42. tbl. 03. árg. 20. - 31. desember 2021
Gleðileg jól
TÍGULL Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Með þökk fyrir samveruna á árinu sem er að líða.
Ljósmynd: Halldór B. Halldórsson
Lind & Kata Laufey
TÍGULL
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Við óskum Vestmannaeyingum nær og fjær bestu óskir um
Gleðileg Jól
og farsælt komandi ár með þökk fyrir það liðna.
HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM JÓLIN JÓEL HUGINS Aldur: 7 ára Fjölskylda: Lára Dögg er mamma, Huginn er pabbi, Hlín er systir mín, amma Magga, afi Gummi, afi Egill, amma Erna, Oreó, Máni og Birta systkini mín. Finnst þér jólin skemmtileg og afhverju? ROSAROSA skemmtileg, svo gaman að maður fær pakka,fær í skóinn og allir eru saman. Hvað langar þig í jólagjöf? Markmannshanska og nýja rauða Liverpool búninginn. Hvað er mamma best í að gera? Að vera góð. Hvað er pabbi bestur í að gera? Að vera stríðukall. Hvað ert þú best í að gera? Íþróttum. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Lögregla og íþróttamaður. Afhverju eru jólin haldin? Útaf Jesú eða eitthvað og hafa gaman.
ATLAS NEO CARLSSON Aldur: 5 ára Fjölskylda: mamma mín heitir Kolbrún og pabbi minn Carl. Finnst þér jólin skemmtileg og afhverju? Fá pakka, vera úti í snjó og horfa á jólamyndir. Hvað langar þig í jólagjöf? Byssu , rafmagns sportbíl og bát. Hvað er mamma best í að gera? Elda og gera piparkökuhús Hvað er pabbi bestur í að gera? Gólfi og byggja Lego. Hvað ert þú bestur í að gera? Dansa og fótbolta Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Fótboltamaður. Afhverju eru jólin haldin? Svo að allir fái pakka og verða glaðir.
Óskum félagsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. - Stjórnin
UNDIRBÚNINGUR JÓLANNA Tinna Tómasdóttir Fjölskylda: Gift Dadda Mar og saman eigum við þrjú börn Emelíu Ögn, Nóa og Söru Björk, eigum einnig tengdasoninn Steinar Mána. Hvaða hefðir tíðkast í fjölskyldunni í kringum jólin? Þegar við bjuggum í Danmörku var hefð hjá okkur að fyrsta sunnudag í aðventu fórum við í julegløgg og æbleskiver hjá nágrönnum okkar. Á aðventunni var farið í miðbæ Odense og jólaljósin skoðuð, það var alltaf mikil ljósadýrð. Einnig vorum við með danskan julefrokost með vinum okkar um miðjan desember. Á jóladag vorum við í náttfötum fram eftir degi og fórum svo í göngutúr saman þar sem ekki voru nein fjölskyldujólaboð og svo fórum við á jólaball hjá Íslendingafélaginu á annan í jólum og versluðum íslenskt nammi í sjoppunni. Á gamlárskvöld vorum við svo með vinum okkar. Vinir og nágrannar voru svolítið okkar fjölskylda þegar við bjuggum úti og það sköpuðust hefðir með þeim. Eftir að við fluttum heim til Íslands hafa hefðirnar aðeins breyst og eru svo sem ekkert mjög fastar hjá okkur. En við förum þó alltaf á aðfangadag með tengdapabba, Mara Pípó, í kirkjugarðinn þegar farið er að rökkva og kveikjum á kertum hjá ástvinum - um leið og við söknum þeirra sem ekki eru með okkur lengur þá gefur það svo hlýtt í hjartað. Á aðfangadag er hefð að Daddi eldar matinn svo er hangikjötsveisla á jóladag hjá tengdó og oft er vinahittingur á annan í jólum þar sem tekið er í spil. Á milli jóla og nýárs á Sara Björk afmæli og þá er hefð hjá okkur að bjóða okkar nánasta fólki í pylsupartý. Einnig höfum við haft síðustu tvö ár dansk/islandsk julefrokost með vinum okkar í byrjun desember þar sem við höfum svolítið reynt að halda í danskar hefðir í mat og drykk. Gamlárskvöld er þó mitt uppáhald í kringum hátíðarnar. Þá erum við svo mörg saman og borðum uppáhalds jólamatinn minn sem er kalkúnn og þá er partý frameftir kvöldi þar sem bæði ungir og aldnir hafa gaman saman. Hvenær byrjið þið að setja upp jólaljós? Það er bara misjafnt. Áður fyrr var það oft ekki fyrr en fyrsta í aðventu eða fyrstu helgina í desember, en síðustu ár er ég farin að setja jólaljós í gluggana mun fyrr, jafnvel um miðjan nóvember. Mér finnst það notalegt og lýsir upp skammdegið. Hvenær er jólatréð skreytt? Það hefur líka breyst. Þegar við bjuggum í Danmörku vorum við með lifandi tré þannig að við röltum alltaf í Spar búðina í hverfinu í kringum 20.des og sóttum okkur jólatré og skreyttum í kjölfarið og þá mátti það ekki vera of snemma svo tréð myndi lifa fram yfir áramót. Eftir að við fluttum heim höfum við verið með alvöru tré og gervi
en þá er það skreytt í byrjun eða um miðjan desember. Mér finnst dásamlegt að setja jólatréð upp í fyrra fallinu og leyfa því að njóta sín – það er svo mikið stofuprýði í kringum hátíðarnar. Er mikill munur á hefðum núna og þegar þú varst lítil og hvað þá helst? Hefðirnar eru held ég bara mjög svipaðar, alla vega varðandi mat og veislur í kringum jólin. Undirbúningurinn er mjög svipaður og þegar við vorum lítil en kannski finnst mér helsti munurinn á því að ég er ekki að eltast við að gera „jólahreingerninguna“ eða baka fullt af sortum af smákökum. Jólin koma þó það sé ekki allt tipp topp. Er eitthvað sem má alls ekki sleppa í kringum jólahátíðina? Síðustu ár finnst mér jólin alveg vera að bresta á þegar ég hef farið á Stjörnuleikinn – hann gefur svo sannarlega gleði í hjartað. Svo finnst mér jólin endanlega vera komin þegar við fjölskyldan höfum farið í kirkjugarðinn og kveikt á kertunum og horft yfir garðinn í allri sinni ljósadýrð. Mér finnst það orðinn ómissandi partur af jólunum. Gleðileg jól. Njótið aðventunnar og samverunnar með fjölskyldunni. Það er tíminn sem við eigum saman sem skiptir máli þegar uppi er staðið – ekki allt það veraldlega.
