38. tbl. 02. árg. 11. - 18. nóvember 2020
Athyglisverðar sýningar í verslunargluggum um helgina Fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 18:00 hefjast sýningar í sjónvarpstækjum í gluggum verslana í miðbænum og munu sýningarnar rúlla áfram alla helgina - föstudags til sunnudags. Kjörið tækifæri fyrir fólk að mæta á sýningu án þess að brjóta samskiptareglur.
JÓI MYNDÓ MEÐ SÝNINGU 11.11 Jóhannes Helgi Jensson eða Jói Myndó eins og flestir þekkja hann er að halda sína aðra ljósmyndasýningu þann 11. nóvember. Sýningin verður á flugvellinum og opnar hún kl. 14.00 Sýningin mun standa yfir Fram á sunnudaginn. Tígull heyrði í kappanum og fékk að vita aðeins meira. Hvað ertu búin að vera að mynda lengi? Já það er góð spurning ég hef alltaf verið að fikta við að mynda á símanum en keypti mína fyrstu myndavél árið 2017 og féll ég algjörlega fyrir þessu sporti. Hvernig gékk að undirbúa sýninguna? Segðu okkur aðeins frá undirbúningi sýningarinnar. Það er búið að ganga mjög vel ég og Maggi Steindórs vinur minn byjuðum að prenta myndinar og græja og gera í byrjun október. Nú hefur þú verið að mynda í nokkur ár, eru þetta nýlegar myndir eða bland af gömlum og nýjum? Flest allt nýlegt en einhverjar eldri. Hvernig gekk að velja þær myndir sem þú vildir hafa á sýningunni? úff maður fékk valkvíða nokkrum sinnum þegar maður var að fara yfir myndir og velja en vonandi að fólk fílar þær sem ég valdi. Hvað ertu með margar myndir á sýningunni? Ég valdi 31 myndir í þetta sinn.
TÍGULL
Nú þegar að það eru samkomutakmarkanir og miðast við 10 manns í einu rými, ertu með einhverjar ráðstafanir í sambandi við þær?
Já það er bara 10 manns inni í einu og ég stefni á að vera í beinni á facbook fyrir fólkið sem treystir sér ekki að koma eða komast ekki og líka fyrir fólk sem býr í bænum. Minni á að það er grímuskylda.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðan er hluti af ljósmyndasýningu Safnahelgarinnar.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Sushi FÖSTUDAG OG LAUGARDAG
Borðapantanir og take away 481 3060 #gottveitingastadur Bárustíg 11 900 Vestmannaeyjar
/gottrestautant 481-3060
www.gott.is
gott@gott.is
HJÁLPAR ÍSLENSKUM FYRIRTÆKJUM AÐ NOTA AÐFERÐIR LEAN TIL AÐ BÆTA REKSTURINN Við á Leturstofunni ákváðum að taka námskeið hjá honum Guðmundi, sem er eigandi LEAN ráðgjafar, varðandi skipulagningu á vinnudeginum og erum við mjög sáttar með námskeiðið og ráðgjöfina í framhaldinu. Hann er með mjög hvetjandi aðferðir og hefur skipulag okkar bantað svo um munar og yfirsýnin yfir öll þau verkefni sem við höfum yfir vikuna. Við ákváðum því að fá hann til að kynna sig fyrir Vestmannaeyingum því þetta ættu fleiri fyrirtæki klárlega að nýta sér.
