

KÁTIR KRAKKAR Á VÍKINNI

HRÓI UNNARSSON
Fjölskylda: Pabbi minn heitir Unnar og mamma mín heitir Sigga og ég á systir sem heitir Lúlína og bróðir sem heitir Simmi.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór?
Handbolta sem ég er að æfa svona skytta
Hvað er mamma þín best í að gera? Prjóna
Hvað er pabbi þinn bestur í að gera?
Í að leyfa okkur að gera eitthvað
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Leika við vini mína
Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Pizza
Hvað langar þig í jólagjöf?
Tvær kanínu og eitt Lego
Hvað er mamma þín gömul?
Veit ekki en systir mín er 6 ára
Hver er besti vinur þinn?
Gabríel og Árni, Árni er frændi minn
Hvað gerir þig glaðan? Leika okkur
Hvað gerir pabbi allan daginn?
Fara í vinnuna og líka afi minn
Ertu hræddur við eitthvað?
Ég er hræddur við tvö, það er með tvo hausa og þrjú augu. Þeir eru skerí.

GEORG SNÆR VIGNISSON
Fjölskylda: Mamma mín heitir Inga og pabbi minn heitir Vignir. Bræður mínir heita Hilmar og Ívar Skæringur og systir mín heitir Inga.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Svona hærri hærri hærri.
Hvað er mamma þín best í að gera?
Hún er alltaf að læra og borða nammi, lakkrís hún elskar lakkrís.
Hvað er pabbi þinn bestur í að gera?
Bara allt í tölvunni, hann er bara ruglaður í tölvunni.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Að borða nammi og fara til Vestmannaeyja og fara í Herjólf.
Hvað er uppáhalds maturinn þinn?
Kjúklingur
Hvað langar þig í jólagjöf? Eggjadót
Hvað er mamma þín gömul?
Mamma mín er 57 ára
Hvað er pabbi þinn gamall?
Hann er líka 57 eða 50 og 50 og 7
Hver er besti vinur/vinkona þín?
Helga hún er kennari.
Hvað gerir þig glaðan?
Þegar pabbi leyfir mér ekki að horfa þá fer ég að grenja og þegar ég er búinn að grenja þá er ég glaður.
Ertu hræddur við eitthvað?
Já Grýlu en ekki við hákarla.
TÍGULL
DREIFING:
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Dreifing fer fram á miðvikudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana.

Allt á jólatréð • Jólastyttur • Jólasveinar • Jólastjarnan • Allt á aðventukransinn og jólaskreytingarnar
Grenilengjur • Pottaplöntur • Dúkar og servíettur • Kerti, kertastjakar og bakkar
Blöndunartæki (Grohe, Ferro, Damixa) • Rafmagnsverkfæri (Hikoki, Black+Decker, Milwaukee, Makita, Worx)
LADY málning • LADY lakk • Perur og ljós (Gildir ekki af HUE og WiZ) • Salerni og handlaugar Eldhúsvaskar Parket • Flísar • Búsáhöld • Pottar og pönnur • Diskar, glös, bollar og matarstell
Bökunarvörur • Hreingerningarvörur ... Kláraðu jólin og jólagjafirnar hjá okkur
HLJÓP MARAÞON UNDIR 3 TÍMUM
Kristinn Árnason er 35 ára, er giftur Ragnheiði Evu (31 árs). Við eigum tvær dætur Sunnevu Karen (4 ára) Unu Maríu (2 ára). Svo er litli bróðir væntanlegur 2025. Kristinn er áhugamaður um hlaup og hljóp sitt fyrsta erlenda keppnishlaup á árinu. Tígull heyrði í Kristni.
Atvinna: Ég starfa sem háseti á Herjólfi, samhliða áhugamennsku í hlaupum er einnig mikill áhuga löndunarmaður og reyni ég að rifja upp gamla takta í því þegar mikið er um að vera. Aðal atvinna mín er svo að vera góður eiginmaður og ala upp tvær yndislegar dætur. Stunda einnig heimilisþrif í frítíma mínum.
Hvenær kviknaði hlaupaáhuginn? Ég byrjaði að hlaupa markvisst árið 2020 þegar sóttvarnarteymið lokaði öllum hurðum innandyra til að hreyfa sig. Ég bjó á þeim tíma í innri Njarðvík. Ég skráði mig í fjarþjálfun hjá ultraform og sá fljótt að þetta væri íþrótt fyrir mig. Í framhaldinu byrja ég svo að að æfa með hlaupahóp í Njarðvík sem heitir 3N, þar fékk ég áhugann að keppa við aðra. Síðan þá hef ég náð góðum framförum og keppt í fjölmörgum keppnishlaupum.
Varstu að æfa íþróttir þegar þú varst yngri? þá hvaða? Heldur betur, fósturpabbi minn hann Guðni Sigurðsson réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, ég var skráður í fótbolta, handbolta, golf og stundaði það allt af miklum krafti með mis miklum árangri. Það sem stóð upp úr var tíminn þegar Jóna Björk tók okkur á snerpuæfingar samhliða fótboltanum, en það var samblanda af sprettum, útihlaupi og styrk. Þar var ég á heimavelli.
Ertu með ákveðna hlauparútínu?
Já, ég fer aldrei kaldur á æfingar, allar æfingar byrja á góðum hreyfiteygjum og drillum, mjög mikilvægt til að virkja alla vöðva og koma í veg fyrir meiðsli. Breyti aldrei því sem virkar

