Tígull 38. tbl 06. árg.

Page 1


RATLEIKUR UM HEIMAEY MEÐAL EFNIS:

GESTKVÆMT HJÁ FÍV

KÁTIR KRAKKAR Á VÍKINNI

BASTÍAN BJÖRN WESTCOTT STEFÁNSSON

Fjölskylda: Pabbi minn heitir Stefán Björn

Hauksson og mamma mín heitir Jordan Leigh Westcott. Ég á eina systir sem heitir Arwen

Anna og bróðir sem heitir Declan James.

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Þegar ég er orðin pabbi? Flugstjóri.

Hvað er mamma þín best í að gera? Grasker.

Hvað er pabbi þinn bestur í að gera?Held pakkar.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Perla.

Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Pizza.

Hvað langar þig í jólagjöf? Dót sem getur breytast í kall.

Hvað er mamma þín gömul? Ég veit það ekki.

Hvað er pabbi þinn gamall? Ég man það ekki samt.

Hver er besti vinur þinn? Auðunn.

Hvað gerir þig glaðan? Jólapakki.

Ertu hræddur við eitthvað? Nei.

BALTASAR ÞÓR DAVÍÐSSON

Fjölskylda: Mamma mín heitir Birna og pabbi minn heitir Davíð, ég á stóra bróðir sem heitir Hreggi.

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Lögga og sjúkramaður, af því að amma mín vinnur á læknastofunni og frænka mín vinnur í löggunni.

Hvað er mamma þín best í að gera? Að fara út í göngu með mér.

Hvað er pabbi þinn bestur í að gera? Að kubba með mér.

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að leika mér í Playmo.

Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Pulsa og hamborgari.

Hvað langar þig í jólagjöf? Bílabraut eða byggja hana meira, byggja allt.

Hvað er mamma þín gömul? 38 ára.

Hvað er pabbi þinn gamall? 41 árs.

Hver er besti vinur þinn? Rökkvi.

Hvað gerir þig glaðan? Þegar ég hitti Rökkva.

Ertu hræddur við eitthvað? Nei.

FORSÍÐUMYNDIN: Forsíðu vikunnar prýða heldur ófrýnilegar skeppnur sem Addi í London myndaði síðastliðinn fimmtudag þegar Hrekkjavöku var fagnað í Eyjum. Fleiri myndir má finna í blaði vikunnar sem og á vefnum okkar Tigull.is

TÍGULL

DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðvikudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

STÓRA SERÍUHELGIN

Jólablaðið er

Allar seríur, skrautseríur, gluggaljós, aðventuljós o.fl.

Fimmtudag til sunnudags

afsláttur

Gildir einnig á husa.is

RÖTUM SAMAN - RATLEIKIR Í HEIMABYGGÐ

Nýverið á vafri um netið rákumst við á Tígli á áhugaverða vefsíðu tengda Vestmannaeyjum á slóðinni bit.ly/rotumsaman. Við nánari eftirgrennslan reyndist síðan vera hluti af verkefni hjónanna Guðbjargar Guðmannsdóttur og Óskars

Jósúasonar Rötum saman-Rafrænir ratleikir í heimabyggð, sem hlaut styrk úr Þróunarsjóði leik-, grunn- og tónlistarsskóla.

„Okkar helsta markmið með þessu verkefni var að búa til tækifæri fyrir samverustundir fyrir fjölskyldur en í leiðinni fræða þátttakendur um menningu og sögu Vestmannaeyja.“ segja þau hjónin um tilurð verkefnisins.

„Hreyfing og náttúra er eitthvað sem við höfum mikinn áhuga á. Þegar sótt var um styrk fyrir verkefnið var mikið verið að ræða um náttúru þekkingu í nærsamfélaginu og þá aðallega skort af því. Það rann upp fyrir okkur að þó svo að við séum oft úti í náttúrunni þá erum við ekki alltaf að spá í sögu svæðisins og þá sérstaklega ekki með börnin okkar. Það væri tilvalið að gera það skipulega til að spá og spekúlera í sögunni með börnunum án þess að þau tækju eftir því. Í gegnum leik var leiðin að okkar mati.

