Tígull 42. tbl 06. árg.

Page 1


42. tbl. 06. árg. 4. - 10. des. 2024

DÝRIN Í HÁLSASKÓGI

Við kynnum til leiks leikara frá Leikfélagi Vestmannaeyja sem hafa nýlokið sýningum á leikritinu, Dýrin í Hálsaskógi. Hér eru þær Guðný Emilía sem leikur ofvirku húsamúsina og Arna Gunnlaugsdóttir sem leikur Önnu íkorna.

Nafn: Guðný Emilíana Tórshamar

Aldur: 22 ára

Fjölskylda: Mamma mín heitir

Kristín Margrét Guðmundsdottir og pabbi minn heitir Helgi Rasmussen Tórzhamar, svo á

Nafn: Arna Gunnlaugsdóttir aldur: 15 ára

Fjölskylda: Drífa þöll Arnardóttir og Gunnlaugur Erlendsson eru foreldrar mínir.

Hefur þú tekið þátt í mörgum leikritum, ef já þá hverjum og hvað lékstu? Ég hef bara verið í einu leikriti á undan Dýrunum og það var Gosi, ég var ein af marglyttunum.

Hvað er skemmtilegasta hlutverkið sem þú hefur leikið og afhverju? Örugglega núna í dýrunum: Anna íkorni, Þetta er bara svo skemmtilegt hlutverk

ég systir sem heitir Ása Elín Helgadóttir og ég er guðmamma hennar Áróru Grétarsdóttur. Hefur þú tekið þátt í mörgum leikritum, ef já þá hverjum og hvað lékstu ?

Fyrsta sem ég tók þátt í var síðan eru liðin mörg ár, þá var èg bara að syngja. Ávaxtakarfan, mæja jarðarber. Rocky horror, dansari og Colombia á tveimur sýningum, svo lék ég 2 sinnum í gosa, þá var èg á einni sýningu sirkhúsbarn og strengjabrúða. Spamalot var ég karamellusystir, nunna, frakki og lík. Svo núna í dýrunum er èg krúttlega ofvirka húsamúsin. Hvað er skemmtilegasta hlutverkið sem þú hefur leikið og afhverju ?

Ég verð eginlega að segja húsamúsin, hún er ofurhress og algjörlega út úr mínum þægindaramma. Skemmtilegasti

og það er svo gaman með hinum íkornunum.

Áttu auðvelt með að læra texta utan af? Ertu með eitthvað ráð með það ? Bara lesa/ hlusta á textann aftur og aftur.

Hvert er draumahlutverkið ef þú átt eitthvað slíkt? Ekkert sérstakt bara eitthvað skemmtilegt :)

Hvað viltu segja við þann sem langar að prófa að taka þátt? Go for it.

Eitthvað að lokum? Maður verður ekki eins stór og sterkur af neinu eins og grænmeti!!!

TÍGULL

karakterinn hjá mér ekki spurning. Áttu auðvelt með að læra texta utan af ? Ertu með eitthvað ráð með það ?

Já, ég er rosalega fljót að læra og ná textum strax. Held það sé bara útaf ég byrjaði svo ung að læra fullt af söngtextum, leikritum og myndum utan af og því kemur þetta náttúrulega til mín, svo er það mitt hobbý.

Hvert er draumahlutverkið ef þú átt eitthvað slíkt ?

Draumahlitverkið mitt er dídí mannabarn úr benedikt búàlf. Hvað viltu segja við þann sem langar að prófa að taka þátt ? Ekki hika við að koma, ég þorði aldrei sjálf fyrr en það var neytt mig í það, þetta hefur bara gert gott fyrir mig og mitt sjálfsöryggi og feimni. Allir velkomnir alltaf. Eitthvað að lokum? allir skella sér í leikhús um helgina

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðvikudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is DREIFING:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Ljósakross á leiðin

Hægt að fá kross með hlýju ljósi, hvítu eða kaldara ljósi. Einnig er hægt að fá kross með rauðu eða bláu ljósi og velja um svartan eða hvítan sökkul.

Ljósnemi slekkur á krossi þegar bjart er.