Við sendum Vestmannaeyingum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
EYJASTRÁKAR Í ATVINNUMENNSKU Í ÞÝSKUM HANDBOLTA
Þýska handboltaliðið Vfl Gummersbach er gamalt stórveldi í þýskum handbolta. Liðið spilar í dag í annarri deild en er í toppbaráttunni um að komast upp í fyrstu deild. Þjálfari liðsins er Guðjón Valur Sigurðsson sem sjálfur lék með Gummersbach á árunum 2005-2008 og varð markakóngur á fyrsta tímabili sínu með liðinu, sem þá var í fyrstu deild. Þetta er fyrsta verkefni Guðjóns Vals sem þjálfara hjá stóru liði. Áður hafði annar íslendingur; Alfreð Gíslason þjálfað Gummersbach á árunum 2006-2008. En þetta er ekki eina tenging íslendinga við Gummersbach heldur spila tveir ungir eyjamenn með liðinu og fóru þeir þangað beint frá ÍBV. Elliði Snær Viðarsson gerði samning við liðið á haustmánuðum 2020 og Hákon Daði Styrmisson fór utan nú í haust. Liðið Gummersbach er í samnefndum bæ sem er staðsettur í 50 kílómetra fjarlægð austur frá Köln og telur bærinn um 51.000 þúsund íbúa. Elliði Snær Viðarsson hefði ekki getað beðið um betri stað til að byrja á Elliði Snær hefur verið hjá Gum-
mersbach síðan rétt fyrir tímabilið 2020/2021 en hann kom til þeirra á miðju undirbúningstímabili. “Guðjón þjálfari hringdi í mig og ég var kominn út 5 dögum seinna og rétt fyrir fyrsta æfingaleikinn, svo það gerðist frekar hratt segir Elliði. Hann segist ekki hafa getið beðið um betri stað til að byrja á og bjó hann heima hjá Guðjóni þjálfara fyrstu tvo mánuðina meðan hann var að bíða eftir íbúð. Svo það má segja að heil fjölskylda hafi tekið honum opnum örmum þegar hann mætti á staðinn. Elliði spilar á línu en er í vörn líka. Elliði átti allan sinn feril hjá ÍBV fyrir komuna til Gummersbach, en hefur einnig spilað með unglingalandsliði Íslands og landsliðinu. Elliði er með samning út þetta tímabil og var að framlengja um eitt tímabil í viðbót. Gaman að vera í litlu samfélagi þar sem fólk kannast við hvort annað Honum hefur líkað mjög vel úti, þetta er huggulegur bær og gaman að vera í svona litlu samfélagi þegar maður kemur frá Vestmannaeyjum. Stórborgin hefði ekki hentað mér vel segir Ellliði. Þó það búi ákveðinn fjöldi hérna finnur maður að þetta
er lítið samfélag og fólk kannast við hvort annað. Aðspurður um framtíðina í handboltanum segir hann að vonandi klári þeir þetta tímabil með sóma og ef allt gangi upp fari þeir upp um deild og þá í fyrstu deildina en akkúrat í dag eru þeir í efsta sæti annarrar deildar. Annars verður bara tíminn að leiða í ljós hvað gerist segir Elliði rólegur í fasi. En það er ómögulegt að segja með framtíðina, en ég stefni á að vera úti að spila alla vega nokkur ár í viðbót. Elliði passar greinilega upp á að leggja sitt af mörkum til að halda skemmtilegri stemningu í leikmannahópnum því þegar við ræddum við hann hafði hann nýlokið við að bjóða leikmönnum og starfsmönnum liðsins upp á íslenska veislu í klefanum eftir æfingu. Hann bauð þar upp á íslenskar pylsur með öllu, skyrtertu og lakkrístoppa. Vakti íslenska veislan mikla lukku. Aðspurður um stemninguna á áhorfendapöllunum að þá sagði Elliði að það sé kannski ekki alveg marktækt ennþá því allan tímann sem hann hefur spilað með Gummersbach hafa verið einhverjar takmarkanir í gangi út af Covid. Á tímabili voru engir áhorfendur leyfðir en í dag má nýta helming sæta í heimahöllinni. Mikilvægast af öllu er að hafa trú á sjálfum sér Við spurðum Elliða út í hvað maður þyrfti að gera til að verða góður í handbolta. “Það þarf bara að leggja á sig mikla vinnu til að ná langt og það þarf að huga að mörgum þáttum.. Mæta á aukaæfingar, mæta á lyftingaræfingar og hafa rétta hugarfarið til að fara alla leið, það er kannski það mikilvægasta af öllu að hafa trú á sjálfum sér” sagði Elliði. Jólin í Þýskalandi Gummersbach spila leik milli jóla og nýárs svo það lá beint við að spyrja Elliða hvernig jólin yrðu í Þýskalandi.
Gleðileg Jól Vinnslustöðin óskar starfsmönnum sínum til lands og sjávar, Vestmannaeyingum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla með ósk um farsæld, frið og gæfu á nýju ári.
Vinnslustöðin hf
hafnargata 2
900 Vestmannaeyjar
vsv@vsv.is
www.vsv.is
“Þau verða áhugaverð annað árið í röð. Í fyrra vorum við þrír saman á jólunum, ég, Arnór bróðir minn og Guðjón þjálfari en núna verðum við átta saman, ég Hákon Daði, bróðir hans og kærasta, svo Óðinn nýji leikmaðurinn sem er hérna tímabundið í fjóra leiki og svo koma Arnór og tveir vinir mínir í heimsókn”. Eins og staðan er núna stefna þeir á að vera með nautasteik og graflax í forrétt en ekki er búið að skipuleggja eftirréttinn. En hver skyldi nú elda jólamatinn ? Elliði reiknaði með að hann og Beddi vinur hans yrðu yfirmenn í eldhúsinu þó það væri ekki búið að negla neitt niður ennþá. Hákon Daði Styrmisson að upplifa drauminn Hákon Daði kom út til Gummersbach 20.júlí 2021 og spilar hann vinstra horn. Hann var búinn að vera hjá ÍBV samfleytt síðustu þrjú ár en hefur einnig spilað með Haukum. Hann segir að það hafi gerst hratt snemma síðasta vors að skrifað var undir samning við hann. Hann er með samning hjá Gummersbach til 2024. Aðspurður hvernig það sé að vera kominn í atvinnumennsku segir Hákon “Fyrir mig er það geðveikt, það er búið að vera draumur og nú er draumurinn byrjaður og það er alveg magnað, það gerðist líka bara allt í einu”. Hákon Daði segir að hann hafi markvisst stefnt að þessu markmiði, sérstaklega síðustu þrjú árin og hafi innst inni vitað að hann fengi tækifæri á einhverjum tímapunkti. Það sé auðvitað svo munur á því að geta orðið einbeitt sér að handboltanum í stað þess að þurfa að vinna fulla vinnu með líkt og hann þyrfti að gera ef hann væri að spila með félagsliði á Íslandi. Geggjaður klúbbur, flottur bær og umgjörðin tipp, topp ! Hákon Daði er mjög ánægður í Gummersbach og segir að honum finnist klúbburinn geggjaður, bærinn ótrúlega flottur og umgjörðin í kringum handboltaliðið sé tip, top. Svo sé þjálfarateymið ótrúlega gott og framtíðarsýnin hjá félaginu stór og mikil. Hann segir að andinn í liðinu helgist svoldið af því að liðið sé frekar ungt og allir að róa í sömu átt.
Elliði Snær og kærastan hans Sóldís Eva.
Hann segir að það séu allir að leggja sig ótrúlega mikið fram og æfingarnar séu góðar. Viljinn er fyrir hendi að ná langt sem sé frábært. Strákarnir í liðinu reyna svo að gera stundum eitthvað skemmtilegt saman fyrir utan æfingar til að tengjast betur. Það eru stundum matarboð á milli, farið í spa og fleira. Flestir í liðinu tala þýsku en þeir sem gera það ekki fá einkakennslu í þýsku tvisvar sinnum í viku, það skiptir sérstaklega miklu máli að við getum talað allir saman segir Hákon. Hann segir að þýskan fari öll að koma hjá sér En hvernig sér Hákon Daði framtíðina fyrir sér í handboltanum. “Mig langar að vera úti og spila fyrir besta liðið sem mér er kostur á , langar að vera úti og vera í landsliðinu, það eru mín markmið”. En hvernig leggst það í Hákon Daða að halda jól í Þýskalandi? “Það verður öðruvísi, en verður örugglega ógeðslega gaman og við verðum saman nokkrir sem erum góðir vinir. Svo það leggst bara vel í mig” sagði Hákon að lokum.
Stuðningsdýrið Gummi
Mamma hans Hákons Daða: María Guðný Sigurgeirsdóttir.
