Skip to main content

Tígull 37. tbl 05. árg.

Page 1

37. tbl. 05. árg. 15. - 21. nóvember 2023


GOSI KALLAR FRAM ALLAN TILFINNINGASKALANN Frumsýning á uppfærslu Leikfélags Vestmannaeyja á leikritinu um spítukallinn Gosa fór fram síðastliðin föstudag. Blaðamaður Tíguls lét sig ekki vanta og sá ekki eftir því. Við upphaf sýningarinnar rifjaðist hins vegar upp fyrir mér að sagan af Gosa hefur svo sem aldrei verið í neinu uppáhaldi hjá mér. En vá hvað þessi frábæra leiksýning, með þessum frábæra leikarahóp, náði að snúa því við, þau kölluðu fram allan tilfinningaskalann. Komu mér margoft til að hlæja og Hafþór, sem lék Jakob, pabba Gosa, kallaði fram tár í augu með fallegum söng sínum. Allir sem sungu í sýningunni, gerðu það lista vel. Ekki er hægt að sleppa því að nefna hlut Kristins Elí, sem leikur Gosa í sýningunni, hann er einfaldlega fæddur í hlutverkið. Allt í allt, klárlega besta leiksýning sem ég hef farið á hjá Leikfélagi Vestmannaeyja. Þvílíkir hæfileikar hjá þessum frábæra krökkum sem taka þátt í henni. Þrefalt húrra fyrir Leikfélagi Vestmannaeyja. Leikmyndin, söngurinn, leikurinn, aukaleikararnir, allur hópurinn algjörlega frábær. Þetta er sýning sem enginn má láta framhjá sér fara. Takk fyrir mig, Kata Laufey blaðamaður Tíguls.

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Tveir dagar

Fimmtudag og föstudag

HÚSASMIÐJU

DAGURINN

25% afsláttur

Allar seríur og jólaljós • Allt jólaskraut • Allar vörur í Blómavali • Allt á aðventukransinn Dúkar og servíettur • Jólapappír og borðar • Kerti, stjakar og luktir • LADY málning Handverkfæri • Grohe og Damixa blöndunartæki eldhús og bað • Verkfærakassar Öll rafmagnsverkfæri (DeWalt, Hikoki, Black+Decker, Milwaukee, Makita, Worx) • Smáraftæki • Perur og ljós (Gildir ekki af HUE) Salerni og handlaugar • Eldhúsvaskar • Parket • Flísar • Hillurekkar (Avasco) • Áltröppur og stigar Loftverkfæri (Tjep) • Háþrýstidælur • Pottar og pönnur • Glös og matarstell • Bökunarvörur • Gjafavörur Gæludýravörur • Hreingerningarvörur • Pottaplöntur ... Kláraðu jólin og jólagjafirnar hjá okkur

Afsláttur gildir ekki af tilboðsvörum og „Lægsta lága verði Húsasmiðjunnar“.

Tilboðin gilda líka í vefverslun

Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana.

Vefverslun husa.is


ÞRJÁR ÁSTÆÐUR FYRIR ÞVÍ AÐ BÖRN YNGRI EN 13 ÁRA ÆTTU EKKI AÐ VERA Á SAMFÉLAGSMIÐLUM meira en einn smell á efni sem algóritminn les sem skref í ákveðna átt og áður en maður veit af þá er búið að leiða mann inn á efni sem ætlunin var kannski alls ekki að heimsækja. Á meðal barna og ungmenna á efsta stigi grunnskóla og framhaldsskóla hafa: • 29% séð ógnvekjandi myndir þar sem verið var að meiða menn og dýr • 27% séð leiðir til að grenna sig verulega (með t.d. lystarstoli eða lotugræðgi) • 23% séð hatursskilaboð sem beinast gegn einstaklingum eða hópum • 20% séð áætlanir um slagsmál • 18% séð leiðir til að skaða sig líkamlega

