42. tbl. 01. รกrg. 18. desember 2019
Takk fyrir okkur ! Nú lokum við þessu ári hjá Tígli með síðasta tölublaðinu okkar sem er númer 42 á þessu ári. Mikið rosalega hefur þetta verið skemmtilegur og lærdómsríkur tími. Fyrsta tölublað Tíguls kom út 20. febrúar á þessu ári. Brotið var í A5. Alltaf var planið að hafa góða dreifingu og eins og flestir vita þá fer blaðið inn á öll heimili og fyrirtæki ásamt því að liggja í nokkrum verslunum. Ásamt blaðinu erum við með vef samhliða og var áherslan upphaflega að hafa yfirlit yfir alla viðburði á Eyjunni og helstu upplýsingar sem koma þurfti áleiðis til bæjarbúa. Ýmsar pælingar hafa verið hér hjá okkur og höfum við þurft að þreifa okkur áfram hvað væri að virka og hvað ekki. Til dæmis ákváðum við
TÍGULL
að prófa að vera með hátíðarblað sem var þá í stærðinni A4. Þetta blað kom út í byrjun júní og var hátíðar-sjómannadagsblað sem kom mjög vel út. Við fengum þó nokkrar ábendingar um að fólki finndist þetta of stórt. Í september gerðum við þó töluverðar breytingar. Við breytum stærðinni á blaðinu og er það nú á milli A5 og A4 eða (17x24 cm) og var það 28. tölublaðið okkar sem kom út í nýrri stærð. Á sama tíma tókum við vefinn okkar vel í gegn og erum við nú með helstu fréttir af Eyjunni okkar, upplýsingar og viðburði. Við viljum koma á framfæri þakklæti til þeirra sem hafa aðstoðað okkur við að koma þessu á laggirnar. Að sjálfsögðu fjölskyldunni, Ómari
Garðarssyni fyrir að vera okkur innan handar, hinum frábæru ljósmyndurum Eyjunnar: Tóa Vídó, Jóa Myndó, Gunnari Inga, Adda í London og öllum þeim sem hafa leyft okkur að birta myndir eftir sig. Við finnum fyrir miklum meðbyr og erum þakklátar bæjarbúum fyrir þessar frábæru viðtökur á blaðinu okkar og ekki síst vefnum. Vefurinn okkar verður í fullum gangi út árið þó svo að næsta blað komi ekki fyrr en á næsta ári. En það kemur út 8. janúar 2020. Við viljum því þakka kærlega fyrir okkur. Óskum öllum Vestmannaeyingum nær og fjær gleðilegra jóla og kærleiksríks komandi árs. Jóla- og nýárskveðja, Lind & Kata Laufey
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Jólakveðja Við sendum landsmönnum öllum, til sjávar og sveita, hátíðarkveðjur með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.
Vigtin Bakhús
Birgir Þór Sigurjónsson og unnusta hans Hafdís Ósk Ólafsdóttir hafa verið undanfarnar vikur að vinna dag sem nótt við að koma á fót nýju fyrirtæki í Vigtarhúsinu. En þar ætla þau að opna bakaríið Vigtin Bakhús. Tígull tók Birgir Þór á spjallið:
vinna með sér hjá Arnóri bakara og ég stökk á það. Eftir það var ekki aftur snúið. Arnór og Helga urðu strax eins og aðrir foreldrar mínir og það voru góðir tímar þar til vandræðaunglingurinn sem vildi djamma gerði þau brjáluð missti vinnuna.
Nafn: Birgir Þór Sigurjónsson Fjölskylda: Unnusta Hafdís Ósk Ólafsdóttir, börn Hilmar Aron 8 ára og Ásta Guðrún 6 ára. Hvenær fluttuð þið til Eyja aftur? Ég flutti með krakkana til Eyja núna í lok ágúst. Hafdís kom svo í byrjun nóvember. Við erum samt búin að vera rosa mikið í Eyjum í sumar vegna Vigtarinnar og verð ég að fá að þakka Þóru systur og hennar fjölskyldu ásamt mömmu og pabba fyrir gestrisnina og alla hjálpina. Þau hafa verið gjörsamlega ómetanleg. Hvernig er ferillinn þinn undanfarin ár? Ég var á frystitogara 2001 og búinn að vera í eitthvað yfir 40 daga og hringdi í Einar Björn bróðir hálfgrenjandi og hann sagði mér bara að drulla mér í land og koma að
Ég fór yfir í Vilberg og vann þar í einhvern tíma og fór á samning hjá Berg og Villu en ég endaði svo aftur hjá Arnóri. Ég lærði mikið af
þessum meisturum. 2011 ákveð ég að flytja í bæinn og fer að vinna í Passion Reykjavík hjá Styrmi og Davíð syni Arnórs. Þar lærði ég allt annað um bakstur. Þeir voru komnir á næsta level. Svo kemur hann Elías Þór inn og fór að kenna okkur alvöru súrdeigsbakstur upp á gamla mátann og við urðum leiðandi í súrdeigsbakstri á Íslandi á þeim tíma leyfi ég mér að segja. Eftir það byrjuðu allir að gera súrdeigsbrauð. Á þessum tíma ákveður Einsi bróðir að nú verði ég að fara að drulla mér í skólann og klára það að verða fullmenntaður bakari. Með smá þrjósku ákveð ég að slá til og fara að ráðum stóra bróður og fer og útskrifast og vann líka nemakeppnina. Mér fannst þetta komið gott í Passion og þá hringir Gústi í mig og segist vilja fá mig til að opna bakarí með sér. Ég var nú hikandi við það en konan ýtti mér út í þetta og sagði mér að lifa smá og taka áhættu. Það var þess virði og upp kom bakarí sem kallast Brauð og co. Það gekk allt eins og í sögu og þar kenndi Gústi mér (sem var þá nýfluttur frá Danmörku) að notast við alvöru hráefni sem ég hafði bara aldrei heyrt um áður.
