41. tbl. 03. árg. 15. - 22. desember 2021
6. BEKKUR SÝNDI HELGILEIKINN FYRIR 4. OG 5. BEKK
@leturstofan
/leturstofan
HELGILEIKURINN Það hefur verið hefð fyrir því að nemendur á miðstigi setji upp helgileikinn. Til að byrja með voru þetta nemendur í 7. bekk sem settu þetta upp en svo í seinni tíð var þetta fært niður í 5. bekk og núna munu nemendur í 6 . bekk sjá um þetta. Mánudaginn síðastliðinn var 6. bekkur með sýningu fyrir 4. og 5. bekk í Leikhúsi Vestmannaeyja. Þetta er alltaf mjög skemmtilegt ferli þegar byrjað er að æfa. Sýningar eru vanalega fyrir yngri nemendur og svo hafa verið sýningar í kirkjunni fyrir foreldra. En vegna covid var ekki hægt að gera það núna. Í þetta skipti var kirkjusýningin tekin upp og verður upptakan aðgengileg á vef Grunnskóla Vestmannaeyja. Hvernig er valið í hlutverkin? Við spyrjum hvaða hlutverk þau hafa áhuga á og svo er dregið og þeir sem ekki eru dregnir í hlutverk eru í kórnum. Kórinn er eiginlega aðalhlutverkið því ef hann er góður þá er sýningin góð. Það er reyndar ekki vaninn að vera með hljómsveit en þar sem það eru svo mörg hjá okkur í tónlistarskólanum þá vorum við með undirleikara. Við kennararnir erum mjög sátt með þetta og Jarl á stórt hrós skilið fyrir að koma þessu saman.
TÍGULL
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
TRYGGÐU ÞÉR JEEP Á LÆGRA VERÐI
480.000 KR . VSK verð hækkun um áramótin *
ALVÖRU JEPPI. ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF.
JEEP WRANGLER RUBICON** TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI
JEEP COMPASS TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI
JEEP RENEGADE TRAILHAWK TORFÆRUÚTGÁFA
Nú er tilvalið að tryggja sér alvöru jeppa með alvöru fjórhjóladrifi í forsölu. Áætlað er að bílarnir verði tilbúnir til afhendingar í desember. NETHAMAR ER ÞJÓNUSTUAÐILI JEEP OG RAM Í VESTMANNAEYJUM. *Verð á Compass og Renegade hækkar um 480.000 KR. um áramótin, vegna VSK hækkana. **Bjóðum upp á 35”-40” breytingapakka fyrir Wrangler.
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • JEEP.IS • ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM JÓLIN PÉTUR BJARNASON Aldur: 5 ára. Fjölskylda: Pabbi minn heitir Bjarni Geir Pétursson og mamma mín Tinna Hauksdóttir. Stóri bróðir minn heitir Þórir. Finnst þér jólin skemmtileg og afhverju? Já há! Útaf þá get ég gert snjóhús og kastað snjóbolta. Svo koma jólasveinarnir. Hvað langar þig í jólagjöf? Mig langar í Flash búning svo að ég geti farið ógeðslega hratt i alvörunni og Spiderman búning sem spinnur alvörunni vef. Hvað er mamma best í að gera? Að búa til snjóhús og að knúsa og kyssa mig. Hvað er pabbi bestur í að gera? Að skreyta jólatréð og líka búa til snjóhús. Hvað ert þú bestur í að gera? Að búa til snjóhús og bestur í að spila Olsen Olsen og veiðimann. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Lögga. Afhverju eru jólin haldin? Útaf snjónum!! Og jólasveinunum.
ANDREA ÓSK Aldur: 5 ára Fjölskylda: Mamma mín heitir Kristín Ósk Óskarsdóttir og pabbi minn heitir Jón Helgi Sveinsson. Fósturmamma mín heitir Kata Laufey. Ég á skrilljón systkini, tvo bræður og fjórar systur. Finnst þér jólin skemmtileg og afhverju? Opna pakkana. Hvað langar þig í jólagjöf? Hvolpasveitaflugvél. Hvað er mamma best í að gera? Vinna. Hvað er pabbi bestur í að gera? Vinna. Hvað er Kata mamma best í að gera? Vinna. Hvað ert þú best í að gera? Perla. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Söngkona, lögga og læknir. Afhverju eru jólin haldin? Af því að það er að koma desember.