2. Áreiti frá ókunnugum

Stelpur eru mun líklegri en strákar til þess að fá kynferðisleg komment og beiðnir um nektarmyndir á netinu en strákar. Tæplega 7 af hverjum 10 stelpum sem hafa fengið beiðni um nektarmynd, á grunn- og framhaldsskólaaldri, fengu beiðnina frá ókunnugum, samanborið við 3 af hverjum 10 strákum. Ljót eineltismál, myndbönd af ofbeldi og hatursfull ummæli í garð minnihlutahópa meðal barna og ungmenna hafa verið áberandi í umræðunni síðustu daga, vikur og mánuði. En hvaðan kemur þessi heift, þessi munnsöfnuður, þetta bakslag í umburðarlyndi í okkar samfélagi og hvað eiga þessi dæmi sameiginlegt? Jú þetta á sér stað að stórum hluta inni á samfélagsmiðlum þar sem aldurstakmarkið er í flestum tilfellum 13 ára. Þar hafa börn og ungmenni vettvang til þess að senda ljót, hatursfull og niðrandi ummæli til hvers annars, ásamt því síðan að geta deilt ofbeldinu sín á milli með skjáskotum og myndböndum af árásum. Þá eiga þau mörg falska og nafnlausa aðgangsreikninga sem þau geta notað til þess að taka þátt, án þess að koma fram undir nafni. Hvaða erindi eiga börn inn á slíkan vettvang og hver gaf þeim leyfi til þess? Hér ætla ég að nefna þrjár ástæður þess að fylgja ætti aldurstakmörkum inni á samfélagsmiðlum sem byggja á niðurstöðum víðtækrar rannsóknar á börnum og netmiðlum

1. Skaðlegt efni

TikTok, Snapchat, YouTube, Instagram, Facebook, Twitter (X), Discord, Viber, Yubo, Tellonym og ég gæti haldið áfram. Allir þessi miðlar eiga það sameiginlegt að vera með 13 ára aldurstakmark til þess að stofna megi aðgangsreikninga. Samt eru um 60% barna á Íslandi á aldrinum 9-12 ára á TikTok og Snapchat, 50% er með sinn eigin aðgang á YouTube og 30% á Instagram. Algóritminn á þessum miðlum er fljótur að lesa hegðun notenda. Það þarf oft ekki mikið til, oft ekki

Þessir ókunnugu einstaklingar geta bæði verið eldri einstaklingar sem misnota yfirburða stöðu sína gagnvart þeim sem yngri eru en líka jafnaldrar. Um 40% barna og ungmenna á aldrinum 13-18 ára eiga falska eða nafnlausa aðgangsreikninga á samfélagsmiðlum. Þessa reikninga geta þau notað til þess að taka þátt í eineltinu, ofbeldinu og hatrinu, án þess að koma fram undir nafni. Þau skýla sér þannig á bak við nafnleysið og líður þá eins og þau beri ekki lengur fulla ábyrgð á gjörðum sínum. Á meðal barna og ungmenna hafa: • 7 af hverjum 10 stelpum á framhaldsskólaaldri, og helmingur á efsta stigi grunnskóla, fengið beiðni um að senda af sér nektarmynd. • 24% stelpna á aldrinum 15-17 ára upplifað þvinganir til þess að senda myndir eða aðrar persónulegar upplýsingar um sig á netinu. • 18% stelpna og 14% stráka á aldrinum 15-17 ára upplifað að myndir eða myndskeið af þeim hafi verið birt á netinu gegn vilja þeirra.

3. Stafrænt fótspor

Að lokum langar mig að nefna stafrænt fótspor, en það er í einföldu máli allt það efni sem við og aðrir búum til og deilum um okkur á netinu. Með því að leyfa börnum að nota miðla sem þau hafa ekki aldur og þroska til þá erum við að gefa þeim leyfi til að stíga þar sínu fyrstu stafrænu fótspor. Netið gleymir engu og þess vegna er það svo að þegar að þessi spor hafa verið tekin þá verður oft ekki aftur snúið. Hérna þurfum við sem eldri erum að passa upp á börnin