Óskum bæjarbúum gleðilegra jóla ÍSLANDSBANKI og farsældar komandi ári. KEMUR á TILBÚIN
HÁLFNAÐUR AÐ GANGA Í KRINGUM HNÖTTINN Skálholti, að því að draga saman kvæðin og sálmana sem finnast með nótum í íslenskum handritum. Þar birtist undrafögur veröld,” segir Kári. Hann vann að þessu verkefni með Helgu og fleirum á árunum 1998-2005 og segir að kveðskapurinn hafi verið sitt svið en að Helga hafi séð um að fá tónskáld til að útsetja tónlistina. “Margir komu að þessu verkefni og heil veröld eins og birtist út úr handritunum, tónskáld, fræðimenn og aðrir hafa síðan haldið verkefninu áfram með ýmsum hætti,” sagði Kári að lokum.
Kári hefur alltaf haft yndi af bókum og hér er hann aðeins 4 ára með bók við hönd.
Kári Bjarnason forstöðumaður Safnahúss Vestmannaeyja er fæddur árið 1960 og bjó lengstum í 101 Reykjavík. Hann ólst þó upp að hluta í Breiðholtinu og þegar hann var þrettán ára var hann sendur í Reykjanesskóla sem var heimavistarskóli við Ísafjarðardjúp. Hann var þar í þrjá vetur, var sendur þangað að eigin sögn sem venjulegur pörupiltur af mölinni. Kári minnist þessa tíma með hlýhug. “Ég verð að segja að þetta var einn besti skóli ævinnar. Ég þurfi að rífa mig sjálfur upp af eigin mætti eins og Munchausen greifi forðum og naut jafnframt þeirrar gæfu að eignast þar góða vini sem hafa fylgt mér alla ævi, það er mér mjög dýrmætt,” segir Kári. Kári hefur alltaf haft yndi af bókum og fór að vinna á Landsbókasafninu 1989 og fór fljótlega í handritadeild Landsbókarsafnsins. Þar var hann helst að vinna með gömul íslensk handrit frá 17. , 18. og 19. öld. Kári er íslenskufræðingur en hann tók lauk einnig námi í heimspeki. Hans áhugasvið eða sérsvið er handrita- og bókaheimurinn og að vinna við menningararfinn. “Það er merkilegt við þessi gömlu handrit að þú sérð ekkert endilega það sem er þarna heldur það sem þú telur að eigi að vera þarna. Þú horfir á hin skrifuðu orð en lítur framhjá hinum fallegu myndskreytingum, nótum sem víða sjást í handritum og fleira sem þarna finnst og er fyrir utan hið skrifaða orð. Fyrir tilviljun varð það hlutskipti mitt í allmörg ár að vinna með Helgu Ingólfsdóttur, sem þekktust er sem stjórnandi Sumartónleika í
Hafði aldrei komið til Vestmannaeyja og ekki pælt neitt sérstaklega í þeim Kári vann að verkefninu í Reykjavíkurakademíunni og hætti á Landsbókasafni. Þegar verkefnið var búið var hann á ákveðnum tímamótum í sínu lífi. Það var þá sem að hann fékk tilboð um styrk til þess að vinna næstu fjögur árin meira með íslensku handritin. En skilyrðið fyrir styrknum var að flytja út á land enda handritin öll þaðan. Frosti Gíslason sá um að útbúa vef ásamt vini sínum sem geymdi vinnuna við verkefnið. “Frosti stakk upp á því að ég myndi flytja til Eyja en ég hafði aldrei komið til Vestmannaeyja á ævinni og hafði ekki pælt neitt sérstaklega í þeim. Elliði Vignisson kom svo í Reykjavíkuarakademíuna í júní 2006 og talaði mig endanlega inn á að koma hingað. Einu minningarnar sem ég hafði um Vestmannaeyjar fram að þeim tíma var að ég átti að mæta í íslenskupróf að morgni 23. janúar árið 1973. Ég var illa undirbúinn fyrir prófið og því stressaður en þegar ég mætti í prófið þá sagði kennarinn okkar að það yrði ekkert próf þar sem það væri byrjað að gjósa í Vestmannaeyjum,” segir Kári. Maður á auðvitað ekki að segja svona en þessi 13 ára krakki þakkaði þarna Guði fyrir að hafa bjargað sér undan prófinu, þó aðferðin hefði kannske verið ansi stórtæk. Skrýtin tilviljun Þau hjónin ættleiddu barn frá Kína árið 2007 en það voru 8 fjölskyldur í hópnum sem fór saman út og voru þau að hittast reglulega hjá hvert öðru allt frá árinu 2005. Í hópnum voru hjón frá Vestmannaeyjum, Sarah Hamilton og Víkingur Smárason. Þegar Kári kynnist þeim segist hann hafa hugsað, skrýtið að búa í Eyjum, hvernig ætli það sé? Hópurinn ákvað að hittast að ári liðnu frá ættleiðingu í Vestmannaeyjum. Kári hugsaði með sér að það gæti verið gaman að fara í fyrsta skipti til Eyja. Svo leið tíminn og þegar þetta ár var liðið og hópurinn hittist í Eyjum var hann og fjölskyldan þá þegar flutt til Vestmannaeyja. Skrýtin tilviljun.
Þau tóku hús á leigu sem þau keyptu í framhaldinu enda fundu þau fljótt hvað það er gott að búa í Eyjum og engar áhyggjur af börnunum að hafa. En Kári og fyrrverandi konan hans Ágústína eiga tvær stelpur. “Eldri stelpan okkar, Jóna María var þá 8 ára en hún er 23 ára í dag og býr hér líka í Eyjum. En hún er ólétt og á von á sér í febrúar svo það styttist í að ég verði afi í fyrsta sinn,” segir Kári. Kári ætlaði sér að vera í 4 ár í Eyjum en svo gerist það að starf forstöðumanns losnar. Þá ákvað hann að sækja um og fékk starfið. “Þá byrjaði að falla með mér mesta gæfan sem er að geta tengt starfið (Safnahúsið) við að vinna með menningararfinn í Vestmannaeyjum. Mesta undrunarefnið mitt þegar ég flyt hingað er hvað menningararfurinn hér er mikill og víðfeðmur. Ég hafði alls ekki áttað mig á því áður en ég kom hingað. Á hverjum morgni geng ég glaður og þakklátur til vinnu og lít á það sem forréttindi að fá að vinna við mitt mesta áhugamál. Ég hef einnig verið óvenjulega heppinn með að kynnast góðu fólki sem hefur mikinn áhuga á að vinna með menningararfinn úr Eyjum á svo margvíslegan hátt og er ávallt tilbúið til að leggja mikið á sig í sjálfboðavinnu til að ná því,” segir Kári. Hann bætir því við að hann sé einnig lánssamur með samstarfsfólk enda ekki hægt að ná nokkrum árangri öðru vísi en sem samstillt starfsmannaheild. Klausturferðir Kári hefur farið fjórum sinnum frá árinu 2005 í eitt stærsta klaustur Bandaríkjanna eða að jafnaði á um 5 ára fresti. Klaustrið er staðsett á risastóru eiginlandi í um tveggja klukkustunda akstursfjarlægð frá Boston. Klaustrið býður upp á það sem mætti kalla tímabundna heimilisgesti. Þar er tekið á móti allt að tveimur til fjórum utanaðkomandi aðilum á ári og þeim leyft að kynnast klaustrinu innan frá í þrjá mánuði. En Kári reiknar ekki með að fara aftur á lífsleiðinni, enda þótt reynslan hafi
Kári í klaustrinu 2005. Myndin er tekin við jarðarför eins reglubróður og þá er venja að nunnur af nærliggjandi klaustri komi í heimsókn
