Skip to main content

Tígull 40.tbl 03 árg.

Page 1

40. tbl. 03. árg. 8. - 14. desember 2021


Nú leikum við okkur!

Jólaleikur Icewear og Tíguls Þú getur unnið glæsilega Funa-úlpu í lit að eigin vali

Color:

White

19-4057 TPX true blue

18-1764 TPX Lollipop

PANTONE 2756 C

PANTONE 187 C

CMYK C 100 M 94 Y0 K 29

CMYK C0 M 100 Y 79 K 20

FUNI UNISEX "PUFFY" DÚNÚLPA

Mjúk dúnúlpa sem heldur á þér hita, hvort sem þú ert borgarbarn eða fjallagarpur. Funi úlpa er með unisex sniði og er kjörin úlpa fyrir alla sem lifa virkum lífsstíl. Styrking á öxlum og olnbogum er ekki einungis töff, heldur passar upp á að bakpokinn haldist á sínum stað. Úlpan er vindheld, vatnsfráhrindandi og andar vel og hentar því vel fyrir íslenskan vetur. Unisex snið, mælt er með því að konur kaupi einni stærð minni en þær eru vanar. Eiginleikar - Unisex snið - YKK® tveggja sleða rennilás - DWR – vatnsfráhrindandi húð - Fylling: 90% dúnn / 10% fjaðrir - Stillanleg hetta og faldur - Styrking á öxlum og olnbogum

Það sem þú gerir til að fara í pottinn er: Finna Icewear logo í blaði vikunnar. (Ekki tekið með á þessari síðu) Líkar við instagram Tígull og Icewearmagasin Koma í verslun Icewear Vestmannaeyjum og benda starfsmanni á hvar logoið er og ef rétt er þá verður þú skráð/ur í pottinn. Þá ert þú kominn í pottinn. Við drögum út live á facebook Tígull þann 15. desember kl 15:00. Þú hefur möguleika á að vera þrisvar sinnum í pottinum. Þar sem logo Icewear verður falið í tölublaði 38, 39 og 40. Kveðja Tígull og Icewear Vestmannaeyjum

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


TRYGGÐU ÞÉR JEEP Á LÆGRA VERÐI

480.000 KR . VSK verð hækkun um áramótin *

ALVÖRU JEPPI. ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF.

JEEP WRANGLER RUBICON** TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI

JEEP COMPASS TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI

JEEP RENEGADE TRAILHAWK TORFÆRUÚTGÁFA

Nú er tilvalið að tryggja sér alvöru jeppa með alvöru fjórhjóladrifi í forsölu. Áætlað er að bílarnir verði tilbúnir til afhendingar í desember. NETHAMAR ER ÞJÓNUSTUAÐILI JEEP OG RAM Í VESTMANNAEYJUM. *Verð á Compass og Renegade hækkar um 480.000 KR. um áramótin, vegna VSK hækkana. **Bjóðum upp á 35”-40” breytingapakka fyrir Wrangler.

UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • JEEP.IS • ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16


HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM JÓLIN HEKLA RANNVEIG VÍDÓ HLYNSDÓTTIR Aldur: 5 ára Fjölskylda: Pabbi minn heitir Hlynur Vídó Ólafsson og mamma mín Kristín Laufey Sæmundsdóttir. Litla systir mín heitir Katla Laufey Vídó Hlynsdóttir 3ja ára og bróðir minn Hinrik Leó Vídó Hlynsson 10 mánaða. Hvað er skemmtilegast við jólin? ég elska að skreyta fyrir jólin. Hvað langar þig í jólagjöf? Kettling. Hvað er mamma best í að gera? Að púsla og lita með mér. Hvað er pabbi bestur í að gera? Að baka og ganga frá. Hvað ert þú best í að gera? Leika mér. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Lögga. Afhverju eru jólin haldin? Ég veit ekki alveg.