okkar. Þau eru á mikilvægu þroskaskeiði í lífinu sem felur í sér bæði framfaraskref og feilspor. Þegar að ég fæddist fyrir 30 árum var ekki til neitt sem hét WiFi, Bluetooth eða samfélagsmiðlar. Nei, það er ekki lengra síðan. Ég fékk því að stíga mín feilspor í friði, án þess að þau væru skrásett á netinu. Munum svo að þetta á ekki bara við um það efni sem börn og ungmennisetja sjálf inn á samfélagsmiðla, heldur líka það efni sem við sem foreldrar setjum inn af þeim. Ég vil undirstrika að það er margt jákvætt varðandi tækniframfarir, netnotkun, samfélagsmiðla og stafrænar lausnir í okkar samfélagi. Það þarf bara ekki að selja nokkrum manni það. Hins vegar höfum við gleymt okkur dálítið í því hvað þetta er allt frábært og skemmtilegt. Þegar að við gefum börnunum okkar leyfi til þess að nota samfélagsmiðla er mikilvægt að við ræðum þessi þrjú atriði við börnin okkar: Skaðlegt efni, áreiti frá ókunnugum og stafrænt fótspor. Við sem foreldrar berum ábyrgð á börnunum okkar og þurfum því að taka þessa hluti til okkar. Hvernig getum við ætlast til þess að aðrir passi upp á börnin okkar ef við gerum það ekki? Sama hversu oft börnin okkar segja það þá er það bara einfaldlega ekki svo að það séu „allir á TikTok og Snapchat“. Höfundur: Skúli B. Geirdal verkefnastjóri miðlalæsis hjá Fjölmiðlanefnd Heimildir: Börn og netmiðlar - Rannsókn Fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands. Miðlalæsi á Íslandi – Hluti III: Haturstal og neikvæð upplifun af netinu- Rannsókn Fjölmiðlanefndar og Maskínu


ROKKELDIÐ ER UPP RISIÐ!

Árið er 2002. Í Höllinni í Vestmannaeyjum er blásið til hljómsveitakeppni þar sem spila 9 hljómsveitir, ýmist frá Vestmannaeyjum, Reykjavík, Selfossi, Hellu og Seyðisfirði. Keppnin ber yfirskriftina Allra veðra von. Í verðlaun voru stúdíótímar hjá Ríkisútvarpinu og fá að spila á Þjóðhátíð sama ár. Næstu ár var þessi keppni haldin og jafnt og þétt jókst fjöldi hljómsveita frá Vestmannaeyjum sem tók þátt. Hér blómstraði tónlistarmenning og þegar mest var má skjóta á að hér hafi verið í það minnsta 40-50 hljómsveitir með frumsamið efni starfandi í mismiklum mæli. Stærstur hluti þessa hóps hafði Fiskiðjuna sem húsaskjól. Þar hafði hver sem vildi möguleika á að koma inn, koma sér upp aðstöðu og byrja að skapa. Á þeim tíma var talað um að í þessu gamla fiskvinnsluhúsnæði færi nú fram annars konar starfsemi, svokallað Rokkeldi. Eftir að Fiskiðjan brann er eins og tónlistarlífið hafi lagst í dvala. Fjölda hljómsveita fækkaði úr 40-50 niður í örfáar og tónlistarsenan hér um bil lognaðist út af. Síðan eru liðin mörg ár og í dag er senan aftur farin að vænkast. En við viljum gera betur. Við erum unglingarnir sem stóðum úti í sal og horfðum á og fórum svo heim með stjörnur í augunum og byrjuðum að æfa okkur á hljóðfæri því við vildum geta gefið öðrum það sem okkur var gefið þarna. Rokkeldið er upp risið! Tónleikarnir sem við erum að fara að setja upp gegna tvöföldum tilgangi: Að kynna fyrir heimamönnum á öllum aldri hvað er að gerast og hvað er í boði. Við teflum fram sjö hljómsveitum sem allar spila frumsamið efni og eru allar starfandi hér í Vestmannaeyjum. Jafnframt viljum við leggja okkar af mörkum við að virkja næstu kynslóð tónlistarmanna og kvenna. Að safna fjármagni til að taka næsta skref í áætlun Rokkeldisins, sem er að endurvekja fyrrnefnda keppni Allra veðra von. Þau ár sem keppnin var haldin þótti eftirsóknarvert að fá að taka þátt og hér komu hljómsveitir frá öllum landshornum og áhorfendafjöldi hljóp á hundruðum.

