Skip to main content

Tígull 04.tbl 03 árg.

Page 1

04. tbl. 03. árg. 10. - 16. febrúar 2021 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is

Glæsilega skreyttar kökur

Ingó fer með hlutverk Danny Zuko

Hringdu í tíu tuttugu og einn

Ég var dugleg að baka þegar ég hafði aldur til en það þróaðist fljótt út í sykurmassaskreytingar

Ég er fínn að dansa seint á kvöldin en þarf líklega aðeins að æfa mig fyrir sýninguna.

Sumarið 1997 lentum nokkrir félagar í hremmingum við Bjarnarey.

Valentínusar vöndurinn fæst hjá okkur ! www.heimadecor.is Strandvegur 39


GRÆNA ÞRUMAN - HEILSUDRYKKUR - Uppskrift vikunnar Hráefni: 1 grænt epli bútur engifer, rifinn lúka spínat lúka rucola 1 mangó nokkrar döðlur hnífsoddur cayenne pipar 1 msk grænt duft – (má sleppa)

TÍGULL

1 msk grænt te (má sleppa) klaki eplasafi eða vatn til þynningar Aðferð: Allt látið í blandara og blandað vel saman. Sett í glas og jafnvel klaka út í.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Hafnarstjóri Vestmannaeyjahafnar Vestmannaeyjabær auglýsir starf hafnarstjóra Vestmannaeyjahafnar laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hafnarstjóri stýrir starfsemi Vestmannaeyjahafnar, stefnumótun og skipulagi í samvinnu við bæjaryfirvöld, framkvæmda- og hafnarráð (hafnarstjórn), bæjarstjóra og framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs.

Helstu verkefni:

Menntun og hæfniskröfur:

Yfirumsjón með starfsemi hafnarinnar, svo sem ábyrgð á daglegum rekstri, skipulagningu og nýtingu mannauðs. Stefnumótun og markmiðssetningu í hafnarmálum Vestmannaeyja. Gerð áætluna, m.a. áætlanir um fjármál, gæðamál, hafnarvernd og aðrar verndaráætlanir, öryggismál, umhverfis og gerð viðbragðsáætlana. Gerð reikninga og samskipti við viðskiptavini Gerð áætlana um viðhald og framkvæmdir á vegum hafnarinnar. Gerð ferla og endurskoðun verklags í starfsemi hafnarinnar. Þekkingaröflun, þekkingarmiðlun, þróunarstarf og greiningar upplýsinga er varða hafnarstarfsemi og markaðstækifæri hafna. Ábyrgð á samskiptum við opinbera aðila og aðra m.a. vegna fjármögnunar verkefna, rannsókna og þróunar. Ábyrgð á þjónustu fyrir hafnarstjórn og eftirfylgni ákvarðana hennar.

Menntun á háskólastigi, sem nýtist í starfi, svo sem verkfræði, tæknifræði eða viðskiptafræði. Reynsla af stjórnunarstörfum, gerð fjárhagsáætlana og annarra áætlana. Reynsla af rekstri fyrirtækis, stofnunar eða deilda er kostur. Reynsla og þekking á umhverfi sjávarútvegs æskileg. Samskiptahæfni, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund. Hafnarstjóri á í miklum samskiptum við fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Krafa um góða alhliða tölvukunnáttu, s.s. Excel og Word. Góð íslensku- og enskukunnátta, færni í að setja fram mál í ræðu og riti. Leiðtogahæfileikar, frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum. Aðrir þættir sem nýst gætu í starfi hafnarstjóra.

Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2021

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs í síma 488-2000 eða á netfangið: olisnorra@vestmannaeyjar.is. Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Vestmannaeyjabær hvetur alla áhugasama um að sækja um starfið óháð kyni. Umsóknum ásamt menntunar- og starfsferilskrám skal með tölvupósti á netfangið postur@vestmannaeyjar.is og merkja „Hafnarstjóri Vestmannaeyjabæjar“. Einnig er hægt að skila umsóknum til bæjarskrifstofa Vestmannaeyja, Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjum, en þá þurfa umsóknir að hafa borist fyrir 15. febrúar nk. Leitað verður ráðgjafar Hagvangs ráðningarskrifstofu við mat á umsækjendum um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.


