





Ég lita þær að innan með glimmeri. Vinn svo nafn hvers og eins í tölvu sem ég sker síðan út á vínyl. Eft ir að skurður er búin þarf ég að plokka nöfnin frá og setja á hverja kúlu. Eftir það er það frágangur á hverri kúlu fyrir sig. Á hverja kúlu set ég borða til að hengja kúluna upp. Ég afhendi allar kúlur frá mér í öskju sem er merkt með því nafni sem er á kúlunni svo þetta er mik ið dútl en ég vill senda vöruna fal lega frá mér.
Marta María Vídó hefur verið að bjóða upp á að gera persónulegar jólakúlur fyrir jólin. Hægt er að fá kúlurnar í mörgum litum og einnig nafnið á kúlunni.
Vinsælt er að gefa kúlu með logo uppáhalds liðsins í boltanum. Við heyrðum í Mörtu Maríu og feng um aðeins að heyra hvernig ferlið gengi fyrir sig.
Hversu lengi hefuru verið að bjóða fólki að panta hjá þér jólakúlurnar? Það var fyrir jólin í hitti fyrra (jólin 2020) sem ég gaf allri fjöl skyldunni minni jólakúlu með nafninu sínu. Þetta vakti svo mikla lukku og fékk ég strax fyrirspurnir um kúlur fyrir aðra. Það var þá sem ég ákvað að bjóða fólki uppá þetta. Sem sagt þetta er annað árið sem ég býð fólki uppá jólakúlur.
Geturu lýst ferlinu fyrir okkur, hvernig kúlan er gerð? Ég fæ kúlurnar til mín glærar.
DREIFING:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hvað er vinsælasta kúlan sem þú ert að gera?
Ég er mikið að gera kúlur fyrir ömmur og afa. Rauða kúlan hefur verið lang vinsælust. Svo hafa Þòrs og Týs kúlur verið að seljast vel til eyja, sérstaklega Týskúlurnar.
Uppáhalds kúlan?
Hmmmm veit ekki hvað skal segja, þær eru allar í uppáhaldi en þá er kannski bara gaman að gera eitt hvað svona öðruvísi og taka þátt í hápunktum hjá fólki ég hef t.d gert kúlu sem stendur á Viltu gift ast mér? Fyrstu jólin mín, Einnig kynjakúlu það er strákur!. Gaman að hugsa til þess að vera hluti af svona stórum stundum. Svo kem ur Týskúlan sterk inn enda er hún einstaklega falleg.
Hvaða litir eru í boði? Ég er líklega fljótari að segja hvaða litir eru ekki í boði ég er með ansi marga liti sem ég get gert. En svona aðal litirnir hafa
verið rauður, hvítur, silfur, gull, blár, grænn og bleikur svona svo ég nefni eitthvað en ég reyni að verða við óskum hjá fólki ef það er eitthvað sérstakt.
Hvenær er síðasti séns að panta hjá þér fyrir jólin?
Síðasti dagurinn sem ég tek við pöntunum er 10. desember.
Fyrir þá sem vilja panta, hvernig er best að gera það?
Ég er bæði með Facebook M. Vídó Kort og instagram M. Vídó Kort og er hægt að senda mér skilaboð þar. Einnig er ég með emailið: mvidokort@gmail.com og í síma 823-7711.
Ertu að bjóða upp á eitthvað fleira á síðunni þinni?
Heyrðu já ég hef boðið uppá alls konar þá aðallega úr pappír. Ég hef mikið gert af kortum, afmælis, fermingar, stúdent, skírnar og við öll önnur tilefni þá hef ég verið að gera þau persónuleg bæði eftir áhugamáli viðkomandi og einnig með nafni eða það sem fólk vill fá. Einnig hef ég gert allskyns gjafa box, nafnspjöld, veifur, kassa und ir peningagjafir, fermingarkerti, kökutoppa, barmblóm og brúðar vönd. Svo það er margt hægt að gera. Ef fólk dettur eitthvað í hug þá bara reynum við að búa það til. Inná Facebook síðunni minni M.Vídó Kort er hægt að sjá mikið af því sem ég hef verið að gera og það er alltaf að bætast við.
& Sæþór Vídó.