Við viljum sérstaklega vekja athygli á því að tónleikarnir eru tvöfaldir. Fyrri tónleikarnir eru opnir öllum aldurshópum og ívið styttri sem er kjörið tækifæri til að gefa ungviðinu færi á að upplifa hvernig er að fara á alvöru tónleika. Fyrir hönd Rokkeldisins bjóðum við alla velkomna í Höllina þann 25. nóvember næstkomandi.

False Majesty var stofnuð árið 2019 af Skæring Óla og bræðrunum Ásmundi og Óskari. Fljótlega fengu þeir Þorgils og Sigurstein til liðs við sig og notfærðu sér yfir 15 ára reynslu í hinum ýmsu hljómsveitum og tónlistarstefnum til að skapa sinn eigin hljóðheim. Sumarið 2022 lokuðu þeir svo loksins uppstillingunni þegar Trausti kom inn sem söngvari og sem síðasta púslið í myndinni. False Majesty spilar teknískt dauðarokk með mikla áherslu á tekníska hlutann og sækir innblástur í sveitir á borð við Ophidian I, Lorna Shore, Slaughter to Prevail, Vale of Pnath og Archspire. False Majesty hefur ekki verið lengi í þungarokkssenunni en hefur vakið miklar eftirtektir þar sem þeir hafa komið fram og hafa til að mynda spilað á Reykjavík Deathfest og voru valdir til að taka þátt í Wacken Metal Battle hér á Íslandi. Hljómsveitin hefur gefið út tvö lög, Venomous Heaven og Enter Agony, sem bæði eru aðgengileg á flestum streymisveitum. Lagasafnið er þó ívið stærra og von er á útgáfu á fleiri lögum í náinni framtíð. Meðlimir : Sigursteinn Marinósson - Gítar Ásmundur Ívar Óskarsson - Gítar Óskar Elí Óskarsson - Gítar Skæringur Óli Þórarinsson - Trommur Þorgils Árni Hjálmarsson - Bassi Trausti Mar Sigurðarson - Söngur


Subdural var stofnuð í Amsterdam árið 2019 af

frændunum Geir og Gísla. Þar spiluðu þeir “Bad boy rock & roll” með Ástralanum Steven Lolicato á bassa. Frændurnir fluttu síðan aftur heim í covidinu þar sem Arnar Valgeir Sigurjónsson tók við bassanum. Nú halda strákarnir áfram að spila sóðalegt rock í skúrnum hjá Gísla þar sem þeir héldu tónleika á goslokunum í sumar. Meðlimir : Geir Jónsson = Gítar/Söngur Gísli Rúnar Gíslason = Trommur Arnar Valgeir Sigurjónsson = Bassi

Mucky Muck er hljómsveit sem leitar mikið í næntís grugg senuna. Sveitin var stofnuð í febrúar á þessu ári og fær greinilega innblástur frá hljómsveitum eins og Foo Fighters, Nirvana og Smashing Pumpkins með nútíma twist. Þrátt fyrir ungan aldur hafa Mucky menn náð góðum árangri bæði á Íslandi og fyrir utan landsteina með útvarpsspilun í Seattle í Bandaríkjunum. Mucky strákarnir lofa góðri stemningu og þá sérstaklega fyrir allt gamla fólkið sem ólst upp á upprisutíma grunge tónlistar. Mucky Muck skipa: Arnar Júlíusson - Gítar og Söngur Trausti Mar Sigurðarson - Bassi og Bakrödd Stefán Gauti Stefánsson - Gítar Jón Grétar Jónasson - Trommur