STARFSFÓLK APÓTEKARANS ÓSKAR VIÐSKIPTAVINUM SÍNUM GLEÐILEGRAR HÁTÍÐAR Afgreiðslutími um jól og áramót:
Vestmannaeyjar 18. des kl. 11–16
27. des kl. 10–18
23. des kl. 9–20
31. des kl. 9–12
24. des kl. 9–12
1. jan LOKAÐ
25. des LOKAÐ
2. jan LOKAÐ
26. des LOKAÐ
3. jan kl. 10–18
Vesturvegur 5 S: 481 3900
– lægra verð
UNDIRBÚNINGUR JÓLANNA samverustundanna með okkar nánustu á aðventunni og förum í kirkjugarðinn með kerti á leiði hjá fólkinu okkar. Við gerum laufabrauð með ættingjum og ég baka sörur með vinkonunum sem eru skemmtilegar hefðir sem eru vonandi komnar til að vera. Hvenær byrjið þið að setja upp jólaljós? Við erum ekkert allt of snemma í því að setja upp ljósin en það kemur þrýstingur frá krökkunum um leið og nágrannarnir fara að setja upp ljósin. Hvenær er jólatréð skreytt? Við reynum að bíða með það eins lengi og hægt er því spenningurinn fyrir jólunum verður sérstaklega áþreifanlegur hjá þeim yngri þegar jólatréð er komið upp og spurningarnar um pakkana verða 10 sinnum erfiðari eftir að það er komið upp. En við höfum gert þetta um viku fyrir aðfangadag.
Nafn & fjölskylda: Lilja Björg Arngrímsdóttir. Gift Gísla Geir og eigum við þrjú börn, Tómas Arnar, Magnús Arnar og Þóru Elísu. Hvaða hefðir tíðkast í fjölskyldunni í kringum jólin? Við erum með frekar hefðbundnar jólahefðir. Njótum
Er mikill munur á hefðum núna og þegar þú varst lítil og hvað þá helst? Nei mér finnst hefðirnar ekki hafa breyst mikið. Þetta snýst aðallega um börnin í dag eins og það gerði áður og að eiga góðar stundir með fjölskyldunni. Er eitthvað sem má alls ekki sleppa í kringum jólahátíðina? Nei en gleymum ekki að þetta er hátíð og hennar má njóta með þeim hætti sem hver og einn kýs að gera það.
Með þes
sari gjöf til þín he fur einhv þér náko er min/n sty rkt rekstu heilsugæ rá slu í þorp inu Kubu og fleiri neh í Ga verkefni mbíu á vegum góðgerð arfélags Allir skip ins ta máli. Það gefu r þér von andi hlýtt í hjartað .
HLÝTT Í HJARTAÐ Í versluninni KUBUNEH á Vestmannabraut getur þú keypt gjöf til einhvers sem er þér nákominn sem gefur viðkomandi hlýtt í hjartað og í leiðinni ert þú að styrkja rekstur á heilsugæslu í Þorpinu Kubuneh í Gambíu ásamt fleiri verkefnum á vegum góðgerðarfélagsins Allir skipta máli.
Þessi litla
stúlka va r með m óðir sinn Móðirinn i á heilsu fékk fræ gæslunn ðslu um i. k ve nlíkama á vegum nn Allir skip ta máli.
MUNUM EFTIR
FJÖLNOTA POKUNUM
EKKI GLEYMA
GRÍMUNUM
OPNUNARTÍMAR UM HÁTÍÐIRNAR
Mánudagur
20. desember
11-18
Mánudagur
27. desember
11-18
Þriðjudagur
21. desember
11-18
Þriðjudagur
28. desember
11-18
Miðvikudagur
22. desember
11-18
Miðvikudagur
29. desember
11-18
Fimmtudagur
23. desember
11-19
Fimmtudagur
30. desember
11-19
Föstudagur
24. desember
10-13
Föstudagur
31. desember
10-13
Laugardagur
25. desember
Lokað
Laugardagur
1. janúar
Lokað
Sunnudagur
26. desember
Lokað
Sunnudagur
2. janúar
Lokað
Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vinbudin.is Við minnum á að áfengiskaupaaldurinn á Íslandi er 20 ár og biðjum fólk að hafa skilríki meðferðis.