Krossinn gengur fyrir rafhlöðum eða tengist rafmagni í kirkjugarði og endist rafhlaðan í um 6 vikur.

Krossinn er 55 cm á hæð en 65 cm með sökkli. Breidd er 45 cm. Hægt er að merkja kross með nafni.

KÁTIR KRAKKAR Á VÍKINNI

JÓN GÍSLI SÆVARSSON

Fjölskyldan mín: Mamma mín heitir Unnur Dóra og pabbi minn heitir Sævar. Bróðir sem heitir Tryggvi og systir sem heitir Anika.

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? þegar ég verð pabbinn ætla ég að vinna á löggustöðinni.

Hvað er mamma þín best í að gera? gera pizzu.

Hvað er pabbi þinn bestur í að gera? Horfa og er alltaf að hjálpa mér.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Spila.

Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Pizza.

Hvað langar þig í jólagjöf? svona bíl, steypubíl þegar ég á afmæli, einn steypibíllinn er bilaður.

Hvað er mamma þín gömul? þriggja ára.

Hvað er pabbi þinn gamall? Fimm ára.

Hver er besti vinur þinn? Antonio.

Hvað gerir þig glaðan? þegar ég leik við Emil.

Ertu hræddur við eitthvað? Tröllin sem voru úti í gær í dimmunni.

LENA MARÍA BJÖRGVINSDÓTTIR

Fjölskyldan mín: Mamma mín heitir Henný og pabbi minn heitir Björgvin.

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Klippingakona.

Hvað er mamma þín best í að gera? Klippa og greiða.

Hvað er pabbi þinn bestur í að gera? Laga.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Leika við Hildi.

Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Spagettí.

Hvað langar þig í jólagjöf? Kerru undir dúkkuna mína.

Hvað er mamma þín gömul? ég man það ekki.

Hvað er pabbi þinn gamall? man það ekki heldur.

Hver er besta vinkona þín? Hildur.

Hvað gerir þig glaða? Þegar mamma gefur mér gjöf.

Ertu hrædd við eitthvað? Nei.

Pizza í kvöld?

481-1567 ( Sendum heim alla daga

TANNLÆKNASTOFAN

Flötum 29

Tímapantanir í síma: 481-1012

Neyðarsíminn: 844-5012

tannsi@eyjar.is

SMIÐIR

& PÍPARAR

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Gólfhitafræsing og gólfhitalögn

Hvernig væri að lækka kyndikostnað og losna við plássfreka ofna?

Við getum tryggt 99% ryklaust vinnusvæði með M-class ryksugunni okkar

aglverktakar@gmail.com // 768 5228

Starf vélstjóra hjá Vestmannaeyjahöfn er laust til umsóknar

Frekari upplýsingar á www vestmannaeyjar is

SUDOKU

DÝRIN Í HÁLSASKÓGI

Við kynnum til leiks leikara frá Leikfélagi Vestmannaeyja sem hafa nýlokið sýningum á leikritinu, Dýrin í Hálsaskógi. Hér eru þær Lilja Sigurðardóttir og Mía Bjarný Haraldsdóttir.

Nafn: Mía Bjarný Haraldsdóttir

aldur: 13 ára

Fjölskylda: Mamma mín heitir Ása Jenný, pabbi minn heitir Haraldur Ari. Ég á þrjár systur Ara Eirný, Una Árný og Skjaldmey

Hefur þú tekið þátt í mörgum leikritum, ef já þá hverjum og hvað lékstu? Nei bara í Dýrin í Hálsaskógi sem Lísa íkorni og Uglan.

Hvað er skemmtilegasta hlutverkið sem þú hefur leikið og afhverju? Lísa íkorni því hún er skemmtilegur karakter

Nafn: Lilja Sigurðardóttir. Aldur: 16 ára

Fjölskylda: Mamma mín heitir

Elísa, pabbi minn heitir Siggi og systir mín heitir Emilía.

Hefur þú tekið þátt í mörgum leikritum, ef já þá hverjum og hvað lékstu ? Já, ég var bæjarbúi í Latabæ og marglytta í Gosa. Hvað er skemmtilegasta hlutverkið sem þú hefur leikið og afhverju ?

Ég myndi segja Paddi Broddgöltur því hann er bara skemmtilegur karakter.

