Skip to main content

Þjóðhátíðarblaðið 2024

Page 1

ÞJÓÐHÁTÍÐARBLAÐ 20 V E S T M A N N A E Y J A 24


EFNISYFIRLIT: 4

Jónas Guðbjörn Jónsson formaður þjóðhátíðarnefndar

8

FM95Blö strákarnir í spjalli

12

Magnús Birgir Guðjónsson - Hvítu tjöldin hjartað í hátíðinni

16

Rakel Rut - Yfirhönnuður Icewear ný þjóðhátíðarlína

20

Þjóðhátíðin mín: Magnús Gíslason

20

Sigurvegarar í söngvakeppni barna 2023

22

Þjóðhátíðin 1874 - Kári Bjarnason tók saman

30

Selma Ragnarsdóttir - allt um þjóðhátíðarbúninga

35

Henson - Seldi Henson búninga til Steina og Stjána í denn

Ritstjórn: Leturstofan

36

Sigríður Inga Kristmannsdóttir - hefur sigrað búningakeppnina tvisvar sinnum

Hönnun, umbrot & auglýsingar: Leturstofan

40

Dagskrá hátíðarinnar

44

Þjóðhátíðin mín: Guðrún María Þorsteinsdóttir

50

Þjóðhátíðin mín: Guðni Grímsson

52

Í minningu Engla

56

Jóhanna Guðrún - Auðveldasta já í heimi

60

Systraþjóðhátíð - Guðfinna og Margrét Sveinsdætur

66

Þjóðhátíðin mín: Helena Björk Þorsteinsdóttir

78

Róbert Marshall

72

Tuttugasta árið í veitingatjaldinu- Nataliya Ginzhul

74

Þjóðhátíðin mín: Arnar Ísleifsson

Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja 2024

Ljósmyndir: Addi í London & einkasöfn Prentun: Prentun.is Úgefandi: ÍBV Íþróttafélag Þjóðhátíðarnefnd 2024: Formaður: Jónas Guðbjörn Jónsson Meðstjórnandi: Ellert Scheving Meðstjórnandi: Guðrún María Þorsteinsdóttir Meðstjórnandi: Haraldur Pálsson Meðstjórnandi: Hjörleifur Davíðsson Meðstjórnandi: Jón Þór Guðjónsson Meðstjórnandi: Daníel Frans Davíðsson

2


EKKI LÁTA HÖFUÐVERKINN EYÐILEGGJA HELGINA

Stytt samantekt á eiginleikum lyfs Treo/Treo Citrus/Treo Hindbær 500 mg/50 mg freyðitöflur við mígreni og vægum verkjum. Hver freyðitafla inniheldur 500 mg af asetýlsalicýlsýru og 50 mg af koffíni. Leysa á freyðitöflurnar upp í ½ glasi af vatni. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir, sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Viatris ApS Dagsetning SmPC: 9. ágúst 2022 (Treo) 28. febrúar 2022 (Treo Citrus og Hindbær). Umboðsaðili á Íslandi: Icepharma hf, sími 540 8000. Tekið saman í júlí 2024. VIA240701


ÞJÓÐHÁTÍÐ VESTMANNAEYJA JÓNAS GUÐBJÖRN JÓNSSON FORMAÐUR ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFNDAR ÍBV: Við fögnum merkilegum áfanga í ár þegar við höldum upp á 150 ára afmæli Þjóðhátíðar. Á þeim tímamótum finnst okkur mikilvægt að minnast gamalla tíma og fara til baka í nokkrar af gömlu góðu hefðunum sem ekki hafa verið síðustu ár. Í ár munum við m.a. fá tækifæri til að upplifa það aftur að sjá Bekkjarbíl á ferðinni og einnig mun Brennukóngur láta sjá sig á ný. Haldnir verða Hálandaleikar og Krakkaþrautir sem Hjalti Úrsus mun leiða en fyrr á árum voru alltaf íþróttakeppnir á hátíðinni. Einnig verður búningakeppnin endurvakin þar sem verðlaun verða veitt fyrir yngri og eldri. Dagskráin verður einstaklega flott í ár og mun aðalatriðið á sunnudagskvöldinu vera 150 ára afmælistónleikar þar sem frábærir flytjendur stíga á svið og syngja þjóðhátíðarlögin okkar kæru í bland við flotta íslenska slagara. Þjóðhátíðin fékk í desember síðastliðinn viðurkenningu frá Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar. Það er mikill heiður að eftir því sé tekið hversu öflug og metnaðarfull tónlistardagskrá þjóðhátíðar er en auk þess eru íslenskir tónlistarmenn fengnir árlega til að semja nýtt þjóðhátíðarlag. Í ár verður engin breyting á framlagi íslenskra tónlistarmanna á sviðinu í Herjólfsdal en margir af okkar bestu tónlistamönnum munu stíga á svið og skemmta fólkinu í dalnum. Til að gera enn betur munum við lengja dagskránna og þannig koma fleiri atriðum að en í ár munu tónlistaratriði hefjast í dalnum klukkan 20:30. Sú nýbreytni verður í ár að það verður 4

Þjóðhátíðarnefndin 2024; Haraldur Pálsson, Ellert Scheving, Daníel Frans Davíðsson, Jónas Guðbjörn Jónsson, Hjörleifur Davíðsson, Jón Þór Guðjónsson og Guðrún María Þorsteinsdóttir.

dagskrá á daginn í Miðstræti þar sem það þarf þjóðhátíðararmband til að komast inn en þannig náum við að stækka viðburðinn enn frekar fyrir okkar gesti. Við undirbúning á svona stórri og flottri hátíð er í mörg horn að líta og margt sem þarf að huga að. Nú þegar styttist í hátíðina finnur maður spennuna og eftirvæntinguna magnast og fólk er komið á fullt í undirbúningi. Það er okkar markmið að gera hátíðina eins glæsilega og eftirminnilega fyrir alla gesti sem á hana koma þannig að þeir munu allir vilja koma aftur. Þjóðhátíð 2023 gekk mjög vel og vorum við ánægð með gestina okkar þar sem flest allt fór fram í mesta bróðerni. Þar held ég að allir hafi farið mjög sáttir og sælir heim.

Ég vil þakka öllum sjálfboðaliðum ÍBV fyrir alla hjálpina við að setja upp þessa fjölskyldu- og tónlistarhátíð en án þeirra væri þetta ekki hægt. Þar er unnið mjög óeigingjarnt starf þar sem fólk gefur félaginu tíma sinn til að láta þessa flottustu hátíð á Íslandi verða að veruleika. Það að fá að vera með öllu þessu góða fólki við undirbúninginn eru forréttindi, því samheldnin og dugnaðurinn við alla vinnuna í Dalnum er ótrúleg. Það eru svo sannarlega töfrar í Herjólfsdal. Það koma einnig fjölmargir aðrir aðilar að því aðstoða við hátíðina og vil ég færa þeim bestu þakkir fyrir. Skemmtum okkur vel og fallega í Herjólfsdal því það er ekkert sem jafnast á við þennan stað.


Töfrar í Herjólfsdal Í 150 ár hafa Eyjamenn og gestir þeirra notið saman töfranna í Herjólfsdal. Íslandsbanki óskar ykkur öllum gleðilegrar Þjóðhátíðar.

5


Gleðilega hátíð

6


•

VA PE

SHO

P

•

Opnunartími yfir Þjóðhátið í Eyjum 1. ágúst

10:00 - 18:00 & opnum aftur 22:00 - 02:00 (Húkkarinn)

2. ágúst

10:00 - 21:00

3. ágúst

10:30 - 21:00

4. ágúst

10:30 - 21:00

5. ágúst

11:00 - 16:00

Djákninn // Strandvegur 47 // djakninn.is 7


FM957BLÖ:

SKEMMTILEGASTA OG STÆRSTA GIGG ÁRSINS

Strákarnir í FM95BLÖ munu koma fram á Þjóðhátíð eins og síðastliðin ár. Það eru þeir Auðunn Blöndal, Steindi Jr. og Egill Gillz en Þetta er í níunda skipti sem þeir félagar mæta og ætla að gera allt vitlaust á stóra pallinum í Herjólfsdalnum þegar þeir stíga á svið. Er kominn spenningur fyrir hátíðinni? Við erum alltaf ofpeppaðir félagarnir enda er þetta skemmtilegasta og stærsta gigg ársins. Hvenær komuð fyrst á Þjóðhátíð, þá bæði sem gestir og skemmtikraftar? Fyrsta giggið var 2015. Fer að fara að detta í 10 ára gigg afmæli á Þjóðhátíð. Við höfum allir verið hérna sem gestir. Hérna fæddist auðvitað Wurth Blö árið 2001 þegar hann fékk sér sígó á dansgólfinu með strípur. Það var hans fyrsta Þjóðhátíð. Egill á ættingja frá eyjum 8

og hefur verið með annan fótinn á eyjunni fögru frá því hann var í bleyju en hans fyrsta alvöru þjóðhátíð var 1998 með félögunum þar sem hann gisti í garðinum hjá frænku sinni.

förum alltaf í næstu Þjóðhátíð með það markmið að toppa síðustu. Er von á þjóðhátíðarlagi frá ykkur í ár? Okkur finnst fátt skemmtilegra en að smíða þjóðhátíðarlög þannig að auðvitað hendum við í lag. Í þetta skiptið er þetta króksaralag sem er búið að vera draumur Audda í einhver 45 ár. Hvað hafið þið mætt á margar? Egill og Blö oftar en 18 sinnum. Ef tekið er með þjóðhátíðarferðirnar þegar Egill var grislingur þá

er það liklega alls um 30. Steinþór er með slökustu mætinguna af okkur þrem en Steinþór er samt frábær. Hefur eitthvað komið upp á, á sviðinu sem væri gaman að segja frá? Já það var gott móment þegar Sveppi átti að mæta upp á svið að taka lagið “Djamm í kvöld” fyrir Steinda Jr. sem var í fríi þetta árið. Sveppi átti að vera mættur á svið en fannst hvergi og menn hlupu baksviðs að leita að honum. Hann fannst á salerninu og hljóp upp á nærbuxunum og tók þetta gigg í engu nema glæsilegum boxer nærbuxum. Ógleymanlegt móment fyrir gestina á Þjóðhátíð það árið. Hver er ykkar besta minning frá þjóðhátíð? Að standa fyrir framan 18.000 manns í fyrsta sinn er eitthvað sem maður gleymir aldrei.


Uppáhalds þjóðhátíðarlag allra tíma? Þar sem hjartað slær með okkar besta manni Sverri Bergmann og Fjallabræðrum. Langbesta þjóhátíðarlagið. Við hverju má fólk búast frá ykkur á sviðinu í Herjólfsdal? Við erum með það mikinn metnað að við förum alltaf í næstu Þjóðhátíð með það markmið að toppa síðustu. Fólk má búast við alvöru show-i, og mögulega öðrum jarðskjálfta. Hvað er meira framundan hjá ykkur? Við höldum áfram að létta fólki lundina í FM95Blö á föstudögum og Blökastinu á þriðjudögum. Svo erum við í hinum og þessum verkefnum félagarnir. Eitthvað að lokum? Lærið textann á nýja laginu því við viljum heyra hvern og einasta einstakling í dalnum öskra sig hásan yfir þessu frábæra lagi.

Gleðilega þjóðhátíð

9


HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM ÞJÓÐHÁTÍÐINA? Nafn: Gabríel Gauti Guðmundsson. Foreldrar: Guðmundur Ingi Guðmundsson og Aníta Óðinsdóttir. Aldur: 11 ára. Hvað hefur þú farið oft á þjóðhátíð: Ég hef farið tíu sinnum á þjóðhátíð. Hvaða þjóðhátíðarlag finnst þér best? Ég fer á þjóðhátíð með FM95BLÖ. Hvað er skemmtilegast við þjóðhátíðina? Hitti vini mína og hafa gaman. Hvað gerir þú vanalega á þjóðhátíð? Sprauta línuspreyi og peningana eða lífið.

Nafn: Jón Ólafur. Foreldrar: Ásta Jóna og Sveinbjörn Óðins Aldur: 9 ára Hvað hefur þú farið oft á þjóðhátíð? 8x Hvaða þjóðhátíðarlag finnst þér best? Þar sem hjartað slær. Hvað er skemmtilegast við þjóðhátíðina? Að halda á blysinu lengst uppí brekku með Rikka vini mínum. Hvað gerir þú vanalega á þjóðhátíð? Oftast er ég með fjölskyldunni minni að horfa á flugeldana og brennuna, svo höfum við, ég og Gabríel frændi minn verið að fá myndir af okkur með frægum.

Nafn: Ásta Guðrún Birgisdóttir. Foreldrar: Hafdís Ósk Ólafsdóttir og Birgir Þór Sigurjónsson. Aldur: Ég er 10 að verða 11. Hvað hefur þú farið oft á þjóðhátíð? Held 4 sinnum. Hvaða þjóðhátíðarlag finnst þér best? Í dalinn með Steinda, Audda og Sverrir. Hvað er skemmtilegast við þjóðhátíðina? Hitti vinkonur mínar, spreyja sling sling á alla og dansa í brekkunni. Skemmtilegst að spreyja sling sling á alla. Meira boring, ekki jafn mikið stuð og núna. Hvað gerir þú vanalega á þjóðhátíð? Mat. Spreyja á fólk. 10


GÆÐI - ALLA LEIÐ! Í SÁTT VIÐ NÁTTÚRUNA

Fjölskyldurnar á Brúnastöðum eru hluti þeirra 900 bænda sem eiga SS. Af ást og alúð sinna þau bústörfunum í sátt við náttúruna. Með fyrsta flokks aðbúnaði tryggja þau að kjötið frá SS skilar sér í gæðum alla leið á diskinn þinn. Íslenska sveitin og SS - fyrir þig

11


Biggi með börnum sínum Guðjóni og Önnu Kristínu.

MAGNÚS BIRGIR GUÐJÓNSSON

HVÍTU TJÖLDIN HJARTAÐ Í HÁTÍÐINNI „Þjóðhátíð er sameiningartákn okkar Vestmannaeyinga,“ segir Magnús Birgir Guðjónsson fyrrverandi formaður þjóðhátíðarnefndar til fjölda ára. Magnús Birgir, sem gjarnan er kallaður Biggi Gauja, hefur þjónað nærsamfélagi sínu ötullega í gegnum tíðina. Seta hans í þjóð-

hátíðarnefnd spannar nokkra áratugi þar sem hann hefur verið fremstur í flokki við undirbúning og skipulag á þjóðhátíð og haft víðtæk áhrif á þróun hátíðarinnar eins og hún þekkist í dag. „Ég held ég hafi verið formaður 20 þjóðhátíðir í röð en setið í nefnd í 31 ár,“ segir Magnús Birgir. „Ég man þetta reyndar ekki alveg upp á hár en svona telst mér þetta til. Þetta nær yfir áratugi og alveg til Týs áranna áður en ÍBV var stofnað,“ segir hann jafnframt en Magnús Birgir sat í öllum þjóðhátíðarnefndum ÍBV frá árinu 1997 til 2019 þegar hann ákvað að láta gott heita. „Þegar ég varð sjötugur ákvað ég að draga mig í hlé. Þetta var orðið fínt bara,“ segir hann. Töfrarnir í Herjólfsdal toga fast Samkvæmt Magnúsi Birgi einkenndist formennskan að stöðugu ati og löngum verkefnalistum. Þrátt fyrir að hann sjái ekki eftir ákvörðuninni og hafi labbað sáttur frá borði viðurkennir hann

12

að eiga stundum erfitt með að hafa ekki tögl og hagldir í öllu þegar líða fer að þjóðhátíð. „Einhvern tímann verður maður að hætta og deila ábyrgðinni þó það sé stundum erfitt að vera ekki með puttana í öllu. Það voru heldur betur flottir einstaklingar sem tóku við af mér og hafa gert góða hluti síðustu ár - það þykir mér vænt um. En ég held ég muni aldrei geta slitið mig alveg frá þjóðhátíð og er alltaf tilbúinn til að rétta hjálparhönd.“ Alltaf tilbúinn í þá næstu Aðspurður um ástæður þess að hann hafi setið jafn lengi og raun ber vitni í þjóðhátíðarnefnd segir hann þær vera nokkrar. Aðalástæðuna fyrir langri nefndarsetu sinni segir hann hafa verið skemmtilegir og samheldnir reynsluboltar í nefndinni sem unnu vel og örugglega saman. Að ógleymdum húmornum sem viðgengst hjá hátíðargestum og þeim töfrum sem eiga sér stað ár eftir ár í Herjólfsdal.


„Það er sérstakur húmor sem myndast í dalnum og hvergi annars staðar og hann líkar mér. Í nefndinni er sérstaklega skemmtilegt fólk sem er hokið af reynslu, vinnur vel saman og hefur frábæran húmor. Þetta er það sem hefur haldið í mig öll þessi ár þó það hafi oft verið skotið fast manna á milli þá var alltaf virkilega gaman að þessu,“ segir hann og bætir við: „Tilfinningin að góðri hátíð lokinni er ólýsanleg. Þá er maður strax tilbúinn í þá næstu.“ Hefur upplifað 75 þjóðhátíðir af 150 Nú eru liðin fimm ár síðan Magnús Birgir sagði sig úr þjóðhátíðarnefnd. Það þýðir að í ár fagnar hann 75 ára afmæli en á þeim 75 árum sem Magnús Birgir hefur lifað hefur hann aldrei misst af þjóðhátíð. „Ég man ekki eftir öðru en að hafa verið á öllum þjóðhátíðum frá því ég fæddist þannig þetta eru orðnar ansi margar þjóðhátíðir,“ segir hann og kveður þá eftirminnilegustu hafa verið árið 1977 þegar fyrsta þjóðhátíðin eftir gos var haldin með ógleymanlegum hætti. „Það var mikil vinna sem fólst í þessari hátíð. Það var svo gott að komast heim í Herjólfsdalinn og það var frábært veður allan tímann. Þetta var virkilega góð hátíð

og brosið skein úr öllum andlitum á meðan á henni stóð.“ Þrátt fyrir hvassviðri, strekking og hríð þá verður haldin þjóðhátíð Að sögn Magnús Birgis er leiðinleg þjóðhátíð ekki til í hans minni. Þar eru samverustundir með fjölskyldunni í hávegum hafðar og gleðin ávallt við völd. Hann segir veðrið þó geta sett strik í reikninginn, valdið hátíðargestum óþægindum og haft áhrif á umgjörð hátíðarinnar.

fór veðrið í 35 hnúta á sekúndu á sunnudeginum en svo var bara komin blíða strax á mánudeginum,“ lýsir hann. Veðrið varð varðeldinum að bráð Brekkusöngurinn þetta ár er Magnúsi Birgi sérlega minnisstæður. Fyrirkomulagi hans þurfti að breyta vegna veðurs og er það í eina skiptið sem það hefur verið gert með þessum hætti. „Við þurftum að leita að góðum stað fyrir brekkusönginn en það

Óli, Biggi, Jóna og Þura.