Við óskum viðskiptavinum okkar sem og öðrum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á liðnu ári og vonumst til að sjá ykkur á því nýja. Kærleikskveðjur, Starfsfólk Miðstöðvarinnar
Opnunartími yfir hátíðarnar: Fimmtudagur 19.desember til kl. 22:00 Laugardagur 21.desember til kl. 18:00 Sunnudagur 22.desember kl. 13:00 - 16:00
Mánudagur 23. desember til kl. 22:00 Þriðjudagur 24. desember til kl. 12:00 Þriðjudagur 31. desember til kl. 12:00 Laugardagur 4. janúar 2020 12:00 - 16:00
Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
Það var geggjað að hafa verið að baka í 15 ár og komast svo að því að það væri til hráefni sem er svo miklu hollara og betra en maður hafði kynnst allann þennan tíma. Ég var líka í bakaralandsliðinu og keppti í norðurlandakeppninni eitt árið. Hitti þar heimsmeistarann í baquettegerð og var með honum í mánuð og lærði mikið af honum og þjálfaði svo landsliðið í smá tíma áður en ég ákvað að koma heim til Eyja. Mér bauðst þetta geggjaða húsnæði og ákvað að slá til. Hvernig hefur gengið að koma bakaríinu í stand? Við fengum í hendurnar alveg hrátt húsnæði þannig að það hefur gengið á ýmsu. Hefðum viljað opna fyrr en það þarf að vanda vel til verka og byggja upp góðan grunn fyrir framhaldið. Hvað munuð þið bjóða uppá? Við munum bjóða uppá súrdeigsbrauð gerð úr lífrænu hveiti, nokkrar tegundir af samlokum, salöt og pestó. Vínarbrauð og croissant úr ekta íslensku smjöri, eitthvað gamalt og gott úr Vilberg og Arnórs bakarí og úrvals kaffi. Okkur finnst afar mikilvægt að vera dugleg að koma með nýjungar en halda í það sem að heimamenn vilja. Það er
nauðsynlegt að hlusta á og verða við óskum viðskiptavina okkar. Hvað tekur salurinn marga? Eins og er, rétt yfir 40 manns. Hvernig verður opnunartíminn? Við munum byrja á því að opna dyrnar klukkan sex á morgnana og hafa opið til klukkan sjö á kvöldin. Svo sjáum við bara til hvort að við breytum opnunartímanum. Hvernig gekk að safna upplýsingum um sögu Vigtarhúsins? Það gekk allt vel, en aftur á móti er erfiðara að finna lýsandi myndir. Við höldum enn í vonina að einhverstaðar leynast fallegar og lýsandi myndir af starfseminni sem átti sér stað. Því að við viljum halda í söguna og geta frætt aðkomufólk um gildi hússins. Verður þú eini bakarinn? Nei. Hann Jónas Þór sem var að vinna með mér á sínum tíma hjá Arnóri ætlar að vera með mér. Ásamt því að ég er að þrýsta á einn kæran vin til að taka af skarið og koma að baka með okkur. Svo veit maður aldrei nema Arnór sjálfur reki nefið inn og hendi í eins og eina brauðtertu.
Verða til súrdeigsbrauð? Að sjálfsögðu verðum við með úrval af súrdeigsbrauðum. Hvernig kaffi verðið þið með? Við verðum með eðal kaffi frá Kaffitár.
Gleðilega hátíð Frá flugvöllum og starfsstöðvum um land allt óskar starfsfólk Isavia þér gleðilegra jóla og farsældar á ferðalögum komandi árs.
Litla syndin ljúfa - Frábær eftirréttur á aðfangadag -
Innihald: 140g smjör, og meira til að smyrja formin 140g 70% Nóa Síríus Súkkulaði 2 egg 3 eggjarauður 140g flórsykur 60g hveiti
Setjið smjör og súkkulaði í pott og bræðið við vægan hita. Takið af hitanum um leið og smjörið er bráðið og hrærið þar til súkkulaðið er alveg bráðið. Þeytið egg og eggjarauður í skál og setjið svo flórsykurinn út í og þeytið vel.
Aðferð Hitið ofninn í 220° (ekki nota blástur). Smyrjið 6 lítil soufflé-form eða bolla vel með smjöri (Ef notuð eru annars konar form er ráð að prófa að baka eina synd til að bökunartíminn passi örugglega).
Hellið súkkulaðiblöndunni saman við og þeytið á meðan og hrærið að lokum hveitinu saman við. Skiptið deiginu jafnt í formin (rúmlega 1 dl í hvert form) og gætið þess að fylla þau ekki alveg. Setjið formin á plötu eða í ofnskúffu og bakið kökurnar í 11-12 mínútur (án blásturs).
Ef deigið hefur verið geymt í kæli þá er bökunartíminn 13-14 mín (jafnvel 15 mín ef það var í formunum og í kæli). Takið þær út og látið kólna í 3 mínútur. Rennið hnífsblaði í kringum kökurnar til að losa betur um þær og hvolfið þeim á diska. Sigtið e.t.v. svolítinn flórsykur yfir og berið kökurnar fram t.d með hindberja- eða vanillusósu og e.t.v. berjum eða öðrum ávöxtum.
Við erum með saltkristalslampa í fjórum stærðum www.leturstofan.is
Birtan er einstaklega hlýleg og falleg og er sögð hafa ýmiskonar jákvæð áhrif á líðan okkar og heilsu. Kristallinn er unninn úr námum við rætur Himalaya fjalla og eru lamparnir og kertastjakarnir handunnir, sem gerir þá einstaka og viðheldur náttúrulegri fegurð þeirra. Verð frá 5.500 kr.
