
MEÐAL EFNIS:
DÝRIN Í HÁLSASKÓGI
LJÓSAGANGA Á ELDFELL KRAKKARNIR Á VÍKINNI
MEÐAL EFNIS:
DÝRIN Í HÁLSASKÓGI
LJÓSAGANGA Á ELDFELL KRAKKARNIR Á VÍKINNI
SARA BJÖRT ARNARSDÓTTIR
Fæðingardagur: 30. júlí 2024.
Foreldrar: Inga Rós Gunnarsdóttir og Arnar
Ingi Sæmundsson.
Þyngd: 2760 grömm
Lengd: 45,7 cm
Stóri bróðir heitir Sindri Þór.
VANTAR MYND AF ÞÍNU BARNI?
Sendu okkur endilega mynd og upplýsingar á tigull@tigull.is .
DRENGUR SIGURBJÖRNSSON
Fæðingardagur: 17. október 2024
Foreldrar: Sigurbjörn Þórður Árnason og
Aníta Friðriksdóttir
Þyngd: 4650 gr eða 18 og hálf merkur.
Lengd: 52 cm
Stóri bróðir heitir Ívan Leó.
Sjáðu alla nýjustu Vestmannaeyingana inni á TIGULL.IS
FORSÍÐUMYNDIN: Forsíðu vikunnar prýðir Sigurjón Geirsson í hlutverki bakardrengs í leikritinu um Dýrin í Hálsaskógi sem Leikfélag Vestmannaeyja frumsýndi um síðustu helgi. Mynd: Guðrún Elfa.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
DREIFING:
Dreifing fer fram á miðvikudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
FIMMTUDAG KL 19-21
Ásavegur 20
Ásavegur 31
Ásavegur 33
Ásavegur 33
Áshamar 14
Áshamar 3D
Áshamar 5
Áshamar 75-2f
Birkihlíð 4
Birkihlíð 9
Boðaslóð 2
Boðaslóð 20
Boðaslóð 5
Brattagata 13
Brattagata 2
Brimhólabraut 10
Brimhólabraut 36
Búhamar 88
Dverghamar 41
Faxastígur 6B
Foldahraun 39c
Foldahraun 42-1E
Heiðarvegur 30
Heiðarvegur 41
Heiðarvegur 50
Heiðarvegur 60
Heiðarvegur 64
Herjólfsgata 7 e.h.
Hólagata 19a NH
Hólagata 23
Hólagata 31
Hólagata 36
Hólagata 42
Hólagata 45
Hólagata 47
Hólagata 9
Hraunbúðir
Hrauntún 53
Hvítingavegur 10
Höfðavegur 23
Höfðavegur 39
Illugagata 15a
Illugagata 34
Illugagata 41
Illugagata 50
Illugagata 73
Illugata 6 e.h.
Túngata 24
Vallargata 10
Vestmannabraut 14
Þegar Tígull fór í prent á mánudaginn var, voru ofangreind hús þau sem bjóða börnum að banka upp og og sníkja hjá þeim gotterí á milli klukkan 19 og 21 á fimmtudaginn. Eflaust hefur listinn stækkað og er hægt að finna hann uppfærðan á Tígull.is.
Elskulegur frændi okkar og góður vinur
ÓSKAR STEFÁNSSON
Lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Þann 24. október síðastliðinn.
Útför fer fram föstudaginn 1. nóvember 2024 kl. 13:00
Aðstandendur hins látna.
Auglýsingasími
Tíguls: 481-1161
tigull@tigull.is
Leikfélag Vestmannaeyja sýnir
Dýrin í Hálsaskógi
Saga: Thorbjorn Egner
Tónlist: Thorbjorn Egner og
Christian Hartmann
Þýðing: Hulda Valtýsdóttir og
Kristján frá Djúpalæk
Leikstjórn: Agnes Emma Sigurðardóttir
Leikfélag Vestmannaeyja frumsýndi 25.október s.l. barnaleikritið Dýrin í Hálsaskógi í leikstjórn Agnesar Emmu Sigurðardóttur Flest þekkjum við þessa gömlu sögu Thorbjörn Egner um lífsglöðu músina Lilla og öll hin dýrin í skóginum, svo maður tali ekki um tónlistina í verkinu eins og Piparkökusönginn og Vögguvísu (Dvel ég í draumahöll). Þetta er í fjórða skiptið sem Leikfélag Vestmannaeyja setur upp þetta sama verk en engu að síður var þetta í fyrsta skipti sem ég og minn leikhúsfélagi Kolbrún Harpa Kolbeinsdóttir sáum það á sviði.