„Árið 2002 reyndist okkur erfitt að halda þjóðhátíð með hefðbundnu sniði. Veðrið var fjandsamlegt alla helgina og ljós og skraut úr Herjólfsdalnum fauk til fjandans og við eltandi það út um allan bæ. Þegar verst lét

Systkynin, Ólafur, Anna Kristín og Guðjón.

endaði þannig að Árni Johnsen tók hann hlés megin við stóra sviðið. Það þurfti að binda hljóðnemann fastan við stigann og er þetta í fyrsta og eina skipti þar sem ekki var kveikt upp í varðeldi á meðan á brekkusöngnum stóð,“ segir hann og minnist þess að hafa hlýnað um hjartarætur þegar eyjamenn héldu því til streitu að halda þjóðhátíð þetta ár þrátt fyrir veðrahaminn. „Þegar kvöldvakan byrjaði fór fólk að streyma að og maður sá varla framan í það, sérstaklega ekki börnin, því það voru allir svo vel dúðaðir. Tjöld fuku út um hvippinn og hvappinn og hýsa þurfti gesti hátíðarinnar í íþróttamannvirkjum. Þetta var alveg svakaleg hátíð sem endaði vel því á mánudeginum komust allir heilir heim,“ lýsir hann. 13


„Þarna sá maður hvað Vestmannaeyingum er annt um þjóðhátíð. Það ætlaði enginn að hætta við hana.“ Tíðarandinn og rótgrónar hefðir mætast Hefðir og venjur hafa löngum fastmótast við þjóðhátíð frá því hún fyrst hóf göngu sína fyrir 150 árum. Að mati Magnús Birgis eru hvítu tjöldin, tónlist, flugeldasýning, brenna, brekkusöngur, lundi, flatkökur, hnallþórur, stuð og stemning eitthvað sem er órjúfanlegur hluti af hátíðinni. „Aðalhefðin er samt sú að fjölskyldur eyði hátíðinni saman. Hvítu tjöldin eru hjartað í þjóðhátíðinni, fyrir okkur Vestmannaeyingana að minnsta kosti. Þó að ýmsir reyni að halda öðru fram þá er það einu sinni þannig að þjóðhátíð er ekkert nema fjölskylduhátíð þar sem samveran skiptir öllu máli,“ segir hann. Hann spáir því að þjóðhátíð verði enn stærsta og vinsælasta útihátíð landsins að öðrum 150 árum liðnum ef vel er haldið á spöðunum. „Þjóðhátíð verður að fylgja tíðarandanum því annars klárast ballið. Síðustu ár hefur hátíðin verið að þróast ört til hins betra. Ef því verður fylgt vel eftir um ókomin ár á það eftir að lengja ballið um önnur 150 ár. Þá á hátíðin eftir að halda áfram að farnast vel,“ segir Magnús Birgir að lokum og heitir því að ætla aldrei að missa af þjóðhátíð svo lengi sem hann lifir.

Siggi Reim og Biggi ræða málin.

Palli, Gauji, Tryggvi og Biggi.

/Ásthildur Hannesdóttir

Þjóðhátíðarnefnd 2016. Dóra Björk, Biggi, Jónas, Elli, Hörður og Auðbjörg.

14


VERIÐ velkomin Þið finnið okkur á Vesturvegi 5

Fimmtudagur: 1 0:00-23:00 Föstudagur: 1 0:00-17:00 Laugardagur: 11:00-17:00 Sunnudagur: 11:00-17:00 Mánudagur: 11:00-22:00


RAKEL RUT YFIRHÖNNUÐUR ICEWEAR:

BRENNAN ER KLÁRLEGA UPPÁHALDIÐ Fullt nafn: Rakel Rut Ingibjargardóttir Starf: Yfirhönnuður hjá Icewear Menntun: Lærði Teknologisk Design í Teko Center í Danmörku. Fjölskylda: Er gift Einari Hlöðver Sigurðssyni og á með honum 3 börn, Viggó Orra, Ylfu Nótt og Móey Minnu. Hvenær hófstu störf hjá Icewear? Ég byrjaði sumarið 2018 þá komin 20 vikur á leið með mitt yngsta barn þannig að það var stutt stopp, kom svo aftur til starfa haustið 2019 og tók þá við starfi yfirhönnuðar. Nú eruð þið með nýja línu - þjóðhátíðarlínu, getur þú sagt okkur frá ferlinu? Hún Sigga Inga hjá ÍBV og þjóðhátíðarnefnd hafði samband við mig fyrir þjóðhátíðina í fyrra og spurði hvort við hjá Icewear gætum hugsað okkur að gera varning fyrir hátíðina sem ég var auðvitað alveg þvílíkt til í. En tíminn var aðeins of stuttur þannig að við sammældumst um að heyrast aftur núna fyrir 2024 hátíðina. Við tókum svo samtalið aftur upp með þjóðhátíðarnefnd um jólin og fljótlega fór boltinn að rúlla.

Hvað eru margir sem koma að þessu? Hvernig kom þessi hugmynd til? Ég og Hulda framleiðslustjóri sem er hluti af hönnunarteyminu höfum keyrt á þessu verkefni, 16

Fjölskyldan í brekkunni.

einnig fengum við Alex (from Iceland) til að gera grafíkina. Þegar allar vörur eru svo tilbúnar þá tekur markaðsdeildin við og græjar alla umgjörð. Mig langaði að gera heilsteypta línu sem samanstæði af „must have“ stílum fyrir dalinn. Línan inniheldur því hátt í 20 stíla en helst ber að nefna stutterma boli, hettupeysur og buxur sem hægt er að leika sér með bæði hvað varðar litasamsetningu á stílum og grafík. Einnig eru í línunni regn piecar sem er auðvitað algerlega nauðsynlegt í dalinn, bucket hattar, derrur, brúsahaldari, vatnshellt símahulstur og aðrir skemmtilegir fylgihlutir. Þegar ég hugsa um þjóðhátíð þá hlýnar mér alltaf um hjartarætur þegar ég sit í brekkunni og stór hluti af brekkunni tekur upp símann sinn og stillir á vasaljósið. Mig langaði því að gera e-ð sem gæti viðhaldið þessari geggjuðu tilfinningu allt kvöldið en gegnumgangandi er annað hvort stór eða lítill hluti af línunni gerður með endurskinsmerki. Ég vona að endurskinsmerkin eigi eftir að skína í dalnum og gefa okkur öllum þessa geggjuðu tilfinningu við það eitt að horfa yfir hamingjusömustu mannmergð á Íslandi.


NovaFest á Þjóðhátíð í Eyjum Ný upplifun á nýjum stað! Sjáumst á Miðstræti á NovaFest. Föstudagur, 2. ágúst kl.14:30-17:30 DJ LOGI ISSI x Háski Laugardagur, 3. ágúst kl.13:30-17:30 DJ Ragga Holm GDRN Gamla 12:00 gugusar Patr!k Sunnudagur, 4. ágúst kl.13:30-17:30 DJ Lil Curly x Stormzy JóiPjé & Króli ClubDub Emmsjé Gauti


Hver er þín fyrsta minning frá þjóðhátíð í Herjólfsdal? Ég er svo heppin að hafa einungis misst af tveimur þjóðhátíðum af illri nauðsyn og það á fullorðinsaldri. Þannig að minningarnar eru óteljandi og hver annarri betri. En fyrsta minningin er þó þegar að ég var kannski svona 10 ára og Týrarar voru þetta árið í glænýjum eiturgrænum göllum. Ef ég man þetta rétt þá höfðum við staðið okkur vel á Gull og Silfurmótinu og vorum kallaðar upp á svið sem var auðvitað geggjað en þegar við komum niður af sviðinu þá fer ég að finna mömmu í brekkunni og þá klappar á bakið á mér einhver fullur kall - einsog ég man að ég talaði um hann þegar ég sagði mömmu frá þessu - en hann segir við mig: „Mikið rosalega ertu flottur vinur“. Ég var auðvitað sármóðguð og mun væntanlega seint gleyma þessu atviki en kenndi mömmu auðvitað um þetta þar sem að hún hafði farið með mig í klippingu rétt fyrir mótið og ég kom þaðan út með stall og ca. 30-40 cm langa fléttu í hendinni. Hver er hápunktur þjóðhátíðarinnar að þínu mati? Brennan er klárlega uppáhaldið mitt, ekkert betra en mómentið þegar kveikt er í brennunni og maður situr við tjörnina og finnur ylinn sem leggur af henni. Svo finnst mér líka yndislegt að sjá svipinn á krökkunum en þeim finnst brennan svo mögnuð.

Rakel með Ingibjörgu móður sinni á Þjóðhátíð.

Hvernig hefðir hafa skapast í kringum þig og þitt fólk? Ég held að okkar hefðir séu bara frekar klassískar, kaffi á setningunni þar sem allir mæta prúðbúnir, flatkökur, samlokur og lefsur í tjaldið og kjötsúpa á sunnudeginum. Uppáhalds þjóðhátíðarlag? Það er engan veginn hægt að velja eitt lag, þau eru öll góð á sinn hátt og tilheyra hverri geggjuðu þjóðhátíðinni fyrir sig. Hvað er mikilvægast í undirbúningnum fyrir Þjóðhátíðina? Það sem er kannski mikilvægast, af því það er það sem tekur lengstan tíma að ákveða er þemað fyrir tjaldið. Okkur finnst það ótrúlega stór hluti af helginni að skreyta tjaldið í bak og fyrir en það að finna þema getur stundum verið erfitt. Aldrei klikkar það samt að tengdó hrósar öllum í bak og fyrir fyrir þessar flottu skreytingar, hvort sem það nú er verðskuldað eða ekki. Er fjölskyldan alltaf með hvítt tjald? Já við eigum tjald með systkynum hans Einars og fjölskyldum þeirra. Eitthvað sem er ómissandi á þjóðhátíð? Nóg af glingri og glimmeri, þar gildir ekkert less is more kjaftæði.

Litli eða stóri pallurinn? Stóri til 03:00 ef maður hangir lengur þá klárar Rakel Rut ásamt Einari Hlöðver eiginmanni sínum á Þjóðhátíð maður á litla. 18


hionable“ sem passar auðvitað engan veginn við tilefnið. Við hlæjum ennþá að hvíta sólblóma gallanum sem einhverjar í hópnum náðu nú ekki að láta duga nema til miðnættis fyrsta kvöldið. Ég vil að sjálfsögðu meina að það þarf ákveðinn brussuskap til að rústa svona galla enda á ég minn ennþá „alveg heilann“. Eitthvað að lokum? Ég vil fá að óska öllum gleðilegrar þjóðhátíðar en 150 ára saga segir allt sem segja þarf. Njótum saman, verum góð hvort við annað og vonandi sé ég sem flesta skína í dalnum. Fyrir hvað stendur hátíðin í þínum huga? Þetta er fyrir mér fyrst og fremst fjölskylduskemmtun þar sem gleðin og samheldnin ræður alltaf ríkjum. Hefur þú verið í búning með vinahópi? Já við vinkonurnar vorum alltaf í búning og yfirleitt sat ég lengst fram á nótt á miðvikudegi fyrir þjóðhátíð að klára að sauma á vinahópinn. Við vorum yfirleitt bara í einhverjum galla sem ég hafði hannað fyrir tilefnið og ekki einhver ákveðinn karakter. Fyrstu árin eftir að ég flutti til Danmerkur fór farangursheimildin í að frakta efni og fylgihluti heim en það sem var mikilvægast var að vera í einhverju „fas-

Bergur ehf.

19


SIGURVEGARAR Í SÖNGVAKEPPNI BARNA Á ÞJÓÐHÁTÍÐ 2023 Fastur liður í dagskrá Þjóðhátíðarinnar undanfarin ár hefur verið Söngvakeppni barna en það hefur verið þannig að færri komast að en vilja. börn tóku þátt í keppninni í ár og hafði dómnefndin úr vöndu að ráða enda voru margir bráðefnilegir söngvarar sem stigu á stóra sviðið. Að lokum var það Alex Óli Jónsson, 10 ára, sem sigraði í eldri flokki en vinkonurnar Margrét Perla Bragadóttir, 7 ára og Saga Margrét Sindradóttir, 7 ára, sem að sigruðu í söngvakeppni yngri.

Margrét Perla Bragadóttir, 7 ára Fjölskylda: Mamma heitir Ragnheiður Perla, pabbi heitir Bragi og litli bróðir minn heitir Hjalti Hvaða lag söngstu í söngvakeppninni? Eyjanótt með Sögu Margréti Hvernig fannst þér að taka þátt? Gaman Hvernig leið þér að syngja fyrir alla brekkuna um kvöldið? Mér fannst það spennandi Hvað finnst þér skemmtilegast við Þjóðhátíð? Sjoppurnar og vera með ættarfólkinu mínu í tjaldinu Ertu að æfa söng? Nei en ég æfi á flautu Hvað er framundan hjá þér í söngnum? Ég ætla kannski að syngja meira þegar ég verð stór og mér finnst líka gaman að syngja heima Hvað hefur þú komið oft á þjóðhátíð? 4x það var ekki þjóðhátíð 2x útaf Covid en þá vorum við með tjald í garðinum 20

Vinkonurnar Margrét Perla Bragadóttir og Saga Margrét Sindradóttir.

Eitthvað að lokum? Ég var að syngja með Sögu Margréti af því ég heiti Margrét og hún heitir Saga Margrét og er vinkona mín.

Saga Margrét Sindradóttir, 7 ára Fjölskylda: Mamma heitir Þórsteina Sigurbjörnsdóttir, pabbi heitir Sindri Viðarsson og stóri bróðir minn heitir Nökkvi Dan. Hvaða lag söngstu í söngvakeppninni? Eyjanótt með vinkonu minni henni Margréti Perlu. Hvernig fannst þér að taka þátt?

Mjög skemmtilegt. Hvað finnst þér skemmtilegast við Þjóðhátíð? Mér finnst gaman þegar það er partý á litla sviðinu, dansa og syngja. Ertu að æfa söng? Nei ég er ekki að æfa söng en finnst gaman að syngja og dansa. Hvað hefur þú komið oft á þjóðhátíð? Ég hef farið á allar frá því ég fæddist. Þetta er fimmta þjóðhátíðin mín. Eitthvað að lokum? Ég ætla að syngja aftur í söngvakeppninni með Söru Björt vinkonu minni og við ætlum að syngja lagið Esjan.


Alex Óli Jónsson

Fjölskylda: Pabbi minn heitir Jón Rúnar og mamma mín heitir Þórunn Anna. Litli bróðir minn heitir Erik Óli, hann er 8 ára. Áttu einhverja tenginu til Eyja? Já ég á tengingu við Vestmannaeyjar bæði í gegnum mömmu og pabba. Afi minn (pabbi mömmu) var lengi til sjós á Vestmannaey og eiga afi og amma marga vini í Vestmannaeyjum. Ég á líka frændfólk í gegnum pabba minn. Hvaða lag söngstu í söngvakeppninni? Ég söng lítill drengur með Villa Vill. Hvernig fannst þér að taka þátt? Mér fannst ótrúlega skemmtilegt að taka þátt og ég er rosalega þakklátur fyrir að hafa fengið þetta tækifæri. Hvernig leið þér að syngja fyrir alla brekkuna um kvöldið? Mér leið rosalega vel og það var gaman að finna hvað brekkan tók vel undir, ógleymanlegt. Hvað finnst þér skemmtilegast við Þjóðhátíð? Örugglega

þegar söngvarar sem ég elska eru að syngja á stóra sviðinu og stemmningin er líka mjög skemmtilegt. Hefuru farið oft? Þetta var fyrsta þjóðhátíðin mín en reyndar hef ég farið einu sinni áður en þá var ég í maganum á mömmu minni. Ertu að æfa söng? Nei ég er ekki að æfa en ég syng mjög mikið heima og reyni að bæta mig.

Hvað er framundan hjá þér í söngnum? Eftir að ég sigraði söngvakeppnina í fyrra hef ég fengið mörg tækifæri til þess að koma fram og syngja og vonandi heldur það áfram. Eitthvað að lokum? Ég hlakka til að koma aftur á þjóðhátíð og vonandi mun ég syngja aftur á stóra sviðinu í framtíðinni. Góða skemmtun á þjóðhátíð 2024.

Gleðilega Þjóðhátíð

UFSABERG

21


ÞJÓÐHÁTÍÐIN 1874 OG FÁEINAR LEIÐRÉT TINGAR UM ÞJÓÐHÁTÍÐ VESTMANNAEYJA

Þjóðhátíð um aldamótin 1900.

