Skip to main content

Tígull 39.tbl 03 árg.

Page 1

39. tbl. 03. árg. 1.-7. desember 2021

Við óskum Ísfélaginu til hamingju með 120 ára afmælið!


Nú leikum við okkur!

Jólaleikur Icewear og Tíguls Þú getur unnið glæsilega Funa-úlpu í lit að eigin vali

Color:

White

19-4057 TPX true blue

18-1764 TPX Lollipop

PANTONE 2756 C

PANTONE 187 C

CMYK C 100 M 94 Y0 K 29

CMYK C0 M 100 Y 79 K 20

FUNI UNISEX "PUFFY" DÚNÚLPA

Mjúk dúnúlpa sem heldur á þér hita, hvort sem þú ert borgarbarn eða fjallagarpur. Funi úlpa er með unisex sniði og er kjörin úlpa fyrir alla sem lifa virkum lífsstíl. Styrking á öxlum og olnbogum er ekki einungis töff, heldur passar upp á að bakpokinn haldist á sínum stað. Úlpan er vindheld, vatnsfráhrindandi og andar vel og hentar því vel fyrir íslenskan vetur. Unisex snið, mælt er með því að konur kaupi einni stærð minni en þær eru vanar. Eiginleikar - Unisex snið - YKK® tveggja sleða rennilás - DWR – vatnsfráhrindandi húð - Fylling: 90% dúnn / 10% fjaðrir - Stillanleg hetta og faldur - Styrking á öxlum og olnbogum

Það sem þú gerir til að fara í pottinn er: Finna Icewear logo í blaði vikunnar. (Ekki tekið með á þessari síðu) Líkar við instagram Tígull og Icewearmagasin Koma í verslun Icewear Vestmannaeyjum og benda starfsmanni á hvar logoið er og ef rétt er þá verður þú skráð/ur í pottinn. Þá ert þú kominn í pottinn. Við drögum út live á facebook Tígull þann 15. desember kl 15:00. Þú hefur möguleika á að vera tvisvar sinnum í pottinum. Þar sem logo Icewear verður falið í tölublaði 38 og 39. Kveðja Tígull og Icewear Vestmannaeyjum

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumyndina á Stefán Nikulásson.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


LITLA HETJAN RÖKKVI Þegar blaðamaður Tíguls mætti til Guðnýjar og Eiðs Arons á Stapaveginn tók á móti honum lítill ofurkrúttlegur enskur cocker spaniel þrífættur hvolpur. Rökkvi er bara fjögurra mánaða og varð fyrir því óláni að slasa sig illa á annari framlöppinni, það illa að hún margbrotnaði. Ekki var hægt að setja fótinn saman á nokkurn hátt, en bein í svona ungum hvolpi eru svo lin að í raun urðu þau að graut í fætinum. Þá var bara tvennt í stöðunni. Annað var að láta svæfa hann sem kom aldrei til greina hjá þeim. Hinn valmöguleikinn var að láta taka löppina af sem var gert. Þau voru svo heppin að lenda á dýraskurðlækni sem átti sjálf þrífættan hund og útskýrði hún ferlið vel fyrir þeim og hughreysti þau. Rökkvi var ofurfljótur að jafna sig, strax sama dag og aðgerðin var gerð var hann farinn að standa upp og daginn eftir farinn að hlaupa um eins og ekkert væri eðlilegra.

Íbúafundur um umhverfis- og auðlindastefnu Vestmannaeyja Vestmannaeyjabær hefur undanfarið unnið að umhverfisgreiningu sem mun liggja til grundvallar fyrir gerð umhverfis- og auðlindastefnu bæjarins. Á íbúafundinum verða kynntar helstu niðurstöður umhverfisgreiningarinnar, farið yfir helstu viðfangsefni umhverfismála Vestmannaeyjabæjar og ræddar hugmyndir að markmiðum fyrir umhverfisstefnu bæjarins. Íbúafundurinn verður haldinn í Eldheimum þann 8. desember 2021 klukkan 17:00 og verður einnig streymt á vef (sjá heimasíðu og facebook síðu Vestmanneyjabæjar). Við vonumst til að sjá sem flesta.


