleiri í för en Jónas hafði gert ráð fyrir og var hann fljótur að átta sig á að ekki væri pláss fyrir hann sjálfan í bílnum og þá voru góð ráð dýr. „Hún var með bílstjóra með sér og fleira fólk svo ég var aldrei að geta farið með þeim í bíl. Ég hugsaði með mér hvernig ég ætti nú að koma mér niður í dal og endaði svo á að húkka mér far með lögreglunni,“ segir hann og hlær yfir eigin óförum. „Svo bara fórum við af stað og ég sat í aftursætinu í löggubílnum. Löggan er í sambandi við aðra lögreglumenn í gegnum talstöð sem sögðu að það væri mikil umferð í bænum og allt stíflað við Illugagötuna og alla leið niður í dal,“ segir Jónas sem var orðinn

smá óþreyjufullur tímapunkti.

á

þessum

Á fleygiferð með bláu ljósin kveikt Í einni sjónhendingu fór þá atburðarrás af stað sem mun sennilega seint renna Jónasi úr minni. „Þá negldu þeir bara bláu ljósunum í gang og brunuðu með forsetabílinn í eftirdragi í forgangsakstri í gegnum alla umferðina, á öfugum vegarhelmingi,“ segir hann og getur ekki annað en hlegið yfir þessari súrrealísku bílferð. „Þegar við keyrðum svo niður Illugagötuna og framhjá Hraunslóðinni er fjölskyldan mín akkúrat á gangi þarna og sjá mig í aftursætinu á lögreglubílnum með bláu ljósin á og þú getur ímyndað þér hvað fór í gegnum þeirra hugarheim á meðan - þau göptu bara og vissu ekki hvað var að gerast.“ Jónas segir lögreglubifreiðina hafa ekið á fleygiferð fram hjá Hásteinsvelli og alla leið niður í dal á öfugum vegarhelmingi til að koma forsetanum í tæka tíð á setninguna. Í millitíðinni hafði Jónas hringt símtöl, þar á meðal í Bjarna Ólaf Guðmundsson, betur þekktan sem Dadda diskó, til að biðja hann um að teygja lopann á setningarathöfninni eins mikið og hann gæti en Daddi sinnir gjarnan hlutverki kynnis á þjóðhátíð. „Þetta gekk allt upp og við vorum komin með forsetann inn í dal á slaginu hálf þrjú þar sem Íris bæjarstjóri tók á móti okkur eins og ekkert hafði í skorist,“ segir Jónas sem aldrei hefur upplifað aðra eins háskaför en segir augnablik lífsins þó stundum geta verið eins og bíómynd.


Regnjakki 12.990 kr,-

Pollabuxur 9.990 kr,-

www.icewear.is @icewearmagasin

39


laugardagur 2. ágúst

Föstudagur 1. ágúst

BARNASKEMMTUN 9:00

14:30

BÚSLÓÐIN Í TJALDIÐ Búslóðaflutningar leyfðir 9:00 - 11:30

SETNING ÞJÓÐHÁTÍÐAR • Þjóðhátíð sett: Hörður Orri Grettisson formaður ÍBV • Hátíðarræða: Páll Scheving Séra Guðmundur Örn Jónsson blessar hátíðina • Lúðrasveit Vestmannaeyja • Bjargsig: Gunnar Páll Elvarsson

Á TJARNARSVIÐI • PBT • Lína Langsokkur • Brúðubíllinn

21:00

• MEMM • Svala Björgvins • Frumflutningur Þjóðhátíðarlags: Stuðlabandið • Helgi Björns og Reiðm vindanna ásamt Sölku • PBT

• KAFFIHLÉ

Kynnir: Bjarni Ólafur Guðmu

10:30

14:30

21:00

LÉTT LÖG Í DALNUM

Á TJARNARSVIÐI • Brúðubíllinn • VÆB • Skoppa & Skrítla

• VÆB • Friðrik Ómar • Selma Björns • Ragga Gísla • Hr. Hnetusmjör • FM95BLÖ ásamt Jóhö Guðrúnu og Sverri Ber

Á BREKKUSVIÐI kl. 15:30-17:00 • Barnasöngkeppni Landsbankans

Kynnir: Bjarni Ólafur Guðmu

10:30

Sunnudagur 3. ágúst

16:00

KVÖLD

LÉTT LÖG Í DALNUM

14:30 Á TJARNARSVIÐI • Sylvía & Árni: Bestu lög barnanna • EmmsjéGauti • Skoppa & Skrítla Á BREKKUSVIÐI kl. 15:30-17:00 • Barnasöngkeppni Landsbankans

20:20

• Sigurvegari í barnasön keppni Landsbankans • Stefán Hilmarsson • Sigga Beinteins • EmmsjéGauti • Björgvin Halldórsson • GDRN

Kynnir: Bjarni Ólafur Guðmu

Dagskrá Þjóðhátíðar 2025 er birt með fyrirvara um breyting

40


MIÐNÓTT

DVAKA

TÓNLEIKAR/DANSLEIKUR

00:00

00:10

BRENNA Á FJÓSAKLETTI

• Gísli Pálmi • Húgo - Nussun • Háski • Hubba Bubba • Klara Einars • Ingi Bauer • Big Sexy • Issi • Alaska • Sprite Zero

menn u Sól

undsson

Á TJARNARSVIÐI • MEMM • Brimnes

00:00

00:15

FLUGELDASÝNING

• Dj Muscleboy & Doctor Victor • Aron Can • Kristmundur Axel • Veislan + gestir • Ágúst & Færibandið

önnu rgmann

undsson

Á TJARNARSVIÐI • Mucky Muck • Alles Ókei

23:00

00:00

BREKKUSÖNGUR Magnús Kjartan

ng-

BLYS

í boði

• Birnir • Flóni • Daniil • Tónhylur • Stuðlabandið

Á TJARNARSVIÐI • Færibandið • Brimnes

undsson

gar

00:15

/

/thjodhatid

/dalurinnokkar

/

www.dalurinn.is

41


ADDI Í LONDON HEFUR FANGAÐ STEMNINGUNA Í HVÍTU TJÖLDUNUM Á SETNINGUNNI


HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM ÞJÓÐHÁTÍÐINA? Nafn: Anna Steinunn Hallgrímsdóttir. Aldur: 12 ára. Foreldrar: Hallgrímur Steinsson og Auðbjörg Jóhannsdóttur. Hefur þú farið á þjóðhátíð? Ég hef alltaf verið á þjóðhátíð nema fyrsta árið mitt og þegar covid var og engin þjóðhátíð. Hvað gerir maður á þjóðhátíð? Skemmtir sér, er með fjölskyldunni sinni og vinum. Hvaða þjóðhátíðarlag finnst þér skemmtilegast? Þar sem hjartað slær er uppáhalds þjóðhátíðarlagið mitt. Hvernig helduru að þjóðhátíðin hafi verið í gamla daga? Held hún hafi verið svipuð þjóðhátíðinni núna nema miklu færra fólk og minni tækni.

44


45


HLJÓMSVEITIN MUCKY MUCK:

SKÍTUGT GRUGG OG DÆGURLÖG YFIRFÆRÐ Í ROKK HAM

Mucky Muck; Arnar, Trausti, Stefán og Jón Grétar.

Eyjahljómsveitin Mucky Muck kom fyrst fram á Þjóðhátíð 2023 og er þetta því þriðja árið sem þeir skemmta þjóðhátíðargestum á danspallinum. Við tókum þessum ungu Eyjapeyja tali: Meðlimir hljómsveitarinnar eru: Arnar Júlíusson / Gítar og söngur / 26 ára Trausti Mar Sigurðarsson / Bassi og bakrödd / 23 ára Stefán Gauti Stefánsson / Gítar / 27 ára Jón Grétar Jónasson / Trommur / 20 ára Hvað hafið þið verið að brasa nú það sem af er að árinu / koma fram? Við erum búnir að vera að vinna hörðum höndum að nýju breiðskífunni okkar sem kemur vonandi út seinna á árinu. Annars erum við búnir að spila á Hljómey, keppa í Wacken Metal Battle og einnig stóðum við fyrir Nirvana tribute tónleikunum í höllinni. Er kominn spenningur fyrir hátíðinni? Spenningurinn er löngu byrjaður. Við 46

höfum

verið beðnir um að koma fram annars staðar yfir verslunarmannahelgina en svarið er alltaf nei, við missum ekki af dalnum! Hvað þýðir það fyrir ykkur að spila á Þjóðhátíð? Það er mikill heiður að fá að skemmta fólki á hátíð okkar Eyjamanna. Við ólumst allir upp með þjóðhátíðinni og því er ekki hægt að líkja þessari tilfinningu við neitt. Þetta er pínu svona „full circle moment“ fyrir okkur Eyjapeyjana. Hvernig er stemningin að stíga á svið í Herjólfsdal? Ég held að stemningin á Þjóðhátíð fari ekki framhjá neinum sem mætir í Dalinn, en það er allt annað að standa upp á sviði. Þetta er eina giggið á ári hjá okkur þar sem við verðum stressaðir áður en við stígum á stokk. Hvað er það sem gerir Þjóðhátíð einstaka að ykkar mati? Fjölskylda, samkoma og auðvitað stóru stundirnar.


Karl Kristmanns

Umboðs - og heildverslun ehf.