Leturstofan // Strandvegur 47 // 481-1161
Við óskum Vestmannaeyingum nær og fjær bestu óskir um
Gleðileg Jól
og farsælt komandi ár með þökk fyrir það liðna.
Undirbúningur jólanna Eftirminnilegasta jólagjöfin? Þegar við vorum erlendis fjölskyldan og þegar Davíð kom út til mín til Belgíu þegar ég var au-pair fyrir 24 árum. Uppáhalds jólahefð fjölskyldunnar? Baka og skreyta piparkökur. Búinn að klára jólagjafirnar? Neihhhh, er soldið alltaf á síðustu stundu með það. Hvaða eftirrétt eru þið með á aðfangadag? Erum með Toblerone heimagerðan ís og Risalamande til skiptis eða eftir því sem okkur langar meira í það árið. Eruð þið alltaf heima hjá ykkur á aðfangadag? Já, við erum bara fimm í kósý. Nafn og fjölskylda? Anna Hulda Ingadóttur, Davíð Hallgrímsson, Gabríel, Daníel Franz og Rafael Bóas. Uppáhalds jólaskraut? Það skraut sem strákarnir okkar hafa búið til.
Hvað er uppáhalds að gera eða undirbúa fyrir aðfangadaginn? Pakka gjöfunum, best ef strákarnir ná að græja það með mér. Setja þær svo undir tréð og keyra þeim út til nánustu ættingja á aðfangadag. Að skrifa jólakort og flippa eitthvað þar. Svo elska ég ilminn af heimagerða rauðkálinu sem Davíð mallar á Þorláksmessu (stundum aðfangadag). anum. Og auðvitað rættist draumurinn ein jólin. Ég á hana ennþá og er Dís dóttir mín tekin við honum núna. Ég hefði þó kannski átt að æfa mig betur á langþráða hausnum þar sem ég er afleit í að greiða dóttur minni. Uppáhalds jólahefð fjölskyldunnar? Við erum svakalega lítið fyrir hefðir og helst viljum við breyta til á hverju ári. T.d. eru aldrei bakaðar sömu kökurnar né neitt jólaskraut sett á sama stað. En það er eitt sem hefur haldið sér síðan ég man eftir mér og það er að fara saman upp í kirkjugarð, öll stórfjölskyldan, þar sem við setjum jólaljós hjá litlu systur, drekkum kakó og fáum okkur að borða hjá henni. Það er eitthvað sem allir bíða eftir.
Nafn og fjölskylda? Þóra Gísladóttir, Júlíus Ingason, Arnar Júlíusson, Andrea Inga Sigurðardóttir, Andri Júlíusson, Dís Júlíusdóttir og Nóel. Uppáhalds jólaskraut? Uppáhalds jólaskrautið mitt hefur verið það jólaskraut sem krakkarnir hafa föndrað hverju sinni. Handunnið skraut hitta mann beint í hjartastað. Eftirminnilegasta jólagjöfin? Þegar ég var lítil dreymdi mig um að eignast hárgreiðsluhaus sem var til í Tang-
Búinn að klára jólagjafirnar? Næstum því. Ég er yfirleitt mjög tímalega í öllu sem tengist jólum. Hvaða eftirrétt eru þið með á aðfangadag? Yfirleitt er bara það sem okkur langar í hverju sinni. Júlli býr sér stundum til rjómarönd sem er komið frá mömmu hans en hann situr einn að henni vegna lítils áhuga heimilisfólksins. Hvað er uppáhalds að gera eða undirbúa fyrir aðfangadaginn? þegar við hittumst öll hjá mömmu og skerum út laufabrauð og föndrum saman.
Hjá Heilsueyjunni Spa getur þú keypt g jafabréf í dekur fyrir bæði kynin. Við aðstoðum þig við val á g jafabréfi fyrir þann sem þú vilt gleðja. Tilvalið í jólapakkann!
Hátíðaropnun: Fimmtudagur 19.desember til kl. 22:00 Laugardagur 21.desember til kl. 18:00 Sunnudagur 22.desember kl. 13:00 - 16:00 Mánudagur 23. desember til kl. 22:00 Þriðjudagur 24. desember til kl. 12:00 Þriðjudagur 31. desember til kl. 12:00 Laugardagur 4. janúar 2020 12:00 - 16:00
Okkar bestu óskir um Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Við þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Gleðileg Jól Vinnslustöðin óskar starfsmönnum sínum til lands og sjávar, Vestmannaeyingum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla með ósk um farsæld, frið og gæfu á nýju ári.
Vinnslustöðin hf
hafnargata 2
900 Vestmannaeyjar
vsv@vsv.is
www.vsv.is
Viðburðir MIÐ
18
UPPISTAND MEÐ ÓLA BJARKA AUSTFJÖRÐ
DES
Eyjabíó kl.20:00
FÖS
STJÖRNULEIKUR ÍBV
20 DES
FÖS
20 DES
SUN
22 DES
SUN
22 DES
FÖS
27 DES
FÖS
27 DES
LAU
28 DES
LAU
28 DES
FÖS
03 JAN
FÖS
03 JAN
Sjá nwáwn.atrigull.is w FÖSTUDAGUR 20
LAUGARDAGUR LAUGARDAGUR 21 21
DES
DES SEPT
21 DES
Íþróttahúsið kl. 18:00
JÓLAHVÍSL
Hvítasunnukirkjan kl.20:30 FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR MEÐ INGÓ & GUMMA
