38. tbl. 01. รกrg. 20. - 26. nรณvember 2019 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is
Mikilvægi bólusetninga gegn kíghósta fyrir barnshafandi konur - Aðsend grein frá HSU -
Undanfarin ár hefur kíghósti verið að stinga sér niður með reglulegu millibili þrátt fyrir að flestir fái bólusetningu gegn honum sem börn og unglingar. Flestir sem greinast með kíghósta eru börn undir 6 mánaða aldri og rúmlega helmingur þeirra undir 3 mánaða aldri. Svona ung börn ráða mjög illa við svo illvígan hósta sem kíghóstinn er og hafa nokkur þeirra orðið mjög alvarlega veik og þurft á gjörgæslu og öndunaraðstoð að halda. Síðasta almenna bólusetningin sem gefin er við kíghósta er við 14 ára aldur – þ.e. í 9. Bekk. Bóluefnið veitir að jafnaði 5 til 10 ára vörn og því geta flestir fullorðnir smitast af kíghósta og borið sýkinguna til ungbarna sem ekki hafa verið bólusett. Sé verðandi móðir bólusett á síðari
TÍGULL
hluta meðgöngu myndar hún verndandi mótefni sem fylgjan flytur til barnins. Barnið er þannig varið frá fæðingu og fram til u.þ.b. 6 mánaða aldurs þegar það hefur myndað sín eigin mótefni – að því tilskyldu að það fái hefðbundnar ungbarnabólusetningar. Sóttvarnalæknir hefur gefið út tilmæli um að öllum barnshafandi konum sé boðin bólusetning gegn kíghósta við 28 vikna meðgöngu. Þar sem mótefnasvarið er mjög skammlíft þá er mælt með að bólusetja konur á hverri meðgöngu, jafnvel þó skammt sé á milli meðgangna. Gefið er bóluefnið Boostrix sem ver gegn kíghósta, barnaveiki og stífkrampa. Góð reynsla er komin á þetta fyrirkomulag í Bretlandi og
ekki verið sýnt fram á skaðsemi af slíkri bólusetningu. Ljósmæður í meðgönguvernd sjá um þessar bólusetningar. f.h Heilbrigðisstofnun Suðurlands Dagný Zoega, ljósmóðir á HSU
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
ENNEMM / SÍA /
N M 9 6 247 D a c i a D u s te r 1 70x 24 0 Ti ́ u u u
estt eeyar
ot
Bíll á mynd: Duster Prestige útgáfa kr. 3.890.000
Dacia Duster 4x4
Vetrardekk fylgja öllum Dacia Duster Dacia Duster II Comfort, beinskiptur, 1,5 L dísil, 4WD: Media NAV leiðsögukerfi með Íslandskorti, 7”snertiskjár, 16” álfelgur, 21 cm veghæð, sex gírar, stillanlegt fjórhjóladrif, þokuljós, fjarlægðarskynjarar að aftan, hraðastillir (Cruise Control). Sportjeppi sem er rómaður fyrir áreiðanleika, sparneytni og ríkulegan staðalbúnað.
Duster á sérverði 3.740.000 kr.
www.dacia.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622
Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533
Bílaverkstæði Austurl. Egilsstöðum www.bva.is 470 5070
IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080
Verðlistaverð: 3.990.000 kr.
BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is
Jólakvöld
HALLARINNAR OG EINSA KALDA
Laugardaginn 14.desember
>> >> >> >> >> >> >>
>> >> >> >>
>> >>
>> >>
>> >> >> >>
FORRÉTTAPLATTI
Sinnepssíld – Rauðrófusíld – Appelsínusíld Hreindýra-bollur, kapers, rauðrófur, feta-ostur og graslaukur Graflaxinn okkar með kóríander- og fennelhjúp ásamt graflaxdressingu Reyktur lax með piparrótarsósu Hreindýrapaté – gæsalifrarpaté – sjávarréttapaté
Hindberjadressing – Cumberland - Chantilly Grafin gæsabringa með bláberja-vinagrettu KALDUR AÐALRÉTTARPLATTI Einiberja-, garðablóðberg- og rósapipar grafið naut ásamt pekanhnetu-vinagrette Drottningaskinka, karamellaður ananas, græneplasalat, rauðvínssósa Roastbeef, steiktur laukur, remúlaði, bernaisesósa Birkireykt hangikjöt, sykurbrúnaðar kartöflur, jafningur, laufabrauð HEITUR AÐALRÉTTARPLATTI Smjörsteiktar kalkúnabringur, kalkúnafylling, ljós villibráðarsósa Hunangsgljáður hamborgarhryggur, heimalagað rauðkál, Waldorfsalat, karamellaðar kartöflur, rauðvínssósa Dádýra-medalía, rauðlaukssulta, sykruð epli, balsamik-soðgljái Brakandi svínapurusteik, hvítkál, fennel og rósakál, sykurbrúnaðar kartöflur og hvítvínssósa EFTIRRÉTTAPLATTI Jóla-tiramisú Frönsk súkkulaðikaka og ítalskur gelato vanilluís með birkisýrópi Dönsk eplakaka með kanil-karamellu Bláberja skyrkaka, hafrabotn með súkkulaðifyllingu og bláberjageli
Tónleikar með frábæra tónlistarfólkinu okkar í Eyjum ásamt glæsilegu jólahlaðborði að hætti Einsa Kalda. - Ekki láta þetta fram hjá þér fara ! Borðapantanir í síma 481-1415 eða á netfangið hoddi@allevents.is >> >> >> >> >> >> >> >>
Sara Renee Sæþór Vidó Una Þorvaldsdóttir Þórarinn Ólason Silja Elsabet Þórhallur Bárðarson Júníus Meyvant Karlakór Vestmannaeyja ásamt Hljómsveit Bigga Nielsen
Verð í mat og skemmtun 11.900 kr. Húsið opnar 19:30.
Starfsfólk Miðstöðvarinnar þakkar þeim sem mættu á kynninguna föstudaginn síðastliðinn kærlega fyrir komuna. Hlökkum til áframhaldandi samstarfs.
ÞÚ FÆRÐ VERKFÆRIN HJÁ OKKUR! Til að gera vinnuna við bygginguna auðveldari er nauðsynlegt að eiga góð verkfæri. Þar komum við sterkir inn með rafmagns- og batterýsverkfæri frá
/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
Jón Ingason spilar knattspyrnu með Virginia Tech Hokies í Bandaríkjunum
Jón Ingason stundar nám við Virginia Tech háskólann í Blacksburg, Virginia í Bandaríkjunum. Hann spilar knattspyrnu þar með háskólaliðinu Virginia Tech Hokies. Hann hefur skorað 6 mörk á tímabilinu og nú síðast stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu en Jonni ber fyrirliðabandið fyrir liðið. Tígull kastaði nokkrum spurningum á hann Jonna og fékk að fræðast aðeins um það sem hann er að bralla þessa dagana. Fullt nafn: Jón Ingason Fjölskylda: Foreldrar eru Ingi Sigurðsson og Fjóla Björk Jónsdóttir. Tvær systur, Eva Lind og Inga Dan. Svo er víst hundur búinn að bætast við í fjölskylduna, Chloe. Aldur: 24 ára Áhugamál: Aðallega íþróttir, þá helst fótbolti og golf. Hef líka gaman af fjallgöngum og þá sérstaklega heima á Eyjunni fögru. Í hvaða námi ertu? Ég er í BS námi í sálfræði. Hvað er námið langt? Námið er fjögur ár í heildina en ég klára gráðuna á 3 árum. Típískur dagur: Dagarnir eru margbreytilegir þar sem við ferðumst mikið yfir tímabilið. En týpískur dagur byrjar á góðum morgunmat, skelli mér í tíma, fer á æfingu eftir skóla og eyði megninu af deginum á íþróttasvæðinu, svo kem ég heim og fæ mér eitthvað gott að borða í kvöldmat, svo annað hvort læri
ég á kvöldin eða tek því rólega yfir sjónvarpinu. Kemur þú heim á milli anna/ um jólin? Já ég fæ mánaðarlangt jólafrí og svo tæplega 3ja mánaða sumarfrí. Hvernig finnst þér að búa í USA? Ég kann mjög vel við mig hérna. Ég bý í frekar litlum bæ á amerískan mælikvarða og hér búa í kringum 50 þúsund manns. Lífið hér er mjög fínt og ekkert ósvipað lífinu heima á Eyjunni þar sem allt snýst í kringum íþróttir og nám. Hvað æfir þú oft á dag? Vanalega æfi ég tvisvar á dag en svo er það líka breytilegt eftir leikjaplani og ferðalögum. Besta stundin í USA síðan þú fluttir út? Það var núna um daginn þegar við spiluðum nágrannaslag við University of Virginia á Senior Night sem er tileinkað þeim leikmönnum sem eru að útskrifast. Það voru í kringum 3 þúsund manns á leiknum og ekki skemmdi fyrir að hafa pabba gamla að horfa. Hann fylgdi mér út á völlinn fyrir leik og það stendur upp úr. Hvernig hefur liðinu gengið? Liðinu hefur gengið mjög vel hingað til, höfum unnið stóra sigra og verið heilt yfir sterkir. Við erum í mjög góðri stöðu fyrir úrslitakeppnina sem hefst núna í vikunni, sitjum í 7. sæti yfir allt landið og höfum verið í topp 25 allt tímabilið.