Kristinn í fyrsta erlenda keppnishlaupinu sem haldið var í Amsterdam.
fyrir keppnishlaup hvað varðar næringu. Kolvetnin spila þar mikilvægt hlutverk. Alltaf pizza kvöldinu áður og síðan góður morgunmatur.
Hvað æfir þú oft í viku?
Það fer rosalega mikið eftir hvar í tímabilinu ég er stend, en að jafnaði 5-6 sinnum í viku hlaup, það er gott líka að taka stundum hjól eða sund með til að minnka höggin þegar maður er að byggja upp magnið.
Hvaða skór eru bestir að þínu mati? Það hafa verið svo miklar framfarir í hlaupaskóm að þetta er ekki spurning lengur um hvaða skór eru bestir heldur hvaða skór henta hverjum og einum. Mæli frekar með því að eiga nokkur pör og dreifa álaginu eftir undirlagi eða hraða sem á við.
Áttu uppáhalds hlaupaleið í eyjum? Puffin hringurinn er upphafið af íslensku hlaupa sumri, bland af öllu því góða. Hann fær allan tímann sigurinn.
Hvað gerir það fyrir þig að hlaupa? Fjölskyldan segir alltaf að ég verði geðillur ef ég hreyfi mig ekki. Hlaup eru geðlyfin mín. En annars finnst mér gott að setja mér markmið og hafa einhvað fyrir stafni og vinna svo markvisst af því. Litlu sigrarnir veita manni svo mikla hamingju. Þetta er líka frábær leið til að vera góð fyrirmynd fyrir börnin sín. Þau þakka manni seinna þegar þau fara að draga mann með í sínar áskoranir.
Ertu að taka styrk með hlaupunum?
Já, styrkur er það allra mikilvægasta til að halda sér heilum í þessu sporti, ég reyni alltaf að halda styrk inni 2-3x í viku yfir nánast allt tímabilið og finn ég fljótt fyrir eymslum ef það er einhvað slakað á í því.
Ertu að pæla í mataræðinu eitthvað sérstaklega? Ef já hvað þá helst. Lykilatriðið er að borða fjölbreytt og nógu mikið, það er í lagi að leyfa sér þegar þú ert í veislum eða ferð út að borða með vinunum. Svo er hægt að halda sinni góðu rútínu þar á milli. Yfir undirbúningtímabil borða ég mikið meira prótein og fitu. En þegar keppnistímabilið er að byrja eru kolvetnin mjög mikilvæg.
Fyrsta keppnishlaupið
Amsterdam var mitt fyrsta erlenda keppnishlaup og var trompið þetta árið á eftir laugaveginum.
Sub3 múrinn hefur legið í hausnum á mér síðan ég byrjaði að hlaupa og þurfti ég að ná fullt af öðrum stórum sigrum til að stefna að því.
Annars hef ég auga á Berlín, frankfurt eða Valencia, væri gaman að reyna við Sub3 Í þeim. Ekkert ólíklegt að ég haldi áfram á ári hverju með að loka utanvega tímabilinu með maraþoni.
Svo eru UTMB hlaupin líka freistandi, en sjáum til hvað gerist meðan maður heldur sér heilum.
Sub3 er að hlaupa heilmaraþon undir 3 klukkustundum.

