Skip to main content

Tígull 41.tbl

Page 1

41. tbl. 01. árg. 11. - 17. desember 2019 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is

Jóla­leg­ur Pavlovukr­ans

60 ár frá komu Herjólfs 1

Er Jólastressið að fara með þig?

Þennan jóla­lega Pavlovukr­ans gerði hún Berglind Sigmarsdóttir - UPPSKRIFT

Það var stórt stökk í samgöngumálum Vestmannaeyinga þegar fyrsti Herjólfur kom í desember 1959.

Ragnheiður Guðnadóttir er með flottan pistil um jólastressið.


Er Jólastressið að fara með þig? - Ragnheiður Guðfinna -

Jólastressið er eflaust farið að gera vart um sig hjá flestum. Kannski gerum við okkur ekki grein fyrir því að við séum að upplifa streitu en undirmeðvitundin ræsir upp streitukerfið okkar og við finnum fyrir innri spennu þegar við veitum núlíðandi stund athygli. Mótaði partur heilans er komin í margra ára gamlan vana varðandi það hvað þurfi að gera til að upplifa „fullkomin jól“. Jólahreingerningin, jólakortin, jólamaturinn, jólafötin og jólapakkarnir er eitthvað sem okkur hefur verið kennt að hafa alveg 100% á hreinu. Öll höfum við væntingar varðandi það hvernig jólin eiga að vera,

TÍGULL

margar af þessum væntingum valda okkur sjálfum vonbrigðum þar sem viðmiðin frá fortíð miðað við nútíð byggjast ekki á raunhæfum viðmiðum. Hraði, óraunhæf viðmið og sýndarveruleiki einkennir oft það sem við erum að hlaupa á eftir í dag sem gerir það að verkum að misræmi myndast í huga okkar á milli raunveruleikans og þess sem við erum að sækjast eftir. Besta ráðið til að minnka jólastressið er að draga niður viðmiðin, einfalda hlutina og sætta sig við ófullkomleikann.

Aðventan á að einkennast af góðum og notalegum stundum með sínum nánustu en ekki stressi og spennu. „Einföldun“ er besta leiðin til að minnka eða draga úr jólastressinu, fækkum hlutverkum og verkefnum sem valda manni óþarfa streitu, sættum okkur við meðalveginn og njótum þess að lifa í núlíðandi stund þrátt fyrir að allt sé ekki fullkomið. Eina sem við eigum er „núlíðandi stund“ er þá ekki eina verkefnið að njóta hennar hverju sinni og hætta að stressa sig yfir því sem er framundan. www.hugaheimur.is

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


STÓRHLJÓMSVEIT UNDIR STJÓRN JÓNS ÓLAFSSONAR BIRGIR NIELSEN · EIÐUR ARNARSSON · JÓN ELVAR HAFSTEINSSON · KJARTAN VALDEMARSSON SIGURÐUR FLOSASON · MATTHÍAS STEFÁNSSON · ARI BRAGI KÁRASON

MIÐASALA HAFIN Á HARPA.IS · TIX.IS OG Í MIÐASÖLU HÖRPU Í SÍMA 528 5050


Sextíu ár frá komu fyrsta Herjólfs

ÓMAR GARÐARSSON omar49@simnet.is Það var stórt stökk í samgöngumálum Vestmannaeyinga þegar fyrsti Herjólfur kom í desember 1959. Hann var hefðbundið farþega- og flutningaskip sem gat tekið nokkra bíla á dekk. Hann gekk daglega á milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja og sigldi auk þess hálfsmánaðarlega til Hornafjarðar og á sumrin hin síðari ár til Þorlákshafnar einu sinni í viku. Á fimmtudaginn nk. kl. 17.00 verður þess minnst í Einarsstofu að þá verða nákvæmlega 60 ár frá því fyrsti Herjólfur kom til Eyja í fyrsta skipti með myndum og upprifjun frá þessum merku tímamótum sem var vel fagnað. Sigurgeir Jónasson, ljósmyndari frá Skuld tók myndir þegar Herjólfur lagðist að bryggju laugardaginn 12. desember 1959 og verða þær sýndar á fimmtudaginn. Auk mynda af áhöfn og farþegum sem sigldu með svarta Herjólfi eins og hann var oft nefndur. Þjónaði hann Eyjamönnum til ársins 1976. Guðbjartur Ellert

Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf. segir frá stöðu mála í dag. Herjólfur númer tvö, sem var farþega- og bílaferja kom í júlí 1976 og reglulegar siglingar hófust til Þorlákshafnar. Fyrst sex daga í viku, seinna sjö og fjölgaði loks upp í 14 ferðir á viku. Á 16 árum flutti Herjólfur nr. 2. 800 þúsund farþega og um 150 þúsund farartæki. Skipið var að lokum selt til Svíþjóðar og var það sænski herinn sem keypti það. Herjólfur nr. 3 kom í júní 1992 og sigldi til Þorlákshafnar eins og forverinn en hóf siglingar í Landeyjahöfn í júlí 2010. Það gekk misjafnlega en strax var ljóst að Landeyjahöfn var mikil samgöngubót, á meðan hún virkaði. Á þeim tíma sem Herjólfur h.f. átti skipið, þ.e. á tímabilinu 1992-2000, flutti það u.þ.b. 750 þúsund farþega og um 200 þúsund farartæki stór og smá. Miðað við það má gera ráð fyrir að skipið hafi flutt yfir 2 milljónir farþegar og 400 til 500 þúsund faratæki til dagsins í dag. Hann er enn til taks og verður næstu 2 árin. Í sumar kom svo Herjólfur númer 4

og er hann séstaklega hannaður til siglinga í Landeyjahöfn. Hann hefur reynst vel og er þegar orðin mikil samgöngubót. Nú eru áætlaðar 7 ferðir á dag í Landeyjahöfn eða tvær til Þorlákshafnar þegar veður gerast stríð. Það sem af er vetri hafa ekki margar ferðir í Landeyjahöfn fallið niður og farþegar láta vel af því að ferðast með skipinu. Ef horft er til samgangna í Vestmannaeyjum skipti flug á Bakka og til Reykjavíkur miklu máli allt fram til ársins 2010 þegar Landeyjahöfn var opnuð. Framfarirnar eru miklar frá Stokkseyrarbátnum og mjólkubátnum í Þorlákshöfn en Eyjamenn horfðu til fleiri möguleika og fengu hingað loftpúðaskip sumarið 1967 sem sigldi upp í sand. Það reyndist ekki hentugt en hugmynd um jarðgöng lifir enn góðu lífi og kannski verða þau að veruleika einhvern tímann í frmatíðinni. Hver veit? Herjófur eitt til þrjú reyndust mikil happaskip og þjónuðu Eyjamönnum vel. Megi Guð og gæfan fylgja nýjasta Herjólfi.


Makita verkfærin færðu hjá okkur FULLKOMIN JÓLAGJÖF FYRIR IÐNAÐINN

- LJÓSAKROSSAR Á LEIÐIÐ FÁST Í NOKKRUM LITUM - ÚTIKERTIN FRÁ HEIMAEY - BÚSÁHÖLD - HEIMILISTÆKI Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is /midstodin


Eyjatónleikar í Hörpu 25. janúar - Tilvalið í jólapakkann -

Í níunda skipti kemur Eyjafólk nær og fjær og vinir, saman í Hörpu og rifjar upp gömul og góð Eyjalög í bland við þau nýju. Allt hófst þetta með því að ákveðið var að minnast ártíðarafmælis eins af dáðustu sonum Eyjanna og mannsins sem kosinn var Eyjamaður tuttugustu aldarinnar, Oddgeirs Kristjánssonar. Síðan þá hafa verið flutt lög og ljóð eftir ótal höfunda og fjöldi þeirra sem komið hafa að þessum kvöldum talinn í hundruðum. Við kynnum með stolti þá listamenn sem koma til með að flytja mörg af bestu lögum Eyjanna á þessum tónleikum, sem fengið hafa vinnuheitið „Í brekkunni“. Söngvarar eru þeir Stefán Hilmarsson, Pálmi Gunnarsson, Bergþór Pálsson, Stefanía Svavarsdóttir, Matti Matt, Agnes Björt Andradóttir, Jóna Alla, Kristján Gísla og Alma Rut. Fyrir rétt rúmum 30 árum kom ungur maður til Eyja á Þjóðhátíð, þá hluti af hljómsveit sem átti eftir að verða langvinsælasta hljómsveit landsins allt fram á þennan dag, Sálinni hans Jóns míns. Hann og hans félagar slógu í gegn á þessari hátíð og á henni var frumflutt Þjóð-

