42. tbl. 04. árg. 30. nóvember - 6. desember 2022








42. tbl. 04. árg. 30. nóvember - 6. desember 2022
skipta verkum á milli sín um jól og áramót. Við tókum létt spjall við þau. Þau eiga saman synina Leó Snæ og Breka Frey.
Þau hafa alltaf haldið jól og áramót heima eftir að strákarnir fæddust og eru oft með gesti yfir hátíðarn ar. Verkefnum í kringum hátíðarnar er yfirleitt skipt þannig að Maja sér um jólin, allt frá því að kaupa og pakka inn gjöfum, skreyta og elda jólamatinn. Finnur sér alfarið um áramótin og allt sem þeim fylgir. „Sér þá einnig um að elda, enda er oftast betri matur á áramótunum sem allir bíða eftir. Við þyrftum kannski að skoða þetta með að sjá um matinn betur hahaha,“ sagði Maja og hló.
„Ég veit ekki hvort það eru endilega jöfn skipti enn það fá allir að gera það sem þeim finnst skemmti legast.“
Maja segir skemmtilegustu verkefni náttúrulega vera að skreyta jólatréð sem hún fær að sjálfsögðu að gera með smá hjálp stundum, enn strákunum finnst skemmtilegast að velja og kaupa flugeldana og auð vitað er alltaf keyptur heill hellingur af þeim.
Eru enn að móta hefðirnar „Það eru engar sérstakar hefðir hjá okkur, bara þetta venjulega held ég eða jú við skerum út laufabrauð hjá tengdó og gerum karamellukrans. Strákarnir fara alltaf í sund á aðfangadag. Við erum annars enn að móta þær en það er eitt sem má ekki sleppa og hefur alltaf verið gert það er að horfa á Christmas vacation myndina öll saman í kósý, mæli með því. Nýjasta hefðin er að vera bara í náttfötum um jólin, það bíða hvort sem er allir eftir því að fara í þau.“
María Erna Jóhannesdóttir og Finnur Freyr HarðarsonUppáhalds eftirréttur fjölskyldunnar er ís og þá sér staklega heimagerður Toblerone ís. „Það besta við þennan tíma er að vera öll saman í fríi að njóta og hitta fjölskyldu, vini og vandamenn.“ Aðspurð hvort þau spili yfir jólin segir Maja að þau hafi ekki mikið spilað um jólin þar sem þau hafa oft
ast farið í að kubba allt legoið sem var í jólapökkun um en kannski fer það að breytast núna með eldri börnum.
Þá segir Maja að Finnur sé tvímælalaust betri kokkur enn hún betri bakari. Maja hefur þó alltaf séð um að kaupa allar gjafir nema eina.
Undanfarin ár hefur námsframboð í listtengdum áföngum aukist til muna í Framhaldsskólanum í Vest mannaeyjum og samhliða því hefur ásókn nemenda einnig aukist. Boðið hefur verið upp á áfanga á borð við Hugmyndavinnu og ferli, grunnáfanga í málverki og teikningu þar sem farið er í grunnatriði teikningar eins og t.d. módel- og hlutateikningu, fjarvídd og fleira. Lögð er sérstök áhersla á verklega vinnu í tím um sem og heima en einnig læra nemendur að tjá sig um listsköpun sína og tengja við fræðilega þætti eins og t.d. listasöguna. Í lok hverrar annar setja nemendur upp sýningu með lokaverkum sínum, í sýningarrými skólans sem hefur fengið nafnið Mordor. Nemendur í áfanga er kallast Listir og menning setja sömuleiðis upp sýningu í lok annar en sá áfangi er skylda fyrir þá sem eru á bóknámsbrautum. Í honum er farið yfir mikilvægi sköpunarinnar í lífi mannkyns og hvern ig listin hefur átt stóran þátt í að móta og skrásetja sögu okkar í gegnum tíðina. Nemendur læra einnig af hverju nútímalist er eins og hún er og fyrir vikið læra vonandi að meta hana betur og hvernig hún speglar mannlegt eðli ogsamfélag.
