Tígull 37.tbl 04. árg.

Page 1

Hrekkjavakan framundan

Laugardaginn 29. október milli kl. 18:00 - 20:30 munum við halda hrekkjavöku í Eyjum sem sífellt hef ur notið meiri vinsælda hér á landi og víða hefur skapast sú hefð að börn gangi í hús með „grikk eða gott“

Geðlestin er geðfræðsla sem byggir á þeirri staðreynd að við búum öll við geð, rétt eins og við erum öll með hjarta. Markmið þeirra eru m.a. að vekja athygli á mikilvægi geðheilsu.

Tígull heyrði í nokkrum leikurum sem taka þátt í Ávaxtakörfunni og fékk þau í spurt & svarað. Við munum einnig kynna fleiri leikara í Tígli í næstu viku.

Geðlestin og Flóni í heimsókn til FÍV Ávaxtakarfan frumsýnd um helgina 37. tbl. 04. árg. 26. október - 2. nóvember 2022 velkomin velkominí Höllinaí Höllina Verið Verið KÍKTU Á DAGSKRÁ Hallarinnar & Háaloftsins í Tígli vikunnar!

Hrekkjavakan

18:00 -

Laugardaginn 29. október milli kl. 18:00 - 20:30 munum við halda hrekkjavöku í Eyjum sem sífellt hefur notið meiri vinsælda hér á landi og víða hefur skapast sú hefð að börn gangi í hús með „grikk eða gott“. Undanfarin ár hafa börnin farið í þau hús sem eru skráð á lista yfir þátttöku og húseigendur tekið þátt með skreytingum. Gleðilega hrekkjavöku!

Hægt er að kíkja á þessi heimilsföng:

Ásavegur 10

Ásavegur 20

Ásavegur 24

Áshamar 14

Bessahraun

Bessahraun

Bessahraun 14

Birkihlíð 23

Brattagata 2

Brattagata 35

Brimhólabraut 10

Búastaðabraut 12

Búhamar 88

Faxastígur 8a

Foldahraun 40, 2. hæð lengst til hægri

Hásteinsvegur 49, efri hæð

Hásteinsvegur 50 nh

Hásteinsvegur 51

Hátún 8

Heiðarvegur 30

Heiðarvegur 36

Heiðarvegur 50

TÍGULL

DREIFING:

Herjólfsgata 7, efri hæð Hólagata 17 Hólagata 22 Hólagata 25 Hólagata 32 Hólagata 39 Hólagata 42 Hólagata 44 Hólagata 45 Hrauntún 23 Hrauntún 51 Hvítingavegur 10 Illugagata 6 (uppi) Illugagata 50 Illugagata 54 Túngata 18 (uppi) Skólavegur 6 - Skvísubúðin milli kl. 14-15 Skólavegur 32 Vallargata 10 Vesturvegur 11B Gult hús móti Apótekinu Vesturvegur 13B Reglubrautarmegin

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM: Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

5
7
Laugardaginn 29. október Milli kl.
20:30
Kynntu þér Aukakrónur á landsbankinn.is/aukakronur í Vestmannaeyjum 5% afsláttur 5% afsláttur 5% afsláttur 2% afsláttur 5% afsláttur 1,5% afsláttur 5% afsláttur 7,5% afsláttur 5% afsláttur 3% afsláttur 5% afsláttur 5% afsláttur 0,5% afsláttur 2% afsláttur 7% afsláttur5% afsláttur 3% afsláttur

Ávaxta

EVA APPELSÍNA Bryndís Guðjónsdóttir

Hvað ertu búin að vera lengi í LV? Byrjaði árið 2014.

Hvað hefuru tekið þátt í mörgum verkum?

Þetta er verk númer 8 sem ég tek þátt í.

Hvað einkennir karakterinn sem að þú leikur?

Hún er einfaldlega bara fegurst, flottust og fínust.