Hvenær lýkur tímabilinu hjá ykkur? Tímabilinu lýkur um miðjan desember en það fer allt eftir því hvernig okkur gengur í úrslitakeppninni þar sem fyrirkomulagið er útsláttarkeppni. Vonandi spilum við úrslitaleikinn 15. desember. Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér? Ég stefni á að koma heim næsta sumar eftir að ég útskrifast hér úti og eyða tíma heima með fólkinu mínu áður en ég fer svo í mastersnám. Stefnirðu í eitthvað ákveðið eftir námið? Ég stefni á að fara í mastersnám í íþróttasálfræði út í Svíþjóð. Skemmtilegasti tími yfir árið og afhverju? Jólin eru minn uppáhalds tími ársins. Ég er mikið jólabarn og elska að hafa það notalegt með fjölskyldu og vinum. Svo hafa jólin líka haft meiri þýðingu fyrir mig eftir að ég fór út í nám þar sem ég er í burtu frá fjölskyldunni og vinum meirihlutann af árinu. Hvar líður þér best? Heima á Eyjunni fögru og á fótboltavellinum. Hvað óttastu mest? Ég er ekki mikill aðdáandi af slöngum og snákum. Býrðu yfir leyndum hæfileika? Nei ekki svo ég viti! Instagram eða snapchat ? Instagram. Hvaða þættir eru í uppáhaldi hjá þér núna ? True Detective og Bloodline eru mjög góðir og svo verður Californication alltaf í miklu uppáhaldi. Uppáhalds vefsíða? Fótbolti.net
Flamingo 30 ára Afmælispartý! Tískusýning! Léttar veitingar! Hárhúsið verður með vörukynningu!
Fimmtudaginn 21. nóvember Allir velkomnir, opið 19 - 22 Hlökkum til að sjá ykkur
30%
Afmælisafsláttur!
MÁN
25 NÓV
MIÐ
20 20
20
Íþróttamiðstöðin kl. 10:10 - 10:50
NÓV
MIÐ
MIÐ
LEIKFIMI
21
Vinaminni/Kviku kl. 13:00 - 16:00
NÓV
MIÐ
20
22
FIMMTUDAGUR
FIMMTUDAGUR
21
21
NÓV
NÓV
FÖSTUDAGUR
26 NÓV
FÖSTUDAGUR 22
NÓV
kl.21:00
LAUGARDAGUR
LAUGARDAGUR
SUNNUDAGUR
SUNNUDAGUR
23
23
24
NÓV
kl. 18:00
24
NÓV
kl.21:00
NÓV
kl. 15:00
LAUGARDAGUR NÓV
kl.17:00
NÓV
VATNSLEIKFIMI
Sundlaug Íþróttamiðstöð kl. 10:50 - 11:20
23
NÓV
kl. 21:00
kl. 17:00
LÍNUDANS
Vinnaminni/Kviku kl. 15:00
ÞRI
Á Hraunbúðum kl. 14:45
22
NÓV
26
SÖNGHÓPURINN
NÓV
PERLUSAUMUR
Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 18:00
ÞRI
Vinaminni/Kviku kl. 20:00
FÖS
Vinaminni/Kviku kl. 16:00
NÓV
NÓV
SPILAVIST
NÓV
STÚLKNAKÓRINN
25
Vinaminni/Kviku kl. 17:00
FIM
HANDVERK & HITTINGUR
MÁN
SÖNGHÓPURINN
NÓV
BOCCIA
Vinaminni/Kviku kl. 16:00
kl. 18:00
kl. 15:00
SUNNUDAGUR 24 NÓV
kl. 21:00
Við erum þjónustuaðilar fyrir eftirfarandi umboð
Nethamar ehf / Garðavegi 15 / 481 1216
1919
2019
TÓNLEIKAR & MESSA Sunnudaginn 24. nóvember
Dagskrá hefst stundvíslega kl. 13:00
Einstæðir tónleikar og sameiginleg messa í Landakirkju Sunnudaginn, 24. nóvember nk. verður einstæður viðburður í Landakirkju. Dagskráin hefst stundvíslega kl. 13:00 með tónleikum þar sem fram koma söngvararnir Gissur Páll, Hera Björk og gítarleikarinn Björn Thoroddsen. Að loknum tónleikum hefst sameiginleg messa kristinna safnaða í Vestmannaeyjum þar sem prestar Landakirkju, Hvítasunnukirkjunnar og Kaþólsku kirkjunnar þjóna. Í messunni munu auk þeirra koma fram Kór Landakirkju og Lofgjörðarsveit Hvítasunnukirkjunnar. Um er að ræða lokaviðburð í tilefni af 100 ára afmæli kaupstaðarréttinda Vestmannaeyjabæjar og að lokinni dagskrá um kl. 14:30 býður bærinn samkomugestum til kaffisamsætis í Safnaðarheimili Landakirkju. 100 ára afmælisnefnd kaupstaðarréttinda Vestmannaejabæjar.