Hljómsveitin Merkúr var stofnuð árið 2017 með það markmið að endurlífga rokk/metal senuna í Vestmannaeyjum. Merkúr hefur farið um víðan völl hvað varðar tónlistarstefnu frá stofnun. Sveitin byrjaði sem Thrash Metal og leitaði mikið í níunda áratuginn. Síðustu 3 ár hefur Merkúr breytt stílnum mikið og má betur kalla þá Dauða metal í dag. Sveitin hefur verið að gigga með krafti um land allt síðustu 6 ár á stórum hátíðum eins og Eistnaflug, Norðanpaunk og auðvitað Þjóðhátíð. Næsta sumar mun Merkúr leggja land undir fót, haldið verður til austur evrópu á tónleikaferðalag þar sem Vestmannaeyja metallinn verður spilaður fyrir þúsundir manna. Merkúr skipa eyjapeyjarnir: Arnar Júlíusson - Gítar og Garg Trausti Mar Sigurðarson - Gítar og Garg Mikael Magnússon - Trommur Og mun Skæringur Óli Þórarinsson hlaupa í skarðið á bassanum.

Hrossasauðir er rokkhljómsveit (ef hægt er að hafa það á hreinu) stofnuð í Vestmannaeyjum 2021 af tveimum forvitum og áhugasömum unglingspiltum. Hægt er að kalla okkur graðhestarokk, pönk eða þungarokk það sem hljomsveitin hefur verið í miklum breytingum og áföllum en hún lifir enn í dag. Meðlimir Kári Steinn Helgason - bassi og söngur Aron Stefán Ómarsson - gítar Jón Grétar Jónasson - trommur Benóný Friðrik Færseth Jónsson - gítar


Molda var stofnuð í mars árið 2020 af þeim frændum Helga og Albert Tórshamar sem fundu mikla löngun til þess að stofna rokkband sem færi sínar eigin leiðir með eitthvað nýtt og ferskt í anda glysrokksins. Molda hefur einungis verið starfandi í þrjú ár en hefur verið að gera það mjög gott í íslensku tónlistarlífi. Molda komst fyrst á kortið þegar sveitin gaf út lagið Ymur jörð árið 2021 þar sem kveikjan að laginu kom í kjölfar eldgossins við Fagradalsfjall. Náttúröfl og veðurharðindi í Vestmannaeyjum í bland við skuggalegar hugsjónir eru aðalyrkisefni hljómsveitarinnar, sem verður að teljast framandi og óvenjubundið sem gerir sveitina enn þjóðlegri fyrir vikið. Molda hefur verið að spila reglulega upp á síðkastið og hefur hljómsveitin spilað í tónleikahöllinni Hörpu í Silfurberg sem upphitunaratriði fyrir Skonrokk. Þá hafa þeir nýlega spilað í Færeyjum á Mentanardögum í Fuglafirði þar sem voru haldnir stórtónleika á skipsflaki sem liggur í botni í firðinum. Molda hefur spilað á ýmsum rokkviðburðum uppá síðkastið, t.a.m. haldið vortónleika með Karlakór Vestmannaeyja þar sem frumsamin lög voru spiluð í takt við gamla rokkslagara, húsband hjá Leikfélagi Vestmannaeyja við uppsetningu á söngleiknum Rocky Horror sem var kosið athyglisverðasta leikrit Íslands ársins 2023 og hlaut verkið viðurkenningu, og var sýnt í þjóðleikhúsinu í júni s.l. Í höllinni, Goslokum og fleirri viðburðum. Molda hefur gefuð út nokkur tónlistarmyndbönd sem má finna á Youtube og á Facebook. Molda hefur verið í töluverði útvarpsspilun hjá Rás2 og einnig hefur tónlist okkar verið spiluð á X-inu og í Færeyska útvarpinu. Hljómsveitin á fullt af frumsömdu efni í geymslu sem bíður eftir að líta dagsins ljós og er þessa daganna í studíó skotgröfum. Næsta stóra verkefni hjá Molda er svo að spila nokkur lög á tónleikunum Ljúft að vera til sem haldnir eru í Eldborgarsal Hörpunnar í janúar. Þá er væntanlegt lag frá Moldamönnum 5. jan 2024. Hljómsveitina Molda skipa Albert Snæ Tórshamar - söngvari og gítarleikari Helgi Rasmussen Tórshamar gítarleikari Símon Geir Geirsson - trommari Dúni Geirsson - bassaleikari.

