Tígull 45. tbl 04. árg.

Page 1

45. tbl. 04. árg. 21. - 31. desember 2022

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

sendist á: tigull@tigull.is

á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. TÍGULL
DREIFING:
ÚTGÁFA: SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Með þökk fyrir samveruna á árinu sem er að líða. TÍGULL
Auglýsingar
Skil

Íslandsbanki

óskar bæjarbúum

gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári

ORÐAÞRAUTIN

SNJÓKARL JÓLASVEINN LEPPALÚÐI KERTASNÍKIR GILJAGAUR GRÝLA SLEÐI HREINDÝR JÓLAGJÖF SAMVERA FJÖLSKYLDA JÓLATRÉ

Við sendum Vestmannaeyingum nær og fjær bestu óskir um Gleðileg Jól og farsælt komandi ár með þökk fyrir það liðna.
ENNEMM SÍA NM-013287 ALLA LEIÐ Okkar bestu hátíðaróskir Við óskum landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar með þökk fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða. Við vonum að árið fram undan og framtíðin öll verði farsæl og björt. 440 1000 n1.is
jól og farsælt komandi ár
Gleðileg
HENGILL Ullareinangraðar buxur Kr. 22.990 fá sérkjör Skráning á icewear.is LANGJÖKULL ullarjakki 28.990 Kr. STEINAR ARIEL Angora ullarsokkar Kr. 1.298.Vindur úlpa fyrir börn Kr. 18.990.FÍFA síð Ecodown® úlpa Kr. 29.990.ENGEY Húfa með mynstur beggja vegna Kr. 2.790. ASOLO Falcon herra Kr. 29.990.barna ullarúlpa Kr. 18.990.MÓAR ullarpeysa Kr. 14.990.HVÍTANES Merínó húfa Kr. 3.990.Hlýjar gjafir ÞÍN ÚTIVIST ÞÍN ÁNÆGJA FUNI unisex dúnúlpa Kr. 33.990.REYKJAVÍK ullarúlpa Kr. 47.990.HVÍTANES Merino peysa Kr. 13.990.-

BYRJAÐI BARA MEÐ BLÝANT, TÚSSPENNA OG EINHVERN LÍTINN VASAREIKNI

Þeir eru eflaust ófáir sem fagnað hafa stórafmæli á árinu en fáir hafa haft jafn ríkulegt tilefni til þess en viðmælandi okkar Páll Zóphóníasson. Ekki nóg með að hann hafi fagnað áttræðis afmæli sínu í sumar og að fimmtíu ár séu frá því hann flutti til Eyja. Heldur fagnaði fyrirtæki hans TPZ einnig fjörutíu árum í ár.

Heim með fyrsta skipi Páll Hjaltdal Zóphóníasson fæddist þann 12. júlí 1942 í Kaupmannahöfn í miðri heimsstyrjöld. Sonur hjónanna Zóphaníasar Pálssonar frá Hvanneyri og Lis Nellemann frá Álaborg. Páll eyddi fyrstu árum ævinnar í Kaupmannahöfn og síðan í Óðinsvé á Fjóni. Þegar stríðinu lauk 1945 voru foreldrar Páls staðráðnir í því að flytjast til Íslands. „Við komum heim með fyrsta skipi, Esjunni, sem lagðist að landi í júlí 1945. Þannig að þeim lá þó nokkuð mikið á,” sagði Páll.

Kynntist ástinni í Álaborg Uppvaxtarárunum eyðir Páll svo í Reykjavík þar sem hann lærði trésmíði. En hélt svo til Danmerkur á ný, nú til Álaborgar, þar sem hann nam tæknifræði. Páll kynntist eiginkonunni, Sesselju Áslaugu Hermannsdóttur frá Ísafirði, í Álaborg en Áslaug var í Lýðháskóla sem var staðsettur rétt fyrir utan Álaborg. Að loknu námi fékk Páll starf sem byggingatæknifræðingur hjá ráðgjafarverkfræðifyrirtækinu Studstrup & Östgaard a/s í Álaborg og ílengdust þau í Danmörku næstu 10 árin. „Við giftum okkur þar og eignuðumst tvö börn. Þau Zophonías og Sigríði. En seinna fæddist svo Sif hér í Vestmannaeyjum,“ sagði Páll.