hátíðarlag eins og alltaf. Textann við þetta Þjóðhátíðarlag árið 1989 gerði Bjartmar Guðlaugsson, en lagið samdi þessi ungi maður, Jón Ólafsson, sem stuttu seinna sagði skilið við Sálina og gerði í kjölfarið allt vitlaust með Bítlavinafélaginu og þar á eftir með hljómsveitinni Ný dönsk/Ný danskri. Lagið er að sjálfsögðu, Í brekkunni. Jón Ólafsson er að koma að þessum tónleikum í fyrsta skipti, en eins og margir aðrir íslenskir tónlistarmenn þekkir hann Eyjalögin nokkuð vel. Hann stjórnaði fyrr í sumar stórtónleikum á vegum Vestmannaeyjabæjar, þar sem blandað var saman vinsælum Eyjalögum og þekktum íslenskum dægurlagaperlum. Jón var hinsvegar búinn að ganga frá samkomulagi við tónleikahaldara Eyjatónleikanna í Hörpu strax á vormánuðum og því má segja að það hafi komið sér nokkuð vel fyrir hann að fá smá smjörþef af Eyjalögunum í sumar. Jón sér um hljómsveitarstjórn og spilar á píanó og hljómborð. Aðrir sem skipa stórhljómsveitina eru þeir Eiður Arnarsson, sem hefur verið á bassa á öllum tónleikunum, Birgir Nielsen Þórsson á trommur, Kjartan Valdemarsson á hljómborð

og harmonikku, Jón Elvar Hafsteinsson á gítar, Ari Bragi Kárason á trompet, Sigurður Flosason á Saxafón, flautu og slagverk og nýjasti liðsmaður sveitarinnar Matthías Stefánsson á gítar og fiðlu. Eyjalögin, bæði þau eldri og þau yngri, virðast ekki bara hljóma vel í eyrum Eyjamanna, því mörg af þeim eru orðin sígild dægurlög og mörg af nýju Þjóðhátíðarlögunum hafa verið með vinsælustu lögum hér á landi. Þar fyrir utan myndast mögnuð stemning á þessum kvöldum sem smitar út í söng og gleði og því má segja að þar ríki sannkölluð Þjóðhátíðarstemning, já við náum að flytja hluta töfranna úr Herjólfsdal í Hörpu. Fyrst og fremst er það gestum að þakka, sem koma í Hörpu, með sama hugarfar og í Herjólfsdal, að hitta ættingja og vini, hita upp með góðum sögum og flissi og hlátrasköllum, njóta svo tónlistar og enda svo kvöldið á að syngja saman og segja jafnvel enn fleiri sögur. Eyjatónleikarnir í Hörpu eru því svo miklu meira en bara tónleikar. Þetta er tindrandi töfrastund – allur pakkinn!


Opið til

19:00 fimmtudaginn 12. desember

* Gildir ekki af Philips Hue, tilboðsvörum og lægsta lága verði Húsasmiðjunnar

Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana.

JÓLADAGUR HÚSASMIÐJUNNAR OG BLÓMAVALS

Mörg þúsund vörur á afslætti fimmtudaginn 12. desember

25% afsláttur

Allar seríur • Jólaskraut • Lifandi jólatré • Gervijólatré • Jólaljós • Gjafavörur • Allar vörur í Blómavali • Málning • Philips ljós*• Búsáhöld • Hreinsiefni

• Bökunarvörur • Rafmagnsverkfæri • Handverkfæri • Smáraftæki Verkfæratöskur • Glös og matarstell • Fatnaður • Blöndunartæki • Parket Flísar • Tröppur og stigar • Snjóskóflur og sköfur Hillurekkar • Gæludýravörur... og margt fleira! Kláraðu jólagjafirnar á lægra verði

Jólastemning

Piparkökur, kaffi og opið til kl. 19 í öllum verslunum, fimmtudaginn 12. desember