BJARMI ÞORBJÖRNSSON Fjölskylda: Mamma mín heitir Hafdís Víglundsdóttir og pabbi minn heitir Þorbjörn Þorsteinsson. Finnst þér jólin skemmtileg og afhverju? Já, af því að ég elska jólasveinana. Hvað langar þig í jólagjöf? Liti og tússlit. Hvað er mamma best í að gera? Spila á gítar og píanó og mamma kannt allt. Hvað er pabbi bestur í að gera? Hann er bestur á tölvur og fara í feluleik. Hvað ert þú bestur í að gera? Gera heljarstökk og spila á gítarinn. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Flugvélar maður. Afhverju eru jólin haldin? Við höldum bara jólin.


icelandair.is

Gefðu ævintýri um jólin Gjafabréf Icelandair gildir fyrir allt millilanda- og innanlandsflug, svo það er tilvalin jólagjöf fyrir fólk sem er stöðugt á ferð og flugi. Gefðu þægilegt og áhyggjulaust ferðalag í jólagjöf — gefðu gjafabréf Icelandair.


STYRKIR ÍSFÉLAGS VESTMANNAEYJA Í TILEFNI 120 ÁRA AFMÆLIS FÉLAGSINS

Color:

White

19-4057 TPX true blue

18-1764 TPX Lollipop

PANTONE 2756 C

PANTONE 187 C

CMYK C 100 M 94 Y0 K 29

CMYK C0 M 100 Y 79 K 20

Ýmis félög hlutu styrki frá Ísfélagi Vestmannaeyja.

Ísfélag Vestmannaeyja átti 120 ára afmæli þann 1. desember síðastliðinn og er elsta starfandi hlutafélag á landinu. Af því tilefni ákvað félagið að styrkja einstakling og félagasamtök í Vestmannaeyjum. Styrkirnir renna til fjölda mismunandi félagasamtaka, sem öll eiga það þó sameiginlegt að starfa með óeigingjörnum hætti að björgunarmálum, líknarmálum og barna- unglingastarfi. Ásamt því ákvað Ísfélagið að styrkja fimm einstaklinga sem stunda mastersnám í tónlist. Á afmælisdaginn sjálfan var haldið lítið kaffiboð í sal Akóges í Vestmannaeyjum þar sem stjórn félagsins tók á móti styrkhöfum ásamt því að heiðraðir voru þeir starfsmenn sem starfað hafa hjá fyrirtækinu í yfir aldarfjórðung eða meira. Upphaflega átti að bjóða öllum velunnurum félagsins, starfsmönnum og bæjarbúum í kaffiboðið, en vegna veirunnar var viðburðurinn smækkaður til að rúmast innan þeirra samkomutakmarkana sem í gildi eru. Guðný Harðardóttir, meistaranemi, spilaði tvö lög á flygil fyrir boðsgesti ásamt því að Kvennfélagið Líkn sá um kaffiveitingar. Þeir aðilar sem styrktir voru eru eftirfarandi: Björgunarfélag Vestmannaeyja (til tækjakaupa) Einhugur, Félag einhverfra og aðstandenda þeirra í Vestmannaeyjum Golfklúbbur Vestmannaeyja (til barna- og unglingastarfs) Handknattleiksdeild ÍBV – karla og kvenna Hollvinir Hraunbúða Íþróttafélagið Ægir KFS, Knattspyrnufélagið Framherjar-Smástund Knattspyrnudeild ÍBV – karla og kvenna Krabbavörn Vestmannaeyjum Kraftur, Stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur

Kvenfélagið Líkn Landakirkja (Hjálparstarf kirkjunnar) Rauði Kross Íslands, Vestmannaeyjadeild Sambýlið Vestmannabraut 58b Skátafélagið Faxi Skógarmenn KFUM Slysavarnadeildin Eykyndill Þroskahjálp Vestmannaeyjum Styrkir fyrir mastersnema í tónlist Guðmundur Davíðsson Guðný Harðardóttir Matthías Harðarson Silja Elsabet Brynjarsdóttir Vera Hjördís Matsdóttir Starfsmenn heiðraðir: 45 ár Guðrún Eygló Stefánsdóttir

Ólafur Guðmundsson 40 ár Almar Harðar Hildur Zoega Stefánsdóttir Tómas Jóhannesson 35 ár Sigurður A. Sigurbjörnsson Svandís Geirsdóttir Unnar Erlingsson 30 ár Pétur Andersen 25 ár Ármey Óskarsdóttir Eyþór Harðarson Friðrik F. Sigurðsson Guðlaugur Friðþórsson Guðsteinn Hlöðversson Ingi Grétarsson Sigurður Jóhann Atlason


Mastersnemar í tónlist sem hlutu styrk.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Guðbjörg Matthíasdóttir

Starfsmenn heiðraðir.

Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri.

Guðný Harðardóttir.


HLYNUR ÁGÚSTSSON Dæmt var í árlegu ljósmyndakeppni sjómanna sem haldin er af Sjómannablaðinu Víkingi. Það voru 68 myndir frá þrettán sjómönnum sem bárust í keppnina. Vegna covid aðstæðna hittist dómnefndin í gegnum fjarfundabúnað. Dómnefndin var skipuð sömu aðilum þriðja árið í röð sem eru Sigurður Ó. Sigurðsson atvinnuljósmyndari, Sigrún Sigurðardóttir áhugaljósmyndari og Sigrún Elín Svavarsdóttir, stýrimaður og listamaður. Niðurstaðan var sú að mynd Hlyns Ágústssonar, háseta á Þórunni Sveinsdóttur VE, var valin í fyrsta sæti. Hlynur hreppir því fyrsta sætið annað árið í röð.

Hver er skemmtilegasti félaginn um borð? Þetta eru allt svo miklir snillingar þarna, bæði áhöfn og þeir sem sjá um allt í landi. En ef ég á að velja á milli þá eru það kokkarnir, enda gefa þeir mér að borða.

Hvernig myndavél áttu og hver er uppáhalds linsan? Í dag á ég Canon 6d Mark ii. Uppáhalds linsan er og hefur alltaf verið Canon 50mm 1.8. Föst linsa sem hefur alltaf verið í myndavélatöskunni öll þessi ár. Ertu að taka ljósmyndir annars staðar en á sjónum? Ég var alltaf duglegur að taka röltið um hér og þar um eyjuna og taka landslagsmyndir. Það hefur eittthvað aðeins minnkað í gegnum árin. Ég fæ samt aldrei leið á því að rölta um suma staði og mynda eins og Vilhjálmsvík og meðfram hamrinum í Vesturbænum.

Fjölskylda: Ingibjörg ósk eiginkona mín og svo eigum við tvo peyja þá Kára Snæ og Þórð Ágúst. Á hvaða bátum hefur þú verið og á hvaða bát ertu núna? Fór einn túr á Sighvat Bjarna þegar ég var 17 ára. Svo kom löng pása á ferlinum. Fór nokkra túra á Jónu Eðvalds með Gumma fósturpabba. Byrjaði svo ferilinn fyrir alvöru á Kristbjörgu VE 71. Færði mig yfir á Brynjólf VE 3 þegar Kristbjörginni var lagt og er núna á Þórunni Sveinsdóttur VE 401.

myndum af hinu og þessu. Áhuginn fór svo á flug 2008 þegar ég eignaðist mína fyrstu DSLR(digital single lens reflex)vél sem var Canon 400d minnir mig.

Verðlaunamyndin hans Hlyns.

Hvenær byrjaði áhuginn á ljósmyndun? Áhuginn byrjaði held ég á efri árum í grunnskóla. Ég var reglulega með einnota myndavélar og smellti

Hver eru þín helstu áhugamál fyrir utan ljósmyndun? Ætli það sé ekki bara fjölskyldan og heimilið. Svo finnst mér voðalega gott að skella á mig heyrnatólum og hlusta á tónlist, uppgötva nýja tónlist. Svo er fátt sem toppar góða kvöldstund með góðum vinum og mat.


Fullkominn pakki undir tréð!