Gleðilega hátíð

SUMARÚTSALA Allt í hvítu tjöldin

Allar útileguvörur, garðhúsgögn, búsáhöld, glös, diskar og margt fleira

30% afsláttur

Gleðilega þjóðhátíð! 47


Hver er besta minningin ykkar úr Þjóðhátíð, sem gestir eða listamenn? Við vorum allir sammála um það að fyrsta giggið okkar á Þjóðhátíðinni 2023 er eftirminnilegast. Það rigndi svo mikið að græjurnar hjá okkur dóu 5 mínútum fyrir gigg, það slitnaði strengur hjá Stefáni og það varð svo heitt að eftir fyrsta hálftímann vorum við allir komnir úr að ofan. En einhvern veginn reddaðist þetta allt saman og líklega ennþá besta giggið okkar hingað til Hvernig mynduð þið lýsa hljómi Mucky Muck fyrir þeim sem aldrei hafa heyrt ykkur áður? Skítugt grugg og dægurlög yfirfærð í rokk ham. Hver eru stærstu áhrifavaldar ykkar í tónlist? Við komum allir úr mismunandi áttum en það er ein hljómsveit sem sameinar okkur alla, Foo Fighters. Ef þið mættuð velja einhvern íslenskan og erlendan listamann til að vera með ykkur í sviðsdalnum í ár – hvern mynduð þið velja? Gummi Pönk og Dave Grohl Er eitthvað sérstakt í undirbúningi fyrir haustið - hvað er framundan? Það er útgáfan á plötunni okkar og allt sem því fylgir, svo eru nokkur gigg sem koma seinna á árinu sem við megum ekki tala um alveg strax. Hver líklegastur til að týnast í brekkunni? Jón Grétar trommari, hann er algjör kærustu kall og er líklegur til að hverfa í brekkuna á sunnudeginum til að fara í sleik. Hver er með skrítnustu tónleikarvenjur eða hjátrú? Það er aftur Jón Grétar, hann er ekki með mikil svipbrigði þegar hann spilar og því heldur fólk oft að hann sé ekki að skemmta sér á bakvið trommurnar, en ekki láta svipinn hans plata þig, hann er að skemmta sér konunglega! Ef Mucky Muck væri kokteill – hvað væri í honum? Mjólk og bjór (Boli og Nýmjólk). Hver er furðulegasta beiðni sem þið hafið fengið? „Úr að neðan“ ákall í kjölfar þess að vera berir að ofan á Þjóðó 2023.

Ef þið þyrftuð að endurgera eitt íslenskt lag í Mucky Muck stíl – hvaða lag væri það? Við erum akkúrat í þessu að ljúka upptökum á sígilda Eyjalaginu „Minning um mann“ sem á að fylgja nýju plötunni okkar!

Hver er mesti fyndnastur í sveitinni? Klárlega Stefán, hann má ekki vera fyndinn heima hjá sér þannig hann sparar það alltaf fyrir æfingar og gigg. Ef þið mætið á tjarnarsviðið eftir flugelda þá gæti verið að hann hendi í einn eða tvo brandara.

Hvaða meðlimur er alltaf seinastur að mæta á æfingar / tónleika? Klárlega Arnar. Á Goslokum 2024 mætti hann 3 mínútum áður en við stigum á svið og var ennþá með koddafar á andlitinu þegar við byrjuðum að rokka.

48


49


Þjóðhátíðin mín Sigurjón Andrésson 1970 Sigurjón mætir alltaf ásamt fjölskyldu sinni á setningu Þjóðhátíðar, hann hefur oftar en ekki mætt í búning og sunnudagskvöldið er hans uppáhaldskvöld. Staða: Bæjarstjóri Hornafjarðar. Fjölskylduhagir: Ég er giftur Margréti Söru Guðjónsdóttur og við eigum tvær stórkostlegar stelpur, Hrafnhildi Svölu 27 ára og Heklu Sif 25 ára, einn tengdason, Helga Snæ og geggjaðan hund sem heitir Bella.

Sigurjón.

Fjöldi Þjóðhátíða? Á fullorðinsárum hef ég misst af tveimur – það var vond ákvörðun í bæði skiptin. Hvernig verður Þjóðhátíð eftir 50 ár? Brekkan verður á sínum stað, full af fólki og einhver verður að enn biðja um „lagið með Bubba“. Við verðum í hvítum tjöldum – engin gervigreind eða tækni kemur í staðinn fyrir mannlega tenginu og samveruna. Uppáhalds Þjóðhátíðarlag? Það er lagið „Ég veit þú kemur“. Annars er lagið „Otherside“ með Red Hot Chili Peppers þjóðhátíðarlagið mitt enda opinber þjóðsöngur Látratjaldsins. Uppáhaldslag í brekkusöng? „Afgan“ og „Rómeó og Júlía“ með Bubba, eru lög sem mér finnst gaman að syngja – eða öskra með. Litli eða stóri danspallurinn? Það fer eftir tíma kvölds og skemmtikröftum – en alltaf litli ef Jarl er að spila. Hvert er fallegast; Vitinn / Myllan/ Hofið? Vitinn – alltaf vitinn. Hann stendur hnarreistur og vakir yfir dalnum… svona eins og „Auga Saurons“, nema með góðum ásetningi. Hvað er það besta við Þjóðhátíð? Það 50

Sigurjón Andrésson með dætrum og tendasyni.


er samveran. Það er eitthvað svo töfrandi fallegt við samveruna í Herjólfsdal – sem er í raun varla dalur, meira svona dalbotn. Allir í sínu besta formi, allavega svona fyrstu tvo dagana – svo kemur mánudagurinn. ÚFF. Hver er eftirminnilegasta Þjóðhátíðin? Mér fannst eftirminnilegt að upplifa þjóðhátíð sem foreldri þegar dætur okkar voru yngri – þá skynjaði maður hátíðina í gegnum þeirra augu og upplifun. En mér fannst líka hátíðin 2024 mjög eftirminnileg, þegar veðrið er vont er oft meiri stemning í hvítu tjöldunum. Hvað er nauðsynlegt í tjaldið? Sara, fjölskyldan og svo auðvitað Andra Húgó! Fyrir hvað stendur þjóðhátíð í þínum huga? Þjóðhátíð er stórmerkileg. Hún er hjartað í menningu Vestmannaeyja – rótin, arfur sem lifir í okkur sjálfum. Þetta er hátíð sem hefur staðið af sér áföll og samfélagsbreytingar. Þjóðhátíð er ekki bara partý, hún er þrautsegja, sjálfsmynd og saga í beinni útsendingu. Ég held við séum öll dálítið stoltari þegar við segjum: „Já ég fer á Þjóðhátíð“. Mætir þú jafnan á setninguna? Já alltaf – það er fastur og ómissandi liður. Hvaða heilvita maður myndi segja nei við því að fá frítt á tónleika með Lúðrasveit Vestmannaeyja!? Hefur þú verið í búning með vinahóp? Já. Fyrst með Hrauntúnspeyjunum í Töffaragenginu og svo vorum við Fyrirmyndarbílstjórar alltaf í búningum. Lestu Þjóðhátíðarblaðið? Að sjálfsögðu. Hvaða dagur/kvöld þjóðhátíðarinnar stendur upp úr? Sunnudagskvöldið - það jafnast ekkert á við það.

Hvaða er mikilvægast í undirbúningnum og ertu virkur að taka þátt þar? Já, ég legg mitt af mörkum, en það eru margir sem gera miklu meira en ég, ekki síst Sara og systir hennar María og eiginmaður Jan Hermann. Annars leggst öll stórfjölskyldan á eitt og er eins og vel smurð þjóðhátíðarmaskína þar sem allir þekkja sitt hlutverk. Svo eru það tengdaforeldrarnir, Anna Svala og Gaui á Látrum. Þau opna heimilið og troðfylla það af fólki með útréttan faðm og hollar kræsingar sem eru orkubanki fyrir okkur sem djömmum fram á morguninn. Það gleymist stundum að nefna fólkið sem fer kannski ekki sjálft í dalinn en tekur fullan

þátt í að gera þjóðhátíðina að því sem hún er. Fyrstu minningar af Þjóðhátíð í Herjólfsdal? Mínar fyrstu minningar eru þær að þetta hlyti að vera stærsta og fjölmennasta samkoma í heimi bara ánægjulegar minningar. Eitthvað að lokum? Ég er orðin mjög spenntur – og ég vil minna á: Ef þú heyrir „Otherside“ í fjarska, þá ertu að nálgast rétta tjaldið. Gleðilega Þjóðhátíð munið að skemmta ykkur fallega og sýna náunganum kærleik. 51


SVANUR GUNNSTEINSSON:

FYRST OG FREMST SKEMMTILEGT AÐ VERA SJÁLFBOÐALIÐI Það er að mörgu að huga í undirbúningi á stærstu útihátíð landsins. Svanur Gunnsteinsson er einn þeirra framlínumanna sem sinnir undirbúningi í aðdraganda þjóðhátíðar og má sjá hans handbragð víðs vegar í Herjólfsdal á hverju ári. Enda gengur hann í öll störf í dalnum hvort sem það er að ferja hluti á milli staða, setja niður súlur, mála, negla, saga, setja upp veitingatjaldið, hlaða í brennu, dytta að sviðinu eða hvað það nú er - Svanur veigrar sér ekki við neinu. Þrátt fyrir framtakssemina og óeigingjarnan dugnaðinn í þágu þjóðhátíðar í áraraðir er þetta fyrsta árið sem hann situr í þjóðhátíðarnefnd. „Ég hef verið að vinna inni í dal sem sjálfboðaliði í mörg ár og ákvað svo sjálfur að bjóða formanni þjóðhátíðarnefndar krafta mína til setu í nefndinni og hann tók því fegins hendi,“ segir Svanur sem fyrir tilstilli bróður síns byrjaði að vinna sjálfboðavinnu á sínum tíma og þótti það gaman svo ekki var aftur snúið. „Hann kom mér eiginlega inn í þetta brölt til að byrja með. Hann var mikið í þessu á sínum tíma og sat lengi í þjóðhátíðarnefnd á meðan hann bjó hér í Eyjum. Núna kemur hann alltaf vikuna fyrir þjóðhátíð til að fá smjörþefinn af aðdragandum og taka þátt í undirbúningum. Það finnst honum vera risahluti af þessu öllu og við erum báðir sammála um það,“ segir Svanur. Full vinna að skemmta sér á þjóðhátíð „Þetta er svakalega skemmtileg helgi en undirbúningurinn er 52