Hvaða hag hafa fyrirtækin á því að tileinka sér Lean aðferðafræðina? Við byrjum alltaf að vinna með betra skipulag, bæta yfirsýn og stuðla að markvissari samskiptum á vinnustaðnum. Oft eru lítil atriði í samskiptum að valda misskilningi, töfum og pirringi sem er auðvelt að laga. Öllum líður líka betur í góðu
Er Lean ráðgjöf að bjóða upp á fjarnámskeið? Ein af jákvæðu breytingunum í kjölfarið af Covid faraldrinum er að með notkun fjarfundabúnaðar er fjarlægð ekki lengur hindrun fyrir að vinna með fólki um land allt. Aukin tækifæri hafa skapast til að vinna við ráðgjöf, þjónustu og námskeið þótt fólk sé staðsett á ólíkum stöðum. Frá því í mars hefur verið mikil eftirspurn eftir fjarnámskeiðum og sérstaklega gaman að fá fólk um allt land á námskeiðin. Undanfarið hefur verið saman komin skemmtileg blanda héðan og þaðan af landinu og má þá nefna fólk frá heimaslóðum mínum að austan, Egilsstöðum, Ísafirði, Höfn, Kirkjubæjarklaustri, Reykjavík og Vestmannaeyjum. Það má segja að aðstæður hafi aukið möguleika landsbyggðarinnar og aðgengi fleiri starfsmanna að námskeiðum og ráðgjöf til fyrirtækja, því nú þarf ekki að setja tíma eða peninga í ferðalög. Er hægt að nýta sér aðferðir Lean inn á heimilinu?
Við höfum séð að nákvæmlega sömu aðferðir og við notum til að hjálpa fyrirtækjum virka eins á heimilinu. Í tenglsum við það höfum við verið með námskeiðið „Lean heimili“ sem snýst um að breyta verklagi og skipulagi á heimilinu svo heimilisstörfin taki minni tíma og virkja alla á heimilinu. Það skapar meiri frítíma og bætir vonandi andlega heilsu í leiðinni. Hvernig kynntist þú sjálfur Lean? Ég er lærður iðnaðar- og framleiðsluverkfræðingur og kynntist Lean í meistaranámi mínu í verkfræði við KTC í Stokkhólmi árið 2005. Um langt skeið hefur verið lögð mikil áhersla á Lean í sænsku atvinnu- og háskólalífi. Þekkt Sænsk vörumerki eins og Scania, Volvo, Sandvik, Alfa-Laval og fleiri fyrirtæki hafa lagt á sig umtalsverða vinnu við að innleiða Lean til að geta mætt harðri samkeppni. Þrátt fyrir að mörg fyrirtæki á Íslandi hafi notað aðferðir úr verkfærakistu Lean eru íslensk fyrirtæki almennt komin styttra á leið í þessari vegferð heldur en sambærileg fyrirtæki í Evrópu og Bandaríkjunum. “Það er trú mín að Lean geti skipt sköpum fyrir fyrirtæki til að skara fram úr og auka hagræði.”
10/20
Fyrir hverja er Lean? Ég hef aðstoðað um 50 íslensk fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Allt frá litlu 5 manna pústverkstæði upp í Krónuna sem er með 1000 starfsmenn í vinnu. Þannig að þjónustan hentar öllum fyrirtækjum sem vilja bæta skipulag og þar með láta reksturinn ganga betur. Við aðlögum okkur síðan að aðstæðum hjá hverjum og einum. Það eina sem þarf til er að eigendur eða stjórndur þurfa að vera tilbúnir að ráðast í breytingar.
skipulagi þar sem það er skýrt til hvers er ætlast af hverjum og einum starfsmanni. Með því að laga þessi grunn atriði hefur það áhrif á flesta þætti rekstursins.
117318
Hver er maðurinn á bakvið Lean ráðgjöf? Guðmundur Ingi Þorsteinsson hefur lært, kennt og unnið með Lean aðferðafræðina í yfir 15 ár bæði sem stjórnandi, ráðgjafi og stýrt innleiðingum hjá mörgum af stærri fyrirtækjum landsins. Hugmyndin á bak við Lean ráðgjöf er að hjálpa íslenskum fyrirtækjum að nota Lean aðferðir til að bæta reksturinn og samkeppnishæfni, oft við erlend fyrirtæki eða framleiðslu í löndum með lægri launakostnað.
N Y F
Flu vö af Flu
Nýstárleg vöruþróun. Nýstárleg vöruþróun. Nýstárleg vöruþróun. Yfirburða útkoma. Yfirburða útkoma. Yfirburða útkoma. Flutex Pro innimálning. Flutex Pro innimálning. Flutex Pro innimálning.