-Í MEISTARA HÖNDUM

Strandvegi 30 S: 481-1475


PERSÓNULEGUR AÐSTOÐARMAÐUR Ég heiti Guðrún Kristmannsdóttir og er 57 ára MS sjúklingur bundinn við hjólastól og bý í Vestmannaeyjum. Nú er svo komið að mig vantar aðstoðarfólk til starfa. Starf aðstoðarmanns felst annars vegar í persónulega aðstoð: við að klæðast, fara í bað, versla inn, sinna erindum, fara í heimsóknir, skreppa í bæinn og annað skemmtilegt. Og hins vegar aðstoð við heimilisþrif, þvott, innkaup, þrífa bílinn og allt sem venjulegt fólk gerir á sínu heimili.

Óskað er eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2021 Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2021. Frestur til tilnefninga er til miðnættis fimmtudaginn 6. janúar 2022 og þær skal senda á netfangið: menntaverdlaun@ sudurland.is. Veitt verður viðurkenning og peningaverðlaun. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu SASS: sass.is.

Stundvísi, samvinnu- og samskiptahæfileikar og áhugi fyrir starfi með fólki með fötlun eru mikilvægir eiginleikar í starfinu. Umsækjendur þurfa að vera jákvæðir og drífandi, með frumkvæði, hæfni í mannlegum samskiptum og hafa náð 20 ára aldri. Allar frekari upplýsingar veitir dóttir mín, Kristín Halldórsdóttir, í síma 698-8749 eftir kl.16:00 eða á kitta1985@hotmail.com. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á hana.

Ástkær móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma og langamma,

GUÐLAUG PÉTURSDÓTTIR

Frumherji verður í Eyjum vikuna 13. - 16. desember. Tímapantarnir í síma 570 9090. Staðsettur við Faxastíg í húsi Björgunarfélagsins.

Frumherji Faxastígur / 570 9231

frá Kirkjubæ, Vestmannaeyjum

Lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum þann 28.nóvember s.l. Útför hennar verður frá Landakirkju 9. desember kl 13.00. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á vef Landakirkju, landakirkja.is. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Hraunbúða, reikn. nr.0582-26-200200, kt.420317-0770. Guðrún R. Jóhannsdóttir Jónas S. Jóhannsson Pétur S. Jóhannsson Jóhann Þór Jóhannsson Kristín Antonsdóttir

Þórarinn Sigurðsson Þorbjörg Þorfinnsdóttir Vilborg Stefánsdóttir Hafdís Hannesdóttir

Ömmubörn og langömmubörn


Verkfærasett 130 hluta verð: 41.237 kr.

Topplyklasett 200 stk verð: 30.382 kr.

Jóladagatal Milwaukee 2021 Verð: 9.990 Andvirði: 17.000

488 3550 // skipalyftan.is // Opið alla virka daga 07:30 - 18:00 og laugardaga 10:00 - 12:00


THELMA LIND MUN ÚTSKRIFAST FRÁ LEIKLIST LAUGARDAGINN 18.DESEMBER

Thelma Lind var í viðtali hjá Kvikmyndakóla Íslands en hún er að útskrifast frá Leiklist og verður mynd hennar, “Í næsta lífi” sýnd í aðdraganda hennar. Hver er fyrsta kvikmyndaupplifunin sem þú manst eftir? Frá því ég man eftir mér hafa kvikmyndir alltaf spilað stórt hlutverk í mínu lífi. Það hefur t.a.m. lengi verið hefð á mínu heimili að nota föstudags- og oft laugardagskvöld líka til að velja saman mynd og horfa á. Fyrsta kvikmyndaupplifun sem ég man eftir var þó sumsé ekkert merkileg. Ég man að ég var með pabba mínum í Reykjavík og hann fór með mig og systur mína að sjá “Meet the Robinsons” í bíó en það var í fyrsta skipti sem ég horfði á mynd í 3D sem mér fannst magnað. Hvað heillar þig við kvikmyndagerð? Ég hugsa að það sem heillar mig

mest við kvikmyndagerð er hve gott aðgengi er að henni. Það hefur aldrei verið einfaldara eða ódýrara að fá aðgengi að allskonar kvikmyndum. Þar að auki eru flestir í dag með ágætis upptökutæki í vasanum sínum og t.d. er ekki langt síðan mynd sem var tekin upp á iPhone 5s var sýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni. Hvers vegna varð Leiklist fyrir valinu? Þegar ég var yngri langaði mig tvennt: að vinna í búð sem hét Vöruval og að verða leikkona. Ég er búin að vinna í Vöruval þannig ég fór bara í það næsta á tékklistanum. Ég hef líka frá því ég man eftir mér verið smituð af leiklistarveirunni og fór mikið í leikhús sem krakki. Enda ekki lengi að koma mér inn í Leikfélag Vestmannaeyja þar sem ég tók þátt í mörgum verkum að einu eða öðru leiti í átta ár.