Glimrandi dömukvöld um síðustu helgi - Styrktarkvöld ÍBV -
Glimrandi dömukvöld var haldið síðastliðinn föstudag og var þetta styrktarkvöld fyrir meistaraflokk kvenna í handbolta. Þetta var einstaklega vel heppnað í alla staði og margt í boði. Eva Ruza sá um veislustjórn og myndaði frábæra stemningu með dömunum. Glæsilegar skreytingar, frábær matur sem að Kári í Kránni sá um. Fyrir þær sem vildu þá var hægt að fá glimmermálningu gegn vægu gjaldi. Einnig var púttkeppni í gangi allt kvöldið, tískusýning og Kári Kristján sá um að lýsa drengjunum og fötunum sem sýnd voru. Stelpurnar sá um að þjóna til borðs og einnig var happadrættissala þar sem stórglæsilegir vinningar voru í boði.
Fleiri myndir frá kvöldinu inná www.tigull.is
Fólkið bakvið lista- & menningarfélagið - Kíktum á vinnustofuna hennar Jóhönnu Lilju -
Jóhanna Lilja Eiríksdóttir er formaður Lista- og menningarfélags Vestmannaeyja og er sjálf með aðstöðu í Hvíta húsinu. Hún er gift Hermanni Inga Long og eiga þau þrjú börn, Gunnar Hreindal Pálsson, Lárus Garðar Long og Eriku Rún Long ásamt einu barnabarni Kamillu Dís Gunnarsdóttur. Við kíktum á Jóhönnu í Hvíta húsið og tók létt spjall við hana. Jóhanna vinnur hjá Símenntunarmiðstöðinni Visku sem kennari og ýmislegt annað sem til fellur, hefur einnig verið að leysa af í Húsasmiðjunni. Hún er með BA próf í íslensku frá Háskóla Íslands, kláraði einnig Fiskvinnsluskólann í Hafnarfirði og hefur tekið einhvern hluta af smiðnum og húsgagnasmíði. Ætlaði að bæta við sig bólstrun en hefur ekki enn fengið samning, þannig að það bíður betri tíma. Einnig er hún formaður Lista- og menningarfélags Vestmannaeyja. Jóhanna er alin upp á Fáskrúðsfirði, bjó síðan á Norðfirði, Seyðis-
firði, Reykjavík og í Þorlákshöfn á tímabilinu 1989 til 1996, en flutti til Eyja árið 1996, eftir að hún kynntist manninum sínum. Hvernig líst þér á aðstöðuna í Hvíta húsinu? Aðstaðan er frábær og gaman að þessi hugmynd sem ég labbaði með á kostningaskrifstofur flokkanna fyrir síðustu kostningar hafi komist í gegn. Fljótlega kom síðan Jónína Björk Hjörleifsdóttir og Laufey Konný Guðjónsdóttir með mér í viðræður við bæinn. Sem síðan þróaðist í viðræður við Visku og Þekkingarsetrið, þar sem Miðstöðin hentaði illa fyrir okkur. Ertu búin að koma þér alveg fyrir þar? Já búin að koma mér fyrir og hlakka til að vinna með fólkinu sem er í Hvíta húsinu. Hvað ert þú að brasa við í Hvíta húsinu? Ég hef aðallega verið að vinna með roð, leður og ull. Ég hanna t.d
töskur, herraslaufur úr roði og aðra fylgihluti. Er hægt að skoða vörurnar þínar einhvers staðar á netinu? Ég er með facebooksíðu sem heitir Jóle hönnun, hún hefur ekki verið mjög virk í eitt ár núna þar sem aðstöðuleysi varð til þess að ég hef lítið gert annað en sérstakar pantanir. En núna á eftir að koma meira inn.