HRINGDU Í TÍU TUTTUGU­ OG EINN! Mögnuð frásögn úr 5. Útkallsbók Óttars Sveinssonar

Fimm fræknir félagar sem lentu í hinni snöggu en hrikalegu lífsreynslu við Bjarnarey. Frá vinstri: Gylfi, Jens, Pétur, Ómar og Björgvin.

Sumarið 1997 höfðu félagarnir Pétur Steingrímsson, lögreglumaður í Vestmannaeyjum, og Jens Magnús Jóhannesson ákveðið að veiða af kappi hinn sívinsæla og lostæta lunda. Báðir voru þeir í Veiðifélagi Bjarnareyinga. Mikið stóð til hjá þeim fyrstu dagana í júlí því þá var veðurspáin hagstæð og kjörið tækifæri til að dvelja í klettaeyjuni sem er skammt austan við Heimaey. Ómar Stefánsson , félaga Jens, hafði lengi dreymt um að veiða lunda í úteyjum og hugðist brátt sækja

um aðild að Bjarneyjarfélaginu. Jens hafði ákveðið að bjóða honum með sér út í Bjarnarey í júlíbyrjun. Sigríður Guðmundsdóttir, kona Jens, og Sigríður Björk Ingadóttir, kona Ómars, voru æskuvinkonur. Föstudagurinn 4. júlí fengu félagarnir Jens og Ómar tækifæri til að veiða saman úti í hinni tignarlegu Bjarnarey. Eyjan gnæfir yfir haffletinum og stór hluti veiðisvæðisins er í yfir 100 metra hæð. Afraksturinn fyrsta veiðidaginn var 145 lundar. Ómar,

sem var reyndar vanur lundaveiði á ,,Heimalandinu”, Heimaey, hafði tekið með sér nýjan veiðiháf. Hann naut útiverunnar með Jens í góðu veðri í fyrstu veiðiferð sinni í Bjarnarey. Pétur kom út í eyjuna til þeirra um kvöldið og gisti í veiðikofanum með þeim um nóttina. Á laugardeginum tóku þremenningarnir til við lundaveiðar að nýju. Þá bætti þeir um betur og veiddu 317 fugla. Þetta var allt að koma. Pétur hugleiddi hvernig veðurspáin


yrði fyrir næstu daga: ,,Þegar við vöknuðum á sunnudeginum var lítil sem engin ,,átt” eins og sagt er. Það þýðir að vindáttin er óhagstæð fyrir lundaveiðar. Eftir hádegið vorum við búnir að veiða 115 fugla en ákváðum þá að best væri að fara heim í land fyrir kvöldið. Veðurstofan spáði norðlægri vindátt næstu daga. Þá yrði sennilega lítil veiði.” Er þeir þremenningar komu út í Bjarnarey var þar fyrir Gylfi Gíslason, kunningi þeirra, sem hafði verið þar í þrjá daga við annan mann. Jens hafði á orði við Gylfa, sem þá var að fara í land, hvort hann gæti ekki reddað báti til að ná í þá þremenninga og aflann þeirra þegar þeir vildu fara til baka. Gylfi hafði tekið vel í það. Síðdegis á sunnudag tók Jens upp GSM-símann sinn og hringdi til Gylfa sem var í skírnarveislu hjá systur sinni á heimili foreldra þeirra á Heimaey: ,,Ég hringdi í Gylfa og spurði hvort hann gæti útvegað bát til að sækja okkur. Við vorum búnir að setja fuglinn í koppur - hátt í sex hundruð lunda. Við bundum fuglana saman á hálsinum, tíu í hverja kippu. “ Með Gylfa í skírnarveislunni var félagi hans, Björgvin Arnaldsson, sem átti bát - sex metra langan, opinn, flatbotnaðan breskan hraðbát með lítinn lúkar að framan og 65 hestafla mótor. Flotholt voru á hliðunum. Tæpu ári áður hafði Björgvin keypt bátinn á átta þúsund krónur en ekki var langt síðan utanborðsmótorinn, sem var nánast nýr, hafði verið settur á. Þótt skírnarveislan stæði yfir var Björgvin langt í frá afhuga því að skreppa út í Bjarnarey: ,, Gylfi spurði mig hvort ég væri ekki til í að koma með sér út í eyju til að sækja strákana og feng þeirra. Ég taldi það í góðu lagi, enda búinn að fara með Gylfa þangað nokkrum dögum áður. Mér fannst líka ágætis veður” Björgvin og Gylfi klæddu sig úr veislufötunum og í tilheyrandi galla fyrir bátsferðina. Gylfi hafði nýlega fengið flotbúning í afmælisgjöf en