ENNEMM / SÍA
Vínbúðin Vestmannaeyjum
STARFSFÓLK VESTMANNAEYJABÆJAR KVATT
Skapast hefur hefð fyrir því hjá Vestmannaeyjabæ að kveðja starfsfólk sem látið hefur af störfum vegna aldurs með sérstakri viðhöfn í árslok. Síðastliðinn föstudag bauð Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, starfsfólki sem látið hefur af störfum á árinu til samverustundar í Eldheimum. Þar færði Íris þeim lítinn þakklætisvott fyrir framlag þeirra til Vestmannaeyjabæjar á starfsævinni og minntist hvers og eins með nokkrum orðum. Alls sjö einstaklingar létu af störfum vegna aldurs á þessu ári. Þeir eru Aðalheiður Sveinsdóttir Waage, Allan F. Alison, Einar Steingrímsson, Ingunn Elín Hróbjartsdóttir, Linda Sigurlássdóttir, Ólafur Lárusson og Sveinn Rúnar Valgeirsson. Vestmannaeyjabær þakkar öllum ofangreindum samstarfið á síðastliðnum árum og áratugum og óskar þeim gæfuríkrar framtíðar. Það var Bjarni Sigurðsson ljósmyndari sem tók myndir fyrir Tígul.
Jólaréttirnir okkar!
Jóla refur piparkökur, kókosbolla og heit mars sósa.
Bismark refur Bismark brjótsykur, Bismark súkkulaði og hvít dýfa.
Bananasplit Banani, þrjár tegundir af kúluís að eigin vali, jarðarber, heit nutellasósa, rjómi og möndluflögur.
/eydisisbud @eydisisbud Opnunartími: Alla virka daga 17-22 & um helgar 12-22
Belgísk Vaffla með ís, ferskum ávöxtum og heitri sósu. Ásamt heitu kakó.
PERSÓNULEGUR AÐSTOÐARMAÐUR Ég heiti Guðrún Kristmannsdóttir og er 57 ára MS sjúklingur bundinn við hjólastól og bý í Vestmannaeyjum. Nú er svo komið að mig vantar aðstoðarfólk til starfa. Starf aðstoðarmanns felst annars vegar í persónulega aðstoð: við að klæðast, fara í bað, versla inn, sinna erindum, fara í heimsóknir, skreppa í bæinn og annað skemmtilegt. Og hins vegar aðstoð við heimilisþrif, þvott, innkaup, þrífa bílinn og allt sem venjulegt fólk gerir á sínu heimili.
Þorláksmessu skatan Munið eftir Eyja-skötunni
Stundvísi, samvinnu- og samskiptahæfileikar og áhugi fyrir starfi með fólki með fötlun eru mikilvægir eiginleikar í starfinu. Umsækjendur þurfa að vera jákvæðir og drífandi, með frumkvæði, hæfni í mannlegum samskiptum og hafa náð 20 ára aldri. Allar frekari upplýsingar veitir dóttir mín, Kristín Halldórsdóttir, í síma 698-8749 eftir kl.16:00 eða á kitta1985@hotmail.com. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á hana.
@leturstofan
Hægt að panta í síma: 691-7623
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samhug og hlýhug við andlát og útför ástkæru móður okkar, fósturmóður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
/leturstofan
GUÐLAUGAR PÉTURSDÓTTUR frá Kirkjubæ, Vestmannaeyjum
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hraunbúða fyrir góða umönnun og hlýhug.