ævinlega verið stórkostleg. “Þetta er gott samfélag með um 80-90 reglubræðrum og framfleyta þeir sér með því að búa til alls konar hluti, á borð við sultu, bjór o.fl. Fyrir mig var ferðin þangað tilraun til að núllstilla sig og setja fókusinn rétt. Fannst heillandi að komast inn í þennan heim og fá að fara þarna á bakvið, líkt og fara þúsund ár aftur í tímann. Þarna var ekkert sjónvarp, ekkert útvarp og enginn sími og í raun ekkert nema fullkomin þögn. Ég tók þátt í öllu, fór á hverjum degi sjö sinnum til kirkju, tvisvar til vinnu og var þrisvar við sameiginlegt borðhald svo ég kynntist lífi bræðranna ansi vel. Við borðhaldið var lesið upp úr bók og var það kannski það eina sem maður heyrði af mannlegu máli þann daginn. Það mátti tala á vinnutíma sem er þá á milli 09:00-12:00 og svo 14:00-16:00 en oft voru menn að vinna einir svo það var ekki mikið sagt innan þessa tíma heldur. Klausturlífið kennir manni þó fyrst og fremst að meta gæði þess sem maður hefur. Maður kynnist því að hér eru einstaklingar sem hafa farið þá leið í lífinu sem fæstir ná í dag. Þeir hafa gefið mikið frá sér til að fara þessa leið og maður sér hvað þetta hefur styrkt þá og gert þá að betri manneskjum. Einkennilegt með þessa einstaklinga hvað það er inngróið í þá að gera allt fyrir aðra / gefa af sér án þess að fá neitt í staðinn. Þeir missa allt, jafnvel nafnið sitt þegar að þeir fara í klaustrið, eru ekkert og eiga ekkert. En þá, kannske, er maður loksins orðinn eitthvað sem máli skiptir! Trúarbrögð, fótbolti og eftirsjá Ég hef töluvert lesið mér til um trúarbrögð og sú áhugaverðasta er Hindúismi enda þótt ég telji mig vera kristinnar trúar. En ég held að öll trúarbrögð séu að segja sama hlutinn. Trúarbrögð eru einfaldlega mismunandi leiðir að einu og sama markinu, segir Kári. Kári les töluvert og er alltaf með nokkrar bækur í gangi í einu. Einnig er hann að lesa mikið í íslenskum fræðum. Hann hefur mikið dálæti af Njálu, heldur mikið upp á Völsungasögu og svo eru ýmsir rithöfundar eins og Gunnar Gunnarsson og Halldór Laxness. Hefur mikið gaman að lesa ljóð og jafnframt mikinn áhuga á ýmsum trúarlegum ritum. “Þar hefur mér sem dæmi fundist tímaritið Gangleri, rit guðspekifélagsins vera frábær andleg næring.” Kári horfir ekki mikið á sjónvarp en hefur gaman að fótbolta, hans lið er Manchester United og hefur verið í tugi ára. Hann hefur unun af því að fara á Hásteinsvöll, bæði á leiki hjá stelpunum og strákunum og hefur mætt á flesta leiki að frátöldum síðastliðnum tveimur árum vegna covid. Eitt af því sem Kári sér mest eftir er að hafa ekki farið í skátana þegar hann var lítill. Hann telur það eitt það flottasta og besta sem er í boði til að örva börn til útiveru og heilnæms lífernis og vill hvetja foreldra til að ýta börnum sínum í skátastarfið. Tvennt finnst honum vera einstakt í Eyjum, náttúrufegurðin og nábýli við hafið. “Ég hef fulla trú á því að hafið gefi manni orku og jákvæðni.
Maður ræður yfir sínu hugarfari, velur að vera jákvæður og lausnamiðaður. Ég vel að hreyfa mig mikið og borða hollt því það er gott fyrir mann og það margverðlaunar sig,” segir Kári. Kominn hálfa leið hringinn í kringum jörðina “Hippókrates, faðir læknisfræðinnar sagði eitt sinn: Það er til eitt lyf við öllum veikindum – það er ganga. Ég trúi þessu staðfastlega, segir Kári. Hann gengur að lágmarki 15.000 skref á dag sem eru um 12 kílómetrar eða sem jafngildir 4500 - 5000 kílómetrum á ári eða sem nemur því að arka árlega þvert yfir Bandaríkin. Fyrir fjórum árum síðan gaf samstarfsfólk Kára honum gjafabréf í Geisla og hann keypti sér heilsuúr fyrir peninginn. Það gerbreytti lífi hans. Hann segist að vísu alltaf hafa haft unun af því að ganga, er ekki með bílpróf og aldrei þurft á bíl að halda. Hann gekk um allt þegar hann bjó í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann einnig vann og sama er að segja um hér í Eyjum. “Samt breytti heilsuúrið lífi mínu varanlega,” segir Kári. Í þessi 4 ár hef ég markvisst tekið líf mitt í gegn, fyrst hreyfingu og enda þótt ég hefði verið gönguhrólfur fyrir tíma úrsins þá snarjókst meðvitund mín um gildi hreyfingar og mikilvægi þess að vera alltaf að. Á þessum fjórum árum síðan ég fékk heilsuúrið hef ég gengið sem samsvarar um 20.000 km. sem svarar til að gengið sé um hálfa leið um miðbaug kringum hnöttinn. Lykilatriðið til að ná þessu er að enginn dagur má falla út. Kári hefur gert tilraunir með skrefafjöldann en hann komst að því að 15 þúsund skref eru passleg, það er mikið en ekki of mikið, segir hann. Hann prófaði 20 þúsund skref sem eru um 15 kílómetrar og fannst það of mikið, aðallega hversu tímafrekt það er. Til að ná markmiði sínu gengur hann því til og frá vinnu, upp og niður stiga og allar sínar ferðir. Ef vantar upp á skrefin eftir daginn þá skellir hans sér í göngutúr til að klára skref dagsins. Eftir því sem maður eldist þá áttar maður sig betur á því að það er ótrúlega mikið sem er á okkar eigin valdi, auðvitað ráðum við ekki því hvað kemur fyrir okkur en við ráðum hinu hvernig við vinnum úr því sem að kemur
Kári Bjarnason.
fyrir okkur. Ég hef smám saman sökkt mér dýpra í lestur á bókum um heilsusamlegt líferni, hollt mataræði og hreyfingu og þá sé maður að það er ekki nóg að taka bara einhvern einn lið fyrir, heldur þarf að hafa heildarmyndina og kjarninn í heildarmyndinni er hreyfing, hollt mataræði, rétt hugarfar og hugleiðsla,” segir Kári. Þá stundar hann einnig lotubundnar föstur og segir að þær séu ótrúlega hollar og mikilvægar ef þær eru stundaðar af skynsemi. Kári borðar langmest af fiski en fær sér kjöt á hátíðum eða við önnur tilefni. “Fiskurinn er ótrúlega hollur matur að ekki sé talað um fiskmeti í svona sjávarplássi þar sem fiskurinn syndir nánast beint upp á diskinn hjá manni.” Hann saknar fiskbúðarinnar sem var hér og vill fá fiskbúð aftur. Vilji er allt sem þarf, sagði skáldið og er Kári sammála því. Viljinn skapar ákvörðun. Ákvörðunin laðar fram rútínuna, áður en þú veist af er það sem það sem þig langaði raunverulega til að gera orðið að inngróinni venju. “Við erum skaparar eigin lífs langt umfram það sem við áttum okkur að jafnaði á,” segir Kári að lokum.
Við óskum öllum Vestmannaeyingum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum fyrir viðskiptin á liðnum árum. Opnunartími síðustu daga Smart verður auglýstur inn á facebooksíðunni okkar.