Við skoðuðum umhverfi Vestmannaeyja mikið til að finna þau

svæði sem hægt væri að búa til ratleiki þannig að flestir hefðu aðgang eða tækifæri til að taka þátt. Síðan fór tími í að skoða sögu hvers svæðis fyrir sig, skoða svæðið og þá að semja spurningar og eða þrautir til að hafa fyrir ratleikina. Leikirnar voru prófaðir til að sjá hvernig þeir komu út og svo loks var farið í vinnu við að setja upp leikina. Að lokum var sett upp vefsíða til að halda utan um leikina og verkefnið þannig að það væri sem aðgengilegt fyrir þá sem vilja taka þátt.“

Þau notuðu Goosechase sem er vinsælt forrit sem gerir það auðvelt að búa til og stjórna gagnvirkum ratleikjum. Með þessu forriti geta notendur búið til þrautir sem þátttakendur leysa á fjölbreyttan hátt, eins og að taka myndir, svara spurningum eða leysa þrautir. „Forritið hentar vel fyrir ratleiki sem ætlaðir eru fjölskyldum, skóla- eða samfélagshópum vegna auðveldrar notkunar og sveigjanleika. Þátttakendur fá stig fyrir hverja þraut sem þau leysa, sem heldur þátttakendum áhugasömum. Þetta er mjög aðgengilegt og notendavænt.“

Í dag er virkni síðunnar, eða nánar tiltekið appsins lítil þar sem leyfið sem þarf til þess að margir geti notið ratleikjanna á sama tíma, er útrunnið. „Þetta var náttúrulega bara þróunarverkefni sem miðaðist við eitt ár,“ sagði Óskaraðspurður. „Leyfið sem þarf fyrir fulla virkni er dýrt og er ekkert ákveðið með framhaldið á verkefninu,“ sagði Óskar.

Ratleikir eru frábært verkfæri til að efla fjölskyldusamveru og skapa gæðastundir og er vonandi að þetta skemmtilega verkefni lifi áfram og sem flestir geti nýtt sér þessa áhugaverðu síðu. Alls er að finna 8 ratleiki á síðunni sem hafa mismörg stopp. Hér er t.a.m. ratleikur sem fer fram í Herjólfsdal.

Óskar og Guðbjörg með fjölskyldunni að njóta náttúrunnar.

að taka baðið í gegn?

Þú færð allt fyrir baðherbergið á einum stað. Við bjóðum við upp á frábært úrval af blöndunartækjum, vöskum og klósettum. Gólefni ásamt úrvali af veggklæðningum. /midstodin @midstodin

Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is

Við erum öll framúrskarandi!

Creditinfo kynnti í vikunni sinn árlega lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki í Hörpu. Yfir þúsund manns mættu til að fagna þeim 1.131 fyrirtækjum sem stóðust ströng skilyrði Creditinfo til að verða Framúrskarandi fyrirtæki. Fyrirtækjum á listanum fjölgaði um 12% á milli ára.

BERGUR EHF.

BYLGJA VE

Flötum 29

Tímapantanir í síma: 481-1012

Neyðarsíminn: 844-5012

tannsi@eyjar.is

Pizza í kvöld?

