42. tbl. 02. árg. 9. - 15. desember 2020
Kveikt var á jólaljósunum í kirkjugarðinum 5. desember
Jólhvísl tónleikarnir á vefnum í ár - Þetta er gjöf frá okkur til ykkar -
42
Jólashvísl í ár verða með öðrum hætti líkt og flest allir viðburðir þessa daganna. Í ár munu þau senda ykkur söngkveðju hver á sínum stað. Ein er stödd í Ástralíu, tveir eru í Reykjavík og þrír hér í Vestmannaeyjum. Viðburðurinn í ár er í raun stutt söngkveðja til ykkar. Jólashvíslinu verður streymt þann 20. desember klukkan 21:00 á Instagram, facebook Jólahvísl og facebook Hvítasunnukirkjan Vestmannaeyjum. Fram koma Guðný Tórshamar, Helgi Tórshamar, Unnur Ólafsdóttir og Sigurmundur G. Einarsson, Elísabet Guðnadóttir, Hjálmar Karl Guðnason og Jenný Guðnadóttir.
TÍGULL
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
42
DREIFING:
XS er léttasti en öflugasti hárblásarinn frá HH Simonsen. Dreifari fylgir með í kaupbæti.
Davines gjafaaskja sem inniheldur NOUNOU/ sjampó og hárnæringu ásamt Liquid Spell blástursfroðu.
label.m hetjurnar í hátíðarbúning fást hjá okkur. Ómissandi í hátíðargreiðslurnar og tilvalið í jólapakkann.
True Divinity MK2 sléttujárnin sívinsælu í nýjum litum. Það er fimm ára ábyrgð á öllum raftækjum frá HH Simonsen.
Pasta & Love nýja herralínan frá Davines er tilvalin í pakkann hans.
Wonder Brush flækjuburstinn ætti að vera til á hverju heimili. Kemur í nokkrum litum.
Davines Naturaltech Energizing gegn hárlosi og Purifying flösusjampóið fræga er til hjá okkur.
Davines gjafaaskja sem inniheldur MINU/ sjampó og hárnæringu sem vernda og halda við lit ásamt OI/ All In One hármjólkinni.
MARC INBANE, brúnkuvörurnar sem allir eru að tala um, fást á Sjampó. Kíktu við og sjáðu úrvalið.
DEKUR FYRIR ÞIG & ÞÍNA HÁRSNYRTISTOFA 481-3666 Heiðarvegur 6
Jólasveinarnir - Hvenær koma jólasveinarnir til byggða Stekkjastaur 12. desember
Giljagaur 13. desember
Stúfur 14. desember
Þvörusleikir 15. desember
Pottaskefill 16. desember
Askasleikir 17. desember
Skyrgámur 19. desember
Bjúgnakrækir 20. desember
Hurðaskellir 18. desember
Gluggagægir 21. desember
Gáttaþefur 22. desember
Ketkrókur 23. desember
Er bíllinn þinn klár fyrir veturinn? Bókaðu tíma og láttu okkur yfirfara bílinn
Garðavegi 15 / 481 1216
Kertasníkir 24. desember
Við erum þjónustuaðilar fyrir eftirfarandi umboð:
BÖRNIN SVARA Börn eru svo yndisleg og hreinskilin og segja nákvæmlega það sem þeim finnst. Það er alltaf gaman að fá þessa gorma í spjall. Við fengum nokkur börn til að svara nokkrum spurningum.
Þóra Elísa Gísladóttir Hvað ertu gömul? 4 ára
Hvað viltu í jólagjöf? Barbie
Foreldrar: Lilja Björg og Gísli Geir
Hvað eru jólasveinarnir margir? 10, 9 og 33
Af hverju elskarðu mömmu? Hún er uppáhalds mamma mín
Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn?
Af hverju elskarðu pabba? Hann er uppáhalds pabbi minn.
