Tígull 43. tbl 06. árg.

Page 1


43. tbl. 06. árg. 11. - 17. des. 2024

STEMNING Í BÆNUM UM SÍÐUSTU HELGI

Ljósmyndari Tíguls fór á röltið í gær um bæinn og myndaði stemninguna. Eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan þá var veðrið gott og bros á allra vörum. Jólaþorp Vöruhússins lukkaðist vel en þorpið var opið laugardag og sunnudag milli klukkan 14:00 - 16:00. Myndir: Addi London.

TÍGULL

DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd: Addi í London

Dreifing fer fram á miðvikudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

KÁTIR KRAKKAR Á VÍKINNI

ÓLÍNA EDDA BRYNJARSDÓTTIR

Fjölskyldan mín: Mamma mín heitir

Ragnheiður og pabbi minn heitir Brynjar, Krakkarnir allir Ó.. Ólöf, Óskar og Óðinn

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór ? Sex ára.

Hvað er mamma þín best í að gera ? Köku

Hvað er pabbi þinn bestur í að gera ? Pizzu

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera ? Leika í mömmó

Hvað er uppáhalds maturinn þinn ? Pizza

Hvað langar þig í jólagjöf ? Dúkku

Hvað er mamma þín gömul ? öömm fimmtán ára

Hvað er pabbi þinn gamall ? ömm hann er stærri en mamma

Hver er besti vinur/vinkona þín/þinn ? Auður

Benna

Hvað gerir þig glaðan/a ? eitthvað fyndið.

Ertu hrædd/ur við eitthvað ? Nei.

EMIL GAUTI KARLSSON

Fjölskylda: Mamma mín heitir Emma og pabbi minn heitir Karl og ég á systir sem heitir Emilía Dís

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór?

Slökkviliðsmaður.

Hvað er mamma þín best í að gera ? Vinna.

Hvað er pabbi þinn bestur í að gera ? Að taka á móti bátnum sínum.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Legoland

Hvað er uppáhalds maturinn þinn ? Hakk og spagettí

Hvað langar þig í jólagjöf ? Gull

Hvað er mamma þín gömul? Eins árs

Hvað er pabbi þinn gamall? Man það ekki

Hver er besti vinur þinn? Vignir og Jón Gísli

Hvað gerir þig glaðan? Að fara í tækin í Legolandi

Ertu hræddur við eitthvað ? uuu ekki Ref og Hreindýr, en er hræddur við Birni og Hákarl og Risaeðlu eða öll hættuleg dýr.

Pizza í kvöld?

481-1567 ( Sendum heim alla daga frá kl. 17.00

Elskuleg eiginkona mín, móðir, dóttir, systir, tengdadóttir, mágkona og frænka,

MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR

lést þriðjudaginn 3. desember síðastliðinn. Útför verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 17. desember kl. 14:00. Streymt verður frá útförinni á vef Landakirkju. landakirkja.is

NÝJA

TANNLÆKNASTOFAN

Flötum 29

Tímapantanir í síma: 481-1012

Neyðarsíminn: 844-5012

tannsi@eyjar.is

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

fyrir hönd aðstandenda

Pétur Eyjólfsson Eyjólfur Pétursson

Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,

TRAUSTI ÞORSTEINSSON

Birkihlíð 8, Vestmannaeyjum

lést í faðmi fjölskyldunnar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Vestmannaeyjum laugardaginn 30. nóvember. Útför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.

Erla Þorkelsdóttir

Sigurlaug Traustadóttir

Margrét Traustadóttir

Þorkell Traustason

Þorsteinn Þór Traustason

Bjarki Steinn Traustason

Sören Lilbæk Sörensen

Gyða Jósepsdóttir

Guðbjörg Hulda Einarsdóttir

Ósk Óskarsdóttir

og barnabörn

Fréttir frá Vestmannaeyjum

KYNNING Á LÖNDUM Í EVRÓPU

„Nemendur í 7. bekk hafa verið að vinna að verkefni síðan í vor um lönd í Evrópu í samfélagsfræðiáfanga. Í lok verkefnisins eru hóparnir með kynningu á því landi sem þeir völdu. kennararnir meta framistöðu hópanna út frá kynningunni.

Það eru tveir til fjórir saman í hóp og velja hóparnir það land sem þeim finnst áhugaverðast, hvað varðar menningu, siði og fleira. Hóparnir komu með mat, búninga, fótboltabúninga, útbúðu spurningakeppni, heimasíðu, bækling, fána og kort með helstu kennileitum svo eitthvað sé nefnt.