481-1567 ( Sendum heim alla daga

frá kl. 17.00

NÆSTU SÝNINGAR:

6. SÝNING LAUGARDAG 9. NÓV. KL 15.00 7. SÝNING SUNNUDAG 10. NÓV. KL 15.00

MIÐAVERÐ KR. 4.200

MIÐASÖLUSÍMINN 852-1940 ER OPINN VIRKA DAGA MILLI KL 16-18

HREKKJAVAKA VAR HRÆÐILEG

Það er óhætt að segja að við Eyjamenn gerum ekkert nema með trompi. Þvílíkur metnaður hjá fjölskyldum á Hrekkjavökunni. Á mörgum stöðum var stórfjölskyldan öll með í hrekknum og stóð sig mjög vel. Blaðamanni Tíguls leyst ekkert á þegar komið var að prestsbústaðnum, þar var heldur betur tekið hræðilega á móti manni og vitandi að prestar hljóti að

hafa extra sambönd upp og jafnvel niður líka þá var þetta frekar raunverulegt og hræðilegt. Engu líkara en Guðmundur prestur og frú hafi hóað í kunningja sína að neðan. Virkilega vel gert öll þið sem tókuð þátt og þökkum við fyrir ykkar umstang. Ljósmyndari Tíguls hann Addi London fóra á milli húsa og fangaði hryllinginn.

Fleiri myndir má finna á TÍGULL.IS eða með því að skanna kóðann hér til hliðar

MÁ BJÓÐA ÞÉR ?

Ísfélagið gefur öllum bæjarbúum einstaka jólasíld, á meðan birgðir endast. Afhending fer fram í portinu við frystihús Ísfélagins að Strandvegi milli kl. 11 og 13 næstkomandi sunnudag 10. nóvember.

MARTEINN SKÓGARMÚS OG BANGSI LITLI Í LÉTTU SPJALLI

Leikfélag Vestmannaeyja sýnir þessa dagana hið sívinsæla leikrit um Dýrin í Hálsaskógi. Við tókum púlsinn á nokkrum ungum leikurum.

Nafn, aldur, fjölskylda: Aðalbjörg

Andrea Brynjarsdóttir, 15 ára, mamma mín heitir Jóhanna og Pabbi minn heitir Brynjar.

Aðalbjörg Andrea sem Marteinn.

Hefur þú tekið þátt í mörgum leikritum? Ég hef tekið þátt í 3 leikritum, ég var fyrst plóma í Ávaxtakörfunni, svo fiskur i Gosa, svo núna Marteinn í Dýrunum í hálsaskógi.

Hvað er skemmtilegasta hlutverkið sem þú hefur leikið og afhverju? Plóman, skemmtilegur félagsskapur og góð leikgleði.

Áttu auðvelt með að læra texta utan af? Ertu með eitthvað ráð með það? Ég á auðvelt með það, Ef það er eitthvað sem ég næ ekki alveg finnst mér gott að lesa yfir það áður en ég fer að sofa. Hvert er draumahlutverkið ef þú átt eitthvað slíkt? Dídí mannabarn

Hvað viltu segja við þann sem langar að prófa að taka þátt? Bara æfa þig mikið fyrir prufur og virkilega reyndu á þig og þetta kemur allt með tíma. Eitthvað að lokum? Maður verður ekki eins sterkur af neinu eins og grænmeti!

SMIÐIR

& PÍPARAR

Nýsmíði

Gólfhitafræsing

Gólfhitalögn

Kjarnaborun

Pallasmíði

Þakvinna

Innréttingar

Utanhúsklæðningar

aglverktakar@gmail.com // 768 5228

Nafn, aldur, fjölskylda: Guðbjörg Karlsdóttir, 11 ára, mamma heitir Halla Björk og pabbi Kalli Haralds. Ég á tvær yngri systur Kötlu Svövu og Söru Björk.

Hefur þú tekið þátt í mörgum leikritum? Ég hef tekið þá í tveimur leikritum. Gosa og núna í Dýrunum í Hálsaskógi. Í Gosa lék ég Gauju skólakrakka og núna leik ég Bangsa litla.

Hvað er skemmtilegasta hlutverkið sem þú hefur leikið og afhverju? Bangsi litli sem ég leik núna því það er stærra hlutverk en síðast.

Áttu auðvelt með að læra texta utan af? Já mér finnst frekar auðvelt að læra texta utan af.

Ertu með eitthvað ráð með það? Nei, engin sérstök ráð, bara lesa þetta vel og vandlega og sjá þetta fyrir sér á sviðinu.

