38. tbl. 03. árg. 24. - 30. nóvember 2021
STEFNA Á STÝRIMANNASKÓLANN EFTIR FRAMHALDSSKÓLANN
Gunnar Elvarsson 13 ára og Guðni Halldórsson 12 ára hafa mikinn áhuga á sjávarútveginum. Við tókum stutt spjall við frændurna hvernig stæði á því að þeir hefðu svona mikinn áhuga á þessu. Þeir voru fljótir að svara því, þeir hefðu bara alltaf haft mikinn áhuga á bátum, þeir eru svo stórir og þetta er svo áhugavert. Þá hvernig þeir veiða og hvaða veiðarfæri eru notuð. Gunnar og Guðni fylgjast vel með Marine Traffic en það er app sem sýnir hvar bátarnir eru á veiðum.
TÍGULL
Þeir frændur fara oft í viku niður á bryggju og taka á móti bátunum og spyrja þá sjómennina út hvernig veiðin hafi verið og hvað þeir eru með mikið. Þeir eru alveg með á hreinu hvernig vertíðarnar eru og núna er til dæmis loðnuvertíð og voru þeir alveg klárir á því hvaða bátar væru á loðnuveiðum héðan frá Vestmannaeyjum. Gunnar og Guðni hafa báðir fengið að fara í stutta túra, annar á loðnu og hinn á síld. Gunnar verður ekkert sjóveikur en Guðni verður enn pínu sjóveikur en veit að það mun sjóast af sér og eru þeir báðir staðráðnir í að verða sjómenn. Stefna þeir báðir á
Stýrimannaskólann eftir framhaldsskóla. Þeir eru báðir með á hreinu að maður byrjar ekki á stærstu og flottustu skipunum heldur á þeim minni og svo vinnur maður sig upp. Draumabáturinn til að fara á sjó í dag, hjá Gunnari er það Heimaey eða Sigurður og hjá Guðna er það Breki. Að hans sögn er það glæsilegur bátur, enda nýlegur. Að lokum segja þeir að þeim finnst áhugaverðast að skoða öll tækin í brúnni og sjá hvernig þetta virkar allt og að sjálfsögðu mjög gaman að veiða sjálfan fiskinn.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
20%
AFSLÁTTUR Sign skartgripum Allri gjafavöru Snyrtivöru Ljósum og lömpum
Fulltrúi frá Sign verður á svæðinu 20% AFSLÁTTUR inná www.poley.is með kóðanum black
BORGARALEG FERMING
Af hverju ætti ég að velja borgaralega fermingu? Fermingin er stór athöfn þar sem einstaklingur staldrar við á tímamótum og fagnar því að ganga í fullorðinna tölu. Hefð er fyrir því á Íslandi að þessi athöfn feli í sér trúarjátningu og staðfestingu á kristinni skírn, en er það þó ekki nauðsynleg forsenda fermingar. Hjá Siðmennt er hægt að sækja fermingarnámskeið og fagna fermingunni með hátíðlegri athöfn sem ekki felur í sér höfnun eða játningu á neinni lífsskoðun né trú. Borgaraleg ferming er opin öllum ungmennum – óháð uppruna, kyni, kynhneigð, trú eða lífsskoðunum. Hvorki ungmennin né foreldrar þeirra þurfa að vera skráð í Siðmennt til að fermast hjá okkur. Aldursviðmið er 13-15 ára. Hvað er borgaraleg ferming? Borgaraleg fermingarathöfn er í raun útskrift af fermingarnámskeiðinu sem unglingarnir sækja í aðdraganda athafnarinnar. Fermingarfræðsla Siðmenntar miðar að því að efla unglinga og búa þeim dýrmætt veganesti til framtíðar. Á námskeiðinu er lagt upp með því að
styrkja sjálfsmynd, hvetja til víðsýni og styðja við uppbyggilegt hugarfar. Meðal viðfangsefna er gagnrýnin hugsun, sjálfsmynd, siðfræði, mannréttindi og umhverfismál. Ný námskrá verður tekin í gagnið árið 2022, og er hægt að kynna sér hana nánar á sidmennt.is. Er mikið af vígslum ár hvert? Heldur betur! Fyrsta fermingarathöfnin fór fram árið 1989, og hefur hópur fermingarbarna sem fermast hjá Siðmennt farið sístækkandi síðan þá. Á seinasta ári var hópurinn 14% af fermingarárgangnum á Íslandi, og stefnir auðvitað í metskráningu í ár. Athafnir eru haldnar um allt land, og eru hópathafnirnar um 10 hvert ár. Sömuleiðis bjóðum við upp á heimafermingar sem er vinsæll kostur, þar sem athafnastjóri á vegum Siðmenntar mætir í fermingarveislu fermingarbarnsins og heldur persónulega athöfn í faðmi fjölskyldu og vina. Hvar í Vestmannaeyjum eru Borgaralegar fermingar? Hópathöfnin í Vestmannaeyjum verður 9. apríl kl. 13 í Kiwanissalnum.
