40. tbl. 05. árg. 7. - 14. desember 2023
EYJADREIFING TEKUR TIL STARFA UM ÁRAMÓTIN
Eyjadreifing er nýtt dreifingarfyrirtæki í Eyjum sem tekur til starfa um áramótin. En það er Leturstofan Vestmannaeyjum ehf. útgefandi Tíguls, sem stendur á bakvið fyrirtækið. „Pósturinn, sem hingað til hefur dreift Tígli, sem og öðrum fjölpósti, hættir þeirri þjónustu nú um áramótin. Þar sem okkur er mikið í mun að Tígull berist áfram á öll heimili í Vestmannaeyjum ákváðum við að græja þetta bara sjálf,“ sagði Sæþór Vídó einn af eigendum Leturstofunnar. „Við könnuðum áhugann hjá þeim fyrirtækjum sem hafa átt þá bæklinga og blöð sem reglulega hafa dottið inn um lúgur Eyjamanna og sýndu þau því mikinn áhuga að halda áfram slíkri dreifingu.“ Sæþór segir nokkurn áhuga vera hjá krökkum að fá að dreifa
TÍGULL
blaðinu og ágætlega gangi að manna hverfin. „Við erum búin að skipta bænum upp í nokkur hæfilega stór hverfi og erum á góðri leið með að manna þau. Enda er þetta alveg upplagt tækifæri fyrir krakka að ná sér í góðan vasapening. Svo er þetta náttúrulega frábær heilsubót og getur einnig verið tækifæri fyrir skemmtilega samverustund fyrir fjölskylduna, launin gætu t.d. runnið í ferðasjóð fjölskyldunnar. Við dreifum einu sinni í viku, á miðvikudögum. Það er svo sem ekki bundið neinum tíma, bara þegar tækifæri gefst þann daginn. Tígul verður áfram dreift vikulega og svo bætast reglulega við önnur blöð, svona ca. Einu sinni í mánuði að meðaltali líklega. Við greiðum útburðarkrökkunum að sjálfsögðu sérstaklega fyrir, þegar aukablöðin eru,“ sagði Sæþór og
bætti við. „Það gengur ágætlega að manna útburðinn hjá okkur en enn eru nokkur hverfi laus og er um að gera fyrir áhugasama að hafa samband á eyjadreifing@ eyjadreifing.is“
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
HJARTASTYRKJANDI RÁÐ
GÖNGUM UM GÓLF, RUGGUM OKKUR Í LENDUNUM, GREIÐUM OKKAR HÁR, OG SNÚUM OKKUR SVO Í HRING.
- lægra verð
Apótekarinn Vestmannaeyjum
Vesturvegi 5 481 3900
www.apotekarinn.is
TINNA MJÖLL & GRÉTA HÓLMFRÍÐUR TÓKU ÞÁTT Í ALHEIMSMÓTI SKÁTA
Þær Gréta Hólmfríður Hilmarsdóttir og Tinna Mjöll Frostadóttir úr skátafélaginu Faxa tóku þátt í Alheimsmóti skáta sem fram fór í Suður Kóreu í sumar eða dagana 1. - 12. ágúst 2023. Þær fóru út 26. júlí og komu heim 14. ágúst 2023. Þær voru hluti af um 140 manna hópi íslenskra skáta með frábærum fararstjórum sem stóðu sig á framúrskarandi hátt við að styðja við skátana okkar til þess að takast á við fjölbreyttar áskoranir við krefjandi aðstæður. Eftir svona ferð er það vináttan sem skapaðist sem stendur upp úr og fjölbreytt ævintýri þar sem skátarnir kynntust jafnöldrum sínum frá mörgum löndum með mismunandi bakgrunn. Skátarnir fengu að upplifa margsháttar upplifanir og kynntust framandi menningu, mat og lærðu að aðlagast nýjum aðstæðum. Blaðamaður Tíguls heyrði í þeim vinkonum. Hvernig voru dagarnir hjá ykkur þegar þið voruð mæta út? Þegar við mættum á Jamboree mótssvæðið tjölduðum við og fórum eiginlega bara strax á opnunarhátíðina þar sem var flugeldasýning og drónasýning ásamt fleiru skemmtilegu. Fyrstu dagana fengum við að prófa fjórar mismunandi tegundir af bátum, fórum líka oft á svona litla tónleika sem voru á litla sviðinu á tjaldsvæðinu okkar og
þar sungum við lagið Baby One more time, upp á sviði. Síðan eitt kvöldið endaði það með því að Gréta þurfti að fara upp á spítala vegna slæms bruna og Tinna fylgdi auðvitað með. Þar fengum við að prufa að fara í fyrsta sinn í sjúkrabíl í Kóreu. Það endaði samt þannig að henni var sagt að hún ætti að taka svolítið mörg verkja/sýkla lyf og að hún ætti að hvíla sig frá sólinni í loftkælingu í þrjá daga en það gerði hún inn í listening ear aðstöðunni sem var með loftkælingu. Þar enduðu flestir Íslendingarnir á að eyða sínum dögum vegna mikils hita á svæðinu. En á meðan því stóð var alþjóðlegur dagur þar sem þjóðirnar buðu upp á hefðir eða mat frá sínu landi og þar fengum við að kíkja á Indland og fengum henna tattú. En vegna þeirra ástæða að við vinkonurnar frá Vestmannaeyjum vorum að missa af Þjóðhátíð, héldum við Íslendingarnir upp á kvöldvöku
Hvað stóð upp úr í ferðinni ef þið mættuð nefna eitthvað eitt? Það sem stóð uppúr að okkar mati Lotte world. Það er skemmtigarður og þar fengum við að fara í geggjaða rússíbana og gera fleira skemmtilegt.