Er eitthvað sem þú tengir þig við karakterinn og hvað þá?

Okkur finnst báðum gaman að vera skvísur, ég gæti samt aldrei eytt svona miklum tíma fyrir framan spegilinn.

Hvað ertu annars að brasa fyrir utan að vera í Leikfélaginu?

Er að vinna í Tvistinum líka, allur aukatími fer svo bara í félagslífið eða svefn.

Hvaða app notaru mest í símanum? Spotify.

Hver er fyrirmyndin?

Mamma mín er fyrirmyndin mín.

Hvaða tónlist hlustaru mest á þessa dagana?

Hlusta eiginlega bara á bland af því besta, dálítið af öllu bara. Svo kann ég alltaf að meta gott hlaðvarp og þá er morðcastið í uppáhaldi hjá mér.

Hvað ertu búin að vera lengi í LV? Þetta er fyrsta árið mitt.

Hvað hefuru tekið þátt í mörgum verkum?

Þetta er fyrsta verkið mitt.

Hvað einkennir karakterinn sem að þú leikur?

Minn karakter leggur fyrst Mæju og Geddu í einelti en svo þegar hún sér að það er rangt og allir eru vinir þá tekur hún þátt í því að vera vinur allra.

Er eitthvað sem þú tengir þig við karakterinn og hvað þá? Já, við erum báðar mjög fjörugar og orkumiklar.

Hvað ertu annars að brasa fyrir utan að vera í Leikfélaginu?

Ýmislegt t.d. skólinn, handboltaæfingar, fermingafræðsla, KFUM/ KFUK og vera með vinum.

Hvaða app notaru mest í símanum?

Tiktok, snapchat og Blockin’ Color.

Hver er fyrirmyndin?

Amma Ásta María.

Hvaða tónlist hlustaru mest á þessa dagana?

ABBA og The Jackson 5.

Hvað ertu búin að vera lengi í LV?

Ég byrjaði fyrir 5 árum, 2017 þegar við sýndum Klaufa og Kóngsdætur.

Hvað hefuru tekið þátt í mörgum verkum?

Ég hef tekið þátt í fimm verkum.

Hvað einkennir karakterinn sem að þú leikur?

Palla Pera er stuðbolti og fer ekkert án Podda.

Er eitthvað sem þú tengir þig við karakterinn og hvað þá?

Palla er orkumikil og kemur oft með misheppnaða brandara sem henni finnst sjálfri vera sprenghlægilegir. Ég tengi.

Hvað ertu annars að brasa fyrir utan að vera í Leikfélaginu?

Ég er í fullu námi í framhaldsskól anum. Ég er líka í fullu söngnámi og hljómsveit.

Hvaða app notaru mest í símanum? Líklega nota ég mest Snapchat.

Hver er fyrirmyndin? Andy Biersack.

Hvaða tónlist hlustaru mest á þessa dagana?

Rokk.

LITLA LÍMÓNA Ásta María Helgadóttir PALLA PERA María Fönn Frostadóttir
fást hjá www.skipalyftan.is // 488 3550 30% AFSLÁTTUR af allri málningu & málningaráhöldum til 30. nóvember gæðamálning úti og inni

GEÐLESTIN OG FLÓNI KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL FÍV

Þann 20.október sl. var salurinn í FÍV þéttsetinn þar sem nemendur voru mættir til þess að hlusta á erindi frá Geðlestinni og tónlistaratriði frá Flóna. Geðlestin er geðfræðsla sem byggir á þeirri stað reynd að við búum öll við geð, rétt eins og við erum öll með hjarta. Markmið þeirra eru m.a. að vekja athygli á mikilvægi geðheilsu og verndandi þáttum hennar.