117318
10/20
Flutex Pro er nýervörulína sem er niðurstaða nýstárlegrar vöruþróunar á vinsælu Flutex Flutex Pro ný vörulína er niðurstaða nýstárlegrar vöruþróunar á vinsælu Flutex Pro er ný vörulína sem er sem niðurstaða nýstárlegrar vöruþróunar á vinsælu Flutex Flutex vörulínunni – hönnuð sérstaklega til að mæta kröfum þeirra sem neita að gefa afslátt vörulínunni – hönnuð sérstaklega til aðkröfum mæta kröfum þeirra semaðneita gefa afslátt vörulínunni – hönnuð sérstaklega til að mæta þeirra sem neita gefaað afslátt af lokaútkomu málningarverksins. af lokaútkomu málningarverksins. af lokaútkomu málningarverksins. Flutex Pro línan þekurþekur afbragðsvel, er auðveld í vinnslu og gefur fallega lokaútkomu. Flutex Pro línan afbragðsvel, er auðveld ogfallega gefur fallega lokaútkomu. Flutex Pro línan þekur afbragðsvel, er auðveld í vinnsluí vinnslu og gefur lokaútkomu.
OPIÐ 07:30 - 18:00 ALLA VIRKA DAGA 10:00 - 14:00 Á LAUGARDÖGUM
KAUPMENN Í VESTMANNAEYJUM BJARGA SAFNANÓTT
Athyglisverðar sýningar í verslunargluggum um helgina
42
Frá vinstri: Gylfi Garðarsson, Jóhann Pétur Sturluson, Þorvaldur Heiðarsson, Þórarinn Ingólfsson, Gústaf Baldvinsson, Sigurlás Þorleifsson, Svavar Guðnason, Sigurður Karl Sveinsson, Björn Svavarsson, Pétur Steingrímsson og Guðmundur Gunnar Erlingsson. Myndin er tekin á gamla Framvellinninum fyrir framan Tónabíó. 4. flokkur karla ÍBV 1971.
Þetta ár hefur verið skrítið svo vægt sé til orða tekið og horfum við inn í annan veruleika með ströngum samskiptareglum og samkomubanni. Það þarf ekki að rekja þær raunir nánar en ákveðið er að vera með sýningar sem falla að breyttum forsendum í nafni Safnahelgar. Verður sýnt í sjónvarpstækjum í gluggum verslana í miðbænum sem hefst klukkan 18.00 á fimmtudaginn 12. nóvember og rúlla sýningarnar áfram allan föstudaginn, laugardaginn og sunnudaginn. Kjörið tækifæri fyrir fólk að mæta á sýningu án þess að brjóta samskiptareglur. Safnahelgin og síðar Safnavikan hafa verið ljósið okkar í upphafi skammdegisins sem hellist yfir okkur á þessum árstíma. Verið ein allsherjar menningarveisla í tónum og litum þar sem ótrúlegur fjöldi listamanna hefur komið við sögu þessi 16 ár. Ekki má gleyma bókakynningum sem margar hafa verið eftirminnilegar og hlut fræðimanna sem hafa flutt okkur fróðleik um hin ólíkustu mál.
Þegar öll sund virtust lokuð kom upp hugmynd í Sagnheimum að söfnin í Safnahúsi myndu fá verslunareigendur í miðbænum í lið með sér til að sýna í gluggum í sjónvarpi valið efni í eigu Ljósmynda- og Kvikmyndasafns Vestmannaeyjabæjar. Það var vel tekið í þetta og verður sýnt á eftirfarandi stöðum: Litlu Skvísubúðinni, Geisla, Smart, Baldurshaga við Bárustíg, Flamingó, Póley, Brothers Brewery, Pennanum,
Miðstöðinni, Leturstofunni og Tölvun. Þeim eru þökkuð snögg og góð viðbrögð. Vissulega hefði verið gaman að fá fleiri í lið með okkur en mikinn tíma tekur að klippa saman efnið, ekki síst kvikmyndirnar sem eiga eftir að vekja mikla athygli. Líka kjörið tækifæri fyrir fólk að skreppa í miðbæinn, fara rúntinn gangandi eða akandi og rifja upp gamla tíma og sjá framtíðina sem við eigum í leikskólakrökkum dagsins í dag en þær myndir er frá leikskólunum og Víkinni.