Góðir vinir á góðri stundu á þjóðhátíð.

ekki síður skemmtilegur. Þó svo að þetta sé alltaf voða svipuð skemmtun þá myndi ég ekki vilja missa af þessari helgi né undirbúningnum, hann er svo stór partur af helginni sjálfri. Þetta kórónar einhvern veginn hvort annað og hefur hvort tveggja sitt skemmtanagildi en það verður að segjast eins og er að það er full vinna að taka þátt í þessari helgi,“ segir Svanur glettinn. Hvað fær fólk til að nenna að vinna launalaust dag eftir dag við að rigga upp þjóðhátíð? „Góð spurning,“ segir hann, hugsar sig eilítið um og hlær. „Fyrst og fremst er þetta skemmtilegt. Það er fullt af skemmtilegu fólki sem kemur hingað niður eftir til að leggja hönd á plóg bara af því að því þykir það gaman. Þetta er yfirleitt alltaf sami hópurinn þannig það hefur tekist vinskapur á milli

margra okkar. Svo er líka alltaf nýtt fólk að bætast við þótt ótrúlegt sé því það er oft ekkert auðvelt að fá fólk til að taka að sér sjálfboðaliðastarf,“ útskýrir hann og segir framkvæmdir í dalnum hefjast um það bil mánuði fyrir þjóðhátíð og standa fram að síðustu mínútu. Allir sjálfboðaliðar stefna að sama marki „Hér er fólk bara á sömu blaðsíðunni og stefnir að sama marki og það er að setja upp þjóðhátíð. Það er ekki verið að takast á um fótbolta, handbolta, pólitík eða önnur málefni. Það er bara eitt markmið hjá okkur öllum og það er að gera það besta fyrir félagið okkar og halda þjóðhátíð með glæsibrag.“ Að sögn Svans líta margir Vestmannaeyingar á undirbúning þjóðhátíðar sem samfélagslegt samvinnuverkefni sem þeir allir


Frábær fjölskylduupplifun Dálæti Svans á þjóðhátíð er erfitt að koma í orð. Hann segist halda mikið upp á þessa helgi og kunna að meta allar þær athafnir sem tengjast þjóðhátíð; setningin, brennan á Fjósakletti, flugeldasýningin, brekkusöngurinn, blysin - allt þetta tilhald gerir þjóðhátíð að því sem hún er. Þrátt fyrir það segir hann ekkert fá toppað allar samverustundirnar með fjölskyldu og vinum í Herjólfsdal.

Hjónin Svanur og Ingunn upp á sitt besta í dalnum.

beri ákveðna ábyrgð á, með beinum eða óbeinum hætti. Hann segir tilfinninguna sem kemur eftir þrotlaust sjálfboðastarf, myrkranna á milli, margar vikur í senn, vera ólýsanlega þegar þjóðhátíðargestir loks mæta í dalinn til þess eins að skemmta sér eins og enginn sé morgundagurinn. „Þegar fólk hefur verið að stússast niður í dal marga daga, kvöld og helgar í röð til að koma öllu í stand þá þyrmir yfir mann þessi ótrúlega tilfinning að sjá allt fólkið streyma til Eyja og inn í dal og allt fer í gang. Það er ótrúlegt adrenalín „kick“ að sjá allt þetta fólk skemmta sér svona vel og skapa frábærar minningar. Manni líður eins og maður eigi eitthvað í því,“ segir Svanur og segist fá mikið út úr því að geta haft áhrif á skemmtanagildi og góðu stundirnar í lífi fólks. Jöfn verkaskipting við undirbúning hvíta tjaldsins Svanur er kvæntur Ingunni Arnórsdóttur og saman eiga þau þrjár dætur. Hann segir fjölskylduna ekki geta hugsað sér neitt annað en að vera með hvítt tjald á þjóðhátíð og því sé það samvinnuverkefni hennar að setja það upp og nostra við það.

„Það hjálpast allir við að græja hvíta tjaldið og þar er verkaskiptingin nokkuð jöfn á milli okkar hjóna,“ segir Svanur spurður út í sinn persónulega þjóðhátíðar undirbúning. Segist hann eiga það til að vera í eltingarleik við sjálfan sig á síðustu metrunum því að mörgu þurfi að huga bæði í tengslum við sjálfboðavinnuna og undirbúningi fjölskyldunnar. „Ég reyni að sjálfsögðu að sinna hvoru tveggja af alúð en við erum tvær fjölskyldur saman í tjaldi og höfum verið í töluvert langan tíma þannig það eru nokkrar hendur um verkefnin sem því fylgir. Það snýst allt um það hjá báðum fjölskyldum að græja tjaldið vel, enda er þetta aðalaðsetur beggja fjölskyldna þessa helgi,“ segir Svanur og lýsir verkaskiptingunni með eftirfarandi hætti: „Konurnar eru langmest í því að baka og hafa til alls konar bakkelsi og svona til að hafa í tjaldinu. Þær byrja á því nokkrum vikum fyrir þjóðhátíð ásamt því að finna til dótið sem á að vera inni í tjaldi og þess háttar. Svo fáum við karlarnir það verkefni að fara niður eftir og koma tjaldinu og öllu upp, færa til og raða húsgögnum inn í tjaldið en þær sjá algerlega um að skreyta.“

„Að geta upplifað þetta allt með öllu fólkinu sem maður elskar finnst mér vera það besta við þjóðhátíð,“ segir Svanur einlægur. „Til okkar koma bæði ættingjar og vinir og eyða þjóðhátíðinni með okkur og nú eru dætur okkar farnar að eldast svo að vinir þeirra eru líka farnir að koma og það er bara ótrúlega skemmtilegt og aldrei neitt vesen, bara gaman.“ Hann viðurkennir að hafa í gegnum tíðina ekki tileinkað sér að eyða þjóðhátíðinni í að rölta á milli hvítu tjaldanna heldur njóti hann þess frekar að vera uppi í brekku og fylgjast með dagskránni sem fram fer á stóra sviðinu. „Mér finnst skemmtilegast að sitja uppi í brekku og horfa yfir allan mannfjöldann og sjá skemmtikraftana á sviðinu. Sunnudagurinn er í mestu uppáhaldi hjá mér því þá er mest um að vera og fjölmennt í dalnum. Margir eru farnir að sækja í að koma bara á sunnudeginum til að taka þátt í brekkusöngnum og sjá blysin,“ segir Svanur. „Það er ekki hægt að lýsa því með orðum hvað þetta er mikil upplifun. Fólk verður bara að mæta í dalinn og upplifa þetta af eigin raun.“

53


HLJÓMSVEITIN FÆRIBANDIÐ:

GRÍÐARLEGUR SPENNINGUR INNAN BANDSINS FYRIR ÞJÓÐHÁTÍÐ

Á stóra sviðinu í Herjólfsdal í fyrra.

Það verður sannkölluð stemming þegar Færibandið stígur á svið í Herjólfsdal á Þjóðhátíð. Þeir hafa vakið athygli fyrir kraftmikla sviðsframkomu og smitandi partýtónlist. Við heyrðum í þeim og spjölluðum um undirbúninginn, væntingarnar og hvað gestir geta búist við af þeim á Þjóðhátíðinni í Herjólfsdal. Hljómsveitarmeðlimir: Ágúst Þór Brynjarsson - söngvari : 26 ára Dagur Atlason - trommur : 28 ára Daníel Andri Eggertsson - gítar : 28 ára Eyþór Alexander Hallsson - hljómborð : 23 ára Matthías Hlífar Mogensen - bassi : 28 ára Rúnar Þór Brynjarsson - söngvari : 26 ára Hvað hafið þið verið að brasa nú það sem af er að árinu / koma fram? Færibandið hefur verið að spila út um allt land á árshátíðum og bæjarhátíðum og hvað þetta nú allt heitir, sem er náttúrulega alltaf jafn gaman og gjörsamlega frábært að ferðast um landið okkar og spila í goðsagnakenndum félagsheimilum og skemmta fyrirtækjum landsins. Er kominn spenningur fyrir hátíðinni? Það er kominn gríðarlegur spenningur innan bandsins 54

fyrir Þjóðhátíð, við náttúrulega spiluðum í fyrra öll kvöldin á báðum sviðum og sú spenna sem við fundum fyrir þá er svona hægt og rólega að magnast!. Hvað þýðir það fyrir ykkur að spila á Þjóðhátíð? Það er augljóslega alveg ómetanlegt fyrir Færibandið að fá að spila á Þjóðhátíð, við erum landsbyggðar hljómsveit að norðan og höfum verið það heppnir að fá að þvælast út um allt land með Færibands stemmarann og lang besta auglýsingin fyrir okkar band er að spila á stærstu hátíð landsins, svo að það hefur mikla þýðingu fyrir okkur. Hvernig er stemningin að stíga á svið í Herjólfsdal? Stemningin er náttúrulega bara tryllt. Það er einhvern veginn öðruvísi orka hér en annars staðar, ótrúlega skrítin tilfinning að bíða baksviðs til dæmis, orkan er í algjöru hámarki og maður er bara eins og kýrnar rétt áður en þeim er sleppt út á vorin. Hvað er það sem gerir Þjóðhátíð einstaka að ykkar mati? Ætli það sé ekki bara þessi prógrammaða gleði sem kemur yfir mann þegar maður siglir inn höfnina, þú siglir inn í einhverja gleði búbblu sem gerir allt svo stórt og magnað.