Þær Guðný Guðmundsdóttir (frá Geðhjálp) og Jó hanna Stefáns Bjarkardóttir (frá Rauða krossinum) töluðu um mikilvægi þess að rækta geðheilsu sína. Öflug geðrækt er besta ráðið til að takast á við lífsins áskoranir. Þær lögðu áherslu á að eðlilegasti hlutur í heimi væri að biðja um hjálp, að tjá tilfinningar sín ar og að vera óhrædd við að spyrja spurninga. Það er svo hjálplegt að spjalla við einhvern um það sem gengur á í lífi manns. Jóhanna undirstrikaði einmitt að ekkert vandamál er of lítið eða of stórt fyrir hjálp arsímann 1717, hún og samstarfsfólks hennar þar er alltaf til staðar. Guðný talaði um sína eigin reynslu á kvíða og hvernig hún tæklaði hann með því að stíga reglulega út fyrir þægindarammann og rækta þannig með sér seiglu og þrautseigju. Þær kynntu nemendur fyrir mottóinu ”It’s not a bad life, it’s just a bad day” enda er lífið stundum leiðin legt og erfitt en það þýðir ekki endilega eitthvað alvarlegt eða slæmt. Við upplifum öll alls konar mót vind í lífinu og það á að vera jafn eðlilegt að hlúa að geðheilsunni sinni eins og líkamlegri heilsu. Þær nefndu alls konar tækni til þess að koma sér upp heilbrigðum venjum sem hlúa að geðinu t.d. iðka þakklæti, þjálfa upp jákvæðar hugsanir, umburðar lyndi, tjá sig og auðvitað tala sjálfa sig upp en ekki niður. Nemendur hlustuðu með áhuga og hún Jó hanna tók það sérstaklega fram að hún hefur aldrei upplifað slíka athygli áður ”það er bara enginn með símann sinn uppi”. Hápunktur heimsóknarinnar var þegar tónlistarmaðurinn Flóni steig á svið, nemendur tóku vel á móti honum og sumir töluðu um að vera ”starstruck”. Það var greinilegt að margir nemend anna kunnu hvert einasta orð í lagatextunum hans. Sumir leyfðu sér meira að segja að dansa á meðan aðrir óskuðu þess að stólarnir væru ekki fyrir svo þeir gætu fengið danspláss.

Virkilega góð heimsókn frá flottu fólki.

FRÉTTAHORN FÍV

Verið Verið

velkomin velkomin

Miðasala á tix.is/hollin

í Höllinaí Höllina
LÉTTÖL 2.25%

Kátt í Höllinni ehf var stofnað í ágúst 2021 af þeim Daníel Geir Moritz og Svani Gunn steinssyni. Starfsemin fór hægt af stað en óhætt er að segja að kátt sé orðið í Höllinni. Markmiðið okkar er að Höllin verði félags heimili Vestmannaeyinga og til okkar geti allir leitað með sína viðburði. Í Höllinni er einnig Háaloftið sem er að mörgu leyti vanmetinn salur og á hann mikið inni.

Höfum við hýst árshátíðir, dansleiki, tónleika af öllum stærðum, skírnir, fermingaveislur, brúðkaup, afmæli, árgangsmót o.fl. Ekki hika við að senda okkur línu og við getum eflaust fundið góða lausn á þínum viðburði.

Aðeins 160 miðar í boði

Hvar man ekki eftir lögum eins og Vegbúin, Lucky one, Kærleikur og tími, Þjóðvegur 66 og Bein leið? Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að sjá og heyra KK í mikilli nánd. Miðaverð litlar 4.900 kr í forsölu á Tix og 5.900 kr við hurð. Húsið opnar kl 20:00 og tónleikarnir hefjast á mínútunni 21:00.

ÍBV

Hver vill ekki fá alvöru síldarveislu til að koma sér í jólagírinn? Aðventusíld ÍBV verður haldin í þriðja sinn þegar desember gengur í garð. Salötum verður hægt að sletta á nýbakað rúgbrauð frá Eyjabakarí. Þá verður hinn geysivinsæli jóla Tuborg mættur!