Wood burning oven &
T
SEN
T
SEN
TILBOÐ 1 G - special, pepperoní pítsa & hvítlauksbrauð
beer from local brewery
TILBOÐ 2
pítsa með 3 áleggstegundum nutella gott & 2 L gos
4.990 kr.
TT
SÓ
TT
pítsa með 3 áleggstegundum val um hvítlauksbrauð, margaritu eða brauðstangir & 0.5 L gos
3.790 kr.
5.190 kr.
TT
SÓ
TILBOÐ 2
tværi pítsur með 2 áleggstegundum, val um margaritu, hvítlauksbrauð eða brauðstangir & 2 L Gos
5.190 kr.
TILBOÐ 3 tvær pítsur með 3 áleggstegundum val um hvítlauks eða brauðstangir
3.790 kr.
SÓ
TILBOÐ 1
T
SEN
TILBOÐ 3 G - special, sparibrauðstangir & 2 L gos
4.290 kr.
pantanir í síma: 551 0055 #PITSUGERDIN /PÍTSUGERÐIN PÍTSUGERÐIN / BÁRUSTÍG 1 PITSUGERDIN@GMAIL.COM
KJÚKLINGABOLLUR MEÐ HRÍSGRJÓNUM OG KÓKOSBOLLUDRAUMUR Í EFTIRRÉT T - Uppskrift vikunnar -
e
S
e
Kjúklingabollur uppskrift fyrir 3 - 4 Hráefni: 500 gröm kjúklingahakk 1 bolli haframjöl 2 egg ½-1 desilíter mjólk 1 kúrbítur 2 hvítlauksgeirar 1 stór eða 2 litlar gulrætur 1 laukur 1 púrrlaukur 3 tómatar 1 gul paprikka (eða í örðum lit) Salt og pipar Krydd, bara eftir smekk ½ glas fetaostur Aðferð: Hitið ofninn að 175 gráðum. Setjið bökunarpappír á ofnplötuna. Blandið kjúklingahakki, haframjöli, mjólk og eggjum í skál og hrærið vel saman.
Skolið grænmetið. Rífið kúrbítinn, gulræturnar og laukinn með rifjárni og skerið tómatana og hvítlaukinn í litla bita. Bætið grænmetinu í skálina og hrærið vel. Kryddið með salti, pipar og kryddi eftir eigin vali. Rúllið kúlur og kjúklingafarsinu og leggið á bökunarplötuna, bakið í ofninum í cirka 30-45 mínútur þar til bollurnar eru gullinbrúnar. Gott að bera fram með hrísgrjónum, hvítlauksbrauði og salati. Kókosbollurdraumur uppskrift fyrir 6 Hráefni: 1 box kókosbollur (4 kókosbollur) 1 poki lakkrískurl hjúpað súkkulaði (150 g) 1 marengsbotn ½ lítri rjómi
1 box jarðarber 1 box bláber eða önnur ber eftir smekk. 100 g suðusúkkulaði Aðferð: Kókosbollurnar eru skornar í þrennt og raðað í botninn á eldföstu móti. Því næst er rjóminn þeyttur. Marengsbotninn er mulinn og blandað út í rjómann auk lakkrískurlsins. Þá er rjómanum dreift yfir kókosbollurnar. Að lokum eru berin sett yfir rjómann. Gott er að bræða suðusúkkulaði og dreifa yfir berin skömmu áður en rétturinn er borinn fram.