ákvað að skiljan eftir heima - honum fannst ekki taka því að fara í gallan fyrir svona stutta ferð. Hjálmar Guðnason, tónlistarkennari í Eyjum, var á ferð með fólki úr Hvítasunnusöfnuðinum í Vestmannaeyjum og gesti frá Keflavíkurflugvelli á skemmtibáti sínum Bravó - rúmlega 9 metra löngum, yfirbyggðum plastbáti. Átta manns voru um borð: ,, Ég bauðst til að fara með fólkið í bátsferð og ákvað að sigla með það út í Klettsvík og Klettshelli. Þar spilaði ég nokkur lög á trompetinn minn. Okkur dvaldist dálítið í hellinum, við lofuðum drottinn og nutum augnabliksins. Þegar við sigldum út úr hellinum vildi fólkið ekki fara miklu lengra, sérstaklega ein kona sem var dálítið sjóveik. Í einhverri stríðni ákvað ég að sigla áleiðis að Faxasundi. Það tæki bara stutta stund. Mig langaði að sýna útlendingunum í hópnum andstæðurnar: Lygna og innsiglinguna og ólgandi hafölduna rétt fyrir utan. Úti á sundinu var talsverð alda í norðanáttinni. Ég ákvað að taka einn rúnt fyrir utan og snúa þar til baka. Útlendingarnir tóku andköf er ég sigldi á 14-15 sjómílna hraða fyrir utan í rífandi öldugangi. Allir virtust þá hafa gaman af.” Gunnlaugur Erlendsson var þá skipstjóri á Þór, skipi Björgunarfélags Vestmannaeyja. Hann var ásamt þremur mönnum í verkefni á svipuðum slóðum og Hjálmar hafði verið að leika á trompetinn sinn fyrir ferðamennina. Mennirnir á Þór biðu eftir lundaveiðimönnunum í Ystakletti í Klettsvík - þeir áttu von á að mennirnir kæmu brátt niður á Litla-Klettsnef þar sem hægt yrði að sigla bátnum að og taka þá um borð. Þór var stolt Eyjamanna. Skipinu hafði verið siglt nýju frá Noregi þremur árum áður, búnu tveimur 480 hestafla vélum. Það náði 32 sjómílna hraða. Bergþór Atlason hafði verið loftskeytamaður í rúman aldarfjórðung. Hann var einn á vakt

við störf sín í Landsímahúsinu í Vestmannaeyjum: ,, Það var búið að vera fremur rólegt hjá mér þennan dag og ég var að hugsa um að fara fram til að laga mér kaffi. Ég hafði nýlega verið í sambandi við báta sem fóru úr höfn í Eyjum. Þar á meðal var björgunarbáturinn Þór sem hafði skroppið út í Klettsvík. Ég hafði spurt þá um borð hvað þeir væru að gera. Ég hafði líka talað við Hjálmar Guðnason á Bravó, fyrrum loftskeytamann á stöðinni hjá okkur. Hann var nýlega farinn út með ferðafólk.” Úti við Bjarnarey var farið að kula og rúmlega það, komin norðnorðvestan sex vindstig. Pétur, Jens og Ómar voru að flytja lundakippurnar út að svokölluðu Ofangjafarnefi, þverhníptu bergi, þar sem fuglinum er gjarnan kastað niður í sjóinn hundrað metrum neðar. Þar er lítil hætta á að fuglinn rekist utan í áður en hann skellur á öldunum. Jens var farinn að skima eftir Gylfa og Björgvini félaga hans á bátnum: ,,Ég var að pakka niður dótinu mínu og setti GSM-símann í plastpoka niður í tösku þannig að hann blotnaði nú örugglega ekki þegar við færum um borð í bátinn. Þegar ég var að loka töskunni sagði ég við Ómar: ,, Æi, nei ætli það sé ekki best að hafa símann uppi við ef maður skyldi hringja frá bryggjunni á Heimaey til að láta konurnar sækja okkur þanngað.” Ég var í gallabuxum, bol og skyrtu undir hermannajakka og gúmmíbuxum og í gönguskóm: ágætum galla til að stökkva um borð í bátinn.”