Stekkjastaur
Af hverju elskarðu ömmu? Hún er best Af hverju elskarðu afa? Hann er bestur
Friðrik Valur Friðriksson Hvað ertu gamall? Bráðum 4 ára
Af hverju elskarðu afa? Hann er góður og skemmtilegur
Foreldrar: Vala sjúkrakona og Fiddi slökkvistjóri
Hvað viltu í jólagjöf? Ég vil fá í pakkanum hund
Af hverju elskarðu mömmu? Af þvi ég elska mömmu hún er góð
Hvað eru jólasveinarnir margir? 10
Af hverju elskarðu pabba? Af þvi pabbi er góður
Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? Allir góðir
Af hverju elskarðu ömmu? Hún er góð
Í hverju ertu bestur? Bestur við mömmu
Í hverju ertu best? Hoppudýnunni
Á bíllinn skilið jólabað? Passaðu að bíllinn verði ekki út undan í jólaösinni. Hjá okkur fæst úrval af hreinsivörum sem veita bílnum fullkomna vernd í vetrarfærðinni. Skeljungur hf Kleifar 3, Vestmannaeyjum s: 444-3181
Tvisturinn ehf Faxastíg 36, Vestmannaeyjum s: 481-3141
Millwaukee höggbitasett. Verkfærasett. /skipalyftan ehf Skipalyftan // www.skipalyftan.is // Sími: 488 3550
NÝ SENDING AF RÚMFÖTUM
TEYGJULÖK
ÐI Æ L K D N HA
AR KODD SÆNG UR
VERSLUN
GRÉTARS ÞÓRARINSSONAR HEIÐARVEGI 6 // sími: 481 1400 /verslungretarsthorarinssonar
JÓLIN & SORGIN
Aðventa, jól og áramót eru syrgjendum oft erfiður tími. Sumir vilja helst að hátíðinni ljúki sem fyrst og að desembermánuður hverfi hreinlega af almanakinu. Í jólaundirbúningnum hvarflar hugur syrgjandans til látins ástvinar sem ekki fær að njóta hátíðarinnar og það getur því reynst honum mjög erfitt að undirbúa jólahátíð. Það er dagamunur á fólki í sorg, hún er svo óútreiknanleg og erfitt er að skipuleggja fram í tímann. Syrgjandi gæti afboðað sig á síðustu stundu í jólaboð eða dottið í hug að mæta í boð sem hann var áður búinn að afþakka. Sýndu þessu skilning. Láttu vin í sorg vita að þú styðjir hann þrátt fyrir að plön breytast.
NOKKUR RÁÐ TIL AÐ KOMAST Í GEGNUM HÁTÍÐARNAR Jólahátíðin er í huga margra hátíð fjölskyldunnar. Því er mikilvægt að fjölskyldan ræði það hvernig hún vill halda upp á jólin og áramótin. Gerið ekki of miklar kröfur til ykkar eða fjölskyldunnar. • Engin ein leið er rétt til þess að fara í gegnum aðventuna eða hátíðisdagana. Sum ykkar vilja fylgja fjölskylduhefðum en önnur vilja breyta til. Ágætt er að hugsa einungis um ein jól í einu. Gott er að
láta jólaundirbúninginn og skipulag hátíðanna ráðast af því hvernig ykkur líður þessa stundina. Á næsta ári er hægt að hafa jólahátíðina með öðru sniði. • Einbeitið ykkur að því sem þið treystið ykkur til að framkvæma. Ekki hugsa um hvað þið „ættuð að gera“. Ef þannig stendur á hjá ykkur er líka í lagi að gera ekki neitt. Þegar fjölskyldan hefur ákveðið hvernig hún vill skipuleggja jólin, látið þá aðra vita. • Látið það eftir ykkur að framkvæma á aðventunni aðeins það sem ykkur finnst skemmtilegt. Leitið leiða til þess að komast hjá því að gera það sem ykkur vex í augum. Hafið í huga að það er hægt að kaupa bakkelsið. Biðjið um aðstoð við það sem ykkur þykir erfitt að framkvæma, eins og t.d. að kaupa jólagjafir, hengja upp jólaseríur eða skreyta jólatréð. Ekki hika við að biðja aðra um aðstoð. • Ef þið hafið ákveðið að skreyta heimili ykkar fyrir jólin, fáið hjálp frá börnunum, fjölskyldu eða vinum. Það er í góðu lagi að gera hlutina öðruvísi en vanalega eða jafnvel að skreyta alls ekki neitt fyrir þessi jól. Gott er þó að hafa í huga að kertaljós og notaleg tónlist getur aukið á vellíðan ykkar.