Áttu auðvelt með að læra texta utan af ? Ertu með eitthvað ráð með það ?

Áttu auðvelt með að læra texta utan af? Ertu með eitthvað ráð með það ? Já á frekar auðvelt með að læra textan en eg hef engin ráð.

Hvert er draumahlutverkið ef þú átt eitthvað slíkt? Ekkert eins og er

Hvað viltu segja við þann sem langar að prófa að taka þátt? Mæli með að koma og prófa því þú kynnist fullt af fólki og skemmtir þér mjög vel.

Eitthvað að lokum? Komið endilega á sýningu.

Ég er ekki með mikið af línum í þessu hlutverki þannig já.

Eiginlega ekki, bara reyna sitt besta og æfa sig.

Hvert er draumahlutverkið ef þú átt eitthvað slíkt ? Veronica í söngleiknum Heathers, Ocean í Ride The Cyclone eða Janet í Rocky Horror

Hvað viltu segja við þann sem langar að prófa að taka þátt ? Við erum öll ein stór fjölskylda og við munum öll styðja hvert annað. Eitthvað að lokum? Bara ótrúlega gaman og vil halda áfram að taka þátt.

Hvernig tek ég þátt?

Jólaleikur Tíguls er hafinn! Í þessu tölublaði og næstu tveimur verða tíglar faldir.

Þegar þú finnur Tígulinn þá sendir þú okkur tölvupóst með nafni, símanúmer og staðsetningunni sem hann er falinn á og við skráum þig í pottinn. Ef þú finnur tígulinn í öllum þremur blöðunum fer nafnið þitt þrisvar sinnum í pottinn.

Hvenær er dregið?

Tveir vinningshafar verða dregnir út 22. desember.

Hverju er ég að leita að?

Tígultáknið sem þú þarft að finna.

Vinningar?

Við tilkynnum vinningana í næsta tölublaði.

AF HVERJU MEGA ÓFRÍSKAR KONUR EKKI PISSA ÚTI Í TUNGLSLJÓSI?

Í bókinni Svartir kettir, fullt tungl og rauðhærðar konur. Eftir Sómon Jón Jóhannsson þjóðháttafræðing, er fjallað um hjátrú af ýmsum toga, bæði innlenda og erlenda, gamalgróna og nýja. Efnið er sett  fram á skýran og einfaldan hátt og flokkað í kafla, meðal annars um dýr, tímann, líkamann, ástir og kynlíf, mat og drykk, athafnir, börn, hluti, sjúkdóma og dauði. Þá er rætt við nokkra einstaklinga úr mismunandi starfsstéttum um þá hjátrú sem fyrirfinnst í þeirra starfsumhverfi, lögreglumann, íþróttamann, flugstjóra, leikara, tónlistarmann og hjúkrunarfræðinga.

Flestir þekkja að best er að sneiða hjá svörtum köttum sem hlaupa þvert á leið manna, að það boðar sjö ára ógæfu að brjóta spegil og að talan þrettán er varasöm. Þetta flokkast undir það sem við vanalega köllum hjátrú.

Margir þjóðfræðingar nú á tímum kjósa að nota orðið hjátrú í þrengri merkingu en þjóðtrú og þá sem hluta af eða þátt innan þjóðtrúar. Hjátrú vísar til þeirrar trúar sem liggur til hliðar við það sem kallað er opinber trú, í rauninni til þess sem menn ættu ekki að trúa, á svipaðan hátt og orðin hjákona og hjáverk. Í hjátrú felast m. a. ýmsir fyrirboðar, góðs vitar og ills vitar, og þær athafnir sem menn hafa í frammi til þess að reyna að hafa áhrif á gang mála í daglegu lífi, koma í veg fyrir ólán eða auka gæfu og gengi. Þess vegna gjalda menn varhug við ýmsu – taka mark á og fara eftir ákveðnum boðum og bönnum.

Hinn hjátrúarfulli gerir ráð fyrir að í tilverunni úi og grúi af hættulegum öflum sem sífellt beri að varast, vinna gegn eða hafa góð. Einnig séu til staðar góð öfl sem nýta megi sér til hjálpar og framdráttar með ákveðnum hætti.