Þjóðhátíð Vestmannaeyja er sú fagnaðarhátíð sem engan lætur ósnortinn. Hún er einstök og raunar svo einstök að í Málfarsbanka Árnastofnunar er aðeins eitt dæmi um þjóðhátíð sem sérnafn, með stórum staf. Þar segir: Ritað er Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum með stórum staf. Að öðru leyti er þar rætt um þjóðhátíð sem samnafn, með litlum staf. En forsögu og rætur á Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Einnig hviksögur og rangfærslur sem hafa komist á kreik og eiga til að skjóta upp kolli sínum þá minnst varir og setjast lengi að í orðræðunni. Hér skal þess freistað að rekja nokkuð sögu málsins, af hverju boðið var til þjóðhátíðar á Þingvöllum og haldnar þjóðhátíðir um allt land 1874, árið sem síðar átti eftir að vera þekkt í sögu landsins sem þjóðhátíðarárið. Þá verður tækifærið jafnframt nýtt til að draga fram og kveðja í eitt skipti fáeinar villur sem hafa óþarflega oft heyrst um Þjóðhátíð Vestmannaeyja. 22

Þær eru: 1. Eyjabúar komust ekki á Þingvöll og ákváðu því í staðinn að halda sína eigin þjóðhátíð. 2. Þjóðhátíð Vestmannaeyja 1874 var einstök héraðshátíð á landsvísu. 3. Þjóðhátíð Vestmannaeyja hefur verið haldin nánast óslitið frá 1874. Af hverju þjóðhátíð? Hugtakið þjóðhátíð mun fyrst hafa sést á prenti 1841, er Tómas Sæmundsson Fjölnismaður og Jón Sigurðsson forseti ræddu um endurreisn Alþingis er þá var í burðarliðnum, að vísu aðeins sem ráðgefandi samkunda. Ekki er hins vegar að sjá að orðið hafi tekið að festa sig verulega í sessi fyrr en Íslendingar taka að huga að tímamótaárinu 1874. Þegar flett er upp í gagnasafninu timarit.is kemur í ljós að elsta dæmið um orðið þjóðhátíð fjallar einmitt um 1874. Árið 1864 bregðast Nokkrir Íslendingar við

áskorun Halldórs Kr. Friðrikssonar yfirkennara við Lærða skólann í Reykjavík og alþingismanns. Umfjöllunarefni Halldórs var herhvöt til landsmanna um að minnast veglega þeirra merku tímamóta sem framundan væru. Í svari Íslendinganna er lagt til að efna til sameiginlegrar hátíðar þjóðarinnar. Síðan segir: „Þessa þjóðhátíð á að halda að 10 árum liðnum eðr 1874, ...“ (Þjóðólfur 12. ágúst 1864, bls. 159-160). Ári síðar, 29. júlí 1865, lagði Sveinn Skúlason alþingismaður fram á Alþingi Uppástungu um þjóðhátíð í minningu Íslands byggingar. Tvennt vekur einkum athygli í umfjöllun þeirra sem hér hefur verið sagt frá. Í fyrsta lagi er megináherslan ekki á hátíðahöldin sjálf, enda þótt allir séu sammála um að efna til slíkra, heldur fremur á að byggja minnisvarða af tilefninu eða nýta tækifærið og reisa löngu tímabært hús undir húsnæðislausa dýrgripi þjóðarinnar. Rætt er um það fram og til baka að efna til


GLEÐILEGA HÁTÍÐ! Skipalyftan óskar Eyjafólki & gestum gleðilegrar þjóðhátíðar!

23


samskota, rifist um hvar minnismerkið eigi nákvæmlega að rísa eða hvaða dýrgripir eigi að vera í hinu fyrirhugaða húsi o.s.frv. Flutningsmennirnir eru þó sammála um eitt: Allt hið byggða skal staðsett í Reykjavík. Skemmst er frá því að segja að allar hugmyndir koðnuðu smám saman niður, utan sú eina að halda þjóðhátíð. Þjóðhátíðin, sem þegar í upphafi var ákveðið að yrði á Þingvöllum, var hin fyrsta þjóðhátíð landsmanna. Skal nú hugað nánar að henni. Þjóðhátíðin á Þingvöllum Hið íslenska þjóðvinafélag, sem var stofnað 19. ágúst 1871, stóð fyrir þjóðhátíðarhaldinu 1874, en stofnendur þess voru 17 þjóðkjörnir alþingismenn. Segir í auglýsingu frá félaginu: Eftir uppástungu ýmissa Íslendinga, áskorun forseta Þjóðvinafélagsins og ályktun forstöðunefndar félagsins í Reykjavík er svo til ætlast að fundur verði haldinn á Þingvöllum við Öxará í sumar, ... og er svo til ætlast, að fundur þess verið haldinn dagana 5. – 7. ágústmánaðar ... í hverju kjördæmi landsins verði kosnir 2 menn til að sækja fund þenna fyrir hönd kjördæmisins. (Brynleifur Tobiasson. Þjóðhátíðin 1874 (Reykjavík 1958), bls. 31). Í bókinni sem vitnað er til hér að framan er að finna langan nafnalista er Jón Jónsson Borgfirðingur tók saman yfir þá sem mættu á þjóðhátíðina á Þingvöllum. Þar segir Jón að hann tilgreini aðeins þá sem hann hafi séð eða fengið ábendingu um að hafi verið á staðnum. Höfundi þessara lína telst til að nafngreindir séu 422 einstaklingar en Jón bætir við í texta að vafalaust hafi umtalsvert fleiri verið á staðnum, en engin tilraun hafi verið gerð til að áætla heildarfjölda viðstaddra. Meðal þeirra sem sagðir eru hafa setið hátíðina eru þeir tveir Eyjamenn 24

sem kosnir voru á fundinn, Árni Einarsson hreppstjóri á Vilborgarstöðum og Þorsteinn Jónsson hreppstjóri í Nýjabæ. Það er óvíst hversu margir aðrir Eyjabúar tóku þátt í hátíðinni á Þingvöllum en hitt er jafnvíst að þangað mættu fulltrúar frá Vestmannaeyjum eins og annars staðar af landinu. Við lestur á samantekt þeirra er sátu þjóðhátíðina á Þingvöllum 5. – 7. ágúst er ekki frá því að manni þyki sem hátíðin hafi fremur verið hátíð fyrirmenna en almennings. Vera má að fleiri hafi verið á staðnum af alþýðu manna, enda þótt ekki sé tilgreint. Samkvæmt heimildum voru þó aðeins rösklega 60 tjöld á hátíðarsvæðinu og því takmörkuð tækifæri til að leita afdreps yfir nóttina. Ástæða þess að Vestmanneyingar ákváðu að halda eigin þjóðhátíð er því ekki að rekja til þess að ófært var upp á meginlandið heldur til þeirrar staðreyndar að um allt land voru haldnar héraðshátíðir og var Þjóðhátíð Vestmannaeyja ein þeirra. Þjóðhátíðir í héraði Snemma árs 1874 bárust fregnir af því að sjálfur Kristján IX konungur myndi heiðra hátíðina á Þingvöllum með nærveru sinni, fyrstur allra konunga landsins, og færa þegnum sínum þar fyrstu stjórnar-

skrá Íslands að gjöf í tilefni 1000 ára afmælis Íslandsbyggðar. Enda þótt landsmenn væru ekki að fullu sáttir við hina nýju stjórnarskrá þótti hún eigi að síður mikilvægur og löngu tímabær áfangi á frelsisbraut. Í framhaldinu var skorað á kirkjuyfirvöld að sungin yrði hátíðarmessa um allt land til að fagna afmælinu, komu konungs og nýrri stjórnarskrá. Biskup Íslands ákvað að fyrsta sunnudag eftir að ný stjórnarskrá gekk í gildi yrði messað um land allt. Stjórnarskráin öðlaðist gildi hinn 1. dag ágústmánaðar eins og segir í lögunum og daginn eftir var sunnudagurinn 2. ágúst. Að viðstöddum konungi sjálfum átti að fagna í höfuðstaðnum hinni nýju stjórnarskrá en skunda síðan á Þingvöll til formlegrar dagskrár. Jafnframt var ákveðið að landið allt myndi þakka og fagna þennan dag, 2. ágúst, daginn sem fyrstur allra var nefndur þjóðhátíðardagur. Heimildir herma að þann dag hafi að minnsta kosti á eftirfarandi stöðum verið haldin héraðshátíð: Í Reykjavík, að viðstöddum konungi, í Vestmannaeyjum, í Kleifahreppi, Leiðvallahreppi og Dyrhólahreppi fyrir Skaftfellinga, á Hruna og Stóra-Núpi fyrir Árnesinga, að Kirkjulandi og í Sigluvík í Landeyjum, í Kirkjuvogi fyrir Rosmhvalanes og Hafnarhrepp, að Kotvogi, Gerða-


koti og á Skaga í Gullbringusýslu, í Njarðvík fyrir austurhluta Gullbringusýslu, í Kollafirði fyrir Mosfellinga og Kjalnesinga, að Skipaskaga fyrir Akurnesinga, í Svignaskarði fyrir Borghreppinga, á Reykhólum, á Ströndum vestur, að Kolfreyjustað fyrir Fáskrúðsfirðinga, að Setbergi í Eyrarsveit, á Breiðabólsstað og að Narfeyri fyrir Skógstrendinga, að Staðarfelli fyrir Dalamenn, á Hellu á Selsströnd, á Kollafjarðarnesi og Svínavatni. Vitað er að þjóðhátíðir voru haldnar einnig á öðrum tímum. Til að mynda vildu ýmsir miða við þingmaríumessu fremur en afhendingu stjórnarskrárinnar. Sá dagur var 2. júlí, dagurinn sem alþingi kom venjulega saman til forna. Einnig eru dæmi um hátíðir sem haldnar voru síðar á árinu. Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum 1874 Í Þjóðólfi hinn 31. ágúst 1874 segir svo af hinni fyrstu Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum: Á Vestmannaeyjum var þjóðhátíðarsamkoma haldin 2. dag ágústmánaðar að aflokinni messu í

Herjólfsdal, þar sem Herjólfr fyrsti landnámsmaðr Vestmannaeyja, reisti sér bú. Dalur þessi er á þrjá vegu luktr hamrafjöllum, 6-700 feta háum; neðanundir hömrunum eru víða grænar brekkur og dálítil tjörn í miðjum dalnum. Um nónbil söfnuðust inn í dalinn yfir 400 manns, voru þar uppreist tjöld yfir vistum, og voru tjöldin og svonefnd Herjólfsdys prýdd flöggum. Þegar menn höfðu snætt og drukkið kaffi, hófu sumir dansleik, aðrir söng, og voru menn þar við bestu skemmtun fram undir miðnætti. Veður var bjart og logn í dalnum, hátíðin fór fram með góðri glaðværð og með bestu reglu, og urðu fáir ölvaðir. Þar voru ýms minni drukkin og skal getið hinna helstu. Héraðslæknir Þorsteinn Jónsson mælti fyrir minni konungs, og er því var lokið var hleypt af 9 fallbyssuskotum og tók vel undir í fjöllunum umhverfis; síra Br. Jónsson mælti fyrir minni Íslands, læknir Þorsteinn fyrir minni Jóns Sigurðssonar. Almenningur hafði gefið til hátíðahalds þessa og kosið nefnd manna til að standa fyrir undirbúningi og veitingum. Einar Sigurðsson er hélt úti mánað-

arriti sínu Gamalt og nýtt á árunum 1949-1952 virðist hafa talsvert fyllri heimildir um hátíðina. Í 2. tbl., 1. árg. ritar hann vandaða grein um Þjóðhátíðina. Þar kemur t.a.m. fram að glímt hafi verið á hátíðinni, hlaðið hafi verið borð og þar á lagðar kræsingar, heilu nauti slátrað og öllum veitt sem þiggja vildu, en áður hafði verið efnt til samskota til að standa straum af kostnaði. Einar bendir jafnframt á að Herjólfsdalur hafi verið nýttur undir mannfagnaði löngu fyrir daga þjóðhátíða og því eðlilegur og sjálfsagður kostur. Engar heimildir eru um Þjóðhátíð í Eyjum eftir þjóðhátíðarárið fyrr en árið 1901. Bæði Einar og Jóhann Gunnar Ólafsson, sem skrifaði ítarlega sögu Þjóðhátíðar í Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja árin 1956-1961, eru samdóma um það. Sérstaða Þjóðhátíðar Vestmannaeyja er því ekki hátíðin 1874 heldur hin endurvakta Þjóðhátíð Vestmannaeyja 1901 og sú þrautseigja að halda nánast óslitið Þjóðhátíð eftir það á hverju ári. /Kári Bjarnason

Þjóðhátíð 11. ágúst 1929.

25


26


ÞJÓÐHÁTÍÐ VESTMANNAEYJA 1874 - 2024 Starfsfólk í Safnahúsinu er að taka saman sögu Þjóðhátíðar. Einn liður í þeirri vinnu er skráin hér að neðan. Reynt er að fullyrða aðeins það sem traustar heimildir eru fyrir þar sem markmiðið er að hér verði svo fullkomin samantekt yfir hina miklu hátíð sem nokkur kostur er á. Þegar sleppt er að tilgreina eða hér er sagt að eitthvað sé óvíst eða virðist ekki, annað líklegt eða spurningarmerki sett við, merkir það einfaldlega að óyggjandi staðfesting hefur ekki fundist, hvað sem síðar kann að verða. Ár

Dags.

Umsjón

1874 2. ágúst 1875-1900 Virðist ekki hafa verið haldin Þjóðhátíð. 1901 17. ágúst 1902 14. ágúst 1903 16. ágúst 1904 13. ágúst 1905 12. ágúst 1906 11. ágúst 1907 17. ágúst 1908 15. ágúst 1909 15. ágúst 13. ágúst 12. ágúst Líkn 17. ágúst Líkn + K.V.? 30. – 31. ágúst Líkn Þjóðhátíð féll niður 21. – 22. ágúst Líkn 2. eða 13. ágúst Þór Sögð haldin, óvíst hvenær. Sögð haldin, óvíst hvenær. 15. ágúst 14. ágúst Sögð haldin, óvíst hvenær. 12. ágúst Íþróttafélögin Óvíst hvenær Íþróttaf. 9. – 10. ágúst Týr og Þór Líklega 15. – 16. ágúst 14. – 15. ágúst Líklega 13.–14. ágúst Týr Óvíst hvenær Þór 11. – 12. ágúst Týr

(Seinkað vegna veðurs um einn dag. 17. ágúst var haldin þjóðhátíðar­uppbót).

1930 1931 1932 1933

16. – 17. ágúst 8. – 9. ágúst 13. – 14. ágúst 12. – 13. ágúst

Þór Týr Týr

(Átti að vera fyrr í mán.)

1934 1935 1936 1937 1938 28

11. – 12. ágúst 10. – 11. ágúst 15. – 16. ágúst 7. – 8. ágúst 6. – 7. ágúst

Dags.

1939 1940 1941 1942

5. – 6. ágúst 10. – 11. ágúst 9. – 10. ágúst 8. ágúst

Umsjón

(Átti að vera 7. og 8. ágúst en var frestað. Óvíst hvort hún hafi staðið lengur en einn dag).

(Seinkað vegna veðurs um einn dag).

1910 1911 1912 1913 1914 1915 1916 1917 1918 1919 1920 1921 1922 1923 1924 1925 1926 1927 1928 1929

Ár

Þór Týr Þór Týr Þór

1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949 1950

6. – 7. ágúst 4. – 5. ágúst 3. – 4. ágúst 3. – 4. ágúst 8. – 9. ágúst 6. – 7. ágúst 5. – 6. ágúst 5. – 6. ágúst

Týr Þór Týr Þór

Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór

(Seinkað vegna veðurs um einn dag)

1951 3. – 4. ágúst 1952 8. – 9. ágúst 1953 9. – 10. ágúst

Týr Þór Týr

(Seinkað vegna veðurs um einn dag)

1954 1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963 1964 1965 1966 1967 1968 1969 1970 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978

6. – 7. ágúst 5. – 6. ágúst 3. – 4. ágúst 2. – 4. ágúst 8. – 9. ágúst 7. – 8. ágúst 5. – 6. ágúst 4. – 5. ágúst 4. – 5. ágúst 2. – 3. ágúst 7. – 8. ágúst 6. – 8. ágúst 5. – 7. ágúst 4. – 6. ágúst 2. – 4. ágúst 8. – 10. ágúst 7. - 9. ágúst 6. – 7. ágúst 5. – 6. ágúst 5. ágúst 9. – 11. ágúst 1. – 3. ágúst 6. – 8. ágúst 5. – 7. ágúst 4. – 6. ágúst

Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór

Ár

Dags.

1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023

3. – 5. ágúst 1. – 3. ágúst 31. júlí –2. ágúst 6. – 8. ágúst 29. – 31. júlí 3. – 5. ágúst 2. – 4. ágúst 1. – 3. ágúst 31. júlí – 2. ágúst 29. – 31. júlí 4. – 6. ágúst 3. – 5. ágúst 2. – 4. ágúst 31. júlí – 2. ágúst 30. júlí – 1. ágúst 29. – 31. júlí 4. – 6. ágúst 2. – 4. ágúst 1. – 3. ágúst 31. júlí – 2. ágúst 30. júlí – 1. ágúst 4. – 6. ágúst 3. – 5. ágúst 2. – 4. ágúst 1. – 3. ágúst 30. júlí – 1. ágúst 29. – 31. júlí 4. – 6. ágúst 3. – 5. ágúst 1. – 3. ágúst 31. júlí – 2. ágúst 30. júlí – 1. ágúst 29. – 31. júlí 3. – 5. ágúst 2. – 4. ágúst 1. – 3. ágúst 31. júlí – 2. ágúst 29. – 31. júlí 4. – 6 ágúst 3. – 5. ágúst 2. – 4. ágúst Féll niður Féll niður 29. - 31. júlí 4. - 6. ágúst

Umsjón

Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór Týr Þór ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV ÍBV


Gleðilega þjóðhátíð kæru Eyjamenn og gestir. Sjáumst í dalnum!