H L U T I A F BY G M A
ALLAR VÖRUR*
Á S N I E AÐ G A D U T FIMM ND ALLT A L M U 9 1 . L OPIÐ TIL K
Komdu og gerðu betri kaup Gildir einnig í vefverslun husa.is * * *
Gildir ekki af vörum í timbursölu Gildir ekki af tilboðsvörum, WEBER grillum og Philips Hue vörum Gildir ekki af vörum merktum „lægsta lága verði Húsasmiðjunnar“
Tax free tilboð jafngildir 19,35% afslætti af almennum vörum og 9,91% af matvörum. Að sjálfsögðu stendur Húsasmiðjan skil á virðisaukaskatti til ríkissjóðs.
Tax F Einnig ree jólalj af seríu m, ósum jólav og ö r u m föstu d a g laug arda til gs
ÖKUKENNSLA
SNORRA RÚTS Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01
• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli
Skrifstofa Heiðarvegi 9b 481-2700
20 ára reynsla! Sími 692-3131
formadur@sjomannafelag.is skrifstofa@sjomannafelag.is
www.straeto.is 540 -2700
Leið 52
STRÆTÓ
Hægt er að borga fargjaldið inn í strætó Ferðir í Landeyjarhöfn!
Virkir dagar:
08:00 Herjólfsferð: 10:45 17:45 Herjólfsferð: 20:45
Frá Mjódd Frá Mjódd Helgar:
Frá Umferðarmiðstöð Frá Mjódd Frá Mjódd
07:55 Herjólfsferð: 10:45 08:05 Herjólfsferð: 10:45 15:15 Herjólfsferð: 18:15
www.straeto.is | 540-2700
20% AFSLÁTTUR af oszu og nak línunum
Við erum komin í jólaskap
Tilvalið í jólapakkann
15%
AFSLÁTTUR Amaxon keratin línunni
Fullt af nettilboðum á 8.900 kr. Öll barnafargjöld á 7.900 kr. Ferðatímabilið 15. nóv til 15. jan
Bókaðu flugið á ernir.is
Tannlæknar 2. - 5. des - Ármann Hannesson 6. - 8. des - Hjalti Harðarson 14. - 15. des - Hjalti Harðarson
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40 Tímapantanir í síma 481-2772
Opnunartími Sunnudagur 11:30 - 21:00
Fimmtudagur 11:30 - 14:00 & 17:30 - 21:00
Mánudagur Lokað
Föstudagur 11:30 - 21:00
Þriðjudagur Lokað
Laugardagur 11:30 - 21:00
Miðvikudagur 11:30 - 14:00 & 17:30 - 21:00
GOTT
Bárustíg 11
Pantaðu í síma 481 3060! www.gott.is
gott@gott.is
Þökkum innilega samúð, hlý faðmlög og vinakveðjur vegna andláts
Guðfinnu Stefánsdóttur
frá Fífilgötu 8 í Vestmannaeyjum Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hraunbúða í Vestmannaeyjum. f.h. aðstandenda Margrét Rósa, Erna, Tómas, Stefán Haukur, Ingunn Lísa og Iðunn Dísa Jóhannesarbörn
Þaklist ehf Þakviðgerðir, Sérhæfi mig í flötum þökum. Tek að mér ýmsa smiðavinnu, parketlagnir, grindverk, sólpalla og fleira.
Tímapantarnir í síma 570 9090. Staðsettur við Faxastíg í húsi Björgunarsveitarfélagsins.
20 ára reynsla lærður smiður Smári Björn S: 849-2694 smaribjorn@gmail.com
Frumherji verður í Eyjum vikuna 25. - 28. nóvember.
/þaklist Frumherji Faxastígur / 570 9231
INNRITUN Í FÍV Á VORÖNN 2020 ER TIL 30. NÓVEMBER 2019 NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Á HEIMASÍÐU SKÓLANS.
W W W. F I V. I S