kl.21:00
kl.15:00 kl.15:00
kl.18:00
LAUGARDAGUR
SUNNUDAGUR
SUNNUDAGUR
21
22 21
DES
DES SEPT
22 DES
Höllin kl. 16:00 TÓNLEIKAR MEÐ INGÓ & GUMMA TÓTA
Höllin kl. 20:30 FRUMSÝNING ÞRETTÁNDAMYNDAR
Eyjabíó kl. 18:00 JÓLABALL ODDFELLOW OPIÐ ÖLLUM
Oddfellowsalur kl. 17:00 BÍÓSÝNING ÞRETTÁNDAMYNDAR
Eyjabíó kl. 18:00 BALL MEÐ STUÐLABANDINU
Höllin kl. 00:00 GRÍMUBALL EYVERJA
Höllin kl. 14:00 - 15:30 ÞRETTÁNDINN GANGAN BYRJAR V/HÁNNA
Malarvöllur við Löngulág kl. 19:00
kl.21:00
kl.15:00 kl.15:00
STUÐLABANDIÐ
28. DESEMBER Í HÖLLINNI HÚSIÐ OPNAR Á MIÐNÆTTI
3.500 KR.
kl.18:00
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir það liðna
FRÁR VE 78
Bylgja VE 75
ÚTSKRIFT 21. DESEMBER KL. 11:00 Vinir og velunnarar velkomnir! Skólameistari
Okkar bestu óskir um
GLEÐILEG JÓL
og farsæld á komandi ári.
Enski boltinn yfir hátíðarnar Mið 18. desember FIFA Club World Cup undanúrslit 17.30 Liverpool - Monterrey, Mexíkó 17.30 Flamengo, Brasilíu - Al Hilal Mið 18. desember Caraboa League Cup 19.45 Everton - Leicester 19.45 Oxford Utd - Man City 20.00 Man Utd - Colchester Utd Lau 21.desember FIFA Club World Cup 14.30 Leikur um 3ja sætið 17.30 Útslitaleikur
2
2
Lau 21.desember 12.30 Everton - Arsenal 15.00 Aston Villa - Southamton 15.00 Bournemoth - Burnley 15.00 Brighton - Sheffield Utd 15.00 Newcastle - Crystal Palace 15.00 Norwich - Wolves 17.30 Man City - Leicester Sun 22. desember 14.00 Watford - Man Utd 16.30 Tottenham - Chelsea Fim 26. desember 12.30 Tottenham - Brighton 15.00 Aston Villa - Norwich 15.00 Bournemoth - Arsenal 15.00 Chelsea - Southampton 15.00 Crystal Palace - West Ham 15.00 Everton - Burnley 15.00 Sheffield Utd - Watford 17.30 Man Utd - Newcastle Fös 27. desember 19.45 Wolves - Man City Lau 28. desember 12.30 Brighton - Bournemoth 15.00 Newcastle - Everton 15.00 Southampton - Crystal Palace 15.00 Watford - Aston Villa
2
2
17.30 Norwich - Tottenham 17.30 West Ham - Leicester 19.45 Burnley - Man Utd Sun 29. desember 14.00 Arsenal - Chelsea 16.30 Liverpool - Wolves 18.00 Man City - Sheffield Utd Mið 1. janúar 12.30 Brighton - Chelsea 12.30 Burnley - Aston Villa 15.00 Newcastle - Leicester 15.00 Southamton - Tottenham 15.00 Watford - Wolves 17.30 Man City - Everton 17.30 West Ham - Bournemouth 20.00 Arsenal - Man Utd Fim 2. janúar 20.00 Liverpool - Sheffield Utd Lau 4. janúar 12.31 Rochdale/Boston - Newcastle 15.01 Fulham - Aston Villa 15.01 Southamton - Huddersfield 15.01 Brighton - Sheffield 15.01 Watford - Tranmere 15.01 Preston - Norwich 17.31 Leicester - Wigan 17.31 Wolves - Man Utd 17.31 Bournmouth - Luton Town 17.31 Man City - Port Vale Sun 5. janúar 14.01 Chelsea - Nottingham Forest 14.01 Crewe - Barnsley 14.01 Middlesbrough - Tottenham 14.01 Crystal Palace - Derby 16.01 Liverpool - Everton 18.16 Gillingham - West Ham Mán 6. janúar 19.56 Arsenal - Leeds Utd
Lundinn pöbbinn í Eyjum HÁTÍÐAROPNUN: 20. des opið til 04:00 21. des opið til 04:00 22. des opið til 03:00* 23.des opið til 03:00 24.des - lokað 25.des opið 21:00 - 04:00 26.des opið til 03:00 27.des opið til 04:00 28.des opið til 04:00 29.des opið til 02:00 30.des opið til 02:00 31.des 00:15 - 06:00 3.janúar þrettándagleði opið til 04:00 *fylgist með á fb með breytingar á lengri opnun
Alltaf opið og frítt inn Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir það liðna!
Sudoku
Orðarugl
ASKASLEIKIR GILJAGAUR LEPPALÚÐI POTTASKEFILL
GRÝLA HURÐASKELLIR KETKRÓKUR SKYRGÁMUR STEKKJASTAUR STÚFUR
Gleðileg jól & farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu. Fimmtudagur 19.desember opið til kl. 22:00 Laugardagur 21.desember opið til kl. 18:00 Sunnudagur 22.desember 13:00 - 16:00 Mánudagur 23.desember opið til kl. 22:00 Þriðjudagur 24. desember opið til kl. 12:00
Gleðileg jól & farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu. Fimmtudagur 19.desember 11:00 - 22:00 Föstudagur 20.desember 15:00 - 18:00 Laugardagur 21.desember 11:00 - 13:00 Sunnudagur 22.desember 13:00 - 16:00 Mánudagur 23.desember 11:00 - 22:00
Þriðjudagur 31. desember opið til kl. 12:00 Laugardagur 4. janúar 2020 12:00 - 16:00
Strandvegur 47
Nýja tannlæknastofan óskar Vestmannaeyingum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.