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey RúnarsdóttirÁ náttúruvísindalínu við Framhaldsskólann í Vest mannaeyjum velja nemendur sér valáfanga samhliða skyldunni. Líffræðiáfanginn LÍFF2EF05 fjallar um erfðafræði og er dæmi um valáfanga sem býðst nem endum. Í áfanganum er gerð grein fyrir helstu við fangsefnum erfðafræðinnar, tekin eru fyrir grunnhug tök erfða, uppbygging erfðaefnisins (DNA), rannsóknir á erfðaefninu og mikilvægi þekkingar í erfðafræði fyrir áskoranir daglegs lífs. Áfanginn er mikilvægur undirbúningur fyrir nemendur sem hyggja á nám í heilbrigðisgreinum og skyldum greinum s.s. líffræði, lífefnafræði og sameindalíffræði. Í áfanganum ljúka nemendur tveimur verklegum æf ingum. Á fyrri hluta annar er það Einangrun á DNA úr líkamsfrumum. Þá vinna nemendur með eigin þekju frumur úr munni, með því að safna þeim í munnvatn ið og einangra í framhaldinu erfðaefnið með ákveðn um aðferðum.
Þessa dagana vinna nemendur að síðari æfingunni þar sem leysa þarf morðmál (CSI FÍV) með aðferðum sameindalíffræðinnar. Við rannsóknina setja nem endur lesefni áfangans í samhengi við raunveruleg viðfangsefni. Nemendur rifja upp mikilvæg hugtök annarinnar; uppbyggingu DNA og kirna, tileinka sér nýjan fróðleik í gegnum skerðiensímin sem klippa á ákveðnar basaraðir og fá aukinn skilning á notum hinnar mikilvægu PCR aðferðar (PCR mögnun) við rannsóknir á erfðaefninu. Morðrannsóknin byggir jafnframt á þeirri staðreynd að DNA einstaklinga er einstakt og þar af leiðandi hafa engir tveir einstak lingar nákvæmlega sömu DNA uppbyggingu. Með einangrun DNA úr lífsýnum (s.s blóði, munnvatni, hári, sæði o.s.frv.) má því tengja viðkomandi við tilteknar aðstæður/vettvang.
Nemendur kynna sér forsögu málsins sem er sú að maður finnst myrtur innan veggja skólans og er málið allt hið dularfyllsta. Lífsýni á formi húðflagna finnast í talsverðum mæli undir nöglum fórnarlambsins, sem eru ekki fórnarlambsins sjálfs. Auk þess finnast á vett vangi líkamsleifar (bein), skotvopn, líffæri af óþekkt um uppruna auk smærri vísbendinga sem nemendur þurfa að rýna í og setja í samhengi við málið. Þar sem veður hefur aftrað öllum samgöngum til Eyja um nokkurt skeið er það nemenda að vinna að DNA greiningu og fá frekari lausn í viðkomandi máli. PCR mögnun sem nemendur kynna sér er rannsóknar aðferð sem er gríðarlega mikilvæg í greinum einsog erfðafræði, örverufræði og sameindalíffæði. Við morðrannsóknina læra nemendur að útbúa buffer lausnir, að steypa agarósa rafdráttargel, að undirbúa sýni fyrir rafdrátt og að hlaða sýnum á gel. Jafnframt er farið í bakgrunn aðgreiningarinnar þ.e. færslu DNA búta í rafsviði, en þar leita nemendur svara í upp byggingu DNA sameindarinnar þar sem fosfathópar innan DNA kirna eru neikvætt hlaðnir og færast því í rafsviði.
Að lokum lesa nemendur úr gelmyndum, með því að bera DNA mynstur af vettvangi við DNA sýni fimm einstaklinga sem starfa við skólann og voru beðnir sérstaklega um blóðsýni við rannsókn þessa máls. Skerðibútagreining af þessu tagi er algeng aðferð í erfðatækni og sameindalíffræði og því mikilvægt að nemendur kynnist.
Að tengja fræðin við verklega kennslu í áfangan um eykur skilning nemenda á viðfangsefninu. Auk þess kynnir verklegi þáttur áfangans áhugasöm um nemendum náttúruvísindasviðs fyrir spennandi starfsmöguleikum.
Dr. Radinka Hadzic, PhD. Raungreinakennari við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum.
Eyjamærinn Elísa Viðarsdóttir ætlar að bjóða Eyja mönnum upp á næringarþjónustu fyrir jól. Elísa er matvæla- og næringarfræðingur að mennt og hefur alla tíð haft áhuga á öllu því sem við kemur góðri heilsu og lífstíl.