Inn á www.tigull.is verður hægt að lesa alla frásögnina í heild sinni á laugardaginn 13. febrúar.


ÉG MYNDI ALLTAF TAKA SMÁ DÚETT MEÐ ELTON JOHN

UPPÁHALDS: Matur: Hakk & spaghetti Staður á Íslandi: Vestmannaeyjar, lýg því ekki Staður erlendis: Las Vegas Þættir: Heimildaþættir Kvikmynd: Inception Lag: Rocket Man Áhugamál: Badminton Íþrótt: golf

Hvað er um að vera núna þessa dagana hjá þér eða ertu kannski eingöngu á æfingum fyrir Grease? Ég er á fullu að flytja inn hreinsiefni sem tengist vörumerkinu X-mist en það efni gæti breytt miklu í matvælaiðnaði og hjálpað fyrirtækjum með ódýrari og heilnæmari sótthreinsun. Hvernig hafa æfingar fyrir Grease gengið? Við erum rétt að byrja að slípa lögin til en þau eru einhvers staðar í hausnum. Hvað er uppáhaldslagið þitt í sýningunni? Mér finnst we go together alltaf skemmtilegt. Hvernig ganga dansatriðin - ertu dansari? Ég er fínn að dansa seint á kvöldin en þarf líklega aðeins að æfa mig fyrir sýninguna.

Hvernig er tenging þín til Eyja? Amma og afi búa á Fjólugötunni og svo á ég fullt af frábæru frændfólki í eyjum og marga toppvini. Eftirminnilegasta minning þín sem tengist Eyjum? Mér fannst alltaf skemmtilegast að sleppa lundapysjum og mæta á Shellmótið svo er amma alltaf sérfræðingur í að gera brauð með banana. Þitt mat: Verður Þjóðhátíð í ár? X-mist. Það vill svo til að efnið okkar gæti haft áhrif á hvort skemmtanahald komist á eitthvað skrið. Hvaða þjóðhátíð stendur uppúr? Mér fannst geggjað þegar við bróðir minn tókum Sumargleðina saman. Hvernig myndir þú lýsa síðasta ári hvernig var það fyrir þig? Á síðasta ári breyttist allt hjá mér

persónulega því ég fékk þetta risatækifæri í hendurnar, sem X-mist er. Fyrirtækið fer ört stækkandi. Ég átti svo mín stærstu lög og hafði gaman af því að gera sjónvarpsþátt eftir laginu mínu. Ef þú ættir að taka það jákvæða út úr árinu 2020 - hvað væri það helst? X-mist og þjóðhátíðarlagið standa klárlega uppúr. Hvernig myndir þú lýsa draumagigginu þínu? (Ef þú gætir spilað hvar sem er, með hverjum sem er og á hvaða tímabili sem er) ég myndi alltaf taka smá dúett með Elton John. Áttu fyrirmyndir í tónlistinni? Þá hvaða listamaður/menn og afhverju? Aftur minn maður Elton John, hann hefur einhverja náðargáfu í sögunni að búa til fallegar melodíur að mínu mati.