Eyjar stóðu undir væntingum Palli fluttist til Vestmannaeyja ásamt fjölskyldunni í byrjun árs 1972 og hóf þar störf sem bæjartæknifræðingur. „Þannig var að bæjarverkfræðingur Ólafur Gunn-

laugsson hafði hætt í lok árs 1971. Magnús bæjarstjóri hafði samband við mig út til Danmerkur og spurði hvort ég hefði áhuga á að koma til Vestmannaeyja og taka við þessu starfi. Hann hafði leitað fyrir sér hér heima en, leitin borið lítinn árangur. Ég hafði aldrei komið til Vestmannaeyja og Ása ekki heldur. En við þekktum fólk hérna. Marta, kona Magnúsar, var föðursystir Ásu. Okkur leist því bara ágætlega á þetta og hefur það alveg staðið undir væntingum.”

Palli og Ása, eins og Sesselja Áslaug er jafnan kölluð, fjárfestu strax í húsi í Eyjum að Illugagötu 7. Þar bjó fjölskyldan allt til ársins 1978 sem þau keyptu Smáragötu 15 af Guðna Hermansen, en hann hafði byggt það hús 1975.

Fátt er svo með öllu illt Páll starfaði sem bæjartæknifræðingur í Vestmannaeyjum næstu fjögur árin og sagði hann strax frá upphafi verið nóg að

Páll Zóphóníasson á skrifstofu sinni á Teiknistofunni, þeirri sömu og hann notaði fyrir 50 árum sem bæjartæknifræðingur.

gera. Þó var farið að bera á skorti á efni í steypu enda komið stórt sár í Helgafell sem var helsta efnistöku gryfja Eyjanna þá. „Hugsið ykkur þegar maður keyrði hringveginn austur fyrir Helgafell, til að fara í gryfjuna, þá keyrði maður niður 10 metra. Svo djúp var þessi gryfja,“ sagði Páll. Í febrúar 1973 átti Páll því von á Sigurði Þórarinssyni, einum fremsta jarðfræðingi Íslands til Eyja til aðstoðar. „Hann var væntanlegur hingað til að fara um Eyjuna og finna einhverja staði sem væru ákjósanlegir til þess að vinna efni í steypu og gatnagerð.” Ekkert varð þó úr þessum fundi því málið leystist af náttúrunnar hendi aðfaranótt þriðjudagsins 23. janúar 1973. „Við hittumst þarna um morguninn og ákváðum strax að þessi fundur væri líklega alveg óþarfur. Það væri búið að leysa þetta mál vel og rækilega.“

Palli var í Eyjum allan gostímann og sat í almannaverndarnefnd þegar hún tók til starfa. „Almannavarnir ríkisins komu hingað strax í upphafi og höfðu yfir umsjón með þessu. En smá saman tók svo almannavarnarnefndin við og svo tekur viðlagasjóður við, þar sem ég var framkvæmdastjóri hérna í Vestmannaeyjum“ sagði Páll sem hafði í nógu að snúast á gostímanum og ekki síður að honum loknum. En við leggjum hann þó hér til hliðar og munum fjalla nánar um störf Páls í og eftir gos í næsta blaði Tíguls, fyrsta blaði ársins 2023.

Bæjarstjóri 1976–1982

Páll starfaði áfram sem bæjartæknifræðingur allt til ársins 1976 að hann tók við starfi bæjarstjóra. „Fyrstu tvö árin var eiginlega ekki beinlínis minni- og meirihluti, það var bara meira svona reynt að klára þetta kjörtímabil. Seinna kjörtímabil mitt myndaðist nú meirihluti. Síðan varð breyting á pólitískri samsetningu meirihlutans, þannig að það lá beinast við að ég hætti.“

hann hafði lært á sínum tíma og stofnaði þá Teiknistofu Páls Zóphóníassonar, eða TPZ. Fékk hann inni á þriðju hæð Útvegsbankans að Kirkjuvegi 23. Þar starfar hann enn þann dag í dag 40 árum síðar. „Þetta var nú ekki mikið til að byrja með, ég var bara einn og snapaði vinnu hingað og þangað um landið. Smám saman fjölgaði okkur og við höfum verið þetta fjögur, meirihlutann af þessum tíma,“ sagði Páll stoltur af fyrir-