Kristinn ásamt fjölskyldu sinni.

Er nóvember þinn skoðunarmánuður? Frumherji í Eyjum vikuna 18. - 21. nóvember
Tímapantanir í síma 570 9090 Faxastígur 38
Lokað í hádeginu

Við erum öll framúrskarandi!
Creditinfo kynnti í vikunni sinn árlega lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki í Hörpu. Yfir þúsund manns mættu til að fagna þeim 1.131 fyrirtækjum sem stóðust ströng skilyrði Creditinfo til að verða Framúrskarandi fyrirtæki. Fyrirtækjum á listanum fjölgaði um 12% á milli ára.


Optical Studio kemur til Vestmannaeyja fimmtudaginn 21. nóvember
Við verðum í fundarsal Hótel Vestmannaeyja frá kl. 10:00 - 22:00. Tímabókanir í sjónmælingar í síma 511-5800 og á noona.is og á opticalstudio.is

20%
Afsláttur af öllum vörum.
Mikið úrval af fallegri merkjavöru.
Við bjóðum upp á hágæða gler.
Annað par fylgir með margskiptum glerjum.




















FJÖR Á DÖMU - OG HERRAKVÖLDI ÍBV
Dömu og Herrakvöld ÍBV sem var á vegum handknattleiksdeildarinnar fóru fram síðastliðna helgi. Vel var mætt á bæði kvöldin. Mollý úr Ice Guys sá um veislustjórn á dömukvöldinu en þeir Gunnar Birgisson og Tómas Steindórsson sáu um herrakvöldið.



















METAÐSÓKN Á KÓTLETTUKVÖLDIÐ
Eins og við höfur greint frá á vefnum okkar þá hafa Pétur Steingrímsson og Gunnar Heiðar staðið að kótilettukvöldi í Höllinni síðustu ár við góðar undirtektir og heldur kvöldið áfram að stækka með hverju árinu en í fyrra seldust 250 skammtar og nú í ár 321.
Ágóðinn af kvöldinu var afhentur í Höllinni í síðustu viku. Í ár voru það Krabbavörn Vestmannaeyja og Hollvinasamtök Hraunbúða sem nutu góðs af og fengu þau hvor um sig 550.000 krónur.
Líkt og undanfarin ár voru nokkrir sem komu upp í púlt og héldu stutta ræðu, þar á meðal voru það Sigurbjörg Kristín, Geir Jón, Kári Bjarna, Hanni Harði, Bjarni Ólafur var kynnir og Kótilettubandið tók tvö lög.
Pétur Steingrímsson og Gunnar Heiðar sem standa að kvöldinu vildu koma þakklætiskveðjum á alla sem hafa lagt þeim lið, án þeirra væri þetta ekki hægt.
Hér eru nokkrar myndir frá kótilettukvöldinu sem ljósmyndari Tíguls Addi London tók.















Fólk er hvatt til að nýta sér þetta tækifæri og mæla blóðsykurinn, en margir ganga með dulda sykursýki, sem er hættulegur sjúkdómur. Sykursýki er vaxandi vandi í heiminum. Talið er að hundruð manna á Íslandi gangi með sykursýki án þess að vita af því. Þetta er falinn vandi og kemur mörgum á óvart sem mælst hafa með of mikinn blóðsykur. Í Apótekaranum fimmtudaginn 14. nóvember milli kl. 13:00 - 16:00.
Aðalsteinn Baldursson hjúkrunarfræðingur sér um mælinguna.