Forlagatrú er því samofin hjátrú.  – Hundur sem liggur fram á lappir sínar, leggur trýnið á þær og snýr mót dyrum, spáir gestakomu. Leggi hundurinn hausinn aðeins yfir vinstri framfótinn er gesturinn þjófóttur en ef hann liggur fram á hægri fót er sá sem kemur í heimsókn heiðarlegur. Þegar hundstrýnið er milli lappanna er gesturinn samsveitungi en trýni utan lappa bendir til þess að von sé á gesti úr annarri sveit.

– Brúðhjón verða að standa svo þétt saman við altarið að ekki sjái á milli þeirra því annars gengur hjónabandið ekki vel.

– Sá sem fær síðustu kaffidropana úr kaffikönnunni eignast kolvitlausa tengdamömmu.

– Ólánsvegur er að mæta svörtum köttum eða öðrum óheillakrákum svo sem rauðhærðum konum, rangeygðum o.s.frv. á leið í próf.

– Þegar hrafnar fljúga í kross yfir kirkju þá er einhver í nágrenninu feigur.

– Ef sjómenn sofa hjá nóttina áður en haldið er í veiðiferð koma þeir til með að veiða lúðu.

– Það er ólánsvegur að henda brauði því þá verða menn svangir síðar.

– Geti stúlka sem látin er setjast á baldursbrá ekki staðið upp aftur þá er hún ekki hrein mey.

– Þeir sem eru með blá augu eru gáfaðir, blíðir og skáldmæltir.

– Ótrúar eiginkonur eignast rauðhærð börn.

– Börn hætta að vaxa borði þau kertavax.

– Ógift stúlka sem sest við endann á matarborði eignast rangeygðan mann.

– Horfi menn lengi í glerið á örbylgjuofni verða þeir blindir.

– Ekki mega ófrískar konur pissa úti í tunglsljósi því þá verður barnið sinnisveikt.

– Það er ills viti að blístra í leikhúsi.

– Við bakverk er þjóðráð að binda hreina mey á bak sér eða gera band úr hári hennar og leggja við bakið.

– Til að lækna gigt á að taka inn fimm geitaspörð á fastandi maga með hvítvíni, átta daga í röð.

– Það læknar kvef að lykta af óhreinum sokkum.

– Það er góðs viti að mæta tómum líkbíl en menn verða að gæta þess að snúa sér ekki við og horfa á eftir honum. Þá er voðinn vís.

Já, og hvað er svo þetta með rauðhærðu konurnar? Skyldu þær vera hættulegri en aðrar, eða hvað?

ORÐAÞRAUT

Getur þú fundið nöfn jólasveinanna í jólatrénu?

Name: G Z M B

U K O I

M R R U S B F X T S R G T C K R

V P A Y Y S J I

B S N R H A W H

Created with TheTeachersCorner net Word Search Maker

A Y D G S T Ú F U R H K Á I H I C N I X H L M R P N U U G L W A B U L H U F Z Æ A U H S Y R I V C T A G J P B K H K

Y J D X G O A T O O A U L A J A B L I K G T T S H Z K G Z J I Z R Y R G M T W G A K O U Y R

H A P M S U P A F T A K J H G K D M

V U Z Q L K S E R K B L W K N Q O U Q E F D G H K Q S V L P Y Z A K U J Q S

S R I K I E L S A K S A R R U P E N M C U S K P W F V L K L S U K D D U H H T F V M M N V R I B J Ú G N A K R Æ K I R F U S Q Y

W Z Q J L M K F Q W A R H U R Ð A S K E L L I R

G D W L N C G Á T T A Þ E F U R Z C M J G G C I

H B I D R U A G A J L I G Y X Q P Y I E F V X M E C

B O I R H G G T W Y R R I K I E L S U R Ö V Þ W R P M L E K

V K X T O O B L M Z U U

STEKKJASTAUR GILJAGAUR STúFUR þVöRUSLEIKIR POTTASKEFILL ASKASLEIKIR

STEKKJASTAUR GILJAGAUR STÚFUR

ÞVÖRUSLEIKIR POTTASKEFILL ASKASLEIKIR

HURðASKELLIR SKYRGáMUR BJúGNAKRæKIR

GLUGGAGæGIR GáTTAþEFUR

HURÐASKELLIR SKYRGÁMUR BJÚGNAKRÆKIR

GLUGGAGÆGIR GÁTTAÞEFUR KERTASNÍKIR

KÁTIR KRAKKAR Á VÍKINNI

VIGDÍS PERLA SVERRISDÓTTIR

Fjölskyldan mín: Mamma mín heitir Jóna Gréta Grétarsdóttir og pabbi minn heitir Sverrir Marínó Jónssson.