ENNEMM / SÍA / NM-NM-008437

Fáðu næsta jólapakka hjá okkur

Renndu við þegar þér hentar Nú geturðu valið að sækja sendinguna þína frá netverslunum ELKO, ASOS o.fl. á hvaða þjónustustöð N1 sem er – jafnvel allan sólarhringinn. Við tökum netverslunina alla leið svo þú getur strax byrjað að hlakka til næsta pakka!

440 1000

n1.is

ALLA LEIÐ


HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM JÓLIN HÁKON DAGUR HAFLIÐASON Aldur: 5 ára. Fjölskylda: Mamma mín heitir Sigurbjörg Jóna, pabbi minn heitir Hafliði og systir mín heitir Þorbjörg Sara. Hvað er skemmtilegast við jólin? Já, bara af því að mér finnst gaman að fá pakka og vera saman með fjölskyldunni Hvað langar þig í jólagjöf? Geimflaug sem er fjarstýrð og hermir eftir puttunum. Hvað er mamma best í að gera? Gera brauð og elda súpu og vera besta mamma í heimi. Hvað er pabbi bestur í að gera? Vera bestur í heimi og hugsa um mig. Hvað ert þú bestur í að gera? Leika mér. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Kafari, geimfari og líka rafvirki. Af hverju eru jólin haldin? Því þá koma jólasveinarnir!

LILJA RUT BRYNJARSDÓTTIR Aldur: 5 ára. Foreldrar: Sandra Gísladóttir og Brynjar Karl Óskarsson. Hvað er skemmtilegast við jólin? Já mér finnst jólin skemmtileg útaf því ég elska að opna dagatalið og þegar jólasveinarnir koma. Hvað langar þig í jólagjöf? Playmo bara alveg sama hvernig. Hvað er mamma best í að gera? Elda mat. Hvað er pabbi bestur í að gera? Lesa fyrir mig. Hvað ert þú best í að gera? Lita og perla. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Mér langar að verða sjúkrakona. Af hverju eru jólin haldin? Útaf þá fæddist Jesú og líka útaf við skreytum húsin okkar.


@heimadecor /heimadecor

Royal Copenhagen stellið fæst hjá okkur!

Hilmisgata 4 // 866 6276 // heimadecor.is // heimadecor@heimadecor.is

Opnunartími: Mánudaga til föstudags: 11-18 // Laugardaga: 11 - 16 // Lokað á sunnudögum


VANTAR ÞIG ÞRIF FYRIR BÍLINN FYRIR JÓL? Í leiðinni þéna smá pening til að hafa með skólanum. Ragnar Orri er kominn með bílpróf og því bjóða þeir upp á að sækja bíla og skila aftur eftir þrif. Þeir taka að sér allar stærðir bíla. Verðið er frá 10.000 alþrif og 15.000 alþrif og bón. Fyrir stærri bíla er það 15.000 alþrif og 17.000 fyrir alþrif og bón. Þrifin taka frá einum og hálfum klukkutíma upp í þrjá klukkutíma, það fer eftir stærð bíls og hve skítugur bíllinn er. Adrían Smári Gunnarsson 16 ára og Ragnar Orri Ingimarsson 17 ára eru ungir peyjar sem eru að læra múrarann í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum.

Þeir hafa báðir mikinn bílaáhuga og þar með hafa einnig mjög gaman að því að þrífa. Þeir hugsuðu því með sér af hverju ekki að bjóða bara upp á þrif fyrir aðra sem hafa ekki tíma eða aðstöðu til að þrífa bílana sína.

Síminn hjá Adrían er 670-2701 og hjá Ragnari er 852-0611, einnig er hægt að senda þeim skilaboð á facebook (Adrían Smári Gunnarsson og Ragnar Orri Ingimarsso) Svo eru þeir að vinna í að setja upp facebooksíðu sem heitir EyjaÞvottur.

Jólagjöfin fyrir hann! Sixpensari 7.500 kr. Nike rakspíri & svitalyktaeyðir 6.500 kr.

Leðurtaska 17.900 kr.

Boss úr 52.900 kr.

Gjafabréf er tilvalið í jólapakkann!