Hver er besta minningin ykkar úr Þjóðhátíð, sem gestir eða listamenn? Það verður bara að vera Stóra sviðið í fyrra, það var alveg ótrúlega gaman og gerði mikið fyrir okkur Færibandið. Hvernig mynduð þið lýsa hljómi Færibandsins fyrir þeim sem aldrei hafa heyrt ykkur áður? Orka orka orka orka. Hver eru stærstu áhrifavaldar ykkar í tónlist? Sem ballhljómsveit þá er það klárlega okkar allra bestu menn í Stuðlabandinu. Þeir eru kóngarnir í þessum bransa og hafa verið í mörg ár. Ef þið mættuð velja einhvern íslenskan og erlendan listamann til að vera með ykkur í sviðsdalnum í ár – hvern mynduð þið velja? Færibandið myndi fá Mark Knopfler á rauða gítarinn sinn og við myndum taka Sultans of swing og Money for nothing til skiptis alla nóttina. Er eitthvað sérstakt í undirbúningi fyrir haustið - hvað er framundan? Það er stórt haust framundan í árshátíðar verkefnum og fullt af skemmtilegum böllum! Hver líklegastur til að týnast í brekkunni? Þessi spurning er mjög auðveld, það mun vera hinn magnaði gítarleikari Færibandsins, hann Daníel Andri. Við rönkum oft við okkur einum manni færri og þá hefur hann Dandri eins og hann er kallaður, fengið eitthvað hugskeyti og þotið af stað án þess að láta nokkurn mann vita. Hver er með skrítnustu tónleikarvenjur eða hjátrú? Þeir sem hafa séð Færibandið á sviði og þá orku og stemningu sem er í botni innan bandsins þegar við komum fram, þá myndi það teljast frekar skrítið hvað við erum rólegir áður en við förum af stað, Dagur trommari, Dandri gítar og Matti bassi leggja sig alltaf rétt fyrir gigg og við hinir slökum á bara í rólegheitunum. Ef Færibandið væri kokteill – hvað væri í honum? Þetta væri einhver litagleði með miklum styrkleika. Ætli við séum ekki bara Sex on the beach. Hver er furðulegasta beiðni sem þið hafið fengið? Þær eru nú alveg þó nokkrar og við verðum eiginlega bara að segja pass við þessari eftir miklar vangaveltur. Hver er mesti trúðurinn/fyndnastur í sveitinni? Það mun vera hann Rúnar Þór, annar aðal söngvari

bandsins. Óheflaður er hann og heldur mönnum á tánum. Einhver skemmtilegt atvik sem þið hafið lent í og eruð til í að segja frá? Það er heill hellingur enda er alltaf gaman hjá Færibandinu, það fyrsta sem kemur upp í hugann er ball sem við spiluðum í Hrísey núna um miðjan júlí mánuð, en við héldum að við værum bókaðir í létt einkateiti hjá nokkrum aðilum í 50-60 manna óvissuferð, en við okkur blasti rúmlega 200 manna sturlun í félagsheimili sem hýsir sennilega þriðjung af þeim fjölda sem mætti, svo það var bara dansað hringinn í kringum húsið. Hvaða meðlimur er alltaf síðastur að mæta á æfingar / tónleika? Það mun vera hann Ágúst, annar aðal söngvari bandsins, hann er einmitt undirritaður í þessari grein en ætli það sé ekki að batnandi mönnum sé best að lifa og fyrsta skrefið er að viðurkenna kvilla sína. 55


LJÓSMYNDIR FRÁ ÞJÓÐHÁTÍÐ 2024


Við óskum Eyjamönnum og gestum Þjóðhátíðar Óskum ÍBVgleðilegrar góðs gengis í baráttunni í sumar

Bylgja VE 75 Flamingó Aukin verðmæti í Auðlindagarði HS Orka á og rekur tvær virkjanir á Reykjanesi sem eru grundvöllur Auðlindagarðs Bílaverkstæði hvað markmiðið er að ekkert fari til spillis. www.hsorka.is

58

HARÐAR & MATTA


Tanginn - lógó

KRÍA hönnunarstofa

HL JÓÐ - L JÓS

OG MYND VIÐ HÖFUM VERIÐ PARTUR AF ÞJÓÐHÁTÍÐ FRÁ ÁRINU 2014 59


SVAVA KRISTÍN GRÉTARSDÓTTIR:

HÆGT AÐ VERA TÖFF OG HLÝT T Á SAMA TÍMA Í DALNUM Það er óumdeilt að Eyjapæjan Svava Kristín Grétarsdóttir, rekstrarstjóri kaffihússins Prýði og fyrrverandi íþróttafréttamaður, er ein best klædda kona landsins. Svava er þekkt fyrir að vera tískudrottning og er óhætt að segja að hún hafi sérstaklega næmt auga fyrir smáatriðum og almennum smekklegheitum. Þá er engum ofsögum sagt að hún steli alltaf senunni hvert sem hún fer og sennilega verður engin undantekning á því á þjóðhátíð í ár. Lopapeysur og línusprey í hárið „Það er vel hægt að klæða sig á töff hátt þótt það sé eftir veðri. Persónulega finnst mér mjög gaman að finna mér smá íslenskt „festival look“, segir Svava Kristín sem elskar þjóðhátíð og allt sem henni við kemur. „Mér finnst svo erfitt að lýsa því í orðum hvaða þýðingu þjóðhátíð hefur fyrir mig. Öll vikan fyrir þjóðhátíð er svo skemmtileg en hæst standa samverustundirnar með fjölskyldunni í dalnum, allar skemmtilegu hefðirnar, kjaftfullur bær af fólki að skemmta sér og svo lengi mætti upp telja. Þetta er bara eins og jólin, hátíð ljóss og friðar nema bara svo miklu skemmtilegra,“ útskýrir Svava sem mun svo sannarlega ekki fara í jólaköttinn fyrir ósmekklegheit á þjóðhátíð. Hún forðast það eins og heitan eldinn að missa af þjóðhátíð og á þær ófáar að baki, enda segir hún hátíðina alltaf vera einn af hápunktum ársins hjá sér. „Maður elskar allt við þetta. Hvítu tjöldin, flugeldasýninguna, brennuna og brekkusönginn en maður elskar líka alla litlu hlutina eins og áfengi í bakpoka, 60

Töff og hlýjar yfirhafnir eru lykiliatriði á þjóðhátíð. Hér er Svava Kristín ásamt fjölskylduhundinum Arven.

niðurskornar majónes samlokur í plastboxi, línusprey í hárið, allar lopapeysurnar í brekkunni - þetta er ólýsanlegt,“ segir Svava sem reyndar tileinkar sér ekkert af þessum atriðum sjálf. „Sem er fyndið því þetta eru bara hughrifin sem ég fæ þegar ég hugsa um þjóðhátíð. Ef ég ætti að nefna eitthvað eitt sem ég tengi mest við þá er það náttúrlega reyktur lundi. Við fjölskyldan erum alltaf með lunda á fimmtudeginum áður en við förum inni dal að skreyta tjaldið.“ Ákveður dressin fyrirfram Líkt og fram hefur komið leggur

Svava mikið upp úr klæðaburði sínum. Frá þeirri venju víkur hún ekki frá á þjóðhátíð enda er fatastíllinn löngum orðinn hluti af persónuímynd hennar. Til að einfalda sér lífið og halda í rétta stílinn reynir hún að ákveða fyrirfram hverju hún hyggst klæðast yfir verslunarmannahelgina. „Ég er oftast búin að ákveða það fyrir helgi í hverju ég ætla að vera til að einfalda undirbúninginn um kvöldið. Hingað til hefur mér fundist gott að vera með fjögur „outfit“ tilbúin; tvö fyrir gott veður, eitt fyrir rigningu og annað fyrir aftakaveður. Þá er einfalt


Sömu tískutrendin ár eftir ár Að mati Svövu hafa tískubylgjurnar á þjóðhátíð ekki tekið miklum breytingum undanfarin ár. Sumar flíkur, líkt og pollagallar og heimaprjónaðar lopapeysur, segir hún algerlega hafa fest sig í sessi og sett mark sitt á mannhafið sem mætir í dalinn. „Mér finnst trendin hafa breyst furðulítið og það finnst mér svolítið fallegt. Lopapeysur í öllum stærðum og gerðum og 66°

Veðurguðinn á síðasta orðið Hún segir góðan innanundir fatnað vera lykilatriðið þegar klæða á af sér veðráttuna, sem geti oft verið óútreiknanleg þrátt fyrir árstíðina. Þá séu yfirhafnir einnig mikilvægur hluti klæðaburðarins því þær geta

Fastar fléttur og andlitssteinar eru punkturinn yfir i-ið.

að grípa í það sem veðrið býður okkur upp á hverju sinni,“ útskýrir Svava en telur líklegt að einhver breyting kunni að verða á þessu fyrirkomulagi í ár vegna breyttra aðstæðna eftir að hún varð móðir. „Já, ég verð að viðurkenna það að tíminn sem ég kem til með að eyða í sérstakt þjóðhátíðar-„look“ verður kannski minni nú en áður þar sem að ég á eina litla 18 mánaða gamla dóttur sem á auðvitað hug minn allan. Þó er ég oftast með smá plan hvað þetta varðar því ég vil vera fín á föstudeginum á þjóðhátíð, svo er það „festivalook“ á laugardeginum og enda svo helgina á útilegu-„look-inu“ á sunnudeginum,“ segir hún og telur sinn eftirlætis klæðaburð á þjóðhátíð vera hinn klassíski „denim on denim“. Með öðrum orðum að klæðast gallabuxnaefni frá toppi til táar; gallaskyrta eða gallajakki við gallabuxur. „Ég gríp í gallaefnið á hverju ári. Það er auðvelt að gera það að þessu „festival look-i“ sem mér finnst mikilvægt að geta náð fram,“ segir Svava sem á það til að toppa heildarútlitið með því að setja fastar fléttur í hárið og skreyta andlit sitt með skrauti, svo sem demöntum eða glimmeri.