Foreign Monkeys var stofnuð á seinni hluta árs 2005 og sigraði svo Músíktilraunir í mars 2006.

Bandið er þekkt fyrir kraftmiklar framkomur á sviði og það í sterkri samsvörun við veðurhaminn sem kann að geysa endrum og eins við heimabæ þeirra, Vestmannaeyjar. Sveitin hefur komið fram á öllum helstu tónleikahátíðum landsins í gegnum tíðina. Stærstu framkomur sveitarinnar hafa verið á Þjóðhátíð í heimabæ þeirra Vestmannaeyjum en alls hefur sveitin komið fjórum sinnum fram á hátíðinni, á Iceland Airwaves fjórum sinnum og svo á Manchester tónleikum í Laugardagshöll árið 2006 frammi fyrir fullum sal. Foreign Monkeys hafa sent frá sér tvær plötur. Sú fyrri, “π (Pi)“ kom út í apríl 2009 og sú seinni “Return“ í apríl 2019, eða 10 árum síðar þegar bandið reis úr nokkura ára löngum dvala. Sumarið 2020 hóf sveitin vinnu við sína þriðju plötu og það úti í Álsey, einni úteyja Vestmannaeyja. Verkefnið var kvikmyndað í bak og fyrir og sjá má svipmyndir úr ferðinni í myndbandi sem kom út með fyrstu smáskífu sveitarinnar “Those That Suffer“ í janúar 2022. Foreign Monkeys sendi frá sér þrjár aðrar smáskífur á árinu 2022 sem heita We Steal From Ourselves, Feel Good og High og náðu þau öll hátt á X-Dominos lista Xins. Those That Suffer, We Steal From Ourselves og Feel Good náðu að vera á toppnum í samanlagt átta vikur. Í mars 2023 sendi sveitin svo frá sér fimmtu smáskífuna og nefnist hún Low. Henni hefur verið vel tekið í útvarpi og á streymisveitum líkt og fyrri útgáfur. Sveitin mun senda frá sér fleirri smáskífur á næstu vikum og mánuðum og munu þær koma út saman ásamt fleiri lögum í heilstæðu verki á vinyl og á streymisveitum undir lok árs 2023.


Nældu þér í miða fyrir helgina á sýningar þann 11. og 12. nóvember Miðasala opnar miðvikudaginn 8. nóvember, hún er opin virka daga á milli 16:00 - 20:00 og um helgar á milli 11:00 -13:30. Sýningar hefjast laugardag & sunnudag kl. 15:00


VÖLVULEIÐIN Í OFANLEITISTÚNI

Völvur á Íslandi er ein af þeim bókum sem Hólar gefa út fyrir þessi jól. Hún er eftir Sigurð Ægisson, guðfræðing og þjóðfræðing, og er rúmlega 400 blaðsíður að stærð. Þar er m.a. fjallað um á sjöunda tug völvuleiða, sem finna má heimildir um víða um land. Þar á meðal er Ofanleiti í Vestmannaeyjum. Hér er brot úr þeim kafla: Árni Óla (1888–1979) birtir í riti sínu, Álög og bannhelgi, sem kom út 1968, tvær frásagnir um völvuleiðin í Ofanleitistúni í Vestmannaeyjum. Sú fyrri er höfð eftir Sigurði J. Árness (1878–1968), fræðimanni og ættfræðingi, 1959. Þar segir: „Í Ofanleitistúni voru þrjár stórar þúfur, sem kallaðar voru Unurnar. Sagnir hermdu að þar hvíldu þrjár völvur og voru tvær þeirra nefndar Una eldri og Una yngri, en önnur deili vita menn ekki á þeim. Þessi völvuleiði voru friðhelg, mátti hvorki slá þau né raska á neinn hátt. Prestur var á Ofanleiti í Vestmannaeyjum á seinni hluta átjándu aldar, sá er Ari [Guðlaugsson] [1740–1809] hét. Hjá honum var vinnumaður frændi hans, er hét Edenhans [ekki vitað um fæðingar- eða dánarár], en oftast kallaður Hans. Var hann um tvítugt að aldri. Séra Ari þótti enginn búskaparmaður. Samt tók hann eitt sinn rögg á sig og bað Hans að slétta þýfið norðan við