Hátíðarkveðja
HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM JÓLIN HLÍN HUGINS Aldur: 10 ára Fjölskylda: Mamma heitir Lára, pabbi heitir Huginn, liti bróðir heitir Jóel, stóru systkini mín heita Máni og Birta. Hundurinn minn heitir Oreó. Finnst þér jólin skemmtileg og afhverju? Rosalega skemmtileg. Útaf því að ég er mikið með fjölskyldunni minni, stundum kemur snjór og fullt meira. Hvað langar þig í jólagjöf? Mig langar í nýja rauða Liverpool búninginni, fótboltaspjöld og eitthvað fótboltadót. Hvað er mamma best í að gera? Öllu en mest að knúsa. Hvað er pabbi bestur í að gera? Stríða og öllu. Hvað ert þú best í að gera? Að teikna, fótbolta og kannski eitthvað meira. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Spila fótbolta með ÍBV. Afhverju eru jólin haldin? Því þá fæddist Jesú. branding
Vigtin Bakhús
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og þökkum fyrir viðskiptin á líðandi ári. Hlökkum til að halda áfram að taka á móti ykkur á nýju ári.
AFMÆLISTILBOÐ 14.08.2019
Við erum tveggja ára þann 21.desember og verðum með skemmtileg afmælistilboð í tilefni þess fram að jólum.
/vigtin
/vigtinbakhus
Vigtin Bakhús
Við óskum Vestmannaeyingum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs VERSLUN.SKELJUNGUR.IS
GUÐRÚN ERLINGS Nafn og fjölskylda: Guðrún Erlingsdóttir, kölluð Rúna, ég er gift Gylfa Sigurðssyni. Börnin okkar eru Erling Þór, Bjartey og Jóhanna Björk. Í eyjum búa bæði barnabörnin okkar Bjartey Ósk og Eyþór Addi sem hafa erft listagenin frá móður sinni og eru algjörir snillingar og svo eru það tengdasynirnir Sæþór Gunnarsson og Þórir Helgi Hallgrímsson báðir eyjapeyjar. Við hvað starfarðu? Ég hóf störf hjá Félagi grunnskólakennara 2019 en var þar á undan blaðamaður á Morgunblaðinu. Hver er tenging þín við Vestmannaeyjar? Ég er fædd og uppalin í Eyjum og bjó þar í 50 ár. Ég vann við ýmis störf en lengst af var ég formaður Verslunarmannafélags Vestmannaeyja og síðar formaður deildar VR í eyjum. Ég tók þátt í skátastarfi, æfði handbolta og var virk í félagsstörfum. Var m.a. bæjarfulltrúi í átta ár og varaþingmaður um tíma. Við Gylfi fluttum til Hafnarfjarðar 2013, þaðan á Álftanes og enduðum í Garðabæ fyrir tæpum þremur árum. Hvernig kom þetta jólalag til þín? Var það í vinnslu lengi? Friður á jólanótt kom til mín á Álftanesi í kringum jólin 2016 . Mér var litið út um gluggann og fann kyrrðina sem fylgdi stjörnubjörtum himni í logni með jörðina þakta nýföllnum snjó. Textann kláraði ég mjög fljótt og lagið sjálft fylgdi með en ekki viðlagið, þrátt fyrir að textinn við viðlagið væri tilbúinn. Mig langaði að hafa textann innihaldsríkann þar sem boðskapur jólanna kæmi fram. Það má segja að þetta sé saga um ást og kærleika og frið og þá frelsun að finna þetta allt á jólanótt. Fyrir þá sem það kjósa getur textinn fjallaðu um það að finna ástina á jólanótt.
Ertu búin að semja mörg lög og á hvað löngum tíma? Ég samdi 13 lög á árunum 2011 til 2013 á meðan við bjuggum í eyjum. Á þeim tíma samdi ég lag og texta þegar andinn kom yfir mig. Eftir að ég flutti frá eyjum hætti ég að semja í þrjú ár. Ég byrjaði svo aftur þegar við fluttum á Álftanes þar sem stutt var í sjóinn, þar samdi ég Friður á jólanótt og fimm önnur lög eftir það. Eitt lagana er við texta Hannesar Hafstein en það er eina lagið sem er ekki með texta eftir mig. Viðlagið við Frið á jólanótt samdi ég 2020 en það var mín fyrsta tónsmíð á píanó, fram að því hafði ég samið á gítar. Ertu mikið jólabarn? Já, ég er það og var mjög fastheldin á jólahefðir en það hefur breyst og ég nýt aðventunnar í meira mæli en áður. Hvað er uppáhalds jólalagið þitt? Friður á jólanótt að sjálfsögðu. Ó helga nótt er nú samt alltaf jólalegasta lagið. Hvað ertu með í jólamatinn? Ef ég er heima þá er það kalkúnn og Hamborgarhryggur en í ár verðum við hjá Jóhönnu Björk og Þóri og þar verður hamborgarhryggur í boði. Hvað er það sem þér finnst mest jólalegast? Aftansöngurinn hvort heldur er í kirkjunni eða útvarpinu. Svo er það eins og sungið er um í Friður á jólanótt, stjörnubjartur himinn, snævi þakin jörð og kyrrðin og helgin sem ríkir á aðfangadagskvöld.
Við óskum Vestmannaeyingum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs NÝJA TANNLÆKNASTOFAN
FRÁR VE 78
CMYK // 100 | 66 | 0 | 2
// 69 | 7 | 0 | 0
Pantone // 286 // 298 Hönnun // Eyjasýn ehf / Sæþór Vídó / sathor@vido.is
Sjómannadagsráð
Bílaverkstæði GRINDAVÍKURHÖFN
HARÐAR & MATTA
Við óskum Vestmannaeyingum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
HELLUGERÐ AGNARS
MEÐ ALLT Í RÖÐ OG REGLU OG ER MIKILL VALSARI Tígull kíkti við hjá Birgi Reimari í vikunni og hann tók heldur betur vel á móti blaðamanni Tíguls. Birgir er búinn að búa núna einn í nokkra mánuði í nýju íbúðinni sinni og líkar það mjög vel. Það er allt í röð og reglu hjá kappanum. Hann er mikill Valsari og er hann með merki Vals upp á vegg. Hann er búin að setja upp jólatré og skreyta íbúðina vel. Svo sýndi hann blaðamanni Tíguls stoltur allt Tígul safnið sitt, en hann á öll blöð Tíguls sem komið hafa út. Enda er Birgir annar blaðberi Tíguls. Við birtum stutt viðtal við hann á tigull.is eftir nokkra daga.
Við óskum viðskiptavinum okkar sem og öðrum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á liðnu ári og vonumst til að sjá ykkur á því nýja.
Kærleikskveðjur, Starfsfólk Miðstöðvarinnar
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Við sendum okkar bestu jóla - og áramótakveðjur Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
STARFSFÓLK APÓTEKARANS ÓSKAR VIÐSKIPTAVINUM SÍNUM GLEÐILEGRAR HÁTÍÐAR Afgreiðslutími um jól og áramót:
Vestmannaeyjar 18. des kl. 11–16
27. des kl. 10–18
23. des kl. 9–20
31. des kl. 9–12
24. des kl. 9–12
1. jan LOKAÐ
25. des LOKAÐ
2. jan LOKAÐ
26. des LOKAÐ
3. jan kl. 10–18
Vesturvegur 5 S: 481 3900
– lægra verð
UNDIRBÚNINGUR JÓLANNA Daníel Geir Moritz skemmtilegt fyrir okkur krakkana (þótt að þeim hafi pottþétt fundist þetta ennþá skemmtilegra en okkur) og að reyna að fá fólk á Norðfirði til að skreyta meira og gera bæinn jólalegri. Það fór þá svo að þegar húsin í ættinni hættu að skera sig jafn mikið úr var keppni hætt. Við unnum samt oftast, en ekki að maður sé að spá í það svona þannig. Hvenær er jólatréð skreytt? Jólatré er skreytt á Þorláksmessu og helst við tóna Bubba Morthens. Það er alger snilld.