Veistu ekki hvað þú átt að gefa í jólag jöf? Hvað með ljósmynd á striga?
Tannlæknir um jól og áramót: Sími 481-1012 Neyðarsími: 844-5012
NÝJA TANNLÆKNASTOFAN
Flötum 29
Hægt er að skoða myndirnar mínar á eftirfarandi tveimur vefsíðum: https://gurushots.com/toivido1/photos https://500px.com/toivido Hafðu samband við mig á facebook eða toividoljosmyndir@gmail.com eða í síma 8462831
Börnin svara - Hvað segja börnin um jólin og jólasveininn Nafn & aldur: Þorvaldur Guðni Kristleifsson, 5 ára Fjölskylda: Pabbi og mamma heita Kiddi Týr og Ásta systkyni mína heita Magnús, Kristófer og Rósa. Þekkirðu jólasveininn? jaaaá Hvað gera jólasveinar? Gera dót og allskonar. Eiga þeir mömmu og pabba? Já Grýlu og Leppablúða. Hvað eru þeir margir? 10 Hvað er það skemmtilegasta við jólin? Borða snjó og grafa í snjó Hvar á jólasveinninn heima? Norðupóli Nafn & aldur: Klara Freysdóttir, 5 ára Fjölskylda: Pabbi og mamma heita Freyr og Guðný Þekkirðu jólasveininn? Já alla Hvað gera jólasveinar? Þeir gefa börnunum í skóinn. Eiga þeir mömmu og pabba? já Grýla og Leppablúði. Grýla er mjög vond, hún er hræðileg. Hvað eru þeir margir? 13 Hvað er það skemmtilegasta við jólin? Að fá flott í skóinn og gaman að hitta jólasveinana. Hvar á jólasveinninn heima? Upp í höll, hátt uppi. Nafn & aldur: Viktoría Jónasdóttir, 5 ára Fjölskylda: Pabbi og mamma heita Jónas og Ester, systur mínar heita Magdalena og Maríanna. Þekkirðu jólasveininn? Já svona já Hvað gera jólasveinar? Gefa í skóinn og setja pakka undir jólatréð. Eiga þeir mömmu og pabba? Já Grýlu og Leppablúða. Hvað eru þeir margir? 13 Hvað er að skemmtilegasta við jólin? Opna gjafir og borða jólamat, ég elska kalkún. Hvar á jólasveinninn heima? Upp í fjöllunum.
Þriðjudagur 24.desember 10:00 - 12:00
Þorláksmessu skatan
Miðvikudagur 25.desember Lokað
Munið eftir Eyja-skötunni
Afgreiðslutími um jól og áramót Mánudagur 23.desember 10:00 - 18:00
Fimmtudagur 26.desember Lokað Föstudagur 27.desember 10:00 - 18:00 Laugardagur / sunnudagur 28.- 29. desember 11:00 - 16:00 Mánudagur 30. desember 10:00 - 18:00 Þriðjudagur 31. desember 10:00 - 12:00 1. janúar 2020 Lokað
Hægt að panta í síma: 691-7623 Gleðileg jól & farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu. PÓLEY
Gleðileg jól & farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
Hugheilar jóla- og áramótakveðjur Stein Henriksen (Brói)
Gleðileg jól & farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
Jólakósý - Opið hús hjá Heimaey vinnu- og hæfingarstöð -
Föstudaginn 13. desember var Heimaey vinnu- og hæfingarstöð með jólakósý og voru allir velkomnir. Boðið var upp á smákökur, kaffi, kakó og konfekt. Hægt var að gera góð kaup á þeirra vörum, kertum, ristuðum möndlum og fleira. Tígull kíkti í heimsókn til þeirra og tók nokkrar myndir.
Við sendum okkar bestu jóla- og áramótakveðjur
Við sendum okkar bestu jóla- og áramótakveðjur
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Frumherji Faxastígur / 570 9231
Aðalfundur Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi verður haldinn í Gírkassahreppi 28. desember 2019 kl. 16:00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál Pinnamatur og léttar veitingar Stjórnin Óskum félagsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Jóladagskrá
Hvítasunnukirkjunnar Jólahvísl 20. desember Jólatónleikar Aðgangur ókeypis, frjáls framlög til „Barnahags Vestmannaeyja" (0185-15-551107 kt. 280374-4829) Aðfangadagur kl. 17:00 Syngjum jólin inn Jóladagur kl. 14:00 Hátíðarsamkoma Gamlársdagur kl. 14:00 Vitnisburðarsamkoma Nýársdagur kl. 14:00 Fögnum nýári
Fjölmenningarfulltrúi sér árangur af starfi sínu: - Sameina íslensk og pólsk jól og byrjar á aðfangadag Aukin áhersla á tungumálanám sem fleiri stunda Kennsla í íslensku fyrir útlendinga hefur verið efld í Vestmannaeyjum, ekki síst fyrir Pólverja sem hér búa. Er Klaudia í góðu samstarfi við sendiráð Póllands á Íslandi sem sýnt hefur mikinn áhuga. Nærri lætur að hér búi um 450 útlendingar, þar af um 200 Pólverjar. Þetta kemur fram hjá Klaudiu Beata Wróbel sem ráðin var fjölmenningarfulltrúi Vestmannaeyja í mars á þessu ári. „Pólskunám fyrir pólsk börn í GRV er í mjög góðu samstarfi við pólska sendiráðið hér á landi. Kom sendiherrann í heimsókn í sumar og ræddi við Írisi bæjarstjóra og Angantý hjá Vestmannaeyjabæ og Önnu Rós skólastjóra Grunnskólans,“ sagði Klaudia sem segist hafa nóg að gera. „Ég er í hálfu starfi og hef haft nóg að gera og nú er búið að staðfesta að ég held áfram. Það er fullt af fólki sem kemur til mín vegna tungumálaerfiðleika og þarf leiðsögn til að læra á íslenska kerfið.“ Það hefur orðið mikil breyting til hins betra. Áður var heimasíða hjá bænum sem ekkert var að finna á pólsku og örfá eyðublöð sem höfðu verið þýdd. Núna er ný heimasíða í smíðum og öflug íslenskukennsla hjá Visku. Þátttakendur hafa aldrei verið fleiri, þrír hópar, tveir pólskir og einn blandaður. Kennsla gengur vel, nemendur áhugasamir og eru sumir að ná ótrúlegum árangri.“ Náminu stýrir Jóhanna Lilja Eiríksdóttir og Klaudia hleypur undir bagga þegar fólk skilur ekki ensku. „Það verður haldið áfram eftir áramót og er skráning hafin,“ segir Klaudia. Fyrir utan þetta er kennd pólska fyrir pólska krakka á miðstigi í Grunnskólanum. „Það er Marta Wawrzynkowska, sem spilar handbolta með ÍBV sem aðstoðar við kennsluna en