Jökull Elí Þorvaldsson í hlutverki Mikka refs.
Innihald verksins er klassískt ,,Öll dýrin í skóginum eiga að vera vin-
ir“. Eitthvað sem við mannkynið ströglum enn við í dag að halda í heiðri. Persónur verksins eru fjölmargar en fremstir í flokki eru auðvitað þeir Lilli Klifurmús og Mikki refur. Karakterar sem þeir Árni Tryggvason og Bessi Bvjarnason gerðu ódauðlega þegar Þjóðleikhúsið var með heimsfrumsýningu á þessu sama verki árið 1962. Sagan segir að þegar Bessi mætti á sviðið í hlutverki Mikka hafi börnin í Þjóðleikhúsinu sigið niður í sætin af skelfingu.
Það er skemmtilegt frá að segja að það nákvæmlega sama gerðist í leikhúsi okkar Eyjamanna þegar Jökull Elí Þorvaldsson í hlutverki Mikka stökk fram á sviðið. Barnabarn undirritaðrar, sem setið hafði spennt alveg fremst í sætinu sínu á þriðja bekk, smokraði sér smá saman aftar í sætið þar til það var komið alveg upp að sætisbakinu og endaði að lokum í fanginu á móður sinni. Jökull Elí fer alveg
á kostum í hlutverki hins háværa, lævísa og brögðótta Mikka refs. Hann er með frábærar tímasetningar, virkilega góða framsögn og hreint ágætis söngrödd. Er mátulega ógurlegur í augum barnanna og skemmtilegur á sama tíma. Arnar Gauti Egilsson fer líka þrælvel með hlutverk Lilla klifurmúsar. Hann er leikandi léttur og afar skemmtilegur sem Lilli, með skýra og góða framsögn. Þá var Ingveldur Theódórsdóttir virkilega góð, örugg og trúverðug sem Amma mús og syngur svona líka vel. Atriðið þar sem Amma mús fýkur um loftin og syngur Flugsöng ömmu var sérstaklega fallegt og vel útfært. Sara Elía Thórshamar var einkar skýrmælt í hlutverki Bangsamömmu og samleikur hennar og Guðjóns Emils Ómarssonar, sem fer með hlutverk Bangsapabba, oft á tíðum góður. Guðbjörg Karlsdóttir leikur Bangsa litla og gerir það prýðilega. Hún er ósköp mikið krútt í þessu hlutverki sínu með skýra og góða rödd.
Lilja Sigurðardóttir komst líka mjög vel frá sínu hlutverki sem Patti broddgöltur og það sama má segja um þau Viktoríu Ninju Egilsdóttur í hlutverki KrákuPéturs, Rafael Bóas Davíðsson í hlutverki Elgsins, Míu Bjarný Haraldsdóttur, Örnu Gunnlaugsdóttur og Hrafnkell Darra Steinsson sem leika íkornana Lísu, Önnu og Tuma. Virkilega gaman að sjá unga leikara standa sig svona vel. Caritas Rós Tinnudóttir leikur Pétur íkorna og vakti það sérstaka athygli undirritaðrar hve Caritas Rós lék af mátulega mikilli innlifun þó ekki væri hlutverkið stórt eða viðamikið. Aldrei datt hún úr karakter þó fókusinn væri ekki hennar megin á sviðinu heldur var hún fullur þátttakandi í því sem var að gerast allan tímann, ýmist með svipbrigðum og/eða látbragði. Virkilega vel gert hjá þessari ungu leikkonu og vonandi fáum við að sjá meira af henni á fjölum Leikfélags Vestmannaeyja í framtíðinni. Aðalbjörg Andrea Brynjarsdóttir leikur Martein skógarmús og gerir það óaðfinnanlega og það sama má segja um Guðný Emilíu Tórshamar sem leik-
Bertha Þorsteinsdóttir og Sigurjón Geirsson vekja mikla kátínu sem Hérastubbur bakari og Bakaradrengurinn.
ur Húsamúsina. Guðný hefur líka sérstaklega fallega söngrödd sem nýtur sín vel í Húsamúsarvísunni.