Fjölskylda: Sigurleif Kristmannsdóttir, Kristrún Día og Inga Margrét. Hvaða hefðir tíðkast í fjölskyldunni í kringum jólin? Við borðum skötu í hádeginu á Þorláksmessu og pizzu um kvöldið. Á Aðfangadag er möndlugrautur nauðsyn en hjá okkur togast aðeins á færeyskur jólagrautur, sem er hefð frá fjölskyldunni minni, og risalamande, sem er hefð í Leifu fjölskyldu. Þrátt fyrir að sá færeyski sé mikið betri eru báðar útgáfur á boðstólnum. Við förum í kirkju á jólum, auðvitað, og svo reynum við að horfa á jólamyndir þegar tími gefst til. Það er sama hvað maður horfir á margar jólamyndir að Home Alone hefur hingað til ekki verið toppuð. Það er hlustað á jólalög nánast allt haustið og þar er ég lang ýktastur, enda mikill jólalagamaður. Á Aðfangadagskvöld höfum við farið til tengdó upp í Hrauntún að borða það sem þau kalla lambahamborgarhrygg. Sko, þar sem Vestmannaeyingar tala um tríkot, þvottaRhús (sem er sumsé herbergi fyrir þá bara einn þvott) og allt of oft fyrir bakvið, beið ég spenntur eftir að
vita hvað lambahamborgarhryggur væri. En það er sumsé léttreyktur lambahryggur, og hann er geggjaður. Á jóladag förum við í kaffiboð til Siggu Ingu, másu. Annan í jólum er svo karllægur siður hjá mér þar sem Leifa og stelpurnar fara eitthvert í heimsókn á meðan ég býð góðum mönnum í Jóla-Moritz. Á þeirri hátíð er boðið upp á villibráð, síld, graflax o.fl. ásamt svellköldum og enska boltanum. Við höfum líka tamið okkur að skrifa jólakort og pælið í því hvað það væri skemmtileg hefð ef allir myndu gera það. Fátt skemmtilegra en að lesa góðar kveðjur um miðnætti á aðfangadagskvöld. Hvenær byrjið þið að setja upp jólaljós? Við (eða Leifa) byrjum að setja upp jólaljós um svipað leyti og fyrsti í aðventu gengur í garð. Í fjölskyldunni minni fyrir austan var árleg jólaskreytingakeppni og kepptust þá pabbi og bræður hans við lægvísa ættingja þar sem skreytt var úr öllu hófi. Markmið þeirrar keppni var tvíþætt; annars vegar að gera eitthvað
Er mikill munur á hefðum núna og þegar þú varst lítill og hvað þá helst? Í grófum dráttum er lítill munur. Ég kem úr rosalega mikilli jólafjölskyldu og Leifa líka. Við erum því mikil jólafjölskylda með okkar dætur. Það er samt munur á að fyrir austan eru stanslaus jólaboð og veislur á meðan þetta er rólegra hér í Eyjum. Sem sannarlega hefur sína kosti líka. Er eitthvað sem má alls ekki sleppa í kringum jólahátíðina? Hin svokölluðu jólarjómahorn eru algerlega ómissandi. Það er laglega uppskrúfað heiti frá móður minni á fyrirbæri sem fólk kallar skinkuhorn. Þau eru vissulega í smá sparifötum í þessari uppskrift og algerlega ómissandi á jólunum. Mér finnst líka ómissandi að fá mér skötu og að fara í kirkju. Ég hef aldrei skilið fólk sem á enga tengingu við jólasöguna eða kirkjuna þegar kemur að jólum. Án þess að við ræktum trúna á fullu allt árið um kring, þá er það einhvern veginn órjúfanlegur hluti af jólunum. En svarið sem mig langaði mest að koma með er auðvitað jólabjórinn, bara svo því sé haldið til haga.
Við óskum landsmönnum gleðiríkrar hátíðar og farsældar á nýju ári Starfsfólk Ísfells
ÍSFELL
Þekking og þjónusta isfell.is • Sími 5200 500
UNDIRBÚNINGUR JÓLANNA Þórey Friðbjarnardóttir
sem pökkunum fjölgaði í skottinu á bílnum því maður fékk auðvitað pakka frá öllum til baka. Mamma var á meðan heima að græja matinn. Svo voru líka jólaboðin sem amma Jessý og systur hennar skiptust á að halda. Þar var alltaf spilað hundrað og einn og þvílík keppni og fjör. Í seinni tíð var svo tengdó alltaf með heljarinnar mikið jólaball á jóladag þegar allir krakkarnir voru litlir og kom þá jólasveinn með gjafir. Greyið Jóa Ben var oftast troðið í jólasveinabúninginn og kom hann með gjafir handa krökkunum og mikið fjör. Svo eldast börnin og þá auðvitað dettur þetta upp fyrir sig. En mikið var alltaf gaman.
Fjölskylda: Eiginmaðurinn Benóný Benónýsson og synirnir, Friðbjörn Sævar og Binni Þór, tengdadóttirin Sigrún Þorsteinsdóttir og auðvitað kötturinn Bruce. Það er nú ekki heldur hægt að gleyma “barnabörnunum” Rjóma og Tertu. Hvaða hefðir tíðkast í fjölskyldunni í kringum jólin? Hefðirnar hafa auðvitað breyst með tímanum og matarhefðirnar líka. Áður fyrr var alltaf hangikjöt á aðfangadag en eftir að við Binni fórum að halda jól heima með okkar strákum þá höfum við alltaf haft fyllta kalkúnabringu. Binni fann einhverja svaka fína uppskrift á youtube sem hann masteraði með fyllingunni frá mömmu sinni. Við erum nú ekkert rosa stressuð yfir hefðum heldur spilum þetta bara eftir hendinni hverju sinni. Við höfum til dæmis eytt jólunum á Kanarí með allri tengdafjölskyldunni sem var ógleymanlegt. Ég á eftir að prufa jól í Ameríku en við Lilja vinkona höfum oft talað um að halda jól þar saman í ellinni. Hvenær byrjið þið að setja upp jóla ljós? Við setjum ekki upp jólaljósin fyrr en eftir 1. des. Hvenær er jólatréð skreytt? Það
er nú bara mjög misjafnt. Þegar ég var í náminu og prófum fram til 21. des þá var það oft gert ansi seint. Núna kannski bara helgina fyrir jól eða þegar maður er í stuði til þess. Er mikill munur á hefðum núna og þegar þú varst lítil og hvað þá helst? Það er kannski ekki mikill munur en eins og ég sagði áður hefur þetta auðvitað breyst heilmikið. Þegar ég var krakki var alltaf hefð að keyra pökkum út á aðfangadag og taka stutta heimsókn til allra í leiðinni. Ég man hvað mér þótti það alltaf gaman. Hitta alla fjölskylduna, ömmur og afa og spenningurinn jókst eftir því
Er eitthvað sem má alls ekki sleppa í kringum jólahátíðina? Það er auðvitað mikilvægast af öllu að hafa fólkið sitt hjá sér. Þegar maður eldist fara pakkarnir að spila minna hlutverk og samverustundir og kósý stærra. Að vera saman og hlæja saman er bara best. Spila skemmtileg spil og lesa góða bók. En ef það er eitthvað sem má ekki klikka þá er það eplapæið hennar mömmu. Það eru bara ekki jól án þess. Uppskriftin er algert leyni og er fengin frá vinkonu mömmu, Margo Renner, og er því amerísk. Mig minnir að formið hafi líka komið sér ferð frá Ameríku.
Lundinn pöbbinn í Eyjum Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir það liðna!
