Kátt í Höllinni ehf var stofnað í ágúst 2021 af þeim Daníel Geir Moritz og Svani Gunnsteinssyni. Starfsemin fór hægt af stað en óhætt er að segja að kátt sé orðið í Höllinni. Markmiðið okkar er að Höllin verði félagsheimili Vestmannaeyinga og til okkar geti allir leitað með sína viðburði.
Í Höllinni er einnig Háaloftið sem er að mörgu leyti vanmetinn salur og á hann mikið inni.
Höfum við hýst árshátíðir, dansleiki, tónleika af öllum stærðum, skírnir, fermingaveislur, brúðkaup, afmæli, árgangsmót o.fl.
Ekki hika við að senda okkur línu og við getum eflaust fundið góða lausn á þínum viðburði.