Jólagjafahandbók Húsasmiðjunnar er á husa.is 54 blaðsíður af jólagjafahugmyndum


Óli Bjarki Austfjörð með uppistand - 18. desember í Eyjabíó kl. 20:00 -

Fullt nafn: Óli Bjarki Austfjörð Aldur: 23 Áhugamál: Kvikmyndir, Tónlist, Bókmenntir, Teiknimyndasögur Hvar líður þér best? Þau segja að “Heima er best” þannig að mér líður best á þeim stöðum þar sem mér líður eins og ég er kominn heim. Eins og heima hjá besta vini mínum eða uppi í bústað fjölskyldu minnar. Bara á stöðum sem maður getur slappað af og verið maður sjálfur í smástund. Býrðu yfir leyndum hæfileika? Ég er ágætis eftirherma af frægu fólki og ég get eldað alveg grimma ommelettu (ef ég brenni hana ekki óvart) Hvaða þættir eru í uppáhaldi hjá þér?: Yu-Gi-Oh! 5d’s, SPORTS NIGHT, Brooklyn nine-nine, FRIENDS,

Haunting of Hill House og Bojack Horseman. Hvað er á planinu hjá þér á næstunni? Reyna að klára námið svo að ég geti loksins farið að vinna að kvikmyndum. Draumaframtíð? Draumurinn er að geta unnið við það sem ég elska og fá vel borgað fyrir það. Uppistand, viltu segja okkur meira frá því? Uppistandið er kallað “Nútíminn og menning” vegna þess að ég er oft með alveg ágætlega fyndnar pælingar um hversu brenglaður nútíminn okkar er orðinn. Ég skrifa oft pælingarnar mínar niður en vissi aldrei hvað ég átti að gera með þær en þær voru alltaf bara vistaðar saman í stóru skjali og

ég ákvað einn daginn að setja þær saman eins og uppistand af því ég er mikill áhugamaður uppistandara og hef verið með nokkur þannig í gegnum árin. Var stundum með uppistand í Tónlistarskóla Vestmannaeyja þegar ég var krakki þegar það mátti vera með skemmtiatriði sem var ekki bara tónlistatengt og svo hef ég verið með tvö stutt uppistönd hjá Framhaldsskóla Vestmannaeyja og það gekk bara ágætlega. Þetta er alveg eitthvað sem ég sé sjálfan mig gera og ég vona innilega að það verði tekið vel á móti þessu. Þetta er ekki of pólitískt af því ég er vonlaus í pólitíkinni, en þetta er alveg frekar fyndið efni og ég blanda öllum mínum helstu áhugamálum inn í þetta þannig að þetta hefur stílinn minn alveg vel stimplaðann yfir. Gott dæmi um það er hvernig ég tek loftlagsbreytingaumræðurnar sem eru út um allt í dag og ég blanda því við hollywood stjörnurnar sem allir þekkja vel. Þannig að það má alveg búast við helling af spes pælingum. Sumt af þessu er líka bara tekið beint úr samræðum sem ég hef átt við mína bestu vini af því margir vinir mínir eru enn þá fyndnari en ég og það hjálpar mér alltaf að geta dregið frá þeim þegar ég er að skrifa efnið. Það kostar aðeins 1. 000 kr. á uppistandið.

Við erum komin í jólaskap og bjóðum upp á jólatilboð af smurþjónustu

20 % afsláttur

AF SMURÞJÓNUSTU Nethamar ehf / Garðavegi 15 / 481 1216

BÆÐI AF VINNU & OLÍU


Undirbúningur jólanna Eftirminnilegasta jólagjöf? Peningagjöf sem ég fékk frá systur afa til þess að kaupa flugelda þegar ég var lítill peyi, það voru 2.000 kr. Uppáhalds jólahefð fjölskyldunnar? Við bjóðum fjölskyldunni okkar í hádegismat á aðfangadag, fáum okkur möndlugraut, síld, heimagrafinn lax og annað góðgæti og skiptumst á gjöfunum. Búinn að klára jólagjafirnar? Já hún Ása mín er nú búin að redda þessu öllu saman eftir því sem ég best veit. Hvaða eftirrétt eru þið með á aðfangadag? Höfum alltaf haft ananasbúðing og einhverjar nýjungar oftast með því a.m.k í seinni tíð. Nafn og fjölskyldax? Sigmundur Rúnar Rafnsson fjölskyldan Brimhólabraut 20 Uppáhalds jólaskraut? Kertastjaki sem ég fékk að eiga frá Sigríði kórstjóranum mínum eftir að hún lést, þykir alltaf jafn vænt um hann.