Hvert er draumahlutverkið ef þú átt eitthvað slíkt? Já, Eva appelsína hefur lengi verið draumahlutverkið mitt á sviði.

Hvað viltu segja við þann sem langar að prófa að taka þátt? Bara að koma í prufur og prófa og sjá hvor manni finnist þetta ekki skemmtilegt.

Eitthvað að lokum? Mæli með fyrir alla að prófa að koma í leikhúsið, þetta er svo skemmtilegt og maður kynnist svo dásamlegu fólki.

Litla Skvísubúðin

Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega.

www.skvisubudin.is

/skvisubudin

/skvisubudin

Vegna lokunar 16. desember á Snyrtihorn Maju vill ég minna á gjafabréfin, ef þú átt gjafabréf ofan í skúffu er um að gera að nýta það, hvort sem er í snyrtingu eða vöru úttekt. Hægt að hafa samband á Facebook síðunni. Kveðja Maja

Guðbjörg í hlutverki bangsa litla.

AUGLÝSING UM KJÖRSTAÐ Í VESTMANNAEYJUM

Kjörstaður í Vestmannaeyjum við alþingiskosningar laugardaginn 30. nóvember 2024 verður í Barnaskólanum, inngangar eru um norður- og suðurdyr.

Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr.

Kjörfundur hefst kl. 9:00 árdegis og lýkur kl. 22:00 að kveldi sama dags.

Bænum verður skipt þannig í tvær kjördeildir: Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 29. október 2024 við Ásaveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra, sem eru óstaðsettir í hús og þeirra sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.

Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 29. október 2024 við Hátún til og með Ægisgötu, auk þeirra sem búa í húsum er bera bæjarnöfn.

Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.

Aðsetur Yfirkjörstjórnar á kjördag verður á kjörstað í Barnaskólanum.

Vestmannaeyjum, 1. nóvember 2024

Yfirkjörstjórn Vestmannaeyjabæjar

Jóhann Pétursson

Ólafur Elísson

Þór Ísfeld Vilhjálmsson

ERASMUS VERKEFNI FÍV: MIKILVÆGI VATNS Í TENGSLUM

VIÐ LOFTLAGSBREYTINGAR

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum hefur hafið þátttöku í Erasmus verkefni sem felur í sér samstarf við kennara og nemendur frá Sevilla á Spáni og Pisa á Ítalíu. Verkefnið mun standa yfir til vors 2026 og er áætlað að heimsækja hvern stað tvisvar sinnum. Yfirumsjón með verkefninu fyrir hönd FÍV hafa þær Tinna Hauksdóttir og Auðbjörg Halla Jóhannsdóttir.

Þema verkefnisins er „Vatn í tengslum við loftlagsbreytingar“, sem skiptir máli í ljósi þeirra áskorana sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér, allt frá vatnsskorti yfir í bráðnun jökla og langtíma áhrif þess. Helstu markmið verkefnisins eru að nemendur auki vitund sína á mikilvægi ábyrgðarfullri vatnsnotkun, dýpki þekkingu sína um áskoranir tengdar vatnsnotkun og loftslagsbreytingum og hvetja til skapandi sjálfbærra lausna í umgengni við náttúruna.

GESTKVÆMT Í SKÓLANUM

Dagana 22.-27. september tókum við á móti átta nemendum, fjórum frá Spáni og fjórum frá Ítalíu, ásamt sex kennurum, þremur frá hvoru landi. Dagskráin var þétt og fjölbreytt, með áherslu á að kynna nemendur fyrir náttúru, menningu og sjálfbærri orku á Íslandi, þar sem Vestmannaeyjar voru að sjálfsögðu í brennideplinum. Haldnar voru vinnustofur þar sem nemendur öfluðu sér þekkingar, deildu hugmyndum sínum

um vatnsvernd og hvernig bæta megi sjálfbærni í vatnsnotkun. Í lok hverrar vinnustofu var farið í heimsóknir til ýmissa fagaðila á eyjunni til að sjá hvernig Vestmannaeyingar haft um áraraðir nýtt náttúruauðlindir á sjálfbæran hátt.

Heimsóknir voru skipulagðar í samstarfi við ýmsa sérfræðinga Vestmannaeyja í vatnsnotkun og grænni orku. Fyrsta heimsóknin var í Varmadælustöðina, þar sem Ívar Atlason og Guðmund Gíslason hjá HS veitum tóku vel á móti hópnum. Þeir útskýrðu hvernig þessi kerfi nýta sjávarhitun til að hámarka orkunýtni við húshitun í bænum og eftir að hafa setið fyrir spurningum nemenda, fóru þeir með hópinn að skoða tækin.

Næst var farið með hópinn upp á hraun, þar sem Pál Zóphóníasson deildi með okkur sögu Vestmannaeyinga í nýtingu jarðvarma eftir gos. Hópnum þótti mjög merkilegt að heyra það að eyjamenn voru fyrstir í heiminum til að nýta hita frá hrauni til að bæta orkunýtingu eftir gos. Eftir það var skoðað Eldheima safnið og gengið uppá Eldfell í kjölfarið.

Einn af hápunktunum að mati gestakennaranna var að hafa verið boðin niður í sjálft Ráðhús Vestmannaeyjarbæjar. Þar tók Brynjar Ólafsson, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdsvið Vestmannaeyjabæjar, ásamt Bjarna Geir Péturssyni, rafmagns- og

Heimsókn í Ráðhúsið var einn af hápunktunum að mati gestanna.

tölvuverkfræðingur Geisla, á móti okkur . Brynjar greindi frá þeim áskorunum sem standa frammi fyrir Vestmannaeyingum þegar kemur að vatnsleiðslunni og mikilvægi þess tryggja jafnvægi milli vatnsnotkunar og sjálfbærrar orkunotkunar í samfélagi sem byggir að miklu leyti á orkunýtingu úr náttúrunni. Á meðan Bjarni Geir fór yfir uppsetningu og tæknina sem liggur að baki neyðartanka almannavarna, þ.e. hvernig hægt er að breyta sjó í drykkjarvatn.

Þessir tankar eru nauðsynlegir til að tryggja ferskvatnsöryggi í neyðartilvikum. Eftir það lá leiðin niður á bryggju þar sem hópurinn fékk að skoða vatnsgámana og spurja Bjarna spjörunum úr.

Seinast heimsóttum við eitt af nýrri fyrirtækjum bæjarins sem leggur mikla áherslu á umhverfisvænan rekstur og sjálfbærni, Laxey. Þar tók Óskar Jósúason vel á móti okkur og fræddi okkur m.a. hvernig fyrirtækið nýtir háþróuð vatnsnýtingarkerfi í laxeldinu, og kemur til með að búa til sitt eigið vatn úr sjó sem og að nýta sjávarhitann úti á hrauni. Eins og einn nemandanna orðaði það „gerist ekki grænna en þetta fyrirtæki“.

SAMSTAÐA

OG JÁKVÆÐNI

Það er ekki sjálfsagt að fara í heimsóknir sem þessar, en allir fagaðilarnir tóku mjög vel í hugmyndina og buðu okkur velkomin, tilbúnir með alls kyns fróðleik og svöruðu öllum þeim spurningum sem bornar voru uppá borð. Þakklæti er það sem kemur helst upp í hugann. Þessi lærdómsríka heimsókn sýndi gestunum ekki einungis hvað Vestmannaeyjar standa frammi fyrir sértækum áskorunum eða hversu mikil áhersla er lögð á sjálfbærni og nýsköpun á litlu eyjunni okkar, heldur hvað samstaða, jákvæðni og greiðvirkni er einkennandi fyrir samfélagið okkar. Nemendur lögðu mikla vinnu í verkefnið, og við getum verið stolt af fulltrúum nemenda okkar úr FÍV, en það var ekki einungis vinna heldur voru skapaðar minningar saman. Farið var með hópinn í Sea life til að skoða hvalina, sameiginleg spilakvöld, íslenskt pálínuboð með dansi, það var skellt sér í sund og svo var mætt með hópinn á handboltaleik með meistaraflokki ÍBV karla. Veðrið var með eindæmum gott en þeim fannst kuldinn ótrúlegur. Sólsetrin hvert öðru fallegra og til að toppa það þá skreyttu norðurljósin himininn á kvöldin. Það er því óhætt að segja að fyrsti hluti verkefnisins hafi lukkast einstaklega vel, og framhaldið er spennandi.

Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og frændi

ÁRSÆLL SVEINSSON

Lést á heimili sínu í Vestmannaeyjum, þriðjudaginn 22. október sl. Útför verður gerð föstudaginn 8. nóv. kl. 13.00 frá Landakirkju. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Píeta samtökin njóta þess.

Sveinn B. Sveinsson

Guðmundur Óli Sveinsson

Jóhann Sveinn Sveinsson

Júlíana Sveinsdóttir

Jenný Jóhannsdóttir Hrund Gísladóttir

Ragna Ragnarsdóttir

og systkinabörn

Innilega þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýjuhug við andlát og útför okkar frænda og góðs vinar, elskulegs

ÓSKARS STEFÁNSSONAR

Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir einstaka umönnun og hlýju.

Kærleikskveðjur Aðstandendur hins látna.

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Þjónustufulltrúi á skrifstofu fjölskylduog fræðslusviðs

Vestmannaeyjabærauglýsirlausttilumsóknarstarfþjónustufulltrúaá skrifstofufjölskyldu-ogfræðslusviðs.Umeraðræða100%starf.

Skrifstofa fjölskyldu- og fræðslusviðs sinnir þjónustu, eftirliti og umsjón með verkefnum félagsþjónustu, uppeldis- og fræðslumála og æskulýðs- og íþróttamála.

Starf þjónustufulltrúa er afar fjölþætt og felst í almennum ritara- og skrifstofustörfum s.s. símvarsla, móttaka, vinnsla og afgreiðsla erinda og umsókna, leiðsögn til íbúa og starfsmanna sem og upplýsingagjöf, ýmis sérhæfð verkefni, gagnavarsla, ljósritun, skönnun skjala, innkaup, undirbúningur funda o.fl.

Menntun og hæfniskröfur:

Leitað er að jákvæðum einstaklingi sem er reiðubúinn að takast á við krefjandi verkefni.

• Krafa um stúdentspróf eða sambærilega menntun.

• Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvæðni og þjónustulund.

• Framtaksemi, sjálfstæði og metnaður í starfi.

• Góð almenn tölvukunnátta.

• Reynsla af veitingu velferðarþjónustu er kostur.

• Íslenskukunnátta á stigi C1.

• Enskukunnátta á stigi B1, önnur tungumálakunnátta kostur.

• Hreint sakavottorð.

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn á netfangið jonp@vestmannaeyjar.is.

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá með nöfnum tveggja umsagnaraðila. Einnig skal fylgja greinargerð með rökstuðningi fyrir hæfni í starfi og ástæðu umsóknar.

UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 11. NÓVEMBER 2024.

ÆSKILEGT AÐ VIÐKOMANDI GETI HAFIÐ STÖRF SEM FYRST.

Nánari upplýsingar veitir Jón Pétursson framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs í síma 488 2000 eða jonp@vestmannaeyjar.is.

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðingu liggur fyrir. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og BSRB/Drífanda.

SUÐURKJÖRDÆMI

1. Karl Gauti Hjaltason
3. Ólafur Ísleifsson
5. G. Svana Sigurjónsdóttir
2. Heiðbrá Ólafsdóttir
4. Kristófer Máni Sigursveinsson
6. Sigurður Jónsson

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.