hún hefur réttindi til að kenna á grunnstigi í Póllandi. „Það sem þarf að gera er að viðhalda orðforða hjá pólsku krökkunum, þjálfa þau í móðurmáli því það styrkir þau í íslenskunni. Þetta er tilraun sem vonandi verður framhald á,“ sagði Klaudia. Hún segir útlendinga í Vestmannaeyjum vera um eða yfir 10 prósent bæjarbúa, um 450 og eru Pólverjar fjölmennastir, um 200. „Við stefnum á pólskan dag 22. febrúar sem verður í fyrsta skipti í Vestmannaeyjum. Pólski sendiherrann kemur með tónlistarfólk og dansara. Pólskur matur verður í boði, allt heimatilbúið og allur matur ókeypis. Það verða líka sölubásar þar sem hægt verður að kaupa pólskar vörur. Fyrirtæki hér hafa sýnt mikinn áhuga og er ég mjög þakklát fyrir það, og við erum enn að safna styrkjum.“ Sameinað jólahald Að lokum sagðist Klaudia vilja þakka fyrir sig í starfi fjölmenningarfulltrúa. „Vonandi hefur starfið skilað einhverju og ég held glöð áfram eftir áramót.“ Nú þegar jólin eru á næsta leiti er Klaudia og fjölskylda, kærastinn Marcin Wanecki að undirbúa jólin. „Það er orðið svo lítið blandað. Við
erum búin að vera hér svo lengi og erum að aðlagasta íslenskum jólum og halda í pólskar hefðir um leið,“ segir Klaudia. Hefðirnar eru, að á aðfangadagskvöld eru tólf réttir en ekkert kjöt. Við höldum í réttina sem okkur finnst ómissandi en erum með hamborgarhrygg líka. Gjafirnar eru svo opnaðar eftir matinn eins og hér. Í Póllandi er farið í kirkju um kvöldið en við gerum það ekki hér. Við erum svo heppin að eiga stórfjölskylduna hér á Íslandi en sumir eru einir en þeir reyna að þjappa sér saman og þeim er boðið í mat hjá öðrum Pólverjum. Allir vilja eiga gleðileg jól, sama hvaðan við komum. Óska ég öllum gleðilegra jóla og vonast til að eiga gott samstarf við sem flesta sem fjölmenningarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar,“ sagði Klaudia að lokum. Klaudia er 22 ára, fædd í Póllandi og kom til Íslands 2008. Talar mjög góða íslensku og útskrifaðist sem stúdent frá Farmhaldsskólanum í Vestmannaeyjum í desember sl. Var hún valin úr hópi fjögurra umsækjenda. Klaudia er komin með íslenskan ríkisborgararétt.
Þökkum innilega allan þann stuðning og hjartagæsku sem Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum og íbúum þess hefur verið sýnd á árinu.
Óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða.
Það er ómetanlegt að eiga að velunnara sem hafa styrkt okkur með gjöfum og vinnu til góðra verka, hin ýmsu félagasamtök í bænum, einstaklinga, tónlistarfólk, samstarfsaðila í leik og starfi og sjálfboðaliða. Ekki hvað síst þökkum við þann mannauð sem við eigum í okkar góða starfsfólki. Stuðningur ykkar allra er ómetanlegur. Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Lifið heil
Stjórnendur Hraunbúða
5.900 kr.
9.990 kr.
Skvísubúðin & Útgerðin / Skólavegur 6
Jólin í Landakirkju 2019 Aðfangadagur, 24. desember 14:00 18:00 23:30
Helgistund í kirkjugarðinum Aftansöngur á aðfangadag Miðnæturmessa á aðfangadagskvöldi
Jóladagur, 25. desember 14:00
Óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
Annar í jólum, 26. desember 14:00
Jólakveðja, Geisli
Hátíðarguðsþjónusta á Hraunbúðum
Sunnudagur, 29. desember 16:00
Þökkum viðskiptin á árinu.
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur undir sálmasöng og hefur leik kl. 13:30
Jólaball Kvenfélags Landakirkju
Aðgangur ókeypis
Gamlársdagur, 31. desember 18:00
Aftansöngur á gamlársdegi
Nýársdagur, 1. janúar 14:00
Hátíðarguðsþjónusta á nýársdegi
Þrettándamessa, 5. janúar 13:00
Guðsþjónusta í Stafkirkjunni
Veistu svarið? - Skemmtilegar spurning úr Spurningabókinni 2019 Dýraríkið
Gátur
1. Hver af eftirtöldum fuglum verpir stærstu eggjunum? a) mörgæs b) pekingöng c) strútur
1. Nafn hvaða farartækis, sem eingögnu er notað á sjó eða vatni, má lesa bæði áfram og aftur á bak?
2. Kvendýr hvaða dýrategundar er m.a. kallað vargynja?
2. Allir hafa mig, en margir gæta mín þó illa, hver er ég?
3. Hvaða tilfinning veldur því að flóðhestar geispa?
3. Þú sérð minna ef meira er af því, við hvað er átt?