ÞjóðháZtAí6ð7 á PIZ ZA

RÍFANDI STEMNING Í TJALDINU OG UPPHITUN FYRIR DALINN Trúbadorar laugardag og sunnudag

BÓAS GUNNARS

NÆTURSALA TIL KL.04.00 Á FIMMTUDAG Erum að Heiðarvegi 5

LILJA BJÖRK

OPIÐ

fimmtudag 12-04 fös-sun 10:30-20 mánudag 10:30-22

Sendum heim ( 481-1567

ATH! tilboð ekki í gildi fimmtudag - mánudags

29


SELMA RAGNARSDÓTTIR KJÓLA- OG KLÆÐSKERAMEISTARI:

FÓR AF GÓLFINU UPPÁ SVIÐ Selma Ragnars hefur frá unglingsaldri unnið með og útfært hugmyndir búninga fyrir hópa og sviðlistafólk á Þjóðhátíð. Ung lærði hún klæðskera og kjólasaum og hefur unnið af dugnaði og elju í sínu fagi í þrjá áratugi. Hún hefur alltaf verið hún sjálf og haft hugrekki til þess að fylgja hugmyndum sínum eftir. Í dag vinnur hún sem hugmyndasmiðurinn á bak við tjöldin að búningum sviðslistafólks sem syngur á sviðinu inn í dal meðal annars. Hún mun á næstu Þjóðhátíð taka til starfa með dómnefnd búningakeppninarinnar. Karnivalflipp Selma segir að fyrsta búningaflippið hjá hópum hafi byrjað uppúr nítján hundruð og níutíu og stuttu seinna saumaði hún fyrstu búningana á stelpuhóp sem unnu hina eiginlegu

ur og svo á stærri vinahópa um fjórtán ára aldurinn. Krakkar og unglingar voru þá farnir að mæta í “búningum” saman. Svo að þetta var einhver fíflagangur að vera í stíl saman. Þetta voru oft bútasaumsbúningar og peysur. Þetta var svona pínu í áttina að karnivalflippi, að vera öðruvísi, skera sig úr hópnum og stimpla sig inn í sinn hóp. Það er í raun það sem þetta snýst um. Að vekja athygli á sér og hafa gaman. Öllum finnst þetta sniðugt og fyndið”. Keppnin random áður fyrr Selma segir að krökkum hafi fundist þetta skemmtilegt og metnaður hafi verið kominn hjá þeim og voru þeir kallaðir upp á svið: “Fyrsti hópurinn sem vann formlegu keppnina voru átta stelpur í sjóliðabúningum sem ég saumaði. Þá þurfti ekki að skrá sig fyrirfram í keppnina eins og er í

Sjóliðabúningarnir sem báru sigur úr býtum í búningakeppninni 1994.

formlegu keppni 1994: “En ég og nokkrar vinkonur vorum eiginlega krakkar og saumuðum á okkur til að vera í stíl en seinna byrjuðum við að sauma á okk30

dag og því voru einhverjir hópar sem fóru framhjá dómurunum. Þetta meira random og einhverjir hópar mættu stundum of seint á föstudeginum og náðu ekki inní

Selma Ragnarsdóttir

keppnina. Það voru þrír í dómnefnd þá” segir Selma. Búningarnir þurfa að funkera Krakkarnir komu alltaf með sína hugmynd fyrst til Selmu en síðan útfærði hún þær í praktík: “Ég sem klæðskeri kom inn með hugmyndir sem þau voru kannski ekkert að spá í. Það þarf að geta hreyft sig almennilega og ekki er sama úr hvaða efni þetta er og ekki að hafa það lélegt sem rifnar. Þetta þarf að duga allavega þessa þrjá daga. Það þarf líka að mega henda þessu í þvottavél og vera hægt að nota þetta daginn eftir, ef það myndi rigna, hvort það ættu að vera vasar, hvort það var þægilegt að pissa í þessu og kostnaðurinn á efninu. Þetta eru ekki bara búningar sem lúkka vel í hálfan dag, þeir þurfa að funkera”. Strákar töffarar en stelpur sætar Selma segir að stelpurnar hafi lagt meiri áherslu á að vera sætar, sexý og glamor á meðan strákarnir töffarar eða herramenn: “Ég gerði samfestingabúninga á nokkra stelpuhópa en jakkafatastíl á strákahópana. Húmorinn og fíflaríð var meiri hjá strákunum líkt og búningarnir Vinir ketils


Gleðilega þjóðhátíð!

Innanlandsflugvellir ehf.

31


Sumir kítluðu og æstu upp fólk. Í dag er farið í partýbúðina, Hókus Pókus og dugi varla Þjóðhátíðina og efnin oft úr pólýester sem séu hræðileg í nálægð” og Selma bætir við og segir: “Þetta er þunnt drasl. Þegar ég saumaði búninga voru þeir útpældir og efnin dugðu alla helgina og teygðust þegar sest var í brekkuna. Ef við vorum nógu snemma í því gátum við útvegað efni hér heima. Þá voru fimm efnabúðir en í dag eru tvær”.

Saumaklúbburinn í kjól eins og Vigdís Finnbogadóttir var klædd í frá árinu 1980.

bónda sem var hugmynd frá átjándu öld eða hugmynd stelpuhóps sem voru í maskbúning úr bíómynd en þær pöntuðu þá á netinu sem ég lagfærði og unnu þær það ár. Stundum er eitthvað þema eða tónlist sem hefur áhrif á búningana líkt og þegar ég gerði búninga á stelpuhóp í pallíettusamfestingum í þrjú ár, í mismunandi lit hvert ár og voru það áhrif frá Pál Óskari með glamori og glym” segir Selma. Fóru okkur hryllilega illa Eldri hópar taka sig einnig saman og eru í samstæðum fötum eins og lopapeysum og er það bæði skemmtilegt og partur af þessu þótt þau séu ekk í keppninni að þá eru þetta semí búningar þrátt fyrir að þau séu í lopapeysum. Eldri vinahópar eru oft dannaðari: “Eitt árið var saumaklúbburinn minn í Eyjum í kjól eins og Vigdís Finnbogadóttir var klædd í frá árinu nítján hundruð og áttatíu og var það blár kjóll. Við saumaklúbburinn saumuðum í sameiningu með minni stjórn kjólana og voru þeir hræðilegir og fóru okkur hryllilega illa en okkur var náttúrulega alveg sama. Við vorum með íslenska fána borða yfir axlirnar eins og fegurðardrottningar Íslands og með ljósa hárkollu og rauðan varalit” segir Selma og 32

bætir við að þær hafi ekki unnið keppnina þetta árið enda var það ekki markmiðið: “ Við erum yfirleitt með eitt kvöld sameiginlegt því þær eru með fjölskyldur og vinahópa. Eitt árið vorum við í hálfgerðum upphlut, í pilsi, með svuntur og létum prenta mynd af upphlut á bol og með skotthúfu”.

Frumkvöðlar búningana voru hugrakkar týpur úr Eyjum Selma rifjar upp fólki hafi í byrjun haft hugrekki til að fara sínar leiðir í búningavali: “Stígur var frumkvöðullinn og fór sínar eigin leiðir í búningum og Sigrún Logadóttir tók Gyðu Sól sem gekk um með barnavagn um allar trissur í dalnum. Hún var náttúrulega algjör flippari og sjúklega fyndin.

Lærði tímastjórnun með árunum Aðspurð hvort hún eigi einhverja skemmtilega sögu frá þessum tíma rifjar hún upp eitt leyndarmál: “Ég gerði dökkbláa flugmannabúninga á tuttugu stráka með vösum og klaufum úr fínu efni sem lúkkaði og fúnkaði vel árið 2004 þegar ég bjó ennþá í Eyjum. Þann dag vann ég til sex á föstudeginum og átti eftir að loka krögunum á þremur jökkum og setja tölurnar á, en þeir lúkkuðu vel og gátu farið inn í dal, stimplað sig inn í keppnina, mætt í myndatöku og farið fyrir dómnefnd. Ég sýndi þessum þremur strákum, sem voru í ókláruðu jökkunum hvernig þeir gátu haldið á jökkunum yfir hendina líkt og flugmenn gera án þess að það sæist í ókláruðu kragana og tölurnar og þannig stóðu þeir í röðinni uppá sviði í myndatökunni. Ég vann síðan til ellefu um kvöldið og klárði jakkana. Ég hugsaði þá, nei þetta er orðið too much. En því miður unnu þeir ekki. En þetta voru ógeðslega flottir búningar. En þetta var algjörlega on me og aðeins of stór biti sem ég fattaði ekki í byrjun. Ég var líka pínu kreisí á þessum tíma og ekki nógu góð í tímastjórnun. Ég er betri í dag og er búin að læra af reynslunni”. Alvöru metnaður Selma segir að krökkunum sé gefinn bikar á sviðinu og fá fagn-


ungt fólk er, það vill vinna svona keppni. Það vill vera áberandi í dalnum”.

Vinir Ketils bónda.

aðarlæti og að aðalfúttið sé að fá mynd af sér í blöðin: “Að sjálfsögðu breytist viðhorfið. Þetta varð að alvöru metnaði. Krakkarnir sköpuðu alvöru minningar. Að sjálfsögðu að smitast þetta út og krakkar sem koma ofan af landi átta sig á að búningar eru partur af Þjóðhátíðinni og hópar hafa komið í búningum sem hafa verið skemmtilegir og sumir unnið keppnina. En ég hef bara saumað á Eyjahópa” segir Selma og bætir við að alltaf sé það að verða algengara að hópar fjörtíu plús taki þátt: “Það mega allir vera með og þetta er að aukast sem er frábært. Það eru þrjár saumastofur í bænum sem sérhæfa sig í dimmisjónbúningum. Líklegt er að þær saumastofur hafi gert búninga á hópa sem koma ofan af landi”. Viss aðferð að sauma mörg stykki Selma segir að þegar hún flutti frá Eyjum tóku hönnuðir og saumakonur úr Eyjum við af

henni: “Þetta er kostnaðarsamt en búningurinn kostaði um þrjátíu þúsund og fólki blöskraði en mér finnst þetta ekki neinn ofsalegur peningur. Ég saumaði í törn og var þetta viss aðferð að sauma

Selma í dómnefnd Selma segir að dómnefndin sem meti búningana sé búin að búa til nýjar reglur og nú eru hóparnir tveir, undir átján og eldri en átján ára. Nú þarf að skrá sig í keppnina:”Ég er komin í dómnefndina og byrja næstu Þjóðhátíð” segir Selma og bætir við að eftir að hún flutti frá Eyjum fannst henni að pantað væri meira á netinu og að búningarnir liti nú út eins og grímubúningarnir á þrettándanum: “Það er eiginlega ekki hægt að hafa þessa búninga í sömu keppni. Þetta er ekki sambærilegt við alvöru búninga sem eru hugsaðir í hugmyndum frá byrjun. Það sem keypt er á netinu er á fimm til tíu þúsund kall og er níutíu

Stelpurnar sem karakterinn The Mask, þær sigruðu búningakeppnina.

mörg stykki í einu og en þetta var erfitt. Þetta var viss fjöldaframleiðsla en kröfurnar mega ekki vera of stífar til þess að fæla fólk ekki frá, því að það er gaman að þessu. Hóparnir voru að vinna með metnaðafulla búninga og hinir sáu það. Ég veit hvernig

prósent drasl. Mér finnst númer eitt, tvö og þrjú að búningarnir dugi í þrjá daga. Annars getum við bara límt eitthvað utan á fólk og þá er þetta bara búið” segir Selma.

33


Sviðlistafólk er creative Það er um áratugur síðan Selma hætti að sauma búninga á hópa fyrir Þjóðhátíð en nú saumar hún á sviðlistafólk sem skemmtir á sviðinu í dalnum. Hún fékk nokkur þannig verkefni þegar hún var að útskrifast sem klæðskeri og kjólameistari: “Ég er ekki lærður fatahönnuður. Ég er Klæðskeri og Kjólameistari og sérsauma föt og er það munurinn á mér og fatahönnuði. Yfirleitt er sviðlistafólk rosalega creative og veit nokkurnveginn hvað það vill þegar það kemur til mín. Þetta er samvinna og útfærsla og að sjálfsögðu mín reynsla, úrvinnsla og þekking, sem er mikils virði og þess vegna leyta þau til mín aftur og aftur”. Föt sviðlistamanna verða að funkera á sviðinu Selma er spurð hvort hún sé búin að færa sig frá krakkahópunum uppá svið í dalnum hlær hún segist í raun svo vera þótt hún hafi ekki mikið hugsað um það: “Þetta er auðvitað annar vínkill á þessu. Ég byrjaði um 1992 þegar ég var enn í námi mitt og þá var ég byrjuð að vinna fyrir sviðslistafólk en svo jókst það alltaf þegar ég flutti til Reykjavíkur árið 2004. Hún segir að margt sé líkt með vinnu á búningum fyrir hópa og sviðslistafólk. Gera þarf ráð fyrir allskonar veðri eins og við Vestmannaeyjingar vitum. Ef veðrið er gott þá má sviðlistamaðurinn ekki kafna úr hita. Ef það er kalt þarf að geta verið í einhverju undir en haldið lúkkinu, það er mikið atriði. Efnið þarf að vera teygjanlegt og anda, en sama hvert efnið er að þá er enginn að fara að þefa af þér uppá sviði. Sviðföt þurfa að vera fjarska falleg, áberandi, töff, vekja athygli og þægileg. Sumir vilja aðeins lúkka vel og vera flott en það þarf einnig að vera hægt að hreyfa sig og dansa. Það þarf að passa að ekki komi svitahringir undir hend34

urnar sem er atriði sem þarf að pæla í þrátt fyrir að sumir hugsi ekki út í. Litir þurfa að funkera í ljósum og ljósatæki og tökumenn vita hvaða litir eru bestir uppá sviði. Ef þú ert of mjúkur og vilt fela það, þá máttu ekki vera í of miklum glansbúningi og er til dæmis snjóhvítur búningur eru erfiðir fyrir ljósamenn. Það hjálpar að ná framm öllu á sviðinu og er því glans, satín eða silki á sviðinu sem ýkir upplifunina. Því eru gylltir, silfur og skærir litir vinsælir og alltaf pallítettur og glamour. Lögmálin fara eftir týpunum og vilja sumir vera í

flottum jakkafötum eða geggjaðari lopupeysu eins og til dæmis sá sem sér um brekkusönginn. Það er meira við hæfi að hann sé í lopapeysu heldur en í bláum glimmerjakka. Þetta snýst um týpuna, lögin og hvort sviðlistamaðurinn hreyfir sig eða spili á hljóðfæri. Rapparar eru til dæmis með derhúfu, í hlýrabol eða í risastórum bolum. Í grunninn eru búningar sviðlistamanna í samræmi við tónlistarmennina sjálfa” segir Selma að lokum. /Anna Lilja Marshall


HALLDÓR EINARSSON - HENSON:

SELDI HENSON BÚNINGA TIL STEINA OG STJÁNA Í DENN unda áratugarins. Sá búningur hangir uppi á vegg á skrifstofunni minni og minnir mig á að láta ekki dampinn síga þegar ég mæti til vinnu dag hvern”.

Henson er án efa frægasta saumastofa landsins, stofnuð af Eyjamanninum Halldóri Einarssyni, Henson. Halldór á rætur að rekja til Skólavegs 25 þar sem afi hans og amma áttu heima. Henson búningarnir hafa verið vinsælir í gegnum árin og hér áður fyrr seldi Halldór búninga í Steina og Stjána á Skólaveginum. Hann hefur ekki bara verið með vinsæll hér á landi fyrir framleiðslu á hensonbúningunum heldur hafa erlend Knattspyrnufélög leitað til hans og er það vegna gæða á framleiðslu hans. Tíu þúsund búningar á hverju ári til Aston Villa Halldór eða Dóri eins og hann er kallaður byrjaði framleiðslu á sínum búningum árið nítján hundruð sextíu og níu og segir hann að það hafi verið eftirminnileg stund: “Það var byrjun á nýju ævintýri í lífi mínu. Stærsta pöntun sem ég hef fengið kom frá enska fyrstu deildarliðinu Aston Villa sem pantaði hjá mér tíu þúsund búninga á hverju ári fyrir hvert keppnistímabil hér á árum áður. Það var enginn sem toppaði þá. Ekki ennþá” og aðspurður hvort hans búningar hafi unnið búningakeppnina á Þjóðhátíðinni segir hann að hann hafi nokkrum sinnum orðið þess heiðurs aðnjótandi: “Eftirminnilegastu búningarnir eru væntanlega búningar Pörupilta árið 1989. Maður er svo gamall í hettunni. Aftur á móti þykir mér alltaf vænt um þá virðingu sem okkur hlotnaðist þegar Eurosport valdi búninga Aston Villa í hóp tuttugu og þriggja flottustu búninga ní-

Þórs og Týrs merkjunum haldið á lofti Aðspurður hver sé fyrstur með hugmyndina að búningum fyrir þjóðhátíðina segir hann að oftast komi hóparnir með fyrirfram ákveðnar hugmynir um útlit á þeim en með breyttri tækni er auðveldara að mæta óskum fólks. En yfirleitt er sá sem kemur með hugmyndina sá aðili sem tekur af skarið og hefur fyrir því að kynna verkefnið fyrir manni eða kemur jafnvel með það fullskapað til okkar. En ef á þarf að halda þá vísum við gjarnan á þá sem kunna til verka. Okkar hlutverk í gegnum árin hefur ekki síst verið að vinna með Íþróttafélögum landsins. Í þessari viku erum við til dæmis að að skila treyjum til Íþróttabandalags Vestmannaeyja, sem þeir ætla að selja á Þjóðhátíðinni. Við höfum gert þetta margoft fyrir ÍBV. Eins framleiðum við reglulega bæði Týrs og Þórs treyjur þó svo að félögin starfi ekki lengur undir þeim merkjum en andi félagana lifir enn í dag. Þann anda þekki ég vel sem gamall Eyjamaður og er ekki sagt að Eyjahjartað slái alltaf í manni, hvar sem maður er”. Sofnaði í miðju lagi í brekkunni Halldór segir að hann sé einstaklega stoltur Eyjamaður sem hafi einnig saumað treyjur fyrir Grindvíkinga: “Enginn veit betur en Eyjamenn hvað Grindvíkingar eru að ganga í gegnum þessa dagana. Hverjum búningi Grindvíkinga í dag fylgir hlýr hugur með von um betri tíma framundan”. Að lokum spurðum við Halldór um helstu Þjóðhátíðarminningar hans: “Brekkusöngurinn er auðvitað það sem situr helst eftir. Eitt sinn var ég í mínum hóp að syngja uppáhalds lagið í brekkunni þegar ég hreinlega steinsofnaði í miðju lagi. Þegar ég vaknaði aftur einhverjum lögum seinna hélt ég söngnum áfram þar sem frá var horfið og lauk laginu þó aðrir væru á allt öðrum nótum, samferðafólki mínu til mikillar skemmtunar, enda er ég reglulega minntur á þessa uppákomu í aðdraganda Þjóðhátíðar. Það skal tekið skýrt fram að ég hef alltaf haldið mér vakandi í brekkunni eftir þetta. Gleðilega Þjóðhátíð kæru hátíðargestir. Gangið hægt um gleðinnar dyr og munið að halda ykkur vakandi í brekkusöngnum. Takið samt vel undir” segir Dóri að lokum. /Anna Lilja Marshall


SIGRÍÐUR INGA KRISTMANNSDÓTTIR KJÓLA- OG KLÆÐSKERAMEISTARI:

HEFUR TVISVAR UNNIÐ BÚNINGAKEPPNINA fengið efnaprufur sem ég hef sýnt þeim og þau valið. Síðan hefst sníðagerðin og þá hef ég alltaf byrjað á einum búning til að finna rétta “lúkkið” áður en ég fer svo í það að fjöldaframleiða fyrir hópinn í heild sinni. Þegar rétta “lúkkið” er komið þá tek ég mál af öllum í hópnum og sníð búning á hvern og einn áður en ég sest við saumavélina og sauma allt saman. Svo hef ég verið með hópamátanir til að sjá hvort að allt passi á alla. Það er alltaf mikil stemmning þar sem spennan magnast upp hjá hópnum. Hápunktinum er auðvitað þegar maður sér handverk sitt á hátíðinni. En tala nú ekki um þegar mínir hópar vinna” segir Sigríður Inga að lokum. /Anna Lilja Marshall

Vinkonurnar Sigga Inga og Petra Fanney.