samasemmerki á milli þess að klæða sig eftir veðri og að vera hallærislegur. „Það er alveg rosalega lítið mál að klæða sig vel og vera smart á sama tíma miðað við núverandi framboð af fatnaði. Það skemmtilega við þjóðhátíð er að það má allt. Ég til dæmis „thrifta“ mikið fyrir þjóðhátíð. Kaupi mér notaða jakka sem ég myndi eflaust aldrei nota við aðrar kringumstæður. Ég mæli líka hiklaust með því að kaupa „second hand“-föt því persónulega finnst mér alveg galið að kaupa rándýra merkjavöru fyrir eina helgi.“

Töffaralegt útlit klikkar aldrei í Herjólfsdal. Þarna má sjá Svövu bera ,,bucket hat”.

norður gallana sér maður bregða fyrir á hverju ári. En það sem mér finnst hafa bæst inn í flóruna er þetta útilegu- og hestamanna„look“ en það er samsett af vaxjakka frá Barbour, ponsjó og hatti,“ lýsir Svava og vísar þar með í útlit íslensku sumarkonunnar líkt og sumir kjósa að kalla það. Þegar Svava er spurð út í hvernig hún mæli með því að almennir þjóðhátíðargestir klæði sig á næstkomandi þjóðhátíð stendur ekki á svarinu: „Auðvitað væri réttast af mér að segja fólki að klæða sig bara eftir veðri,“ segir Svava og bendir um leið á að það sé ekki

Svava er mikið í því að ,,thrifta" fyrir þjóðhátíð. Hún er mótfallin því að fólk kaupi sér rándýra merkjavöru til að skarta í dalnum.

bæði hámarkað þægindi og hlýju en ekki síður „look-ið“. „Góð innanundir föt undir eitthvað töff klikkar aldrei. Það var vissulega mjög krefjandi að reyna að vera 61


smart í fyrra þegar veðrið lét sem verst. Þá var lítið annað í boði en að vera í regngallanum alla dagana. Ef það er ekki aftakaveður þá er lítið mál að vera bara í því sem þér finnst þægilegt og flott. Það þarf ekki endilega að vera lopapeysa innanundir regngalla. Það má líka bara vera föðurlandið undir hvíta skyrtu og leðurjakka yfir - þannig hef ég oft klæðst og verið hlýtt í brekkunni en samt töff,“ segir Svava Kristín sem notast einnig mikið við galla- og/ eða kögurjakka og ýmsa fylgihluti eins og klúta og trefla til að halda á sér hlýju og setja ákveðinn svip á heildarútlitið. „Stundum kemur það sér líka vel að eiga orðið alltof mikið af flottum regnjökkum og anorökkum sem hafa safnast upp í gegnum árin, eins og sannaðist í fyrra. Svo eru þetta auðvitað bara einhver viðmið. Veðurguðinn sér síðan um lokaniðurröðun á þessu hjá mér.“

Svava segist grípa mikið í gallaklæðnað á þjóðhátíð og kórónar hún heildarútlitið með gæjalegum tóbaksklút.

Tíu „must have“-flíkur og fylgihlutir sem þjóðhátíðargestir ættu að pakka ofan í tösku og skarta í dalnum: 1. Gallajakki 2. Flottur regnjakki eða anorakkur 3. „Bucket“-hattur. Algjör snilld í dalinn ef svo einkennilega vildi til að það færi að rigna. 4. Góðir skór. Helst einhverjir sem mega verða alveg ógeðslega skítugir. 5. Hleðslubankinn fyrir símann. Maður gerir ekki gott mót með batteríslausan síma í dalnum. Leðurjakki, hattur og góður veskispungur virkar vel á þjóðhátíð.

62

6. Nóg af Rennie. Það er algert „hax“ að hafa

brjóstsviðatöflur með niður í dal. 7. Gallabuxur og/eða leðurbuxur. Þær eru svo hlýjar og góðar. 8. Bakpoki fyrir þá sem eru ekki með hvít tjöld. „Totebag“ eða stór „bum bag“ sem rúmar tvo til þrjá drykki fyrir þá sem eru með hvít tjöld. 9. Klútar. Helst gömlu góðu tóbaksklútarnir í nokkrum gerðum. 10. „Oversize“-skyrta sem felur föðurlandið innanundir.


Gleðilega þjóðhátíð!

63


STUÐLABANDIÐ MEÐ ÞJÓÐHÁTÍÐARLAGIÐ Í ÁR “KVEIKJUM ELDANA” Það var formaður Þjóðhátíðarnefndar sem hringdi í Stuðlabandið og spurði hvort þeir vildu semja og flytja Þjóðhátíðarlagið 2025 – og svarið var hiklaust já. Fyrir sveitina var þetta bæði draumur og heiður, og þeir lögðu mikinn metnað í verkið. Ferlið við að semja lagið einkenndist af sterkri liðsheild þar sem allir lögðu sitt af mörkum, frá fyrstu hugmyndum til upptöku og hljóðblöndunar. Þeir hittust í byrjun árs og sömdu fjölda laga áður en Þjóðhátíðarlagið þeirra fæddist – það fimmtánda í röðinni – og þeir fundu strax að þetta væri lagið. Innblásturinn kom frá öllum þeim Þjóðhátíðum sem sveitin hefur upplifað saman í gegnum tíðina – minningarnar, krafturinn í brekkunni, vináttan, ástin og ógleymanlegar sunnudagskvöldstundir í Herjólfsdal. Stuðlabandið leggur áherslu á að gott Þjóðhátíðarlag þurfi að hafa ákveðinn tón og einfalt viðlag sem allir geta sungið – og helst hljóma vel á kassagítar í hvítu tjöldunum. Þótt þeir hafi ekki beinlínis hermt eftir eldri lögum, er arfleifðin mikilvæg og hefur ómeðvitað haft áhrif á lagasmíðina. Stuðlabandið steig fyrst á svið í dalnum árið 2016 og segja þá upplifun hafa haft afgerandi áhrif á vegferð sveitarinnar. Þeir lýsa sunnudagskvöldinu á Þjóðhátíð sem kraftmikilli og nánast yfirnáttúrulegri stund sem engin önnur tónlistarhátíð kemst með tærnar þar sem hún hefur hælana. Og það sem gerir Þjóðhátíðina svo sérstaka? Það eru Vestmannaeyingar sjálfir – með einstaka gestrisni og stemmingu sem ekki verður leikin eftir. Við fengum meðlimi Stuðlabandsins til að vera með okkur í nokkrum laufléttum spurt & svarað. 64


Sigþór Árnason Þjóðhátíð í einu orði? Galdur. Hvað er furðulegasta eða fyndnasta sem hefur komið fyrir ykkur á tónleikum? Þegar þurfti að skipta út bassatrommu á miðju balli. Ef það væri kvikmynd gerð um Stuðlabandið – hver myndi leika þig? Joey Christ. Hver er með mestu orkuna á sviðinu? Ég.

Fannar Freyr Magnússon Þjóðhátíð í einu orði? Litadýrð. Hvað er furðulegasta eða fyndnasta sem hefur komið fyrir ykkur á tónleikum? Við höfum lent í allskonar. Mér er minnisstætt þegar rafmagnið fór af sviðinu á Kótelettunni í fyrra og þegar ég náði því afreki að slíta þrjá strengi á gítarnum mínum á sirka 20 mínútum á sama gigginu. Ef það væri kvikmynd gerð um Stuðlabandið – hver myndi leika þig? Ryan Reynolds. Hver er með mestu orkuna á sviðinu? Baldur bassaleikari ekki spurning!

Uppáhalds Þjóðhátíðarlag (annað en ykkar eigið)? Lífið er yndislegt. Hverjum þarf alltaf að bíða eftir í bandinu? Baldri - hann gleymir einhverju áður en hann fer af stað. Hvaða lag er skemmtilegast að spila? Take On Me. Hvað hefur þú komið á margar Þjóðhátíðir, bæði sem gestur og listamaður? 9 eða 10.

Uppáhalds Þjóðhátíðarlag (annað en ykkar eigið)? Þú veist hvað ég meina mær. Hverjum þarf alltaf að bíða eftir í bandinu? Baldri bassaleikara eða Magga söngvara. Þeir eiga hvorugir klukku og lifa í öðrum tímabeltum en við hinir. Hvaða lag er skemmtilegast að spila? Sæt með Á mót sól. Besta íslenska lag allra tíma að mínu mati. Hvað hefur þú komið á margar Þjóðhátíðir, bæði sem gestur og listamaður? Á hverju ári síðan 2018 og ætla að mæta á hverju ári þangað til árið 2088.

Magnús Kjartan Eyjólfsson Þjóðhátíð í einu orði? Hamingja. Hvað er furðulegasta eða fyndnasta sem hefur komið fyrir ykkur á tónleikum? Ég held að sú staðreynd að við höfum meikað það í Brasilíu eftir Kótelettuna 22 sé eitt það furðulegasta sem ég hef upplifað. Baldur bassaleikari er ennþá að fá skilaboð frá trylltum aðdáendum. Ef það væri kvikmynd gerð um Stuðlabandið – hver myndi leika þig? Tom Hanks.