Í amstri dagsins hefur mörgum nemendum þótt gott og jafnvel notalegt að koma í myndlistartíma og njóta þess að vera í núinu og teikna eða mála enda hefur það virkað sem slökun fyrir marga listamenn í gegn um söguna eins og t.d. hinn franska Henri Matisse. En myndlist er ekki bara slökun heldur er hún einnig raunhæfur starfsvettvangur. Þeir sem hafa farið í list nám á framhalds- og háskólastigi eru að sinna fjöl breyttum störfum eftir nám, á sviði kjarnalistagreina og menningar eins og t.d. myndlist, tónlist, leiklist o.s.fr.v., og jafnvel í skapandi greinum svo ég tali nú ekki um kennslu. Sem hefur ekki einungis jákvæð áhrif á hagkerfið okkar heldur fyrst og fremst á auðugt og fjölbreytt lista- og menningarlíf.
Fh. FÍV Jóna Heiða SigurlásdóttirFjölskylda: Mamma mín heitir Tinna og pabbi minn heitir Smári. Stóri bróðir minn heitir Hákon Þór og litla systir mín heitir Una Marín.
Hvað ætlarðu að gera á jólunum? Horfa á bíó og fá smá nammi. Líka smá að hvíla mig.
Hvað langar þig í jólagjöf? Fánapúsl og nammi pening.
Hvaða jólasveinn er bestur? Hurðaskellir og Stekkjarstaur.
Hefuru fengið kartöflu í skóinn? Nei.
Hvað er skemmtilegast við jólin?
Að vera í fríi, fara á Stakkó og hitta jólasveinanna. Og að jólaskreyta og fara í bakaríið á jólunum.
Fjölskylda: Mamma mín heitir Guðrún Veiga og pabbi heitir Guðmundur Þór Valsson. Einn bróðir sem heitir Valur Elí.
Hvað ætlarðu að gera á jólunum? Syngja og borða nammi. Ég ætla líka að lita og kyssa pabba.
Hvað langar þig í jólagjöf? Stóran bíl.
Hvaða jólasveinn er bestur? Ég veit ekkert hvað þú ert að tala um. Bara ein hver sveinki.
Hefuru fengið kartöflu í skóinn? Nei, aldrei.
Hvað er skemmtilegast við jólin? Að fá pakka og ég ætla að opna alla pakkana sem allir eiga.
Fjölskylda: Margrét Lára og Kristján og Óliver og hann er eins árs.
Hvað ætlarðu að gera á jólunum? Gera eitthvað skemmtilegt og fara út að leika í snjónum.
Hvað langar þig í jólagjöf? Pes og risa, risa, risa bangsa.
Hvaða jólasveinn er bestur? Hurðaskellir.
Hefuru fengið kartöflu í skóinn? Nei, ég hef sko ekki fengið kartöflu í skóinn.
Hvað er skemmtilegast við jólin? Snjókarl.
Ísfélagið gefur öllum bæjarbúum einstaka jólasíld, á meðan birgðir endast. Afhending fer fram í portinu við frystihús Ísfélagins að Strandvegi milli kl. 12 og 14 laugardaginn 3. desember.
Hvernig tek ég þátt?
Í þessu blaði ásamt næstu tveimur blöðum höfum við falið tígultákn. Þegar þú finnur tígulinn þá sendir þú okkur tölvupóst á tigull@tigull.is eða á facebook og segir okkur hvar hann er falinn og við skráum þig í pottinn. Ef þú finnur tígulinn í öllum þremur blöðunum fer nafnið þitt þrisvar í pottinn.
Hvenær er dregið?
Tveir vinningshafar verða dregnir út 16. desember
Hvað er hægt að vinna? Þetta er veglegur jólaleikur. Meðal vinninga eru: Úlpur frá Icewear Airfryer frá Húsasmiðjunni Clarins Jólakassi í tösku frá Mandala Gjafabréf frá Sölku að verðmæti 10.000 kr. Ilmur & handsápa frá Miðstöðinni Við kynnum fleiri vinninga í næsta blaði Tíguls.
virkir dagar: 07:30 - 18:00 og laugardaga 10:00 - 12:00
Aðventudagatalið inniheldur fimm glugga, fjóra til að opna á hverj um sunnudegi fram að jólum og fimmta gluggann á aðfangadag sem inniheldur eitt verkfæri sem einungis er fáanlegt í dagatalinu.