Gaman er að taka fram að allir lærðu að útbúa heimasíðu en það er Guðbjörg Guðmannsdóttir sem sá um þá kennslu,“ sagði Jessý Friðbjarnardóttir sem er í kennarateymi nemendanna.

Fleiri myndir má finna á vef Tíguls.

Auðunn og Jakob.
Ari og Hákon.
Jónas, Jónatan og Freymundur.
David og Trausti.
Alda og Thion.
Lilja Rut, María Sigrún og Viktoría Ninja.
Rafael Bóas, Óliver, Skarphéðinn og Andri. Kári, Ísak, Gísli og Gunnar.
Ívar, Þór, Elías og Hrafnkell.
Beta, Antonía og Kara.
Rakel og Halla Ruth.
Ingibergur, Marino og Max.
Dísella og Erna Karen.
Embla og Helga Dís.

ÞRIÐJI BEKKUR FÓR Í DAGSFERÐ

Krakkarnir í 3. KM skelltu sér í dagsferð til Reykjavíkur og heimsóttu Hallgrímskirkju og sáu leikritið Jólin hans Hallgríms.

Ferðin heppnaðist mjög vel í alla staði og voru krakkarnir öll yfir sig hrifin. Þau tóku lagið með organista kirkjunnar sem fræddi þau um orgelið sem er stærsta orgel á Íslandi.

Þau sáu einnig Hallgrímskirkju úr Legokubbum sem var fyrir aftan orgelið.

Á heimleiðinni var komið við á KFC.

Eru framkvæmdir í pípunum?

Vertu tímalega að bóka pípara í verkið!

Láttu okkur um verkið bjóðum upp á alhliða verktakavinnu. Pípulagnir, smíðar, raflagnir, múrvinnu!

aglverktakar@gmail.com // 768 5228

UPPSKRIFT VIKUNNAR

Pralín panna cotta með hafrarjóma og ferskum hindberjum

Hráefni:

400ml Oatly imat hafra matreiðslurjómi

2 stk Nirwana vegan súkkulaði með pralínfyllingu frá Rapunzel ½ tsk Agar agar duft 30g cristallino hrásykur ¼ tsk vanilluduft

Sjávarsalt á hnífsoddi

Oatly visp hafrarjómi

Fersk hindber eða önnur ber

Aðferð:

Setjið öll hráefni í pott og bræðið saman við vægan hita, leyfið suðunni að koma upp og látið malla við suðupunkt í 5 mín. Sigtið blönduna svo það séu örugglega engir kekkir. Hellið í falleg glös og kælið. Skreytið með þeyttum hafrarjóma og ferskum hindberjum. Uppskrift frá grgs.is

17 18 19 20 21

Þú færð jólaísinn hjá okkur

Bailey´s - Bismark - Toblerone - Appelsínu súkkulaði - Mandarínu Sorbet

Toblerone eða Ferrero Rocher Handgerðir ístertur fyrir hátíðarnar

Stór ísterta: 10-14 manna 6.900 kr.

Pantanir berist til linda@fjallais.is

Síðasti pöntunardagur

fyrir jólin: 20. desember fyrir áramótin: 27. desember

Er desember þinn

skoðunarmánuður?

Frumherji í Eyjum

vikuna 11. - 13. desember

Frumherji í Eyjum dagana 15. - 17. desember

Lokað í hádeginu

Tímapantanir í síma

570 9090

Frumherji - Faxastígur 38

Fylgist með á samfélagsmiðlum fyrir opnunartíma, leiki og annað skemmtilegt!

Ísbúðin Valdís Hvolsvelli valdis_hvolsvelli

Lítil ísterta: 6-8 manna 4.900 kr. í 2 lítra boxi frá og með 13. desember, 4.650 kr.

ORGELSJÓÐUR LANDAKIRKJU

Söfnun fyrir orgeli Landakirkju

Fyrsta orgel Landakirkju var gefið af dönskum kaupmanni, Johan Peter Thorkelin Bryde, og var það svokallað harmoníum. En það er orgel sem myndar tón á svipaðan hátt og harmonikka. Það er fótstigið til að mynda loft fyrir raddirnar. Það orgel er að finna á Byggðasafninu í Vestmannaeyjum. Árið 1896 var orgel Sigfúsar Árnasonar, fyrsta organista Landakirkju, leigt. En það var árið 1904 sem keypt var annað orgel í kirkjuna. Sonur Sigfúsar, Brynjúlfur tekur við keflinu af föður sínum og þá er keypt stórt harmoníum orgel í Landakirkju árið 1927. Vestmannaeyingar hafa alltaf verið stórhuga og því var gengist í það að festa kaup á pípuorgeli fyrir kirkjuna. Ekki voru pípuorgel algeng í kirkjum á Íslandi á þessum tíma. En það var einna helst kirkjur á höfuðborgarsvæðinu sem höfðu pípuorgel. Með samtakamætti samfélagsins tókst að safna fyrir nýju pípuorgeli.