Hver er með mestu orkuna á sviðinu? Ég á erfitt með að gera upp á milli Marinós og Baldurs. Uppáhalds Þjóðhátíðarlag (annað en ykkar eigið)? Ég veit þú kemur í kvöld til mín. Hverjum þarf alltaf að bíða eftir í bandinu? Einu sinni var það ég en ekki lengur. Bara Baldur held ég. Hvaða lag er skemmtilegast að spila? Bohemian Rhapsody. Hvað hefur þú komið á margar Þjóðhátíðir, bæði sem gestur og listamaður? Ég held að þetta sé 19. hátíðin mín. Ég er annars hættur að telja. 65


Marinó Geir Lilliendahl Þjóðhátíð í einu orði? Hamingja. Hvað er furðulegasta eða fyndnasta sem hefur komið fyrir

Stefán Á Þórðarson Þjóðhátíð í einu orði? Epík. Hvað er furðulegasta eða fyndnasta sem hefur komið fyrir ykkur á tónleikum? Það er ýmislegt sem hefur gerst. Eitt furðulegt atriði var þegar við vorum keyrðir inn í reiðhöll á löngum flatvagni 66

ykkur á tónleikum? Þau eru mörg hver skemmtileg augnablikin í gegnum árin. Eitt furðulegt atvik átti sér stað á Goslokahátíð 2015 þegar við vorum með ball í iðnaðarhúsi við bryggjuna á föstudegi og einum uppátækjasömum gesti datt í hug að byrja að sprauta úr slökkvitæki inni í salnum. Það varð fljótlega ólíft í húsinu og ballið endaði fremur skjótt á dramatískan hátt þar sem allir hlupu öskrandi út og fóru heim. Sama kvöld flaug hljomborðsleikarinn okkar útsýnisflug yfir Vestmannaeyjum í hálftíma og sneri svo aftur heim vegna þoku og fékk skróp í kladdann. Ef það væri kvikmynd gerð um Stuðlabandið – hver myndi leika þig? Pierce Brosnan. Hver er með mestu orkuna á

sviðinu? Ég eða Baldur. Uppáhalds Þjóðhátíðarlag (annað en ykkar eigið)? Þar sem hjartað slær er algjörlega frábært lag. Það teiknar upp þjóðhátíð á magnaðan hátt. Hverjum þarf alltaf að bíða eftir í bandinu? Magnús hefur oft látið bíða eftir sér. Hann hefur þú nokkuð nýlega tekið út seinasta þroskaskeiðið og það hefur snarlagast. Hvaða lag er skemmtilegast að spila? Þau lög sem vekja sterk viðbrögð áhorfenda eru jafnan skemmtilegustu lögin til að flytja. Það er misjafnt hvað framkallar mestu viðbrögðin hverju sinni. Hvað hefur þú komið á margar Þjóðhátíðir, bæði sem gestur og listamaður? Þjóðhátíðin í ár er mín þrettánda þjóðhátíð.

aftan í traktor. En fyndnasta atvikið er líklega þegar við vorum að spila á leynilegri ráðstefnu þjóðhöfðingja í skemmtiferðaskipi fyrir utan höfnina á Akureyri og á svið með okkur steig heimsþekktur þjóðhöfðingi. Það er kannski ekki fyndið að segja frá því en þegar hann missti fölsku tennurnar í miðju viðlaginu á Hotel California með Eagles þá ærðist salurinn. Ef það væri kvikmynd gerð um Stuðlabandið – hver myndi leika þig? Mig langar að segja James Dean, en hann er látinn. Svo ég yrði að láta mér nægja Friðrik Dór. Ég veit hann er þekktari sem tónlistarmaður en leikari en hann er myndarlegur og oft með svona húfu eins og ég. Og auðvitað frábær leikari. Hver er með mestu orkuna á sviðinu? Baldur bassaleikari er orkumikill oft á tíðum en oft æsum við hvern annan upp og orkan verður svona hálfpartinn sameiginleg hjá okkur öllum

Uppáhalds Þjóðhátíðarlag (annað en ykkar eigið)? Ég elska Þú veist hvað ég meina mær. Það er besta lagið, ég var líka svo agalega hrifinn af Skítamóral. En þau eru mörg frábær. Hverjum þarf alltaf að bíða eftir í bandinu? Það væri ósanngjarnt að segja alltaf en áður þurfti oft að bíða eftir Magnúsi. Hvaða lag er skemmtilegast að spila? Það eru nokkur lög sem er gaman að spila. Fyrir mig sem kassagítarleikari er gaman að spila 1000 hjörtu með Gauta t.d. Og auðvitað Draumur um Nínu afþví ég fæ að syngja smá þar. En upp á svona heildarstemningu og orkustig að gera þá held ég að Skólarapp eða Í lari lei hafi vinninginn, já og All The Small Things. Hvað hefur þú komið á margar Þjóðhátíðir, bæði sem gestur og listamaður? Ætli þær séu ekki orðnar svona 16 talsins.


VIÐ ELDANA ( Þ JÓ ÐHÁT ÍÐAR L AG 2025)

Höfundur lags og texta: Stuðlabandið

Forspil: A Asus2 A Bm

D G x2

Bm

Bm

A

G

Þetta er allt sem mig dreymir um, Bm

A

G

Hver nótt með þér,

bara þú og ég, okkar stund.

ég lifna við á ný.

Allt sem gerist hér geymir eyjan

A

G A

Bm

Bm

Og sól ég sé A

fyrir mig.

þegar dagur rís, svo hlý. Bm

A Asus2 A Bm D G

Nú finn ég þig.

A

Stend við eldana, finndu hlýjuna, G

við erum á hárréttum stað.

A

A/C#

Sjáðu gleðina, fegurð fjallanna, G

já hér á þjóðhátíð. Viðlag: D

A Asus2 A Bm D G D/F#

Nú finn ég þig. Em7

D

Þú og ég og minningar,

Bm7

A

Em

D/F#

G D/F#

skrifum þær í stjörnurnar. G

Augnablikin lifa þar til eilífðar.

Em7

A7sus4 A

Þrái að vera hér, G

þú í örmum mér, Bm7 A

Viðlag: D

D

já hér á Þjóðhátíð.

Em7

Þrái að vera hér... o.s.frv.

Em7

Lof mér að heyra í þér,

Hækkað viðlag: E F#m7

G

syngdu hátt með mér, Bm7 A

G

A G A

Bm

A

Þrái að vera hér,

G

A

já hér á Þjóðhátíð.

þú í örmum mér, C#m7 B

E

já hér á Þjóðhátíð.

Bm

Þetta ævintýr A

F#m7

Lof mér að heyra í þér,

G A

A

ég upplifi með þér.

syngdu hátt með mér,

ég muna skal

já hér á Þjóðhátíð.

Bm A

C#m7 B

G A

allt það sem gerðist hér. Bm

A

C#m

B

A

Þetta er allt sem mig dreymdi um,

A

C#m

B

A

Stend við eldana, finndu hlýjuna,

bara þú og ég, okkar stund.

við erum á hárréttum stað.

Allt sem gerðist hér geymir eyjan

G

Bm

A/C#

A

Sjáðu gleðina, fegurð fjallanna, G

já hér á þjóðhátíð. Viðlag: D

Em7

Þrái að vera hér...o.s.frv. x2

C#m

B

G

B

fyrir mig.

Hækkað viðlag: E F#m7

Þrái að vera hér... o.s.frv x2

C#m7 B/D#

E

Þar fann ég þig.

67


Bjarni Rúnarsson

Þjóðhátíð í einu orði? Alsæla Hvað er furðulegasta eða fyndnasta sem hefur komið fyrir ykkur á tónleikum? Það er margt fyndið sem hefur gerst, en við höfum spilað ansi oft í Herjólfsdal, og það er mjög fyndið að hlusta á upptökur frá því að við stigum fyrst á stóra sviðið í Dalnum. Við vorum eðli málsins samkvæmt búnir að vinna mikið og lengi að því að komast

Baldur Kristjánsson Þjóðhátíð í einu orði? Stemming

68

þangað, og spennustigið var svo hátt á sviðinu að það skildist ekki orð af því sem við vorum að reyna að segja. Við hreinlega peppuðum hressilega yfir okkur. Ef það væri kvikmynd gerð um Stuðlabandið – hver myndi leika þig? Ég hugsa að Örn Árnason myndi passa ágætlega í skóna mína, eða kannski til að nefna einhvern á svipuðum aldri, þó ég viti ekki til þess að hann sé leikari, að þá þykir mörgum ég og Gunnar, sem var söngvari í Grísalappalísu mjög líkir. Hver er með mestu orkuna á sviðinu? Baldur bassaleikari er svolítið eins og hundur sem er bundinn fastur en langar helst að stökkva út í sal og leika við alla á dansgólfinu. Uppáhalds Þjóðhátíðarlag (annað en ykkar eigið)? Þau eru mörg frábær, en ég á einhverjar hlýjar minningar um La Dolce Vita hans Palla. Það kemur 2011, ég þá 22 ára. Mjög skemmtileg hátíð og þrusugott lag hjá poppkónginum. Hverjum þarf alltaf að bíða eftir í bandinu? Það fer nú bara eftir því hvaða dagur er hverjum þarf að bíða lengst

eftir. En í gegnum tíðina hefur Magnús verið sá sem þarf að bíða helst eftir, en hann má eiga það að undanfarið er hann oft og iðulega mættur með fyrstu mönnum. Hvaða lag er skemmtilegast að spila? Úfff, það er ekki hægt að gera upp á milli barnanna sinna. Ég á miklu auðveldara með að svara hvaða lög er ekki skemmtilegast að spila, en ég ætla ekki að opinbera það hér... Hvað hefur þú komið á margar Þjóðhátíðir, bæði sem gestur og listamaður? Ég held að ég hafi komið fyrst árið 2008 sem gestur, og hef hreinlega mætt allar götur síðan í ýmsum hlutverkum. Tvisvar sem starfsmaður á sviðinu með EB kerfi, og meira að segja þegar hátíðin var blásin af fékk ég að mæta í dalinn sem fréttamaður, og segja þáverandi formanni Þjóðhátíðarnefndar í beinni útsendingu að það væri verið að skella öllu í lás korter í hátíð. Það voru heldur óskemmtilegar fregnir að færa en frá árinu 2016 hef ég komið til að spila með Stuðlabandinu, svo þetta gerir í heildina einhverjar 15-16 hátíðir.