Að auki fylgir skafmiði þar sem möguleiki er að vinna til verðlauna. 110 vinningshafar munu vinna verðlaun sem eru alls að verðmæti um 4,6 milljónir króna (34.000 eur).
Með kaupum á dagatalinu sparar þú allt að 40% miðað við að kaupa verkfærin stök. Verð: 13.990 kr.
Kertalukt
verð: 18.000 kr.
Falleg lukt á leiðið fyrir friðarkertin.
verð: 20.943 kr.
verð áður: 26.179 kr.
Vikuna 5-9. desember ætlum við í Heimaey, hæfingu, að vera með opinn jólamarkað hjá okkur milli klukkan 13-15 þessa daga.
Við munum bjóða upp á smákökur og með því
Einnig viljum við minna á smásöluna hér hjá okkur á kertunum okkar góðu.
Tek við pöntunum til 10. des. með nafni eða næstum hverju sem er!
Framtíðarstarf
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi til þess að bætast í hóp öflugra starfsmanna Húsasmiðjunnar í Vestmannaeyjum. Um er að ræða fjölbreytt starf sölurágjafa í verslun og timbursölu. Helstu verkefni eru sala, afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini, almenn umhirða í verslun ásamt öðrum almennum verslunarstörfum.
Við leitum að söludrifnum einstaklingi sem hefur mikla þjónustulund, sýnir frumkvæði í starfi, er lausnamiðaður og býr yfir góðum samskiptahæfileikum.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af verslunar- og/eða þjónustustörfum er kostur
• Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
• Sterk öryggisvitund
• Almenn tölvukunnátta
• Lyftararéttindi eru kostur
Nánari upplýsingar um starfið gefur Jón Örvar van der Linden á jonsi@husa.is. Umsóknarfrestur er til 18. desember Sótt er um á ráðningarvef Húsasmiðjunnar www.husa.is/laus-storf
Skannaðu kóðann og skoðaðu starfið
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf fljótlega. Hvetjum alla áhugasama til þess að sækja um, óháð kyni.
Húsasmiðjan og Blómaval bjóða upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi. Starfsmannafélag Húsasmiðjunnar er öflugt og stendur fyrir fjölbreyttum og skemmtilegum uppákomum yfir árið.
Gildin okkar eru: Áreiðanleiki Þjónustulund Þekking
Hráefni:
Franskbrauð Smjör 300 g Steinselja 1 poki Hvítlaukur 1stk. Humarhalar 800 g Sítrónupipar
Aðferð:
Franskbrauð, skorpur skornar af og brauðið flatt út með kökukefli. Smjörið, steinseljan og hvítlaukurinn (kraminn) og sett í pott þar til smjörið hefur bráðnað.
Humar settur á brauðið, kryddað með sítrónupipar og rúllað upp.
Brauðinu er svo dýft í smjörið, á bök unarplötu og inn í ofn á 180 gráður í ca. 10 mínútur. Borið fram með hvítlaukssósu og salati, tilvalið sem forréttur yfir hátíðina.
Hráefni:
Eggjarauður 6 stk. Flórsykur 6 msk. Vanilludropar 1 tsk. Amarettólíkjör 3 msk. Kaffiduft 1 msk. Rjómi 0,5L Súkkulaðispænir 150 g Möndluflögur 50 g
Aðferð:
Eggjarauðum og flórsykri hrært vel saman. Kaffidufti leyst upp í líkjör og vinulludropar settir með. Stífþeyta rjóma. Öllu blandað varlega saman. Súkkulaðispænunum og möndluflögun um bætt við í lokin.
Við komum þeim til skila til vina og vandamanna daginn eftir um allt land ef pakkinn berst okkur fyrir kl. 14.*
Eitt verð fyrir alla pakka undir 45 kg að þyngd og 50 50 50 cm að stærð – aðeins 1.500 kr. Það sama gildir um jólamatinn, við erum sérfræðingar í flutningi á kæli- og frystivöru.
Skráðu þína sendingu á eimskip.is Það er einfaldast og fljótlegast að skrá sendinguna á eimskip.is áður en þú kemur með pakkann til okkar. Þú færð svo tilkynningar um stöðu sendingarinnar beint í símann.
*Á lengstu leiðunum getur mögulega bæst við einn dagur en við tryggjum að sendingin fari alltaf með fyrstu ferð.