með smá brekkusöng fíling og fengum að bjóða færeysku vinum okkar með sem var mjög gaman. Daginn eftir fórum við í dagskrá í temple, fengum að læra Kpop dans og þar fengum við líka að heyra fréttirnar að við þurftum að fara af mótssvæðinu vegna hvirfilbyls sem var á leiðinni. Þá pökkuðum við bara öllu niður og fórum af svæðinu og aftur í skóla að gista þar.
krabbinn sem við fengum vatnsrennibrautagarðinum.
Eftirminnilegasta atvikið? Eftirminnilegasta atvikið var þegar við fórum með sjúkrabíl á heilsugæslu í Kóreu. Skrýtnasta upplifunin? Skrýtnasta upplifunin okkar var þegar við fórum á veitingastað og þýddum matseðlinn og það stóð kattarbein á honum. Mynduði vilja fara aftur? Já klárlega þetta var geggjað! Besti og versti maturinn? Besti maturinn var klárlega maturinn sem við elduðum á tjaldsvæðinu með matarhópnum sem sagt djúpsteiktur kjúlli með þara og hrísgrjónum. Versti var 100 prósent kol-
í
Kynntust þið mörgum og eruð þið enn í samskiptum við einhverja? Já kynntumst mjög mörgum, aðallega krökkunum í íslenska hópnum, en líka nokkrum Færeyingum og fólki frá Panama en að sjálfsögðu líka fólki frá öðrum löndum. Við erum ennþá í samband við Íslendingana og nokkra Færeyinga.
M
SENDU
FRlt aÍðT10Tkg Al
51.990
Verð frá
li
Leikjatölvur úrva
ALLT FYRIR
L Ó J U GRÆJ K Í TÖLVUTE
JÓLGAAR TILBOÐ
KYNNIN
6. desember 2023 • Birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl
Verð frá Verð frá
490
Snjallryksugur
Tækifærisgjafir
GeForce RTX 4060
JÓLA TILBOÐ
JÓLA TILBOÐ 219.990 44.990
29.990
29.990 artól
EPOS leikjaheyrn
199.990 turn
Lenovo LOQ leikja
Verð frá
7.992
a Úrval myndaramm
SUDOKU
ORÐAÞRAUT
JÓLAHJÓL JÓLAINNKAUP SNJÓR SNJÓKARL
TROMMULEIKARINN RÚDÓLF TRÖLLI GRÝLA
LEPPALÚÐI KAKÓBOLLI KERTI AÐVENTUKRANS
Við förum létt með jólapakkana
Langar þig að koma jólapakka eða matarsendingu til vina og ættingja fyrir jólin? Nýttu þér pakkaþjónustu Eimskips. Yfir 130 afhendingastaðir um allt land og aðeins eitt verð 1.800 kr. fyrir allar sendingar undir 45 kg og 50 x 50 x 50 cm að stærð. Skráðu þína sendingu á eimskip.is og komdu með pakkana til okkar.
HVAÐ ER UM AÐ VERA 6. - 13. DESEMBER? 06-13 DESEMBER
JÓLASVEINAKLÚBBUR Bókasafns Vestmannaeyja. Fyrir öll börn.
09
DESEMBER
SÖGUSTUND á bókasafninu kl. 12:00
06-13 DESEMBER
PAKKAJÓL
á bókasafninu á opnunartíma! Koma með pakka og merkja ca. aldrur og kyn. (fyrir 0-18 ára)
08-10 DESEMBER
STAFARATLEIKUR á Beluga Whale Sanctuary frá klukkan 12:00 - 16:00
Nældu þér í miða fyrir helgina á sýningar þann 9. og 10. desember Miðasala er opin virka daga á milli 16:00 - 20:00 og um helgar á milli 11:00 -13:30. Sýningar hefjast laugardag kl. 15:00 & sunnudag kl. 14:00
09-10 DESEMBER
GOSI
í Leikfélagi Vestmannaeyja Laugardag kl. 15:00 Sunnudag kl. 14:00
Gjafabréf í jólapakkann Hótel Vestmannaeyjar tekur vel á móti þér & þínum!
- þar sem hjartað slær!