Samleikur Berthu Þorsteinsdóttur og Júlí Sigurjónsdóttur, sem Maðurinn og Konan, var virkilega skemmtilegur og fyndinn. En líklegast var það samleikur Berthu og Sigurjóns Geirssonar í hlutverkum Héraðsstubbs bakara og Bakaradrengsins það atriði sem vakti hve mesta kátínu meðal barnanna í leikhúsinu. Þau tvö fóru alveg hreint á kostum í piparkökuatriðinu sem skilaði sér vel út til hinna ungu áhorfenda sem skelltu ítrekað uppúr. Bertha og Sigurjón hafa sýnt það bæði að þau eiga heima á sviði og fara bráðvel með þau hlutverk sem þeim eru falin. Vonandi fáum við leikhúsgestir að sjá meira af þeim í leikhúsinu í framtíðinni og í enn stærri hlutverkum. Þau hafa sýnt að þeim er fulltreystandi til þess. Leikmynd og lýsing voru einkar vel gerð í þessu verki og það voru búningar og förðun einnig. Sýningin er virkilega litrík og falleg og augljóst að undirbúningstíminn hefur verið vel nýttur. Undirrituð hafði sérstaka ánægju að heyra af áhuga allra þeirra sem höfðu komið í prufur fyrir hlutverk í verkinu. Ekki síst þegar fréttist að þau sem ekki höfðu fengið hlutverk sóttust þá eftir að fá
Arnar Gauti Egilsson fer þrælvel með hlutverk Lilla klifurmúsar.
Guðbjörg Karlsdóttir og Sarah Elía Thórshamar í hlutverkum Bangsa litgla og Bangsamömmu.
að vinna baksviðs í staðinn. Með allan þennan áhuga unga fólksins á að starfa með leikhúsinu okkar er framtíð Leikfélags Vestmannaeyja björt. Ég hlakka til þeirrar framtíðar.
Bravó....Agnes
Emma og þið öll hjá Leikfélagi Vestmannaeyja!
Takk fyrir mig og okkur, Helena Páls
Okkur á Tígli langar að kynnast sem flestum Eyjamönnum og segja frá því sem á daga þeirra drífur. Næstu vikurnar ætlum við að kíkja á nokkra krakka á fimm ára deildinni.
Fjölskylda: Mamma mín heitir Elín og pabbi minn heitir Þorgeir. Ég á eina pínu litla systir
sem er ekki komin með nafn.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Veit ekki.
Hvað er mamma þín best í að gera? Að þrífa.
Hvað er pabbi þinn bestur í að gera? í engu!
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Leika við vinum mínum í hákarlaleik
Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Pizza.
Hvað langar þig í jólagjöf? Veit ekki.
Hvað er mamma þín gömul?
Umm, man ekki.
Hvað er pabbi þinn gamall? Jafn gamall og mamma.
Hver er besti vinur/vinkona þín? Lena og líka Sigtryggur.
Hvað gerir þig glaða? Að fara í sund.
Ertu hrædd við eitthvað?
Nei. Ekki einu sinni Ljón.
Fjölskylda: Mamma mín heitir Selma Rut og pabbi minn heitir Guðbjartur. Bræður mínir heita Helgi Hrannar og Gunnþór Gauti.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Sjö.
Hvað er mamma þín best í að gera?
Klippa fólk.
Hvað er pabbi þinn bestur í að gera?
Veiða fiska.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Gera armband heima hjá mér.
Hvað er uppáhalds maturinn þinn ?
Salanja ( Lasagne ).
Hvað langar þig í jólagjöf? Mjög fullt.