Er dýrar að fermast borgaralega eða venjulega? Borgaraleg fermingarfræðsla kostar frá 32 þúsund krónum, og hópathöfn kostar 18 þúsund krónur. Til samanburðar kostar fermingarfræðslan rúmar 20 þúsund krónur í þjóðkirkjunni, og flestar sóknir fara í fermingarferðalag sem kosta um 10.000 krónur. Þjóðkirkjan nýtur þess auðvitað að vera á fjárlögum en til að koma til móts við kostnað í Borgaralegri fermingu býður Siðmennt foreldrum að skrá sig í félagið til að fá 12 þúsund króna afslátt per foreldri, sem jafngildir u.þ.b. sóknargjöldunum sem Siðmennt fær fyrir skráða meðlimi. Einnig er boðið upp á systkinaafslátt og vaxtalausa greiðsludreifingu. Eru vissar dagsetningar í boði eða er alltaf hægt að láta ferma sig? Hópathöfnin í Vestmannaeyjum er 9. apríl, en hægt er að senda póst á ferming@sidmennt.is til að skipuleggja heimafermingar, þar sem dagsetning er frjáls.
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM
TRYGGÐU ÞÉR RAM Í FORSÖLU TIL AFHENDINGAR EFTIR ÁRAMÓT ER ÞJÓNUSTUAÐILI RAM OG JEEP Í VESTMANNAEYJUM UMBOÐSAÐILI JEEP ® OG RAM TRUCKS Á ÍSLANDI ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM JÓLIN
ELÍAS ORRI SÆÞÓRSSON Aldur: 5 ára Fjölskylda: Ég á tvo bræður Dagur og Halldór Björn. Mamma heitir Kristín Halldórsdóttir og pabbi heitir Sæþór Vídó. Hvað er skemmtilegast við jólin? Snjórinn. Hvað langar þig í jólagjöf? Ironman. Hvað er mamma best í að gera? Setja upp jólaljós. Hvað er pabbi bestur í að gera? Vinna. Hvað ert þú bestur í að gera? Leika mér. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Sjúkramaður (læknir) Afhverju eru jólin haldin? Því þá fær maður mjög mikið af gjöfum.
EMILÍA ARNA GÍSLADÓTTIR Fjölskylda: Gísli og Hafdís systkini Ástþór, Oddný Bára og Auðunn Angantýr Finnst þér jólin skemmtileg og afhverju? Já ég eeelska að leika í snjó Hvað langar þig í jólagjöf? Uuuuuuuuu læknadót uuu og læknabíl og dótalæknir! Hvað er mamma best í að gera? Greiða. Hvað er pabbi bestur í að gera? Elda. Hvað ert þú best í að gera? Að leika í leikskólanum. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Uuuu flugkona. Afhverju eru jólin haldin? Ha, hvað sagðiru?…afhverju eru jólin haldin? Já… út af því Ásdís á afmæli! “Mamma getum við gefið Ásdísi afmælisgjöf”.
@heimadecor /heimadecor
20%
afsláttur
af öllum vörum
Opið til 22:00
föstudaginn 26.nóvember
Hilmisgata 4 // 866 6276 // heimadecor.is // heimadecor@heimadecor.is Opnunartími: Mánudaga til föstudags: 11-18 // Laugardaga: 11 - 16 // Lokað á sunnudögum
Black Friday
tilboð föstudaginn 26.nóvember
Topplyklasett 94 hluta verð: 20.943 kr. verð áður: 26.179 kr.
Verkfærasett 130 hluta verð: 32.990 kr. verð áður: 41.237 kr.
Topplyklasett 200 stk verð: 24.305 kr.
verð áður: 30.382 kr.
488 3550 // skipalyftan.is // Opið alla virka daga 07:30 - 18:00 og laugardaga 10:00 - 12:00
Fallegar jólagjafir fyrir hann!
Nú leikum við okkur!