Jóla

Smørrebrød Einsa kalda

Rauðspretta

Kalkúnasalat

Rúgbrauð, remúlaði, rækjur, reyktur lax, sítróna

Franskbrauð, egg, tómatar, reyktur lax, ananas

Reyktur lax

Hamborgarhryggur

Franskbrauð, eggjahræra, sætur rauðlaukur, dilldressing

Rúgbrauð, eplasalat, rauðkál, súrar gúrkur, ananas, rauðvínssósa

Rækjur & egg

Roast beef

Franskbrauð, ferskar íslenskar rækjur, egg, sítróna, sjávarréttadressing

Rúgbrauð, egg, tómatar, remúlaði, súrar gúrkur, djúpsteiktir laukhringir

Síld & egg

Salami & koníaks lifrarkæfa

Rúgbrauð, egg, tómatar, sætur rauðlaukur, capers Val um 1) appelsínusíld 2)sinnepssíld eða 3) rauðrófusíld

Rúgbrauð, sveppir, sætur laukur, súrar gúrkur, títuberjasulta

Opnunartími í smørrebrød fyrir jólin 10., 11., 17. og 18. desember kl. 11:30 - 16:00 Þorláksmessa 23. desember frá kl. 16:00 Gerum tilboð í hópa, bæði í sal og take away, einnig utan opnunartíma. Fyrirspurnir sendist á facebook síðu Einsa Kalda eða í s: 662-1976 (Hildur)

Borðapantanir í s: 481-1415, einsikaldi.is og dineout.is


LÍFÆÐ VESTMANNAEYJA Í Vestmannaeyjum eru ein bestu skilyrði hér á landi til þéttbýlis­myndunar, fiskveiðar jafnan gjöfular frá einni helstu verstöð lands­ins, þar var landbúnaður stundaður frá fornu fari, mikil hlunnindi voru af bjargfugli og verslun hófst þar snemma á öldum. Mannlíf og atvinnulíf hélst nánast óbreytt í aldaraðir, Eyjamenn sóttu sjóinn á sínum opnu bátum. Með vélvæðingu bátaflotans sem hófst í Vest­mannaeyjum árið 1905 vænkaðist mjög hagur útgerðar í Eyjum. Þegar komið var á þriðja áratug aldarinnar var þar meiri uppgangur en víðast annars staðar á landinu og byggðist þá upp fiskimanna­þorpið nálægt höfninni. Eyjaflotinn hefur aflað þjóðarbúinu umtalsverðra tekna og því var eðlilegt að Landsbanki Íslands léti ljósmynd af höfninni í Vest­mannaeyjum eftir Loft Guðmundsson prýða bakhlið 50 króna peningaseðilsins árið 1928. Sú ljósmynd Lofts er hér felld hand lituð inn í nýlega ljósmynd af Vestmannaeyjahöfn. Áhugavert er að staldra aðeins við og íhuga þær gríðarlega miklu breytingar sem orðið hafa á íslenskri útgerð síðastliðin eitt hundrað ár.


HEFUR ÞJÓNUSTAÐ VESTMANNAEYINGA Í 20 ÁR

Markús Klinger eigandi gleraugnaverslunarinnar Sjón hefur komið til Eyja og þjónustað Vestmannaeyinga í 20 ár. Tígull tók létt spjall við Markús. Nafn: Markús Klinger Fjölskylda: Ég á einn son sem heitir Viktor og er tvítugur. Aldur: 52 ára Menntun: Sjóntækjafræðingur Hvaðan ertu? Ég er fæddur í Austurríki en kom fyrst til Íslands árið 1988 og árið 1998 þá flutti ég alfarið hingað. Afhverju gleraugnabransinn? Þegar ég var 14 ára þá var ég að hugsa hvað mig langaði að læra og ég hafði alltaf áhuga á því að verða sjóntækjafræðingur. Ég lærði sjóntækjafræði og hef unnið við það nánast alla tíð. Hvenær fluttir þú til Íslands og hvar hefuru búið á Íslandi? Ég hef