TPZ verður til Þegar Páll yfirgaf bæjarstjórastólinn 1982 var hann ekkert undir það búinn og því ekkert ákveðið hvað hann tæki sér fyrir hendur. Beinast lá þó við að hann færi aftur í að vinna við það sem

tækinu sínu. „Ég byrjaði nú bara með hluta af hæðinni en eftir sem okkur fjölgaði, fengum við meiri hluta af hæðinni. Við enduðum svo á því að kaupa hana af bankanum þegar þeir stækkuðu hér niðri. Þá höfum við haft vel rúmt um okkur og hefur ýmist fólk fengið hér inni sem unnið hefur fjarvinnu frá Reykjavík. Hér hafa verið stór fyrirtæki, smá fyrirtæki og ráðuneyti með útistöð í gegnum tíðina.“

Verkefni um allt land Aðspurður um verkefnin sagði Palli þau hafa verið um allar trissur. „Fyrst um sinn voru verkefnin mikið til uppi á landi, smá saman fóru svo að koma verkefni hér í Eyjum líka. Við höfum sem betur fer fengið ágætis verkefni. Það er náttúrulega vegna þess að við höfum verið með mjög góða starfsmenn hérna sem hafa nýst hinum ýmsu verkefnum og höfum við verið eftirsóttir bæði hér heima og að heiman. Þannig að það hefur gengið ágætlega.„

TPZ tekur við vikurkenningunni „lagnaverk ársins“ fyrir hönnun á safnaðarheimili Landakirkju. TPZ hefur komið að hönnun fjölmargra húsa í Eyjum. Skólavegur 7 er dæmi um eitt þeirra. Þar sá félagið um alhliða hönnun byggingarinnar.

Páll segir marga kosti við það að fá verkefni hér í heimabyggð. „Það er náttúrulega nándin við verkið og ekki síst reynslan sem við fáum við að leysa þessi verkefni sem hefur orðið til þess að við höfum fengið álíka verkefni annars staðar. Það eru því mörg sveitarfélög sem hafa séð sér hag í því að svona fyrirtæki eins og þetta hafi verkefni heima fyrir.”

Breyttur heimur Páll sagði þó ansi margt hafa breyst síðan hann byrjaði fyrir fjörutíu árum síðan. „Þá var maður bara með blýant og tússpenna og einhvern lítinn vasareikni. Núna er þetta allt gert í tölvu og allt öðruvísi. Kröfurnar með allskonar gæðakerfi og eftirlit hafa aukist geysilega síðan þá. Ekki það að við vorum svo sem með okkar eigið heimatilbúna kerfi en nú er þetta staðlað og fylgir ákveðnum reglum.“

Lagnaverk ársins

Þegar innt var eftir því hvort eitthvað verkefni stæði upp úr framar öðru tók Palli hljóðan og varð hugsi en svaraði svo af einskærri hógværð. „Við höfum náttúrulega fengið verðlaun fyrir tvö verkefni. Það er annars vegar safnaðarheimili Landakirkju og svo

Eldheimar. Við fengum „Lagnaverk ársins“ fyrir þessi tvö. Ef það er mælikvarðinn má nefna þau. En stóru verkefnin hafa náttúrulega verið fyrir stöðvarnar,” sagði Páll og á þar að sjálfsögðu við fiskvinnslu stöðvarnar í Eyjum. Fyrsta verkefni TPZ var einmitt fyrir eina af þessum stöðvum, Fiskiðjuna. „Þá var verið að endurbyggja suður endan á austur húsinu, sem er að

vísu búið að rífa núna. Þannig að það er ekki til það verkefni“ sagði Palli og glotti. „Næsta verkefni var eftirlit og umsjón með byggingu á kaupfélaginu vestur frá. Sem núna er orðið gistiheimili held ég. Svo voru nokkur einbýlishús. Þetta voru svona fyrstu verkefnin.“