Eruð þið alltaf heima hjá ykkur á aðfangadag? Já höfum alltaf gert það frá því að við eignuðumst fyrsta barnið. Hvað er uppáhalds að gera eða undirbúa fyrir aðfangadaginn? Baka smákökurnar fyrir krakkana okkar sem eiga helst að vera allar búnar fyrri jól, og skreyta jólatréð þegar allir eru komnir heim.

Jólakósý í Heimaey Föstudaginn 13. desember kl. 13:00 - 15:00 Við erum í jólaskapi og viljum endilega fá þig og þína til okkar í opið hús núna á föstudaginn. Kaffi, kakó, smákökur og jólamöndlurnar frægu verða á boðstólnum. Kjörið tækifæri til að fylla á kertabirgðirnar, versla merkimiða á pakkann og fá fréttir af því sem við erum að bralla. Hlökkum til að sjá ykkur ! Heimaey vinnu- og hæfingarstöð // Faxastígur 46


TILBOÐ Á GJAFABRÉFUM Nótt í tveggja manna herbergi á Hótel Vestmannaeyjar Morgunverður Aðgangur að SPA

Frumherji verður í Eyjum vikuna 16. - 19. desember.

Hótel Vestmannaeyjar golfEfgjafabréfið gjafabréf er notað yfir 1. okt - 30.

Tímapantarnir í síma 570 9090.

apríl gildir það fyrir tvær nætur

Staðsettur við Faxastíg í húsi Björgunarsveitarfélagsins.

28.350 kr.

Frumherji Faxastígur / 570 9231

Vestmannabraut 28 | S. 481 2900 | hotelvestmannaeyjar.is

SJÓMANNAFÉLAGIÐ JÖTUNN Fundarboð Fundur verður haldinn á skrifstofu félgarsins laugardaginn 21.desember, við Heiðarveg 9B frá kl 17:00 - 19:00 Léttar veitingar í boði Stjórn félagsins

Skrifstofa // Heiðarvegi 9b // 481-2700 formadur@sjomannafelag.is // skrifstofa@sjomannafelag.is


Jóla­leg­ur Pavlovukr­ans með bleik­um mar­engs - uppskrift frá Berglindi Sigmars -

Þessi jóla­legi Pavlovukr­ans gerði hún Berglind Sigmarsdóttur. Hann á líklegast eftir að slá í gegn í mörg­um jóla­boðum enda færðu varla jólalegri rétt en þetta. Í ofanálag er um að ræða krans sem er sér­lega hátíðleg­ur og fag­ur enda er það sóma­kon­an og meist­ara­kokk­ur­inn Berg­lind Sig­mars­dótt­ir sem á heiður­ inn af hon­um. Und­ir­búið plötu. Setjið bök­un­ar­papp­ír á plötu og teiknið hring, ann­an 22 cm og minni hring inn í, 13 cm. Hitið ofn í 120 gr. C 4 eggja­hvít­ur 250 gr. syk­ur 1/​4 tsk. salt 2 tsk. maizena-mjöl 1 tsk. hvít­vín­se­dik Bleik­ur mat­ar­lit­ur Aðferð: Setjið eggja­hvít­ur í skál og byrjið að þeyta mjög ró­lega á meðan þið vigtið syk­ur. Þegar aðeins froða er far­in að mynd­ ast bætið þá í hraðann og setjið syk­ur og salt hægt og ró­lega sam­an við. Bætið svo í hraðann jafnt og þétt