Hvað er furðulegasta eða fyndnasta sem hefur komið fyrir ykkur á tónleikum? Mér finnst alltaf mjög fyndið þegar ég gleymi að kveikja aftur á bassanum eftir að hafa verið að stilla hann. Átti einmitt þannig móment á þjóðhátíð einu sinni og var með slökkt á honum þegar ég stóð við endann á sviðinu eins og rokkstjarna. Þetta er í laginu “Final countdown” Þegar lagið byrjar stend ég eins og fífl við sviðsbrúnina og tilbúinn að rokka torrid af brekkunni en þá heyrist ekki neitt í bassanum, algjört anti climax. Ef það væri kvikmynd gerð um Stuðlabandið – hver myndi leika þig? Hilmar Guðjónsson sem leikur m.a í “Þær tvær”. Ekki útlitslega séð

heldur meira vegna þess að hann getur leikið það mjög sannfærandi að vera fullkomlega utan við sig. Hver er með mestu orkuna á sviðinu? Marínó klárlega! Uppáhalds Þjóðhátíðarlag (annað en ykkar eigið)? Ég veit þú kemur Hverjum þarf alltaf að bíða eftir í bandinu? Ætli strákarnir segi ekki að það þurfi oftast að bíða eftir mér, þannig ég ætla að segja Fannari. Hvaða lag er skemmtilegast að spila? Allt með Stuðmönnum! Hvað hefur þú komið á margar Þjóðhátíðir, bæði sem gestur og listamaður? Þetta er mín tuttugasta eða tuttugasta og fyrsta en fimmta sem listamaður


Gleðilega Þjóðhátíð

69


Þjóðhátíðin mín Ingólfur Jóhannesson 1976 Ingólfur hefur farið á um 38 þjóðhátíðir í Herjólfsdal, honum finnst þjóðsöngurinn algjört möst í brekkunni og elskar litla pallinn meira en þann stóra. Við heyrðum í Ingó og tókum hann í létt spurt & svarað. Staða: Forritari. Fjölskylduhagir: Giftur og á 2 uppkomna drengi og einn hund. Fjöldi Þjóðhátíða? 38 ca. Hvernig verður þjóðhátíð eftir 50 ár? Vonandi í fullum gangi. Halda gömlu gildunum, það eru þau sem hafa haldið þessari hátíð gangandi. Uppáhalds Þjóðhátíðarlag? Það er erfitt að segja eitthvað eitt. Hef verið rosalega ánægður með öll þjóðhátíðarlögin, þannig að uppáhalds er oftast það nýjasta. En ef maður á að velja eitthvað eitt, væri það „Glóðir (Villtir strengir)“ eftir Oddgeir, eitthvað svo mikil Nostalgía við það. Uppáhaldslag í brekkusöng? Hér er það sama, mjög erfitt að segja eitthvað eitt uppáhalds. En Þjóðsöngurinn er orðið algjört möst. Litli eða stóri pallurinn? Ég er meiri litla palls maður. Hvert er fallegast; Vitinn / Myllan/ Hofið? Vitinn er fallegasta mannvirkið í dalnum. Hvað er það besta við Þjóðhátíð? Það er að sjálfsögðu Hvítutjöldin. Það er auðvitað einstakt fyrirbæri og það ætti að varðveita þá hefð. Hver er eftirminnilegasta Þjóðhátíðin? Ofarlega á þeim lista er þjóðhátíðin 70


2008, það er fyrsta þjóðhátíðin eftir að við flytjum aftur heim. Frábært veður og mjög vel heppnuð hátíð. Einnig er ofarlega 1998, en þá þurfti ég að mæta í vinnu á miðnætti á sunnudeginum og varð því að fljúga til Reykjavíkur á sunnudagsmorgun, þó það hafi auðvitað ekki verið auðvelt, var hátíðin frábær, þá sérstaklega af þeim sökum að ég myndi missa einn dag, gerði ég hina enn skemmtilegri. Hvað er nauðsynlegt í tjaldið? Lagterta og sírópsbrauð. Fyrir hvað stendur þjóðhátíð í þínum huga? Fjölskylduhátíð og samvera, gítarspil og gleði. Bjóða fólki mat og með því. Mætir þú jafnan á setninguna? 100%, læt mig aldrei vanta á hana og mæti í sparifötum, þar sem

þetta er hátíðin okkar er haldið upp á það. Allt upp á topp. Hefur þú verið í búning með vinahóp? Aldrei, þó við frændurnir vorum einu sinni í eins fötum sem mamma okkar saumaði á okkur, þá vorum við ca 8 ára. Okkur fannst við svakalega töff Lestu Þjóðhátíðarblaðið? Alltaf Hvaða dagur/kvöld þjóðhátíðarinnar stendur upp úr? Sunnudagskvöld, brekkusöngurinn er alltaf hápunkturinn á þjóðhátíð. Hvaða er mikilvægast í undirbúningnum og ertu virkur að taka þátt þar? Hér get ég ekki sagt að eitt sé mikilvægara en annað, en ég tek að sjálfsögðu þátt í að tjalda og bera inn húsgögn og hef gert það síðan ég var 10 ára.

Fyrstu minningar af Þjóðhátíð í Herjólfsdal? Kolkrabbinn uppi á þaki stendur upp úr sem ein af fyrstu minningunum, en það eru auðvitað mjög margar frábærar minningar, veit bara ekki hver af þeim er fyrst. Eitthvað að lokum? Ég vil þakka ÍBV fyrir að halda vel utan um þessa hátíð okkar og minni á að halda í gömlu gildin hennar, það eru heimamenn sem hafa haldið henni uppi og einstakri, sem hún er og er það mjög mikilvægt að allt sé gert í sátt og samlyndi við samfélagið eins og hefur verið gert. Ég myndi gjarnan vilja að Vestmannaeyjabær færi að huga að því að hátíðargestir eru farnir að gera sér glaðan dag niðri í bæ, þannig að það þarf að hafa það í huga, t.d. að fjölga klósettum þar.

Gleðilega Þjóðhátíð

71


Þjóðhátíðin mín Sólrún Erla Gunnarsdóttir 1972 Sólrún Gunnarsdóttir hefur mætt á 33 þjóðhátíðir en hún mætti á sína fyrstu 16 ára gömul. Við tókum stöðuna á Sólrúnu. Staða: Félagsráðgjafi. Fjölskylduhagir: Gift og móðir þriggja barna sem öll elska þjóðhátíð, tveir tengdasynir og amma þriggja (bráðum fjögurra) sem eiga pottþétt eftir að elska hátíðina líka. Fjöldi Þjóðhátíða? 33. Hvernig verður þjóðhátíð eftir 50 ár? Held minni í sniðum en nú er en fyrst og fremst hátíð heimafólks og þeirra gesta. Uppáhalds Þjóðhátíðarlag? Ástfangin í þér eftir Magga Eiríks, þjóðhátíðarlagið 2006. Uppáhaldslag í brekkusöng? Held klassíkin “Ég veit þú kemur”. Litli eða stóri pallurinn? Missi aðeins of oft af stóra pallinum því það er svo gaman í tjaldinu mínu. Finnst tjalda stemmningin alltaf skemmtilegust. Set mér þó markmið á hverju ári að fara meira á danspallana, kannski næst það í ár. Hvert er fallegast; Vitinn / Myllan/ Hofið? Allt flott en held þó ég verði að kjósa Mylluna því hún er næst minni byggð.

Sólrún ásamt Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.

tónleikar eina nóttina með dúettinum Sóldísi og Helga Björns. Hvað er nauðsynlegt í tjaldið? Gott bakkelsi og gott fólk. Fyrir hvað stendur þjóðhátíð í þínum huga? Ómetanlega samveru og gleði með fjölskyldu, vinum og kunningjum. Mætir þú jafnan á setninguna? Já alltaf en alltaf aðeins of seint, skil ekki af hverju…

Hvað er það besta við Þjóðhátíð? Samvera með frábæru fólki, sól í hjarta og sól í sinni.

Hefur þú verið í búning með vinahóp? Nei bara alls ekki.

Hver er eftirminnilegasta Þjóðhátíðin? Margar góðar en líklega sú í fyrra með þeim eftirminnilegri. Þar sannaðist að hægt er að láta jákvætt hugarfar, hlýju og samstöðu yfirgnæfa gráma og kulda. Það toppaði svo allt að fá minn uppáhaldsforseta í heimsókn í tjaldið og jú reyndar líka eftirminnilegir

Lestu Þjóðhátíðarblaðið? Já les alltaf þjóðhátíðarblaðið í rólegheitum eftir þjóðhátíð og horfi reyndar líka á brekkusönginn aftur í sjónvarpinu.

72

Hvaða dagur/kvöld þjóðhátíðarinnar stendur upp úr? Get ekki gert upp á milli kvölda.