bæinn og fékk honum ljá og reku. Þetta var eina rekan á bænum og alltaf notuð í fjósi, svo að hvorki mun hún hafa verið bitur né þrifaleg, en skaftið á henni var nærri greipardigurt. Hans varð lítt hrifinn af að vinna slíkt verk með slíkum áhöldum. Tók hann þó við þeim og gekk norður fyrir bæinn. Þar var þúfnareitur mikill. Þar sér Hans þrjár þúfur, sem bera af öllum um stærð. Þykir honum það bezt til frásagnar að hann ráðist á þessar þúfur. Gengur hann svo upp á eina þeirra og stingur þar niður skóflunni og hakkaði lengi á henni, því að bæði var grassvörðurinn seigur og rekan bitlaus, sem vænta mátti. Varð Hans þá heitt í skapi og bölvaði hann í sand og ösku, en slíku var hann ekki vanur. Að lokum tókst honum þó að stinga skóflublaðinu á kaf í þúfuna og ætlaði síðan að kippa henni að sér. En í sama bili fannst honum þrifið í herðar sínar eins og ætti að hnykkja sér aftur á bak. Hann hélt þá dauðahaldi í skófluskaftið, en svo voru átökin mikil, að skófluskaftið brotnaði um þvert, en hann hentist flatur aftur á bak og prjónaði þar fótum. Í sama bili ber prest þar að og sér hann hvernig komið var. Þá segir hann: „Ég gleymdi alveg að minnast á það við þig að hrófla ekki við þessum stóru þúfum. Þetta eru völvuleiði. Hér undir hvíla þrjár vitrar konur, sem vissu fyrir örlög manna, og það er harðbannað að hrófla við leiðum þeirra. Við skulum nú ná upp skóflublaðinu og fylla upp í rekufarið, og vona svo að fleira illt hljótist ekki af þessu.“ Í Krukksspá er getið um völvuleiðin í Ofanleitistúni og sagt að það geti haft hinar hræðilegustu afleiðingar ef við þeim sé hróflað. Þetta mun prestur hafa heyrt, því að það var á hvers manns vitorði í Vestmannaeyjum, en hann kom í veg fyrir það á þann hátt sem hér segir.“ Sigurgeir Jónsson (1942–), fyrrverandi kennari og blaðamaður, segir í ritinu Vestmannaeyjar — af

fólki og fuglum og ýmsu fleiru, sem kom út árið 2020: „[N]yrst í Ofanleitistúninu, ekki langt frá veginum, [var] að finna svonefnt völvuleiði og var sterklega varað við að hrófla við því. Til eru sögur um prest sem ekki fór að þeim ráðum, lét slá leiðið og farnaðist illa, bæði hrundi hjá honum búpeningur og eins varð heimilisfólk hans fyrir óþægindum vegna þessa. Páll H. Árnason [1906–1991], sem var síðasti ábúandi í Þorlaugargerði vestra, nytjaði Ofanleitistúnið um margra ára skeið og sló aldrei þennan blett, bar virðingu fyrir gömlum sögnum og venjum og storkaði ekki örlögunum að óþörfu. Nokkru eftir gos mun völvuleiðið gamla hafa verið jafnað við jörðu í jarðvinnu sem unnin var af gröfumanni sem ekkert vissi um staðhætti. Ekki mun honum hafa orðið meint af en vissulega er það leiðinlegt þegar sögulegar minjar, á borð við gamalt völvuleiði, eru þurrkaðar út, þó svo að um óviljaverk sé að ræða.“ Í bréfi, sem Árni Johnsen (1944– 2023) ritaði mér 14. ágúst 1989, sagði meðal annars: „Völvuleiðið í Ofanleitistúni er álagablettur. Þegar það var slegið eða nærri því höggvið á einhvern hátt kom eitthvað fyrir á prestssetrinu. Ég tel mjög mikilvægt að vernda þetta Völvuleiði, sérstaklega með tilliti til þess að nú fer fram einhverskonar búskapur á Ofanleitisjörðinni, anda- og kanínurækt og mig grunar að höggvið hafi verið nærri Völvuleiðinu. Sá er stundar þessa rækt kom að máli við mig fyrir fáum dögum og spurði mig hvort ég vissi um staðsetninguna, því honum þótti furðulegt að steypumót höfðu sprungið hjá honum og slíkt hafði aldrei skeð hjá honum sem trésmíðameistara í 25 ár. Mótin voru í Ofanleitistúninu og hafði hann jafnvel grun um að Völvuleiðið væri nú innan andagirðingarinnar.“