mestmegnis búið í Reykjavík enda rekið gleraugnaverslunina SJÓN frá árinu 1999, fyrst lengi á Laugavegi svo opnuðum við í Glæsibæ í stærra og betra húsnæði og svo fluttum við alfarið þangað. Það hefur alltaf verið meira og meira að gera og þeir viðskiptavinir sem hafa verslað við okkur eru mjög ánægðir með þjónustuna og koma aftur þegar þau þurfa gleraugu, sjónmælingar eða annað sem viðkemur sjóninni. Við reynum að veita framúrskarandi þjónustu og viðskiptavinir okkar vita það. Hvernig kom það til að þú fórst að þjónusta fólk í Eyjum? Við höfum alla tíð reynt að þjónusta alla þá staði sem þurfa á þessari þjónustu að halda. Við förum reglulega út um allt land með sjónmælingartæki svo að fólk þurfi ekki að koma til Reykjavíkur til að fá þessa sjálfsögðu þjónustu. Ég hef alltaf haft sterkar taugar til Vestmannaeyja og finnst alltaf jafn skemmtilegt að heimsækja Eyjarnar. Það er alltaf tekið ótrúlega vel á móti okkur og við gerum okkar besta til að þjónusta alla sem leita til okkar eins vel og hægt er.

Sérðu fyrir þér að þú munir þjónusta Eyjamenn áfram? Það held ég nú. Við höfum verið fastir gestir í Vestmannaeyjum frá opnun og það mun ekkert breytast eins lengi og fólk þarf þessa mikilvægu þjónustu. Ef eitthvað er þá langar okkur að heimsækja Vestmannaeyjar oftar. Hvenær kemur þú næst (desember?) Við verðum í Smart föstudaginn 3. desember frá klukkan 11:00-18:00 og laugardaginn 4. desember frá 11:00 – 15:00. Fólk þarf að panta tíma í sjónmælingu svo við getum veitt öllum sem besta þjónustu. Það er best að hringja í síma 511-6699 og panta tímanlega til að vera örugg með að fá tíma. Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri að lokum? Við hjá SJÓN viljum þakka öllu Eyjafólki fyrir frábærar móttökur þegar við komum í heimsókn og auðvitað eru allir alltaf velkomnir til okkar í Glæsibæ hvenær sem er, en svo má alltaf hringja og við leysum þá málin í sameiningu – enda er góð þjónusta það sem við leggjum hvað mesta áherslu á í okkar starfi.


VIÐ ÓSKUM ÍSFÉLAGI VESTMANNAEYJA TIL HAMINGJU MEÐ 120 ÁRA AFMÆLIÐ


Við óskum Ísfélagi Vestmannaeyja til hamingju með 120 ára afmælið

VÍKINGUR S J Ó M A N N A B L A Ð I Ð

BIFREIÐAVERKSTÆÐI

HARÐAR & MATTA


Vestmannaeyjabær sendir eigendum og starfsfólki Ísfélags Vestmannaeyja árnaðaróskir í tilefni 120 ára afmælis félagsins. Jafnframt þakkar bærinn farsælt og uppbyggilegt samstarf í gegnum tíðina og hlakkar til áframhaldandi samvinnu. Megi gæfa fylgja fyrirtækinu og starfsfólki í framtíðinni.


Við óskum Ísfélagi Vestmannaeyja til hamingju með 120 ára afmælið

Logo colours: Orange: PMS 166 Blue: PMS 2755

LITUR Á MERKI VÖRUKAUPS

Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins CMYK: RGB: PANTONE: HEX:

100-70-0-40 31-59-117 294 002E99

Höfundur: Tómas Jónsson FÍT tomas.jons@kvika2.is


VIÐ FÖGNUM 120 ÁRUM


SNÓKERMÓT KIWANIS & HÚSASMIÐJUNNAR

Birkir Hlynsson

Örn Hilmisson

Jón Óskar Þórhallsson

Síðastliðinn föstudag fóru fram úrslit í Húsasmiðjumótinu í snóker. Mótið var haldið í kjallara Kiwanis. Um þriðja sætið spiluðu þeir Jón Óskar Þórhallsson og Benóný Friðriksson en Jón Óskar bar sigur úr býtum. Úrslitaleikinn spiluðu þeir Birkir Hlynsson og Örn Hilmisson. Birkir er sigurvegari mótsins og hæsta skor (37). Þess má geta að Örn Hilmisson hefur ekki spilað sportið í nokkra áratugi þar sem hann hætti um tvítugt að spila. 7 ár eru síðan hann spilaði síðast í úrsláttamóti. Feðgarnir Hlynur og Birkir pöntuðu spes græju fyrir Örn svo hann gæti tekið þátt. Þetta var fyrsta mótið sem að Örn prófar græjuna.