HÁTÍÐAROPNUN: Opið alla daga frá kl. 16:00
Alltaf opið og frítt inn
UNDIRBÚNINGUR JÓLANNA Guðrún Kristín Sigurðardóttir Fjölskylda: Sigurður Þór Símonarson, Jón Berg Sigurðsson, Bergþóra Sigurðardóttir, Símon Þór Sigurðsson og hundurinn Depill. Hvaða hefðir tíðkast í fjölskyldunni í kringum jólin? Við förum öll fjölskyldan mín saman á Einsa Kalda í kringum Þorláksmessu og erum við um 20 saman og er það orðin hefð að gera þetta og er þetta alltaf jafn gaman. Við höfum alltaf möndlugraut í hádeginu á aðfangadag og erum það við, Sigga Stína og hennar leggur hér í eyjum og skemmtum við okkur alltaf vel. Við komum í jólapeysum og jóladerhúfurnar verða vera líka. Þegar grauturinn er búinn, fara Siggi og krakkarnir til mömmu með jólapakka og er þá Ingi hennar Svandísar líka og fengið sér kaffi hjá mömmu. Á aðfangadag erum við alltaf með lax í forétt og þar sem ég er smá vesen þá eru kalkúnabringur í aðalrétt og heimatilbúinn ís á eftir. Hvenær byrjið þið að setja upp jólaljós? Ég reyni að byrja snemma að setja ljósin upp, Sigga til mikillar gleði. Þetta er dimmur tími og gott að hafa þau uppi. Hvenær er jólatréð skreytt? Það er misjafnt með jólatréð en ég setti það upp í síðustu viku. Er mikill munur á hefðum núna og þegar þú varst lítil og hvað þá helst? Jólin eru allt öðruvísi núna en þegar ég var barn. Mamma bakaði mikið og var það allt sett uppá háaloft og var geymt þar og var oft freistandi að stelast þangað og næla sér í smá gúmmelaðikökur. Pabbi sá um að skreyta jólatréð á Þorláksmessu .Ég man að það mátti ekki hringja og ekki leika við neinn á jólum, mér fannst það ömurlegt. Svo er mamma alltaf með okkur á jóladag en í ár ætlar hann Birkir og Lísa að taka við af mömmu. Er eitthvað sem má alls ekki sleppa í kringum jólahátíðina? Partarnir sem hún tengdamóðir mín gerir má alls ekki sleppa með hangikjöti og svo nammi krans sem ég geri alltaf.
Við óskum ykkur gleði og friðar um jólin og gæfu á nýju ári. Þökkum fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða!
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Hafðu það notalegt um jólin Árlegur jólastyrkur N1 rennur nú til Píeta samtakanna, Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og Fjölskylduhjálpar Íslands. Við sendum skjólstæðingum þeirra, viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðilega hátíð.
440 1000
n1.is
ALLA LEIÐ
UNDIRBÚNINGUR JÓLANNA Guðbjörg Guðmannsdóttir
Nafn & fjölskylda: Guðbjörg, Óskar, Kristín Klara, Jósúa Steinar og Nóel Gauti Hvaða hefðir tíðkast í fjölskyldunni í kringum jólin? Við reynum að skapa sem flestar gæðastundir með börnunum og fjölskyldum okkar. Það er hið hefðbundna og skemmtilega sem er alltaf í desember eins og piparkökuskreytingar, laufabrauð, jólabíó, spilakvöld, jólaljósa-ísbíltúr og jólabakstur. Við systur förum líka alltaf saman að sjá kór Landakirkju á jólatónleikunum þar sem mamma er að syngja með kórnum. Við erum alltaf heima hjá okkur á aðfangadag og fáum við annað hvort mömmu mína og ömmu í mat eða tengdó. Jólasteikin er kalkúnn en hann er í miklu uppáhaldi hjá öllum. Aðfangadagur hefst að sjálfsögðu í náttfatakósý og í hádeginu borðum við jólagraut með systur minni og fjölskyldu. Svo er farið í göngu upp á Helgafell, sem er orðin 25 ára gömul hefð, sem endar í kirkjugarðinum á helgistund. Milli jóla og nýárs stendur Óskar í ströngu ásamt Gumma fósturbróður sínum að gera fjölskyldu áramótaskaup sem Gummi hefur séð til þess að það sé gert í ár í 13. skiptið.
Hvenær byrjið þið að setja upp jólaljós? Við erum alltaf að byrja fyrr að setja upp ljós. Það kemur oft upp púki í mig snemma í nóvember að fara finna til og setja upp og svo held ég að þetta Covid ástand ýti enn meira undir að mann langi til að skreyta fyrr og fara í kósýgírinn. En svona um miðjan nóvember þá eru alltaf einhver ljós komin upp. Hvenær er jólatréð skreytt? Skreytinganefndin ákvað að þessu sinni að setja upp jólatréð snemma í ár og var það skreytt þann 3. desember, annars höfum við yfirleitt skreytt það í kringum 15.-20.des. Við vorum mjög ánægð fjölskyldan að gera þetta svona snemma og held að þetta verði ný hefð héðan af. Er mikill munur á hefðum núna og þegar þú varst lítil og hvað þá helst? Hlutirnir voru kannski meira fastir í skorðum líkt og með að skreyta jólatréð þá var það alltaf gert á þorláksmessukvöldi þar sem við systurnar kepptust við að koma því í heilu lagi upp. Í dag eru hefðirnar kannski meira orðnar hvað passar hverju sinni án þess þó að hefðirnar tapist ekki. Ætli við séum ekki orðin víðsýnari og betri við okkur að láta
ekki hefðirnar stjórna okkur of mikið. Er eitthvað sem má alls ekki sleppa í kringum jólahátíðina? Það má ekki gleyma að njóta og skapa sem flestar minningar með fólkinu okkar. Desember er dásamlegur mánuður og við reynum að vera dugleg að nýta tækifærin þegar þau gefast. Allt gert í fínu jafnvægi að hitta sem flesta og líka að slaka á og njóta.
Allt jólaskraut
25% afsláttur
Öll jólatré Gervi og lifandi
20% afsláttur
Smíðakennari í Barnaskóla (5.-10. bekkur), 90-100% starfshlutfall Grunnskóli Vestmannaeyja - GRV Í Grunnskóla Vestmannaeyja eru rúmlega 500 nemendur og er skólinn starfræktur á tveimur starfsstöðvum, annars vegar í Barnaskóla v/Skólaveg og hins vegar í Hamarsskóla v/Bessahraun. Við Grunnskóla Vestmannaeyja er laus eftirfarandi staða, framtíðarstarf. Smíðakennari í Barnaskóla (5.-10. bekkur), 90-100% starfshlutfall. Viðkomandi þarf að hafa leyfisbréf til kennslu, vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúinn í öflugt samstarf. Hafa velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Starfsmaður þarf að geta hafið störf 3. janúar. Möguleiki er á undanþágu fyrir iðnmenntaðan einstakling sem hefur áhuga og hæfni til að gegna starfinu. Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri í síma 488 2202 eða á netfangið: annaros@grv.is. Launakjör eru greidd samkvæmt kjarasamningi KÍ og SÍS. Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020 Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar eða með tölvupósti á annaros@grv.is. Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og leyfisbréf auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.
Umsóknarfrestur er til 27. desember 2021.
Kvenfélagið Líkn sendir öllum bestu óskir um Gleðileg jól og farsælt komandi ár með kærum þökkum fyrir allan stuðningin á árinu.
VIÐ ÓSKUM VESTMANNAEYINGUM
GLEÐILEGRA JÓLA
OG FARSÆLS KOMANDI ÁRS. ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA. Opnunartími yfir hátíðarnar: 23. 24. 25. 26. 27. 28. - 30. 31.