HVAÐA JÓLASVEINN KEMUR HVENÆR? STEKKJASTAUR
12
GILJAGAUR
13 ASKASLEIKIR
17
14
HURÐASKELLIR
18 GÁTTAÞEFUR
22
STÚFUR
23
15 SKYRGÁMUR
19 KETKRÓKUR
POTTASKEFILL
16
BJÚGNAKRÆKIR
20 KERTASNÍKIR
24
ÞVÖRUSLEIKIR
GLUGGAGÆGIR
21 JÓLAKÖTTURINN, GRÝLA & LEPPALÚÐI
UPPSKRIFT VIKUNNAR Hátíðarhringur jólalegur og ljúffengur ostapinnahringur sem er einfalt að útbúa. Það má auðvitað raða því sem hugurinn girnist á pinnana en hér kemur hugmynd frá gotteri.is
Hráefni: Hindber 1 askja Brómber 1 askja Vínber græn Marineruð hvítlauksrif Ólífur Bónda brie x 3 Dóri sterki 1 pk Salami Hráskinka Langir tannstönglar/aðrir kokteilpinnar Ferskt rósmarín Aðferð: Skerið hvern brie ost í 8 bita. Skerið ostsneiðarnar í 3 hluta og rúllið hverjum upp. Rúllið salamisneiðum upp eða brjótið saman. Rúllið hráskinkusneiðum upp/ brjótið saman (skerið hverja í tvennt nema þið séuð með litlar sneiðar). Raðið saman fjölbreyttum pinnum! Raðið pinnunum síðan saman í hring og stingið rósmaríni hér og þar í hringinn til að skreyta. Uppskrift og myndir frá vefsíðunni gotteri.is
Hægt er að kaupa miða og velja sæti á eyjabio.is FÖSTUDAG 1. DESEMBER & SUNNUDAG 3. DESEMBER
KL. 20.00
Persónulegar jólakúlur
með nafni eða næstum hverju sem er!
Tek við pöntunum til 10. des. eða meðan birgðir endast.
MVIDOKORT@GMAIL.COM
/
/ m.v i d o ko r t
HEYRST HEFUR...
...að Eyjabítlar verði með jólatónleika, föstudagskvöldið 22. desember á Háaloftinu ásamt gestum.
HÖNNUN &PRENTUN
Á HINU OG ÞESSU Setjum upp og seljum auglýsingar í blöð fyrir hina ýmsu einstaklinga og félagasamtök t.a.m. • Afsláttarbók LEB • LEB blaðið • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja • Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja • Sjómannablaðið Víkingur • Heima er bezt • VM blaðið • Blað Rafiðnaðarsambandsins • Tímaritið Úti • Vikublaðið Tígull
900 Vestmannaeyjar // Vestmannabraut 38 leturstofan@leturstofan.is // s. 481 1161
leturstofan
leturstofan
Viltu minnast látins ættingja eða vinar? Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi. Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef. Verð: 12.400 kr.
06 DES
Kviku kl. 13:00 - 16:00
06
SÖNGDÍFUR SIGURRÓSAR
DES
06 DES
07
Er desember þinn skoðunarmánuður?
07
vikuna 11. - 13. desember
08
Frumherji í Eyjum Lokað í hádeginu
Tímapantanir í síma
BAÐHERBERGINU? ELDHÚSINU? INNRÉTTINGUM? PARKETLEGGJA?
A lm e n n t v ið h a ld & s m íð i!
DES
Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 17:00
SÖNGHÓPUR LALLA
Kviku kl. 17:00 - 18:00
DRENGJARADDIR LALLA
Vinaminni/Kviku kl. 17:00 - 18:00 SPILAVIST
KVIKU kl. 19:30
LEIKFIMI MEÐ ERNU JÓHANNESAR
DES
Íþróttahús kl. 10:00 - 11:00
12
Sundlaug Vestmannaeyja kl. 14:00 - 15:00
SUNDLEIKFIMI
Hressingarganga í Herjólfshöllinni alla daga kl. 08:00 - 12:00
Frumherji - Faxastígur 38
ERT’AÐ BREYTA?
DES
DES
570 9090
HANDVERK & HITTINGUR
NÝJA
TANNLÆKNASTOFAN
EyjarDýr er ný netverslun sem er með fría heimkeyrslu fyrir íbúa í Vestmannaeyjum sem panta hjá okkur!
Flötum 29 Tímapantanir í síma: 481-1012 Neyðarsíminn: 844-5012 tannsi@eyjar.is
s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com
eyjadyr.is
VATNAJÖKULL Íslensk ullareinangrun 89.990kr,-
www.icewear.is
BLAÐBERASTARF EYJADREIFING leitar að duglegu og ábyrgu fólki til að bera út blöð og annað prentefni í Vestmannaeyjum. Dreifing fer fram alla miðvikudaga. Ef þetta er eitthvað sem gæti átt við þig, sendu okkur línu á eyjadreifing@eyjadreifing.is Hvetjum alla sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um óháð kyni og aldri.