Hvað er mikilvægast í undirbúningnum og ertu virkur að taka þátt þar? Allra mikilvægast er að passa upp á að það sé nóg til að borða, bæði í dalnum og heima líka. Saddir munu sælir verða. Fyrstu minningar af Þjóðhátíð í Herjólfsdal? Þegar ég mætti á mína fyrstu þjóðhátíð 16 ára gömul með flugi frá Vík í Mýrdal. Gisti í tjaldi í algjörri bongóblíðu inn í dal, skemmti mér mjög vel en fannst reyndar sérstakt að sjá alltof mikið hresst fólk á barnadagsskránni. Það sér maður ekki í dag eftir að dagdjammið færðist niður í bæ. Man líka eftir að hafa þvegið á mér hárið í vaskinum á snyrtingunum inn í dal því það var svo sjúklega löng röð að komast í sturtu í íþróttamiðstöðinni. Man samt ekkert hver var að spila þá þjóðhátíð en bara að það var geggjað stuð. Eitthvað að lokum? Gleðilega þjóðhátíð og munum að passa upp á hvort annað og gestina okkar. Spyrja síðan oftar en ekki “Er allt í lagi ? “

Sólrún og Erna Sævalds í góðum gír á Þjóðhátíð.

Gleðilega Þjóðhátíð!

73


GDRN / GUÐRÚN ÝR EYFJÖRÐ JÓHANNESDÓTTIR :

TREYSTI Á AÐ DALURINN VERÐI MEÐ RÍFANDI STUÐ OG STEMNINGU

GDRN á stóra sviðinu í Herjólfsdal í fyrra.

GDRN hefur skipað sér í fremstu röð íslenskra tónlistarkvenna með einlægum textum, tilfinningaríkri rödd og sterkri sviðsframkomu. Hún snýr aftur í brekkuna á Þjóðhátíð þar sem töfrar tónlistarinnar fá að njóta sín. Við heyrðum í henni og ræddum ferilinn, tenginguna við Eyjarnar og hvað er framundan. Hvernig er tilfinningin að vera að fara að stíga á svið í Herjólfsdal? Ég er svo spennt! Get ekki beðið eftir að spila á Þjóðhátíð og upplifa stemninguna. Hversu oft hefur þú komið fram á Þjóðhátíð? Ég er að fara að koma fram í þriðja skiptið. Hefur Þjóðhátíð einhverja sérstaka merkingu fyrir þig? Síðast fékk ég að fara í hvítu tjöldin og kynnast alvöru Eyja stemningu 74

þar sem ég fékk kjötsúpu og grillaðar pulsur og ég vona að ég verði eins heppin í ár, hef aldrei skemmt mér jafn vel á Þjóðhátíð og þegar ég fékk að upplifa þjóðhátíð í gegnum Eyjafólkið. Þá sá ég loksins um hvað þessi hátíð snýst um. Eyjafólkið sjálft leggur svo mikið á sig til að gera þessa hátíð að því sem hún er í dag, og ég vona að ég fái alltaf að upplifa Þjóðhátíð á þann veg. Hvernig undirbýrðu þig fyrir svona gigg? Ég reyni að borða vel og sofa vel kvöldinu áður, og svo bara að muna að njóta augnabliksins á sviðinu! Er eitthvað sérstakt lag sem þú hlakkar mest til að flytja í dalnum? Ég hlakka mest til að flytja lagið mitt ,,Þú sagðir” því ég held að það verði svo ótrúleg tilfinning að

finna fyrir fólkinu syngja með. Hver er besta minningin þín úr Herjólfsdal? Það var þegar ég spilaði í fyrra og allir í dalnum sungu með lögunum mínum, þvílíkur heiður! Þú ert ein af ástsælustu tónlistarkonum landsins – hvernig hefur ferðalagið verið? Það hefur verið ótrúlega gefandi, skemmtilegt en líka krefjandi eins og listræn vinna getur oft verið. Það getur verið erfitt að ná að kúpla sig úr vinnunni, en það er líka það sem gefur manni hvað mest. Hvað hefur haft mest áhrif á tónlistina þína undanfarin ár? Að vinna með frábæru tónlistarfólki sem kennir mér að færa tónlistina á hærra plan.


Er eitthvað lag sem stendur þér nær en önnur? ,,Ævilangt” sem ég samdi um son minn á sérstakan stað í hjarta mínu. Hvernig finnst þér vera kvenkyns listamaður í íslensku tónlistarlífi í dag? Það getur verið alveg svakalega skemmtilegt, því ég sé hvað ég get haft mikil áhrif á ungar konur og verið fyrirmynd fyrir þær að þora að stíga, það gefur mér líka byr undir báða vængi að halda áfram að gefa út tónlist að vita af áhrifunum sem ég get haft. Sem betur fer eru fleiri og fleiri stelpur og konur sem hafa verið að gefa út ótrúlega flotta tónlist og ryðja veginn fyrir næstu kynslóðir kvenna þótt ég myndi endilega vilja sjá fleiri þora að stíga fram! En það getur líka verið mjög krefjandi. Því miður er maður enn þann dag í dag þrátt fyrir frábæra og upplýsta umræðu að lenda í því að manni séu t.d. borguð minni laun en karlarnir fyrir nákvæmlega

sömu vinnu. Sem betur fer fer þeim tónleikahöldurum fækkandi sem leyfa sér að koma þannig fram en það getur verið erfitt að tækla þær aðstæður, því maður myndi halda að fólk vissi betur árið 2025. Hvað hlustar þú sjálf helst á þegar þú þarft að hvíla þig frá þínu eigin efni? Chat Baker Sings plötuna, ein af mínum allra uppáhalds. Áttu einhvern leynihæfileika eða áhugamál sem fólk veit kannski ekki af? Ég er mjög dugleg að gera upp gömul tekk húsgögn. Er eitthvað sem þú þarft alltaf að hafa með þér á tónleika? Vatn er nauðsynlegt! Hvað veitir þér innblástur – bæði í tónlist og lífinu almennt? Það er svo margt, tónlist, kvikmyndir, bækur, tónleikar. Eiginlega bara allt lífið getur gefið manni innblástur af ef maður er

nógu duglegur að leita. Er eitthvað í bígerð sem þú mátt segja okkur frá – nýtt efni, samstarf eða eitthvað spennandi? Ég er að vinna í allskonar nýju efni sem ég hlakka til að sýna ykkur! Hvar sérðu GDRN eftir 5 ár – bæði sem listamann og manneskju? Vonandi búin að vaxa og stækka sem listakona í tónlist, próduseringu og textagerð. Svo vona ég að ég haldi áfram að vera svo heppin að geta eytt tíma með fjölskyldunni minni, þar líður mér best. Ef þú fengir að spila hvar sem er í heiminum – hvar væri það? Í Japan. Eitthvað að lokum sem þú vilt koma á framfæri? Ég get ekki beðið eftir því að spila fyrir ykkur og ég treysti á að dalurinn verði með rífandi stuð og stemningu og syngi hátt og snjallt með!

75


Þjóðhátíðin mín Salóme Guðný Halldórsdóttir 1999 Hver er þín fyrsta minning frá þjóðhátíð í Herjólfsdal? Myndi segja að fyrstu minningarnar væru að fá að dansa við litla sviðið áður var farið heim og auðvitað bekkjarbílarnir. Hver er hápunktur þjóðhátíðarinnar að þínu mati? Brekkusöngurinn og blysinn hafa alltaf verið í uppáhaldi hjá mér, að sitja i brekkunni með rétta fólkinu og syngja. Hvernig hefðir hafa skapast í kringum þig og þitt fólk? Hefðirnar okkar eru að við skreytum alltaf tjaldið saman og svo erum við alltaf með staup inni tjaldi á sunnudeginum og síðan dansa uppá borði eða bekkjum inn í tjaldi. Uppáhalds þjóðhátíðarlag? Erfitt að velja bara eitt - en mín uppáhalds eru í Vestmannaeyjum og Draumur um þjóðhátíð. Hvað er mikilvægast í undirbúningnum fyrir Þjóðhátíðina? Finnst það stór partur af hátíðinni að gera dalinn kláran. Er fjölskyldan alltaf með hvítt tjald? Já við höfum verið með hvítt tjald síðan ég man eftir mér. Eitthvað sem er ómissandi á þjóðhátíð? Reyktur lundi er eitthvað sem ég myndi segja að væri ómissandi á þjóðhátíð. Litli eða stóri pallurinn? Held ég verði að segja stóra sviðið en finnst nauðsynlegt að fara á litla pallinn líka. Fyrir hvað stendur hátíðin í þínum huga? Myndi segja fjöldskylduhátíð fram að miðnætti alla vega síðan svolítið djamm. 76


Við óskum Eyjamönnum og gestum gleðilegrar Þjóðhátíðar WATT EHF FURUNO SKIPATÆKI Jón Gísli Ólason Rafmagnsiðnfræðingur sími: 695 2925

HELLUGERÐ

AGNARS NÝJA

TANNLÆKNASTOFAN

77


Vestmannaeyjabær óskar hátíðargestum góðrar skemmtunar í Herjólfsdal

78


79


Staðsett á Hellu, Stracta Hótel býður upp á veitingastaði, líkamsrækt, heita potta og 148 herbergi í fimm flokkum.

www.stracta.is

Stracta Apartments er fullkominn staður til að njóta frísins nálægt Kirkjubæjarklaustri. Í boði eru stúdíóíbúðir fyrir tvo og tveggja svefnherbergja íbúðir fyrir fjölskyldur og hópa.

www.orustustadir.is

Nýjasta hótelið okkar, Stracta Hótel Mosfell, býður upp á 51 herbergi í fimm flokkum. Hótelið er staðsett á Hellu og á staðnum er nú opinn ítalskur veitingastaður, Rótin, sem býður upp á handgerðar pizzur og pastarétti í hlýlegu umhverfi.

www.hotelmosfell.is HAFIÐ SAMBAND: 80

531 8010

info@stracta.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Þjóðhátíðarblaðið 2025 by Leturstofan - Issuu