Ungverjaland - Ísland 12. nóvember verða allar pizzur á matseðli á 1.900 kr. og eða m/3 áleggstegundum í tilefni landsleiksins (gildir bæði sem sótt og sent)
Opið sun-fim frá 17:30-21 Fös og lau frá 11:30-21.
sími: 482 1000
netfang 900grillhus@gmail.com Vestmannabraut 23 Allar 12” pizzur af matseðli eða m/3 áleggsteg. á aðeins 1.900 kr. heimsent 11:30 - 13:30 alla föstudaga, sérstaklega hugsað fyrir fyrirtæki. (Panta þarf fyrir kl. 10:30) Súpertilboð sent: 2x 16” pizzur m/3 áleggstegundum, brauðstangir að eigin vali sömu stærðar og 2l gosi á 5.900 kr.
Sótt tilboð 12” pizza m/3 álegg og val um 12” hvítlauksbrauð eða brauðstangir á 2.900 kr.
Sótt tilboð 16” pizza m/3 álegg val um 16” hvítlauksbrauð og brauðstangir 2l Gos á 3.900kr
Sent tilboð: 16” pizza m/ 3 áleggstegundum val um 16” hvítlauksbrauð eða brauðstangir og 2l gos á 4.500 kr.
Sent tilboð: 12” Pizza m/3 álegg val um 12” hvítlauksbrauð eða brauðstangir á 3.500 kr.
Taktu frá tíma til að hugsa um heilsu okkar hinna Starf í Apótekaranum Vestmannaeyjum Starfssvið • Ráðgjöf til viðskiptavina • Almenn þjónusta og sala Hæfniskröfur • Reynsla af starfi í apóteki er kostur • Söluhæfileikar • Mikil þjónustulund og jákvæðni • Lágmarksaldur er 20 ára
Um er að ræða hlutastarf með vinnutíma frá kl.13–18 ásamt vöktum um helgar. Viðkomandi þarf að geta unnið af og til frá kl. 9–18.
Upplýsingar veitir Sigurbjörg Sæunn lyfsöluleyfishafi, sigurbjorgs@apotekarinn.is. Umsóknir sendist á sama netfang.
- lægra verð
apotekarinn.is
Apótekarinn er framsækið þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Fyrirtækið leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu á sviði heilsu, heilbrigðis og lífsgæða.
SUDOKU
ORÐAÞRAUT
KERTI STÍLABÓK
BOLLI SÍMI DAGATAL FLAKKARI PAPPÍR MAPPA SEGULL MÁLVERK
a!
ns
i Aðe
ag í5d
SINGLES DAY
Sparaðu 40% með kóðanum SD40
Tannlæknar 1. - 4. des Hjalti Þórðarsson
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40
agana ðeins d Gildir av til 15. nóv. 11. nó
ðeins Gildir ail 5. nóv. .t 30. okt
Tímapantanir í síma 481-2772
HEFUR ÞÚ FUNDIÐ TÖLUNA
42
Í BLAÐINU? Talan er falin hvar sem er í blaðinu og sést vel. Þú mátt senda okkur skjáskot ef þú finnur hana og senda okkur á skilaboðum inná facebooksíðu Tíguls. Engin bið eftir tilboði - þú sérð verðið strax á netinu!
Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma,
VIKTORÍA KARLSDÓTTIR Áshamar 3F Vestmannaeyjum
Lést á Landspítalanum 31. október 2020. Jónas Ragnar Gíslason Erika Ruiz Stella Gísladóttir Guðmundur Gíslason Guðný Jensdóttir Viktoría Gísladóttir Fanney Gísladóttir Oddur Magnús Oddsson Bryndís Gísladóttir barnabörn og barnabarnabörn
Þú ferð í pott sem við drögum út fyrir jól skemmtilegan jólaglaðning.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTÍN SIGURLÁSDÓTTIR ( Kiddý á Reynistað) kleifahrauni 1b Vestmannaeyjum,
lést aðfaranótt þriðjudagsins 27.október á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu Þórhallur Þórarinsson
Fanney Þórhallsdóttir Axel Jónsson Þórarinn Þórhallsson Hafdís Sigurðardóttir
barnabörn og langömmubörn