Dómarar: Rúnar Gauti og Kristleifur

Einbeitingin í hámarki!

Örn var mjög efnilegur á sínum yngri árum en þá var hans hæsta stuð 73.

Color:

White

19-4057 TPX true blue

18-1764 TPX Lollipop

PANTONE 2756 C

PANTONE 187 C

CMYK C 100 M 94 Y0 K 29

CMYK C0 M 100 Y 79 K 20

ENN HÆGT AÐ SKRÁ SIG!

Hér má sjá mynd af Erni frá ca. 1982. Tekið í Nóvunni.

BROTHERS OPEN HEFST 1. DESEMBER


RÓLEGIR ÞAÐ ER NÓG TIL! ÞAÐ MEGA ALLIR FÁ

ÍSFÉLAGSINS

SEM VILJA

Ísfélagið gefur öllum bæjarbúum einstaka jólasíld, á meðan birgðir endast. Afhending fer fram í portinu við frystihús Ísfélagins að Strandvegi milli kl. 12 og 14 laugardaginn 4. desember. Allir fá þá eitthvað fallegt, í það minnsta bol og spil, á meðan birgðir endast.


UPPSKRIFT VIKUNNAR JÓLAKAKA Hráefni: 150 g sykur 125 g mjúkt smjör 3 egg 250 g hveiti 1 tsk lyftiduft 1 tsk sítrónudropar mjólk eftir þörfum súkkulaðispænir Aðferð: Þeytið saman sykur, mjúkt smjör og egg þar til ljóst og létt. Hrærið hveiti og lyftidufti saman við. Bætið við sítrónudropum og mjólk eftir þörfum, um 1 1/2 - 2 1/2 dl. Blandið súkkulaði saman við deigið. Smyrjið formkökuform og hellið deiginu í. Bakið jólakökuna við 175° í 55-60 mínútur. Stingið prjóni í kökuna til að athuga hvort hún sé tilbúin. Ef prjónninn kemur hreinn út er kakan tilbúin. Látið jólakökuna kólna í forminu í um 15 mínútur. Leysið hana

síðan úr forminu og látið kökuna standa á grind þar til hún kólnar alveg. Bleikur glassúr 50 g smjör, brætt 150 – 200 g flórsykur Vatn eftir þörfum Möndludropar, magn eftir smekk (c.a. 1/2 teskeið) Bleikur matarlitur Aðferð: Bræðið smjör í potti. Blandið flórsykrinum saman við og hrærið stöðugt, bætið vatninu saman við og hrærið þar til þið eruð ánægð með áferðina á kreminu. Ég setti smávegis af möndludropum í kremið en það er smekksatriði. Hellið kreminu yfir kökuna og berið strax fram.

Þú getur fundið næstu bíómyndir og sýningartíma á

eyjabio.is


Jólaréttirnir okkar!

Jóla refur: piparkökur, kókosbolla og heit mars sósa.

Bismark refur: Bismark brjótsykur, Bismark súkkulaði og hvít dýfa.

Bananasplit: Banani, þrjár tegundir af kúluís að eigin vali, jarðarber, heit nutellasósa, rjómi og möndluflögur.

/eydisisbud @eydisisbud Opnunartími: Alla virka daga 17-22 & um helgar 12-22

Belgískt Vaffla með ís, ferskum ávöxtum og heitri sósu. Ásamt heitu kakó.


OPI Ð PÍLUM ÓT

Ert þú næsti

ri ta is e m ja y e a n n a tm s e V í pílu?

KLUKKAN 13:00 VERÐ: 3.000 KR. KIWANISKJALLARINN

STAÐFESTA MEÐ GREIÐSLU

SKRÁNINGU LÝKUR KL. 22:00 ÞANN 28. DESEMBER

Hárstofa Viktors ætlar að bjóða uppá vegleg verðlaun í Pílumóti KIWANIS. Þetta mót hefur verið haldið síðustu ár við gríðarlega góðar undirtektir. Í fyrra mættu til leiks 36 keppendur. Veitt verða verðlaun fyrir 1. og 2. sætið, einnig eru veitt verðlaun fyrir bestu Pílu - skyrtuna. Verðlaunin eru ekki af verri endanum en úr frá Casio og snyrtivörur frá rakarastofunni verða meðal vinninga.