4. Ungi hvaða fugls er kallaður kofa?
4. Hvaða tími er ávallt lengstu að líða?
5. Hvaða dýr er rýta?
5. Hvert liggja allir vegir?
Bland í poka
Tónlist
1. Í hverju er hreinleiki gulls mældur?
1. Í lagi Jóns Jónssonar, Með þér, syngur hann um að kaupa bland í poka, en fyrir hversu mikið?
2. Hversu mörg epli eru í einni og hálfri tylft? 3. Ef 24. febrúar ber upp á sunudag og ekki á hlaupaári, hvaða mánaðardag ber þá næsta sunnudag upp á? 4. Í hvaða stjörnumerki er það fólk sem fætt er ágúst/sept? 5. Hvað eru apahönd, hálfbragð, pelastikk og stokkbragð?
2. Hvaða ár fæddist Ed Sheeran? 3. Hvaða hljómsveit flytur lagið Sorrý með mig? 4. Hvert er listamannsnafn rapparanns Árna Páls Árnasonar? 5. Hvaða strengjahljóðfæri er með 48 strengjum?
Svör Dýraríkið 1. c) 2.Úlfs 3.Reiði 4. Lunda (lundapysja) 5.svín Tónlist 1. 100 kr. 2.1991 3.Baggalútur 4. Herra Hnetursmjög 5.Harpa Gátur 1. Kajak 2.Heilsan 3.Myrkið 4. Biðtíminn 5.Í tvær áttir Bland í poka 1. Karötum 2.18 3.3.mars 4. Meyja 5.Hnútar
Tekið úr Spurningabókinni 2019 - Bókaútgáfan Hólar. Við erum komin í jólaskap og bjóðum upp á jólatilboð af smurþjónustu
20 % afsláttur
AF SMURÞJÓNUSTU Nethamar ehf / Garðavegi 15 / 481 1216
BÆÐI AF VINNU & OLÍU
Við sendum Vestmannaeyingum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár TILBOÐ Á GJAFABRÉFUM Nótt í tveggja manna herbergi á Hótel Vestmannaeyjar Morgunverður Aðgangur að SPA
Hótel Vestmannaeyjar golfEfgjafabréfið gjafabréf er notað yfir 1. okt - 30. apríl gildir það fyrir tvær nætur
28.350 kr.
Ársþing Íþróttabandalags Vestmannaeyja fyrir árið 2018 verður haldið mánudaginn 6.janúar kl.20:00 í Týsheimilinu. Stjórn Íþróttabandalags Vestmannaeyja
Vestmannabraut 28 | S. 481 2900 | hotelvestmannaeyjar.is
Þarft þú að koma þér í andlegt form ? - sláandi hvað margir hugsa lítið sem ekkert út í það að koma sér í betra andlegt form Hversu oft á undanförnum árum hefur þú hugsað um að koma þér í líkamlegt form? En hversu oft á undanförnum árum hefur þú hugsað um að koma þér í andlegt form? Það er nefnilega sláandi hvað margir hugsa lítið sem ekkert út í það að koma sér í betra andlegt form og markviss andleg vinna nær yfirleitt ekki inn á listann hjá fólki sem er að setja sér markmið. Fólk er oft tilbúið að eyða fúlgu fjár í líkamsræktarkort (og vera jafnvel orðnir styrktaraðilar eftir fyrsta mánuðinn) en eiga erfitt með að fjárfesta í aukinni andlegri vellíðan. Ertu að byrja á vitlausum enda? Það getur verið erfitt að ná tökum á markmiðum eða gera langvarandi lífstílsbreytingar ef þú ert föst/fastur í sama gamla farinu andlega, eins og með sjálfsniðurrif af einhverju tagi, lítið sjálfstraust, agaleysi með neikvæðan huga, ranghugmyndir um sjálfan þig eða annað. Hugurinn leitar alltaf í öryggi eða í sama gamla farið ef hann kemst upp með það, því hann er forritaður þannig. Því getur það reynst einstaklega erfitt að gera langvarandi breytingar því einhversstaðar á leiðinni tekur gamla hugsanamynstrið við. Þegar fólk er í vanlíðan, upplifir stress, áhyggjur eða álag í sínu lífi þá leita margir í mat (skyndibita, snakk, bakkelsi, sætindi eða í aðra óhollustu) til að deyfa sig tilfinningalega og í kjölfarið hefur það minni löngun eða orku til að hreyfa sig. Þetta verður síðan að vítahring sem erfitt getur verið að brjótast út úr. Þarna kemur hugurinn sterkur inn! Hvað er andleg einkaþjálfun? Andleg einkaþjálfun er prógram sem kemur þér í þitt allra besta andlega form á 12 mánuðum og þú færð
nýja sýn á sjálfan þig, lífið og fólkið í kringum þig. Það tekur tíma að snúa hugarfarinu við og gera jákvæðar lífstílsbreytingar og það eru engar skyndilausnir! Þeir sem trúa að skyndilausnir virki fá að öllum líkindum árangur eftir því. Þessi þjálfun er byggð upp á jöfnum og góðum skrefum, allt til þess gert að koma þér í þitt allra besta andlega form. Andlegt form árið 2020? Þegar síðasti mánuður ársins er runninn upp fara margir að líta um öxl og fara yfir markmiðin sem sett voru í byrjun ársins. Hvernig gekk þér með þín markmið? Var árið, í heildina litið, eitthvað í líkingu við það sem þú hafðir vonað? Hvernig væri að breyta út frá vananum og gera jafnvel eitthvað sem þú hefur aldrei gert áður, að koma þér í andlegt form? Þegar þú ákveður að setja þína andlegu heilsu í fyrsta sæti, þá er alveg magnað að sjá hvað margt annað í þínu lífi tekur jákvæðari breytingum.