„Næringarþjálfunin hjá mér snýst fyrst og fremst um það að hver og einn sé að tryggja líkamanum það sem hann þarf til að starfa eftir bestu getu. Ég fer yfir matarvenjur og hegðun og kem með hugmyndir til þess að auka líkurnar á að hver og einn sé að næra sig í takt við sínar þarfir. Viðtalið er 30-45 mínútur þar sem hver og einn fær einstaklingsmiðaðar ráðleggingar og fræðslu. Mig langar að bjóða Eyjamönnum upp á þjónustuna mína fyrir jól. Ég mun bjóða upp á þjónustuna dagana 21. og 22. desember og því takmarkað pláss í boði,“ segir Elísa að lokum.
Hægt er að panta tíma í gegnum: https://www.heilheilsumidstod.is/naeringarfraedingar/
Nú þegar jólin nálgast þá er gott að hafa í huga nokkra þætti sem geta hjálpað til við betri líðan:
1. Höldum í reglulegt máltíðarmynstur 2. Borðum næringaríka fæðu á milli jólaboða 3. njótum þess að borða i góðum félagsskap 4. drekkum nóg af vatni 5. stundum hreyfingu alla daga (öll hreyfing er góð hreyfing)
Hráefni: 150 g möndlur 2 msk chia fræ 2 msk hemp fræ 2 msk hörfræ 3 msk graskersfræ 1 msk kakó
Aðferð:
2 tsk kanill 2 skeiðar Amino Marine Collagen frá Feel Iceland 165 g döðlur, mjúkar 165 g lakkrísdöðlu 100 g dökkt súkkulaði
Látið möndlur í matvinnsluvél og malið fínt. Bætið hinum hráefnunum, að döðlum og súkkulaði undarskildu, í matvinnsluvélina og blandið vel saman. Bætið við 1 msk af heitu vatni ef gengur erfiðlega að blanda saman. Bætið svo döðlunum saman við og blandið saman.
Látið blönduna í form með smjörpappír og þrýstið blöndunni niður.
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Látið í kæli/frysti þar til súkkulaðið hefur storknað. Skerið í bita og geymið í loftþéttum umbúðum í ís skáp/frysti.
Sinnepssíld / Rauðrófusíld Graflaxinn okkar með kóríander- og fennelhjúp ásamt graflaxdressingu Reyktur lax með piparrótarsósu Hreindýrapaté / gæsalifrarpaté Hindberjadressing / Cumberlandsósa
Grafin gæsabringa með bláberja-vinagrettu Drottningaskinka, karamellaður ananas, waldorfsalat Roastbeef, steiktur laukur, remúlaði, bernaisesósa Birkireykt hangikjöt, rófustappa, jafningur, laufabrauð
Smjörsteiktar kalkúnabringur, kalkúnafylling, ljós villibráðarsósa Brakandi svínapurusteik, hvítkál, fennel og rósakál, sykurbrúnaðar kartöflur og hvítvínssósa Jóla-tiramisú Dönsk eplakaka með kanil-karamellusósu Toblerone súkkulaðimús
fyrir 12 ára og yngri
FORRÉTTAPLATTI
Drottningaskinka, karamellaður ananas, waldorfsalat Birkireykt hangikjöt, rófustappa, jafningur, laufabrauð
AÐALRÉTTAPLATTI
Smjörsteiktar kalkúna bringur, kalkúnafylling, ljós villibráðarsósa Brakandi svínapurusteik, hvítkál, fennel og rósakál, sykurbrúnaðar kartöflur og hvítvínssósa
EFTIRRÉTTAPLATTI
Dönsk eplakaka með kanil-karamellusósu Toblerone súkkulaðimús
Fjölskylda: Linda Björg, mamma Elísabet Dögun systir og Theodór pabbi.
Hvað ætlarðu að gera á jólunum? Mm mm, hitta jólasveinana.
Hvað langar þig í jólagjöf? Venom kall.
Hvaða jólasveinn er bestur? Gluggagægir. Hefuru fengið kartöflu í skóinn? Nei.
Hvað er skemmtilegast við jólin? Hitta jólasveinana og leiðast og dansa í kringum jólatréð okka.
Fjölskylda: Mamma Hafdís, pabbi Gísli Matthías, systkini eru Ástþór, Oddný Bára og Auðunn Ang antýr.
Hvað ætlarðu að gera á jólunum? Tala við jólasveinana og bara allt.
Hvað langar þig í jólagjöf?
Mommy long legs dúkku sem er hægt að tegja.
Hvaða jólasveinn er bestur? Skyrgámur og Kertasníkir.
Hefuru fengið kartöflu í skóinn? Nei.