Fyrsta pípuorgelið í Landakirkju var frá danska orgel smiðnum Immanuel Starup. Orgelið hafi 12 raddir sem dreift var á 2 spilaborð og pedal. Það var vígt þann 16. ágúst 1953 af Páli Íssólfssyni dómorganista sem jafnframt tók út orgelið. Orgelið kostaði um 140 þúsund íslenskra króna. Það orgel var stækkað árið 1966 og þá bætt við 5 röddum og þar með orðið 17 raddir í heildina. Það orgel er enn til í dag og má finna það á listasafni að Forsæti, þar sem orgelið er miðja sýningar salsins.

Helstu orgel þjóðarinnar á þessum tíma var Sauer orgelið í Fríkirkjunni frá árinu 1926, 33 raddir. Frobenius orgel dómkirkjunnar frá árinu 1934, 26 raddir. Stærsta orgel landsins var þá í Kristskirkju af gerðinni Frobenius frá árinu 1950, 36 raddir. Árið 1961 kom til Akureyrar

45 radda Steinmeyer orgel og var það stærsta orgel á Íslandi þar til Klais orgel Hallgrímskirkju kom árið 1992, 72 raddir.

Eftir eldgosið 1973 hafði orgelið skemmst af völdum eldgossins. Ekki létu Vestmannaeyingar á sér standa og á aðfangadag 1977 var nýtt orgel vígt. Það orgel, sem stendur enn í kirkjunni í dag, er smíðað af Vincenzo Mascioni ítölskum orgelsmið. Orgelið er 24 raddir dreift á tvö spilaborð og pedal.

Í dag, næstum 48 árum seinna er kominn tími á mikið viðhald á orgelinu. Pípuvirki þess er orðið þreytt og þar með hefur hljómur og tóngæði dalað með tímanum. Einnig er allur stjórnbúnaður þess kominn til ára sinna. Við getum rétt ímyndað okkur þær tækniframfarir sem hafa orðið í tölvubúnaði og stýringum á síðustu 50 árum. Hvert orgel er einstakt en líkt og allt annað þarf það viðhald og endurbætur. Af þessum ástæðum hefur verið stofnaður Orgelsjóður Landakirkju til að halda utan um fjármögnun á endurbótum á orgeli kirkjunnar.

Er það von Orgelsjóðsins að Vestmannaeyingar sýni þann metnað sem hefur einkennt sögu Landakirkju, í verki og styðji við það verkefni að endurbæta orgelið okkar í kirkjunnar okkar.

Fyrir hönd Orgelsjóðs Landakirkju Matthías Harðarson

Vincenzo Mascioni orgelið

ÞRAUTIR

GETUR ÞÚ TEIKNAÐ MYNDINA?

með fyrirtækjum í Eyjum!

Jólaleikur

Hvernig tek ég þátt?

Jólaleikur Tíguls er hafinn! Í síðasta, þessu, og næsta tölublaði eru tíglar faldir.

Þegar þú finnur Tígulinn þá sendir þú okkur tölvupóst með nafni, símanúmeri og staðsetningunni sem hann er falinn á og við skráum þig í pottinn.

Ef þú finnur tígulinn í öllum þremur blöðunum fer nafnið þitt þrisvar sinnum í pottinn.

Hvenær er dregið?

Dregið verður út 22. desember.

Hverju er ég að leita að?

Tígultáknið sem þú þarft að finna.

Hvað er hægt að vinna?

Meðal vinninga eru:

Icewear - Úlpur

Húsasmiðjan - Ryksuguróbot

GOTT - Gjafabréf

Póley - Gjafabréf

Heimadecor & Heimaraf - Gjafabréf

Salka - Gjafabréf

Miðstöðin - Jólastjarna m/perustæði

Skipalyftan - Gjafakassi frá Milwaukee

Skvísubúðin - Gjafabréf

Einsi Kaldi - Gjafabréf

Eydís ísbúð - Klippikort & gjafabréf

Hótel Vestmannaeyjar - Gjafabréf

Vöruhúsið - Tvær stórar pizzur af matseðli & Ostaplatti, freyðivín á

Vöruhúsinu fyrir 4-6 manns.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.