Sigríður Inga hóf aðeins nítján ára gömul að hanna og sauma búninga fyrir hópa og lærði hún kjóla og klæðskerasaum. Árið tvö þúsund og nítján byrjaði hún í Þjóðhátíðarnefnd og starfar í dag hjá ÍBV Íþróttafélagi. Sigríður hefur séð um sjoppuna, skransöluna og veitingatjaldið um árabil. Hún var spurð út í hugmyndavinnuna og saumaskapinn á búningum fyrir hópa sem hafa tekið þátt í búningakeppni á Þjóðhátíðinni. Efniskostnaðurinn hafður í lágmarki Sigríður hefur tvisvar unnið búningakeppni á Þjóðhátíð. Í fyrra skiptið unnu stelpuhópur sem voru í Supermannbúning og var það árið tvö þúsund og tíu og í seinna skiptið unnu strákahópur, í Ronald Mcdonald búningi og var það í ári síðar. Aðspurð hvort hún hafi þurft að útvega sér efni erlendis frá segir hún ekki: “Það voru svo margar efnavöruverslanir eins og Virka, Vouge, Föndra og Rúmfatalagerinn sem var öflugur á sínum tíma. Ég hef alltaf reynt að halda efniskostnaði í lágmarki” og bætir við að samvinna á milli hennar og hópanna sem hafi alltaf gengið mjög vel og að þetta sé alltaf skemmtilegt ferli: “Hóparnir koma með teikningu af búningum til mín sem þau hafa unnið saman og ég hef síðan farið á stúfana að leitað af efnum sem henta og hef 36

Sigurvegarar búningakeppninnar 2010.

Sigurvegarar búningakeppninnar 2011.


37


HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM ÞJÓÐHÁTÍÐINA? Nafn: Halla Ruth Aldur: 12 ára Foreldrar: Ásta Jóna og Sveinbjörn Óðins Hversu oft hefuru verið á þjóðhátíð: 11 x Hvað gerir þú vanalega á þjóðhátið og hvað finnst þér skemmtilegast? Ég er vanalega með fjölskyldunni minni og við bökum saman fyrir hátíðina og skemmtilegast finnst mér að skreyta og græja tjaldið og svo finnst mér línuspreyin mjög skemmtileg. Hvaða þjóðhátíðalag finnst þér skemmtilegast? 1000 hjörtu Hvernig heldur þú að þjóðhátíð hafi verið í gamla daga? Ég held að allt hafi verið aðeins minna, minni tjöld , minna svið og færra fólk. Ég væri til í að hafa svona kassabílakeppni eins og var í gamla daga. Hvað finnst þér mikilvægt að hafa í hvíta tjaldinu? Sófa, svala, gos, skraut, regnhlífar og fjölskylduna mína. Átt þú eitthvað ákveðið hlutverk sem þú sérð um fyrir þjóðhátíð? Ég hjálpa að baka og skreyta og svo passa ég .

Nafn: Rebekka Rut Rúnarsdóttir Fjölskylda: Pabbi minn er Rúnar Þór Karlsson, mamma mín er Karen Haraldsdóttir og litla systir heitir Rakel Rut Rúnarsdóttir. Menntun: Ég er að fara hefja annað árið mitt í FÍV Fyrsta þjóðhátíðarminningin? Kassabílarnir og brúðubílinn Besta minningin? Þegar tjaldið fyllist af fólki og spilað er á gítar og allir syngja saman Uppáhalds þjóðhátíðarlag? Ástin á sér stað með friðrik dór og sverri bergmann Hvað er hápunktur þjóðhátíðarinnar? Brekkusöngurinn og blysin Stóri eða litli pallurinn? Alltaf stóri pallurinn Ef þú mættir skipuleggja þjóðhátíðina eitt árið, hvernig myndir þú hafa hana? Ég myndi þá hafa hana eins og hún er nema að hafa meira af heimafólki til þess að skemmta og Ingó með brekkusönginn eins og áður fyrr Möst í hvíta tjaldið?: Gucci ( Guðbjörg Helgadóttir )


IBV VÖRURNAR FÁST HJÁ OKKUR hverslun.is

39


BÚSLÓÐIN Í TJALDIÐ Búslóðaflutningar leyfðir 9:00 - 11:30

SETNING ÞJÓÐHÁTÍÐAR • Þjóðhátíð sett: Hörður Orri Grettisson formaður ÍBV • Hátíðarræða: Þór Vilhjálmsson Séra Viðar Stefánsson blessar hátíðina • Lúðrasveit Vestmannaeyja • Bjargsig: Arnar Gauti Egilsson • Samsöngur fyrir eldri borgara í Tuborg tjaldinu • KAFFIHLÉ

10:30

14:30

LÉTT LÖG Í DALNUM

Á TJARNARSVIÐI • Lalli Töframaður ( kynnir ) • Jóhanna Guðrún Á BREKKUSVIÐI kl. 15-16:30 • Barnasöngkeppni Landsbankans

Sunnudagur 4. ágúst

10:30 LÉTT LÖG Í DALNUM

KVÖLD

16:00

14:30 Á TJARNARSVIÐI • Sveppi ( kynnir ) • Guðný Ósk og Arnór: Leitin að regnboganum • Latibær • Diljá Á BREKKUSVIÐI kl. 15-16:30 • Barna söngkeppni Landsbankans

20:30

• SZK - tjarnarsvið • PBT - tjarnarsvið • BMX-Brós • Hálandaleikar Fitness braut

• Elín Hall • Molda og Karlakór Vestmannaeyja • Frumflutningur Þjóðhátíðarlags Jóhanna Guðrún og Fjallabræður • GDRN • Bubbi • PBT

Kynnir: Bjarni Ólafur Guðmu

19:00 HAMINGJUSTUND Í ÖLGARÐINUM KL. 20-21

14:30

19:00 HAMINGJUSTUND Í ÖLGARÐINUM KL. 20-21

laugardagur 3. ágúst

Föstudagur 2. ágúst

BARNASKEMMTUN 9:00

20:30 • Eló • Una Torfa • Verðlaunaafhending búningakeppni • Stuðmenn • Leynigestir • Helgi Björns • FM95BLÖ Kynnir: Einar Bárðarson

20:20

• Whales of Iceland - Big • Sigurvegari í barnasön keppni Landsbankans

• 150 ára afmælistón Stuðlabandið ásamt g / Diljá / Jóhanna Guð / Klara / Sverrir Berg / Ragga Gísla / Hreim

Kynnir: Bjarni Ólafur Guðmu

Dagskrá Þjóðhátíðar 2024 er birt með fyrirvara um breyting


MIÐNÓTT

DVAKA

TÓNLEIKAR/DANSLEIKUR

00:00

00:15

BRENNA Á FJÓSAKLETTI

• Aron Can • Kristmundur Axel • XXX Rottweiler • 12:00 • Háski • Sprite Zero • Ingi Bauer og Big Sexy • Hugo og Nussun

Á TJARNARSVIÐI • Mucky Muck • Færibandið

undsson

00:00

00:15

FLUGELDASÝNING

• Dj Muscleboy & Dr Victor • GusGus • FMBelfast • Færibandið

Á TJARNARSVIÐI • Memm • Brimnes

23:00

ggi Nielsen ng-

nleikar

00:00

BREKKUSÖNGUR Magnús Kjartan

00:15

BLYS

• Birnir • Clubdub • Flóni • Daniil • Stuðlabandið og Diljá

gestum ðrún gmann mur Á TJARNARSVIÐI • Færibandið • Brimnes

undsson

gar

/

/thjodhatid

/dalurinnokkar

/

www.dalurinn.is


42


FRÁR VE 78

43


Þjóðhátíðin mín Guðrún María Þorsteinsdóttir árgangur 1983 Staða: Ég er fjölskyldukona, hjúkrunarfræðingur á sjúkradeild HSU og er nú annað árið í röð í Þjóðhátíðarnefnd. Fjölskylduhagir: Gift Jóni Helga Gíslasyni málara, saman eigum við Arnar Gísla sem er að verða 14 ára og Svölu Bríeti sem er á 9. Ári.

Í brekkunni á Þjóðhátíð.

Fjöldi Þjóðhátíða? Þær eru líklega að minnsta kosti 36, mamma man ekki eftir að hafa sleppt mörgum hátíðum þegar ég var lítil, ég var erlendis yfir Þjóðhátíð 2003 og sleppti hátíðunum þau ár sem ég gekk með börnin, annars höfum við alltaf mætt á Þjóðhátíð. Þegar við bjuggum á fasta landinu á árunum 2004-2011 komum við á hverju ári fyrir utan 2010 þegar ég gekk með Arnar Gísla. Hvernig verður Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum eftir 50 ár? Vonandi bara svipuð og hún er í dag. Auðvitað er alltaf einhver framþróun og breytingar, en ég vona samt að hún haldi sínu formi og sjarma. Hvað er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið þitt? Dagar og nætur er það fyrsta sem kemur upp í hugann, sérstaklega af þessum eldri (en þó í mína tíð). Í brekkunni, Ég veit þú kemur, Næturfjör, Sumarnótt og Þú veist hvað ég meina mær eru líka lög sem ég hef dálæti á. Mér finnst þau reyndar flestöll vera frábær, hafa sinn sjarma hvert og við þau tengjast góðar minningar frá hátíðum liðinna ára svo það er erfitt að gera upp á milli. Svolítið gaman að skoða hvað þau hafa breyst í áranna rás, allt annar stíll á lögunum undanfarin ár sem ég er líka mjög hrifin af. Svo er ég afar spennt fyrir laginu í ár og hlakka mikið til að heyra það frumflutt á stóra sviðinu. 44

Arnar Gísli, Jón Helgi, Guðrún María og Svala Bríet.

Vinkonurnar saman, Steinunn, Hildur, Kristín, Guðrún María og Marta.


Eru einhverjar hefðir sem eru ekki lengur sem þú myndir vijla hafa áfram? (eins og bekkjabíla / tjaldstæðahlaup o.fl). Kannski að bekkjarbílarnir væru það sem ég sakna hvað mest, var sjálf að rukka inn í einn slíkan hjá Engla og Gauju á Þjóðhátíðunum 2000 og 2002 og hafði bara mjög gaman af því. Annars er ég kannski ekki svo mikið að velta því fyrir mér. Þjóðhátíðarnefndin í ár hefur einmitt verið að skoða hvaða hefðir er hægt að vekja upp aftur í tilefni af stórafmælinu og það er ýmislegt sem kemur til greina og við höfum reynt að hrinda einhverju í framkvæmd. Verður spennandi að sjá hvernig það heppnast. Hvert er uppáhalds lagið í Brekkusöngnum? Gamli Jón í Gvendarhúsi kemur fyrst upp í hugann, sennilega því ég man hvað ég var glöð lítil stelpa þegar ég var búin að læra textann við það lag. Ég elska öll þessi gömlu lög og vona að þau fái að halda sínum stað í brekkusöngnum um ókomin ár svo bornin mín læri þau líka. Þetta er ákveðin arfleifð sem ekki má glatast. Litli pallurinn eða Stóri pallurinn? Bara bæði betra, ég skemmti mér jafn vel báðu megin. Gæti verið að ég sé samt farin að vera meira á tjarnarsviðinu undanfarnar hátíðir en á því stóra, veit ekki alveg hvernig stendur á því. En það hafa verið frábærir tónleikar á stóra sviðinu og geggjuð böll – og tjarnarsviðið stendur að mínu mati bara alltaf fyrir sínu. Þangað er alltaf hægt að fara og dansa! Hvert er fallegast; Vitinn, Myllan eða Hofið? Ég yrði líklega tekin af lífi á Helgafellsbrautinni og víðar ef ég segi ekki Vitinn. En það er alls ekki eina ástæðan fyrir því að ég segi það samt, hann er gríðarlega fallegt mannvirki, vel við

haldið og mikill metnaður lagður í uppsetningu og vígslu hans ár hvert. VKB strákarnir mega eiga það. Hin mannvirkin eru samt ómissandi fyrir heildarmynd hátíðarinnar. Hvað er skemmtilegast við Þjóðhátíð? Það er bara svo margt! Undirbúningur; baka í tjaldið og ákveða hvað á að hafa á setningunni, setningin sjálf – sérstaklega í góðu veðri. Öll dásamlega samveran með mínu besta fólki, fjölskyldu og vinum, partý í hvítu tjöldunum, dansa frá sér allt vit á danspöllunum, flottar kvölddagskrár, brekkusöngur og bara allt. Ég get eiginlega ekki valið. Hver er eftirminnilegasta Þjóðhátíðin? Ég man hvað mér þótti spennandi þegar ég mátti vera lengur en til miðnættis. Nánast óttablandin ánægja að vera loksins orðin nógu gömul til að vera treyst til að vera fram á nótt. Þá var nú öldin aðeins önnur og mannhafið ekki alveg jafn stórt

og það er í dag. Svo var nú fyrsta hátíðin “á föstu” minnistæð fyrir þær sakir sennilega að ég eyddi henni allri nánast í að leita að Jóni Helga, hann þekkti alla og spjallaði við alla og mér tókst að týna honum mörgum sinnum á hverju kvöldi. Þá var símasamband ekki alltaf frábært inni í Dal, of lítið kerfi fyrir alla þessa síma svo það var ekki hlaupið að því að hringja bara í hann. Auk

þess sem það var eiginlega ekki nokkur leið að heyra hvað verið var að segja í símann. Ég var fljót að fatta það að þetta gengi ekki og næstu hátíð sem við eyddum saman þá bara var hann týndur ef ég týndi honum eða hann mér. Ég var ekki tilbúin að eyða fleiri hátíðum í að leita að honum um allan Herjólfsdal. Hvað er nauðsynlegt í tjaldinu? Skinkuhorn, gott setningakaffi og bakkelsi í aldargamla koffortið, glimmer og pallíettur. Já og góð húsmóðir /-faðir í tjaldið – gríðarlega mikilvægt. Fyrir hvað stendur hátíðin í þínum huga? Gleði, hamingja og samheldni. Mér finnst þetta vera fjölskylduhátíð og þegar ég loka augunum og hugsa um Þjóðhátíð sé ég fyrir mér fullt af fólki (í góðu veðri) og það eru ALLIR glaðir! Allir brosandi, að græja kaffi í tjaldinu eða koma sér fyrir í brekkunni fyrir kvöldvöku. Það er hvorki sjálfgefið né tilviljun

að þessi hátíð hafi verið haldin í 150 ár nánast óslitið. Það þarf margt til, og þetta er mannanna verk – alltaf. Það þarf samheldni fólksins í samfélaginu til að koma þessu af stað, taka þátt og halda þessa mögnuðu hátið ár hvert og gera hana að því sem hún er. Mætirðu jafnan á setninguna? Já, ef ég er ekki í vinnu þá geri ég það. Eins prúðbúin og veður leyfir. 45


að það vantaði aldrei kræsingar á borðið og að enginn væri svangur.