Hvað er skemmtilegast við jólin? Uu hvað sagðiru?… bara allt nema að skreyta, því þá er mér svo illt í höndunum og fótunum.
Fjölskylda: mamma mín sem heitir Silja Rós, pabbi minn sem heitir Gústaf. Guðjón Elí stóri bróðir minn, Sara Kristey stóra systir mín og kötturinn minn Oreo.
Hvað ætlarðu að gera á jólunum? hitta jóla sveinana, skreyta jólatréð, fá flott í skóinn, baka saman, skreyta og elska fjölskylduna mína.
Hvað langar þig í jólagjöf? bíl sem ég get keyrt sjálf eða með sprota, stýri og lykli til að keyra, líka jóla LOL dúkku og kerru. Hvaða jólasveinn er bestur? ég elska alla jólasveinana, allir bestir. Hefuru fengið kartöflu í skóinn? Nei, aldrei.
Hvað er skemmtilegast við jólin? allt mjög gaman, elska jólin.
Hvernig tek ég þátt?
Í tölublaði 42, 43 og 44 höfum við falið tígultákn. Þegar þú finnur tígulinn þá sendir þú okkur tölvu póst á tigull@tigull.is eða sendir okkur skilaboð á facebook og segir okkur hvar hann er falinn, nafn og símanúmer og við skráum þig í pottinn. Ef þú finnur tígulinn í öllum þremur blöðunum fer nafnið þitt þrisvar í pottinn.
Hvenær er dregið?
Tveir vinningshafar verða dregnir út 16. desember
Hvað er hægt að vinna?
Meðal vinninga eru:
• Úlpur frá Icewear
• Airfryer frá Húsasmiðjunni
• Clarins Jólakassi í tösku frá Mandala
• Gjafakassi frà Erborian að verðmæti 10.000 frá Heimadecor
• Gjafabréf frá Sölku að verðmæti 10.000 kr.
• Ilmur & handsápa frá Miðstöðinni
• Gjafabréf frá Póley að verðmæti 10.000 kr.
• Verkfærasett frá Skipalyftunni
• 4 Irish Coffee og spiltími í pool á Lundanum
• Serum Jólaaskja frá ChitoCare
Tígultáknið eins og er falið í blaðinu!
• Hádegishlaðborð fyrir tvo á Næs
• Gjafabréf frá Skvísubúðinni að verðmæti 10.000 kr.
• Gjafabréf í Andlitsbað frá Snyrtihorni Maju
ÍBV-íþróttafélag, Blazepod – 350.000 kr. Blazepod tæki, nýtist vel í þjálfun á snerpu, í markmannsþjálfun og æfingum tengdum fótavinnu.
Heimaslóð – 750.000 kr. Uppfærsla á Heimaslóð og að sótt um að viðbótarkerfi verði sett upp sem styður betur við kort og staðsetningartæki snjall tækja.
CrossFit Eyjar – 300.000 kr. Styrkur til að bjóða nemendum GRV að gang að ókeypis CrossFit æfingum. Nám skeið 1x í viku í 3 mánuði. Kynna Cross-fit fyrir krökkunum.
Síðastliðinn sunnudag veitti Vestmannaeyjabær styrki í ýmis verkefni sem báust þeim í gegnum Viltu hafa áhrif. Njáll Ragnarsson formaður bæjarráðs afhenti styrkina og skrifað var undir samstarfssamning um hvert verkefni.
Hér má sjá lista með þeim verkefnum sem hlutu styrk: Leturstofan – 400.000 kr. Fá listamann til að mála listaverk á húsgafl Leturstofunn ar að Vestmannabraut sem lýsir sögu hússins.
Hjólafélag Vestmannaeyja – 500.000 kr. Styrkur til stígalagna, nýrra stíga og endurbóta og lag færinga á öðrum stígum.
Lista- og menningarfélag Vm, útilistasýning – 450.000 kr. Bæta við trönum og halda stóra og veglega útilistasýn ingu árið 2023
Lista- og menningarfélag Vm, smiðjudagar – 500.000 kr. Bjóða ungu fólki á opnar vinnustofur til að kynnast alls konar handverksgerð, myndlist og ljósmyndun. Verkefnið unnið í samvinnu við smiðjudaga í GRV.
Áhugahópur um Sigmund Jóhannsson – 400.000 kr. Sýningar á völdum teikningum úr safni Sigmundar auk þess að efna til dagskrár þar sem þjóðþekktir einstak lingar minnast meistara skopteikninganna. Hugmyndin er að dagskráin verði í maí 2023 og sýningarnar verði frá þeim tíma og út árið 2023
Lista- og menningarfélag Vm, sýning á Matey – 200.000 kr. Sýning verður á Matey í tengslum við hátíðina þar sem konan í sjávarsamfélaginu yrði viðfangsefni listmanna.