Gefðu aukna vellíðan í jólagjöf Gjafabréf í andlega einkaþjálfun er kærleiksrík gjöf til þeirra sem þér þykir vænt um. Hvernig væri að gefa aukna vellíðan í jólagjöf? Hafðu samband: hrafnhildur@andlegeinkathjalfun.is www.andlegeinkathjalfun.is Instagram: andlegeinkathjalfun Hrafnhildur J. Moestrup Andlegur einkaþjálfari
Við sendum okkar bestu jóla- og áramótakveðjur
Við sendum okkar bestu jóla- og áramótakveðjur
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. kveðja, Svanhvít, Hrönn, Angelíka og Aníta
Gleðileg jól & farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
Gleðileg jól & farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
Gleðileg jól & farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
Gleðileg jól & farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu.
Bílaverkstæði Muggs
Hátíð álfa, trölla og jólasveina
DAGSKRÁ 1. - 5. JANÚAR 2020 MIÐVIKUDAGUR 1. JANÚAR
Kl. 13:00 - 16:00, Einarsstofa Nýárssýning Listasafns Vestmannaeyja: Málverkasýning Júlíönu Sveinsdóttur. Aðeins sýnd þennan eina dag.
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR
Einarsstofa Jóladagatal Listasafns Vestmannaeyja sett upp aftur 2. janúar og stendur til 24. janúar. Kl. 21:00 - Höllin Eyjakvöld með Blítt og Létt allir syngja með.
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR
Kl. 14:00 -15.30, Höllin Diskógrímuball Eyverja. Jólasveinninn mætir. Verðlaun verða veitt fyrir búninga og öll börn fá nammipoka frá jólasveininum. Kl. 19:00 Hin eina sanna Þrettándagleði ÍBV og Íslandsbanka Flugeldasýning, blysför, álfabrenna, jólasveinar, tröll, tónlist og margt fleira. Gangan hefst við Hánna og gengið verður upp Illugagötu, niður Höfðaveg og að malarvellinum þar sem hinar ýmsu kynjaverur heilsa upp á gesti. Kl. 00:00 Höllin, dansleikur Þrettándadansleikur með hljómsveitinni Nýju föt keisarans.
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR
Kl. 12.00 - 15.00,Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja Tröllagleði Fjölskyldan getur komið saman og leikið sér í íþróttasölum undir stjórn Söndru Dísar Sigurðardóttur, handboltakonu. Endilega mæta sem flest. Kl.12:00-16:00 Langur laugardagur í verslunum Trölla tilboð og álfa afslættir í gangi hjá verslunum!
SUNNUDAGUR 5. JANÚAR
Kl. 13.00 Helgistund í Stafkirkjunni
Sr. Viðar Stefánsson fer með hugvekju.
Hefðbundinn opnunartími á söfnum bæjarins!
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir það liðna
NÝJA TANNLÆKNASTOFAN
Sjómannadagsráð
Bílaverkstæði
HARÐAR & MATTA
ÖKUKENNSLA
SNORRA RÚTS Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01
• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli
20 ára reynsla! Sími 692-3131
vörurnar fást nú í
Við sendum okkar bestu jóla- og áramótakveðjur Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Hátíðaropnun: Þorláksmessa opið til 22:00 Aðfangadagur: Lokað Jóladagur: Lokað Opið alla hina dagana til 21:00 Gamlársdagur opið til 13:00 Nýárs opnum upp úr hádegi
481 - 3939
Við erum komin í jólaskap Fullt af nettilboðum á 8.900 kr. Öll barnafargjöld á 7.900 kr. Ferðatímabilið 15. nóv til 15. jan
Bókaðu flugið á ernir.is
Tilvalið í jólapakkann Gjafabréf hjá okkur
Crispus - Heiðarvegur 9 - 772 6766
Tannlæknar 17. - 19. desember - Hjalti Þ. 2. - 4. janúar - Hjalti H.
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40 Tímapantanir í síma 481-2772
Opnunartími yfir jólin Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja 23. desember 24. desember 25. desember 26. desember 31. desember 1. janúar 2020 3. janúar 2020
Þorláksmessa Aðfangadagur Jóladagur Annar í Jólum Gamlárs Nýársdagur Þrettándinn
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og nýs árs Starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar
06.15-17.00 08.00-11.00 Lokað 09.00-15.00 08.00-11.00 Nýárs lokað 06.15-17.00
SIGLINGAÁÆTLUN
HERJÓLFS UM HÁTÍÐARNAR Aðfangadagur
Gamlársdagur
Jóladagur
Nýársdagur
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00, 09:30 og 12:00 Brottför frá Landeyjahöfn* kl. 08:15, 10:45 og 13:15 *Ef siglt er frá Þorlákshöfn Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45 Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 09:30 og 22:00 Brottför frá Landeyjahöfn* kl. 10:45 og 23:15 *Ef siglt er frá Þorlákshöfn Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 09:30 Brottför frá Þorlákshöfn kl. 13:15
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00, 09:30 og 12:00 Brottför frá Landeyjahöfn* kl. 08:15, 10:45 og 13:15 *Ef siglt er frá Þorlákshöfn Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45 Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 09:30 og 22:00 Brottför frá Landeyjahöfn* kl. 10:45 og 23:15 *Ef siglt er frá Þorlákshöfn Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 09:30 Brottför frá Þorlákshöfn kl. 13:15