Hefur þú verið í búning með vinahópi? Nei ég á það alveg eftir, skora hér með á vinahópinn minn að taka þátt að ári! Lestu Þjóðhátíðarblaðið? Já, að sjálfsögðu! Hvaða dagur eða kvöld Þjóðhátíðarhelgarinnar stendur upp úr? Hvert kvöld hefur sinn sjarma, engin spurning. En sunnudagskvöldið stendur uppúr fyrir mér. Það er svona lokahnykkurinn og verður svolítið tilfinningaþrungið fyrir vikið, ég verð oft aðeins of meðvituð um að þetta sé lokakvöldið og það sé eins gott að njóta sem mest og nýta sem best. Því svo er alveg heilt ár í næstu hátíð. Hvað er mikilvægast í undirbúningi fyrir Þjóðhátíð? Góða skapið er mikilvægt í öllu, skipulag er nauðsynlegt og fundir með 46

tilvonandi sambýlingum. Baka í frystinn, yfirfara koffortið, tjaldið og allt þetta klassíska bara held ég. Hlusta á gömul og ný þjóðhátíðarlög, taka nokkra rúnta inn í Dal og taka stöðuna á undirbúningnum. Ég vona að ég nái að gera eitthvað af þessu í ár. Verð sennilega mikið inni í Herjólfsdal og í Týssheimilinu en líklega eitthvað minna að baka í tjaldið eða skipuleggja setningakaffi. Fyrstu minningarnar af Þjóðhátíð í Herjólfsdal? Sitjandi í brekkunni í fanginu á mömmu í kvöldvökunni. Mjög hlýjar minningar. Mér fannst brekkusöngurinn alltaf skemmtilegastur þá. Svo vorum við yfirleitt í tjaldi með Pellu vinkonu hennar mömmu og Lilja mamma hennar Pellu var alltaf svo yndisleg við mig og mikil tjalda-húsmóðir. Hún sat gjarnan á koffortinu og passaði vel upp á

Eitthvað að lokum? Já, mig langar að nota tækifærið og minnast á sjálfboðaliðana. Fólkið okkar í Dalnum. Hópur af fólki sem tekur virkan þátt í að setja upp Þjóðhátíð, ár eftir ár. Ég áttaði mig alls ekki á því fyrr en í júlí í fyrra hvað þetta er í rauninni magnað. Alveg sama hvernig á það er litið. Að það skuli ár eftir ár vera hópur af fólki sem gefur vinnu sína svona óeigingjarnt í þágu IBV og okkar allra sem njótum hátíðarinnar. Ég á eiginlega varla nógu stór lýsingarorð til að lýsa því hvað mér finnst um það. Ég kom blaut á bakvið eyrun í Þjóðhátíðarnefnd í fyrra og fékk þetta allt saman beint í æð þá – og það var stórkostleg upplifun. Ég var hreinlega með stjörnur í augunum og fiðrildi í maganum á hverjum degi að fylgjast með þessu öllu gerast svona fyrir framan mig. Allir hjálpast að, sumir búnir að vera í þessu örugglega síðan ég var lítill krakki og þekkja þetta uppsetningarferli út og inn. Svo er eiginlega ótrúlegt hvað þetta er gífurlega stórt batterí, að halda eina svona hátíð, og að þetta sé gert ár eftir ár er eiginlega óskiljanlegt. Fyrir leikmann sem mætir á Þjóðhátíð er auðvelt að sjá að þetta er flókið mál að halda utan um og gera það sem þarf að gera fyrir eina svona helgi, en svo þegar í nefndina er komið – hjálpi mér hvað þetta er margfalt meira og stærra en það. Mig langar bara að þakka öllu þessu fólki sem hefur í gegnum tíðina haldið Þjóðhátíð “fyrir mig” og alla hina, og vona að ég geti að einhverju leyti þakkað fyrir mig með því að taka þátt í þeirri vinnu nú. Svo vona ég auðvitað að hátíðin í ár verði sú besta hingað til, vona að allt fari vel fram og þið skemmtið ykkur betur en þið þorið að vona!


Salka Verslun

Gleðilega þjóðhátíð! 47


Gleðilega þjóðhátíð

Gleðilega hátíð

Stracta Hótel á Hellu er í rúmlega klukkustundar akstri frá Reykjavík og þaðan er stutt í allar helstu náttúruperlur Suðurlands. Á hótelinu er Bistro veitingastaður sem býður upp á fjölbreytt úrval rétta.

Hella 48

www.stracta.is Stracta Hótel RANGÁRFLATIR 4 - 850 HELLA


Gleðilega Þjóðhátíð

49


Þjóðhátíðin mín Guðni Grímsson árgangur 1982 Staða: Vélstjóri á uppsjávarskipinu Svan Re Fjölskylduhagir: Konan mín heitir Kristín Hartmannsdóttir og saman eigum við Eddu Björk 14 ára og Hólmfríði Eldey 8 ára Fjöldi Þjóðhátíða? síðan 1982...

Hef sleppt einni

Hvernig verður Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum eftir 50 ár? Vonandi með sem líkustum hætti og nú en eflaust breytist þetta eins og þetta hefur breyst síðustu 50 ár

Á leið í dalinn.

Hvað er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið þitt? Dagar og nætur (1992) Hvert er uppáhalds lagið í Brekkusöngnum? Þjóðsöngurinn er alltaf tilkomumestur. Litli pallurinn eða Stóri pallurinn? Litli pallurinn, hann er meira fyrir “lókalinn”

Fjölskyldan saman á Þjóðhátíð.

Hvert er fallegast; Vitinn, Myllan eða Hofið? Hofið hefur verið og mun alltaf vera fallegasta mannvirkið í dalnum. Hvað er skemmtilegast við Þjóðhátíð? Samveran með vinum og fjölskyldu. Hver er eftirminnilegasta Þjóðhátíðin? 2001, fyrsta þjóðhátíð okkar Kristínar saman, sá ekki fram á að komast vegna veikinda en endaði eftiminnalega á þjóðhátíð að lokum með svoldið öðru sniði. Hvað er nauðsynlegt í tjaldinu? Parketið á gólfinu, samlokurnar í skápnum og smá tekíla á sunnudagskvöldi. 50

Hjónin komin í búning.


Fyrir hvað stendur hátíðin í þínum huga? Þjóðhátíð hefur alltaf verið fjölskylduhátíð vestmannaeyjinga þó svo að fæstir gesta okkar frá fastalandinu sjái hana með þeim augum. Mætirðu jafnan á setninguna? Já mæti alltaf á setninguna enda er hún ein af aðal viðburðum þjóðhátíðar sem lýkur með bjargsiginu. Hefur þú verið í búning með vinahópi? Hef helst verið strílaður upp í búning af konunni og fjölskyldu. En ég reyni alltaf að mæta með eitthvert höfðskraut á kvöldvökur. Lestu Þjóðhátíðarblaðið? Já..spjaldanna á milli.

Hvaða dagur eða kvöld Þjóðhátíðarhelgarinnar stendur upp úr? Það toppar fátt flotta brennu og kröftuga flugeldasýningu og stappaðan brekkusöng. Hvað er mikilvægast í undirbúningi fyrir Þjóðhátíð? Mesta stemningin í undirbúningnum fyrir mig var stæða- “ slagurinn” og uppsetningin á tjaldinu og búslóðinni. Fyrstu minningarnar af Þjóðhátíð í Herjólfsdal? Kolkrabbinn uppá þakinu á sviðinu og allir sátu í brekkunni saltabergs megin. Eitthvað að lokum? Það gæti orðið svo í ár að ég þurfi að sleppa minni annar þjóðhátíð á lífsleiðinni vegna vinnu. Annars góðar kveðjur og megi ávallt vera gleði í dalnum.

Guðni parketleggur í tjaldinu.

Gleðilega Þjóðhátíð

51


Í MINNINGU ENGLA - ENGILBERTS OTTÓ SIGURÐSSONAR:

KEYRÐI BEKKJABÍL Í 36 ÁR Bekkjabílar tengdust Þjóðhátíð órjúfanlegum böndum í marga áratugi, enda voru þeir sá fararskjóti sem hátíðargestir nýttu sér til að komast inn í og úr Herjólfsdal. Saga bekkjabílanna er hátt í 100 ára gömul og voru þeir nokkrir tugir talsins á Heimaey þegar mest var. Síðasti rúnturinn á bekkjabíl var farinn á Þjóðhátíð árið 2014, en þeir hafa síðan verið aflagðir vegna öryggissjónarmiða. Þegar rætt er um bekkjabíla er jafnan nafn eins manns sem kemur fljótt upp í umræðunni Engilbert Ottó Sigurðsson eða Engli eins og hann var jafnan kallaður enda keyrði hann bekkjabíl sleitulaust í 36 ár. Engli kvaddi nýverið, þann 13. júlí síðastliðinn. Engilbert fæddist 14. maí 1931 og eins og flest ungt fólk í Eyjum á þeim tíma átti tiltölulega stutta skólagöngu og fór á vinnumarkaðinn um leið og hann gat vettlingi valdið. 16 ára gamall byrjaði hann til sjós á Gullveigu VE og reri næstu fjörutíu árin á hinum ýmsu bátum. Fyrst sem háseti en sótti sér vélstjórnarréttindi í Vélskólanum í Vestmannaeyjum þegar hann var þrítugur. Sjómannsferlinum lauk svo árið 1988 þegar honum bauðst gott starf hjá Ísfélaginu. Það var svo árið 1975 sem Engli hóf að keyra bekkjabíl á Þjóðhátíð. Við grípum hér inn í viðtal Sigurgeirs Jónassonar við Engla í bæjarblaðinu Fréttir þann 28. júlí 2011. „Kveikjan að því var sú að eftir gos keypti ég vörubíl og fór að keyra á Bílastöðinni í nokkurn tíma. Ég man að Bölli heitinn, Björgvin Guðnason, var mér mjög hjálplegur í að koma bílnum í stand til að keyra á þjóðhátíð, lánaði mér bekki og annað sem 52

Engli ásamt Gauju konu sinni .

þurfti. En fyrstu tvö árin dundaði ég svo við að smíða grindur og bekki og annað sem þurfti í þennan akstur. Þessi fyrsta þjóðhátíð, suður á Breiðabakka, er ekki sérstaklega minnisstæð nema fyrir það að það var leiðinlegt veður. Og keyrslan var allt öðruvísi en þegar þjóðhátíðin er í Dalnum. Bara keyrt í bæinn og út á Breiðabakka, enginn fastur rúntur í bænum eins og venjan er núna,“ sagði Engli í viðtalinu árið 2011.„Ég hef alltaf keyrt einn, fyrir utan eitt ár þegar ég hafði annan mér til aðstoðar … Fyrstu árin var þetta nokkuð mikil keyrsla. En svo kom ég mér upp eins konar vaktafyrirkomulagi, sá að það gekk ekki að keyra sig út á þreytu, og tók mér hvfldir inn á milli þegar hvað rólegast var. Kerfið var í stórum dráttum þannig að ég byrjaði að keyra um tvöleytið á daginn, fram til kl. sjö um kvöldið en tók þá klukkutíma í mat. Svo byrjaði ég aftur um áttaleytið og var að keyra fram undir kl. tvö um nóttina, svona meðan mesta traffíkin var hjá fólki að koma

börnum í háttinn og koma sér aftur inn eftir. Tók þá pásu fram til kl. fjögur eða fimm um morguninn og keyrði síðan til kl. átta. Þá var oftast orðið rólegt og ég gat farið heim og lagt mig fram undir tvöleytið. Með þessu tókst mér að fá ágæta hvíld. Ég neita því ekki að ég var oft þreyttur að lokinni þjóðhátíð en það hefur áreiðanlega hjálpað mér að vera vanur tarnavinnu af sjónum. Þetta var ekkert nýtt fyrir manni.“ Aldrei slys eða óhöpp Þegar viðtalið var tekið var mikil umræða um að banna ætti notkun bekkjabíla á þjóðhátíð af öryggisástæðum. Engli sagði þá umræðu alltaf poppa upp öðru hvoru. „Þetta hefur skotið upp kollinum af og til og ástæðan sem gefin hefur verið er sú að það fylgi þeim svo mikil slysahætta. Nú er ég búinn að keyra bekkjabíl í 36 ár og það hefur aldrei orðið slys eða óhapp hjá mér. Og þetta á ekki bara við um mig. Ég þekki ekkert einasta dæmi um


það að orðið hafi alvarlegt slys eða óhapp í sambandi við akstur bekkjabíla á þjóðhátíð. Ég er að sjálfsögðu forsjóninni þakklátur, bæði fyrir mína hönd og annarra bflstjóra, fyrir þessa staðreynd, og tel okkur mikla lánsmenn. En þetta er ekki bara lán og heppni. Þeir sem keyra bekkjabílana era

góðir ökumenn sem taka starf sitt alvarlega og tefla aldrei á tvær hættur. Sýna aðgát og umfram allt, halda hraðanum niðri. Það held ég að sé lykillinn að þessum slysalausa akstri," sagði Engli og sagði miklar breytingar til batnaðar hafa vera gerðar á hátíðarsvæðinu. „Hvað mesta

breytingin varð þegar raflýsingin kom en hún stórjók allt öryggi. Það er í rauninni merkilegt að ekki skuli hafa orðið slys á árunum sem engin lýsing var. Ég man t.d. eftir einni þjóðhátíð þegar gerði slíkt úrhelli að auglýst var í Dalnum eftir Boga í Eyjabúð og hann fenginn til að opna og selja svarta plastpoka. Svo vora skorin göt á þá fyrir höfuð og hendur og þetta notað sem hlífðarfatnaður. Það var alveg skelfilegt að keyra á þessari þjóðhátíð, rigning og dimmt yfir og allir í svörtum plastpokum, auðvitað enginn með endurskinsmerki og sást varla í fólkið. Þá var eins gott að fara bara fetið.“ Rólegra eftir að bjórinn kom Í viðtali Sigurgeirs segist Engilbert segist sárasjaldan hafa lent í vandræðum með farþega á þessum 36 mm. „Ég held að það hafi tvívegis gerst að ég

Vestmannaeyjabær óskar hátíðargestum góðrar skemmtunar í Herjólfsdal 53


Engli ásamt Ottó barnabarni sínu sem oft sinnti rukkunarstarfi fyrir afa sinn.

þurfti að kalla til lögreglu vegna vandræða. Þetta er í nær öllum tilvikum prýðisfólk, sama hvort um er að ræða heimamenn eða aðkomumenn, eldra fólk eða yngra. Og fólk kemur oft og þakkar bílstjóranum fyrir aksturinn, sérstaklega eldra fólkið og sumir sem þurfa að spjalla talsvert. Það verður bara að taka því, þetta er fólk sem er að skemmta sér, allir brosandi og enginn fúll á móti,“ segir Engilbert og kímir við. Hann segir líka að sér virðist sem nokkur breyting hafi orðið eftir að bjórinn kom til sögunnar. „Þetta varð öllu rólegra eftir það. Menn gátu orðið illir af sterkum drykkjum en bjórinn virðist hafa breytt því. Aftur á móti er meira af drykkjarílátum núna sem þarf að hreinsa, það eru alltaf nokkrar dósir eftir hverja ferð en hreinn bílpallur veitir meiri ánægju. Það voru sjaldan vandræði hér áður fyrr og í seinni tíð hefur það örsjaldan komið fyrir. Og ég hef verið heppinn með mína aðstoðarmenn, rukkarana. Þeir eru orðnir margir í gegnum tíðina sem hafa unnið hjá mér, allt indælisfólk Ég stóð fyrir ýmsum nýjungum á sínum tíma, t.d. teppalagði ég bílpallinn. Það var mjög til bóta, hefti mjög rykmyndun sem gat verið vandamál ef veður var þurrt. Svo var það líka til bóta þegar ég setti símakerfið í bílinn, 54

og rukkarinn gat með hringingu látið bílstjórann vita hvort eða hvenær ætti að stoppa. Það einfalda kerfi var bæði til þæginda og skapaði aukið öryggi." Eins og gefur að skilja hefur margt skemmtilegt gerst í þessum 36 ára akstri. Engilbert segir að oft hafi verið mikil gleði á pallinum í bílnum, enda eðlilegt þegar fólk er á þjóðhátíð að skemmta sér. „Ég var alltaf með músík í bílnum, hátalara aftur á palli og eitt árið var ég með Skríplaplötuna með þeim Halla og Ladda. Hún var spiluð án afláts allan sólarhringinn við miklar vinsældir. Einn hópurinn, sem kom í bílinn, endaði með því að fara þrjá rúnta samfleytt, bara til þess að geta sungið og skemmt sér með hinum á pallinum, fannst það miklu skemmtilegra en að vera í Dalnum að syngja." Og svo hefur rómantíkin líka skotið upp kollinum í bekkjabílnum. „Einhverju sinni undir morgun var ég að keyra í bæinn og aðeins tveir farþegar í bílnum. Þau lögðust bara á bekkinn og létu vel hvort að öðrum. Svo stoppaði ég skammt frá ákvörðunarstað þeirra í bænum og spurði, þegar þau komu niður stigann hvort ferðin hefði ekki verið ánægjuleg. Jú, pilturinn svaraði því til að þetta hefði verið ágætt. -Nema þarna áðan,

þegar þú beygðir til vinstri, það hefði verið betra að fá hægri beygju þá, sagði hann.“ Einhverju sinni var ég að koma úr Dalnum og stoppaði á föstum viðkomustað, á Skólaveginum, rétt fyrir ofan Vöruhúsið, þar sem nú er Café María. Fyrir framan mig var annar bíll að hleypa út farþegum og einum þeirra fannst ég líklega fara fullnærri stiganum á fremri bílnum og þeim farþegum sem voru þar að stíga út. Nema hvað hann vindur sér að glugganum hjá mér og segir: -Ætlarðu að drepa hana tengdamóður mína? -Nei, ég hef engan áhuga á því, svaraði ég. -Og engan tíma í það heldur. Fleiri urðu þau orðaskipti ekki. En á mánudeginum eftir þjóðhátíð hitti ég þennan sama mann og hann sagði: -Heyrðu, helv.... þitt, þú slóst mig alveg út af laginu þama. Ég er búinn að vakna hlæjandi tvo morgna í röð út af þessu svari þínu.“

Fjölskyldan hjálpuðust að við að græja bekkjarbílinn fyrir Þjóðhátíðina.

Engli keyrði bekkjabíl í síðasta skiptið á þjóðhátíð árið 2010 þá 79 ára að aldri. Hann hefur nú lokið ævigöngu sinni og var jarðsettur í kirkjugarði Vestmannaeyja þann 27. júlí síðastliðinn. Guð blessi minningu hans.


Gleðilega Þjóðhátíð! Hafi ð gaman !

Gleðilega þjóðhátíð!