Jólaleikur Icewear og Tíguls þú getur unnið glæsilega Funa-úlpu í lit að eigin vali Color:
White
19-4057 TPX true blue
18-1764 TPX Lollipop
PANTONE 2756 C
PANTONE 187 C
CMYK C 100 M 94 Y0 K 29
CMYK C0 M 100 Y 79 K 20
FUNI UNISEX "PUFFY" DÚNÚLPA
Mjúk dúnúlpa sem heldur á þér hita, hvort sem þú ert borgarbarn eða fjallagarpur. Funi úlpa er með unisex sniði og er kjörin úlpa fyrir alla sem lifa virkum lífsstíl. Styrking á öxlum og olnbogum er ekki einungis töff, heldur passar upp á að bakpokinn haldist á sínum stað. Úlpan er vindheld, vatnsfráhrindandi og andar vel og hentar því vel fyrir íslenskan vetur. Unisex snið, mælt er með því að konur kaupi einni stærð minni en þær eru vanar. Eiginleikar - Unisex snið - YKK® tveggja sleða rennilás - DWR – vatnsfráhrindandi húð - Fylling: 90% dúnn / 10% fjaðrir - Stillanleg hetta og faldur - Styrking á öxlum og olnbogum
Það sem þú gerir til að fara í pottinn er: Finna Icewear logo í blaði vikunnar. Líkar við instagram Tígull og Icewearmagasin Koma í verslun Icewear Vestmannaeyjum og benda starfsmanni á hvar logoið er og ef rétt er þá verður þú skráð/ur í pottinn. Þá ert þú kominn í pottinn. Við drögum út live á facebook Tígull þann 15. desember kl 15:00. Þú hefur möguleika á að vera tvisvar sinnum í pottinum. Þar sem logo Icewear verður falið í tölublaði 38 og 39. Kveðja Tígull og Icewear Vestmannaeyjum
SNYRTIHORN MAJU María Erna Jóhannesdóttir er gift Finni Frey Harðasyni og saman eiga þau tvo stráka. Þá Leó Snær Finnsson og Breka Freyr Finnsson. Maja eins og hún er kölluð er snyrti-, nagla- og förðunarfræðingur og Bowentæknir að mennt ásamt því að vera búin að fara á alls kyns námskeið tengd faginu eins og t.d. augnháralengingarnar, airbrush, tattoo og special effects makeup svo eitthvað sé nefnt. En nýjasta viðbótin hjá Maju er Bowen sem hún útskrifaðist úr núna í september. Bowen er heildræn bandvefsmeðferð og er unnið með allan líkamann. Maja er búin að vera að starfa sem snyrtifræðingur síðan 2007 en er búin að vera að farða og gera neglur síðan 1999. Það hefur alltaf verið draumur hennar að opna eigin snyrtistofu og nú hefur sá draumur ræst. Hún er að bjóða upp alla almenna snyrtingu og Bowen meðferðir. Vörurnar sem hún er með í boði eru Académie, rå oils, NN cosmetics og OPI svo eitthvað sé nefnt. Opnunartími er alla virka daga kl 1218 og á laugardögum kl 11-14. Maja segist elska vinnuna sína, finnst alltaf gaman að fara í vinnuna. Yndislegt að geta látið fólki líða vel og elskar að sjá muninn fyrir og eftir. Að lokum vill hún bjóða alla velkomna á Snyrtihorn Maju á Skólavegi 6 í sama húsi og Litla Skvísubúðin. Hægt er að hafa samband í síma: 861-0216 eða á Facebook síðunni eða instagram.
UPPSKRIFT VIKUNNAR BBQ KJÚKLINGAVÆNGIR Í BOÐI SÆÞÓRS VÍDÓ Hráefni: 1 bakki kjúklingavængir 1 tsk laukduft 1 tsk hvítlauksduft 1 msk paprika salt og pipar 1-2 msk púðursykur BBQ sósa 1 tsk olía Aðferð: Byrjið á að blanda saman laukdufti, hvítlauksdufti, papriku, salti og pipar. Kljúfið kjúklingavængina í þrennt og hendið vængendanum. Kryddið kjúklingavængina með helming kryddblöndunnar en geymið hinn helming kryddblöndunnar þar til í lokin. Forhitið air fryer í 200°c og steikið kjúklingavængina í 10 mínútur. Snúið vængjunum og steikið áfram í aðrar 10 mínútur. Setjið eina matskeið af púðursykri saman við kryddblönduna sem var afgangs.
Color:
White
19-4057 TPX true blue
18-1764 TPX Lollipop
PANTONE 2756 C
PANTONE 187 C
CMYK C 100 M 94 Y0 K 29
CMYK C0 M 100 Y 79 K 20
Setjið steikta vængina í hreina skál ásamt kryddblöndunni og hrærið vel í með sleikju. Setjið BBQ sósu út í skálina eftir smekk og hrærið í áður en borið er fram.
Þú getur fundið næstu bíómyndir og sýningartíma á
eyjabio.is
SVARTUR FÖSSARI allt að 30% afsláttur
OPIÐ FRÁ 08:00-22:00 -Í MEISTARA HÖNDUM
Strandvegi 30 S: 481-1475
SUDOKU
ORÐAÞRAUT
JÓNHELGI JÓNÖRVAR JÓNHEIDAR JÓNGÍSLI JÓNHÖRVAR JÓNÓLI JÓNGRÉTAR JÓNRÚNAR JÓNSIGURDUR JÓNPÁLL
SVÖRT VIKA
40 % AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
FATNAÐI
50 % AFSLÁTTUR
AF SKÓM
SMART Vestmannabraut 30 481 3340
www.eyjaeignir.is
Ert þú að hugsa um að selja eignina þína á næstu mánuðum?
VANTAR EIGNIR Á SKRÁ FYRIR ÁHUGASAMA KAUPENDUR
ENDILEGA HAFÐU SAMBAND OG VIÐ FÖRUM YFIR HLUTINA SAMAN. - Lág söluprósenta,
- Allar eignir sýndar af fasteignasala - Fagljósmyndun í boði
- Legg mikið upp úr persónulegri og vandaðri þjónustu,
þar sem kaupendur og
seljendur eru vel upplýstir
um stöðu mála, góð eftirfylgni, hröð en vönduð vinnubrögð
HALLDÓRA KRISTÍN ÁGÚSTSDÓTTIR - viðskiptafræðingur og löggiltur fasteigna- og skipasali
Skráning hefst 26. nóvember inn á:
thepuffinrun.com
7. maí 2022
861 1105
dora@fasteignasalan.is
Yfirfélagsráðgjafi Vestmannaeyjabær auglýsir eftir yfirfélagsráðgjafa til starfa hjá fjölskyldu- og fræðslusviði Vestmannaeyjabæjar. Um er að ræða 100% stöðuhlutfall. Starfið er á sviði félagsþjónustu- og barnaverndar. Helstu verkefni yfirfélagsráðgjafa · umsjón og ábyrgð á fagsviði málaflokks félagsþjónustu og barnaverndar í samstarfi og samráði við framkvæmdastjóra sviðs · með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf í tengslum við félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, málefni barna og ungmenna, húsnæðismál, vímuvarnir o.fl. · með barnavernd er átt við allir þeir þættir sem heyra undir barnavendarlög · vinnur með verkefnastjórnun, áætlanagerð, ársskýrslur, gæðamat og nýsköpun innan málaflokkanna og heldur utan um teymisvinnu og aðra samvinnu félagsþjónustu og barnaverndar við tengslastofnanir innan sem utan sveitarfélagsins · yfirfélagsráðgjafi situr fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs varðandi þau verkefni sem heyra undir starfssvið hans Menntun og hæfniskröfur · Starfsréttindi sem félagsráðgjafi · Reynsla og þekking á barnverndar-, framfærslumálum og félagslegri ráðgjöf · Reynsla af stjórnun · Sjálfstæði í vinnubrögðum · Færni í samskiptum · Hæfni í þverfaglegu samstarfi
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum við Samband íslenskra sveitarfélaga. Upplýsingar veitir Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar (jonp@vestmannaeyjar.is) í síma 488 2000.
Umsóknarfrestur er til og með 5. desember 2021. Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á netfangið jonp@vestmannaeyjar.is . Með umsókn þarf að fylgja ferilsskrá um fyrri störf og menntun ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020 og lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019.
Black Friday Week Gerðu frábær kaup á gluggum og hurðum Gildir aðeins 19. - 26. nóv. 2021
Engin bið eftir tilboði - þú sérð verðið strax á netinu!
Rafmagnshlaupahjól frá 59.995 kr. Garmin úr frá 39.900 kr.
Allir fá þá eitthvað fallegt...
Airfryer frá 14.995 kr.
Nuddbyssa frá 22.990 kr.
Bluetooth hátalarar frá 6.495 kr.
VIÐ HJÁLPUM MEÐ SJÓNINA
VERSLUNIN SJÓN HEFUR ÞJÓNUSTAÐ VESTMANNEYJAR Í YFIR 20 ÁR OG MUNUM VIÐ HALDA ÁFRAM AÐ HEIMSÆKJA EYJUNA FÖGRU MEÐ SJÓNMÆLINGAR OG AÐRA ÞJÓNUSTU SEM SNÝR AÐ SJÓNINNI.
VIÐ ERUM AÐ KOMA Í HEIMSÓKN!
VIÐ VERÐUM Í SMART, VESTMANNABRAUT 30 FÖSTUDAGINN 3. DES. FRÁ 11:00-18:00 OG LAUGARDAGINN 4. DES. FRÁ 11:00-15:00 HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!