ALLT FYRIR IÐNAÐARMANNINN S tr a n dve gi 3 0

|

s. 4 8 1 1475

|

www.midstodin.is

|

midstodin@midstodin. is

|

/ midstodin


Viltu minnast látins ættingja eða vinar? Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi. Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Okkar ástkæri

ÁSGEIR KARLSSON

áður Vestmannabraut 31 Vestmannaeyjum varð bráðkvaddur í Plovdiv, Búlgaríu, fimmtudaginn 7. september. Nadia R. Ásgeirsdóttir Daníel S. Ásgeirsson Svanhildur Karlsdóttir

Jón Þorgilsson Jean Vennard Eyjólfur Pálmarsson

Jónas Karlsson Viktoria A. Pettypiece

Verð: 12.400 kr.


BLAÐBERASTARF EYJADREIFING leitar að duglegu og ábyrgu fólki til að bera út blöð og annað prentefni í Vestmannaeyjum. Dreifing fer fram alla miðvikudaga. Ef þetta er eitthvað sem gæti átt við þig, sendu okkur línu á eyjadreifing@eyjadreifing.is Hvetjum alla sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um óháð kyni og aldri.


MIÐ

15 NÓV

MIÐ

15 NÓV

MIÐ

Er nóvember þinn skoðunarmánuður?

15 NÓV

FIM

16 NÓV

FIM

HANDVERK & HITTINGUR

Kviku kl. 13:00 - 16:00

SÖNGDÍFUR SIGURRÓSAR

Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 17:00

SÖNGHÓPUR LALLA

Kviku kl. 17:00 - 18:00

DRENGJARADDIR LALLA

Vinaminni/Kviku kl. 17:00 - 18:00

Frumherji í Eyjum

16

SPILAVIST

Opnar kl. 13:00 á fyrsta degi og lokar kl. 12:00 á síðasta degi

FÖS

17

LEIKFIMI MEÐ ERNU JÓHANNESAR

Tímapantanir í síma 570 9090

ÞRI

SUNDLEIKFIMI MEÐ HRAFNHILDI HÖNNU

vikuna 20. - 23. nóvember

NÓV

NÓV

21 NÓV

Passamyndir Fasteignaljósmyndun Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com Fundir eru sem hér segir:

Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30

NÝJA

TANNLÆKNASTOFAN Flötum 29 Tímapantanir í síma: 481-1012 Neyðarsíminn: 844-5012

AL-ANON

Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI

tannsi@eyjar.is

KVIKU kl. 19:30

Íþróttahús kl. 10:00 - 11:00

Sundlaug Vestmannaeyja kl. 14:00 - 15:00

Frítt er í sundlaug íþróttamiðstöðvarinnar fyrir heimafólk 67 ára og eldri. Hressingarganga í Herjólfshöllinni alla daga kl. 08:00 - 12:00 Púttsalurinn pútt í kviku alla virka daga frá klukkan 13:00 - 14:00


KÖTLUJÖKULL Íslensk ullareinangrun 48.990kr,-

www.icewear.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 37. tbl 05. árg. by Leturstofan - Issuu