al­veg upp og þeytið þar til stíft og glans­andi. Bætið þá var­lega sam­an við með sleif maizenamjöli og ed­iki. Takið skeið og setjið mar­engs á hring­ inn á papp­ír­inn. Ef þið viljið lita hann, dýfið prjón í lit og búið til hringi efst í mar­engs­inn svo það mynd­ist marm­ara­áferð. Setjið inn í ofn og bakið í 2 klst. Slökkvið á ofn­in­um og takið út þegar ofn­inn er orðinn kald­ur. Fínt að slökkva og geyma yfir nótt. Ofan á: 4-5 dl rjómi 1 tsk. vanillu­drop­ar 2 msk. flór­syk­ur 1 bakki fersk jarðarber Aðferð: Setjið krans­inn á kökudisk. Þeytið rjómann, setjið svo á lægstu still­ingu og setjið vanillu­dropa og flór­syk­ur við. Skerið jarðarber í bita og hrærið með sleif sam­an við rjómann. Setjið rjóma-jarðarberja­blöndu á krans­inn.

Skreytið að vild, mér finnst jóla­legt að nota granatepli, rifs­ber, jafn­vel hind­ ber og blá­ber. Set nokkr­ar grein­ar af rós­marín (sem kem­ur út eins og greni) og svo dustað yfir með smá flór­sykri.


Jólaseðill Christmas Menu Forréttir / Starters

Léttgrafið nauta carpaccio með pekan hnetudressingu, klettasalati, geitaosti, trufflukremi og ristuðum pekanhnetum. Cured beef carpaccio with pecan dressing, ruccola, goat cheese, truffle sauce and roasted pecans. Birkireyktur lax með nýbökuðum flatbrauði, hummus fennel- og appelsínusalati. Smoked salmon with flatbread, hummus, fennel and orange salad.

Aðalréttur / Main course Andabringa með appelsínusósu. Borið fram með andalæris vorrúllu, fondant kartöflum og ristuðu spergilkáli í villisveppasmjöri. Roasted duck breast with orange demi glace sauce. Served with duck confit spring roll, fondant potatoes and roasted broccoli in wild mushroom butter.

Eftirréttur / Dessert Vanillu panna cotta með jarðarberjum. Vanilla panna cotta with strawberries. Karamellusúkkulaðimús með kanil og hunangsristuðu hafrakexi og mandarínu salsa. Caramel chocolate mousse with cinnamon, honey roasted oat biscuit and mandarin salsa.

Forréttur / Aðalréttur / Eftirréttur 7.500.- kr. Starter / Main course / Dessert 7.500.- kr.


ÖKUKENNSLA

SNORRA RÚTS Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01

• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli

NÝJA TANNLÆKNASTOFAN Kæru Vestmannaeyingar

20 ára reynsla! Sími 692-3131

Nýja tannlæknastofan, Flötum 29 býður ykkur velkomin. Tímapantanir í síma 481-1012 Einnig getið þið sent okkur tölvupóst á tannsi@eyjar.is

vörurnar fást nú í

Utan afgreiðslutíma er neyðarsíminn 844-5012. Hlökkum til að sjá ykkur.

Nýja tannlæknastofan // Flötum 29 Tímapantanir í síma: 481-1012 & 844-5012.

Við erum komin í jólaskap Fullt af nettilboðum á 8.900 kr. Öll barnafargjöld á 7.900 kr. Ferðatímabilið 15. nóv til 15. jan

Bókaðu flugið á ernir.is

Tilvalið í jólapakkann Gjafabréf hjá okkur

Crispus - Heiðarvegur 9 - 772 6766

Tannlæknar 14. - 15. des - Hjalti Harðarson 17. - 19. des - Hjalti Þ.

Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40 Tímapantanir í síma 481-2772


Vantar þig myndatöku? Tek að mér að mynda fyrir ýmis tilefni Jól // Fermingar // útskriftir // o.fl

Ársþing Íþróttabandalags Vestmannaeyja fyrir árið 2018 verður haldið mánudaginn 6.janúar kl.20:00 í Týsheimilinu. Stjórn Íþróttabandalags Vestmannaeyja

Hægt er að hafa samband við mig í síma 849 2667 // joimyndo@gmail.com


Ekki gefa bara eitthvað, gefðu frekar hvað sem er. Með gjafakorti Landsbankans er ekkert mál að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafakortið í næsta útibúi.

Landsbankinn

landsbankinn.is

410 4000


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 41.tbl by Leturstofan - Issuu