55


JÓHANNA GUÐRÚN:

AUÐVELDASTA JÁ Í HEIMI alltaf ótrúleg upplifun, fyrir mig að syngja á stóra sviðinu í Herjólfsdal er líka alltaf hápunktur á hverju ári, að syngja fyrir brekkuna,“ sagði Jóhanna sem er uppfull af spenningi fyrir hátíðinni í ár. „Já! Vægast sagt. Ég er að spila föstudag,laugardag og sunnudag á stóra sviðinu svo að þetta verður mikil gleði. Svo verðum við saman þarna skemmtilegur hópur sem ég hlakka til að eyða tíma með í Dalnum yfir helgina,“ sagði hún og lofaði „bombu“ á sviðinu í ár.

Jóhanna Guðrún í Eyjum við upptökur myndbandsins við Þjóðhátíðarlagið Töfrar.

Tónlistarkonuna Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur þarf vart að kynna fyrir nokkrum Íslendingi enda sungið sig inn í hug okkar allra og hjörtu frá unga aldri. Vann hjörtu Evrópu allrar árið 2009 þegar hún endaði í öðru sæti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva er hún flutti framlag Íslendinga, Is it True? Það ætti því kannski ekki að koma neinum á óvart að hún hafi verið fengin í að flytja Þjóðhátíðarlagið í ár. „Ég man hvar ég stóð inni í stofunni minni og horfði út um gluggann þegar þjóðhátíðarnefnd hringdi í mig og bað mig um að taka þátt í þessu verkefni. Auðveldasta já í heimi og þetta mun alltaf vera augnablik sem ég mun muna hvar ég var og hvað ég var að gera. Eitt af þessum 56

kjarna augnablikum í lífinu,“ segir Jóhanna Guðrún um samtalið um að hún tæki að sér þetta krefjandi verkefni sem hún sagði mikinn heiður. „Ég vissi að ég myndi vilja hafa Halldór Gunnar með mér í að framkvæma þetta allt saman, enda hokinn af reynslu. Við fengum svo Klöru Elías til liðs við okkur og saman sömdu hún og Halldór þetta flotta lag sem að ég er afskaplega ánægð með. Ég get ekki beðið eftir að heyra brekkuna syngja með mér.“ Töfrar Herjólfsdals Lagið í ár heitir Töfrar og fjallar textinn einmitt um þá töfra sem eru þjóðhátíð í Vestmannaeyjum en hvað skyldi þjóðhátíð vera í hennar huga. „Samvera með skemmtilegu fólki og að upplifa Vestmannaeyjar á þjóðhátíð er

Kynntist Klöru í Dalnum Þetta er þó langt frá því að vera fyrsta skiptið sem Jóhanna mætir í Dalinn á þjóðhátíð. „Ég kom fyrst 2011 sem gestur ,en endaði á því að fara upp á svið og syngja eitt lag samt sem áður. Ég man ekki hvenær ég var ráðin fyrst formlega, en ég hef verið mjög lánsöm og sungið á hverju ári núna í mörg ár. Ég á ótrúlega margar góðar minningar frá þjóðhátíð í Eyjum. Ég og Klara kynntumst til dæmis formlega á þjóðhátíð 2022 og það var mjög eftirminnilegt, við urðum strax svo góðar vinkonur og svo semur hún lagið í ár fyrir mig ásamt Halldóri, skrýtið hvernig heimurinn virkar.“ Aðspurð um hennar uppáhalds þjóðhátíðarlag sagði hún það vera Þar sem hjartað slær, þjóðhátíðarlagið 2012, sem er einmitt einnig eftir Halldór Gunnar Pálsson annan höfunda lagsins í ár. Að lokinni þjóðhátíð sagði Jóhanna eitt og annað framundan þar á meðal áframhaldandi samstarf við Halldór Gunnar. „Það er bara þetta venjulega, spila á allskonar viðburðum og halda tónleika, svo ætlum við Halldór Gunnar að reyna að dæla út slatta af tónlist eftir sumarið.“


TÖFRAR ( ÞJÓÐH ÁTÍÐARL AG 2024)

Höfundur lags og texta: Halldór Gunnar Pálsson, Klara Ósk Elíasdóttir,

Forspil: Bm - G - D x2

Asus4

Bm

G

Ég veit ekki með ykkur en ég er byrjuð D

fyrir löngu að telja niður Bm

G

Mér finnst ég bíða endalaust en tíminn D

bara aldrei líður

Og ég veit að það varst þú

Dsus2/F#

sem að brennur ennþá inni í mér Bm

Það er ekkert sem að jafnast G

D

á við þennan stað, því miður Asus4

Bm

Í kvöld ég ætla að dansa alla nóttina D/F#

G

og syngja með Asus4

D

Bm

G

D

Bm

G

D

Bm

G

D

Bm

G

Það eru töfrar inni í Herjólfsdal Ég skil hjartað alltaf eftir þar

Bm

G

D

Bm

G

D

Bm

G

D

Bm

G

D/F#

Ohh - Ohhh Ohh - Ohhh Ohh - Ohhh Ohh - Ohhh Em

Bm

G

Asus4

Bm

A/C#

Ég sé blysin, ég sé brennuna

Bm

Í kvöld ég ætla hverfa inn í brekkuna

Ég sé ljósin lýsa leiðina

og gleyma mér

Ég vil heyra alla eyjuna

D/F#

D

Allt sem sungið var á undan mér

G

D

D/F#

nóttina og syngja með

Og það bergmálar í öllu hér

Bm

sem kveiktir eldinn hér

Bm

Í kvöld ég ætla að dansa alla

D

Bm

G

Bm

G

D

Bm

G

D

Bm

G

G6

D

Það eru töfrar inni í Herjólfsdal

Asus4

Syngja með og meina það C#m

A

C#m

A

E

C#m

A

E

Bsus4 E

Ég skil hjartað alltaf eftir þar

Það eru töfrar inni í Herjólfsdal

Og það bergmálar í öllu hér

Ég skil hjartað alltaf eftir þar

D

Allt sem sungið var á undan mér Bm

Ég horfi á stjörnubjartan himinninn G

Og það bergmálar í öllu hér C#m

A

E

Allt sem sungið var á undan mér

D

og vild’ég gæti stöðvað tímann Bm

Þú og ég og þetta augnablik G

Gítarhljómar sem notaðir eru:

D

vil muna alla ævi mína Bm

G

Og ef það er annað líf eftir þetta líf D

Dsus2/F#

Muntu finna mig á þjóðhátíð Bm

Það er ekkert sem að jafnast G

D

á við þennan stað, því miður

57


HL JÓÐ - L JÓS

OG MYND VIÐ HÖFUM VERIÐ PARTUR AF ÞJÓÐHÁTÍÐ FRÁ ÁRINU 2014

Til hamingju með 150 ára afmælið

Gleðilega þjóðhátíð


Við óskum Eyjamönnum og gestum gleðilegrar Þjóðhátíðar Óskum ÍBV góðs gengis WATT EHF í baráttunni í sumar FURUNO SKIPATÆKI

Jón Gísli Ólason Rafmagnsiðnfræðingur sími: 695 2925

HELLUGERÐ

AGNARS NÝJA

TANNLÆKNASTOFAN

STEINI PÍPARI

Aukin verðmæti í Auðlindagarði HS Orka á og rekur tvær virkjanir á Reykjanesi sem eru grundvöllur Auðlindagarðs Bílaverkstæði hvað markmiðið er að ekkert fari til spillis. www.hsorka.is

HARÐAR & MATTA

59


GUÐFINNA OG MARGRÉT SVEINSDÆTUR:

SYSTRAÞJÓÐHÁTÍÐ

Hvað er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið? Síðasti dansinn og Lífið er yndislegt varð niðurstaðan hjá okkur. Erfitt að velja úr mörgum fallegum uppáhalds. Hvert er uppáhalds Brekkusöngnum? Ég veit þú kemur.

lagið

í

Litli pallurinn eða Stóri pallurinn? Alltaf litli pallurinn. Hvert er fallegast; Vitinn, Myllan eða Hofið? Vitinn auðvitað. Geiri var einn af forsprökkum Vitans ásamt Ævar og Dedda. Þeir voru allir þrír formenn Vitans. Nú hefur sonur minn Borgþór og hans félagar í Vinir Ketils Bónda tekið við og sjá um Vigtann.

Fjöldi Þjóðhátíða? Finna 65 og Magga 62.

Hvað er skemmtilegast við Þjóðhátíð? Tjaldið í dalnum með fjölskyldu og vinum. Endalaus gleði, grín og glens. Einnig heimsóknir í önnur tjöld.

Hvernig verður Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum eftir 50 ár? Vonandi haldast allar hefðir sem hafa skapast í gegnum árin. Líklega bætist alltaf meiri tækni við.

Hver er eftirminnilegasta Þjóðhátíðin? Það er engin ein sem að stendur upp úr, allar hafa sinn sjarma. Oft hefur verið sagt á mánudegi: Þetta var sú besta.

Systurnar á setningunni í fyrra. Finna og Magga.

Þær systur Guðfinna (Finna) og Margrét Sveinsdætur hafa alltaf haldið þjóðhátíðina saman. Fyrst með foreldrum sínum, Svenna og Láru en tóku svo við tjaldinu og núna hafa börnin þeirra tekið við en þær systur eru þó “aðeins” með puttana í undirbúningnum. Fjölskylda: Finna var gift Ásgeiri Þorvaldssyni (Geira Múr) en hann lést árið 2020. Þau eignuðust tvo syni, Svein sem er giftur Sigrúnu og Borgþór en sambýliskonan hans heitir Birgitta. Tvö stjúpbörn, Maríu gift Martin og Þorvald. Barnabörnin eru 11 og langömmubörnin eru 6. Magga er gift Guðmundi Guðmundssyni, börn þeirra eru Lára gift Hugin, Íris Dögg, Arnar Sveinn og sambýliskonan hans, Sóley. Stjúpbörn þeirra er Jóhanna gift Willy og Elmar. Barnarbörnin er 12 talsins. 60

Fyrsta Þjóðhátíðin í Herjólfsdalnum eftir gos, Týsþjóðhátíð 1977.


Hvað er nauðsynlegt í tjaldinu? Nóg að borða. Samlokur, lagtertur, flatkökur, gúmmelaði og döðlugott. Drykki fyrri alla aldurshópa já og Tia maría kaffi fyrir okkur systur. Fyrir hvað stendur hátíðin í ykkar huga? Einstök fjölskylduhátíð. Hefðir sem haldast með samheldni okkar sem að búa í Eyjum. Mætið þið jafnan á setninguna? Já, alltaf. Lestu Þjóðhátíðarblaðið? Já nauðsynlegt blað. Hvaða dagur eða kvöld Þjóðhátíðarhelgarinnar stendur upp úr? Föstudagurinn, setningin, setningarkaffið, frumflutningur þjóðhátíðarlagsins og brennan.

Finna ásamt Guðfinnu ömmu sinni í dalnum.

Hvað er mikilvægast í undirbúningi fyrir Þjóðhátíð? Athuga hvort að tjaldið og allt sem því fylgir sé í lagi frá árinu á undan og svo auðvitað baksturinn. Panta gott veður :) Fyrstu minningarnar af Þjóðhátíð í Herjólfsdal? Nýjir kjólar fyrir þjóðhátíðina sem að mamma saumaði og fara í bekkjarbíl. Eitthvað að lokum? Gleðilega þjóðhátíð. Lífið yndislegt á Þjóðhátíð.

er

Magga á sinni fyrstu Þjóðhátíð.

61


ADDI Í LONDON HEFUR MYNDAÐ STEMNINGUNA Í HVÍTU TJÖLDUNUM UNDANFARIN ÁR. HÉR MÁ SJÁ BROT AF MYNDUM SEM HANN HEFUR TEKIÐ Í GEGNUM ÁRIN.

62


63


LEIÐ 1

Gengur milli kl. 12 og 18 LEIÐ 2 LEIÐ 3

Ganga milli kl. 20 og 06

VIP

TJAL D S VÆ ÐI

64


STRÆTÓ

í Dalinn leið 1 Ranya kebab

MIÐBÆR • Dalurinn • Miðbær • Dalurinn

Gengur milli kl. 12 og 18

leið 2

HAMARINN • Dalurinn • Miðbær • Kirkjuvegur • Foldahraun • Áshamar • Dalurinn

Gengur milli kl. 20 og 06

leið 3

HELGAFELL • Dalurinn • Helgafellsbraut • Illugagata • Dalurinn

Gengur milli kl. 20 og 06

Fullorðnir kr. 1.000 Börn (6-13 ára) kr. 500 Eldri borgarar kr. 500


Þjóðhátíðin mín Helena Björk Þorsteinsdóttir árgangur 1987 Staða: Vinn við útflutning og almenn skrifstofustörf hjá Vinnslutöðinni hf. Fjölskylduhagir: Eiginmaður minn er Þórir Ólafsson, saman eigum við þrjár yndislegar dætur þær: Lilju Huld, Ingu Lind og Hörpu Dögg

Fjölskyldan á Þjóðhátíðinni í fyrra.

Fjöldi Þjóðhátíða? Ég er ekki með það alveg á hreinu en ég myndi segja að þær væru á bilinu 25-30. Hvernig verður Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum eftir 50 ár? Alveg jafn stórkostleg og hún er núna. Hvað er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið þitt? Mér finnst lagið í ár rosalega flott. En svo kemur lagið Í Brekkunni mér alltaf í góðan þjóðhátíðargír. Hvert er uppáhalds lagið í Brekkusöngnum? Það er ekkert eitt. Það má segja að Brekkusöngurinn í heild sinni sé í uppáhaldi, það er alltaf mögnuð stund að vera partur af Brekkusöngnum á Þjóðhátíð. Litli pallurinn eða Stóri pallurinn? Tjarnarsviðið. Þórir og Helena í brekkunni

Hvert er fallegast; Vitinn, Myllan eða Hofið? Hver heilVITA maður hlýtur að sjá að það er VITINN sem er fallegasta mannvirkið í Herjólfsdal. Hvað er skemmtilegast við Þjóðhátíð? Samverustundir með fjölskyldu og vinum. Svo er alltaf eitthvað heillandi við undirbúninginn. Hver er eftirminnilegasta Þjóðhátíðin? Þær hafa sem betur fer allflestar verið góðar en það var eitthvað einstakt við Þjóðhátíðina 2019 að mínu mati. 66

Lilja Huld, Una Torfa, Inga Lind og Vigdís Linda.


Hvað er nauðsynlegt í tjaldinu? Humarsamlokur.

irminnilegast að vinna búningakeppnina eitt árið.

Hver er kjarni Þjóðhátíðar/ Fyrir hvað stendur hátíðin í þínum huga? Gæðastundir með fjölskyldu og vinum. Þetta er ekkert annað en fjölskylduhátíð sem að eyjamenn mega vera stoltir af.

Lestu Þjóðhátíðarblaðið? Auðvitað.

Mætirðu jafnan á setninguna? Já, þangað mætum við fjölskyldan prúðbúin. Hefur þú verið í búning með vinahópi? (Þá hvernig búning og hvernig var ferlið að ákveða búning og sauma/panta?) Já nokkrum sinnum. Það var alltaf jafn gaman að vera partur af því að vera í búning. Það gat alveg verið erfitt að komast að niðurstöðu þegar 13 ákveðnar ungar dömur voru allar með skoðun. Það var þó eft-

Hvaða dagur eða kvöld Þjóðhátíðarhelgarinnar stendur upp úr? Hver dagur/kvöld hefur sinn sjarma. Hvað er mikilvægast í undirbúningi fyrir Þjóðhátíð? Það er svo margt. Fara yfir innbú og skreytingar, ákveða hver bakar og kaupir hvað og svo samvinnan í að græja þetta allt saman. Fyrstu minningarnar af Þjóðhátíð í Herjólfsdal? Með stóran snuddusleikjó inní tjaldi – MJÖG sátt með lífið. Eitthvað að lokum? Mig langar

að fá að þakka þeim fjölda sjálfboðaliða sem standa að hátíðinni ár eftir ár, án þeirra væri engin Þjóðhátíð. Verum stolt af hátíð okkar Eyjamanna. Gleðilega Þjóðhátíð.

Karl Kristmanns

Umboðs - og heildverslun ehf.

Gleðilega hátíð

67


RÓBERT MARSHALL:

SPILAÐI SAMFLEYTT Í RÚMAR FJÓRAR KLUKKUSTUNDIR ÁN HLÉS INNI Í TJALDI Hvaða ár varst þú með brekkusönginn? 2003 Hvernig fannst þér að taka að þér brekkusönginn? Þetta var mjög gaman og mikill heiður að hafa verið treyst fyrir þessu. Brekkusöngurinn er svo risastór stund í hugum Eyjamanna og þjóðhátíðargesta. Í minningunni var brekkan eitt endalaust mannhaf en ég man ekki eftir að hafa verið kvíðinn eða taugaóstyrkur. Það var svo mikil vinátta og ást sem maður fann svo vel fyrir. Værir þú til í að taka aftur að þér að spila og syngja brekkusönginn fyrir þjóðhátíðargesti? Ég hugsa að ég myndi örugglega slá til ef ég yrði beðinn fyrir þessu aftur. En ég er líka bara vel sáttur við að hafa fengið að gera þetta einu sinni. Ég hef oft sagt frá því að þetta hafi verið eins og að fá að vera Bruce Springsteen eina kvöldstund. Áttu skemmtilega sögu frá kvöldinu þegar þú tókst brekkusönginn? Já, ég átti ekki kassagítar með svokölluðum pickup sem hægt er að stinga í samband við hljóðkerfið á þessum tíma svo að ég var með lánsgítar. Ég hafði límt lagalistann minn ofan á gítarinn og þegar ég byrjaði að spila þá heyrðist ekkert í hljóðfærinu. Brekkusöngurinn hófst því þetta kvöld á því að brekkukórinn söng kveikjum eld án undirleiks. Á meðan kom hljóðmaður og tók af mér gítarinn og setti á mig nýjan og þarna sem ég stóð kófsveittur við varðeldinn og söng “hæ bálið brennur, bjarma á kinnar slær …” 68

Róbert Marshall.

sá ég hvernig allt söngprógrammið mitt með öllu því sem ég hafði ekki getað lagt á minnið hvarf út í nóttina. En svo kom þetta bara ekkert að sök. Ég hitnaði og datt í gírinn og lögin komu bara upp í hugann eitt af öðru. Þú hefur oft verið að spila á gítar og syngja inní þjóðhátíðartjöldum og jafnvel með þekktum söngvurum, með fullt tjald af þjóðhátíðargestum, áttu uppáhaldskvöld í minningunni? Ég held að ég hafi einhvern tíma náð að spila samfleytt í rúmar fjórar klukkustundir án hlés inni í tjaldi. Það er bara einhver ótrúlegur galdur sem stundum leysist úr læðingi þegar fólk kemur saman inni í þjóðhátíðartjaldi og byrjar að syngja. Skemmtilegast finnst mér þegar tjaldið er orðið svo fullt að fólk stendur fyrir utan tjaldið en nær að koma höfðinu inn til að taka þátt í söngnum.