Tilboð verða á veigum frá Eyjabakarí. Leikið verður í riðlum og svo er útsláttur. Takmarkað pláss verður í mótið vegna eftirspurnar síðustu ár. En 36 sæti verða í boði. Hægt er að skrá sig á Rakarastofunni eða með því að senda einkaskilaboð og leggja inn á 582-26-8103 kennitala 630672-0239 Skráning staðfestist með greiðslu. Tómstundaráð Kiwanis


FIRESTOP

verð: 1.900 kr. Slekkur allar gerðir af minniháttar eldum. - Umhverfisvænt - Einfalt í notkun - Snögg kæling - Fer lítið fyrir - Hraðvirk kæling elds

KERTALUKT

verð: 12.000 kr.

Falleg lukt á leiðið fyrir friðarkertin.

488 3550 // skipalyftan.is // Opið alla virka daga 07:30 - 18:00 og laugardaga 10:00 - 12:00

TASTE SUPER DAIRY

VELKOMIN Í HÓPINN Ert þú að leita að skemmtilegu starfi á líflegum vinnustað? Við leitum að kraftmiklum og áreiðanlegum liðsfélögum á Ísey Skyr Bar í Vestmannaeyjum. Helstu verkefni: • Almenn afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini • Önnur tilfallandi verkefni

Kröfur: • Rík þjónustulund • Jákvæðni og góð samskiptafærni • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur

Nánari upplýsingar veitir Eygló Dís Alfreðsdóttir, eyglodis@outlook.com. Umsóknir skal senda á sama netfang.

VÖRURNAR FÁST Í

Bárustíg 6 / 481 1826

Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, PÁLS PÁLMASONAR, áður til heimilis að Dverghamri 7, Vestmannaeyjum. Fjölskyldan þakkar starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Vestmannaeyjum fyrir einstaka umönnun og væntumþykju í garð Páls Pálmasonar og fjölskyldu hans. Guðrún Kristín Guðjónsdóttir og fjölskylda


Nánari upplýsingar um 5 ára ábyrgð Honda er á honda.is/abyrgd

Sport Line

Honda CR-V Hybrid í Sport Line útgáfu.

Sparneytinn fjórhjóladrifinn jeppi með einstaka aksturseiginleika og ríkulegan búnað. Þægilegir aksturseiginleikar og útlit sem vekur athygli hvert sem þú keyrir hann. Sport Line er fáanlegur í Crystal Black Pearl og Platinum White Pearl. CR-V Sport Line kemur með fallega saumuðum Black Edition leðursætum til viðbótar við dökka stíl Sport Line og rúmgóða innréttingu. Komdu í heimsókn í sýningarsal Braggans að Flötum 20, 900 Vestmannaeyjum. Við hlökkum til að sjá þig.

Askja · Krókhálsi 11-13, 110 Reykjavík · 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Honda á Íslandi.

Honda CR-V Hybrid Sport Line

7.390.000 kr. Fylgdu okkur á Facebook. facebook.com/hondaisland


SUDOKU

ORÐAÞRAUT

ÁLSEY LITLANES

DALARAFN ÍSFÉLAGIÐ

HEIMAEY SIGURÐUR OTTONÞORLÁKSSON MJÖLVERKSMIÐJA FRYSTIHÚS GUÐBJÖRG


SMART Vestmannabraut 30 481 3340

30 % AFSLÁTTUR

AF ÖLLUM

FATNAÐI

50 % AFSLÁTTUR

AF SKÓM


VIÐ ERUM AÐ KOMA TIL EYJA

VIÐ VERÐUM Í VERSLUNINNI SMART VESTMANNABRAUT 30 FÖSTUDAGINN 3. DES. FRÁ 11:00-18:00 OG LAUGARDAGINN 4. DES. FRÁ 11:00-15:00

ÞAÐ ER MIKILVÆGT AÐ PANTA TÍMA Í SJÓNMÆLINGU Í SÍMA 511-6699 EÐA 899-8801


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 39.tbl 03 árg. by Leturstofan - Issuu