Hvað er mamma þín gömul? Ég veit það ekki.
Hvað er pabbi þinn gamall? Veit ekki heldur.
Hver er besti vinur/vinkona þín?
Ég á kærasta hann heitir Baltasar.
Hvað gerir þig glaða?
Þegar frænka mín gerir eitthvað mjög fyndið.
Ertu hrædd við eitthvað ?
Kákarla, krókudíla, villuketti og sjóræninga og feitasta dýr í heimi… Flóðhestur, og tígrisdýr og ljón.
Aðstaðan í kjallaranum á Hraunbúðum verður opin fyrst um sinn alla þriðjudaga og fimmtudaga milli kl. 09,00 og kl. 12.00 á hádegi.
Þeir sem óska, geta fengið lykil að húsnæðinu og nýtt sér aðstöðuna hvaða dag sem er og á þeim tíma sem hentar þeim betur.
Í tilefni bleika dagsins, þann 23. október var farinn ljósaganga upp á Eldfell til heiðurs þeim sem glímt hafa við Krabbamein. Mjög góð þátttaka var eða um hundrað manns.
Að sama tilefni gaf Viðar Breiðfjörð eina af sínum snilldar verkum til að bjóða upp. Uppboðið fór fram á vefsíðu Tíguls og lauk á Bleika deginum, 23. október
klukkan 14:00 og var hæsta boð 100.000.- kr sem renna til Krabbavarnar hér í Vestmannaeyjum. Sigurbjörg Kristín, formaður Krabbavarnar í Vestmannaeyjum þakkar Viðari innilega fyrir sitt framlag sem og kaupanda verksins sem vildi ekki láta nafn síns getið. Okkar maður, Addi í London var að sjálfsögðu á staðnum við Eldfell og myndaði göngufólkið.
Laugardaginn 19. október var haldin í fyrsta sinn karlaráðstefnan Skjöldur á vegum Visku – fræðslu og símenntunarmiðstöðvar Vestmannaeyja. Vestmannaeyjabær Hótel Vestmannaeyjar, Hárstofa Viktors og Brothers brewery studdu við bakið á verkefninu og úr varð bráðskemmtilegur dagur.
Þátttaka fór fram úr björtustu vonum en karlmenn bæði frá Vestmannaeyjum og af fastalandinu komu og tóku þátt. Hárstofa Viktors opnaði klukkan 11:00 þar sem menn gátu komið í spjall og veitingar að hætti rakaranna áður en haldið var upp í Sagnheima. Formleg dagskrá hófst klukkan 13:00 og stóð fram á kvöld. Ráðstefnan var haldin í Sagnheimum með erindum frá þeim Martin Eyjólfssyni, Mána Péturssyni og Þorsteini Bachmann. Óskar Jósúa var ráðstefnustjóri og öll myndataka á vegum Magna media. Á milli
Þorsteinn Bachmann, Martin Eyjólfsson og Máni Pétursson fluttu erindi.
klukkan 17-19 var svo smakkupplifun og happy hour á Brothers Brewery en þaðan fóru menn svo á Einsa kalda í mat. Þátttakendur voru sammála um
Minna Ágústdóttir, forstöðumaður Visku ásamt ráðstefnustjóranum Óskari Jósúa.
að þetta hafi verið geggjaður dagur frá morgni til kvölds með góðum og uppbyggilegum erindum. Skjöldur verður klárlega haldinn aftur í október að ári.
Ráðstefnan var vel sótt og þótti vel heppnuð í alla staði.
NÆSTU SÝNINGAR: 4. SÝNING
LAUGARDAG 2. NÓV. KL 15.00 5. SÝNING SUNNUDAG 3. NÓV. KL 15.00
MIÐAVERÐ KR. 4.200 MIÐASÖLUSÍMINN 852-1940 ER OPINN VIRKA DAGA MILLI KL 16-18
Nú getur þú fengið sendingar úr vefverslun IKEA afhentar með Dropp! Með þessu aukum við úrval þjónustu okkar og komum til móts við misjafnar þarfir viðskiptavina, hvar á landinu sem er.