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Kennari.

Hvað er mamma þín best í að gera ? Prjóna og prjóna og prjóna og vinna í búðinni.

Hvað er pabbi þinn bestur í að gera? Elda mat og klóra bak. Bakið hennar mömmu.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Púsla.

Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Makkarónugrautur og spaghettí.

Hvað langar þig í jólagjöf? Allskonar hluti.

Hvað er mamma þín gömul? man það ekki

Hvað er pabbi þinn gamall? ég veit það ekki.

Hver er besti vinur/vinkona þín/þinn? Sigtryggur og Ólína

Hvað gerir þig glaða? Að leika úti.

Ertu hræddur við eitthvað? Könguló og snáka, snígil og býflugu.

VIGNIR SIGURÐSSON

Fjölskyldan mín: Mamma mín heitir Annika og pabbi minn heitir Sigurður, stóri bróðir Leó er níu ára.

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Körfuboltamaður.

Hvað er mamma þín best í að gera?

Hún er best í að föndra.

Hvað er pabbi þinn bestur í að gera? að vinna, að búa til vegg.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að vera í pílu og körfubolta.

Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Hamborgari.

Hvað langar þig í jólagjöf? Regnbogablað og líka í svona afa sem er strákur sem er vélmenni.

Hvað er mamma þín gömul? Veit ekki.

Hvað er pabbi þinn gamall? Veit ekki en Leó er níu ára og ég er fimm ára.

Hver er besti vinur þinn? Emil Gauti.

Hvað gerir þig glaðan? Að borða.

Ertu hræddur við eitthvað? já eitt hús á hrekkjavökunni.

Baðlón og hótel við Skansinn

Vestmannaeyjabær kynnir á vinnslustigi tillögu að breyttu aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 ásamt umhverfisskýrslu og tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Skansinn og Skanshöfða.

Íbúafundur verður haldinn

11. desember 2024 klukkan

17:30 í Ráðhúsi

Vestmannaeyja

Gert er ráð fyrir allt að 1.500 m2 baðlóni ásamt 2.300 m2 þjónustubyggingu með veitingastað fyrir allt að 50 gesti.

Einnig er gert ráð fyrir allt að 90 herbergja hóteli á 4 hæðum sem snýr að Klettsvík í hlíðum Skanshöfða.

Gert er ráð fyrir að lónið verði hitað með varmadælum.

Skipulagsgögn verða til sýnis í Ráðhúsi Vestmannaeyjabæjar, á skipulagvefsjá sveitarfélagsins og á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Umsögnum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 19. desember 2024 í afgreiðslu Ráðhúss eða í gegnum Skipulagsgátt (https://skipulagsgatt.is/).

ÞRAUTIR

KVEIKT Á JÓLATRÉNU VIÐ STAKKÓ

Síðastliðinn föstudag voru ljósin tendruð á jólatrénu á Stakkagerðistúni.

Lúðrasveit Vestmannaeyja tók nokkur lög og Litlu lærisveinar undir stjórn Kitty Kovács syngja. Einnig tók Aron Daði Hauksson nokkur lög.

Erlingur Guðbjörnsson formaður framkvæmda- og hafnarráðs og Guðmundur prestur voru með stutt ávörp. Að lokum tendraði

Mónika Hrund Friðriksdóttir ljósin á trénu.

Meistaraflokkur kvenna í handbolta var með ristaðar möndlur ásamt kaffi og kakó.

Jólasveinarnir kíktu við og Trölli elti þá til byggða og lét sjá sig.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Tígull 42. tbl 06. árg. by Leturstofan - Issuu