Hægt er að panta miða á knattspyrna@ibv.is en einnig verður hægt að mæta bara á staðinn. Miðaverð er 2.900 kr.

Kátt í Höllinni ehf – hollinivestmannaeyjum@gmail.com - 8685460 – Veislu-, dans- og ráðstefnuhús Vestmannaeyja. FÖSTUDAGUR 27. okt LAUGARDAGUR 26. nóv KÓTILETTUKVÖLD ARI ELDJÁRN Hvað er betra en að skella sér á kótilettu hlaðborð og styrkja um leið gott málefni? Nánar á Facebook í hópnum Kótilettuklúbbur Vestmannaeyja. Ari Eldjárn er okkar fremsti uppistandari og verður sannarlega kátt í Höllinni þegar hann prófar sig áfram með geggjað grín. Miðaverð er 4.900 kr og er forsala á Tix.is. KK Á HÁALOFTINU AÐVENTUSÍLD
FÖSTUDAGUR 4. nóv FIMMTUDAGUR 1. des

Einsi kaldi er þekktur fyrir jólahlaðborð sín og í ár verða þau föstudaginn 9. des og laugar daginn 10. des. Geggjaður matseðill þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Þegar vel er liðið á borðhald hefst svo tónlistarveisla sem kemur þér í jólagírinn. Eyjaraddir munu fylla Höllina ljúfum tónum við undirleik hljómsveitar Gísla Stefánssonar. Sérstakur gestur í ár verður svo enginn annar en Stefán Hilmarsson! Húsið opnar 19.30 bæði kvöldin. Borðapantanir fara fram á hollinivestmannaeyjum@gmail.com og er miðaverð 13.900 kr. Tryggið ykkur miða á besta jólahlaðborð landsins!

Nánar auglýst síðar

FRÍTT INN

Skítamóralspopparinn Einar Ágúst mætir með gítarinn og heldur uppi alvöru stuði eins og honum einum er lagið.

FÖSTUDAGUR 6. jan 2023 FIMMTUDAGUR 22. des FÖS & LAU 9. & 10. des ÞRETTÁNDAGLEÐI JÓLAHLAÐBORÐ DESEMBERTÓNLEIKAR með Einari Ágústi Einsa Kalda & Hallarinnar ÍBV
Laugardagur kl. 20:00 Halloween ends Black Adam Þú getur fundið næstu bíómyndir og sýningartíma á www.eyjabio.is SAMVERA - FRÆÐSLA - SKEMMTUN ÞRIÐJUDAGINN 8.NÓVEMBER Aðalfundur kl. 16:30 Alzheimerkaffi kl. 17:00 Allir velkomnir Alzheimerfélag Vestmannaeyja Kvika 3. hæð Dagskrá: - Kosning stjórnar -Skýrsla stjórnar lögð fram - Reikingar félagsins lagðir fram - Önnur mál Gestur verður Sonja Finnsdóttir nýráðin iðjuþjálfi Vestmannaeyjabæjar. Hún ætlar að kynna starf iðjuþjálfa. - Kaffihlaðborð & tónlistaratriði. Kaffigjald: 500 kr. Alzheimerkaffi

Ofureinfalt Hrekkjavökunammi!

Hráefni:

Oreo kexpakkar Hvítt súkkulaði Matarlitur Kökuskraut Grillpinnar

Aðferð:

Grillpinnar teknir í tvennt og settir á milli á oreokexinu. Hvítt súkkulaði brætt yfir vatns baði og matarlit bætt út í þegar að súkkulað ið er bráðnað.

Leyfa súkkulaðinu að kólna aðeins.

Dýfa Oreopinnanum í volgt súkkulaðið og strá kökuskrauti yfir. Einnig er hægt að kaupa nammi augu í verslunum.

Er kominn tími á að skipta um tímareim? Eða að smyrja bílinn?