INGÓLFURÞÓRARINSSON “dannyzuko”

StefaníaSvavarsdóttir “BettyRizzo”

LIVE

JÓHANNAGUÐRÚn “sandyolsen”

StefánJakobsson “KenickieMurdoch”

TÓNLEIKASÝNING-goslokahátíð ÍsamstarfiviðGoslokanefnd

Íþróttahöllinvestmannaeyjumföstudaginn2.7.2021 húsiðopnarkl.19:30-tónleikarhefjastkl.20:30


SUDOKU

ORÐAÞRAUT

KULDI VOR

VETUR

ROK

FROST

SÓL

HITI

LOGN

RIGNING GOLA


AMONG US OG TIK TOK VINSÆLAST Við heyrðum af hæfileikaríkri kökuskreytingardömu og fengum aðeins að forvitnast hvernig hún fer að. Nafn: Björk Sigurgeirsdóttir, dóttir Bergþóru Þórhalls og Sigurgeirs Sævalds. Fjölskylda: Í sambúð með Magnúsi Heiðdal og eigum von á litlu kríli í lok júlí. Hvenær byrjaði ástríðan þín fyrir kökubakstri? Ég var oftar en ekki límd við mömmu í eldhúsinu þegar hún var að baka fyrir hin ýmsu tilefni. Ég var dugleg að baka þegar ég hafði aldur til en það þróaðist fljótt út í sykurmassaskreytingar þegar ég sá mynd af Angry Birds köku í Gestgjafanum og langaði að baka þannig köku fyrir afmælið mitt. Ég hef ekki hætt síðan og vinir og fjölskylda njóta góðs af. Ertu búin að læra eitthvað tengt bakstri og kökuskreytingum? Nei en mig dreymir um að fara til Englands á sykurmassanámskeið hjá einni sykurmassadrottningu sem ég er að fylgja á Instagram. Mér finnst orðið skemmtilegra að skreyta kökurnar heldur en að baka þær. Hvað finnst þér skemmtilegast að baka? Það er ekkert eitt skemmtilegra en annað. Mér finnst skemmtilegt að fá ný og krefjandi verkefni og er 6 hæða Minions kaka ein uppáhalds kakan sem ég hef gert. Ef ég fæ eins pöntun á stuttum tíma þá reyni ég að útfæra kökurnar á mismunandi hátt. Hvaða skreytingar eru vinsælastar fyrir börnin? Það er rosalega misjafnt en í dag er Among us og Tik Tok þema mjög vinsælt. Fótboltatreyjur, einhyrningar, ofurhetjur, hvolpasveitin og Fortnite hafa líka vera mjög vinsælar uppá síðkastið.

Áhugasamir geta fylgst með Björk á instagram.com/bokum_koku.


VIÐ LEITUM AÐ GÓÐU FÓLKI Kubbur óskar eftir starfsfólki við sorphirðu og vinnu í móttökustöð í Vestmannaeyjum Umsóknir sendist á kubbur@kubbur.is Nánari upplýsingar í síma 456-4166 Kubbur ehf. er endurvinnslufyrirtæki með starfssemi á Ísafirði, í Vestmannaeyjum, Hafnarfirði, Bolungarvík og Ölfusi.

Tannlæknar 9. - 12. mars Hjalti Þórðarsson Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40

Tímapantanir í síma 481-2772

AÐALFUNDUR SJÓVE Aðalfundur Sjóstangaveiðifélags Vestmannaeyja fyrir árið 2020 verður haldinn föstudaginn 19. febrúar nk. og hefst hann kl. 20:00 í félagsheimili Sjóve að Heiðarvegi 7. Dagskrá aðalfundar: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. 2. Reikningsskil og samþykkt reikninga. 3. Tillögur stjórnar um starfsemi starfsársins, fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda. 4. Lagabreytingar.

Ágæti félagsmaður á aðalfundinum verður kynnt starfsemi ársins 2021. Innanfélagsmót 8. maí 2021 Aðalmót 23.-24. apríl 2021 Bryggjumót unglinga

5. Kosning stjórnar. 6. Kosning tveggja endurskoðenda reikninga. 7. Önnur mál.

Léttar veitingar að hætti stjórnar. Við hvetjum félagsmenn til að mæta.


Ánægðari viðskiptavinir 2018

2019

2020

2021


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook