Tígull 38.tbl 04. árg.

Page 1

38. tbl. 04. árg. 2. - 8. október 2022

LOKAHÓF ÍBV : HALEY OG EIÐUR ARON BEST

Lokahóf meistaraflokka félagsins í knattspyrnu var haldið sl. laugardag. Stelpurnar kláruðu sína leiki 1. október og enduðu í 6. sæti í Bestu deild kvenna. Strákarnir kláruðu sína leiki hinsvegar á laugardaginn. og enduðu þeir í 8. sæti Bestu deildar karla.

Bræðrasynirnir Jón Ingason og Sigurður Arnar Magnússon voru heiðraðir fyrir að hafa náð að spila 100. leikina sína í sumar og svo voru eftirtaldar viðurkenningar veittar til efstu flokka félagsins:

Meistaraflokkur kvenna:

Besti leikmaðurinn: Haley Marie Thomas ÍBV-ari: Guðný Geirsdóttir

Markahæsti leikmaðurinn: Olga Sevcova

Efnilegasti leikmaðurinn: Thelma Sól Óðinsdóttir

Meistaraflokkur karla:

Besti leikmaðurinn: Eiður Aron Sigurbjörnsson ÍBV-ari: Alex Freyr Hilmarsson

Markahæsti leikmaðurinn: Andri Rúnar Bjarnason Efnilegasti leikmaðurinn: Arnar Breki Gunnarsson

2. flokkur kvenna

Besti leikmaðurinn: Þóra Björg Stefánsdóttir ÍBV-ari: Selma Björt Sigursveinsdóttir

Mestu framfarir: Helena Jónsdóttir

Markahæsti leikmaðurinn: Þóra Björg Stefánsdóttir

2. flokkur karla

Besti leikmaðurinn: Ólafur Haukur Arilíusson ÍBV-ari: Dagur Einarsson

Mestu framfarir: Karl Jóhann Örlygsson

Markahæsti leikmaðurinn: Eyþór Orri Ómarsson

TÍGULL

DREIFING:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM: Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Kynntu þér Aukakrónur á landsbankinn.is/aukakronur í Vestmannaeyjum 5% afsláttur 5% afsláttur 5% afsláttur 2% afsláttur 5% afsláttur 1,5% afsláttur 5% afsláttur 7,5% afsláttur 5% afsláttur 3% afsláttur 5% afsláttur 5% afsláttur 0,5% afsláttur 2% afsláttur 7% afsláttur5% afsláttur 3% afsláttur

ÞAÐ GERÐIST EITTHVAÐ STÓRKOSTLEGT!

þ.e. góða sögu, frábæra tónlist og dásamlegan húmor sem líkt og í bestu Pixar teiknimyndum hittir jafnt í mark hjá börnum sem fullorðnum. Boðskapur verksins á líka alltaf erindi, ekki síst nú í dag. En í verkinu er tekið á mismunun, fordómum og einelti með einföldum og myndrænum hætti, skemmtilegum húmor og auðskiljanlegum texta. Við fáum að fylgjast með lífinu í ávaxtakörfunni þar sem ýmislegt gengur á milli ólíkra einstaklinga því sumir eru ber og aðrir grænmeti.

Hvert atriðið á fætur öðru þar sem áhorfendur ýmist veltust um hlæjandi

Leikstjóri: Ólafur Jens Sigurðsson

Höfundur verks: Kristlaug María Sigurðardóttir - Kikka Höfundur tónlistar: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson

Það er ekki oft sem það gerist að maður verði hreinlega klökkur af hrifningu á leiksýningu en nákvæmlega það gerðist að lokinni frumsýningu Leikfélags Vestmannaeyja á Ávaxtakörfunni föstudagskvöldið 28. október s.l.

Ávaxtakarfan er eitt vinsælasta barnaleikrit allra tíma Að horfa á þann glæsilega hóp leikara sem stigu á svið, hneigja sig ítrekað fyrir framan fullan sal af áhorfendum sem risu á fætur, klöppuðu leikurum lof í lófa og ,,bravó-uðu” yfir sig af hrifningu, var mögnuð stund. Það gerðist eitthvað stórkostlegt í leikhúsi okkar Eyjamanna þetta kvöld. Leikarar, sem sumir hverjir eru rétt á fermingaraldri og aðrir vanari, stigu á svið og yfirtóku hjörtu og huga leikhúsgesta með hreint mögnuðum leik- og söngatriðum.

Ávaxtakarfan er eitt vinsælasta barnaleikrit allra tíma hér á landi enda hefur það allt sem þarf til að slíkt verk slái í gegn

Það segir kannski sitt um sýninguna að strax í upphafslagi verksins höfðum við leikhúsfélagi minn Kolbrún Harpa Kolbeinsdóttir fengið a.m.k. þrisvar sinnum gæsahúð yfir einstaklega fallegum samsöng leikhópsins sem þarna gaf tóninn fyrir það sem koma skyldi. Og þegar við héldum að það yrði nú vart hægt að toppa svona góða byrjun þá kom hvert atriðið á fætur öðru þar sem áhorfendur ýmist veltust um hlæjandi í sætum sínum, klöppuðu af hrifningu, bravó-uðu...já eða táruðust. Það er ekki oft sem hægt er að tala um að tólf manna leikhópur standi sig það vel að ekki sé hægt að taka einhvern einn út og mæra hann sérstaklega fyrir frammistöðu sína. En sannleikurinn er sá að þarna gerðist það einmitt að enginn einn bar sérstaklega af í sínu hlutverki fremur er annar. Þau voru einfaldlega öll frábær hvert á sinn hátt! Það ber helst að þakka frábærri leikstjórn og hlutverkaskipan Ólafs Jens Sigurðssonar sem valdi hundrað prósent rétt í hvert hlutverk og leikstýrði hópnum óaðfinnanlega.

Öll frábær í sínum hlutverkum Má í því samhengi nefna að minnstu hlutverkin, í höndum þeirra Aðalbjargar Andreu Brynjarsdóttur, Söruh Elíu Tórshamar og Ástu

Maríu Helgadóttur voru ekki síst skemmtileg áhorfs heldur en þau stærri, þó engar hefðu þær línurnar að fara með utan þess að taka þátt í samsöngnum. Ekki síst vakti það hrifningu okkar hversu Litla límónan, Ásta María var dásamlega einlæg og geislandi í hlutverki sínu. Perurnar tvær, þau Palla og Poddi, í túlkun þeirra Maríu Fannar Frostadóttur og Gabríels Ara Davíðssonar, voru líka bráðskemmtileg, uppátækjasöm og fyndin. María hefur líka einstaka útgeislun á sviði og fallega söngrödd. Kæmi ekki á óvart ef við myndum sjá hana enn meira á sviði í framtíðinni, jafnvel í stærri hlutverkum. Hún virðist hafa ástríðuna og hæfileikana til þess. Alexander Páll Salberg og Elí Kristinn Símonarson túlka þá Guffa banana og Græna banana og eru alveg hreint dásamlegir í þeim hlutverkum. Elí Kristinn tekst vel til sem ögn klaufalegur lærlingur í lífvarðasveitinni á meðan meðan Alexander fer hreinlega á kostum sem Guffi yfirmaður hans. Það er einhvern veginn alltaf veisla þegar Alexander Páll tekst á við grínhlutverk enda maðurinn einstaklega fyndinn í allri túlkun sinni, svipbrigðum og fasi. Albert Snær Tórshamar fer frábærlega með hlutverk Imma ananas. Albert, líkt og meðleikarar hans, er eins og sniðinn fyrir sitt hlutverk og fer vel með að túlka hinn stjórnsama og freka ananas sem vill helst og mest af öllu verða konungur yfir öllum hinum íbúum ávaxtakörfunnar. Albert er sjálfsöruggur, með góðan ,,presence”, flotta tækni og svo býr hann yfir þessari dúndur rödd sem hann kann að beita hvort heldur hún þarf að vera dimm, kröftug eða há og mjóróma. Valgerður Elín Sigmarsdóttir fer algerlega á kostum í hlutverki sínu sem hin geðþekka Gedda gulrót. Réttsýna grænmetið sem óvart lendir í ávaxtakörfunni. Valgerður hefur sannarlega vaxið með hverju hlutverkinu sem hún hefur tekist á hendur og geislar nú af sjálfsöryggi sem skilar sér í enn betri leik

Leikfélag Vestmannaeyja sýnir Ávaxtakörfuna

og glæsilegum söng. Bertha Þorsteinsdóttir er alveg dásamleg í túlkun sinni á Rauða eplinu. Henni hefur farið ótrúlega mikið fram með hverju hlutverkinu sem hún hefur tekið að sér. Hún hefur skýra framsögn, er bráðfyndin og með frábærar tímasetningar. Bryndís Guðjónsdóttir var hreint og beint sjúklega fyndin sem Eva appelsína. Hún veldur hlutverkinu vel, svo dásamlega ánægð með sjálfa sig, geislandi falleg og innilega dramatísk. Svo kann Bryndís að syngja og gerir það svona líka fanta vel. Og það gerir Guðný Emilíana Tórshamar svo sannarlega líka í hlutverki Mæju jarðarbers. En það var einmitt

Guðný sem fékk undirritaða og sessunaut hennar til að tárast af hrifningu í túlkun hennar á laginu ,,Einmanna”. Hvílíkur flutningur… hvílík rödd í stelpunni! Svo er hún líka einstaklega skýrmælt eins og segja má um meginþorra leikenda í þessu verki. Þar kemur líka til frábær hljóðstjórn sem skilaði hinu talaða og sungna máli fullkomlega í eyru áhorfenda. Svo verður ekki hjá komist að minnast sérstaklega á Jórunni L. Jónasdóttur sem sá um alla söngþjálfun sem heldur betur skilaði sér í frábærum söngatriðum. Sumum hverjum sem myndu sóma sér á hvaða sviði sem er. Hár og förðun voru einnig til fyrirmyndar svo eftir var

tekið og búningarnir dásamlega litríkir og fallegir. Þá verð ég að nefna hversu sviðsmyndin var vel útfærð og lýsingin falleg.

Takk Leikfélag Vestmannaeyja fyrir að leggja allt í eitt besta og metnaðarfyllsta verk sem þið hafið borið á borð fyrir okkur síðastliðin ár. Vá hvað það var gaman, vá hvað þetta var mikil upplifun og vá hvað við Eyjamenn erum heppnir að eiga þetta dásamlega leikhús og fólkið sem við það starfar.

Takk fyrir mig og okkur, Helena Páls

Ávaxtakarfan 5. NÓVEMBER KL. 15:00 6. NÓVEMBER KL. 14:00 6. NÓVEMBER KL. 17:00 Miðapantanir í síma 852 1940 Næstu sýningar:

Hrekkjavaka var haldin hátíðleg víða um heim, þar á meðal hér á landi um síðustu helgi. Vinsældir þessarar hátíðar hefur verið að aukast mikið á síðustu árum. Hrekkjavaka er oftast haldin kvöldið fyrir allrahelgarmessu, þann 31. október en sumir nýttu þó alla síðustu helgi í gleðina eins og við Eyjamenn gerðum. Auglýst var að nemendur í GRV mættu mæta í búningum föstudaginn 28. október og gera sér dagamun í skólanum. Kennurum við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum fannst því gott tækifæri á að hoppa á vagninn og taka þátt í gleðinni en þó með aðeins öðruvísi sniði.

Þeir ákváðu því að koma nemendum sínum skemmtilega á óvart sl. föstudag. Þeir tóku sig til og gerðu skólann að skelfilegu draugahúsi án þess að nemendur vissu af. Mikil leynd ríkti yfir þessu óvænta ætlunarverki þeirra og mættu allir kennarar samviskusamlega, hrikalega spenntir á fimmtudeginum eftir að skóla lauk til þess að skreyta. Mikið var lagt í skreytingar um allan skóla og margar skreytingarhugmyndir komu til tals og voru sumar þeirra framkvæmdar. Fjórum tímum seinna var búið að skreyta skólann hátt og lágt og reynt að gera hann eins ,,skelfilegan“ og hægt var. Búið var að líma fyrir glugga, færa til hluti, búa til lík, slökkva ljós, setja á drungalega tónlist og margt fleira. Í sal skólans var spiluð hrollvekjumynd á skjánum sem rúllaði yfir daginn. Gamalt dót var sótt úr geymslu skólans og fengu gamlir hlutir ný hlutverk, má þar til dæmis nefna skyndihjálpardúkku skólans sem fór með leiksigur þennan dag sem lík sem hafði hrasað í tröppunum með bor í hönd og útlit hennar eftir því. Kennarar týndu líka til allt sem þeir áttu í sínum eigin geymslum til þess að nota sem leikmuni, slíkur var áhuginn og metnaðurinn. Daginn eftir mættu margir kennara klæddir í hina ýmsu búninga og tóku á móti nemendum sínum í anddyri skólans við góðar undirtektir, enda einstaklega hressir og skemmtilegir krakkar í skólanum okkar. Margir nemendur höfðu líka orð á því að næst þegar þetta yrði gert langaði þeim að vera með og mæta líka í búning og taka þetta alla leið. Þetta var virkilega vel heppnaður dagur sem gladdi nemendur og ekki síður kennara skólans. Það er jú öllum hollt að fara aðeins út fyrir rammann, hafa smá húmor fyrir sjálfum sér og hlæja saman. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá þessum frábæra degi.

ÓVÆNT HREKKJAVAKA ,,Nauðsynlegt að viðhalda barninu í sér“
FRÉTTAHORN FÍV
Þú færð Farmers market hjá okkur! www.poley.is

HREKKJAVAKAN Í EYJUM

Hrekkjavöku var fagnað síðastliðið laugardagskvöld hér í Eyjum. Fjölmörg heimili í Eyjum voru skreytt hræðilegum búningi og tóku á móti krökkum og gáfu þeim gotterí. Börnin voru klædd ýmsum skrautlegum búningum. Tígull smellti mynd af nokkrum þeirra.

mestu máli skiptir

Meiri vernd og meira

til

Fyrir það sem
svigrúm
að lifa lífinu til fulls. Kynntu þér líf- og heilsutryggingar TM á tm.is. Líf- og heilsutryggingar

Kótilettukvöldið var haldíð í áttunda sinn síðastliðið fimmtudagskvöld. „Þegar maður horfir yfir salinn og sér nánast sömu andlitin ár eftir ár þá er ekki annað en hægt að gleðjast og vera hamingjusamur með árangurinn. Upphaflega átti þetta að vera lítill karlaklúbbur hjá okkur Gunna þar sem menn kæmu saman og borðuðu kótilettur en þessi litla hugmynd okkar hefur þróast í það að hátt á þriðja hundrað manns kemur saman,“ segir Pétur Steingrímsson. Á þessum árum hafa þeir veitt styrki til hinna ýmsu félagasamtaka. Í ár rann styrkurinn til Félags ADHD sem helduru utan um alla þá sem hafa verið greindir með þennan taugaröskunarsjúkdóm, Félagsins Einhugur sem er félag einhverfra og aðstandenda þeirra. Bæði þessi félög hafa verið með fræðslu og fengið fyrirlesara tengd þessum málum. Einnig styrktu þeir Minningarsjóð Gunnar Karls Haraldssonar sem er stofnaður af foreldrum hans og systrum. Markmið sjóðsins er að styrkja einstaklinga með fötlun til náms, íþróttaiðkunnar og málefni sem styðja við þátttöku fatlaðra jafn við aðra í samfélaginu okkar.

Pétur, Hildur fyrir hönd félags Einhugar, Halli og Stína fyrir hönd minningarsjóðs Gunnars Karls, Ása fyrir hönd Adhd félagsins og Gunni. Handboltapeyjarnir Rúnar, Dagur, Dánjal, Hinrik, Róbert og Nökkvi Arnar Gísli og Andri Davíð Þór, Jósúa og Óskar Davíð og Gummi Óskar, Tói og Ásta Stína, Inga og Dúni Hátt í þrjúhundruð manns mættu á kótilettukvöldið Jón Helgi og Friðrik Ingimar, Tóti og Óli Týr
KÓTILETTUKVÖLDIÐ Í HÖLLINNI

SAFNA HELGIN

FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER

Kl. 13:30 Safnahús. Ljósmyndadagur.

- 15:30 Ljósmyndir úr safni Gísla J. Johnsen.

Kl. 17:00 Stafkirkja. Setning Safnahelgar 2022. Sr. Guðmundur Örn Jónsson og Kristín Jóhannsdóttir. Þórarinn Ólason flytur lög úr dagskránni Suður-Evrópsk sönglög við undirleik Kitty Kovács.

Kl. 18:00 Safnahús. Opnun myndlistarsýningarinnar Sögur úr Eyjum. Sýningin er styrkt af Uppbyggingarsjóði.

Kl. 20:30 Eldheimar. Sönghópurinn Blítt og létt.

FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER

Kl. 17:00 Safnahús Við Ægisdyr, Eyjasund Sigurgeir Svanbergsson, sem þreytti Eyjasund 22. júlí sl. segir frá í máli og myndum

Kl. 21:00 KK á Háaloftinu. Miðaverð kr. 4.900.- í forsölu, kr. 5.900.- við hurð. Húsið opnar kl. 20:00.

OPNUNARTÍMI SAFNA:

Eldheimar 13:30-16:30 alla daga. Solander sýningin á opnunartíma.

Sagnheimar 13-16 á laugardag. Frítt inn. Bingó fyrir börnin. Bókasafn 11-14 á laugardag.

Sjóminjasafn Þórðar Rafns 13-16 lau og sun. Frítt inn.

Gestastofa Sea Life Trust 11-15 fös, lau og sun. Heimafólk fær 15% afslátt af árskortum fyrir 2023. Á bakvið tjöldin ferðir á 50% afslætti alla helgina. Ratleikur, föndurstöð og spil, lifandi tónlist með Alberti Tórshamar, listasýning.

LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER

Kl. 12:00 Bókakynningar í Safnahúsi. Iðunn Arna Björgvinsdóttir og Yrsa Þöll Gylfadóttir lesa úr nýjum bókum sínum í seríunni Bekkurinn minn Bókabeitan kynnir ýmsar barnabækur.

Kl. 13:00 Ráðhúsið Málþing um Gísla J. Johnsen

Þátttakendur: Arnar Sigurmundsson, Helgi Bernódusson, Ívar Atlason, Kári Bjarnason, Ingi Tómas Björnsson og Pétur Ármannsson. Í lok málþingsins verður gengið að Breiðabliki þar sem Pétur og húsráðendur munu fjalla stuttlega um sögu hússins og endurbætur.

Kl. 14:00 Íþróttamiðstöðin. ÍBV - Donbas frá Úkraínu í EHF European Cup.

Kl. 15:00 Leikfélag Vestmannaeyja. Ávaxtakarfan.

Kl. 16 -18 Hvíta húsið. Opið hús.

Kl. 20:30 Bókakynningar í Eldheimum. Einar Kárason Opið haf og Yrsa Sigurðardóttir Gættu þinna handa. Óvænt tónlistaratriði.

SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER

Kl. 12:00 Safnahús. Saga og súpa: Gunnar Ólafsson á Tanganum og atvinnusaga Vestmannaeyja. Þátttakendur: Andrea Þormar, Helgi Bernódusson og Guðjón Friðriksson. Dagskráin er styrkt af Uppbyggingarsjóði.

Kl. 14:00 Íþróttamiðstöðin. ÍBV- Donbas frá Úkraínu í EHF European Cup.

Kl. 15:00 Leikfélag Vestmannaeyja Ávaxtakarfan.

Kl. 16 -18 Hvíta húsið. Opið hús.

3.-6. NÓV. 2022

LITLA SÍTRÓNA

Hvað ertu búin að vera lengi í LV? Ég byrjaði í leikfélaginu þegar ég var 11 ára og ég er 15 ára núna svo voru ekki sýningar útaf covid svo að í raunin er þetta þriðji árið mitt.

Hvað hefurðu tekið þátt í mörgum verkum? Ávaxtakarfan er þriðja verkið mitt. Ég var líka í Latabæ árið 2018 og Línu Langsokk 2019.

Hvað einkennir karakterinn sem að þú leikur?

Ég leik sítrónuna. Við erum þrjár sem eru nýir ávextir og við fengum svolítið að velja okkur ávexti sjálf. Ég myndi segja að það sem einkennir litlu sítrónununa er að hún er stundum svolítið fúl en þegar hún er í góðu skapi er hún mjög skemmtileg.

Er eitthvað sem þú tengir þig við karakterinn og hvað þá?

Ég tengi alveg smá við hana því að ég get stundum litið út fyrir að vera svoldið fúl og leiðinleg en svo er ég bara mjög fín þegar fólk kynnist mér. Það er allavega eitthvað að sem mér hefur verið sagt.

Hvað ertu annars að brasa fyrir utan að vera í Leikfélaginu? Ekki mikið, ég er reyndar í klúbb sem er að byrja núna aftur eftir sumarfrí sem ég er búin að vera í síðan ég var í 7. bekk, ég er í 10. bekk núna, svo þetta er fjórða árið mitt í honum.

Hvaða app notaru mest í símanum? Ég held að það sé Snapchat og youtube.

Hver er fyrirmyndin?

Það eru alveg nokkrir sem eru svona það sem má kalla fyrirmynd. Ef eg ætti að nefna einn þá held ég að það sé Björgvin Franz því að hann er oft að leika í Borgarleikhúsinu og mér langar virkilega mikið að komast þangað og leika einhvern tímann.

Hvaða tónlist hlustaru mest á þessa dagana? Ég hlusta svolítið á svona vinsæl lög mér dettur ekkert ákveðið í hug þar en svo hlusta ég líka svoldið á Bubba Morthens og Villa Vill líka því að pabbi hlustar alltaf mikið á þá tónlist, svoldið gamaldags en ég hef bara alist upp við það.

Er kominn tími á að skipta um tímareim? Eða að smyrja bílinn? Bókaðu tíma fyrir bílinn þinn í síma 481 1216 Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com Fjölskyldumyndir fyrir jólin Bumbumyndir Fundir eru sem hér segir: Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30 AL-ANON Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI /skvisubudin Litla Skvísubúðin Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega. www.skvisubudin.is /skvisubudin

ÞRAUTIR

EPLI PERA ANANAS GULRÓT APPELSÍNA JARÐARBER LÍMÓNA SÍTRÓNA BANANI PLÓMA

Þjónustuíbúð við Eyjahraun

Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknir þjónustuíbúð eldri borgara við Eyjahraun 1. Íbúðin er ætluð þeim einstaklingum sem þurfa meiri stuðning og aðstoð en hægt er að veita í heimahúsi en heilsufar ekki orðið það slæmt að þörf er fyrir rými á stofnun.

Grundvallarþættir mats fyrir þörf á þjónustuíbúð er líkamlegt og andlegt heilsufar umsækjanda. Íbúðin er 43,6 fermetri. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ. Að auki greiða leigjendur fyrir þjónustupakka, sem m.a. innifelur í sér: öryggiskerfi og dagþjónustu á Hraunbúðum.

Umsóknarfrestur er til 18.nóvember nk. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á skrifstofu Fjölskyldu- og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23, en einnig er hægt að sækja um í gegnum íbúagáttina á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Nánari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir, í síma 488-2000 eða á netfanginu margret@vestmannaeyjar.is.

Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,

SNORRI S. ÓLAFSSON VESTMANN frá Vestmannaeyjum, til heimilis að Ási, Hveragerði lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi miðvikudaginn 19. október. Útförin fór fram í Akraneskirkju þriðjudaginn 1. nóvember.

Miðvikudagur kl. 17:00 Kalli káti krókudíll Sunnudagur kl. 20:00 Black Adam Þú getur fundið næstu bíómyndir og sýningartíma á www.eyjabio.is

Auðlindin okkar

Taktu þátt í umræðunni

Samræðufundir á landsbyggðinni verða haldnir sem hluti af verkefninu Auðlindin okkar. Fundirnir eru opnir, öll þau sem hafa áhuga og láta sig málefni auðlindarinnar og sjávarútvegsins varða eru hvött til að mæta.

Fundunum er ætlað að vera vettvangur umræðu og skoðanaskipta. Leitað er eftir að kynnast viðhorfum, skoðunum og þekkingu fundargesta fremur en að setið sé fyrir svörum. Meginmarkmið verkefnisins Auðlindin okkar er að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum ásamt því að meta þjóðhagslegan ávinning af fiskveiðistjórnunarkerfinu. Áhersla er lögð á að verkefnið sé opið, þverfaglegt og gagnsætt. Fundunum verður streymt á audlindinokkar.is og helstu fréttamiðlum.

Vestmannaeyjum, Akóges-salnum 8. nóvember | 17:00–19:00 fundarstjóri: Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum audlindinokkar.is

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Tígull 38.tbl 04. árg. by Leturstofan - Issuu