Nú hefur þú verið í hvild frá Þjóðhátið í mörg ár, værirðu til í að byrja að spila og syngja í Þjóðhátíðartjöldunum aftur, endurtaka leikinn? Ég kom í fyrsta sinn í fyrra í mörg mörg ár. Og spilaði einmitt inni í tjaldi öll kvöldin - var algerlega raddlaus eftir hátíðina. Ég hef ekki drukkið áfengi í að verða 16 ár og ég verð að segja að það er sláandi munur á því hvað er mikill munur á hátíðinni hvað þetta varðar. Unga fólkið í dag er svona hundrað sinnum flottara en við vorum - það er bara ekki flóknara en það. Nú hefur þú verið að syngja og spila á gítar í hljómsveit, og þið hafið komið ykkur upp prógrammi og giggum viða um land, gætuð þið hugsað ykkur að spila á litla danspallinum? Já það væri bara geggjað. Ég hef nánast alltaf verið í hljómsveit-


Eigðu stund með Ása í Bæ „Hér gleðjast allir, takast hönd í hönd með hýrri brá því það er gamall siður að láta dægurþrasið lönd og strönd, við leggjumst bara í grasið mjúka niður

og njótum þess að vaka og vera til, í vina hópi, gista klettasalinn, á meðan sólin gyllir þessi þil og þjóðhátíðarstemning fyllir Dalinn.“ Herjólfsdalur 77 - Lag og ljóð: Ási í Bæ

ISFELAG.IS


um eða allt frá því við Hersir Sigurgeirs og Viktor Ragnars stofnuðum hljómsveitina Timburmenn 15-16 ára gamlir og spiluðum í Oz. Núna er ég í hljómsveitinni Hvítá sem hefur verið með lagið Low, sem ég samdi, í spilun á útvarpsstöðvunum í sumar. Við gætum hugsað okkur að spila á litla pallinum og auðvitað þeim stóra líka. Kannski kemur einhverntíma að því. En gætirðu hugsað þér að semja þjóðhátíðarlag? Ég á reyndar einhver lög í fórum mínum sem gætu talist þjóðhátíðarlög. Eitt af því sem hefur reynst mér tiltölulega eðlislægt í mörg mörg ár er að semja lög. Ég er með lítið heimastúdíó heima hjá mér og geri mikið af því að setja saman lög og texta bæði á ensku og íslensku. Ég mun vonandi einhverntíma koma þeim frá mér. Já, það eru að minnsta kosti tvö lög sem ég á sem eru hreinræktuð þjóðhátíðarlög og önnur sem eru bara tengd Eyjum og mínum uppvexti þar. Nú ertu búinn að kaupa þér sumarbústað í Eyjum og ert oft í Eyjum, ertu að tengjast Eyjunum aftur sterkum böndum? Ég myndi orða það þannig að ég

Róbert Marshall var með brekkusönginn á Þjóðhátíð 2003.

er að finna betur eftir því sem ég verð eldri hvað Eyjar eiga mikið í mér. Þessi bönd hafa alltaf verið sterk og já núna þegar ég kem reglulega til Eyja þá styrkjast þau. Þið hjónin eruð að reka ykkar eigið útivistar fyrirtæki, og þið hafið verið dugleg að koma með hópa til Eyja í dagsferðir og jafnvel lengur, eru mörg tækifæri fyrir slíkar ferðir? Sbr. eins og að fara með hópa á kajak út í Bjarnaey? Eða fengið hlaupahóp í ykkar eigin 7 tindagöngu (tindahlaup)? Og eru þið enn að fá nýjar hugmyndir fyrir hópa til Eyja?

Tækifærin eru mikil í Eyjum. Okkar fyrirtæki býður uppá ferðir og útivistarævintýri fyrir íslendinga og útlendinga og ég hef alltaf reglulega farið með hópa um Eyjarnar enda bý ég að góðri staðbundinni þekkingu á örnefnum og sögum í Eyjum. Þekkingin á Heimaey hefur gefið mér færi á að búa til allskonar skemmtilegar ferðir og ég veit fátt skemmtilegra en að leiðsegja í Vestmannaeyjum. Þú varst í Bjarnareyjahópnum, ertu enn í honum? Ferðu enn með þeim út í Bjarnarey á sumrin? Já ég er í Veiðifélagi Bjarnareyjar og hef verið í vel á annan áratug. Ég reyni að komast þangað eins oft ég ég kemst því hvergi er lífið ljúfara. Þarna er eitt fallegasta útsýni veraldar að mínu mati. Þú átt fimm börn, eru þau að fara á þjóðhátíð í ár? Já þau hafa verið dugleg að mæta og ég held að ein dóttirin sé á leiðinni þetta árið segir Róbert að lokum. /Anna Lilja Marshall

Róbert tók lagið í stórafmæli bróður síns, Tómasar Marshall

70


Tanginn - lógó

KRÍA hönnunarstofa

Einsi Kaldi & starfsfólk óska ykkur gleðilegrar þjóðhátíðar. Opnunartími yfir þjóðhátíð Föstudagur 16.00 - 19.00 Laugardagur 14.00 - 19.00 Sunnudagur 14.00 - 19.00 Þú getur bókað þitt borð inn á einsikaldi.is

71


NATALIYA GINZHUL:

TUTTUGASTA ÁRIÐ Í VEITINGATJALDINU Nataliya Ginzhul fluttist til Vestmannaeyja frá heimalandinu Úkraínu árið 2001 og stóð þá í marki meistarflokks kvenna hjá ÍBV. Hér kynntist hún eiginmanni sínum Þórarni Axel Jónssyni (Kása) og ákváðu þau að setjast að í Eyjum. Saman eiga þau soninn, Edward Jón. Hún starfar nú sem íþróttakennari og fótboltaþjálfari hjá yngri flokkum ÍBV.

72

Nataliya upplifði sína fyrstu þjóðhátíð þetta fyrsta ár sitt í Eyjum, 2001 og mun vera á sinni tuttugustu í ár. Þjóðhátíð hefur þó alla tíð verið, fyrst og fremst, vinnuhelgi hjá henni enda alltaf verið við vinnu við hátíðina. Sér í lagi síðan hún tók við umsjón veitingatjaldsins fyrir tuttugu árum síðan sem hún segir vera skemmtilegt. „Já, mjög skemmtilegt, það er sérstaklega skemmtilegt að elda mat fyrir mikið svangt fólk,“ sagði Nataliya og hló. En rekstur slíks veitingahúss krefst mikillar vinnu og skipulagningar.

um tuttugu og tveir starfsmenn starfa í veitingatjaldinu yfir eina þjóðhátíð. „Svo svona í byrjun júlí hefjumst við handa við að undirbúa allt fyrir tjaldið.“ Aðspurð hvaða dag yfir hátíðina væri mest að gera í veitingatjaldinu sagði

„Já, ég byrja að undirbúa í svona apríl/maí. Þá byrja ég á því að finna fólk til að vinna í tjaldinu yfir hátíðina,“ sagði Nataliya en

hún það vera sunnudaginn. „Það eru allir extra svangir þá.“ Þrátt fyrir að vera alltaf við vinnu yfir hátíðina kemur það ekki í veg

fyrir að Nataliya njóti hátíðarinnar og aðspurð hvað henni finnst best við þjóðhátíð segir hún það vera brennuna, flugeldana og tónlistina og er Lífið er yndislegt hennar uppáhalds þjóðhátíðarlag.


Við erum betri saman 73


Þjóðhátíðin mín Arnar Ísleifsson árgangur 2000 Starf: húsasmiður Fjölskylduhagir: Mamma er Hulda Ástvaldsdóttir, pabbi er Ísleifur Arnar Vignisson (Addi í London) og svo er það hún Ingibjörg Lilja Þorkelsdóttir kærastan mín Fjöldi Þjóðhátíða? 22 missti af þeirri fyrstu þar sem ég var upptekin við að fæðast.

Arnar og Ingibjörg Lilja.

Hvernig verður Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum eftir 50 ár? Eitt stórt leizer show, lundi og uppstúf. Hvað er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið þitt? Dalurinn Ómar Hvert er uppáhalds lagið í Brekkusöngnum? Nú er úti norðan vindur ( úmbarassa úmbarassa úmbarassa-sa) Litli pallurinn eða Stóri pallurinn? Stóri pallurinn til svona 2:00 og svo litli pallurinn seinna um kvöldið Hvert er fallegast; Vitinn, Myllan eða Hofið? Auðvelt svar það er vitinn enda er hann leiðarljós sem lýsir manni veginn heim og heldur utan um mann í dalnum.

Vinir á þjóðhátíð.

Hvað er skemmtilegast við Þjóðhátíð? Að eiga afmæli Hver er eftirminnilegasta Þjóðhátíðin? Covid þjóðhátíðin var auðvitað mjög eftirminnileg þó að hún hefði ekki verið skemmtilegasta þjóðhátíðin, en hún minnti mann á það hvað þessi hátíð er mikilvægur partur af lífi margra Eyjamanna. Hvað er nauðsynlegt í tjaldinu? Mikið af góðum myndum, góður matur, stemmnings ljós og gott fólk 74

Arnar ásamt foreldrum sínum, Huldu og Adda.


fyrir hvað stendur hátíðin í þínum huga? Æli það séu ekki bara S-in 3 Stemmning, Samvera og sómakend. Mætirðu jafnan á setninguna? Já mæti alltaf á setninguna enda er það hátíðlegasti viðburðurinn á þjóðhátíð. Hefur þú verið í búning með vinahópi? já mætti segja það, við vinirnir klæddum okkur upp í peysum merktum fullorðins síðu sem sýnir fullorðins myndbönd fyrir fullorðna. Við sáum nú samt

ekkert um að sauma þær sjálfir en pöntuðum þær með góðum fyrirvara og náðum að máta þær áður en við fórum niður í dal. Peysurnar vöktu mikla lukku enda voru mjög margir sem könnuðust við þessa fullorðins síðu. Lestu Þjóðhátíðarblaðið? Já, það geri ég og hef gaman af enda hefur pabbi séð um myndirnar í blaðinu í um 20 ár Hvaða dagur eða kvöld Þjóðhátíðarhelgarinnar stendur upp úr? Erfitt að velja á milli en ætli það sé ekki laugardagurinn flugelda-

sýningin er alltaf géggjuð. (Takk björgó) Hvað er mikilvægast í undirbúningi fyrir Þjóðhátíð? Mér þykir alltaf mjög mikilvægt að smyrja flatkökurnar út í alla kanta og passa að skinkan fari í öll skinkuhornin því ef það gleymist þá eru þetta bara horn og það vill enginn vera með horn. Fyrstu minningarnar af Þjóðhátíð í Herjólfsdal? Ætli það sé ekki þjóðhátíðin 2005 þegar Vignir frændi minn gaf mér haglabyssu (túttubyssu) í 5 ára afmælisgjöf Hefuru tekið þátt í söngvakeppninni á þjóðhátíð, ef já, þá hvernig gekk? Já ég hef tekið þátt að minnsta kosti þrisvar sinnum og var alltaf bestur ( það fannst mér allavegana) Eitthvað að lokum? Vona bara að allir munu njóta þjóðhátíðar í botn.

Arnar tók þátt í söngvakeppni barna á Þjóðhátíð


Við óskum Eyjamönnum og gestum gleðilegrar Þjóðhátíðar Anna Lilja og Siggi Sirrý og Bragi Adda og Magnús Siggi og Sigrún Elísa og Siggi Gugga og Kolli Arna og Björn Sunneva Björt Halli Steini og Stína Sara Björt Gunnarsdóttir Friðsteinn Braggabílar Friðrik Benónýsson Halla Svavarsdóttir Lovísa Inga Ágústsdóttir Elsa Ökukennsla Hjalta Enoks Ella og Jói Guðfinna Fjóla Björk Jónsdóttir Oddfríður og Ágúst Kristín Gísladóttir Örvar Arnarsson Selma Jóhannsdóttir Hákon Jónsson Selma og Matthías Elísabet Jóna og Brynjar Karl Brynja Friðþórsdóttir Eyjólfur Pétursson jr. Róbert og Júnía Aron Hrafnsson Gulla og Steini Hanna og Jón Atli Laugi og María Sonja og Birkir Adda VE 282 Guðjón Pálsson Margrét Þorsteinsdóttir Ólafur Sigurðsson Hörður Þórðarson Anna Rakel Sigrún Arna Selma Björk Júnía Eysteinsdóttir Grétar Þór Eyþórsson Haukur og Eygló Bjarni og Kristjana

Kolla og Biggi Lilja og Siggi Hannes Kristinn Sigurðsson Villa og Pétur Sísí og Haukur Pétur Bjarnason Sigríður Guðlaugsdóttir Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir Sólrún Sigurgeirsdóttir Fanney Helga Friðriksdóttir Andrea Kristín Jónsdóttir Eva Katrín Jóhannsdóttir Karen Jóhannsdóttir Anna Sigurgeirsdóttir Droplaug og Friðrik G&G smiðir Ágúst Ómar Einarsson Ævar Þórisson Sigurleif Kristmannsdóttir Bríet Lóa Amma Lóa Afi Gummi Þröstur Kristinn Emma Ey Olga og Guðni Hlíf Gylfadóttir Selma Rut, Guðbjartur og börn Elmar Gauti og Andrea Kristný Káti kokkurinn Amma Lóa Óskar Freyr Maggi Matt Lilja Rut Brynjarsdóttir Baltasar Þór Bjössi og Edda Þórdís Gyða Magnúsdóttir Baldvin Þór Sigurbjörnsson Katla María og Jóhannes Berg Katrín Ósk og Egill Friðþór Vestmann og Ragga Þroskaþjálfinn ehf. Unnar Hólm Ólafsson Helga Jóhanna Harðardóttir Anna María Kristjánsdóttir

Hörður Þórðarson Kristjana M. Harðardóttir Bjarni Sigurðsson Guðni Hjörleifsson Kristján Þór Einarsson Margrét Elsabet Kristjánsdóttir Ólöf Ragnarsdóttir Þór Ísfeld Vilhjálmsson Sólveig Adólfsdóttir Sigurbjörg Jóna Ísfeld Vilhjálmsdóttir Þorbjörg Sara Hafliðadóttir Stína í Lukku Hjördís Steina Traustadóttir Angantýr Einarsson Þórunn Ragnarsdóttir Gassi Ólafsson Vídó HLER Pípulagnir ehf. Erna Jóhannesdóttir Harpa Hjartar Jóel Hugins Heiðar Egils Gullfiskur – harðfiskurinn í Dalinn Egill Egilsson Erna og Sævar Mjóafirði Narfi Ísak Geirsson Brynjar Ingi Narfason Dóróthea Lind Narfadóttir Jón Bragi Narfason Erna María Hlynsdóttir Rúnar Valur Hlynsson Regína M. Erlendsdóttir Elena Ólöf Erlendsdóttir Jóhannes Egilsson Guðrún Sveinsdóttir Sævar Óli Sveinsson Ylfa Eldey Sveinsdóttir Elísabet Davíðsdóttir Marý Kolbeinsdóttir Marinó Sigursteinsson Inga Kolbeins Diljá Daðadóttir Diddi Mar Jóhannes Egils Thelma Tomm Tómas Jóhannesson

Fanney Björk Ásbjörnsdóttir Elín Lóa Elíasdóttir Hrund Scheving Hrabba Skúla Káti trúðurinn Addý Guðjóns Dagur Fannar Magnússon Tinna og Daddi Soffía Sig Bogi Snær Bjarnason Trausti Traustason Einar Friðþjófs Hallgrímur Þráinsson Guðsteinn Hlöðversson Alan Friðrik Allison Flóki Dagsson Ingibjörg Marinós Margrét Sigurbjörnsdóttir Bjarni Sig Oliver Heiðarsson Óskar Ólafsson Kristín Þorsteinsdóttir Jóna Ágústa Adolfsdóttir Hákon, Jóhanna og born Fagriskógur Kristín Adolfsdóttir Una María Elmarsdóttir Elísabet Lilja Elmarsdóttir Baldur Örn Elmarsson Þór Ísfeld Vilhjálmsson Sólveig Adolfsdóttir Sigurbjörg Jóna Ísfeld Vilhjálmsdóttir Þorbjörg Sara Hafliðadóttir Stína í Lukku Hjördís Steina Traustadóttir Angantýr Einarsson Þórunn Ragnarsdóttir Gassi Ólafsson Vídó HLER Pípulagnir ehf. Kristín Elfa Elíasdóttir Theodóra Ágústsdóttir Guðbjörg H. Sigursteinsdóttir Sara Björg Ágústsdóttir


FLAMINGO

GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ!

77


Ekki láta springa á þér!

78


við mætum á þjóðhátíð ELKO Pop-Up verslun við Krónuna í Eyjum Lukkuhjól ELKO Útilegubúnaður Ferðahleðslur Fyndnir hattar Hátalarar

freistaðu gæfunnar í lukkuhjóli elko

skannaðu kóðann til að sjá úrvalið ELKO Vestmannaeyjum, við Krónuna

www.elko.is

elko@elko.is

544 4000 79


í Dalnum

80 Vesturvegi 5

Herjólfsdal

www.icewear.is/dalurinn

@icewearmagasin


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Þjóðhátíðarblaðið 2024 by Leturstofan - Issuu