Á fjórða þúsund verkefna Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar hjá TPZ og verkefnin verið að meðaltali tæplega hundrað á ári og því vel á fjórða þúsund verkefna eða verknúmera réttara sagt. „Sum af þessum verkefnum verða náttúrulega ekki að neinu, sum eitthvað pínulítið. Svo eru önnur sem eru með eitt númer en eru mjög stór. Eins og þegar við byggjum við fiskimjölsverksmiðjuna, til dæmis, Þá er það bara eitt númer sem er þar. En ég veit ekki hvað það eru mörg hús hér í Eyjum eftir okkur. Við höfum ekki haft tölu á því.“

Þá hefur TPZ einnig verið með aðalskipulag Vestmannaeyjabæjar í tvígang. „Það gekk ágætlega og af því að okkur var treyst fyrir aðalskipulaginu hér, vorum við með aðalskipulagið í Skagafirði. Bæði fyrir Skagafjörð og svo svæðisskipulag. Svo skipulag fyrir sveitarfélagið Skagafjörð og fyrir Akrahrepp. Og eitt af því sem við unnum í þessu varð eiginlega

Starfsmenn TPZ: Sigurjón Pálsson, Páll Zóphóníasson, Ríkharður Tómas Stefánsson og Björgvin Björgvinsson. Sigurjón og Páll.

grunnurinn af því að þessi sveitarfélög sameinuðust. Þar listuðum við upp alla kostina sem lá í því að vera með einhverja samvinnu. Bara þessi umræða varð til þess að þessi sveitarfélög sameinuðust.

Svo vorum við með skipulag Svínavatnshrepps. Hann náði frá Húnavatnsskóla alla leið suður á Hveravelli. Við höfum verið með deiliskipulag hér í Eyjum, í Þorlákshöfn og í nokkrum minni byggðum uppi á landi.

Þá höfum við unnið með öðrum í mörgum verkefnum en líka verið ein eða einir, núna undir það síðasta. Eintómir karlar hérna núna,“ sagði Palli og hló.

Safnaðarheimilið í uppáhaldi

Að lokum lá beinast við að spyrja Pál hvort hann ætti sér ekki eitthvert uppáhalds hús hér í Eyjum, svona hönnunar lega séð. „Ætli það sé ekki safnaðarheimilið. Ég held það. Það var búið að reyna þetta mjög mikið og margir búnir að reyna. Þetta mætti mikilli andstöðu. Þetta var byggt í tveimur áföngum. Fyrst það sem er á kafi og síðan húsið sem stendur upp úr. Þar sem skrifstofur prestanna eru. Jú, ætli ég sé ekki ánægðastur með það,“ sagði Páll stoltur af lokum þar sem hann sat á sömu skrifstofu og hann byrjaði á er hann fluttist til Eyja fyrir 50 árum og hóf störf sem bæjarfulltrúi. Látum við hér staðar numið í spjalli okkar við Pál Zóphóníasson í bili en höldum áfram í næsta blaði þegar við tökum m.a. fyrir störf hans í gosinu.

Starfsmenn TPZ taka við viðurkenningunni „lagnaverk ársins“, frá Ólafi Ragnari Grímssyni forseta, fyrir hönnun sína í Eldheimum. Páll Björgvin Sigurjón Inngangur að Safnaðarheimilinu við Landakirkju. Horfðu á Tigull.is

HVAÐ GETUR ÞÚ TALIÐ MARGA JÓLASVEINA?

TELDU ALLT OG SKRIFAÐU SVARIÐ Í REITINA FYRIR NEÐAN...
481-1567 ( Sendum heim alla daga Gleðileg jól og farsælt komandi ár Sendum Eyjamönnum öllum bestu óskir um með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða! sent 12” PIZZA með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 3.990 kr. ] 16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 5.490 kr. ] 9” PIZZA með 3 áleggjum [
] 12” PIZZA með 3 áleggjum [
] 16” PIZZA með 3 áleggjum [ 2.890
] 12” PIZZA með 3 áleggjum + 9”
eða brauðstangir +
[ 3.590
] 16” PIZZA með 3 áleggjum + 16”
eða
+ 2L
[
] OPIÐ Mán-fim 17-21 Fös og lau 12-22 Sun 12-21 24.-26. des.
Gamlársd.
TVENNUTILBOÐ Tvær 16” pizzur + stórar brauðstangir [ Greitt er fyrir dýrari pizzuna og brauðstangir ] Sjáumst á sótt PIZZUTILBOÐ
1.990 kr.
2.390 kr.
kr.
hvítlaksbrauð
gosdós
kr.
hvítlaksbrauð
brauðstangir
gos
5.090 kr.
lokað
lokað.

SEGJA BÖRNIN UM JÓLIN?

BETA RÁN, 10 ÁRA

Fjölskylda: Mamma mín heitir Sigga, stjúppabbi Kjartan, bræður mínir Ásgeir, Siggi og Jón. Systir mín heitir Embla.

Hvað ætlarðu að gera á jólunum?

Ég ætla að vera með fjölskyldunni, baka, horfa á jólamynd, skreyta jólatréð og allskonar fleira.

Hvað langar þig í jólagjöf? Gervigrasskó

Hvaða jólasveinn er bestur? Kertasníkir

Hefuru fengið kartöflu í skóinn? Nei aldrei, einu sinni mandarínu.

Hvað er skemmtilegast við jólin? Að vera með fjölskyldunni.

INGIBERGUR, 10 ÁRA

Fjölskylda: Mamma mín heitir Ása og pabbi Sigmundur, tvær systur sem heita Kristín og Sigurlaug og hundurinn okkar Leó.

Hvað ætlarðu að gera á jólunum? Hafa gaman og vera með fjölskyldunni.

Hvað langar þig í jólagjöf? Það er margt, eitthvað tölvudót.

Hvaða jólasveinn er bestur? Kertasníkir.

Hefuru fengið kartöflu í skóinn? Ó nei, systir mín hefur samt fengið og það var mjög fyndið.

Hvað er skemmtilegast við jólin? Að vera með fjölskyldunni.

ÞÓRIR, 10 ÁRA

Fjölskylda: Mamma mín heitir TInna og pabbi minn Bjarni. Bróðir minn heitir Pétur.

Hvað ætlarðu að gera á jólunum? Opna pakka og vera með fjölskyldunni.

Hvað langar þig í jólagjöf? Síma.

Hvaða jólasveinn er bestur? Kertasníkir.

Hefuru fengið kartöflu í skóinn? Nei.

Hvað er skemmtilegast við jólin? Opna pakka.

HVAÐ

Kvenfélagið Líkn sendir öllum bestu óskir um Gleðileg jól og farsælt komandi ár með kærum þökkum fyrir allan stuðningin á árinu.

Það er hlýtt í hjartað að finna velvilja og áhuga á því sem við erum að gera í Kubuneh.

Hjartans þakkir fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða.

HÁTÍÐ

Afgreiðslutími um jól og áramót

Aðra daga yfir hátíðarnar er opið eins og venjulega.

Vesturvegi 5 Sími 481 3900
Opip virka daga 9–18 laugardaga 11–15 apotekarinn.is
Vestmannaeyjum
17. des 11–16 23. des 9–20 24. des 10–12 25. des LOKAÐ 26. des LOKAÐ 31. des 10–12 1. jan LOKAÐ
KÆRI NÁGRANNI! SENDUM ÞÉR OG ÞÍNUM BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEGA
GRINDAVÍKURHÖFN
Við óskum Vestmannaeyingum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
SUDOKU

Vínbúðin Vestmannaeyjum

Miðvikudagur 21. desember 11-18 Fimmtudagur 22. desember 11-18 Föstudagur 23. desember 11-19 Laugardagur 24. desember 10-13 Sunnudagur 25. desember Lokað Mánudagur 26. desember Lokað Þriðjudagur 27. desember 11-18

Miðvikudagur 28. desember 11-18 Fimmtudagur 29. desember 11-18 Föstudagur 30. desember 11-19 Laugardagur 31. desember 10-13

Sunnudagur 1. janúar Lokað Mánudagur 2. janúar 11-18

Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vinbudin.is Við minnum á að áfengiskaupaaldurinn á Íslandi er 20 ár og biðjum fólk að hafa skilríki meðferðis.

OPNUNARTÍMAR UM HÁTÍÐIRNAR MUNUM EFTIR FJÖLNOTA POKUNUM
SUDOKU Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com Fjölskyldumyndir fyrir jólin Bumbumyndir Fundir eru sem hér segir: Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30 AL-ANON Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI

Við óskum ykkur gleði og friðar um jólin og gæfu á nýju ári. Þökkum fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða!

Við óskum landsmönnum gleðiríkrar hátíðar og farsældar á nýju ári Starfsfólk Ísfells
AÐALFUNDUR Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi verður haldinn í Líknarsalnum 22. desember 2022 kl. 20:00 Dagskrá: 1. venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál Stjórnin Gleðileg Jól Sendum starfsfólki okkar, viðskiptavinum og landsmönnum öllum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Með þökk fyrir samfylgdina í gegnum árin. TANGAGATA 1 / 900 VESTMANNAEYJAR / WWW.ISFELAG.IS
Við sendum Vestmannaeyingum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

BÖRNIN UM JÓLIN?

LILJA HULD, 10 ÁRA

Fjölskylda: Mamma mín heitir Helena Björk og Pabbi minn heitir Þórir. Ég á tvær systur sem heita Inga Lind og Harpa Dögg.

Hvað ætlarðu að gera á jólunum? Opna pakka.

Hvað langar þig í jólagjöf?

Liverpool búning og náttföt.

Hvaða jólasveinn er bestur? Stúfur, hann er alveg eins og ég.

Hefuru fengið kartöflu í skóinn? Nei.

Hvað er skemmtilegast við jólin? Opna pakka.

DANÍEL INGI, 10 ÁRA

Fjölskylda: Mamma mín heitir Björg og pabbi minn Hallur. Systkyni mín heita Kristófer, Sunna Marín og Fanney.

Hvað ætlarðu að gera á jólunum? Allt nema að fara út því ég get það ekki (fótbrotinn)

Hvað langar þig í jólagjöf? Bara eitthvað.

Hvaða jólasveinn er bestur? Kertasníkir.

Hefuru fengið kartöflu í skóinn? Nei aldrei.

Hvað er skemmtilegast við jólin? Að vera með fjölskyldunni.

ELÍSABET, 10 ÁRA

Fjölskylda: Mamma mín heitir Erna og pabbi minn Valtýr. Bróðir minn heitir Þór.

Hvað ætlarðu að gera á jólunum?

Bara vera á jólunum.

Hvað langar þig í jólagjöf? Skin Care.

Hvaða jólasveinn er bestur? Kertasníkir.

Hefuru fengið kartöflu í skóinn? Nei.

Hvað er skemmtilegast við jólin? Opna pakka.

HVAÐ
SEGJA
EYJATÓNLEIKAR21.JANÚARÍ HÖRPU 50 ÁRFRÁHEIMAEYJARGOSI 1973- 2023 Í ELDBORGARSAL HÖRPU ÆTLUM VIÐ AÐ MINNAST OGGLEÐJAST. MINNAST ÞESSA STÆRSTA ATBURÐAR ÍSEINNI TÍMA SÖGU ÍSLANDSEN EKKI SÍÐUR AÐ GLEÐJAST YFIRHVE VEL ALLT FÓR ÞRÁTT FYRIR ALLT. KLARA ELÍAS · JÓHANNA GUÐRÚN · STEFÁNHILMARS · MAGNÚS KJARTAN HREIMUR · SVERRIR BERGMANN · HALLDÓRGUNNAR · JARL SIGURGEIRS · EYGLÓ SCHEVING KVENNAKÓR VESTMANNAEYJA · KARLAKÓR VESTMANNAEYJA · KRISTJÁNGÍSLA · ALMA RUT ÁSAMT STÓRHLJÓMSVEIT ÞÓRIS ÚLFARSSONAR OG STRENGJA-OG BLÁSTURSSVEIT MIÐASALA Á TIX.IS, HARPA.IS OGÍ MIÐASÖLUHÖRPU Í SÍMA 528 5050 TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX Í DAG! VIÐ FLYTJUM MÖRG AF BESTU LÖGUNUM SEM VIÐ TENGJUM VIÐ EYJAR. ÞAR ER AF NÓGU AÐTAKA.
GRINDAVÍKURHÖFN Sjómannadagsráð Bílaverkstæði HARÐAR MATTA & FRÁR VE 78 NÝJA TANNLÆKNASTOFAN Við óskum ykkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir það liðna! Lundinn pöbbinn í Eyjum

Við óskum ykkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári

HELLUGERÐ AGNARS

STAVEY
OKKAR BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR. ÞÖKKUM SAMFYLGDINA Í GEGNUM ÁRIN. 40 ára
Skata til
narfive@simnet.is
sölu Fiskvinnsla VE Eiði 12 Viðar Elíasson 895-1965

Apótekarinn Vestmannaeyjum

H UGVIT HRÁEFN I
HREINLEIKI

Við óskum ykkur

gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Við sendum landsmönnum öllum hugheilar jólaog nýárskveðjur með þökk fyrir árið sem er að líða.

Við sendum okkar

bestu jóla- og áramótakveðjur Þökkum viðskiptin á árinu sem er

að líða.

Afgreiðslutími um jól og áramót
23.desember 10:00 - 16:00
24.desember Lokað
25.desember Lokað
Lokað 27. - 30. desember 10:00 - 18:00
31. desember Lokað
18:00 Við óskum bæjarbúum Gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu. ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Við óskum ykkur gleðilegra jóla og þökkum fyrir viðskiptin á líðandi ári. Hlökkum til að halda áfram að taka á móti ykkur á nýju ári. Við munum halda áfram að selja íslenska framleiðslu eins og frá Pestó og brjóstsykur frá Kandís einnig munum við bjóða upp á konfekt fyrir jólin sem Biggi býr til. branding 14.08.2019 Vigtin Bakhús /vigtin /vigtinbakhus
Föstudagur
Laugardagur
Sunnudagur
Mánudagur 26.desember
Laugardagur
Sunnudagur 1. janúar Lokað Mánudagur 2. janúar 10:00 -
Við óskum viðskiptavinum okkar, sem og Eyjamönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem nú er að líða.
22:00 Á
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og þökkum fyrir viðskiptin á árinu! Starfsfólk og nemendur FÍV
hátíð og farsælt komandi ár Við óskum heimilisfólki, aðstandendum, starfsfólki og velunnurum Hraunbúða gleðilegra jóla, farsæls nýs árs og guðs blessunar. Hraunbúðir
HERRAHORNIÐ OPIÐ TIL
ÞORLÁKSMESSU
Gleðilega

Hátíð álfa, trölla og jólasveina

DAGSKRÁ 6-8. JANÚAR 2023

FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR

Hin eina sanna Þrettándagleði ÍBV. Flugeldasýning, blysför, álfabrenna, jólasveinar, tröll, tónlist og margt fleira. Gangan hefst við Hánna og gengið verður upp Illugagötu, niður Höfðaveg og að malarvellinum þar sem hinar ýmsu kynjaverur heilsa upp á gesti.

Háaloftið: Einar Ágúst spilar. Húsið opnar kl. 22:00 - frítt inn.

LAUGARDAGUR 7. JANÚAR

19:00 22:00 11:00 - 16:00

Einarsstofa: Kynjaverur úr ljósmynda- og listasafni Vestmannaeyja í Einarsstofu.

Bókasafnið: Ratleikur á Bókasafninu.

12:00 - 15:00

Langur laugardagur í verslunum. SUNNUDAGUR 8. JANÚAR

11:00 - 14:00 12:00 - 16:00 14:00 - 15:30

Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja: Tröllagleði.Fjölskyldan getur komið saman og leikið sér í íþróttasölum undir stjórn handknattleiksdeildar ÍBV.

Sagnheimar: Saga og súpa – Kjartan Másson, í samstarfi við Sævar Sævarsson útgefanda, kynnir bók sína „Engin helvítis ævisaga“ og les valda kafla.

13:00 12:00 - 13:00 13:00 - 16:00

Sagnheimar: Lokadagur leikfangasýningar.

Stafkirkjan: Helgistund í Stafkirkjunni. Sr. Guðmundur Örn Jónsson fer með hugvekju.

Höllin: Diskógrímuball Eyverja, Höllinni. Jólasveinninn mætir. Verðlaun verða veitt fyrir búninga og öll börn fá nammipoka frá jólasveininum.

Hefðbundinn opnunartími á söfnum bæjarins!

Gleðilega hátíð

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Tígull 45. tbl 04. árg. by Leturstofan - Issuu