Guðrún R. Jóhannsdóttir Jónas S. Jóhannsson Pétur S. Jóhannsson Jóhann Þór Jóhannsson Kristín Antonsdóttir
Þórarinn Sigurðsson Þorbjörg Þorfinnsdóttir Vilborg Stefánsdóttir Hafdís Hannesdóttir
Ömmubörn og langömmubörn
JÓN JÓNSSON & FRIÐRIK DÓR MEÐ TÓNLEIKA Í HÖLLINNI 22. DESEMBER Barnatónleikar kl. 16:00 & fullorðinstónleikar kl. 20:00 Það verður frábær stemning og kátt í Höllinni þegar bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór mæta til Eyja með alla sína bestu slagara. Skemmtilegar sögur munu flettast inn í prógrammið og munu bræðurnir eflaust dansa eins og hálfvitar, til í allt og elska þegar sólin fer að skína. Ath. að vegna takmarkanna er takmarkað miðaframboð, svo það er um að gera að drífa sig í að næla sér í miða! Eins og staðan er núna munu tónleikagestir þurfa að fara í hraðpróf, sem er hægt í Eyjum, og er ekkert mál. Hvernig leggjast tónleikarnir í ykkur? Þeir leggjast einstaklega vel í okkur bræður. Við fáum alltaf svo hlýjar móttökur á Eyjunni fögru og hlökkum til að koma svo nærri jólahátíðinni Verður mikill munur á barna- og fullorðinstónleikunum? Það verður svakalegur munur. Á barnatónleikunum verðum við í korseletti en á fullorðins í hör-sloppum. En svona að öllu gamni slepptu þá verður auðvitað sama orkan en smá munur á lagalistanum. Lagið um glaðan hundinn ratar til dæmis ekki inn á kvölddagskrána. Hvor er meira jólabarn, þú eða Frikki? Frikki er miklu meira jólabarn. Alveg frá því að hann var smápolli hefur hann alltaf grátið fyrsta hálftímann eftir að klukkurnar hringja á aðfangadag. Við gátum aldrei hafið borðhaldið fyrr en svona korter í sjö. Í dag hefur þetta skánað en Lísa og dætur þeirra sýna þessu mikinn skilning og eru með jólasnarl á bakka. Þá geta þau nartað í það þar til Frikki er klár í borðhaldið.
Hvað finnst þér skemmtilegast um jólin? Þetta er auðvitað fyrirsjáanlegt svar en skemmtilegast við jólin er samveran. Það er svo gaman að gleðjast saman, borða góðan mat, spila og horfa á jólamynd. Hverju eiga Eyjamenn von á á Desembertónleikum ÍBV? Eyjamenn eiga von á bræðrunum í einstökum hátíðargír. Við lumum samanlagt á fjórum Þjóðhátíðarlögum svo það ætti að vera nokkuð einfalt að fá fólkið til að syngja með.
UPPSKRIFT VIKUNNAR - SÖRUR Hráefni: Botn: 5 eggjahvítur 3 1/2 dl flórsykur 400 g möndlumjöl Krem: 3/4 dl sykur 1 1/2 dl vatn 5 eggjarauður 300 g smjör 1 msk kakó 1 1/2 tsk Neskaffiduft 1/3 tsk salt Súkkulaðihjúpur: 250 g dökkt gott súkkulaði
Aðferð: Botn: Þeytið mjög vel eggjahvítur og flórsykur, setjið möndlumjöl varlega út í. Setjið á plötu með teskeið, hafið kökurnar litlar, ca 1/2 – 2/3 tsk passlegt í eina köku. Bakið við 180° í 7-10 mín. Kælið kökurnar vel eða frystið áður en kremið fer á þær. Krem: Sjóðið saman sykkur og vatn í um 10 mín, kælið. Þeytið eggjarauður og hellið sykurvatninu saman við í mjórri bunu. Bætið við smjöri, kakói, Neskaffi og salti. Setjið kremið í rjómasprautu með engum stút á, sprautið á kökurnar og kælið vel eða frystið. Súkkulaðihjúpur: Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði og dýfið kökunum í og hyljið kremið en ekki botninn. Geymið kökurnar í kæli eða frysti.
Þú getur fundið næstu bíómyndir og sýningartíma á
eyjabio.is
Jólagjöf fyrir herrann! Emporio Armani úr 49.900 kr.
Bindi 4.900 kr. Slaufa 4.900 kr. Raksett 19.900 kr.
SUDOKU
ORÐAÞRAUT
GLEÐILEG JÓL KÆRU GOTT YFIR HÁTÍÐINA
LESENDUR HAFIÐ ÞAÐ FARSÆLT KOMANDI ÁR
NÝTT
Katta- og hundanammi!
ROYAL CANIN FÆST NÚ HJÁ OKKUR Fyrir hunda, ketti, hvolpa og kettlinga
ÞÚ FÆRÐ RAFMAGNSVERKFÆRIN HJÁ OKKUR
488 3550 // skipalyftan.is // Opið alla virka daga 07:30 - 18:00 og laugardaga 10:00 - 12:00