• Það getur létt verulega álagið að þiggja matarboð hjá ættingjum eða vinum yfir hátíðarnar. Ef þið ákveðið að halda sjálf matarboð skoðið þá hvort þið viljið breyta út af venjunni, t.d. hafa annað í matinn eða bæta við nýjum hefðum. • Verið góð við ykkur sjálf og búist ekki við of miklu. Þegar sorg er í hjarta er eðlilegt að vera sorgmæddur, einnig á jólum. Gráturinn líknar og hreinsar. Ykkur er óhætt að sýna tilfinningar og e.t.v. hjálpar það öðrum í fjölskyldunni sem einnig er að glíma við sorg. • Þegar jólin nálgast getur verið gott að ræða við einhvern sem þið treystið fyrir tilfinningum ykkar, áhyggjum og þakklæti. Talið líka um það sem reynist ykkur erfitt. Þiggið alla hjálp sem ykkur býðst. Frídagar leiða oft til þess að söknuðurinn eftir ástvini magnast. Leyfið ykkur að fara í gegnum erfiða tilfinningu eins og söknuð. • Mikill erill fylgir jólahátíðinni og þess vegna er mikilvægt fyrir ykkur að hvílast vel. Þið þurfið á allri ykkar orku að halda. • Söknuður eftir ástvini fylgir okkur ævina á enda en reynslan hefur sýnt að flestir geta samt sem áður notið hátíðar eins og jóla, hátíðar ljóss og friðar. www.sorgarmidstod.is
Frumherji verður í Eyjum vikuna 14. - 17. desember. Tímapantarnir í síma 570 9090. Staðsettur við Faxastíg í húsi Björgunarfélagsins.
Frumherji Faxastígur / 570 9231
Heilsueyjan Spa – Breyting á rekstri! Guðrún María hefur tekið við rekstri Heilsueyjunnar með fyrirtæki sínu Delúx snyrti- og fótaaðferðastofa og er Jackie komin í 3 mánaða veikindaleyfi. Facebook Heilsueyjunnar Spa breytist í Delúx snyrti- og fótaaðgerðastofa, þar er hægt að hafa samband við okkur og munu koma fram allar helstu upplýsingar varðandi breytingarnar.
Delúx
Vestmannabraut 28
865 6339
/deluxeyjar
JÓLALEIKUR TÍGULS
- SÍÐASTI SÉNS AÐ TAKA ÞÁTT Ert þú búin að finna töluna 42 í síðustu blöðum? Ef ekki þá er þess virði að finna þau blöð (byrjar frá 37.tbl.) finna 42, taka skjáskot og senda á okkur í inboxið á facebook þá ferð þú í pottinn í risa jólaleiknum okkar. Við drögum heppinn vinningshafa þann 15.desember - þú gætir verið sex sinnum í pottinum ef þú finnur 42 í hverju blaði þangað til við drögum út. Samstarfsaðilar okkar eru:
CMYK: Pantone:
0 - 0 - 0 - 100
0 - 34 - 72 - 30,5
Black C
4654 C
EINN HEPPINN VINNINGSHAFI MUN VINNA EFTIRFARANDI Í VINNINGA: Heima decor - Kertastjaki frá Fólk Reykjavík Heimilislíf - Handklæði & ilmur Volcano ATV - Ferð fyrir 4 á fjórhjól Smart - Gjafabréf að andvirði 10.000 kr. Leturstofan - Bolur & húfa Húsasmiðjan - Wiz ljósasett Einsi Kaldi - Gjafabréf Nordika - Veglegt pottasett Útkall - bækurnar 3 sem tengjast Eyjum Geisli - heilsuúr Skeljungur - þrif, allt fyrir bílinn Vikingferðir - Ferð fyrir allt að 16 manns Brothers Brewery - kassi af Lepp jólabjór Bókaútgáfan Hólar - Vegleg bók um fugla Íslands ásamt fleirum perlum.