7.500 kr. start pakki caliburn + oplus gildir til 3. janúar
desember desember desember desember desember desember desember 1. janúar 2.janúar 3. janúar
11:00 11:00 Lokað Lokað 11:00 11:00 11:00 Lokað Lokað 11:00
- 22:00 - 15:00
- 15:00 - 18:30 - 15:00
- 18:30
ALLIR NIKOTINPÚÐAR Á 695 KR. ÓHÁÐ MAGNI Djákninn // Strandvegur 47 // djakninn.is
Afgreiðslutími um jól og áramót Fimmtudagur 23.desember 10:00 - 18:00 Föstudagur 24.desember 10:00 - 12:00 Laugardagur 25.desember Lokað Sunnudagur 26.desember Lokað Mánudagur 27.desember 11:00 - 16:00 Föstudagur 31. desember 10:00 - 12:00 Laugardagur 1. janúar Lokað Sunnudagur 2. janúar 11:00 - 16:00
•
VA PE
SHO
P
•
Við óskum bæjarbúum
Gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu.
UNDIRBÚNINGUR JÓLANNA Kolbrún Inga Stefánsdóttir kringum okkur hvar sem við erum i heiminum. Hvenær er jólatréð skreytt? Við erum ekki með neinn sérstakan dag.
Fjölskylda: Maðurinn minn heitir Carl Eliassen og saman eigum við einn strák hann Atlas Neo (5 ára) Hvaða hefðir tíðkast í fjölskyldunni í kringum jólin? Við hlustum mikið á jólatónlist og horfum á jólamyndir. Gerum piparkökuhús og að sjálfsögðu stendur jólasveinninn
(skóinn útí glugga) alltaf uppúr hjá okkar manni. Þar sem við búum ekki á Íslandi þá höldum við alltaf í hefðina að seta skóinn útí glugga 13 dögum fyrir jól. Hvenær byrjið þið að setja upp jólaljós? Í byrjun desember þá byrjun við alltaf að gera jólalegt í
Er mikill munur á hefðum núna og þegar þú varst lítil og hvað þá helst? Já alveg ótrúlega mikill munur. Ég sjálf hef ekki verðið á Íslandi í 7 ár og aldrei eftir að ég varð móðir. Við erum búin að vera í Kína, Thailandi og Spáni síðastliðin ár yfir jólin og í ár verðum við Noregi í skíðaferð með tengdafjölskyldu minni. Ég sjálf á yndislegar minningar út minni barnæsku yfir jólin. Það er enginn betri en hún mamma mín i því að skreyta og baka. Þau hjónin á Kirkjubæjarbraut 1 sáu til þess að á aðfangadag væri purusteik með öllu tilheyrandi komið á borðið rétt fyrir 18:00, búið að baða allt liðið og allir klæddir í sitt fínasta dress (með tilheyrandi stressi) en núna erum við yfirleitt bara við 3 lengst útí heimi en við sjáum alltaf til þess að við borðum góðan mat, spilum og opnum pakka. Er eitthvað sem má alls ekki sleppa í kringum jólahátíðina? Eina sem má ekki sleppa er góða skapið. Og njótum þess að vera í kringum fólk sem við elskum.
Við óskum heimilisfólki, aðstandendum, starfsfólki og velunnurum Hraunbúða gleðilegra jóla, farsæls nýs árs og guðs blessunar HSU - Hraunbúðir
Gleðileg jól!
icelandaircargo.is Við óskum Vestmannaeyingum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs – og þökkum kærlega fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Við hlökkum til að starfa saman á ný á næsta ári. Gleðilega hátíð!
TASTE SUPER DAIRY
GLEÐILEGA HÁTÍÐ
HELDUR ÁFRAM AÐ SEMJA VIÐ LEIKMENN FYRIR ÍBV- B Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐJÓN MÁR JÓNSSON Lést föstudaginn 10. desember. Útför hans fór fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum mánudaginn 20. desember klukkan 13:00. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Laufey Konný Guðjónsdóttir Markús Björgvinsson Kristín Jóna Guðjónsdóttir Þráinn Óskarsson Jón Ingiberg Guðjónsson Barnabörn og barnabarnabörn
Tígull kíkti í heimsókn til Gumma í vikunni og fékk að kíkja á nýju íbúðina hans. Íbúðin er vel merkt ÍBV-B enda er Gummi varaformaður liðsins. En þeir voru einmitt að keppa síðustu helgi. Gummi er nú þegar byrjaður að semja við nýja leikmenn, hann nefndi þá: Nökkva Dan, Hermann Hreiðarsson, Vigni Stefánsson, Kára Kristján, Andra Heimi og Egil Gillz. Gummi er mjög kátur með nýju íbúðina sína og er með allt á hreinu, þrif og tiltekt er ekkert mál. Við birtum stutt viðtal við hann á tigull.is eftir nokkra daga.
Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár Starfsfólk og nemendur FÍV
Við sendum landsmönnum öllum hugheilar jólaog nýárskveðjur með þökk fyrir árið sem er að líða.
ÚTBOÐ Kirkjugarður Landakirkju stækkun Sóknarnefnd Landakirkju óskar eftir tilboðum í stækkun kirkjugarðsins í Vestmannaeyjum. Um er að ræða stækkun kirkjugarðsins til austurs. Gera nýja stíga, skipta um jarðveg undir þeim, steypa kantveggi og helluleggja stígana. Jafna út jarðvegsyfirborð og sá grasfræi í það og / eða tyrfa. Koma fyrir raftenglum og raflýsingu. Óskað er eftir tilboðum í verkið í heild sinni eins og fram kemur á uppdráttum og því er lýst í útboðs-og verklýsingu. Verkinu skal vera lokið 30. september 2022. Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofu PZ ehf Kirkjuvegi 23, sími 481 2711 og netfang tpz@teiknistofa.is, frá og með 20. desember 2021. Bjóðendum er boðið til kynningarfundar í Kirkjugarðinum miðvikudaginn 5. janúar 2022, kl.13:30. Þar verða mættir fulltrúar verkkaupa. Tilboði skal skila á frumriti tilboðsforms í lokuðu umslagi merktu heiti útboðs, „Kirkjugarður Landakirkju stækkun“ á skrifstofu Landakirkju, fyrir kl. 13:45 föstudaginn 14. janúar 2022. Sama dag kl. 14:00 verða tilboðin opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
LISTRÆN SYSTKINI
Bjartey Ósk og Eyþór Addi Sæþórsbörn eru listræn systkini. Þau eiga ekki langt að sækja hæfileikana en þau eru börn Bjarteyjar Gylfadóttur, myndmenntakennara og listamanns og Sæþórs Gunnarssonar bílamálara. Fyrir þessi jól tóku systkinin bæði þátt í myndasamkeppni.
Dómnefnd á vegum Lionsklúbbs Vestmannaeyja valdi mynd Bjarteyjar Óskar sem er í 7. bekk GRV sem framlag skólans í keppni sem 16 aðrir grunnskólar á landinu tóku þátt í. Mynd Bjarteyjar Óskar varð þar svo fyrir valinu sem framlag Íslands í alþjóðlegu friðarveggspjaldakeppni Lions en þemað í keppninni 2021– 2022 er, Við erum öll tengd.
Vænta má úrslita í keppninni eftir áramót. Mynd sem Eyþór Addi teiknaði er ein af þremur myndum nemenda í fyrsta bekk sem prýða munu jólakort Vestmannaeyjabæjar þetta árið.
Opnunartími yfir jólin Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja 23. desember
Þorláksmessa
06.15-17.00
24. desember
Aðfangadagur
08.00-11.00
25. desember
Jóladagur
Lokað
26. desember
Annar í Jólum
10.00-14.00
31. desember
Gamlárs
08.00-11.00
1. janúar 2022
Nýársdagur
Lokað
2, janúar 2022
Sunnudagur
09:00 - 18:00
7. janúar 2022
Föstudagur
06:15 - 17:00
(þrettándinn)
Virkir dagar frá 20. desember til 3. janúar 06.15 – 21.00
Starfsmenn Íþróttamiðstöðvar óska öllum sundlaugargestum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þakkir fyrir góðar stundir á árinu.
Gleðilega hátíð