Hvernig lítur svo framtíðin út? Planið er að fara í frekara nám í Söngleikjaleik einhversstaðar í Bretlandi. Eitthvað fleira að lokum? Kvikmyndaskólinn er ein sú besta upplifun sem ég hef átt og tek mikið af góðum minningum með þegar ég útskrifast. Tími minn í Kvikmyndaskólanum hefur kennt mér mikið, ekki bara um leiklist heldur einnig um sjálfa mig. Mig langar að þakka sérstaklega kennurum og starfsfólki skólans sem eru oftast til taks þegar maður þarf á því að halda. Mig langar einnig að þakka nemendum skólans fyrir þá frábæru menningu sem þau hafa skapað innan skólans, hlýjan sem mætir manni þegar maður kemur í skólann er ólýsanleg.


Úrval af vörum í pakkann hans! Hárvörur 6.000 kr.

Ferðahárþurrka 7.500 kr.

Rakvél 19.900 kr.

Eyrna- og nefhára rafmagnsplokkari 6.000 kr.

Taska með gæða hár- og rakvörum 10.900 kr.

VILT ÞÚ VINNA MEÐ OKKUR Í SUMAR? Krefjandi en jafnframt fjölbreytt og skemmtileg sumarstörf í boði

Leiðsögumenn Sumarstarf við leiðsögn á bátum Ribsafari. Hægt er að vera í hlutastarfi eða fullu starfi. Allir leiðsögumenn þurfa að hafa lokið hóp- og neyðarstjórnunarnámskeiði Slysavarnarskóla sjómanna. En við sendum fólk á námskeið ef svo er ekki.

Hæfniskröfur: Enskukunnátta, frásagnargleði og þjónustulund.

Nánari upplýsingar um störfin veitir: Laila Pétursdóttir, info@ribsafari.is Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á: info@ribsafari.is Umsóknarfrestur er til og með 31. desember nk.

RIBSAFARI | Básaskersbryggju 8 | www.ribsafari.is | S: 661-1810


SUDOKU

ORÐAÞRAUT

JÓLIN SKREYTINGAR

SAMVERA JÓLATRÉ

FJÖLSKYLDAN LJÓSASERÍUR

GAMAN SAMAN PIPARKÖKUR JÓLALJÓS


ENGEY Húfa með mynstur

HVÍTANES Merino peysa Kr. 13.990.-

beggja vegna

Kr. 2.790.-

Vindur úlpa fyrir börn Kr. 18.990.-

FÍFA síð Ecodown® úlpa Kr. 29.990.ARIEL

Angora ullarsokkar

Kr. 1.298.-

STEINAR

Coolmax göngusokkar

Kr. 1.490.-

Eyjafjallajökull hlý dúnúlpa Kr. 48.990.-

Kría Thermor® vesti Kr. 13.990.-

INGVAR leðurhanskar Kr. 5.990.-

HIMINN barna hettupeysa Kr. 6.990.-

HIMINN barna jogging buxur Kr. 5.990.-

FUNI dúnúlpa Kr. 33.990.-

SIGURÐUR

Boxer 3 í pakka

Kr. 4.990.-

VIÐEY Hanskar Kr. 3.300.-

HELLA Sundpoki Kr. 2.590.-

HVÍTANES Merino buxur Kr. 11.990.-


ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA LOKAÚTSALA

50 % AFSLÁTTUR

AF ÖLLUM

VÖRUM SMART Vestmannabraut 30 481 3340


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 40.tbl 03 árg. by Leturstofan - Issuu