Athafnasvæði AT-2 verði iðnaðarsvæði I-4
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 6. nóvember 2024 að kynna á vinnslustigi tillögu að breyttu Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 fyrir landnotkunarreit athafnasvæðis AT-2 skv. 2. mgr. 30 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan gerir ráð fyrir að skilgreining landnotkunarreitsins verði breytt frá því að vera athafnasvæði í að verða iðnaðarsvæði. Mörkum landnotkunarreitsins er breytt þannig að hann falli betur að aðliggjandi landslagi og stækkar við það úr 15,4 ha í 16,6 ha.
Skipulagsfulltrúi býður íbúa velkomna til samtals á opnu húsi þann 19.-21. nóvember 2024 milli klukkan 10-12 eða skv. samkomulagi.
Skipulagsgögn verða til sýnis í Ráðhúsi Vestmannaeyja að Kirkjuvegi 50, á skipulagvefsjá sveitarfélagsins og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 4. desember 2024 í afgreiðslu Ráðhúss eða í gegnum skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (https://skipulagsgatt.is/).

Strandvegur 89-97
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 6. nóvember 2024 að kynna á vinnslustigi tillögu að breyttu Aðalskipulagi Vestmannaeyja 20152035 fyrir landnotkunarreit athafnasvæðis AT-1 skv. 2. mgr. 30 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan gerir ráð fyrir breyttum skilmálum athafnasvæði AT-1 sem á við um lóðir við Stranveg 89-97 þar sem heimild verður fyrir íbúðarhúsnæði á efri hæðum. Áfram er kvöð um athafnastarfsemi á fyrstu hæð.

Skipulagsfulltrú býður íbúa velkomna til samtals á opnu húsi þann 19.-21. nóvember 2024 milli klukkan 10-12 eða skv. samkomulagi.
Skipulagsgögn verða til sýnis í Ráðhúsi Vestmannaeyja að Kirkjuvegi 50, á skipulagvefsjá sveitarfélagsins og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 4. desember 2024 í afgreiðslu Ráðhúss eða í gegnum skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (https://skipulagsgatt.is/).

Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs sonar okkar, bróður, mágs og frænda

ÁRSÆLS SVEINSSONAR
Sveinn B. Sveinsson
Guðmundur Óli Sveinsson
Jóhann Sveinn Sveinsson
Júlíana Sveinsdóttir
JennýJóhannsdóttir
Hrund Gísladóttir
Ragna Ragnarsdóttir
og systkinabörn

VILTU NÁ TIL ALLRA VESTMANNAEYINGA?
Auglýsingasími
Tíguls: 481-1161
tigull@tigull.is


Viltu minnast látins ættingja eða vinar?
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
ÞRAUTIR



FRIÐUR MORGUNN SÓL
PÓLEY FAGNAÐI ÞRIGGJA ÁRA
Gjafavöruverslunin Póley fagnaði þriggja ára afmæli sínu 7. nóvember. Boðið var upp á léttar veitingar, afslætti og happadrætti. Sara Sjöfn Grettisdóttir eigandi verslunarinnar opnaði Póley árið 2021 og tók verslunin miklum breytingum á þeim tímapunkti.


Miðgerði
– nýjar lóðir fyrir íbúðarhúsnæði
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 6. nóvember 2024 að kynna á vinnslustigi nýtt deiliskipulag fyrir götuna Miðgerði skv. 3. mgr. 40 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan gerir ráð fyrir lóð fyrir raðhús við Helgafellsbraut, tveim lóðum fyrir parhús og sex lóðum fyrir einbýlishús í nýrri götu Miðgerði.
Skipulagsfulltrú býður íbúa velkomna til samtals á opnu húsi þann 19. - 21. nóvember 2024 milli klukkan 10-12 eða skv. samkomulagi.

Skipulagsgögn verða til sýnis í Ráðhúsi Vestmannaeyja að Kirkjuvegi 50, á skipulagvefsjá sveitarfélagsins og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 4. desember 2024 í afgreiðslu Ráðhúss eða í gegnum skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (skipulagsgatt.is).

Vestmannaeyjar
Við flytjum á Strandveg 52
Í nóvember opnar
Sjóvá nýja skrifstofu á Strandvegi 52 í húsnæði Íslandspósts.
Við tryggjum góða þjónustu og hlökkum til að sjá ykkur.
Opið:
Mán.–fim. 10∶0 0 –16∶00 Föstudaga 10∶0 0 –15∶00