Tilboð í leigu á húsnæðisaðstöðu líkamsræktarsals Vestmannaeyjabær sem leigusali óskar eftir tilboðum í leigu á húsnæðisaðstöðu líkamsræktarsals sem tengdur er við sundlaug Íþróttamiðstöðvar, frá og með 1. júní 2021.
Eftirfarandi skilyrði eru gerð til tilboðsgjafa: - Reynsla af og þekking á rekstri líkamsræktar - Vera með árskort á sanngjörnu verði (annars vegar almennt árskort og hins vegar árskort fyrir aldraða og öryrkja). - Að einstaklingar sem kaupa árskort í líkamsrækt greiði aðgang að sundi skv. gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar. - Bjóða upp á tæki og tól frá viðurkenndum aðilum - Bera alla ábyrgð, hafa gott eftirlit, umsjón og þrif á starfsaðstöðu - Geta sýnt fram á tryggan rekstur með
framvísun viðurkenndra ársreikninga. Auk þess gerir leigusali áskilnað um tryggingar fyrir leigugreiðslum - Undirriti leigusamning sem gildir í 3 ár
Innifalið í tilboði skal vera: - Tilboð í leigu á sal (131,6 fm) - Uppgefið verð á árskortum og breytingu á þeim á milli ára - Tilboð í umsýslukostnað vegna sölu árskorta við úrvinnslu og mat tilboðsgagna verður haft til hliðsjónar lög um opinber innkaup. Rekstur líkamsræktar í umræddri aðstöðu ábyrgð og eftirlit auk umsjónar og þrifar er sjálfstæður rekstur og að öllu leiti aðskilinn rekstri Vestmannaeyjabæjar.
Tilboðsfrestur er til kl. 12:00 þann 11. janúar 2021. Tilboð verða opnuð í fundarsal Ráðhússins kl. 14:00 sama dag. Tilboðum skal skilað í afgreiðslu Ráðhússins merkt „Tilboð í leigu á húsnæðisaðstöðu Íþróttamiðstöðvar“. Nánari upplýsingar veitir Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar í síma 488 2000 eða jonp@vestmannaeyjar.is
Full búð af glæsilegum vörum
Fallegt um jólin www.heimadecor.is Strandvegur 39
www.smartey.is
Tóma uppskriftabókin 5.500 kr.
Útvegsspilið 9.500 kr. Gömlu skipin 3.500 kr.
Ilmstangir 3.990 kr.
Handklæði stór & lítil
Ilmkerti 3.590 kr.
Fallegar Eyjamyndir í ramma 40x50 cm 18.000 kr.
SUDOKU
ORÐAÞRAUT
JÓLATRÉ PAKKAR KAKÓ JÓLAGLÖGG KÓSÝ SAMVERA PIPARKÖKUR SNJÓR STJÖRNUR GAMAN
EINFALDAR & FALLEGAR JÓLASKREYTINGAR Síðasta skreytingin sem við munum sýna sem Birgitta í Blómaval útbjó fyrir okkur má sjá hér, en það er fallegur kertabakki.
Kertabakki Í oasis svampi svo hægt sé að nota lifandi blóm og grenið helst lengur. Þetta þarf að vökva. Í þessa skreytingu notaði Birgitta jólatréskerti, greni, rósir, jólakúlur og þykkblöðung.
Elskuleg eiginkona mín, móðir tengdamóðir, amma og langamma
Ástkær eiginmaður minn og vinur, faðir, afi og langafi
JÓN INGI STEINDÓRSSON Miðstræti 11
Lést að heimili sínu 20.nóvember. útförin fór fram í kyrrþey þann 30 nóvember. Elínborg Bernódusdóttir
Hinrik Jónsson og börn Ölver Jónsson, Svanhildur Inga Ólafsdóttir og börn
JÓRUNN ÞORGERÐUR BERGSDÓTTIR
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma Frá Hofi í Öræfum
Lést þriðjudaginn 17. nóvember að Hraunbúðum. Útför hennar fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum 12. desember. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu verða aðeins nánustu aðstandendur Frá Hofi í Öræfum viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt frá vef Landakirkju www.landakirkja.is
JÓRUNN ÞORGERÐUR BERGSDÓTTIR
Lést þriðjudaginn 17. nóvember að Hraunbúðum. Bjarni Jónasson Útför hennar fer fram frá Landakirkju í Jónas Bjarnason Margrét Pálsdóttir Vestmannaeyjum 12. desember. Valgerður Bjarnadóttir Björgvin Björgvinsson Í ljósi aðstæðna í Bergþór Bjarnason Olivier Francheteau samfélaginu verða aðeins nánustu aðstandendur barnabörn og barnabarnabörn viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt frá vef Landakirkju. www.landakirkja.is
Bjarni Jónasson Jónas Bjarnason Margrét Pálsdóttir Valgerður Bjarnadóttir Björgvin Björgvinsson Bergþór Bjarnason Olivier Francheteau barnabörn og barnabarnabörn
Auglýsing á deiliskipulagi – Austurbær við miðbæ Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 3. desember 2020 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir norðurhluta austurbæjar skv. 1. Mgr. 41. Gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir nyrsta hluta austurbæjar og nær skipulagið inná tvo landnotkunar reyti, íbúðarsvæði ÍB-3 og miðsvæði M-1 (sjá á kortavef Vestmannaeyjabæjar, ef hakað er í Aðalskipulag). Markmiðið deiliskipulagsins er að skapa skýra umgjörð um rótgróið íbúðarhverfi í nálægð við miðgæinn og hlúa að sögulegum byggingum og sérkennum þeirra. Helstu breytingar á svæðinu eru ein ný byggingarlóð, innan við bílastæði „Íslandsbanka hússins“, möguleg færsla á húsi við Kirkjuveg 35 og reitur fyrir tvö tveggja hæða fjölbýlishús við Sólhlíð með samtals allt að 22 íbúðum og bílakjallara. Tillagan verður til sýnis hjá umhverfis- og framkvæmdasviði Skildingavegi 5, frá og með 7. desember 2020 til og með 18. janúar 2021. Tillagan verður einnig birt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar www.vestmannaeyjabær.is undir Skipulagsmál. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 18. Janúar 2021 í afgreiðslu umhverfis- og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5, eða á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is Skipulagsfulltrúi Vestmannaeyja.
Yfirfélagsráðgjafi óskast – afleysing Vestmannaeyjabær auglýsir eftir yfirfélagsráðgjafa til starfa hjá fjölskyldu- og fræðslusviði Vestmannaeyjabæjar. Um er að ræða afleysing í 100% stöðu í eitt ár. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starfið er á sviði félagsþjónustu- og barnaverndar.
Helstu verkefni yfirfélagsráðgjafa: - Umsjón og ábyrgð á fagsviði málaflokks félagsþjónustu og barnaverndar í samstarfi og samráði við framkvæmdastjóra sviðs - Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf í tengslum við félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, málefni barna og ungmenna, húsnæðismál, vímuvarnir o.fl. - Með barnavernd er átt við allir þeir þættir sem heyra undir barnavendarlög - Vinnur með verkefnastjórnun, áætlanagerð, ársskýrslur, gæðamat og nýsköpun innan málaflokkanna og heldur utan um teymisvinnu og aðra samvinnu félagsþjónustu og barnaverndar við tengslastofnanir innan sem utan sveitarfélagsins
- Yfirfélagsráðgjafi situr fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs varðandi þau verkefni sem heyra undir starfssvið hans Menntun og hæfniskröfur - Starfsréttindi sem félagsráðgjafi - Reynsla af barnverndar-, framfærslumálum og félagslegri ráðgjöf - Reynsla af stjórnun - Sjálfstæði í vinnubrögðum - Færni í samskiptum - Hæfni í þverfaglegu samstarfi
Upplýsingar veitir Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar (jonp@vestmannaeyjar.is) í síma 488 2000.
Umsóknarfrestur er til og með 18. desember 2020 Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á netfangið jonp@vestmannaeyjar.is. Með umsókn þarf að fylgja ferilsskrá um fyrri störf og menntun ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.
VOGUE FYRIR HEIMILIÐ I SÍÐUMÚLI 30 - REYKJAVÍK I HOFSBÓT 4 - AKUREYRI I 533 3500 I VOGUE.IS