Bókaðu tíma fyrir bílinn þinn í síma 481 1216
UPPSKRIFT VIKUNNAR
Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com Fjölskyldumyndir fyrir jólin Mánudaga kl. 20.30 Breyttur opnunartími frá og með 1. nóvember: Opið virka daga 8:00 - 12:00 og 13:00 -17:45 Laugardaga 11:00 - 15:00

Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu

SIGRÍÐAR INGÓLFSDÓTTUR

sem lést mánudaginn 10. október. Sérstakar þakkir fær starfsfólk HSU í

Willum Pétur Andersen

Þórunn Þorsteinsdóttir

Inga Hanna Andersen

Willum Andersen

Pétur Andersen

Ágúst Haukur Jónsson

Agnar Ingi Hjálmarsson

Susana Loreto Morales Gavilan

Bryndís Bogadóttir barnabörn og barnabarnabörn.

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Prentum sálmaskrár

Við tökum að okkur að setja upp og prenta sálmaskrár. Hafðu samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.

ÞRAUTIR

RIDDARI RYK HONDA GLITRANDI HJÁLMUR MALBIK MÓTORFÁKUR HJÓL SNÓT KVÖLDSÓLARLAG

Ávaxtakarfan

Hvað ertu búin að vera lengi í LV? Ég er búinn að vera síðan 2016.

Hvað hefuru tekið þátt í mörgum verkum? Ég hef tekið þátt í 10 verkum, held ég.

Hvað einkennir karakterinn sem að þú leikur? Hann er frekur, stjórnmálum, snöggreiðist, sjálfselskur og bara svolítið óöruggur ef maður lítur vel á hegðun hans.

Er eitthvað sem þú tengir þig við karakterinn og hvað þá? Stórt skap bara haha.

Hvað ertu annars að brasa fyrir utan að vera í Leikfélaginu?

Ég er í múraranámi og er að vinna.

Hvaða app notaru mest í símanum? Snapchat held ég eða Instagram.

Hver er fyrirmyndin?

Usss það eru nokkrir. Ætli að ég segi ekki að það sé pabbi og Eyþór Ingi.

Hvaða tónlist hlustaru mest á þessa dagana? Gamla góða rokkið bara.

Hvað ertu búin að vera lengi í LV? Síðan í Klaufum og kóngsdætrum árið 2017.

Hvað hefuru tekið þátt í mörgum verkum?

Já, ég hef leikið í Klaufum, Línu, Síðan eru liðin mörg ár, tvær sýningar í 10 litlum Eyjapeyjum og núna Ávaxtakörfuni, en ég vann bakvið tjöldin í Latabæ og 10 litlum Eyjapeyjum.

Hvað einkennir karakterinn sem að þú leikur?

Ég leik Geddu gulrót, grænmeti sem að kemur í ávaxtakörfuna. Gedda er hugrökk, jákvæð, glaðlind, gott efni í leiðtoga og með mikla réttlætiskennd og seiglu.

Er eitthvað sem þú tengir þig við karakterinn og hvað þá?

Jaá, ég er kannski ekki persóna í barnaleikriti en bý alveg yfir sumum sömu einkennum og Gedda.

Hvað ertu annars að brasa fyrir utan að vera í Leik félaginu?

Það má eiginlega finna mig í leikhúsinu allan daginn alla daga vikunar á þessu leiktímabili afþví ég er líka að vinna í búningum, propsi og leikmynd. En annars er ég í fullri vinnu á Hótel Vestmannaeyjar.

Hvaða app notaru mest í símanum? Messenger.

Hver er fyrirmyndin?

Bara svona samblanda af mörgum í mínu lífi.

Hvaða tónlist hlustaru mest á þessa dagana? Soul, rokk og 70s tónlist.

Ávaxtakarfan 28. OKTÓBER KL. 20:00 29. OKTÓBER KL. 15:00 30. OKTÓBER KL. 15:00 FRUMSÝNING UPPSELT! Miðapantanir í síma 852 1940

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.