Magnúsarbakarí 100 ára – 500.000 kr. Afkomendur Magnúsar Bergssonar vilja setja upp minn isvarða og sýningu til minningar um Magnúsarbakarí fyrir goslokahátíð 2023. Lítill minnisvarði eða jafnvel setbekkur að Heimagötu 4. Sýning með myndum og fróð leiksmolum um Magnúsarbakarí.
Pysjueftirlitið – 200.000 kr. Styrkur til að starfrækja pysjueftirlitið 2024 og þá mun styrkur notaður til að auglýsa Pysjueftirlitið betur fyrir ferðamenn og reyna að gera Pysjueftirlitið sterkara til að takast á við áskoranir í framtíðinni. Fjölga vigtunar stöðum
Listasýningin Konur í sjávarsamfélaginu – 500.000 kr. Að fá listafólk í Vestmannaeyjum og víðar til þess að koma fram með mismunandi útfærslur á hlutverki kvenna í sjávarsamfélögum og ætlunin er að eiga samstarf við Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja og listafólk sem kemur víðar að og sýna verkin sín í september 2023. Listasmiðja náttúrunnar – 400.000 kr. Listasmiðja fyrir börn í Vestmannaeyjum á aldrinum 6-12 ára. Í listasmiðjunni sækja þátttakendur innblástur í nærumhverfi og náttúruna, fara í vettvangsrannsóknir og skissa úti. Kynnast ólíkum aðferðum við listsköpun og skissuvinnu og vinna með efnivið úr náttúru Vestmanna eyja og fá kennslu í nýjungum í listsköpun frá listgreina menntuðum kennurum.
Hollvinasamtök Hraunbúða – 350.000 kr. Styrkur til tónleikahalds veitingum fyrir heimilismenn og aðstandendur. Tveir árlegir tónleikar.
Taflfélag Vestmannaeyja – 400.000 kr. Atskákmót í tilefni af 50 ára goslokaafmæli
Rafíþróttafélag ÍBV (Jón Þór Guðjónsson) – 500.000 kr. Styrkur til LAN mótahalds í Eyjum.
Handknattleiksdeild ÍBV – 300.000 kr. Flugeldabingó
Handknattleiksdeild ÍBV – 500.000 kr. Handboltaskóli 2023.
Vestmannaeyjahöfn auglýsir starf hafnsögumanns laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf sem og bakvaktir. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hafn sögumenn Vestmannaeyjahafnar þurfa að hafa góða samskiptahæfni og færni í mann legum samskiptum sem og áhuga á að taka þátt í teymisstarfi og umbótaverkefnum
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Hafn- og leiðsaga skipa að og frá Vestmannaeyjahöfn.
• Umsjón með mengunarmálum hafnarinnar.
• Sinna hafnarvernd.
• Móttaka fiskiskipa, farskipa og annarra skipa.
• Vinna að viðhaldi búnaðar, tækja og aðstöðu.
• Afleysing á Lóðsinum og hafnarvog.
• Fylgjast með dýpi hafnar.
• Sinna jafnframt ýmsum verkefnum með hafnarvörðum.
• Sinna öðrum þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum.
Gerð er krafa um eftirfarandi þekkingu og réttindi:
• Skipstjórnarréttindi C.
• Uppfylla þau skilyrði 13. gr. laga nr. 41/2003 um réttindi til að starfa sem hafnsögumaður.
• Reynsla af skipstjórn.
• Gilt ökuskírteini.
• Tölvukunnátta.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
• Fullnægjandi heilbrigðisvottorð.
Nánari upplýsingar á vef Vestmannaeyjabæjar og hjá Dóru Björk, hafnarstjóra, í síma 488-2545 eða á netfanginu dora@vestmannaeyjar.is.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Vestmannaeyjabær hvetur alla áhugasama til þess að sækja um starfið óháð kyni. Skírteini til staðfestingar prófum og réttindum, auk sakavottorðs skal fylgja umsókn. Skila skal umsókn á netfangið dora@vestmannaeyjar.is og merkja „umsókn“. Einnig er hægt að skila umsóknum á Skildingaveg 5, 900 Vestmannaeyjum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknarfrestur er til og með 14. desember nk.
blekhonnun.is blekhonnun.is